Hlaðvarp Rafmyntaráðs

Follow Hlaðvarp Rafmyntaráðs
Share on
Copy link to clipboard

Hlaðvarp Rafmyntaráðs fjallar um fjármálakerfið og tækni, ásamt hugvekju um ýmis mál.

Rafmyntaráð

  • May 10, 2020 LATEST EPISODE
  • every other week NEW EPISODES
  • 49m AVG DURATION
  • 29 EPISODES


Search for episodes from Hlaðvarp Rafmyntaráðs with a specific topic:

Latest episodes from Hlaðvarp Rafmyntaráðs

Bitcoin helmingunin og opnun myntkaup.is á Íslandi

Play Episode Listen Later May 10, 2020 40:12


Þessi þáttur er tileinkaður Bitcoin og þeirri helmingun sem nú er að eiga sér stað, mánudaginn 11. maí 2020. Við förum yfir þýðingu þessa stóra atburðar og horfur innan Bitcoin hagkerfisins. Seinna í þættinum fáum við til okkar hann Patrek Maron Magnússon sem er framkvæmdastjóri Myntkaup.is, sem er skiptimarkaður með rafmyntir sem opnaði í dag eftir skráningu hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Hvers vegna opnar maður nýjan markað fyrir rafmyntir? Af hverju sækir unga kynslóðin í Bitcoin?

Fjármálamarkaðir, hagkerfið og vextir - Agnar Tómas Möller

Play Episode Listen Later Apr 21, 2020 55:58


Agnar Tómas Möller er forstöðumaður skuldabréfa og markaða hjá Júpíter. Hann er einnig annar stofnenda Gamma og starfaði þar sem sjóðstjóri og framkvæmdastjóri sjóða frá árinu 2009. Hann hefur starfað á íslenskum fjármálamarkaði frá árinu 2001 er hann starfaði í greiningardeild Búnaðarbanka Íslands. Á árunum 2004–2006 starfaði hann í áhættustýringu Kaupþings og frá árinu 2006 til byrjun árs 2008 í skuldabréfamiðlun Kaupþings. Agnar er með M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Í þessu samtali ræddum við um stöðu markaða, vaxtaþróun í heiminum, inngrip seðlabanka, aukin ríkisútgjöld, hraða niðursveiflunnar og að sjálfsögðu íslensku krónuna.

Covid-19, hugverkageirinn og hagkerfið keyrt í gang

Play Episode Listen Later Mar 30, 2020 47:50


Sigríður Mogensen er hagfræðingur og starfar hjá Samtökum iðnaðarins sem sviðsstjóri Hugverkasviðs. Einnig er hún er með meistaragráðu frá London School of Economics. Áður starfaði Sigríður í orðsporðsáhættudeild hjá Deutche Bank í London ásamt því að hafa verið blaðamaður. Í þættinum ræddi Sigríður um hvernig við Íslendingar getum snúið bökum saman og blásið til sóknar. Sérstaklega er farið í saumana á hugverkum og þeim iðaði sem byggir á mannviti, en Sigríður telur það vera augljósan kost sem ein af grunnstoðum Íslands þegar rykið sest eftir faraldurinn. Rætt var um mikilvægi þess að skapa rétta hvata í samfélagnu til þess að verja góð störf í landinu. Þátturinn var tekinn upp 27 mars 2020.

Covid-19, hvernig við stöðvum veiruna og mildum höggið

Play Episode Listen Later Mar 29, 2020 50:04


Frosti Sigurjónsson er rekstrarhagfræðingur, ráðgjafi, fyrrverandi þingmaður, frumkvöðull, forstjóri, í bankaráði seðlabankans og svo mætti lengi telja. Í þættinum ræddi Frosti um aðgerðir sem aðrar þjóðir hafa verið að beita til að ná tökum á útbreiðslu veirunnar. Frosti hefur verið gagnrýninn á viðbrögð og finnst að ganga megi harðar fram. Einnig ræðir Frosti um efnahagsleg áhrif, og hvernig væri hægt að koma samfélaginu í rétt far með skipulögðum hætti á skömmum tíma. Þátturinn var tekinn upp 25 mars.

