Í Draumaliðinu fáum við íslenska knattspyrnumenn til að velja besta byrjunarlið skipað af leikmönnum sem þeir hafa spilað með á ferlinum. Allt saman í boði Lengjunnar og Session Craft Bar. www.facebook.com/draumalidid
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Smalinn, einn af okkar alvirtustu Pepsimönnum, mætti og fór yfir langan og farsælan feril sinn hjá Völsungi, smá í Þór, Keflavík, Bryne, KR, SonderjyskE, Stjörnunni og FH og minntist á að hann hefði spilað með Fjölni.
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Kári Árna fór með okkur yfir upphaf sitt í landsliðinu á the banter years áður en hann krufði gullaldarárin og varpaði ljósi á þær rannsóknarspurningar sem við vörpuðum fram í upphafi seríunnar.
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Henry Birgir Gunnarsson aka HB Grande mætti og fór yfir hvernig það var að vera í fjölmiðlum á dimmustu tímunum og hvernig fréttaumfjöllun hefur þróast frá aldamótum. Í lokin settum við saman lista af inductees af fjölmiðla Hall of Fame frá Draumaliðinu.
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD “The Decision” hjá Tólfunni sem var fyrst og síðast í vinnuferð en ekki skemmtiferð. Skerjafjarðarskáldið Ferðasaga pípulagningamannsins um sveitir Rússlands á limmu og lúðrasveitin sem tók á móti Fálkunum. 23 manna leikmannahópur og auðvitað 32 manna starfslið. “Takk fyrir leikinn Messi” Var það einhver shaman með hestaleg sem kom Jóa Berg í gegnum meiðslin fyrir Króatíu leikinn? Svona var HM2018
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Landsliðsþynnka einkenndi árið 2016 eftir þennan ótrúlega dag á Arnarhóli. Við skröltum af stað, á sama tíma og ferill Charlie Keller fór á flug. Rúnar Eff sigraði hug og hjörtu þjóðarinnar þegar hann söng um hversdagslegan dag í lífi einstaklings á listamannalaunum og Fókushópurinn stappaði stálinu í íslensku þjóðina eftir erfiðan dag í Finnlandi og kallaði eftir því að við gætum ekki lifað í eftirsjá. Hendiði í Leiðrettingahornið!
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Við komumst til fyrirheitna landsins.Tólfan samdi söngskrá. Við fórum að tapa öllum vináttuleikjum. Það var klassískt drama um hverjir áttu að vera í hópnum. Orri var heima og prumpaði á leið til Nice. Joe fór heim á sama tíma og mamma hans skildi ekkert á leikdegi þegar hann labbaði inn með hóp fólks og sagði "ha?? ertu mættur með mat að utan? ég ætlaði að búa til leðju!" Svona var EM god damn 2016!
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Eftir að herramaðurinn úr norðri nánast einn síns liðs kostaði okkur sætið á HM 2014 héldu einhverjir að við myndum slaka á. Sá eini sem slakaði á var Almar þegar hann hékk í kassa í viku. Sigmundur Davíð leiðrétti en fékk svo stígvélið. Take your pick á það besta sem gerðist; skallinn hjá Aroni á móti Tékkum, The Sig á móti Hollandi, endurkoma Gudjohnsen í Kazakhstan, Jón Daði á móti Tyrklandi. Haldið áfram að sturta inn í leiðréttingarhornið.
