Ljónavarpið - Leiknir Reykjavík stuðningsmannahlaðvarp

Follow Ljónavarpið - Leiknir Reykjavík stuðningsmannahlaðvarp
Share on
Copy link to clipboard

Það er bjart yfir Breiðholti. Við styðjum Leikni Reykjavík, hér verður ýmislegt rætt sem tengist félaginu okkar.

Leiknisljónin


    • Nov 2, 2022 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 1h 3m AVG DURATION
    • 55 EPISODES


    Search for episodes from Ljónavarpið - Leiknir Reykjavík stuðningsmannahlaðvarp with a specific topic:

    Latest episodes from Ljónavarpið - Leiknir Reykjavík stuðningsmannahlaðvarp

    Kveðjustund með Sigga Höskulds

    Play Episode Listen Later Nov 2, 2022 87:30


    Eftir 111 keppnisleiki sem aðalþjálfari meistaraflokks, rúm 4 ár hjá félaginu og mesta árangur í sögu félagsins, er komið að kveðjustund með Sigga Höskulds. Hann fór yfir víðann völl með Snorra í síðasta sinn áður en haldið var niður á Hlíðarenda. #TakkSiggi#StoltBreiðholts 

    Leiknishofið: Vigfús Arnar Jósefsson

    Play Episode Listen Later Jul 4, 2022 65:56


    Við bjóðum Vigfús velkominn í Heiðurshof félagsins með skemmtilegu spjalli um feril hans úr yngri flokkum til sigurs í 1. deild og svo þegar hann stökk inn og bjargaði félaginu frá falli sumarið 2018 sem þjálfari. Fúsi hefur sterkar skoðanir og tók dansinn með KR og Fjölni í efstu deild á sínum tíma. Hann er með 164 leiki fyrir Stoltið en hætti svo bara eftir að hafa tryggt félaginu sæti meðal þeirra bestu. Virkilega skemmtilegt spjall sem er vel þess virði að hlýða á. #StoltBreiðholts#HOF

    Leiknishofið: Eyjólfur Tómasson

    Play Episode Listen Later Jul 1, 2022 44:30


    Markvörðurinn, fyrirliðinn, sá leikjahæsti með 250 leiki í deild og bikar. Það kemur engum á óvart að hann er nú kominn í heiðurshof félagsins. Hann settist niður með Snorra í spjall um lífið eftir boltann og svo allan ferilinn eins og hann leggur sig. 

    Leiknishofið: Halldór Kristinn Halldórsson

    Play Episode Listen Later Jun 28, 2022 36:18


    Halldór Kristinn Halldórsson var vígður inn í heiðurshöll Leiknis, HOFIÐ á dögunum. Hann mætti í spjall um uppeldið í Leikni, hliðarsporin með Val og Keflavík og hvernig það er að ala upp börn í ÍR. Þessi miðvörður er alvöru goðsögn í sögu Leiknis. 

    Leiknishofið: Róbert Arnþórsson-Sá markahæsti

    Play Episode Listen Later May 9, 2022 30:13


    Róbert Arnþórsson er 3. Leiknismaðurinn til að verða vígður inn í Heiðurshöll félagsins. Róbert er markahæsti leikmaður félagsins þó hann hafi ekki náð 100 leikjum fyrir það. Hann settist niður með Snorra og ræddi sinn tíma hjá félaginu og það má með sanni segja að það hafi verið fróðleg frásögn enda hefur heilmikið vatn runnið til sjávar síðan þessi kappi var að raða inn mörkum fyrir félagið. 

    Leiknishofið: Haukur og Valur Gunnnarssynir

    Play Episode Listen Later Apr 24, 2022 28:11


    Þeir Haukur og Valur Gunnarssynir eru fyrstir inn í Heiðurshöll Leiknis (hall of fame) og voru heiðraðir með því að vera fyrstir upp á Wall of Fame vegginn í Austurbergi á fyrsta heimaleik félagsins í Bestu deildinni. Leiknisfólk allt ætti að þekkja andlitin en í spjalli við Snorra fáum við að kynnast þeim aðeins betur og uppruna þeirra hjá Leikni ásamt föður þeirra, Gunnari Góða, sem var ekki minni Leiknismaður og fær að sitja á veggnum með þeim. Til hamingju með þennan heiður þið miklu Leiknismenn. Vel að honum komnir. #StoltBreiðholts#Heiðursmenn 

    Pre-Season Spjallið með Sigga 2022

    Play Episode Listen Later Apr 15, 2022 50:50


    Hið árlega spjall við Sigga í upphafi leiktíðar er hér komið fyrir ykkur Leiknisljónin að háma í ykkur. Við köfuðum djúpt í undirbúninginn og þá breytingu á nálgun sem átt hefur sér stað hjá félaginu til að festa sig enn frekar í sessi Bestu deildinni. Njótið!

    Farvél Ernir Bjarnason

    Play Episode Listen Later Mar 9, 2022 50:22


    Vélin brunaði úr Breiðholti og hélt suður með sjó í raðir Keflvíkinga í haust. 4 ár að baki í röndum stoltsins okkar, leikmaður ársins 2019 og flottar minningar. Við settumst niður með kappanum og kvöddum hann formlega áður en við mætum honum tvisvar í baráttunni í Bestu deildinni. Takk fyrir okkur Vélin! 

    Sólong: Kveðjustund með Sóloni Breka

    Play Episode Listen Later Mar 6, 2022 63:46


    Leiknisljónavarpið er snúið aftur og spennandi tímabil framundan. En fyrst kveðjum við tvo dáðadrengi sem hafa fylgt félaginu síðustu 4 ár og halda nú á  vit nýrra ævintýra. Í þessum þætti er það kveðjustund með Sóloni Breka Leifssyni sem skilaði 69 leikjum með félaginu og 29 mörkum. Okkar maður er hættur knattspyrnuiðkun aðeins 23ja ára en eins og kemur fram í spjallinu mun hann fylgja félögum sínum eftir út ferilinn þeirra á meðan hann tæklar önnur vekrefni. 

    Bjarki fyrirliði og Leiknisljónin í sóttkví

    Play Episode Listen Later Aug 7, 2021 80:02


    Einhver allra hörðustu og háværustu Leiknisljónin lentu í sóttkví eftir Fylkisleikinn og þurftu að finna sér eitthvað til dundurs allir í sitthvoru lagi. Þá var tekið upp hlaðvarp enda um ýmislegt nýtt að ræða. Sævar Atli farinn til Freysa, nýr fyrirliði sem var tekinn stuttu tali og svo bara nýjar raddir í Ljónavarpinu að láta í sér heyra varðandi núverandi tímabil og framtíðina. Þetta var tekið upp á netfundi svo gæðinn eru klárlega ekki þau sömu og venjulega en vonandi þolanleg. Þennan þátt er líka hægt að horfa á á YouTube rás Leiknisljónanna: https://www.youtube.com/channel/UClYZ64v2YX9IIkPl-QCCZHQ

    El Normale um tímabilið hingað til og allt annað

    Play Episode Listen Later Jun 23, 2021 45:52


    Óskar Már Alfreðsson, El Normale, Domusnovakóngurinn og hvaðeina, er maðurinn sem mætti í spjall við þá Snorra og Hannes um stöðuna í deildinni, frammistöðu liðsins og umhverfi félagsins fyrir bikarleikinn gegn Val á Hlíðarenda. Óskar er ekki vanur að halda aftur af sér og skemmst er frá því að segja að þetta var snarp en skemmtilegt spjall. Njótið vel. 

    Pepsi-Max Pre-season spjall við Sigga

    Play Episode Listen Later Apr 28, 2021 32:47


    Það er komið að hinu árlega spjalli við aðalþjálfara Leiknis sem blessunarlega er Siggi Höskulds. Þegar 3 dagar eru í fyrsta leik í Pepsi-Max settist hann niður með Snorra og svaraði nokkrum spurningum um hópinn, stemninguna, taktíkina og annað slíkt. Það er skemmst frá því að segja að okkar maður er klár í bátana og tilbúinn að sokka þá sem spá liðinu umsvifalausu falli niður í Lengjudeild á ný. #StoltBreiðholts#HverfiðKallar#SockTheWorld

