Podcasts about kristr

  • 40PODCASTS
  • 220EPISODES
  • 1h 14mAVG DURATION
  • 1WEEKLY EPISODE
  • Feb 25, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026


Best podcasts about kristr

Latest podcast episodes about kristr

Óli Björn - Alltaf til hægri
Ríkisstjórn brostinna vona

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Feb 25, 2026 28:39


Það er ekki sérlega óvæginn dómur yfir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, eftir 14 mánuði í stjórnarráðinu að segja að stjórnin hafi komið litlu í verk og að staða flestra heimila og fyrirtækja sé verri nú en þegar ríkisstjórnin tók við völdum í desember 2024. Hástemmdar yfirlýsingar í upphafi eru annað hvort gleymdar eða hljóma líkt og háðung fyrir ríkisstjórnina. Hin fögru fyrirheit hafa að mestu reynst innantóm loforð hefðbundinnar vinstri stjórnar. Þegar ríkisstjórnin tók við var verðbólga 4,8% og hafði farið lækkandi allt frá ársbyrjun 2023 þegar hún fór yfir 10% í kjölfar Covid, Reykjaneselda og hækkandi heimsmarkaðsverðs á orku vegna innrásar Rússa í Úkraínu.  Verðbólgan er nú 5,2%. Sama á við um lækkun vaxta. Vaxtalækkunarferlið var hafið í tíð fyrri ríkisstjórnar. Svokölluð kyrrstaða hefur ekki verið rofin, þvert á móti hefur hægst á hjólum efnahagslífsins og atvinnuleysi aukist og hefur ekki verið meira frá covid-tímanum. Vinstri ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins minnir æ meira á síðustu hreinu vinstri stjórnina undir forsæti Samfylkingar á árunum 2009 til 2013. Engu er líkara en Kristrún Frostadóttir hafi grafið upp gamlan leiðarvísi frá Jóhönnu Sigurðardóttur.

covid-19 sama hin sigur vona frostad kristr vinstri
Spegillinn
Fjögur ár frá innrás Rússa í Úkraínu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 24, 2026 20:00


Fjögur ár eru liðin frá innrás Rússa í Úkraínu. Dagur B. Eggertsson og Diljá Mist Einarsdóttir fóru yfir stóru myndina í hljóðveri en austur í Úkraínu, í höfuðborginni Kyiv, er Björn Malmquist staddur. Han tók viðtal Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, þegar hún kom út af fundi hjá bandalagi hinna viljugu þjóða, og spurði hana fyrst hvað færi í gegnum hugann á forsætisráðherra Íslands þegar hún ferðaðist til Kyiv.

bj kyiv fj eggertsson malmquist frostad kristr dagur b
Ein Pæling
#527 Kristrún Frostadóttir - Við stöndum við planið

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Feb 17, 2026 73:53


Þórarinn ræðir við Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formann Samfylkingarinnar.Rætt er um umdeilt mál sem nú er rætt á þinginu um tengingu almannatrygginga við vísitölu neysluverðs, vinnusiðferði ungs fólks, öryrkja, kjarasamninga, verðbólgu, vextina, sleggjuna, nýju stjórnarskránna og aðildaviðræður við Evrópusambandið.Kristrún segir að plani haldi þrátt fyrir verðbólgumælingar. Hún segir gagnrýni á frumvarp ríkisstjórnarinnar um almannatryggingar eiga rétt á sér en að hún sé byggð á röngum forsendum og misskilningi á innihaldi frumvarpsins. Hún hefur ekki áhyggjur af því að frumvarpið muni hafa áhrif á vinnusiðferði en segist samt hafa áhyggjur af ákveðnum þáttum í þeim efnum.Hún segist vilja ganga í Evrópusambandið ef að þóknanlegur samningur liggi á borðinu. Hún segir að breytt staða í heimsmálunum hafi hreyft við henni og að mikilvægt sé að eiga umræðu um aðildarviðræður þegar að þjóðin veit um hvað verði kosið.Í lok þáttarins er rætt um hvort að Pétur Marteinsson hafi verið síðasti hnykkurinn í yfirtöku nýju Samfylkingarinnar á flokknum.- Afhverju mætir Kristrún ekki til Stefáns Einars?- Var Pétur Marteinsson síðasti naglinn í líkkistu gömlu Samfylkingarinnar?- Mun vísitölutenging bóta hafa áhrif á vinnusiðferði á Íslandi?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270  Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me

stef mun evr plani einars afhverju frostad kristr samfylkingarinnar marteinsson
Bylgjan
Bítið - mánudagur 2. febrúar 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Feb 2, 2026 104:46


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Við opnuðum fyrir símann um kílómetragjaldið. Daníel Örn Sigurðsson, töframaður ræddi við okkur um árás sem hann varð fyrir um helgina. Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur var á línunni og ræddi heimsmálin. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra ræddi horfur í efnahagsmálum. Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir, stjórnendur Skuggavaldsins, ræddu við okkur um samsæriskenningar í kringum flugvöllinn í Denver. Íþróttafréttamaðurinn Stefán Árni Pálsson fór yfir umferðina í enska boltanum. Tónlistarkonan Unnur Elísabet settist niður með okkur og ræddi plötuna Skíthrædd.

stef bergmann eir sigur febr heimi frostad kristr
Ein Pæling
#514 Pétur Marteinsson - Nýja Samfylkingin, woke-ið og prófkjör

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Jan 21, 2026 70:36


Þórarinn ræðir við Pétur Marteinsson, frumkvöðul og kaffihúsaeiganda, en hann stefnir nú á að demba sér í stjórnmál og ætlar sér í prófkjör þar sem hann stefnir á að verða oddvit Samfylkingarinnar í næstkomandi borgarstjórnarkosningum. Þar mun hann etja kappi við Heiðu Björg Hilmisdóttur, núverandi borgarstjóra.Spjallið fer um víðan völl en auk þess að ræða það sem hann telur að betur megi fara í borginni er rætt um útlendingamál, rétttrúnaðinn, fylkingar Samfylkingarinnar, öfga-hægrið, inngildingu og það fjárfestingarverkefni sem Pétur fór í á sínum tíma, Hoos 1.- Afhverju vill Kristrún frekar fá Pétur en Heiðu sem borgarstjóra?- Er til woke-hægri?- Er NIMBY-ismi bara réttlætanlegur í Vesturbænum?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270  Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me

er woke bj hei hoos afhverju vesturb kristr samfylkingarinnar marteinsson hilmisd
FM957
Áramótabomba FM957

FM957

Play Episode Listen Later Jan 6, 2026 172:23


Áramótabomba FM957 - Gummi Ársins, Björn Berg, Birta Líf, Nablinn, Kristrún Frostadóttir, Magnús Hlynur, Gunni Birgis og Björn Bragi mæta sem gestir og gera upp árið með Agli Ploder og Rikka G

bj berg magn bragi hlynur frostad kristr
Mannlegi þátturinn
Máni Svavarsson, jólaveðurspjall og Kristrún Halla lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 22, 2025 52:51


