POPULARITY
Samskipti, streita, fjarvistir og félagsleg sjálfbærni á vinnustöðum er nokkuð sem fyrirtækið Auðnast vinnur með og leggur áherslu á gott umhverfi fyrir starfsfólk og vinnustaði. Ragnhildur Bjarkadóttir sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd kom í þáttinn í dag og við til dæmis veltum fyrir okkur hvað felst í orðinu vinnuvernd, en hér á árum áður þýddi það aðallega gulur hjálmur en í dag svo miklu meira. Svo skoðuðum við menntamálin, nánar tiltekið nýja þáttaröð sem heitir Kaflaskil. Í þeim er farið djúpt ofan í stöðuna í menntamálum, þar sem talað er við kennara, skólastjóra og nemendur. Er A í einum skóla það sama og A í öðrum? Hvernig ná skólarnir að sinna nemendum með fötlun eða nemendum með erlendan bakgrunn? Guðrún Hálfdánardóttir, kollegi okkar hér á Rás 1 og umsjónarmanneskja þáttaraðarinnar, var hjá okkur í dag og fór betur með okkur yfir menntamálin og efni þáttaraðarinnar og við fengum að heyra tvö brot úr þáttunum, úr viðtali Guðrúnar við Sigrúnu Blöndal deildarstjóra í 6.- 10. bekkjar í Egilsstaðaskóla. Hægt er að hlusta á þættina á sunnudögum á Rás 1 og í spilara RÚV á ruv.is Tónlist í þættinum í dag: Nú liggur vel á mér / Lummurnar, útsetning Gunnar Þórðarson (Óðinn G. Þórarinsson, texti Númi Þorbergsson) Nútíminn / Þursaflokkurinn (Egill Ólafsson, texti Sigurður Bjóla Garðarsson) Gaggó Vest / Eiríkur Hauksson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Listakonan Inga Elín hefur frá unga aldri tileinkað líf sitt listinni. Ástríða Ingu á keramík hófst í Myndlistaskóla Reykjavíkur og elti hún draum sinn um að verða listamaður og hönnuður í Listháskóla Íslands. Þaðan var förinni heitið til Kaupmannahafnar þar sem hún stundaði nám við Skolen for Brugskunst sem er betur þekktur í dag sem Denmark Design. Í byrjun árs 2020 enduropnaði Inga Elín verslun sína við Skólavörðustíg eftir 25 ára fjarveru og í þetta skiptið með syni sínum Kristni Ísaki, sem sér um skipulags- og markaðsmál fyrirtækisins. Við heimsóttum Ingu Elínu og Kristinn á vinnustofuna út á Granda. Það er mánudagur og þá eru fjármálin á mannamáli á dagskrá í þættinum og Georg Lúðvíksson sérfræðingur í heimilisbókhaldi kom til okkar og hélt áfram að fræða okkur. Í sinn talaði Georg um utanaðkomandi áhrif sem hafa áhrif á okkur og okkar fjármálahegðun, eins og til dæmis verðbólgu, hrun og svo framvegis. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Sigríður Rún Tryggvadóttir, prófastur í Austurlandsprófastsdæmi og prestur í Egilsstaðaprestakalli. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfunda hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigríður talaði um eftirfarandi bækur og höfundar: Játning e. Ólaf Jóhann Ólafsson Þessir djöfulsins karlmenn e. Andrev Walden Guð hins smáa e. Arundhati Roy Veisla undir grjótvegg, smásögur e. Svövu Jakobsdóttur og svo var það bók bókanna, Biblían. Tónlist í þættinum í dag: Bíttu í það súra / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason) Byrjaðu í dag að elska / Geirfuglarnir (Rokkmúsirnar) Það er svo ótalmargt / Ellý Vilhjálms (Jackie Smith, Derry Lindsay, texti Jóhanna G. Erlingsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON Við byrjuðum þennan síðasta þátt ársins með því að spá í veðrið auðvitað. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingurinn fór með okkur yfir veðurárið sem er að líða. Það var um margt óvenjulegt. Hér fyrir neðan er uppgjörið í textaformi í fullri lengd. Hann fór svo auðvitað aðeins yfir áramótaveðrið og veðrið næstu vikuna. Guðjón Helgi Ólafsson sendi okkur í dag síðasta vinkillinn að sinni og fjallaði hann um jólahefðir, heimsósóma, persónulegan ósóma og fréttir á jóladagsmorgun. Við kveðjum Guðjón Helga sem hefur verið fastagestur hjá okkur á mánudögum sl. tvö árin og þökkum honum fyrir góða vinkla, en þeir eru 107 talsins. Ljósmengun var umfjöllunarefni póstkortsins sem við fengum í dag frá Magnúsi R. Einarssyni. Hann sagði fyrst frá hinum íburðarmiklu jólaljósaskreytingum í Eyjum þar sem snarhækkandi orkuverð hefur ekkert dregið úr jólaljósadýrðinni í Vestmannaeyjum. Í framhaldinu sagði hann frá því hvernig raflýsingin, sem hefur aðeins verið til í rúma öld, getur haft skaðleg áhrif á heilsu fólks með því að trufla hina náttúrulegu hrynjandi ljóss og myrkurs á jörðu og ennfremur hvernig ljósmengunin hefur rænt okkur fegurð næturinnar og stjörnuhiminsins. Ársuppgjör Einars Sveinbjörnssonar - veðrið 2024 Árið 2024 verður í veðurfarslegu tilliti helst minnst fyrir það hve kalt það reyndist. Í það minnsta ef mið er tekið af síðustu tveimur áratugum eftir að tók að hlýna um og fyrir aldamótin. Ísland sker sig því verulega úr hvað hita jarðar áhrærir, en 2024 stefnir á heimsvísu í að verða enn eina ferðina hlýjasta ár frá upphafi mælinga. Í Reykjavík verður árið það kaldasta frá 1995 og á landsvísu trúlega frá því 1998. Hitafarið líkist frekar því sem var hér á árabili sem kallast kalda tímabilið og varði frá um 1965 – 1995. En líklega er þetta fráviksár eitt af mörgum sem verða hér alltaf annað slagið, sem skera sig úr, enda veðráttan hér þekkt fyrir afar mikinn breytileika eins og við þekkjum. Sérstaklega þótti síðari hluti sumars vera kaldur sem og haustmánuðirnir. Í raun athyglisvert og fréttnæmt að í Reykjavík mældist hitinn undir meðallagi átta mánuði í röð, frá maí – des. Þá er miðað við meðaltalið 1991-2020. Úrkoma var hins vegar í meðallagi í Reykjavík, en um 20% meiri en í meðalári á Akureyri. Dálítið misskipt og eigum eftir að fá samanburð fyrir Suðurland og eins Vesturland þar sem ég held að endurteknar stórrigningar í sumar vegi þungt. Mikið vatnsveður á Snæfellsnesi 13.