    Pepsi-Max leikmannahópurinn rýndur: Miðja og Sókn

    Play Episode Listen Later Apr 28, 2021 63:04


    Þeir Juarez og Agon héldu áfram að greina hópinn með Snorra og kláruðu miðju og sókn þar sem ýmis umræðuefni komu upp eins og við var að búast. Hér eru leikmennirnir sem til tals komu. Það var bara Bandaríkjamaðurinn Máni Austmann sem skilinn var eftir útundan enda vitum við ekkert hvenær má búast við honum til baka úr NCAA ævintýrinu. Emil Berger    1:28Danni Finns    8:05Vélin Ernir Bjarna    14:10Daði Bærings    17:25Árni Elvar  19:55Octavio   23:40Davíð Júlían   30:30Shkelzen Veseli   33:25Róbert Quental   35:10Manga   37:35Sólon   43:35Gústi   47:38Sævar Atli    52:50

    Pepsi-Max leikmannahópurinn rýndur: Vörnin

    Play Episode Listen Later Apr 27, 2021 52:02


    Þeir Juarez og Agon slógust í hóp með Snorra til að ræða allan leikmannahópinn eins og venja er orðin fyrir byrjuna tímabils. Þessir ungu menn eru nýbúnir með 2. flokkinn og spila báðir fyrir KB í sumar en þeir höfuð sitthvað að segja um þá leikmenn sem Siggi leiðir inn í bardagann í sumar. Við byrjuðum á að ræða markverði og vörn og eiga þeir þennan þátt. Fyrir þá sem þykjast þekkja ákveðna leikmenn og þurfa ekkert að fræðast um þá, þá geta þeir skippað yfir því hér að neðan er listi yfir þá leikmenn sem ræddir voru í þessu Ljónavarpi og hvenær umfjöllun um þá hefst: Markið:Guy Smit   3:10Viktor Freyr    8:20Bjarki Arnaldar   10:05Miðverðir: Bjarki Aðalsteins 12:57Binni Hlö   16:30Loftur 21:15Dagur     24:18Gyrðir    27:20Ósvald    34:35Arnór Ingi   39:15Birgir Baldvinsson   43:15Birkir Björns   45:40Andi Hoti   47:05#StoltBreiðholts#HverfiðKallar

    Helgi Óttar um framkvæmdastjóraárin sín 2017-2020

    Play Episode Listen Later Apr 22, 2021 73:53


    Helgi Óttar Hafsteinsson tók við framkvæmdastjórastól félagsins af Dodda árið 2017, þegar félagið var enn að hrista af sér fallið úr Pepsideildinni 2015. Hann skilaði félaginu svo af sér í haust með liðið nýkomið aftur upp í efstu deild og bókhaldið réttum megin við línuna. Það er stutta sagan. Helgi settist niður með Snorra til að fara yfir söguna í aðeins lengra máli. Hann tjáir sig um hlutverk Leiknis í hverfinu, ársreikninginn og hvernig hann sér sumarið fyrir sér auðvitað. 

    Emil Berger um Covid og tímabilið framundan-Þáttur 36

    Play Episode Listen Later Apr 14, 2021 38:09


    Daginn áður en eðlilegar æfingar voru leyfðar á ný og tilkynnt var að mótið myndi byrja 2 vikum síðar, settist Emil Berger, sænski miðjumaðurinn okkar, með Snorra í Austurbergi að ræða flókinn vetur að baki og spekúlera hvernig það kemur til með að hafa áhrif á tímabilið sem framundan er. Hann ræddi feril sinn, búningsklefann og margt fleira í stuttu og laggóðu innliti. 

    Davíð Snorri um 2015 og núið: "Þetta var rosalegt!"

    Play Episode Listen Later Feb 11, 2021 69:55


    Í seinni hluta spjallsins okkar við Davíð Snorra Jónasson, fer okkar eini sanni U-21 árs landsliðsþjálfari yfir ævintýrið í Pepsideildinni 2015, undirbúninginn og eftirmálana ásamt því að ræða aðeins um liðið okkar eins og það er í dag. Ótrúlega skemmtileg yfirsýn frá ómetanlegum tíma í sögu félagsins. Takk Davíð Snorri!

    Davíð Snorri um 2012-2014: "Við möxuðum gjörsamlega hvern einasta blóðdropa"

    Play Episode Listen Later Feb 9, 2021 54:34


    Davíð Snorri Jónasson þarf vart að kynna fyrir Leiknisfólki sem er meira en tvívetra. Hann og Freyr Alexandersson létu drauma allra úr hverfinu rætast þegar þeir keyrðu félagið upp í deild þeirra efstu í fyrsta sinn í sögu félagsins haustið 2014. Þessi meistari settist niður með Hannesi og Snorra og opnaði minningarnar um hvernig þeir fóru að þessu. Í fyrri hluta spjallsins ræddi hann uppeldið sitt hjá félaginu og aðdragandann að því að þeir félagar náðu upp í efstu deild.