Máni Svavarsson er höfundur tónlistarinnar í Latabæ og nú loks eru öll 100 lögin sem hann samdi fyrir hin ýmsu Latabæjarverkefni komin á tónlistarveitur. Við fórum aðeins með Mána yfir þessa sögu ásamt því að heyra af öðrum verkefnum eins og leiksýningu um Gurru Grís (Peppa Pig) sem sýnd hefur verið til dæmis á West End í átta ár fyrir jólin en Máni samdi tónlistina við þessa sýninguna. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo í veðurspjall til okkar í dag. Í þetta sinn var það jólaspáin og jólaveður í löndunum í kring um okkur. Rennur upp hlýjasti aðfangadagur í manna minnum á Íslandi? Og svo fræddi Einar okkur um ástæður landbrotsins við Vík og horfur á sjógangi þar næstu daga. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Kristrún Halla Helgadóttir, sagnfræðingur hjá Íslenskri erfðagreiningu. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Kristrún talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Dagur þjóðar. Þróun 17. júní hátíðarhalda á 19. og 20 öld e. Pál Björnsson. Ósmann e. Joachim B. Schmidt. Persepólís e. Marjane Satrapi. Mzungu e. Þórunni Rakel Gylfadóttur og Simon Okoth Aora Svo á jörðu, e. Nínu Ólafsdóttur. Strá fyrir straumi e. Erlu Huldu Halldórsdóttur Afleggjarinn e. Auði Övu Ólafsdóttur Skáldsaga um Jón & hans rituðu bréf til barnshafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur & undirbjó komu hennar & nýrra tíma e. Ófeig Sigurðsson Tónlist í þættinum: Þorláksmessukvöld / Ragnhildur Gísladóttir (Mel Tormé & Robert Wells, texti Þorsteinn Eggertsson) Litla Jólabarn / Elly Vilhjálms (Elith Worsing, Ludvig Brandstrup og Axel Andreasen, texti Ómar Ragnarsson) Jólin eru hér / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Sigurður Halldór Guðmundsson texti Bragi Valdimar Skúlason) Hin fyrstu jól / Hljómeyki (Ingibjörg Þorbergs, texti Kristján frá Djúpalæk) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Óli Björn - Alltaf til hægri
Þyngri byrðar vinstri stjórnar

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Dec 20, 2025 10:40


Fjárlög komandi árs eru fyrstu fjárlög vinstri stjórnar Kristrúnar Frostadóttur – samsteypustjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokk fólksins. Á grunn þeirra birtist pólitísk stefna stjórnarinnar: Aðalverkfæri ríkisstjórnarinnar er ekki sleggjan, sem Kristrún ætlaði að nota, heldur aukin skattheimta til að standa undir gríðarlegri aukningu ríkisútgjalda. Og aukin ríkisútgjöld eru ekki vegna óvæntra áfalla, stríðs í Evrópu, náttúruhamfara eða farsóttar. Aukin útgjöld eru einfaldlega kjarninn í hugmyndafræði þeirra flokka sem mynda ríkisstjórnina.

fj evr frostad kristr vinstri
Arctic Circle Podcast
Iceland's Role in Arctic Security and Stability

Arctic Circle Podcast

Play Episode Listen Later Dec 11, 2025 17:27


What role does Iceland have to play in Arctic security and stability? And how is the country addressing emerging challenges and opportunities in the region?Joining the conversation is Kristrún Frostadóttir, Prime Minister, Iceland. This Q&A with audience is moderated by Ólafur Ragnar Grímsson, Chairman of Arctic Circle and former President of Iceland.This Session was recorded live at the 2025 Arctic Circle Assembly, held in Reykjavík, Iceland, from October 16th to 18th.Arctic Circle is the largest network of international dialogue and cooperation on the future of the Arctic. It is an open democratic platform with participation from governments, organizations, corporations, universities, think tanks, environmental associations, Indigenous communities, concerned citizens, and others interested in the development of the Arctic and its consequences for the future of the globe. It is a nonprofit and nonpartisan organization. Learn more about Arctic Circle at www.ArcticCircle.org or contact us at secretariat@arcticcircle.orgTWITTER:@_Arctic_CircleFACEBOOK:The Arctic CircleINSTAGRAM:arctic_circle_org

Óli Björn - Alltaf til hægri
Gíslar í haldi Ingu og Flokks fólksins

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Dec 5, 2025 23:50


Guðmundur Ingi Kristinsson hefur ákveðið á víkja farsælum og vinsælum skólameistara úr starfi. Þegar forsaga málsins er höfð í huga er illa hægt að komast að annarri niðurstöðu en að baki ákvörðun ráðherrans sé hefndaraðgerð  – misnotkun á pólitísku valdi til að koma þeim frá sem er ráðherra og félögum hans í Flokki fólksins ekki þóknanlegur. Það má hafa nokkra samúð með forsætisráðherra sem ítrekað kemst í þá stöðu að þurfa að verja verk ráðherra sem misbeita valdi sínu og virðast ekki hafa burði til að gegna ráðherraembættum þannig að sæmilegur sómi sé að. En spurningin er hversu lengi forsætisráðherra ætlar að sætta sig við framgöngu ráðherra Flokks fólksins og misbeitingu valds, til þess eins að tryggja líf ríkisstjórnarinnar og eigin stól í forsætisráðuneytinu. Kannski eru þolmörkin óendanleg þegar kemur að því að verja ráðherrastólana. Það er nöturlegt hlutskipti fyrir Samfylkinguna og Viðreisn, fyrir Kristrúnu og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, að vera pólitískir gíslar Ingu Sælands og Flokks fólksins.

gu katr gunnarsd haldi ingu kannski kristr slar
Spegillinn
Samgönguáætlun og viðbrögð við henni

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 3, 2025 20:00


Ræsum vélarnar er yfirskrift nýrrar samgönguáætlunar sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynntu í morgun, ásamt stofnun innviðafélags. Áætlunin er fyrir árin 2026 til 2040 og innviðafélagið er stofnað um stærri samgönguframkvæmdir. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman það helsta úr kynningu þeirra. Seyðfirðingar sem Ágúst Ólafsson ræddi við á förnum vegi í dag voru ekki par ánægðir með tíðindi dagsins og það var Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþings ekki heldur þegar Ágúst talaði við hana í beinni útsendingu. Siglfirðinga og Fljótafólk var að vonum ánægt með niðurstöðuna, enda Fljótagöng - milli Siglufjarðar og Fljóta - sett í forgang í nýrri samgönguáætlun. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Guðjón M. Ólafsson, formann bæjarráðs Fjallabyggðar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

gu stef gunnarsson og vi sey henni umsj eyj samg flj frostad kristr anna krist freyr g
Bylgjan
Sprengisandur 30.11.2025 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Nov 30, 2025 90:13


Kristján Kriistjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Ríkisstjórn Kristrúnar er nú rétt óorðin eins árs, forsætisráðherra fer yfir sviðið í stjórnmálunum, efnahagsmálum, alþjóðamálum og fleiru.  Valtýr Sigurðsson fyrrverandi dómari og stjórnandi upphafsrannsóknar Geirfinnsmálsins bregst við harkalegum árásum á sig í bókinni Leitin að Geirfinni þar sem hann er sakaður um að hafa hylmt yfir með banamanni Geirfinns frá upphafi til dagsins í dag.  Valur Gunnarsson rithöfundur Erlingur  Erlingsson sagnfræðingur Rússar herða árásir sínar á Úkraínu beint ofan í tillögur um endalok stríðsins, tillögur sem kosta munu Úkraínumenn land og hluta fullveldis síns ef þær ná fram að ganga. Valur og Erlingur ræða þessi mál og víðari skírskotun þeirra. 

valt sigur kristj valur frostad kristr leitin geirfinnsm
Rauða borðið
Þriðjudagur 18. nóvember - Útlendingaólög, um Kristrúnu, embættismennska og utanveltumaður

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Nov 18, 2025 208:06


Þriðjudagur 18. nóvember Útlendingaólög, um Kristrúnu, embættismennska og utanveltumaður Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir lögmaður ræðir nýleg frumvörp um útlendinga og setur hina meintu óreiðu málaflokksins í samhengi. María Lilja ræðir við hana. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor ræðir stjórnartíð Kristrúnar Fostadóttur forsætisráðherra og ríkisstjórnar hennar við Björn Þorláksson þeir spá í hvernig kjörtímabilið þróast m.t.t. ESB og alþjóðamála. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur og Þorvaldur Ingi Jónsson stjórnsýslufræðingur ræða embættismannaskýrsluna svokölluðu og hvort auka eigi völd embættismanna - eða pólitíkusa? Björn Þorláks ræðir við þá. Valdimar Gunnarsson íslenskufræðingur ræðir lífshlaup og skoðanir brottflutts norðlendings og mótlætið sem mætti honum þegar hann snéri aftur heim. Björn Þorláks ræðir við Valdimar sem hefur skrifað bók um utanveltumanninn.

Þjóðmál
#363 – Helgarvaktin með Heiðari Guðjóns og Snorra Mássyni – Bakslag í verðmætasköpunarhaustinu

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Oct 24, 2025 97:29


Heiðar Guðjónsson og Snorri Másson fara yfir stöðuna undir lok vikunnar. Við ræðum um verðmætasköpunarhaustið sem virðist ætla að breytast í (Kristrúnar) Frostavetur, hvaða áhrif það hefur þegar heilt álver er nálægt því að loka, hvort það sé ástæða til að hafa áhyggjur af störfum framtíðarinnar, hvort rétt sé að endurvekja loftslagskvíðann hjá fólki, kvennaverkfall og hið meinta bakslag, utanríkisstefnu sem mótast af tilfinningum frekar en hagsmunum og margt fleira.

tasks gu hei bakslag kristr snorri m
Rauða borðið
Rauða borðið 8. okt - Trump, hervæðing, kristni, veðmál, sigur anti-vók og Hannes Pétursson

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 8, 2025 334:45


Miðvikudagur 8. október Trump, hervæðing, kristni, veðmál, sigur anti-vók og Hannes Pétursson Við höldum áfram að ræða Donald Trump í Trumptímanum á miðvikudögum, hugmyndir hans, verk og áhrif á Bandaríkin og heiminn allan. Að þessu sinni koma að borðinu og ræða við Gunnar Smára hagfræðingarnir Þorsteinn Þorgeirsson og Þorvaldur Gylfason og sagnfræðingurinn Sveinn Máni Jóhannesson. Helga Þórólfsdóttir er sérfræðingur í friðarfræðum og hefur starfað á stríðsfræðum. Hún ræðir við Gunnar Smára um hernaðarhyggju og hervæðingu, sem nú fer sem vofa um öll lönd. Bjarni Randver Sigurvinsson trúarbragða- og guðfræðingur ræðir við Gunnar Smára um áhrif evangelískrar kirkju og ýmissa trúarkenninga á stefnu ríkisstjórnar Donald Trump. Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, ræðir vandann og möguleg úrræði vegna veðmálastarfsemi barna í samtali við Björn Þorláks. Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri og leikararnir Bjarni Snæbjörnsson, Árni Pétur Guðjónsson og Kristrún Kolbrúnardóttir segja Gunnari Smára frá Skamm­ar­þrí­hyrn­ing­num kómískum pólitískum leik um vók og anti-vók sem þau hafa samið ásamt öðrum og sýndur er í Borgarleikhúsinu. Kvæðabók Hannesar Péturssonar kom út fyrir 70 árum og verður tímamótanna fagnað norður í Skagafirði um helgina. Eyþór Árnason ljóðskáld ræðir við Björn Þorláks um tímamótin.

donald trump bj gu ey hannes kv herv krist sigur bandar umf kolbr borgarleikh kristr gylfason skagafir kristni
Mannlegi þátturinn
Sálfræði peninganna, Ragnheiður Gröndal og Friðbjörn og Akureyrarklíníkin á Heilsuvaktinni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 7, 2025 50:00


Tvö viðfangsefni hafa áhrif á okkur öll hvort sem við höfum áhuga á þeim eða ekki: heilsa og peningar. Fólk hefur mjög mismunandi viðhorf til peninga og hegðun okkar þegar kemur að fjármálum fer gjarnan frekar eftir tilfinningum okkar til þeirra en því sem við mögulega kunnum og vitum. Hjónin Georg Lúðvíksson og Kristrún Tinna Gunnarsdóttir þýddu saman bókina Sálfræði peninganna eftir Morgan Housel sem er nýkomin út. Þau komu til okkar í dag og sögðu okkur frá bókinni og þeirra sameiginlega áhugamáli, en eins og þau segja sjálf þá er fjármálanördar hugtak sem á ágætlega við um þau. Ragnheiður Gröndal tónlistarkona var ein af þeim sem hlaut starfslaun til eins árs, sem tónskáld og tónlistarflytjandi. Hún segir að það hafi verið kærkomið að fá næði og rými til eigin tónsmíða og er með mörg járn í eldinum. Við heyrðum í henni í þættinum og hún leyfði okkur að heyra nýtt lag sem er ekki enn komið út. Svo var það Heilsuvaktin. Akureyrarklíníkin hefur á einu ári frá stofnun tekið á móti rúmlega fimm hundrað manns sem greinst hafa með langvinnan Covid sjúkdóm. Friðbjörn Sigurðsson einn úr læknateyminu þar segir sjúkdóminn einkennast af mikilli örmögnun og ofsaþreytu og að sjúklingar sem greinist með hann hafi hvað mesta sjúkdómsbyrði af öllum sjúkdómum sem Friðbjörn hefur komist í kynni við sem fyrrverandi krabbameinslæknir. Hann sé enn ólæknanlegur og læknar viti ekki hvaða lyf og meðferðir reynist bestar fyrir sjúklinga. Það sé þó von því mikil vitundarvakning hafi orðið undanfarin misseri um sjúkdóminn. Friðbjörn segist hafa trú á því að lækning eða lyf finnist samhliða auknum rannsóknum í náinni framtíð. Helga talaði við Friðbjörn á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Verst af öllu / Ríó Tríó (Evert Taube, texti Jónas Friðrik Guðnason) Allar mínar götur / Halli Reynis og Vigdís Jónsdóttir (Halli Reynis) Ég þakka / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Heimsglugginn
Ógnin frá Rússlandi rædd á leiðtogafundi Evrópuleiðtoga

