Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu segir að engan veginn sé hægt að útiloka bruna í bílastæðahúsum hér á landi eins og varð við flugvöllinn í Stafangri í Noregi. Þar varð stórbruni á dögunum. Arnar Páll Hauksson talaði við Jón VIðar Matthíasson. Harvey Weinstein var farsælasti kvikmyndaframleiðandi draumaverksmiðjunnar Hollywood, maðurinn á bak við myndir eins og Shakespeare in Love, The King's Speech og Pulp Fiction. Hann flaug of hátt, ofmetnaðist sem ómenni og er nú brennimerktur sem andlit #metoo hreyfingarinnar. Réttarhöld hófust í vikunni yfir Weinstein sem getur átt yfir höfðu sér lífstíðardóm. Pálmi Jónasson fjallaði um þetta.
Það gæti stefnt í almennar kosningar árlega næstu þrjú ár. Ef sitjandi forseti fær mótframboð verða forsetakosningar í júní, svo Alþingiskosningar á næsta ári og sveitarstjórnarkosningar 2022. Arnar Páll Hauksson tók saman. Embætti ríkislögreglustjóra telur hátt hlutfall innflytjenda í ákveðnum hverfum auka hættuna á því að hér verði til viðkvæm svæði eða gettó þar sem glæpagengi vaði uppi. Þetta má ráða af nýrri skýrslu embættisins um hugsanlegar áskoranir sem lögregla gæti staðið frammi fyrir í náinni framtíð. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Tatiönu Latinovic, formann innflytjendaráðs stjórnvalda, og Óskar Dýrmund Ólafsson, hverfisstjóra í Breiðholti.
Við rifjum upp það sem gerðist í stjórmálum og ferðaþjónustu á þessum áratug. Stjórnmálaprófessor segir að hann hafi einkennst af miklu vantrausti. Hótelrekandi segir Airbnb hafa breytt öllu. Arnar Páll Hauksson ræðir við Eirík Bergmann. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Kristófer Oliversson og Soffíu Kristínu Þórðardóttur.
Mikil vöxtur hefur verið í netverslun með matvæli. Því er spáð að netverslun springi út á næstu árum. Arnar Páll talar við Guðmund Magnason og Helga má Þórðarson. Rétt fyrir jólin 1969, fyrir 50 árum, var Árnagarður á lóð Háskóla Íslands, formlega tekinn í notkun. Húsið hafði verið tæp þrjú ár í byggingu en á stysta degi ársins, 21. desember 1969, var eigendum afhent húsið. Kristján Sigurjónsson talaði við Guðrúnu Nordal. Sextán börn, með Gretu Thunberg í fararbroddi, fara fram á það við forsætisráðherra bæði Noregs og Kanada að þessi lönd hætti að leita að olíu og dragi markvisst úr olíuvinnslu. Þau segja að áframhaldandi olíuvinnsla sé brot á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Arnar Páll Hauksso segir frá.
Formaður Sameykis segir að ef ekkert gangi í kjaraviðræðum fljótlega eftir áramót muni félagsmenn hefja undirbúning aðgerða sem gæti endað með verkföllum. Viðræður við opinbera starfsmenn hafa staðið yfir í 9 mánuði og ljóst að þær munu dragast fram á næsta ár. Arnar Páll Hauksson ræðir við Árna Stefán Jónson, Önnu Maríu Frímannsdóttur og Þórunni Sveinbjarnardóttur. Fárviðrið sem gekk yfir landið í síðustu viku afhjúpaði veikleika í innviðum en líka hversu berskjölduð við erum gagnvart náttúruöflunum. Síðustu daga hefur svo verið talað um fordæmalaust rafmagnsleysi, fordæmalausan hrossadauða - en var veðrið sjálft fordæmalaust og má að einhverju leyti rekja það til loftslagsbreytinga? Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Elínu Björk Jónasdóttur, veðurfræðing. Fyrir fjörutíu árum rændu þjófar fimm afar verðmætum listaverkum úr safni í Austur-Þýskalandi. Nú er loks búið að endurheimta verkin, þökk sé borgarstjóranum á staðnum. Margt er þó enn á huldu um þennan stærsta og dularfyllsta listaverkaþjófnað í sögu Austur-Þýskalands. Pálmi Jónasson.
Forstjóri Landsvirkjunar segir að vandamál í raforkukerfinu tengist á engan hátt fjármögnun. Vandamálið sé að samfélagið og stjórnvöld séu ekki sammála um að það þurfi að styrkja raforkukerfið. Einfalda þurfi leyfiskerfið sem sé allt of þungt. Það gangi ekki að það sé hægt að stöðva verkefni endalaust. Landsnet, sem stofnað var fyrir 15 árum, sé fyrst núna að komast í sitt fyrsta uppbyggingarverkefni. Arnar Páll Hauksson talaði við Hörð Arnarson. Skýrar línur - það er útkoman úr bresku þingkosningunum í gær. Íhaldsflokkurinn fær kláran meirihluta, tæplega 44 prósent atkvæða, Verkamannaflokkurinn 32 prósent. Slæm útreið Verkamannaflokksins þýðir að nú fer orka þess flokks á næstunni í leiðtogakjör, ekki í landsmálin og stjórnarandstöðu. Sigrún Davíðsdóttir þú hefur fylgst með kosningunum en heyrum fyrst lokaorð Borisar Johnsons í morgun þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Sigrúnu. Lokadagur tuttugustu og fimmtu Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Madríd er runninn upp en viðræðum er hvergi nærri lokið. Helga Barðadóttir, formaður samninganefndar Íslands gagnvart Loftslagssamningnum og starfsmaður umhverfisráðuneytisins, segir að þrátt fyrir að enn sé deilt um það sama og í Katowice í fyrra hafi náðst ákveðinn árangur í Madríd. Það liggi betur fyrir um hvaða atriði ríki séu ósammála. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við Helgu Barðadóttur.
Aðeins hefur verið dæmt í fjórum málum sem tengjast mútum á Íslandi. Hámarksrefsing er 5 ár fyrir mútugreiðslur en 6 ár fyrir að þiggja mútur. Arnar Páll Talar við Þórdísi Ingadóttur. Íslenska barnabótakerfið er sérkennilega útfærð fátæktarhjálp. Það er flókið og erfitt að greina í því heildstæða hugsun. Þetta er niðurstaða skýrslu sem Kolbeinn Stefánsson, doktor í félagsfræði, vann fyrir BSRB og var kynnt í morgun. Fram kemur að barnabótakerfið hér stingi í stúf við kerfi annars staðar á Norðurlöndunum því það gagnist nær eingöngu tekjulægstu fjölskyldunum. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Kolbein.
