POPULARITY
Ný skoðanakönnun Maskínu í gær um fylgi flokkanna hefur vakið mikla athygli. Fimmtán prósent sögðust myndu kjósa Miðflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú en fjórtán prósent Sjálfstæðisflokkinn - sem verða að teljast töluverð tíðindi í íslenskum stjórnmálum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður MIðflokksins býst við átökum í vettvangi stjórnmálanna í vetur. Fallandi gengi Sjálfstæðisflokksins vekur athygli en Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir að mönnum hafi lærst að skoðanakannanir sem gerðar eru á miðju kjörtímabili hafa takmarkað forspárgildi um kosningar. TIlkynningum um að börn beiti ofbeldi hefur fjölgað mjög og kerfið sem á að taka við þeim er löngu sprungið segir Ólöf Ásta Farestveit forstjóri Barna- og fjölskyldustofu. Ofbeldið hefur aukist og er grófara en áður.
Umsjón: Siggi Gunnars & Lovísa Rut Siggi Gunnars og Lovísa Rut stjórnuðu Popplandi dagsins. Arnar Eggert og Andrea Jónsdóttir gerðu upp plötu vikunnar Ást & Praktík með Hipsumhaps. Einar Stef og Margrét Rán úr Vök kíktu í heimsókn en sveitin fagnar 10 ára starfsafmæli í ár. Fimmtíu ára gamallar plötu Lou Reed minnst og margt fleira. Stuðmenn - Franskar (sósog salat?). PÁLMI GUNNARSSON - Ég skal breyta heiminum. TALK TALK - Life's What You Make It (80). Caldwell, Bobby - What You Won't Do For Love. Drugdealer, Bollinger, Kate - Pictures of You. HÁKON - Barcelona. LORDE - Royals. Malen - Right?. NÁTTSÓL - My boyfriend is gay. UNNSTEINN - Andandi. Bombay Bicycle Club - Diving (ft. Holly Humberstone). Hipsumhaps - SMS. Hipsumhaps - Hugmyndin um þig. Hipsumhaps - 1, 31. Hipsumhaps - Ástið. Hipsumhaps - Ást & praktík. Hipsumhaps - Þrjú orð. Hipsumhaps - Skattemus. Hipsumhaps - Annan heim. Hipsumhaps - Hjarta. MUGISON - Kletturinn. TEARS FOR FEARS - Everybody Wants To Rule The World. PATRi!K & LUIGI - Skína. Daði Freyr Pétursson - Limit To Love. SYKUR - Reykjavík. Tatjana, Joey Christ - Gufunes. MILKY CHANCE - Stolen Dance. THE KILLERS - Mr.Brightside. Reed, Lou - Oh Jim. Reed, Lou - Lady Day. Reed, Lou - How do you think it feels. SUGAR RAY - Every Morning. HREIMUR - Þar sem himinn ber við haf. Spacestation - Hver í fokkanum?. Kenya Grace - Strangers. JOY DIVISION - Love Will Tear Us Apart. VÖK - Ég Bíð Þín. THE BAMBOOS - Ex-Files. POST MALONE - Something Real. KUSK & ÓVITI - Elsku Vinur. ÓLAFUR BJARKI - Malbik Endar. RAYE - Worth It.

Samskip krefjast bóta frá Eimskipi fyrir að hafa borið á félagið rangar sakargiftir í tengslum við sátt sem Eimskip gerði við Samkeppniseftirlitið. Ráðist var á ráðstefnugest sem bar hinsegin tákn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld. Lögregla rannsakar hvort árásin hafi verið hatursglæpur. Fimmtíu þúsund hafa flúið Nagorno-Karabakh í vikunni. Hafrannsóknastofnun ætlar að endurskoða áhættumat erfðablöndunar laxa. Í ágúst sluppu um 3500 laxar úr einni kví Arctic Fish í Patreksfirði. Storytel hyggst nota gervigreind við þýðingar á erlendum bókum - yfir á íslensku. Dómsmálaráðherra New York ríkis krefst þess að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna greiði 250 milljónir dollara í skaðabætur fyrir að hafa ofmetið eignir sínar umtalsvert. Þetta á hann að hafa gert til að blekkja banka og tryggingafélög til að fá lán á hagstæðum kjörum. Það er mörgum fullorðnum lokuð bók hvað ungmenni aðhafast á samfélagsmiðlum. Þórður Kristinsson doktorsnemi og framhaldsskólakennari hefur fengið að skoða efni sem unglingar á grunnskólaaldri sjá á TikTok. Hann segir að þau hagi sér með mjög kynjuðum hætti á samfélagsmiðlum. Hann segir að það sé komið nýtt félagslegt handrit - að það megi gráta og segja frá erfiðum upplifunum en það þurfi að fylgja ákveðnu skapalóni til að það sé félagslega samþykkt. Loftslagsþolið Ísland er yfirskriftin á skýrslu sem unnin var fyrir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og birt var í gær. Skýrslan inniheldur tillögur stýrihóps á vegum ráðuneytisins fyrir gerð landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum. Rætt er við Önnu Huldu Ólafsdóttur, sem á sæti í stýrihópnum og er yfir skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands. Umsjónarmaður var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon. Margrét Júlía Ingimarsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

Við fjölluðum um hafið í dag. Nýverið voru sagðar fréttir af óvenju háu hitastigi sjávar; Höfin hafa að meðaltali aldrei verið jafn heit og í nýliðnum ágústmánuði. Sólveig Rósa Ólafsdóttir, hafefnafræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, er nýkomin úr leiðangri á Bjarna Sæmundssyni; hitastig sjávar og selta voru könnuð; Sólveig kom til okkar og sagði okkur frá ástandi sjávar við Íslandsstrendur og við ræddum einnig almennt um þessa hlýnun sem sumsé nær ekki bara til loftsins heldur líka hafsins. Í næsta mánuði fara fram kosningar í Póllandi, þar sem kosið verður um öll þingsæti bæði í efri og neðri deild pólska þingsins. Kosningarnar gætu orðið sögulegar, og samhliða þeim á að ráðast í umdeilda þjóðaratkvæðagreiðslu. Björn Malmquist fréttamaður er kominn til Varsjár, hann sagði okkur frá stóru málunum og harðri kosningabaráttu. Og svo er það Zetan. Fimmtíu ár eru í dag síðan hún var felld út úr ritmálinu. Þetta var heilmikið mál á sínum tíma; um það voru fluttar innblásnar ræður á Alþingi og fræðimenn viðruðu skoðanir sínar á síðum dagblaðanna. Það gerði fólkið í landinu líka. Alda Möller þekkir vel sögu Zetunnar. Hún er nýbúin að slá inn síðasta punktinn í meistararitgerð um bókstafinn. Z ævisaga, nefnist hún. Alda kom í þáttinn. Umsjónarmenn: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir Tónlist: Bítlavinafélagið - Rúllukragapeysan mín. Fitzgerald, Ella - Blue moon. Edda Magnason - Monicas vals. Edda Magnason - Du.

Helgi og Keli tækla Lengjudeildina.
Vaxandi spenna er í Kosovo milli þjóðanna tveggja sem þar búa, Kosovo-Albana og Serba. Komið hefur ítrekað til átaka milli serbneskra mótmælenda og erlendra friðargæsluliða NATO. Hvað veldur, og hverjar eru horfurnar fyrir Kosovo? Urður Gunnarsdóttir starfaði fyrir Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu í Kosovo og var gestur Morgunvaktarinnar. Ásta Jenný Sigurðardóttir, sérfræðingur í vísitölum hjá Hagstofu Íslands, fór yfir grundvallaratriðin um verðbólgu. Fimmtíu ungir söngvarar koma fram á tónleikum um helgina, á alþjóðlegri hátíð drengjakóra. Þar syngja saman Drengjakór Reykjavíkur og einn virtasti drengjakór Evrópu, Sofa Boys' Choir frá Búlgaríu. Þorsteinn Freyr Sigurðsson stjórnandi Drengjakórs Reykjavíkur og Anna Hugadóttir, formaður foreldrafélags kórsins, ræddu um drengjakóra vítt og breitt. Tónlist: Borðsálmur - Savanna tríóið The song from Moulin Rouge - Percy Faith?s Orchestra & Felicia Sanders Strangers in the Night - Mantovani Our Father - Sofia Boys' Choir A Spaceman Came Travelling - Olga Vocal Ensemble & Drengjakór Reykjavíkur Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Fimmtán hundruð félagsmenn í BSRB eru í verkfalli og þeim fjölgar um helgina ef ekki semst. Um það tölum við við formann BSRB, Sonju Ýr Þorbergsdóttur, og líka verðbólguna og vextina, eftir að tilkynnt var að stýrivextir yrðu hækkaðir um 1,25%. Víða er byggt; ýmist á lóðum og reitum í grónum hverfum eða á nýju byggingalandi. Við vitum oft ekki fyrr en allt er í einu er kominn grafa, svo krani svo hús. Skipulagsstofnun hefur gert gangskör í allri miðlun upplýsinga um breytingu á skipulagi og framkvæmdir. Við forvitnuðumst um hvernig við getum forvitnast um ? og fylgst með - breytingum í borgum, bæjum og sveitum. Skipulagsgáttin hefur verið opnuð og þar er hægt að sjá og fylgjast með öllu skipulagi og ýmsu fleiru. Ólafur Árnason forstjóri Skipulagsstofnunar kom til okkar. Og svo er það tónlistin, upplýst var í gær hvaða listamenn eru tilnefndir til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs. Af Íslands hálfu eru það Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari og hljómsveitin Sigur Rós. Tónlist: Modugno, Domenico - Nel blu dipinto di blu = Volare. Blátt oní blátt - Óðinn Valdimarsson Elfa Rún Kristinsdóttir - Fantasia in F minor. Sigur Rós - Hoppípolla [Hopp í polla]. Jóhanna Vigdís Arnardóttir - Ég ætla að mála allan heiminn elsku mamma.

Katrín Elvarsdóttir ljósmyndari sýnir nýjar ljósmyndir sínar í Berg Contemporary galleríi við klapparstíg sem heitir Fimmtíu plöntur fyrir frið. Þar ljósmyndar Katrín gróður, bæði bananaplöntur og forláta kirsuberjatré sem eru friðartákn frá félögum sem tengjast Japan og voru gróðursett í Hljómskálagarðinum árið 2011. Við heimsækjum galleríið og ræðum við Katrínu í þættinum. Í Hörpu er um þessar mundir að finna sýningu á verkum sem tengja saman myndlist, tónlist og eðlisfræði. Um er að ræða prentaðar myndir eftir tónlistarmanninn Baldvin Hlynsson, en í þeim fangar hann útlit tónbilanna tólf í myndrænu formi. Hverri mynd fylgir svo texti um viðkomandi tónbil í sögulegu samhengi og fjallað er um þá tilfinningu sem tónbilið hefur þótt vekja í aldanna rás. Við ræðum við Baldvin í þætti dagsins. Einnig fáum við pistil frá Teiti Magnússyni sem hefur undanfarið fjallað um glataða snillinga hér í Víðsjá. Að þessu sinni segir Teitur okkur frá fjöllistakonunni Normu Tanega. Tanega fæddist árið 1939 í Kalíforníu, móðir hennar var frá Panama og faðir hennar hljómsveitarstjóri af filipseyskum ættum. Tanega átti viðburðaríka ævi, ferill hennar var rússibanareið með viðkomu í New York og Evrópu, á toppum vinsældalista og í fangi ástkonu sinnar, Dusty Springfield.