    Uppgjör Seinni Hluti: Miðja og sókn

    Play Episode Listen Later Nov 26, 2020 65:42


    Hópurinn kláraður í seinni hluta Ljónavarpsins: 0:15 Ernir "Vélin" Bjarnason6:00 Árni Elvar og Daði Bærings12:30 Danni Finns19:45 Máni Austmann26:35 Vuk Oskar Dimitrijevic37:00 Sævar Atli50:00 Sólon Breki58:05 Arnór Ingi og Ágúst Leó

    Uppgjör Fyrsti Hluti: Vörnin og unglingarnir

    Play Episode Listen Later Nov 26, 2020 65:54


    Halldór, Hannes, Ósi og Snorri tóku gott kvöld saman í vikunni þar sem þeir ræddu frammistöðu og útlit fyrir alla leikmenn sem komu við sögu meistararflokks í Lengjudeildinni í ár, og rúmlega það. 5:50 Guy Smith16:25 Viktor Freyr22:05 Bjarki Aðal28:40 Binni Hlö34:20 Dagur Austmann38:35 Gyrðir Hrafn47:10 Ósvald53:00 Birgir Bald54:10 Birkir Björns56:00 Unglingarnir: Shkelzen, Róbert Vattnes, Andi Hoti og Jamal Klængur2 hlutar í viðbót koma á næstu dögum.

    Nýliðaþrennan: "Það er alltaf ákveðin orka sem kemur frá stúkunni"

    Play Episode Listen Later Oct 2, 2020 59:19


    Þeir Ágúst Leó, Arnóri Ingi og Birgir Bald komu í heimsókn daginn eftir rústið gegn nöfnum okkar á Fáskrúðsfirði. Þeir ræddu hlutverk sín í liðinu, baráttuna um Pepsi-Max sætið og margt annað skemmtilegt við þá Hannes og Snorra.

    Sólon Breki: "Ég kem alltaf á fullu gasi inn"- Þáttur #30

    Play Episode Listen Later Sep 11, 2020 73:46


    Sólon Breki Leifsson er aðeins búinn að vera hjá félaginu í tæp 3 ár en er löngu búinn að festa sig í sessi sem Leiknismaður mikill og hann hefur skorað ófá mörkin á þessum tíma. Ekkert fallegra en Beckham-fleygurinn gegn ÍBV bara núna um daginn. Sólon ræddi við Hannes og Snorra um boltann, tímabilið hingað til og auðvitað rappferilinn margumtalaða.

    Aukaefni: Guy Smit um Gary Martin

    Play Episode Listen Later Sep 2, 2020 2:29


    Fyrir leikinn við ÍBV í Vestmannaeyjum fengum við Guy Smit í spjall í Ljónavarpinu. Hann talaði hispurslaust um fótboltann um víða veröld og líka það sem hann hefur séð af honum á Íslandi. Í aðdraganda leiksins við Eyjamenn bar hin margumtalaða Gary Martin á góma og hans orðspor hafði ekkert farið framhjá Hollendingnum okkar. Hins vegar þekkir hann kannski ekki eins vel og hinn almenni Íslendingur hversu auðveldlega Englendingurinn knái getur náð að nýta sér minnstu ummæli andstæðinga til að mótivera sig. Því var það okkar ákvörðun í Ljónavarpinu að halda eftir stuttum ummælum sem Smitarinn hafði um sóknarmanninn svo hann gæti ekki fundið sér neitt til að berja sér á brjósti um og mæta dýrvitlaus inn í teiginn hans Guy. Nú þegar leiknum er lokið með sigri okkar manna og núll mörkum frá þeirra besta manni, þá birtum við þennan stutta bút með góðri samvisku um að það kostar okkur ekki nein stig. Allavega ekki þetta sumarið.

    Guy Smit: "When I smell grass, I see fire!"

    Play Episode Listen Later Aug 31, 2020 74:01


    Guy Smit er hollenski happafengurinn okkar sem stendur milli stangana í sumar. Hann hefur á sinn einstaka hátt náð að fylla stóra hanska sem Eyjó skildi eftir sig í haust. Hann ræddi við Hannes og Snorra fyrir ferðina til Heimaeyjar um uppeldið í Hollandi, stemninguna í Breiðholti og margt margt fleira.-------------------------------------Guy Smit is our Dutch goalkeeper who joined us shortly before the season kicked off. He has filled the legendary gloves of Eyjó Tómasson in impressive fashion right away. He stopped by to chat with Hannes and Snorri ahead of the clash with unbeaten ÍBV in the Westmann Islands this week.

    Fyrri hálfleikur tímabilsins gerður upp með Sigga- 28. þáttur

    Play Episode Listen Later Aug 25, 2020 58:04


    Sigurður Heiðar Höskuldsson, meistaraflokksþjálfari fór yfir fyrri helming Lengjudeildarinnar með þeim Hannesi og Snorra í góðu spjalli um sálfræðistríð þjálfarastarfsins, dvölina á toppnum, faraldurinn og það sem framundan er.

    2. flokkur í sviðsljósinu: Ljónavarp #27

    Play Episode Listen Later Jul 30, 2020 66:29


    Leon Einar Pétursson er á sínu fyrsta ári sem þjálfari 2. flokks Leiknis. Hann hefur skemmtilega sýn á unglingastarfið og hlutverk félagsins okkar í samfélaginu. Hann mætti í skemmtilegt spjall við Snorra ásamt fyrirliða sínum Marko Zivkovic. Fyrsta flokks menn þar á ferð. Þið viljið ekki missa af þessu.

    Austmann-bræður: Ghettóstrákarnir úr Garðabænum

    Play Episode Listen Later Jul 15, 2020 94:17


    Tvíburunum úr Garðabæ, líður vel í Leikni og hafa byrjað tímabilið óaðfinnanlega. Þeir mættu í skemmtilegt spjall um stemninguna í Leikni, uppeldið í boltanum og margt fleira. Halldór, Óskar og Snorri tóku svo stóran Stuðningsmannaspjallpakka enda 7 keppnisleikir nú þegar að baki í góðri törn áður en Magnamenn koma í heimsókn næstkomandi laugardag. #HverfiðKallar#StoltBreiðholts#OperationPepsiMax #DagurAustmann#MániAustmann

    Leikmannahópurinn 2020 greindur af Össa: Ljónavarp #25

    Play Episode Listen Later Jun 11, 2020 56:58


    Örn Þór Karlsson settist niður með Snorra, annað árið í röð, og hver einasti leikmaður Meistaraflokks (og rúmlega það) var ræddur í aðdraganda fyrsta leiks tímabilsins. Fyrir þá sem geta ekki beðið eftir að heyra um sinn uppáhaldsleikmann þá er tímaröðunin ca svona: 2:15 Guy Smit3:40 Viktor Freyr-Markvörður4:25 Atli Jónasson-Markvörður6:15 Ósvald Jarl-Bakvörður7:30 Ernir Freyr 8:50 Hjalti Sigurðsson10:30 Jamal og Róbert Vattnes11:20 Birkir Björnsson12:05 Bjarki Aðal14:55 Dagur Austmann16:45 Gyrðir Hrafn18:10 Binni Hlö21:00 Ernir Bjarnason22:10 Daði Bærings23:50 Árni Elvar25:05 Danni Finns28:55 Máni Austmann 31:55 Vuk Óskar36:40 Sólon Breki39:05 Sævar Atli----------------------41:50 Shkelzen Veseli42:50 Andi Hoti44:35 Sævin Alexander 47:00 Arnór Ingi Kristinsson#StoltBreiðholts#OperationPepsiMax

    Siggi um Covid-áhrifin, undirbúningstímabilið og Operation Pepsi Max

    Play Episode Listen Later May 21, 2020 96:08


    Boltinn er farinn að rúlla á Domusnovavellinum og stutt í að stigin hrannist inn. Hannes, Halldór og Snorri fengu að setjast niður með manninum sem togar í alla spotta í Meistaraflokki, Sigurði Heiðari Höskuldssyni, sem svaraði öllum þeirra spurningum og skoraði þá jafnvel á hólm ásamt öllum Leiknisljónum. Njótið.

    Binni Hlö um goðsagnartitilinn, Færeyjadvölina og Pepsi Max-#023 Þáttur Ljónavarpsins

    Play Episode Listen Later Feb 27, 2020 59:14


    Leikmaður númer 145.364 hjá KSÍ, færeyskur meistari, bikarmeistari og meistari yfir höfuð, Brynjar Hlöðversson, settist niður með Snorra á köldu febrúarkvöldi að ræða endurkomuna heim í Leikni, sumarið framundan og auðvitað ljúfar minningar á geggjuðum áratug þar sem hann var í aðalhlutverki á miðjunni.

    Birkir Björnsson um ferilinn, hárið, Leikni TV og stöðuna á hópnum-Þáttur #022

    Play Episode Listen Later Feb 11, 2020 110:37


    Birkir Björnsson er uppalinn Leiknismaður sem er mitt á milli gullkynslóða hjá félaginu og hefur góða innsýn í stöðu mála hjá félaginu. Hann settist með Hannesi og Snorra til að ræða hvoru tveggja og margt meira.

    Damir Muminovic um Breiðholtsdvölina, Breiðablik og margt fleira: Þáttur #021

    Play Episode Listen Later Feb 3, 2020 51:42


    Damir Muminovic spilaði bara eitt sumar með Leikni en er mikils metinn meðal stuðningsmanna og leikmanna félagsins. Okkar menn mæta honum og hans félögum í fyrsta leik Lengjubikarsins á föstudagskvöld í kuldanum á Kópavogsvelli. Árni, Hannes og Snorri ræddu við Damir um uppeldið, muninn á stórveldunum í Breiðholti og Kópavogi og margt fleira.

    Tuttugasti þáttur - Jólagestagangur í Leiknishúsi

    Play Episode Listen Later Dec 8, 2019 150:14


    Það voru 14 manns sem heimsóttu Leiknisljónin í Austurbergi að þessu sinni. Þvílík jólagjöf. Við fengum Leiknisfólk úr öllum áttum til að líta við og ræða um liðið og allt tengt félaginu nú þegar undirbúningur fyrir #OperationPepsiMax er að fara á fullt og árið er að líða undir lok. Fyrir þá sem vilja skipta þessu upp: 00:00 Siggi Höskulds og Valur Gunn13:30 Bjarki Aðalsteinsson30:45 Kristján Páll og Eyjólfur Tómasson49:40 Haukur Gunnarsson og Hilmar Árni Halldórsson1:05:25 Sævar Atli Magnússon og Danni Finns1:19:10 Davíð Snorri Jónasson1:37:47 Hilmar Þór Sigurjóns og Berglind Birta Jónsdóttir1:57:00 Oscar Clausen og Elvar Geir Magnússon

    Stúkuspjall 001: HK í Kórnum 07/12/2019

    Play Episode Listen Later Dec 7, 2019 55:03


    Þeir Árni Þór, Hannes Axelsson og Snorri Valsson mættu í stúkuna í Kórnum að fylgjast með öðrum vináttuleik vetrarins og skoða leikmenn og stemninguna. Strákarnir ræddu heima og geyma. Ef þú mættir ekki á svæðið og langar í skammt af Leiknisslúðri, sestu endilega niður með strákunum og nældu þér í fróðleik.

    Nítjándi þáttur - ÍR í Egilshöll og Operation Pepsi Max rúllar af stað

    Play Episode Listen Later Nov 22, 2019 32:33


    Strákarnir eru byrjaðir að æfa og við hinir strákarnir sem kunnum ekki að æfa mættum til að horfa þegar nýtt Leiknislið mætti ÍR í hinum árlega minningarleik um Hlyn Þór Sigurðsson, ÍR-inginn sem lést fyrir 10 árum á æfingu með nágrannaliðinu okkar. Ljónin ræddu í stúkunni um allt sem hefur gengið á síðan flautað var af í haust og eru spenntir að fylgja liðinu í vetur. Sólon Breki tók stutt spjall í hálfleik og óhætt er að segja að öllum tengdum klúbbnum sé létt að boltinn er farinn að rúlla aftur, þó langt sér í næsta Íslandsmót. #ÁframLeiknir

    Átjándi þáttur - Gæji fer yfir fyrsta sumarið hjá Meistaraflokki Kvenna

    Play Episode Listen Later Oct 16, 2019 62:19


    Árni Þór og Snorri fengu Garðar Ásgeirsson, betur þekktan sem Gæja, til að ræða um fyrsta tímabil Meistaraflokks Kvenna Leiknis og hvernig félagið hyggst halda áfram með þetta spennandi verkefni.

    Sautjándi þáttur - 3.hluti Lokauppgjör Lokahófsins

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2019 57:22


    Leiknisljónin taka saman endanlega hver var besti leikmaðurinn að þeirra mati, skemmtilegasti leikur ársins, mark ársins, hvað var atvik ársins og margt fleira. Ef þú ert búin(-n) að hlusta á fyrstu 2 hlutana, verðurðu að láta þetta eftir þér.

    Sextándi þáttur - Lokahóf 2. hluti

    Play Episode Listen Later Oct 3, 2019 85:59


    Áfram með smjörið og Lokahófið, nú 2. bindi. Ljónin ræða frammistöðu og framtíð restarinnar af liðinu, miðju og sókn ásamt því að láta afvegaleiðast reglulega í alls konar ágreining. Fyrir þá sem eru mikið fyrir að spóla áfram þá ræddum við leikmenn í cirkabát þessari röð: Árni Elvar, Daði Bærings, Vélin, Danni Finns, Ingó Sig, Stefán Árni, Vuk Óskar Viktor Marel, Sólon Breki og Sævar Atli. Góða skemmtun!

    Fimmtándi þáttur - Lokahóf 1. hluti

    Play Episode Listen Later Oct 1, 2019 61:14


    Ljónin 4 hittust í Leiknishúsi og skeggræddu Lokahóf Leiknis, alla leikmenn og völdu bestu allt í sumar. Í þessum 1. hluta ræddu þeir varnarsinnuðu leikmennina: Eyjó, Stjána, Hjalta, Edda, Nacho, Bjarka, Osvald og Gyrði.

    Fjórtándi þáttur - Pape peppar og Helgi spjallar

    Play Episode Listen Later Sep 19, 2019 96:22


    Í fjórtánda þætti Ljónavarpsins skeggræddum við hvernig og af hverju Leiknir á erindi í Pepsi-deildina með einn leik eftir af tímabilinu, lokahófið sem er á laugardagskvöld fram á sunnudagsmorgun og margt fleira með Helga framkvæmdastjóra og Pape Mamdou Faye kom í heimsókn að rifja upp þegar hann skoraði 4 mörk í lokaleik sumarsins 2011 og bjargaði Leikni frá falli í 2. deild og sendi þarmeð Gróttu niður. Hver ætlar að skora 4 gegn Fram á laugardag?

    Þrettándi þáttur - Ernir Bjarna í spjalli

    Play Episode Listen Later Sep 3, 2019 79:34


    "Vélin" Ernir Bjarna settist niður með þeim Halldóri og Snorra í Ljónavarpinu að ræða tímabilið hingað til, það sem framundan er og auðvitað fortíðina í Breiðablik, Vestra og meira að segja Roy Keane. Halldór og Snorri ræddu svo það sem á daga Leiknis hefur drifið síðan síðast í Ljónaspjallinu. Góða skemmtun kæru Leiknismenn og konur!

    Tólfti þáttur - Háttvirtur formaður Oscar Clausen í ítarlegu spjalli

    Play Episode Listen Later Jul 29, 2019 75:19


    Í tólfta þætti Ljónavarpsins fengu þeir Árni Þór og Snorri formann Leiknis, Oscar Clausen, í langt og gott spjall um lífið í Breiðholti, innan Leiknis og harkið að sinna trúnaðarstörfum fyrir félagið. Við fengum mikið skýrari mynd af því sem þarft til að svona klúbbur gangi upp og vonandi þið hlustendur líka. Áfram LEIKNIR!

    Ellefti þáttur - Daði Bærings, Árni Elvar og Gróttupepp

    Play Episode Listen Later Jul 28, 2019 48:24


    Uppaldir eðalmenn mættu í búrið að ræða liðið, tilveruna, stórleikinn við Gróttu og í tilfelli Daða, dvölina í Bandaríkjunum sem heldur áfram eftir Víkingsleikinn að tveimur viknum liðnum. Árni Þór og Snorri grilluðu drengina létt og höfðu gaman að. Vonandi eruð þið sama sinnis.

    Tíundi þáttur - Uppgjör með Elvari Geir

    Play Episode Listen Later Jul 15, 2019 67:09


    Elvar Geir Magnússon, fótboltasérfræðingur af hæstu gráðu, fæddur Leiknismaður og nú stjórnarmaður hjá félaginu, kom í heimsókn í Ljónavarpið og hjálpaði Halldóri og Snorra að fara yfir fyrri helming leiktímabilsins, ræða stöðuna í dag og hvaða vonir menn geta bundið við næstu tvo mánuði þar sem Siggi tekur liðið áfram inn í haustið og næsta sumar.

    Níundi þáttur - Siggi situr fyrir svörum og rýnir í fyrri helminginn

    Play Episode Listen Later Jul 14, 2019 75:10


    Nýráðinn aðalþjálfari meistaraflokks, Sigurður Heiðar Höskuldsson, gaf sér tíma með þeim Halldóri Marteins og Snorra Vals til að fara yfir fyrri helming leiktímabilsins, brottför Stebba Gísla, framtíðina og allt hitt sem Leiknisfólk gæti mögulega viljað fá að vita um okkar mann.

    Áttundi þáttur - Nacho Heras um víðan völl

    Play Episode Listen Later Jun 20, 2019 93:18


    Í áttunda þætti Ljónavarpsins mætti eini útlendingur liðsins, Spánverjinn Nacho Heras, í spjall við þá Snorra og Ósa Kóng. Hann fór um víðan völl frá æsku sinni í Madrídarborg til hörkunnar í Breiðholtinu. Einstaklega skemmtilegur karakter í hópnum okkar. Svo ræddu Snorri og Ósi um gengi liðsins hingað til í Ljónaspjallinu sem hefst á 56.mínútu upptökunnar. Góða skemmtun og Áfram Leiknir!

    Sjöundi þáttur - KR-ingarnir þrír og félagsfræðingurinn eini

    Play Episode Listen Later May 29, 2019 70:43


    Í sjöunda þætti Ljónavarpsins komu KR-ingarnir þrír í heimsókn til Snorra og Halldórs. Þeir Gyrðir Hrafn, Hjalti og Stefán Árni ræddu muninn á Frostaskjóli og Austurberginu, tímabilið hingað til, bestu stöður sínar og margt fleira. Svo mætti Egill Þór Jónsson í stuðningsmannaspjallið og ræddi við Snorra um félagsfræðina á bakvið liðið sem fór í Pepsideild sumarið 2014 en hann gerði BA ritgerð um nákvæmlega það.

    Sjötti þáttur - Leikdagur: heimaleikur gegn Magna frá Grenivík

    Play Episode Listen Later May 5, 2019 41:13


    Við gripum upptökugræjurnar með okkur á fyrsta leik Leiknis í Inkassodeildinni 2019. Upphitun hófst tveimur tímum fyrir leik og var góð stemning í Leiknishúsinu. Ekki minnkaði hún þegar leikurinn hófst og okkar menn spiluðu glimrandi fótboltaleik.Árni Þór, Halldór, Ósi og Snorri sáu um þáttinn.Gestir: Þorsteinn Þormóðsson, formaður Magna, og Árni Elvar Árnason, leikmaður Leiknis.

    Fimmti þáttur - Össi fer yfir hópinn fyrir fyrsta leik

    Play Episode Listen Later May 1, 2019 104:11


    Örn Karlsson eða Össi, eins og flestir þekkja hann, er þjálfari hjá yngri flokkum Leiknis og KB. Hann kannast allir við sem koma einhvern tíma við í Leiknishúsi. Hann þekkir betur til en flestir hjá félaginu og fór yfir málin með strákunum í aðdraganda fyrsta leiksins í Inkasso. Össi svaraði alls konar spurningum um leikmannamál, stefnu félagsins og margt annað. Nú mega jól...ég meina Inkasso koma.

    Fjórði þáttur- Kvennaboltinn, Elvar Geir og Bikarleikurinn við Fjölni

    Play Episode Listen Later Apr 17, 2019 71:09


    Að þessu sinni hlýddu þeir Árni Þór og Snorri á þau Gæja og Sirrý um meistaraflokk kvenna auk þess sem þeir fengu Elvar Geir í spjall eftir Bikartapið við Fjölni á miðvikudagskvöldið.

    Hver er Ingólfur Sigurðsson?

    Play Episode Listen Later Apr 13, 2019 7:52


    Ingólfur Sigurðsson svarar nokkrum hraðaspurningum um sig. Umsjón: Snorri ValssonAukaspurningar: Halldór Marteins

    Claim Ljónavarpið - Leiknir Reykjavík stuðningsmannahlaðvarp

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel