POPULARITY
Þriðjudagur 10. júní Herinn til LA, Thunberg, Trump, Grímur, lífeyrissjóðir og gervigreind Dröfn Ösp Rozas ræðir við Maríu Lilju um mótmælin í LA sem hún segir að sé mikilvægt að kalla ekki óeirðir. María Lilja ræðir við Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, lögmann og formann Siðmenntar um fleyið Madleen sem stöðvuð var með nauðsynlegar vistir fyrir utan Gaza stendur. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um Trump og heimsmálin, ástandið í Kaliforníu og Úkraínu, á Gaza og Mið-Austurlöndum og vaxandi stórveldaátök í heiminum. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrum lögga, segir frá sjálfum sér, þinginu, ofbeldismálum í samfélaginu og ýmsu öðru í samtali við Björn Þorláksson. Björn Þorláksson heldur áfram umfjöllun sinni um lífeyrissjóði. Þórey Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, ræðir kosti og galla íslenska lífeyrissjóðakerfisins. Hvað aðgreinir okkur frá sambærilegum sjóðum utan landsteinanna? Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára um þá afgerandi samfélagsbreytingu sem gervigreindin mun valda, ekki bara í samfélaginu og völdum innan þess, heldur á sjálfsmynd okkar sjálfra.
Þóra ræðir við Sigríði Mogensen hjá Samtökum iðnaðarins og Hauk Ásberg Hilmarsson hjá Landsvirkjun um vefinn orkuskipti.is, sem fjallar um það hvernig Íslendingar geta skipt út milljón tonnum af olíu á ári fyrir loftslagsmarkmið, orkuöryggi, hreinna loft og orkusjálfstæði.
Rauða borðið, mánudaginn, 26. maí. Samstöðin, Mótmæli, Aðildarumsókn, Akureyrar-cóvíd og Þokkabót Við hefjum Rauða borðið á smá spjalli um stöðu Samstöðvarinnar og kynnum síðan dagskrá kvöldsins. Við byrjum á því að fara niðrí bæ á mótmæli. María Lilja og Oddný Eir ræddu við fólk sem kom til að mótmæla brottvísun Oscars Andres Florez Bocanegra. Þær hittu fyrir þjóðþekkt andlit og önnur minna þekkt, fólk sem er vant að mótmæla og aðra sem eru að uppgötva samtakamáttinn. Gunnar Smári ræðir því næst við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor í stjórnmálafræði um mögulega aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu, um muninn á krónu- og evruhagkerfinu. Og svo ræða þeir um síðustu skeyti Trump og afstöðu John Bolton, fyrrum öryggisráðgjafa, til stöðu Íslands gagnvart Bandaríkjunum. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor í stjórnmálafræði um mögulega aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu, um muninn á krónu- og evru-hagkerfinu. Og svo ræða þeir um síðustu skeyti Trump og afstöðu John Bolton, fyrrum öryggisráðgjafa, til stöðu Íslands gagnvart Bandaríkjunum. Í tímaritinu Súlur hefur birst ný grein eftir Grétar Þór Eyþórsson prófessor á Akureyri um covid-tímann á Akureyri. Grétar ræðir rannsóknina að baki þeirri grein í samtali við Björn Þorláks sem og hallarbyltingu sósíalista. Hljómsveitin Þokkabót er komin á kreik á ný en Íslendingar kannast vel við smelli fortíðar úr smiðju hljómsveitarinnar líkt og Litlir kassar. Þeir Lárus Halldór Grímsson, Ingólfur Steinsson og Halldór Gunnarsson ræða við Björn Þorláks um pólitíska texta, listina að hlusta – og margt fleira.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Már Wolfgang Mixa dósent í fjármálum við HÍ ræðir stöðuna í hagkerfinu, vaxtaákv. stendur fyrir dyrum í vikunni og ólíklegt að vextir lækki í bili. Haraldur Þór Jónsson oddviti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar ræða nýja stefnu veiðifélags Þjórsár sem undir forystu Haraldar mælir nú kröftuglega fyrir nýjum virkjunum í Þjórsá og telur það laxastofninum í ánni í hag. Dagbjört Hákonardóttir alþingismaður hefur beitt sér fyrir stuðningi Íslands við Palestínu og stutt aðgerðir forsætisráðherra á alþjóðavettvangi þar sem Ísland er nú í forystu ríkja sem skora á Ísrael að breyta stefnu sinni á Gasa. Dagbjört ræðir næstu skref í málinu af hálfu Íslendinga. Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor á Akureyri ræðir stöðuna í Úkraínu og víðar - viðræður deiluaðila í Tyrklandi skiluðu litlu, Evrópuleiðtogar hnykla vöðvana og Trump lofar símtali við Pútín strax á morgun - er eitthvað að þokast í rétta átt?
Miðvikudagur 14. maí Trump, náttúra, vinstrið, reynsluboltar, norðurslóðir og blíðan Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um ferð Trump til Sádí Arabíu og nágrannalanda og um mögulegar friðarviðræður í Istanbúl á morgun. Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir Oddnýju Eir hvernig þrengt er að starfi frjálsra félagasamtaka í náttúruvernd. Einar Már Jónsson, sagnfræðingur, rithöfundur og prófessor við Sorbonne-háskóla í París ræðir við Oddnýju Eir um möguleikann á vinstri breiðfylkingu í pólitík dagsins. Reynsluboltar heimsækja Sigurjón Magnús og ræða fréttir dagsins: Erna Indriðadóttir fréttakona, Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri og Páll Ásgeir Ásgeirsson fjallamaður. Magnús Árni Skjöld, dósent og stjórnmálafræðingur við Háskólann á Bifröst, ræðir við Gunnar Smára um Ísland og norðurslóðir í breyttum heimi, ekki síst vegna stjórnmálalegrar óvissu í Bandaríkjum Trump. Trausti Jónsson veðurfræðingur upplýsir í samtali við Björn Þorláks að ef undan er skilinn janúar hafi veður hér á landi verið mjög milt og gott allt árið, svo gott að sætir tíðindum.
Fimmtudagur 8. maí Trillur, Grænland, ófriður, trans, þingkona og börn Strandveiði byrjaði í vikunni. Gunnar Smári ræðir við Kjartan Sveinsson, formann Félags strandveiðimanna, um gildi veiðanna og verðmæti fyrir þjóðarbúið. Ný sláandi heimildarmynd um uppljóstrun á áður óþekktu arðráni á Grænlandi er til umræðu hjá Oddnýju Eir. Sólveig Ásta Sigurðardóttir, bókmenntafræðingur og ný-doktor á hugvísindasviði HÍ, Már Wolfgang Mixa, dósent í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Bryndís Björnsdóttir, myndlistarkona og doktorsnemi í mannfræði og Linda Lyberth Kristiansen sérfræðingur i málefnum árþjóða hjá Arctic Circle, ræða um Grænland og nýlenduhyggju. Átök hafa brotist út milli Indlands og Pakistan og bæta þau enn við ófriðinn í heiminum. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri um þau átök en ekki síður um stefnu Bandaríkjastjórnar í alþjóðamálum og þá sérstaklega í Evrópu. Arna Magnea Danks, leikkona, leikstjóri, kennari, og mannréttinda-fréttaritari okkar segir Oddnýju Eir frá nýjustu Trans-tíðindin í tengslum við pólitík heima og heiman. Hinn óþekkti þingmaður þessarar viku er tónlistarkonan Ása Berglind Hjálmarsdóttir, ný þingkona Samfylkingarinnar. Ása Berglind ræðir líf sitt á persónulegum nótum við Björn Þorláks en í þættinum eru flest umræðuefni leyfð - önnur er pólitík! Eydís Ásbjörnsdóttir, þingkona og talsmaður barna á Alþingi segir okkur Oddnýju Eir frá helstu baráttumálum í málefnum barna um land allt og sérstaklega út frá sjónarhorni landsbyggðarinnar.
Sunnudagurinn 4. maí Synir Egils: Njósnir, verðbólga, veiðigjöld og íþróttir Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Svandís Svavarsdóttir formaður Vg, Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður og væntanlegur þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir fyrrverandi þingkona Framsóknar og ræða fréttir vikunnar, átök og umræðu í samfélaginu. Síðan koma þrír af frambjóðendum til formanns Íþrótta- og ólympíusambands Íslands: Valdimar Leó Friðriksson, Magnús Ragnarsson og Brynjar Karl Sigurðsson og ræða íþróttahreyfinguna. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Það eru níu dagar í það að Besta deildin fari af stað og við höldum áfram að telja niður. Núna er komið að Fram sem er spáð níunda sætinu í spá Fótbolta.net. Til þess að ræða Fram, þá komu Svanhvít Valtýsdóttir og Agnar Þór Hilmarsson í heimsókn. Þau þekkja bæði félagið inn og út.
Þriðjudagur 4. mars Trump, Nató, Háskólinn, þingkona og gleymdar konur Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um hvort Trump takist að sveigja Úkraínustjórn og Evrópu undir sín markmið. Við förum síðan í Múlakaffi með Maríu Lilju og hefjum svo viðræðu um háskólasamfélagið við þau sem hafa boðið sig fram til rektors. Magnús Karl Magnússon prófessor í læknadeild ríður á vaðið og ræðir við Gunnar Smára. Björn Þorláks ræðir síðan við Maríu Rut Kristinsdóttur, þingkonu Viðreisnar, baráttukonu frá Flateyri. Hún fjallar hispurslaust um kynferðislegt ofbeldi sem hún varð fyrir og snjóflóðið á Flateyri svo nokkuð sé nefnt. Loks ræðir María Lilja við þær Kristínu I. Pálsdóttur og Halldóru R. Guðmundsdóttur forstöðukonur Rótarinnar og Konukots um vanda heimilislausra kvenna og konur með fíknivanda.
Sunnudagurinn 23. febrúar Synir Egils: Verkföll, meirihluti, átök og upplausn í Evrópu eftir Trump Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir verkefnastjóri, Katrín Júlíusdóttir almannatengill, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og ræða fréttir vikunnar og stöðuna í stjórnmálum. Síðan kemur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og greinir stöðu öryggismála í Evrópu eftir stefnubreytingu Bandaríkjastjórnar.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Vilhjálmur Egilsson fyrrverandi Alþingismaður um stjórnmál. Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við HA um alþjóðamál. Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi um stjórnmál og Reykjavíkurborg. Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins um samfélagsmál og innviði.
Miðvikudagur 29. janúar Hagræðing, spilling, rasismi, reynsluboltar, samkeppni og klassíkin rokkar Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og og Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku bregðast við sparnaðartillögum Viðskiptaráðs og ræða hvatningu ríkisstjórnarinnar um hagræðingu. Benjamín Julian verkastjóri verðlagseftirlits Alþýðusambandsins fer yfir verð á matvörumarkaði og spáir í hvort samruni Prís og Nettó muni auka samkeppni. Elvar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri Verndarsjóðs Villtra Laxastofna og stuðningsmaður íbúalýðræðis í Seyðisfirði og Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður ræða hvort spilling komi við sögu hjá þeim sem helst vilja sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Sóley Dröfn Davíðsdóttir, yfirsálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina ræðir um sálfræðilegar rætur rasisma. Reynsluboltarnir miðla af visku sinni í spjalli um allt mögulegt, menningu, þjóðmál, stjórnmál og hvað eina, í þetta sinn koma þær Elín Albertsdóttir, Soffía Karlsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir. Tónlistarnemarnir Sól Björnsdóttir og Sóley Smáradóttir koma í Klassíkin rokkar og taka á móti Þórði Magnússyni tónskáldi og Þórunni Ósk Marinósdóttur víóluleikara í tilefni af nýjum fiðlukonsert Þórðar sem verður flumfluttur í Hörpu á morgun.
Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur, Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar og Sigurður Örn Hilmarsson, lögmaður voru gestir þáttarins. Þeir ræddu meðal annars snjóflóðið í Súðavík og ofanflóðavarnir, vopnahlé á Gaza og framkvæmd kosninga til Alþingis. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfs, komst í desember á lista breska ríkisútvarpsins BBC yfir 100 áhrifamestu konur heims árið 2024. Linda segir að hún geti ekki neitað því að hún hafi verið hissa þegar hún heyrði af þessu, hún segist vera sett á listann sem málsvari Kvennaathvarfsins og að hún standi á herðum þeirra kvenna sem stofnuðu athvarfið árið 1982. Linda kom í þáttinn og sagði frá starfsemi Kvennaathvarfsins, hver sérstaða þess er, hver þróunin hefur verið frá stofnun, stöðunni í dag og byggingu nýs athvarfs sem verður tekið í gagnið á næsta ári. Við höfum farið vítt og breitt um hollustuheima í janúar og fengum beiðni frá hlustanda um að fjalla um hráfæði í þættinum. Sigurlína Davíðsdóttir, prófessor emeritus, kom í þáttinn en hún hefur verið á hráfæði frá árinu 2001 og sagði okkur frá sinni reynslu og hvernig er gott að taka fyrstu skrefin í að breyta yfir í hráfæði. Í lokin vorum við með lítið tónlistarhorn þar sem við spiluðum þrjú lög sem leikurar sem leika í sjónvarpsþáttunum um Vigdísi syngja. Þetta voru lögin Í garðinum heima sem Elín Hall syngur, en hún leikur yngri útgáfuna af Vigdísi í þáttunum. Svo var það lagið Fólkið í blokkinni sem Eggert Þorleifssonsyngur, en hann leikur föður Vigdísar í þáttunum. Og að lokum var það lagið Söngu Gullauga, sem Hanna María Karlsdóttir syngur, en hún leikur móður Vigdísar í þáttunum. Og til að bæta aðeins við tenginguna þá léku þau Eggert og Hanna María saman í söngleiknum Gretti, en bæði lögin sem þau sungu eru úr þeim söngleik. Tónlist í þættinum í dag: Það þarf fólk eins og þig / Rúnar Júlíusson (Buck Owens, texti Rúnar Júlíusson) Í fylgsnum hjartans / Hildur Vala Einarsdóttir (Ástvaldur Traustason, texti Stefán Hilmarsson) Í garðinum heima / Elín Hall (Elín Hall) Fólkið í blokkinni / Eggert Þorleifsson (Ólafur Haukur Símonarson) Söngur Gullauga / Hanna María Karlsdóttir (Egill Ólafsson-Þórarinn Eldjárn) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum í dag tillögu Sjálfstæðisflokks og Flokks fólksins um að fram fari stjórnsýsluúttekt á skipulagsferlinu í kringum græna vöruhúsið við Álfabakka 2 sem byrgir íbúum við Árskóga sjö sýn. Forstjóri Haga er bjartsýnn á að málið leysist. Daglega berast fréttir af því að Rússar hafi sölsað undir sig fleiri þorp, fleiri bæi og meira land í austanverðri Úkraínu, eyðilagt þar orkuinnviði og varpað sprengjum á hinar ýmsu úkraínsku borgir og bæi fjarri víglínunni, þar á meðal höfuðborgina. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við háskólann á Akureyri, um stöðuna í landinu.
Sunnudagurinn 5. janúar: Synir Egils: Nýtt ár, nýir tímar, nýr og háskalegur heimur Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Kristinn Hrafnsson blaðamaður, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi og fara yfir stöðuna um áramót, nýja ríkisstjórn og stöðuna í pólitíkinni. Þeir bræður munu taka púlsinn og fá svo Hilmar Þór Hilmarsson prófessor til að meta utanríkisstefnu nýrrar ríkisstjórnar í ljósi breyttrar heimsmyndar.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við HA um alþjóðamál. Jón Steindór Valdimarsson formaður Evrópuhreyfingarinnar og Hjörtur J. Guðmundsson stjórnmálafræðingur um stjórnmál og Evrópumál. Sigríður Andersen alþingismaður, Bryndís Haraldsdóttir alþingismaður, Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrrverandi alþingismaður og Helga Vala Helgadóttir lögmaður um stjórnmál og þjóðmál.
Fimmtudagur 19. des Öryggismál, galdur, bókaball, fyrirtækjavæðing og skrautleg skilaboð til stjórnvalda Við Rauða borðið í kvöld er umræðan lífleg og nær yfir mörg svið. Fyrstur mætir Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara og ræðir um fyrirtækjavæðingu leikskólans. Valur Ingimundarson prófessor fjallar um minni áhuga stjórnvalda á norðurslóðum og breytt mat á öryggismálum og því næst ræðir Hilmar Örn Hilmarsson, Allsherjargoði um trú og tóna tilverunnar, dauðann, lífið og galdurinn í tilefni sólstöðuhátíðarinnar framundan. Sex höfundar bregða upp balli, þau Linda Vilhjálmsdóttir, Margrét Lóa Jónsdóttir, Daníel Daníelsson, Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Sunneva Kristín Sigurðardóttir og Karólína Rós Ólafsdóttir koma að rauða borðinu á mörkum flóðs og fjöru og segja okkur frá útgáfureynslu sinni og lesa brot úr nýútkomnum bókum sínum. Nýteiknaður hvalur er leynisgestur á ballinu. Í lok þáttar safnast aktívistarnir Sigtryggur Ari Jóhannsson, Pétur Eggerz, Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, Unnur Andrea Einarsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir saman við rauða borðið og föndra jólakort með skýrum skilaboðum til raðamanna. Föndrað með föndra jólakort með skýrum skilaboðum til ráðamanna.
Hver eru áhrif alvarlegra veikinda á aðstandendur? Langvinn veikindi geta haft víðtæk áhrif, ekki bara á þann sem veikist, heldur líka á þá sem standa honum næst. Niðurstöður erlendra rannsókna benda til að langvinn veikindi hafi margvísleg áhrif á líf og heilsu maka þess sem býr við heilsubrest. Við ræddum við Guðbjörgu Guðmundsdóttur iðjuþjálfa en hún fjallaði um þetta efni í meistararannsókn sinni. Guðjón Helgi Ólafsson leggur vinkil vikunnar upp að kaldhæðni örlaganna, hvernig yfirráð yfir siglingaleiðum verða til þess á stríðstímum, að átök brjótast út og hvernig litlu getur munað að gæfan falli öðrum í vil en upphaflega virðist. Bandarískur nemi í vélaverkfræði, sem seinna verður frægur rithöfundur kemur við sögu og reynslusaga hans af fyrrnefndum átökum. Lesandinn okkar að þessu sinni var Svava O'Brien og hún sagði okkur frá bókunum sem hún er að lesa og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina. MANNLEGI ÞÁTTURINN - MÁNUDAGUR 9. DESEMBER UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG HELGA ARNARDÓTTIR Tónlist í þættinum: Sigurður Guðmundsson og Memfismafían - Það snjóar. Hljómar - Undrastjarna. Stefán Hilmarsson, Ellen Kristjánsdóttir - Eigðu jólin með mér.
Þegar líður að jólum er gott að hugsa til þeirra sem eiga um sárt að binda og Sólveig Guðmundsdóttir leikkona sagði okkur af fimm góðgerðarverkefnum sem hún hvetur okkur til að skoða og taka þátt í. Við kynntumst líka Sólveigu sem ólst upp á Seltjarnarnesi og lærði til leikkonu í London og kom svo heim með skoskan leikstjóra í farteskinu. Þau eiga nú tvær dætur og búa.. já á Seltjarnarnesi! Í síðari hlutanum heyrðum við hluta úr Árið er 2020 en þar var sagt af ævintýrum Daða Freys og Think About Things lagalisti Vilhjálmur Vilhjálmsson - Jólin koma Sniglabandið - Jólahjól Katy Perry - Roar Lous Armstrong - Wonderful World Ragnheiður Gröndal - Jólin með þér Páll Óskar - Mig langar til Lón og Rakel - Hátíðarskap Laufey - Santa Baby Daði - Komdu um jólin Baggalútur - Kósýkvöld í kvöld Bríet - Takk fyrir allt Brunaliðið - Jóla jólasveinn Stefán Hilmarsson og Jón J'onsson - Jólin þau eru á hverju ári Marketa Irglova - Vegurinn heim Dolly Parton - Winter Wonderland
Hlaðvarpið Draugar fortíðar sem stjórnað er af þeim Baldri Ragnarssyni og Flosa Þorgeirssyni hefur vakið mikla athygli og notið mikilla vinsælda. Þeir félagar taka fyrir ýmis mál úr mannkynssögunni og nálgast það úr ýmsum áttum á skemmtilegan og lifandi en umfram allt, fræðandi máta. Ekki síst hefur umræða þeirra um geðræn vandamál og andlega heilsu stuðlað að því að þeir eiga dyggan hóp hlustenda. Draugarnir munu fara víðreist um landið í janúar og heimsækja vel valda staði í öllum landshlutum eða eins og þeir segja sjálfir: Draugar fortíðar ásækja Ísland. Baldur og Flosi komu í þáttinn í dag. Búðu til pláss er nafnið á söfnunar- og skemmtiþætti UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem verður annað kvöld í sameiginlegri beinni útsendingu RÚV, Stöðvar 2 og Sjónvarps Símans. UNICEF á Íslandi fagnar 20 ára afmæli í ár og tugþúsundir Íslendinga hafa búið til pláss í hjörtum sínum með því að gerast heimsforeldrar og þannig stutt réttindi og velferð milljóna barna um allan heim. Við fengum þau Fannar Sveinsson og Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur, sem eru tvö af þeim sem hafa umsjón með dagskránni annað kvöld, til að segja okkur betur frá henni í dag. Svo hringdum við í Grenivíkurskóla, en krakkarnir þar hafa unnið að sagna- og bókagerð og nú hafa þau opnað bókabúð þar sem þau selja eingöngu eigin ritverk og ýmislegt fleira sem þau hafa búið til og allur ágóði rennur til mæðrastyrksnefndar á Akureyri. Við töluðum við Pál Þóri Þorkelsson nemanda og Hólmfríði Björnsdóttur kennara í lok þáttarins í dag. Tónlist í þættinum: Snjókorn falla / Laddi (Bob Heatlie, texti Jónatan Garðarsson) Litli Trommuleikarinn / Raggi Bjarna og Ellý Vilhjálms (Harry Simeone, Henry Onorati, texti Stefán Jónsson) Jólarómantík / Stefán Hilmarsson og Ragga Gröndal (Frank Loesser, texti Kristján Hreinsson) Jól á Hafinu / Vilhjálmur Vilhjámsson (Steer & Hansen, texti Jóhanna G. Erlingsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Sjötti maðurinn breytti útaf vananum þar sem var farið í King of the court útgáfu eða viðtalsútgáfu. Í þáttinn fékk Sjötti maðurinn þjálfarann Árna Þór Hilmarsson sem þjálfað hefur til fjölda ára í yngri flokkum sem og meistaraflokki og þá aðallega á Flúðum, en síðast var hann með meistaraflokk karla á Selfossi. Árni hefur líka tekið að sér yngri landsliðsverkefni og margt margt fleira. Í þættinum kemst Sjötti maðurinn að ýmsu varðandi bæði leikmanninn Árna og þjálfarann Árna. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
Sunnudagurinn 17. nóvember: Synir Egils: Pólitík, kosningar, öryggismál Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Rakel Þorbergsdóttir samskiptastjóri og fyrrverandi fréttastjóri, Róbert Marshall fjallamaður og fyrrum blaðamaður og Lára Zulima Ómarsdóttir upplýsingafulltrúi og fyrrum blaðakona og ræða æsispennandi og viðburðaríka viku í upphafi kosningabaráttu. Þeir bræður taka stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi og ræða síðan við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri um öryggismál Evrópu og þar með Íslands í veröld sem tekur hröðum breytingum.
Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, og Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá stéttarfélaginu Visku, verða gestir Pressu í dag. Þar mun hækkandi matvöruverð vera til umræðu. Aldrei hefur verið meiri hagnaður fólginn í því að selja íslenskum neytendum matvöru.
Miðvikudagurinn 30. október Kosningar, skattar, verkfall, öryggismál og gervigreind Við byrjum á kosningum: Theodóra S. Þorsteinsdóttir fyrrverandi þingkona og nú bæjarfulltrúi, Erna Hlynsdóttir blaðakona, Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna og Guðmundur Ari Sigurjónsson formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar greina stöðuna. Skattamál verða kosningamál. Stefán Ólafsson prófessor, Indriði H. Þorláksson fyrrum skattstjóra og Skapti Harðarson formaður Samtaka skattgreiðenda ræða allar hliðar skattamála. Egill Helgason og Hulda Lovísa Ámundadóttir, deildarstjórar á Drafnarsteini, koma á verkfallsvaktina. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir öryggismál Evrópu og Úkraínustríðið og Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur ræðir um áhrif gervigreindar á samfélagið.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur og prófessor um karlmennsku. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við HA um alþjóðamál. Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins, Sigmar Guðmundsson alþingismaður ogJódís Skúladóttir alþingismenn um stjórnmál, stöðu og horfur. Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins um efnahags- og verkalýðsmál.
Mánudagurinn 23. september Reiðhjól, karlmennska, öryggismál, Viðreisn og leikrit um fatlaða konu Fólk sem ferðast um borgina á hjólum ræðir samgöngumál við Rauða borðið: Sigmundur Ernir Rúnarsson blaðamaður, Herdís Schopka jarðfræðingur, Örn Bárður Jónsson prestur og Gísli Tryggvason lögmaður lýsa samgöngum höfuðborgarsvæðisins séð af hnakki reiðhjóls. Bjarni Karlsson prestur og siðfræðingur lítur við og ræðir samtöl um karlmennsku sem verða við Rauða borðið á næstu vikum. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við okkur um Eystrasaltslöndin, aukin hernaðarútgjöld í Evrópu, hrörnandi hagkerfi og vaxandi stórveldaátök. Hanna Katrín Friðriksson þingflokksmaður Viðreisnar segir frá áherslum flokksins og metur stöðu stjórnmála í vikulegum þætti þingsins. Við fjöllum um leikritið Taktu flugið, beibí sem segir sögu fatlaðrar konu. Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir höfundur, leikari og aðalpersóna, Ilmur Stefánsdóttir leikstjóri og leikararnir Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Ernesto Camilo Aldazábal Valdés og ræða verkið og erindi þess.
Í dag fjöllum við um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Oft er talað um glerþakið þegar rætt er um hindranir sem konur mæta á vinnumarkaði; þá sérstaklega hvað varðar kjör og stöðuhækkanir. Hindrar glerþakið líka uppgang hinsegin fólks á atvinnumarkaði? Við ræðum þetta og fleira við Vilhjálm Hilmarsson, hagfræðing hjá stéttarfélaginu Visku. Árum saman hafa dýrahræ verið urðuð hér á landi, þvert á lög og reglur. Nú - eða í það minnsta á næstu árum stendur til bóta. Við ætlum að ræða áform um líforkuver á Dysnesi við Eyjafjörð. Kristín Helga Schiöth, framkvæmdastjóri Líforkuvers ehf. kemur til okkar og segir okkur frá stöðunni og því hvað þarf að gerast í náinni framtíð - og það er mikið í húfi - því verði ekki breytingar gætu íslensk matvæli verið stimpluð óörugg á meginlandi Evrópu. Er hið opinbera of duglegt að styrkja verkefni sem eru skaðleg fyrir umhverfið? Erum við að fjármagna okkar eigin útrýmingu? Þetta er á meðal þess sem Stefán Gíslason, umhverfisstjórnarfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, fjallar um í pistli dagsins. Edda Olgudóttir, kemur svo til okkar í vísindaspjall og ræðir nýjar rannsóknir sem benda til þess að neysla á rauðu kjöti auki líkurnar á því að fólk fái sykursýki af gerð tvö. Tónlist: Otis Redding - Wonderful World. GDRN - 10 dropar (Upptaka úr Tónatal).
Fimmtudagur 5. september Rauða borðið - Úkraína, Gaza, blaðamenn og skólakerfið Fastagestur Rauða borðsins, Hilmar Þór Hilmarsson prófessor, fer yfir stöðuna í stríðinu í Evrópu. Magga Stína fer yfir astöðuna á Gaza og blaðamennirnir Björn Þórláksson María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp fara yfir átakafund í Blaðamannafélaginu. Í lokin fer Björgvin G. Sigurðsson kennari og fyrrum þingmaður yfir stöðuna í skólakerfinu.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umrææðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Auður Jónsdóttir rithöfundur, Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur og Björn Ingi Hrafnsson blaðamaður og ritstjóri um forsetakosningar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við HA um alþjóðamál. Hrönn Egilsdóttir sviðsstjóri Hafrannsóknastofnunar um málefni hafsins.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs um erlenda fjárfestingu. Siguröur Örn Hilmarsson og Sigríður Ásthildur Andersen lögmenn um dómsmál. Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI og Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi um húsnæðismál. Eva H. Önnudóttir prófessor og Sigmundur Ernir Rúnarsson rithöfundur um forsetakosningar.
Kristján Kristjánsson stýrir kraftmikilli umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri um efgnahagsmál. Ragnhildur Helgadóttir rektor HR og Eiríkur Bergmann prófessor á Bifröst um forsetakjör. Katrín Jakobsdóttir fráfarandi forsætisráðherra um forsetakjör. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við HA um alþjóðamál.
Dregið hefur verulega úr eldgosinu á Reykjanesskaga - en enn er heitavatnslaust og sums staðar kaldavatnslaust. Þorgils Jónsson, fréttamaður sem er búinn að vera á vaktinni á Suðurnesjum í dag verður á línunni hjá okkur. Börn verja mörg miklum tíma á netinu og þar er ýmislegt sem þarf að varast. Skúli Bragi Geirdal, fjölmiðlafræðingur og verkefnastjóri miðlalæsis hjá Fjölmiðlanefnd, hefur undanfarið haldið fyrirlestra með yfirskriftinni - Algóriþminn sem elur mig upp. Hvernig geta foreldrar sett börnum sínum mörk og verndað þau í síbreytilegum stafrænum veruleika - veruleika sem þeir þekkja kannski ekki almennilega sjálfir? Ráða fullorðnir sjálfir við tækin? Við heimsækjum Matarsmiðju Matís sem er suðupottur þegar kemur að nýsköpun á sviði matargerðar. Ræðumvið Óla Þór Hilmarsson, kjötiðnaðarmann og verkefnastjóra og hittum einn af þeim sem nýta smiðjuna, Jón Örvar Geirsson hjá fyrirtækinu Bone and marrow. Nú fer fram fræskiptamarkaður í Borgarbókasafninu í Sólheimum. Lísbet Perla Gestsdóttir, sérfræðingur á Sólheimasafninu, segir okkur frá honum.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Trausti Valsson, prófessor emeritus við HÍ um skipulag og náttúruvá. Gréta Gunnarsdóttir, yfirmaður UNRWA í New York um mannúð á Gaza. Sigmar Guðmundsson, Orri Páll Jóhannsson og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmenn um afstöðu Íslendinga til UNRWA. Einar Þorsteinsson borgarstjóri um borgarmál. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við HA um púðurtunnuna fyrir botni Miðjarðarhafs.
The term "lifestyle business" has gotten a bad reputation recently, with many picturing a lazy/unambitious person who does not really want to put much effort into their work, yet still expecting wealth. But what if we look at the original meaning of this term? How do people build businesses that fit well into their lifestyles? Does "lifestyle" have to mean lying on the beach and drinking pina colladas all day long? Can you still be ambitious and produce great results for your clients and society? I invited Hjörtur Hilmarsson, co-founder and CEO of the creative design and technology studio 14islands, to discuss his view on the lifestyle business. In this episode, you will hear about: why Hjörtur and his two friends decided to start their own studio defining the company culture way before it starts growing the interplay of company, culture, and personal evolutions co-founder agreement Hjörtur's habits and tools that bring him back to a grounded state Stay safe and #standwithukraine, Anna Resources: Connect with Hjörtur: https://www.linkedin.com/in/hjortureh/ Check out 14islands: https://www.14islands.com/ Book a Mindshifting Intensive: https://annaliebel.as.me/strategycall Support Ukraine: https://u24.gov.ua/
Við höldum áfram á trúarlegum nótum en færum okkur frá kristni yfir til ásatrúar. Eins og ég nefndi í síðasta þætti þá fannst mér að minnsta kosti hjálplegt að fara aðeins yfir sögu kristni áður en við myndum kynna okkur ásatrú og þið munið heyra í þættinum að það er hálf erfitt að stoppa sig í að bera þessi tvö trúarbrögð saman. Sérstaklega þar sem kristni kom einmitt í staðinn fyrir ásatrú á Íslandi, en sú skipting var samt ekki alveg eins og maður hefði haldið, svona miðað við sögubækur. En við förum í það alltsaman í þættinum ásamt því hvernig maður iðkar ásatrú, hvað sé að finna í þeim ritum sem trúin byggir á og hvort að Loki er eins mikill prakkari og Marvel heimurinn lætur hann líta út fyrir að vera. Þetta og miklu meira í síðasta Þú veist betur þætti ársins, leiðsögumaður okkar í þetta skiptið er Hilmar Örn Hilmarsson. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Hilmar Örn Hilmarsson
Gestir Vikulokanna eru þau Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi VG, og Sigurður Örn Hilmarsson, formaður Lögmannafélags Íslands. Þau ræða stríðið á Gaza, viðbrögð alþjóðasamfélagsins, stríðsglæpi, viðbrögð íslenskra stjórnvalda, PISA-könnunina og stöðu lögreglunnar. Sunna Valgerðardóttir hefur umsjón með þættinum og Lydía Grétarsdóttir stjórnar útsendingu.
Gestir Vikulokanna eru þau Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi VG, og Sigurður Örn Hilmarsson, formaður Lögmannafélags Íslands. Þau ræða stríðið á Gaza, viðbrögð alþjóðasamfélagsins, stríðsglæpi, viðbrögð íslenskra stjórnvalda, PISA-könnunina og stöðu lögreglunnar. Sunna Valgerðardóttir hefur umsjón með þættinum og Lydía Grétarsdóttir stjórnar útsendingu.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Bára Baldursdóttir sagnfræðingur um sögu og stjórnmál Sigurður Örn Hilmarsson og Helga Vala Helgadóttir lögmenn um forræðismál og réttarkerfi. Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins og Anna Hrefna Ingimundardóttir aðstoðarframkvæmdastjóri SA um kjaramál og efnahagsmál. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við HA um alþjóðamál.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við HA um alþjóðamál. Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur og Ólafur Sigurgeirsson lektor í fiskeldi við Háskólann á Hólum um sjókvíaeldi við Íslandsstrendur. Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ um kjaramál. Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur um jarðhræringar á Reykjanesi.
Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, var gestur Heimsgluggans á Morgunvakt Rásar-1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um bók hans sem kom út fyrr á árinu, The Nordic, Baltic and Visegrád Small Powers in Europe. Visegrád ríkin er Pólland, Slóvakía, Tékkland og Ungverland, sem öll voru í Varsjárbandalaginu og leppríki Sovétríkjanna en eru núna í Evrópusambandinu og NATO. Hilmar segir að óttinn við Rússland hafi verið ein meginástæða þess að löndin kusu náinn samruna við Evrópu og samvinnu við Bandaríkin með NATO aðild. Bogi og Hilmar ræddu einkum stöðuna í Austur-Evrópu og Úkraínu.
Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, var gestur Heimsgluggans á Morgunvakt Rásar-1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um bók hans sem kom út fyrr á árinu, The Nordic, Baltic and Visegrád Small Powers in Europe. Visegrád ríkin er Pólland, Slóvakía, Tékkland og Ungverland, sem öll voru í Varsjárbandalaginu og leppríki Sovétríkjanna en eru núna í Evrópusambandinu og NATO. Hilmar segir að óttinn við Rússland hafi verið ein meginástæða þess að löndin kusu náinn samruna við Evrópu og samvinnu við Bandaríkin með NATO aðild. Bogi og Hilmar ræddu einkum stöðuna í Austur-Evrópu og Úkraínu.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum. Fjórði þáttur með lögum Jóhanns G. Jóhannssonar. Þau sem flytja lögin eru Stefán Hilmarsson, Ruth Reginalds, Bjarki Tryggvason, Pálmi Gunnarsson og Stjórnin. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Spegillinn 28. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins er stórt verkefni og eðlilegt að hann sé endurskoðaður, en hann er hluti af stærra verkefni samgangna í landinu öllu segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, þar þurfi að finna jafnvægi og leiðir til tekjuöflunar. Pétur Magnússon talaði við hann. Afar lítill munur er á verði á þeim vörum sem eru í verðgátt stjórnvalda og hún virðist ekki hafa ýtt undir samkeppni verslana. Valgerður Gréta Gröndal tók saman og ræddi við Vilhjálm Hilmarsson hagfræðing hjá BHM og Magnús Sigurbjörnsson, forstöðumann Rannsóknarseturs Verslunarinnar Landsvirkjun hagnaðist um tæpa 16 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Hörður Arnarson forstjóri að kerfið sé nánast fullnýtt og til að skapa svigrúm sé verið að ýta gagnaverum með rafmyntagröft út. Haukur Holm tók saman. Hægt er að bæta aðferðir við veiðar á stórhvölum, að mati starfshóps matvælaráðherra, sem skilaði skýrslu um málið. Ari Páll Karlsson sagði frá. --------------- Væntingar voru miklar og tímalínan brött þegar Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var undirritaður fyrir fjórum árum, segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra en það vissu allir. Á fimmtán ára samningstíma sé eðlilegt að hlutir séu endurskoðaðir en samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins sé bara eitt púsl af mörgum í heildarmyndinni. Pétur Magnússon ræddi við Sigurð. Rudy Giuliani var mikils metinn alríkissaksóknari og barðist ötullega gegn glæpum þegar hann var borgarstjóri í New York. Nú er hann meðal þeirra sem eru sóttir til saka fyrir að hafa reynt að snúa niðurstöðum forsetakosninganna í Bandaríkjunum þegar Donald Trump tapaði fyrir Joe Biden, þykir undarlegur í háttum og orðstír hans til fárra fiska metinn. Ásgeir Tómasson sagði frá. Innflytjendum á Íslandi hefur fjölgað um tugi þúsunda frá aldamótum. En það eru ekki aðeins erlendir ríkisborgarar sem flytja hingað, heldur flytja þúsundir Íslendinga líka til annarra landa á ári hverju. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Ólöfu Garðarsdóttur, prófessor í sagnfræði.
Spegillinn 28. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins er stórt verkefni og eðlilegt að hann sé endurskoðaður, en hann er hluti af stærra verkefni samgangna í landinu öllu segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, þar þurfi að finna jafnvægi og leiðir til tekjuöflunar. Pétur Magnússon talaði við hann. Afar lítill munur er á verði á þeim vörum sem eru í verðgátt stjórnvalda og hún virðist ekki hafa ýtt undir samkeppni verslana. Valgerður Gréta Gröndal tók saman og ræddi við Vilhjálm Hilmarsson hagfræðing hjá BHM og Magnús Sigurbjörnsson, forstöðumann Rannsóknarseturs Verslunarinnar Landsvirkjun hagnaðist um tæpa 16 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Hörður Arnarson forstjóri að kerfið sé nánast fullnýtt og til að skapa svigrúm sé verið að ýta gagnaverum með rafmyntagröft út. Haukur Holm tók saman. Hægt er að bæta aðferðir við veiðar á stórhvölum, að mati starfshóps matvælaráðherra, sem skilaði skýrslu um málið. Ari Páll Karlsson sagði frá. --------------- Væntingar voru miklar og tímalínan brött þegar Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var undirritaður fyrir fjórum árum, segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra en það vissu allir. Á fimmtán ára samningstíma sé eðlilegt að hlutir séu endurskoðaðir en samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins sé bara eitt púsl af mörgum í heildarmyndinni. Pétur Magnússon ræddi við Sigurð. Rudy Giuliani var mikils metinn alríkissaksóknari og barðist ötullega gegn glæpum þegar hann var borgarstjóri í New York. Nú er hann meðal þeirra sem eru sóttir til saka fyrir að hafa reynt að snúa niðurstöðum forsetakosninganna í Bandaríkjunum þegar Donald Trump tapaði fyrir Joe Biden, þykir undarlegur í háttum og orðstír hans til fárra fiska metinn. Ásgeir Tómasson sagði frá. Innflytjendum á Íslandi hefur fjölgað um tugi þúsunda frá aldamótum. En það eru ekki aðeins erlendir ríkisborgarar sem flytja hingað, heldur flytja þúsundir Íslendinga líka til annarra landa á ári hverju. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Ólöfu Garðarsdóttur, prófessor í sagnfræði.