Ríki og borg skrifuðu undir samkomulag í gær um að hafnar verði nauðsynlegar rannsóknir til að ganga úr skugga um hvort mögulegt eða fýsilegt er að leggja nýjan flugvöll í Hvassahrauni. Þar yrði aðsetur innanlandsflugs og kennslu og æfingaflugs. Jafnfram myndi hann gegn hlutverki varaflugvallar. Hvassahraun myndi taka við af flugvellinum í Vatnsmýrinni en það yrði þó ekki fyrr en eftir nærri 20 ár. Arnar Páll Hauksson talaði við Njál Trausta Friðbertsson. Fyrrverandi yfirlögregluþjónn í Suður-Jórvíkurskíri á Englandi, David Duckenfiled, var í gær sýknaður af ákæru um manndráp og stórfellda vanrækslu í starfi, þegar 96 fórust og 766 slösuðust á Hillsborough knattspyrnuvellinum í Sheffield fyrir 30 árum. Aðstandendur hinna látnu eru miður sín og segja að enn hafi enginn verið dæmdur og látinn sæta ábyrgð. Kristján Sigurjónsson sagði frá. Kóalabirnir eru ekki í útrýmingarhættu. Þeir hafa enn vægi í vistkerfinu. Þeim er viðbjargandi. Vísindamenn hafa síðustu daga hrakið fréttir þess efnis að tegundin sé á vonarvöl, því sem næst útdauð. Þetta þýðir samt ekki að þetta einkennisdýr Ástralíu standi vel. Klamidía, Dingó-hundar, Loftslagsbreytingar, Búsvæðaeyðing. Að tegundinni steðja ýmsar ógnir og framtíðarhorfurnar eru slæmar verði ekki brugðist við. Arnhildur Hálfdánardóttir
Millilandaflug verði áfram á Keflavíkurflugvelli og hafist verði handa við að kanna flutning innanlandsflugs úr Vatnsmýrinni í Hvassahraun. Ekki þykir fýsilegt að innanlandsflug verði flutt til Kefávíkur. Þetta eru tillögur stýrihóps sem samgönguráðherra skipaði í fyrra um flugvallakosti á Suðvesturhorninu. Það hefur lengi verið deilt um staðsetningu Reykjavíkurflugvallar og fjölmargar skýrslur hafa verið gerðar. En þýðir þessi niðurstaða að skriður komist á málið? Arnar Páll ræðir við Dag B. Eggertsson, borgarstjóra, Eyjólf Árna Rafnsson, formann stýrihópsins og Sigurð Inga Jóhannsson, samgönguráðherra. Gullkóróna, veldissproti, róðukross, jesúlíkneski, gimsteinar, mynt og listilegur vefnaður er meðal þess sem fannst nýverið í grafhvelfingu Friðriks þriðja, keisara hins heilaga rómverska ríkis, í dómkirkju heilags Stefáns í Vínarborg í Austurríki. Vísindamenn notuðu örmyndavélar og flókinn tæknibúnað til að rannsaka þessa síðustu ósnertu konunglegu grafhvelfingu í Evrópu. Pálmi Jónasson. Ívilnunum vegna kaupa á tengiltvinnbílum verður hætt eftir eitt ár samkvæmt frumvarpi fjármálaráðherra sem lagt verður fram á Alþingi. Verð á bæði reiðhjólum og rafhjólum lækkar um áramótin þegar virðisaukaskattur af þeim fellur niður. Arnar Páll Hauksson ræðir við Sigurð Friðleifsson, framkvæmdastjóra Orkuseturs.
Síðastliðna áratugi hefur dregið jafnt og þétt úr bæði svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu. Þetta segir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. Nagladekk slíti malbiki minna en áður en um helmingur svifryksins sé samt tilkominn vegna þeirra. Hann fagnar því að sveitarfélögin og Vegagerðin hafi fengið heimild til að takmarka umferð tímabundið til að bregðast við mengunartoppum. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Þorstein Jóhannsson. Michael Bloomberg er ýmist Repúblikani, óháður eða Demókrati. Nú vill hann verða forsetaefni Demókrata og ætlar að eyða áður óþekktum fjárhæðum í þeim tilgangi. Pálmi Jónasson kynnir forsetaframbjóðandann og fjallar um afskipti hans af eigin fjölmiðlum. Fyrir tæpum mánuði settust þúsundir Þjóðverja niður til að spjalla um ýmis átakamál í þýsku þjóðlífi. Spjall um daginn og veginn er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi en þetta var fólk sem hafði líklega aldrei hist og var parað saman í krafti þess að það var á öndverðum meiði þegar kom að nokkrum já eða nei spurningum. Anna Kristín Jónsdóttir.
Peningaþvætti Danske Bank er dæmi um mál, sem tæplega hefði komist upp án uppljóstrara, sakamálarannsókn tekur tíma og að jafnvel þegar fyrirtæki fá óháða aðila til rannsókna á starfsemi sinni er útkoman ekki alltaf afdráttarlaus. Sigrún Davíðsdóttir. „Það er eins og það sé ekki alveg litið á þetta sem alvöru heimili og svolítið horft á þetta sem tímabundið ástand þangað til ég finn mér nú mann og byrja að búa,“ þetta segir kona sem býr ein. Spegillinn hefur síðustu daga fjallað um stöðu einbúa. Í fyrri pistli ræddu þau Bjargey Anna Guðbrandsdóttir, Sighvatur Ívarsson, Jón Arnar Magnússon og Elín Björg Ragnarsdóttir um óhagræðið sem getur falist í því að reka heimili fyrir einn. JHér ræða þau félagslegu og andlegu hliðina. Það fylgja því ýmsir kostir að búa einn en það getur líka verið einmanalegt og fólki sem býr eitt finnst fjölskyldusamfélagið Ísland stundum ekki gera ráð fyrir sér. Arnhildur Hálfdánardóttir.
Ríkisstjórnin samþykkti dag að fá Alþjóðamatvælastofnunina til að gera úttekt á viðskiptaháttum útgerðarfyrirtækja sem stunda veiðar og eiga í viðskiptum með aflaheimildir. Á ríkisstjórnarfundi voru kynntar nokkra leiðir til að bæta orðspor Íslands í kjölfar Samherjamálsins. Ef kostnaður fyrirtækja við að framfylgja reglum er hvati til lögbrota þá eru slíkir hvatar ansi víða í kerfinu. Þetta er mat Umhverfisstofnunar. Stofnunin vísar því á bug að það það sé hvati til þess hjá þeim sem vinna með kælikerfi að hleypa öflugum gróðurhúsalofttegundum, svokölluðum F-gösum, út í andrúmsloftið. Stofnunin viðurkennir að reglum um að þeir sem vinna með kælikerfi séu vottaðir hafi ekki verið fylgt en segir að úr því verði bætt á næstunni, þá hafi eftirlit með innflutningi á F-gösum verið hert. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá. Talað er við 'isak Bragason. Stórum hluta af því metani sem er framleitt hér á landi er brennt og nýtist því ekki sem orkugjafi. Þegar ný gas- og jarðgerðarstöð Sorpu verður tekin í notkun næstum tvöfaldast framleiðslugetan. Framkvæmdastjóri Sorpu segist þess fullviss að hægt verði að nýta allt metan þó að það gerist ekki strax. Arnar Páll Hauksson talar við Björn H. Halldórsson hjá Sorpu.