Covid-19, spálíkön, íslenska bjartsýnin og auðmýkt fyrir óvissunni - Georg Lúðvíksson

Play Episode Listen Later Mar 27, 2020 55:25


Georg Lúðvíksson er forstjóri og meðstofnandi Meniga sem við ættum nú öll að þekkja eftir fyrri þátt. Meniga varð til upp úr síðustu fjármálakrísu, en þau þróa í dag sjálfvirkt heimilisbókhald sem eitt stærsta tæknifyrirtæki landsins. Georg er mikill hugsuður og kemur oft með sterkt innlegg inn í almenna umræðu og því var mikill fengur að fá hann í þáttinn. Í þættinum ræddum við um mikilvægi þess að hafa auðmýkt fyrir óvissunni, spálíkanagerð, tækifæri leiðtoga til að segja satt og rétt frá og nauðsyn þess að horfa fram á vegin en þó í gegnum gleraugu raunsæisins.

Covid-19, how is the virus behaving and what is ahead? - Chris McClure PhD

Play Episode Listen Later Mar 25, 2020 70:09


Komið þið sæl og verið velkomin í Hlaðvarp Rafmyntaráðs. This episode was recorded in English, and therefore we are running the intro in that language as well. I was fortunate to get Chris McClure on the episode and discuss the Covid-19 virus that is currently spreading around the world. Chris McClure, MPH, PhD received his Masters of Public Health from the Yale School of Public Health and PhD in public health from the University of Iceland. McClure worked at the Connecticut’s Department of Public Health on seasonal influenza, H1N1, and pneumonia containment and reporting, as well as the Florida Bureau of Epidemiology. In this episode, we discuss how infectious this virus is, the trajectory we are on for the next few weeks, and how you can prepare both mentally and physically. Chris also mentions possible improvements to the local response based on research. This episode is excellent in listening to a deep dive that is laser-focused on the current situation in Iceland. This episode is the first one that is recorded in English and also the first one we recorded over remote audio conferencing. I hope you like this episode.

Covid-19, framtíðin, markaðir og bitcoin - Kristján Ingi Mikaelsson

Play Episode Listen Later Mar 23, 2020 45:08


Velkomin í þennan fordæmalausa hlaðvarpsþátt á þessum skrítnum tímum. Þáttur dagsins verður með breyttu sniði, þar sem ég er að hita upp fyrir seríu um Covid-19 veiruna og ýmsa anga hennar. Í þessum fyrsta þætti mun ég opna almennt á umræðuefnið og fara í helstu ábendingar og spurningar sem mér hafa borist í kjölfar faraldursins. Það er mikilvægt að taka það fram að ég er ekki sérfræðingur í veirufræðum, en ég mun gera mitt allra besta til stikla á stóru í þessum málum ásamt því að snerta lauslega á umræðuefni sérfræðinganna sem koma í næstu þáttum Næstu þættir munu birtast með eins til tveggja daga millibili, þar sem þekking er að úreldast jafn harðan. Það er því mikilvægt að koma upplýsingum fljótt áleiðis eins og kostur er. Við munum fyrst fara yfir læknisfræðilega hegðun og áhrif veirunnar. Síðan förum við í samfélagslegar breytingar og viðbrögð stjórnvalda. Næst förum við yfir áhrifin á hagkerfið. Málefni þáttarinns er út um víðan völl en einungis um þau áhrif sem veiran er að hafa. Við byrjum á því að setja núverandi aðstæður í sögulegt samhengi. Því næst fjöllum við lauslega um hagkerfið og þá sprengju sem óværan er að varpa inn í markaði og að lokum tala ég um Bitcoin og þá miklu siglingu sem það mun taka í kjölfar breyttrar heimsmyndar. Ég vona að þessi sería komi sér vel fyrir þig kæri hlustandi. En nóg um það, vindum okkur í þáttinn.

#22 - Sjálfvirkt heimilisbókhald og bankar í ólgusjó fjártækni - Jón Heiðar Þorsteinson

Play Episode Listen Later Mar 9, 2020 42:31


Jón Heiðar Þorsteinson er vörustjóri hjá Meniga ásamt því að sinna vörumarkaðssetningu. Í gegnum árin hefur Jón Heiðar snert á allskonar tækni sem var á þeim tíma algjör nýjung á markaði. Hann hefur starfað meðal annars hjá almannatengslafyrirtækjum, í rafrænni þjónustu hjá banka og markaðsstjóri leikjafyrirtækis og ferðaþjónustufyrirtækis. Í þessu samtali ræddum við um heimilisbókhald og mikilvægi þess að hafa skýra yfirsýn yfir bæði útgjöld og innkomu, nýjar lausnir á fjártæknimarkaðnum, auðgun færslna, sóknarfæri Meniga og að lokum stöðu bankanna í gjörbreyttu neytendalandslagi.

