Podcasts about hladvarp

  • 5PODCASTS
  • 351EPISODES
  • 1h 40mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Dec 13, 2023LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about hladvarp

Latest podcast episodes about hladvarp

Bíóblaður
#266 Rétt eða Rangt með Blaffa og Jóa Degi

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Dec 13, 2023 127:35


Rappararnir Blaffi og Jói Dagur kíktu til Hafsteins til að fara í skemmtilegan leik. Hafsteinn samdi tíu fullyrðingar sem hann varpaði á sjónvarpið í stúdíóinu. Strákarnir skiptust síðan á því að segja hvort fullyrðingin væri rétt eða röng.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig Blaffi myndi lemja Ghostface en myndi líklegast vera stútað af Michael Myers, hversu mikið Jói Dagur elskar The Big Lebowski, hvort Omni-Man gæti drepið Superman, hvort Samuel L. Jackson sé svalari en Denzel Washington og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
#265 Íþróttir með Snævari Sölva

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Dec 6, 2023 156:38


Snævar Sölvi Sölvason er kvikmyndagerðarmaður sem hefur gert indie kvikmyndir á borð við Albatross og Eden. Snævar er nýbúinn að gera sjónvarpsseríu fyrir RÚV sem heitir Skaginn en serían fjallar um fótboltalið ÍA og þeirra sigurgöngu á árunum 1992 til 1996.   Snævar kíkti til Hafsteins til að ræða seríuna og íþróttamyndir. Strákarnir ræða meðal annars myndirnar Happy Gilmore, The Wrestler, Raging Bull, Any Given Sunday, Free Solo og margar aðrar.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #39 - Come and See með Marteini og Hauki

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Nov 29, 2023 10:09


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Áhættuleikarinn Marteinn Úlfur Gunnarsson og þungarokkarinn Haukur Þór Valdimarsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina hrikalegustu stríðsmynd allra tíma, rússnesku myndina Come and See (Idi i Smotri).   Strákarnir ræða meðal annars hversu erfið myndin er, hversu mikilvægt er að sjá svona útgáfu af stríðsmynd, hversu lengi leikstjórinn var að gera hana, hlöðuatriðið fræga og margt, margt fleira.   Þátturinn er 72 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta á heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

Bíóblaður
#264 Kilo snýr aftur!

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Nov 22, 2023 74:05


Rapparinn Kilo er einn af fastagestum Bíóblaðurs og einn sá vinsælasti. Stærri og skemmtilegri persónuleika er erfitt að finna og Hafsteinn var því spenntur að fá hann aftur í heimsókn.   Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hver er versta streymisveitan, hvaða mynd strákarnir ættu að horfa á saman í fyrsta commentary þætti Bíóblaðurs, hversu mikil áhrif Erika Eleniak hafði á þá þegar þeir voru unglingar, hvort Invincible sé betri en The Boys, hversu gamlir strákarnir eru orðnir, Blue Eye Samurai og hversu sturluð sú sería er og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #38 - Hannibal Lecter með Mána

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Nov 19, 2023 10:42


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndasérfræðingurinn Máni Freyr kíkti til Hafsteins til að ræða einn ógeðslegasta morðingja kvikmyndasögunnar, mannætuna Hannibal Lecter.   Í þættinum ræða strákarnir meðal annars af hverju Lecter er svona áhugaverður karakter, muninn á myndunum og bókunum, hversu sturluð The Silence of the Lambs er, hversu mikið maður saknar Jodie Foster í Hannibal, hversu áhugaverður og ógeðslegur karakter Mason Verger er, hversu leiðinleg Hannibal Rising er, hvort Mads Mikkelsen sé besti Lecter-inn og margt, margt fleira.   Þátturinn er rétt tæpir 3 klukkutímar. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

Bíóblaður
#263 Bíóspjall með Hrafnkeli Huga

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Nov 8, 2023 124:57


Hrafnkell Hugi er tónlistarmaður og mikill kvikmyndaáhugamaður. Hrafnkell er meðlimur hljómsveitarinnar Celebs en hljómsveitin tók þátt í undankeppni Eurovision fyrr á árinu með laginu sínu Dómsdags Dans. Keli kíkti til Hafsteins í fjölbreytt og skemmtilegt bíóspjall.    Í þættinum ræða þeir meðal annars Conan the Barbarian, Marvel og DC, hvernig kvikmyndaiðnaðurinn hefur breyst, möguleg áhrif A.I. á listgreinar, Pixar og teiknimyndir, af hverju í ósköpunum Uwe Boll fær ennþá að gera bíómyndir og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
#262 Mission Impossible: 5-7 með Óla og Mána

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Nov 6, 2023 104:45


Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða Mission Impossible kvikmyndaseríuna.   Í þessum seinni hluta ræða strákarnir Mission Impossible: Rogue Nation, Mission Impossible: Fallout og Mission Impossible: Dead Reckoning.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
#261 Mission Impossible: 1-4 með Óla og Mána

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Nov 6, 2023 151:56


Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða Mission Impossible kvikmyndaseríuna.   Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir Mission Impossible, Mission Impossible II, Mission Impossible III og Mission Impossible: Ghost Protocol.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #37 - John Carpenter: Part II með Gumma, Oddi og Kidda

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Nov 2, 2023 10:21


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndaáhugamennirnir Gummi Sósa, Oddur Klöts og Kristinn Reyr kíktu til Hafsteins til að ræða einn skemmtilegasta hryllingsmyndaleikstjóra allra tíma, John Carpenter.   Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars hversu mikið meistaraverk The Thing er, hvort The Fog sé jafngóð og Jaws, hversu klikkuð In the Mouth of Madness er, hversu leiðinleg The Ward er, hvort hægt sé að kalla Carpenter B-mynda leikstjóra, hversu góð Cigarette Burns hefði verið ef hún hefði verið í fullri lengd og margt, margt fleira.   Þátturinn er 2 klukkutímar. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

Bíóblaður
#260 John Carpenter: Part I með Gumma, Oddi og Kidda

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Oct 31, 2023 128:48


Kvikmyndaáhugamennirnir Gummi Sósa, Oddur Klöts og Kristinn Reyr kíktu til Hafsteins til að ræða einn skemmtilegasta hryllingsmyndaleikstjóra allra tíma, John Carpenter.   Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars hversu leiðinleg Halloween er, hvort They Live sé virkilega góð eða ekki, hversu töff James Woods er í Vampires, hversu mikið Gummi hatar Village of the Damned, hvort Ghosts of Mars sé lélegasta Carpenter myndin og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
#259 Hryllingur með Lovísu Láru

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Oct 18, 2023 159:00


Lovísa Lára er uppistandari, kvikmyndagerðarkona, hlaðvarpsstjórnandi og stofnandi hryllingsmyndahátíðarinnar, Frostbiter.   Lovísa er mikill hryllingsmyndaaðdáandi og Hafsteini fannst því upplagt að fá hana til sín í október og ræða alls konar hrylling við hana.   Í þættinum ræða þau meðal annars true crime podcöst, fjöldamorðingja og mannlegt eðli, heitustu hryllingsmynd ársins Talk to Me, af hverju hryllingsmyndir eru svona skemmtilegar, ást Lovísu á Evil Dead kvikmyndaseríunni, hversu átakanleg Martyrs er, hversu mikið Lovísa elskar Peter Jackson og hans eldri splatter myndir og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #36 - Friday the 13th: Part II með Jökli, Pétri og Hödda

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Oct 13, 2023 10:14


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndaáhugamennirnir Jökull Jónsson, Pétur Ragnhildarson og Hörður Ásbjörnsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina merkilegustu slasher seríu allra tíma, Friday the 13th.   Friday the 13th serían er auðvitað þekktust fyrir að hafa kynnt heiminum fyrir fjöldamorðingjanum Jason Voorhees og strákarnir kafa djúpt í þessa seríu og ræða allar tólf myndirnar.   Í þessum seinni hluta ræða þeir meðal annars hvernig Jason berst í rauninni við Carrie í Part VII, hversu leiðinleg Jason Takes Manhattan er, af hverju Jason Goes to Hell er lélegasta myndin, hversu gaman það var að sjá Freddy Krueger berjast við Jason, hversu vel heppnuð 2009 endurgerðin er, hvort það sé ekki algjört möst að framleiða þrettándu myndina í seríunni og margt, margt fleira.   Þátturinn er 2 klukkutímar. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

Bíóblaður
#258 Friday the 13th: Part I með Jökli, Pétri og Hödda

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Oct 13, 2023 123:53


Kvikmyndaáhugamennirnir Jökull Jónsson, Pétur Ragnhildarson og Hörður Ásbjörnsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina merkilegustu slasher seríu allra tíma, Friday the 13th.   Friday the 13th serían er auðvitað þekktust fyrir að hafa kynnt heiminum fyrir fjöldamorðingjanum Jason Voorhees og strákarnir kafa djúpt í þessa seríu og ræða allar tólf myndirnar.   Í þessum fyrri hluta ræða þeir meðal annars fyrstu sex myndirnar í seríunni, hvernig kvikmyndaeftirlit Bandaríkjanna lét klippa margar af þessum myndum, hver er þeirra uppáhalds Friday mynd, hver er versta myndin, hversu vel heppnuð fyrsta myndin er sem ódýr hryllingsmynd, hvers vegna slasher myndir eru skemmtilegar og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
#257 Stunts með Immu Helgu

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Oct 4, 2023 110:27


Imma Helga er áhættuleikari, MMA keppandi og margfaldur Íslandsmeistari í hnefaleikum. Hún hefur unnið mikið við áhættuleik síðastliðin ár en stunt bransinn á Íslandi hefur stækkað gríðarlega á stuttum tíma.   Imma Helga hefur bæði unnið mikið við íslenska kvikmynda/sjónvarpsþátta framleiðslu en einnig hefur hún tekið þátt í erlendum verkefnum sem hafa verið tekin upp hér á landi.   Imma kíkti til Hafsteins og sagði honum meðal annars frá sínum bakgrunni í bardagaíþróttum, hver er besta sjálfsvörnin, hvernig hún hefur sérhæft sig sérstaklega í háum föllum, þegar hún slasaðist mikið við tökur á hryllingsmyndinni Dead Snow 2, hversu gott er að vinna með Jóni Viðari en þau reka fyrirtækið Icelandic Stunts saman og hversu flottur áhættuleikari Jackie Chan er.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
#256 Bíóspjall með Bomarz

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Sep 27, 2023 140:15


Bjarki Ómarsson, betur þekktur sem Bomarz, er tónlistarmaður og upptökustjóri. Bomarz er einnig mikill kvikmyndaáhugamaður og hann kíkti til Hafsteins í fjölbreytt og skemmtilegt spjall um bíómyndir og sjónvarpsþætti.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Christopher Nolan sé ofmetinn leikstjóri, hversu leiðinleg Oppenheimer er, hvort James Bond eigi að vera ljóshærður, af hverju Batman myndirnar gerast alltaf í nútímanum, hvort Friends sé betri sería en Seinfeld, hvernig poppbransinn hefur þróast, hversu mikið Bomarz elskar 80's myndir og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #35 - Spider-Man með Helga, Hauki og Patreki

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Sep 22, 2023 11:25


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndanördarnir Helgi, Haukur og Patrekur eru rosalegir Spider-Man aðdáendur og þeir kíktu til Hafsteins til að ræða þennan merkilega karakter. Í þessum þætti er einblínt á Tobey Maguire Spider-Man myndirnar en Hafsteinn stefnir á að gera sér þætti fyrir Andrew Garfield og Tom Holland.   Í þessum þætti ræða strákarnir meðal annars hversu gamall Tobey var þegar hann lék í fyrstu myndinni, hversu frábær Willem Dafoe er sem Green Goblin, hversu vel Spider-Man 2 sýnir hversu stressandi það væri að vera ofurhetja eins og Spider-Man, Alfred Molina og hans frammistöðu sem Doc Ock, hvernig Raimi hefði mögulega getað nýtt Kristen Dunst betur sem Mary Jane, hversu gölluð en skemmtileg Spider-Man 3 er, hvernig Topher Grace stóð sig sem Eddie Brock/Venom og margt, margt fleira.   Þátturinn er rétt tæpir 3 klukkutímar. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

Bíóblaður
#255 Christopher Nolan: Part II með Óla, Mána og Teiti

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Sep 20, 2023 103:35


Christopher Nolan er einn merkilegasti og vinsælasti kvikmyndagerðarmaður okkar tíma. Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki, Máni Freyr og Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að ræða Nolan og hans kvikmyndir.   Í þessum öðrum hluta ræða þeir meðal annars myndirnar Dunkirk, Interstellar, Inception, hvernig Tarantino telur að leikstjórar eigi að hætta fyrr frekar en seinna og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
#254 Christopher Nolan: Part I með Óla, Mána og Teiti

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Sep 13, 2023 112:19


Christopher Nolan er einn merkilegasti og vinsælasti kvikmyndagerðarmaður okkar tíma. Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki, Máni Freyr og Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að ræða Nolan og hans kvikmyndir.   Í þessum fyrsta hluta ræða þeir meðal annars hvað það er sem einkennir Nolan sem leikstjóra, hversu vel heppnuð Oppenheimer var, hvort Tenet sé góð eða slæm mynd, hversu mikilvæg persónusköpun er í kvikmyndum, hvernig Cillian Murphy stóð sig sem Oppenheimer og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #34 - DC vs. Marvel 3 með Gumma, Ragga, Fannari og Ara

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Sep 8, 2023 11:03


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Ofurhetjusérfræðingarnir Gummi Sósa, Raggi Ólafs, Fannar Gilberts og Ari Ólafs kíktu til Hafsteins til að ræða bardaga upp á líf og dauða milli DC karaktera og Marvel karaktera. Hafsteinn setti saman fimm bardaga þar sem DC karakter keppir við Marvel karakter. Strákarnir reyna síðan í sameiningu að finna út hvor myndi vinna bardagann.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Ultron gæti rústað Brainiac, hvort The Wasp kæmist inn í heilann á Poison Ivy, hvernig Spider-Man myndi ganga á móti Clayface og Cyborg, hvort Aquaman þyrfti aðstoð við að drepa Namor og margt, margt fleira.   Þátturinn er 93 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

Bíóblaður
#253 Top 10 with Jason Thompson

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Sep 6, 2023 163:40


Jason Thompson is a tattoo artist and the owner of Black Kross Tattoo, a tattoo shop in Kópavogur. Jason is originally from Ohio but has lived in Iceland for almost 20 years with his wife and kids. Jason is not only an artist but he is also a self-described “Movie Ninja”. Jason wrote down his ten favorite movies and shared them with Hafsteinn.   Among the things the guys talk about is Jason's background, the time when he decided to leave America and move to Iceland, his time living in the deep South, his love for Martin Scorsese, how cool Jason Statham movies are (apart from the Meg), how Joe Pesci is the acting gift that keeps on giving, how Jason doesn't enjoy movies that make him sad or make him think, his love for Quentin Tarantino movies and much, much more.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
#252 DC vs. Marvel 2 með Gumma, Ragga, Fannari og Ara

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Aug 30, 2023 145:01


Ofurhetjusérfræðingarnir Gummi Sósa, Raggi Ólafs, Fannar Gilberts og Ari Ólafs kíktu til Hafsteins til að ræða bardaga upp á líf og dauða milli DC karaktera og Marvel karaktera. Hafsteinn setti saman fimm bardaga þar sem DC karakter keppir við Marvel karakter. Strákarnir reyna síðan í sameiningu að finna út hvor myndi vinna bardagann.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Doomsday myndi vinna Hulk, hvort öskrið hjá Black Canary væri nóg til að rústa Gamora, hvort Bane næði að kremja hausinn á Kraven og margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
#251 Succession með Óla Bjarka

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Aug 25, 2023 137:27


Óli Bjarki kíkti til Hafsteins til að ræða eina bestu sjónvarpsseríu allra tíma, Succession. Succession kemur frá HBO og hefur unnið til margra verðlauna.   Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort þetta séu bestu þættir sem hafa verið framleiddir, húmorinn í þáttunum, hversu gott tvíeyki Tom og Greg eru, Jeremy Strong og hans frammistöðu sem Kendall Roy, hvernig Óla fannst endirinn vera, hvort það hefði verið sniðugt að halda áfram og gera seríu 5, Brian Cox og hans frammistöðu sem Logan Roy og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #33 - Topp 10 með Skúla Júlíus

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Aug 23, 2023 10:28


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Skúli Júlíusson er vinur Hafsteins og mikill kvikmyndaáhugamaður. Skúli kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 kvikmyndir.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Steven Seagal sé í alvörunni töff gaur, hversu sturluð Prisoners er, hvort Skúli eigi eftir að klára allar Succession seríurnar, Denzel Washington og hans frammistöðu í Training Day, ást Skúla á Reservoir Dogs, hversu mikið Skúli elskar The Shining og margt, margt fleira.   Þátturinn er 103 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

Bíóblaður
#250 Bíótöfrar II með Jóhanni Leplat

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Aug 16, 2023 53:29


Fyrir nokkrum mánuðum stofnuðu Hafsteinn og Jóhann Leplat Ágústsson, í samstarfi við Sambíóin Kringlunni, bíóklúbbinn Bíótöfra. Klúbburinn sýnir eldri og klassískar kvikmyndir einu sinni í mánuði í Sal 1 í Sambíóunum Kringlunni.   Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvernig þeim fannst þessar fyrstu fimm sýningar hafa gengið, hvað er framundan, hvaða kvikmynd væri þeirra draumakvikmynd að sýna og margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

movies samb fyrir kringlunni hafsteinn kvikmyndir hladvarp
Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #32 - Topp 10 með Donnu Cruz

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Aug 11, 2023 10:34


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Leikkonan og samfélagsmiðlastjarnan Donna Cruz kíkti til Hafsteins með sinn topp 10 lista.   Í þættinum ræða þau meðal annars Tucker and Dale vs. Evil, Flipped, Grand Budapest Hotel, Spirited Away, sjónvarpsseríuna From, hversu æðislegur Tom Hiddleston er, hvort það sé í lagi að horfa á döbbaðar myndir, hvort það sé í lagi fyrir kvikmyndanörda að fara ekkert í bíó í þrjá mánuði, hversu skemmtileg She's the Man er og margt, margt fleira.   Þátturinn er 99 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

Bíóblaður
#249 Indiana Jones and the Dial of Destiny með Óla og Mána

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Aug 9, 2023 116:01


Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða nýjustu Indiana Jones myndina, The Dial of Destiny.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort myndin sé algjört klúður, hversu illa/vel James Mangold stóð sig, hversu illa/vel Kathleen Kennedy hefur staðið sig eftir að hún tók við Lucasfilm, hvort það hafi verið sniðugt að de-age-a Harrison Ford, hvort það hefði verið sniðugra að fara aðra leið með söguna og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
#248 Edgar Wright: Part II með Kára og Patreki

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jul 31, 2023 121:44


Kári Trevor og Patrekur Thor eru ungir og spennandi kvikmyndagerðarmenn en strákarnir hafa í sameiningu gert nokkrar stuttmyndir og stefna á að gera kvikmynd í fullri lengd.   Þeir kíktu til Hafsteins til að ræða Edgar Wright og hans myndir. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir myndirnar Scott Pilgrim vs. The World, Baby Driver og Last Night in Soho.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
#247 Edgar Wright: Part I með Kára og Patreki

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jul 31, 2023 117:05


Kári Trevor og Patrekur Thor eru ungir og spennandi kvikmyndagerðarmenn en strákarnir hafa í sameiningu gert nokkrar stuttmyndir og stefna á að gera kvikmynd í fullri lengd.   Þeir kíktu til Hafsteins til að ræða Edgar Wright og hans myndir. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir hinn svokallaða Cornetto þríleik en það eru myndirnar Shaun of the Dead, Hot Fuzz og The World's End.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #31 - Lethal Weapon með Anthony, Hansel og Snorra

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jul 25, 2023 10:38


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Sjómaðurinn Anthony Evans Berry, leikarinn Hansel Eagle og matgæðingurinn Snorri Guðmundsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina þekktustu kvikmyndaseríu allra tíma, Lethal Weapon.   Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hver er besta Lethal Weapon myndin, hversu miklar bíómyndalöggur Riggs og Murtaugh eru, hversu gott chemistry er á milli Gibson og Glover, Rene Russo og hennar innkomu í Lethal Weapon 3, hvort einhver annar en Joe Pesci hefði getað leikið Leo Getz, hversu svalur Jet Li er sem vondi kallinn í Lethal Weapon 4 og margt, margt fleira.   Þátturinn er 145 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

Bíóblaður
#246 Nördaspjall með Oddi Klöts

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jul 12, 2023 136:43


Oddur Klöts er 25 ára gamall námsmaður með brennandi áhuga á kvikmyndum. Hann kíkti til Hafsteins í fjölbreytt og skemmtilegt spjall.   Í þættinum ræða strákarnir meðal annars 70's myndir, Dune og hversu mikið Oddur elskar bókina, Robocop og af hverju hún er uppáhalds myndin hans Odds, streymisveitur og hvernig kvikmyndaiðnaðurinn hefur þróast, hvort John Carpenter sé B-mynda leikstjóri, David Cronenberg og myndirnar hans The Fly og Videodrome, álit Odds á Marvel, Indiana Jones and the Dial of Destiny og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #30 - Evil Dead: Part II með Óla og Mána

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jul 7, 2023 10:37


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki og Máni Freyr eru miklir Evil Dead menn og Hafsteini fannst því upplagt að fá þá til sín og ræða þessa fimm mynda seríu.   Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars hversu æðisleg Army of Darkness er, hversu ógeðsleg Evil Dead 2013 er, hvað þeim finnst mikilvægt að sé í Evil Dead mynd, hversu grjóthörð Evil Dead Rise er, hvað þeir vilja sjá í næstu Evil Dead myndum og margt, margt fleira.   Þátturinn er 90 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

Bíóblaður
#245 Fire and Blood: Part II með Aroni Andra

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jul 5, 2023 95:46


Í tilefni þess að HBO hefur gefið út risa seríurnar Game of Thrones og House of the Dragon, þá datt Hafsteini í hug að fjalla aðeins um þennan merkilega heim. Fire and Blood er skáldsaga eftir George R.R. Martin sem fjallar um Targaryen fjölskylduna og hvernig hún náði völdum í Westeros.   Aron Andri er mikill fantasíu áhugamaður og hefur lesið heilan helling af fantasíu bókum og Hafsteini fannst upplagt að fá hann til sín og ræða þessa risa bók.   Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars House of the Dragon seríuna, atburði sem gerast eftir fyrstu seríuna, hvað við munum mögulega sjá í næstu seríum og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #29 - Evil Dead: Part I með Óla og Mána

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jun 30, 2023 10:23


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki og Máni Freyr eru miklir Evil Dead menn og Hafsteini fannst því upplagt að fá þá til sín og ræða þessa fimm mynda seríu.   Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars hversu ódýr The Evil Dead var, hversu hræðilegt hárið á Bruce Campbell var í fyrstu myndinni, hvernig ungur Sam Raimi náði að gera svona kraftmikla mynd, hversu mikið Raimi var búinn að þroskast sem leikstjóri þegar hann gerði Evil Dead II, hversu áberandi það er að Evil Dead II var með betra handrit en fyrsta myndin og margt, margt fleira.   Þátturinn er 96 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

Bíóblaður
#244 Fire and Blood: Part I með Aroni Andra

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jun 28, 2023 86:56


Í tilefni þess að HBO hefur gefið út risa seríurnar Game of Thrones og House of the Dragon, þá datt Hafsteini í hug að fjalla aðeins um þennan merkilega heim. Fire and Blood er skáldsaga eftir George R.R. Martin sem fjallar um Targaryen fjölskylduna og hvernig hún náði völdum í Westeros.    Aron Andri er mikill fantasíu áhugamaður og hefur lesið heilan helling af fantasíu bókum og Hafsteini fannst upplagt að fá hann til sín og ræða þessa risa bók.   Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars Aegon, fyrsta konung Westeros, syni hans Aenys og Maegor the Cruel, hversu öflugir drekarnir eru, Valyrian steel sverðin og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
#243 Bransaspjall með Ahd Tamimi

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jun 21, 2023 120:41


Ahd Tamimi er leikari sem hefur bæði leikið á sviði, í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Ahd lærði leiklist í Skotlandi en fyrir utan það að vinna í bransanum þá er Ahd líka grjótharður kvikmyndaáhugamaður.   Hann kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá sínum bakgrunni og hvernig það var að læra leiklist í Skotlandi. Strákarnir ræða einnig Marvel, Woke fyrirbærið og gagnrýnina sem hefur fylgt því, hversu mikið Ahd elskar The Descent og Buffy the Vampire Slayer, hvort method leikur sé sniðugur og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
#242 Morðingjar með Stellu og Láru

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jun 16, 2023 125:37


Vinkonurnar Stella Björk Guðmundsdóttir og Lára Guðmundsdóttir eru miklir true crime aðdáendur og í kjölfarið byrjuðu þær með hlaðvarp sem kallast Morðaforði. Stelpurnar fjalla þar um alvöru fjöldamorðingja og önnur hryllileg mál.   Hafsteinn fékk þær í heimsókn til sín til að ræða kvikmyndamorðingja og fá þeirra álit á þeim. Hafsteinn bjó til leik handa þeim þar sem Stella og Lára þurfa að gefa þekktum kvikmyndamorðingjum einkunn út frá því hversu ógnvekjandi þeim finnst þeir vera.   Í þættinum ræða þau einnig Jeffrey Dahmer seríuna, Barbarian, Memories of Murder, Paradise Lost, hversu scary Jason Vorhees er, hvort Stella myndi treysta sér til að eiga Chucky dúkkuna og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #28 - 90's Gullmolar III með Bjarna Thor

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jun 12, 2023 20:21


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndaáhugamaðurinn og 90's sérfræðingurinn Bjarni Thor kíkti til Hafsteins til að ræða nokkra 90's Gullmola. Strákarnir völdu 10 myndir á mann og skiptust á að rökstyðja sitt val.   Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar The Siege, Cop Land, Red Rock West, Clifford, Split Second, Bordello of Blood, Fair Game og margar fleiri.   Þátturinn er 180 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

Bíóblaður
#241 Warner Bros. 100 ára: Part II með Óla, Mána og Teiti

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jun 7, 2023 133:32


Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki, Máni Freyr og Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að fagna hundrað ára afmæli Warner Bros.   Í þættinum ræða strákarnir 70's, 80's, 90's, 00's og 10's Warner Bros myndir. Í þessum seinni hluta ræða þeir meðal annars myndirnar The Departed, Blade Runner 2049, Unforgiven, Man on the Moon, Mystic River og margar fleiri.   Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #27 - Dungeons & Dragons með Bjössa, Sigga og Davíð

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Jun 2, 2023 15:34


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Dungeons & Dragons er spil sem flestir nördar hafa spilað eða í það minnsta heyrt um. Fyrr á árinu kom út kvikmyndin Dungeons & Dragons: Honor Among Thieves en myndin fékk frábæra dóma og vakti mikla athygli.   Í tilefni þess þá datt Hafsteini í hug að fá til sín þrjá nörda til að útskýra spilið og söguna á bakvið það. Björn Elíeser, Sigurður Trausti og Davíð Máni eru miklir D&D áhugamenn og hafa þar að auki séð myndina.   Í þættinum ræða þeir meðal annars reglurnar í spilinu, söguna á bakvið sjálft spilið, hversu lélegar gömlu myndirnar eru, hversu vel heppnuð nýja myndin er og margt fleira.   Þátturinn er 140 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

Bíóblaður
#240 Warner Bros. 100 ára: Part I með Óla, Mána og Teiti

Bíóblaður

Play Episode Listen Later May 31, 2023 119:36


Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki, Máni Freyr og Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að fagna hundrað ára afmæli Warner Bros. Í þættinum ræða strákarnir 70's, 80's, 90's, 00's og 10's Warner Bros myndir.   Í þessum fyrri hluta ræða þeir meðal annars myndirnar Dirty Harry, Above the Law, The Exorcist, Never Say Never Again, Blade Runner og margar fleiri.   Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
#239 Topp 10 með Arnari Tómas

Bíóblaður

Play Episode Listen Later May 24, 2023 139:16


Arnar Freyr Tómasson er kvikmyndaáhugamaður og kvikmyndagerðarmaður. Arnar hefur gert nokkrar stuttmyndir sem hafa vakið athygli og hann stefnir á í framtíðinni að gera kvikmynd í fullri lengd. Arnar mætti með topp 10 listann sinn til Hafsteins og þeir ræða hann í sameiningu.   Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar Dune, Cars, The Amazing Spider-Man 2, Prisoners, Django Unchained og margar fleiri.   Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #26 - Gott og Slæmt með Helga og Hauki

Bíóblaður

Play Episode Listen Later May 20, 2023 10:58


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndaáhugamennirnir Helgi Edwald Einarsson og Haukur Bjarnason kíktu aftur til Hafsteins og í þetta skiptið vildu strákarnir ræða lélegar myndir og góðar myndir.   Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar Battlefield Earth, Batman and Robin, La La Land, The Room, X-Men: First Class og Bullet Train.   Þátturinn er 140 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #25 - Evil Dead Rise með Rögnvaldi Rúnars

Bíóblaður

Play Episode Listen Later May 12, 2023 5:23


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Rögnvaldur Brynjar Rúnarsson er mikill kvikmyndaáhugamaður og hefur lengi vel fylgst með Bíóblaðri. Rögnvaldur kíkti til Hafsteins til að ræða nýjustu Evil Dead myndina, Evil Dead Rise.   Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hversu vel Alyssa Sutherland stendur sig sem Ellie, hversu gróf myndin er, hvort Rögnvaldur sé ánægður með þessa nýju stefnu sem framleiðendurnar byrjuðu með 2013 útgáfunni og margt, margt fleira.   Þátturinn er 60 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

Bíóblaður
#238 Topp 10 með Marteini Gunnars

Bíóblaður

Play Episode Listen Later May 10, 2023 149:09


Marteinn Úlfur Gunnarsson er 22 ára gamall áhættuleikari sem hlotið hefur herþjálfun í Bandaríkjunum. Marteinn er einnig mikill kvikmyndaáhugamaður og hann mætti til Hafsteins með sinn topp 10 lista.   Í þættinum ræða þeir meðal annars þessa miklu stríðsdellu sem Marteinn er með, hvernig herþjálfunin var, hvernig Marteinn endaði á að starfa sem áhættuleikari, hversu mikið hann elskar stríðsmyndir, hver er hans uppáhaldsbyssa sem hann hefur skotið úr, sverðið sem Marteinn á úr myndinni Kingdom of Heaven, af hverju sumir yfirmenn voru með Thompson vélbyssur í seinni heimsstyrjöldinni og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.

24/7
Everestkappar - Heimir og Siggi

24/7

Play Episode Listen Later Jul 6, 2021 80:18


Heimir og Siggi eru vinir sem ákváðu að klífa Everest. Í þættinum ræða Heimir og Siggi ævintýrið sem því fyldi. Það er vægt til orða tekið að segja að ferðalagið hafi ekki beint gengið smurt fyrir sig. Eins og í góðri sögu voru fullt af erfiðleikum og mótlæti á leiðinni. Ef ég ætti að lýsa þeirra ferð með einu orði þá væri það: Þrautseigja. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/ 

24/7
Björgvin Páll

24/7

Play Episode Listen Later Jun 29, 2021 99:04


Björgvin Páll er landsliðsmarkvörður í handbolta og höfundur bókarinnar Án Filters. Í þættinum ræðir Björgvin um listina að vera meðvitaður, að hafa góð áhrif á aðra, geðheilsu og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/ 

24/7
Arnar Þór Jónsson

24/7

Play Episode Listen Later Jun 22, 2021 110:19


Arnar Þór Jónsson er dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur og er nú í framboði fyrir sjálfstæðisflokkinn. Í þættinum ræðir Arnar sannleikann, lýðræði, hjarðhugsun, tjáningafrelsi, hópaskiptingu, rödd samvisku og skynsemarinnar og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/ 

24/7
Pétur Jóhann

24/7

Play Episode Listen Later Jun 15, 2021 104:54


Pétur Jóhann er grínisti og móralskur leiðbeinandi. Í þættinum ræðir Pétur um hlutverk móralska leiðbeinandans, krefjandi eiginleikann við að gefa af sér allan daginn, að flæða í lífinu, mikilvægi þess að vera drullu sama og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/ 

nett hladvarp
24/7
Magnús Scheving

24/7

Play Episode Listen Later Jun 8, 2021 153:43


Magnús Scheving er frumkvöðull, fyrirlesari, leikari og stofnandi Latabæ. Í þættinum ræðir Magnús um frumkvöðlastarfsemi, driftkraft, ytri ró, að bera sig saman við aðra, me too, ofbeldi og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/     

24/7
Tryggvi Hjaltason

24/7

Play Episode Listen Later Jun 1, 2021 110:39


Tryggvi Hjaltason starfar sem greinandi hjá CCP og formaður Hugverkaráðs. Tryggvi og Háskóli Íslands byrjuðu nýverið með námskeið til að hjálpa einstaklingum að mynda mannleg tengsl í gegnum tölvuleiki. Í þættinum ræðir Tryggvi um ávinninga tölvuleikjanotkunar, að manneskjan sé slæm, takmörk fastmótaðra hugmyndafræða, sjálfsaga, auðmýkt, trú og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/  

ccp tryggvi hjaltason hladvarp