Harka hefur færst í mótmælin í Hong Kong. Þau hófust í júní þegar stjórnvöld hugðust leggja fram lagafrumvarp um að heimilt væri að framselja borgara í Hong Kong til Kína ef þeir hefðu gerst brotlegir við lög í Kína. Eftir kröftug mótmæli drógu stjórnvöld frumvarpið til baka, en mótmælin hættu ekki - á bak við þau var víðtækari lýðræðisleg krafa. Kristján Sigurjónsson talat við Helgu Björk Jónsdóttur sem býr í Hong Kong. Eftir að bandaríski auðmaðurinn Jeffrey Epstein var dæmdur 2008 fyrir hórmang með stúlku undir lögaldri komst fljótt í hámæli að einn vina hans var Andrés Bretaprins, næst yngstur af fjórum börnum Elísabetar Englandsdrottningar. Þetta rifjaðist upp í sumar þegar Epstein var ákærður fyrir hórmang og kynferðislega misnotkun stúlkna undir lögaldri. Epstein lést í fangelsi í ágúst, er talinn hafa fyrirfarið sér. Um helgina var sýnt viðtal við prinsinn í breska ríkisútvarpinu því hann hafði fallist á að sitja fyrir svörum um vináttu sína við Epstein. Það er samdóma álit breskra fjölmiðla að frásögn prinsins hafi verið ósannfærandi og spurning hverjar afleiðingarnar verða. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Framreikningar á losun gróðurhúsaloftegunda sýna 19% samdrátt fram til ársins 2030. Ísland hefur skuldbundið sig um samdrátturinn verði 29%. 2017 hafði heildarlosun dregist saman um 5%. Arnar Páll Hauksson talar við Elvu Rakel Jónsdóttur.
Namibía, land hinna hugrökku sem sigruðu í sjálfstæðisstríðinu. Þjóðsöngurinn var tekinn upp 1991 eftir sigur í sjálfstæðisstríðinu gegn Suður-Afríku. Áður höfðu þjóðsöngvar landsins verið á þýsku og fjallað um landið í suðvestri.Lífslíkur í Namibíu eru með þeim minnstu í heiminum. Þjóðarmorðin í Namibíu er sögð fyrirmynd Helfarar nasista í seinni heimstyrjöldinni og aðskilnaðarstefna Suður-Afríku lék landið grátt. Namibía fékk sjálfstæði árið 1990 og er enn að slíta barnsskónum sem þjóð meðal þjóða. Pálmi Jónasson fjallar um Namibíu. Kosningabaráttan í Bretlandi stendur yfir af fullum krafti. Athyglin beinist að leiðtogunum, slagorðunum og fylginu. Allt er þegar þrennt er - og þrjú orð virðast líka vera haldreipi Íhaldsflokksins, undir forystu Boris Johnson forsætisráðherra. Sigrún Davíðsdóttir fjallar um komandi kosningar í Bretlandi.
Ísland tekur við formennsku Norðurlandaráðs á næsta ári. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, var kjörin forseti ráðsins fyrir árið 2020 á Norðurlandaráðsþingi sem haldið var í Stokkhólmi í síðustu viku. Arnar Páll Hauksson talaði við Oddnýju Harðardóttur og Silju Dögg Gunnarsdóttur um samfélagsöryggi. Umræðunar byrjuðu þó með því að fjalla um Samherjamálið. Mútugreiðslur vestrænna fyrirtækja í fjarlægum heimsálfum hafa lengi verið viðloðandi. GRECO er óformlegur ríkjahópur á vegum Evrópuráðsins og hefur verið leiðandi í baráttunni gegn spillingu. Lagaramminn gegn spillingu embættismanna, hvort sem er heima eða heiman, er því víðast svipaður eða sá sami í Evrópu og þá einnig á Íslandi. Umfjöllun Kveiks um umsvif Samherja í Namibíu vekja spurningar um íslensk lög og einnig um áhrif mútgreiðslna almennt. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Tengsl Íslands og Namibíu ná langt aftur. Spegillinn ræddi við Íslendinga sem störfuðu fyrir Þróunarsamvinnustofnun Íslands á tíunda áratug síðustu aldar og fyrsta áratug þessarar. Sjöfn Vilhelmsdóttur, Guðbjart Gunnarsson og Ingu Fanneyju Egilsdóttur.
Samkvæmt nýrri samevrópskri rannsókn telur mikill meirihluti Íslendinga að lífskjör aldraðra hér á landi séu slæm. Arnar Páll Hauksson ræddi við Sigrúnu Ólafsdóttir prófessorí félagsfræði við Háskóla Íslands. Viðhorf fólks til vinnu eru að breytast, segir Guðbjörg Linda Rafnsdóttir prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, yngra fólk vilji ekki verða þrælar vinnunnar. Íslendingar hafi löngum skorið sig frá nágrannaþjóðum í því að setja samasemmerki milli þess að vinna mikið og vera duglegur. Guðbjörg varar við því að stytting vinnutíma geti aukið álag ef verkefnum er ekki fækkað. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Guðbjörgu Alþjóðlegur rannsóknarhópur fræðimanna með viðamikla þekkingu á fleygrúnum, efnafræði matvæla og matvælasögu, hefur unnið að endurgerð elstu mataruppskrifta veraldar. Matargerðarlistin hefur ekki breyst svo mikið í fjögur þúsund ár. Pálmi Jónasson sagði frá.
Mikill meirihluti Íslendinga telur að lífskjör aldraða hér á landi séu slæm. Þetta kemur fram í nýrri samevrópskri viðhorfskönnun. Afstaða Íslendinga er á skjön við afstöðu annars staðar á norðurlöndunum. Mikill meirihluti almennings hér á landi telur að stjórnvöld beri mikla ábyrgð á lífsgæðum aldraðra. Arnar Páll Hauksson talar við Sigrúnu Ólafsdóttur. Viðhorf fólks til vinnu eru að breytast, segir Guðbjörg Linda Rafnsdóttir prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, yngra fólk vilji ekki verða þrælar vinnunnar. Íslendingar hafi löngum skorið sig frá nágrannaþjóðum í því að setja samasemmerki milli þess að vinna mikið og vera duglegur. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Guðbjörgu. Alþjóðlegur rannsóknarhópur fræðimanna með viðamikla þekkingu á fleygrúnum, efnafræði matvæla og matvælasögu, hefur unnið að endurgerð elstu mataruppskrifta veraldar. Matargerðarlistin hefur ekki breyst svo mikið í fjögur þúsund ár. Pálmi Jónasson segir frá.
Ástandið í kælibransanum minnir á villta vestrið, eftirliti er ábótavant og hvati til að láta fílsterkar gróðurhúsalofttegundir gossa út í andrúmsloftið í stað þess að skila þeim í förgun. Þetta segja starfsmenn Kælitækni, fyrirtækis sem flytur inn um helming flúoraðra gróðurhúsalofttegunda sem notaðar eru sem kælimiðlar hér á landi. Það séu glufur í regluverkinu og brotalamir í kerfinu. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá. Lögregluyfirvöld í Svíþjóð hafa lýst yfir sérstöku viðbúnaðarástandi á landsvísu, vegna tíðra og alvarlegra ódæðisverka glæpasamtaka í suðurhluta landsins. Undanfarna mánuði hafa tugir sprengjutilræða átt sér stað í Malmö, og þar framin afar kaldrifjuð morð. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Kára Gylfason í Gautaborg.
Það skiptir ekki máli hvernig veðrið er úti það er hægt að kæla það sem þarf að kæla og frysta það sem þarf að frysta. Þetta er gert með kælikerfum og í flest þeirra eru notaðar flúoraðar gastegundir, svokölluð F-gös. Þjóðum heims tókst með Montreal-bókuninni frá árinu 1987 að stoppa í gatið í ósonlaginu og þessi F-gös voru lykillinn að þeim árangri, þau komu í stað freons og annarra ósoneyðandi efna. F-gösin kærkomnu reyndust þó ekki gallalaus, það lá fyrir frá upphafi að þau væru vandræðagemsar og nú er unnið að því að skipta þeim út, einnig á grundvelli Montreal-bókunarinnar. En hvað er að þeim? F-gösin hafa stórkostlegan hnatthlýnunarmátt, geta verið allt að því 23 þúsund sinnum öflugri gróðurhúsalofttegundir en koltvísýringur og á tímum loftslagsbreytinga er það ekkert sérstaklega vinsæll eiginleiki. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Ísak Sigurjón Bragason, sérfræðing hjá Umhverfisstofnun.
Hjúkrunarfræðingur Frú Ragnheiðar segir að með opnun neyslurýmis fyrir sprautufíkla yrði stigið risastórt skref í skaðaminnkun. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um að sveitarfélögum verði heimilt að koma upp rýmum fyrir þá sem sprauta sig með fíkniefnum. Arnar Páll Hauksson talar við Elísabetu Brynjarsdóttur. Kosningabaráttan í Bretlandi er rétt að byrja og það liggur þegar í loftinu að hún verði einkar hörð og Brexit-áhrifin óútreiknanleg. Íhaldsflokkurinn þarf að verja um tíu prósenta forskot, Verkamannaflokkurinn að sýna samtakamátt og trú á flokksleiðtogann og minni flokkarnir að sanna fyrir kjósendum að atkvæði á þá sé ekki kastað á glæ í einmenningskjördæmakerfinu. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Það er ljóst að breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe er stærsti jarðeigandi á Íslandi. Það er hins vegar óljósara hversu margar jarðir hann á í raun. Ein ástæðan er sú að eignarhalda jarðanna var þegar aflandsvætt og viðskiptin fara því að hluta fram utan landsteinanna. Réttarhöld hófust í dag yfir einum nánasta bandamanni Donalds Trumps. Roger Stone er ákærður í sjö liðum eftir rannsókn Roberts Muellers á afskiptum Rússa af síðustu forsetakosningum. Hann er sakaður um að hindra réttvísina, hafa áhrif á vitni og bera ljúgvitni. Í síðustu samningum VR fjölmennasta stéttarfélags landsins var samið um styttingu vínnutíma um 9 mínútur á dag, þrjá tíma og fimmtán mínútur á mánuði eða fjórir og hálfur dagur yfir árið. Útfærslan á hverjum vinnustað er háð samkomulagi félagsmanna og atvinnurekenda. Styttingin tekur gildi um næstu ármót en útfærslan á að liggja fyrir eftir mánuð. Bryndís Guðnadóttir, forstöðumaður kjaramálaráðs hjá VR segir að margir séu komnir vel á veg með hana það hafi komið vel í ljós á trúnaðarmannanámskeiði nýverið.
Samtök atvinnulífsins vilja að öllum börnum verði tryggt leikskólapláss strax og fæðingarorlofi lýkur, það sé brýnt jafnréttismál. Þá vilja þau stytta grunnskólanám um eitt ár og taka upp fjöldatakmarkanir í háskólum. María Sigrún Hilmarsdóttir ræddi við Davíð Þorláksson. Það er ómetanlegt að vera við góða heilsu eða hvað? Er kannski hægt að setja á það verðmiða? Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, hagfræðiprófessor við Hí, segir mikilvægt að verðmeta óáþreifanleg gæði. Forsætisráðherra segir stjórnvöld þurfa að breyta allri sinni stefnumótun.
Hæstaréttarlögmaður segir ákveðins misskilnings gæta í umræðunni um miskabætur. Bætur vegna kynferðisbrota séu yfirleitt hærri en bætur vegna ólögmætra uppsagna. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Tómas Hrafn Sveinsson. Þegar Norðurlandabúar hittast gera menn að einhverju marki ráð fyrir því að Svíar, Danir og Norðmenn skilji tungumál hverjir annarra. Sá skilningur er þó oft takmarkaður, hvað þá Íslendinganna. Danskur málfræðingur telur að tryggja megi skilning með orðalista. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Ann-Sofie Nielsen Gremaud.
Arne Sólmundsson segir að óháð veiðum séu ekki forsendur í náttúrunni til að byggja upp stóra rjúpnastofna eins og þekktust hér áður fyrr. Hann segir að fjöldi veiðidaga skipti ekki máli heldur hvenær árs sé veitt. Hann hefur rýnt í gögn um rjúpuna sem staðfesti að viðkoma hennar hafi minnkað um fimmtung frá árinu 2004. Arnar Páll Hauksson talar við Arne Sólmundsson. Tveir af hverjum fimm núlifandi Íslandingum voru sendir í sveit á sumrin. Þetta kemur fram í viðamikilli rannsókn um hvers vegna krakkar voru sendir í sveit. Jónína Einarsdóttir, sem stóð að rannsókninni, segir að í raun haf sveitunum verið falið eða verið fengið það hlutverk að ala upp þéttbýlisbörnin. Arnar Páll Hauksson talar við Jónínu Einarsdóttur.
30 ár eru liðin frá því að Berlínarmúrinn féll. Kristján Sigurjónsson talaði við hjónin Helga Hilmarsson og Hrafnhildi Ragnarsdóttur sem voru við nám í Vestur Berlín og hann talaði líka við Kristínu Jóhannsdóttur sem var ný flutt frá Austur Þýskalandi til Berlínar. Arnhildur Hálfdánardóttir fjallaði áfram um F- gös sem notuð er i kælikerfi. Hún talaði við Auðunn Pálsson og Braga Ragnarsson.
Það er óhætt að segja að heimildamyndaröðin Svona fólk sem sýnd var á RÚV síðastliðin fimm sunnudagskvöld hafi vakið verðskuldaða athygli. Svona fólk fjallar um mannréttindabaráttu homma og lesbía, hinsegin fólks, hér á landi síðastliðin rúm 40 ár, frá því að samtökin 78 voru stofnuð. Erfiðleikana og fordómana sem mættu þeim í upphafi, sigra og og ósigra, gjörbreytingu á viðhorfi þjóðarinnar um miðjan tíunda áratuginn, réttarbætur löggjafans, tregðu þjóðkirkjunnar til að viðurkenna fullan rétt samkynhneigðra og í lokin klofning og sárindi í samfélagi þeirra sem enn hafa ekki gróið. Höfundur myndarinnar er Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Hún vann að henni í 26 ár. Kristján Sigurjónsson ræddi við Hrafnhildi . Fullyrt er að lágmarks mánaðarlaun félagsmanna í 5 BHM félögum sem sömdu í síðustu viku verða 500 þúsund í lok samningstímans. Samningurinn á að tryggja kaupmáttaraukningu. Enn á ríkið eftir að semja við 21 félag innan BHM og félög innan BSRB. Arnar Páll Hauksson segir frá. Í þjóðaratkvæðagreiðslunni um sjálfstæði Skota 2014 vildu 55 prósent áfram vera hluti af Bretlandi. Í ESB-þjóðaratkvæðagreiðslunni kusu 62 prósent Skota að vera áfram í ESB. Nú þegar hinir ESB-sinna Skotar sjá fram á útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu er sjálfstæðishugmyndin aftur komin á kreik. Sigrún Davíðsdóttir segir frá
Í dag þurfa stjórnendur fyrirtækja ekki að gægjast yfir öxlina á starfsfólki sínu til að athuga hvort það sé að slæpast á Facebook. Þau nota hugbúnaðarforrit og gervigreind. Vestanhafs fylgja vinnuveitendur starfsmönnum sínum nánast hvert fótmál, jafnvel heima líka. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Ölmu Tryggvadóttur, persónuverndarfulltrúa Landsbankans. Samningurinn sem þingið samþykkti og þó ekki. Kosningarnar sem verða og þó óljóst hvort og hvenær. Á viðsjárverðum Brexit-tímum í Bretlandi er ekki allt sem sýnist. Sigrún Davíðsdóttir fer yfir stöðuna.
Samsetning ferðamanna sem hingað koma er að breytast, færri koma frá Bandaríkjunum og Bretlandi, fleiri frá Kína. Nú er einn af hverjum 20 ferðamönnum sem hingað kemur kínverskur og hlutfallið gæti hækkað, af öllum þeim þjóðernum sem hingað koma er vöxturinn mestur hjá Kínverjum. Arnhildur Hálfdánardóttir fjalla um ferðavenjur Kínverja og ræðir við Arnar Stein Þorsteinsson kínverskufræðing. Stefnt er að því að banna allar selveiðar við Ísland vegna þess hve mikið sel hefur fækkað. Dýravistfræðingur segir að ástæða fækkunarinnar sé ekki ljós. Formaður samtaka selabænda hlær að tillögunni vegna þess að engar selveiðar séu lengur stundaðar. Arnar Páll Hauksson talar við Pétur Guðmundsson og Ester Rut Unnsteinsdóttir.
Ursula von der Leyen, næsti forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, vill ráðast í aðgerðir til að bæta kjör láglaunafólks í Evrópu. Hún hefur viðrað hugmyndir um að lágmarkslaun verið innleidd með tilskipun. Kristján Bragason segir að launamunurinn sé mikill. Víða í Suðaustur-Evrópu séu tímalaun undir tveimur evrum á sama tíma og greiddar séu 12 til 18 evrur í löndum Vestur-Evrópu. Arnar Páll talar við Kristján Bragason. Í dag er dagur Sameinuðu þjóðanna og af því tilefni stóðu Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og Festa- miðstöð um samfélagsábyrgð fyrir fundi um markmið sem Norðurlandaþjóðirnar hafa sett sér á sviði sjálfbærni og hvað fyrirtæki geta lagt af mörkum til að ná þeim markmiðum. Framkvæmdastjóri Festu, miðstöðvar um samfélagslega ábyrgð, segir að stjórnvöld þurfi að setja ramma og stjórnendur fyrirtæki þurfi að sýna hugrekki. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við Hrund Gunnsteinsdóttur. Tíu ár eru liðin frá því fyrstu erlendu skipin fengu að fara Norðausturleiðina svokölluðu milli Evrópu og Asíu um Íshafið norðan Síberíu í rússneskir landhelgi. Það er þriðjungi styttri leið en að fara um Súesskurðinn milli heimsálfa. Ísinn er að brána en hvernig gengur að fá skipafélög til að nýta sér þessa hjáleið. Gísli Kristjánsson í Osló sagði frá.
Fimm BHM-félög sömdu á nótum lífskjarasamningsins. Mánaðarlaun hækka um tæp 70 þúsund á næstu fjórum árum. Samið var til fjögurra ára og um að vinnuvikan geti styst í allt að 36 klukkustundir á viku. Hvernig staðið verður að styttingu vinnuvikunnar ræðst á hverjum vinnustað fyrir sig. Arnar Páll Hauksson. Þetta hangir þarna af gömlum vana og enginn spáir í þetta. Þetta sagði formaður húsfélags fjölbýlishúss í Breiðholti þegar Spegillinn spurði hann um tvær rólur í bakgarðinum sem mega muna sinn fífil fegurri. Líklega séu rólurnar orðnar fjörutíu ára gamlar. Það er strangt eftirlit með leiktækjum á leikvöllum borgarinnar og á skólalóðum en öðru máli gegnir um leiktæki við fjölbýlishús sem víða eru að grotna niður. Spegillinn hitti Árný Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, á einum af fjölmörgum leikvöllum borgarinnar. Arnhildur Hálfdánardóttir tók pistilinn saman Anna Kristín Jónsdóttir segir frá Naruhito Japanskeirsara.
Ríkið er svo gott sem eini eigandi Landsbankans og á Íslandsbanka að fullu. Fyrir nokkrum vikum sagði fjármálaráðherra að hann vænti þess að fljótlega kæmi tillaga frá Bankasýslu ríkisins sem fer með eignarhluti ríkisins um sölu þeirra. Í dag var sérstök umræða á þingi að ósk Oddnýjar Harðardóttur, Samfylkingu um sölu á hlut ríkisins í bönkunum og henni finnst ekki komið að því að selja. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Gylfa Magnússon. Laugardagurinn var enn einn dagurinn þegar stefndi í að Brexit-línurnar skýrðust þar sem breska þingið átti að greiða atkvæði um útgöngusamning bresku stjórnarinnar við Evrópusambandið. Það fór þó á annan veg. Þegar viðbótartillaga, lögð fram í trássi við stjórnina, um að fresta gildistöku samningsins þar til öll önnur lög varðandi útgöngu væru samþykkt, ákvað forsætisráðherra að samningurinn yrði ekki borin undir þingið þann dag. Þá virtist stjórnin stefna á atkvæðagreiðslu í dag. Sigrún Davíðsdóttir, þú hefur fylgst með framvindunni í dag, engin atkvæðagreiðsla um útgöngusamninginn eða hvað? Anna Kristín ræðir við Sigrúnu Davíðsdóttur. Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna hvetur almenning til þess að gefa alls ekki upp kreditkortanúmer í símasölu eða símasöfnunum, biðja sölufólk um að senda sér tölvupóst ef það vill kaupa eða styrkja, eða styrkja beint í gegnum heimasíðu viðkomandi. Kristján Sigurjónsson talar við Brynhildi Pétursdóttur.