Spegillinn 13.04. 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórnandi fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Slökkviliðið telur brýnt að fá auknar heimildir til að skoða íbúðarhúsnæði í útleigu. Dæmi eru um að leigjendur veigri sér við því að kvarta vegna ónógra brunavarna af ótta við að missa húsnæðið. Tveir starfshópar innviðaráðuneytisins hafa unnið að útfærslu á tillögum um úrbætur í þessum efnum síðan í apríl 2022. Valgerður Rúnarsdóttir, forstjóri Vogs og framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, segir að á hverjum degi innritist tveir einstaklingar til meðferðar vegna ópíóíðafíknar og að fólkið sem ánetjist slíkum lyfjum sé yngra nú en áður hafi þekkst. Íslenskur læknir hefur verið sviptur réttindum til að ávísa ópíóíðalyfjum eftir að hann varð uppvís að því að ávísa morfíni og oxýkódini í kílóavís til eins sjúklings. Fimmtán starfsmönnum rússneska sendiráðsins í Ósló verður vísað úr landi fyrir njósnir á næstunni. Umfjöllun norrænu ríkisfréttamiðlanna um njósnir Rússa á Norðurlöndum hefst í næstu viku. Flestar kóngulær eru einfarar - en þó ekki allar. Fundist hafa tegundir sem teljast til svokallaðra félagskóngulóa - og lifa margar saman í sátt og samlyndi. Óvenjuvænn þorskur hefur ratað í net færeyskra sjómanna undanfarið, eftir nokkur mögur ár. Dæmi eru um að allt að 23 kílógramma þorskar hafi veiðst. ---------- Nýverið birti Umhverfisstofnun skýrslu um mat sérfræðinga sinna á ástandi 146 áfangastaða ferðafólks innan friðlýstra svæða, þar á meðal í Vatnajökulsþjóðgarði og Þjóðgarðinum á Þingvöllum. Hver staður fær heildareinkunn á bilinu 0 - 10 út frá niðurstöðum mats á fjölmörgum þáttum, og sú einkunn segir til um hvort og þá hve mikil hætta sé á að staðurinn missi verndargildi sitt. Kristín Ósk Jónasdóttir fer fyrir teymi náttúruverndar hjá Umhverfisstofnun. Hún segir niðurstöðurnar bara giska jákvæðar. Náttúruvá eykst hér á landi og við því þarf að bregðast. Skortur á sérhæfðu starfsfólki verður mikil áskorun fyrir ríkisstofnanir sem sinna eftirliti og rannsóknum. Viðbótarkostnaður vegna náttúruvár nemur 8,1 milljarði frá árinu 2008.Þetta kemur fram í skýrslu sem kynnt var 13.04., þar sem fjallað er um náttúruvá frá ýmsum sjónarhornum. Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir margt skýra aukna náttúruvá. Íbúum í Sapporo og fleiri borgum á Hokkaídó-eyju í Japan brá mörgum hverjum í brún þegar loftvarnaflautur voru þeyttar laust fyrir klukkan hálf átta að morgni fimmtudags. Þegar flauturnar þögnuðu heyrðist rödd sem skipaði fólki að leita skjóls. Ástæðan

Flugfélagið Niceair hefur gert hlé á starfsemi sinni og aflýst flugi frá og með morgundeginum. Framkvæmdastjóri félagsins segir framhaldið óvíst en það sé ekki gjaldþrota. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við Þorvald Lúðvík Sigurjónsson. Fimmtán hundruð manns frá fjörutíu og þremur löndum hafa sótt um alþjóðlega vernd hér á landi frá áramótum. Fleiri komu frá Venesúela en Úkraínu. Alma Ómarsdóttir tók saman Verjendur í hoppukastalamálinu svokallaða fóru í dag fram á að nánara mat yrði gert á sönnunargögnum málsins áður en aðalmeðferð þess hefst. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman. Þrjú þúsund Íslendingar hafa flogið suður á bóginn og ætla að verja páskunum á eyjunni Tenerife. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við Rökkva Árnason og Óðinn Hrafn Bjarkason. ------------------------------------------------------------------------------- Lengri umfjallanir: Geðheilsa ungmenna hefur versnað verulega undanfarin 10 ár. Ný rannsókn vísindamanna við Menntavísindasvið Háskóla íslands sýnir að marktækt samband er á milli netsamskipta og þunglyndis- og kvíðaeinkanna hjá 15 ára stúlkum. Í rannsókninni er rýnt í breytingar á geðheilsu ungs fólks í upphafi 21. aldar. Sagt er frá niðurstöðunum í grein í tímaritinu Scandinavian Journal of Public Health. Óttar Guðbjörn Birgisson, aðjunkt og doktorsnemi í Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði, er fyrsti höfundur greinarinnar. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hann. Mörgum Norðmanninum blöskar þegar þeir heyra að verulega eigi að draga úr neyslu á kjöti. Jafnvel svo að aðeins ein kjötflís verði á boðum í hverri viku - 350 grömm takk. Svo getur farið ef nýjum tillögum sérfræðinga Norrænu ráðherranefndarinnar verður fylgt. En andstaðan er hörð og líka hjá norska landbúnaðarráðherranum. Gísli Kristjánsson talar frá Noregi. Ísraelskir lögreglumenn réðust inn í al-Aqsa moskuna í Jerúsalem í nóttskömmu fyrir dögun þar sem hópur fólks hafði læst sig þar inni eftir kvöldbænir, að sögn yfirvalda. Þeir voru grýttir og skotið að þeim flugeldum þegar þeir komu inn og svöruðu með höggsprengjum og skutu gúmmíhúðuðum byssukúlum á hópinn. Allt að fimmtíu særðust að sögn talsmanns Rauða hálfmánans í borginni. Sjúkrabílum sem voru sendir á vettvang var ekki hleypt að moskunni. Ásgeir Tómasson tók saman.

Við ákváðum að skella í einn aukaþátt sem við getum kallað "örþátt" (enda ekki nema rétt yfir klukkustund að lengd), og ekki að ástæðulausu góðir hálsar. Því daginn sem þátturinn kemur út (þann 30. janúar) eru einmitt 50 ár upp á dag síðan KISS spiluðu á sínum fyrstu tónleikum á Coventry klúbbnum (áður Popcorn pub). Þátturinn er óhefðbundinn. Starpower mætti með stórskemmtilegan og fræðandi pistil í tilefni dagsins, þá ræddum við örlítið komandi útgáfu í "Off The Soundboard" seríunni, þar sem Poughkeepsie, New York frá árinu 1984 er næst í röðinni með engan annan en Mark St. John haldandi um sólógítarinn, verulega spennandi stöff þar á ferð. Að lokum tilkynnum við um áframhaldið. Við kynnum nýtt concept til að hrista upp í hlaðvarpinu sem allir elska að elska, og opinberum það í þættinum ásamt fleiru til. Við erum alveg eins og KISS......bara getum ekki hætt! Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Það munaði litlu að gömlu húsin á Bernhöftstorfunni yrðu jöfnuð við jörðu og stórhýsi reist undir skrifstofur hins opinbera. Við þökkum fólki sem tók höndum saman og sagði Nei, að það gerðist ekki. Fimmtíu ár eru síðan þessi slagur stóð. Þór Magnússon þá þjóðminjavörður lagði sitt lóð á vogarskálarnar; hann flutti ávarp á útifundi við Bernhöftstorfuna 1. desember 1972 og lýsti mikilvægi þess að varðveita það gamla, virða söguna og verk genginna kynslóða. Við rifjuðum þetta upp og spjölluðum um verndun og minjar, Þór Magnússon kom til okkar. Bæði COVID-19 og inflúensa eru á fullri ferð um samfélagið. Það sama má segja um aðrar öndunarfærasýkingar. Alvarleg veikindi hjá áhættuhópum, sérstaklega 60 ára og eldri, má hindra með bólusetningum, en þátttaka 60-69 ára í þeim er slakari en þeirra sem eldri eru. Við ræddum um bólusetningar og stöðu heilsufars okkar með Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Okkur líður misjafnlega; stundum mjög vel, stundum mjög illa en sjálfsagt er líðan okkar flestra yfirleitt einhvers staðar þar á milli. Margt hefur áhrif á það hvernig okkur líður og fæst höfum við fullkomna stjórn á sálarlífinu. Við getum þó gert ýmislegt til að bæta líðanina, eins og Valgerður Ólafsdóttir sálfræðingur kom til okkar. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Ástartöfrar - Sigrún Jónsdóttir Morning has broken - Cat Stevens Eftir einn - Einar Scheving

Fimmtán ára drengur hefur verið handtekinn vegna skotárásar í verslunarmiðstöð í Malmö í Svíþjóð í dag. Tveir særðust illa í árásinni. Alexander Kristjánsson sagði frá. Jafnaðarmenn þurfa að leita aftur í kjarnastefnu sína og leggja áherslu á kjör venjulegs fólks. Þetta segir Kristrún Frostadóttir sem tilkynnti framboð sitt til formanns samfylkingarinnar í dag. Þórdís Arnljótsdóttir talaði við hana. Útskrifuðum leikskólakennurum hefur fjölgað síðustu ár. Háskólaráðherra segir að huga þurfi að nýsköpun í leikskólakerfinu. Unnið er að breytingum á námsmöguleikum starfandi leikskólakennara. Rætta var við Ingibjörgu Ósk Sigurðardóttur. Pétur Magnússon tók saman. Almannavarnir leggja til að dagleg viðvera lögreglu og annarra viðbragðsaðila verði tryggð á gosstöðvunum í Meradölum. Þjófnaður og eignaspjöll á styttunni af Guðríði Þorbjarnardóttur hefur verið sent til héraðssaksóknara. Kannað er hvort brotið hafi verið gegn lagaákvæði um að fjarlægja eða skemma opinber minnismerki. Refsing við því er allt að þriggja ára fangelsi. Kristín Sigurðardóttir sagði frá. Heilbrigðiskerfi úkraínu er að miklu leiti haldið gangandi af sjálfboðaliðum sem leggja líf sitt í hættu við störfin. Hundrað tuttugu og þrjú sjúkrahús þar eru óstarfhæf. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman. ---------------------------------------------------------- Greining Íslandsbanka spáir því að verðbólga rjúfi 10% múrinn í ágúst. Gangi spáin eftir hefur verðbólga ekki mælst meiri í 13 ár eða frá því í september 2009. Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur í Greiningu Íslandsbanka kemur í Spegilinn til að ræða stöðuna og mögulega þróun mála. Forsetar Frakklands og Rússlands eru sammála um að Alþjóðakjarnorkumálastofnunin verði að senda sérfræðinga til Úkraínu til að kanna ástand mála við Zaporizhzhia kjarnorkuverið. Zelensky, forseti Úkraínu, fór fram á það í gær að Sameinuðu þjóðirnar beiti sér fyrir því að eftirlitsmenn verði sendir til að kanna ástandið. Ásgeir Tómasson tók saman. Fjölmiðlar fjalla eðlilega mest um það sem hefur verið mest í sviðsljósinu. Andlát Oliviu Newton John vakti til dæmis heimsathygli. Öllu minna var minnst á Lamont Dozier sem lést sama dag og hún, 8. ágúst. Hann samdi þó tugi laga sem nutu vinsælda á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar, mörg hver í samvinnu við bræðurna Brian og Eddie Holland. Af þeim rötuðu 25 í efsta sæti bandaríska vinsældalistans meðan þremenningarnir unnu fyrir Motown hljómplötuútgáfuna í Detroit. Flest lögin fluttu Diana Ross og The Supremes og söngkvartettinn Four Tops. Ásgeir Tómasson tók saman.