#21 - Tauganet og Nýsköpunarlandið Ísland 2030 - Gummi Hafsteins

Play Episode Listen Later Feb 24, 2020 68:56


Gummi Hafsteinsson er svo sannarlega raðfrumkvöðull. Hann er með rafmagns- og tölvuverkfræðipróf frá Háskóla Íslands, ásamt MBA gráðu frá MIT. Síðast starfaði Gummi sem hátt settur vörustjóri hjá Google og sá um Google Assistant lausnina. Á vegferðinni sinni hefur hann starfað með því fólki sem hefur breytt heiminum okkar hvað mest gegnum tækni. Hann stýrði Google Maps fyrir snjallsíma, stofnaði spjallgreinandan Emu sem var selt til Google, var yfir vöruþróun hjá Siri sem var selt til Apple og núna er hann með hausinn í nýsköpunarstefnu Íslands fyrir 2030 ásamt næstu frumkvöðlavegferð. Í þessu samtali snertum við á ýmsum málum sem flestir hugsa eflaust ekki um dag frá degi. Það má segja að við höfum rætt stóru myndina eins og hún blasir við Gumma og hvað Íslendingar þurfa að gera til að nýta þau tækifæri sem bjóðast okkur. Við ræddum einnig um hvernig það er að vinna hjá erlendum stórfyrirtækjum, hraða þróun tauganeta og ímynd Íslands í hinum stóra heimi.

#20 - Innviðafjárfestingar og framtíð norðurslóða - Heiðar Guðjónsson

Play Episode Listen Later Feb 10, 2020 49:52


Heiðar Guðjónsson er fjárfestir og hagfræðingur en hann starfar nú sem forstjóri Sýnar, móðurfélags Vodafone á Íslandi. Heiðar hefur verið áberandi í íslensku viðskiptalífi og þá sérstaklega í gegnum fjárfestingafélagið sitt Úrsus ehf. Í þessu samtali ræddum við um fjárfestingatækifæri í innviðum, þróun norðurslóða, orkumál, langtíma markmiðasetningu og skilvirkni hagkerfisins.

#19 - Stafrænir innviðir og rafrænar undirskriftir - Valur Þór Gunnarsson

Play Episode Listen Later Jan 27, 2020 43:06


Valur Þór Gunnarsson er meðstofnandi fyrirtækisins Taktikal og er sérfræðingur í rafrænum undirskriftum. Hann Valur hefur starfað í tæknigeiranum í rúm tuttugu ár og meðal annars átt viðkomu í bankageiranum. Í þessu samtali ræddum við um stafræna innviði og rafrænar auðkenningar. Það er að eiga sér stað grundvallarbreyting í flæði viðskipta og ferla með bættum innviðum bæði erlendis og hér heima og getur þjóhagslegur ávinningur verið mikill.

#18 - Samgöngur og samfélagsbreytingar - Jökull Sólberg

Play Episode Listen Later Jan 13, 2020 62:48


Jökull Sólberg er ráðgjafi hjá Parallel ráðgjöf og meðstofnandi Takumi. Hann hefur í gegnum tíðina starfað í hugbúnaðar- og tæknigeiranum hjá auglýsingastofum ásamt því að hafa tekið þátt í QuizUp ævintýrinu. Í þessu samtali ræddum við um samgöngumál og hugtakið örfæði eða „micro mobility“ eins og það heitir á ensku. Framtíð bílsins og borgarlínan fengu sinn skerf af umræðu en við fórum einnig um víðan völl og ræddum tæknifyrirbæri og vísífjárfesta módelið.