Mótmæli í Barselóna náðu hámarki í dag sem staðið hafa í fimm daga eða frá því að hæstiréttur Spánar dæmdi 9 leiðtoga aðskilnaðarsinna í 9 til 13 ára fangelsi. Þeim er meðal annars gefið að sök að hafa hvatt til uppþota gegn ríkinu. Í dag voru boðuð allsherjarverkföll. Frá því í morgun hefur fólks streymt til miðborgarinnar úr fimm borgum. Arnar Páll Hauksson talar við Krístínu Hildi Kristjánsdóttur. Kristján Sigurjónsson fjallar um símasafnanir. Ræðir við fólk á förnum vegi og fær líka hringingar frá samtökum sem eru að falast eftir framlögum. Árangur knattspyrnufélagsins Östersund - í Svíþjóð og í Evrópu - er líklega mesta öskubuskusaga í sænskri íþróttasögu. Smábæjarlið frá Norður-Svíþjóð sem vann stórlið Arsenal á heimavelli þess. En kannski var það ekki bara samheldni og dugnaður sem skilaði þessum góða árangri. Fyrrverandi formaður knattspyrnufélagsins bíður nú dómsuppkvaðningar eftir að hann var ákærður fyrir umfangsmikinn fjárdrátt. Kári Gylfason í Gautaborg segir frá.
Ísland er grafreitur erlendra skyndibitakeðja. Þetta segir forstjóri Dominos sem útilokar ekki að fjárfesta sjálfur í keðjunni hér, nú þegar breski eigandinn hyggst selja. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Birgi Örn Birgisson, forstjóra Dominos á Íslandi. Þórarinn V. Þórarinsson, fyrrum framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Íslands og Ásmundur Stefánsson fyrrum forseti ASÍ rifjuðu á ársfundi Samtaka atvinnulífsins upp, þjóðarsáttina sem gerð var 1990. Arnar Páll Hauksson ræddi við Þórarinn en við skulum fyrst heyra hvað Guðmundur J. Guðmundsson fyrrum formaður Dagsbrúnar og alþingismaður sagði árið 1990.
Einsemd og félagsleg einangrun eru hættuleg heilsunni, segir framkvæmdastjóri Hlutverkaseturs. Þar fær fólk sem ekki getur verið á vinnumarkaði tækifæri til að taka þátt í samfélaginu með margvíslegum hætti. Kristín Sigurðardóttir kynnti sér starfsemi hlutverkaseturs - allt frá sjósundi til súpugerðar. Fulltrúi landlæknisembættisins fagnar því að í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna sé lagður til sykurskattur og vill helst banna nammibari. Lítið er vitað um mataræði íslenskra barna, Afar fátítt er að þau séu vannærð en tíðni offitu eykst, sérstaklega meðal unglingspilta. Arnhildur Hálfdánardóttir.
Það brutust út mikil mótmæli í gær í Katalóníu eftir að hæstiréttur Spánar dæmdi 9 forystumenn aðskilnaðarsinna í 9 til 13 ára fangelsi. Fjöldamótmæli voru við flugvöll Barselóna og fresta var 110 flugferðum vegna þeirra. Og það var víða mótmælt. 45 ferðum var svo aflýst í morgun. Í Girona var logandi hjólbörðum raðað á járnbrautarteina þannig að stöðva þurfti ferðir hraðlestarinnar milli Barcelona og Frakklands. Mótmælin hafa haldið áfram í dag víða í Katalóníu. Rætt var við Hallór Má tónlistarmann, gítarkennara og sjónvarpsmannrsem hefur búið í Barselóna í 26 ár. Um leið og breska stjórnin gerir tilraun til að semja við Evrópusambandið, á síðustu stundu, gera ýmsir þingmenn sér vonir um að þingmeirihluti náist fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Breta að ESB. Það hafa ekki orðið miklar breytingar á afstöðu kjósenda síðan 2016 en áhugaverðasti hópurinn er kannski sá hópur sem kaus ekki 2016. Í þeim hópi er meirihluti hlynntur ESB-aðild. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Norðmenn voru ekki fyrr búnir að afgreiða Orkupakka 3 en þeir fengu Járnbrautapakka 4 sendan frá Evrópusambandinu. Báðir þessir pakkar eru illa þokkaðir meðal andstæðingana og sem segja að þýði endanlegt framsal á valdi yfir þjóðareign. Gísli Kristjánsson segir frá.
Alþýðusamband Ísland og BSRB Hafa ákveðið að koma á fót rannsóknarstofnun í vinnumarkaðsfræðum. Þetta var formlega tilkynnt í dag. Markmiðið er að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðar, félagsmála og efnahagsmála. Arnar Páll Hauksson talar við Drífu Snædal og Sonju Ýr Þorbergsdóttur. Það hefur orðið sprenging í komum svokallaðra leiðangursskipa, þau eru minni en hefðbundin skemmtiferðaskip, gera út á það að kanna framandi slóðir og fræða farþega um náttúru og menningu norðurslóða. Þessi skip hafa viðkomu víðar en stærstu skemmtiferðaskipin, geta siglt inn á þrönga firði og hleypt farþegum í land á afskekktum svæðum. Það er engin tilkynningarskylda, ekkert eftirlit með hvar þau taka land og regluverkið óskýrt. Jökulfirðir eru vinsælir, Vigur sömuleiðis. Arnhildur Hálfdánar dóttir segir frá og talar við Frigg Jörgensen, Þórný Barðadóttur og Lilju Ólafsdóttur
Arctic circle er stórmerkileg samkoma, þetta segir utanríkisráðherra um þing hringborðs Norðurslóða sem nú er í fullum gangi. Samískir hreindýrabændur taka undir með honum, já og færeyskir prestar. Spegillinn kynnti sér þetta stóra þing sem laðar að 2000 gesti víðsvegar að úr veröldinni og beinir líka sjónum að ungum héraðsstjóra við heimskautssbaug sem Pútín hefur handvalið. Friðarverðlaunahafi Nóbels fellur í ár algerlega að bókstaf stofnskrár Alfreðs Nóbels. Valið kemur ekki á óvart eftirvaxandi gagnrýni á norsku Nóbelsnefndina fyrir frjálslega túlkum á orðum Nóbels.
Danska ríkisstjórnin tilkynnti auknar öryggisráðstafanir í dag vegna tíðra sprengitilræða og skipulagðrar glæpastarfsemi. Jafnframt hefur verið ákveðið að herða tímabundið eftirlit á landamærum Danmerkur og Svíþjóðar. Ráðstafanirnar fela meðal annars í sér að eftirlitsmyndavélum verður fjölgað umtalsvert og rannsóknarheimildir lögreglu verða auknar. Norðurslóðir eru spennandi. Túrismi hefur náð nýjum hæðum í Finnlandi og lagt er upp með að nýr skemmtigarður, Lýðveldi jólasveinsins, laði á næstu árum tíu milljónir gesta til Rovaniemi árlega. Mikil aukning hefur orðið í komum skemmtiferðaskipa til Svalbarða og Rússar sjá tækifæri í að byggja upp ferðaþjónustu á Frans Jósefslandi. Það var vendipunktur í samningaviðræðum Breta við Evrópusambandið í dag þegar Leo Varadkar forsætisráðherra Íra var jákvæðari en áður um árangur, eftir viðræður við Boris Johnson forsætisráðherra Breta.
Tyrkir réðust inn á yfirráðasvæði Kúrda sunnan landamæra Tyrklands og Sýrlands í dag. Forystumenn Kúrda segja Tyrki hafa gert loftárásir á borgaraleg mannvirki og að mikill skelfing hafi gripið um sig meðal almennra borgara. Mannfall hafi orðið og þúsundir hafi þurft að flýja heimkynni sín. Kristján Sigurjónsson talar við Magnús Þorkel Bernhardsson. Atvinnu-og nýsköpunarráðherra upplýsti á Alþingi að til skoðunar væri hvort málsmeðferð virkjunarorku ætti að vera önnur en hefðbundinna orkukosta, innan eða utan rammaáætlunar. Vindorkan var rædd á Alþingi í dag. Arnar Páll Hauksson segir frá og það heyrist í Ara Trausta Guðmundssyni og Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur. Eru vindmyllur eins skæðar í fugladrápi og fullyrt er af andstæðingum þess að vinna raforku úr vindinum? Rannsókn og talning á hræjum fugla við einn vindmyllugarð í Noregi sýnir að á annað hundrað hafernir hafa fallið í valinn á fáum árum, auk mikils fjölda annarra fugla. Gísli Kristjánsson segir frá. Þegar kemur að hagkerfinu eru litlar fréttir oftast góðar fréttir og þannig er það á Íslandi um þessar mundir. Áhættan í hagkerfinu hefur aukist en aðeins lítillega og áföll eins og fall flugfélagsins Wow hafa haft minni áhrif en búast mátti við. Þetta kom fram í morgun þegar skýrsla Seðlabankans um fjármálastögðugleika var kynnt. Sigrún Davíðsdóttir ræddi við Eggert Þ. Þórarinsson hjá fjármálastöðugleikasviði Seðlabankans í dag meðal annars um helstu áhættuþættina í íslensku efnahagslífi.
Tyrkir hóta að ráðast yfir landamærin og inn í Sýrland og mynda þar svokallað öryggissvæði. Sýrlandsmegin er yfirráðasvæði Kúrda sem berjast gegn Assad Sýrlandsforseta ásamt öðrum stjórnarandstæðingum og hafa verið leiðandi í stríðinu gegn hryðjaverkasamtökunum sem kalla sig íslamskt ríki, eða ISIS, og hafa þar verið bandamenn Bandaríkjamanna og annarra vestrænna þjóða. Á sama tíma þá tortryggja Tyrkir, bandalagsþjóð NATÓ, Kúrda, vilja sem minnst hafa saman við þá að sælda og líta á hersveitir þeirra sem hryðjuverkamenn. Kristján Sigurjónsson talar við Arnar Þórisson. Ég var aldrei pólitísk, fyrr en eftir að ég komst á lífeyrisaldur. Þetta segir Auður Dóra Haraldsdóttir. Hún var þjónustufulltrúi í Íslandsbanka í aldarfjórðung og hætti þar 65 ára. Hún segir ráðstöfunartekjur sínar hafa dregist saman um um það bil hundrað þúsund krónur á mánuði eftir að hún hætti að vinna. Hún greiddi í þrjá lífeyrissjóði og fær 134 þúsund krónur á mánuði eftir skatt, þar af 93 þúsund krónur úr VR. Á móti koma greiðslur frá Tryggingastofnun. Samtals geri þetta 270 þúsund krónur. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Auði. Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir að ekkert sé að óttast vegna útflutnings á ferskum fiski. Formaður verkalýðsfélagsins Framsýnar á Húsavík segir að ef ekkert verði að gert aukist útflutningur. Hundruð starfa séu í húfi. Arnar Páll Hauksson talar við Jens Garðar Helgason, Aðalstein Baldursson, Hólmgeir Jónsson, Vilhjálm Birgisson og Ragnar Kristjánsson.
Horfur er á að á næstunni verðir settar upp yfir 150 hleðslustöðvar víðs vegar um landið. Þetta er niðurstaðan eftir að stjórnvöld auglýstu styrki til að koma upp hleðslustöðvum. Alls bárust umsóknir um að setja upp hraðhleðslustöðvar fyrir tæpa 2 milljarða króna. Tilkynnt verður um miðjan október hverjir fá styrki. Arnar Páll Hauksson. „Fyrsta árið var svolítið skrítið, það vantaði svolítið inn í tilveruna.“ Svona lýsir Jóhann Gunnarsson, þeim tímamótum að hætta að vinna. Þetta vandist með tímanum og hann þakkar það ekki síst þátttöku í Körlum í skúrum, verkefni á vegum Rauða krossins. Skúrinn er við Helluhraun í Hafnarfirði og þangað geta karlar á öllum aldri komið og sinnt ýmsum verkefnum. Arnhildur Hálfdánardóttir hitti Jóhann í skúrnum. Elizabeth Warren er einna líklegust til að mæta Donald Trump í forsetakosningunum á næsta ári. Trump kallar hana iðulega indjánann eða Pókahontas eftir amerísku frumbyggjakonunni frá sautjándu öld sem öðlaðist heimsfrægð í túlkun Disney í teiknimynd frá 1995. Pálmi Jónasson segir frá.
Óvissan um hvernig fer í Brexit-málum hefur farið vaxandi. Það er vel hugsanlegt að Bretland, næst mikilvægasta viðskiptaland Íslands, yfirgefi Evrópusambandið án samnings í mánaðarlok. Rætt er við Jóhönnu Jónsdóttur, sérfræðing sem leitt hefur vinnu stýrihóps utanríkisráðuneytisins um Brexit og Karl Guðmundsson, útflutningsstjóra Íslandsstofu um aðgerðir stýrihóps stjórnvalda í Brexit-málum og áhrif harðrar útgöngu á íslensk fyrirtæki. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um nýbirta rannsókn sem bendir til þess að berserkir hafi ekki étið Berserkjasveppi og einnig um hvernig ofskynjunarsveppur varð að jólaskrauti.
Ertu orðinn svona gamall? spyr fólk Ásgeir Hólm, sem gantast með að honum líði stundum eins og hann hafi gert eitthvað af sér. Hann er 78 ára og hætti aldrei að vinna, sneiddi í raun hjá þeim tímamótum sem fylgja starfslokum. Aðeins eitt íbúðarhús er kynt með olíu á höfuðborgarsvæðinu. Eigandinn segir að borgin vilji rífa húsið og neiti honum um hitaveitu.