Formaður Vinstri grænna segir að flokksmenn þurfi að ræða þá miklu fylgislækkun sem nýr þjóðarpúls Gallups sýnir. Flokkurinn hefur tapað meira en þriðjungi fylgis frá síðustu kosningum. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við Katrínu Jakobsdóttur. Fimmtán prósent grunnskólanema segjast hafa orðið fyrir einelti í fyrra, samkvæmt skólapúlsi sem lagður er fyrir nemendur árlega. Framkvæmdastjóri Heimilis og skóla furðar sig á því að margir skólar vilji ekki birta niðurstöðurnar. Arnar Björnsson talaði við Arnar Sævarsson. Norðlendingar eru ósáttir við úthlutanir úr framkvæmdastjóri ferðamannastaða. Verkefnastjóri samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi óttast að innviðir norðan- og austanlands séu ekki tilbúnir fyrir þann fjölda ferðamanna sem von er á í sumar. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við Kristínu Garðarsdóttur. Umræða og deilur um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar eru stormur í vatnsglasi, segir fjármálaráðherra. Hann segir von á miklum halla á ríkissjóði og slæmt ef ráðherrar séu að auka á hallann. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við Bjarna Benediktsson. ---------------------- Meiðyrðamál hafa verið á milli tannanna á fólki síðustu daga. Í vikunni féllu dómar í tveimur meiðyrðamálum sem vöktu talsverða athygli fólks. Annars vegar hér á landi í máli Ingólfs Þórarinssonar gegn Sindra Þór Sigríðarsyni og hins vegar í máli sem fékk öllu meiri athygli, máli Johnnys Depp gegn Amber Heard en hún höfðaði einnig mótsókn gegn honum. Báðir dómarnir þykja óvenjulegir og hafa komið mörgum á óvart. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Hildi Fjólu Antonsdóttur, réttarfélagsfræðing. Horfur eru á að komur erlendra ferðamanna í sumar verði á við það sem var árið 2019, fyrir faraldur. Á meðan honum stóð lögðust margir Íslendingar í ferðalög innanlands enda ekki hægt um vik að fara annað. Á stundum vakna spurningar um hvar megi fara um og hversu ríkur almannarétturinn er, hann tryggir fólki til dæmis að það megi ganga um óræktað land. Geta orðið árekstrar þar sem talið er að það þurfi að stjórna því hve margir fara um vinsæla staði til að verja þá. Það er búist við fjölmörgum útlendingum en hvað um ferðalög okkar innanlands, breyttust venjurnar til frambúðar í kóvíd og dró úr ferðaþorsta til útlanda. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóra.

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir. Krabbameinsfélagið hefur hætt við að gefa 450 milljónir til nýrrar krabbameinsgöngudeildar á Landspítalanum og segist engin viðbrögð hafa fengið við tilboði sínu. Urður Örlygsdóttir talaði við Höllu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélags íslands. Danir kjósa í dag um hvort þeir eigi að taka þátt í varnarsamstarfi Evrópusambandsins, útgönguspár birtast klukkan sex. Björn Malmquist sagði Önnu Kristínu Jónsdóttur frá. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir mikla hagsmuni í húfi með aðild Finnlands og Svíþjóðar að NATO. Hún mælti fyrir tillögu á Alþingi í dag sem heimilar ríkisstjórninni að staðfesta samninga við NATO um aðildina. Fjöldi landsbyggðarfólks er ósátt við verð og þjónustu í innanlandsflugi eftir að Icelandair tók það yfir af dótturfélagi. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair segir óverulega hækkun hafa orðið á fargjöldum en sveigjanleikinn sé minni en áður var. Urður Örlygsdóttir talaði við Boga. Skipstjóri á Vestmannaey VE, sem er í eigu dótturfélags Síldarvinnslunnar, hefur verið sektaður um 700 þúsund krónur fyrir ólöglegar veiðar á lokuðu svæði. Rúnar Snær Reynisson sagði frá. ------------ Ferðaþjónustan er komin á mikið skrið og gistinætur á hótelum voru fimm sinnum fleiri í apríl en þær voru í fyrra. En þó að viðsnúningurinn virðist skarpur og jafnvel hraðari en búist var við blasir líka við að mönnun getur orðið erfið og miklar hækkanir orðið til dæmis á eldsneyti sem skilar sér beint inn í ferðakostnað, hvort sem er í verði á flugmiðum eða bensíni. Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóri, segir að fjöldi ferðamanna sem fara um Keflavíkurflugvöll sé farinn að nálgast það sem var fyrir faraldurinn. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Í Uvalde í Texas, bæ þar sem jarða á ellefu börn sem dóu í skólanum sínum í vikunni eru menn líka farnir að velta því fyrir sér hvað á að gera við skólahúsið sem verður nú alltaf tengt þessum sorgaratburðum. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir segir frá. Fimmtán ár eru í dag síðan reykingar voru bannaðar með öllu inni á veitinga- og skemmtistöðum. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Þorgrím Þráinsson, fyrrverandi framvkæmdastjóra Tóbaksvarnarnefndar og Kormák Geirharðsson, veitingamann um bannið.

Fram og til baka 21.05.2022 umsjón Felix Bergsson lag dagsins - Fimmtán ára á föstu, Bjartmar Guðlaugs og Pétur Kristjáns Fimman - Viktoría Hermannsdóttir talar um fimm vinnustaði Krakkaball Stórsveitarinnar í Hörpu. Bragi Árnason dansstjóri verður í símanum Fréttagetraun

Fimmtánda umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram um helgina, umferðin kláraðist með leik Everton og Arsenal í gær. Guðmundur Gunnar Guðmundsson er stuðningsmaður Arsenal, Ingimar Helgi Finnsson er stuðningsmaður Tottenham og Tómas Steindórsson er stuðningsmaður West Ham. Farið var yfir umferðina, Antonio Conte og þurrkur Harry Kane komu við sögu, verðmiðinn á Jarrod Bowen og Declan Rice og loks Arsenal og Mikel Arteta. Þátturinn er í boði Domino's.
Fimmtíu mega koma saman frá og með morgundeginum og 200 á lista- og íþróttaviðburðum. Opnunartími kráa og veitingastaða verður lengdur en vertar hefðu viljað ganga lengra. Engin tilfelli inflúensu hafa greinst hér á landi í ár og hún hefur heldur ekki náð sér á strik á heimsvísu, segir yfirlæknir smitsjúkdómalækninga á Landspítala. Hins vegar hafa greinst hér óvenjulega mörg tilfelli af veiru sem veldur heilahimnubólgu. Sóttvarnalæknir Svíþjóðar óttast að hið breska og bráðsmitandi afbrigði kórónuveirunnar verði alls ráðandi í Evrópu innan hálfs mánaðar. Flugvirkjar hjá Landhelgisgæslunni segja að landamæraverkefni Landhelgisgæslunnar geti verið í uppnámi. Samkvæmt úrskurði gerðardóms um nýjan kjarasamning Þeim sé ekki skylt að vinna erlendis nema um það sé sérstaklega samið. Samkomubann verður rýmra frá og með morgundeginum því þá mega koma saman fimmtíu í einu í stað tuttugu. Alls mega hundrað og fimmtíu manns vera saman í rými í skólum og eins metra reglan leysir tveggja metra regluna af hólmi. Þá mega allt að tvö hundruð manns vera á viðburðum eins og íþróttaviðburðum. Áhorfendur verða að vera skráðir í sæti og einn metri verður að vera milli óskyldra. Almennt gildir þó áfram tveggja metra reglan og grímuskylda verður óbreytt. Skólastarf í framhaldsskólum kemst í nánast eðlilegt horf við breytingu á sóttvarnarreglum. Miklar breytingar verða á félagslífi nemenda og því fagna þeir ákaft. Faraldurinn hefur þó þau áhrif að einhverjir framhaldsskólanemar munu seinka námi eða hætta jafnvel alveg. Þá sjá íþróttafélög fram á auknar tekjur og stuðning með því að fá að taka á móti áhorfendum. Kristín Sigurðardóttir Talar við Steinunni Björnsdóttur, Kristinn Þorsteinsson og Önnur Sóleyju Stefánsdóttur. Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að sækja um ráðningarstyrki til að skapa ný störf og draga úr atvinnuleysi. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að ýmis fyrirtæki innan ferðaþjónustunnar séu að skoða þetta úrræði. Ráðningarstyrkjum fjölgaði eftir bankahrunið og voru tæplega 1900 árið 2012. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Jóhannes Skúlason og Aldísi Hafsteinsdóttur.

Komiði sæl og velkomin að Speglinum, Arnhildur Hálfdánardóttir er umsjónarmaður Fimmtán er enn saknað eftir skriðuföll í bænum Ask í Gjerdrum í Noregi. Forsætisráðherra Noregs segir hræðilega sárt til þess að vita að enn séu svo margir ófundnir. Það gæti þurft að rýma aftur þau svæði á Seyðisfirði sem rýmingu hefur verið aflétt á. Stjórnvöld gerðu í dag samning við lyfjafyrirtækið Moderna um kaup á bóluefni fyrir 64 þúsund manns. Fyrirtækið áætlar að hefja dreifingu á fyrstu mánuðum nýs árs. Umhverfisáhrif af virkjun Svartár í Bárðardal í Þingeyjarsveit verða verulega neikvæð, segir í áliti Skipulagsstofnunar Forseti ASÍ segir að það verði mikil barátta á næsta ári. Alþingiskosningar muni að einhverju leyti snúast um stöðu almennings og launafólks og hvernig brugðist verði við halla ríkissjóðs. Hún segir að við verðum að þola að skulda kreppuna í einhvern tíma. Gjaldþrot í ferðaþjónustunni hafa verið færri en búist var við, en Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að yfir vofi snjóhengja
Við tökum frí frá stéttabaráttunni í desember og verðum með sérútgáfur af þættinum þess í stað. Í þessum fyrsta þætti aðventunnar fengum við tvö lið sem bæði eru í nánum tengslum. Mæðginin Anna Þóra Björnsdóttir, gleraugnasali og uppistandari og Björn Leó Brynjarsson, leikskáld mæta feðginunum Berglindi Pétursdóttur, dagskrárgerðarkonu og Pétri Grétarssyni, þul og dagskrárgerðarmanni.

Ekkert miðar í kjaradeilu flugvirkja Landhelgisgæslunnar og ríkisins. Verkfall flugvirkja hefur þegar haft áhrif á þyrlur gæslunnar og engin björgunarþyrla verður tiltæk að minnsta kosti tvo daga í lok vikunnar. Sjóprófi í máli skipverjanna á togaranum Júlíusi Geirmundssyni lauk um klukkan hálf fjögur í dag en það hófst klukkan níu í morgun. Fimmtán báru vitni fyrir Héraðsdómi Vestfjarða, skipverjar togarans og umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir sagði frá. Margt bendir til þess að virkni bóluefnis, sem vísindamenn við Oxfordháskóla hafa unnið að í samvinnu við AstraZeneca lyfjafyrirtækið, sé meiri en þau 70% vörn sem greint hefur verið frá í fréttum. Frekari prófanir munu leiða það í ljós. Þetta segir Ingileif Jónsdóttir, prófessor í ónæmisfræði. Gögn úr stórri heilsufarsrannsókn Íslenskrar erfðagreiningar verða borin saman við heilsufar fólks sem hefur fengið Covid-19 til að greina hvaða langvinnu heilsufarsvandamál má rekja til sjúkdómsins. Már Kristjánsson, yfirlæknir á Landspítalanum segir þarna fást verðmætar og veigamiklar upplýsingar. Heimildum ber ekki saman um hvort forsætisráðherra Ísraels og krónprins Sádi-Arabíu hafi hist á fundi í gær ásamt Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Ásgeir Tómasson sagði frá. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur ekki hægt að draga miklar ályktanir af niðurstöðum danskrar rannsóknar sem fjallað var um í sjónvarpsfréttum í síðustu viku, um að grímunotkun veiti minni vörn en áður var talið og hún komi ekki í staðinn fyrir aðrar sóttvarnir. Jólatörnin er löngu byrjuð hjá póstinum. Þetta segir Hörður Jónsson framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Póstsins. ------ Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar segir að þó þróun bóluefna fái flýtimeðgerð hjá Lyfjastofnun Evrópu sé ekki slegið af kröfum. Skráningin taki 70 daga í stað rúmlega 200. Arnar Páll Hauksson talaði við hana. Fólk þarf að bíða mánuðum og jafnvel árum saman eftir niðurstöðu máls hjá Persónuvernd og málahalinn er langur. Miðað við fjárlög þarf að fækka starfsmönnum þar þegar rík þörf er á viðbót, segir Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana. Bretar hafa í dag bæði fengið boðskapinn um hvaða Covid-19 aðgerðir gildi á næstunni og fram yfir jólin, og fréttir af nýju bóluefni, þróuðu í Oxford. Sigrún Davíðsdóttir í Lundúnum ræðir við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson. Stjórn útsendingar fyrri hluta Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Spegillinn 19.október 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Heimsóknir til smitaðra íbúa á hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík skiptu sköpum við bata þeirra. Þetta segja eiginkona eins íbúa og verkefnisstjóri á heimilinu. Líkamsræktarstöðvar fá að opna dyr sínar á morgun að uppfylltum ströngum skilyrðum. Sömu skilyrði gilda fyrir líkamsræktarstöðvar og fyrir íþróttaiðkun. Húsleit hefur verið gerð í dag hjá tugum róttækra íslamista í Frakklandi eftir að kennari var myrtur á hrottalegan hátt fyrir helgi. Fimmtán eru í haldi. Formaður velferðarnefndar Alþingis skilur ekki hvað tefur stjórnvöld í að ganga til samninga við fyrirtækið Heilsuvernd um að taka við sjúklingum frá Landspítalanum. Það stefnir í að gerðir verði 330 samningar í kjarasamningalotunni sem hófst fyrir tæpum tveimur árum. Um helmingur samninganna nær til innan við 100 launamanna. Lengri umfjallanir: Áætlað er að gerðir verði 330 kjarasamningar í samningalotunni sem hófst í árslok 2018. Í byrjun september voru enn 45 kjarasamningar lausir. Fjöldi launamanna á bak við hvern samning er mjög mismunandi. 24 dæmi eru um að sérstakir samningar hafi verið gerðir við færri en 10 einstaklinga. Eitt dæmi er um að kjarasamningur hafi verið gerður við einn launamann. Það er kannski ekki nýtt að samningalotur standi yfir í langan tíma. Þessi sem er reyndar ekki lokið hefur staðið nokkuð lengi og líklegt að hún standi yfir í tvö ár. Í fyrra tóku samningamenn sér sumarfrí enda erfitt að kalla samninganefndir saman yfir hásumarið. Svo hefur COVID- 19 að sjálfsögðu sett strik í reikninginn. Katrín Ólafsdóttir, dósent við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, skrifar grein í Vísbendingu þar sem hún rýnir í nýja skýrslu Kjaratölfræðinefndar og dregur fram nokkrar tölulegar upplýsingar um íslenskan vinnumarkað. Niðurstaða hennar er að meiri samvinna stéttarfélaga eða sameining gæti styrkt stöðu þeirra við samningaborðið og aukið skilvirkni kjarasamninga. Arnar Páll Hauksson talar við Katrínu. Í síðustu viku kynnti Hafrannsóknastofnun niðurstöður úr loðnumælingum haustsins og lagði til að loðnuveiðar verði ekki leyfðar í vetur, en ráðgjöfin verði endurskoðuð eftir áramót í ljósi mælinga sem gera á í upphafi árs. Þetta gæti orðið þriðji veturinn í röð þar sem verður loðnubrestur því ekki hefur mælst nægilega mikið til þess að Hafrannsóknastofnun geti mælt með veiðum. Birkir Bárðarson fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun bendir þó á að bæði í haust og í fyrrahaust hafi verið töluvert um ungloðnu í mælingunum. Anna Kristín Jó

Fimmtándi þáttur Leikjavarpsins er tileinkaður Xbox Series X/S og PlayStation 5 og ræða þeir Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn og Daníel Rósinkrans um verð, væntingar og útgáfu en leikjatölvurnar eru væntanlegar í verslanir í nóvember á þessu ári. Sveinn segir frá hinum syndsamlega heimi sem er að finna í Crusader Kings 3 og Bjarki tekur upp geislasverð í sýndaheimi og fjallar um Vader Immortal. Þess má geta að þessi þáttur var tekinn upp í beinu streymi sem sýnt var á Facebook Live. Efni þáttarins: • Xbox Series S og X • Crusader Kings 3 • Vader Immortal • PlayStation 5 Mynd: Xbox Series S, PlayStation 5, Vader Immortal og Crusader Kings 3 Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
Fimmtíu krár og skemmtistaðir verða lokaðir fram á þriðjudag. Stærstan hluta smita síðustu daga má rekja beint og óbeint þangað. Nýjar tillögur verða unnar um helgina. Okkur er kannski að takast að ná utan um þetta, segir sóttvarnalæknir. Maður hefur verið ákærður fyrir manndráp fyrir að verða þremur að bana með íkveikju. Aldrei í nútímaréttarfarssögu Íslands hefur verið ákært fyrir að bana svo mörgum. 60 þúsund ný störf þurfa að verða til hér á landi á næstu 30 árum til að tryggja góð efnahagsleg lífsgæði landsmanna. Þetta kemur fram í ályktun Iðnþings sem haldið var í dag. Nýsköpun og ný störf voru meginviðfangsefni þingsins. Landlæknir hefur óskað eftir gögnum frá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins í máli konu sem fór þar í skimun fyrir leghálskrabbameini. Á fjórða þúsund sýni sem tekin voru frá 2017 og fram á þetta ár hafa verið endurskoðuð. Yfirlæknir segir ekki tilefni til að skoða eldri sýni. Læknastofur Akureyrar hefja í næstu viku mótefnamælingar fyrir fólk sem telur sig hafa fengið COVID-19. Kráareigandi á höfðuborgarsvæðinu gagnrýnir ekki ákvöðrun um að loka krám og skemmtistöðum um helgina. Hann segir að margir staðir séu í raun gjaldþrota vegna þess að tekjur nægi ekki fyrir kostnaði. Hann kallar eftir aðgerðum af hálfu sjórnvalda og leggur til að fasteignagjöld verði felld niður og að áfengisgjöld verði felld niður eða lækkuð. Arnar Páll talar við Jón Bjarna Steinsson, Ásgeir Þór Ásgeirsson og Þórólf Guðnason. Nýsköpun er lykillinn að því að ný störf verði til. Þetta var megin inntakið á Iðnþingi sem haldið var í dag í Hörpu i Reykjavík við sérstakar aðstæður vegna Covid faraldursins. Þinginu var streymt á netinu. Kristján Sigurjónsson settist niður með tveimur þátttakendum á Iðnþingi, þeim Katrínu Pétursdóttur forstjóra Lýsis í Reykjavík og Sigríði Mogensen sviðsstjóra hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins og ræddi við þær um framtíð íslensks iðnaðar. Bráðum áratug eftir ódæðsiverkin á Útey og í miðborg Óslóar er enn rifist um hvort og hvar minnismerki um hin látnu eigi að rísa. Samingaviðræður, dómsmál og endurhönnun merkisins hafa aðeins orðið til að fresta framkvæmdum. Og nú í vikunni var deilan enn tekin til dóms. Gísli Kristjánsson sagði frá.

Hvergi hafa fleiri smit greinst af kórónuveirunni heldur en í Bandaríkjunum. Ekkert virðist ganga að ná tökum á faraldrinum. Viðbúið er að veiran og viðbrögðin við henni verði aðalmálið í kosningunum í haust. Indriði H. Indriðason er prófessor í stjórnmálafræði við Kaliforníuháskóla í Bandaríkjunum og við ræddum við hann um ástandið og stjórnmálin í Bandaríkjunum. Allt verður komið í lag fyrir jól - sagði Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands í ræðu í síðustu viku. Sérfræðingar brugðust illa við þessari bjartsýni Johnson, segja hana langt frá raunveruleikanum. Það eina sem geti komið til bjargar sé bóluefni. Sigrún Davíðsdóttir sagði okkur frá þessu og því nýjasta í Brexit málum eftir fréttir klukkan átta. Fimmtíu ár eru um þessar mundir síðan Asvan-stíflan mikla í Níl í Egyptalandi var fullgerð. Stíflan hafði mikil áhrif í Egyptalandi og á samskipti landsins við erlend ríki. Svo vill einnig til að í heimsfréttunum núna er önnur stífla í einni af þverám Nílar - deilur um hana, óttast margir, gætu leitt til stríðsátaka. Við fjölluðum um þessi mál. Tónlist: Toto la Momposina - La sombra negra, Toto la Momposina - Oye manita, Abdel Halim Hafez - Ahwak, Akele Wubu - Enken yelelebesh

Helmingi færri skjálftar hafa mælst fyrir norðan land í dag en í gær. Íbúar á Siglufirði eru rólegir þrátt fyrir mikinn hamagang í stærstu skjálftunum. Sóttvarnalæknir segir að hlutfall smitaðra ferðamanna sé mjög lágt. Tveir ferðamenn af fimm þúsund og fimm hundruð hafi greinst með virkt smit. Leita þarf aftur til ársins 1961 til að finna færri ferðamenn hér á landi í aprílmánuði. Aðeins rétt rúmlega 900 erlendir ferðamenn komu hingað í apríl. Nýr sáttafundur hefur verið boðaður á morgun í kjaradeilu flugfreyja og Icelandair. Deilendur sátu átta klukkustunda fund í dag. Fimmtíu ár eru í dag frá því að hljómsveitin Led Zeppelin hélt hljómleika í Laugardalshöll. Áherslur við mat á forsendum kjarsamninga voru meðal þess sem rætt á formanna fundi Alþýðusambandsins sem efnt var til í dag. Forsendur lífskjarasamningsins sem undirritaður var í fyrra verða metnar í september. Arnar Páll Hauksson talaði við Drífu Snædal, forseta Alþýðusambandisns. „Það eru allir að tala um hvernig þurfi að breyta tískubransanum því kerfið gengur ekki upp,“ þetta segir Áslaug Magnúsdóttir, kaupsýslukona og eigandi tískumerkisins Kötlu. Heimsfaraldurinn leiði vonandi til endurskoðunar á framleiðsluferlum og þeirri hugmynd að það þurfi að koma nýjar fatalínur í búðirnar á nokkurra vikna fresti. Arnhildur Hálfdánardóttir tala við Áslaugu Magnúsdóttur.

Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir Föstudagsstemning í Popplandi dagsins, alls konar tónlist, ný og gömul. Daglegur upplýsingafundur á sínum stað eftir tvöfréttirnar, nýtt frá Myrkva, Krassasig, Jónsa og Rolling Stones. Andrea Jóns og Arnar Eggert gera upp plötu vikunnar sem Ljótu Hálfvitarnir voru að gefa út, þeirra sjötta plata og heitir Hótel Edda. OMAM - Circles JóiPé & Króli - Óska Mér Youssou N?Dour & Neneh Cherrry - 7 Seconds Black Pumas - Black Moon Rising Krassasig - Einn Dag í Einu Fríða Dís - Myndaalbúm Laura Branigan - Self Control Auður - Ljósin Kveikt Beyonce - Crazy In Love (ft. Jay Z) Ragnar Ólafsson - Southern Nights Myrkvi - Skyline Daft Punk - Around The World Glowie - Unlovable Ljótu Hálfvitarnir - Við Stöndum Hér Enn Bruce Springsteen - Born To Run Bjartmar Guðlaugsson - Fimmtán Ára Á Föstu Salka, Arnar, Eyþór, Ellen - Ég Veit Það (Hljómskálinn 2020) Sveinn Guðmundsson - Skrifstofuplanta The Bangles - Walk Like An Egyptian Áslaug - In My Head Lianne La Havas - Bittersweet Quarashi - Stun Gun Bubbi Morthens - Skríða GDRN - Vorið Beta - Do It On My Own Hera - Process Jónsi - Exhale Hipsumhaps - LSMLÍ Eliza Newman - Hver Vill Ást Rúnar Júlíusson - Hamingjulagið Rolling Stones - Living In A Ghost Town Dua Lipa - Physical Fjallkonan - Bumpaðu, Baby Bumpaðu Ragnar Bjarnason - Það Styttir Alltaf Upp

Karl og kona á áttræðisaldri, sem glímdu við COVID-19 sjúkdóminn, létust á Landspítalanum síðasta sólarhring. 99 ný tilfelli hafa greinst síðan í gær. Sóttvarnalæknir vill framlengja samkomubann til 4. maí. Landlæknir biðlar til hjúkrunarfræðinga og stjórnvalda að ná kjarasamningum. Forstjóri Landspítalans segir það til skoðunar hvernig umbuna megi hjúkrunarfræðingum sérstaklega vegna mikils álags síðustu vikurnar. Hráolíuverð hækkaði um tugi prósenta þegar Bandaríkjaforseti tilkynnti að það sæi fyrir endann á verðstríði Rússa og Sádi-Araba. Ef fiskeldi verður tvöfaldað á Austfjörðum, líkt og tillaga að nýju áhættumati gerir ráð fyrir, gæti orðið grundvöllur fyrir fraktflug frá Egilsstöðum með eldisfisk. Útflutningsverðmæti eldisfisks bara frá Austurlandi myndi aukast um það sem samsvarar næstum heilli loðnuvertíð. Ef fiskeldi verður tvöfaldað á Austfjörðum, líkt og tillaga að nýju áhættumati gerir ráð fyrir, gæti orðið grundvöllur fyrir fraktflug frá Egilsstöðum með eldisfisk. Útflutningsverðmæti eldisfisks bara frá Austurlandi myndi aukst um það sem samsvarar næstum heilli loðnuvertíð. Tuttugu tonna prufusending af lambakjöti fór nýlega frá Fjallalambi á Kópaskeri á markað í Kína. Framkvæmdastjóri Fjallalambs segir viðtökurnar góðar og Kínverjar séu áhugasamir um frekari viðskipti. Formaður VR segir að verið sé að fórna meiri hagsmunum fyrir minni með því að hafna lífeyrissjóðsleiðinni sem felur í sér tímabundna lækkun á mótframlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóði. Rætt var Við Ragnar Þór Ingólfsson í Speglinum. Leiðtogar nýta tækifærið til að herða tökin um valdataumana. Lögregla beitir borgara ofbeldi og rétturinn til tjáningar og friðhelgi einkalífs víkur fyrir boðum og bönnum. Mannréttindabrot eru áhyggjuefni nú þegar farsótt breiðist um heiminn og fjöldi ríkja hefur lýst yfir neyðarástandi. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá. Undanfarinn aldarfjórðung hefur dómstóllinn því komið reglulega til Amazon fenjasvæðisins í líki gufubáts. Fimmtíu starfsmenn dómsins eru um borð í þessum fljótandi dómstól. Innanborðs eru verjendur, sækjendur, dómsritarar, lögreglumenn og svo framvegis. Fjölmargir sjálfboðaliðar koma með bátnum og leggja sitt af mörkum. Í fyrra kom báturinn einu sinni í mánuði en eftir að Jair Bolsonaro var kjörinn forseti Brasilíu var ferðunum fækkað í eina á tveggja mánaða fresti. Pálmi Jónasson segir frá.

4.500 manns sóttu í dag um bætur vegna skerts starfshlutfalls. Í morgun var opnað fyrir umsóknir á vef Vinnumálalstofnunar. Búist er við að um tuttugu þúsund manns gætu nýtt sé slíkar bætur. Fimmtán manns með staðfest COVID-19 smit eru nú á Landspítalanum. Þar af eru tveir á gjörgæslu og einn í öndunarvél. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir á daglegum fundi Almannavarna. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri segir enga þörf á að setja þak á verðtryggingu lána. Ekki aðeins séu verðbólguhorfur lágar heldur hafi landsmönnum aldrei staðið til boða hagstæðari vaxtakjör. Samkomubann kallar á breytta nálgun við jarðarfarir og hinstu kveðju ástvina segir Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahússprestur á Landspítalanum. Rúmlega þrír milljarðar jarðarbúa eiga að fyrirskipan stjórnvalda í hátt í sjötíu löndum að halda sig heima vegna COVID-19 farsóttarinnar. Ásgeir Tómasson sagði frá. Sérstök COVID-deild hefur nú verið opnuð á Sjúkrahúsinu á Akureyri og öndunarvélum þar verður fjölgað um tvær. Ágúst Ólafsson ræddi við Krístínu Margréti Gylfadóttur, forstöðuhjúkrunarfræðing á Sjúkrahúsinu. ---- Vilhjálmur Birgisson. fyrsti varaforseti Alþýðusambands Íslands segir að ekki komi til greina að fresta umsömdum launahækkunum um næstu mánaðamót. Ásta Fjeldsted framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs telur að til greina komi að fresta þeim vegna ástandsins sem nú ríkir. Arnar Páll Hauksson ræddi við Vilhjálm og Ástu. Fólk í framlínustörfum leggur sig í ákveðna hættu til að halda samfélaginu gangandi. Það hittir fjölda fólks á hverjum degi og er því kannski útsettara en margur fyrir smiti. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við lyfsala, leikskólakennara, strætóbílstjóra og starfsmenn matvöruverslana um lífið í framlínunni. Nærri fimmtán hundruð manns hafa svarað kalli heilbrigðis- og velferðarþjónustunnar og skráð sig á útkallslista í svokallaðar Bakvarðasveitir. Hjá heilbrigðisþjónustunni voru í dag 710 skráðir; Á lista velferðarþjónustunnar voru komnir hátt í 800. Erna Blöndal er skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu sem heldur utan um skráningar í bakvarðasveit velferðarþjónustunnar, hún tekur undir það að vissulega hafi heilmargir skráð sig en þjónustan kalli á marga. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Ernu. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar: Björg Guðlaugsdóttir.

Félagið Siðmennt varð til í kringum fyrstu borgaralegu fermingarnar á Íslandi fyrir 30 árum. Félagið hefur stækkað á síðustu árum og nú fermast um 13 prósent fermingarbarna borgaralega. Siðmennt varð lífsskoðunarfélag þann í maí árið 2013. Síðan þá hefur félagið tífaldast að stærð og og það sama gildir um fjölda athafna á vegum þess. Við heyrðum í Ingu Auðbjörgu Straumland formanni Siðmenntar í þættinum í dag og fræddumst um félagið og starfsemi þess. Við slógum á þráðinn uppí Borgarnes og forvitnuðumst um samsöng sem þar fer fram alla miðvikudaga. Halldór Hólm Kristjánsson stendur fyrir þessu og spilar á gítarinn og hann tekur fram að ekki er um kórastarf að ræða heldur er þetta öllum opið og kemur hver sem vill og syngur með sínu nefi. Halldór var á línunni í þættinum. Læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk ávísa nú í auknum mæli hreyfiseðlum eins og lyfseðlum því sýnt hefur verið fram á að hreyfing er góð meðferð við fjölmörgum sjúkdómum. Fimmtán hundruð manns fá ávísað slíkum seðlum á hverju ári. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Auði Ólafsdóttur, hreyfistjóra og verkefnisstjóra hreyfiseðla hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Heilsuvaktinni í dag. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Hulda Þórey Garðarsdóttir ljósmóðir byggði upp starfsferilinn í Hong Kong. Hún rak ljósmæðraheimilið Annerly í þessari erilsömu borg og bjó þar í rétt um tvo áratugi. Nú er hún flutt heim og fylgir húsvískum konum eftir á meðgöngu, við fæðingu og sængurlegu. Við slógum á þráðinn norður á Húsavík og heyrðum í Huldu. Á laugardaginn kemur halda ungar athafnakonur í þriðja sinn ráðstefnu tileinkaða ungum konum í íslensku atvinnulífi. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni verður samfélagsleg ábyrgð og ber ráðstefnan yfirskriftina Næsta skref í þágu framtíðar. Þær Snæfríður Jónsdóttir formaður UAK og Auður Albertsdóttir, kynningastjóri kíktu til okkar í morgunkaffi og sögðu okkur meira. Pálmar Örn Guðmundsson, trúbador og þjálfari, setti sér það markmið í september að gefa út eitt lag á viku á Spotify. Fimmtán eru eftir svo hann er enn að. Víkurfréttir kalla hann einn fjölhæfasta Grindvíkinginn, því ekki aðeins semur hann tónlist, heldur kennir salsa, þjálfar unga stráka í knattspyrnu og málar svo eitthvað sé nefnt. Pálmar var á línunni og við heyrðum líka eitt laganna. Ef að fólk fer eftir reglum og viðmiðunum er engin ástæða til að hætta að ferðast. Þetta segir Pétur Óskarsson sem rekur ferðaskrifstofuna Kötlu Travel. Hann gerir út á þýskan markað og segir enn engan hafa hætt við ferð hingað til lands. Ferðaviðvaranir yfirvalda til Íslands yrðu hins vegar þungt högg fyrir íslenska ferðaþjónustu. Pétur ræddi þessi mál við okkur. Lára Ómarsdóttur úr Kveik leit við hjá okkur og sagði okkur frá miklum viðbrögðum við umfjöllun þáttarins um fátækt á Íslandi, en margir hafa haft samband og vilja m.a. leggja lið. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kom og ræddi íslenskt mál að venju og að þessu sinni beindi hún sjónum að orðinu einmana, með einu n-i. Tónlist: Bríet - Ómissandi fólk. Al Green - Lets stay together. KK - Kærleikur og tími. Jordan MacKampa - What am I. Suzanne Vega - Left of center. Pálmar Örn Guðmundsson - Viskí og dans. Myrkvi - Sér um sig. Hipsumhaps - Lsmlí (Lífið sem mig langar í). SSSól - Einmana. The Police - Dont stand so close to me.

Mæðginin Sigríður Nanna og Kristinn keppa á móti mæðginunum Ragnheiði og Hrafnkatli og eins og vanalega er gríðarlega spennandi keppni á milli liðanna. Umsjón: Sigyn Blöndal Framleiðsla og spurningahöfundar: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson Hugmynd: Sindri Bergmann Þórarinsson Leikarar: Hera Ólafsdóttir, Karl Pálsson og Rúnar Freyr Gíslason Hljóðvinnsla: Einar Sigurðsson
eftir Hallgrím Helgason. Höfundur les.
Fimmtán prósent skatttekna íslenska ríkisins af hagnaði fyrirtækja rennur til skattaskjóla. Þetta sýnir alþjóðleg rannsókn. Lögmannsstofan sem Samherji réð til að kanna Namibíu-umsvif sín, hefur áður unnið fyrir Samherja. Formaður Blaðamannafélags Íslands mælir ekki með samningi sem hann skrifaði undir við Samtök atvinnulífsins seinnipartinn í dag. Starfsmenn Hafrannsóknastofnunnar segja uppsagnir gærdagsins hafa verið harkalegar og án fullnægjandi skýringa. Peningaþvætti Danske Bank hefði tæplega komist upp án uppljóstrara. Jafnvel þegar fyrirtæki fá óháða aðila til rannsókna á starfsemi sinni er útkoman ekki alltaf afdráttarlaus. Það fylgja því ýmsir kostir að búa einn en það getur líka verið einmanalegt og fólki sem býr eitt finnst fjölskyldusamfélagið Ísland stundum ekki gera ráð fyrir sér.

Umsjónarmaður Spegilsins er Pálmi Jónasson. Félagsmálaráðherra stendur með nýjum forstjóra Vinnumálastofnunar og segir ólguna þar innanhúss stafa af breytingum sem hún var skipuð til að ná í gegn. Rektor Háskóla Íslands vill ekki aðgangsstýringu að skólanum ef það þýðir að stúdentum fækki. Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram slíkar hugmyndir til að sporna gegn brottfalli. Skiptar skoðanir virðast vera um tillögur samtakanna um að stytta grunnskólann. Aðstoðarskólastjóri segir að með því væri verið að stytta barnæskuna. Skráningar hafa týnst í sjúkraskrárkerfinu Sögu og gleymst hefur að fylgja þeim eftir. Þetta segir sérfræðingur á bráðamóttöku. Donald Trump þarf að skila skattframtölum, átta ár aftur í tímann. Þetta var niðurstaða áfrýjunarréttar í dag. Mikil mengun hefur verið á Akureyri í allan dag og börnum og fólki með viðkvæm öndunarfæri ráðlagt að forðast útivist við umferðargötur. Aðstoðarskólastjóri segir að það væri skerðing á lífsgæðum ef grunnskólinn yrði styttur um eitt ár. Börn verði ári styttir börn ef þau fari fyrr á vinnumarkaðinn. Formaður Félags grunnskólakennara segir að tillögur um styttingu grunnskólans séu í andstöðu við þá bylgju í samfélaginu að minnka álag. Arnar Páll Hauksson fjallar um málið í Speglinum. Í dag eru fjörutíu ár síðan íranskir stúdentar brutu sér leið inn í bandaríska sendiráðið og tóku starfsmenn og fjölskyldur þeirra í gíslingu. Fimmtíu og tveimur gíslum var ekki sleppt fyrr en 444 dögum síðar. Pálmi Jónasson fjallar um málið í Speglinum. Orkuskipti - hrein orka - rafvæðing bílaflotans - minni kolefnislosun. Þetta virðast bæði góð og þörf verkefni - bráðnauðsynleg jafnvel til að stemma stigu við þeim ógnvænlegu loftslagsbreytingum sem þegar eru farnar að eiga sér stað. En þótt orkan sé endurnýjanleg - eða eigi að vera það - þá er ekki sömu sögu að segja um alla þá sjaldgæfu málma sem eru notaðir til að framleiða rafbíla, sólarrafhlöður og vindmyllur. Vinnsla málmanna er orkufrek og getur valdið mengun og alvarlegum umhverfisspjöllum. Kári Gylfason í Gautaborg segir frá.

Ljónin 4 hittust í Leiknishúsi og skeggræddu Lokahóf Leiknis, alla leikmenn og völdu bestu allt í sumar. Í þessum 1. hluta ræddu þeir varnarsinnuðu leikmennina: Eyjó, Stjána, Hjalta, Edda, Nacho, Bjarka, Osvald og Gyrði.
Þátturinn hófst á pistli Freys Eyjólfssonar um Mike Pence í tilefni af Íslandsheimsókn bandaríska varaforsetans. Freyr sagði frá ferli Pence og dró upp mynd af honum sem stjórnmálamanni. Heilbrigðisstefna til ársins 2030 tók gildi í vor. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagði frá efni og inntaki stefnunnar og ræddi um ýmislegt er varðar heilbrigðiskerfið. Meðal áskorana til 2030 er mönnun í kerfinu en vöntun er á hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum á höfuðborgarsvæðinu og heilsugæslulæknum úti á landi. Fimmtán ár eru frá mannskæðustu hryðjuverkaárás í Evrópu - þegar hryðjuverkamenn tóku meira en 1100 manns, börn og fullorðna, í gíslingu í barnaskóla í Beslan í Norður-Ossetíu. Umsátrinu lauk þremur dögum síðar með áhlaupi rússneska hersons á skólann. 334 létust og hundruð særðust. Vera Illugadóttir rifjaði atburðina upp. Kornrækt gekk vel víðast hvar á landinu í sumar eftir nokkur erfið ár að undanförnu. Bjarni Rúnarsson fréttamaður ræddi um kornrækt vítt og breitt við Hrannar SMára Hilmarsson, tilraunastjóra í jarðrækt við Landbúnaðarháskóla Íslands. Tónlist: Ævintýri - Ævintýri, Dizzy shells - Dizzy Gillespie.

Umsjón: Pálmi Jónasson Sagnfræðingur segir að heimsókn Mike Pence sé ekki kurteisisheimsókn. Hann sé kominn til að sinna ákveðnu erindi. Bandaríkjamenn vilji gera sig meira gildandi á norðurslóðum. Boris Johnson hefur ekki lengur meirihluta á breska þinginu eftir að þingmaður Íhaldsflokksins gekk til liðs við Frjálslynda demókrata síðdegis. Yfir sextíu þúsund manns á Bahamaeyjum þurfa á mataraðstoð að halda eftir fellibylinn Dorian. Indverskt geimfar lendir að öllum líkindum á tunglinu á föstudagskvöld. Heppnist lendingin verður Indland fjórða ríkið í heiminum til að lenda geimfari á tunglinu. Yfir áttatíu lyf eru ófáanleg hér á landi. Apótekari hvetur alla sem að málinu koma til að leita lausna. Lyfjaskorturinn valdi auknu álagi á lækna, heilsugæslu og sjúkrahús. Þá geti hann verið hættulegur heilsu fólks. Prófessor í sagnfræði segir að heimsókn varaforseta Bandaríkjanna hingað til lands sé ekki bara kurteisisheimsókn. Bandaríkjamenn vilji gera sig meira gildandi í stórveldapólitíkinni á norðurslóðum og vilji ræða stöðu Íslands í því samhengi. Arnar Páll talar við Guðmund Hálfdánarson í Speglinum. Rúmlega áttatíu lyf eru ófáanleg hér á landi. Apótekari segir það geta verið fólki mjög erfitt að fá ekki rétt lyf og geti beinlínis verið hættulegt. Eitt lyf er ófáanlegt vegna yfirvofandi útgöngu Breta úr Evrópusambandinu en algengari ástæða lyfjaskortsins virðist vera sú að erlendum lyfjaframleiðendum finnst eftirsóknaverðara að leita inn á stærri markaði en Ísland. Kristín Sigurðardóttir segir frá. Indverska geimfarið Chandrayaan-2 lendir að öllum líkindum á tunglinu á föstudagskvöld. Heppnist lendingin verður Indland fjórða ríkið í heiminum til að lenda geimfari á tunglinu, á eftir Bandaríkjunum, Rússlandi og Kína. Fimmtíu ár eru síðan Neil Armstrong steig fyrstu manna fæti á tunglið. Lítið skref fyrir manninn en risastórt stökk fyrir mannkynið. Pálmi Jónasson tók saman.
Prófessor í sagnfræði segir að heimsókn varaforseta Bandaríkjanna hingað til lands sé ekki bara kurteisisheimsókn. Bandaríkjamenn vilji gera sig meira gildandi í stórveldapólitíkinni á norðurslóðum og vilji ræða stöðu Íslands í því samhengi. Arnar Páll Hauksson ræðir við Guðmund Hálfdánarson.oooooo Indverska geimfarið (Sjandrían tvö) Chandrayaan-2 lendir að öllum líkindum á tunglinu á föstudagskvöld. Heppnist lendingin verður Indland fjórða ríkið í heiminum til að lenda geimfari á tunglinu, á eftir Bandaríkjunum, Rússlandi og Kína. Fimmtíu ár eru síðan Neil Armstrong steig fyrstu manna fæti á tunglið. Lítið skref fyrir manninn en risastórt stökk fyrir mannkynið. Pálmi Jónasson segir frá.00000 Rúmlega áttatíu lyf eru ófáanleg hér á landi. Apótekari segir það geta verið fólki mjög erfitt að fá ekki rétt lyf og geti beinlínis verið hættulegt. Eitt lyf er ófáanlegt vegna yfirvofandi útgöngu Breta úr Evrópusambandinu en algengari ástæða lyfjaskortsins virðist vera sú að erlendum lyfjaframleiðendum finnst eftirsóknaverðara að leita inn á stærri markaði en Ísland. Kristín Sigurðardóttir talar viðp Aðalstein Jens Loftsson.
Fimmtán mánuðir eru í næstu forsetakosningar í Bandaríkjunum og baráttan um hver demókrata fær að etja kappi við Trump er hafin. Fjölmiðlar eru sammála um að kappræður síðustu daga hafi sýnt sundurleiti flokksins en málefnin í kosningunum eru víðtæk. Við heyrum oft af þeim; heilbrigðismál, kynþáttahatur, byssueign, loftslagsmál og utanríkisstefna Bandaríkjanna. Birna Anna Björnsdóttir og Friðjón Friðjónsson fóru yfir stöðuna á þessum tímapunkti fyrir kosningarnar. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður Bandalags háskólamanna og fyrrum umhverfisráðherra, greindist upp úr þrítugu með sjúkdóminn endómetríósu sem um 10% kvenna greinist með. Hún missti góða vinkonu sína úr sjúkdómnum fyrr á árinu og ætlar að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoni í minningu hennar og til að styðja Samtök um endómetríósu. Þórunn kíkti til okkar. Verslunarmannahelgin er tími fjölskyldunnar, í það minnsta í tilfelli þeirra sem sækja Sæluldaga í Vatnaskógi, árlega hátíð KFUM & KFUK um þessa annasömu skemmtanahelgi. Hátíðin í ár er sú 27. og er Ögmundur Ísak Guðmundsson verkefnastjóri hennar en hann var á línunni í þættinum. Einnig var Steinþór Helgi Arnsteinsson yfirpúki Innipúkans til viðtals og sagði okkur frá þeirri góðu hátíð sem haldin er í Reykjavík. Þá var málfarshornið að sjálfsögðu á sínum stað eins og alla fimmtudaga í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur.
Umsjón: Matthías Már Magnússon og Lovísa Rut Kristjánsdóttir. Það var eitt og annað um að vera í Popplandi dagsins, farið var yfir helstu fréttir úr tónlistarheiminum. Bjartmar Guðlaugsson kíkti við og spjallaði verslunarmannahelgina, þjóðhátíðarlagið í ár, Innipúkann og ýmislegt fleira. Fjölluðum um Orville Peck en Matti spjallaði við hann gegnum Skype á dögunum. Kynntum til leiks plötu vikunnar Constantly In Love sem er í höndum söngkonunnar Sólveigar Matthildar. Kaleo - I Walk On Water Grýlurnar - Ekkert mál Bjartmar Guðlaugsson - Fimmtán ár á föstu Bjartmar í spjalli Bjartmar - Eyjarós Suede - Trash Gordon Lightfoot - If You Could Read My Mind Orville Peck - Dead Of Night Orville Peck á línunni Orville Peck - Turn To Hate Gaz Coombes - Salamander Dolly Parton & Kenny Rogers - Islands In The Stream Sólveig Matthildur sagði frá plötu vikunnar Constantly In Love Sólveg Matthildur - Constantly In Love Elísabet - Heart Beats Modest Mouse - Dashboard Lorde - Green Light Stevie Wonder - Signed, Sealed, Delivered Góss - Kossar Án Vara Cutting Crew - I Just Died In Your Arms Cold War Kids - Complainer Tori Amos - Cornflake Girl Bubbi - Sonnetta Sólveig Matthildur - I'm Ok Sigrún Hjálmtýsdóttir - Stella í Orlofi Spin Doctors - Two Princes Egill Sæbjörnsson - Crazy Like A Bee Billie Eilish - Bad Guy Santana - Smooth The Head And The Heart - Missed Connection Alicia Keys - Empire State Of Mind Upplyfting - Endurfundir Soft Cell - Tainted Love Wilco & Feist - You And I Auður - Enginn Eins Og Þú Orville Peck á línunni Orville Peck - Turn To Hate Miley Cyrus - Mother's Daughter Beck - Saw Lightning Brunaliðið - Einskonar Ást The Cure - Close To Me Mark Ronson - Find U Again (Camila Cabello) Cat Stevens - Matthew & Son No Doubt - Don't Speak Etta James - I'd Rather Go Blind
Alvarlegt umferðarslys varð á Suðurlandsvegi rétt austan við Eystri Rangá síðdegis. Áætlað er að Suðurlandsvegur verði lokaður í um tvær klukkustundir vegna slyssins Hitamet hafa fallið í Frakklandi í dag þar sem hitinn fór í 45,8 stig í suðurhluta landsins. Tilkynnt hefur verið um nokkur dauðsföll. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist harma töf á rannsókn á læknamistökum í fæðingu sem urðu til þess að hjón misstu barn. Málinu var vísað til ríkislögmanns og lögreglu árið 2016. Útlenskur faðir, sem var dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir manndráp í Hæstarétti, hefur höfðað mál gegn ríkinu til að koma í veg fyrir að hann verði sendur úr landi eftir afplánun. Fimmtíu ár eru í dag liðin frá Stonewall-mótmælunum í New York, sem talin eru marka upphaf réttindabaráttu hinsegin fólks G20-ríkin hafa meira en tvöfaldað fjárframlög sín til kolaiðnaðarins á þremur árum þrátt fyrir loforð um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem var birt fyrir fund ríkjanna sem hófst í dag. Bergljót Baldursdóttir segir frá. Hlé verður gert á kjaraviðræðum í júlí og fram yfir verslunarmannahelgi. Ríkið hefur samið við BRSB og fleiri félög um friðarskyldu fram til 15. september. Formaður samninganefndar ríkisins segist bjartsýnn á að samningar takist fyrir þann tíma. Arnar Páll Hauksson talar við Sverri Jónsson. Kristján Sigurjónsson sagði frá svindli í maraþonhalupum.
Fimmtán hafa þegar misst vinnuna í Fjarðabyggð vegna loðnubrests. Bæjarstjórinn segir að sveitarfélagið verði að draga saman seglin, finnist engin loðna. Fjarðabyggð verður fyrir 260 milljóna króna tekjutapi verði algjör loðnubrestur. Rúnar Snær Reynisson ræddi við Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóra. Forsvarsmenn Strætós bs segja að fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir bílstjóra bitni eingöngu á farþegum og rekstri Strætós en ekki á fyrirtækjunum sem bílstjórarnir starfa hjá. Höskuldur Kári Schram sagði frá og ræddi við Ástríði Þórðardóttur, staðgengil framkvæmdastjóra hjá Strætó. Bandarísk stjórnvöld segja að skjótt verði brugðist við ef öryggi leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Venesúela verður ógnað. Hann sneri heim í dag. Ásgeir Tómasson sagði frá. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að ástand í málefnum geðsjúkra fanga sé óviðunandi. Hún kynnir samning um úrbætur á allra næstu dögum. Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar spurði heilbrigðisráðherra um erfiða stöðu geðsjúkra fanga: Fangelsismálastofnun hafi ítrekað beint sjónum stjórnvalda að ástandinu og fengið umboðsmann Alþingis til liðs við sig. Þjónusta við fólk með heilabilun er allt of flókin. Mjög margir koma að henni og ekki stefna allir í sömu átt, segir Jón Snædal sérfræðingur í öldrunarlækningum sem tekið hefur að sér að móta heildstæða stefnu í málaflokknum. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Jón. ----------- Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir að fólk þurfi að hafa það í huga þegar það ferðast með ung börn að mislingafaraldur geisi sums staðar í heiminum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Þórólf. Notendastýrð persónuleg aðstoð er óðum að slíta barnsskónum á Íslandi en ekki án vaxtaverkja. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá. Íslendingar og Svisslendingar eru oft á sitt hvorum endanum þegar bornar eru saman hagtölur ríkja Efnahags- og framfarastofunarinnar OECD og það á líka við um verkföll. Á tímabili áttu Íslendingar þar metið á meðan fyrirbærið þekktist varla í Sviss. En hvers vegna fara Svisslendingar ekki í verkföll, Jón Björgvinsson leitaði svara við því.
Við reyndum að skapa notalega stemmningu þennan mánudagsmorgun - aðfangadagsmorgun - með fréttum héðan og þaðan og notalegri norrænni jólatónlist. Rætt var við Ingibjörgu Gísladóttur í Narsarsuaq á Suður-Grænlandi. Hún kynntist Grænlandi ung að árum og hefur búið þar á nokkrum stöðum, þekkir landið og þjóðina - Grænlendinga - vel. Við ræddum svolítið um jólin á Grænlandi og áhrif loftslagsbreytinganna. Ingibjörg segir að í þeim felist bæði ógnanir og tækifæri. Grænlendingar laga sig að breyttum aðstæðum. Það hafa þeir alltaf þurft að gera - og það gera þeir áfram. - Við höfum allt þetta ár fylgst með þeim átökum sem felast í útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Sigrún Davíðsdóttir, fréttaritari í Lundúnum, hefur sagt okkur frá þessu vikulega á Morgunvaktinni. Hún er stödd hér heima og fór yfir stöðuna í Bretlandi, en við fórum líka víðar um álfuna, horfðum yfir sviðið - á ógnanir og tækifæri - í þessum löndum álfunnar frá Miðjarðarhafi og norður eftir - til Bretlandseyja og Norðurlanda. - Fimmtíu ár eru síðan þrír Bandaríkjamenn vörðu jólunum á nýstárlegum stað - á braut um tunglið, um borð í geimfarinu Apollo 8. Vera Illugadóttir rifjaði upp ferð þeirra. Við heyrðum jólakveðju sem þeir sendu niður til jarðarinnar og af tilurð ógleymanlegrar ljósmyndar sem einn leiðangursmanna tók úti í geimnum. - Tónlist: Povl Dissing og Benny Andersen - Jul med morfar; Kim Larsen - Højt fra træets grønne top; Sissel Kyrkjebø - Der er ingenting i verden så stille som sne; Jan Johansson - Klara stjärnor; Jussi Björling - O helga natt.
Fréttir: Fall krónunnar veldur þrýstingi á hækkandi verðbólgu. Þetta segir lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík. Forsætisráðherra segir að engar töfralausnir sé að finna þegar talað sé um gjaldmiðil þjóðar. Auka þarf sjálfvirkni og fækka störfum til að bregðast við bágri afkomu ferðaþjónustufyrirtækja á landsbyggðinni, segir ferðamálastjóri. Mun lakari afkoma er hjá hótelum á Norðurlandi en á höfuðborgarsvæðinu. Mikilvæg sýni við rannsókn á hvarfi sádiarabíska blaðamannsins Jamals Khashoggi fundust í gær við húsleit í tveimur byggingum sem tengjast ræðisskrifstofu Sádi-Arabíu í Istanbúl í Tyrklandi. Göngudeild SÁÁ á Akureyri verður líklega ekki lokað um áramót, segir formaður SÁÁ. Bæjarstjórn er tilbúin að styðja við starfsemina með öflugri hætti en áður. Lengri umfjallanir: Forsætisráðherra Noregs, hefur beðist afsökunar á illri meðferð sem norskar konur, sem áttu í sambandi við Þjóðverja í síðari heimsstyrjöldinni, máttu þola. Framkoma yfirvalda hafi ekki verið samboðin réttarríki. Bogi Ágústsson fjallar um málið. Langri rimmu stærsta lántaka Kaupþings, Roberts Tchenguiz (tjengviss) við þrotabú bankans lauk í gær. Sigrún Davíðsdóttir var viðstödd réttarhöldin í gær. Fjöldaframleiðsla er hafin á vetnisbílum. Fimmtán bílar voru fluttir hingað til lands í vor. BL ætlar að hefja almenna sölu á vetnisbíl frá Hyundai sem verður kynntur á næstunni. Nú eru reknar tvær vetnisstöðvar og von er á þeirri þriðju. Framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku segir mikilvægt að styrkja innviði og fjölga vetnisstöðvum.Arnar Páll Hauksson talaði við Jón Björn Skúlason. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir Tæknimaður: Grétar Þór Ævarsson
Rætt er við þau Unu Sveinbjarnardóttur fiðluleikara og Jón Marinó Jónsson hljóðfærasmið. Strokkvartettinn Siggi lék á hljóðfæri Jóns Marinós á tónleikum á nýliðinni Listahátíð í Reykjavík. Þau ræða við umsjónarmann um eitt og annað sem tengist nýjum hljóðfærum, þar á meðal sálina í þeim og hvernig er hugað sérstaklega að henni. Einnig heimsækir Arnljótur Sigurðsson þáttinn með skemmtilega tónlist sem tengist fimmtíu ára afmæli hippans.