-14 júlí og sólarhringsúrkoma 227 mm. í Grundarfirði og jafnframt met á þeim stað. Svo mikil rigning að sumarlagi heyrir til tíðinda. Í raun má segja að júlímánuður hafi verið sannkallaður rigningarmánuður sunnan- og vestanlands og þannig voru sólskinsstundir í Reykjavík markvert færri en að jafnaði. En gerum upp árið að öðru leyti: Janúar þótti fremur kaldur og umhleypingasamur þegar frá leið. Eins var kalt í febrúar, en talsvert um froststillur. Litlar breytingar í mars, en þá var NA-átt ríkjandi og snjóaði norðan- og austanlands. Dálítið um það að snjóflóð féllu á vegi, en annars var veturinn að mestu laus við mikið óveður eða alvöru vetrarlægðir. Apríl var stilltur, en fremur kaldur og áfram ríkjandi NA- og N-áttir. Sólin skein linnulítið suðvestanlands og með sólríkari aprílmánuðum í Reykjavík. Það voraði vel, svona heilt yfir, eða þar til sló verulega í bakseglin með nokkuð langvinnu norðanhreti sem gekk yfir landið í byrjun mánaðarins. Snjóaði óvenju mikið norðanlands, mældust þannig 43 sm. í Vaglaskógi. Af hlaust fugladauði og tjón fyrir bændur. Eins voru umtalsverðar samgöngutruflanir miðað við árstíma. Sjálfur mat ég það svo að ekki hefði gert jafn slæmt hret á þessum árstíma í trúlega 90 ár og eldri bændur norður í Þingeyjasýslu með gott veðurminni voru sama sinnis. Sumarið þótti frekar slappt og endasleppt. Það gerði góðan kafla austanlands seint í júní og sunnan- og vestanlands náðust ágæt hey áður en lagðist í vætutíð. Aftur koma ágætur kafli í nokkra daga um miðbik júlí og þá komst hitinn í 27,5 stig á Egilsstaðaflugvelli sem jafnframt var hæsti hiti ársins. Fyrir mánaðarmótin lagðist í N-áttir og hófst þá afbrigðilegur veðurkafli sem stóð fram í september. Kalt og úrkomusamt um land allt og með lægsta meðalhita á þessari öld. Hún var einkennileg staða veðurkerfanna sem sást best á því að í ágúst mældist lægsti meðalloftþrýstingur, a.m.k. suðvestanlands, frá upphafi mælinga 1820. Kalda tíðin hélt áfram og september var sá kaldasti á landinu í 19 ár. Áfram var kalt fram á haustið, en tíðin fremur hæglát. Veðrið skipti síðan algerlega um ham snemma í nóvember, þegar gerði tveggja vikna nokkuð óvenjuleg hlýind með nokkuð hvössum sunnanáttum. Voru slegin nóvemberhitamet á fjölda veðurstöðva. Hvergi hlýrra en á Kvískerjum með 23,8 stig. Hæsti hiti sumarsins í Reykjavík var til samanburðar 17,4 stig! Leysingar og vatnavextir fylgdu með grjóthruni og skriðuföllum. Um miðjan mánuðinn snerist síðan aftur í kaldar N-áttir og umskiptin voru mjög glögg. Endaði mánuðinn á því að vera undir hitameðaltalinu um nánast allt land. Desember er ekki liðinn, hann verður enn einn kaldi mánuður ársins. Markverðar voru leysingar með talsverðum vatnavöxtum í kring um 10.des og síðan útsynningurinn um jólin með ófærð á milli landshluta, einkum á þorláksmessu og jóladag. Tónlist í þættinum: Myrkur og mandarínur / Hljómsveitin Eva (Hljómsveitin Eva - Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir) Nýársmorgunn / Sigurður Guðmundsson(Bragi Valdimar Skúlason) Ding Dong / Kór Langholtskirkju (erl. útsetning Anders Örwall, texti Gunnlaugur V. Snævarr) Á jólunum er gleði og gaman / Eddukórinn (Höf. ókunnur, texti Friðrik G. Þorleifsson)
Frisch vermählt starten Steff und Isabelle Felix im Mai 2022 ins grosse Abenteuer auf Island. Dort übernehmen die beiden ein riesiges Anwesen mit drei Ferienwohungen. Zusätzlich bauen sie Tiny-Häuser. Steff und Isabelle Felix sehnten sich nach mehr Luft, Freiheit und einem Leben in der Abgeschiedenheit. Dieses Fleck Erde haben sie vor rund zwei Jahren auf Island gefunden. Island ist nach Grönland das am dünnsten besiedelte Land Europas. Das Paar hat ein grosses Anwesen im Osten der Insel gekauft. Die nächste grössere Stadt heisst Egilsstaðir. Das Grundstück ihrer Ferien-Lodge ist gigantisch. Sogar ein Teil eines Sees gehört dazu. Der nächste Nachbar lebt rund einen Kilometer von ihnen entfernt. Mittlerweile stehen auch schon drei weitere schmucke Tiny-Häuser mit Blick auf den See, die sie an Touristen vermieten. «Wir leben hier endlich unseren lang ersehnten Traum», schwärmt Steff Felix. Das Paar ist in der aktuellen Staffel von «Auf und davon» zu sehen. Jeweils am Freitag, um 21 Uhr im Schweizer Fernsehen SRF1. Viel Teamwork gefragt Isabelle und Steff Felix sind ein eingespieltes Team. Die ehemalige Immobilienmaklerin und der Eventmanager haben auf dem grossen Anwesen ständig was zu tun. Die Gäste bekochen, putzen und waschen. Auch handwerklich packen die beiden gemeinsam mit an, sagt der gelernte Steinmetz Steff Felix: «Es macht uns Spass und schweisst uns noch mehr zusammen. Langweilig wird es hier nie!»
Við ræddum stöðu ríkisstjórnarinnar og veturinn framundan við Stefaníu Óskarsdóttur, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur í hvalveiðimálinu kom henni ekki á óvart, en það er bara eitt af fjölmörgum ágreiningsmálum. Stefanía á von á hörðum vetri í pólitíkinni. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, sagði okkur frá baráttu íslensku flugfélaganna um flugmenn. Við ræddum líka um flug til Akureyrar og Egilsstaða frá meginlandi Evrópu og um nýjar reglur borgaryfirvalda í New York, sem gætu þýtt að framboð á Airbnb íbúðum dragist saman um 70 prósent. Í lok þáttar kom til okkar Sigríður Pétursdóttir kvikmyndafræðingur. Tilefnið er Klassíkin okkar, sem verður í kvöld, og þemað að þessu sinni er kvikmyndatónlist. Sigríður valdi þrjú tónverk úr kvikmyndum og sjónvarpi og sagði okkur frá þeim. Umsjónarmenn: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Horacio Rivera - Tango por una cabeza Jóhann Helgason Tónlistarmaður, Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar, Karlakór Keflavíkur - Yaketty yak, smacketty smack. Ragnhildur Gísladóttir - Draumaprinsinn. Ennio Morricone - Love Theme from Cinema Paradiso Henry Manchini - Two for the Road Julee Cruise - Falling

Spegillinn 28. mars 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Guðrún Sólveig Sigurðardóttir, sem vaknaði upp við að fá snjóflóð inn um svefnherbergisgluggann sinn í Neskaupstað í gærmorgun segir tilfinninguna skrítna, en stuðningur samfélagsins skipti miklu. Rúnar Snær Reynisson kom sjóleiðina til Neskaupstaðar í dag. Hann ræddi við Guðrúnu Sólveigu og Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóra í Fjarðabyggð. Deilt er um það fyrir dómi hvort hoppukastali sem tókst á loft í hitteðfyrra svo börn slösuðust alvarlega var festur í samræmi við leiðbeiningar framleiðenda. Aðalsteinn Ingi Guðmundsson, varð vitni að slysinu og líkir því við martröð. Orkumálaráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins samþykktu í dag lög sem banna sölu bensín og díselbifreiðar árið 2035. Þeir féllust hins vegar á kröfu Þjóðverja um að leyfa bifreiðar sem ganga fyrir svokölluðu rafrænu eldsneyti. Björn Malmquist sagði frá, brot úr máli Ebbu Busch orkumálaráðherra Svía. Flugfélagið Condor hefur hætt við að fljúga frá Frankfurt til Akureyrar og Egilsstaða. Það er Arnheiði Jóhannsdóttur framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands vonbrigði. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við hana. Spáin fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu var opinberuð í dag, en 13 dagar eru í fyrsta leik deildarinnar. Íslandsmeisturum Breiðabliks er spáð titlinum annað árið í röð. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari liðsins, segir spána þó hafa litla þýðingu. --------------- Þó að hægt hafi á fasteignamarkaði er langt frá því að þar ríki frost, segir Kári S. Friðriksson, hagfræðingur hjá Húsnæðis og mannvirkjastofnun. Hann á frekar von á því að verðið standi í stað en að það lækki. Áhrif vaxtabreytinga séu ekki komin fram að fullu. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann. Norður-Kóreumenn birtu í dag í fyrsta sinn myndir af kjarnaoddum sem hægt er að koma fyrir á skammdrægum eldflaugum. Með þeim er hægt að hæfa skotmörk í Suður-Kóreu. Ásgeir Tómasson sagði frá. Ísland er mikilvæg varpstöð og búsvæði mófugla, eins og heiðlóu, spóa, skógarþrasta og þúfutittlinga. Um 85 prósent allra mófugla verpa á láglendi landsins og landnotkun þar ræður framtíð mófuglastofna. Vísbendingar eru um að mófuglum sé að fækka verulega. Bjarni Rúnarsson ræddi við Aldísi Ernu Pálsdóttur er nýdoktor í líffræði á Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Suðurlandi