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Oct 2, 2025 23:18


Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu fundahöld evrópskra leiðtoga í Kaupmannahöfn um fjölþáttaógnina frá Rússum. Leiðtogar Evrópusambandsins þinguðu í gær og í dag bætast fleiri evrópskir leiðtogar í hópinn, þar á meðal Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands. Þá var einnig rætt um úrslit kosninga í Moldóvu þar sem PAS-flokkurinn (Aðgerðir og samstaða), fékk meirihluta þingsæta. PAS vill náið samstarf við Vesturlönd og inngöngu í Evrópusambandið.

pas mold lei toga bogi evr kaupmannah frostad kristr
Óli Björn - Alltaf til hægri
Sleggjan notuð á barnafjölskyldur

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Sep 22, 2025 11:27


Kristrún Frostadóttir lofaði fyrir kosningar að nota sleggju til „negla niður þessa vexti“. Loforðið endurspeglast í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem gefin eru fyrirheit um að fyrsta verk stjórnarinnar sé stöðugleiki og lækkun vaxta. Hvorugt hefur gengið eftir. Verðbólgan hefur reynst þrálát og vextir hafa ekki þokast niður. En sleggjan nýtist vel við að berja á barnafjölskyldum með því að afnema samsköttun hjóna.  Afnám samsköttunar mun gera það fjárhagslega erfitt (og jafnvel útilokað) fyrir annað hjóna að vera utan vinnumarkaðar að hluta eða öllu leiti, til að stunda nám, annast ung börn eða sinna langveiku barni eða aldraða foreldra. Innleidd verður alvarleg mismunun og skattbyrði vegna sömu tekna verður misjöfn eftir því hvernig tekjur skiptast á milli hjóna.

afn frostad kristr notu
Óli Björn - Alltaf til hægri
Prófraun ríkisstjórnarinnar

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Sep 4, 2025 15:29


Þegar þing kemur saman 9. september hefst nýr kafli í sögu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Ráðherrar og þingmenn samsteypustjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, hafa frá upphafi haldið því að ríkisstjórnin sé verkstjórn, þar sem verkin tali. Ríkisstjórninni hefur ekki enn sem komið er tekist að koma á stöðugleika eða leggja grunn að lækkun vaxta sem áttu að vera hennar fyrsta verk. Markmið um hallalaus fjárlög næst ekki á kjörtímabilinu þrátt fyrir hækkun skatta. Loforð ríkisstjórnarinnar um fjárfestingar í innviðum, ekki síst samgöngum, breytingar á almannatryggingum, aukin framlög til heilbrigðisþjónustunnar, vinna gegn stöðugleika og lækkun vaxta. Trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar er að veði en þó sérstaklega trúverðugleiki Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra sem gaf stærri fyrirheit en hún hefur náð að efna, fram að þessu. Þótt ríkisstjórnin standi ágætlega meðal kjósenda og Samfylkingin sérstaklega, er hætta sú að það flæði fljótt undan ef árangur næst ekki á komandi mánuðum.

markmi frostad kristr
Spegillinn
Forsætisráðherra um stuðning Norðurlanda og Eystrasaltsríkja við Úkraínu og formaður Framsóknarflokksins um lítið fylgi í skoðanakönnunum og sveitarstjórnarkosningar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 3, 2025 20:00


Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að þrátt fyrir að aðstæður í Úkraínu séu skelfilegar hafi stríðið enn sýnt og sannað mikilvægi alþjóðasamstarfs. Það sem gerist í Rússlandi og Úkraínu snerti öryggi Íslands í pólitískum leik stórþjóða verði Ísland að passa að það verði ekki skilið eftir. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, viðurkennir að hann hafi áhyggjur af því að slakt gengi flokksins í síðustu þingkosningum og skoðanakönnunum smitist yfir á komandi sveitastjórnarkosningar, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Hann vill leiða flokkinn út úr þeim ólgusjó sem flokkurinn er í, fór í naflaskoðun eftir síðustu þingkosningar en bendir jafnframt á hina sígildu og margtuggnu klisju - vika er langur tími í pólitík, hvað þá mánuðir og misseri.

forma ning anak hann fors sigur herra frams frostad kristr ingi j
Chess After Dark
#250 Kristrún Frostadóttir

Chess After Dark

Play Episode Listen Later Aug 23, 2025 88:50


Gestur okkar í kvöld er Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og góðvinkona þáttarins.Þáttur 250!Margir stórir gestur á þessum Q: Róbert Wessman, Bjarni Ben, Jón Ásgeir, Heiðar Guðjóns, Steindi, Sveppi, Benni Gísla, Erpur, Þorgerður Katrín, Ásdís Kristjáns, Guðrún Hafsteins, Gummi í Brim, Aron Pálma og fleiri og fleiri!Þetta væri ekki hægt án þessara frábæru gesta og við erum svo þakklátir þeim sem koma hingað og leyfa okkur að “grilla þau” AKA drottningarviðtöl.Síðast en ekki síst viljum við þakka hlustendum og okkar samstarfsaðilum!Umræðuefni í þættinum:Hvar er sleggjan?EvrópusambandiðÞinglokinÞingstörfin framundanHeimsmálinHúsnæðismálRiddaraspurningarÞessi þáttur er í boði:WOLTKALDINEÓ PIZZA - 25 % AFSLÁTTUR MEÐ KÓÐANUM CAD25.Orka NáttúrunnarDineoutHard RockOryggismyndavelar.isSjöstrand - 15 % afsláttur með kóðanum CAD.LengjanSubwayDave&JonsFrumherjiKEMIEagle golfferðir.

Spegillinn
Ástand á Alþingi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 10, 2025 10:00


Skömmu fyrir miðnætti í gær sleit Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og fimmti varaforseti Alþingis, þingfundi, án samráðs við forseta Alþingis. Þetta varð til þess að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti sérstakt ávarp við upphaf þingfundar í morgun, þar sem hún sagði nýja og fordæmalausa stöðu komna upp í íslenskum stjórnmálum, þar sem stjórnarandstaðan neitaði í raun að viðurkenna úrslit þingkosninga með því að halda þinginu í gíslingu með lengra málþófi en dæmi séu um í sögunni. Hún lauk svo máli sínu á yfirlýsingu um að hún og ríkisstjórnin hygðust verja Lýðveldið Ísland, stjórnskipan landsins og heiður Alþingis. Stór og þung orð, og umræðan í kjölfarið einkenndist líka af stórum orðum og þungum, þar sem stjórnarliðar hafa gengið svo langt að saka Hildi um atlögu að lýðræðinu og jafnvel líkt þessu við valdaránstilraun, en stjórnarandstæðingar saka stjórnina um yfirgang og skort á samráðs- og samningsvilja. Svona hélt þetta áfram þar til fundi var frestað klukkan fimm, vegna fundar flokksformanna. Ævar Örn Jósepsson ræddi þá stöðu sem uppi er við þau EIrík Bergmann Einarsson prófessor í stjórnmálafræði og Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur, sem var þingfréttamaður RÚV um margra ára skeið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

stand rv sj eir ingi umsj vigd svona hildi frostad kristr hjaltad
Óli Björn - Alltaf til hægri
Ríkisstjórn án áttavita

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Jul 10, 2025 19:27


Ráðherrar og þingmenn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur – samsteypustjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins – hafa frá upphafi haldið því að ríkisstjórnin væri verkstjórn, þar sem verkin tali. Stefnan sé skýr og umboð óumdeilt. Fyrstu þrjár setningar í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar eru skýrar: „Ný ríkisstjórn gengur samstíga til verka. Fyrsta verk er að ná stöðugleika í efnahagslífi og lækkun vaxta, með styrkri stjórn á fjármálum ríkisins. Um leið mun ríkisstjórnin rjúfa kyrrstöðu og vinna að aukinni verðmætasköpun í atvinnulífi.“ Rúmum  sex mánuðum síðar hefur ríkisstjórnin komið litlu í verk. Stöðugleika í efnahagslífinu er ógnað, markmið um hallalaus fjárlög næst ekki á kjörtímabilinu, skattar eru hækkaðir, verðbólga er á uppleið, vextir lækka ekki, og í atvinnulífinu halda menn að sér höndum í fjárfestingum ekki síst í sjávarútvegi og tengdum greinar.  Alþingi er í uppnámi – stjórn- og skipulagsleysi einkennir allt þinghald. Alþingi er líkist fremur æfingabúðum ríkisstjórnarflokkanna í stjórnmálum en löggjafarsamkomu. Þegar þessi þáttur er takinn upp, að morgni 10. júlí, er staðan óbreytt á þingi. Allt í hnút.

allt fyrsta fyrstu frostad kristr
Spegillinn
Varnarbúnaður á norðurslóðum

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 28, 2025 20:00


Aukinn varnarbúnaður á norðurslóðum var meðal þess sem Kristrún Frostadóttir, forsætirráðherra og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Nato, ræddu á blaðamannafundi sínum í dag. Í Háskólanum á Akureyri var einnig fjallað um norðurslóðir í dag og þau miklu áhrif sem breytt heimsmynd hefur haft innan Norðurskautsráðsins meðal annars. Þá er spurt hvort ríkisstjórnin eigi að stöðva málþóf sem komið er fram úr hófi. Því vopni hefur ekki verið beitt í sextíu og sex ár.

nato mark rutte akureyri frostad kristr ursl
Bylgjan
Bítið -14. maí 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 14, 2025 89:13


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómar Úlf.   Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, kíkti í spjall og fór yfir málefni sveitarfélagsins. Harpa Magnúsdóttir, forstjóri Hoobla, ræddi við okkur um sjálfstætt starfandi fólk sem ríkir misskilningur um.   Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra settist niður með okkur og fór yfir nýlega ferð til Færeyja. Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir, stjórnendur Skuggavaldsins, ræddu við okkur um leyniregluna Illuminati og samsæriskenningar.   Svavar Elliði Svavarsson, kennari og tónlistarmaður, fór í hárígræðslu til Tyrklands og sagði okkur af því.   Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, ræddi við okkur um nýja herferð samtakanna.

illuminati bergmann eir heimi frostad kristr tyrklands
Þjóðmál
#311 – Helgarvaktin með Þórði og Erni – Kristrúnu hlýtur að svíða í prófgráðuna

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Apr 25, 2025 53:31


Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson mæta á helgarvaktina og fjalla um allt það helsta sem er að eiga sér stað í þjóðfélaginu, aðför ríkisstarfsmanna og stjórnmálamanna gegn verðmætasköpun, illa undirbúin stjórnarfrumvörp, máttlausa gagnrýni á máttlausar hagræðingaraðgerðir, áhugaleysi stjórnmálanna á því að tala máli fyrirtækja á erlendum vettvangi og margt annað skemmtilegt.

gunnarsson arnarson kristr
Óli Björn - Alltaf til hægri
Sótt í skúffur Jóhönnu og Steingríms J.

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Apr 16, 2025 14:31


Vinstri ríkisstjórn þriggja flokka undir forsæti Kristrúnar Frostadóttur minnir æ meira á aðra vinstri stjórn – ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna á árunum 2009 til 2013. Þá lögðu Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon til atlögu við atvinnulífið og millistéttina. Skattar voru hækkaðir og haft í hótunum við undirstöðuatvinnugreinar landsins. Hugmyndafræði vinstri manna hefur því ekkert breyst. Hún byggir á þeirri trú að ríkissjóður sé að „kasta frá sér tekjum“ ef skattar eru ekki hækkaðir. Ekki sé verið að „nýta tekjutækifæri ríkisins“ og ríkissjóður sé að „afsala sér tekjum“ ef skattar og gjöld eru lækkuð.

sigur ekki steingr frostad kristr vinstri
Samfélagið
Stjórnmálaveturinn og heimsókn í Hússtjórnarskólann í Reykjavík

Samfélagið

Play Episode Listen Later Apr 15, 2025 55:00


Þingveturinn hefur verið forvitnilegur - ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við völdum rétt fyrir jól og þing var svo sett 4. febrúar síðastliðinn. Þetta hefur því ekki verið langur tími hjá nýrri ríkisstjórn en við fórum yfir þingveturinn með Magnúsi Geir Eyjólfssyni, þingfréttaritara RÚV. Í 103 ára gömlu 800 fermetra húsi við Sólvallagötu í Reykjavík er að finna Hússtjórnarskólann í Reykjavík en þar læra nemendur ýmislegt gagnlegt. Fyrir utan það augljósa - að matreiða og sauma, þá er líka kennd ræsting, blettahreinsun og að strauja. Nýlega hafa bæst við námskeið fyrir börn á aldrinum 6-15 ára. Samfélagið kíkti í heimsókn í skólann sem staðsettur er í einu fallega húsi landsins, að Sólvallagötu 12. Við förum í fylgd Kristínar Láru Torfadóttur kennara við skólann en ræðum einnig við kennarana Katrínu Jóhannesdóttur og Eddu Guðmundsdóttur ásamt nemendum við skólann. Tónlist frá útsendingarlogg 2025-04-15 Redman, Joshua, Cavassa, Gabrielle - Streets Of Philadelphia. Diana Ross og Marvin Gaye - Just say, just say GDRN - Vorið

