POPULARITY
Við ræðum um R-listann við Rauða borðið í kvöld, sameiginlegt framboð Framsóknar, Alþýðuflokks, Alþýðubandalags, Nýs vettvangs og Kvennalista sem vann borgina í kosningunum 1994 og hélt henni í þrjú kjörtímabil. Hvaða fyrirbrigði var þetta og hvaða áhrif hafði R-listinn á Reykjavík og pólitíkina almennt? Til að ræða þetta koma að Rauða borðinu fjórar konar sem sátu í borgarstjórn fyrir hönd R-listans eða störfuðu með honum með öðrum hætti: Sigrún Magnúsdóttir, Sigrún Elsa Smáradóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Björk Vilhelmsdóttir.Samstöðin á FacebookSamstöðin á YouTubeSamstöðin á vefnumAlþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn
Fram og til baka 12.06.2021 Umsjón Felix Bergsson Upphafslag - íslenskir sumarsmellir Sumar og sól - Ómar Ragnarsson Fimman - Björk Vilhelmsdóttir félagsráðgjafi Fimm áhrifavaldar - móðir Kristín Pálsdóttir og formæðurnar Þórhallur Jósepsson kennari á Blönduósi - síðar fréttamaður Guðrún Jónsdóttir - félagsráðgjafi og stofnandi Stígamóta Kalli - ungi lesblindi maðurinn Steina Ólafsdóttir sjúkraþjálfari í Hveragerði Umfjöllun - Axel Ómarsson kántrísöngvari í Grímsnesinu Hvað gerðist á deginum?

Helga Lára Þorsteinsdóttir: Kemur með efni úr safni; viðtal tekið í júlí 1959 við Maríu Andrésdóttur en hún var fædd í Flatey á Breiðafirði 1859. Björk Vilhelmsdóttir: Um úrræði fyrir ungmenni sem eru hvorti virk í starfi né námi Ólafur Páll Jónsson, heimspekingur á Menntavísindasviði HÍ: Vísindamaður vikunnar ræðir mikilvægi gagnrýnnar og skapandi hugsunar, gildi menntunar og hæglætis í hröðum heimi.

Það er dálitið merkilegt, miðað við hvað kynlíf er stór partur af lífi okkar, hversu fáir í rauninni tala opið um kynlífið sitt. Þá erum við ekki að tala um að tala opinberlega um það, eða við hvern sem er, heldur bara við maka sinn, eða þann, eða þá, sem viðkomandi stundar kynlíf sitt með. Þar sem það er oftar en ekki feimnismál að ræða það, þrátt fyrir að vandamál í kynlífinu geti verið mjög stórt vandamál í samböndum. Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir sálfræðingur var að ljúka námi í kynlífsráðgjöf frá Michigan-háskóla í Bandaríkjunum. Hún er því farin að taka við málum sem kynlífsráðgjafi, bæði fyrir einstaklinga og pör. Við fengum Aldísi í þáttinn og fræddumst um kynlífsráðgjöf hjá henni. Það voru margir orðnir hriklega lubbalegir þegar hágreiðslustofur máttu opna aftur eftir COVID19 bannið og enn bíða margir eftir að þeirra tími renni upp. Á Rakarastofu Björns og Kjartans á Selfossi hafa Sunnlendingar getað fengið klippingu í rúm 70 ár eða allt frá því að Gísli Sigurðsson rakari ákvað að yfirgefa sollinn í Reykjavík og flytja til Selfoss. Björn sonur hans fetaði í fótsporin og því næst tveir synir hans, þeir Kjartan og Björn Daði. Við heimsóttum þetta vinsæla ættarveldi gær og fengum innsýn í dag í lífi rakarans. Hjónin Hrönn Vilhelmsdóttir og Þórólfur Antonsson stofnuðu kaffihúsið Kaffi Loka á Skólavörðustígnum fyrir rúmum áratug. Ekki alls fyrir löngu ákváðu þau að nú væri komið nóg og seldu kaffihúsið. Þau sáu fyrir sér rólega daga en stundum fer lífið í allt aðra átt en nokkurn getur órað fyrir. Þau er komin á bólakaf í nýtt ævintýri, núna í Þykkvabænum og innan skamms opna þau nýtt og frumlegt ferðaþjónustufyrirtæki sem mun heita Hlöðueldhúsið. Við fórum og tókum stöðuna á þeim fyrir þáttinn í dag. UMSJÓN MARGRÉT BLÖNDAL OG GUNNAR HANSSON