Dómari í hryðjuverkamálinu íhugar að vísa hryðjuverkalið málsins frá. Báðir sakborningar neituðu sök við þingfestingu í dag. Læknir sem grunaður er um að valda sex sjúklingum ótímabærum dauða er aftur kominn til starfa á Landspítala. Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt að fara í tímabundið átaksverkefni í samráði við sjálfstætt starfandi barnalækna og barnageðlækna til þess að stytta biðlista eftir ADHD-greiningu. Skipulagsstofnun telur að umferð í gegnum miðbæ Egilsstaða verði áfram mikil þrátt fyrir að nýr vegur verði lagður framhjá bænum í tengslum við Fjarðarheiðargöng. Kostir felist í að beina umferðinni áfram í gegnum miðbæinn og nær væri að bæta sambúð vegar og byggðar. Innanríkisráðherra Úkraínu sem lést í þyrluslysi í morgun var einn nánasti samstarfsmaður Volodymyrs Zelenskys forseta. Líklegt þykir að þoka og rafmagnsleysi hafi valdið slysinu. Skatttekjur ríkisins af hverjum bíl hafa dregist saman um þrjátíu prósent á áratug. Á sama tíma hefur bílum fjölgað um þriðjung og útgjöld til vegakerfisins hafa stóraukist. ----- Þoka grúfði yfir Kænugarði og nágrenni í morgun þegar einni af þyrlum Neyðarþjónustu Úkraínu hlekktist á. Hún féll logandi til jarðar í bænum Brovary, um tuttugu kílómetra norðaustan við Kænugarð. Níu manns sem voru um borð létust, þrír starfsmenn Neyðarþjónustunnar og sex úr starfsliði úkraínska innanríkisráðuneytisins. Þeirra á meðal voru Denis Monastyrsky innanríkisráðherra, Yevhen Yenin, aðstoðar-innanríkisráðherra, og Yuriy Lubkovych ráðuneytisstjóri. Fjögur börn og fjórir fullorðnir viðbótar létust þegar þyrlan féll til jarðar á leikskóla. Hluti skólabyggingarinnar stórskemmdist. Úkraínskir fjölmiðlar hafa eftir lögreglunni að 25 til viðbótar hafi slasast, þar á meðal tíu börn. Nokkrir eru alvarlega slasaðir að sögn talsmanns forsetaskrifstofunnar í Kænugarði. Hann greindi fréttamönnum frá því að sendinefnd innanríkisráðuneytisins hefði verið á leið til borgar þar sem úkraínskir hermenn og innrásarlið Rússa berjast hatrammlega um þessar mundir. Fjöldi fólks varð vitni að þyrluslysinu. Þeirra á meðal var Vira Sebalo. Hún sagðist í viðtali við úkraínska ríkissjónvarpið hafa heyrt mikinn hávaða yfir háhýsi í grenndinni. Fimm mínútum síðar kvað við sprenging. Mikill eldur blossaði upp og þyrlan féll logandi til jarðar. Ásgeir Tómasson segir frá. Því er stundum fleygt að ákveðin öfl séu í stríði gegn einkabílnum. Sé það raunin er óhætt að segja að þessum öflum gangi illa -- þau séu raunar að skíttapa. Skráðum ökutækjum hefur nefnilega fjölgað um þrjátíu og fimm prósent á Ísl

Bogi Ágústsson var með okkur í dag að venju. Hann fjallaði um stjórmálin í Færeyjum, um Bandaríkjaheimsókn Úkraínuforseta og framlög Bandaríkjanna til úkraínskra varna gegn Rússum. Svo var haldið til Argentínu þar sem þjóðin er enn í sigurvímu eftir að fótboltalandsliðið vann HM. En þegar hún rennur af fólki tekur veruleikinn við og hann er dapur; miklir efnahagserfiðleikar eru í landinu. Illviðrið og ófærðin á dögunum lék marga grátt, ekki síst ferðalanga í millilandaflugi. Það má segja að allt hafi farið í skrúfuna. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fylgdist með atburðarásinni og hann tók þetta saman fyrir okkur. Við ræddum matarleysi í flugstöðunni, upplýsingamiðlun til flugfarþega og áhrif svona lagaðs á ímynd landsins. Í lok þáttar slógum við á þráðinn til Herdísar Mögnu Gunnarsdóttur, bónda á Egilsstaðabúinu og formanns kúabænda, og spurðum hana út í hvernig jólunum er háttað fjósum landsins. Í upphafi þáttar var einnig spilað innslag frá Ágústi Ólafssyni fréttamanni sem var á ferð á Þórshöfn á dögunum. Þar er verið að undirbúa opnun þekkingarmiðstöðvar þar sem Landsbankinn var áður til húsa. Langanesbyggð keypti húsið en Þekkingarnet Þingeyinga sér um starfsemina. Ágúst hitti Heiðrúnu Óladóttur verkefnisstjóra hjá Þekkingarnetinu. Umsjónarmenn: Björn Þór Sigbjörnsson og Gígja Hólmgeirsdóttir Tónlist: 5 mínútur í jól - Lón Fairytail of New York - Pogues og Kirsty McColl It's the most wonderful time of the year - Andy Williams Það snjóar - Lón I'll be home for Christmas - Elvis Presley

Við skreppum í fjós, forvitnumst um frumkvöðlafyrirtæki á Ísafirði og heimsækjum eina minnstu ritstjórnarskrifstofu landsins í þætti dagsins. Við byrjum á að heimsækja blaðamanninn Skapta Hallgrímsson og fræðast um svæðismiðilinn Akureyri.net, sem fagnar um þessar mundir tveggja ára afmæli. Því næst endurflytjum við viðtal Höllu Ólafsdóttur við Dóru Hlín Gísladóttur þróunarstjóra frumkvöðlafyrirtækisins Keracis á Ísafirði. Viðtalið var fyrst flutt hér í Sögum af landi í febrúar 2022. Að lokum skreppum við í fjós á Egilsstaðabýlinu og ræðum við kúabóndann Herdísi Mögnu Gunnarsdóttur um landbúnaðarstörfin og nýja tækni í kynbótastarfi. Efni í þáttinn unnu Þórgunnur Oddsdóttir, Halla Ólafsdóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
LungA skólinn hefur verið starfræktur á Seyðisfirði í tíu ár. Lýðskólanum fylgir líf og fjör og nemar við skólann kærkomin viðbót við bæjarlífið, enda fá ungmenni búsett þar yfir veturinn. Signý Jónsdóttir er í hópi fólks sem hefur unnið að þróun nýrrar námsleiðar við skólann sem verður prófuð í fyrsta sinn í Janúar. Þar munu nemendur fá kennslu í því að kynnast landinu, eins og þeir væru landnámsmenn á Seyðisfirði árið 2022. Guðrún Elsa Bragadóttir kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar rýnir í tvær kvikmyndir, Triangle of sadness, þríhyrning sorgar, í leikstjórn Ruben Östlund og nýja íslenska kvikmynd, Sumarljós og svo kemur nóttin, mynd í leikstjórn Elfars Aðalsteinssonar. Guðni Tómasson menningarsagnfræðingur skoðar endalok sápuóperunnar, sem sumir segja yfirvofandi. Við byrjum þáttinn á því að hringja austur á Egilsstaði og heyra um residensíu pólskra tónlistamanna, Ragnhildur Ásvalsdóttir, Sláturhússtjóri, segir frá.

