POPULARITY
Hlaðvarpið Draugar fortíðar sem stjórnað er af þeim Baldri Ragnarssyni og Flosa Þorgeirssyni hefur vakið mikla athygli og notið mikilla vinsælda. Þeir félagar taka fyrir ýmis mál úr mannkynssögunni og nálgast það úr ýmsum áttum á skemmtilegan og lifandi en umfram allt, fræðandi máta. Ekki síst hefur umræða þeirra um geðræn vandamál og andlega heilsu stuðlað að því að þeir eiga dyggan hóp hlustenda. Draugarnir munu fara víðreist um landið í janúar og heimsækja vel valda staði í öllum landshlutum eða eins og þeir segja sjálfir: Draugar fortíðar ásækja Ísland. Baldur og Flosi komu í þáttinn í dag. Búðu til pláss er nafnið á söfnunar- og skemmtiþætti UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem verður annað kvöld í sameiginlegri beinni útsendingu RÚV, Stöðvar 2 og Sjónvarps Símans. UNICEF á Íslandi fagnar 20 ára afmæli í ár og tugþúsundir Íslendinga hafa búið til pláss í hjörtum sínum með því að gerast heimsforeldrar og þannig stutt réttindi og velferð milljóna barna um allan heim. Við fengum þau Fannar Sveinsson og Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur, sem eru tvö af þeim sem hafa umsjón með dagskránni annað kvöld, til að segja okkur betur frá henni í dag. Svo hringdum við í Grenivíkurskóla, en krakkarnir þar hafa unnið að sagna- og bókagerð og nú hafa þau opnað bókabúð þar sem þau selja eingöngu eigin ritverk og ýmislegt fleira sem þau hafa búið til og allur ágóði rennur til mæðrastyrksnefndar á Akureyri. Við töluðum við Pál Þóri Þorkelsson nemanda og Hólmfríði Björnsdóttur kennara í lok þáttarins í dag. Tónlist í þættinum: Snjókorn falla / Laddi (Bob Heatlie, texti Jónatan Garðarsson) Litli Trommuleikarinn / Raggi Bjarna og Ellý Vilhjálms (Harry Simeone, Henry Onorati, texti Stefán Jónsson) Jólarómantík / Stefán Hilmarsson og Ragga Gröndal (Frank Loesser, texti Kristján Hreinsson) Jól á Hafinu / Vilhjálmur Vilhjámsson (Steer & Hansen, texti Jóhanna G. Erlingsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í upphafi þáttar var slegið á þráðinn til Róberts Arnar Stefánssonar, forstöðumanns Náttúrustofu Vesturlands. Hann átti glæsilega mynd af erni á forsíðu Morgunblaðsins á þriðjudag og sagði frá henni og stöðu arnarstofnsins. Nýliðinn júlímánuður var sá næstsólríkasti í Reykjavík frá upphafi veðurmælinga. Og mánuðurinn var þurr, en ekki sérlega hlýr. Kristín Björg Ólafsdóttir, sérfræðingur á sviði veðurfarsrannsókna á Veðurstofu Íslands, sér um að taka saman upplýsingar um tíðafarið í hverjum mánuði. Hún var gestur Morgunvaktarinnar og sagði frá tíðinni í sumar og hvernig staðið er að veðurfarsmælingum. Borgþór Arngrímsson ræddi dönsk málefni. Danir líkt og Svíar glíma við Kóranbrennur og eftirmál þeirra og leita leiða til að koma böndum á brennurnar. Borgþór sagði frá nýjustu vendingum í því máli og fleiru sem efst er á baugi í Danmörku. Í lok þáttar lá leiðin á Gjögraskaga, skagans milli Eyjafjarðar og Skjálfandaflóa sem sumir kalla Flateyjarskaga. Björn Ingólfsson, fyrrverandi skólastjóri á Grenivík, hefur skrifað bók um skagan, sem full er af fróðleik um fjöllina og dalina, bæina og lækina. Hann sagði frá. Tónlist: Western Island - Archie Fisher Djelem, djelem - Saban Bajramovic & Mostar Sevdah Reunion Fram í heiðanna ró - GÓSS Forårsdag - Anne Linnet Vor í Vaglaskógi - Vilhjálmur Vilhjálmsson og hljómsveit Ingimars Eydal Í sól og sumaryl - Bjarki Tryggvason og hljómsveit Ingimars Eydal Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir.

Karen segir frá lífi sínu á Grenivík, og hvernig lífið leiddi hann í þá átt þar sem hún er í dag. Karen starfar sem handritshöfundur eftir að hafa klárað sálfræðinám. Hún hefur skrifa með öðrum þættina "Venjulegt fólk" og var að skrifa "Arfurinn minn" ásamt Kristófer Dignusi og Jóni Gunnari Geirdal

Átta hafa verið handteknir vegna hnífaárásar á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld. Hún markar ákveðin þáttaskil, segir Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur. Þarna var gerð skipulögð aðför að mönnum á opinberum vettvangi; aðför sem ber keim af gengjastríðum. Sunna Karen Sigurþórsdóttir ræddi við Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjón og Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Helga. Nokkrir hafa verið handteknir og farið hefur verið í húsleit á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn héraðssaksóknara á umfangsmesta sígarettu- og veipsmygli sem komið hefur upp hér á landi. Lagt hefur verið hald á eignir upp á hálfan milljarð í tengslum við rannsóknina. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Nokkrir fyrrverandi yfirmenn hjá Twitter spá því að miðillinn hrynji endanlega til grunna um helgina. Höfuðstöðvum fyrirtækisins hefur verið lokað til mánudags og starfsfólkinu meinaður aðgangur. Oddur Þórðarson sagði frá. Stórvirkar vinnuvélar voru í dag notaðar við að ryðja leið í gegnum aurskriðuna sem féll á Grenivíkurveg í gærmorgun. Vegurinn er þó enn lokaður og verður að minnsta kosti til morguns. Fjöldi fólks hefur undanfarna mánuði verið sakfelldur í Svíþjóð fyrir mótmælaaðgerðir sem beinast að aðgerðaleysi í loftslagsmálum. Dómarnir hafa verið skilorðsbundnir en talsmenn nýrrar ríkisstjórnar hafa talað fyrir hertum viðurlögum. Kári Gylfason sagði frá. Stjórnvöld ríkja í Austurlöndum fjær og víðar fordæma að Norður-Kóreumenn skutu í dag langdrægri eldflaug í átt að Japan. Hún lenti í sjónum innan efnahagslögsögu landsins. Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, tók í gær við 550 eintökum af heildarútgáfu Íslendingasagnanna sem gefin verða mennta-, menningar- og heilbrigðisstofnunum víða um land. Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar, kveðst vongóður um að úr leysist varðandi endurbætur á húsnæði dvalarheimilisins Hliðar á Akureyri. Mygla hefur greinst á Hlíð sem talin er hafa valdið veikindum hjá heimilisfólki þar. Ágúst Ólafsson sagði frá og ræddi við Teit. Enska úrvalsdeildarliðið Manchester United undirbýr málsókn á hendur Cristiano Ronaldo vegna ummæla sem hann lét falla um félagið í sjónvarpsviðtali. Félagið telur leikmanninn hafa rofið samning sinn við félagið og hann fær ekki að snúa aftur til þess þegar HM í Katar lýkur. Dönsk kona á fertugsaldri hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir stuðning við hryðjuverk.

Nancy Pelosi ætlar að hætta sem leiðtogi Demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, en sitja áfram á þingi. Tap Demókrata í þingkosningum og árás á eiginmann hennar eru taldar helstu ástæðurnar. 16 ára drengur var fjóra daga í einangrun vegna gruns um að hann væri viðriðinn kókaínsmygl sem faðir hans er grunaður um. Landsréttur felldi gæsluvarðhaldið úr gildi þar sem gögn málsins renndu ekki stoðum undir þann grun lögreglunnar. Hatursglæpir færast í aukana samkvæmt tölfræði Ríkislögreglustjóra. Talið er að slíkir glæpir séu fleiri en tilkynningar til lögreglu segja til um. Það reynir á gestrisni Katara þegar augu fjölmiðla beinast að heimsmeistaramótinu í fótbolta sem hefst á sunnudag. Fjölmiðlamenn hafa nú þegar lent í útistöðum við yfirvöld í landinu. Læknanemar sem læra erlendis eiga margir erfitt með að ná endum saman. Þeir bera sjálfir hitann og þungann af skólagjöldum. --- Stærsti íþróttaviðburður heims er handan við hornið. Á sunnudag verður flautað til leiks á Heimsmeistaramóti karla í fótbolta í Katar. Gestgjafarnir eru umdeildir. Mannréttindi og aðbúnaður fólks sem reisti gríðarstóra leikvanga hafa verið í brennidepli. Og nú streyma lið og fylgdarlið til olíuríkisins og því fylgir fjölmiðlafólk alls staðar að úr veröldinni. Og þá verða árekstrar. Frelsi fjölmiðla í landinu er ekki mikið. Á lista Samtaka blaðamanna án landamæra yfir frelsi fjölmiðla situr Katar í sæti 110. Fjölmiðlafólki sem sækir landið heim þessa dagana er sniðinn stakkur eftir hentisemi yfirvalda í Katar, til að mynda var fréttamönnum TV2 í Danmörku meinað að mynda á ákveðnum stöðum og reynt að koma í veg fyrir beina útsendingu þeirra nema undir ströngu eftirliti. Við skulum heyra í Rasmus Tantholdt fréttamanni TV2 sem staddur er í Katar og hvernig öryggisverðir brugðust við þegar hann ætlaði að fara í beina útsendingu við hringtorg á víðavangi fyrr í vikunni. Bjarni Rúnarsson tók saman. Í morgun féll aurskriða úr hlíðinni ofan við Grenivíkurveg, sunnan við Fagrabæ. Tveir bílar lentu í skriðunni og annar hreifst með niður fyrir veginn eins Ægir Jóhannsson lýsti í hádegisfréttum. Ægir var á leiðinni í vinnuna árla morguns þegar hann ók fram á skriðuna. Stórt sár er fyrir ofan veginn og mögulega hreyfing enn á vatnsósa hlíðinni. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Esther Hlíðar Jensen, skriðusérfræðing á Veðurstofunni. Herforingjastjórnin í Mjanmar gaf í dag hátt í sex þúsund föngum upp sakir, þar á meðal nokkrum útlendingum sem var vísað úr landi. Stjórnvöld í landinu hafa alþjóðasáttmála um mannréttindi að engu. Fjöldi fólks

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Lögregla rannsakar tvö af stærstu fíkniefnamálum sem upp hafa komið hér á landi. Grunur leikur mörg hundruð milljóna peningaþvætti og sakborningar skipta tugum. Bjarni Pétur Jónsson tók saman. Rætt við Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjón og Huldu Elsu Björgvinsdóttur, sviðsstjóra ákærusviðs. Bandarískt fyrirtæki hyggst byggja upp starfsemi á Akranesi og Grundartanga til að berjast gegn loftslagsbreytingum. Því getur fylgt mikil atvinnuuppbygging og breytingar á Akranesi segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi. Nokkrar vikur tekur að þjálfa úkraínska hermenn áður þeir geta beitt bandarískum eldflaugakerfum sem draga helmingi lengra en þau sem úkraínski herinn á fyrir. Þórgnýr Einar Albertsson tók saman. Viðskipti með hlutabréf í Ölgerð Egils Skallagrímssonar fara rólega af stað, eftir að fyrirtækið var skráð á aðalmarkað í Kauphöllinni í morgun. Verð hlutarins hefur sveiflast eilítið í kringum opnunarverðið, sem var um 10 krónur á hlut. Sigurður Kaiser tók saman og ræddi við Andra Þór Guðmundsson, forstjóra Ölgerðarinnar. Sérstakur Úkraínudagur var haldinn í Grenivíkurskóla í síðustu viku. Þar söfnuðust rúmar 400 þúsund krónur sem renna til neyðarsöfnunar Rauða krossins vegna stríðsins í Úkraínu. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við Þorgeir Rúnar Finnsson skólastjóra Grenivíkursskóla. Færa á til og fresta á næsta ári opinberum verkefnum, sem nema um 9 milljörðum króna .Samkomulag virðist í höfn milli flokkanna á þingi en Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra ákvað að fresta frumvarpi sínu um útlendinga til haustsins til að liðka fyrir samningum um þingfrestun. ---------- Sóttvarnalæknir býst við að fleiri greinist með apabólu á næstu vikum. Tveir hafa þegar greinst og verða í einangrun næstu vikur, apabóla er ekki bráðsmitandi en smitast helst við nána og langvarandi snertingu. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir ræddi við Þórólf Guðnason, sóttvarnalækni. Fólk með þroskahömlun á oft erfitt með að tala sínu máli og gerir sér jafnvel ekki alltaf grein fyrir því að þeir séu beittir ofbeldi eða vanvirðingu segir Árni Múli Jónasson framkvæmdastjóri Þroskahjálpar. Engin ástæða sé til að ætla að sögur af illri meðferð á stofnunum séu bara úr fortíðinni. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Árna. Allt skal upp á borðið, segir Múte B. Egede formaður Landsstjórnar Grænlands, eftir að hafa skrifað undir yfirlýsingu með Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana í Þórshöfn í Færeyjum. Koma á fót nefnd til að skoða samband Grænlands

Síðdegis í gær var tilkynnt um sölu á rúmlega fimmtungs hlut ríkisins í Íslandsbanka. Eftirspurn var mikil og fékk ríkið 52 og hálfan milljarð fyrir hlutina sem voru seldir og á nú 42,5% í bankanum; ekki kemur í ljós hverjir keyptu fyrr en í næstu viku en hlutirnir voru boðnir stofnfjárfestum ekki almenningi. Már Wolfgang Mixa, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, segir ýmislegt skýra það að þessu sinni séu hlutir boðnir fagfjárfestum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Má. Alltof margir spá lítið sem ekkert í lífeyrisréttindum sínum og fólk er helst til kærulaust með að ganga úr skugga um að allt sé með felldu. Lífeyrisréttindi sambúðarfólks geta verið misjöfn og það þarf að passa tímanlega að réttindi hvers og eins séu tryggð. Bjarni Rúnarsson ræddi við Þóreyju S. Þórðardóttur, framkvæmdastjóra Landssambands lífeyrissjóða og fyrst var spurt hverju fólk flaskar helst á í lífeyrismálum. Helstu atriði frétta: Fjármálaráðherra segir að við söluna á bréfum í Íslandsbanka hafi áhersla verið lögð á að fá kaupendur að borðinu sem ekki væru að leita að skjótfengnum gróða. Tvennt var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur eftir sprengingu í verksmiðju á Grenivík síðdegis í dag. Báðir eru mikið slasaðir. Íbúum úkraínsku borgarinnar Chernihiv er haldið í gíslingu af rússneska hernum að sögn umboðsmanns mannréttindamála í Úkraínu. Framkvæmdastjóri NATO boðar aukinn viðbúnað í Austur-Evrópu. Fráfarandi formaður Starfsgreinasambandsins vonast til að öldur innan verkalýðshreyfingarnar lægi á næstunni. Þar geti eftirmaður hans lagt hönd á plóg. Frá og með fyrsta apríl verða hraðpróf hjá einkafyrirtækjum ekki lengur ókeypis. Spegillinn 23. mars 2022. Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendinga: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Uppistandarinn hún Karen Björg var í sumarfríi á æskuslóðum sínum á Grenivík þegar hún skutlaðist yfir til Akureyrar til að drekka vatnsglas með mér í sjóðheitu stúdíói. Hún sagði mér frá fyrsta uppistandinu sínu, tímanum þegar að hún bjó með módelfitness pari í London og hvernig ferilinn hennar sem bæði handritshöfundur og uppistandari hefur farið á flug á síðastliðnum árum. Við ræddum tísku áhuga hennar, mun á vinum okkar fyrir norðan vs fyrir sunnan og svo auðvitað atvikið þar sem kemur í ljós að hún er ekki konan hans Péturs Jóhanns. Karen er geggjuð og ég hlakka til að mæta á uppistand með henni sem fyrst, njótið vel. IG: @karenbjorg @katavignis
Átakið Hjólað í vinnuna fer af stað í dag, en það er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og er heilsu og hvatningarverkefni. Árið í ár er 19. árið sem það fer fram og átakið stendur að vanda yfir í þrjár vikur eða til 25. maí. Á þeim tíma eru landsmenn hvattir til að hreyfa sig og nýta sér heilsusamlegar, umhverfisvænar og hagkvæmar samgöngur með því að hjóla, ganga eða nota annan virkan ferðamáta. Hrönn Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, kom til okkar og fór yfir það helsta sem við þurfum að vita. Barnaþing verður haldið öðru sinni í haust, en á næstu dögum eiga 350 börn um land allt von á bréfi frá umboðsmanni barna þar sem þeim er boðið til þingsins. Þau börn sem fá boð á þingið voru valin með slembivali úr þjóðskrá til að fá sem fjölbreyttastan hóp til þátttöku en markmið þingsins er að efla lýðræðislega þátttöku barna og virkja þau í umræðu um málefni sem þau varða. Salvör Nordal umboðsmaður barna kom til okkar og sagði okkur meira af þessu verkefni. Við forvitnuðumst um þyrluskíðaferðir á Siglufirði en nóg hefur verið að gera á þeim vettvangi undanfarið. Við hringdum í Björgvin Björgvinsson hjá Viking heliskiing og fengum hann til að segja okkur frá þessum ferðum. Þá sagði Björgvin okkur frá lúxushóteli sem þeir félagar eru með í bígerð á Grenivík. Ríkisstjórn Íslands hefur fjárfest í námskeiði um gervigreind til að styrkja samkeppnishæfni Íslendinga. Forsætisráðuneytið og fjármála- og efnahagsmálaráðuneytið fara fyrir verkefninu í samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Um er að ræða finnskt vefnámskeið sem hefur verið þýtt á íslensku og er öllum opið. Við fengum þau Írisi Huld Christersdóttur, sérfræðing í fjármálaráðuneytinu og Ólaf Andra Ragnarsson, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík, til okkar til að leiða okkur í allan sannleikann um þetta námskeið. Við heyrðum svo í okkar manni á Spáni, Jóhanni Hlíðar Harðarsyni, sem lumaði á tíðindum af kosningum, málaferlum og Eurovision. Ragnar Már Vilhjálmsson frá Color Run á Íslandi kom til okkar og sagði okkur frá breytingum á hlaupinu vinsæla í sumar. Tónlist: Bubbi Morthens - Fallegur dagur. Eyjólfur Kristjánsson - Dagar. Greentea Peng - Hu Man. Steely Dan - Hey Nineteen. Krummi - Frozen teardrops. Dua Lipa - Were good. Sigurður Guðmundsson - Kappróður. Madonna - Papa dont preach.

Edda Elísabet Magnúsdóttir, hvalafræðingur: um hvalreka í Grenivík, hvalasöng og helstu ógnir við líf hvala. Sverrir Norland: um nýútkomna bók sína, Stríð og klið Már Örlygsson, forritari: misræmi í túlkun á nýgengi smita á landamærum

Spegillinn 8.apríl 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason Hærri sektir fyrir sóttkvíarbrot og aukið eftirlit er meðal þess sem sóttvarnalæknir leggur til í aðgerðum á landamærunum. Frá og með miðnætti verða allir sem koma til landsins að fara í fimm daga sóttkví og tvisvar í sýnatöku. Heimasóttkví er heimil að uppfylltum skilyrðum. Aðeins einn af hverjum nokkur hundruð þúsund fær aukaverkanir af AstraZeneca bóluefninu segir sóttvarnalæknir. Fólk sem ekki telst í áhættuhóp verður áfram bólusett með efninu hér á landi. Yfirvöldum í Tékklandi er heimilt að skylda ung börn í bólusetningu við ýmsum sjúkdómum, samkvæmt úrskurði Mannréttindadómstóls Evrópu í dag. Málið hófst áður en COVID-faraldurinn skall á. Almannavarnir og Veðurstofan ætla að taka saman upplýsingar um hættur sem kunna að leynast göngufólki á gosstöðvunum á Reykjanesskaga. Litlar breytingar hafa orðið á gasmyndun gossins síðustu daga. Heilbrigðisyfirvöld Evrópuríkja fylgja hvert sinni stefnu um notkun á bóluefni AstraZeneca. Mörg einskorða notkunina við eldra fólk, en allur gangur er á hvar mörkin liggja. Snjóflóð féll á skíðasvæðinu í Skálafelli rétt fyrir klukkan tvö í dag. Einn maður lenti í flóðinu en fannst fljótt, heill á húfi. Norðsnjáldri af ætt svínhvala fannst rekinn dauður í síðustu viku í svokallaðri Bót við bæinn Höfða II, skammt sunnan við Grenivík í Eyjafirði. Andrésar Andar leikunum sem hefjast áttu á sumardaginn fyrsta á Akureyri hefur verið frestað um þrjár vikur Lengri umfjöllun: Jóhanna Jakobsdóttir lektor í líftölfræði við Háskóla Íslands segir að þrátt fyrir að mörg lönd í Evrópu hafi gripið til harðra sóttvarnaraðgerða í Covidfaraldrinum, og náð góðum tökum á honum, þá hafi stjórnvöld gert þau mistök að slaka of fljótt á. Þess vegna sé staðan eins og hún er í álfunni. Jóhanna er í hópi vísindamanna sem gert hafa spálíkan um þróun faraldurisns nánast frá upphafi hans. Kristján Sigurjónsson talar við Jóhönnu. Óeirðir á Norður-Írlandi eru aftur orðnar fréttaefni, fleiri en 50 lögreglumenn eru slasaðir eftir átök undanfarna daga og í gær voru átök þar sem hverfi sambandssinna og lýðveldissinna mætast. Við aldalanga óeirðasögu bætist Covid við, eða öllu heldur umdeild jarðarför byltingarsinna úr Sinn Fein í fyrrasumar. Og svo ekki síst Brexit, eða sú lausn sem Boris Johnson forsætisráðherra kaus varðandi Norður-Írland. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Vinnuvikan styttist um næstu mánaðamót hjá allt að 9 þúsund opinberum starfsmönnum sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum. Í sumum tilfellum get

Grásleppuvertíðin hefst í dag. Ágúst Ólafsson fréttamaður ræddi í gær við Jón Þorsteinsson grásleppusjómann á Grenivík og við hlusutðum á samtal þeirra. Hagkerfið tekur við sér í ár og hagvöxtur verður 2,6%, samkvæmt þjóðhagsspá Hagstofunnar sem birt var í gær. Landsframleiðslan dróst saman um 6,6% í fyrra. Við skoðuðum þessa nýju spá með Þórði Snæ Júlíussyni í spjalli um efnahag og samfélag. Ný fjármálaáætlun var einnig til umfjöllunar, og hlutabréfaverð í samhengi við rekstur fyrirtækja og forstjóralaun komu líka við sögu. Ástand Covid-mála í Þýskalandi hefur farið hratt versnandi og í gær var ákveðið að framlengja harðar takmarkanir þar fram yfir páska hið minnsta. Arthúr Björgvin Bollason var með okkur í Berlínarspjalli dagsins og ræddi þýsk málefni. Eldgosið í Geldingadölum var líka rætt, því Þjóðverjar eru áhugasamir um íslensk eldgos. Í dag er dagur Norðurlandanna, hann er 23. mars ár hvert,; norrænu samstarfi er fagnað og bent á mikilvægi þess. Af því tilefni fjöllum við um norræna menningu; hingað komu tveir starfsmenn Norræna hússins, þær Arnbjörg María Danielsen og Fanney Karlsdóttir og sögðu okkur frá því sem þær eru að lesa, hlusta á og horfa á þessa dagana.

Gígja Hólmgeirsdóttir ræðir við Gísla Gunnar Oddgeirsson, framkvæmdastjóra íþróttafélagsins Magna á Grenivík. Gísli Gunnar hefur búið alla sína tíð á Grenivík og fór snemma á sjóinn með pabba sínum. Í þættinum segir Gísli Gunnar frá áföllum sem hann hefur tekist á við í gegnum tíðina, en hann hefur á ekki langri ævi tekist á við krabbamein, hjartaáfall og vinnuslys á sjó. Hann segir mikilvægt að takast á við áföll af jákvæðni og ekki byrgja inni tilfinningar.

Ókei við getum gefið Chris það, þetta var the most dramatic season ever! Ekki mjög sjokking, þar sem við vissum alltof mikið, en dramatísk var hún! Það er SVO MARGT til að tala um eftir þennan þátt en Karen Björg Þorsteinsdóttir, uppistandari frá Grenivík vermir gestasætið í þessum þætti.PS. VÚHÚ TAAAYSHIAA ER KOMIIIIIN!
186.þáttur. Gísli Gunnar Oddgeirsson framkvæmdastjóri Magna frá Grenivík er á línunni og tjáir sig um þá ákvörðun KSÍ að stöðva Íslandsmótið en Magni féll í 2.deild á markamun þar sem einu marki munaði á Magna og Þrótti R. Þá er Þórhallur Dan að sjálfsögðu í góðu spjalli.
178.þáttur. Þórhallur Dan var á línunni og við ræddum um niðurstöðu KSÍ, Meistaradeildina og svo aðeins um hvernig er að vera í sóttkví, en Tóti er á öðrum degi í sóttkví. Þá var Sveinn Þór Steingrímsson þjálfari Magna frá Grenivík á línunni en Magnamenn er ánægðir með niðurstöðu KSÍ.
Í september og október stendur yfir á Austurlandi BRAS - menningarhátíð barna og ungmenna. Hátíðin hefur fest sig í sessi en þetta er í þriðja sinn sem hún er haldin. Við hringdum austur á Djúpavog og heyrðum í Halldóru Dröfn Hafþórsdóttur verkefnisstjóra hjá Austurbrú sem veit meira um þessa skemmtilegu hátíð og hún sgði okkur frá. Í sumar opnaði mathöllin Milli fjöru og fjalla í gamla kaupfélagshúsinu á Grenivík í Grýtubakkahreppi, og þar er íslenska lambakjötið í hávegum haft. Gígja Hólmgeirsdóttir brá sér til Grenivíkur og forvitnaðist um þennan nýja veitingastað í spjalli við Höllu Sif Guðmundsdóttur sem rekur staðinn ásamt fjölskyldu sinni. Egypska fjölskyldan, sem mikið hefur verið til umfjöllunar og verið í felum að undanförnu, var í gær veitt dvalarleyfi af mannúðarsjónarmiðum. Þetta varð ljóst í gær eftir að kærunefnd útlendingarmála féllst á endurupptökubeiðni hennar. Magnús Davíð Norðdahl, lögmaður fjölskyldunnar, kom til okkar. Eurogarðurinn er nafn á nýrri sjónvarpsþáttaröð sem fer í loftið um helgina. Úrvalslið leikara og grínara fer þar með helstu hlutverk en í Eurogarðinum segir frá drykkfelldum miðaldra braskara með vafasaman viðskiptaferil sem kaupir Húsdýragarðinn og hefur uppi stór plön um framtíð og þróun hans. Þau Anna Svava Knútsdóttir og Dóri DNA eru meðal þeirra sem koma að þessu verkefni og þau kíktu við og sögðu okkur meira. Tónlist: Krummi - Frozen teardrops. Sycamore Tree - Home again. Coldplay - Adventure of a lifetime. Hreimur og Fríða Hansen - Lítið hús. Auður - Enginn eins og þú. Suede - Beautiful ones. KK - Þetta lag er um þig. Bryan Ferry - Dont stop the dance. The Beatles - Drive my car. Hjálmar - Taktu þessa trommu. Queen - Youre my best friend. Stjórnin - Ég lifi í voninni. Janelle Monáe - Turntables.
Í þessum þætti er flakkað um Grenivík í Grýtubakkahreppi við Eyjafjörð. Rætt er við Guðnýju Sverrisdóttur sem var sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi og Grenivík í 27 ár. Hún gefur okkur innsýn inn í þróunina á svæðinu síðustu ár. Einnig verður rætt við hjónin Jón Stefán Ingólfsson og Jórlaugu Daðadóttur sem reka verslunina Jónsabúð í hjarta þorpsins. Því næst er farið í heimsókn til hjónanna Bjarna Arasonar og Þórunnar Indíönu Lúthersdóttur sem hafa frá árinu 2016 rekið ferðaþjónustufyrirtækið Cape Tours þar sem farið er í persónulegar ævintýraferðir út frá Grenivík. Að lokum verið spjallað við Gísla Gunnar Oddgeirsson um árangur íþróttafélagsins Magna í knattspyrnu. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Í september og október stendur yfir á Austurlandi BRAS - menningarhátíð barna og ungmenna. Hátíðin hefur fest sig í sessi en þetta er í þriðja sinn sem hún er haldin. Við hringdum austur á Djúpavog og heyrðum í Halldóru Dröfn Hafþórsdóttur verkefnisstjóra hjá Austurbrú sem veit meira um þessa skemmtilegu hátíð og hún sgði okkur frá. Í sumar opnaði mathöllin Milli fjöru og fjalla í gamla kaupfélagshúsinu á Grenivík í Grýtubakkahreppi, og þar er íslenska lambakjötið í hávegum haft. Gígja Hólmgeirsdóttir brá sér til Grenivíkur og forvitnaðist um þennan nýja veitingastað í spjalli við Höllu Sif Guðmundsdóttur sem rekur staðinn ásamt fjölskyldu sinni. Egypska fjölskyldan, sem mikið hefur verið til umfjöllunar og verið í felum að undanförnu, var í gær veitt dvalarleyfi af mannúðarsjónarmiðum. Þetta varð ljóst í gær eftir að kærunefnd útlendingarmála féllst á endurupptökubeiðni hennar. Magnús Davíð Norðdahl, lögmaður fjölskyldunnar, kom til okkar. Eurogarðurinn er nafn á nýrri sjónvarpsþáttaröð sem fer í loftið um helgina. Úrvalslið leikara og grínara fer þar með helstu hlutverk en í Eurogarðinum segir frá drykkfelldum miðaldra braskara með vafasaman viðskiptaferil sem kaupir Húsdýragarðinn og hefur uppi stór plön um framtíð og þróun hans. Þau Anna Svava Knútsdóttir og Dóri DNA eru meðal þeirra sem koma að þessu verkefni og þau kíktu við og sögðu okkur meira. Tónlist: Krummi - Frozen teardrops. Sycamore Tree - Home again. Coldplay - Adventure of a lifetime. Hreimur og Fríða Hansen - Lítið hús. Auður - Enginn eins og þú. Suede - Beautiful ones. KK - Þetta lag er um þig. Bryan Ferry - Dont stop the dance. The Beatles - Drive my car. Hjálmar - Taktu þessa trommu. Queen - Youre my best friend. Stjórnin - Ég lifi í voninni. Janelle Monáe - Turntables.
Helga Margrét Höskuldsdóttir ræðir við Karen Björg Þorsteinsdóttur, uppstandara. Karen ræðir uppvaxtarárin á Grenivík, ævintýrin sem fylgdu því að flytja til Akureyrar í menntaskóla og þá hryllilegar en síðar hlægilegar upplifanir i heimsreisu. Hún segir frá því hvernig hún leiddist út í uppistand, hvernig hún kynntist Þorsteini Guðmundssyni, grínara, og endaði á því að skrifa með honum lokaritgerð í sálfræði.

Staðan skoðuð hjá öllum liðunum á Norðurlandi, karla og kvenna. Framundan er bikarhelgi þar sem Dalvík/Reynir og KF mætast í nágrannaslag. Á Nökkvi séns á að komast alla leið í 3. umferð? Staðan skoðuð á Króknum, Húsavík, Grenivík og hjá Samherjum. Akureyrarliðin eru til umræðu í seinni hlutanum og leikkerfi KA rætt. Lélegt gengi Þórsara gegn betri liðunum í fyrra og mikilvægi Alvaro. Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson sjá um þáttinn.
Til okkar mætti upprennandi uppistandarinn Karen Björg. Við ræddum um hvernig er að flytja úr smábænum í Grenivík - í borg óttans: Reykjavík. Hvernig er að koma sér á framfæri - starta sínu eigin giggi - og láta hlutina gerast!IG: karenbjorg & helgijean & hjalmarorn110
Seinni hluti af norðurferð útvarpsþáttarins Fótbolti.net, Halló Akureyri! Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas heimsækja 1. deildarfélögin Þór og Magna í þessum seinni hluta. Rætt er við Pál Viðar Gíslason þjálfara Þórs og formanninn Óðinn Svan Óðinsson. Þá var Heimir Ásgeirsson, Eyjabitakóngur og Magnamaður, heimsóttur í nýtt vallarhús Magna á Grenivík.
Guðmundur Ingi Þóroddsson sagði frá uppvextinum í Breiðholti og Árbæ, skólagöngu og fjölbreyttum störfum sem hann vann við. Hann sagði frá því þegar hann fluttist til Spánar, byrjaði í fíkniefnaneyslu, leiddist út í innflutning á dópi og þaðan í fangelsi. Hann sagði frá árunum á Litla-Hrauni og síðar Vernd, Hann sagði frá því þegar hann kom út úr fangelsi, þegar hann flutti aftur til Spánar og byrjaði aftur að flytja dóp milli landa. Það endaði með fangelsisvist og í dag er Guðmundur enn með öklaband. Hann ræddi aðstöðu fanga og það úrræðaleysi sem þar ríkir, starf sitt í dag í veitingagerianum og ýmislegt fleira. Kristbjörg Jónasdóttir einkaþjálfari sagði frá uppvextinum á Álftanesi, árunum fyrir austan á Stöðvarfirði og ýmsu fleiru. Hún sagði frá íþróttaáhuga, fjölskyldunni, hvernig er að vera gift atvinnumanni í fótbolta, lífinu í Cardiff og nú í Katar og nýjasta verkefninu sem er framleiðsla á kremlínu sem búin er til á Grenivík.

Umfjöllunarefni þáttarinns að þessu sinni er meistaraflokkur Magna á Grenivík í knattspyrnu. Gísli Gunnar Oddgeirsson, Steini Þorra, Hjörtur Geir Heimisson, Arnar Geir Halldórsson, Pétur Heiðar Kristjánsson og Baldvin Ólafsson eru gestir Skúla Braga að þessu sinni. „Þetta er oft erfitt á köflum en þetta rekur mann áfram þessi knattspyrna. Þetta er ástríðan,“ sagði Gísli Gunnar Oddgeirsson meðal annars í þættinum sem er tileinkuður Magna frá Grenivík. „Það er nú eiginlega bara eitt sem að fer saman og það er Magni Grenivík og stemning. Það er í tísku hjá íþróttafélögum núna að gefa út ákveðin gildi sem að þau vinna eftir og ég held að kannski aðal gildið á Grenivík sé gleði. Það á alltaf að vera gaman að vera í Magna Grenivík,“ sagði Arnar Geir. „Þetta er byrjunarpunktur það er alveg klárt, á þessu leveli. Þessvegna er mjög mikilvægt að halda okkur uppi. Ef að það gerist ekki þá er það samt enginn heimsendir. Þá bara förum við upp aftur,“ sagði Pétur Heiðar Kristjánsson, einnig þekktur sem Peddi, meðal annars í þættinum.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson stýrðu skútunni og tóku meðal annars mjög áhugavert viðtal við Aron Jóhannsson. Aron gekk í raðir Hammarby frá Werder Bremen fyrr í þessum mánuði en hann hefur gengið í gegnum erfiða tíma á ferlinum vegna meiðsla. Annars ræddu þeir Tómas og Benni um boltann og heyrðu meðal annars í Elvari sem var á leið til Grenivíkur.
Við gripum upptökugræjurnar með okkur á fyrsta leik Leiknis í Inkassodeildinni 2019. Upphitun hófst tveimur tímum fyrir leik og var góð stemning í Leiknishúsinu. Ekki minnkaði hún þegar leikurinn hófst og okkar menn spiluðu glimrandi fótboltaleik.Árni Þór, Halldór, Ósi og Snorri sáu um þáttinn.Gestir: Þorsteinn Þormóðsson, formaður Magna, og Árni Elvar Árnason, leikmaður Leiknis.
Eftir hefðbundið upphafsrabb um veður, færð og fréttir voru leikin lög með Páli Óskari Hálmtýssyni og Ladda sem sæmdir voru fálkaorðunni á nýársdag. Linda Bára Lýðsdóttir, sálfræðingur hjá Virk starfsendurhæfingarsjóði, ræddi um sálarástand þjóðarinnar við upphaf nýs árs. Almennt líður okkur vel en margir glíma við kulnun, kvíða og þunglyndi. Rætt var sérstaklega um kulnun sem talsvert hefur verið fjallað um undanfarin misseri. Linda Bára varar við að farið sé frjálslega með hugtakið og bendir á að kulnun tengist vinnu og í henni felist örmögnun, bölsýni og minnkandi trú á eigin getu. Sparisjóður Höfðhverfinga var stofnaður í Laufási að lokinni messu á nýársdag 1879, fyrir 140 árum. Björn Ingólfsson, fyrrverandi skólastjóri á Grenivík, sagði frá stofnun sjóðsins og lífinu í Höfðahverfi á sínum tíma en hann ritaði sögu Sparisjóðsins á 125 ára afmæli hans. Sigrún Jóhannsdóttir héraðsdómslögmaður hefur sett á fót sjóð, Eflusjóðinn, sem ætlað er að styrkja þolendur ofbeldis til að sækja réttarbætur. Sigrún sagði frá hugmyndafræðinni að baki og starfsemi sjóðsins. Tónlist: Það rignir stöðugt á mig - Páll Óskar Hjálmtýsson Búkolla - Laddi Shallow - Bradley Cooper og Lady Gaga
Unglingalandsmót UMFÍ fer fram um verslunarmannahelgina, að þessu sinni í Þorlákshöfn. Unglingalandsmótið er með stærri hátíðum landsins og við slógum á þráðinn til Ómars Braga Stefánssonar, framkvæmdastjóra mótsins. Mikil umræða hefur verið í breskum fjölmiðlum að undanförnu um hvaða afleiðingar það hefði ef Bretum tekst ekki að semja við Evrópusambandið um útgöngu úr ESB heldur yfirgefi það án samninga. Utanríkisráðherra Breta, Jeremy Hunt, sagði í viðtali í fyrradag að líkurnar á því að enginn samningur náist aukist dag frá degi. Við heyrðum í Eiríki Bergmann stjórnmálafræðingi. Neistaflug í Neskaupstað er fastur liður í útihátíðahaldi landsmanna um verslunarmannahelgina og þar hefst fjörið í dag. Eyrún Björg Guðmundsdóttir veit meira og við hringdum austur og heyrðum í henni. Framundan eru miklar kjaraviðræður næsta vetur því mikill fjöldi kjarasamninga rennur út. Verkalýðshreyfingin hefur boðað hörð átök í samningum og breyttar verkfallsaðgerðir. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent í viðskiptafræði við HÍ og sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum, heimsótti okkur og ræddi það sem er í vændum. Uppgangur knattspyrnufélagsins Magna á Grenivík hefur vakið athygli en liðið leikur nú í Inkasso deildinni. Öflugur hópur stuðningsmanna og bæjarbúa tók sig til þegar liðið komst upp um deild og smíðaði stúku við heimavöllinn. Við heyrðum í Gísla Gunnari Oddgeirssyni hjá Magna. Tónlist: Múgsefjun - Lauslát. Sade - Still in love with you. Nýdönsk - Á plánetunni Jörð. Prince - Sign o' the times. Björk - Big time sensuality. Prins Póló - Læda slæda. Sú Ellen - Símon er lasinn. Stuðmenn - Búkalú. Baggalútur - Sorrí með mig. Billy Joel - Movin' out (Anthony's song). Hjálmar - Hættur að anda. Justin Timberlake - Can't stop the feeling. Arcade Fire - Everything now.
Magni Grenivík leikur í Inkasso-deildinni í sumar eftir að hafa komist upp úr 2. deildinni síðastliðið haust. Rúmlega 350 manns búa á Grenivík en fótboltaáhuginn þar er mikill. Magni komst síðast upp í næstefstu deild árið 1978 og mikil spenna er fyrir sumrinu á Grenivík. Hjörtur Geir Heimisson, markvörður og fyrirliði Magna, kíkti í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu á laugardag ásamt föður sínum Heimi Ásgeirssyni, eiganda Eyjabita, sem er einn af styrktaraðilum Magna.