Matur er fyrir öllu. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir. Fjallað er um borðsiði Helgu Sigurðardóttur sem kölluð hefur verið matmóðir Íslands. Hún bendir okkur á að koma alltaf hrein og snyrtilega klædd til máltíðar. Matgæðingur þáttarins var Hrönn Vilhelmsdóttir frá Kaffi Loka. Hún ræddi íslenska matarmenningu, rúgbrauðsís, heimabakað flatbrauð dásamlegt flatbrauð. Að lokum var gefin uppskrift af gömlum eftirrétti, bóndadóttur með slöri sem finna má í bók Helgu Sigurðardóttur Matur og drykkur. (Frá 2011)

Í hlaðvarpi vikunnar fær Sigrún til sín Sjöfn Vilhelmsdóttur en hún varði nýlega doktorsritgerð sína í stjórnmálafræði. Ritgerðin ber heitið Pólitískt traust á Íslandi: Helstu áhrifaþættir og þróun frá 1983-2018. Þar skoðar Sjöfn þróun á pólitísku trausti hér á landi yfir tíma en ber traust hérlendis einnig saman við traust almennings í Evrópu. Sjöfn hefur verið forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála síðan 2015 en mun á árinu flytja sig um set og hefja störf sem forstöðumaður Landgræðsluskólans. Þær Sigrún ræða almennt um pólitískt traust hér á landi, hvernig það minnkaði gífurlega í kjölfar Hrunsins og ástæður þess að erfitt hefur verið að byggja það upp að nýju, þrátt fyrir að Ísland hafi komið betur út úr efnahagskreppunni heldur en svörtustu og jafnvel bjartari spár bjuggust við. Að auki ræða þær hvernig þættir eins og tengsl við stjórnmálaflokka eða Ríkisstjórnina, upplifun á spillingu og ýmsir aðrir félagslegir þættir hafa áhrif á hvort fólk treysti Alþingi og stjórnmálunum almennt.
Ríkisstjórnin áformar að selja 25 prósent hlut eða svo í Íslandsbanka en sem kunnugt er eru Íslandsbanki og Landsbanki í ríkiseigu. Fyrir fjórðungshlut í Íslandsbanka er talið að fá megi upp undir 40 milljarða króna en bókfært virði hans er um 170 milljarðar. Fjallað var um þessi máli í vikulegu spjalli um efnahag og samfélag með Þórði Snæ Júlíussyni, ritstjóra Kjarnans. Afkoma Landsbankans á síðasta ári var einnig til umfjöllunar og nýju höfuðstöðvarnar sem nú er verið að reisa við höfnina komu líka við sögu; þær munu víst kosta tólf milljarða en ekki tíu eins og áður var reiknað með. Traust Íslendinga til stjórnvalda og opinberra aðila hrapaði í kjölfar hrunsins árið 2008. Mikið hefur verið rætt um þetta en minna farið fyrir greiningu á því hverjar rætur pólitísks trausts í íslensku samfélagi eru. Hvað fær okkur til þess að treysta stjórnvöldum? Sjöfn Vilhelmsdóttir varði á föstudaginn doktorsritgerð sína um helstu áhrifaþætti og þróun í pólitísku trausti hér á landi frá 1983 til 2018, og hún sagði frá niðurstöðum sínum. Úlfakreppa er í þýskum stjórnmálum eftir forsætisráðherrakjör í Þýringalandi. Sú staðreynd að þingmenn ögfaflokksins AfD studdu nýjan forsætisráðherra hleypti öllu í bál og brand og hefur meðal annars leitt til þess að formaður og kanslaraefni Kristilegra demókrata hefur sagt af sér. Arthúr Björgvin Bollason fór yfir málið í Berlínarspjalli eftir átta-fréttirnar. Tónlist: Raindrops keep fallin?on my head - B.J. Thomas, Regndropar falla við hvert fet - Engilbert Jensen

Tengsl Íslands og Namibíu ná langt aftur. Spegillinn ræddi við Íslendinga sem störfuðu fyrir Þróunarsamvinnustofnun Íslands á tíunda áratug síðustu aldar og fyrsta áratug þessarar. Sjöfn Vilhelmsdóttur, Guðbjart Gunnarsson og Ingu Fanneyju Egilsdóttur.