Ævistarf tengir saman efni þáttarins, auk þess sem Noregur tengir viðmælendur þáttarins sterkt saman. Við byrjum í heimsókn hjá skógarbóndanum Hrefnu Jóhannesdóttur á Silfrastöðum í Skagafirði, en Hrefna ákvað snemma að gera skógræktina að sínu ævistarfi. Því næst kynnumst við organistanum og kórstjórnandanum Torvald Gjerde sem stendur nú á tímamótum eftir að hafa starfað sem organisti við Egilsstaðakirkju í rúm 20 ár. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Sérfræðingur í rekstri vatnsveitu hjá Veitum segir að enn sé verið að grafa frá lögninni og meta aðstæður. Ekki sé hægt að útiloka að jarðskjálftar hafi átt þátt í að lögnin gaf sig. Bjarni Geir Viðarsson, skurðlæknir á Landspítala segir mikilvægt að fólk fari vel undirbúið í offituaðgerðir. Slíkar aðgerðir verða sífellt algengari hér á landi en yfir þúsund aðgerðir eru framkvæmdar á ári. Urður Örlygsdóttir talaði við hann. Liz Truss, nýr forsætisráðherra Bretlands, sat fyrir svörum þingmanna í fyrsta sinn í dag síðan hún tók við embætti. Mikið var rætt um orkumál og útilokaði Truss að hækka skatta á orkufyrirtæki. Oddur Þórðarson tók saman. Þröstur Jónsson, oddviti Miðflokksins í Múlaþingi telur að ný veglína, sem á að minnka umferð í gegnum miðbæ Egilsstaða og leiða hana suður fyrir bæinn, skerði fallegt byggingarland til framtíðar. Rúnar Snær Reynisson sagði frá og talaði við Jónínu Brynjólfsdóttur, formann umhverfis- og skipulagsnefndar Múlaþings. Kostuð afþreying verður sífellt algengari að mati Elfu Ýrar Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar. Slík markaðssetning er ólögleg ef ekki er tekið fram að um auglýsingu sé að ræða. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við hana. ------------ Töluvert tjón varð þegar önnur af aðalvatnsæðum Veitna fyrir Reykjavíkurborg brast í síðustu viku. Stór hluti lagnakerfis höfuðborgarsvæðisins er yfir hálfrar aldar gamalt. Hafdís Helga Hauksdóttir ræddi við Sólrúnu Kristjánsdóttur framkvæmdastýru Veitna og Hrefnu Hallgrímsdóttur, forstöðumann hitaveitu. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að Rússar hafi engu tapað í Úkraínustríðinu. Hann vísar því á bug að þeir hafi átt upptökin. Pútín kom víða við þegar hann flutti ávarp og sat fyrir svörum á Efnahagsráðstefnu austrænna ríkja, EEF, í Vladivostok, við Kyrrahafsströnd Rússlands. Ásgeir Tómasson tók saman. Á haustin láta pestir á sér kræla og sóttvarnalæknir hefur gefið út leiðbeiningar um COVID-19-bólusetningar frá miðjum mánuði. Örvunarbólusetningar 60 ára og eldri og fólks í áhættuhópum hefjast í Laugardalshöll 26. spetember segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir. Tæknimaður: Mark Eldred.

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Björgunarsveitir af suðvesturhorninu voru kallaðar út síðdegis vegna göngufólks við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga. Fólkið hunsaði tilmæli og fór af stað þrátt fyrir að gönguleiðir í Meradali hafi verið lokaðar vegna veðurs. Það fannst á sjötta tímanum. Haukur Holm ræddi við Ásdísi Lúðvíksdóttur, úr björgunarsveitinni Björgu á Eyrarbakka og Sofiu, ítalskan ferðalang. Aukafundur verður í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í kvöld vegna átaka á Gaza. Vopnahlé Ísraelsmanna og Palestínumanna hefur haldið frá því gær. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá. Einstök glerperla, hvít rauð og blá fannst við fornleifauppgröft á Seyðisfirði. Hún er talin vera um þúsund ára gömul. Markús Þórhallsson ræddi við Ragnheiði Traustadóttur, fornleifafræðing. Heimastjórn Fljótsdalshéraðs leggur til að sveitarstjórn Múlaþings hefji viðræður við innviðaráðuneyti um frekari uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar í ljósi jarðhræringa á Reykjanesskaga, Óðinn Svan Óðinsson talaði við Vilhjálm Jónsson, formann heimastjórnarinnar. Gerhard Schröder, fyrrverandi kanslara Þýskalands, verður ekki vikið úr þýska Jafnaðarmannaflokknum þrátt fyrir náin tengsl við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Alexander Kristjánsson tók saman. -------------- Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir að bíða þurfi eftir niðurstöðum rannsókna áður en Hvassahrauni sé ýtt út af borðinu sem mögulegu flugvallarstæði. LJóst sé að styðja verði við uppbyggingu bæði á Akureyrar- Egilsstaða- og Reykjavíkurflugvelli í ljósi jarðhræringa á Reykjanesi sem gætu haft áhrif á millilandaflug. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Sigurð Inga. Hátt orkuerð í Noregi veldur þar pólitískum skjálftum, Gísli Kristjánsson sagði frá, heyrist í Jonasi Gahr Störe, forsætisráðherra Noregs. Með auknum fjölda gervihnatta og mannaðra og ómannaðra geimferða eykst geimruslið og þó mest af því sem fellur til jarðar endi í sjó aukast stöðugt líkur á að eitthvað lendi á landi. Ásgeir Tómasson segir frá þriggja metra bút úr SpaceX eldflaug sem ástralskur bóndi fann í haga nýlega. Brot úr viðtali við Brad Tucker stjarneðlisfræðing.

Þýska flugfélagið Condor tilkynnti í síðustu viku að það myndi hefja áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða næsta vor. Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, tók þátt í að kynna Austurland sem áhugaverðan áfangastað fyrir stjórnendum Condor. Áætlunarflugið mun væntanlega hafa mikil áhrif á ferðaþjónustuna bæði á Austurlandi og Norðurlandi. Dóra Sif Tynes, lögmaður og sérfræðingur í Evrópurétti, fór yfir ítölsku pólitíkina en forsætisráðherra Ítalíu, Mario Draghi, bauðst til að segja af sér á fimmtudag en forseti landsins hafnaði afsagnarbeiðninni. Draghi hefur tíma til miðvikudags til að mynda starfhæfa stjórn og atvinnulífið vill að hann verði áfram forsætisráðherra. Moldóva og Úkraína eru formlega orðin umsækjendur um aðild að Evrópusambandinu en sambandið stendur sterkt um þessar mundir. Ef eitthvað er þá þjappaði innrás Rússa inn í Úkraínu ríkjunum 27 enn frekar saman. Daníel E Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna?78, ræddi þá hatursorðræðu sem hinsegin fólk hefur mætt hér á landi síðustu tvö ár og óttast að orðræðan geti færst yfir í líkamlegt ofbeldi. Samtökin eru í viðræðum við lögregluna um að halda skrá yfir það þegar slíkt ofbeldi á sér stað vegna kynhneigðar fólks. Transbörn hafa fallið fyrir eigin hendi vegna hatursorðræðu sem þau mæta í samfélaginu, það er jafnvel gelt á þau og hrækt á þau. Ofbeldi sem verður að koma í veg fyrir. Tónlist: Summer's gone - Kristjana Stefánsdóttir, When I fall in love - Natalie og Nat king Cole, Undraveröld - Ingunn Huld Sævarsdóttir, Bigmouth strikes Back - The Smiths, Aðeins eitt kyn - Hjálmar. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Við fengum góðan gest að austan í upphafi þáttar þegar Björn Ingimarsson sveitarstjóri Múlaþings leit við í morgunkaffi og sagði okkur frá metnaðarfullum áætlunum um nýjan miðbæ á Egilsstöðum, en miðbæjarkjarninn hefur hlotið nafnið Straumur og þar leikur göngugatan Ormurinn lykilhlutverk. Talsverð umfram eftirspurn var eftir hlut ríkisins í Íslandsbanka sem auglýstur var til sölu síðdegis í gær. Eignarhlutur ríkisins í bankanum eftir söluna verður 42,5 prósent en var áður 65 prósent. Snorri Jakobsson, hagfræðingur, kom til okkar og ræddi söluferlið, niðurstöður þess og áhrif á ríkið. Í gær bárust þær fréttir Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður væri látin 86 ára að aldri. Guðrún hóf rithöfundaferil sinn komin undir fertugt með fyrstu bókinni um Jón Odd og Jón Bjarna árið 1974. Eftir það kom hvert meistarastykkið á fætur öðru og hún vann hug og hjörtu lesenda á öllum aldri. Mæðgurnar Silja Aðalsteinsdóttir og Sigþrúður Silju Gunnarsdóttir þekkja vel til verka Guðrúnar og áhrifa hennar á íslenskar bókmenntir og þær komu til okkar til að minnast hennar. Friðrik Jónsson sérfræðingur í varnarmálum kom til okkar og ræddi stöðuna í Úkraínu en í gær var tilkynnt um stóraukningu herafla NATO í aðildarríkjum sambandsins í nágrenni Rússlands. Friðrik var um tíma fulltrúi Íslands í hermálanefnd NATO og m.a. fyrsti borgaralegi fulltrúinn sem kjörinn var forseti nefndarinnar og starfaði í 18 mánuði í Afganistan. Við ræddum þessi nýju skref NATO, möguleg markmið Pútín og viðkvæmt friðarsamningaferlið sem virðist hafið. Friðrik hafnar algjörlega þeirri söguskýringu að hægt hefði verið að afstýra stríði ef hægt hefði verið á stækkun NATO og segir hana ósmekklega. Ferðakaupstefnan Mannamót Markaðsstofa landshlutanna fer fram í dag en um er að ræða fjölmennasta viðburð í íslenskri ferðaþjónustu þar sem samstarfsfyrirtækjum markaðsstofanna í öllum landshlutum gefst tækifæri til að kynna sig fyrir fólki í ferðaþjónustu sem starfar á höfuðborgarsvæðinu. Við fengum til okkar Arnheiði Jóhannsdóttur talsmann markaðsstofanna og heyrðum af ferðaþjónustunni vítt og breitt um landið. Tónlist: Ellen Kristjáns og Þorsteinn Einarsson - Hluthafi í heiminum. Soffía Björg og Krummi - Bona fide. Sú Ellen - Elísa. Phil Collins og Philip Baily - Easy lover. Duran Duran - Ordinary world. Bríet - Flugdreki. Hildur Vala - Hard to be alone. Rickie Lee Jones - Chuck E is in love.

Við höldum á þrjá vinnustaði í þremur landshlutum. Við byrjum á því að kynnast fjölbreyttum störfum á Egilsstaðaflugvelli. Rætt er við Ásgeir Rúnar Harðarson, Nikulás Bragason, Þórhall Borgarson, Ingvar Hrólfsson og Loft Magnússon. Þá er haldið í Vestrahúsið á Ísafirði þar sem margir einyrkjar hafa aðsetur. Ein þeirra er Sigríður Gísladóttir, dýralæknir í fiskeldi. Að lokum höldum við í Samkomuhúsið á Akureyri þar sem rætt er við Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur, leikkonu. Efni í þáttinn unnu Rúnar Snær Reynisson, Halla Ólafsdóttir og Óðinn Svan Óðinsson. Umsjón: Halla Ólafsdóttir.

Day 5: Flat Tire and driving back and forth As usual, we record on the next day, talking about the day before. You will get an intimate insight into our car conversation and how completely creeped and freaked out Steffi was while Google maps send us on a horror road. #sheepseverywhere #creepy #ohno Exploring Hallormsstaðaskógur national forest Visiting Skriðuklaustur museum and eating an amazing vegan meal there Visiting Snæfellsstofa Visitor Centre free exhibition Visiting Móðir Jörð organic farm Going to Egilsstaðir to fix the car tire Visiting the small vending machine Coke Sjálfsalinn on the road to Borgarfjörður eystri Sleeping at Blábjörg Guesthouse The episode was recorded on August 10, 2021.
Helgi er kominn aftur til Egilsstaða og gistir hjá manni sem er ekki ástmaður hans - en sá hefur mikla visku að færa fram um uppruna Hjálmars - og af hverju hann er eins og hann er.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe'a!
Í tilefni að því að 90 ár eru liðin frá fyrstu reglulegu útsendingu íslensks Ríkisútvarps sem þá var kalla Útvarpsstöð Íslands í Reykjavík er litið til vennsla útvarpsins og bókmenntanna í upphafi þessarar vegferðar. Í því samhengi les Stefán Eiríksson útvarpsstjóri brot úr fyrsta erindinu sem flutt var í útvarpið, sem Sigurður Nordal flutti og nefndi Útvarpið og bækurnar en engin upptaka er til á flutningi Sigurðar. Einnig eru lesin brot úr hugleiðingum annsrs vegar Helga Hjörvars og hins vegar Alexanders Jóhannessonar um íslenskt útvarp en þeir voru báðir í fyrsta útvarpsráðinu. Einnig heyrarst upphafstónar Gotneskrar svítu eftir León Boällman. Haukur Guðlaugsson leikur á orgel Egilsstaðakirkju árið 1976 sem og upphaf ævintýrisins Þegar drottningin á Englandi fór í orlof sitt eftir Jónas Hallgrímsson, Hildur Kalman les, upptaka af lakkplötu frá árinu 1930. Þá heyrast í þættinum Guðmundur Friðjónsson frá Sandi flytja ljóð sinn "Nú fölnar lyngbrekku fögur kinn sem og upplestur Huldu, Unnar Benediktsdóttur Bjarklind á lokaerendi ljóðs hennar Morgunljóð, hvort tveggja afrit af lakkplötum frá árinu 1942. Þá heyrist Steinn Steinar lesa ljóð sitt Kolumbus. í síðari hluta þáttarins má heyra brot úr upptöku af streymisútsendingu frá alþjóðlegri ljóðahátíð, Suttungi, sem fram fór á alnetinu 12/12 2020. Þar heyrist í ítalska ljóðskáldinu alessandro Burbank, Brynjólfi Þorsteinssyni sem les úr bók sinni Sonur grafarans, Angela Rawlings flytur ljóði Jöklar, Luke Allan flytur nokkur ljóð og Brynjar Gunnarsson og Kristín Ómarsdóttir hvort sitt ljóðið. Að lokum er rætt við driffjöður hátíðarinnar Ástu Fanneyju Sigurðardóttur. Lesrar í þættinum: Stefán Eiríksson, Björn Þór Sigbjörnsson og Gunnar Hansson.

Þessi þáttur var í boði Lortur í Lauginni, borðspil þar sem leikmenn fara í hlutverk sundlaugargesta í sundlaug Egilsstaða. Sundlaugargestir standa frammi fyrir þeirri krefjandi áskorun að komast að því hver kúkaði í sundlaugina þeirra. Hlustendur geta keypt spilið á www.lortur.is, hlustið á þáttinn og heyrið hverjir afsláttakóðarnir eru.
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu hefur Hismið ákveðið að henda nokkrum eldri þáttum í loftið. Við byrjum hér með þætti sem fór í loftið í nóvember 2016 en þar rekur Árni frækna ferð sína austur á Egilsstaði þar sem hann fór léttklæddur á lakkskóm í Borgartúns-úlpu að leita að týndri rjúpnaskyttu með strangheiðarlegum austanmönnum.
COVID-19 hefur haft víðtæk áhrif á efnahagsmál heimsins. Allt skreppur saman; hlutabréfaverð hefur víða lækkað - og virði sumra fyrirtækja jafnvel hrunið -, stjórnvöld sjá fram á minni ríkistekjur og aukin útgjöld og svo framvegis. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans fór yfir áhrif veirufaraldursins á heimshagkerfið. Hlutabréfamarkaðurinn á Íslandi hefur ekki farið varhluta af ástandinu, og OECD hefur varað við því að hagvöxtur á heimsvísu gæti helmingast miðað við fyrri spár fyrir árið. Í Þýskalandi hafa á annað hundrað COVID-19 smit greinst og veiran haft talsverð áhrif á þýskt þjóðlíf. Stærsta ferðakaupstefna heims átti að hefjast í Berlín á morgun en hún hefur verið blásin af. Flugfélagið Lufthansa hefur aflýst fjölda flugferða og sömu sögu er að segja af fleiri stórum flugfélögum. Arthúr Björgvin Bollason fór yfir þessi mál í Berlínarspjalli dagsins. Hann sagði okkur líka frá miklum áhuga Þjóðverja á íslenskri tungu og íslensku fornsögunum. Fjarðarheiði, milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða, er lokuð. Vegurinn um heiðina hefur verið ófær meira og minna síðan á föstudag, nema um skamma stund í gær þegar umferð var hleypt á með fylgd. Þetta er auðvitað meiriháttar mál fyrir samfélagið á Seyðisfirði sem reiðir sig á þennan veg en Fjarðarheiði er 620 metra há þar sem hún er hæst og vegalengdin milli bæjanna 27 kílómetrar. Rætt var við Aðalheiði Borgþórsdóttur, bæjarstjóra á Seyðisfirði, í þættinum í dag. Hún sagðist vera bjartsýn að eðlisfari, og hún vonar að væntanleg sameining fjögurra sveitarfélaga veiti þeim aukinn slagkraft í baráttunni fyrir jarðgöngum undir heiðina. Tónlist: Ræfilskvæði - Mannakorn, Bréfið hennar Stínu - Diddú

“Stjórnvöld í samstarfi við ferðaþjónustuna þurfa sérstaklega að horfa til sjálfbærni, arðsemi og dreifingu ferðamanna um allt land,” segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Group. Hann var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum á N4, þar sem rætt var um íslenska ferðaþjónustu, með áherslu á landsbyggðirnar. Bogi Nils segir að félagið hafi lagt til að Egilsstaðarflugvöllur verði fyrsti varaflugvöllurinn, ástæðan hafi fyrst og fremst verið landfræðileg.
Dómsmálaráðuneytið þarf að útskýra hvers vegna það áminnti ekki Harald Johannessen, ríkislögreglustjóra, þótt hann hafi gerst sekur um ámælisverða framgöngu í starfi. Breska þingið kom aftur saman í dag eftir að hæstiréttur Bretlands úrskurðaði þinghlé Johnsons ólöglegt í gær. Bandaríkjaforseti segir að ákvörðun Demókrata um að láta rannsaka embættisfærslur hans sé heimatilbúin krísa. Útskrift var birt í dag á símtali hans og forseta Úkraínu. Gólf Lagarfljótsbrúar milli Egilsstaða og Fellabæjar er orðið mjög lélegt og málmgrindur sem hlífa því götóttar. Rekstrarstjóri Dekkjahallarinnar á Egilsstöðum segir að einn til tveir á dag sprengi dekk þegar brot og hlutir úr brúnni stingast í dekkin. Hlýnun á norðurskautssvæðinu hefur verið yfir tvöfalt meiri en að meðaltali á jörðinni síðustu tvo áratugi. Grænlandsjökull hefur rýrnað árlega um 280 milljarða tonna. Hrafnhildur Hannesdóttir jöklafræðingur og Halldór Björnsson hópstjóri loftslagsrannsókna, sem bæði starfa á Veðurstofu Íslands ræddu málið við Arnar Pál Hauksson. Innflutningur á bragðbættu vatni, gosdrykkjum og óáfengu öli hefur aukist mikið á síðustu tveimur árum. Stærstu drykkjarframleiðendurnir á Íslandi, Ölgerðin og CCEP, áður Vífilfell, fara ólíkar leiðir í innflutningi og framleiðslu. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Andra Þór Guðmundsson, forstjóra Ölgerðarinnar og Stefán Magnússon, sölustjóra hjá CCEP
Þá höldum við af stað í Tímaflakk, sumarfríinu lokið og tími til kominn að festa sig í fortíðinni. Við byrjum 15 september 1958 og í Vísi var sagt frá fyrsta þorpi landsins sem var byggt algjörlega frá grunni eftir skipulagi og var á fjórum árum komið með 300 íbúa. Þetta þorp eru Egilsstaðir. Svo höldum við til 1968 þegar þingkosningar stóðu fyrir dyrum í Svíþjóð og kratarnir að rústa þessu og vindum okkur svo til 1978 en þá var Egill Skúli Ingibergsson tekinn við sem borgarstjóri í Reykjavík. Við endum svo flakk dagsins á því herrans ári 1988 þegar ólympiuleikarnir í Seoul hófust þann 17. September með pompi og prakt Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2

Delta Kappa Gamma eru alþjóðleg samtök kvenna í fræðslustörfum. Þau halda nú öðru sinni alþjóðlega ráðstefnu á Íslandi og viðfangsefnin eru fjölbreytt, þar sem lögð er áhersla á faglegar nýjungar í menntun bæði varðandi rannsóknir og kennslu á sviði menntamála. Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir forseti landssambands Íslands og ráðstefnustjóri og Kolbrún Pálsdóttir forseti Menntavísindasviðs HÍ kíktu við og sögðu okkur meira. Í kjölfar frétta af bæði E.coli smiti og listeríu á Íslandi undanfarin misseri veltum við fyrir okkur hvernig tekið er á slíkum málum, hvernig eru sýni greind og hversu langan tíma tekur að greina þau? Þær Anna Kristín Daníelsdóttir, sviðsstjóri Rannsókna og nýsköpunar og Hrönn Ólína Jörundsdóttir, sviðsstjóri Mæliþjónustu og innviða hjá Matís komu til okkar og sögðu okkur allt um þessa tækni. Hugarfarið Ég get þetta ekki, ég vil þetta ekki og mig langar ekki að gera þetta,réði ríkjum hjá Ásdísi Ósk Valsdóttur, fasteignasala og pistlahöfundi á mbl.is, þar til fyrir rúmu ári að hún sneri blaðinu og horfir nú öðrum augum á viðfangsefnin í lífinu. Nú hugsar hún: Ég get þetta örugglega og hún arkaði Fimmvörðuhálsinn á dögunum en í fyrra vor hljóp hún rétt milli ljósastaura. Ásdís mætti eldhress í Morgunútvarpið. Liður í að fjölga ferðamönnum á landsbyggðinni er að tryggja alþjóðaflug til Akureyrar og Egilsstaðar. Þetta segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Circle Air, sem hefur byggt upp þyrlu- og flugþjónustu fyrir ferðamenn á Akureyri. Nýjar þyrlur sem fljúga með fjallahjólreiðamenn í óbyggðir bættust nýverið í hópinn og hefur félagið einnig fengið vélar í stað þeirra tveggja ssem kyrrsettar voru eftir flugslys í Svíþjóð þar sem fallhlífastökkvarar létu lífið. Við heyrðum í Þorvaldi. Guðmundur Jóhannsson fór yfir tæknitíðindi með okkur og að þessu sinni voru hlaðvörp í brennidepli. Tónlist: Helgi Björns - Miði aðra leið. Thin Jim and the Castaways - Brotnar myndir. Prefab Sprout - Bonny. Geirfuglarnir - Fulla frænka mín. Monotown - Peacemaker. Pulp - Disco 2000. Cake - Never there. J. Lo - On the floor
Silja Jóhannesdóttir hjá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga leitar að lærimeisturum, mentorum, fyrir frumkvöðla á Norðausturlandi. Hún vill hjálpa frumkvöðlunum að fá þekkingu með hraði þegar þeir þurfa ráð til að þróa rekstur sinn eða hreinlega koma honum á laggirnar. Við heyrðum í Silju. Deutsche Bank hefur boðað hagræðingar og stefnir á að segja upp hátt í 20 þúsund manns. Hvers vegna og hvernig er staðan hér heima? Beðið er eftir skýrslu Bankasýslu ríkisins um hvort selja eigi ríkisbankana tvo. Friðbert Traustason, framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja kom til okkar til að meta stöðuna. Jarðhitate verður meðal veitinga í glænýjum náttúrulaugum sem stefnt er að því að opna í Urriðavatni rétt utan við Egilsstaði í næstu viku. Hugmyndin að böðunum er loksins orðin að veruleika, en hún kom fyrst upp fyrir tveimur áratugum. Heiður Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri baðstaðarins Vök Baths var á línunni. Alls 7.200 manns voru án vinnu í maí og er algengt að Vinnumálastofnun grípi fólk sem þiggur atvinnuleysisbætur í utanlandsferðum án leyfis. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, fór yfir málið með okkur, en þeir sem eru gripnir erlendis á bótum missa bótaréttinn í tvo mánuði. Guðmundur Jóhannsson fór yfir nýjustu fréttir úr tækniheiminum og fjallaði meðal annars um óvænta sátt Amazon og Google og sektir sem fyrirtæki hafa verið beitt vegna brota á GDPR reglugerðinni.
Alex Elliott is joined this week by journalist, architecture expert, and food critic Shruthi Basappa, and from Egilsstaðir by RÚV's East Iceland correspondent, Runar Snær Reynisson. The programme was produced by Einar Sigurðsson. This week's highlights include Eurovision, Palestine, community pigs, and the future of tourism in Iceland.

Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður verkefnastofu Isavia: Samfélagsskýrsla ISAVIA, umhverfisáhrif starfseminnar, árangur í að draga úr hljóðmengun og hvernig unnið er út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Jóna Árný Þórðardóttir framkvæmdastjóri Austurbrúar: Tækifæri Egilsstaðarflugvallar. Edda Olgudóttir: Vísindamaðurinn Rosalind Franklin, sem aldrei fékk Nóbelinn.
Spegillinn 04.12.2018 Umsjón: Pálmi Jónasson Siðanefnd Alþingis hefur óskað eftir því að fá hljóðupptökur frá Klausturfundi sex þingmanna til að leggja mat á hvort þeir hafi mögulega brotið siðareglur. Þingflokksformaður Vinstri grænna segir að skömmin sé sexmenninganna og þeir eigi að axla ábyrgð. Sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu segir að samræður alþingismannanna séu tákn um það sem kallað hefur verið yfirráðakarlmennska eða eitruð karlmennsla. Íslenskt samfélag hafi gefist upp á slíkum viðhorfum. Þremur af hverjum fjórum þykir réttlætanlegt að fara í verkföll til að knýja á um bætt starfskjör. Yfir helmingur fólks er tilbúinn að fara í verkfall samkvæmt nýrri könnun. Samgönguráðherra vonar að Alþingi samþykki tillögur um að niðurgreiða flugfargjöld íbúa á landsbyggðinni. Þá sé það eðlilegt skref að efla varaflugvellina þrjá fyrir millilandaflug, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvöll. Lengri umfjöllun: Tryggvi Hallgrímsson sérfræðingur á Jafnréttisstofnu segir að íslenskt samfélag sé búið að gefast upp á viðhorfum sem endurspegluðust í samræðum alþingismannanna á Klausturbar. Þær séu tákn um það sem kallað hefur verið yfirráða karlmennska eða eitruð karlmennska. Ekki sé langsótt að tengja grófustu lýsingarnar og orðin sem þar fóru um við ofbeldi. Flestir kannast ekki við að svona orðfæri sé notað í karlahópi - en svo eru aðrir sem segja að þetta sé dæmigert karlatal sem oft er eigi sér stað t.d. í búningsklefum. Bergljót Baldursdóttir talaði við Tryggva Hallgrímsson. Algjört hrun siðmenningar er við sjóndeildarhringinn. Loftslagsbreytingar af mannavöldum geta leitt til meiriháttar náttúruhamfara og gereyðingu stórs hluta náttúrunnar. Þetta sagði náttúrufræðingurinn heimsþekkti David Attenborough á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem var sett í Póllandi í gær. Pálmi Jónasson tók saman. Andrúmsloftið í Breska þinginu í dag var rafmagnað þegar umræður hófust um úrgöngusamning Breta við Evrópusambandið. Umræðunar eiga að standa í fimm daga áður en kemur að atkvæðagreiðslunni 11. desember. Sigrún Davíðsdóttir tók saman.
Flugfélagið Primera Air hættir starfsemi á morgun og hefur farið fram á greiðslustöðvun. Hlaupakonan Elísabet Margeirsdóttir er komin í mark í 400 kílómetra hlaupinu í Góbí-eyðimörkinni í Kína. Hún var fyrst kvenna í mark. Landhelgisgæslan telur að borgarísjaki í mynni Eyjafjarðar geti verið hættulegur skipum og bátum. Hann er ekki lengur landfastur og hefur brotnað í sex hluta. Ferðamaður sem silaðist á 20 kílómeta hraða í hríðarbyl og hálku yfir Möðrudalsöræfi milli Egilsstaða og Mývatns í dag gagnrýnir bílaleiguna fyrir að vera ekki með bíla á nagladekkjum. Hann segist hafa ekið fram hjá sex bílum sem voru utan vegar. Wow air hefur aflýst flugi til Stokkhólms, Edinborgar og San Francisco í vetur. Það skýrist í lok þessarar viku hvort Starfsgreinasambandið leggur fram sameiginlega kröfugerð allra félaga innan sambandsins. Viðræður standa yfir við VR um samflot í komandi kjarasamningum. Það rigningar- og súldarsumar sem nú er liðið, hafa eflaust einhverjir Íslendingar rennt hýrum augum til Skandinavíu, enda sjaldan verið jafn hlýtt, þurrt og sólríkt víða í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Hitinn og þurrkarnir eru þó ekki sælan ein, að minnsta kosti ekki fyrir elgi. Það hefur orðið sprenging í útvistun á tölvukerfum undanfarin tvö ár. Þetta segir Sigurður Sæberg Þorsteinsson, framkvæmdastjóri rekstrarlausnasviðs Advania. Þessi þróun hafi í för með sér breytingar á rekstri fyrirtækja. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Sigurð í tengslum við haustráðstefnu fyrirtækisins á dögunum.