Þrír staðir á landinu eru nær alfarið háðir olíu, bæði til að fá rafmagn og kynda upp hús. Ekki eru horfur á að breytingar verði á þessu í nánustu framtíð. Arnar Páll segir frá olf ræðir við Sigurð Bjarnason í Grímsey, Braga Benediktsson á Grísmsstöðum á Fjöllum og Hafstein Guðmundsson í Flatey. Fyrir fáeinum árum kusu íbúar í Gautaborg um hvort leggja ætti sérstakan skatt á bílaumferð um miðborgina, til að draga úr umferðarteppum og fjármagna miklar samgönguúrbætur. Skattinum var hafnað af meirihluta kjósenda. En hvað með það? Skatturinn, sem hafði þá þegar verið tekinn upp, var áfram í gildi. Og er enn. Kári Gylfason í Gautaborg segir frá. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá tillögum Boris Johnson um útgöngu Breta úr ESB og ræðu sem hann hélt á fundi Íhaldsflokksins í dag
Fasteignamarkaðurinn er hagstæðari kaupendum en áður en hindranir enn til staðar fyrir ungt fólk. Þetta segir hagfræðingur hjá Íbúðalánasjóði. Ungt fólk eigi frekar eftir að kaupa íbúðir sem rísa í úthverfum en lúxusíbúðir miðsvæðis. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Guðmund Sigfinnsson hagfræðing hjá Íbúðalánasjóði. Boris Johnson forsætisráðherra Breta hefur ekki meirihluta til að ákveða hvenær verður efnt til þingkosninga en á yfirstandandi flokksþing þarf hann helst að sannfæra flokksmenn um leiðtogahæfileika sína. Forsætisráðherra talar einkum til Brexit-sinna og eykur þannig sundrung, bæði í flokknum og með þjóðinni. Hvort subbulegar fréttir um einkalíf hans hafa áhrif á kjósendur á eftir að koma í ljós. Stjórnarandstaðan treystir forsætisráðherra alls ekki og sá trúnaðarbrestur gæti brýnt hana til að sameinast um að koma honum frá. Sigrún Davíðsdóttir. Aðferðir sem hinn ófrýnilegi djúpsjávarfiskur Lúsifer beitir til að afla sér fæðu gæti nýst í hvítfiskeldi í sjó. Tilraun hér við land er að hefjast á næstunni. Koma á fyrir ljósi í búri fullu af þorski neðansjávar og ljósið lokkar átu til fisksins. Arnar Páll Hauksson talar við Hafstein Helgason.
Hvernig verða bankar framtíðar? Verða kannski engir bankar? Undanfarin ár hafa orðið hraðar breytingar í bankageiranum og það eru frekari breytingar framundan. Breytingar sem áttu þátt í því að hundrað starfsmönnum var sagt upp í Arion banka í gær. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Gunnlaug Jónsson. Ólafur Árnason hjá Verkfræðistofunni Eflu hefur verkstýrði hópi fólks sem rýndi í gögn um ástand ferðaþjónustunnar í dag og hvernig best væri að standa að atvinnugreininni í framtíðinni. Kristján Sigurjónsson ræddi við Ólaf í dag. Tyrkneskir sjónvarpsþættir fara sigurför um heiminn og eru orðnir ein helsta útflutningsvara landsins. Vinsældir draumasmiðjunnar í Tyrklandi á heimsvísu nálgast nú ört Hollywood sem í áratugi hefur verið allsráðandi á markaðnum. Pálmi Jónasson segir frá.
Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var undirritaður í daga. Undir hann skrifaði ríkið og bæjarstjórar allra sveitarfélaganna sex á höfðuborgarsvæðinu. Samkomulagið hljóðar upp á að 120 milljörðum verði varið til samgönguframkvæmda á næstu15 árum eða fram til árins 2033. Hlutur ríkisins verður 45 milljarðar og sveitarfélaganna 15 milljarðar. 60 milljarða á að afla með sérstakri fjármögnun. Hún felst meðal annars í endurskoðun gjalda af ökutækjum og umferð í tengslum við orkuskipti eða með beinum framlögum við sölu á eignum ríkisins. Arnar Páll Hauksson talar við Sigurð Inga Jóhannsson. Hundrað starfsmenn Arions banka misstu vinnuna í dag. Fleiri hafa ekki misst vinnuna í einu hjá fjármálafyrirtæki síðan haustið 2008. Hugsanlega verður árið í ár stærsta hópuppsagnaárið frá hruni. Forstjóri Vinnumálastofnunar telur að botninum sé ekki alveg náð. Hún skrifar hópuppsagnirnar nú á efnahagsástandið og aukna sjálfvirknivæðingu. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Unni Sverrisdóttur.
Hlýnun á norðurskautssvæðinu hefur verið yfir tvöfalt meiri en að meðaltali á jörðinni síðustu tvo áratugi. Grænlandsjökull hefur rýrnað árlega um 280 milljarða tonna. Hrafnhildur Hannesdóttir jöklafræðingur og Halldór Björnsson hópstjóri loftslagsrannsókna, sem bæði starfa á Veðurstofu Íslands ræddu málið við Arnar Pál Hauksson. Innflutningur á bragðbættu vatni, gosdrykkjum og óáfengu öli hefur aukist mikið á síðustu tveimur árum. Stærstu drykkjarframleiðendurnir á Íslandi, Ölgerðin og CCEP, áður Vífilfell, fara ólíkar leiðir í innflutningi og framleiðslu. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Andra Þór Guðmundsson, forstjóra Ölgerðarinnar og Stefán Magnússon, sölustjóra hjá CCEP
Innflutningur á gosi og bragðbættu vatni hefur rúmlega fjórfaldast á innan við tveimur árum. Þetta má lesa úr innflutningsskrá Hagstofunnar. Mest munar um stóraukinn gosdósainnflutning frá Svíþjóð. Verkfræðingur hjá Eflu segir kolefnisspor innfluttra drykkja hærra en þeirra sem framleiddir á Íslandi. Arnhildur Hálfdánardóttir sagði frá. Donald Trump er sakaður um að kúga forseta Úkraínu til að rannsaka Joe Biden sem hefur mælst efstur í forvali Demókrata fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Fyrir síðustu forsetakosningar var Trump sakaður um að vinna með Rússum til að koma höggi á þáverandi andstæðing sinn Hillary Clinton. Pálmi Jónasson segir frá. Ellefu einróma hæstaréttardómarar telja þá ráðstöfun Boris Johnson forsætisráðherra Breta að senda þingið heim ólöglega. Þingstörf eigi því halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Dómur Hæstaréttar Breta varðar grundallarþætti breskrar stjórnskipunar og mun bergmála lengi. Þá líka í komandi kosningum og þá í samhengi við útgöngu Breta úr Evrópusambandinu þó dómurinn snúist ekki um það mál. Sigrún Davíðsdóttir fjallar um málið.