Við fórum yfir fréttir og töluðum dálítið um Valentínusardaginn. - Réttarhöld fyrir hæstarétti Spánar í Madríd yfir tólf forystumönnum aðskilnaðarsinna í Katalóníu hafa verið sögð þau mikilvægustu í landinu frá endurreisn lýðræðis 1975. En hver eru viðbrögðin heima fyrir í Katalóníu? Hvað gerist ef katalónsku leiðtogarnir vera dæmdir til langrar fangelsisvistar? Hólmfríður Matthíasdóttir, útgáfustjóri, er stödd í Barselóna, þar sem hún bjó lengi og starfaði. Hún lýsti stöðunni. - Fjármálaeftirlitið fagnar nú 20 ára starfsafmæli en stofnunin tók til starfa 1. janúar 1999. Ýmislegt hefur breyst á þessum tíma, ekki síst í kjölfar hrunsins fyrir rúmum 10 árum síðan og við fengum til okkar aðstoðarforstjórann, Jón Þór Sturluson, til að ræða störf Fjármálaeftirlitsins og breytingar framundan sem fyrirsjáanlegar eru með mögulegri sölu tveggja stóru bankanna eins og kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. - Félagsráðgjafar er sú fagstétt sem hvað best veit hvað helst þarf að bæta í þjónustu við börn sem standa höllum fæti. Börnin geta ekki beðið er yfirskrift þings félagsráðgjafa á morgun. Hvernig tryggjum við jöfn tækifæri barna? Að hvaða hópi barna þurfum við helst að huga - og hvernig? Og hvers vegna nýtir ungt fólk í vanda ekki alltaf þau úrræði sem eru í boði? Já, börn og fjölskyldur þeirra verða viðfangsefni þings félagsráðgjafa. Þær Björk Vilhelmsdóttir og Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafar, komu á Morgunvaktina og lýstu stöðu barna og ungmenna og hvað gera þyrfti til að bæta líf þeirra. Þær hvöttu til þess að við huguðum betur að kjarnanum, fjölskyldunni, til að bæta lífsgæði okkar. - Tónlist: Chet Baker - My Funny Valentine; Paul McCartney - My Valentine; Andrés Þór Gunnlaugsson - Barcelona; John Scofield - Green tea.
