Podcasts about bjarka

  • 17PODCASTS
  • 48EPISODES
  • 1h 20mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • May 27, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about bjarka

Latest podcast episodes about bjarka

Stundin
Samtal við samfélagið #11: Sjálfhverfa samfélaga og þjóðernishyggja í heimsfaraldri

Stundin

Play Episode Listen Later May 27, 2025


Stundum æxlast lífið þannig að hlutir frestast og það á svo sannarlega við um hlaðvarp vikunnar. Í því ræðir Sigrún við Bjarka Þór Grönfeldt sem var lektor við Háskólann við Bifröst þegar viðtalið var tekið vorið 2023. Síðan hafa leiðir Bjarka legið í ýmsar áttir, en hann var meðal annars aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar fyrrverandi Félags- og vinnumarkaðsráðherra en vinnur nú sem sérfræðingur í samfélagsmálum hjá Landsvirkjun. Bjarki lauk námi í stjórnmálasálfræði frá Háskólanum í Kent í desember 2022, en hann hefur meðal annars skoðað sjálfhverfu, ófrjálslyndi og hvernig þjóðernishyggja hafði áhrif á stuðning við lýðheilsuaðgerðir á tímum heimsfaraldurs. Í hlaðvarpinu ræða þau Sigrún um námsferil hans, stjórnnmálasálfræði og helstu rannsóknaráherslur.

FM957
Brennslan - 14. maí 2025

FM957

Play Episode Listen Later May 14, 2025 91:17


Brennslubrósar bjalla í Bjarka til Basel og fá 360 gráðu greiningu á því hvað fór fram í Eurovision búbblunni í gær. Top 7 RG listi vikunnar með sumar ívafi. Hvaða tískutrend höfum við ekki skilið? Bergur og Teitur í spjalli um það að labba 400km með 100kg í eftirdragi. Hamingjuhlaup samtakanna 78 og meira til!

Mannlegi þátturinn
Veruleiki unga fólksins út frá Adolescence þáttunum og Rauða fjöðrin

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 3, 2025 50:00


Sjónvarpsþættirnir Adolescence á Netflix hafa náð metáhorfi um allan heim og vakið athygli á slæmri líðan og stöðu ungmenna í dag. Þættirnir sýna fram á að þau eru ekki hólpin innilokuð í herbergjum sínum fyrir framan skjá, því þar getur umræða til dæmis kvenhaturshópa á borð við INCEL hugmyndafræðina rutt sér inn í hugarheim ungmenna og haft mikil áhrif á tjáskipti þeirra heimssýn. Við fræddumst í þættinum um INCEL hugmyndafræðina, upphaf hennar og hversu áhrifamikil hún er að verða og ræddum í því samhengi um líðan íslenskra ungmenna og hvernig er tekið á stöðunni í skólakerfinu hér á landi og ekki síst inni á heimilunum. Við fengum Bjarka Þór Gröndfeldt stjórnmálasálfræðing, sem hefur rannsakað og skrifað um Incel hreyfinguna, og Soffíu Ámundadóttur sem er kennari og knattspyrnuþjálfari til fjölmargra ára. Lions hreyfingin hóf í dag sölu á Rauðu fjöðrinni, við helstu verslunarkjarna landsins og víðar til styrktar Píeta samtökunum og fovarnarverkefnis þeirra fyrir ungt fólk. En samtökin ætla að bjóða öllum framhaldsskólanemum á landinu upp á fræðslu um mikilvægi geðræktar og geðheilbrigðis. Áhersla er lögð á mikilvægi þess að styðja við geðheilsu ungs fólks og að vekja með þeim von og kenna þeim bjargráð þegar lífið virðist erfið áskorun. Ellen Calmon framkvæmdastýra Píeta samtakanna og Geirþrúður Fanney Bogadóttir, fjölumdæmisstjóri Lions á Íslandi, komu í þáttinn í dag. Tónlist í þættinum í dag: Viltu vitrast / Samaris (Jófríður Ákadóttir, Þórður Kári Steinþórsson, texti Steingrímur Thorsteinsson) Allur lurkum laminn / Bubbi Morthens (Hilmar Oddsson) Horfðu til himins / Nýdönsk (Daníel Ágúst Haraldsson og Jón Ólafsson, texti Daníel Ágúst Haraldsson) UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Þættir um Arnar og Bjarka, gengið til Rómar og veðurspjallið með Einari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 1, 2025 49:32


Við forvitnuðumst í dag um nýja sjónvarpsþáttaröð sem kallast A&B og er saga tvíburanna Arnars og Bjarka Gunnlaugssona. Þeir vöktu fljótt mikla athygli fyrir mikla hæfileika á knattspyrnuvellinum á Skaganum. Þeir fóru ungir í atvinnumennskuna, léku með landsliðinu og saga þeirra þar er rakin í þáttunum. Þeim er svo fylgt eftir í gegnum viðskiptaævintýri eftir atvinnumennskuna og hvernig þeir fundu báðir aftur fótboltann og nú er til dæmis Arnar orðinn landsliðsþjálfari hjá karlalandsliðinu. Þetta er saga drengja sem upplifa drauma sína, en lenda líka í hremmingum innan sem utan vallar. Gunnlaugur Jónsson, umsjónarmaður, handritshöfundur og framleiðandi þáttanna, kom í þáttinn ásamt Arnari, öðrum bróðurnum. Steinunn Harðardóttir leiðsögukona hefur í 12 ár farið í pílagrímsgöngur áleiðis til Rómar en á miðöldum gengu fjölmargir íslenskir pílagrímar til Rómar. Einn þeirra var Nikulás ábóti á Munkaþverá í Eyjafirði en hann fór til Noregs og Danmerkur og gekk þaðan til Rómar og svo alla leið til Jerúsalem. Hann skrifaði leiðarvísi fyrir aðra pílagríma árið 1153-4, „Leiðarvísir og borgarskipan“ er sá eini sinnar tegundar frá þessum tíma sem hefur varðveist í Evrópu. Þegar Steinunn kom til Rómar síðasta haust stóðu yfir miklar viðgerðir á borginni vegna Heilags árs hátíðarhöldum sem hófust á jólum 2024 og standa út allt þetta ár. Heilög ár eru haldin af kaþólsku kirkjunni á 25 ára fresti. Steinunn kom í þáttinn og sagði okkur nánar frá. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Það er hafið nýtt eldgos suðaustur af Þorbirni við Grindavík, því fór Einar aðeins yfir stöðuna, til dæmis hvað varðar gasdreifingu. Svo gerði hann aðeins upp veturinn, en með mars lauk veðurstofuvetrinum. Einar talaði svo að lokum um mikla hita sem nú geysa á fjarlægum slóðum, s.s. sunnarlega í Bandaríkjunum, í Kákasus og á Tælandi og merkilegt marsveður sem Madrídingar og Spánverjar hafa upplifað. Tónlist í þættinum í dag: Ég skal bíða þín / Helgi Björnsson (Michel Legrande, texti Hjördís Morthens) April in Paris / Count Basie orchestra (Vernon Duke) Creepin' in / Dolly Parton og Norah Jones (Lee Alexander) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - A&B, vika í Bestu og Dóri Árna

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Mar 29, 2025


Útvarpsþátturinn laugardaginn 29. mars. Það er vika í að Besta deildin fer af stað og Gunnlaugur Jónsson mætir í þáttinn. Auk þess að hita upp fyrir komandi tímabil ræðir Gulli um þættina um Arnar og Bjarka sem eru að fara í sýningu. Þá kemur Halldór Árnason, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks, en Blikar munu mæta Aftureldingu í opnunarleik Bestu deildarinnar 5. apríl.

Lestin
Maria Callas, ölvaðir prestar í Guðaveigum, besti tölvuleikur ársins

Lestin

Play Episode Listen Later Jan 9, 2025 55:01


Í lok síðasta árs kom út kvikmynd byggð á síðustu dögum óperusöngkonunnar Mariu Callas. Kvikmyndin er sú þriðja og síðasta í þríleik síleska leikstjórans Pablos Larrains um athyglisverðar og merkar konur á 20. öldinni. Sú fyrsta fjallaði um Jackie Kennedy, önnur um Díönu Prinsessu og sú þriðja fjallar um Callas. Við kynnum okkur myndina nánar í þætti dagsins. Fáum að auki til okkar sérlegan óperuunnanda; Unu Margréti Jónsdóttur, dagskrárgerðarkonu á tónlistarsviði Rásar 1. Una heillaðist sjálf snemma af óperum eða þegar hún var 12 ára gömul. Allar götur síðan hefur óperan átt hug hennar og hjarta. Fjórir prestar halda til Spánar til að finna messuvín í betri gæðum en þekkst hefur á Íslandi hingað til. Þeir eru svo uppteknir við vinnu sína og smakkið að þeir missa af kraftaverkunum sem gerast allt í kringum þá. Þannig má lýsa nýjustu mynd Markelsbræðra - en grínmyndir þeirra hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina. Nú á dögunum valdi töluvleikjavefsíðan Nörd norðursins bestu tölvuleiki ársins 2024. Astro Bots var besti leikur ársins að mati síðunnar. Við fáum til okkar ritstjóra síðunnar, Bjarka Þór Jónsson, og fáum að heyra um Astro Bots og annað sem stóð upp úr á árinu í tölvuleikjaheiminum.

Bíóblaður
#297 Bókamyndir: Part II með Óla Bjarka

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Oct 2, 2024 110:49


Kvikmyndasérfræðingurinn Óli Bjarki kíkti til Hafsteins til að ræða ákveðnar kvikmyndir sem eru byggðar á bókum. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hversu góð The Social Network er, hversu mikið allir elska Tom Hanks, Liam Neeson og hversu góður dramaleikari hann er í kvikmyndinni The Grey, hversu mikið Óli Bjarki tengir persónulega við Big Fish, hvort V for Vendetta sé vanmetin og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.

Bíóblaður
#296 Bókamyndir: Part I með Óla Bjarka

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Sep 18, 2024 101:19


Kvikmyndasérfræðingurinn Óli Bjarki kíkti til Hafsteins til að ræða ákveðnar kvikmyndir sem eru byggðar á bókum. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvað flokkast sem góð skáldsaga, hvað góð aðlögun þarf að uppfylla, Coraline og hversu mikil áhrif hún hafði á Óla, hversu frábær Gone Baby Gone er eftir Ben Affleck, hvernig strákunum fannst Dune 2 og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Gulli Jóns og tvíburarnir

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Aug 17, 2024


Útvarpsþátturinn 17. ágúst. Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnars. Með þeim er Gunnlaugur Jónsson fjölmiðlamaður og fyrrum fótboltamaður. Sjónvarpsþættir um tvíburana Arnar og Bjarka, sviptingar hjá KR, sigur Breiðabliks gegn Vals, enski boltinnn og fleira til umfjöllunar.

Ein Pæling
#315 Jón Bjarki Bentsson - Hvað geta stjórnvöld gert í húsnæðisvandanum?

Ein Pæling

Play Episode Listen Later May 22, 2024 20:02


Þórarinn ræðir við Jón Bjarka en hann er aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Lögð er sérstök áhersla á efnahagsmál og hvaða áhrif húsnæðismarkaðurinn hefur á efnahagshorfurnar næstu árin. Fjallað er um:- Inngrip hins opinbera.- Er peningaprentun hins opinbera stjórnlaus?- Hvaða áhrif hefur ákvörðun Seðlabankans á húsnæðismarkaðinn?- Er möguleiki að lækka stýrivexti án þess að húsnæðisverð fari enn hærra?Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

er hva hla geta bjarka bjarki bentsson
Spegillinn
Forsetaframboð,, forsetaembættið og framtíð pósthúsa

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 4, 2024 20:00


4. apríl 2024 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra staðfesti í gær að hún hefði íhugað forsetaframboð af mikilli alvöru. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, aflýsti för sinni á 75 ára afmælisfund Atlantshafsbandalagsins í Brussel og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins frestaði boðuðum fundarhöldum á Austurlandi. Heimildir fréttastofu herma að þeir tveir eigi nú í viðræðum við Guðmund Inga Guðbrandsson, varaformann Vinstri grænna, um framhald ríkisstjórnarsamstarfs flokkanna þriggja. Flest - og jafnvel allt - bendir því til þess að Katrín ætli í framboð og muni tilkynna það áður en þing kemur saman á mánudag, líklega strax á morgun. Ævar Örn Jósepsson ræðir þessa dæmalausu stöðu við Eirík Bergmann Einarsson stjórnmálafræðing. Forsetakosningarnar í sumar verða sögulegar, hvernig sem á það er litið. Fari forsætisráðherra fram, sem flest bendir til að verði niðurstaðan, er það stefnubreyting og opnar um leið ákveðna möguleika fyrir forsetaembættið. Þetta segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur í samtali við Frey Gígju Gunnarsson. Í sumar verða tuttugu og sjö pósthús og samstarfspósthús eftir á landinu öllu. Þau voru meira en tvöfalt fleiri fyrir fimmtán árum. Sveitarstjórar í smærri byggðarlögum hafa áhyggjur af þjónustuskerðingu og segja að póstbox komi ekki í stað pósthúss. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman og ræddi við Björn Bjarka Þorsteinsson, Unni valborgu Hilmarsdóttur og Jón Björn Hákonarson. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Poppland
Poppstuð og stemning

Poppland

Play Episode Listen Later Jan 17, 2024 195:00


Lovísa Rut var Popplandsvörður í þætti dagsins. Plata vikunnar var á sínum stað, Pottþétt Flott með hljómsveitinni Flott, opnuðum póstkort frá Ólafi Bjarka, nýtt frá Katrínu Myrru, Birgittu Haukdal, Genesis Owusu og fleirum, þessar helstu tónlistarfréttir og almennt stuð. KLASSART - Gamli Grafreiturinn. THE KINKS - Sunny Afternoon. Jack Harlow - Lovin On Me. BJÖRK - Venus As A Boy. Mitski - My Love Mine All Mine. PAUL SIMON - Still Crazy After All These Years. Troye Sivan - One Of Your Girls. Loreen - Tattoo. THE CORAL - In The Morning. HJÁLMAR - Taktu þessa trommu. Axel Flóvent - When the Sun Goes Down. Flott - Hún ógnar mér. Mugison - Gúanó kallinn. ÁRNASON & GDRN - Sagt er. VANCE JOY - Riptide. Del Rey, Lana - A&W. Ex.girls - Manneskja. Katrín Myrra Þrastardóttir - Ekki lengur þín. Jalen Ngonda - Rapture. Ilsey - No California. Elín Hall - Manndráp af gáleysi. Birgitta Haukdal - Springa út. Genesis - That's all. Tayo Sound, Pixey - Daisy Chain. Dua Lipa - Houdini. The Gossip - Crazy Again. KRUMMI - Stories To Tell. Ensími - In front. CORINNE BAILEY RAE - Put Your Records On. Metronomy - Right on time. Quantic, Rationale - Unconditional. Owusu, Genesis - Leaving The Light. Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir - Quiet the Storm. Íris Rós & Kjalar - Komandi kynslóðir. THE DOORS - Light My Fire. RADIOHEAD - High And Dry. FLOTT - Hvernig maður viltu vera?. CASSÖ & RAYE & D-BLOCK EUROPE - Prada. JÓNFRÍ - Andalúsía. CALVIN HARRIS - Feels. WHAM! - Club Tropicana. CHRISTINE & THE QUEENS - Tilted. JONI MITCHELL - Little Green. JÓHANN & JÓIPÉ - Kallinn á tunglinu. JULIAN CIVILIAN - Þú straujar hjarta mitt.

Bíóblaður
#270 Movie Legends: Hugleikur Dagsson vs. Óli og Máni

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jan 9, 2024 115:20


Kvikmyndasérfræðingurinn Hugleikur Dagsson keppir við kvikmyndasérfræðingana Óla Bjarka og Mána Frey í pökkuðum spurningaþætti! Óli og Máni hafa unnið tvær keppnir og virðast vera óstöðvandi og Hafsteinn ákvað því að fá mjög verðugan andstæðing til að keppa við þá. Hugleikur Dagsson er gríðarlega öflugur keppandi og hefur sjálfur unnið nokkrar kvikmyndaspurningakeppnir. Strákarnir skiptast á að svara alls konar kvikmyndaspurningum en þar á meðal eru spurningar um 70's glæpamyndir og 80's grínmyndir, leikstjóraspurningar og plakatspurningar. Þessi þáttur er algjört skylduáhorf fyrir alla kvikmyndaaðdáendur. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Poppland
28.09.2023

Poppland

Play Episode Listen Later Sep 28, 2023


Umsjón: Siggi Gunnars & Lovísa Rut Siggi Gunnars og Lovísa Rut stjórnuðu Popplandi dagsins. Plata vikunnar var gerð upp, platan É Dúdda Mía með Mugison. Nýtt frá Miley Cyrus, Julian Civilian, Ólafi Bjarka, Bakar, Sváfni Sig, The Kolors og fleirum og þessar helstu tónlistarfréttir á sínum stað. Benni Hemm Hemm - Eitthvað leiður. BRÍET & ÁSGEIR - Venus. Lisa Ekdahl - Vem vet. Nina Simone - Take care of business. BACHMAN-TURNER OVERDRIVE - Taking Care Of Business. HIPSUMHAPS - Góðir hlutir gerast hææægt. KK BAND - Besti vinur. ARCADE FIRE - Everything Now. Sinfóníuhljómsveit Íslands, Ásgeir Trausti Einarsson - Heimförin. THE KOLORS - ITALODISCO. Mugison - Kossaflóð. Mugison - Sólin Er Komin. Mugison - É Dúdda Mía. Mugison - Stóra Stóra Ást. Mugison - Haustdansinn. Mugison - Gúanó Kallinn. Mugison - Álfurinn í Bollanum. Mugison - Upphafstitlar. Mugison - É Dúdda Mía. LAUFEY - California and Me. Mugison - Hugsa Til Þín. VÖK - Illuminating. THE CLASH - Bankrobber. PÁLMI GUNNARSSON - Ég skal breyta heiminum. BLUR - Barbaric. RÓISÍN MURPHY - Coocool. UXI - Take You Home. BOB DYLAN - Lay Lady Lay. Julian Civilian - Fyrirmyndarborgari. RAZORLIGHT - America. QUEENS OF THE STONE AGE - Paper Machete. BJÖRK - Big Time Sensuality. NANNA - How to start a Garden. BAKAR - Alive!. TOM TOM CLUB - Genius of Love. EDWARD SHARPE & THE MAGNETIC ZEROS - Home. HAFDIS HULD - Tomoko. SUPERSERIOUS - Bye Bye Honey. Prince - Purple Rain. Rúnar Þór - Kóngurinn Vetur. Elín Hall - Er Nauðsynlegt að Skjóta Þá? Sváfnir Sigurðarson - Flóð og Fjara. ARCTIC MONKEYS - Fluorescent Adolescent. Skinny Pelembe - Who By Fire. MYRKVI - Early Warning. ÓLAFUR BJARKI - Malbik Endar. MILEY CYRUS - Used To Be Young.? EMILÍIANA TORRINI - Me And Armini. KENYA GRACE - Strangers. THE KNIFE - Heartbeats.

Poppland

Umsjón: Siggi Gunnars & Lovísa Rut Siggi Gunnars og Lovísa Rut stjórnuðu Popplandi dagsins. Plata vikunnar var gerð upp, platan É Dúdda Mía með Mugison. Nýtt frá Miley Cyrus, Julian Civilian, Ólafi Bjarka, Bakar, Sváfni Sig, The Kolors og fleirum og þessar helstu tónlistarfréttir á sínum stað. Benni Hemm Hemm - Eitthvað leiður. BRÍET & ÁSGEIR - Venus. Lisa Ekdahl - Vem vet. Nina Simone - Take care of business. BACHMAN-TURNER OVERDRIVE - Taking Care Of Business. HIPSUMHAPS - Góðir hlutir gerast hææægt. KK BAND - Besti vinur. ARCADE FIRE - Everything Now. Sinfóníuhljómsveit Íslands, Ásgeir Trausti Einarsson - Heimförin. THE KOLORS - ITALODISCO. Mugison - Kossaflóð. Mugison - Sólin Er Komin. Mugison - É Dúdda Mía. Mugison - Stóra Stóra Ást. Mugison - Haustdansinn. Mugison - Gúanó Kallinn. Mugison - Álfurinn í Bollanum. Mugison - Upphafstitlar. Mugison - É Dúdda Mía. LAUFEY - California and Me. Mugison - Hugsa Til Þín. VÖK - Illuminating. THE CLASH - Bankrobber. PÁLMI GUNNARSSON - Ég skal breyta heiminum. BLUR - Barbaric. RÓISÍN MURPHY - Coocool. UXI - Take You Home. BOB DYLAN - Lay Lady Lay. Julian Civilian - Fyrirmyndarborgari. RAZORLIGHT - America. QUEENS OF THE STONE AGE - Paper Machete. BJÖRK - Big Time Sensuality. NANNA - How to start a Garden. BAKAR - Alive!. TOM TOM CLUB - Genius of Love. EDWARD SHARPE & THE MAGNETIC ZEROS - Home. HAFDIS HULD - Tomoko. SUPERSERIOUS - Bye Bye Honey. Prince - Purple Rain. Rúnar Þór - Kóngurinn Vetur. Elín Hall - Er Nauðsynlegt að Skjóta Þá? Sváfnir Sigurðarson - Flóð og Fjara. ARCTIC MONKEYS - Fluorescent Adolescent. Skinny Pelembe - Who By Fire. MYRKVI - Early Warning. ÓLAFUR BJARKI - Malbik Endar. MILEY CYRUS - Used To Be Young.? EMILÍIANA TORRINI - Me And Armini. KENYA GRACE - Strangers. THE KNIFE - Heartbeats.

Bíóblaður
#251 Succession með Óla Bjarka

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Aug 25, 2023 137:27


Óli Bjarki kíkti til Hafsteins til að ræða eina bestu sjónvarpsseríu allra tíma, Succession. Succession kemur frá HBO og hefur unnið til margra verðlauna.   Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort þetta séu bestu þættir sem hafa verið framleiddir, húmorinn í þáttunum, hversu gott tvíeyki Tom og Greg eru, Jeremy Strong og hans frammistöðu sem Kendall Roy, hvernig Óla fannst endirinn vera, hvort það hefði verið sniðugt að halda áfram og gera seríu 5, Brian Cox og hans frammistöðu sem Logan Roy og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Mannlegi þátturinn
Minningartónleikar, veðurspjall og ellefu ára einsöngvari í Hörpu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Aug 23, 2023 50:00


Þann 24.ágúst 2023 hefði Bjarki Friðriksson orðið fimmtugur, en hann lést tæplega tvítugur skyndilega úr heilahimnubólgu árið 1993. Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, systir Bjarka, ætlar að minnast hans með tónleikum á sunnudaginn og Karl Olgeirsson mun spila á Bjarkann, hammondorgel sem safnað var fyrir árið 2018 með dyggri aðstoð góðra vina. Hammondið á sér varanlegan stað í Hörpu. Allur ágóði tónleikanna mun renna til málefna sem styðja við ungt fólk sem þarf aðstoð við að vinna sig úr áföllum. Við ræddum við Siggu Eyrúnu í þættinum í dag. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom til okkar í sitt vikulega veðurspjall í dag. Við ræddum við Elínu um til dæmis nöfn á stormum og veðurkerfum og sjaldgæf veðurskil. Við fengum svo í heimsókn Jóhannes Jökul Zimsen, ellefu ára dreng sem er að fara að syngja einsöng í Eldborgarsal Hörpu á sunnudaginn. Með honum kom Bjarni Frímann Bjarnason, kórstjóri Mótettukórsins. Jóhannes Jökull mun syngja á hebresku í Chichester sálmum Leonards Bernstein og þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann stendur á sviði Eldborgar. Tónlist í þætti dagsins: Landgangur / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal og Hallgrímur Helgason) Nothing compares to you/Sinéd O?Connor (Prince Roger Nelson) Í fylgsnum hjartans / Stefán Hilmarsson (Stefán Hilmarsson og Ástvaldur Traustason) Hamingjan / Björgvin Halldórsson (Bob Merrill & Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Minningartónleikar, veðurspjall og ellefu ára einsöngvari í Hörpu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Aug 23, 2023


Þann 24.ágúst 2023 hefði Bjarki Friðriksson orðið fimmtugur, en hann lést tæplega tvítugur skyndilega úr heilahimnubólgu árið 1993. Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, systir Bjarka, ætlar að minnast hans með tónleikum á sunnudaginn og Karl Olgeirsson mun spila á Bjarkann, hammondorgel sem safnað var fyrir árið 2018 með dyggri aðstoð góðra vina. Hammondið á sér varanlegan stað í Hörpu. Allur ágóði tónleikanna mun renna til málefna sem styðja við ungt fólk sem þarf aðstoð við að vinna sig úr áföllum. Við ræddum við Siggu Eyrúnu í þættinum í dag. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom til okkar í sitt vikulega veðurspjall í dag. Við ræddum við Elínu um til dæmis nöfn á stormum og veðurkerfum og sjaldgæf veðurskil. Við fengum svo í heimsókn Jóhannes Jökul Zimsen, ellefu ára dreng sem er að fara að syngja einsöng í Eldborgarsal Hörpu á sunnudaginn. Með honum kom Bjarni Frímann Bjarnason, kórstjóri Mótettukórsins. Jóhannes Jökull mun syngja á hebresku í Chichester sálmum Leonards Bernstein og þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann stendur á sviði Eldborgar. Tónlist í þætti dagsins: Landgangur / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal og Hallgrímur Helgason) Nothing compares to you/Sinéd O?Connor (Prince Roger Nelson) Í fylgsnum hjartans / Stefán Hilmarsson (Stefán Hilmarsson og Ástvaldur Traustason) Hamingjan / Björgvin Halldórsson (Bob Merrill & Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Bíóblaður
#228 Persónulegar myndir með Óla Bjarka

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Mar 1, 2023 124:34


Kvikmyndasérfræðingurinn Óli Bjarki Austfjörð er einn af fastagestum Bíóblaðurs en Óli hefur líklegast eytt mestum tíma í stúdíóinu fyrir utan Hafstein. Óli kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti vildi Óli ræða kvikmyndir sem snerta hann persónulega.   Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar Highlander, Toy Story, The Sixth Sense, Heat, Logan, The Princess Bride og að sjálfsögðu Unbreakable.   Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #14 - Nörda Quiz: Ari og Raggi vs. Óli og Máni

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jan 6, 2023 10:46


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Bræðurnir Ari og Raggi Ólafs keppa við vinina Óla Bjarka og Mána Frey í svakalegri nördakeppni! Strákarnir áttu von á Star Wars keppni en Hafsteinn kom þeim á óvart og bjó til nördakeppni í staðinn.   Strákarnir þurfa að svara spurningum úr Star Wars, Star Trek, Harry Potter, Marvel, DC og The Lord of the Rings. Hvort liðið veit meira um nördaefni? Svarið kemur í ljós í pökkuðum spurningaþætti!

Bíóblaður
#209 00's horror með Óla Bjarka

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Oct 19, 2022 143:11


Hryllingsmyndasérfræðingurinn Óli Bjarki Austfjörð kíkti til Hafsteins til að ræða hryllingsmyndir frá árunum 2000 - 2009. Strákarnir völdu eina mynd fyrir hvert ár og útkoman varð fjölbreytt og skemmtileg.   Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar 28 Days Later, The Others, Pan's Labyrinth, Wolf Creek, Saw, Lake Mungo, Freddy vs. Jason og margar fleiri.   Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna, Celsius Energy og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Betri helmingurinn með Ása
#64 - Bjarki Már Elísson & Unnur Ósk

Betri helmingurinn með Ása

Play Episode Listen Later Jul 13, 2022 76:22


Á dögunum fékk ég til mín í spjall handboltamanninn knáa Bjarka Má Elísson og hans betri helming Unni Ósk Steinþórsdóttur. Bjarki hefur verið atvinnumaður í handbolta frá árinu 2013 en hann hefur spilað með þremur mismunandi liðum í Þýskalandi og getið að sér einstaklega gott orð í horninu en var hann einmitt áberandi á síðasta stórmóti landsliðsins fyrir frábæra frammistöðu.Unnur er menntuð í sálfræði og fötlunarfræði og hefur tekið sér ýmislegt fyrir hendur á þeim stöðum þar sem þau hafa búið hverju sinni enda mikið flakk sem felst í því að vera í sambúð með atvinnumanni í handbolta.Í dag eru þau einmitt á fullu að undirbúa flutning með fjölskylduna til Ungverjalands þar sem Bjarki ætlar að kasta boltum á næsta tímabili.Bjarki og Unnur kyntust fyrst aðeins 16 ára gömul í fjölbrautarskóla Suðurlands og urðu snemma skotin í hvert öðru. Bjarki komandu úr Árbænum átti heima á heimavistinni en fékk hann vikulega vasapeninga á sunnudögum sem hann kláraði alla jafna á þriðjudögum, og var þá ekki slæmt að geta kíkt í kaffi til Unnar. Þau prufuðu að vera par strax á fyrsta ári en vildu samt ekki binda sig of snemma svo eftir tveggja mánaða samband fóru þau í sitthvora áttina um stund. Bjarki segist þó alltaf hafa verið skotinn í Unni og var þolinmóður sem borgaði sig sannarlega því tveimur árum seinna byrja þau saman og hafa þau verið saman allar götur síðan en margt vatn hefur runnið til sjávar. Þau hafa eins og fyrr kom fram búið lengi í þýskalandi og eru í dag gift með eitt barn.Við fórum víða í þessu skemmtilega spjalli en ræddum við meðal annars tímann þeirra í þýskalandi og flutningana til Ungverjalands, Árin í FSU, landsliðið, rómantíkina ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar hitar færðust í leikinn í fellihýsi mömmu hans Bjarka.Blush.is -     https://blush.is/Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Promennt  -  https://www.promennt.is/is

Bíóblaður
#191 Topp 10 með Bjarka Ómars

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jun 29, 2022 102:10


Bjarki Ómarsson er bardagakappi, þjálfari hjá Mjölni og grjótharður kvikmyndaáhugamaður. Bjarki kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 bíómyndir.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu spennandi Prisoners er, hvernig Bjarki myndi yfirbuga ákveðna kvikmyndapersónu, hvort John Wick gæti unnið Jason Bourne og James Bond í slag, skiptið þegar Bjarki lék áhættuleik í stórri Hollywood kvikmynd og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna, Celsius Energy og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
#181 Doctor Strange in the Multiverse of Madness með Óla Bjarka

Bíóblaður

Play Episode Listen Later May 19, 2022 72:06


Kvikmyndasérfræðingurinn Óli Bjarki Austfjörð kíkti til Hafsteins til að ræða nýjustu Marvel myndina, Doctor Strange in the Multiverse of Madness.   Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort allt púður sé farið úr MCU, hvort myndin sé betri en No Way Home, hversu spennandi þetta multiverse dæmi er, hvernig Óla fannst Morbius myndin og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna, Celsius Energy og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Vinnuskúrinn
AÞ-ÞRIF

Vinnuskúrinn

Play Episode Listen Later Apr 8, 2022 40:31


Arnar Þorsteinsson byrjaði með einn gluggaþvottakúst á sínum tíma en rekur nú öflugt þjónustufyrirtæki með Hrund eiginkonu sinni og Bjarka bróður.   Vinnuskúrinn þakkar AÞ-Þrif  fyrir gott samstarf.  Áttum Mjög gott spjall við Arnar. Gjörið svo vel. Hreingerningar | Ræstingar | Gluggaþvottur | AÞ Þrif (ath-thrif.is) Til að hafa samband við okkur: vinnuskur@gmail.com Vinnuskúrinn | Facebook og auðvitað á instagram. kveðja góð Hjálmar og Svavar

Víðsjá
Sembaltónlist, sjónvarpsgláp, konur og náttúruvernd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 4, 2022 55:00


Í dag kynnum við til leiks nýjan pistlahöfund hér í Víðsjá. Dalrún Kaldakvísl Eygerðardóttir sagnfræðingur hefur einbeitt sér að því að horfa til baka frá sjónarhorni femínisma og skoðað meðal annars sögu kvenna sem voru á jaðri gamla bændasamfélagsins, förukonur og einsetukonur. Einnig hefur hún skrifað um kynferðisofbeldi gegn vinnukonum og um skyggnar konur sem stunduðu miðilsstörf á uppgangstíma andatrúar á Íslandi. Hér í Víðsjá á næstu vikum mun Dalrún fjalla um viðhorf íslenskra kvenna fyrr á öldum til íslenskrar náttúru. Í pistli dagsins fjallar hún um framlag tveggja fyrri alda kvenna til náttúruverndar á Íslandi og beinir sjónum að aðgerðarsinnunum Sigríði frá Brattholti og Þorbjörgu Sveinsdóttur, sem lögðu mikið í sölurnar til að vernda straumvötn og lífríki þeirra. Halldór Bjarki Arnarson spilar jöfnum höndum á sembal, orgel, píanó og horn en er þar að auki liðtækur á ýmis konar íslensk þjóðlagahljóðfæri sem liðsmaður í fjölskylduhljómsveitinni Spilmenn Ríkínís. Hann hefur einnig fengist við tónsmíðar - samið raftónlist og hljóðfæratónlist, en í dag stundar Halldór Bjarki framhaldsnám í semballeik í Sviss. Á morgun heldur hann hádegistónleika í Slanum í Kópavogi þar sem hann hyggst kanna þær andstæður sem einkenna sembaltónlist barrokktímans. VIð lítum í heimsókn til Halldórs Bjarka hér á eftir. Og við hefjum þáttinn á nýárshugleiðingum eftir sófagláp hátíðanna. Við sögu kemur sjónvarpsserían Verbúð og ameríska Netflix myndin Dont look up.

Víðsjá
Sembaltónlist, sjónvarpsgláp, konur og náttúruvernd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 4, 2022


Í dag kynnum við til leiks nýjan pistlahöfund hér í Víðsjá. Dalrún Kaldakvísl Eygerðardóttir sagnfræðingur hefur einbeitt sér að því að horfa til baka frá sjónarhorni femenisma og skoðað meðal annars sögu kvenna sem voru á jaðri gamla bændasamfélagsins, förukonur og einsetukonur. Einnig hefur hún skrifað um kynferðisofbeldi gegn vinnukonum og um skyggnar konur sem stunduðu miðilsstörf á uppgangstíma andatrúar á Íslandi. Hér í Víðsjá á næstu vikum mun Dalrún fjalla um viðhorf íslenskra kvenna fyrr á öldum til íslenskrar náttúru. Í pistli dagsins fjallar hún um framlag tveggja fyrri alda kvenna til náttúruverndar á Íslandi og beinir sjónum að aðgerðarsinnunum Sigríði frá Brattholti og Þorbjörgu Sveinsdóttur, sem lögðu mikið í sölurnar til að vernda straumvötn og lífríki þeirra. Halldór Bjarki Arnarson spilar jöfnum höndum á sembal, orgel, píanó og horn en er þar að auki liðtækur á ýmis konar íslensk þjóðlagahljóðfæri sem liðsmaður í fjölskylduhljómsveitinni Spilmenn Ríkínís. Hann hefur einnig fengist við tónsmíðar - samið raftónlist og hljóðfæratónlist, en í dag stundar Halldór Bjarki framhaldsnám í semballeik í Sviss. Á morgun heldur hann hádegistónleika í Slanum í Kópavogi þar sem hann hyggst kanna þær andstæður sem einkenna sembaltónlist barrokktímans. VIð lítum í heimsókn til Halldórs Bjarka hér á eftir. En þáttinn í dag byrjum við á vangaveltum um liðið ár og það sem koma skal, út frá sófaglápi um hátíðarnar.

Bíóblaður
#118 80's horror með Óla Bjarka

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Sep 29, 2021 166:19


Kvikmyndagerðarmaðurinn Óli Bjarki Austfjörð kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir 80's hryllingsmyndir.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu ógeðsleg Hellraiser er, muninn á 80's hryllingsmyndum og 90's hryllingsmyndum, hversu misvel John Carpenter myndir eldast, Cronenberg og The Fly, Sam Neill og hans hryllingsmyndir, Lovecraftian horror og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Doritos frá Ölgerðinni, Subway og Sambíóanna.

Bíóblaður
#88 Rocky með Óla Bjarka

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jun 9, 2021 132:40


Kvikmyndagerðarmaðurinn Óli Bjarki kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir Rocky seríuna.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu vanmetinn Sylvester Stallone er sem handritshöfundur og leikstjóri, hvernig Rocky er einn besti karakter kvikmyndasögunnar, hversu mikill brjálæðingur Mickey er, hver er uppáhalds Rocky myndin hans Óla og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.

movies sylvester stallone doritos bjarki kvikmyndir bjarka kvikmyndager hladvarp
Endalínan
85.Þáttur - Back to back baby !

Endalínan

Play Episode Listen Later May 4, 2021 116:04


Það vantar ekki umræðuefni þegar horft er til Dominos deildarinnnar kæru hlustendur enda má segja að það sé allt á suðupunkti í þessari æsispennandi deildarkeppni sem er nú á lokametrunum. Við vorum manni færri í dag í fjarveru Gunna Stef vantaði allan strúktúr og varð þessi þáttur því kannski smá langloka en það er bara svo skemmtilegt að tala um þessa rosalegu deild. Njarðvíkurljónin bíta frá sér , Mikilvægi Innbyrðis viðureigna, Veðmálasvindl , Flutukörfuóðir Grindjánar unnu gegn KR-ingum sem geta ekki unnið leik, TjúTjú á Króknum án Hössa , Númeri of litlir Hattarmenn , Liðsboltinn í Höfninni , Zvonko í strikernum þegar ÍR ingar unnu lánlausa Stjörnumenn og Valsseiglan vann gott körfuboltalið Hauka. Allir leikirnir , öll stóru momentin og viðtal við Bjarka Ármann þjálfara Þórsara frá Akureyri þar sem við spyrjum hann útí skiptinguna fyrir lokakörfu leiksins gegn Njarðvík og meint Veðmálasvindl leikmanns Þórsara. Allt þetta og svo miklu meira í langloku þætti á Endalínunni í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani beint úr WhiteFoxStofunni.

Endalínan
76. Þáttur - Everybody Love Everybody

Endalínan

Play Episode Listen Later Mar 23, 2021 89:00


Þá er 16.umferðin á enda kæru hlustendur og Endalínan er mætt fullmönnuð og fer yfir öll stóru atriðin. Þór Ak. er spútnik liðið , ELE áhrifin frá Bjarka , Neðstu liðin ná ekki að klára leiki , Keflavík í ham og slökktu allt gos í Grindavík. Er Stjarnan ennþá contender ? Eru Haukar fallnir ? Er Milka uppáhalds leikmaðurinn hans Jarvelainen ? Er Tomsick að verða skynsamur ? .... Allt þetta og auðvitað allt hitt líka að sjálfsögðu á Endalínunni en núna eru einungis 6 umferðir eftir af deildarkeppninni og einungis rétt rúmar 3 vikur í að við vitum hvaða lið fara áfram í úrslitakeppni og hvaða lið sitja eftir með sárt ennið. Beint úr WhiteFoxStofunni að vanda í boði Kalda Bruggsmiðju - Cintamani og WhiteFox. #Endalinan #Kaldi #Cintamani #WhiteFox #PodcastStodin

Lestin
Hálfur Álfur, Altin Gun og tíbetskar búddanunnur

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 18, 2021 50:00


Heimildarmyndin Hálfur Álfur segir sögu manns sem undirbýr hundrað ára afmælið sitt en einnig eigin jarðarför. Í myndinni má merkja mikla nánd milli kvikmyndagerðarmannsins, Jóns Bjarka Magnússonar og viðfangsins, Trausta Breiðfjörð Magnússonar - en Trausti var afi Jóns Bjarka. Þar er nándinni þó ekki lokið, því eftir hverjar tökur kom Jón Bjarki heim til sambýliskonu sinnar, Hlínar Ólafsdóttur, og krufði daginn ? enda er hún meðframleiðandi myndarinnar og þess utan, tónskáld: spilar á gamlar og móðar harmonikkur sem kallast á við 100 ára þanin lungu Trausta. Við heimsækjum ljósmyndagalleríið Ramskram við Njálsgötu en þar opnar um helgina ljósmyndasýningin Rökræður. Jóna Þorvaldsdóttir, ljósmyndari, var viðstödd árlegan rökræðufund tíbetskra búddanunna í Indlandi árið 2012 og skrásetti á svarthvítar filmuljósmyndir. Og Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í nýjustu plötu tyrknesk-hollensku þjóðalagasíkadelíupartýsveitarinnar Altin Gun.

Lestin
Hálfur Álfur, Altin Gun og tíbetskar búddanunnur

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 18, 2021


Heimildarmyndin Hálfur Álfur segir sögu manns sem undirbýr hundrað ára afmælið sitt en einnig eigin jarðarför. Í myndinni má merkja mikla nánd milli kvikmyndagerðarmannsins, Jóns Bjarka Magnússonar og viðfangsins, Trausta Breiðfjörð Magnússonar - en Trausti var afi Jóns Bjarka. Þar er nándinni þó ekki lokið, því eftir hverjar tökur kom Jón Bjarki heim til sambýliskonu sinnar, Hlínar Ólafsdóttur, og krufði daginn ? enda er hún meðframleiðandi myndarinnar og þess utan, tónskáld: spilar á gamlar og móðar harmonikkur sem kallast á við 100 ára þanin lungu Trausta. Við heimsækjum ljósmyndagalleríið Ramskram við Njálsgötu en þar opnar um helgina ljósmyndasýningin Rökræður. Jóna Þorvaldsdóttir, ljósmyndari, var viðstödd árlegan rökræðufund tíbetskra búddanunna í Indlandi árið 2012 og skrásetti á svarthvítar filmuljósmyndir. Og Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í nýjustu plötu tyrknesk-hollensku þjóðalagasíkadelíupartýsveitarinnar Altin Gun.

Bíóblaður
#38 Unbreakable með Óla Bjarka

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Nov 27, 2020 104:32


Kvikmyndaneminn og kvikmyndaáhugamaðurinn, Óli Bjarki Austfjörð, var að leggja lokahönd á stuttmyndina sína, Verndarinn, og Hafsteini fannst því upplagt að fá hann til sín og spjalla aðeins við hann. Strákarnir ræða meðal annars hvernig Verndarinn er ástarbréf til Unbreakable, hvernig leikstjórinn M. Night Shyamalan hefur breyst í gegnum árin, hryllingsmyndaáhugann hjá Óla og margt, margt fleira.

Lestin
Upplýsingaóreiða, Skopmynda-Kalli, Bjarki á BBC, Ballet

Lestin

Play Episode Listen Later May 12, 2020 55:00


Við kynnum okkur ævintýralegt lífshlaup vestur-íslenska skopmyndateiknarans Karls Gústafs Stefánsson, eða Cartoon Charlie. Hann er sagður hafa skapað nokkrar af þekktustu teiknimyndapersónum 20. aldarinnar, meðal annars Kalla kanínu og Mjallhvíti eins og hún birtist í kvikmynd Disney. Ævi Karls er innblásturinn að nýrri kvikmynd sem nú er í vinnslu. Við ræðum við Björn Þorfinnsson, blaðamann, um Teiknimynda-Kalla. Við hringjum í Helga Tómasson, stjórnanda San Francisco balletsins sem hafði nýlokið við að frumsýna Draum á Jónsmessunótt þegar samkomubann skall á í borginni. Frumsýningin varð því jafnframt sú síðasta. Dansarar Helga eru fastir heima en hafa þó fundið ýmsar leiðir til að halda áfram að deila dansinum með umheiminum. Við fall Sovétríkjanna voru vestrænir blaðamenn sendir til fyrrum sovétríkjanna til kenna kollegum sínum að umgangast sannleikann. Halldór Armand Ásgeirsson telur að skynsamlegra hefði verið að snúa dæminu við. Teknótónlistarmaðurinn Bjarki varð á dögunum fyrsti Íslendingurinn til að spila í einum virtasta danstónlistarþætti heims, Essential Mix á BBC1. Við kynnum okkur grundvallarmix Bjarka.

Lestin
Upplýsingaóreiða, Skopmynda-Kalli, Bjarki á BBC, Ballet

Lestin

Play Episode Listen Later May 12, 2020


Við kynnum okkur ævintýralegt lífshlaup vestur-íslenska skopmyndateiknarans Karls Gústafs Stefánsson, eða Cartoon Charlie. Hann er sagður hafa skapað nokkrar af þekktustu teiknimyndapersónum 20. aldarinnar, meðal annars Kalla kanínu og Mjallhvíti eins og hún birtist í kvikmynd Disney. Ævi Karls er innblásturinn að nýrri kvikmynd sem nú er í vinnslu. Við ræðum við Björn Þorfinnsson, blaðamann, um Teiknimynda-Kalla. Við hringjum í Helga Tómasson, stjórnanda San Francisco balletsins sem hafði nýlokið við að frumsýna Draum á Jónsmessunótt þegar samkomubann skall á í borginni. Frumsýningin varð því jafnframt sú síðasta. Dansarar Helga eru fastir heima en hafa þó fundið ýmsar leiðir til að halda áfram að deila dansinum með umheiminum. Við fall Sovétríkjanna voru vestrænir blaðamenn sendir til fyrrum sovétríkjanna til kenna kollegum sínum að umgangast sannleikann. Halldór Armand Ásgeirsson telur að skynsamlegra hefði verið að snúa dæminu við. Teknótónlistarmaðurinn Bjarki varð á dögunum fyrsti Íslendingurinn til að spila í einum virtasta danstónlistarþætti heims, Essential Mix á BBC1. Við kynnum okkur grundvallarmix Bjarka.

Lestin
Upplýsingaóreiða, Skopmynda-Kalli, Bjarki á BBC, Ballet

Lestin

Play Episode Listen Later May 12, 2020


Við kynnum okkur ævintýralegt lífshlaup vestur-íslenska skopmyndateiknarans Karls Gústafs Stefánsson, eða Cartoon Charlie. Hann er sagður hafa skapað nokkrar af þekktustu teiknimyndapersónum 20. aldarinnar, meðal annars Kalla kanínu og Mjallhvíti eins og hún birtist í kvikmynd Disney. Ævi Karls er innblásturinn að nýrri kvikmynd sem nú er í vinnslu. Við ræðum við Björn Þorfinnsson, blaðamann, um Teiknimynda-Kalla. Við hringjum í Helga Tómasson, stjórnanda San Francisco balletsins sem hafði nýlokið við að frumsýna Draum á Jónsmessunótt þegar samkomubann skall á í borginni. Frumsýningin varð því jafnframt sú síðasta. Dansarar Helga eru fastir heima en hafa þó fundið ýmsar leiðir til að halda áfram að deila dansinum með umheiminum. Við fall Sovétríkjanna voru vestrænir blaðamenn sendir til fyrrum sovétríkjanna til kenna kollegum sínum að umgangast sannleikann. Halldór Armand Ásgeirsson telur að skynsamlegra hefði verið að snúa dæminu við. Teknótónlistarmaðurinn Bjarki varð á dögunum fyrsti Íslendingurinn til að spila í einum virtasta danstónlistarþætti heims, Essential Mix á BBC1. Við kynnum okkur grundvallarmix Bjarka.

Tappvarpið
Tappvarpið 93. þáttur: UFC 249 upphitun með Bjarka Ómars

Tappvarpið

Play Episode Listen Later May 5, 2020 72:46


UFC 249 fer fram um helgina og fengum við Bjarka Ómars í Tappvarpið til að rýna í bardaga helgarinnar.

FM957
Keyrslan - Bjarki Már um lífið í Katar og þjálfarastarfið.

FM957

Play Episode Listen Later Apr 17, 2020 7:19


Bjarki Már starfar við hlið Heimis Hallgrímssonar hjá knattspyrnuliðinu Al-Arabi í Katar. Egill Ploder spjallar við Bjarka um lífið í Katar, gengi Al-Arabi á tímabilinu og framtíðina í þjálfunarstarfinu.

Ljónavarpið - Leiknir Reykjavík stuðningsmannahlaðvarp
Fimmtándi þáttur - Lokahóf 1. hluti

Ljónavarpið - Leiknir Reykjavík stuðningsmannahlaðvarp

Play Episode Listen Later Oct 1, 2019 61:14


Ljónin 4 hittust í Leiknishúsi og skeggræddu Lokahóf Leiknis, alla leikmenn og völdu bestu allt í sumar. Í þessum 1. hluta ræddu þeir varnarsinnuðu leikmennina: Eyjó, Stjána, Hjalta, Edda, Nacho, Bjarka, Osvald og Gyrði.

nacho lj stj edda eyj gyr osvald hjalta fimmt bjarka
Háskólaboltinn
#1 Upphafið

Háskólaboltinn

Play Episode Listen Later Jul 3, 2019 19:34


Farið er yfir fyrstu kynni Bjarka, Brynjars og Jónu af háskólaboltanum, ástæðuna fyrir því að Soccer and Education USA var stofnað, af hverju krakkar eigi að skoða þennnan möguleika og margt fleira.

Morgunvaktin
Óvissa einkennir horfur í efnhagsmálum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 27, 2019 130:00


Þátturinn hófst á spjalli við Frey Eyjólfsson sem að þessu sinni var staddur í Panama. Hann sagði frá forsetakosningum sem fram fara í landinu í maí en síðustu tveir forsetar hafa blandað eigin viðskiptum og vafstri saman við opinberan rekstur. Mikil spilling hefur einkennt þjóðlífið í Panama en stjórnvöld leggja allt kapp á að kosningarnar fari vel fram. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur greiningar Íslandsbanka, fór yfir stöðu og horfur í efnahagsmálum. Hann segir mikla óvissu ríkja, einkum vegna yfirstandandi kjaraviðræðna. Að mati Jóns Bjarka hefur of mikið verið gert úr líklegum áhrifum hugsanlegs þrots Wow air á efnahagskerfið, þegar hafi verið tekið tillit til nokkurs samdráttar í umsvifum félagsins í hagspám. Vera Illugadóttir sagði frá Zusönu Caputovu sem allt bendir til að verði kjörin forseti Slóvakíu í síðari umferð forsetakosninganna í landinu á laugardag. Hún hefur ekki reynslu af pólitík en hefur barist gegn spillingu með ýmsum hætti og nýtur hylli meðal samlandanna. Ferðamenn sem koma til Íslands með skemmtiferðaskipum eyða að jafnaði um 18 þúsund krónum í hverri höfn. Ný skýrsla um efnahagsleg áhrif skemmtiferðaskipa sýnir þetta. Á síðasta ári voru bein áhrif 9 milljarðar króna og óbeinn ávinningur um 16 milljarðar. Ágúst Ólafsson, fréttamaður á Akureyri ræddi þessi mál við Pétur Ólafsson, hafnarstjóra á Akureyri og formann Cruise Iceland, sem eru samtök hafna og sveitarfélaga sem taka á móti skemmtiferðaskipum. Tónlist: Alltid inom mig - Josefin Nilsson og Totta Naslund Basin street blues - Duke Ellington og Johnny Hodges

Lestin
Stríðsminningar, kaldhæðni og vinsælasti tölvuleikur heims

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 6, 2018 57:00


Stríðsminningar, vinsælasti tölvuleikur heims og kaldhæðni sem lífstíll. Þannig hljómar leiðarlýsing lestarinnar í dag. Hinn litríki og líflegi fjölspilunar-skotleikur Fortnite: Battle Royal er einn allra vinsælasti tölvuleikur heims um þessar mundir. Hann virðist höfða sérstaklega til barna og ungmenna, og ólíkt flestum slíkum leikjum er hann ekki síður vinsæll hjá stelpum en strákum. Við ræðum við Bjarka Þór Jónsson, ritstjóra tölvuleikjavefsins Nörd norðursins, um gríðarlegar vinsældir Fortnite. Katrín Ólafsdóttir Mixa bjó í Austrurríki á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar. Árið 1947 gaf hún út endurminningar sínar í bók sem nefnist Liðnir dagar. Bókin er eins konar dagbók sem Katrín hélt úti á meðan stríðinu stóð. Þar lýsir hún hversdagslegu lífi á tímum síendurtekinna loftárása, óvissu og óöryggis, glundroða, flótta og tvístrunar fjölskyldu og vina. Sonur hennar, Ólafur Mixa, gegnir veigamiklu hlutverki í bókinni. Við heimsækjum Ólaf í þætti dagsins og fræðumst nánar um Liðna daga. Og við rifjum upp pistil Karls Ólafs Hallbjörnssonar, þar sem hann velti fyrir sér kaldhæðni, hreinskilni og fjarlægð.

fortnite li str hann vins karls katr hinn heims mixa fortnite battle royal hallbj bjarka
Tappvarpið
Tappvarpið 38. þáttur: Alvöru upphitun fyrir bardaga Sunnu og Gunnars með Bjarka Þór og Bjarka Ómars

Tappvarpið

Play Episode Listen Later Jul 10, 2017 48:57


Bardagamennirnir Bjarki Þór Pálsson og Bjarki Ómarsson mættu í Tappvarpið og fórum við ítarlega yfir bardaga Gunnars Nelson gegn Santiago Ponzinibbio og yfir bardaga Sunnu Rannveigar Davíðsdóttur gegn Kelly D'Angelo.

mars fyrir gunnars santiago ponzinibbio bjarki upphitun sunnu bjarka kelly d'angelo gunnars nelson
Tappvarpið
Tappvarpið 33: Gunnar Nelson-Santiago Ponzinibbio umræða og UFC 211

Tappvarpið

Play Episode Listen Later May 12, 2017 40:38


Gunnar Nelson mætir Santiago Ponzinibbio í aðalbardaganum á UFC bardagakvöldinu í Skotlandi þann 16. júlí. Við ræddum aðeins bardagann með Bjarka Ómarssyni og þá fórum við aðeins yfir UFC 211.

Tappvarpið
Tappvarpið 32. þáttur: Anderson Silva, Bjarki Þór og alls konar leikir

Tappvarpið

Play Episode Listen Later May 3, 2017 43:23


Í 32. þætti Tappvarpsins fórum við yfir víðan völl. Við ræddum um bardaga Bjarka Þór, pirring Anderson Silva, Professional Fighters League og ræddum um það besta og versta við MMA.

Tappvarpið
Tappvarpið 30. þáttur: Upphitun fyrir Gunnar vs. Jouban og UFC 209 með Bjarka Ómars

Tappvarpið

Play Episode Listen Later Mar 8, 2017 63:26


Það styttist í bardaga Gunnars Nelson og Alan Jouban og fórum við vel yfir bardagann með Bjarka Ómarssyni. Þá fórum við einnig yfir UFC 209 sem fram fór um síðustu helgi.

Tappvarpið
Tappvarpið 2. þáttur: UFC 189 umræða með Bjarka Ómars og Ásgeiri Berki

Tappvarpið

Play Episode Listen Later Jun 28, 2015 50:11


Þeir Bjarki Ómarsson og Ásgeir Börkur Ásgeirsson voru gestir í öðrum þætti í Podcasti MMA Frétta. Umræðan snérist aðallega um UFC 189 og nýjan andstæðing Gunnars Nelson, Brandon Thatch.

mars ufc umr bjarki ufc189 bjarka gunnars nelson