Podcasts about birkir

  • 39PODCASTS
  • 84EPISODES
  • 1h 15mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Feb 21, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about birkir

Latest podcast episodes about birkir

Podcast með Sölva Tryggva
Birkir Vagn með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Feb 21, 2025 60:29


https://solvitryggva.is/ Birkir Vagn Ómarsson er einkaþjálfari og íþróttafræðingur. Í þættinum ræða Sölvi og Birkir um heilsu, samfélagsmál, Covid-tímabilið, feril Birkis og margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Kaja Organic - https://www.kajaorganic.com/

Lestin
Svörtu Sandar gagnrýni, I Adapt snýr aftur

Lestin

Play Episode Listen Later Dec 12, 2024 53:14


Í október hófst önnur sería af Svörtu Söndum, spennuþáttaráð úr smiðju Baldvins Z. Aldís Amah Hamilton fer aftur með hlutverk lögreglukonunnar Anítu en þættirnir gerast rúmu ári eftir atburði fyrri seríunnar. Brynja Hjálmsdóttir sjónvarpsrýnir Lestarinnar fer í saumana á Svörtu Söndum. Harðkjarnapönksveitin I Adapt er snúin aftur. Hljómsveitin var ein aðaldriffjöður pönksenunnar í Reykjavík á fyrsta áratug aldarinnar: reið, pólitísk og ógnarþétt á tónleikum. Birkir og Ingi Þór úr I Adapt setjast niður með Kristjáni og segja frá tónleikum sem þeir halda í Iðnó um helgina. Þar verður ábyggilega moshpittur og öskursungið með slagaranum Sparks.

Drep and Stone
Icelandic Whiskey, Snaps, and Sagas

Drep and Stone

Play Episode Listen Later Nov 13, 2024 29:42


On this episode we try to gifted bottles straight from Iceland, the Birkir and the Myrká as we talk about why Nick minored in Icelandic history, nailing surfboards together, a couple of Icelandic language lessons, picking your teeth with sticks, fermented sharks and hotdogs, the first Italian in Iceland, whiskey aged twelve years in a freezer, putting on your snow boots and parka, dark earth, if fire freezes in Iceland, and why souvenir bottles aren't always great- but these are.  Support Us On Patreon: https://www.patreon.com/DrepandStone We'd love to hear from you! https://linktr.ee/DrepandStone Don't forget to subscribe! Music by @joakimkarudmusic Episode #268

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Birkir Már og landsliðsgleðin á Wembley

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 8, 2024


Útvarpsþátturinn 8. júní. Tómas Þór og Benedikt Bóas halda um stýrið og að sjálfsögðu er sigur Íslands í vináttulandsleiknum gegn Englandi á Wembley fyrirferðarmikill. Birkir Már Sævarsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands, er gestur þáttarins en hann er eini Íslendingurinn sem hefur fengið rautt spjald á Wembley. Þá er fjallað um íslenska boltann.

Fram og til baka
Birkir Már bauð upp á fimm fótboltaminningar

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Jun 8, 2024 114:00


Aðalgestur Fram og til baka þennan morguninn var knattspyrnumaðurinn Birkir Már Sævarsson. Birkir spilar nú sitt síðasta tímabil með Val í Reykjavík og verður fertugur á árinu. Birkir vann sinn fyrsta titil með Val árið 2007, lék með landsliðinu til ársins 2021 þegar hann ákvað að hleypa sér yngri mönnum að sinni stöðu en hann er bakvörður. Í tilefni þess að Evrópumót karla í knattspyrnu hefst í komandi viku í Þýskalandi þá bauð Birkir upp á boltafimmu þar sem hann rifjaði upp fimm eftirminnilega leiki sem hann hefur tekið þátt í, inn á vellinum aðallega en þó aðeins sem áhorfandi í einum þeirra. Þar heyrðum við góðar sögur frá Hlíðarenda, Hammarby í Svíþjóð, HM í Frakklandi 1998, HM í Rússlandi 2018 og EM í Frakklandi árið 2016 þegar Íslendingar unnu m.a. frækinn sigur á Englendingum. Og sökum þess að þátturinn hófst með boltalátum þá hélt þáttastjórnandi boltanum gangandi með fótboltalögum. Hér er lagalisti þáttarins: Frá 08-09: Lón - Hours. Daði Freyr - Whole Again Kiriyama Family - Disaster Frá 09-10: Gerry & The Pacemakers - You'll Never Walk Alone. Bogomil Font og bakverðirnir - Skagamenn skora mörkin DODO GAD - Re-sepp-ten (Vi er rode Vi er hvide) The Lightning Seeds, David Baddiel, Frank Skinner - 3 Lions Friðrik Dór - Samvinnersamasemvinna The White Stripes - Seven Nation Army Bubbi Morthens - Við erum KR Dario G. - Carnaval Shakira - Waka Waka MGMT - Time To Pretend GALA - Freed from desire

Chess After Dark
#152 Arnór Sigurðsson - Live frá Manchester

Chess After Dark

Play Episode Listen Later Jan 18, 2024 100:43


Heimsóttum Arnór Sigurðsson til Manchester. Arnór er leikmaður Blackburn Rovers á Englandi og íslenskur landsliðsmaður en fyrst og fremst sómadrengur. Hljóðið var aðeins að stríða okkur - við biðjumst afsökunar á því. Að því sögðu var þátturinn einn sá allra besti í 150 þátta sögu CAD ef þið spyrjið sælkerabræður svo við hvetjum ykkur til að leiða það hjá ykkur.Takk fyrir samfylgdina í 150 þætti, þakklæti og fleira.Birkir & Leifur

Jerkapodden
Avsnitt 42 - Efter Hästö hemma - "Bondebajaren" gästar

Jerkapodden

Play Episode Listen Later Dec 27, 2023 61:03


God fortsättning och välkomna till 91:an efter den klara vinsten hemma mot Hästö. Vi tog ett snack med bondebajaren Eric Westergren spelandes numera för OV Helsingborg. Vi pratar om hans karriär, professionaliteten i Sävehof, varför Hammarby är unikt, dagens vinst, bortamatchen mot Alingsås, Richard Lindström, Emil Andersson, twitter-posörer, Walther, Birkir, Erik, Speaker-Peter, med mera.   Forza Bajen!

Spegillinn
Gaza, morðvopn, önnur sýruárás, áhrif loftslagsbreytinga á lífið

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 18, 2023 30:00


18. október 2023 Sextíu tonn af hjálpargögnum eru á leið á Gaza eftir að Ísraelar tilkynntu að þeir stæðu ekki í vegi fyrir að aðstoð kæmist þangað í dag. Utanríkisráðherra fordæmir árás á spítala í gær. Eiginkona og dóttir mannsins, sem var myrtur í Drangahrauni í Hafnarfirði í sumar, fundu blóðugan hníf við tiltekt í íbúðinni í fyrradag. Vopnið hafði ekki fundist í rannsókn lögreglu. Stíflueyði var kastað á dreng á skólalóð í Reykjavík á sunnudag. Enn er óvíst hvort stúlkan sem fékk stíflueyði í andlitið í fyrrakvöld hlýtur varanlegan skaða. Prófessor við lagadeild Háskóla Íslands telur að rammaáætlun sé hugsanlega komin á endastöð. Sambærilegt fyrirkomulag hafi verið aflagt í Noregi árið 2016. Robert Kennedy yngri gæti sett strik í reikninginn fyrir Donald Trump í bandarísku forsetakosningunum á næsta ári. *** Í fréttaskýringarhluta Spegilsins var rætt um áhrif loftslags á almenning, sjávarútveg, ferðaþjónustu og landbúnað svo eitthvað sé nefnt og rætt við Pétur Sigurðsson smábátasjómann og framkvæmdastjóra smábátaútgerðarinnar Sólrúnar á Árskógssandi, Halldór Björnsson loftslagsfræðing,Tristan Darra Stefánsson grunnskólanema, Jónu Fanneyju Friðriksdóttur leiðsögumann, Birkir Þór Heiðarsson föður og Hermann Inga Gunnarsson kúabónda í Klauf. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred. Annalísa Hermannsdóttir stjórnaði útsendingu frétta.

Spegillinn
Gaza, morðvopn, önnur sýruárás, áhrif loftslagsbreytinga á lífið

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 18, 2023


18. október 2023 Sextíu tonn af hjálpargögnum eru á leið á Gaza eftir að Ísraelar tilkynntu að þeir stæðu ekki í vegi fyrir að aðstoð kæmist þangað í dag. Utanríkisráðherra fordæmir árás á spítala í gær. Eiginkona og dóttir mannsins, sem var myrtur í Drangahrauni í Hafnarfirði í sumar, fundu blóðugan hníf við tiltekt í íbúðinni í fyrradag. Vopnið hafði ekki fundist í rannsókn lögreglu. Stíflueyði var kastað á dreng á skólalóð í Reykjavík á sunnudag. Enn er óvíst hvort stúlkan sem fékk stíflueyði í andlitið í fyrrakvöld hlýtur varanlegan skaða. Prófessor við lagadeild Háskóla Íslands telur að rammaáætlun sé hugsanlega komin á endastöð. Sambærilegt fyrirkomulag hafi verið aflagt í Noregi árið 2016. Robert Kennedy yngri gæti sett strik í reikninginn fyrir Donald Trump í bandarísku forsetakosningunum á næsta ári. *** Í fréttaskýringarhluta Spegilsins var rætt um áhrif loftslags á almenning, sjávarútveg, ferðaþjónustu og landbúnað svo eitthvað sé nefnt og rætt við Pétur Sigurðsson smábátasjómann og framkvæmdastjóra smábátaútgerðarinnar Sólrúnar á Árskógssandi, Halldór Björnsson loftslagsfræðing,Tristan Darra Stefánsson grunnskólanema, Jónu Fanneyju Friðriksdóttur leiðsögumann, Birkir Þór Heiðarsson föður og Hermann Inga Gunnarsson kúabónda í Klauf. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred. Annalísa Hermannsdóttir stjórnaði útsendingu frétta.

Handkastið
Breytingar á Ásvöllum og Arnar Birkir á línunni frá Svíþjóð

Handkastið

Play Episode Listen Later Sep 26, 2023 64:36


Lokaleikur 3.umferðar gerður upp, hitað var upp fyrir 4.umferð Olís deildar karla, kíkt á hvað Strákarnir Okkar eru að gera í Evrópu, Olís deild kvenna gerð upp og Arnar Birkir á línunni frá Svíþjóð.

Podcast með Sölva Tryggva
#211 Birkir Vagn með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Aug 28, 2023 20:01


Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Birkir Vagn Ómarsson er einkaþjálfari og íþróttafræðingur. Í þættinum ræða Sölvi og Birkir um heilsu, samfélagsmál, Covid-tímabilið, feril Birkis og margt fleira. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Heilsubarinn - https://www.heilsubarinn.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/

Synseligaen
#199 - "Drama uke unnagjort" - Kjetil Knutsen sa ja til RBK, men så... - Gamle er eldst, fortsatt!

Synseligaen

Play Episode Listen Later Jul 17, 2023 115:11


Berisha bom, Youtube verdig/ Enga i trøbbel / Molde i god flyt... / Sarpsborg 2 seiere siste 6 kamper / Kamma, henger i / Birkir på overtid / VAR fungerte perfekt idag / Ukens Twitter mld den varmer / Fantasy prat / RBK med Sæter / "Slapp av vi har Nelson" / Hva mangler RBK?/ Holse prat / Der løsnet det for Lehne / Adams show / Vannfest i Bergen / Braut sin miss, enorm / Unggutta i Brann / Godset imponerer / Odd med tre mål borte / Tomas show i garderoben / Neste runde spådom.Support the showTrykk linken over "Support the show".Dette er link til patreon for deg som ønsker mere av Synseligaen på øret.Der får du tilgang på en episode ekstra hver uke om du har stor interesse i Eliteserien. Medlemskap på Patreon kan benyttes mnd til mnd eller et år av gangen.(Lydklipp er godkjent av utvalgte spillere & mediahus).Takk til Tv2 sporten & Europort for bruk av lydklipp i denne episoden.

Valur - Hljóðvarp
SE5 - EP05 - Allt í gangi, afmælisdagur og Birkir Már

Valur - Hljóðvarp

Play Episode Listen Later May 11, 2023 39:51


Afmæli félagsins okkar í dag og það eru margar gjafirnar sem má gleðjast yfir þessa dagana. Af því tilefni fengum við einn okkar dáðasta son í spjall, Birkir Már settist i Toggastofu til að fara yfir hlutina og það var af nógu af taka. Maí er kannski okkar skemmtilegasti mánuður þar sem barist er á nánast öllum vígstöðvum og Birkir og fjölskyldan daglegir gestir í Valsheimilinu. Birkir átti stórleik á dögunum gegn KR-ingunum og lagði upp þrjú mörk. Við fórum yfir leikinn sem hann segir jafnvel komast á topp fimm listann yfir bestu leiki sem hann hefur tekið þátt í. Og þar er af nógu að taka. Við ræddum líka úrslitaeinvígið í körfunni sem er við suðupunkt en Birkir hefur ekki látið sig vanta á þá leiki. Við erum orðnir feykispenntir fyrir leiknum á morgun og upphitun í Fjósinu frá væntanlega miðjum degi. Við ræddum líka úrslitaeinvígið framundan við ÍBV í kvennahandbolta og og okkar nýjustu Íslandsmeistarara í körfu kvenna. Við sögu kemur líka háskólanám í sænsku og Tik-Tok vídjó, svo já, það var farið vítt yfir um það bil 40 mínútum. Hlökkum til morgundagsins og að sjá ykkur í næstu stríðum!

Synseligaen
#190 - Monster spisser & Garnås refs 2 - Hands er tydeligvis "lov" - Rådville RBK & Molde kommer nå...

Synseligaen

Play Episode Play 37 sec Highlight Listen Later May 8, 2023 115:22


Brann med smultring / Midtstopperne i Sandefjord / "Du rykker ikke ned med sånne stoppere" / RBK, "man kan bli noe rådvill" / De er ikke best i noe / Lan ferdig og Ålesund sprudlet / Molde er på vei nå... / Ukens twitter post til NFF / Seige Odd / Bang Kittelsen i Odd / Unggutter på vei / Birkir, legende / Nadderud banen, Utvik & skyld fordeles / Fantasy prat / Hands er lov i Eliteserien / LSK & Glimt viste form / Adams vs Pemi / Garnås refs / Fakta kommende runde / Neste runde spådom.Support the showTrykk linken over "Support the show".Dette er link til patreon for deg som ønsker mere av Synseligaen på øret.Der får du tilgang på en episode ekstra hver uke om du har stor interesse i Eliteserien. Medlemskap på Patreon kan benyttes mnd til mnd eller et år av gangen.(Lydklipp er godkjent av utvalgte spillere & mediahus).Takk til Tv2 sporten & Europort for bruk av lydklipp i denne episoden.

Alltaf sama platan
16. Power Up

Alltaf sama platan

Play Episode Listen Later Jan 17, 2023 136:50


MATARBÚÐIN NÁNDIN KYNNIR:Alltaf sama platan 16. þáttur - POWER UPSmári Tarfur og Birkir Fjalar vakna af værum blundi á rúmsjó þeim er liggur eftir sprellibossanna geðþekku í AC/DC.  Báturinn er farinn að leka. Þeir eru áttaviltir, óákveðnir og jafnvel orðlausir. Sextánda og sennilega síðasta platan liggur fyrir og tilfinningarnar eru blendnar. Bæði vegna sveitarinnar sjálfrar og líka vegna þess að þessi tiltekni þáttur táknar endalok þáttaraðarinnar sem kumpánarnir hafa deilt með hlustendum sínum annað veifið í tæp tvö ár.Heyrðum við blautt prump? Sáum við neista? Eiga gamalmennin eitthvað inni eða er komið nóg? Endurreisn, upprisa, ristruflanir? Power Up heitir hún kom heit út úr byssuhlaupinu, það vantaði ekki. Allt í einu voru öll að tala um AC/DC á ný. Þetta var fyrir tveimur árum. Þeim tókst þetta. Magnað þetta langlífi. Covid var heitt dæmi. Öll eru að tala um dönsku myndina Druk. Tiger King og The Queen's Gambit ríða röftum í sjónvarpi. Billie Eilish, Post Malone og The Weekend eiga sviðið. En einhvernvegin, eins og fyrir kraftaverk sem snúið er í gang af aðdáendum, kemst Power Up í fyrsta sæti á a.m.k. 21 listum hingað og þangað um heiminn, eru tilfefndir til ýmissa tónlistarverðlauna og vinna sjálfsagt einhver þeirra. Og þetta gera þeir með aðalsprautu og leiðtoga undir grænni þúfu, trommarann í réttarsal og heyrnalausan söngvara, svo eitthvað sé nefnt.Það skal viðurkennast að við þáttarstjórnendur stóðum töluvert á gati í þessum þætti. Upptökur voru að þessu sinni ljúfsárar. Við vissum mismikið um AC/DC. Tarfurinn vissi eiginlega allt en Birkir er dæmigerður diet-aðdáandi sem sleppti takinu á sveitinni þegar hann var unglingur. Báður höfum lært margt við gerð þessara þáttaraðar. Við hlustuðum svo mikið á AC/DC og þurftum að endurskoða, aflæra og endurmeta svo mikið af dóti sem við héldum að væri í gömlu pækilstunnum fortíðarinnar. AC/DC gefa nefnilega ekki alltaf út sömu plötuna. Við færðum rök fyrir því, oft og mörgum sinnum. Plötur sem gerðu lítið fyrir okkur þegar við vorum yngri sýna okkur spennandi og ferskar hliðar nú. Það er svo skemmtilegt. Ef okkur hefur lærst eitthvað sem við viljum deila með ykkur þá er það að AC/DC er sýnd veiði en ekki gefin. Og að nánast öll tónlist ætti að fá gaumgæfilega og einbeitta endurhlustun okkar. Eftir því sem við eldumst, eftir því sem fjarlægðin er meira, því meira nýtt eða grafið heyrum við. Húrra fyrir því!Og húrra fyrir hlustendum! Hjartans þakkir til ykkar allra sem hafið fylgt okkur. Þeim ykkar sem segið öðrum frá þættinum. Þeim ykkar sem við heyrum aldrei frá. Og sérstaklega ykkur sem hafið verið í sambandi og samfloti með ykkur allan þennan tíma. Ykkar skál, elskurnar! We salute you!Alltaf sama platan er boði Matarbúðarinnar Nándin, Austurgötu 47, Hafnafirði og Básvegi 10 í Keflavík. Gómsætar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum í einstakri verslun sem selur allt í gleri eða jarðgeranlegum umbúðum. Hreinlætisvörur fyrir heimilið og sjálft musterið sem við búum í, sjálfan líkamann. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og skilað þeim. Birkir og Smári drekka glaðir og innblásnir te og seið frá Urta Islandica. Finnið Nándina á samfélagsmiðlum og fylgist með. Smellið á https://www.matarbudin.is/Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið 

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Úrvalslið HM og Birkir Már um Messi og Mbappe

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Dec 17, 2022


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 17. desember. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke í hljóðveri X977 á Suðurlandsbraut og Tómas Þór beintengdur frá hljóðveri DR í Kóngsins Kaupmannahöfn. Hitað er upp fyrir úrslitaleik HM, úrvalslið mótsins valið, HM leikmenn sendir í ensku úrvalsdeildina og Birkir Már Sævarsson er á línunni. Birkir Már þekkir það að mæta bæði Argentínu og Frakklandi. Hvort er erfiðara að mæta Messi eða Mbappe? Síðasti þáttur fyrir jól. Gleðilega hátíð!

Fram og til baka
Idol stjarnan Birkir Blær

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Dec 17, 2022 114:00


Gestur Felix í fimmunni er Birkir Blær Óðinsson en hann sló eftirminnilega í gegn í Svíþjóð á síðasta ári þegar hann kom, sá og sigraði í sænska Idolinu. Birkir segir okkur af fimm plötum sem breyttu lífi hans og ræðir ferilinn og framtíðina í Svíþjóð. Í síðari hluta þáttarins koma þau Anna Bergljót Thorarensen og Jakob Hákonarson og ræða nýja íslenska kvikmynd, Jólamóður, en hún verður frumsýnd á Þorláksmessu.

Fram og til baka
Idol stjarnan Birkir Blær

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Dec 17, 2022


Gestur Felix í fimmunni er Birkir Blær Óðinsson en hann sló eftirminnilega í gegn í Svíþjóð á síðasta ári þegar hann kom, sá og sigraði í sænska Idolinu. Birkir segir okkur af fimm plötum sem breyttu lífi hans og ræðir ferilinn og framtíðina í Svíþjóð. Í síðari hluta þáttarins koma þau Anna Bergljót Thorarensen og Jakob Hákonarson og ræða nýja íslenska kvikmynd, Jólamóður, en hún verður frumsýnd á Þorláksmessu.

Alltaf sama platan
15. Rock Or Bust (Ólafur Torfi Ásgeirsson)

Alltaf sama platan

Play Episode Listen Later Nov 25, 2022 163:55


Árið er 2014. Spekingar segja rokkið dautt. Metallica búnir að dobbla það sem sum kalla endurkomu þeirra sveitar. Guns  'N' Roses eru einhvernvegin komnir á kreik, og þó. Taylor Swift skín skærar en nokkur önnur manneskja og engin selur fleiri plötur. Robin Williams, leikarinn dáði, tekur eigið líf. Bill Cosby er opinberaður sem manndrulla. Platan Rock Or Bust með krökkunum í AC/DC kemur út og gæti verið þeirra næst síðasta. Trommarinn okkar er í neyslutengdu geðrofi, ofsóknaróður og hættulegur. Brian Johnson á þrjú ár í sjötugt en syngur enn, slær sér á lær og segir sögur af gröðum körlum sem kveikja sér í rettu og tala um ungar stelpur. Allt með felldu hér. En stærsta fréttin í þessu tiltekna sólkerfi er að Malcolm Young glímir við elliglöp og veikindi þeim tengdum og kemur ekki að gerð plötunnar. Er yfirleitt hægt að semja, spila, taka upp, hljóðblanda AC/DC plötu án þessa mikilmennis gítarrokksins? Hann, hryggjarstykki og sál sveitarinnar, að margra mati...Sérstakur gestur þáttarins er Ólafur Torfi Ásgeirsson, sem getur og gerir allt mögulegt í tónlist (spilar, tekur upp, setur út....) og þá iðulega á bak við tjöldin. Spekúlant og lúði eins og þeir gerast bestir. Sérfræðingur og ljúfmenni, þó með ákveðnar skoðanir og eigin sýn á hlutina. Góður gestur það!Alltaf sama platan er boði Matarbúðarinnar Nándin, Austurgötu 47, Hafnafirði og Básvegi 10 í Keflavík. Gómsætar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum í einstakri verslun sem selur allt í gleri eða jarðgeranlegum umbúðum. Hreinlætisvörur fyrir heimilið og sjálft musterið sem við búum í, sjálfan líkamann. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og skilað þeim. Birkir og Smári drekka glaðir og innblásnir te og seið frá Urta Islandica. Finnið Nándina á samfélagsmiðlum og fylgist með. Smellið á https://www.matarbudin.is/Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið. 

Segðu mér
Álfur Birkir Bjarnason formaður samtakanna 78

Segðu mér

Play Episode Listen Later Nov 24, 2022


Álfur er formaður samtakanna 78 og landvörður í Vatnajökulsþjóðgarðinum. ásamt manni sínum. Við tölum og mannréttindiog hálendið, fordóma og hvenrig það gengur að leiða saman ólíka hópa og kynslóðir hinsegin fólks.

Segðu mér
Álfur Birkir Bjarnason formaður samtakanna 78

Segðu mér

Play Episode Listen Later Nov 24, 2022


Álfur er formaður samtakanna 78 og landvörður í Vatnajökulsþjóðgarðinum. ásamt manni sínum. Við tölum og mannréttindiog hálendið, fordóma og hvenrig það gengur að leiða saman ólíka hópa og kynslóðir hinsegin fólks. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.

Segðu mér
Álfur Birkir Bjarnason formaður samtakanna 78

Segðu mér

Play Episode Listen Later Nov 24, 2022 38:14


Álfur er formaður samtakanna 78 og landvörður í Vatnajökulsþjóðgarðinum. ásamt manni sínum. Við tölum og mannréttindiog hálendið, fordóma og hvenrig það gengur að leiða saman ólíka hópa og kynslóðir hinsegin fólks. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.

Íþróttavarp RÚV
HM í fótbolta 2022 - Birkir Már Sævarsson

Íþróttavarp RÚV

Play Episode Listen Later Nov 16, 2022 28:49


Íþróttavarpið er á HM stillingu þessa dagana, enda hefst HM í fótbolta í Katar á sunnudag. Gestur Íþróttavarpsins í dag hefur spilað á HM. Hann spilaði raunar hverja einustu mínútu í öllum þremur leikjum Íslands á HM fyrir fjórum árum. Hann er þriðji leikjahæsti landsliðsmaður karlalandsliðsins frá upphafi með 103 leiki og heitir Birkir Már Sævarsson. Bakvörðurinn ræddi hina ýmsu hluti í þætti dagsins. HM minningar frá því hann var í myndmennt í grunnskóla og svo þegar hann spilaði sjálfur á HM í Rússlandi 2018. Hann sagðist til dæmis hafa sofið mun betur en Alfreð Finnbogason fyrir leikinn við Argentínu á HM. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson

Íþróttavarp RÚV
HM í fótbolta 2022 - Birkir Már Sævarsson

Íþróttavarp RÚV

Play Episode Listen Later Nov 16, 2022


Íþróttavarpið er á HM stillingu þessa dagana, enda hefst HM í fótbolta í Katar á sunnudag. Gestur Íþróttavarpsins í dag hefur spilað á HM. Hann spilaði raunar hverja einustu mínútu í öllum þremur leikjum Íslands á HM fyrir fjórum árum. Hann er þriðji leikjahæsti landsliðsmaður karlalandsliðsins frá upphafi með 103 leiki og heitir Birkir Már Sævarsson. Bakvörðurinn ræddi hina ýmsu hluti í þætti dagsins. HM minningar frá því hann var í myndmennt í grunnskóla og svo þegar hann spilaði sjálfur á HM í Rússlandi 2018. Hann sagðist til dæmis hafa sofið mun betur en Alfreð Finnbogason fyrir leikinn við Argentínu á HM. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson

Fram og til baka
Álfur Birkir og hinseginleikinn

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Aug 6, 2022 114:00


Gestur Felix í Fimmunni var Álfur Birkir Bjarnason formaður Samtakanna 78 en hann talaði um fimm hinsegin vörður í lífi sínu.

Fram og til baka
Álfur Birkir og hinseginleikinn

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Aug 6, 2022


Gestur Felix í Fimmunni var Álfur Birkir Bjarnason formaður Samtakanna 78 en hann talaði um fimm hinsegin vörður í lífi sínu.

Fram og til baka
Álfur Birkir og hinseginleikinn

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Aug 6, 2022


Gestur Felix í Fimmunni var Álfur Birkir Bjarnason formaður Samtakanna 78 en hann talaði um fimm hinsegin vörður í lífi sínu.

Valur - Hljóðvarp
S4 - EP7 - Birkir Már

Valur - Hljóðvarp

Play Episode Listen Later Aug 4, 2022 32:44


Vængirnir flugu af stað að nýju eftir sumarfrí og settust í Toggastofu eftir dásamlegan 2:0 sigur á Fimleikafélaginu. Við fórum um víðan völl, lentum í batterísveseni og öðrum skakkaföllum en héldum okkar sjó og bulluðum okkur í gegnum allskonar. Birkir Már kom í Toggastofu og fór yfir tímann sinn hjá Hammarby en tveir áhorfendur vöktu athygli Vængjanna, klædd í grænt og öskruðu Áfram Valur. Þau voru kominn til að sjá sína menn, Birki, Aron og Arnór. Framundan er skemmtilegur tími. Strákarnir í fótboltanum eru komnir á beinu brautina, stelpurnar að fara í meistaradeildina og handboltinn og karfan bíða handan hornsins. Það er dásamlegt að vera Valsari. Vængjum þöndum er á öllum hlaðvarpsveitum en einnig má hlusta á þáttinn hér.

Mannlegi þátturinn
ADHD, gömul aprílgöbb og Álfur Birkir lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 4, 2022 50:00


Á aðalfundi ADHD samtakanna,sem haldinn var í síðustu viku kom fram að samtökin fagna þeim breytingum sem nú er verið að gera á þjónustu við fólk með ADHD. Nýtt ADHD teymi heilsugæslunnar fyrir fullorðna, Geðheilsumiðstöð barna og fyrirheit um aukið fjármagn og bætta þjónustu á landsvísu. En samtökin segja jafnframt að skaðlegar afleiðingar ógreinds og ómeðhöndlaðs ADHD verða sífellt ljósari og afleiðingar aðgerðarleysis liðinna ára kalla hinsvegar á stóraukið fjármagn næstu árin til að vinna niður þá 3-4 ára biðlista sem nú blasa við. Við ræddum við Vilhjálm Hjálmarsson formann samtakanna í þættinum í dag um stöðuna og hann sagði til dæmis hversu mikið breyttist eftir að hann greindist með ADHD um þrítugt. Á föstudaginn var 1. apríl. Ekki varð neitt úr aprílgabbi hér í þættinum, en Þór Fjalar Hallgrímsson hefur verið við starfsnám hér á Rás 1 undanfarnar vikur fann nokkur gömul aprílgöbb úr útvarpinu í safni RÚV, þar á meðal það fyrsta frá árinu 1957. Við fengum að heyra brot úr þeim í þættinum. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Álfur Birkir Bjarnason nýkjörinn formaður Samtakanna 78. En í síðustu viku var einmitt sýnileikadagur transfólks og að auki tengdust Samtökin 78 einmitt vel heppnuðu aprílgabbi frá því á föstudaginn sem við fengum hann til að segja okkur aðeins frá og svo auðvitað líka frá bókum sem hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
ADHD, gömul aprílgöbb og Álfur Birkir lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 4, 2022


Á aðalfundi ADHD samtakanna,sem haldinn var í síðustu viku kom fram að samtökin fagna þeim breytingum sem nú er verið að gera á þjónustu við fólk með ADHD. Nýtt ADHD teymi heilsugæslunnar fyrir fullorðna, Geðheilsumiðstöð barna og fyrirheit um aukið fjármagn og bætta þjónustu á landsvísu. En samtökin segja jafnframt að skaðlegar afleiðingar ógreinds og ómeðhöndlaðs ADHD verða sífellt ljósari og afleiðingar aðgerðarleysis liðinna ára kalla hinsvegar á stóraukið fjármagn næstu árin til að vinna niður þá 3-4 ára biðlista sem nú blasa við. Við ræddum við Vilhjálm Hjálmarsson formann samtakanna í þættinum í dag um stöðuna og hann sagði til dæmis hversu mikið breyttist eftir að hann greindist með ADHD um þrítugt. Á föstudaginn var 1. apríl. Ekki varð neitt úr aprílgabbi hér í þættinum, en Þór Fjalar Hallgrímsson hefur verið við starfsnám hér á Rás 1 undanfarnar vikur fann nokkur gömul aprílgöbb úr útvarpinu í safni RÚV, þar á meðal það fyrsta frá árinu 1957. Við fengum að heyra brot úr þeim í þættinum. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Álfur Birkir Bjarnason nýkjörinn formaður Samtakanna 78. En í síðustu viku var einmitt sýnileikadagur transfólks og að auki tengdust Samtökin 78 einmitt vel heppnuðu aprílgabbi frá því á föstudaginn sem við fengum hann til að segja okkur aðeins frá og svo auðvitað líka frá bókum sem hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
ADHD, gömul aprílgöbb og Álfur Birkir lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 4, 2022


Á aðalfundi ADHD samtakanna,sem haldinn var í síðustu viku kom fram að samtökin fagna þeim breytingum sem nú er verið að gera á þjónustu við fólk með ADHD. Nýtt ADHD teymi heilsugæslunnar fyrir fullorðna, Geðheilsumiðstöð barna og fyrirheit um aukið fjármagn og bætta þjónustu á landsvísu. En samtökin segja jafnframt að skaðlegar afleiðingar ógreinds og ómeðhöndlaðs ADHD verða sífellt ljósari og afleiðingar aðgerðarleysis liðinna ára kalla hinsvegar á stóraukið fjármagn næstu árin til að vinna niður þá 3-4 ára biðlista sem nú blasa við. Við ræddum við Vilhjálm Hjálmarsson formann samtakanna í þættinum í dag um stöðuna og hann sagði til dæmis hversu mikið breyttist eftir að hann greindist með ADHD um þrítugt. Á föstudaginn var 1. apríl. Ekki varð neitt úr aprílgabbi hér í þættinum, en Þór Fjalar Hallgrímsson hefur verið við starfsnám hér á Rás 1 undanfarnar vikur fann nokkur gömul aprílgöbb úr útvarpinu í safni RÚV, þar á meðal það fyrsta frá árinu 1957. Við fengum að heyra brot úr þeim í þættinum. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Álfur Birkir Bjarnason nýkjörinn formaður Samtakanna 78. En í síðustu viku var einmitt sýnileikadagur transfólks og að auki tengdust Samtökin 78 einmitt vel heppnuðu aprílgabbi frá því á föstudaginn sem við fengum hann til að segja okkur aðeins frá og svo auðvitað líka frá bókum sem hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Star Stable Podcast
Birkir & Hanami

Star Stable Podcast

Play Episode Listen Later Mar 17, 2022 35:29


Die neuen magischen Pferde Birkir und Hanami haben ihren Weg nach Jorvik gefunden und Star Stable hält in der neuen Roadmap einige Überraschungen für uns bereit.

Ofurdeildin
#45 þáttur

Ofurdeildin

Play Episode Listen Later Jan 19, 2022 36:39


Ofurdeildin extra special! Birkir Már Sævarsson aka Vindurinn kom í heimsókn. Fórum yfir ferilinn. Birkir segir að Arnar Þór Viðarsson þurfi að fá tíma með landsliðið. Tíminn í Svíþjóð frábær og auðvitað að upplifa EM og HM drauminn. Ofurdeildin tekur upp í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar.

RIX MorronZoo
13 december, Idolvinnaren Birkir gästar!

RIX MorronZoo

Play Episode Listen Later Dec 13, 2021 58:34


Vi avslöjar årets MorronZoo-lucia, får lussefirande i studion och drar nya vinnare i julklappsmemory.

g star birkir idolvinnaren morronzoo
Fotbolti.net
Birkir Már - Farið yfir ferilinn með Vindinum

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Nov 17, 2021


Birkir Már Sævarsson lagði landsliðsskóna á hilluna á sunnudag. Birkir Már lék 103 landsleiki og fór með íslenska liðinu á tvö stórmót. Hann var fastamaður í liðinu um árabil. Birkir fer yfir ferilinn með landsliðinu, aðallega gullaldarárin, og ferilinn til þessa með landsliðinu. Það var Sæbjörn Steinke sem ræddi við Birki.

Betri helmingurinn með Ása
#30 - Birkir Már & Stebba

Betri helmingurinn með Ása

Play Episode Listen Later Nov 10, 2021 68:07


Í þessum þætti fékk ég til mín frábæra gesti þau Birki Már Sævarsson og eiginkonu hans og hans betri helming, Stefaníu Sigurðardóttur eða Stebbu eins og hún er gjarnan kölluð. Birkir Már hefur gegnt lykilhlutverki í íslenska karlalandsliðinu í fótbolta um árabil en var hann til að mynda fastamaður í byrjunarliði landsliðsins bæði á evrópumótinu í Frakklandi árið 2016 og heimsmeistaramótinu í Rússlandi árið 2018. Birkir Már hafði verið í atvinnumennsku í átta ár bæði Noregi og Svíþjóð áður en hann fluttist aftur heim til Íslands ásamt fjölskyldu sinni í lok árs 2017 þar sem hann hefur spilað með Val sem er hans uppeldisklúbbur og má til gamans geta að hann er bókstaflega með valsmerkið tattúverað á sig. Þrátt fyrir velgengni Birkis á vellinum má segja að það hafi farið lítið fyrir honum í fjölmiðlum en er hann hógværðin uppmáluð og var því sérstaklega gaman að fá hann og Stebbu til mín í spjall þar sem skín í gegn hversu jarðbundin þau bæði eru og taka þau sig síður en svo hátíðlega.Stebba er íþróttafræðingur og starfar sem leikskólakennari í dag ásamt því að þjálfa yngri flokka í knattspyrnu en þau Birkir segja skemmtilega frá því í þættinum þegar leiðir þeirra lágu saman á Laugarvatni þar sem þau voru saman í bekk í íþróttafræði en á þeim tíma hvatti hún Birki þó eindregið til þess að finna sér konu á sínum aldri enda er hún heilum þremur árum eldri en hann. Hann fór þó blessunarlega ekki að þeim ráðum og hafa þau verið saman allar götur síðan, eiga saman fjögur börn og giftu sig árið 2009. Í þættinum fórum við meðal annars yfir upphaf sambandsins á Laugarvatni og þeirra helsta sameiginlega áhugamál sem eru íþróttir en vita þau fátt skemmtilegra en að fara saman á leiki í hinum ýmsu íþróttum hvort sem það er hjá úrvalsdeildarliðum eða yngri flokkum. Við ræddum einnig atvinnumennskuna og landsliðsferilinn, árin þeirra í Noregi og Svíþjóð  og deildu þau með mér góðum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal einni beint af fæðingardeildinni. Aha.is -  https://aha.isBlush.is -     https://blush.is/Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Ajax

Alltaf sama platan
11. The Razor's Edge (Salome Hallfreðsdóttir & Ragnar Ólafsson)

Alltaf sama platan

Play Episode Listen Later Oct 8, 2021 220:41


MATARBÚÐIN NÁNDIN KYNNIR: Alltaf sama platan #11 - The Razor's Edge Og þarna kemur hún. Hér ægir öllu saman. Flekar mætast og höfin riðlast í stólaleik upp á líf og dauða. Eða bara... AC/DC er komin inn til þín, inn í svefnherbergið, stofuna, bílinn, heilabörkinn þinn hvort sem þér líkar betur eða verr. Thunderstruck og umslagið er límt inn í framrúðu sálar þinnar. Nú verður ekki aftur snúið. Meira að segja AC/DC virðast ekki lengur ráða við AC/DC. Og hvernig á svo að gera þessu skil? Ekki spyrja Smára Tarf og Birki Fjalar. Þeir eru bara leiksoppar tilfinninga, endurlits og sjúklegra greininga. Það er bara þannig. Engar afsakanir, engar bremsur, bara opin sár og hráar taugar tveggja manna sem eiga rokkinu líf sitt að launa.Fyrir mörg er ellefta útgáfan, tímamótaplata AC/DC (1990) The Razor's Edge, sú skífa sem gerði þau að unnendum sveitarinnar til lífstíðar. Snertifletir plötunnar við fólk um heim gjörvallan eru gríðarstórir og óteljandi. Þegar hér er komið við sögu er AC/DC orðin hluti af erfðaefni afþreyingar- og poppmenningar. Fyrir þær sakir einar má telja hana til sígildra verka. Á The Razor's Edge er að finna lag sem krossar yfir svo mörg og ólíkleg svið og róf að það eitt og sér er efni í rannsókn.Rúmar 43 mínútur af aldamótarokki sem allir og ömmur þeirra virðast eiga hlutdeild í. Tólf lög. The Razor's Edge er laukurinn sem endalaust er hægt að flysja. Hún er eins og spegill kynslóða. Krossgata barna og foreldra - barna sem verða foreldrar. Hún neitaði að víkja af Billboard listanum í 77 vikur. Engin tónleikaferð sveitarinnar hafði hlotið jafn mikla umfjöllun og kynningu og sú sem ýtti þessari plötu úr vör. Fjölmiðlar töluðu um endurkomuplötu AC/DC sem festi þá í sessi á meðal risa rokksins á ný. Og svo voru það Smári og Birkir...Sérstakir gestir þáttarins eru Salome Hallfreðsdóttir og Raggi Ólafsson. Salome er Eskfirðingur --umhverfis- og náttúruverndarriddarinn-- sem leyfir okkur að skyggnast inn í æsku sína og lýsir af mikilli næmni hvernig The Razor's Edge ruddi sér inn í líf hennar. Raggi, tónlistarmaðurinn og söngfuglinn óútreiknanlegi, sem við sjáum hvað oftast með Árstíðum, Ask The Slave og nú síðast í formi einyrkja, mætti í skúrinn og hjálpaði okkur að greina söngstíl- og tækni Brian Johnson og Bon Scott. Afar fróðlegt.Alltaf sama platan er boði Matarbúðarinnar Nándin, Austurgötu 47. Gómsætar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum í einstakri verslun sem selur allt í gleri eða jarðgeranlegum umbúðum. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og skilað þeim. Birkir og Smári drekka glaðir og innblásnir te og seið frá Urta Islandica. Finnið Nándina á samfélagsmiðlum og fylgist með. Smellið á https://www.matarbudin.is/Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið.

Alltaf sama platan
10. Alltaf sama platan - Blow Up Your Video (Alison McNeil)

Alltaf sama platan

Play Episode Listen Later Sep 27, 2021 167:12


Að mati Smára og Birkis þá erum við komin hér í einskismannsland AC/DC. Hvað þýðir það? Blow Up Your Video er lágt skrifuð á meðal svo margra og sagan hefur ekki farið fögrum höndum um þessa tíundu (1988) plötu rokkaranna. Þolir hún yfirleitt endurmat þáttarstjórnenda?  Ef Fly On The Wall var vandræðabarnið hvað er þá þessi skífa? Er tími Blow Up Your Video loks kominn?Það er að mörgu að hyggja þegar á að flysja svona lagið svo vel sé. Hvað er gott, hvað er slæmt, hvað var eiginlega í gangi, er eitthvað varið í tónlistina yfirleitt? Var fólk einfaldlega með skít í eyrunum og skidi ekki hvað AC/DC "voru"? Eða skilur fólk plötuna betur nú?  Misskilið útspil sem við erum nú loks farin að skilja, áratugum síðar? Svo mikið af spurningum. Það þurfti hvorki meira né minna en þrjár atrennur við þennan þátt. Við óttuðumst að hann yrði stuttur og snubbóttur því platan þótti ómerkilegur pappír. Smári velti fyrir sér hvort við myndum yfirleit ná einni klukkustund úr þessu. Birkir þóttist halda að það hefðist en með naumindum þó. Þegar upp var staðið vorum við ískyggilega nálægt þremur klukkustundum! Jáhá! Hver hefði grunað?Með okkur í Blow Up Your Video vandamálinu var engin önnur en Alison McNeil sem spilar um þessari mundir í fádæma skemmtilegri hljómsveit sem heitir Laura Secord. Hún var áður í Kimono, uppáhaldshljómsveit Birkis. Og það fer ekkert á milli mála. Nema hvað, hennar samband við Blow Up Your video er það eftirtektarvert að við óskum hér með eftir að einhver handritshöfundur geri þeirri sögu skil með kvikmynd í huga. Andskotinn hafi það.Alltaf sama platan er boði Matarbúðarinnar Nándin, Austurgötu 47. Gómsætar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum í einstakri verslun sem selur allt í gleri eða jarðgeranlegum umbúðum. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og skilað þeim. Birkir og Smári drekka glaðir og innblásnir te og seið frá Urta Islandica. Finnið Nándina á samfélagsmiðlum og fylgist með. Smellið á https://www.matarbudin.is/Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið.

Morgunútvarpið
2. sept. - Skaftá, málfar, Birkir Blær, flóttamenn og Spánarspjall

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 2, 2021 130:00


Hlaup virðist hafið í Skaftá og þar gildir nú óvissustig. En hver er staðan þennan morguninn og fyrir hvað stendur óvissustig? Víðir Reynisson hjá almannavarnardeild lögreglustjóra ræddi við okkur um málið Anna Sigríður Þráinsdóttir kom til okkar í málfarshornið góða og við ræddum m.a. sögnina að síga. Þar má sannarlega segja að sígandi lukka sé best. Akureyríski tónlistarmaðurinn Birkir Blær Óðinsson tók í gærkvöldi þátt í útsláttarkeppni sænska Idolsins og var keppnin sýnd á sjónvarpsstöðinni TV4. Birkir Blær er búsettur í Gautaborg þar sem hann stundar nám í tónsmíðum og upptökum. Við slógum á þráðinn til Birkis og forvitnuðumst um hvernig gekk hjá honum í gærkvöldi. Umræða um flóttamenn hefur orðið hávær eftir að allt fór í háaloft í Afganistan. Ríkisstjórnin hefur haft uppi fögur fyrirheit um móttöku svokallaðra kvótaflóttamanna undanfarin ár en fáir hafa komist til landsins og hafa menn borið fyrir sig flækjustig vegna Covid 19. Kjarninn upplýsti hins vegar í grein nýverið að hin Norðurlöndin hafi tekið á móti sínum kvótaflóttamönnum hvað sem heimsfaraldri líður. Við fengum blaðamann Kjarnans, Arnar Þór Ingólfsson til okkar og ræddum greinina hans og stöðuna í ljósi nýjustu frétta. Í dag eru 40 ár síðan Jóhann Hlíðar Harðarson flutti til Spánar og varð ástfanginn af heilli þjóð. Það var því vel við hæfi að fá frá honum Spánarspjall og ræða t.d raforkuverð sem hefur farið hækkandi, aðkomu Spánverja að hörmungunum í Afganistan og hjálpartæki ástarlífsins svo eitthvað sé nefnt.

Morgunútvarpið
2. sept. - Skaftá, málfar, Birkir Blær, flóttamenn og Spánarspjall

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 2, 2021


Hlaup virðist hafið í Skaftá og þar gildir nú óvissustig. En hver er staðan þennan morguninn og fyrir hvað stendur óvissustig? Víðir Reynisson hjá almannavarnardeild lögreglustjóra ræddi við okkur um málið Anna Sigríður Þráinsdóttir kom til okkar í málfarshornið góða og við ræddum m.a. sögnina að síga. Þar má sannarlega segja að sígandi lukka sé best. Akureyríski tónlistarmaðurinn Birkir Blær Óðinsson tók í gærkvöldi þátt í útsláttarkeppni sænska Idolsins og var keppnin sýnd á sjónvarpsstöðinni TV4. Birkir Blær er búsettur í Gautaborg þar sem hann stundar nám í tónsmíðum og upptökum. Við slógum á þráðinn til Birkis og forvitnuðumst um hvernig gekk hjá honum í gærkvöldi. Umræða um flóttamenn hefur orðið hávær eftir að allt fór í háaloft í Afganistan. Ríkisstjórnin hefur haft uppi fögur fyrirheit um móttöku svokallaðra kvótaflóttamanna undanfarin ár en fáir hafa komist til landsins og hafa menn borið fyrir sig flækjustig vegna Covid 19. Kjarninn upplýsti hins vegar í grein nýverið að hin Norðurlöndin hafi tekið á móti sínum kvótaflóttamönnum hvað sem heimsfaraldri líður. Við fengum blaðamann Kjarnans, Arnar Þór Ingólfsson til okkar og ræddum greinina hans og stöðuna í ljósi nýjustu frétta. Í dag eru 40 ár síðan Jóhann Hlíðar Harðarson flutti til Spánar og varð ástfanginn af heilli þjóð. Það var því vel við hæfi að fá frá honum Spánarspjall og ræða t.d raforkuverð sem hefur farið hækkandi, aðkomu Spánverja að hörmungunum í Afganistan og hjálpartæki ástarlífsins svo eitthvað sé nefnt.

Alltaf sama platan
09. Alltaf sama platan - Fly On The Wall (Arnar Eggert Thoroddsen)

Alltaf sama platan

Play Episode Listen Later Aug 20, 2021 137:00


Þátturinn snýr aftur eftir langt sumarfrí og það er sem blessun í ekki-svo-góðu-dulargervi að hin umdeilda Fly on The Wall liggi til grundvallar. Ekki bara það að Smári og Birkir hafi safnað upp mikilli þörf til að pústa og tjá sig um hvað geri þessa plötu svona sérstaka í hugum aðdáenda AC/DC hvort sem fólk hatar hana, elskar eða sé þarna einhversstaðar á milli. Hvar standa strákarnir í þessum efnum og umfram allt gesturinn?Með okkur í Bedlam in Belgium stofunni var enginn annar en Dr. Arnar Eggert Thoroddsen, blaðamaður, poppfræðingur og aðjúnkt við Háskóla Íslands. Hann er aukinheldur stoltur bakhjarl Fly on The Wall og æsingurinn keyrir um þverbak þegar hann hittir afmælisbróðir sinn og gamlan vin Birki Fjalar en Smári Tarfur reynir eftir bestu getu að halda lestinni á teinunum af sinni alkunnu ró- og röksemd.Fly on The Wall kom út árið 1985, tveimur árum eftir Flick The Switch. Tíu lög á fjörtíu mínútum. Þegar hér er komið við sögu hafa tónleikaferðalögin orðið æ lengri og betur sótt með hverri plöttunni frá og með Let There Be Rock. AC/DC eru orðnir kjölturakkar MTV, dæla út tónlistarmyndböndum og hafa aldrei verið þéttari á tónleikum. Allt er eins og það á að vera, nema kannski platan sjálf, Fluga á veggnum.Alltaf sama platan er boði Matarbúðarinnar Nándin, Austurgötu 47. Gómsætar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum í einstakri verslun sem selur allt í gleri eða jarðgeranlegum umbúðum. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og skilað þeim. Birkir og Smári drekka glaðir og innblásnir te og seið frá Urta Islandica. Finnið Nándina á samfélagsmiðlum og fylgist með. Smellið á https://www.matarbudin.is/ Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið.Alltaf sama platan er framleidd af Snæfugli.

Valur - Hljóðvarp
SE3 - EP12 - Birkir Heimis

Valur - Hljóðvarp

Play Episode Listen Later Aug 19, 2021 35:57


Langt síðan síðast og löngu kominn tími á að setjast yfir málin í Toggastofu. Og við fengum góðan gest til okkar. Birkir Heimisson hefur vakið athygli fyrir góða spilamennsku á tímabilinu. Þessi ungi leikmaður fór yfir uppvaxtarárin í Þorpinu, tímann sinn í Hollandi og veru sína í Val í stuttu spjalli. Við gíruðum okkur auðvitað fyrir Víkingsleikinn og eftir að Birkir hvarf á braut fórum við stuttlega yfir stöðuna bæði karla- og kvennamegin í fótboltanum.

Dr. Football
Doc án landamæra - Hitinn er innandyra á Íslandi - Birkir og Balotelli klikkar ekki

Dr. Football

Play Episode Listen Later Aug 17, 2021 59:07


Gunnar Birgisson sem slegið hefur á Ríkisútvarpinu var sérstakur gestur Dr. Football í dag. Keli með honum.

Bylgjan
Reykjavík síðdegis miðvikudaginn 28. júlí 2021

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jul 28, 2021 56:56


Öll viðtölin úr þættinum Kolbrún Hjörleifsdóttir Ársölum um Kötlu Horfðu á tvo síðustu Kötluþættina á "Hótel Vík". Baldur Þórhallsson prófessor við HÍ um hræringar flokkanna fyrir kosningar Færri flokkar auðvelda stjórnarmyndun eftir kosningar Forstjóri Umhverfisstofnunar Sigrún Ágústsdóttir um utanvegakstur Ekki nóg að landeigendur gefi leyfi fyrir utanvegaakstri Halldór Benjamín um kjarasamninga Erfitt að semja um hækkun launa í næstu kjaraviðræðum Gylfi Þór Þorsteinsson umsjónarmaður farsóttarhúsa Rauða krossins Áberandi hvað smitin fara hratt yfir í fjórðu bylgjunni Anna Kristjánsdóttir (hringja klukkan 15:00) covid staðan á Tenerife Betra að vera úti í sólinni en heima í kuldanum í fjórðu bylgjunni Sjúkraflutningamenn Birkir Árnason formaður fagdeildar sjúkraflutingamanna hjá landssambandinu Aukið álag á sjúkraflutningamönnum. Metfjöldi sjúkraflutninga á einum sólarhring

Alltaf sama platan
08. Alltaf sama platan - Flick Of The Switch (John Evicci & Fríða Þorkelsdóttir)

Alltaf sama platan

Play Episode Listen Later Jul 6, 2021 126:34


Karlpungarinn í Alltaf sömu plötunni verða fyrir Flick Of The Switch uppljómun og það með öskrum og látum.  Þátturinn er taumlaus og það rýkur úr upptökuskúrnum svo um munar. Þriðja "Brian Johnson platan" kom út árið 1983 og fór fyrir ofan garð og neðan hjá flestum, það mikið reyndar að ekkert laga hennar hefur lifað nægilega lengi til að verða hluti af tónleikaprógrammi sveitarinnar komandi ára. Því má segja að Flick Of The Switch marki upphaf ákveðinnar hnignunar hvað vinsældir varðar, a.m.k. hvað snertir seld eintök nýs efnis. AC/DC eru á þessum tíma ennþá risar rokksins en Flick Of The Switch mistekst að ná fótfestu. Af hverju skildi það vera og eru það verðskulduð örlög? Þátturinn fjallar að miklu leiti um það.Trommuböðullinn, tónlistarútgefandinn og Íslandsgælan, John Evicci, sendir þættinum sögu úr fortíð sinni ásamt hugrenningum um plötuna. Fríða Þorkelsdóttir, bókmenntafræðingur og þýðandi, ljáir orðum Evicci rödd sína.Alltaf sama platan er boði Matarbúðarinnar Nándin, Austurgötu 47. Gómsætar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum í einstakri verslun sem selur allt í gleri eða jarðgeranlegum umbúðum. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og geta skilað þeim. Birkir og Smári drekka glaðir og innblásnir te og seið frá Urta Islandica. Finnið Nándina á samfélagsmiðlum og fylgist með. Smellið á https://www.matarbudin.is/Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið.Alltaf sama platan er framleiðsla Snæfugls.

Alltaf sama platan
07. Alltaf sama platan - For Those About To Rock (Nate Newton)

Alltaf sama platan

Play Episode Listen Later Jun 28, 2021 113:02


Þegar hér er komið sögu í ferli AC/DC hefur gríðarlegt magn vatns runnið til sjávar. Hljómsveitin er gjörsamlega óstöðvandi og vinsældir Ástralanna stjarnfræðilegar. For Those About To Rock (We Salute You), sjöunda alþjólega hjóðversplata kvartettsins knáa kemur með hraði fram á sjónarsviðið og með hvelli. Það er engu líkara en AC/DC hafi notið við fjórum sinnum lengur en raun bar vitni svo gríðarleg hafði vegferð þeirra verið til þessa.Smári og Birkir eru ennþá lemstraðir eftir Back In Black og uppgjör sitt við Bon Scott  en anda síðan léttar í fangi þessarar plötu, svo mikið reyndar að það kurrar í þeim, með tilheyrandi öndunaræfingum og tilfinningatjáningu.Ofurrokkarinn, hjólabrettahundurinn og fjölskyldufaðirinn Nate Newton, úr Converge, Doomriders, Old Man Gloom,  Cave In, Jesuit o.fl. er gestur þáttarins og segir okkur frá áhrifum AC/DC á sitt líf og sitthvað fleira.Alltaf sama platan er boði Matarbúðarinnar Nándin, Austurgötu 47. Gómsætar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum í einstakri verslun sem selur allt í gleri eða jarðgeranlegum umbúðum. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og geta skilað þeim. Birkir og Smári drekka glaðir og innblásnir te og seið frá Urta Islandica. Finnið Nándina á samfélagsmiðlum og fylgist með. Smellið á https://www.matarbudin.is/Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið.Alltaf sama platan er framleiðsla Snæfugls.

Alltaf sama platan
06. Alltaf sama platan - Back In Black (Hulda Geirsdóttir, Hallur Ingólfsson & Stephen Brodsky)

Alltaf sama platan

Play Episode Listen Later Jun 1, 2021 154:11


Þegar hér er komið sögum standa þáttarstjórnendur frammi fyrir fjalli í veginum. Frá fjallaklifri, upp á topp og aftur niður, verður ekki komist. Er þetta Mount Everest? K2 jafnvel? Mount Olympus? Mariana skurðurinn? Þetta er hnullungurinn. Krúnudjásnið sem finnst á nánast hverju heimili landsins. Platan sem allir þekkja. Þetta er mest selda rokkplata mannkynssögunnar. Þetta er Back In Black. Hvernig er hægt að tala um slíka plötu og leiða til lyktar á einni kvöldstund? Á að setja á sig alfræðigleraugu? Er rifrildi óhjákvæmilegt? Þarf að breyta diplómatískri kænsku? Þegar stórt er spurt... Smári og Birkir fara þetta á tilfinningunni og oft vefst þeim tunga um tönn, standa á gati og dæsa af ást og undrun. Slíkt er gildi og áhrif plötunnar á líf þeirra beggja í tímanna rás. Sá fyrrnefndi gætir þess að skipið strandi ekki á skeri en sá síðarnefndi upplifir eins konar spennufall í „beinni útsendingu“ og fálmar eftir samsetningu orða sem geta komið upplifun hans sómasamlega til skila. Tekst það? Hlustið og komist að því sjálf. Aðalmálið er hins vegar að nú er Alltaf sama platan búin að klífa tindinn og komst þrátt fyrir allt heil heim en þó marin, rispuð og krambúleruð. Útvarpsstjarnan, hestakonan og fyrrverandi grunnskólaplötusnúðurinn Hulda G. Geirsdóttir lætur í sér heyra. Hallur Ingólfsson, tónlistamaður, tónskáld, upptökumaður, meðlimur hljómsveita á borð við Skepnu, 13 og Bleeding Volcano flytur innblásna fjallaræður svo tekur undir í dómsdagsbjöllum helvítis. Frá Bandaríkjum Norður-Ameríku kemur svo hinn fjölhæfi og ævinlega sjarmerandi tónlistarmaður Stephen Brodsky (Cave In, Mutoid Man, New Idea Society og Old Man Gloom) til að taka þátt í geðshræringunni.Alltaf sama platan er boði Matarbúðarinnar Nándin, Austurgötu 47. Gómsætar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum í einstakri verslun sem selur allt í gleri eða jarðgeranlegum umbúðum. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og geta skilað þeim. Birkir og Smári drekka glaðir og innblásnir te og seið frá Urta Islandica. Finnið Nándina á samfélagsmiðlum og fylgist með. Smellið á https://www.matarbudin.is/Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið.Alltaf sama platan er framleiðsla Snæfugls

Alltaf sama platan
05. Alltaf sama platan - Highway To Hell (Ómar Úlfur, Soffía Hrönn & Óli Palli)

Alltaf sama platan

Play Episode Listen Later May 6, 2021 138:16


Plata vikunnar markar enn ein tímamót í sögu áströlsku sveitarinnar ótrúlegu. Ef við lítum á þessa þáttáröð sem verkefni þá er þessi kafli ákaflega ljúfsár. Smári og Birkir greina plötuna með sínu nefinu hver eins og vera ber, tengja hana æski sinni og nútíð með öllum þeim tilfinningum sem Highway To Hell kallar fram.Þessari plötu var erfitt að sleppa og dregur þátturinn dám af því. Að kveðja Bon Scott og gera upp hans þátt í sögu AC/DC er engin hægðarleikur. Til að setja tappann í þá flösku dugur ekki minna en þrír málsmetandi gestir. Soffía H. Halldórudóttir (fyrrv. útvarpskona og rokkfagurkeri), Ólafur Páll Gunnarsson (útvarps- og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV og skipstjóri þátta eins og Fuzz og Rokklands) og Ómar Úlfur Eyþórsson (dágskrárstjóri og útvarpsmaður á X-inu 977) heiðra okkur með uppháum hugsunum sínum.Alltaf sama platan er tilfinningahlaðvarp en ekki alfræðihlaðvarp. Það er morgunljóst! Njótum saman og baðið ykkur aftur í einangruðum gítarupptökum sem allt trylla. Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, heyrnratól, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið heimasvæðið þeirra á netinu. Fylgið Luxor á samfélagsmiðlum. Alltaf sama platan er framleiðsla Snæfugls.

Betri helmingurinn með Ása
#03 - Vala Kristín & Birkir Blær

Betri helmingurinn með Ása

Play Episode Listen Later May 5, 2021 84:57


Leikkonan Vala Kristín Eiríksdóttir hefur verið mikið í sviðljósinu undanfarin ár í hinum ýmsu verkum, ýmist á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu og á skjám landsmanna.  Birkir Blær Ingólfsson er hennar betri helmingur og er virkilega áhugaverður einstaklingur. Birkir er rithöfundur, lögfræðinemi og einn af handritshöfundum Ráðherrans sem sló í gegn á síðasta ári. Þátturinn er einlægur, áhugaverður og fyndinn allt í senn þar sem við ræddum um lífið & tilveruna,  rómantíkina,  og skemmtilegar sögur úr þeirra lífi. 

Alltaf sama platan
04. Alltaf sama platan - Powerage (Leifur Björnsson & Benedikt Reynisson)

Alltaf sama platan

Play Episode Listen Later Apr 25, 2021 114:48


Karlarnir fara heldjúpt í fjórðu plötu AC/DC. Powerage kom út í maí 1978 sem er ekki í frásögu færandi nema fyrir þá staðreynd að þetta er „stundum“ eftirlætis plata Tarfsins. Þar af leiðandi tiplar Birkir í kringum plötuna eins og köttur í kring um heitan graut. Aftur hefur hljómsveitin tekið stökk nær himnafestingunum og endalaust til að bíta á og brenna. Það færðist mikið fjör í leikinn í síðasta þætti og ætlaði allt um koll að keyra.  Hér er rýnt í fjórðu hljóðversútgáfu AC/DC, Powerage frá árinu 1978, en að mati þeirra félaga hafði hljómsveitin tekið stórt stökk fram á við á milli Dirty Deeds og Let There Be Rock. Stóra spurningin er hvort það sama verði uppi á teningnum hér.Tónlistarþúsundþjalasmiðurinn Leifur Björnsson stingur inn höfðinu og skilur þáttastjórnendur eftir í reyknum. Annar gestur, Benedikt Reynisson (Benni Karate, Benni Skáti, Benni Fantastic, McBennister) fylgir í kjölfarið og talar beint frá hjartanu og býður þannig hlustendum á ferðalag um tónlistaræsku sína.Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið heimasvæðið þeirra á netinu. Fylgið Luxor á samfélagsmiðlum.Alltaf sama platan er framleiðsla Snæfugls.

Alltaf sama platan
01. Alltaf sama platan - High Voltage (Lovísa Sigurjónsdóttir og Andri Freyr Viðarsson)

Alltaf sama platan

Play Episode Listen Later Apr 5, 2021 81:10


Smári og Birkir fara í saumana á fyrstu alþjóðlegu útgáfu hljómsveitarinnar. High Voltage markar fyrir flest okkar upphafið og er þátturinn því hálfgerð upprunasögustund/hugleiðing ásamt köfun í plötuna.Sérstakir gestir þáttarins eru Lovísa Sigurjónsdóttir (fyrrverandi útvarpskona og þungarokksamma) og Andri Freyr Viðarsson (útvarps- og dagskrárgerðarmaður).

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Láki um landsliðið, Addi Grétars og Birkir Már

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 3, 2021


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hringdu til Hong Kong í Þorlák Árnason yfirmann knattspyrnumála hjá knattspyrnusambandi Hong Kong til að ræða framtíð íslenska landsliðsins, Arnar Grétarsson talaði um KA og fótboltann í Covid og Birkir Már Sævarsson fór yfir áhugaverða landsliðsviku.

Sögur af landi
Mývatnssveit: Vogafjós. Handverkshúsið Dyngjan. Birkir Fanndal.

Sögur af landi

Play Episode Listen Later Mar 19, 2021


Við flökkum um Mývatnssveit. Förum í heimsókn í Vogafjós þar sem tekur á móti okkur ferðaþjónustubóndinn Ólöf Hallgrímsdóttir. Við forvitnumst líka um starfsemi Dyngjunnar handverkshúss og spjöllum þar við Sólveigu Pétursdóttur. Að lokum förum við í heimsókn á vinnustofu Birkis Fanndal, vélstjóra og handverksmanns. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Sögur af landi
Mývatnssveit: Vogafjós. Handverkshúsið Dyngjan. Birkir Fanndal.

Sögur af landi

Play Episode Listen Later Mar 19, 2021


Við flökkum um Mývatnssveit. Förum í heimsókn í Vogafjós þar sem tekur á móti okkur ferðaþjónustubóndinn Ólöf Hallgrímsdóttir. Við forvitnumst líka um starfsemi Dyngjunnar handverkshúss og spjöllum þar við Sólveigu Pétursdóttur. Að lokum förum við í heimsókn á vinnustofu Birkis Fanndal, vélstjóra og handverksmanns. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Valur - Hljóðvarp
Vængjum Þöndum SE3 EP5 - Birkir Már

Valur - Hljóðvarp

Play Episode Listen Later Mar 18, 2021 36:27


Vængirnir mínus Gettu betur stjarnan Jóhann Alfreð fengu einn okkar allra dáðasta son Birki Ma til að kikja i Toggastofu og fara yfir málin. Birkir kom a hlaupahjóli með þungarokk i eyrunum. Það styttist i 100 landsleikina hjá okkar manni en það er fátt skemmtilegra en að setjast niður með Birki og tala um fótbolta. Við fórum lika aðeins yfir stöðuna i hand- og körfubolta en aðalmalið var landsliðið og leikurinn a laugardag, Valur - kr. Sjáumst i hádeginu a laugardag.

Spekingar Spjalla
#90 Birkir Már Sævarsson

Spekingar Spjalla

Play Episode Listen Later Jul 30, 2020 70:05


Feiminn bakvörður sem lætur verkin tala inni á vellinum. Fæddist Valsari og verður þar þangað til hann þarf að bræða úr hlaupabrettunum á Bolungravík. Heldur betur ekki búinn að fá nóg af Víkingaklappinu. Við fórum yfir hitt og þetta, pepsi Max deildina, hvernig er að vera atvinnumaður í fótbolta, fjallahjólreiðar og margt fleira.

Valur - Hljóðvarp
Vængjum Þöndum S3E7

Valur - Hljóðvarp

Play Episode Listen Later Jul 23, 2020 21:57


Benedikt Bóas mætti hás og líkari Bryan Adams en sjálfum sér, Breki Logason og Jóhann Alfreð fengu Birki Má Sævarsson til að fara yfir leikinn gegn Fylki. Ýmislegt skemmtilegt bar á góma eins og færið hans Patrick, Hamarby og Leeds að sjálfsögðu, Birkir er jú einn harðasti Leeds-ari landsins.

SAHARA
SAHARA PODCAST - Þáttur 1 | COVID19 - Sesselía Birgisdóttir & Sveinn Birkir Björnsson

SAHARA

Play Episode Listen Later May 19, 2020 36:08


Við lifum á einkennilegum tímum núna sem kalla á breytta hugsun, enn meiri samstöðu og hröð viðbrögð. Við hjá SAHARA fengum til okkar reynslubolta á sviði markaðssetningar, sölu og þjónustu til að ræða við okkur um markaðsmál á tímum COVID-19. Samtals voru framleiddir fjórir þættir þar sem við fáum að heyra frásagnir um hvernig eigi að markaðssetja Ísland, hvernig auglýsingaumhverfið er að breytast, hvað þarf að hafa í huga þegar þú opnar netverslun og margt fleira.

Fotbolti.net
Miðjan - Birkir um ferilinn, Barcelona og fangelsisvist

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Mar 31, 2020


Markvörðurinn Birkir Kristinsson á merkilegan feril. Hann spilaði í meistaraflokki í rúmlega 20 ár, spilaði fjórum sinnum við Barcelona, og stórleikina við Frakka fyrir aldamótin auk þess að kveðja fyrir framan rúmlega 20 þúsund áhorfendur á Laugardalsvelli. Hann fagnaði líka Evrópumeistaratitli með Barcelona liðinu árið 2009 og sat svo í fangelsi hér á landi og lauk endanlega afplánun í lok síðasta árs. Birkir er gestur podcastþáttarins Miðjunnar hér á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Rekur safn í Perlunni í dag - Bjargað af leikmanni andstæðings í leik eftir ljótt fótbrot - Svissuðu á Evrópuleikjum til að geta fengið sér í tána - Skammaður í búðinni eftir tapleiki á Akranesi - Með Akraborginni á æfingar alla daga - Mætti Barcelona fjórum sinnum á tveimur árum með Fram - Allsber maður kom nokkrum sinnum inn á völlinn - Týndi takkanum úr skónum í fæti Gumma Steins - Borðaði hvað sem er og kláraði af diskum liðsfélaganna - Hetja þegar hann sló PSV Eindhoven út í Evrópukeppni - Tolleraður og baðaður kampavíni á flugvellinum í Bergen - Steve Bruce drakk til 03:00 nóttina fyrir leik - Bannað að spila gegn Liverpool eftir stutt stopp í Birmingham - Fór til Stoke til að skoða bókhaldið en settur strax í hópinn - Fékk á sig mörk í landsleikjum gegn Cantona og Ronaldo - Barthez hljóp inn í klefa og fór að gráta - Kveðjuleikur fyrir framan rúmlega 20 þúsund á Laugardalsvelli - Djammaði með Barcelona liðinu eftir að þeir urðu Evrópumeistarar - Upplifunin af því að sitja í fangelsi

FantasyGandalf
Jón Jónsson, hvenær hefst Pepsi Max og king Simmi Vill

FantasyGandalf

Play Episode Listen Later Mar 26, 2020 88:03


Á þessum furðulegu C-19 tímum fengum við Johnny J til að hressa uppá mannskapinn. Ræddum allan andskotann við hann meðal annars eina markið sem hann skoraði í 149 leikjum og hvort hann hafi horft aftur á FH- Stjarnan frá 2014. Birkir mótastjóri KSÍ var á línunni og ræddum við mögulega möguleika fyrir Pepsi Max. Simmi Vill peppaði okkur og fór yfir þjóðfélagsleg áhrif ástandsins og hvernig við komum útúr þessu sem þjóð, eins áhugavert og það kanna að hljóma. Gandalf.....alltaf góður !

Leikfangavélin
Jón Birkir Lúðvíksson

Leikfangavélin

Play Episode Listen Later Feb 26, 2020 62:37


Nördar og sannar lygasögur, ó já. Og núna ætla ég að freista þess að skoða hvað er hinumegin við móðuna miklu og ná þannig fram ótrúlegri frásögn í bland við svolítinn nörd frá viðmælanda mínum honum Jóni Birki Lúðvíkssyni. Jón Lúðvíks er einn af vinsælustu miðlum landsins en hóf ekki að sinna þessari gáfu sinni fyrr en á fullorðinsaldri þrátt fyrir að vera gæddur henni síðan hann var barn. Við heyrum söguna hans Jóns en hún er þyrnum stráð að hluta þar sem hann reyndi að loka á þetta allt saman með hjálp ýmiskonar vímugjafa á unglingsárunum. Þá reyndi Jón að komast í Bandaríska herinn og lærði þá kvikmyndaáhættuleik í kjölfarið út í Bandaríkjunum. Mögnuð frásögn Jóns sem ég að venju mæli með. Get bonus content on Patreon See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.

Jóns
77. Birkir Fannar Einarsson

Jóns

Play Episode Listen Later Feb 19, 2020 31:11


Á dögunum fékk ég í heimsókn til mín Birkir Fannar Einarsson. Vestmanneyingurinn Birkir sem er nú ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum og klikkar heldur ekki á því í þessu viðtali. Hann er markaðsstjóri Godo í dag, Godo er fyrirtæki sem er með alhliða þjónustu fyrir gististaði. Birkir rak auglýsingastofuna Verðandi í nokkur ár ásamt Steinþóri félaga sínum. Hann hefur sterkar skoðanir á starfsemi birtingahúsa og auglýsingastofa á Íslandi í dag, Birkir segir meðal annars; "Ímark og fleiri mættu hugleiða að verðlauna frekar þá sem eru að hámarka fjárfestingu, frekar en þá sem eyða mest". Hressandi viðtal við

Ljónavarpið - Leiknir Reykjavík stuðningsmannahlaðvarp
Birkir Björnsson um ferilinn, hárið, Leikni TV og stöðuna á hópnum-Þáttur #022

Ljónavarpið - Leiknir Reykjavík stuðningsmannahlaðvarp

Play Episode Listen Later Feb 11, 2020 110:37


Birkir Björnsson er uppalinn Leiknismaður sem er mitt á milli gullkynslóða hjá félaginu og hefur góða innsýn í stöðu mála hjá félaginu. Hann settist með Hannesi og Snorra til að ræða hvoru tveggja og margt meira.

Með allt í skrúfunni

Adrían, Helgi Þór og Birkir spjalla hér um eitt og annað

Happy Hour
Birkir Elmarsson - Vínkaraflan - 15

Happy Hour

Play Episode Listen Later Dec 17, 2019 89:29


Birkir Elmarsson er sannarlega mikill vín sérfræðingur og er að eigin sögn sérstaklega hrifin af Ítölskum vínum og rósavínum. Bjóðum Birki velkominn í Karöfluna.

Með allt í skrúfunni

Strákarnir fjalla hér um mótorkross. Adrian, Birkir og Helgi eru miklir krossarapeyjar.

LØRN.TECH
#0540: LORNBIZ: Gunnar Birkir Gunnarsson: Teknologibruk for personaltjenester

LØRN.TECH

Play Episode Listen Later Dec 11, 2019 25:45


Hvordan skape gode miljøer for dagligdags innovasjon og optimalisert bruk av tilgjengelig teknologi i et selskap? Og hva vil det nye arbeidsmarkedet kreve av ansatte? I denne episoden av #LØRN snakker Silvija med divisjonsdirektør hos sørvest i Personalhuset, Gunnar Birkir Gunnarsson, om hvordan innovasjon skjer der ute i hverdagen – gjerne spontant og ekte, ikke nødvendigvis i organiserte former og prosjektgrupper. Du som leder må legge til rette for dette gjennom tillitsfulle, trygge og åpne miljøer.— Innovasjon opplever jeg at gror frem best i frie former, ikke i etablerte prosjekter som «skal innovere». De aller beste forbedringene våre har kommet av daglig dags arbeid der rådgivere har på spontant, og eget initiativ kommet med ideer som har bragt oss fremover, forteller han i episoden.Dette lørner du: ● Endringsledelse● Innovasjon● Nye formater for ledelse● Fremtidens arbeidsmarkedAnbefalt litteratur: ● Christel Langebrekke og Hilde Lekven sin podcast «helt uten filter» Denne episoden er laget i samarbeid med stiftelsen teknologiformidling og stavanger næringsforeningHvem er Teknologiformidling?Stiftelsen Teknologisk Institutt, aktør i norsk næringsliv i 100 år, solgte i 2015 sin operative virksomhet Teknologisk Institutt as til det nederlandsk selskapet Kiwa Kiwa overtok også navnet Teknologisk Institutt, og stiftelsen skiftet navn til Stiftelsen Teknologiformidling Overskuddet av salget danner grunnlaget for Stiftelsen TeknologiformidlingHva gjør Teknologiformidling?Teknologiformidling bidrar med finansiell støtte til etablerte små og mellomstore bedrifter. Utviklingsprosjektene er nødvendige for å opprettholde en lønnsom virksomhet. Prosjektene har en delingskultur slik at resultatene fører til konkurransefortrinn for flere. Samarbeid og deling av kompetanse og teknologisk utvikling og kunnskap er viktig for å lykkes. Noen fokusområder er implementering av ny teknologi som kunstig intelligens, tingenes internett og autonome systemer, for høyere produktivitet, verdiskaping og konkurransekraft i norsk næringsliv. Prosjektevalueringen skjer løpende See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.

Virðing í uppeldi
18. Spjallað um sambönd

Virðing í uppeldi

Play Episode Listen Later Nov 27, 2019 140:01


Í þetta sinn settumst við þrjú og hálft par niður til þess að ræða samböndin okkar. Það voru þau Guðrún Birna le Sage og Áki Barkarson, Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir, Gyða Björg Sigurðardóttir og Birkir Ólafsson, undir stjórn Guðrúnar Ingu Torfadóttur sem tókst ekki að sannfæra sinn mann um að mæta þar sem hann var upptekinn í mikilvægari málum að eigin sögn.Hvernig hefur okkur tekist að taka upp virðingarríka uppeldishætti, RIE eða hvaða nafni sem við viljum nefna það, saman og í sameiningu og hefur sú vegferð haft áhrif á samskipti okkar foreldranna? Til góðs eða ills? Eigum við sem fullorðið fólk að vera alveg sjálfstæð og óháð eða erum við líka með grundvallarþarfir til að tengjast öðru fólki eins og börnin okkar? Með þörf fyrir nánd, sem jafnvel hefur ekki verið mætt þegar við vorum börn?Við skoðuðum hvaða tengslatýpur við erum og fjölluðum um hvaða ástartungumál eru ráðandi hjá okkur, hvernig við rífumst og hvernig við sættumst, hvernig við ölum okkur sjálf upp á nýtt og margt fleira.

Með allt í skrúfunni
Strákarnir

Með allt í skrúfunni

Play Episode Listen Later Nov 14, 2019 17:17


Helgi, Birkir, Adrian og Agnar fara hér á kostum.

Mannlegi þátturinn
Birkir og saltið, lífið á Norðurlöndunum og Umhverfislestin á Hólmavik

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 29, 2019 55:00


Birkir Helgason lenti í bílslysi fyrir nokkrum árum, hann var kokkur en var ráðlagt af lækni að leita sér að öðrum starfsvettvangi eftir slysið. Hann lagði síður en svo árar í bát, fór og náði sér í sjó í Berufjörðinn og fór að vinna úr honum salt. Hann framleiðir nú salt með þremur bragðtegundum og var að bæta við kryddsmjöri í vöruúrval sitt. Við hringdum austur á Djúpavog og heyrðum í Birki í þættinum. Við slógum á þráðinn til Kaupmannahafnar, þar fer fram Norðurlandaráðsþing og Þór Jónsson fyrrverandi fréttamaður starfar þar sem túlkur og þýðandi, er reyndar búsettur í borginni og við ræðum við hann um störf hans á svona þingi og svo nýja bók sem gefin er út á Norðurlöndunum um þessar mundir og hann þýddi yfir á íslensku, hún heitir Lífið á Norðurlöndunum og er um margt áhugaverð. Umhverfislestin hafði viðkomur á Hólmavík laugardaginn 26. okt. Umhverfislestin er farandsýning á vegum Vestfjarðarstofu þar sem fjallað er um umhverfismál heimilanna á fjölbreyttan, fræðandi og skemmtilegan hátt Kristín Einarsdóttir lagði leið sina til Hólmavíkur og talaði við gesti og gestgjafa á sýningunni. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Birkir og saltið, lífið á Norðurlöndunum og Umhverfislestin á Hólmavik

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 29, 2019


Birkir Helgason lenti í bílslysi fyrir nokkrum árum, hann var kokkur en var ráðlagt af lækni að leita sér að öðrum starfsvettvangi eftir slysið. Hann lagði síður en svo árar í bát, fór og náði sér í sjó í Berufjörðinn og fór að vinna úr honum salt. Hann framleiðir nú salt með þremur bragðtegundum og var að bæta við kryddsmjöri í vöruúrval sitt. Við hringdum austur á Djúpavog og heyrðum í Birki í þættinum. Við slógum á þráðinn til Kaupmannahafnar, þar fer fram Norðurlandaráðsþing og Þór Jónsson fyrrverandi fréttamaður starfar þar sem túlkur og þýðandi, er reyndar búsettur í borginni og við ræðum við hann um störf hans á svona þingi og svo nýja bók sem gefin er út á Norðurlöndunum um þessar mundir og hann þýddi yfir á íslensku, hún heitir Lífið á Norðurlöndunum og er um margt áhugaverð. Umhverfislestin hafði viðkomur á Hólmavík laugardaginn 26. okt. Umhverfislestin er farandsýning á vegum Vestfjarðarstofu þar sem fjallað er um umhverfismál heimilanna á fjölbreyttan, fræðandi og skemmtilegan hátt Kristín Einarsdóttir lagði leið sina til Hólmavíkur og talaði við gesti og gestgjafa á sýningunni. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Taktíkin
#1 Meistaraflokkur KA í knattspyrnu

Taktíkin

Play Episode Listen Later Aug 27, 2019 27:13


Umfjöllunarefnið í þessum fyrsta þætti af Taktíkinni er meistaraflokkur KA í knattspyrnu. Srdjan Tufegdzic, Húsavíkurbræður Hrannar Björn og Hallgrímur Mar og Schiöttararnir Birkir Örn Pétursson og Sindri Már Stefánsson eru gestir Skúla Braga í þættinum „Að vera þjálfari KA er mín drauma vinna“ - sagði Srdjan Tufegdzic þjálfari meistaraflokks KA og kom boltanum þar með af stað í fyrsta viðtali í fyrsta þætti af Taktíkinni. „Ég held að allir heilvita menn sjái það kannski að tæknilega séð er Hallgrímur betri en ég og ég er ekkert feiminn við að segja það.“ sagði Hrannar Björn Bergmann í viðtali með bróður sínum Hallgrími Mar Bergmann. Báðir eru þeir leikmenn meistaraflokks KA í knattspyrnu en uppaldir á Húsavík og eiga það reyndar sameiginlegt með nokkrum öðrum leikmönnum félagsins. „Mér hefur við ekki fundist fá það credit sem við eigum skilið fyrir öll þessi ferðalög sem við höfum lagt á okkur. þetta hafa verið þúsundir kílómetra á hverju sumri.“ sagði Brikir Örn Pétursson stuðningsmaður KA í knattspyrnu meðal annars. Hann og Sindri Már Stefánsson eru fulltrúar Schiöthara í þættinum.

Draumaliðið
Birkir Már Sævarsson

Draumaliðið

Play Episode Listen Later Jun 5, 2019 44:46


Næstlandsleikjahæsti leikmaður íslenska karlalandsliðsins og hægri bakvörður neðsta liðs Pepsi deildarinnar valdi draumaliðið sitt.

Morgunútvarpið
Mygluleitarhundur, sjúkraflutningar, Hatari, ljósmæður og tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 15, 2019 130:00


Öll þekkjum við til leitarhunda, sem t.d. eru notaðir við fíkniefnaleit eða við björgunarstörf þar sem leitað er að fólki. Færri hafa hins vegar heyrt af mygluleitarhundum, en þeir eru til líka og nú er búið að þjálfa upp einn slíkan hér á landi, Hanz að nafni. Við slógum á þráðinn til Jóhönnu Þorbjargar Magnúsdóttur hundaþjálfara og heyrðum svolítið meira af þessu. Fram kom í fréttum okkar í gær að norskir sjúkraflutningamenn þurftu að bíða í meira en 50 mínútur fyrir utan íbúð Gísla Þórs Þórarinssonar í Noregi á meðan honum blæddi út. Þeir höfðu ekki heimild til að fara inn í íbúðina fyrr en lögregla kom á vettvang. En hverjar eru reglurnar hér á Íslandi, geta komið upp aðstæður þar sem sjúkraflutningamenn standa í sömu eða svipuðum sporum? Birkir Árnason, formaður fagdeildar sjúkraflutninga, ræddi þetta við okkur. Hatari komst áfram í úrslit Eurovisionkeppninnar í gærkvöldi eins og þjóð veit. Björg Magnúsdóttir var auðvitað á staðnum og hún greip Hataramenn og fleiri er málinu tengjast að keppni lokinni og fékk viðbrögð. Við heyrðum í kátu íslensku júró fólki. Þetta lifir með manni, alltaf, er yfirskriftin á erindi Jóhönnu Ólafsdóttur og Sigfríðar Ingu Karlsdóttur á Sjónaukanum 2019, árlegri ráðstefnu heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Umfjöllunarefnið er upplifun ljósmæðra af því að hætta störfum í kjölfar alvarlegra atvika í starfi. Það byggir á rannsóknum Sigfríðar og meistaraverkefni Jóhönnu, sem kom og deildi helstu niðurstöðum með okkur. Guðmundur Jóhannsson mætti í sitt vikulega tæknihorn og ræddi m.a. öryggisgalla í WhatsApp og svo hina dularfullu deild 8200 í Ísrael. Tónlist: Stuðmenn - Ólína og ég. Bruce Springsteen - Hello sunshine. Hafdís Huld - Take me dancing. Liam Gallagher - Paper Crown. Robbie Williams - Jesus in a Camper Van. Hatari - Hatrið mun sigra. Sálin hans Jóns mín - Ekkert breytir því. Don McLean - Vincent. Alice Merton - Lash out. OMAM - Alligator. Black Keys - LoHi.

Sunnudagssögur
Birkir Már Sævarsson og Ingunn Snædal

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Jul 15, 2018 135:00


Birkir Már Sævarsson knattspyrnumaður sagði frá uppvextinum í Hlíðunum, fótboltaáhuganum, fjölskyldunni náminu og ýmsu fleiru. Hann ræddi velgengi íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu og hverjar hann taldi ástæðurnar fyrir því að liðinu hefur gengið svona vel. Hann stefnir á nám í tölvunarfræði í Háskóla Íslands í haust, og segist ætla að leika knattspyrnu eins lengi og mögulegt er. Ingunn Snædal kennari, ljóðskáld og þýðandi sagði frá uppvextinum á Skjöldólfstöðum í Jökuldal, skólagöngunni, náminu á Eiðum, dvölinni í Reykjavík og síðar kennaranámi. Hún sagði frá ferðalögum vítt og breytt um heiminn og ýmsu fleiru.

Sunnudagssögur
Birkir Már Sævarsson og Ingunn Snædal

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Jul 15, 2018


Birkir Már Sævarsson knattspyrnumaður sagði frá uppvextinum í Hlíðunum, fótboltaáhuganum, fjölskyldunni náminu og ýmsu fleiru. Hann ræddi velgengi íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu og hverjar hann taldi ástæðurnar fyrir því að liðinu hefur gengið svona vel. Hann stefnir á nám í tölvunarfræði í Háskóla Íslands í haust, og segist ætla að leika knattspyrnu eins lengi og mögulegt er. Ingunn Snædal kennari, ljóðskáld og þýðandi sagði frá uppvextinum á Skjöldólfstöðum í Jökuldal, skólagöngunni, náminu á Eiðum, dvölinni í Reykjavík og síðar kennaranámi. Hún sagði frá ferðalögum vítt og breytt um heiminn og ýmsu fleiru.

Det Velfortjente Afbræk
Superørne æder vikinger til aftensmad

Det Velfortjente Afbræk

Play Episode Listen Later Jun 22, 2018 55:39


Hvad er magi spørger du dig selv? Magi er et delikat mix mellem modnede avokadoer i nigerianske mikrobølgeovne og islandske saltbae Birkir. Du gættede rigtigt. Vi bevægede os ned på havnepladsen i Aarhus for at overvære kampen mellem Nigeria og Island, hvilket kan siges at være en farverig eksplosion mellem afrikansk hurtighed og nordisk brutalitet. Derudover tager vi i det nyeste afsnit temperaturen på ulvemødet i Ulfsborg og kinesernes vilde plan om at kopiere Randers midtby. Lyt med. Det elsker vi.

Det Velfortjente Afbræk
Superørne æder vikinger til aftensmad

Det Velfortjente Afbræk

Play Episode Listen Later Jun 22, 2018 55:39


Hvad er magi spørger du dig selv? Magi er et delikat mix mellem modnede avokadoer i nigerianske mikrobølgeovne og islandske saltbae Birkir. Du gættede rigtigt. Vi bevægede os ned på havnepladsen i Aarhus for at overvære kampen mellem Nigeria og Island, hvilket kan siges at være en farverig eksplosion mellem afrikansk hurtighed og nordisk brutalitet. Derudover tager vi i det nyeste afsnit temperaturen på ulvemødet i Ulfsborg og kinesernes vilde plan om at kopiere Randers midtby. Lyt med. Det elsker vi.

KA Podcastið
KA Podcastið - 14. júní 2018

KA Podcastið

Play Episode Listen Later Jun 14, 2018 61:29


Hinn vikulegi hlaðvarpsþáttur KA heldur að sjálfsögðu áfram en Siguróli Magni Sigurðsson og Birkir Örn Pétursson fá til sín magnaðan gest að þessu sinni en það er enginn annar en Gunnar Níelsson. Gunni segir nokkrar frábærar sögur tengdar KA og er alveg ljóst að Gunni þarf að mæta aftur enda mjög gaman að hlusta á það sem hann hefur að segja. Þeir Siguróli og Birkir fara svo að sjálfsögðu yfir síðasta leik hjá KA og rýna í leik dagsins sem er heimaleikur gegn Stjörnunni.

KA Podcastið
KA Podcastið - 7. júní 2018

KA Podcastið

Play Episode Listen Later Jun 7, 2018 60:19


Hlaðvarpsþáttur KA heldur áfram göngu sinni og að þessu sinni fá þeir Siguróli Magni Sigurðsson og Birkir Örn Pétursson til sín Tufa þjálfara KA í knattspyrnu og fara þeir félagar yfir feril Tufa sem og hvernig það var að koma frá Serbíu og til Íslands. Einnig renna þeir yfir síðustu leiki hjá KA og Þór/KA, það er því um að gera að hlusta á þennan skemmtilega þátt.

KA Podcastið
KA Podcastið - 17. maí 2018

KA Podcastið

Play Episode Listen Later May 17, 2018 70:22


Hlaðvarpsþátturinn KA Podcastið heldur áfram en að þessu sinni fá þeir Siguróli Magni Sigurðsson og Birkir Örn Pétursson til sín Halldór Jón Sigurðsson, Donna, þjálfara Þórs/KA sem fer yfir ýmislegt bæði tengt kvennaliðinu sem og karlaliði KA. Að lokum fara þeir félagar yfir félagsfund KA sem fór fram í gær ásamt því að fara stuttlega yfir lokahóf handknattleiksdeildar og leik FH og KA sem fer fram í dag.

KA Podcastið
KA Podcastið - 10. maí 2018

KA Podcastið

Play Episode Listen Later May 10, 2018 58:01


Knattspyrnusumarið er komið af stað og bæði KA og Þór/KA hafa nú leikið tvo leiki í Pepsi deildinni. Þeir Siguróli Magni Sigurðsson og Birkir Örn Pétursson fá til sín góða gesti en karlamegin ræðir Magnús Már Einarsson frá fotbolti.net um KA liðið og kvennamegin mætir fyrirliðinn Sandra María Jessen og fer yfir byrjunina á sumrinu sem og dvöl sína með Slavia Prag í Tékklandi. Þá kemur formaður KA, Ingvar Már Gíslason, í heimsókn og ræðir komandi félagsfund sem KA heldur 16. maí kl. 17:15 um framtíðarplön félagsins og rekstarumhverfi KA.

Fotbolti.net
Eiður Aron og Birkir Már - Ekki hægt að mæta Messi skjálfandi á beinunum

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 24, 2018


Tveir af bestu varnarmönnum Pepsi-deildarinnar mættu á skrifstofu Fótbolta.net til að ræða tímabilið framundan. Eiður Aron Sigurbjörnsson og Birkir Már Sævarsson, leikmenn Vals, spjölluðu við Elvar Geir Magnússon en ríkjandi Íslandsmeisturum er spáð efsta sætinu í sumar. Birkir Már, sem er 33 ára, á fast sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins en er kominn heim í Val.

Fehlpass Fußball Podcast
#DFTEM 05 (Birkir! Birkir! Birkir)

Fehlpass Fußball Podcast

Play Episode Listen Later Jun 15, 2016 66:15


Die Gruppe F scheint die Gruppe der Überraschungen zu werden. Österreich verliert überraschend gegen Ungarn und Island trotz Portugal ein 1:1 ab. Darüber spreche ich mit meinen Gästen und auch über Ronaldo und seine Äußerungen nach dem Unentschieden. Gemeinsam werfen wir auch einen Blick auf die Spiele heute: Russland - Slowakei, Rumänien - Schweiz und Frankreich - Albanien. Meine Gäste heute: Desiree Wolff von meinsportradio.de (Twitter: @toesiroe) und Marvin Mendel vom Eintracht Podcast (Twitter: @marv2punkt0). Der Hashtag zur Sendung lautet: #DFTEM. Diesen Podcast bei iTunes anhören und (kostenlos) abonnieren. Folgt uns bei Twitter @fehlpass und liked unsere #DFTEM Facebook Seite und bleib immer auf dem Laufenden. Unterstützt uns mit einer kleinen Spende! Diesen Podcast bei iTunes anhören und (kostenlos) abonnieren. Alte anderen Podcatcher sollten diesen Feed verwenden