Við byrjuðum austur á Eskifirði og töluðum við Maríu Hjálmarsdóttur, verkefnisstjóra hjá Austurbrú, sem hefur umsjón með eflingu Egilsstaðaflugvallar, heldur utan um Áfangastaðinn Austurland og stýrir markaðsstarfi Austurbrúar. Hún lýsti ferðasumrinu fyrir austan og væntingum heimamanna. - Bogi Ágústsson ræddi kosningarnar framundan í Svíþjóð, málefni Suður-Ameríkuríkja og ýmislegt fleira. - Áfengisdrykkja er mjög útbreidd á Íslandi. Níu af hverjum tíu íslenskum körlum yfir fimmtán ára drekka áfengi en hlutfallið er aðeins lægra meðal kvenna. Drykkjan hefur aukist með árunum og við höfum aldrei drukkið eins mikið og í fyrra. Ofan í þessar staðreyndir berast okkur niðurstöður nýrrar rannsóknar um skaðsemi áfengis. Alþjóðlega góðtemplarahreyfingin, IOGT, hefur starfað á Íslandi í 134 ár. Aðalsteinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri IOGT á Íslandi, sagði frá baráttunni fyrir bindindi. - Íslenskt súkkulaði sópaði að sér verðlaunum á Evrópumóti í súkkulaðigerð - hlaut ellefu verðlaun, þar af fimm gullverðlaun. Þetta er Omnom-súkkulaðið, gæðasúkkulaði - bragðbætt með lakkrís, salti og ýmsu öðru. Súkkulaðigerðarmaðurinn Kjartan Gíslason, stofnandi Omnom, sagði frá fyrirtækinu, sigrunum og súkkulaðinu. - Tónlist: Anne Queffélec - Gnossienne no.1
Skordýr eru mikilvæg fyrir okkur mannfólkið og hlýnun jarðar veldur því að sífellt fleiri skordýr nema land á Íslandi og á síðustu árum hafa bæst við 2-3 hundruð nýjar tegundir. Í gær hittust börn og fullorðnir í skemmtilegri pödduskoðun í Elliðaárdalnum og við í Mannlega þættinum slógumst í för með þeim. Þessi skemmtilega samverustund var í boði Háskóla Íslands og Ferðafélags Barnanna. Viðmælendur voru Ólafur Patrick Ólafsson, líffræðingur, Dalla Ólafsdóttir og Mattías Sigurðsson sem sjá um Ferðafélag barnanna og nokkur börn að auki. Söfnunarsjóðurinn Stöndum saman Vestfirðir var stofnaður af þremur ungum konum fyrir vestan sem höfðum áhuga á að finna einhverja góða og skemmtilega leið til að hvetja vestfirðinga til að standa saman. Þær byrjuðu á söfnun fyrir vökvadælu og barkaþræðingartæki fyrir Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði árið 2016. Þessa dagana hafa þær verið að safna fyrir tveimur hjartastuðtækjum í björgunarskipin Vörð og Gunnar Friðriksson. Við hringdum vestur í Tinnu Hrund Hlynsdóttur Hafberg í þættinum og heyrðum meira af þessu góða framtaki þeirra. Sýningin Fjaðrafok hefur verið sett upp á Egilsstaðaflugvelli, en þar eru flugvallargestir hvattir til þess að leggja sitt af mörkum og lita fimm flennistórar teikningar af fuglum, eftir Ingunni Önnu Þráinsdóttur, á meðan beðið er eftir fluginu. Við hringdum austur í hana í dag. Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Ný og nýleg lög frá KUSK, GDRN, Karitas og Daða, Daða Frey Péturssyni, Godchilla, Unu Stef, Árna Vilhjálmssyni, Teiti Magnússyni, Snorra Helgasyni, Soffíu Björg, Tonnataki, There Will Be Wolves, Singapore Sling, Kímu, Ara Frank, Major Pink, Þorbirni Dísarskáld, Gud Jon, Moonbear og Gísla. Það er engin breiðskífa þáttarins í kvöld, heldur eingöngu leikin ný og nýleg lög úr þeim fjölda af lögum sem kemur út um þessar mundir á Íslandi. Allir eru að semja tónlist og hún er ekki af verri endanum. Það hlýtur að vera eitthvað í vatninu. Lagalisti Langspils 192: 1. Það sem var - GDRN 2. Allt í einu - Daði Freyr Pétursson 3. Aldrei meir - Karitas og Daði 4. Dreams of Osaka - Godchilla 5. Evil - KUSK 6. Like home - Una Stef 7. Like a Prayer - Olympia 8. Stay the same - Árni Vilhjálmsson 9. Egilsstaðarblá - Snorri Helgason 10. The Conformity - There will be wolves 11. Lausavísur Látra-Bjargar - Tonnatak 12. Trúðurinn á Torginu - Tonnatak 13. Riffermania (KILL KILL KILL) - Singapore Sling 14. Grateful - Soffía Björg 15. Mind in doubt - Kíma 16. Won´t ever stop - Ari Frank 17. Genocide - Major Pink 18. Life - Moonbear 19. Hringaná - Teitur Magnússon 20. Þótt ég hugsi stundum um það - Þorbjörn Dísarskáld 21. Alright for night - Gud Jon 22. Solid gold - Gísli Hefurðu samið ótrúlega gott lag, sem þér finnst að eigi að spila í útvarpi? Sendu inn lag í þáttinn og hver veit... Langspil er á dagskrá Rásar 2 á sunnudagskvöldum frá 19.20-21.00. Umsjón: Heiða Eiríksdóttir
Þeir sem hafa völdin þurfa að gera sitt til að bæta samskipti milli kynjanna, segir varaformaður Prestafélags Íslands. Tólf þúsund kjúklingar drápust þegar eldur kviknaði í kjúklingabúi að Oddsmýri í Hvalfirði í dag. Olíuflekkur fer ört stækkandi á Austur-Kínahafi þar sem íranskt olíuflutningaskip sökk í gær eftir að hafa brunnið í rúma viku. Óvissustig vegna snjóflóða er enn í gildi á Vestfjörðum en búið er að opna vegi. Formaður Þjónustusamfélagsins á Héraði líkir miðbæ Egilsstaða við bilaðan löndunarkrana. Söngkona írsku hljómsveitarinnar the Cranberries, er látin, 46 ára að aldri. Starfshópar og fræðslufundir, viljayfirlýsingar, kannanir, uppsagnir og áætlanir. Þetta eru nokkur dæmi um ávexti og afleiðingar Me too byltingarinnar. Sögurnar eru orðnar hátt í þúsund talsins, konurnar sem skrifað hafa undir yfirlýsingar skipta þúsundum og sífellt bætist í hópinn, síðast í dag þegar konur í prestastétt stigu fram. En hvað hefur raunverulega breyst? Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Finnborgu Salome Steinþórsdóttur, nýdoktor í kynjafræði. Fastur liður í hegðan manna eins og kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinsteins og annarra auðugra áhrifamanna var að borga kvenfólki, sem þeir áreittu, svo þær þegðu um athæfið. Sögurnar eru margar og spanna allt frá kynferðislegu áreiti yfir í grófa nauðgun. Sigrún Davíðsdóttir ræddi við Reimar Pétursson formann Lögmannafélagsins um þessi mál í íslensku samhengi. Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, ætlar að að bæta einum flokki við ríkisstjórn sína. Unnið hefur verið að endurnýjun minnihlutastjórnar hennar frá eftir þingkosningarnar í september. Sátt er um skattalækkanir, málefni nýbúa og umhverfisvernd en stjórnarandstæðingar segja að áherslan hafi færst enn lengra til hægri en áður var. Gísli Kristjánsson. Spegillinn 15. janúar 2018 Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Í Hismi dagsins sest Grétar í stól spyrils og Árni í hlutverk viðmælandans og gerir upp dramatíska ferð sína á Egilsstaði síðasta sunnudag, þar sem til stóð að Árni ætlaði að hjálpa til við að leita að rjúpnaskyttu. Skyttan fannst hins vegar fimm mínútum eftir að Árni var lentur og því reyndi ekki á hvort lögmaðurinn að sunnan á lakkskónum hefði komið að einhverju gagni. Við tóku hins vegar átta klukkustundir í raunhagkerfinu á Egilsstöðum sem Árni deilir með hlustendum auk þess sem velt er upp mögulegri sjónvarpsþáttaseríu um málið. Þá er farið yfir stjórnarmyndunarviðræður og samsæriskenningar um kosningasvindl í forsetakosningunum í BNA.