#17 - Horft inn í áratuginn - Hjálmar Gíslason og Jökull Sólberg

Play Episode Listen Later Dec 30, 2019 89:10


Jæja þá er komið að því. Þessi þáttur er svokölluð áramótabomba. Einn og hálfur klukkutími af áþreifanlegri framtíðarumræðu sem galopnaði augun mín fyrir tækifærum áratugarins sem er að renna í garð. Við fórum út um víðan völl og reyndum að átta okkur á samspili tækni og samfélagslegra þátta. Rætt var um orkuskiptin, byltingu í framleiðslu matvæla, uppstokkun fjármálamarkaða, mun á hugsunarhætti kynslóða, tækifæri í auknu siðfræði og hvernig gervigreindin og internetið heldur áfram að teygja anga sína í aðra geira. Ég fékk tvo flotta einstaklinga til að spá með mér í áratuginn. Við byrjum að heyra frá honum Hjálmari Gíslasyni sem er betur þekktur sem Hjalli og síðan kemur Jökull Sólberg sterkur inn um miðjan þátt með innlegg um samfélagslegar breytingar og samgöngur. Hjalli dregur þetta svo allt saman í lokin af einskærri snilld. Hann Hjalli hefur verið virkur í tækni og frumkvöðlasenunni á Íslandi. Hann er núna að vinna að sínu fimmta fyrirtæki sem ber heitið Grid og er að draga fram gögn á betri hátt með hjálp töflureikna. Hjálmar er stærsti eigandi og stjórnarformaður Kjarnans og hefur jafnframt gefið út tæknispá á hverju ári á sama miðli. Þessi spá hittir ítrekað naglann á höfuðið og því var tilvalið að fá Hjalla í þáttinn og reyna að ná utan um komandi áratug.

#16 - Undirbúningsþáttur fyrir áramótin

Play Episode Listen Later Dec 16, 2019 2:57


Í dag verður þátturinn ekki formlegur þar sem ég er að vinna hörðum höndum þessa dagana að koma saman áramótaþætti. Það hittir svo skemmtilega á að þarnæsti þriðjudagur er gamlársdagur, sem er líka síðasti dagur áratugarins. Það fer reyndar eftir því hvernig fólk telur, en í mínum bókum er það allavega upphaf áratugarins. Þátturinn gefur okkur því tækifæri sem við gátum ekki látið renna okkur úr greipum og þetta stefnir í að vera viðamesti þátturinn frá upphafi. Ég er að taka saman efni og eiga mjög skemmtileg viðtöl við einstaklinga sem hafa mikið að segja um komandi áratug og þann sem er að líða. Í þættinu munum við helst velta upp hvernig áratugurinn snýr að tækni en það er erfitt að fjalla um komandi áratug án þess að tala um samfélagslegar breytingar sem eru líka að eiga sér stað. Ef þú ert með hugmynd að vinkli til að ræða máttu endilega senda mér línu á kristjan@ibf.is þar sem það er ennþá möguleiki að lauma viðfangsefni eða viðmælanda inn í þáttinn.

#15 - Námuvinnsla rafmynta (e. mining) - Daníel Fannar Jónsson

Play Episode Listen Later Dec 2, 2019 57:56


Daníel Fannar Jónsson situr í stjórn Rafmyntaráðs Íslands og starfar sem ráðgjafi á sviði rafmynta með áherslu á námugröft. Hann hefur áratuga reynslu af upplýsingatækni á alþjóðlegum vettvangi þar sem hann hefur starfað fyrir HP og Dell meðal annara og nú síðast hjá Advania Data Centers sem Director of Blockchain Technologies. Í þessu samtali ræddum við um námugröft rafmynta (e.mining), helmingunaráhrif Bitcoin í maí á næsta ári (e. halving) og ástæður þess að námuvinnsla er svona umfangsmikil á Íslandi.

#14 - Vextir, lán og fjárfestingar - Kristrún Mjöll Frostadóttir

Play Episode Listen Later Nov 18, 2019 63:53


Kristrún Mjöll Frostadóttir er aðalagfræðingur Kviku banka. Kristrún er með BS-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í alþjóðafræðum frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum með áherslu á hagstjórn og alþjóðafjármál, og meistaragráðu í hagfræði frá Boston-háskóla. Kristrún starfaði um tíma hjá fjárfestingarbankanum Morgan Stanley. Þar vann hún sem sérfræðingur í greiningardeild, fyrst í New York og síðan í London. Hún hefur einnig starfað hjá Seðlabanka Íslands, í greiningardeild Arion banka og hjá Viðskiptaráði. Í þessu samtali ræddum við um vexti og þá lágvaxtaslóðir sem þeir hafa þrætt undanfarna mánuði í kjölfar lækkunar á stýrivöxtum. Við ræddum einnig um hvað það er að vera fjármagnseigandi í krafti lífeyrissjóða og hvaða áhrif lægri vextir hafa frá mismunandi sjónarhornum, ásamt því að velta upp tækifærum í fjárfestingum hins opinbera.