Viðræður fjögurra flokka um myndun meirihluta í Reykjavík ganga vel. Hvorki Píratar né Viðreisn ætla að gera borgarstjórastólinn að aðalatriði í viðræðunum. Sjúkraflutningamaður á sérútbúnum bíl verður á Þingvöllum í sumar til að stytta viðbragðstíma ef slys verða í þjóðgarðinum. Dregið hefur mjög úr atvinnuleysi í Bandaríkjunum og farið er að bera á skorti á verkafólki. Fimmtíu til sextíu manns bætast að meðaltali á lista skjólstæðinga hjá heilsugæslustöðinni Firði í Hafnarfirði á mánuði. Gagnaver gætu misst viðskiptavini og flugfélög, netverslanir og fleiri lent í vandræðum ef tafir verða á innleiðingu reglugerðar um nýja persónuverndarlöggjöf. Arnar Páll Hauksson. Þeim sem nýta sér aðstoð Mæðrastyrksnefndar hefur fækkað úr ríflega 700 á viku niður í 300 síðan í hruni. Þeir eru hins vegar verr settir en fyrir nokkrum árum. Mæðrastyrksnefnd er 90 ára um þessar mundir. Kristján Sigurjónsson talaði við Önnu H. Pétursdóttur, formann Mæðrastyrksnefndar og Aðalheiði Fransdóttur framkvæmdastjóra. Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu vilja ekki framlengja rammasamning ríkisins við hjúkrunarheimili í núverandi mynd. Þau gagnrýna ósamræmi í kröfum eftirlitsaðila til þjónustunnar og segja fjárframlög ekki hafa tekið mið af auknum kostnaði. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Eybjörgu Hauksdóttur, framkvæmdastjóra SFV og Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrar.
Hætta á hruni veldur því að rannsókn lögreglu á eldsupptökum í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ í gær er skammt á veg komin. Þrítug kona og þrjár dætur hennar standa uppi slyppar og snauðar eftir brunann í í gær. Þar var það sem eftir var af búslóð þeirra. Þær þurftu að henda hinum hlutanum þegar þær fluttu út úr leiguíbúð fyrir tveimur vikum vegna myglu. Félagsmálaráðherra ætlar að kynna innan tveggja vikna bráðaaðgerðir til að bregðast við vanda ungra fíkla. Fimmtán þingmenn vilja að Alþingi lýsi því yfir að það hafi verið rangt að leggja til málshöfðun gegn fjórum fyrrverandi ráðherrum 2010 og að þeir verði beðnir afsökunar. Samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er stefnt að því að innheimta komugjalda hefjist 2020 og að þau skili 2,5 milljörðum í ríkissjóð. Móðir sem missti dóttur sína af slysförum, segir að fólk, sem missir nákominn skyndilega, oft gleymast. Viktoría Hermannsdóttir talaði við Hrönn Ásgeirsdóttur Einræði í Ungverjalandi. Pálmi Jónasson fjallar um ástandið í Ungverjalandi og þingkosningar sem verða þar um helgina. Vilja ekki komugjöld yfir vetrartímann. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.
Fimmtíu ár eru nú liðin frá sjóslysunum miklu í Ísafjarðardjúpi í byrjun febrúar 1968. Þá fórust 26 sjómenn af tveimur breskum togurum og einum íslenskum vélbáti. Af því tilefni verður haldin athöfn um borð í varðskipinu Óðni til minningar um þá sem týndu lífi þennan örlagaríka dag og jafnframt til að minnast þess björgunarafreks sem áhöfnin á Óðni vann. Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri Borgarsögusafnsins sagði okkur frá þessum sjóslysum, eftirmálum þeirra meðal annars í Bretlandi og viðburðinum um borð í Óðni í dag. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur skilað Strætó bs áliti sínu varðandi undanþágu á reglugerð sem myndi leyfa gæludýr í strætó í eitt ár. Strætó bs óskaði eftir undanþágu frá 55. grein reglugerðar um hollustuhætti eða að breyting verði á reglugerðinni vegna tilraunaverkefnis um gæludýrahald í strætó. Heiða Björg Hilmisdóttir stjórnarformaður Strætó bs kom í þáttinn og fór með okkur yfir málið. Lesandi vikunnar í þetta skiptið var Vigdís Hauksdóttir. Hún er garðyrkjufræðingur og lögfræðingur og sat á Alþingi fyrir Framsóknarflokkinn, en hún deildi með okkur hvað hún er að lesa, hvað er á náttborðinu og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina. Umsjón í dag Lísa Pálsdóttir og Gunnar Hansson
Lögmenn Glitnis HoldCo og Stundarinnar og Reykjavík Media deildu um það fyrir rétti í dag hvort lögbann á fréttaflutning miðlanna ráðist af stjórnmálum eða öðrum álitaefnum. Formaður Dómarafélagsins segir dómnefnd um umsækjendur um dómarastörf tryggja sjálfstæði við ráðningu dómara. Hún gagnrýnir ummæli dómsmálaráðherra um að nefndin hafi ekkert með sjálfstæði dómstóla að gera. Ný rannsókn sýnir að starfsfólk leikskóla er ekki nægilega upplýst um einkenni og viðbrögð við fæðuofnæmi. Innan við helmingur leikskóla í Reykjavík er með viðbragðsáætlun ef barn með bráðaofnæmi fær ofnæmiskast. Aukið rennsi er í Múlakvísl og breyting á lit árinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands Óhætt er að segja að bók dagsins sé Fire and Fury eftir bandaríska blaðamanninn Michael Wolff, bókin um fyrsta ár Donalds Trumps í embætti forseta Bandaríkjanna. Hún kom út í Bandaríkjunum í dag, fjórum dögum áður en áætlað var og rauk strax upp í efsta sæti flestra bóksölulista vestanhafs. Fimmtán hafa sýkst af mislingum á Stórgautaborgarsvæðinu í Svíþjóð og foreldrum 60 hvítvoðunga, var boðið að bólusetja þá, eftir að heilbrigðisstarfsmaður á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu greindist, sá hafði ekki komið inn á fæðingardeildina en verið í samskiptum við aðra heilbrigðisstarfsmenn sem þar störfuðu. Allt kapp er lagt á að hindra frekari útbreiðslu. Sóttvarnarlæknir segir að hér gæti komið upp sambærilegur faraldur.Bólusetningar séu lykillinn að því að verjast slíku en líka brýnt að heilbrigðisstarfsfólk og starfsmenn flugvalla, sem daglega eiga í samskiptum við mikinn fjölda fólks, séu bólusettir. Um fimm til tíu prósent starfsmanna Landspítalans eru það ekki. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Þórólf Guðnason. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að innistæðulausar launahækkanir hafi á síðustu 70 árum alltaf leitt til þess sama. Frá lýðveldisstofnun hafi á 7 til 10 ára millibili orðið gengisfall þar sem verðbólga eykst og kaupmáttur rýrnar hratt. Þetta muni gerast á nýjan leik ef haldið verði áfram á sömu braut
Super-cool graphic by Walter Scattolon. Thanks, Walter! As hard as it is for us to imagine, we've reached the half-century mark. Cincuenta. Cinquante. Cinquanta. Fünfzig. Vijjftig. Caoga. Femtio. Pedeset. Pum Deg Piecdesmit. Fimmtíu. Viisikymmentä. 50. Tsib Caug. Fiddy. vagmaH. L.Any way you say it, it boggles the mind...So for the last episode of 2015, we sent out the call to our faithful contributors to provide some great content for your listening pleasure.Jimmy & Paulie were busy handicapping the U.S. Presidential Primaries and were thus unable to contribute this time (don't worry, kids; they'll be back for the next "regular" episode) but everyone else on the dais is represented here. Good stuff, too!Marvel as:Steve & Randy reveal the REAL SONGWRITERS behind most of the planet's hit music (allegedly)Dan Sullivan exposes NASHVILLE'S LITTLE SECRETAngie Perrault goes FISHING FOR THAT HOOK and we get to hear her song FISH ON Brendan Smoother gives us A VIEW FROM DOWNUNDER and shares some new music and personal newsRandy shares his favorite day of the week (and type of bracelets) in YOU THINK YOU KNOWWalter Scattolon (who also provided both the intro and title graphic for this episode) walks us through the creation of his song ALL THESE KEYS And we conclude this episode (and 2015!) with Christopher Shane Long's hit-to-be (you heard it here first) 1968 Randy & Steve JAMMIN" Christopher Shane Long & Steve Walter's underground lair! CSSP/Steve Rempis on FaceBook Steve Rempis on ReverbNation Randy Finchum on ReverbNation Randy Finchum's NASHVILLE SONGWRITERS' RADIO SHOW Angie Perrault on Songspace Reed waddle website Brendan Smoother on STARNOW Bec Hance Website Kelly Cork Website ABOVE THE BLUE Charity Album Jimmy Anderson on ReverbNation Dan Sullivan on ReverbNation The Window Panes (with Pauley Coconuts!) on Reverbnation Chris Long on ReverbNation
eftir Halldór Laxness. Höfundur les. (Hljóðiritað 1956)