POPULARITY
Categories
Mánudagur 28. september Kjaramál, Óshlíðarmálið, Allsherjarþingið, SÁÁ, ESB og fjölmiðlar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins ræða um kjaramálin við Gunnar Smára og stöðuna innan verkalýðshreyfingarinnar. Þeir Páll Halldór Halldórsson og Þórhallur Hilbert segja frá því Óshliðarmálinu í viðtali við Ásdísi Olsen. Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi fer yfir allsherjarþingið með Gunnari Smára, metur ræður sem þar voru haldnar, um framtíð Sameinuðu þjóðanna og næsta aðalritara. Mikil ólga er innan og utan SÁÁ þessa dagana.Kristín Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvernig vandinn horfir við henni. Thomas Möller já-ari og Erna Bjarnadóttir nei-ari ræða við Gunnar Smára um stöðu Íslands gagnvart Evrópu í ljósi þjóðaratkvæðagreiðslunnar og þess hversu langt Evrópusambandið er til í að teygja sig Kanada. Óðinn Jónsson, blaðamaður og fyrrum fréttastjóri Rúv, spáir í spilin um framtíð frétta og fjölmiðlunar hér á landi í samtali við Björn Þorláks. Hvað breytist þegar keppinautar Rúv hverfa frá þjónustu, einn á fætur öðrum?
Fimmtudagur 24. september Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Þorsteinn Pálsson ræða utanríkismál og samband Íslands við umheiminn í samtali við Sigurjón Magnús Egilsson. Heimir Hallgrímsson hefur vakið reiði ísraelska knattspyrnusambandsins. Hjálmtýr Heiðdal hjá Ísland-Palestína ræðir við Björn Þorláks um hugrekki knattspyrnuþjálfarans. Oddný Harðardóttir, Steingerður Steinarsdóttir og Thomas Möller eru gestir Sigurjóns í Reynsluboltum, vinnudeila flugvirkja, ESB og fleira til umræðu. Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára um gervigreindarkapphlaup Kína og USA, heimsendaspár og hvernig gervigreindin mun hafa áhrif á samfélagið og ekki síst okkur sjálf. Bjarni Harðarson útgefandi og rithöfundur segir Gunnari Smára frá ferðum sínum um heiminn, en honum finnst best að ferðast einn til staða þar sem hann kann ekki tungumálið. Mao bannaði Kínverjum að stunda Qigong til að koma í veg fyrir sjálfstæða hugsun og frjálsan vilja, segir Þorvaldur Ingi Jónsson Qigong-kennari. Í viðtali við Ásdísi Olsen útskýrir hann kínverska heilsutækni.
Í þessum þætti: Arnar Eggert Thoroddsen doktor í tónlistarfræðum um Ed Sheeran Jónína Brynjólfsdóttir forseti sveitastjórnar Múlaþings og varaþingmaður Framsóknarflokksins Norðausturkjördæmis um fyrirhugaða breytingu á kosningakerfinu og atkvæðavægi Símatími: Guðbjörg - Steinar - Guðjón - Reynir Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda um mögulega aukaaðild Kanada að ESB og þýðingu þess fyrir Ísland Óskar Svavarsson uppfinningamaður hjá Sidewind um túrbínugáma Annie Mist athafnakona og fyrrum Crossfit-heimsmeistari um Hyrox keppnina og sigurvegarann sem kúkaði á sig Ilmur Kristjánsdóttir leikkona og Hilmar Guðjónsson leikari um nýtt íslenskt leikrit sem verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu á morgun
Nú á dögum fer fram pólsk menningar- og listahátíð víða um borgina. Hátíðin ber nafnið Ulga, eða fró, og er markmiðið að skapa rými fyrir fólk til að koma saman, nærast og njóta menningar á afslappaðan hátt. Á meðal þess sem er um að vera er hljóðganga um Sorpu og matarlist með einföldi i-i. Lestin settist niður með skipuleggjendum hátíðarinnar, þeim Ignacy Rybka, Katarzynu Strojnowsku og Weroniku Adamowsku á Bókasafni Kópavogs til að forvitnast um málið. Gervigreindarsmíðuð mynd sem lögreglan hefur prentað á límmiða og dreift til íslenskra skólabarna thefur vakið umtal í dag. Tveir brosandi lögregluþjónar og krúttlegur skógarbjörn í teiknimyndastíl öll merkt “Lógreglan.” Svona ódýrar og metnaðarlausar gervgreindarmyndir er það sem á ensku er kallað AI Slop en íslenska þýðingin gervigreindarslor er að ná nokkurri útbreiðslu. Við pælum í hinu slor-móderníska ástandi í þætti dagsins. Og ræðum í kjölfarið við Adam Flint grafískan hönnuð og lektor við listaháskóla Íslands um notkun gervigreindarmynda í pólitískri umræðu, slopaganda, sem er að verða sífellt algengara. Hvernig notar Trump gervigreindina og hvernig birtist hún á samfélagsmiðlum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB?