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 ráðgjöf og bókhald Óumbeðinn hafði Karlsvagninn samband við útvarpsstöð og sagðist vera með þjóðhátíðarlag sem myndi fanga stemningu landans. Meginatriði lagsins voru hæðir sem enduðu í lægðum sem kallaðar voru ævintýrareisa. Ekkert nær að súmmera upp meira þá tíð sem ríkti frá 12-14, eftir að hafa hafið leik með Skattgrím og endað í gósentíð. Þegar Eggert mætti á flugvöllinn án Roy Keane með fulllan toll. Þegar Gunnar Bragi komst á þing. Þegar Gylfi smurði hann í samskeytin á móti Slóvenum úti. Þegar Þorbjörn Þórðar mætti á Vesturlandsveginn. Svona var Ísland 2012-2014. Viðmælendur þáttarins: Kolbeinn Tumi Daðason, herramaður úr norðri Haukur Harðarson, stuðningsmaður Chelsea frá unga aldri Ingimar Helgi Finnsson, forsvarsmaður Fálkanna, stúdentahópur FSU Archive efni: Fjölmiðlamenn elta Eggert Magnússon út úr Leifsstöð í upptöku frá Fótbolta.net (Arnar Björnsson, Eiríkur Stefán Ásgeirsson, Eggert Magnússon) Fótbolti.net þáttur á leikdegi Ísland Króatía (Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Sveppi Krull) Viðtal Fótbolta.net við Aron Einar fyrir leik Albaníu og Íslands (Magnús Már Einarsson og Aron Einar Gunnarsson) Frumflutningur á Lundi, Landi, Lopapeysa í flutningi Brynhildar og Karlsvagnsins í Magasín þætti FM957.
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 ráðgjöf og bókhald Það var súpergrúppa sem við þurftum að fara yfir og rifja upp sem gleymdist. Að öðru leyti veltum við fyrir okkur af hverju fótbolta landsliðið gæti aldrei verið jafn gott og handbolta landsliðið, þ.e.a.s á sama tíma. Já einmitt svo kom Indriði Sig og sagði milljón geggjaðar sögur, m.a. frá því þegar Freddy Kanoute jarðaði hann. Dælið í Thule hornið, þeir eiga að skilið!
LENGJAN - THULE - DOMINOS - SESSION CRAFT BAR - PROTIN.IS - BIRTA CBD - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - BIRTA CBD - R3 ráðgjöf og bókhald Árið 2011 greip um sig algjört fjölmiðlafár í kringum Vormenn Íslands, stráka fædda á árunum 1988-1991 og þáttöku þeirra á EM u21 sem haldið var á Jótlandi. Við fórum í gegnum allt ferlið og allt sem gerðist á bakvið tjöldin, eða á veitingahúsum eða karíókístöðum. Gestur: Bjarni Þór Viðarsson Aðrir viðmælendur: Haraldur Björnsson - Halli Landsliðs Skúli Jón Friðgeirsson - Móði jr. Þórður Ingason - Íslands- og bikarmeistari úr Grafarvogi Friðrik Dór Jónsson - Hefði getað gefið boltann meira
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS - BIRTA CBD - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald Emil og Sindri eru hluti af hinum mjög svo spennandi 1995 árgangi sem kannski náði ekki því flugi sem búist var við af þeim en djöfull voru þeir seigir sem YOUTH! Vicente úr Valencia, Sá þýski að skóla til Thomas Frank, Leon Goretzka að hægelda menn, Sindri Björnsson dansandi um ganga Verzlunarskólans að fagna meiðslum, Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna. Viðmælendur: Orri Sigurður Ómarsson Oliver Sigurjónsson Daði Bergsson Hljóðbrot: Adam Örn Arnarsson (tekið úr útvarpsþætti fótbolti.net) Oliver Sigurjónsson (viðtal við 433) Sindri Björnsson (viðtal við fótbolti.net)
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - BIRTA CBD - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Kreppan er alltumlykjandi en rykið er þó farið að setjast. Við tekur auðn, menningarleg og knattspyrnuleg. Trúðanám nær flugi. Tveir fiskar og 5 brauð sagði Jesús en Óli Jó hafði ekki húmor fyrir einu rauðvínsglasi og tveimur bjórum. Þjóðin reynir að keyra í gegn changing of the guards og íþróttamiðlar reyna það sömuleiðis.
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS - BIRTA CBD - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald
Í þeirri röð sem þeir heyrast: Brynjar Benediktsson, eigandi og framkvæmdastjóri Soccer and Education. Guðlaugur Victor Pálsson, landsliðsmaður og fyrrum samherji Thierry Henry. Finnur Orri Margeirsson, Bliki og líkamsræktarstöðvareigandi Frans Elvarsson, Keflvískur Hornfirðingur Hólmar Örn Eyjólfsson, einn leikjahæsti unglingalandsliðsmaður Norður Evrópu. Arnar Sveinn Geirsson, bakvörður og mannauðsstjóri Trausti Sigurbjörnsson, kóngur Arnar Darri Pétursson, stáltakka kúreki
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD KAGGI MÁS SPECIA. Fórum yfir það þegar Ísland komst í fyrsta skipti á stórmót í gegnum alvöru dæmi, ekki í gegnum það að vinna Lettland og gera jafntefli við Austurríki. Undankeppni, milliriðill og stemning. Gullkynslóðin er mætt en það sem meira er, týnda gullkynslóðin er alls ráðandi og hún er mætt til að skila skömminni! Gestur: Ragnar Þór Gunnarsson, fyrrum unglingalandsliðsmaður og núverandi kóngur Viðmælendur Guðlaugur Victor Pálsson Hólmar Örn Eyjólfsson Arnar Sveinn Geirsson Frans Elvarsson Trausti Sigurbjörnsson Brynjar Benediktsson Finnur Orri Margeirsson Arnar Darri Pétursson Alexander Lúðvígsson
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Konan hans Viktors í Sandgerði sagði farir sínar ekki sléttar, af nokkrum sköpuðum hlut. Ívar Ingimars og Jói Kalli voru í sambærilegum hugleiðingum en Ásgeir og Logi gáfust ekki upp. DV setti upp álitshópa við minnsta tilefni og Jakob Bjarnar hélt úti sýningum í hverju blaði. Svona var Ísland '04-'06! Haldiði áfram að negla á okkur í leiðréttingahorninu!
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF #WeGoAgain með Atla Mikson, en on a short lease. Gleðitíðindi fyrir Guðmund Felix en einn stórtækasti íslenski slöngueigandinn varð fyrir tjóni. Guðjohnsen tekur við keflinu og Helugson öskrar í andlitið á Kahn. Þjóðin leyfði sér að dreyma eftir að Astro breyttist í Pravda en Valentin Ivanov var á öðru máli.
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD The Rise and fall of Einar Bárðarson. Ísland á HM innistæðulaust chantað í stúkunni á sama tíma og virtustu blaðamenn DV skrifuðu greinar sem hefðu helst átt heima á folk.is svæðinu þeirra. Gísli Marteinn gjörsamlega elskaði að brjóta á hugverkaréttindum og Eyjólfur Sverris raðaði inn mörkum. Svona var Ísland.
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR -DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 Ráðgjöf og bókhald Aron Einar valdi Draumalið skipað af bestu leikmönnum sem hann spilaði með frá tíma sínum í Þór, AZ Alkmaar, Coventry, Cardiff og Al-Arabi. Frá Louis van Gaal til Neil Warnock og frá Einari Sigþórssyni, bróður Kött Grá Pjé, til Rafinha Alcantara. Allt sviðið var skoðað.
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - PRÓTÍN.IS - DOMINO'S R3 RÁÐGJÖF Við fengum eina leikmanninn sem spilaði í öllum undankeppnunum sem við höfum farið yfir til þessa upp í stúdíó og bárum undir hann alla þá vitleysu sem við höfum matreitt í síðustu þáttum (Byrjar þarna eftir ca 20 mínútur eftir mikilvæga umræðu um Köttinn Kela, sem þarf meiri ást (brúðan ekki punditinn). Enduðum þáttinn á að fá fyrri viðmælendur til þess að fara yfir að þeirra mati bestu leikmennina sem þeir spiluðu með í landsliðinu á þessum tíma. Því miður fundum við ekki símtölin við Hörð Magnússon og Pétur Ormslev. Formleg kvörtun hefur verið lögð inn hjá tölvudeild ónefnds tölvufyrirtækis.
Það styttist í aldamót og þjóðin fer að taka sénsa. Þorfinnur Ómarsson og lærisveinar hans í Kvikmyndasjóði byrja að veita Edduverðlaun og leikmenn keppast við að hætta að leika fyrir íslenska landsliðið. Fórum yfir það þegar DV hrútskýrði fyrir þjóðinni hverjir væru gáfuðustu Íslendingarnar og svo var nóg að gera hjá Ingólfi Hannessyni. Á meðan er Guðjón að smíða eitthvað skrímsli og nei þá erum við ekki að meina stúkurnar sem settar voru fyrir aftan mörkin fyrir leikinn á móti Frökkum, enda voru þær leigðar frá Svíþjóð #ÞærSænsku. Tvö stig skilin eftir í Jerevan, barningur við Barthez, rýtingur frá Rebrov, eitt stykki Ingólfur kampakátur Karpin og give it Kio Briggsy til the end of the season. "Þetta er liðið okkar". Svona var Ísland '98-'00 Viðmælendur: Pétur Hafliði Marteinsson aka Social Pete Steinar Dagur Adolfsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Akraness og tengiliður gerður að hafsent. Rikki Daða og Rúnar Kristins (viðtal fengið frá www.fótbolti.net), sérfræðingar í málefnum Íslands og Frakklands Þórður Guðjónsson, áhugamaður um ferðatilhaganir Negliði á Thule og félaga sögum og leiðréttingum, ekki veitir af.
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Við tókum upp þráðinn frá Svona var Sumarið og fórum enn dýpra í Fjölnis sögu Þorgeirssonar og ævintýri hans með "Mel krydd". Hefndarklám var sent inn í stuttmyndakeppni á sama tíma og óveðursskýið hlóð upp regni og eldingum yfir Laugardalnum. Eggert Magnússon hélt þó áfram að skrifa undir hina ýmsu samninga. Changing of the guards, farewell to legends og svo gerðum við upp talsetningar á teiknimyndum á 10. áratugnum. Svona var Ísland 96-98. Dæliði inn í Thule hornið!
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Benjamin, the Dove kom út og veitingamaður í miðbæ Reykjavíkur barðist í bökkum við að fullnægja kúnnum sínum á þá vegu sem þeir ætluðu. Á sama tíma hafa skin og skúrir aldrei komið og farið jafn oft hjá einum manni og Ásgeiri Elíassyni þrátt fyrir metfjölda af tengiliðum í bakvörðum og Þorgeir Ástvaldsson með myndavélina í andlitinu á honum allan leikinn fyrir hönd VISAsport. Við krufðum það hvernig POX kom til landsins og viljum fá að vita meira um skemmtistaðina Síbería og Ingólfskaffi. Ásgeir lét undan þrýstingi og setti lyfjafræðing í vörnina eftir nákvæmar skallaæfingar. Under the Solna Sun þar sem Ravelli blindaðist. Svona var Ísland 94'96. Dæliði í Thule leiðréttingahornið, takk!
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Kristján Finnbogason er næst sigursælasti leikmaður íslenskrar nútímaknattspyrnu með 8 Íslandsmeistaratitla með skammstöfunarliðunum ÍA, KR og FH yfir feril sem teygði sig yfir fjóra áratugi frá 1987 til 2016. Draumalið frá manni sem spilaði með báðum risum íslenskrar knattspyrnu á 10. áratugnum. Hverjir fá sénsinn og hverjir eru settir á bekkinn?
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald Þjóðin eignaðist að öðrum ólöstuðum mesta Íslandsvin fyrr og síðar þegar georgískur málvísindamaður tók ástfóstri við Ísland og komst með krókaleiðum og Guðna Th. til Íslands. Á sama tíma er Ásgeir Elíasson setjandi tengiliði í bakvarðastöðurnar og prófandi allar útfærslur sem til eru í leit Eggerts Magnússonar að sæti á Heimsmeistaramótinu 1994 í Bandaríkjunum. Það voru ferskir vindar, sem þó stundum blésu á móti okkur. Það var maður sem vildi berbrjósta þjónustukonur á pizzastað. Það voru súpergrúppur og það voru nýliðar. En fyrst og síðast, það voru töfrar. Svona var Ísland 1992-1994. Dritiði á okkur leiðréttingum.
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald Úr þýskum aga í sænskan toppfótbolta(?). Eggert mætti, Davíð fær lyklana að flokknum og í Vesturbænum er alls konar vitleysisgangur í boði. Það var sárt að sakna en þjóðin flykktist á bakvið eftirmanninn þegar Spánverjar voru bakaðir. Svo fór Diddi Fiðla til London. Svona var Ísland '90-92.
Jóhannes litli Páll kíkti til landsins og Hjammi þreif bílinn hans. Sigi Held fékk a month of friendlies í ágúst en ekkert meir eftir það. Goðsögn kvaddi og handhafar forsetavalds kíktu í ríkið. Bjórinn fékk að flæða á ný, Valgeir Guðjóns ákvað að ganga heim á öllum vígsstöðum en fyrst og síðast setti geðþekkur Akureyringur 85 þúsund sovéska áhangendur hljóða á Lenínvellinum. Viðmælendur: Ólafur Helgi Kristjánsson, prófessor, Pétur Úlfar Ormslev, tía, og Halldór Ómar Áskelsson, Sovétbani.
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Patrik Andersson picks the best eleven of his former teammates and goes over his career highlights. Patrik Andersson spilaði með m.a. með Bayern Munchen og Barcelona. Veltum steinum um hvernig er að klúðra víti í úrslitaleik Champions League en samt vinna, hvernig er að skora sigurmarkið með síðustu spyrnu í Bundesligunni sem tryggir titilinn og
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Svona var Ísland kryfur tíðaranda og stemningu landans tvö ár í senn, sérstaklega í tengslum við þátttöku karlalandsliðs Íslands í fótbolta í undankeppnum stórmóta. Viðmælendur þáttarins: Sigmundur Ó Steinarsson, geit í blaðamennsku, og Arnór Guðjohnsen, methafi yfir flestar aukaspyrnur á einu tímabili í efstu deild á Ísland.
LENGJAN - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTIN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Það hlaut að koma að því að 5 klukkustunda múrinn yrði rofinn en það var einfaldlega nauðsynlegt að koma til skila að Sölvi Fannar lék í tónlistarmyndbandi hljómsveitarinnar Angel at my Table og hverjir fengu mention á kreditlistanum á Algjör Sveppi 4. Metrómenn voru út og Timburmenn komnir inn og mesti timburmaðurinn færði almúganum og öreigum flöskuborðsmenningu með ótrúlegu útspili. Ein af allra fyrstu vegferðum íslenskrar knattspyrnu var keyrð af stað með BG4 við stýrið og það er svo sannarlega eitthvað brewing í Garðabænum undir stjórn powerpoint sérfræðingsins Rúnars Páls. Þetta er síðasti skipulagði þátturinn af Svona var sumarið í bili. Bíðið spennt eftir þáttunum Svona var Ísland fyrir meiri nostalgíu og meiri fótbolta. Sama húsnæði, sama starfsemi.
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S Orri er kominn í tvöfalt barneignarleyfi og Joe er að flytja til Kaliforníu svo til að kveðju með einhverju var ákveðið að hlaða í uppgjör á síðustu 10 þáttum þar sem áherslan var á því sem gerðist after dark í miðbæ Reykjavíkur eða heimapartýjum í Hafnafirði og góðir gestir voru fengnir til að kryfja gullaldarárin. Svona var sumarið verður ekki lengra að sinni, við þökkum fyrir hlustunina og sjáusmt vonandi eftir ca ár. Til allra sem hafa hlustað, það er bara takk! Til þeirra sem eru ennþá að hlusta og vilja koma að sögum í leiðréttinga- og söguhornið, ekki hika við að heyra í okkur!
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS Lárus Orri spilaði í 10 ár í Championship, League 1 og Premir League með Stoke og WBA. Þess utan er hann harðasti Þorpari landsins og fór upp í gegnum yngri flokkanna í sennilega hæfileikaríkasta hópi leikmanna sem þjóðin hefur séð, spilaði 42 A-landsleiki og var næstum því keyptur af Newcastle.