#13 - Gulleggið, nýsköpunarstefnan og framtíð Startup Reykjavík - Salóme Guðmundsdóttir

Play Episode Listen Later Nov 4, 2019 36:34


Salóme Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri Icelandic Startups og situr einnig í stjórn Útflutnings- og markaðsráðs Íslandsstofu, Viðskiptaráðs Íslands og Verðbréfamiðstöðvarinnar. Áður starfaði hún forstöðumaður í Opna Háskólanum. Árin 2016 og 2017 var Salóme svo valin ein af hundrað áhrifamestu einstaklinganna innan sprotaheimsins á norðurlöndunum. Í þessu samtali ræddum við um nýmótaða nýsköpunarstefnu stjórnvalda, framtíð viðskiptahraðalsins Startup Reykjavík ásamt því að ræða um Gulleggið sem er frumkvöðlakeppni sem lauk á dögunum. Enn og aftur fer fram fyrirlestur í dag um rafmyntir og bálkakeðjur í Háskóla Íslands í byggingu VR-II í sal 157.

#12 - Hvað eru peningar og hvernig verða þeir til?- Jón Helgi Egilsson

Play Episode Listen Later Oct 21, 2019 62:55


Jón Helgi Egilsson snerti fyrst á Bitcoin árið 2012 og hefur síðan þá komið að nokkrum skýrslum um rafmyntir og bálkakeðjur en þar ber hæst að nefna forsíðugrein í Proceedings of the Institute of Electrical and Electronics Engineers (e. IEEE). Á árunum 2011-2017 var jón vara- og stjórnarformaður bankaráðs seðlabanka Íslands. Jón hefur stofnað fjögur hugbúnaðarfyrirtæki og starfaði sem yfirmaður fjármálamarkaða hjá Landsbankanum. Jón Helgi er verkfræðingur frá DTU í Kaupmannahöfn. Hann var einnig aðjúnkt í fjármálaverkfræði í Háskólanum í Reykjavík og gestafræðimaður í Columbia háskólanum í New York. Þessi þáttur verður með óvenjulegu sniði í dag þar sem þetta er upptaka frá fyrirletri sem var fluttur þriðjudaginn 15 október á seríunni rafmyntir á þriðjudögum. Um er að ræða virkilega gott erindi um hvernig peningar virka og hvernir peningar eru að færast yfir á rafrænt form í auknum mæli. Í dag, þriðjudaginn 22. október fer fram fyrirlesturinn í fyrirlestrarröð um alla anga rafmynta og bálkakeðja. Næstur stígur hann Sveinn Valfells til leiks en hann mun kafa ofan í námuvinnslu.

#11 - Breytingar í menntun og verkefnið SmileyCoin - Gunnar Stefánsson

Play Episode Listen Later Oct 7, 2019 45:44


Gunnar Stefánsson er prófessor við Háskóla Íslands. Hann er mikill áhugamaður um kennslu og hefur um árabil verið í forsvari fyrir Styrktarfélagið Broskalla sem dreifir kennsluefni, hugbúnaði og tölvum til fátækra svæða í Kenýa. Í þessu samtali ræddum við um hvernig stefnur í menntun eru að breytast, hvernig rafrænn kennsluhugbúnaður er að hjálpa sjálfstæði nemenda og hvernig maður fer að því að búa til rafmynt. En að tilkynningum. Frá síðasta þætti um XRP er komið í ljós að Ripple keypti íslenska félagið Algrím og stefnir í sókn á Íslandi. Við óskum þeim í Algrím til hamingju með söluna en einnig er kærkomið að fá fleiri stórfyrirtæki úr geiranum til landsins. Monerium gerði einnig garðinn frægan og framkvæmdi m.a. fyrsta rafræna uppgjör sinnar tegundar í heiminum fyrir IKEA með snjallsamningi og þjóðargjaldmiðlum á bálkakeðjum í síðustu viku. Þessi færsla vakti heimsathygli og það verður gaman að fylgjast með hvað þau taka sér fyrir höndum á næstunni Í dag, þriðjudaginn 8. október fer fram fimmti fyrirlesturinn í fyrirlestrarröð um alla anga rafmynta og bálkakeðja. Næstur stígur hann Gísli Kristjánsson til leiks en hann er einmitt meðstofnandi og tækniþróunarstjóri Monerium. Klárlega fyrirlestur sem þú mátt ekki missa af. Fyrirlestrarnir eru opnir öllum og fara fram í Háskóla Íslands kl 15:00 í sal 157 í byggingu VR-II. Fyrirlestrarnir verða svo haldnir alla þriðjudaga á sama tíma til 26. nóvemer.