Jeffrey House, The Cider King, is back with us today on Brew Ha Ha with Herlinda Heras and Daedalus Howell. He has been on Brew Ha Ha before, the last time was this episode on December 5, 2024. Pro Chiller Green will be at Hanabi Lager on September 23 for another on-site demo of their climate-friendly chiller. Chillers work not only for production of beer but also chocolate, dairies and in cider too. Check the ProChiller website for details. Jeffrey House has done a lot in his career to bring English beers to the US and to make great cider in America and taking it back to the UK. He calls himself a transatlantic missionary. Jeffrey founded Ace Cider, probably the largest craft cidery in America. He was also the one who brought British beer to America, when he brought Fuller’s London Pride in 1980s. They brought Fuller’s ESB which was a hit among all the micro-brewers. It motivated a lot of them. ESB extra-special bitter. The First California Craft Beers in Britain Jeffrey introduced Fritz Maytag to the Fuller’s people in England. He was the first to put Anchor beer on tap in Britain. Jeffrey is researching the transatlantic beer bridge because it is a history that demands to be written. ++++++Visit Russian River Brewing Co. in Santa Rosa on 4th St. and at their big Windsor location. Check out their website and socials for up-to-date hours, menus, beers and more.++++++ Kegs are expensive. When they finished with the Fuller’s kegs in California, they sold the empty kegs to Anchor which filled them and shipped them to the east coast and to London. Jeffrey started California Cider Company in 1993. He has told his story before on this show on this episode and also here. ******Visit our sponsor Pro Chiller online for all the info about their new CO2-based Pro Green Solutions.****** His book, The Cider King, has a cautionary tale about brand ownership. It is the first craft cider company in the western states after Prohibition. They started in Marin and then worked in Graton. The only other one at the time was back east, Wood Chuck. There were some English ones too, including Blackthorn. That became the biggest cider brand in the western states, during the boom of Irish and English pubs in the 1980s and ‘90s. Herlinda and Jeffrey agree that “there’s nothing like the ambience of a good pub or taproom.” After the break they discuss the second edition of Jeffrey’s book The Cider King.
Fimmtudagur 10. september Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni Erna Indriðadóttir, Helga Jónsdóttir og Magnús Stefánsson voru reynsluboltarnir að þessu sinni. farið yfir stefnuræðu forsætisráðherra og mál tengd henni, stöðu Reykjavíkurborgar, mismunin á þéttbýlinu og landsbyggðinni, ESB kosningarnar og ýmislegt annað. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um heimsmálin og ekki síst Trump; viðskiptastríð hans við Kanada og viðbrögð íslenskra stjórnvalda við korti sem hann dundaði sér við að gera. Rithöfundar eru enn og aftur settir í óvissu vegna niðurskurðar á bókasafnssjóði. Rithöfundarnir Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambandsins, og Kristín Helga Gunnarsdóttir fyrrverandi formaður Rithöfundarsambandsins, komu og töluðu um óvissu um afkomu rithöfunda. Þórir Baldursson er að fara að gefa út tvær plötur og halda tónleika með Gömmum, gamla tónlist sem hann fann í fórum sínum. Hann kom við á Samstöðinni og ræddi við Gunnar Smára. Sigurpáll Ingibergsson, áhugamaður um íslenska jökla, ræðir við Björn Þorláks um skaflinn í Esju og válegar vísbendingar í umhverfismálum. Líkur eru á að skaflinn gufi upp næsta mánudag.
Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir um pólitíska stöðu og horfur innan ríkja í Evrópu. Við rýnum í þróunina í Þýskalandi og Frakklandi - tveimur áhrifamestu ríkjum innan ESB - og hvernig innri krísur í þessum lykilríkjum hafa áhrif á stöðu sambandsins allt í heild sinni. Sérstaklega er sjónum beint að nýlegum kosningasigrum AfD í Þýskalandi og vaxandi fylgi stjórnmálaflokka víðs vegar um álfuna sem eru langeygðir eða efagjarnir á frekari samruna innan ESB. Þá er ræddur vaxandi og djúpstæður ágreiningur á milli aðildarríkja þegar kemur að útlendingamálum, landamæravörslu og menningarmálum, breyttan pólitískan veruleika, andstöðu við frekari miðstýringu og minnkandi samkeppnishæfni og aðra þætti sem reyna sífellt meira á þolrif álfunnar.
Þórarinn ræðir ESB, fjölmiðlanefnd og það að fréttatími SÝN sé lagður niður.
Engineering culture remains trapped in outdated norms, risking the mental health and retention of top talent. Relying on diversity metrics alone fails to solve the underlying problem of workplace culture.True success requires moving beyond surface-level attraction to fostering genuine inclusion and psychological safety. This shift is not just an ethical imperative; it is essential for team performance, innovation, and industry wellbeing.Joining us to dissect how firms can build these inclusive cultures are ESB civil engineer Tymora Freeman-Stannett and OutEngineered representative Poggy Murray Whitham. They share practical insights on how to transition from empty policies to meaningful everyday changes that ensure every professional feels seen, heard, and valued.THINGS WE SPOKE ABOUTWhy traditional lad culture alienates LGBTQ+ professionalsDistinguishing tokenistic diversity from genuine inclusionConnecting psychological safety to industry mental healthReal world impact of external political pressures on DEISimple everyday actions for effective allyshipGUESTS DETAILSTymora Freeman-StannettTymora Freeman-Stannett is a civil engineer at ESB, where she actively manages the construction of utility-scale solar farms powering Ireland's green transition. Throughout her career, Tymora has been out and proud, serving as an active advocate within ESB's LGBTQ+ Employee Resource Group. Outside of hard hats and site plans, she is the Chair of the Irish Games Association, championing safe, inclusive, and accessible community spaces.Connect with Tymora : linkedin.com/in/tymora-freeman-stannettPoggy Murray WhithamPoggy Murray Whitham is a prominent member and representative of OutEngineered, an organisation dedicated to connecting, supporting, and elevating LGBTQ+ professionals and allies across the engineering and tech sectors. Poggy's work centers on breaking down systemic industry barriers, driving corporate representation, and building active networks that ensure engineering offices and physical construction sites alike are welcoming environments for all.Connect with Poggy: linkedin.com/in/poggy-murray-whitham LinkedIn: linkedin.com/in/munya-bakasa (Senior Engineer, PUNCH Consulting Engineers)MORE INFORMATIONLooking for ways to explore or advance a career in the field of engineering? Visit Engineers Ireland to learn more about the many programs and resources on offer. https://www.engineersireland.ie/ Engineers Journal Amplified is produced by DustPod.io for Engineers Ireland.QUOTESDiversity without inclusion just leads to tokenism. Inclusion breeds diversity. - Poggy Murray WhithamYou feel like you've come into a truth as opposed to a facade. - Tymora Freeman-StannettInclusion is making sure that all of those people are heard, are seen, and genuinely have a voice within the organisation. - Poggy Murray WhithamPart of allyship is opening your mind to that. You can ask the questions, but understand someone might not be prepared to give you the answer. So you have to do the work yourself. - Tymora Freeman-StannettKEYWORDS: #LGBTQinEngineering#InclusiveEngineering#EngineeringCulture#Allyship#EngineeringWellbeing
E ae!Welcome to Deep Space Podcast! Many thanks for listening. Check how to become Spatial Listener and Co-Host and help me to keep the podcast on the air:https://deepspacepodcast.com/subscribe I’ll be in South Africa in October for some gigs, the first one at TrevTover (Trev The Japanese annual celebration). Many thanks to Trev for having me and to Uni Dgeoff for taking care of bookings and logistics. South Africa 2026Oct 24 – Trev ToberBuy tickets https://www.trevtober.com/events/trevtober-1?utm_source=ig&utm_medium=social&utm_content=link_in_bio Enjoy the week563! Playlist:Artist – Track Name – [Label] e – world dirge (part I) – [slippery]ESB – 6400 Block – [Echovolt]Kukhanyakwensimi – Khuphuka! (isi-vivane)Fred Monk & Sir Rizio – Muze – [Seven Villas Music]Dante Lucero – SILAHZIAY (TeKno Mix)Martin Jarl – The Orange MistakeFuture Kings Of House SA – 2 Faced – [DeepWit]Blunt Protocol – They Buy Before (Original Mix) – [Drunk Dub]Tile Plazas – Diffident Glow – [Jungle Gym]Will Long – Have To Have Something (S’a Lotta Shade mix) – [Long Trax Productions]Diegors – Dunas – [Underground Quality]Flabaire – Itself – [MY KING IS LIGHT]
Heiðar Guðjónsson og Sigríður Á. Andersen mæta á helgarvaktina og fara yfir eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðild að ESB, kröfur um rannsóknir á úrslitunum, viðbrögð þeirra sem lutu í lægra haldi, starfsemi Rúv í aðdraganda kosningarinnar og fleira. Þá er rætt um mögulega skuldakreppu í Frakklandi og skuldasöfnun annarra ríkja, stöðu hagkerfisins hér á landi sem glímir við verðbólgu, háa vexti og kjarasamninga sem kunna að vera í uppnámi, háa bankaskatta og áhrif þeirra, breytingar á fjölmiðlamarkaði og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, bókarýni, hrós vikunnar og hraðaspurningar.
Við verðum á þjóðaratkvæðagreiðslu-nótunum í dag. Meirihluti Norðmanna er sem fyrr andvígur því að ganga í Evrópusambandið en sífellt fleiri norskir stjórnmálamenn virðast telja að það verði erfiðara að ræða ekki um það. Og sérstaklega nú þegar þjóðaratkvæðagreiðslan um áframhald aðildaviðræðna Íslands við ESB fer fram. Að baki er um margt áhugaverð kosningabarátta tveggja fylkinga, Já til að sjá og Áfram Ísland. Eva Heiða Önnudóttir, stjórnmálafræðingur, er komin til okkar og ætlar að gera upp undanfarnar vikur.
Fimmtudagur 27. ágúst Reynsluboltar, vinnueftirlit, lagahorn og sagnfræði Kristín Ástgeirsdóttir, fyrrum þingkona, Sigurður Már Jónsson blaðamaður og Sigurður Þór Salvarsson blaðamaður eru gestir Sigurjóns Magnúsar. Evrópumál, uppsagnir hjá borginni og önnur fréttamál ber á góma. Steinar Harðarson, fyrrum svæðisstjóri vinnueftirlits, ræðir sögu vinnuverndar í samtali við Björn Þorláks. Hann segir að umbætur hafi að jafnaði komið að utan. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir álitamál í Evrópurétti og hvaða breytingar gætu orðið til góðs eða ills ef Ísland yrði aðili að Evrópusambandinu. Björn Þorláks ræðir við hann. Valur Gunnarsson sagnfræðingur og rithöfundur ræðir árin frá seinni stríði í Evrópu. Þeir sem nú hamast mest gegn ESB myndu verða þeir fyrstu til að krefjast aðstoðar þaðan ef eitthvað hræðilegt myndi gerast hérlendis, segir Valur í samtali við Björn Þorláks.
Í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslu Íslendinga um mögulegar aðildarviðræður að Evrópusambandinu fékk Flugvarpið Erlend Gíslason lögmann í viðtal til að ræða stuttlega um hvaða áhrif innganga í ESB hefði fyrir flugið; þessa stóru grein hérlendis sem þúsundir hafa atvinnu af með beinum og óbeinum hætti. Erlendur er einn eiganda LOGOS og hann hefur um árabil sérhæft sig í flugrétti og fjármögnun flugvéla og starfar á því sviði m.a. fyrir flugfélög, flugvélaleigufyrirtæki og fjármögnunaraðila. Í þættinum er líka fjallað stuttlega um ETS umhverfisskattana og hvernig hagsmunagæslu Íslands var óbótavant við innleiðingu kerfisins í gegnum EES á sínum tíma. Þá gagnrýnir Erlendur harðlega hvernig innviðaráðherra setti á afturvirka reglugerð í kjölfarið á falli Play haustið 2025. Reglugerðin hafi komið illa við íslensk fyrirtæki í flugrekstri og rýrt traust og tiltrú í viðskiptum erlendra flugvélaleigusala við Íslendinga.
Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna við ESB á laugardag hefur áhrif á pólitískt landslag á Íslandi, hvort sem svar þjóðarinnar verður já eða nei. Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur fer nú yfir þau mál með okkur. Forsvarsmenn baðlóna hér á landi hafa gagnrýnt harkalega þá hugmynd að hækka virðisaukaskatt úr 11% í 24% á þeirra starfsemi. Slíkt er inn í áformum ríkisstjórnarinnar sam samþykkti hallalausa fjármálaáætlun fyrr í sumar. Það líður að hausti og vínuppskeru í Frakklandi. Nema í ár er hún víða langt komin, löngu á undan hefðbundinni áætlun. Hiti, vatnsskortur og skógareldar gera vínbændum lífið leitt – en ekki er þar með sagt að vín ársins verði verri eða dýrari.
Með því að ganga til liðs við ESB tökum við okkur stöðu innan tollmúra ríkjabandalags. Okkur verður bannað að athafna okkur utan múranna án sérstaks leyfis og þátttöku allra annarra aðildarlanda. Í stað þess að horfa á heiminn allan ætlar ríkisstjórnin að festa Ísland inn í tollabandalag og færa ákvörðunarvald um viðskiptasamninga okkar til Brussel. Heimurinn er stærri en Evrópusambandið. Hagvöxtur, fólksfjölgun og nýir markaðir verða á næstu áratugum að verulegu leyti utan Evrópu. Bandaríkin verða áfram efnahagslegt og tæknilegt stórveldi. Asíuríki sækja fram. Norðurslóðir fá aukið efnahagslegt og hernaðarlegt vægi í framtíðinni. Tækifærin blasa við en við Íslendingar, öðrum þjóðum fremur, þurfum frelsi til að grípa og nýta tækifærin. 29. ágúst mun ég segja nei takk við því að leggja upp í ferðalag til Brussel. Og um leið segi ég já við innri markaði Evrópu í gegnum EES. Já við áframhaldandi samstarfi innan EFTA. Já við nánari tengslum við Bandaríkin. Já við auknum samskiptum við Bretland og Kanada. Já við auknum viðskiptum við Asíu. Já við því að kanna nýtt samstarf á Norður-Atlantshafi. Já við eigin viðskiptastefnu. Já við því að Íslendingar ráðum áfram yfir sjávarauðlindum okkar. Já við því að við nýtum orkuauðlindir á okkar forsendum. Og já við þeirri hugmynd að lítil þjóð geti í krafti fullveldis verið opin fyrir öllum heiminum án þess að þurfa að tilheyra pólitísku ríkjasambandi 27 annarra þjóða. Já við því að við stöndum á eign fótum meðal vina og bandamanna. Já við því að við grípum tækifærin sem bíða okkar.
Myndu Íslendingar afsala sér fullveldinu með því að ganga í Evrópusambandið, eða er innganga einmitt besta leiðin til að tryggja raunverulegt fullveldi Íslands til framtíðar. Um þetta hafa verið skrifaðar ótal skoðanagreinar undanfarnar vikur í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna við ESB. Í þætti dagsins ætlum við að reyna að skilja betur þetta hugtak, hvað það þýðir, og hvort að skilningur okkar á því hafi breyst frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki árið 1918. Við spjöllum við Guðmund Jónsson prófessor í sagnfræði.
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson mæta í líflegt samtal þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan um aðild að Evrópusambandinu og orkumálin eru í brennidepli. Við rifjum upp vel heppnað bjórkvöld Þjóðmála á Selfossi, fjöllum um eftirvæntinguna fyrir Þjóðfundi Þjóðmála á föstudaginn kemur, rýnum í Epic-stuðlana, beinum sjónum okkar að einkaviðtali Rúv við utanríkisráðherra nokkrum dögum fyrir kosningar og ósvöruðum spurningum um sjávarútvegsmál. Þá er rætt um grein Þórðar í Morgunblaðinu í morgun og þá staðreynd að orkumál hafa gleymst í umræðunni þó svo að vitað sé að ESB mun sækjast eftir íslenskri orku.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Brynjar Þór Friðriksson sviðsstjóri aðgerðarsviðs slökkviliðsins Dagur B Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar og Guðlaugur Þór Þórðarson um lokasprettinn fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB viðræður Símatími Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna um gervigreind og neytendur Egill Almar Ágústsson hagfræðingur ræddi við okkur um verðbólguna Anna Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Alfreðs um hið svokallaða "Gigg-hagkerfi" sem er í örri þróun
Kolbeinn Tumi Daðason stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Þjóðin er klofin í afstöðu sinni til þjóðaratkvæðagreiðslunnar um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið og Alþingi Íslendinga sömuleiðis. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og varaformaður Viðreisnar, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins takast á um þessi mál. Sjónarmið eru ólík í atvinnulífinu varðandi kosti og galla Evrópusambandsins. Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair og Sveinn Logi Sölvason, forstjóri Emblu Medical móðurfélags Össurar, deila sjónarmiðum sínum. Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands og Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna ræða mögulega ESB-aðild út frá sjónarhorni háskólasamfélagsins og neytenda. Guðni Th. Jóhannesson prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseti Íslands setur Evrópumálin og ekki síst fullveldi okkar Íslendinga í samhengi.
ESB has lodged plans for a major renewable energy development at Moneypoint Power Station. The Electricity Supply Board has applied for permission to build a 300 Mega-Watt Long Duration Energy Storage Facility at the West Clare site. It will be used to store excess energy generated from offshore wind which can then be redistributed to the national grid when supplies are low. Doonbeg Fianna Fáil Councillor Rita McInerney says it's a huge step forward for the region.
Werknemers zijn vaak verder met het toepassen van kunstmatige intelligentie dan hun werkgevers. Dat blijkt uit een analyse van economenvakblad ESB. Terwijl medewerkers AI-technologie steeds vaker gebruiken in hun dagelijkse werkzaamheden, nemen bedrijven en organisaties nog beperkt initiatief om dit actief te ondersteunen en te stimuleren. Donner Bakker vertelt erover in deze Tech Update. Verder in deze Tech Update: Donners Lowlands-ervaring en vakantieplannen; Anthropic wil de beursgang van SpaceX overtreffen; Amerikaanse militairen kunnen verlof aanvragen om GTA 6 te spelen. See omnystudio.com/listener for privacy information.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Gabríela Bryndís Ernudóttir, sálfræðingur og höfundur hlaðvarpsþáttaraðarinnar Biskupsmálið, ræddi við okkur um málþingið Vald og ábyrgð. Kristín Dröfn Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Vök baths, var á línunni. Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingar og Snorri Másson, þingmaður Miðflokks, skiptust á skoðunum um ESB. Ragnar Þór Jóhannsson, Vestmanneyingur og faðir, var á línunni og fór yfir undarlegt mál sem hann lenti í. Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi, ræddi við okkur um samskipti í parsamböndum. Maggi Kjartans ræddi við okkur um Grímsævintýri og hressandi tónleika.
Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, ræðir um utanríkismál og mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu í sérstökum aukaþætti Þjóðmála. Albert færir rök fyrir því að sérstaða Íslands útiloki í reynd aðild án þess að gengið sé á grundvallarhagsmuni þjóðarinnar. Í spjallinu er rýnt í þá óvissu sem fylgir því að hefja viðræður án skýrra markmiða, við ræðum um reynsla Norðmanna af sambærilegu ferli og greint er á milli varanlegra og tímabundinna undanþága. Albert útskýrir hvers vegna ESB mun vart gefa eftir í grundvallarreglum um ýmis atriði sem snúa að Íslandi auk þess sem rætt er um hvernig hátt hlutfall endurnýjanlegrar orku hér á landi skapar árekstra við loftslagsstefnu sambandsins. Þá er litið til sögulegs sjálfstæðis í átakamálum auk þess sem rætt er um það sem sumir vilja kalla „breytta heimsmynd“ og hvort að hún kalli á afdrifaríkar ákvarðanir af hálfu Íslands.
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, mætir í efnismikið og upplýsandi spjall um stöðu og framtíð íslensks landbúnaðar. Trausti rýnir í nýútkomna skýrslu um afleiðingar mögulegrar ESB-aðildar Ísland og litlar væntingar til þess að Ísland fái undanþágur frá sameiginlegu landbúnaðarstefnu sambandsins. Hann svarar jafnframt gagnrýnisröddum sem telja samtökin teikna upp hræðslumynd auk þess að ræða hvort aðgangur að Evrópumarkaði gagnist íslenskum bændum í raun. Þá ræðir Trausti einnig um tækifærin í íslenskum landbúnaði, þá framþróun sem hefur átt sér stað og hverju búast megi við í framtíðinni, mikil vægi fæðuöryggis, kynslóðaskipti og nýliðun í greininni og margt fleira.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ása Dóra Gylfadóttir, músíkmeðferðarfræðingur ræddi við okkur um músíkmeðferð. Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona vatnsmiðla hjá Veitum, ræddi við okkur um nýjar borholur eftir heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu. Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingar og Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks skiptust á skoðunum um vexti, verðbólgu og ESB. Pétur Viðarsson, framkvæmdastjóri Matarstundar og Bjarni Gunnar Kristinsson, fyrrverandi Executive Chef á Hilton Nordica og fyrrverandi fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins, ræddu við okkur um matinn í leik- og grunnskólum í Hafnarfirði. Kolbrún Arna Sigurðardóttir, dýrahjúkrunarfræðingur og hundasjúkraþjálfari og Theodóra Róbertsdóttir, dýrahjúrunarfræðingur hjá Royal Canin, ræddu við okkur um hundahlaupið.
Svo mjótt er á munum milli þeirra sem ætla að segja já og nei við því að Ísland hefji á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið að ekki er hægt að segja til um hvernig fer 29. ágúst . Í síðasta þjóðarpúlsi Gallups sagðist rétt rúmur helmingur, fimmtíu og eitt og hálft prósent, myndu segja já en fjörutíu og átta og hálf prósent nei. Þessi munur er ekki marktækur. Um sjö prósent sögðust ekki hafa gert upp hug sinn. En að hve miklu leyti fælu aðildarviðræður, ef til þeirra kæmi, í sér aðlögun að regluverki Evrópusambandsins og hver var reynslan þegar Ísland var í viðræðum eftir umsóknina 2009? Margrét Einarsdóttir prófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti segir að heilmikil aðlögun að regluverki ESB hafi falist í samningnum um evrópska efnahagssvæðið sem var gerður fyrir rúmum þrjátíu árum og aðild að Schengen-samstarfinu. Á sínum tíma þegar rætt var um aðild hafi verið samið um að ekki yrði ráðist í laga- eða stofnanabreytingar áður en aðild væri samþykkt og hún telur að sama yrði ef farið yrði í viðræður nú. Loftslagsbreytingar hafa orðið til þess að gróðureldar eru erfiðari viðureignar en nokkru sinni. Áhrif þeirra gætir líka víða.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræddi við okkur um stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands á miðvikudag. Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur um fánalögin. Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fyrrverandi þingmaður og situr í stjórn Evrópuhreyfingarinnar, ræddu innflytjendastefnu Evrópusambandsins. Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir, stjórnendur Skuggavaldsins, ræddu ýmsar kenningar sem hafa kviknað um ESB. Katrín Björk Birgisdóttir, sparnaðarséní og minimalisti, ræddi við okkur um leiðir til að minnka drasl á heimilinu. Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, var á línunni.
Snorri Másson og Diljá Mist Einarsdóttir mæta í líflegt spjall um heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um komandi viðburði Þjóðmála á Selfossi og í Háskólabíói, rýnt er í væntanlega stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og svartsýna spá AGS um að hallalaus fjárlög verði ekki að veruleika fyrr en árið 2031 — sem stangast á við bjartsýni forsætisráðherra um að hlutirnir stefni í rétta átt. Þá er rætt um ESB-atkvæðagreiðsluna, viðhorf ungs fólks til ESB, örvæntingu þeirra sem vilja ganga í ESB og fleira í þeim dúr. Loks eru fastir liðir á sínum stað; Hrós vikunnar, hraðaspurningar, bókameðmæli og nýr liður þar sem viðmælendur velja sér þjóðarleiðtoga til að taka með í frí. Við minnum síðan á miðasöluna á Þjóðfund Þjóðmála inn á Tix.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, ræddi við okkur um orkumál og ESB. Ólafur Ísleifsson og Ólafur Arnarson skiptust á skoðunum um Evrópusambandið og Evruna. Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður Leigjendasamtakanna og Anna Kristín, varaformaður samtakanna, ræddu við okkur um heimsókn sænska sjónvarpsins og leigumarkaðinn. Embla Bachmann, rithöfundur og dagskrárgerðarkona, settist niður með okkur og ræddi símtalafóbíu unga fólksins. Elko hornið.
ESB pensioner Michael Brosnan gave his reaction to the decision to increase the pay of the company’s CEO Paddy Hayes. Mr Hayes’s new approved salary is €410,000 – a yearly increase of 29%. Other semi-state CEOs have had pay increases approved by the Government.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: 10 - 10.30Evrópumál/fullveldi og sjálfstæði Stefán Stefán Már Stefánsson, prófessor Emeritus er einn helsti sérfræðingur okkar um Evrópumál, hann leggur mat á umfang framsal ríkisvalds til ESB ef af inngöngu verður. Evrópumál/sjávarútvegur Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, forstjóri Vinnslustöðvarinnar Hversvegna vill sjávarútvegurinn ekki ganga í ESB og draga úr gjaldmiðlaáhættu og auka tollfrjálsan aðgang að stórum mörkuðum? Forstjóri Vinnslustöðvarinnar svara þessum spurningum og fleiri Evrópumál/hagkerfið Gauti B. Eggertsson, prófessor við Brown háskóla í USA Jón Helgi Egilsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands Báðir þessir menn hafa verið áberandi í umræðu um hagkerfið og þróun þess á síðustu vikum, en hver eru hin hagrænu rök fyrir því að leita eftir inngöngu i Evrópusambandið, hvað mælir með og hvað gegn? Evrópumál/landbúnaður Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna Bændasamtökin hafa yfirfarið hina sameiginlegu landbúnaðarstefnu ESB og telja hana tæpast samræmast íslenskum landbúnaði enda flytjist ákvörðunarvald að stórum hluta úr landi með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir innlenda matvælaframleiðslu.
Fianna Fáil TD Christopher O’Sullivan is Minister of State for Nature, Heritage and Biodiversity. Today he is meeting officials at Killarney National Park were there was a wildfire last month. Yesterday, he announced almost €8m for a marine restoration project in the county. Jerry also asked him about the pay increase granted to the CEO of the ESB.
Íslenskur landbúnaður stendur á krossgötum, segir í skýrslu Bændasamtakanna um mögulega aðild að Evrópusambandinu. Bændur hafa boðað aukabúnaðarþing 14. ágúst og þar á að ræða og álykta um þessi mál. Í skýrslunni sem kynnt var í morgun er á um 130 síðum og í átta köflum farið yfir hvort í ESB-aðild fælist fyrst og fremst tæknileg breyting eða kerfisbreyting fyrir íslenskan landbúnað og sjónum beint að ákvörðunarvaldi, stuðningskerfi, markaðsvernd, heilbrigði búfjár og sérstökum framleiðsluskilyrðum. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Sigurbjörgu Ottesen, formann milliþinganefndar Bandastamtakanna, en nefndinni var falið að greina áhrif mögulegrar ESB-aðildar og aðildarviðræðna á íslenskan landbúnað. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Kristján Kristjánsson styrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Efnahags- og evrópumál Arnór Sighvatsson, fyrrverandi aðstoðarseðlabankastjóri Arnór Sighvatsson, fyrrverandi aðstoðarseðlbankastjóri, ræðir afstöðu sína til þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst og þá skoðun sína að Evran henti íslenska hagkerfinu vel. Hann telur efnahagslegt fullveldi best tryggt með inngöngu í ESB og þátttöku í gjaldmiðlabandalagi. Hvalveiðar Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna Árni Sverrisson segir reynslu sjó- og skipstjórnarmanna skýra um áhrif gríðarlegrar fjölgunar hvala á fiskistofna við Íslandsstrendur. Bregðast verði við en umfram allt hvetur hann til miklu umfangsmeiri rannsókna á vistkerfi hafsins og samspili tegunda sem þar eru. Efnahagsmál/Laxeldi á landi Lárus S. Ásgeirsson stjórnarformaður Laxeyjar í Vestmannaeyjum Lárus Ásgeirsson rekur möguleika Laxeyjar og annarra landeldisfyrirtækja í laxi til næstu ára. Spár gera ráð fyrir því að Íslandi taki forystu á þessu sviði innan fárra ára. Gríðarlegir möguleikar á verðmætaaukningu í útflutningi að hans mati.
Gestir Vikulokanna eru Hermann Guðmundsson framkvæmdastjóri Kemi og fyrrverandi forstjóri N1, Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður, bókmenntagagnrýnandi og pistlahöfundur og Jónas Hagan Guðmundsson fjárfestir, frumkvöðull og stjórnarmaður í hreyfingunni Já til að sjá. Þau ræddu meðal annars komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildaviðræður Íslands við ESB, minnkafár í Mosfellsbæ og viðtal forsætisráðherra við breska hlaðvarpið Rest is Politics. Umsjón: Urður Örlygsdóttir Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Sjávarútvegur/Evrópumál Kristján Vigfússon, dr. í stefnumótun við HR Kristján ræðir rannsóknir sínar á íslenskum sjávarútvegi og forskoti hans í alþjóðlegum samanburði og veltir upp möguleikum á auknum umsvifum íslenskra fyrirtækja ef til kæmi aðild að ESB. Dómsmál Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Dómsmálaráðherra ætlar ekki að aðhafast neitt í fyrirkomulagi á sölu áfengis, þrátt fyrir miklar breytingar á því og niðurstöður dómstóls um lögmæti þeirra breytinga. Hvernig hyggst hún bregðast við starfsemi erlendra veðmálafyrirtækja á Íslandi og skyldum málum, t.d, tekjuöflun stórra samfélagsmiðlafyrirtækja, þar sem lögsaga íslenska ríkisins er ekki ótvíræð. Stjórnmál/Evrópumál Sigríður Á Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar Hveru alvarleg mistök voru það hjá utanríkisráðherra að lleiðrétta ekki frétt þar sem haft var ranglega eftir henni að ráðherrann hefði rætt við forsætisráðherra Hollands um varanlega undanþágur fyrir Íslendinga frá sjávartúvegsstefnu ESB? Kjarasamningar Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ Er orðið ljóst að taka þarf upp kjarasamninga í haust - verðbólgutölur benda til þess en hvað vill forseti ASÍ að gerist. samtökin hafa talað fyrir ráðstöfunum í efnahagsmálum frá í febrúar en litla athygli fengið.
Öll viðtöin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Arnar Jökull Agnarsson ábyrgðarmaður þjálfunar flugáhafna hjá Icelandair - um protocol í flugstjórnarklefa Dagur B Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar um skýrslu sem unnin var að frumkvæði og beiðni Alþýðusambandsins, Samtaka atvinnulífsins, Félags atvinnurekenda og Viðskiptaráðs árið 2014 Símatími Davíð O Arnar yfirlæknir hjartalækninga Landspítala - Hvernig á maður að bregðast við gagnvart hitabylgju Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi - um 12 ára gamla skýrslu varðandi ESB inngöngu Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri samtaka um ferðaþjónustu - erum við að nýta Ísland sem svalan vikomustað Krstján Aðalsteinsson formaður málarameistarafélags Íslands Hvernig líður málurum hér á höfuðborgarsvæðinu í rigningunni? Það er afkomubrestur í útimálningu á suðvestur horninu
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða stóra „mjólkurmálið“ og 60% reikningsskekkju varaborgarfulltrúa Viðreisnar, auk þess sem rýnt er í viðbrögð Þorgerðar Katrínar við fréttaflutningi af umræðum í hollenska þinginu. Við ræðum einnig um þau áhrif sem starfsmenn þingflokks Samfylkingar telja sig geta haft á löggjöf ESB með færslum á samfélagmiðlum, hvernig Epic stuðullinn er að þróast í aðdraganda kosninga, mikilvægi þess að ráða fyrir eigin auðlindum og margt fleira. Þá eru fastir liðir einnig á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, útilegupælingar, hraðaspurningar og fleira.
Hvað felst í sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins og er hægt að fá varanlegar undanþágur frá henni? Um þetta er tekist á í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB. Gunnar Þór Pétursson lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti segir engan vafa leika á því að mögulegt sé að semja um ýmsar undanþágur og sérlausnir, þótt það verði ekki endilega fyrirhafnarlaust. Fyrir slíku séu fjölmörg fordæmi. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason
Íslenskur sjávarútvegur, yfirráð Íslendinga yfir auðlindum hafsins í kringum Ísland og nýtingu þeirra - þetta er jafnan eitt mesta hitamálið þegar tekist er á um kosti og galla hugsanlegrar Evrópusambandsaðildar og jafnvel aðildarviðræðna. Áhrif inngöngu í ESB á þessu sviði eru sögð frá því að vera óveruleg allt upp í algjört afsal á stjórn og nýtingarrétti íslenskra fiskistofna til framkvæmdastjórnar ESB í Brussel - og allt þar á milli. En hver er sameiginleg stefna Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum? Spegillinn spurði Jóhann Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Hafrannsóknastofnunar að því. Hann tók þátt í að undirbúa sjávarútvegskaflann í aðildarumsókn Íslands á árunum 2009 til 2013, en þeim viðræðum var hætt áður en sá kafli var opnaður. Hlutverk Jóhanns var einkum að rýna í Evrópulöggjöfina og bera hana saman við þá íslensku. Hann þekkir því vel til sjávarútvegsstefnu ESB. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er Utanríkisráðherra Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Þorgerður um frelsi, útþenslu hins opinbera, stríðsrekstur, ESB og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Ingling - https://ingling.is/ Kush.is - https://www.kush.is/
Gestir Vikulokanna eru Snærós Sindradóttir framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar og Halldór Benjamín Þorbergsson einn stofnanda Áfram-Ísland. Þau ræddu komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við ESB. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Hörður Ægisson og Sólveig Anna Jónsdóttir mæta á helgarvaktina og fara yfir stóru málin. Við ræðum um skeikula ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, vaxandi andstöðu við hana og upphafsfund „Áfram Ísland“ þar sem Sólveig Anna situr í stjórn. Farið er yfir afgerandi viðbrögð Já-sinna, nýja skýrslu um lífskjör hér á landi, það óvænta bandalag sem myndast hefur á milli ólíkra aðila, umræðu á erlendum þjóðþingum sem utanríkisráðherra vill ekki láta fjalla um hér á landi og margt fleira þessu tengt. Þá er rætt um vaxandi líkur á því að forsendur kjarasamninga bresti í haust, ráðaleysi ráðamanna í efnahagsmálum, möguleg áhrif gervigreindar á láglaunastörf og fleira. Fastir liðir eins og hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar frá gestum Kringlukráarinnar eru einnig á sínum stað, þar sem gamlar deilur Harðar og Sólveigar eru rifjaðar upp.
Þessi þáttur var tileinkaður útvarpi íslendinga. Flosi og Freyr á Hraðbrautinni stoppuðu stutt við. Albert er búinn að vera á 3 daga fylleríi. Pétur velti fyrir sér ESB. Hjálmar var ekki sáttur með Helga í gær. Sölvi Tryggva hringdi frá Zanzibar.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!
Wally Szczerbiak and Kevin Garnett got into it once after a game. We also took a call about the reckless "skywalker" couple at the ESB and even talked a little about Team USA moving on to play Belgium.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Ingu Sæland, vill að þjóðin veiti þeim umboð í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst til að hefja aðlögunarviðræður við ESB án þess að nokkuð liggi fyrir um hvað felist í því umboði. Valkyrjur ríkisstjórnarinnar forðast að upplýsa um markmið stjórnarinnar gagnvart Evrópusambandinu. Engu er líkara en í hugum þeirra sé eðlilegt og skynsamlegt að hefja samningaviðræður án þess að nokkur viti hvert sé ferðinni heitið. Það eina sem er ljóst er að forsætisráðherra segist ætla að selja Ísland fokdýrt.
Björn Bjarnason kann að setja hlutina í samhengi og það gerir hann reglulega hér í Þjóðmálum. Í þætti dagsins ræðir Björn um stöðuna í íslenskum stjórnmálum, villandi umræðu um ESB-umsóknina sem kosið verður um í haust, sögulegt samhengi við NATO-aðildina og EES-samninginn, hvort að breyting hafi orðið á alþjóðastjórnmálum eða utanríkisstefnu vestrænna ríkja og margt fleira.
Andrés Magnússon og Birgir Ármannsson rýna atburðarrás vikunnar. Við ræðum meðal annars um afsögn Keir Starmer í Bretlandi, sem kallar á spurningar um það hvort hann sé enn innblástur fyrir íslenska forsætisráðherrann og hvort að atburðarrásin sé með sambærilegum hætti hér á landi. Þá er rætt um nýjar kannanir, dökkar væntingar stjórnenda í atvinnulífinu, orðaleik forsætisráðherra um skattahækkanir, mótsagnakenndan stuðning við ferðaþjónustuna, ESB-umsókn ríkisstjórnarinnar og mýturnar sem haldið er á lofti í þeirri vegferð og margt fleira. Þá eru hraðaspurningar og hrós vikunnar á sínum stað auk þess sem gestirnir skella sér í útilegu.
The Moncrieff Show is coming to you from the Montenotte Hotel in Cork as part of Newstalk's Summer Tour, with thanks to ESB!Seán is joined by Cork Comedian Christ Kent to talk about his path from Electrician to Stand Up, and his upcoming tour.