Spegillinn
Forsætisráðherra ræðir um tollaskjól og skipulögð brotastarfsemi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 9, 2025 20:00


Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræddi í dag við forystu Evrópusambandsins um tollamál og hvernig Ísland gæti komist hjá því að lenda á milli í tollastríði Evrópu og Bandaríkjanna. Hún segir að sín skilaboð hafi komist skýrt og milliliðalaust til skila. Kristrún hefur áhyggjur af áhrifum þess á íslenskan útflutning ef ESB bregst hart við því ef vörur sem ekki eigi greiða leið inn á Bandaríkjamarkað flæði inn á þann Evrópska. Skipulögð glæpastarfsemi hefur náð að festa hér rætur og birtist með ýmsum hætti. Þingmennirnir Guðrún Hafsteinsdóttir og Grímur Grímsson ræddu um hvernig bregðast megi við. Þau telja bæði að styrkja þurfi heimildir lögreglu til afbrotavarna.

gu fors esb bandar evr herra frostad kristr hafsteinsd
Óli Björn - Alltaf til hægri
Grafið undan lífskjörum

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Apr 2, 2025 26:24


Með skipulegum hætti hafa andstæðingar viðskiptafrelsis reynt að grafa undan athafnamönnum með ágætum árangri, ekki aðeins í sjávarútvegi heldur einnig í öðrum greinum. Þeir hafa sáð fræjum tortryggni gagnvart þeim sem stunda atvinnurekstur, gert þá sem hagnast á viðskiptum að skotspæni og táknmyndum hins illa. Skiptir engu hvort um er að ræða dugnaðarforka sem byggt hafa upp glæsileg fyrirtæki í sjávarútvegi eða iðnaðarmenn sem hafa byrjað með tvær hendur tómar en með elju og útsjónarsemi komið á fót traustum og arðsömum fyrirtækjum. Ekki einu sinni litlir sjálfstæðir atvinnurekendur – bakbein frjálsra viðskipta – fá að vera í friði líkt og Samfylkingin hefur sérstaklega hótað. Tilraun ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar, 2009 til 2013, til að knésetja íslenskan sjávarútveg var þáttur í áralangri baráttu vinstri manna gegn frjálsu viðskiptalífi. Margir atorkusamir atvinnurekendur skildu ekki og skilja ekki enn að þegar búið er að koma böndum á „sægreifana“ kemur röðin næst að þeim. Í barnslegu sakleysi sátu þeir þegjandi hjá og nokkrir glöddust yfir því að nú skyldi útgerðin látin „borga“. Nú ætlar vinstri stjórn Kristrúnar Frostadóttur að leggja aftur til atlögðu við atvinnulífið. Nú er ferðaþjónustan í skotlínunni ásamt sjávarútvegi. Sú hætta er raunveruleg að dregið verði úr samkeppnishæfni tveggja mikilvægustu útflutningsgreina okkar, sem eru í harðri alþjóðlegri samkeppni, með ofursköttum. Til skamms tíma munu tekjur ríkisins líklega aukast en til lengri tíma lækka vegna minni umsvifa, lakari afkomu og fækkun starfa. Afleiðingin verður lakari lífskjör okkar allra.

Spegillinn
100 daga ríkisstjórn og eftirlitslaus ungmenni á netinu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 31, 2025 20:00


Gengið hefur á ýmsu fyrstu 100 daga ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins en engan bilbug var að finna á formönnunum þegar blásið var til fundar. Fjármálaráðherra kynnti í morgun 5 ára fjármálaáætlun og þar boðuð aukin útgjöld til öryggis- og varnarmála og framkvæmda í vegamálum tekjur á meðal annars að sækja með veiðigjaldi, kílómetragjaldi og gjaldtöku af ferðamönnum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir stjórninga þegar hafa gert margt og þannig verði haldið áfram. Sjónvarpsþættirnir Adolesence hafa vakið mikið umtal síðustu daga - Skúli Bragi Geirdal,sérfræðingur í miðlalæsi segir að þótt margt gott hafi gerst séu líka ýmsar blikur á lofti.

sj fj daga adolesence frostad kristr gengi
Bylgjan
Bítið - mánudagur 17 mars 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Mar 17, 2025 88:38


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.   Kristján Sigurjónsson, ritstjóri FF7.is, var á línunni og ræddi ferðamál vítt og breitt. Ragnheiður K. Jóhannesdóttir Thoroddsen fór yfir sína Endó-sögu.   Símatími   Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra settist niður hjá okkur og ræddi allt frá lífeyrissjóðum til RÚV. Hrefna Björk Sverrisdóttur og Arnar Þór Ólafsson, stjórnendur þáttanna Viltu finna milljón á Stöð 2, ræddu við okkur um fjármál.

mars rv ff7 kristj arnar sigurj ragnhei thoroddsen heimi frostad kristr sverrisd
Spegillinn
Kristrún í München og Guðrún segist ekki vera í fylkingu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 14, 2025 19:50


Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir kom í Spegilinn þegar hún tilkynnti um sitt formannsframboð og í þættinum verður rætt við hinn formannsframbjóðandann, Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Sjálfstæðisflokkurinn er á stað sem hann er ekki vanur að vera á og það hefur verið talað um átök milli fylkinga. Við spyrjum Guðrúnu út í það. Við byrjum á öryggisráðstefnunni í München þar sem margir helstu ráðamenn eru samankomnir til að fjalla um ástand heimsmála, í þeim hópi er Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. Ævar Örn Jósepsson ræddi við hana.

gu sj ekki frostad kristr hafsteinsd
Spegillinn
Sparnaður í samráðsgátt og klamydía ógnar kóalabjörnum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 3, 2025 20:05


En það vakti nokkra athygli þegar Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, fór þá leið að óska eftir ábendingum frá almenningi um hvernig væri hægt að spara í ríkisrekstrinum. Ekki stóð á viðbrögðunum; nærri fimmtán hundruð athugasemdir hafa verið sendar inn á samráðsgátt stjórnvalda og þar má sjá allskonar hugmyndir; leggja niður RÚV, loka landinu fyrir hælisleitendum, hætta að veita áfengi í veislum og fækka sendiráðum. Fresturinn til að skila inn umsögn rennur út í lok mánaðar og eftir það fer sérstakur hópur á vegum forsætisráðuneytisins yfir ábendingarnar. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingmaður Samfylkingarinnar, fara yfir málið. Klamydía ógnar tilvist einhverrar allra krúttlegustu skepnu heims - kóala- eða pokabjarnarins ástralska. Vísindamenn vinna hörðum höndum að því að þróa bóluefni til að forða þeim frá útrýmingu.

rv gu sj ekki samr gnar frostad kristr samfylkingarinnar
Bylgjan
Sprengisandur 22.12.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Dec 22, 2024 86:42


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka um efnahagsmál. Halla Hrund Logadóttir alþingismaður og Katrín Helga Hallgrímsdóttir lögmaður Samorku um raforkumál. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Inga Sæland félags- og húsnæðisráðherra um stjórnmál.   Björn Ingi Hrafnsson blaðamaður og Karen Kjartansdóttir ráðgjafi um stjórnmál.