Guðmundur Steinn Hafsteinsson og Viðar Örn Kjartansson fóru yfir stormasöm ár í neðri hluta Pepsi deildarinnar 2013 hjá Víkingi Ólafsvík og Selfossi.
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR Hannes Halldórsson fór á toppinn sem besti markmaður Shellmótsins 94, á botninn þegar hann eyðilagði á sér öxlina 99, aftur á toppinn þegar hann vann MORFÍS þökk sé Dóra DNA sem talaði of lengi og svo aftur á botninn þegar hann kostaði Leiknisljónin hverfishátíð og skrúðgöngu árið 2004. Frá botninum spyrnti hann sér og stoppaði ekki uppflotinu fyrr en ca 16. júní 2018 eins og allir vita. Hannes valdi Draumaliðið sitt eingöngu skipað leikmönnum úr íslenskum félagsliðafótbolta af því það er fyrir löngu búið að tæma allt árangri íslenska landsliðsins í fótbolta undanfarin ár. Við ræddum allt frá Vali Gunnarssyni tölvukennara til Jens Petter Hauge leikmanns AC Milan, en þó aðallega Frá Magnúsi Einarssyni og Dr. Leður til Rúnars Kristins og Heimis Guðjóns í íslenska boltanum.
LENGJAN - SJÓVÁ - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S Eftir að hafa íhugað það í tvö ár ákváðum við að hleypa lofti út um lúgur(NB - á kolsvörtum rúðum) og gefa South Centralesque rappara sénsinn á að veita okkur fullnægingu í eyrun. Nýtt 5 ára plan er í smíðum á Hlíðarenda og það er lúður klár fyrir þá sem láta röng orð af sinni tungu. Orri fór yfir það þegar hann hægði sér í hnéháa hvönn og upp í Árbæ æfði ungur Selfyssingur tvisvar á dag til að uppfylla drauma sína sem áttu að rætast á næstu þremur árum. Leikmenn hentuðu ekki gildum Breiðabliks og leikmaður KR smalaði saman öllum helstu listamönnum landsins og tók þá með sér á sannkallaðan revenge tour yfir 22 leiki. Svona var sumarið 2013. Minnum á leiðréttingahornið, það er heldur betur að reynast nauðsynlegt! Viðmælendur: Viðar Örn Kjartansson - leikmaður Fylkis 2013 og fyrrum söngvari hljómsveitarinnar Casio. Guðmundur Steinn Hafsteinsson - leikmaður Víkings Ólafsvíkur 2013 og harðasti Top Gun maður þjóðarinnar. Kristján Óli Sigurðsson - viðmælandi í Akraborginni veturinn 2012 og sannleiksvél.
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - DOMINOS Hannes Sig á einhvern ótrúlegasta atvinnumannaferil nokkurs Íslendings sem spannar níu lönd, þám Rússland (að sjálfsögðu sá hluti sem liggur að Tsjetsjeníu) og Kazakhstan þar sem haugur af þekktum leikmönnum, þjálfurum og stjórnarmönnum spila rullu. Í dag er hann svo gerandi magnaða hluti í þýska boltanum sem þjálfari og dósent í knattspyrnufræðum. Gárungarnir jafnvel farnir að tala um hann sem næsta Prófessorinn en fyrst og fremst er hann stórskemmtilegur sögumaður og pælari, geggjaður þáttur!
Baldur Sig gaf in depth skýringar á innkomu Gary Martin í KR, hruni liðsins eftir Verslunarmannahelgina og gæðin í Birni Jónssyni. Alexander Scholz fór yfir tíma sinn á Íslandi eins og þegar amma hans hræddi líftóruna úr Kennie Chopart. Jón Daði rifjaði upp erfitt ár á Selfossi sem þó var gott persónulega og hvernig Hannes Halldórs hefur ekki enn jafnað sig á screamernum sem hann setti í grillið á honum.