#10 - Breytingar í tónlistarheiminum, greiðslumiðlun framtíðarinnar og XRP (Ripple) - Pétur Jónsson

Play Episode Listen Later Sep 23, 2019 58:16


Pétur Jónsson er tónlistarmaður og hljóðhönnuður og hefur starfað í framleiðslu um árabil. Hann var valinn sem samstarfslistamaður ársins árið 2018 hjá Samsung og gerði hringitón í alla Samsung Galaxy síma það árið. Pétur hefur í gegnum árin verið með ýmsar dellur tengdri nýrri tækni og hvernig er hægt að beita henni í daglegu lífi. Í þessu samtali ræddum við um hvernig það er að setja saman tónlist og þær breytingar sem hafa átt sér stað í því ferli með nýrri tækn, breyttu landslagi í útgáfu á stafrænu efni ásamt því hvernig greiðslumiðlun er að breytast með tilkomu rafmynta og bálkakeðjulausna eins og XRP. En að tilkynningum. Það er skemmtilegur áfangi að gefa út tíunda þáttinn í þessari hlaðvarpseríu og móttökurnar hafa verið frábærar. Nú eru komnar yfir 2500 hlustanir og mig langar að biðja þig um að deila þessu og gefa hlaðvarpinu einkunn á streymisveitunni sem þú ert að hlusta á til að þættirnir nái til sem flestra. Jafnframt langar mig að benda á að allar ábendingar eru vel þegnar á netfangið kristjan@ibf.is. Í dag, þriðjudaginn 24. september fer fram þriðji fyrirlesturinn í fyrirlestrarröð um alla anga rafmynta og bálkakeðja. Næstur stígur hann Gunnlaugur Jónsson til leiks, en hann er framkvæmdastjóri Fjártækniklasans. Fyrirlestrarnir eru opnir öllum og fara fram í Háskóla Íslands kl 15:00 í sal 157 í byggingu VR-II. Fyrirlestrarnir verða svo haldnir alla þriðjudaga á sama tíma til 26. nóvemer. En nóg um það, vindum okkur í samtalið.

#9 - Frumkvöðlalífið og meira um Bitcoin - Patrekur Maron Magnússon

Play Episode Listen Later Sep 9, 2019 44:53


Patrekur Maron Magnússon er með BS. gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og er einn af stofnendum vefstofunnar Mojo. Í gegnum árin hefur hann fetað frumkvöðlaveginn og m.a. tekið þátt í tveimur nýsköpunarhröðlum, stofnað þrjú fyrirtæki ásamt því að taka inn styrki og fjármögnun. Í þessu samtali ræddum við um hvernig það er að vera frumkvöðull, þátttöku í nýsköpunarhröðlum, hvernig landslagið hefur breyst með að kaupa rafmyntir, myntkaup.is sem er nýr skiptimarkaður með rafmyntir á Íslandi ásamt áhrifum Bitcoin útgáfuhelmingunarinnar (e. halving) í maí á næsta ári. En að tilkynningum. Í dag, þriðjudaginn 10. september hefst fyrirlestrarröð um alla anga rafmynta og bálkakeðja. Fyrirlestrarnir eru opnir öllum og munu okkar færustu sérfræðingar tala um þeirra sérhæfingu innan geirans. Ég mun opna fyrirlestraröðina í dag klukkan 15:00 í Háskólanum í sal 157 í byggingu VR-II og tala um allt það sem mér þykir spennandi og áhugavert við rafmyntir. Fyrirlestrarnir verða svo haldnir alla þriðjudaga á sama tíma til 26. nóvemer.

#8 - Titringur á heimsmörkuðum, viðskiptastríð og neikvæðir raunvextir - Agnar Tómas Möller

Play Episode Listen Later Aug 27, 2019 56:30


Agnar Tómas Möller er forstöðumaður skuldabréfa og markaða hjá Júpíter. Hann er einnig annar stofnenda Gamma og starfaði þar sem sjóðstjóri og framkvæmdastjóri sjóða frá árinu 2009. Hann hefur starfað á íslenskum fjármálamarkaði frá árinu 2001 er hann starfaði í greiningardeild Búnaðarbanka Íslands. Á árunum 2004–2006 starfaði hann í áhættustýringu Kaupþings og frá árinu 2006 til byrjun árs 2008 í skuldabréfamiðlun Kaupþings. Agnar er með M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Í þessu samtali ræddum við um viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kína, stöðuna í Evrópska hagkerfinu, áhrifin sem neikvæðir vextir hafa á heiminn, þrönga stöðu fjárfestingadeilda lífeyrissjóða, skipun nýs seðlabankastjóra á Íslandi og íslenska fasteignamarkaðinn. En að tilkynningum. Næstkomandi fimmtudag, þann 29 ágúst mun við í Rafmyntaráði halda sumarfögnuð í Iðnó og eru allir velkomnir. Fögnuðurinn hefst kl 17:00 og boðið verður upp á mat og drykk og fjörugar samræður. Mig langar einnig að hvetja þig til að senda okkur ábendingu um viðmælendur eða umræðuefni á netfangið ibf@ibf.is. En nóg um það, vindum okkur í samtalið.

#7 - Rekjanleiki matvæla með bálkakeðjum - Hlynur Þór Björnsson

Play Episode Listen Later Aug 12, 2019 29:57


Hlynur Þór Björnsson er stjórnarformaður Rafmyntaráðs Íslands og er einnig einn af stofnendum rafmyntamarkaðarins isx.is. Hlynur hefur komið víða við í fjármálakerfinu en hann var áður yfirmaður áhættustýringar hjá Valitor, yfirmaður áhættustýringar hjá lífeyrissjóðnum Gildi, í áhættustýringu hjá Arion Banka og var einnig í fjárstýringu Landsbankans. Í þessu samtali ræddum við um bálkakeðjur og hvernig hægt er að skrásetja og fylgja matvælum með hjálp þeirra en þessi tækni er að valda byltingu í gegnsæi og upprunarakningu matvæla. Hlynur vann meistaraverkefni í Iðnaðarverkfræði sem snéri að flutningastýringu lausfrystra sjávarafurða og er núna að skoða tækifæri til að nýta bálkakeðjur í landbúnaði og sjávarútveginum á Íslandi. Áður en við byrjum samtalið langaði mig að lauma inn tveimur tilkynningum. Mig langaði að hvetja þig til að skrá þig á fréttabréf Rafmyntaráðs á vefsíðunni ibf.is. Við sendum reglulega út póst með öllu sem er að gerast í rafmynta- og bálkakeðjugeiranum ásamt komandi viðburðum. Í september mun Háskóli Íslands ásamt Rafmyntaráði vera með fyrirlestraröð um rafmyntir og bálkakeðjur. Stefnt er að því að halda fyrlestur alla þriðjudaga kl 3, en við munum senda nákvæmari tímasetningar frá okkur í fréttabréfinu. Mig langar einnig að hvetja þig til að senda okkur ábendingu um viðmælendur eða umræðuefni á netfangið ibf@ibf.is. En nóg um það, vindum okkur í samtalið.