Lestin
Femínismi á tímum Valkyrjustjórnar

Lestin

Play Episode Listen Later Dec 5, 2024 56:56


Þessa dagana funda formenn þriggja stjórnmálaflokka og freista þess að mynda nýja ríkisstjórn. Þessi sögulega stjórn hefur verið kölluð valkyrjustjórnin enda eru þetta allt konur, Kristrún Frostadóttir frá Samfylkingu, Þorgerður Katrín frá Viðreisn og Inga Sæland frá Flokki Fólksins, og munu þær líklega skipta með sér valdamestu embættum ríkisstjórnarinnar á næstu árum. En það verða ekki bara forsætisráðherra og fjármálaráðherra sem verða að öllum líkindum konur næstu árin heldur er nú þegar kona í embætti forseta Íslands, kona er biskup þjóðkirkjunnar, kona er ríkislögreglustjóri og konur skipa æðstu embætti í mörgum af menningarstofnunum þjóðarinnar. Spurningin sem við ætlum að velta upp í dag, er hvort að kynjajafnrétti sé endanlega náð á Íslandi, eru einhver verkefni eftir fyrir femínismann, er Ísland að stefna í átt að mæðraveldi? Hvernig lítur femínismi út á tímum valkyrjustjórnarinnar? Gestir okkar eru Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur og fyrrum þingkona Kvennalistans svo eitthvað sé nefnt, Brynhildur Karlsdóttir, tónlistarkona, og Alma Dóra Ríkharðsdóttir, viðskiptafræðingur og stofnandi smáforritsins Heima.

Spegillinn
Valkyrjur hefja viðræður, 33 nýir á þingi, valdefling drengja í framhaldsskólum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 3, 2024 19:32


Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Inga Sæland eða Valkyrjurnar eins og sú síðastnefnda kallar þær hefja stjórnarmyndunarviðræður af fullum krafti á morgun. 33 nýir þingmenn setjast á þing eftir kosningarnar, af þeim hafa sex áður setið á þingi. Þetta er mesti fjöldi nýrra alþingismanna og þeir fá kynningu á þingstörfum fyrir jól. 33 þingmenn fara á biðlaun, þar með taldir fyrrverandi ráðherrar Framsóknarflokksins. Löngu tímabært er að þróa fræðilegar kennsluaðferðir til að takast á við brottfall drengja úr framhaldsskólum. Menntaskólinn á Tröllaskaga vill vera í fararbroddi þar og vinnur með fleiri norrænum skólum við að greina og bæta hrakandi námsárangur drengja.

katr ingi gunnarsd ingas frams menntask frostad kristr
Bylgjan
Sprengisandur 01.12.02024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Dec 1, 2024 87:19


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og Sanna Magdalena Mörtudóttir um úrslit kosninga. Þorgerður Katrín formaður Viðreisnar og Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar um úrslit kosninga. Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins, Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks og Bergþór Ólafsson Miðflokki um úrslit kosninga. Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur og Eva H. Önnudóttir stjórmálafræðingur um úrslit kosninga.

berg sj sigur katr kristj evah ingas frams frostad kristr ingi j bjarni benediktsson
Podcast með Sölva Tryggva
Kristrún Frosta með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Nov 28, 2024 100:41


https://solvitryggva.is/ Kristrún Frostadóttir er formaður Samfylkingarinnar. Henni hefur skotið hratt upp á stjörnuhimininn í stjórmálunum og flokkur hennar hefur undanfarið ítrekað mælst stærsti flokkur landsins. Í þættinum ræða Kristrún og Sölvi um hlutverk ríkisins, íslenskt samfélag, feril Kristrúnar, stjórnmálin og margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/

caveman henni frosta frostad kristr samfylkingarinnar
Lestin
xTwitch, hvað sameinar þjóðina? Rýnt í Hygge og Eftirleiki

Lestin

Play Episode Listen Later Nov 28, 2024 54:04


Íslenskir stjórnmálamenn eru mættir á Twitch, Kristrún Frostadóttir spilaði skotleikinn COD í beinni útsendingu hjá Gametíví og Bjarni Benediktsson mætti í tveggja tíma beint streymi hjá tengdasyni sínum, tónlistarmanninum og áhrifavaldinu Lil Binna. Lestin sökkvir sér ofan í twitch og pólitík. Hvað sameinar þjóðina? Snorri Páll Jónsson veltir því fyrir sér hvort það sé eitthvað sem sameini þjóð meira en sundrung og skautun. Kolbeinn Rastrick rýnir í tvær kvikmyndir eftir íslenska leikstjóra sem eru nú í sýningum í bíó. Hygge er nýjasta kvikmynd Dags Kára, en myndin er dönsk endurgerð á hinni ítölsku Perfetti sconosciuti eftir Paolo Genovese. Sú mynd hefur verið endurgerð oftar en nokkur önnur mynd, meðal annars á íslensku undir heitinu Villibráð. Hin myndin sem Kolbeinn segir frá er Eftirleikir eftir Ólaf Árheim, lítill og ódýr en yfirgengilegur ógnartryllir með kómísku ívafi.

twitch hva cod hygge hin perfetti paolo genovese lestin gamet frostad kristr kolbeinn bjarni benediktsson
Stundin
Formannaviðtöl #6: „Ég er að leggja allt undir“

Stundin

Play Episode Listen Later Nov 25, 2024


Kristrún Frosta­dótt­ir, formað­ur Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, stefn­ir með flokk sinn í rík­is­stjórn. „Auð­vit­að hef ég brugð­ist sem formað­ur í þess­um flokki ef við end­um með hægri stjórn,“ seg­ir hún. Það hafi skort virka póli­tíska stefnu al­veg frá hruni, póli­tískri ábyrgð hafi ver­ið út­vistað en nú sé tæki­færi til al­vöru breyt­inga.

allt frosta undir kristr
Stundin
Pod blessi Ísland #2: Kappræðugreining: Innblásinn Sigurður Ingi, Kristrúnarplanið á xS.is og tilhugalíf Sigmundar og Bjarna

Stundin

Play Episode Listen Later Nov 2, 2024


Gleðilegan kosningamánuð. Í öðrum þætti Pod blessi Ísland fara Aðalsteinn og Arnar Þór yfir kappræður gærkvöldsins. Þáttarstjórnendurnir sjálfir íhuga framboð eins lista í NV-kjördæmi í næstu kosningum til að fá vettvang til að viðra skoðanir sínar í kappræðum ríkismiðilsins. Farið yfir frammistöðu Jóhannesar Loftssonar og allra hinna leiðtoganna í íslenskri pólitík, það sem kom á óvart og það sem gerði það ekki. Þemalag þáttarins er Grætur í Hljóði eftir Prins Póló.

FantasyGandalf
#128 - Kristrún vill Dag burt, typpi eru að stækka og 12 ótrúleg ráð í rúminu

FantasyGandalf

Play Episode Listen Later Oct 31, 2024 83:29


Kristrún skrifaði þetta viljandi. Jón góði og Valtýr Guðjóns í hanaslag um Spilverk þjóðanna, góðar fréttir fyrir konur - typpi eru að stækka og 12 alveg ótrúleg ráð sem þú getur notað í rúminu. Þetta og svo mjög mikið margt annað í þætti vikunnar. Góða skemmtun!

Stundin
Pod blessi Ísland #1: Gnarr jarðsetur Pírata, óvinsæl spurning til Selenskí, einkaskilaboð Kristrúnar og Klaustur-endurfundir

Stundin

Play Episode Listen Later Oct 29, 2024


Í fyrsta þætti Pod blessi Ísland, í umsjá Aðalsteins Kjartanssonar og Arnars Þórs Ingólfssonar, blaðamanna Heimildarinnar, er farið yfir nýjustu vendingar í stjórnmálum og rýnt í líklegar ríkisstjórnir út frá nýrri þingsætaspá Heimildarinnar og Dr. Baldurs Héðinssonar. Var það taktísk snilld hjá Viðreisn að setja Jón Gnarr í 2. sæti? Munu Egilsstaðabúar hætta við að kjósa Samfylkinguna af því að Dagur B. er á lista í Reykjavík? Er Ragnar Þór Ingólfsson hægrimaður? Við fáum ferðasögu Aðalsteins frá Þingvöllum og frásögn af blaðamannafundi þar sem hann lagði óvænta spurningu fyrir Volodimír Selenskí um áframhaldandi viðskipti Íslendinga við Rússa eftir innrás Pútíns í Úkraínu. Í lok þáttar er svo farið stuttlega yfir nýja bók Steingríms J. Sigfússonar, sem fjalla um alla snillingana sem hann kynntist í stjórnmálum. En svo droppar hann líka nokkrum sprengjum. Þemalag þáttarins er Grætur í Hljóði eftir Prins Póló

var ing rata reykjav sigf hlj steingr gnarr kristr arnars prins p dagur b
Bylgjan
Sprengisandur 20.10.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Oct 20, 2024 97:46


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins um stjórnmálin.   Sigríður Andersen fyrrverandi ráðherra um stjórnmálin. Össur Skarphéðinsson fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar um pólitíkina. Lilja Alfreðsdóttir alþingismaður um pólitíkina.

andersen kristj sigr frostad kristr skarph samfylkingarinnar lilja alfre
Podcast með Sölva Tryggva
#314 Kristrún Frosta með Sölva Tryggva (Áskriftarþáttur)

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Oct 16, 2024 20:00


Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Kristrún Frostadóttir er formaður Samfylkingarinnar. Henni hefur skotið hratt upp á stjörnuhimininn í stjórmálunum og flokkur hennar hefur undanfarið ítrekað mælst stærsti flokkur landsins. Í þættinum ræða Kristrún og Sölvi um hlutverk ríkisins, íslenskt samfélag, feril Kristrúnar, stjórnmálin og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/

henni frosta frostad kristr samfylkingarinnar
Bylgjan
Sprengisandur 15.09.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Sep 15, 2024 95:14


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði við HÍ um samfélagsmál. Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Bjarni Benediktsson forsætisráðherra um stjórnmál. Snæbjörn Guðmundsson formaður Náttúrugriða og Eggert Valur Guðmundsson Oddviti Rangárþings Ytra um orkumál. Halla Gunnarsdóttir varaformaður VR um samfélags- og efnahagsmál. 

vr gu sn halld kristj frostad kristr samfylkingarinnar bjarni benediktsson
Fotbolti.net
Niðurtalningin - Ekki afskrifa Keflvíkingana

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 15, 2024


Það er núna akkúrat vika í það að Besta deild kvenna fari af stað en sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Keflavík muni enda í tíunda sæti deildarinnar. Við á Fótbolti.net munum hita upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Viðtölin eru gefin út á hlaðvarpsformi en fyrir hönd Keflavíkur mættu Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, aðstoðarþjálfari, og Kristrún Ýr Holm, fyrirliði.

Óli Björn - Alltaf til hægri
Eldar í húsi Samfylkingarinnar

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Feb 29, 2024 15:50


Þegar spurðist út að formaður Samfylkingarinnar telji nauðsynlegt að breyta stefnunni í málefnum hælisleitenda fóru margir af taugum. Stór orð voru látin falla. Svo mikill var pólitíski skjálftinn innan raða Samfylkinga að tveir gamlir formenn töldu sig nauðbeygða til að taka til varna fyrir Kristrúnu. Össur Skarphéðinsson hafnaði því að Kristrún hafi verið að boða stefnubreytingu og í svipaðan streng tók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Kristrún hafi bara verið með „almennar vangaveltur um ýmsar hliðar þessara mála. Ingibjörg Sólrún hafði hins vegar áhyggjur af því að hinar almennu „vangaveltur“ Kristrúnar væru að ala á sundrungu innan flokksins: „Látum ekki siga okkur hverju á annað.“ Stefnubreyting eða ekki stefnubreyting? Kannski skiptir svarið ekki öllu en hitt er augljóst að Kristrún Frostadóttir talar með allt öðrum hætti en þingmenn og frambjóðendur Samfylkingarinnar hafa gert á undanförnum árum. Og það er lítill samhljómur með orðum Kristrúnar og ályktana flokksins.

eldar svo ingibj kannski frostad kristr skarph samfylkingarinnar
Vikulokin
Kristrún Frostadóttir, Jódís Skúladóttir og Guðbrandur Einarsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Nov 4, 2023 55:00


Gestir Vikulokanna eru Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar, Jódís Skúladóttir þingmaður Vinstri grænna og Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu sjókvíaeldi, stefnu íslenskra stjórnvalda varðandi átökin á Gaza, efnahagsmál og komandi kjaraviðræður og jarðskjálftana á Reykjanesskaga. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

gaza gu einarsson umsj frostad kristr samfylkingarinnar vinstri