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S- SESSION CRAFT BAR Karíókímenningu Íslendinga voru gerð góð skil og enn og aftur gefur Kristmundur Axel út an absolute banger. KRingar fóru í rebrand og 5 ára plan Valsara virtist komið aftur á byrjunarreit. Deildin fékk nýjan villain og það er spurning hvor hendur hefðu ekki átt að koma í handa stað varðandi landsliðsþjálfara íslenska landsliðsins í fótbolta? Breskt raunveruleikasjónvarp átti sér stað á Akranesi, Stjarnan sóttu danskan dreng í Himalaya fjöllin og Lee litli Bucheid hefur ekki sagt sitt síðasta. Svona var sumarið 2012. Viðmælendur: Alexander Scholz Baldur Sigurðsson Jón Daði Böðvarsson
Viðtöl í fullri lengd vegna sumarsins 2011 Pétur Georg Markan fór yfir ástandið í Víkinni ásamt því að svara spurningum um Power of Love og þrennuna í Efra-Breiðholtinu. Atli Sigurjónsson ræddi við okkur um gullkynslóð Þórsara, byr undir báða vængi og bakpokaferðalag sitt með Pall Gísla til Hollands á miðju tímabili. Kjartan Henry fór yfir hina ýmsu hluti á mögnuðu sumri KRinga, ruglaðist reyndar á Gary Martin og Gauja Baldvins en það kemur fyrir á bestu bæjum.
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINOS - SESSION CRAFT BAR Það birtir alltaf til. Við erum að vinna okkur upp úr öskufallinu og hruninu og upprisan hefst með nýjum morgunþætti FM957. Valsmenn henda 5 ára planinu í ruslið eins og hverri annarri kúkableyju og við fáum eina af okkar fyrstu þjáfaratvennum í íslenska boltann. Óskar Hrafn mætti aftur og hlutir gengu nærri honum en hver verður efnilegasti leikmaður mótsins? Ætli það verði ekki einhver KRingurinn? Er þetta eitthvað sem er hægt að halda utan um í Excel skjali eða er kannski bara best að vita þetta sjálfur? Hvað svo sem gerist þá ætti þessi þáttur að veita ykkur byr undir báða vængi, hvort sem þið eruð andskotans karlmenn eða andskotans konur. Svona var sumarið 2011.
Full length viðtölin við prófessor Ólaf Helga Kristjánsson, Viðar Örn Kjartansson og Arnar Svein Geirsson. Prófessorinn fór yfir allt milli himins og jarðar sem náði ekki að troða öllu í endanlega útgáfu þáttarins Svona var sumarið 2010 en einfaldlega verður að fara í loftið, eins og til að mynda aðdraganda og örlög fjólubláu peysunnar. Of gott material til að henda því í recycle bin og sömuleiðis allt frá Arnari Sveini og VÖK.
LENGJAN - THULE - DOMINOS - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR Við erum enn að jafna okkur á því að hér varð hrun en í staðinn poppar upp a little fella called Eyjafjallajökul sem skilur Hásteinsvöll eftir í 2000cm öskufalli en Eyjamenn hugsa sér gott til glóðarinnar. Það var rifist alltof lengi um hvort hefði verið skemmtilegra á Karamba eða Oliver og við sviptum hulunni af því að hinn íslenski David Beckham er í raun og veru hinn íslenski Rory Delap. Fórum yfir hnefasamlokuna sem var matreidd fyrir Jóa og fengum play-by-play greiningu á seasoninu frá Prófessornum sem við stóðum með Hlið við Hlið og Keyrðumettígang ásamt því að við heyrðum samsæriskenningar og magnaðar sögur frá unglingi sem elti hypeið á Selfoss en endaði á að grípa í skottið á vonbrigðum. Svona var sumarið 2010.
Hér varð hrun! Myntkörfulán. Icesave. Guð blessi Ísland. Lehman brothers, Hvanndals brothers og Tillen brothers áttu misjöfnu gengi að fagna en hverjir stóðu uppi sem sigurvegarar? Allir og ömmur þeirra voru sendir heim, samningum var rift en í gömlum kústaskáp fannst rykfallna bókin YOUTH by Kaggi Más sem prófessorinn reif blaðsíðu úr. Yohanna kom sá og sigraði enn eitt silfrið í sögu þjóðar og Valsmenn voru staðráðnir í að láta efnahagsástand ekki hafa áhrif á leikmannahópinn sinn. Risinn var þó álíka illviðráðanlegur og Bubbi Morthens var úrillur þegar hann vaknaði við vondan draum og ákvað að rebranda sig. Svona var sumarið 2009
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSIONCRAFTBAR - DOMINO'S Við höldum áfram að eyða umfram og óveðursskýið er byrjað að myndast en samt hendum við í biluðustu Eurovision undankeppni allra tíma. Silfur náðist í Peking um miðja nótt eftir djamm á Hverfisbarnum og Heimir Guðjóns fór í nostalgíukast til að styrkja liðið sitt. Kristján Guðmunds bjó til nýjan Bjargvætt í Keflavík en myndi það duga? Logi Ólafs gaf Rúnari Kristins rétta formúlu fyrir Íslandsmeistaratitli en þekkti Rúnar allar breyturnar? Changing of the guards, we've been here before, pallaleikur og Höskuldur Eiríksson að snúast í hringi í kringum Ashley litla Young. Svona var sumarið 2008.
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION - DOMINO'S. Íslenska þjóðin hefur aldrei haft það jafn gott. Íslenskar Lúxussnekkjur voru lagðar við Thames, afmæli haldin á Jamaica og leikmenn keyptu sjálfa sig fyrir metfé í Landsbankadeildinni. FH voru með rosalegt lið og gott bakland eftir sigursæl ár, en í Miðbæ og Hlíðum var einhver ástríða að kvikna sem erfitt getur reynst að stöðva. Hundurinn Lúkas fór upp á fjall og Ellý Ármanns skrifaði kynlífsfantasíu um 16 ára starfsmann Garðlistar. Svona var sumarið 2017. 2017? nei nei, 2007.
LENGJAN - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - THULE Hörður Magnússon vann þrjá gullskóa í röð árin 1989, 1990 og 1991. Það hafði enginn gert í að verða 30 ár og enginn hefur leikið eftir síðan.
Það eru Magni-ficent hlutir að eiga sér stað í íslenska samfélaginu og þjóðin tekur ástfóstri við Gilby Clarke og Dave Navarro. Hetja yfirgefur Vesturbæinn og er staðráðinn í að kenna þeim lexíu og stjórnarmenn halda áfram að reyna að fella Börkinn. Splash TV og MySpace ryðja sér til rúms, Sigursteinn Gíslason semur við leikmann af lagernum hjá Eimskip. Óli Jó þarf að fara í hefilbekkinn og hlustendur þurfa að taka afstöðu og ákveða hvort þau séu B-hliðar fólk eða alætur á tónlist, takk.
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S Það myndast gjá milli áskriftarþjónustu sem íslenska ríkið neyðir fólk til þess að kaupa af sér og þjóðar við val á því hvernig skal velja Eurovision lag. Lúðurinn lætur í sér heyra í Vesturbænum og Börkur er tekinn af appelsínum á Hlíðarenda með flugbeittum hníf. Risinn er vaknaður, búinn að tannbursta sig og klár í daginn og við poppstjörnur slá sig til riddara. "Jónschi!? Haaaaaaa?!"
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - DOMINO'S Kennaraverkfallið kom eins og himnasending í líf bólugrafinna unglinga með tilheyrandi áhorfi á Paradise Hotel á sama tíma og leikmönnum var bannað að fagna með því að fara úr að ofan. Gefum Nylon þá virðingu sem þær eiga skilið. Veigar Páll er í eigu kýpverska fjárfestingafélagsins Urania Trade Ltd og sjómaður frá Grindavík syngur sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar. Risinn vaknaði, og hélt svo sína leið.... Jáááááááá, hann hafði fengið huuuuuuugmyyyynd!