#6 - Rafmyntir, undirstöður peninga og þjóðargjaldmiðlar á bálkakeðjum - Sveinn Valfells

Play Episode Listen Later Jul 29, 2019 59:34


Sveinn Valfells er framkvæmdastjóri og einn af stofnendum rafeyrisfyrirtækisins Monerium. Hann sendi sína fyrstu Bitcoin færslu árið 2011 og hefur síðan þá farið i fjölmörg viðtöl og haldið fyrirlestra um Bitcoin og bálkakeðjur. Utan við heim bálkakeðja hefur Sveinn verið ráðgjafi, unnið fyrir og stofnað fyrirtæki á sviði líftækni, lífupplýsingafræði, fjármálaþjónustu, símafyrirtækja, hugbúnaðar fyrir snjallsíma og í framtaksfjárfestingum. Sveinn lauk B.S. gráðu í nytjaeðlisfræði frá Columbia, M.S. í efnahagskerfum (e. economic systems) frá Stanford og einnig Ph.D. í eðlisfræði frá háskólanum í Boston. Í þessu samtali ræddum við um dreifðar fjármálalausnir (e. DeFi) sem hafa verið að ryðja sér til rúms, raunverulegar breytingar sem eru að eiga sér stað í fjármálakerfinu, útgáfu lögeyris á bálkakeðjum í formi rafeyris og hvernig sú útgáfa er gjörólíkt Libra. Samtalið var mjög fræðandi og er eitthvað sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

#5 - Hvað gerðist með Nokia? - Magnús Viðar Skúlason

Play Episode Listen Later Jul 15, 2019 44:33


Magnús Viðar Skúlason starfar í vörustýringu á upplýsingatæknisviði Arion banka. Áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri hjá fjarskiptafyrirtækinu IMC Ísland og í ellefu ár hjá Hátækni sem sérfræðingur í Nokia-lausnum. Í þessu samtali ræddum við um gífurlega vöxt og aðlögunarhæfni sem Nokia hefur haft frá stofnun árið 1865 og þá miklu samkeppni sem hefur verið á snjallsímamarkaði undanfarið. Við komum einnig inn á þróunar- og uppbyggingarsögu farsímans á Íslandi.

#4 - Fjártækni ryður sér til rúms - Gunnlaugur Jónsson

Play Episode Listen Later Jul 1, 2019 35:07


Gunnlaugur Jónsson er framkvæmdastjóri Fjártækniklasans sem er samfélag yfir 80 fyrirtækja um framfarir í fjártækni. Í þessu samtali ræddum við um hraða þróun í fjártækni, lægri þröskuld fjártæknifyrirtækja í krafti aðgengilegra regluverks, sköpunarandann eftir bankahrunið og hvernig þjónustuliðir bankanna eru að brotna upp í ýmis fjártæknifyrirtæki.

#3 - Fjárfestingar í nýjum iðnaði - Jenný Ruth Hrafnsdóttir

Play Episode Listen Later Jun 17, 2019 40:36


Jenný Ruth Hrafnsdóttir er meðeigandi hjá Crowberry Capital sem er vaxtafjárfestingasjóður sem hefur fjárfest í nýsköpun og fjártækni. Í þessu samtali ræddum við um fjárfestingar í nýjum iðnaði og tækifæri sem þar leynast ásamt mikilvægi þess að byggja gott nýsköpunarumhverfi sem stuðlar að auknum tækifærum fyrir alla. Í lok þáttarins komum við inn á stöðuna í nýsköpun tengt bálkakeðjum og rafmyntum og hversu ómótað landslagið er í raun. Þátturinn var tekinn upp 29 mars 2019.

#2 - Hvít­bók­in um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerf­ið - Kristrún Tinna Gunnarsdóttir

Play Episode Listen Later Jun 3, 2019 35:04


Kristrún Tinna Gunnarsdóttir er hagfræðingur og starfar sem forstöðumaður stefnumótunar hjá Íslandsbanka, en sat einnig í starfshóp sem vann að hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið. Í þessu samtali (sem tekið var upp í mars 2019) ræddum við um hvítbókina og eignarhald ríkisins á bönkunum, regluverk og aukna skilvirkni með hjálp tækni, ásamt framtíðarsýn á fjármálageiranum.

#1 - Hvað er Bitcoin? - Gísli Kristjánsson

Play Episode Listen Later Jun 3, 2019 35:24


Gísli Kristjánsson er meðstofnandi fyrirtækisins Monerium sem ætlar að gefa út þjóðargjaldmiðla á bálkakeðjum. Í þessu samtali ræddum við um Bitcoin og áhrifin sem það hafði þegar það kom fram, ásamt því að spá fyrir hvernig Bitcoin þróast á næstu árum.

Claim Hlaðvarp Rafmyntaráðs

In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

Claim Cancel