Við fjölluðum um næringu eldri borgara í þættinum í dag en svokallað velferðarkaffi verður haldið á morgun á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar í félagsmiðstöðinni Borgum við Spöng í Grafarvogi. Að þessu sinni verður fjallað um matarþjónustu velferðarsviðs og næringu eldri borgara. Ólöf Guðný Geirsdóttir dósent við matvæla- og næringafræðideild Háskóla Íslands, sem sagði meðal annars frá rannsóknum um næringu eldri borgara og Heiða Björg Hilmisdóttir formaður velferðarráðs Reykjavíkur komu í þáttinn. Geðraskanir er meginástæðan fyrir brotthvarfi úr framhaldsskóla, atvinnuleysi og örorkutengdum greiðslum á Norðurlöndunum. Nú standa yfir læknadagar í Reykjavík og í gær flutti Björk Vilhelmsdóttir félagsráðgjafi og sérfræðingur hjá VIRK, erindi sem bar yfirskriftina “Er læknisvottorð um óvinnufærni ávísun á fátækt?“ Björk kom í þáttinn og sagði frá. Hvað eru verkefnamiðuð vinnurými? Steinar Þór Ólafsson er nýr pistlahöfundur í Mannlega þættinum, en hann mun flytja pistla á næstunni undir heitinu Kontoristinn þar sem hann veltir fyrir sér hinum ýmsu hliðum þess að vinna á skrifstofum hverskonar, hefðbundnum og óhefðbundnum. Í fyrsta pistlinum sem var í þættinum í dag fjallaði hann um vinnurými, mismunandi stefnur og strauma, opin vinnurými, skilrúm og næði og fleira. UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í þættinum í dag fjöllum við um stjúptengsl sem geta oft verið vandasöm en líka gefandi og góð. Hvaða áskoranir mæta slíkum fjölskyldum umfram aðrar og hvaða væntingar eiga stjúpforeldrar og börn að gera til sín? Hvernig á að haga stórhátíðum í slíkum fjölskyldum? Við heyrum sögu af stjúpfjölskyldu sem hefur eytt jólunum saman í næstum þrjá áratugi. Fyrrverandi makar, núverandi makar og svo öll börnin. Og líka sögu stjúpmóður sem ætlaði að eiga bestu stjúpfjölskyldu í heimi þar sem allir yrðu glaðir en áttaði sig fljótt á því að besta er að slaka á kröfunum til að allt gangi upp. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir Viðmælendur: Valgerður Halldórsdóttir, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, Björk Vilhelmsdóttir og Inga Sveinsdóttir.

Eldur kviknaði í vélarrúmi togskipsins Frosta í dag. Þyrlur Landhelgisgæslunnar og varðskip voru send á vettvang. Einn skipverja mun hafa fengið reykeitrun. Dæmi eru um að fyrirtæki í samkeppnisrekstri séu rekin í fjölda ára án launaðra starfsmanna og treysti þess í stað á vinnu sjálfboðaliða. Glös skullu saman á Hofi í Öræfum í gærkvöld þegar skjálfti stærri en þrír varð í Öræfajökli. Ábúandi segir ekki gaman að búa við skjálftana. Sex skjálftar stærri en þrír hafa orðið frá aldamótum í jöklinum, þar af fjórir frá áramótum. Bundinn hefur verið endi á stjórnarkreppuna á Grænlandi. Minnihlutastjórn var mynduð þar í dag. Formaður VR segir að áherslur Samtaka atvinnulífsins í komandi kjaraviðræðum bendi ekki til þess að mikill hugur sé til samninga af hálfu samtakanna. Hann hafnar því að ekkert eða lítið svigrúm sé til launahækkana. Arnar Páll Hauksson ræðir við Ragnar Þór Ingólfsson. Vantraust á yfirvöldum hefur víða aukist eftir fjármálarhremmingarnar 2008. Erlendis er vantraustið meðal annars rakið til hægfara hagvaxtar en einnig þess að stjórnmálamenn og yfirvöld hafi ekki beitt sér fyrir rannsóknum á starfsemi banka. Á Íslandi er þessu þveröfugt farið: hagvöxtur var nokkuð fljótur að taka við sér og hrunmál voru rannsökuð en samt er skortur á trausti. Kannski af því gagnsæi er enn hörgulvara samkvæmt nýrri skýrslu um traust. Sigrún Davíðsdóttir tók saman. Þá ræðir Ragnhildur Thorlacius við Sjöfn Vilhelmsdóttur, forstöðumann Stofnunar stjórnsýslu og stjórnmála við Háksóla Íslands um þá áhrifaþætti sem ráða því hvort almenningur beri traust til stjórnmála. Hún er um þessar mundir á kafi í doktorsrannsókn á pólitísku trausti. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir