POPULARITY
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Landsliðsþynnka einkenndi árið 2016 eftir þennan ótrúlega dag á Arnarhóli. Við skröltum af stað, á sama tíma og ferill Charlie Keller fór á flug. Rúnar Eff sigraði hug og hjörtu þjóðarinnar þegar hann söng um hversdagslegan dag í lífi einstaklings á listamannalaunum og Fókushópurinn stappaði stálinu í íslensku þjóðina eftir erfiðan dag í Finnlandi og kallaði eftir því að við gætum ekki lifað í eftirsjá. Hendiði í Leiðrettingahornið!
24. október 2023 Samstöðufundir vegna kvennaverkfallsins voru á dagskrá um allt land í dag. Fjölmennasti viðburðurinn var á Arnarhóli í Reykjavík, þar sem lögregla áætlar að á milli sjötíu til hundrað þúsund karlar, konur og kvár hafi komið saman. Heyrðist í Freyju Steingrímsdóttur, Ingu Straumland, Sigfríði Þorsteinsdóttur, Rögnu S. Óskarsdóttur, Örnu Sif Bjarnadóttur, Guðbjörgu Pálsdóttur, Sylwiu Zajkowsku, Gerði Steinþórsdóttur og Birni Kristjánssyni. Þingfundur var stuttur á Alþingi í dag vegna kvennaverkfallsins. Þar heyrðist í Ásmundi Friðrikssyni, varaforseta þingsins, og Guðmundi Andra Thorssyni alþingismanni. Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna verða að hætta að sinna hjálparstarfi á Gaza frá og með morgundeginum vegna eldsneytisskorts. Volodomír Zelenský Úkraínuforseti hheitir því að halda áfram hernaðaraðgerðum gegn hernámsliði Rússa á Krímskaga. Yfirráð Rússa á svæðinu væru tálsýn. Stjórn sænska seðlabankans tilkynnti í dag að bankinn þurfi fjárveitingu upp á nær 80 milljarða sænskra króna, jafnvirði um 1.000 milljarða íslenskra króna, til að ná þeirri eiginfjárstöðu sem lög um bankann kveða á um. Ástæðurnar eru mikið tap bankans. Möguleikar á stjórnrmyndun á Spáni hafa aukist. New York er eitt þeirra ríkja Bandaríkjanna sem náð hefur hvað mestum árangri í baráttunni gegn launamisrétti, bæði milli kynja og eftir uppruna. Samstarf Íslands við Evrópusambandið um rannsóknir, nýsköpun, mennta og menningarstarf hefur um árabil skilað meira hingað en sem nemur framlagi íslenskra stjórnvalda, segir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís. Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Mark Eldred.

Það hefur ekki farið framhjá mörgum að konur og kvár leggja niður störf í dag. Tugir samtaka kvenna, hinsegin fólks og launafólks standa að verkfallinu. Þar á meðal eru Stígamót og fyrir hönd þeirra er Drífa Snædal í framkvæmdastjórn Kvennaverkfallsins. Við hringdum í Drífu sem var að gera sig klára fyrir stóran útifund við Arnarhól. Kynbundinn launamunur verður þar í forgrunni og ólaunuð störf kvenna, en einnig baráttan gegn kynbundnu ofbeldi. Við hringjum líka langlínusímtal til Himalaya-fjallanna. Þar er Tómas Guðbjartsson skurðlæknir að venjast loftinu í nærri fimm þúsund metra hæð áður en hann heldur á tind fjallsins Imja Tse. Hann segir okkur frá því og læknastörfum í 5000 metra hæð. Við fáum svo pistil frá Páli Líndal umhverfisálfræðingi.

Í Rokklandi í dag kl16.05 á Rás 2 veður boðið upp á brot af því besta frá Tónaflóði Rásar 2 á Arnarhóli í gær. Dagskráin var litrík og fjölbreytt - ljósin falleg og fólkið sömuleiðis. Í byrjun Þáttar segir Freyr Eyjolfsson okkur frá Elvis og hvað það var sem dró hann (hugsanlega) til dauða fyrir 45 árum síðan - þegar hann var aðeins 42 ára gamall.

Í næstu viku fer fram stór vísindaráðstefna í Hörpu um afdrif íss og snjós á Íslandi en jöklar hafa undanfarin ár rýrnað um alla jörð og hinar stóru ísbreiður Grænlands og Suðurskautslandsins leggja sífellt meira til hækkunar heimshafanna. Þar talar meðal annars Hrafnhildur Hannesdóttir sérfræðingur í jöklarannsóknum um það hvernig íslensku jöklarnir eru eins og lifandi tilraunastofa um loftslagsbreytingar. Hún var gestur okkar í upphafi þáttar. Landsbankinn spáir því að hámarki verðbólgu sé þegar náð og að í september megi strax sjá hjöðnun. Miklar hækkanir á húsnæðisverði hafa verið megindrifkraftur verðbólgunnar undanfarið, en nú sjáist hins vegar fyrstu merki kólnunar. Við ræddum efnahagshorfurnar við Unu Jónsdóttur, hagfræðing hjá Landsbankanum. Síðustu daga hafa Íslendingar geta forvitnast um laun samlanda sinna eftir að álagningarskrá einstaklinga fyrir síðasta ár var birt af ríkisskattstjóra. Tekjublað Frjálsar verslunar kom út í gær og þar var til að mynda hægt að rýna í hvaða forstjórar, íþróttamenn og áhrifavaldar hafa hæstu og lægstu launin - þó skekkjumörkin séu veruleg í mörgum tilfellum. Við ræddum við Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar, um birtingu þessara upplýsinga. Já og af því það er föstudagur þá renndum við yfir fréttir vikunnar með góðum gestum. Að þessu sinni settust hjá okkur Atli Fannar Bjarkason samfélagsmiðlastjóri RÚV og María Rut Kristinsdóttir, kynningarstýra UN Women. Menningarnótt er á morgun og því fylgir að sjálfsögðu Tónaflóð Rásar 2, stórtónleikar á Arnarhóli þar sem öllu er til tjaldað. Unnsteinn Manúel Stefánsson er einn þeirra tónlistarmanna sem koma fram á hátíðinni en hann var gestur okkar upp úr hálf níu. Borgarráð kynnti í gær sex tillögur til þess að bregðast við leikskólavanda í borginni og telur að það muni skila 553 nýjum leikskólaplássum á þessu ári. Kristín Tómasdóttir, sem staðið hefur fyrir mótmælum í Ráðhúsinu, gaf lítið fyrir tillögurnar í gær - og hélt mikla eldræðu sem vakið hefur mikla athygli. Við ræddum við Kristínu um framhaldið í lok þáttar.

Mannlífs- og menningarhátíðin Menningarnótt fer fram í höfuðborginni á morgun. Margt er á dagskrá, stórt og smátt, og endahnúturinn er flugeldasýning af glæsilegra taginu eftir Tónaflóð á Arnarhóli. Héraðsdómur Reykjavíkur opnar dyr sínar gestum og gangandi. Líklega vill fólk helst ekki eiga erindi þangað dagsdaglega en starfsemin er mikilvæg; dómarar jafna ágreining, kveða upp úr um sekt eða sakleysi og ákveða refsingu. Ingibjörg Þorsteinsdóttir dómstjóri ræddi við okkur um störf dómara og það sem fram fer í Dómhúsinu við Lækjartorg. Á morgun erum við líka boðin velkomin í Sendistofu Færeyja sem er til húsa í Hallveigarstöðum við Túngötu. Þar ræður ríkjum Halla Nolsöe Poulsen sem á móðurmálinu er titluð sendikvinna. Karlkyns kollegar hennar bera titilinn sendimaður. Halla spjallaði við okkur um Færeyjar og Færeyinga, samband okkar og vináttu. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, verður líka með okkur í þættinum í dag. Hann sagði okkur allt um ferðalög okkar Íslendinga í júlí - við fórum nálægt því að slá met í þeim. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Ó borg mín borg - KK Band og Björk Rauðar rósir fölna - Bríet Have you ever seen the rain - Creedence Clearwater Revival Náttin var okay - Herborg Torkilsdóttir

Sunnudaginn 25. febrúar 1924 safnaðist mikill mannfjöldi saman á Arnarhóli til að fylgjast með þegar stytta af Ingólfi Arnarsyni eftir Einar Jónsson var afhjúpuð. Illugi Jökulsson rifjar upp aðdragandann sem var þó nokkuð langur.

Áratugurinn milli fyrri heimsstyrjaldar og valdatöku nasista var mikill óvissutími í Þýskalandi, en á sama tími mikill gerjunartími í hugsun og heimspeki. Í bókinni Tími töframanna er rakin saga fjögurra frumlegustu hugsuða þessara ára í þýskalandi og hvernig þeir tókust á við ólguna og tilvistarlegt uppnámið sem fylgdi í kjölfar heimsstyrjaldarinnar. Arthúr Björgvin Bollason þýðandi segir frá bókinni - og svo heyrum við líka í þessum töframanni. Í dag er alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra landsnefndar UN Women á Íslandi leit við í Efstaleitið og ræddi um ljósagönguna sem nú er að hefjast á Arnarhóli. Og við lítum yfir lista sigurvegara á AMA tónlistarverðlaununum sem veitt voru í nótt en þar féll meðal annars gamalt met Michael Jackson. Þá skoðum við fyrirbærið „molka“ - faraldur í Suður Kóreu þar sem kynferðisleg myndbönd eru tekin af konum án þeirrar vitneskju. Um helgina fannst K-Pop söngkonan Goo Hara látin á heimili sínu en ýmislegt bendir til að „molka“ hafi átt þátt í að draga hana til dauða.

Menningarnótt fór fram í gær í góðu veðri með tilherandi viðbyrðum um alla borg, Reykjavíkurmaraþoni og allskonar um alla borg allan daginn og fram á kvöld og gestir Menningarnætur 100.000 eða þar um bil segir lögreglan. Eins og venulega undanfarin rúm 15 ár var Tónaflóð Rásar 2 einn af hápunktum Menningarnætur, tónleikar Rásar 2 á Arnarhóli. Og í Rokklandi í dag ætlum við að hlusta á brot af því best frá Tónaflóði 2019; Auður, Vök, Valdimar, Hjaltalín og Stjórnin.

Umsjón: Matthías Már Magnússon og Lovísa Rut Kristjánsdóttir Gríðarlegur fílingur í Popplandi dagsins, rifjum upp gömul Tónaflóð og hitum okkur upp fyrir Arnarhól á laugardaginn. Nýtt frá Mr. Silla, Halla Reynis og Heiðu Ólafs og að sjálfsögðu lög af plötu vikunnar & Co sem er í höndum Daða Freys. Krummi - Stories To Tell Bruce Springsteen - The Wayfarer Amy Winehouse - Rehab Halli Reynis - Í speglinum er andlit Electric Light Orchestra - Evil Woman Bon Iver - Hey, Ma Eels - Novacaine For The Soul Avicii - Heaven (ft. Chris Martin) Prin Póló & Hjálmar - Er of seint að fá sér kaffi núna (Tónaflóð 2018) Dodgy - Good Enough Cate Le Bon - I Was Born On The Wrong Day Mark Ronson & Bruno Mars - Uptown Funk Whitney Houston - Higher Love (ft. Kygo) Travis - Walking In The Sun Daði Freyr - Skiptir ekki máli Heiða Ólafs - Spurningar Suede - Trash Seabear - Arms Auður - Ósofinn (feat. GKR) Of Monsters And Men - Wild Roses James Vincent - Me And My Friends Mr. Silla - Naruto (Say You Wanna Run Away) Haim - Summer Girl Supertramp - Give A Little Bit Bríet - Day Drinking David Bowie - Ziggy Stardust Hipsumhaps - Honný Keane - The Way I Feel Supergrass - Sun Hits The Sky Stórsveit Reykjavíkur - Herra Reykjavík Between Mountains - September Sun Rolling Stones - Brown Sugar Grafík - Prestley Rihanna - What's My Name? Turin Brakes - Mind Over Money Bubbi Morthens - Límdu Saman Heiminn Minn Daði Freyr - Kemur Þér Ekki Við Metronomy - Salted Caramel Ice Cream Góss - Eitt Lag Enn Katrina And The Waves Frank Ocean - Novacane Lights On The Highway - A Little Bit Of Everything Brittany Howard - Stay High Ed Sheeran - Thinking Out Loud Nýönsk - Alelda
Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson og Lovísa Rut Kristjánsdóttir Poppland dagsins þétt í góðu stuði þennan þriðjudaginn, förum yfir gömul Tónaflóð og hitum okkur upp fyrir Arnarhól á laugardaginn, heyrum lög af plötu vikunnar & Co sem er í höndum Daða Freys. Bubbi- Límdu Saman Heiminn Minn Hot Chip - Dancing In The Dark Todmobile - Brúðkaupslagið (Tónaflóð 2018) SSSÓL - Húsið og Ég (Tónaflóð 2017) Beyoncé - Spirit Erykah Badu - Tempted Radiohead - House of Cards Góss - Eitt Lag Enn Wilco - Love is Everywhere (Beware) Ed Sheeran feat. Chris Stapleton og Bruno Mars - Blow Rodney Crowell feat. Billy Gibbons - 56 Fury Daði Freyr - Náum Aðeins Andanum Bob Dylan - Gotta Serve Somebody Bob Dylan - I Believe In You Angelica Garcia - It Don't Hinder Me Def Leppard - Love Bites Def Leppard - Animal Emiliana Torrini - Animal Games Hjaltalín - Love From 99 Tame Impala - Patience Krummi - Stories To Tell Beastie Boys - Intergalactic Sálin Hans Jóns Míns - Krókurinn (Tónaflóð 2013) Madonna - Ray Of Light Lana Del Ray - Looking For America Billie Eilish Bad Guy Peter, Bjorn og John - Young Folks Doddi - Last Dance (Wastelands) The Head And The Heart - Missed Connection Jóhann G. Jóhannson - Don't Try To Fool Me Júníus Meyvant - Cherries Underground Simply Red - Money's Too Tight To Mention Bjartmar Guðlaugsson - Eyjarós Hipsumhaps - Honný Daði Freyr - Ímyndin (Arnar Úlfur) Tiffany - I Think We're Alone Now Thin Jim & The Castaways - Brotnar Myndir Jonathan Wilson - Love To Love Auður, Valdimar, ClubDub - 2020 Billy Joel - Tell Her About It Cell7 - All Night (Hermigervill Remix) Ariana Grande - 7 Rings U2 - Mysterious Ways Brenton Wood - The Oogum Boogum Song
Uppbyggingin í miðborg Reykjavíkur hefur vakið athygli flestra og flestir hafa ýmsar skoðanir á útliti og skipulagi, hvað er verið að byggja, hvers konar íbúðir og hver á að reka verslanir í öllum þeim verslunarrýmum sem bæstst hafa við. Fyrir 100 árum síðan gekk hér á land ungur arkitekt, sá fyrsti sem var með háskólapróf í arkitektúr. Guðjón Samúelsson setti svo sannarlega svip sinn á borgina með mörgum lykilbyggingum, svo sem Þjóðleikhúsinu, Hallgrímskirkju, Háskóla Íslands og fleirum. En hann var líka sá fyrsti sem hugaði að skipulagi í borginni og uppbygging kvosarinnar með Reykjavíkurapóteki, Hótel Borg og fleiri byggingum varð afar umdeild og margt og mikið skrifað í blöð um Guðjón, með og á móti. Nú 100 árum síðar er svipur borgarinnar að breytast og einn þeirra arkitekta sem er hvað mest umdeildur nú um stundir er Pálmar Kristmundsson sem er höfundur Turnsins og Foss hótels í Borgartúni, en hann er einnig höfundur Hafnartorgs, mjög áberandi staður vestan Arnarhóls. Nú er Hafnartorgið að verða fullbyggt, með íbúðum, skrifstofurými og fjölda verslunarrýma. Pálmar hefur verið gagnrýndur fyrir þessa hönnun, byggningmagn og útlit, kannski ekki mikið skrifað í blöð en á samfélagsmiðlum spretta upp umræður hvað eftir annað. Við ætlum að fjalla um Hafnartorg í þættinum í dag. Gestir eru Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi og fyrrverandi formaður umhverfisráðs, þegar ákveðið var að byggja reitinn og Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt og fræðimaður. Hafnartorg er heimsótt í fylgd Pálmars Kristmundssonar arkitekts.

Þúsundir kvenna lögðu niður vinnu í dag og tóku þátt í baráttufundum á Arnarhóli og víða um land. Fyrrverandi forsætisráðherra segir að orðið hafi bakslag í jafnréttisbaráttunni á Íslandi Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur frá því í sumar stöðvað starfsemi þriggja gististaða á höfuðborgarsvæðinu og óskað eftir lögreglurannsókn á nokkrum öðrum. Tuttugu karlar hafa verið sakfelldir og dæmdir til samtals 220 ára fangelsisvistar í Bretlandi fyrir að hafa árum saman níðst á og nauðgað 15 ungum stúlkum. 35 vindmylla vindorkugarður verður í kvöld kynntur fyrir íbúum í námunda við Gilsfjörð. Að vindorkugarðinum stendur fyrirtækið EM orka sem hefur nú þegar hafið vindmælingar og umhverfismat. Sænsk rannsókn sýnir að kuldi og þungbúið veðurfar getur aukið líkur á hjartaáfalli. Gylfi Arnbjörnsson, fráfarandi forseti Alþýðusambands Íslands, telur mikilvægt í kjarabaráttunni að stefna ávallt upp á við. Það eigi frekar að gera með hægum skrefum til að forðast bakslag. 43. þing Aldýðusambands Íslands hófst í dag og stendur í þrjá daga. Umsjón Arnar Páll Hauksson Tæknimaður. Mark Eldred
Franz Gunnarsson var á línunni hjá okkur en um þessar mundir eru uppi hugmyndir um að opna fleiri staði á borð við mathallirnar á Hlemmi og á Granda. Fullyrt er að þessi götubitamenning sé í meiri sókn hérlendis en víða annarstaðar og við ræddum þetta við Franz sem vinnur í þessum geira. Boðað hefur verið til Kvennafrís á morgun og eru konur eru hvattar til að ganga út frá vinnu sinni kl. 14:55 og fylkjast á Arnarhól til að taka þátt í dagskrá þar. Þær Dagný Aradóttir Pind frá Rafiðnaðarsambandinu og Hanna Björk Vilhjálmsdóttir frá Kennarasambandinu heimsóttu Morgunútvarpið í dag og ræddu kvennafrí og baráttumál kvenna. í síðustu viku var haldin ráðstefna um heimilisofbeldi og Jafnréttisstofa ýtti úr vör vitundarvakningu um málið, m.a. með útgáfu myndbanda. Þau Fríða Rós Valdimarsdóttir sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu og Andrés Ragnarsson, sérfræðingur í meðferðum á ofbeldismönnum komu til okkar og ræddu þessi mál. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins, sem er fylgiblað Fréttablaðisins, komu til okkar en Sólveig Anna hefur brugðist hart við hvössum leiðara sem Hörður skrifaði á dögunum. Í leiðaranum segir Hörður kröfur verkalýðshreyfingarinnar í komandi kjaraviðræðum sturlaðar og í engum takti við efnhahagslegan veruleika og að forystumenn helstu félaganna séu stærsta ógn gagnvart lífskjörum meginþorra launafólks. Sólveig svaraði því til að fyrirlitning og andúð frussist yfir láglaunafólk af síðum Fréttablaðsins og að um sé að ræða hótanir og að Hörður sé málpípa auðvaldsins. Sævar Helgi Bragason mætti í sitt vikulega vísindaspjall og þar komu Einstein, GPS tæknin og Merkúríus m.a. við sögu. Tónlist: Guðrún Gunnarsdóttir - Ótækt lag. Teitur Magnússson - Orna. Amy Winehouse - Tears dry on their own. Red Hot Chili Peppers - The Zephyr song. Kvennakórinn Katla - Áfram stelpur. Simply Red - Something got me started. Valdimar - Stimpla mig út. Christine & The Queens - 5 dollars.
Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Maríönnu Clöru Lúthersdóttur um kvennafrí, en stundvíslega klukkan 14:55 eru konur hvattar til að ganga úr vinnu og ganga síðan fylktu liði niður á Arnarhól þar sem haldinn verður samstöðufundur. Maríanna er verkefnisstjóri kvennafrís og segir frá í þættinum í dag. Halldór Björnsson, veðurfræðingur, segir frá bók sem að hans mati á meira erindi við samtímann en aðrar bækur, bók sem við eigum að lesa hér og nú. Bókin sem hann velur er metsölubókin Sapiens, eftir ísraelska sagnfræðinginn Yuval Noah Harari, bók sem varpar áhugaverður og óvæntu ljósi á sögu mannkyns. Við kíkjum á nýtt tónlistarmyndband með rapparanum Travis Scott, en myndbandið við Sicko Mode er ofhlaðið og gallsúrt ferðalag um heimaborg hans, Houston í Texas. Og sjónvarpsþátturinn The Haunting of Hill House þykir ekki aðeins draugalegasti sjónvarpsþáttur ársins, heldur líka einn sá besti. Áslaug Torfadóttir hættir sér inn í Hill House í Lestinni í dag. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
Landsbankareitur Aðförin hefur nýjan fastan lið og býður velkominn til liðs við þáttinn nýjan liðsfélaga, Birki Ingibjartsson. Ætlunin er að rýna byggingar og arkitektúr í skipulagslegu samhengi borga og bæja. Að þessu sinni fjöllum við um niðurstöður samkeppni um nýjar höfuðstöðvar Landsbankans við Austurhöfn. Arkþing og C.F. Möller hlutu fyrstu verðlaun fyrir tillögu sína á reit sem mætti segja að væri einn sá mikilvægasti í borginni í nálægð við Hörpu, Hafnartorg og Arnarhól.
Í Víðsjá dagsins verður rætt við Daníel Bjarnason tónskáld og hljómsveitarstjóra en hann hlaut á dögunum íslensku tónlistarverðlaunin fyrir störf sín og framlag til íslenskrar tónlistar, auk þess að hljóta þrenn önnur verðlaun á hátíðinni. Guja Dögg Hauksdóttir veltir fyrir sér byggingarreitum við Arnarhól, þar sem Harpa stendur og Hafnartorg og tilvonandi höfuðstöðvar Landsbankans munu rísa, í pistli um skipulag og fagurfræði borgarinnar. Hera Guðmundsdóttir er ung listakona sem hefur búið og starfað í París frá því hún útskrifaðist úr Listaháskólanum fyrir tveimur árum. Hún kom heim á hönnunarmars til að sýna ný verk sem hún býr til úr leir og ilmkjarnaolíum. Hera sýnir um þessar mundir í gallerí Geysi við Skólavörðustíg, þar sem við hittum hana í vikunni. Og rætt er við Guðmund Andra Thorsson um bók vikunnar, sem er skáldsaga hans, Íslenski draumurinn frá árinu 1992. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
Í Rokklandi vikunnar er boðið upp á brot af því besta sem var spilað og sungið á Tónaflóði Rásar 2 á Arnarhóli á Menningarnótt. Fyrst á svið var Glowie ? Sara Pétursdóttir sem sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2014 þegar hún var 17 ára gömul, en nýjasta lagið hennar fór akkúrat á toppinn á vinsældalista Rásar 2 á laugardaginn, lagið heitir No lie. Á eftir henni komu fánaberar íslenska rappsins ? Úlfur Úlfur og Emmsjé Gauti sem buðu svo Kött Grá Pjé og Aron Can í heimsókn. Bubbi Morthens var næstur aleinn með gítarinn sinn, og svo var í lokin boðið upp á atriði með Ísfirskri og vestfirskri tónlist. Halldór Gunnar Pálsson frá Flateyri, sá sem samdi þjóðhátíðarlagið í ár og samdi líka Þjóðhátíðarlagið Þar sem hjartað slær sem er orðið einskonar þjóðsöngur eyjamanna. Og hann er líka sá sami og fór í kringum landið fyrir nokkrum árum og sameinaði Íslensku þjóðina í söng. Hann fékk 30.000 manns til að syngja inn á eitt og sama lagið ? lagið Ísland. Halldór er líka foringi og kórstjóri Fjallabræðra ? og hann fékk með sér hljómsveit, BG og Ingibjörgu, Mugison, Helga BJörns og fleiri. Lagalisti: Glowie / One day Glowie / No more Glowie / No lie +++++++++++ Úlfur Úlfur / 100.000 Úlfur Úlfur feat Kött Grá Pjé / Brennum allt Emmsjé Gauti / Djammæli Emmsjé Gauti feat. Aron Can / Silfurskotta +++++++++++ Bubbi / The sky is crying Bubbi / Fallegur dagur Bubbi / Smukke unge mennesker (Kim Larsen) Bubbi / Stál og hnífur Bubbi / Rómeo og Júlía +++++++++++ Fjallabræður og Sólstafir / Fjara Mugison Fjallabræður og Sólstafir / Ljósvíkingur Fjallabræður og Lára Rúnars / In between Fjallabræður og Reynir Guðmundsson / Hey kanína Fjallabræður og Mugison og Rúna / Gúanóstelpan Fjallabræður og Mugison / Stingum af Fjallabræður og BG og Ingibjörg / Þín innsta þrá Helgi Björns / Kókos og engifer Fjallabræður og Helgi Björns / Þúsund sinnum segðu já Fjallabræður og Helgi Björns / Húsið og ég Fjallabræður og BG og Ingibjörg / Góða ferð