Podcasts about menntun

  • 10PODCASTS
  • 87EPISODES
  • 40mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Oct 29, 2023LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about menntun

Latest podcast episodes about menntun

Fjölskyldan ehf.
,,Í skólanum mínum er síminn bara í körfunni"

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Oct 29, 2023 37:29


Margrét Pála er komin heim eftir haustfrí á Spáni og dembir sér beint í umræðu um síma, samfélagsmiðla og almenna skjánotkun ásamt Móey Pálu. Mikil umræða um símanotkun barna og ungmenna kviknaði í þjóðfélaginu í kjölfar viðtals við Þorgrím Þráinsson í Bítinu fyrr í mánuðinum.Ömmgurnar taka undir orð um hans um neikvæð áhrif ofnotkunar hjá börnum sem fullorðnum og hversu mikilvægt er að setja mörk á þessu sviði eins og á öðrum sviðum tilverunnar. Þær ræða einnig áhrif skjánotkunar út frá tilfinningagreind og hvernig skjárinn yfirtekur augu og athygli okkar allra fyrirstöðulaust. Einnig vekja þær máls á annars konar nálgun á tækni í skólum og hvernig er hægt að forðast boð og bönn.Hugvíkkandi samtal í takt við ört breytandi samtíma.Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Svarthvíta regnbogafjölskyldan

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Oct 8, 2023 53:21


Móey Pála og Júlíana Dögg, mágkona hennar, ákváðu með stuttum fyrirvara að taka upp þátt. Tilefnið var því miður ekki gleðilegt en David, maki Móeyar, lenti í leiðindaatviki í sundi á dögunum. Þar fékk hann að finna fyrir fordómum vegna húðlitar síns sem komu honum og fjölskyldunni allri úr jafnvægi.  Júlíana Dögg er fædd og uppalin á Íslandi og á ættir að rekja til Mosambik. Hún og Móey ræða fordóma vegna uppruna, fyrirmyndir og staðalmyndir, óþægilegar athugasemdir og hvað er hægt að gera til að láta ganga betur. Mágkonuspjallið er í anda fjölskyldunnar; beint frá hjartanu, með heiðarleika og hreinskiptni að vopni með hárnákvæmu dassi af húmor.Hvað er það sem við þráum öll sama hverjir foreldrar okkar eru, hverja við elskum eða hvernig við lifum lífinu? Mikilvægt samtal nú sem endranær.Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Hávaði, heyrn, heyrnarleysi og tungumál

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jul 9, 2023 35:06


Doktor Valdís Jónsdóttir spjallar við Möggu Pálu í þessum þætti og það er hávaði sem þær hefja samtalið á. Þær sjálfar eru ekki með hávaða en Valdís hefur rannsakað hávaða og hvaða áhrif hann hefur á heyrn, börn, kennara og svo framvegis.Hljóðumhverfi barna er þeim báðum hugleikið og þær ræða hvernig hljóðstyrkur dagsins fylgir heim að  leikskóla og skóla loknum. Einnig hvernig fjölskyldum er hætt við að minnka hávaða í fjölskyldurýmum með snjalltækjum og heyrnatólum. Hvaða áhrif getur sú lausn haft?Tungumálið og talmeinafræði eru einnig tekin fyrir í spjallinu og mikilvægi þess að móðurmál barna sé þeirra fyrsta mál. Það er í raun fátt sem er þeim stöllum óviðkomandi en þær ræða einnig heyrnaleysi, táknmál og sitthvað fleira.Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Í fréttum er það helst

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jun 11, 2023 37:36


Nú eru tvö ár liðin frá síðustu þáttaseríu og þess vegna margt að frétta hjá Fjölskyldunni ehf., hænum og öllum. Magga Pála er iðin að vanda; uppbygging á heimili og fyrirtæki en henni finnst það nú ekki tiltökumál. Móey Pála er ekki síður iðin með sína ört stækkandi fjölskyldu en verkefnið sem á hug þeirra allan um þessar mundir er tilvonandi húsbygging. Þær ræða kosti þess að fjölskyldurnar búi nálægt hver annarri og hvernig það styrkir uppeldið og fjölskylduböndin sem verða svo sterk. Það reynir þó að sjálfsögðu á samskiptin þegar margir koma að uppeldi ungra barna og þær opna það samtal fyrir hlustendum. Þær ræða auðvitað það sem er efst á baugi hjá öðrum í fjölskyldunni en verkefnin eru ólík sem þau fást við, sum gleðileg og önnur afskaplega krefjandi.Snillingurinn Katla sér auðvitað um kynningu og lokaorð en gleymir ekki að segja frá sínum helstu fréttum. Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Ný sería fer af stað, fleiri börn, meiri ást, meiri þreyta og flutningar!

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later May 28, 2023 38:12


Fjölskyldan ehf. er mætt á ný, reynslunni og einu barni ríkari! Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um ólík og fjölbreytt verkefni fjölskyldunnar eins og t.d. flutninga og fjölskyldureit. Það er ekkert sem er fjölskyldunni óviðkomandi og fara ömmgurnar um víðan völl og ræða erfið málefni sem þarf að ræða. Þungunarrof er eitt af því sem þær kafa ofan í, aðstæður, viðmót, stuttlega rætt um söguna og hvaða merkingu það hefur haft fyrir konur. Einlægt og hjartnæmt spjall að vanda.Katla er nú orðin 10 ára og sér að sjálfsögðu um kynningu og lokaorð. Nú veltir hún fyrir sér systkinastjórnun!Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.comStyrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Augnablik í iðnaði
Formleg menntun matreiðslumanna á Íslandi, með Kristjáni Sæmundssyni matreiðslumeistara

Augnablik í iðnaði

Play Episode Listen Later Mar 23, 2023 31:31


Hér er á ferðinni annar þáttur í röð hlaðvarpa sem eru lokaverkefni þeirra Dóru Svavarsdóttur og Þyrnis Hálfdánarsonar matreiðslumeistara og nema við Menntavísindasvið HÍ. Þættina unnu þau í samvinnu við Iðuna og fjalla um matreiðslunám, þá, nú og um alla framtíð. Annar þátturinn fjallar um formlega menntun matreiðslumanna á Íslandi

kristj annar svavarsd menntav menntun
Óli Björn - Alltaf til hægri
Innræting eða menntun?

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Jan 22, 2023 8:23


Hvernig kennara dettur í hug að setja þekkta hrotta, morðingja og andlýðræðissinna við hlið íslensks stjórnmálamanns er óskiljanlegt nema að tilgangurinn hafi verið sá einn að vekja ákveðin hugrenningatengsl hjá nemendum: Í raun séu hugmyndafræðileg tengsl á milli formanns Miðflokksins og tveggja af verstu illmennum sögunnar. Hitler og Mussolini eru í hópi með Stalín og Maó. Allir áttu þeir blóði drifna slóð og virtu líf einstaklinga að vettugi og fótum tróðu frelsi og lýðræði. Sigmundur Davíð á ekkert skylt við ódæðismennina - allra síst hugmyndafræðilega. Í annarri kennskustofu er Sjálfstæðisflokknum líkt við Þýskaland Hitlers, Gestapo og útrýmingu kynþátta. Forherðingin er fullkomin. Fölsunin og rangfærslurnar eru yfirgengilegar.  Kennsla sem byggir á innrætingu og fölsunum hentar aðeins þeim sem aðhyllast forræðishyggju og ganga á hólm við frjálsa og sjálfstæða hugsun. Innræting og falsanir eiga ekkert skylt við menntun eða gagnrýna hugsun.  

Morgunvaktin
Kjarasamningar framundan, Wagner-liðar og símenntun

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 17, 2022 130:00


Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði losna 1. nóvember; eftir tvo og hálfan mánuð. Flest bendir til að samningaviðræður verði strembnar; mikið ber í milli eins og sagt er, ef marka má yfirlýsingar talsmanna atvinnurekenda og launafólks. Hvernig líst ríkissáttasemjara á blikuna og yfir hvaða aðferðum býr hann til að miðla málum?Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari kom til okkar. Svokölluð Wagner-sveit rússneskra málaliða hefur ratað í fréttir eftir innrás Rússa í Úkraínu. Málaliðarnir hafa áður látið til sína taka í átökum á Krímskaga og í Afríku og þykja afar harðsvíraðir. Mikil leynd hefur hvílt yfir sveitinni þar til nýlega en ljóst að hún nýtur velþóknunar rússneskra stjórnvalda. Vera Illugadóttir sagði okkur frá þessari hersveit og Wagner þessum sem hún er kennd við. Og við settumst á skólabekk, líkt og tugþúsundir gera þessa dagana. SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, býður upp á fjölbreytt nám og námskeið; meðal annars í íslensku fyrir útlendinga. Amanda Guðrún Bjarnadóttir fréttamaður tók hús á Valgeiri Blöndal Magnússyni framkvæmdastjóra SÍMEY. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Tears on my pillow ? Sha na na Vísur Vatnsenda-Rósu - Guitar Islancio Góða veislu gjöra skal ? Guitar Islancio Shelter from the storm - Bob Dylan

tears bj wagner kr bob dylan sha magn afr hvernig flest umsj sigbj bjarnad framundan mikil vera illugad kjarasamningar menntun
Morgunvaktin
Kjarasamningar framundan, Wagner-liðar og símenntun

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 17, 2022


Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði losna 1. nóvember; eftir tvo og hálfan mánuð. Flest bendir til að samningaviðræður verði strembnar; mikið ber í milli eins og sagt er, ef marka má yfirlýsingar talsmanna atvinnurekenda og launafólks. Hvernig líst ríkissáttasemjara á blikuna og yfir hvaða aðferðum býr hann til að miðla málum?Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari kom til okkar. Svokölluð Wagner-sveit rússneskra málaliða hefur ratað í fréttir eftir innrás Rússa í Úkraínu. Málaliðarnir hafa áður látið til sína taka í átökum á Krímskaga og í Afríku og þykja afar harðsvíraðir. Mikil leynd hefur hvílt yfir sveitinni þar til nýlega en ljóst að hún nýtur velþóknunar rússneskra stjórnvalda. Vera Illugadóttir sagði okkur frá þessari hersveit og Wagner þessum sem hún er kennd við. Og við settumst á skólabekk, líkt og tugþúsundir gera þessa dagana. SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, býður upp á fjölbreytt nám og námskeið; meðal annars í íslensku fyrir útlendinga. Amanda Guðrún Bjarnadóttir fréttamaður tók hús á Valgeiri Blöndal Magnússyni framkvæmdastjóra SÍMEY. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Tears on my pillow ? Sha na na Vísur Vatnsenda-Rósu - Guitar Islancio Góða veislu gjöra skal ? Guitar Islancio Shelter from the storm - Bob Dylan

tears bj wagner kr bob dylan sha magn afr hvernig flest umsj sigbj bjarnad framundan mikil vera illugad kjarasamningar menntun
Morgunvaktin
Kjarasamningar framundan, Wagner-liðar og símenntun

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 17, 2022


Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði losna 1. nóvember; eftir tvo og hálfan mánuð. Flest bendir til að samningaviðræður verði strembnar; mikið ber í milli eins og sagt er, ef marka má yfirlýsingar talsmanna atvinnurekenda og launafólks. Hvernig líst ríkissáttasemjara á blikuna og yfir hvaða aðferðum býr hann til að miðla málum?Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari kom til okkar. Svokölluð Wagner-sveit rússneskra málaliða hefur ratað í fréttir eftir innrás Rússa í Úkraínu. Málaliðarnir hafa áður látið til sína taka í átökum á Krímskaga og í Afríku og þykja afar harðsvíraðir. Mikil leynd hefur hvílt yfir sveitinni þar til nýlega en ljóst að hún nýtur velþóknunar rússneskra stjórnvalda. Vera Illugadóttir sagði okkur frá þessari hersveit og Wagner þessum sem hún er kennd við. Og við settumst á skólabekk, líkt og tugþúsundir gera þessa dagana. SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, býður upp á fjölbreytt nám og námskeið; meðal annars í íslensku fyrir útlendinga. Amanda Guðrún Bjarnadóttir fréttamaður tók hús á Valgeiri Blöndal Magnússyni framkvæmdastjóra SÍMEY. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Tears on my pillow ? Sha na na Vísur Vatnsenda-Rósu - Guitar Islancio Góða veislu gjöra skal ? Guitar Islancio Shelter from the storm - Bob Dylan

tears bj wagner kr bob dylan sha magn afr hvernig flest umsj sigbj bjarnad framundan mikil vera illugad kjarasamningar menntun
Morgunútvarpið
21. feb. - Fóstur, Ólympíuleikar, læknar, veður, menntun og sameining

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 21, 2022


Félag fósturforeldra setur nýtt hlaðvarp í loftið í vikunni þar sem markmiðið er að fræða fólk um fóstur. Þau Guðlaugur Kristmundsson formaður Félags fósturforeldra og Hildur Björk Hörpudóttir stjórnarmaður komu til okkar og sögðu okkur af þessu nýja verkefni og starfsemi félagsins. Við tókum íþróttaspjall mánudagsins fyrr en vanalega þegar við fengum Eddu Sif Pálsdóttur íþróttafrétta- og dagskrárgerðarkonu til okkar, en hún er nýkomin heim af vetrarólympíuleikunum í Kína. Við fengum að heyra af lífinu á leikunum. Læknafélag Íslands hefur gert alvarlegar athugasemdir við drög að frumvarpi til útlendingalaga þar sem lagt er til að hægt sé að skylda hælisleitendur í læknisskoðun svo greiða megi leið stjórnvalda til brottvísunnar þeirra. Félagið telur hreinlega að í lagaákvæðinu sem um ræðir felist brot á læknaeiðnum. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands var gestur okkar. Það eru appelsínugular veðurviðvaranir í kortunum um land allt seinnipartinn. Við heyrðum í Elínu Björk Jónasdóttur, vakthafandi veðurfræðingi á Veðurstofunni og beint í kjölfarið í Karen Ósk Lárusdóttur fulltrúa Landsbjargar en björgunarsveitir um land allt eru í startholunum vegna veðurofsans. Anna Björk Sverrisdóttir aðjúnkt við HÍ og þroskaþjálfi kom til okkar og sagði okkur frá niðurstöðum doktorsritgerðar sinnar sem fjallar um menntun nemenda með þroskahömlun á framhaldsskólastigi í ljósi kenninga um inngildandi menntun og félagslegt réttlæti, en niðurstöður Önnu Bjarkar benda m.a. til þess að kerfið viðhaldi ójöfnuði og félagslegu óréttlæti gagnvart öllum nemendum, ekki bara þeim fötluðu. Anna Björk fór betur yfir þetta með okkur. Um helgina fóru fram nokkrar atkvæðagreiðslur um sameiningu sveitarfélaga. M.a. var sameining Akrahrepps og sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkt, en Akrahreppur er 10. fámennasta sveitarfélag landsins með 210 íbúa og alla í dreifbýli. Til gamans heyrðum við í Agnari H. Gunnarssyni bónda á Miklabæ og fyrrverandi oddvita Akrahrepps en hann er einn þeirra ríflega 50 íbúa sem ekki voru hlynntir sameiningunni. Tónlist: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Lítill drengur. Carole King - You've got a friend. Al Green - Here I am - Come and take me. Sigrún Stella - Baby blue. Bríet - Sólblóm. Magni og Ágústa Eva - Þar til að storminn hefur lægt. Suede - Beautiful ones. Gayle - abcde (Forget you).

bj ve gu sigr magni vilhj anna bj steinunn sverrisd bjarkar hildur bj menntun landsbjargar
Morgunútvarpið
21. feb. - Fóstur, Ólympíuleikar, læknar, veður, menntun og sameining

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 21, 2022


Félag fósturforeldra setur nýtt hlaðvarp í loftið í vikunni þar sem markmiðið er að fræða fólk um fóstur. Þau Guðlaugur Kristmundsson formaður Félags fósturforeldra og Hildur Björk Hörpudóttir stjórnarmaður komu til okkar og sögðu okkur af þessu nýja verkefni og starfsemi félagsins. Við tókum íþróttaspjall mánudagsins fyrr en vanalega þegar við fengum Eddu Sif Pálsdóttur íþróttafrétta- og dagskrárgerðarkonu til okkar, en hún er nýkomin heim af vetrarólympíuleikunum í Kína. Við fengum að heyra af lífinu á leikunum. Læknafélag Íslands hefur gert alvarlegar athugasemdir við drög að frumvarpi til útlendingalaga þar sem lagt er til að hægt sé að skylda hælisleitendur í læknisskoðun svo greiða megi leið stjórnvalda til brottvísunnar þeirra. Félagið telur hreinlega að í lagaákvæðinu sem um ræðir felist brot á læknaeiðnum. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands var gestur okkar. Það eru appelsínugular veðurviðvaranir í kortunum um land allt seinnipartinn. Við heyrðum í Elínu Björk Jónasdóttur, vakthafandi veðurfræðingi á Veðurstofunni og beint í kjölfarið í Karen Ósk Lárusdóttur fulltrúa Landsbjargar en björgunarsveitir um land allt eru í startholunum vegna veðurofsans. Anna Björk Sverrisdóttir aðjúnkt við HÍ og þroskaþjálfi kom til okkar og sagði okkur frá niðurstöðum doktorsritgerðar sinnar sem fjallar um menntun nemenda með þroskahömlun á framhaldsskólastigi í ljósi kenninga um inngildandi menntun og félagslegt réttlæti, en niðurstöður Önnu Bjarkar benda m.a. til þess að kerfið viðhaldi ójöfnuði og félagslegu óréttlæti gagnvart öllum nemendum, ekki bara þeim fötluðu. Anna Björk fór betur yfir þetta með okkur. Um helgina fóru fram nokkrar atkvæðagreiðslur um sameiningu sveitarfélaga. M.a. var sameining Akrahrepps og sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkt, en Akrahreppur er 10. fámennasta sveitarfélag landsins með 210 íbúa og alla í dreifbýli. Til gamans heyrðum við í Agnari H. Gunnarssyni bónda á Miklabæ og fyrrverandi oddvita Akrahrepps en hann er einn þeirra ríflega 50 íbúa sem ekki voru hlynntir sameiningunni. Tónlist: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Lítill drengur. Carole King - You've got a friend. Al Green - Here I am - Come and take me. Sigrún Stella - Baby blue. Bríet - Sólblóm. Magni og Ágústa Eva - Þar til að storminn hefur lægt. Suede - Beautiful ones. Gayle - abcde (Forget you).

bj ve gu sigr magni stur vilhj anna bj steinunn sverrisd bjarkar hildur bj menntun landsbjargar
Rauða borðið
Skólar og peningar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 18, 2022 63:56


Við Rauða borðið verður farið yfir áhrif markaðshugsunar og nýfrjálshyggju á menntakerfið. Af hverju er samkeppni grunn- og framhaldsskóla um nemendur og kennara ekki endilega af hinu góða? Hvaða merki sjáum við um markaðsvæðingu menntunar hérlendis? Hver er tilgangur menntunar? Hvaða áhrif hefur markaðsvæðing menntunar á kynjajafnrétti? Til að ræða þetta koma að Rauða borðinu Auður Magndís Auðardóttir nýdoktor við menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Gunnlaugur Magnússon aðstoðar-prófessor við Uppsalaháskóla og Magnús Þór Jónsson, nýkjörinn formaður Kennarasambandsins.Samstöðin á FacebookSamstöðin á YouTubeSamstöðin á vefnumAlþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

Samfélagið
Huldufólk, plantað fyrir menntun, málfar og bláuggatúnfiskur

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 6, 2021


Helga Lára Þorsteinsdóttir kom í heimsókn með brot úr gömlum þætti, nánar tiltekið Margrét frá Öxnafelli 1908-1989 úr þættinum Efst á baugi. Við heyrum í Margréti frá Öxnafelli sem var skyggn og lýsir hún í þættinum, sem er frá 30. Desember 1960 eða fyrir rúmlega 60 árum, huldufólki og álfum. Guðný Nielsen, verkfræðingur og ein af stofnendum SoGreen: SoGreen verkefnið gerir fyrirtækjum kleift að kolefnisjafna, ekki með því að planta trjám, heldur með því að styðja við menntun stúlkna. Aðstandendur verkefnisins hafa búið til reiknilíkan sem reiknar út hversu mikinn útblástur er hægt að koma í veg fyrir til ársins 2050 með því að tryggja menntun stúlkna í fátækari löndum. Málfarsmínúta Guðmundur J Óskarsson sviðstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknarstofnunar: Bláuggatúnfiskur er stór fiskur og þykir lostæti. Hann finnst við Íslandsstrendur og er veiddur, ekki af Íslendingum þó þó kvóti sé í boði, heldur aðallega af japönum sem leggja mikið á sig til að ná í þennna eftirsótta fisk.

Samfélagið
Huldufólk, plantað fyrir menntun, málfar og bláuggatúnfiskur

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 6, 2021 55:00


Helga Lára Þorsteinsdóttir kom í heimsókn með brot úr gömlum þætti, nánar tiltekið Margrét frá Öxnafelli 1908-1989 úr þættinum Efst á baugi. Við heyrum í Margréti frá Öxnafelli sem var skyggn og lýsir hún í þættinum, sem er frá 30. Desember 1960 eða fyrir rúmlega 60 árum, huldufólki og álfum. Guðný Nielsen, verkfræðingur og ein af stofnendum SoGreen: SoGreen verkefnið gerir fyrirtækjum kleift að kolefnisjafna, ekki með því að planta trjám, heldur með því að styðja við menntun stúlkna. Aðstandendur verkefnisins hafa búið til reiknilíkan sem reiknar út hversu mikinn útblástur er hægt að koma í veg fyrir til ársins 2050 með því að tryggja menntun stúlkna í fátækari löndum. Málfarsmínúta Guðmundur J Óskarsson sviðstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknarstofnunar: Bláuggatúnfiskur er stór fiskur og þykir lostæti. Hann finnst við Íslandsstrendur og er veiddur, ekki af Íslendingum þó þó kvóti sé í boði, heldur aðallega af japönum sem leggja mikið á sig til að ná í þennna eftirsótta fisk.

Samfélagið
Metan, menntun, málfar og minimalismi

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 15, 2021 57:16


Sigurður Friðleifsson framkvæmdastjóri Orkuseturs: Hvar eru metanbílarnir? Er metan ekki lengur talið mikilvægt þegar kemur að orkuskiptunum? Eva Harðardóttir aðjúnkt við menntavísindasvið HÍ og Valgerður S Bjarnadóttir nýdoktor við sama svið; Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnun Sameinuðu Þjóðanna ? UNESCO ýtti úr vör fyrir skemmstu yfirgripsmiklu verkefni sem snýr að framtíð menntunar í heiminum. Þetta er viðbragð við versnandi ástandi heimsins, bæði plánettunnar sjálfrar vegna loftlagsbreytinga ? og svo ástandi heimsins, þar sem stríðsátök, ójafnrétti, fátækt og hamfarir ógna lífum fólks. UNESCO bendir á að þekking sé sjálfbærasta leiðin upp á við, menntun sé kraftmesta verkfærið til að breyta heiminum. Til þess þurfi þá að endurhugsa bæði viðtekin kerfi og hugmyndafræði menntunar. Kolbrún Ósk Skaftadóttir er í nóvember átaki. Mínimalísku átaki sem í felst að losa sig við hátt í 500 hluti út af heimilinu. Rætt við Kolbrúnu um eðli átaksins, gengi, sigra og ósigra. Málfarsmínúta

Samfélagið
Metan, menntun, málfar og minimalismi

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 15, 2021


Sigurður Friðleifsson framkvæmdastjóri Orkuseturs: Hvar eru metanbílarnir? Er metan ekki lengur talið mikilvægt þegar kemur að orkuskiptunum? Eva Harðardóttir aðjúnkt við menntavísindasvið HÍ og Valgerður S Bjarnadóttir nýdoktor við sama svið; Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnun Sameinuðu Þjóðanna ? UNESCO ýtti úr vör fyrir skemmstu yfirgripsmiklu verkefni sem snýr að framtíð menntunar í heiminum. Þetta er viðbragð við versnandi ástandi heimsins, bæði plánettunnar sjálfrar vegna loftlagsbreytinga ? og svo ástandi heimsins, þar sem stríðsátök, ójafnrétti, fátækt og hamfarir ógna lífum fólks. UNESCO bendir á að þekking sé sjálfbærasta leiðin upp á við, menntun sé kraftmesta verkfærið til að breyta heiminum. Til þess þurfi þá að endurhugsa bæði viðtekin kerfi og hugmyndafræði menntunar. Kolbrún Ósk Skaftadóttir er í nóvember átaki. Mínimalísku átaki sem í felst að losa sig við hátt í 500 hluti út af heimilinu. Rætt við Kolbrúnu um eðli átaksins, gengi, sigra og ósigra. Málfarsmínúta

Óli Björn - Alltaf til hægri
Innleiðum samkeppni í grunnskólann

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Nov 11, 2021 10:17


Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að okkur Íslendingum hafa verið mislagðar hendur í mörgu þegar kemur að grunnmenntun barnanna okkar. Grunnskólinn er sá dýrasti á Vesturlöndum en börnin standa jafnöldrum sínum í nágrannalöndunum að baki í undirstöðugreinum. Vísbendingar eru um að kulnun í starfi meðal grunnskólakennara sé að aukast sem beinir athyglinni að starfsumhverfi, starfskjörum og umbun kennara. PISA er alþjóðlegt könnunarpróf á vegum Efnahags- og framfarastofnunarinnar [OECD] sem mælir lesskilning 15 ára nemenda og læsi þeirra á stærðfræði og náttúruvísindi. Síðasta könnunin var gerð árið 2018. Niðurstaða bendir til að alvarlegar brotalamir sé að finna í íslensku menntakerfi. Gott, öflugt og fjölbreytt menntakerfi er mikilvægur hornsteinn íslensks samfélags. Menntun er spurning um samkeppnishæfni landsins og þar með lífskjara, ekki síður en mikilvirkasta tæki til jöfnuðar. Grunnskólinn er undirstaða alls í menntamálum þjóðarinnar. Vísbendingar um brotalamir við menntun grunnskólabarna ber að taka alvarlega án þess að mála allt svörtum litum.

gott pisa oecd grunnsk efnahags menntun
Morgunútvarpið
26. okt. - Matarsóun, loftslagsmál, kynjakvóti, menntun, tækni.

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 26, 2021


Í dag stendur Velferðarvaktin fyrir málþingi um mataraðstoð og matarsóun á Grand Hótel. Nýlega kynnti umhverfis- og auðlindaráðherra áætlun gegn matarsóun og verða nokkrar aðgerðir í henni m.a. kynntar á þinginu, þ.á.m. tvö áhugaverð mál er varða mataraðstoð, svokallaður matarbanki og matarvagn. Þau Rakel Garðarsdóttir hjá Vakandi og Benedikt S. Benediktsson, lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu, settust hjá okkur og sögðu okkur meira af þessu. Við héldum áfram loftslagsumræðunni hér í Morgunútvarpinu enda styttist óðum í 26. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem hefst þann 31. október. Margir hópar hafa sent inn áskoranir til leiðtoga ríkjanna um að bregðast við loftslagsvánni. Þeirra á meðal eru hinir ýmsu trúarleiðtogar. Til að ræða þátt trúarbragðanna í loftslagsmálum fengum við til okkar Sigríði Guðmarsdóttir, lektor við guðfræði og trúarbragðadeild Háskóla Íslands. Verzlunarskóli Íslands hefur formlega tekið upp kynjakvóta sem ætlað er að að sporna gegn því að innritað hlutfall nemenda af einu kyni sé meira en 60 prósent. Við slógum á þráðinn til Guðrúnar Ingu Sívertssen skólastjóra Verzlunarskólans og fengum hana til að útskýra málið fyrir okkur. Hermundur Sigmundsson prófessor sem starfar bæði í Noregi og á Íslandi hefur oftar en einu sinni vakið athygli á stöðu drengja í menntakerfinu á Íslandi. Hann segir víða pott brotinn og þrátt fyrir mikið fjármagn til Menntamálastofnunar, aukna menntun kennara og ýmis konar átaksverkefni, sé staðan ekki góð. Læsi sé ábótavant, brottfall úr framhaldsskólum of mikið og skortur á góðu stöðumati. Við fengum Hermund til að fara aðeins yfir stöðuna með okkur og veltum fyrir okkur hvað þarf að gera til að bæta úr? Guðmundur Jóhannsson kom svo til okkar í sitt vikulega tæknispjall og ræddi sýndarveruleika og lykilorð. Tónlist: Bubbi Morthens - Háflóð. Gugusar - Röddin í klettunum. Eddie Vedder - Long way. Dua Lipa - Love again. Ásgeir Trausti - Öldurótið. Mono Town - Because of you. Kings of convenience - Rocky trail.

kings gu hann sigr grand h noregi benediktsson margir trausti samtaka sameinu menntam menntun
Comunidad CuenTeach - Teach For All Iberoamérica
T4E1 - Educación Financiera - Entrando al mundo de las criptomonedas

Comunidad CuenTeach - Teach For All Iberoamérica

Play Episode Listen Later Oct 15, 2021 57:26


CuenTeach - Hoy nuestro invitado es Edward Sarmiento quien nos comenta sobre el nacimiento de la tecnología blockchain y tambien de las criptomonedas. Él a través de su empresa Menntun nos ofrece Educación Financiera sobre este tipo de conocimiento en expansión. Lee más sobre los cursos que ofrece en: https://www.menntungroup.com.co/ e inscribete para obetener el descuento para CuenTeachers en: https://forms.gle/JQXnKug645Fen4px9

Fjölskyldan ehf.
Gunnlöð Jóna ræðir skilnað, stefnumót og barneignir

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jun 20, 2021 39:21


Síðasti þáttur fyrir sumarfrí hjá Fjölskyldunni ehf og ofuramman er enn fjarri góðu gamni. Móey Pála lætur sína krafta ekki eftir liggja og fær til sín  gullfallega, glæsilega og einhleypa konu í spjall. Það er Gunnlöð Jóna sem ræðir skilnað, kvíða, stefnumót, fjölskylduna og það að langa í börn og vera einhleyp. Hvernig er að vera fráskilin 29 ára og finna pressu frá samfélaginu varðandi barneignir? Er mikilvægt að ákveða að leggja í barneignir upp á einsdæmi á ákveðnum tímapunkti? Einlægt samtal á léttu nótunum sem á erindi í allar fjölskyldur. Katla deilir sinni einstöku hjartahreinu sýn í kynningu og kveður hlustendur fyrir sumarfrí.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Pálína Axelsdóttir Njarðvík og kjötát, dýraást og alls konar ást

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jun 13, 2021 37:40


Amman er fjarri góðu gamni í þessum þætti en hún sinnir Hjallastefnuleikskólanum í Skotlandi. Móey Pála stýrir móðurskipinu á meðan og fær til sín góðan gest í hlaðvarp vikunnar. Það er hún Pálína Axelsdóttir Njarðvík eða fyrrum tengdasystir Móeyjar.Pálína heldur úti vinsælli Instagram síðu - Farmlife Iceland - þar sem hún deilir lífi sauðfjárbónda. Hún er ekki bara samfélagsmiðlastjarna því hún er einnig sérkennslustýra á leikskólanum Litlu-Ásum og elskar að ferðast og eyða tíma með kærustunni sinni Maríu.Móey og Pálína ræða m.a. sambönd dýra og barna, kjötát, sorg og missi, samkynhneigð, réttindabaráttu, jafnrétti og margt fleira. Einlægt og fallegt samtal sem fær okkur öll til að hugsa.Katla er kynnir þáttarins og nú fá systurnar frá Langanesi að afkynna þáttinn. Það eru þær Hólmfríður og Guðrún sem taka að sjálfsögðu þátt í hlaðvarpi Fjölskyldunnar ehf.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

gu fj sorg amman alls einl katla spjall konar njar skotlandi foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Andrea Eyland og útópían um barnvænt samfélag

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jun 6, 2021 36:50


Ömmgurnar fá til sín góðan gest í þessum þætti en það er hún Andrea Eyland í Kviknar samfélaginu. Andrea á 5 börn, rekur fyrirtæki og er framkvæmdarstjóri fjölskyldunnar sinnar. Hún ræðir um fjölskyldulífið, þriðju vaktina, sjálfsrækt, barnvænt samfélag og margt fleira.Atvinnuþátttaka kvenna hefur stóraukist og samfélagið mikið breyst á síðastliðnum áratugum. Það sem hefur lítið breyst er fjölskyldan og skyldurnar sem fylgja slíkum rekstri og rekstrarstjórarnir eru oftast konur sem eru nú einnig útivinnandi. Hvernig er hægt að halda heilsu í svona krefjandi umhverfi og hvað er til ráða? Hvernig og hvað er rétt að velja? Að vera heimavinnandi? Að vinna úti? Gera bæði? Er það hægt án þess að enda í kulnun?Katla sér um kynningu og lokaorð að vanda og nú er hún staðráðin í að æfa sig í einu verkefni heima.  Verkefni sem hlustendur þurfa kannski að æfa líka?Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

er gera fj hvernig katla sam f spjall verkefni foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Drengir og menn, karlmennska og ofurhetjur

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later May 31, 2021 52:05


Ömmgurnar Móey Pála og Magga Pála taka veðrið í upphafi þáttar og Magga Pála ræðir hvernig lítil börn geta verið eins og barómetar eða loftþrýstingsmælar á veðurfar. Veðrið hefur vissulega áhrif á okkur öll og þá líka á samskipti okkar.Ömmgurnar ræða einmitt samskipti drengja og hvernig fullorðið fólk þjálfar samskipti ólíkt við stúlkur og drengi.Umræðan um drengjauppeldi heldur áfram af fullum krafti og í þetta sinn fær Magga Pála tilvonandi framkvæmdarstjóra Hjallastefnunnar Bóas Hallgrímsson til sín í spjall.Þau ræða kynjafyrirmyndir og mikilvægi þess að nánustu fyrirmyndir barna gangi í öll störf og sýni að kyn aftri engum í daglegum verkefnum.Bóas ræddi um tímabil þegar hann kenndi drengjum á miðstigi og hvernig samskipta- og samræðuþjálfun gekk þá vetur og hver gróðinn af því var fyrir drengina. Einnig ræddu þau ólíkt álag foreldra, ,,þriðju vaktina" og hver á heimilinu tekur hana. Katla velti fyrir sér hvers vegna drengir ræða minna um tilfinningar og deilir sinni dásamlegu sýn á leiki barna. Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Drengjauppeldi og allar sálirnar í sveitinni

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later May 24, 2021 42:09


Ömmgurnar komu sér vel fyrir á meðan Adeline Brynja svaf og tóku upp þátt vikunnar. Hlustendur hafa beðið um að ýmis umræðuefni séu tekin fyrir og í þættinum var drengjauppeldi efst á baugi, í takt við umræðu samfélagsins.Margrét Pála hefur rannsakað og unnið með kynjaskipt skólastarf í fjölda mörg ár og hafði sitthvað um málið að segja. Hvernig skal mæta drengjum í skólastarfi og hvers vegna græða drengir á kynjaskiptu skólastarfi? Hvað fara drengirnir okkar á mis við í samfélaginu og hvernig getum við bætt þeim það upp öllum til góða? Móey Pála segir frá skemmtilegri og jákvæðri nálgun í uppbóttarvinnu kynjanna.Katla er enn í sauðburði og spjallaði við Eggert bónda í lok þáttar um þennan stórfenglega tíma og allar sálirnar sem hann ber ábyrgð á.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Má bjóða þér lítinn eða stóran æfingabita?

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later May 16, 2021 29:13


Kynnir þáttanna, hún Katla, er spennt að fara í sauðburð í Laxárdal og fylgjast með lífinu í sveitinni. Hlustendur fá tóndæmi úr fjárhúsunum.Ömmgurnar Magga Pála og Móey Pála spjalla um mataræði barna og hvernig sektarkennd foreldra getur tengst því.Það er þrennt sem börn gera að ágreiningsefni við foreldra sína um leið og þau geta en það er matur, svefn og fatnaður. Gullna reglan er að muna að börn eru eins ólík og þau eru mörg og það verður að hafa í huga í uppeldi.  Eins að sýna ákvörðunum foreldra virðingu og skilning varðandi þeirra skoðanir um t.d. næringu barna eins og lengd brjóstagjafa, sykur og sælgætisát og svo framvegis. Einnig ber að hafa í huga góða siði varðandi matmálstíma eins og það að taka æfingabita og smakka mat, að setjast niður við matarborðið með fjölskyldunni og sitja meðan aðrir borða. Jákvæð matarupplifun er mikilvæg rétt eins og það er mikilvægt að líkaminn þekki seddu- og hungurtilfinningu. Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

lax fj einnig katla spjall tinn hlustendur foreldrar sykur menntun
Fjölskyldan ehf.
Sólarsamba, kvöldrútína og hænuungar

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later May 9, 2021 36:36


Ömmgurnar eru í sólskinsskapi að venju og auðvitað hafa sólríkir dagar áhrif á umræðuefni þáttarins. Þær byrja á helstu fréttum af yngsta fjölskyldumeðlimnum Adeline Brynju og ræða hvernig kvöldrútínan gengur. Einnig ræða þær tungumál, tvítyngd börn og hvernig áhrif það getur haft á málþroskann.Þær spjalla síðan um vordaga, sól og áhrif hennar á börn. Hverju þarf að gæta að þegar sólin er hátt á lofti og allir vilja vera úti?  Foreldrahlutverkinu fylgir mikil ábyrgð og ekki síst þegar gleði og glaumur taka völdin á löngum sumarkvöldum.Hænsnabóndinn Lilja flytur tíðindi af hænunum í fjölskyldunni. Katla tekur virkan þátt í því samtali en þær hafa fylgst grannt með Lofthænu sem hefur legið á eggjum síðastliðnar vikur. Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Mannafæla eða frábærlega skynsöm snót

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later May 2, 2021 36:30


Hér eru ömmgurnar sestar við hljóðnemann  og Móey Pála deilir reynslu sinni af því að vera að heiman með barnið í 10 daga. Öll rútina fór í vaskinn og unga snótin vissi ekki hvað var að gerast í þessu framandi umhverfi svo að hún hékk föst á mömmu sinni og vildi lítið brosa til frænku og frænda og afa og stjúpömmu og allra vina og vandamanna af öllum gerðum á Þórshöfn. Það var helst að hún samþykkti móðursystur sínar sem eru nánar tiltekið hálfsystur móður hennar, 4, 10 og 11 ára.Að venju eru börn best fyrir börn og þær máttu leika við hana og fengu bros og spjall. Móey hafði auðvitað ætlað að sýna barnið geislandi og glatt en það gekk sem sagt ekki upp og fannst einhverjum hún vera hálfgerð mannafæla. Amman bendir á að hún sé bara komin á réttan aldur til að samþykkja ekki ókunnuga heldur þurfa að tengjast og finna öryggið sitt í nýjum aðstæðum. Það er ekki mannafælni heldur hrein og bein skynsemi. Svo var þessi skynsama snót heldur fálát við pabba sinn eftir aðskilnaðinn sem var mjög miður sín yfir því að hún þekkti hann ekki lengur. Í seinni hluta þáttarins ræða ömmgurnar svo um stjúptengsl en Katla hafði kvartað undan því að amman hefði ekki verið nógu skipulögð í þeirri umræðu í þættinum á undan. Katla kynnir þáttinn og á svo lokaorðin af sínu hreina átta ára hjarta.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Lilja, finnst þér leiðinlegt að vera ekki afi?

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Apr 25, 2021 31:22


Nú er Katla komin í hlutverk þáttastjórnandans þar sem hún tekur á móti Lilju - sem er helmingurinn af "ömmu og Lilju" á Gilsbakkanum. Móey Pála og Adeline Brynja eru staddar á Þórshöfn að hitta hálfsystur sínar - eða hálfsystur hálfsystur Kötlu. Alls kyns fjölskyldur, hálfar og heilar, stjúptengsl og þarftu að fæða móður barns til að til að vera alvöru amma? Eftir hlé blandast amma í umræðuna og þá fer allt óvart yfir í umræðu um hænur og fornbíla - hvernig sem það nú tengist?Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Stolt "brottfall", basl og betrun

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Apr 18, 2021 44:11


Þáttur vikunnar er tileinkaður Agnari sem er barnabarn númer tvö í Fjölskyldunni ehf. Hann fann sig ekki í framhaldsskóla en vissi ekki hvað hann vildi gera. Áfengi og gras voru freistingar sem hann féll fyrir um tíma en hvað gerði fullorðna fólkið til að styðja unga manninn? Hvað er í boði ef framhaldsskólinn virkar ekki? Hvernig er að eiga eldri systur sem er með allt à hreinu? Er samanburður í fjölskyldunni verri eða betri en samanburðurinn við jafnaldrana? Agnar ræðir einnig hvað hann gerir í dag og hvernig það kom til að hann nýtur þess nú að vera í námi.Heiðarleiki og hjartahlýja eru í fyrirrúmi í þættinum sem allar fjölskyldur geta tengt við.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Umbun, refsing, hótanir og svipting í alvöru???

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Apr 11, 2021 39:14


Að venju fara ömmgurnar yfir stöðuna hjá ungu snótinni sem vex og dafnar, fær sér brauð með kæfu í morgunverð og helst vill ráða rútínu kvöldsins fyrir hönd heimilisins. Hugarstarfsemi hennar er og verður þannig næstu árin að allt er annað hvort eða - ekkert bæði og  Því fylgir að allt verður að reglu, líka það sem er óttaleg óregla fyrir barnið. Látum við undan nauði í barni og endum með jæja þá andvarpinu, hótum við án þess að standa við orð okkar, refsum við barni með athyglissviptingu án þess að taka einu sinni eftir því sjálf. Þessi hegðun okkar verður að reglu fyrir barnið um að það sé ekkert að marka orð fullorðinna sem er auðvitað óttaleg óregla. Amman er atferlissinni og bendir á að jákvæð styrking virki best til að móta jákvæðar reglur sem eru þá þær sem eru góðar fyrir bæði börn og fullorðna.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

fj amman katla spjall tanir foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Koma unglingsárin með kröfum um kynlíf og neyslu?

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Apr 4, 2021 44:46


Að þessu sinni er það unglingurinn Lilja Björk í Fjölskyldunni ehf. sem spjallar við ömmu og Móeyju Pálu. Hún lýsir því hvernig er að vera unglingur og spjallar opinskàtt um áskoranirnar sem því fylgja. Hvernig á að velja framhaldsskóla sem hentar? Skiptir félagslífið meira máli en námið, eða öfugt? Hvernig er einkalíf unglingsins inn á stóru heimili? Hvenær þarf að taka til og þrífa? Lilja Björk svarar hreinskilningslega, líka þegar amman spyr um pressuna sem fylgir því að stunda kynlíf, drekka eða gera eins og ,,hinir”.Katla á lokaorðin að vanda, skemmtileg og skorinorð.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Sjö mánaða og stjórnar heimilinu

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Mar 28, 2021 35:04


Nú eru ungu foreldrarnir komnir í fyrstu uppeldisklípuna enda stækkar unga snótin og þroskast stöðugt. Hún er komin á þann aldur þar sem börn gera mikinn greinarmun á fólki sem þau þekkja og ókunnugum sem þau fara að mótmæla hástöfum. Eins vill hún ekki vera aðskilin frá mömmu sinni og það á bara eftir að versna á næstu mánuðum. Auk alls þessa eru sjö mánaða börn byrjuð að leita leiða til að stjórna umhverfinu; ekki bara þegar þau eru svöng, þreytt, blaut eða einmana. Þarna byrja viljaæfingarnar sem munu standa yfir næstu árin og nú reynir verulega á blessaða foreldrana.Katla sér um kynningu og lokaspjall þáttarins af sinni alkunnu snilld.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

fj auk katla spjall svefn foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Hlutir kosta peninga

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Mar 21, 2021 30:38


Ömmgurnar sátu í glænýju heimastúdíói og tóku upp þátt vikunnar í ,,heimakastinu”. Þættirnir eru orðnir 44 og brátt verður komið ár frá því hlaðvarpið Fjölskyldan ehf fór í loftið. Í tilefni þess verða m.a. gjafaleikir á Instagram og Facebook síðum Fjölskyldunnar ehf. Magga Pála og Móey Pála ræddu fátækt barna og ungmenna á Íslandi og muninn á fátækt og blankheitum. Einnig ræða þær hvernig er hægt að jafna aðstöðumun barna og hvetja hvern og einn að finna leið. Öll getum við verið gætin á okkar vakt og tekið raunveruleikapróf reglulega með börnum. Katla fer með lokaorð og spjallar um peninga og skólabúninga við ömmu sína.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
,,Mig langaði mest að hvæsa á hann”

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Mar 14, 2021 31:04


Fæðingarorlof, vinnan heima, hlutverkaskipti og samvinna eru m.a. umræðuefni þáttarins að þessu sinni. Adeline Brynja er farin að una sér vel í pössun á meðan ömmgurnar spjalla og þær létu gamminn geysa í góðu og auðvitað mikilvægu spjalli. Móey Pála hefur áhyggjur af því að fara með Adeline Brynju í vistun hjá öðrum, hún er sjálf núna orðin mjög háð dóttur sinni. Alls konar tilfinningar spila þar inn í og í kjölfarið velta þær fyrir sér upplifun feðra á þessu tímabili. Einnig velta þær upp rétti barnsins til að láta hugsa um sig heima því að það eru ekki foreldrar einir heldur aðrir fjölskyldumeðlimir sem geta annast litla barnið. Barn sem býr með einu foreldri ætti kannski að hafa sama rétt til fæðingarorlofs og barn með tvo foreldra? Þátturinn endar með glaðlegum lokaorðum frá Kötlu.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Samtöl við börn

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Mar 7, 2021 28:24


Ömmgurnar fóru stuttlega yfir nýjustu fréttir af Adeline Brynju í upphafi þáttar en hún er nýfarin að sitja. Einnig ræddu samtöl við börn og hvernig og hvenær við tölum við börn. Hvers vegna er mikilvægt að tala við börn? Þær ræddu einnig jarðhræringar, áhrif þeirra á börn og mikilvægi þess að segja börnum satt frá en á máli sem hæfir þeirra aldri. Eðlilegt er að börn fylgist með tali fullorðinna og þeirra viðbrögðum við náttúruvá; þá þarf að eiga samtal við börn og tala við þau um hlutina og svara spurningum. Einnig að spyrja þau hvernig þeim líður og fræða þau í kjölfarið. Þær ræða mikilvægi þess að tala við börn alveg frá fæðingu; að baða barnið í orðum. Katla og amma spjalla saman í lok þáttar um samtöl við börn.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Heilsa, veikindi og bólusetningar barna

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Feb 28, 2021 32:29


Móey Pála og Adeline Brynja komu með ömmu Brynju í hljóðver að þessu sinni. Hún er hjúkrunarfræðingur sem vinnur á barnaspítala Hringsins. Mæðgurnar spjölluðu um heilsu, veikindi barna og bólusetningar. Þær ræddu hita í börnum, verkjalyf og hverju er gott að fylgjast með þegar börn eru veik og hvenær skal leita til læknis með börn yngri en 3 mánaða. Þær ræddu líka foreldrahópa á samfélagsmiðlum og fyrirspurnir varðandi heilsu barna þar inni. Sýklalyfjagjöf bar einnig á góma ásamt kvíða og mörgu fleiru.Katla sá um kynningu og lokaorð af sinni alkunnu snilld.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

fj barna katla spjall hiti heilsa foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Rannsóknaraldur, öskudagur og afreksíþróttir

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Feb 21, 2021 40:51


Ungbarnasundið var á sínum stað þessa vikuna og Adeline Brynja full af orku þegar þátturinn var tekinn upp. Hún er nú orðin 6 mánaða og komin á svokallaðan rannsóknaraldur; hún skoðar allt og fylgist gaumgæfilega með umhverfinu. Rannsóknir umhverfisins fara að miklu leiti í gegnum munninn á þessu stigi og svo er ótrúlega spennandi að láta hluti detta!Öskudagurinn er auðvitað nýafstaðinn og búningar alls ekki jafn misjafnir og þeir eru margir. En mörg börn kjósa sér búninga eftir þeirra helstu áhugaefnum og þá er spurningin: geta þeir sært eða smánað? Afreksíþróttir og íþróttamennska kom líka til tals og þeirra áhrif.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

fj spjall ranns foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Ungbarnasund, dulbúin uppeldisfræði

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Feb 14, 2021 26:49


Adeline Brynja var nýkomin úr Skálatúnslaug þegar ömmgurnar tóku upp hlaðvarp vikunnar.Þær nýttu að sjálfsögðu tækifærið og ræddu ungbarnasund og hverslags töfrastund það getur verið. Þær ræddu þroskaþjálfunina sem fer fram í sundinu, foreldrafærnina, tengslamyndunina, uppeldisfærnina og fleira. Í ungbarnasundinu myndast mikilvægur vettvangur til að æfa samskipti, að bregðast við barninu sínu, að leika við það og að eiga dýrmætar stundir. Foreldrar æfa sig að vera í einlægni og leik með börnunum sem er svo dýrmætt.  Börn eru fljót að sjá í gegnum látalæti og gervimennsku og það er allra best að vera maður sjálfur, allir aðrir eru fráteknir í því sama.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

fj spjall leikur foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Bræður og systur

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Feb 7, 2021 39:07


Adeline Brynja kom beint úr fyrsta ungbarnasundtímanum í hlaðvarpsupptöku ásamt móðurbróður sínum og mömmu. Í þessum þætti spjalla systkinin Agnar og Móey Pála um þeirra systkinasamband og hvernig það er að eiga sjö önnur systkini. Þau tala um ferðalög, afbrýðissemi, kröfur, ábyrgð, leikfélaga, rifrildi og hvernig nýta má yngri systkini til ýmissa verka, eins og t.d. að gilla bak eða fá gistifélaga. Yngri systir þeirra Lilja Björk deilir einnig sinni upplifun á að vera í stórum systkinahóp.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

fj spjall agnar foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Systkini rífast og hvað svo?

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jan 31, 2021 50:13


Systkinaerjur má sennilega finna á langflestum heimilum og halda ömmgurnar áfram að kryfja þau mál. Þær spurðu fylgjendur á samfélagsmiðlum hvernig málum væri háttað hjá þeim og fengu frábærar viðtökur.  Niðurstöðurnar komu ekki á óvart; langflest systkini rífast. Þær ræddu þá hvernig er hægt að bregðast við og hjálpa börnum sem lenda í þessum vanda. Þær mæla með nokkrum ráðum sem geta komið í veg fyrir stóra árekstra; halda röð, reglu og rútínu eftir fremsta megni, vanda okkur sem fyrirmyndir, vinna með átakasvæðin og álagstímana, veita athygli þegar vel gengur, gæta jafnræðis milli systkina, ákveða hvenær skal grípa inn í og hvenær ekki. Katla á frábær lokaorð að vanda.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

fj og hva katla spjall foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Systkinaátök og morðtilræði

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jan 24, 2021 39:41


Adeline Brynja lék sér á gólfinu þegar Móey Pála og Magga Pála spjalla í þætti vikunnar. Þær ræddu nýjustu fréttir af Adeline Brynju, sem er orðin 5 mánaða. Hún er vön úrvalsþjónustu enda mikið af fólki sem vill halda á henni og leika við hana. Hún er athugul og forvitin um umhverfið sitt og heldur áfram að æfa sig að borða graut. Í nýjustu skoðun kom í ljós að hún ,,fylgir kúrfu” en Móey passar sig að horfa ekki of stíft í það. Magga Pála segir svo frá því þegar hún vildi sálga eldri systur sinni þegar þær voru börn. Móey Pála kannast við systkinaerjur enda á hún 8 yngri systkini. Baráttan um ást, athygli og tíma mömmunnar er oft stór partur af erjum systkina. Í næsta þætti halda þær áfram með spjall um systkinaerjur og koma með góð ráð til að bæta úr. Luma hlustendur á sögum af systkinaerjum sem vilji er til að deila?Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

bar mamma fj luma spjall tilr foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Hver gerir hvað á heimilinu?

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jan 10, 2021 34:27


Adeline Brynja þroskast og dafnar, æfir sig að grípa, spjalla og stýra umhverfinu sínu. Litla fjölskyldan tekst á við breytingar í svefnrútínu, eitthvað sem gæti flokkast undir 4 month sleepregression, sem er ansi algeng og tengist auknum þroska. Það eru eflaust fleiri að kljást við breytta svefnrútínu eftir fríið og finna vonandi að hversdagurinn er kærkominn með sinni rútínu og reglum. Ömmgurnar ræddu einnig verkaskiptingu inn á heimilinu og hvernig er hægt að komast hjá gremju þegar hún er annars vegar. Gremjan getur verið lúmsk og henni þarf að fylgjast vel með og reyna að komast hjá eftir fremsta megni. Samtöl og skýr verkaskipting hljóma kannski ekki mjög æsandi en geta gert kraftaverk á heimilum þar sem þarf að líta í mörg horn. Katla og Adeline Brynja deila lokaorðunum að þessu sinni. Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

samt hver fj katla spjall svefn litla spjalla foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Áramótaheit og væntingastjórnun

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jan 3, 2021 34:03


Magga Pála, Móey Pála, Adeline Brynja og Katla komu í hljóðver og gerðu upp árið 2020. Þær ræddu það sem skiptir máli og hvað væntingastjórnun er mikilvæg þegar beðið er eftir nýju ári. Þær ræddu covid-19 og áhrif þess á árið sem er að líða og síðast en ekki síst áhrif sem veiran hafði á fjölskyldulífið. Katla óskar margs á nýju ári og er þakklát fyrir margt, eins og t.d. fæðingu litlu frænku, hennar Adeline Brynju. Margrét Pála setti sér áramótaheit og deilir því með hlustendum.Að lokum voru þær allar sammála um að iðka gleði og bros mun meira á nýju ári, það er nefninlega svo bráðhollt og sérstaklega smitandi. Við getum valið hvað við viljum og við getum valið hvernig við ætlum að takast á við daginn; í gleði eða fýlu. Adeline Brynja fer með lokaorðin  í þessum síðasta þætti ársins.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

covid-19 fj katla spjall foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Trúir þú á jólasveina?

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Dec 20, 2020 32:28


Adeline Brynja tengist ömmu sinni Adeline sem er komin til landsins frá Bahamas og gleðst yfir fleiri leikfélögum. Hún tekur þroskastökk og er farin að bragða graut rétt tæplega 4 mánaða og er líka á leiðinni í sund í fyrsta skipti, það gerist margt í lífi lítillar stúlku. Ömmgurnar ræddu um jólasveinana, þeirra tilvist og trú barna. Börn á ákveðnum aldrei eiga það til að efast um tilvist sveinanna en Magga Pála bendir réttilega á að við höfum fæst séð útvarpsbylgjur, internet eða Guð. Við trúum þrátt fyrir það mörg á þetta allt saman. Jólaandinn er kannski það sem við ættum öll að einblína á að trúa á og halda í okkar barnslegu gleði. Með barnslegu gleðina að vopni getur nefninlega tíminn fram að jólum og um jólin verið svo dásamlega skemmtilegur. Útivist, sundferðir og leikir með börnum geta gert alla þessa samveru svo töfrandi og heilandi fyrir alla í fjölskyldunni. Umfram allt getur gott skipulag og verkaskipting bjargað dögum sem einkennast oft af mikilli bið og spennu. Gleðileg jól kæru fjölskyldur!Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

bahamas gu fj amma spjall foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Jólasveinar og hver er eiginlega Grýla?

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Dec 13, 2020 38:03


Hlustendur fá að heyra nýjustu fréttir af litlu fjölskyldunni sem undirbýr komu föðurömmunnar frá Bahamas. Ömmgurnar ræddu einnig komu jólasveinanna og skynsemi þeirra. Upp úr dúrnum kom saga frá Móeyju sem fékk eitt sinn hráa kartöflu í skóinn en annars var hún alltaf afar þakklát fyrir snjallar gjafir eins og mandarínur, sokkabuxur eða annað nothæft. Hlustendur fá líka að heyra Grýlusögu frá Möggu Pálu sem hefur tekið að sér hlutverk hennar. Það var líka rætt hversu mikilvægt það er fyrir foreldra að velja sér slagi og tíma til að taka á hegðunarmálum, desember er kannski ekki alltaf heppilegasti tíminn.Stjörnugjöf og skrifuð umsögn um þættina eru sérlega vel þegin :-)Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

bahamas hver fj desember stj amma upp katla spjall brynja hlustendur foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Fokkjú eða kæri vinur

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Dec 6, 2020 28:50


Desember er genginn í garð með öllum sínum áskorunum. Þá er nú mikilvægt sem aldrei fyrr að vanda orðin sín, ríghalda í jákvæðnina og vera lausnamiðuð fyrir velferð allra. Tími sem er ekki gleðilegur fyrir alla þarf mögulega að endurhugsa og endurskipuleggja. Ömmgurnar ræða einnig hvenær á að eignast börn? Þarf að vera búið að festa kaup á húsnæði, klára menntun eða hvað þarf að gera? Katla er komin í jólastuð og deilir litlu leyndarmáli með hlustendum.Stjörnugjöf og skrifuð umsögn um þættina eru sérlega vel þegin :-)Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

fj desember stj spjall vinur foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Nánd og kynlíf eftir meðgöngu

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Nov 29, 2020 40:47


Hvenær ,,má” stunda kynlíf eftir fæðingu? Er eðlilegt að bíða lengi? Hvernig vita pör að þau eru tilbúin að stunda kynlíf eftir oft átakanlega líkamlega og andlega reynslu? Í þættinum kom Sigga Dögg kynfræðingur og ræddi um kynlíf og nánd eftir meðgöngu við ömmgurnar. Í þessu spjalli er einlægnin og heiðarleikinn í algeru fyrirrúmi og unga móðirin hlífir sér ekkert um þetta mikilvæga málefni. Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

er hvernig eftir hven spjall kynl sigga d foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Nútímafjölskyldur og lesbían sem missti forræðið

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Nov 22, 2020 43:15


Brjóstagjöfin gengur vel hjá Móeyju Pálu en það var ekki raunin hjá Möggu Pálu sem gat einungis haft Brynju dóttur sína á brjósti í 3 vikur. Það reyndist ungu móðurinni mun erfiðara en hún vildi viðurkenna en hafði sáralítil áhrif á dótturina. Það reyndist þessari ungu móður líka erfitt að horfast í augu við það að hún varð ástfangin af konu en það erfiðasta af öllu var að missa forræði dóttur sinnar vegna samkynhneigðarinnar. Hversu sterk eru tengsl foreldra við börnin sín og hvernig lifa fjarbúandi fjölskyldur af aðskilnaðinn? Katla sér um kynningu og lokaorð að vanda af sinni alkunnu snilld.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Jólahald í fæðingarorlofi og á lágmarkslaunum

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Nov 14, 2020 37:14


Eftir þungt ár eru eflaust margar fjölskyldur uggandi yfir jólahátíðinni. Litla fjölskyldan fer ekki varhuga af þeim áhyggjum enda eru skertar tekjur í fæðingarorlofi og lágmarkslaun í ummönnun ekki upp á marga fiska. Magga Pála lumar að sjálfsögðu á góðum ráðum til að draga úr streitu í fjölskyldum fyrir jólin og hvernig hægt er að færa fókusinn yfir á það sem öllu máli skiptir. Föðuramma og föðurlangamma eru væntanlegar til landsins frá Bahamaeyjum og litla fjölskyldan undirbýr notalegar samverustundir. Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

fj eftir spjall litla foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Framkvæmdastjóri stórfyrirtækis deilir gleði og sorgum

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Nov 7, 2020 35:53


Magga Pála, Brynja, Móey Pála, Adeline Brynja og hundurinn Árni komu saman í hljóðver, en Árna var ekki treyst á músaveiðar. Í þættinum er spjallað um einelti, uppteknar fjölskyldur og öll verkefni framkvæmdarstjórans í Fjölskyldunni ehf. Adeline Brynja æfir röddina sína af kappi og spjallar í gríð og erg. Brynja gerir sig klára til að fara á Covid vakt og ræða þær hversdaginn á breyttum tímum. Katla sér auðvitað um kynningu og kveðju.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

covid-19 fj katla spjall framkv brynja foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Einelti og ungfrú Lágafellsskóli

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Nov 1, 2020 50:04


Litla fjölskyldan dafnar og fregnir af skelfingu eineltis angra móðurina með litla krílið í fanginu því að hver vill ekki vernda barnið sitt fyrir hættum heimsins. Magga Pála tekur léttar einræður um leiðir til að fyrirbyggja mögulelikana á einelti ef raunverulegur vilji er fyrir hendi og ungfrú Lágafellsskóli deilir neikvæðum afleiðingum slíkrar kosningar. Katla kynnir þáttinn inn að vanda og fær vinkonu með sér í lið í afkynningu.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

fj katla spjall litla foreldrar ungfr menntun
Fjölskyldan ehf.
Föðurhöfnun, fjölskyldugalskapur og fall á smíðaprófi (næstum).

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Oct 25, 2020 44:18


Adeline Brynja er enn að vinna í því að taka pabba sinn í sátt og fjölskyldan litla leggst á eitt til að styrkja tengslin. Ömmgurnar standa sig vel í síma-afvötnuninni og finna breytingar með minni símanotkun. Amman setti nýtt met í einkunnum en hún hefur ekki fengið svona lágt í prófi áður, hvernig tekst kona á við það?Spurningarnar halda áfram að berast og í þættinum fór áherslan á systkinaerjur, ofurhetjur, vetrarfrí og þreytupirring á stórum heimilum. Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

amman stum spjall foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.

Móey Pála og Magga Pála komu í hljóðver ásamt Adeline Brynju og tóku stöðuna á ömmunni eftir heilandi frí. Einnig ræddu þær hvernig Móey Pála stígur inn í móðurhlutverkið og hversu krefjandi það getur verið að gera einfalda hluti eins og að sturta sig með grátandi ungabarn. Þá ræddu þær símanotkun og hvernig foreldrar þurfa að stíga inn í ný verkefni í uppeldinu og hvernig við fullorðna fólkið högum okkur sjálf. Þær ákváðu í þættinum að fara síma-afvötnun og temja sér betri siði t.d. á kvöldin og morgnanna. Hver kannast ekki við að gleyma sér í símanum?Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

hver fj einnig spjall foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
"Móðursjúkt" ungbarn og samband foreldra eftir fæðingu

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Oct 11, 2020 37:42


Í þessum þætti er Móey Pála ein í stúdíóinu því að amman skellti sér í andlegar heilsubúðir út á land. Hér svarar hún mörgum persónulegun spurningum frá hlustendum um nýja hlutverkið eins og um móðurástina og brjóstagjöf þar sem pabbinn er utan gátta og samband þeirra foreldranna á nýjum forsendum. Jafnréttið á heimilinu kemur til tals ásamt sektarkennd móður ef barnið fær í magann því hvað borðaði hún eiginlega sem fer svona illa í barnið?

eftir ingu spjall samband foreldrar jafnr menntun
Fjölskyldan ehf.
Lofið þreyttum að sofa

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Oct 4, 2020 35:36


Þær komu fjórar í hljóðver: Magga Pála, Móey Pála, Katla og hin nýskírða Adeline Brynja. Þær röbbuðu saman um skírnina og nafn litlu stúlkunnar. Stóra málið í þættinum var samt svefn og rútína. Hvernig gengur að búa til rútínu heima með lítið barn? Hvenær þurfa skólabörn að fara að sofa? Hvers vegna þurfum við að sofa svona mikið og hefur svefninn einhver áhrif á líkamsstarfsemi okkar? Þær ræða líka hvers vegna það er mikilvægt að samræma aðferðir við að svæfa á milli umsjáraðila og þennan guðdómlega vilja barna sem oft snýr fullorðnum í hringi.Fjölskyldan ehf á InstagramFjölskyldan ehf á facebook

Fjölskyldan ehf.
Róhildur Slök

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Sep 26, 2020 35:26


Mál málanna er nafn litlu stúlkunnar, hvað á barnið að heita? Hvernig á að velja rétt nafn? og skiptir nafnið máli upp á persónuleika barnsins? Í lok þáttarins fær Katla að deila nafninu með ykkur. En ömmgurnar ræða margt fleira og ekki síður mikilvægt. Nú er Móey Pála ein heima á daginn með litlu stúlkuna og David er farinn að vinna. Hvernig skiptast þá heimilisverkin? Og hvernig er að aðlagast nýjum takti?Fjölskyldan ehf á InstagramFjölskyldan ehf á facebook

Fjölskyldan ehf.
Erum við ekki öll frá sömu plánetunni?

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Play 21 sec Highlight Listen Later Sep 20, 2020 45:44


Fjórar kynslóðir sátu saman í hljóðveri og ræddu hvernig síprjónandi nýbökuð amma upplifir sitt hlutverk. Þær ræddu einnig eitthvað sem er alveg nýtt í fjölskyldunni: spennuna yfir því hvernig litla stúlkan verður á litinn. Þarf að tala um ólíkt litaraft? Og hvernig er rétt að nálgast það? Mikilvægt og hjartnæmt spjall sem endranær. Hlustið kæru vinir og munið að gefa þættinum stjörnur og deila honum áfram. 

fj ekki erum mikilv spjall brynja foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Kemur pósturinn nokkuð með börnin?

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Play 21 sec Highlight Listen Later Sep 13, 2020 30:21


Magga Pála, Móey Pála og sú litla spjalla saman í hljóðveri. Þær ræða tilfinningatengsl, vinnuna að vera í fæðingarorlofi og hvernig lífið aðlagast nýjum einstaklingi. Magga Pála segir tilfinningaþrungna sögu af rofnum tilfinningatengslum, hversu erfið lífsbaráttan gat verið árum áður og hversu mikið hefur breyst til hins betra. Hafið vasaklút við hendina kæru hlustendur. 

hafi spjall kemur foreldrar nokku menntun
Fjölskyldan ehf.
Yngst og best á bænum

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Sep 6, 2020 32:12


Ömmgurnar þrjár, Magga Pála, Móey Pála og sú nýfædda, komu í hljóðver ásamt föðurnum nýbakaða honum David. Foreldrarnir segja hlustendum fæðingarsöguna og hvaða tilfinningar bærðust innra með þeim. Einnig ræða þau hvernig lífið er núna með nýjum fjölskyldumeðlim og hvernig það er að vera með nýfætt barn á tímum Covid. Hvernig er svo lífið með barninu? Hvernig gengur að drekka? En að sofa? Skiptast mamma og pabbi á? Sú sem er yngst og best á bænum, fær hún að stjórna?Athugið kæru vinkonur og vinir að þátturinn er á ensku.//The great grandmother Magga Pála, the parents Móey Pála and David came to the studio with the newborn baby girl. The parents share the birth story and talk about all the emotions that are entwined with this miracle. They also talk about how life has changed after the birth and what it is like to have a new born baby during the times of Covid. Listeners also get a glimpse of the breastfeeding, sleeping routine and who it is that actually controls life these days.

covid-19 barn mamma hvernig einnig spjall pabbi foreldrar yngst menntun
Fjölskyldan ehf.

Barnið er fætt! Það þýðir að Magga Pála er orðin langamma og Móey Pála er orðin mamma. Magga Pála segir frá fæðingu dóttur sinnar, þá elstu dóttur hennar og loks nýfædda barninu. Hvað er líkt með öllum þessum fæðingum? Hvað er ólíkt?Einnig ræðir Magga Pála handtök og siði sem erfast á milli kynslóða og þá vinnu sem fer í að halda því sem er af hinu góða og því sem raunverulega þarf að sleppa.

hva mamma einnig spjall pabbi foreldrar menntun
Samfélagið
Kennarar. Menntun. Ljósabúnaður

Samfélagið

Play Episode Listen Later Aug 28, 2020 55:00


Ragnar Þór Pétursson form. KÍ: Rætt um skólabyrjun í skugga covid og fyrirhugaðar breytingar á aðalnámskrá. Birna Þórarinsdóttir framkvstj. UNICEF: Fjallað um nýja skýrslu UNICEF um stöðu menntamála í heiminum en þegar skólar þurftu að loka til að hefta útbreiðslu COVID-19 í vor hafði það áhrif á menntun 1,5 milljarðs barna í 190 löndum. Gunnar Geir Gunnarsson , Samgöngustofu: Hvaða lög gilda um um ljósanotkun í skammdeginu .

Fjölskyldan ehf.
Áramót í aðsigi

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Aug 16, 2020 32:42


Hin dásamlega óregla sumarfrísins er nú víkjandi rétt eins og björtu næturnar. Nú þarf röð, reglu og rútínu til að öllum börnum takist sem best til í opinbera lífinu í leik- og grunnskólum. Fjölskyldan og skólarnir bera ábyrgð á að byggja upp öruggt kærleiksríkt samband sín á milli svo að öllum geti liðið sem best. 

fj hin regla sigi spjall foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Sjáðu barnið, ekki símann!

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Aug 9, 2020 27:12


Hvaða foreldri á það ekki til að gleyma sér í símanum? Börn eiga að vera litlir athyglisrukkarar sem berja á símadyrnar þegar þau finna að foreldrar hverfa inn í annan heim og hafa þar með yfirgefið þau. Munið að hamingjan á heimilinu og gæði parasambandsins er mesti áhrifavaldurinn fyrir þroska og velferð barnsins. 

hva muni ekki spjall foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Mikilvægt frí eða myglað í sófanum

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Aug 2, 2020 37:00


Verslunarmannahelgi og sumarfrí enn í algleymingi, ekki öllum til jafn mikillar gleði og hamingju. Sumir fylgja fyrirmælum ríkisstjórnarinnar og ferðast um landið, aðrir eru að vinna og enn aðrir ,,mygla" í sófanum. Góður gestur kemur í þáttinn og tekur þátt í sumarfrísumræðunni.

sumir mikilv spjall foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Fjórhjólaferð og bumbuboð fyrir fæðingu

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jul 26, 2020 38:25


6 vikur þar til nýja barnið fæðist og tilvonandi móðir þrjóskast við í fullri vinnu. Amman snýr aftur úr sumarfríi eftir rúmlega tveggja vikna fjör fyrir norðan, lengsta sumarfrí hennar í 20 ár. “Baby Shower” er framundan og hvað á það fyrirbæri að heita á íslensku? Og hvað með ADHD og lyfjagjöf?

Fram og til baka
Fram og til baka 5. júlí 2020

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Jul 5, 2020 114:00


Fram og til baka 5 júlí 2020 Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins - Einbúinn, Mannakorn (sungið af Vilhjálmi Vilhjálmssyni) frá 1975 fyrsta plata Mannakorna Fimman - Edda Jónsdóttir, leiðtogamarkþjálfi hjá Edda Coaching Fimman eru þræðirnir í starfsferlinum. Menntun, miðlun, spyrja spurninga, samskipti ferðalög Viðtal - Reykjavik Fringe festival - Tinna Þorvalds Önnudóttir hún er með teiknisýninguna Yes, Please, tekur þátt í Them með Spindrift Theatre, er hluti af Reykjavík Ensemble og sjálfboðaliði á hátíðinni. Símtal - Guðrún Lilja Magnúsdóttir aka Lilja Magg í Grundarfirði Bókamarkaður í Grundarfirði Lag - afmælisbarn dagsins! Róbert Örn Hjálmtýsson eða Hljómsveitin Ég

Fram og til baka
Fram og til baka 5. júlí 2020

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Jul 5, 2020


Fram og til baka 5 júlí 2020 Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins - Einbúinn, Mannakorn (sungið af Vilhjálmi Vilhjálmssyni) frá 1975 fyrsta plata Mannakorna Fimman - Edda Jónsdóttir, leiðtogamarkþjálfi hjá Edda Coaching Fimman eru þræðirnir í starfsferlinum. Menntun, miðlun, spyrja spurninga, samskipti ferðalög Viðtal - Reykjavik Fringe festival - Tinna Þorvalds Önnudóttir hún er með teiknisýninguna Yes, Please, tekur þátt í Them með Spindrift Theatre, er hluti af Reykjavík Ensemble og sjálfboðaliði á hátíðinni. Símtal - Guðrún Lilja Magnúsdóttir aka Lilja Magg í Grundarfirði Bókamarkaður í Grundarfirði Lag - afmælisbarn dagsins! Róbert Örn Hjálmtýsson eða Hljómsveitin Ég

Fram og til baka
Fram og til baka 5. júlí 2020

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Jul 5, 2020


Fram og til baka 5 júlí 2020 Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins - Einbúinn, Mannakorn (sungið af Vilhjálmi Vilhjálmssyni) frá 1975 fyrsta plata Mannakorna Fimman - Edda Jónsdóttir, leiðtogamarkþjálfi hjá Edda Coaching Fimman eru þræðirnir í starfsferlinum. Menntun, miðlun, spyrja spurninga, samskipti ferðalög Viðtal - Reykjavik Fringe festival - Tinna Þorvalds Önnudóttir hún er með teiknisýninguna Yes, Please, tekur þátt í Them með Spindrift Theatre, er hluti af Reykjavík Ensemble og sjálfboðaliði á hátíðinni. Símtal - Guðrún Lilja Magnúsdóttir aka Lilja Magg í Grundarfirði Bókamarkaður í Grundarfirði Lag - afmælisbarn dagsins! Róbert Örn Hjálmtýsson eða Hljómsveitin Ég

Fjölskyldan ehf.
Er ADHD fólk alltaf úti að aka?

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jul 5, 2020 41:52


Tvær systur og amma mættu á gullvagninum í stúdíóið - raunverulega úti að aka, nokkuð sem þær þekkja vel innan sinnar ADHD fjölskyldu. Þær trúa hlustendum fyrir vandræðalegum augnablikum í hvatvísi sinni og mótstöðuþrjóskuröskun og einhverfurófið kemur líka til umræðu. En spurt er; af hverju þarf þessi hugtök og greiningar yfirhöfuð?

tv adhd alltaf spjall foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Eru tilfinningar stjörnur í geimnum?

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jun 28, 2020 27:24


Nú tekur hin 7 ára Katla við af stóru systur sinni sem uppeldislegur ráðgjafi í umræðu um tilfinningar. Eru ekki allar tilfinningar í boði? Og eru börn ekki jafn frábær þótt þau séu ekki alltaf glöð? Og hvað er til ráða hjá 7 ára ungmenni sem tekst á við tilfinningar sínar?

katla eru spjall foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
ÞAÐ MÁ RUGLAST Í HEGÐUN

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Play 29 sec Highlight Listen Later Jun 21, 2020 38:30


Grundvallarfærni á fyrstu æviárunum er að læra að ganga, að tala - og haga sér vel í samskiptum. Allt þetta lærist af góðum fyrirmyndum, stuðningi, hvatningu og eftirfylgd - en hegðunarþjálfunin gleymist. Hvernig eru aðstæður fyrir hegðunarþjálfun? Hver á að gæta barnsins? Má ekki ruglast og gera gott úr öllu? Munum að lífið er dálítið rugl.

Fjölskyldan ehf.
Vöndum valið á orðunum okkar

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Play 42 sec Highlight Listen Later Jun 14, 2020 34:09


Stækkandi bumba og þreyta gerir vart við sig hjá verðandi móður en verður hún ekki að harka af sér og vinna fram á síðasta dag? Amman deilir smíðareynslu og loks missa þær sig í umræðu um mátt og vald tugumálsins og orðanna sem við veljum að nota með börnum. Katlan hefur skýra sýn á orðanotkun og á vel valin lokaorð.

Fjölskyldan ehf.
Amman úr felum og blönduð börn

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Play 24 sec Highlight Listen Later Jun 7, 2020 34:15


Amman kemur úr felum með framtíðarplönin, tilvonandi foreldrar deila reynslu og upplifun af ólíkum bakgrunni og hvernig pabbinn upplifir sig öruggari á Íslandi en í lögregluríkinu USA. Loks velta hjónakornin því fyrir sér hvernig verður að eignast barn af blönduðum kynþætti.(Helmingur þáttarins er á ensku).

united states amman loks spjall foreldrar menntun helmingur
Fjölskyldan ehf.
Forsetar og fótamissir

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Play 15 sec Highlight Listen Later May 31, 2020 29:17


Ungabörn eru svo ógn viðkvæm og bjargarlaus og viðkvæmnin fer ekkert frá þeim þótt árunum fjölgi. Þess vegna er erfitt að hafa marga forseta í skólanum og smáræðis áfall í samskiptum getur haft meiri áhrif en við fullorðna fólkið áttum okkur á.

spjall foreldrar menntun
Samfélagið
Menntun og fjölmenning. Hrísey. Umhverfisspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 28, 2020 55:00


Jóhanna Einarsdóttir prófessor HÍ: Starfshópur hefur skilað mennta- og menningarmálaráðherra drögum að stefnu um menntun barna og ungmenna með annað móðurmál en íslensku. Jóhanna stýrði hópnum sem setti fram sjö tillögur og fjölda aðgerða sem grípa má til. Linda María Ásgeirsdóttir íbúi í Hrisey: Hriseyingar vöknuðu í morgun við að frystihúsið logaði. Rætt er við Lindu um samfélagið í Hrísey og þetta áfall sem á þeim dundi. Stefán Gíslason: Í Umhverfisspjalli eru reifaðar þær hugmyndir sem nú eru ræddar víða, þ.e. hvernig samfélag viljum við byggja upp í kjölfar faraldurs sem lamaði svo margt.

stef einarsd lindu menntun
Fjölskyldan ehf.
Er það strákur eða stelpa?

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later May 23, 2020 33:58


Tilvonandi foreldrar ákveða hvort þeir vilja vita um kyn barnsins og hvort og hvernig eigi að láta aðra vita af kyninu. Af hverju skiptir þetta svona óskaplega miklu máli, hvernig er staðan með gömlu kynhlutverkin og hvað með fleiri kyn en bara þessi tvö hefðbundnu?

af kyn spjall foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Gildi reglunnar í óvissum heimi

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later May 17, 2020 28:58


Nú spjalla MP-in um röð, reglu og rútínu í uppeldin. Þar á meðal er samræming innan fjölskyldu, hlusta afi og amma á ungu foreldrana? Og hvað með kyn barnsins, skiptir það einhverju máli?

mp regla spjall heimi foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Uppeldið fyrstu mánuðina

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later May 10, 2020 26:22


MP-in hugleiða tilveruna eftir að barnið mun fæðast. Þarf barnið sér herbergi, hvað með hjálpartæki eins og snuddu og pela? Á alltaf að bregðast við gráti ungbarna og á fólk að skipta sér af annarra manna börnum?

mp fyrstu spjall foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.
Fjölskyldan á dögum Kórónuveirunnar

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later May 2, 2020 26:52


Fleiri fjölskyldumeðlimir taka til máls með MP-unum um Kórónaveiruna. Mamman með börnin fimm lýsir ástandinu á heimilinu í sóttkví. Sú 14 ára hefur áhyggjur af eldra fólkinu í fjölskyldunni en þeirri 7 ára þykir veiran ekki bara neikvæð. 

mp mamman spjall fleiri foreldrar menntun
Fjölskyldan ehf.

Magga Pála er að verða LANGamma! Hún fékk elsta barnabarnið, tilvonandi móðurina með sér í hlaðvarpsgerð. Hér í fyrsta þætti spjalla þær um heimsbyltinguna og hamingjuna sem fylgir hverju nýju barni, um Fjölskylduna ehf, verkaskiptingu á heimili og allt uppeldis stússið sem fylgir fyrstu mánuðunum. 

fj spjall foreldrar menntun
Morgunvaktin
Niðurskurður á sama tíma og talað um að efla menntun

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 9, 2019 130:00


Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar, gagnrýnir að á sama tíma og talað sé um að efla læsi vegna niðurstaðna PISA rannsóknarinnar séu fjárframlög skorin niður til stofnunarinnar. Hann segir að stofnunin hafi þurft að segja upp tveimur ráðgjöfum í læsisteyminu vegna niðurskurðar og líklega þurfi að hætta ytra mati á leikskólum á næsta ári. Arnór var gestur Morgunvaktarinnar. Kosið verður í Bretlandi á fimmtudag. Enn er Íhaldsflokkurinn með ágæta stöðu í skoðanakönnunum en Verkamannaflokkurinn er talsvert frá því sem hann fékk síðast. Sigrún Davíðsdóttir fór yfir lokasprett kosningabaráttunnar í vikulegu Lundúnaspjalli. Tugir barna hafa látið lífið í miklum mislingafaraldri, sem geysað hefur í Kyrrahafseyríkinu Samóa síðan í október. Þúsundir hafa veikst og þjóðfélagið allt er í uppnámi. Nýlega var svo tilkynnt að faraldurinn hafi borist yfir til grannlandsins, Bandarísku Samóaeyja. Vera Illugadóttir fjallaði um sögu og samfélag Samóa-eyja. Tónlist: One for my baby - Billie Holiday Höjt fra træets grönne top - Kim Larsen

Samfélagið
Landsspítalinn. Jöklar. Menntun

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 27, 2019 55:00


Ólafur Baldursson framkvstj. lækninga og Sigríði Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar Landsspítala: Rætt við þau í tilefni greinar í Kjarnanum um nýtingu upplýsingatækni fyrir sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Bergur Einarsson jarðeðlisfræðingur: Breytingar á jöklum og framhlaup skriðjökla.' Jón Atli Benediktsson rektor HÍ: Framtíð menntunar og háskólastigið.

klar sigr gunnarsd baldursson breytingar landssp menntun
Samfélagið
Merkingar árfarvega, menntun, snjallsímabindindi og skordýraát

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 3, 2018 55:00


Einar Pálsson, forstöðumaður þjónustusviðs Vegagerðarinnar: merkingar árfarvega á vegum landsins Ragnheiður Bóasdóttir, sérfræðingur í Menntamálaráðuneytinu: Menntun og fyrirhuguð fundaröð um menntun fyrir alla Þóra Hrund Guðbrandsdóttir: Þóra ætlar að venja sig af snjallsímanum og fara í samfélagsmiðlabann næstu þrjátíu dagana. Rætt var við hana um átakið ástæður þess og áskoranir. Edda Olgudóttir: áhrif skordýraáts á meltingarkerfið

vegager menntam menntun
Siðfræðistofnun
Henry Alexander Henrysson - Verður menntun að vera alls staðar eins?

Siðfræðistofnun

Play Episode Listen Later May 2, 2017 18:47


Fyrirlestur sem Henry Alexander Henrysson flutti á "Pálsvöku" 25. apríl 2017 í Hannesarholti.

alls menntun
Siðfræðistofnun
Ásgeir Brynjar Torfason - Heimsmenning, þjóðmenning og viðskipti: Um menntun og viðskiptamenningu

Siðfræðistofnun

Play Episode Listen Later Jun 5, 2016 24:35


Erindi sem Ásgeir Brynjar Torfason flutti á ráðstefnunni “HUGSUN OG VERULEIKI”, ráðstefnu um heimspeki Páls Skúlasonar 27. maí 2016.

og vi brynjar torfason menntun
Siðfræðistofnun
Ólafur Páll Jónsson - Menntun og háskólar

Siðfræðistofnun

Play Episode Listen Later Jun 5, 2016 24:03


Erindi sem Ólafur Páll Jónsson flutti á ráðstefnunni “HUGSUN OG VERULEIKI”, ráðstefnu um heimspeki Páls Skúlasonar 27. maí 2016.

og h menntun