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir ekki hægt að stöðva fyrirhugaðar hvalveiðar í sumar þrátt fyrir að Matvælastofnun hafi komist að þeirri niðurstöðu að veiðarnar samrýmist ekki markmiðum laga um dýravelferð. Höskuldur Kári Schram ræddi við Svandísi. Sigurður Örn Hilmarsson, formaður Lögmannafélagsins, segir að félaginu hafi borist ábendingar um starfshætti lögmannsins, sem hefur verið kærður til lögreglunnar fyrir að hafa nauðgað og brotið kynferðislega gegn eiginkonu skjólstæðings síns, sem sat í gæsluvarðhaldi. Lögmannafélagið fundaði um málið í dag. Anna Lilja Þórisdóttir ræddi við Sigurð. Rússneskumælandi karlmaður situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa tekið út lyfseðilskyld lyf látinnar konu og notað fjármuni hennar í áraraðir. Lögreglan virðist ekki hafa hugmynd um hver maðurinn er. Íslensk orkufyrirtæki geta selt hæstbjóðanda alla þá orku sem þau framleiða. Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri segir að tryggja verði að heimili og hefðbundin fyrirtæki fái næga raforku. Til þess þurfi að breyta lögum. Benedikt Sigurðsson ræddi við Höllu Hrund. Allt kapp er nú lagt á að finna fólk sem er saknað fjórum dögum eftir að mikil flóð og aurskriður féllu í Austur-Kongó. Að minnsta kosti 400 hafa fundist látin eftir úrhelli síðustu daga. Róbert Jóhannsson sagði frá. Úrskurðarnefnd umhverfis-og auðlindamála hefur fellt úr gildi leyfi fyrir að breyta gamla bandaríska sendiráðinu við Laufásveg í íbúðir fyrir hælisleitendur. Freyr Gígja Gunnarsson fjallaði um málið. **** Það er alltaf alvarlegt ef dýr missir ekki meðvitund strax eða mjög fljótt við aflífun og sérstaklega alvarlegt verður að teljast að tvær langreyðar hafi þurft að heyja afar langt dauðastríð, segir í nýrri skýrslu Matvælastofnunar um veiðar á langreyð í fyrra. Stofnunin jók eftirlit með hvalveiðum um miðjan ágúst og niðurstaða stofnunarinnar er að 36 af 148 langreyðum sem veiddar voru á vertíðinni, hafi verið skotnar tvisvar sinnum eða oftar. Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnunar segir þetta óásættanlegt. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hana. Loftárás Rússa á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í nótt var sú fjórða á átta dögum. Þrjátíu og fimm drónum, hlöðnum sprengiefni, var flogið til borgarinnar. Loftvarnaflaugar úkraínska hersins grönduðu þeim öllum, en nokkurt tjón varð þegar brak úr þeim féll til jarðar. Umsjónarmaður: Ragnhildur Thorlacius Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir ekki hægt að stöðva fyrirhugaðar hvalveiðar í sumar þrátt fyrir að Matvælastofnun hafi komist að þeirri niðurstöðu að veiðarnar samrýmist ekki markmiðum laga um dýravelferð. Höskuldur Kári Schram ræddi við Svandísi. Sigurður Örn Hilmarsson, formaður Lögmannafélagsins, segir að félaginu hafi borist ábendingar um starfshætti lögmannsins, sem hefur verið kærður til lögreglunnar fyrir að hafa nauðgað og brotið kynferðislega gegn eiginkonu skjólstæðings síns, sem sat í gæsluvarðhaldi. Lögmannafélagið fundaði um málið í dag. Anna Lilja Þórisdóttir ræddi við Sigurð. Rússneskumælandi karlmaður situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa tekið út lyfseðilskyld lyf látinnar konu og notað fjármuni hennar í áraraðir. Lögreglan virðist ekki hafa hugmynd um hver maðurinn er. Íslensk orkufyrirtæki geta selt hæstbjóðanda alla þá orku sem þau framleiða. Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri segir að tryggja verði að heimili og hefðbundin fyrirtæki fái næga raforku. Til þess þurfi að breyta lögum. Benedikt Sigurðsson ræddi við Höllu Hrund. Allt kapp er nú lagt á að finna fólk sem er saknað fjórum dögum eftir að mikil flóð og aurskriður féllu í Austur-Kongó. Að minnsta kosti 400 hafa fundist látin eftir úrhelli síðustu daga. Róbert Jóhannsson sagði frá. Úrskurðarnefnd umhverfis-og auðlindamála hefur fellt úr gildi leyfi fyrir að breyta gamla bandaríska sendiráðinu við Laufásveg í íbúðir fyrir hælisleitendur. Freyr Gígja Gunnarsson fjallaði um málið. **** Það er alltaf alvarlegt ef dýr missir ekki meðvitund strax eða mjög fljótt við aflífun og sérstaklega alvarlegt verður að teljast að tvær langreyðar hafi þurft að heyja afar langt dauðastríð, segir í nýrri skýrslu Matvælastofnunar um veiðar á langreyð í fyrra. Stofnunin jók eftirlit með hvalveiðum um miðjan ágúst og niðurstaða stofnunarinnar er að 36 af 148 langreyðum sem veiddar voru á vertíðinni, hafi verið skotnar tvisvar sinnum eða oftar. Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnunar segir þetta óásættanlegt. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hana. Loftárás Rússa á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í nótt var sú fjórða á átta dögum. Þrjátíu og fimm drónum, hlöðnum sprengiefni, var flogið til borgarinnar. Loftvarnaflaugar úkraínska hersins grönduðu þeim öllum, en nokkurt tjón varð þegar brak úr þeim féll til jarðar. Umsjónarmaður: Ragnhildur Thorlacius Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir
Sunna Valgerðardóttir ræðir við Sigurð Örn Hilmarsson, formann Lögmannafélags Íslands, Skúla B. Geirdal, verkefnastjóra hjá Fjölmiðlanefnd, og Líf Magneudóttur, oddvita VG í Reykjavík. Meðal þess sem rætt er um er ríkissáttasemjaradramað, viðhorf Íslendinga til djúpríkisins og ákveðinna samfélagshópa, stöðu VG og traust fólks til borgarstjórnar.
Sunna Valgerðardóttir ræðir við Sigurð Örn Hilmarsson, formann Lögmannafélags Íslands, Skúla B. Geirdal, verkefnastjóra hjá Fjölmiðlanefnd, og Líf Magneudóttur, oddvita VG í Reykjavík. Meðal þess sem rætt er um er ríkissáttasemjaradramað, viðhorf Íslendinga til djúpríkisins og ákveðinna samfélagshópa, stöðu VG og traust fólks til borgarstjórnar.