Podcasts about foreldrar

  • 27PODCASTS
  • 169EPISODES
  • 48mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Apr 2, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about foreldrar

Latest podcast episodes about foreldrar

Víðsjá
Svipmynd - Kristinn Sigmundsson

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 2, 2025 51:31

Kristinn Sigmundsson ætlaði sér lengi vel alls ekki að verða söngvari. Faðir hans var lengst af á sjó, mamma hans líka útivinnandi og sem strákur gerði hann mikið af því að passa bróður sinn og dorga niðri á höfn. Foreldrar þeirra lögðu áherslu á að bræðurnir fengju góða menntun og leið Kristins lá í Menntaskólann við Hamrahlíð, þar sem hann var plataður í kórinn hjá Þorgerði Ingólfsdóttur, en hélt svo í háskólanám í líffræði. Þrítugur lauk hann prófi frá Söngskólanum en eftir að hann tók skrefið út í heim fékk hann fljótlega fastráðningu við óperuna í Wiesbaden í Þýskalandi. Þaðan lá leiðin sífellt hærra, og áður en langt um leið var Kristinn farinn að syngja í velflestum stærstu óperu- og tónlistarhúsum heims. Líklega gera margir sér ekki grein fyrir hversu tilkomumikill ferill Kristins er. Sjálfur er hann lítillætið og hógværðin uppmáluð, rólyndismaður sem elskar fátt meira en ljóðsöng og fluguveiði og leitar í íslenska náttúru í huganum, mitt í skarkala erlendra stórborga. Stórsöngvarinn Kristinn Sigmundsson er gestur Svipmyndar í Víðsjá dagsins. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Mannlegi þátturinn
Gervigreind fyrir venjulegt fólk og Drottningin í dalnum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 27, 2024 54:05

Gervigreind hefur tekið mikið pláss í umræðunni undanfarið, sérstaklega eftir að opnað var fyrir aðgengi almennings að ýmis konar tólum eins og ChatGPT, þar sem gervigreindinni virðast engin takmörk sett með hvað hún getur skrifað og jafnvel framkvæmt á ógnarhraða. Það er þó bara ein birtingarmynd gervigreindar, hún er í rauninni allt í kringum okkur og ekki er víst að allir viti nákvæmlega hvað hún er. Við erum bara rétt að sjá toppinn af ísjakanum þegar kemur að mögulegri notkun gervigreindar og ýmist er talað um hana sem spennandi þróun með endalausa möguleika eða það er varað við henni og að hún sé misnotuð. Grímur Sæmundsson, verkefnastjóri gagna og gervigreindar hjá Crayon, kom í þáttinn og fræddi okkur um það sem hann kallar gervigreind fyrir venjulegt fólk, sem hann hefur verið að kenna á námskeiði hjá Opna háskólanum í HR. Út er komin bók sem heitir Drottningin í dalnum. Þetta er saga Guðrúnar Margrétar Þorsteinsdóttur, tveggja eiginmanna og sona hennar í Vatnsdal. Saga Guðrúnar Margrétar er um margt merkileg. Foreldrar hennar urðu að láta hana frá sér vegna fátæktar og ómegðar þegar hún var aðeins þriggja ára. Hún eignaðist þrjú börn og varð ekkja í annað sinn 42 ára. Í kjölfarið tókst hún á við það verkefni að kaupa jörðina Haukagil og þar bjó hún með reisn í 26 ár. Hér er um að ræða heimildarrit sem bregður ljósi á hag- og samfélagssögu Íslendinga í tæplega eina og hálfa öld. Eggert Ágúst Sverrisson er höfundur bókarinnar en hann fór í sagnfræðinám eftir að hann hætti að vinna og segir það hafa verið eina af betri ákvörðunum lífs síns. Við spjölluðum við Eggert í dag. Tónlist í þættinum: Þannig týnist tíminn / Ragnar Bjarnason og Lay Low (Bjartmar Guðlaugsson) Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín(Páll Óskar, Sveinbjörn Bjarki Jónsson og Toggi, Þorgrímur Haraldsson) Í hjarta þér / Katrín Halldóra (Jón Múli og Jónas Árnasynir) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Rauða borðið
Rauða borðið 19. sept - Kvenfrumkvöðlar, orkuokur, foreldrar og börn, félagslegir töfrar og lífsleikni

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 19, 2024 198:40

Fimmtudagurinn 19. september Kvenfrumkvöðlar, orkuokur, foreldrar og börn, félagslegir töfrar og lífsleikni Verðlaunakvenfrumkvöðlar setjast með Oddnýju Eir Ævarsdóttur og ræða sín afrek og stöðu kvenna: Heiðdís Einarsdóttir, Elinóra Inga Sigurðardóttir, Hraundís Guðmundsdóttir og Björg Árnadóttir. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna ræðir um hækkun á orkuverði, rukkanir fyrir bílastæði, vöruskerðingu og önnur neytendamál. Ársæll Arnarsson prófessor í sálfræði ræðir uppeldi og samskipti foreldra við börn og Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði um hvað beri að gera til að endurvefa félagslegt net samfélagsins. Í lokin ræðir Róbert Jack heimspekingur um vanda skólakerfisins, um sjálfsstjórn, lífsleikni og tjáningu tilfinninga.

Morðskúrinn
Raðmorðingi: Harvey Glatman

Morðskúrinn

Play Episode Listen Later Aug 28, 2024 45:38

Harvey Glatman var mjög ungur þegar hann var farinn að bera merki um að hann yrði sjálfsagt ekki eins og flestir. Foreldrar hans höfðu leitað aðstoðar vegna vanda sem hann sýndi en læknirinn hafði sannfært um að hegðun sem hann sýndi af sér myndi vaxa af honum.  Svo var aldeilis ekki, Harvey var ungur farinn að áreita konur og komst svo miklu miklu lengra en hann hefði átt að geta.    Þátturinn er í boði Define The Line Sport  Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á  www.definethelinesport.com   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn   www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn  

Sterk saman
#105 Selma - Fangelsaðir foreldrar

Sterk saman

Play Episode Listen Later Jun 16, 2024 53:03

Fyrrverandi lögreglumaður sem brennur fyrir málefni jaðarsettra. Skrifaði mastersritgerð um stuðning við fangelsaða foreldra eða skort þar á.

Mannlegi þátturinn
Fanney fann bóður sína, að lofta rétt út

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 7, 2024 50:13

Við rákum augun í grein á visir.is, afskaplega áhrifaríka og fallega sögu þar sem ung kona, Fanney Ýr Gunnlaugsdóttir, fann blóðmóður sína í gegnum lygilega atburðarás. Fanney var ættleidd frá Sri Lanka til Íslands sem ungabarn árið 1985. Fanney ólst upp á Akranesi og býr þar enn ásamt eiginmanni og börnum. Foreldrar hennar töluðu alltaf mjög opið um ættleiðinguna og það var aldrei neitt feimnismál að ræða allar þær spurningar sem hún hafði um uppruna sinn og þau voru að auki með upplýsingar sem hún mátti skoða, fæðingarvottorð og heilsufarsupplýsingar sem fylgdu með henni í ættleiðingunni. Með aldrinum fóru spurningar og áhugi um fortíð hennar að aukast, til dæmis í sambandi við blóðmóður hennar og jafnvel að ná sambandi við hana. Þegar Fanney svo horfði á sjónvarpsþættina Leitin að upprunanum í umsjón Sigrúnar Óskar Kristjánsdóttur á Stöð 2 þá kviknaði á einhverju hjá henni sem setti af stað atburðarrásina sem við nefndum í upphafi sem leiddi til þess að hún fann blóðmóður sína. Fanney Ýr kom til okkar í dag og sagði okkur sína sögu í þættinum í dag. Svo kom Ólafur Wallevik, prófessor í iðn- og tæknifræði við Háskólann í Reykjavík, til okkar og fræddi okkur um það að lofta út, en hann segir að Íslendingar kunni það ekki jafn vel og margar aðrar þjóðir. Ef það er ekki vel gert þá geti það valdið rakaskemmdum og skaðlegu innilofti. Ólafur fræddi okkur um mikilvægi þess að lofta rétt út í þætti dagsins. Tónlist í þættinum: Við erum eins / Halli Reynis (Haraldur Reynisson) Knowing me knowing you/Kristjana Stefánsdóttir (Björn Ulveas og Benny Abba) Saturday Sun / Nick Drake (Nick Drake)

Lestin
Foreldrar elska Blæju, Afi rússneskrar rokktónlistar, stafræn upprisa

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 23, 2023 55:00

Það er stór stund í Lestinni í dag. Kristján fær loksins að hitta átrúnaðargoð sitt, rússneska rokktónlistarmanninn Boris Grebenshchikov úr hljómsveitinni Aquarium. Boris, sem hefur verið kallaður afi rússneskrar rokktónlistar eða hinn sovéski Bob Dylan, er nú í útlegð eftir að hafa talað gegn stríðinu í Úkraínu og hefur verið settur á lista Putins yfir erlenda útsendara. Við ræðum rokk og pólitík við eina mestu goðsögn rússneskrar rokktónlistarsögu. Ástralski hundurinn Bluey, eða Blæja á íslensku, nýtur mikilla vinsælda meðal barna í dag. En það eru ekki síður foreldrarnir sem elska sjónvarpsþættina. Anna Marsibil Clausen rýnir í snilldina við Blæju og útskýrir af hverju þetta er besta barnaefnið í sjónvarpinu í dag. Í nútímanum býðst fólki að eiga stafrænt framhaldslíf. Ættingjar geta varðveitt einkenni ástvina eins og rödd, útlit og persónuleika inn í eilífiðina. Þetta er meðal þess sem María Guðjohnsen skoðar í nýrri sýningu í gallerí Þulu, Stafrænt framhaldslíf. Júlía Margrét Einarsdóttir kíkir við og spjallar við Maríu.

Lestin
Foreldrar elska Blæju, Afi rússneskrar rokktónlistar, stafræn upprisa

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 23, 2023

Það er stór stund í Lestinni í dag. Kristján fær loksins að hitta átrúnaðargoð sitt, rússneska rokktónlistarmanninn Boris Grebenshchikov úr hljómsveitinni Aquarium. Boris, sem hefur verið kallaður afi rússneskrar rokktónlistar eða hinn sovéski Bob Dylan, er nú í útlegð eftir að hafa talað gegn stríðinu í Úkraínu og hefur verið settur á lista Putins yfir erlenda útsendara. Við ræðum rokk og pólitík við eina mestu goðsögn rússneskrar rokktónlistarsögu. Ástralski hundurinn Bluey, eða Blæja á íslensku, nýtur mikilla vinsælda meðal barna í dag. En það eru ekki síður foreldrarnir sem elska sjónvarpsþættina. Anna Marsibil Clausen rýnir í snilldina við Blæju og útskýrir af hverju þetta er besta barnaefnið í sjónvarpinu í dag. Í nútímanum býðst fólki að eiga stafrænt framhaldslíf. Ættingjar geta varðveitt einkenni ástvina eins og rödd, útlit og persónuleika inn í eilífiðina. Þetta er meðal þess sem María Guðjohnsen skoðar í nýrri sýningu í gallerí Þulu, Stafrænt framhaldslíf. Júlía Margrét Einarsdóttir kíkir við og spjallar við Maríu.

Normið
217. Uppeldi - Agi eða mýkt?

Normið

Play Episode Listen Later Jul 14, 2023 72:00

Jæja.. foreldraþrots þáttur síðustu viku fór eins og eldur um sinu og foreldrar um allt land tengdu mikið! Nú tökum við round 2 af þessari umræðu og skoðum leiðir til að sjá önnur sjónarhorn og líða betur með þetta allt saman. Sumarfríið er að fara misvel með fólk, við sendum ykkur sterka strauma! WE GOT THIS. 

Normið
216. Foreldraþrotið góða!

Normið

Play Episode Listen Later Jul 7, 2023 98:23

Gleðilegt sumarfrí með elsku börnunum! Þessi þáttur er sérstaklega gerður fyrir foreldra landsins. Mömmur, pabba, stjúpforeldra, skáforeldra, forráðamenn, verðandi foreldra, aukaforeldra, ömmur, afa, jafnvel frænkur og frændur.. Hlustum, hlægjum, lærum og slökum. 

Spegillinn
Kennurum hótað og seðlabankastjóri um verðbólgu og lán

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 7, 2023 30:00

Spegillinn, 7. júní 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Foreldrar ganga oft mjög hart fram gagnvart kennurum ef börn þeirra fá ekki einkunnir sem duga til inngöngu í vinsælustu framhaldsskólana; leita jafnvel til lögfræðinga. Anna Lilja Þórisdótti ræddi við Valdimar Víðisson, skólastjóra í Öldutúnsskóla í Hafnarfiðri. Um áttatíu vörur eru í svokallaðri Verðgátt, sem opnuð var á netinu í dag. Þar getur fólk getur fylgst með matvöruverði í þremur stærstu verslunum landsins. Sunna Karen Sigurþórsdóttir sagði frá og talaði við Magnús Sigurbjörnsson hjá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Akstur verður bannaður í göngugötunni á Akureyri næsta sumar. Árum saman hefur verið tekist á um bílaumferð á um tæplega 200 metra stubb af Hafnarstræti. Ari Páll Karlsson tók saman og ræddi við Hildu Jönu Gísladóttur (S) bæjarfulltrúa. Vísindamenn í Noregi hafa hætt rannsókn á heyrn hvala -- eftir að einn hvalanna drukknaði. Alexander Kristjánsson gerði pistilinn. Búast má við talsverðri úrkomu á landinu öllu í kvöld og nótt. Drjúg rigning verður á Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum. Ástrós Signýjardóttir tók saman og ræddi við Óla Þór Árnason. ------- Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að atvinnurekendur geti ekki vikið sér undan ábyrgð á kjarasamningum. Þeir verði að gera samninga sem þeir geti staðið við án þess að velta hækkunum beint út í verðlag. Benedikt Sigurðsson ræddi við hann. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman . Flugfarþegar sem eiga leið um Heathrow flugvöll í Lundúnum um helgar í sumar mega búast við töfum og truflunum vegna verkfalls öryggisvarða. Þeir leggja niður störf í samtals þrjátíu og einn sólarhring. Ásgeir Tómasson tók saman. Wayne King, svæðisstjóri Unite stéttarfélags öryggisvarðanna, félagsins, Simon Calder, sérfræðingur í ferðamálum. Á fimmtán árum um 21 þúsund komið til VIRK vegna heilsubrests sem gerir þeim erfitt að ráða við vinnu. Sumir koma oftar en einu sinni en flestum hefur tekist að komast aftur til starfa. Umsækjendum hefur fjölgað stöðugt segir Vigdís Jónsdóttir forstjóri starfsendurhæfingarsjóðsins. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hana.

Spegillinn
Kennurum hótað og seðlabankastjóri um verðbólgu og lán

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 7, 2023

Fordómar í garð foreldra með fötlun, kafbátar og orkuskipti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 15, 2023

Dómsmálaráðherra segir álit umboðsmanns Alþingis um rafbyssuvæðingu lögreglunnar ekki hafa áhrif á stöðu sína sem ráðherra. Hann er ósammála álitinu um að bera hefði þurft málið undir ríkisstjórn. Embætti landlæknis hefur svipt sálfræðing starfsleyfi eftir að hann gerðist sekur um alvarleg brot í starfi. Hann er meðal annars sagður hafa gert ADHD-greiningar sem hvergi fengust viðurkenndar. Ragnar Þór Ingólfsson var í dag endurkjörinn formaður VR. Hann segist vilja mæta kröfum um breytingar innan félagsins. Foreldrar með fötlun mæta fordómum og fá ekki nægan stuðning. Þetta segir sérfræðingur Þroskahjálpar. Ríkari kröfur séu gerðar til uppeldis hjá þeim en öðru fólki. Íslensku barnabókmenntaverðlaunin verða ekki veitt í ár þar sem ekkert handritanna sem bárust þykir nógu gott. Starfandi formaður Rithöfundasambandsins segir lítið upp úr skrifunum að hafa. ------ Foreldrar með fötlun mæta miklum fordómum í samfélaginu og fá ekki nægan stuðning. Dæmi eru um að konum með þroskaskerðingu séu gefnir hormónar án þeirra vitundar til að koma í veg fyrir þungun. Í Kveik í gær var rætt við ungan mann sem ólst upp hjá seinfærum foreldrum. Þau mættu miklum fordómum þegar von var á drengnum fyrir um 20 árum, fullyrt var að hann myndi erfa fötlun foreldra sinna og þau voru hvött til að gefa drenginn frá sér. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir sérfræðingur hjá Þroskahjálp og doktorsnemi í þroskaþjálfafræði segir þessi viðhorf enn við lýði. Hún segir að ekki sé til nein sérstök tölfræði um fjölda seinfærra foreldra. Mörg dæmi séu um að seinfærir foreldrar séu hvött til að gefa frá sér börn sín. Rússar og Kínverjar fordæma þá ákvörðun Breta og Bandaríkjamanna að sjá Áströlum fyrir kjarnorkuknúnum kafbátum á næstu áratugum. Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti formlega samkomulag um samstarfið í San Diego í Kaliforníu. Viðstaddir voru forsætisráðherrar Ástralíu og Bretlands, þeir Anthony Albanese og Rishi Sunak. Biden sagði að til samstarfsins væri stofnað til að tryggja frelsi, velmegun og öryggi ríkja á Asíu-Kyrrahafssvæðinu með tækifærum fyrir alla. Á sama tíma og stefnt er að orkuskiptum þá lækkar lítið í stórum olíutunnum landsins. Olíuinnflutningur virðist ekki vera að minnka, þvert á móti. Kallað hefur verið eftir aukinni raforkuframleiðslu og að lagarammi verði gerður skýr um raforkuframleiðslu, og þá sér í lagi vindorkuna sem aukinn áhugi er fyrir. Stjórnmálamenn hafa verið hvattir til aðgerða í raforkumálum, raforkukerfið sé orðið fullnýtt og virkja þurfi meira - allt til að orkuskipti séu ekki orðin tóm. Þetta k

Spegillinn
Fordómar í garð foreldra með fötlun, kafbátar og orkuskipti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 15, 2023 9:33

Bráðaþjónusta, heimgreiðslur í Hafnarfirði. lúxushótel við Skálafell

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 13, 2023

Spegillinn föstudaginn 13. janúar 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Í dag var gefin út skýrsla um bráðaþjónustu í heilbrigðiskerfinu á Íslandi. Í skýrslunni eru lagðar fram 39 tillögur að breytingum og umbótum sem hægt er að ráðast í á næstu árum á ýmsum sviðum eins og mönnun, sjúkraflutningum, þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir mikinn feng í þessari nýju skýrslu. Hægt sé að hrinda mörgum þeirra í framkvæmd hratt og örugglega. Bjarni Rúnarsson ræddi við Willum og Jón Magnús Kjartansson, sérfræðing í bráðalækningum leiddi vinnu teymisins sem gerði skýrsluna. Foreldrar barna í Hafnarfirði sem hafa ekki fengið leikskólapláss geta sótt um heimgreiðslur upp á rúmlega hundrað þúsund krónur á mánuði. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri telur mikilvægt að fjölga valkostum foreldra. Repúblikanar á Bandaríkjaþingi krefjast þess nú að forsetinn Joe Biden opinberi upplýsingar um alla þá sem hafi sótt hann heim í Delaware, þar sem nokkur leyniskjöl hafa fundist undanfarnar vikur. Bandarískum yfirvöldum hafa borist yfir 350 tilkynningar um fljúgandi furðuhluti síðan í mars 2021. Engar skýringar hafa fundist á um helmingi tilkynninganna. Reykjavíkurborg og félagið Berjaya Land Berhad hafa gert með sér viljayfirlýsingu um gerð skipulags fyrir Kýrhólaflóa við Skálafell þar sem félagið hyggst reisa fimm stjörnu hótel með heilsulind, baðlóni og tengdri starfsemi. Viljayfirlýsingin var kynnt í borgarráði í gær. Kristín Sigurðardóttir sagði frá. Sprenging varð í dag í gasleiðslu nærri bænum Pasvalys í norðurhluta Litháen. Snjór hefur verið fluttur í Geirsnefið við Elliðaárvog í stórum stíl að undanförnu til að greiða leið vegfarenda höfuðborgarsvæðisins. Svava S. Steinarsdóttir heilbrigðisfulltrúi Reykjavíkurborgar segir að reynt sé að draga úr mengun með því að leyfa ekki að snjónum sé sturtað beint í sjóinn. Haukur Holm ræddi við hana. Varaskeifa eða Spare, ævisaga Harrys Bretaprins, hefur slegið öll sölumet. Bókin kom út á þriðjudaginn og á vef The Guardian kemur fram að bókin hafi selst í ríflega 400.000 eintökum í Bretlandi á fyrsta sólarhringnum og 1,4 milljónum eintaka ef Bandaríkin og Kanada eru talin með. Bókin seldist upp á fyrsta degi í Pennanum Eymundssyni. Hálf öld er liðin 14. janúar frá tímamóta tónleikum Elvis Presleys sem sendir voru út um gervihnött frá Hawaii til 36 landa. Talið er að allt að einn og hálfur milljarður sjónvarpsáhorfenda hafi fylgst með þeim.

Spegillinn
Bráðaþjónusta, heimgreiðslur í Hafnarfirði. lúxushótel við Skálafell

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 13, 2023 10:00

illverk
THE SUMMERFIELD MURDER (ÁSKRIFT)

illverk

Play Episode Listen Later Nov 23, 2022 5:33

Þann 18. apríl árið 2011 fékk lögreglan í Summerfield, Marion County í Florida tilkynningu um að Seath Jackson 15 ára, hafði ekki skilað sér heim. Foreldrar hans héldu í þá von að hann hafi bara gleymt sér með vinum, eða kærustunni sinni. Það átti þó fljótlega eftir að koma í ljós, að sannleikurinn bakvið hvarf hans var hrottalegur. Facebook-stríð og unglingadrama, varð til þess að Seath Jackson átti aldrei eftir að koma heim framar.  Þessi þáttur er í áskrift. Þú getur hlustað á hann í heild sinni með að skrá þig í ILLVERK ÁSKRIFT - Við skráningu færð þú aðgang að yfir 170+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði og þessa fríu vikulegu án auglýsinga, fyrir aðeins 950,-kr á mánuði! Skráðu þig strax í dag og fáðu þinn true-crime skammt allt árið um kring! ILLVERK.IS

Draugar fortíðar
#113 Hin djöfullega skelfing

Draugar fortíðar

Play Episode Listen Later Sep 7, 2022 110:53

Á fyrrihluta níunda áratugar reið einkennilegt fár yfir Bandaríkin. Foreldrar, forráðamenn og kennarar unglinga þóttu greina þess augljós merki að myrkrahöfðinginn sjálfur væri að ná tökum á þeim. Það þóttist sjá greinileg merki um fórnarathafnir og aðrar myrka starfshætti sem tengjast illþýði helvítis. Frétta - og spjallþættir voru uppfullir af umræðu um "satanic panic" og svo rammt kvað að þessu að bandaríska alríkislögreglan sá sig knúna til að setja saman teymi til að rannsaka hvort eitthvað væri hæft í þessu. Ýmis fyrirtæki urðu fyrir barðinu á þessu, þóttu ganga erinda Satans þótt þau framleiddu snyrtivörur eða annað saklaust. Hlutverkaspilið Dungeons & Dragons var fordæmt af þeim sem sáu Satan alls staðar. Þetta virkar hlálegt en á þessu er grafalvarleg hlið því þetta kostaði bandarískt samfélag margar milljónir dollara og saklaust fólk var svipt frelsi sínu og ærunni. Þetta var nánast eins og galdraofsóknir 17. aldar. En hefur "satanic panic" horfið með öllu eða aðeins breytt um svip? Í stað Satans er nú kominn hinn óþekkti Q og QAnon. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

Spegillinn
Skýrslutökur, sprengingar á flugvöllum, leikskólamál og atvinnuleysi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 11, 2022

Blaðamennirnir fjórir sem hafa réttarstöðu sakbornings vegna meintra brota á friðhelgi einkalífs hafa verið boðaðir til skýrslutöku hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra að nýju. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar fjársvik sem viðskiptavinir Landsbankans urðu fyrir. Hópur sakborninga setti upp skuggasíður til að hafa af fólki fé. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá. Íslendingar, ásamt hinum norðurlöndunum, vilja standa fyrir þjálfun í sprengjuleit og sprengjueyðingu í Úkraínu. utanríkisráðherra, kynnti verkefnið á ráðstefnu í Kaupmannahöfn í dag. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman og ræddi við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur. Á sjöunda hundrað börn, tólf mánaða og eldri, eru á biðlista eftir leikskólaplássi í Reykjavík. Verið er að úthluta 200 leikskólaplássum þessa dagana. Haukur Holm sagði frá. Gervihnattarmyndir sýna verulegar skemmdir á herflugvelli á Krímskaga sem sprengjum var varpað á í vikunni. Enn er óvíst hverjir voru að verki. Rússar segjast ekki kannast við neina árás. Makríll mælist aftur í íslensku landhelginni eftir tveggja ára fjarveru. Í árlegum sumarleiðangri sem farinn var í síðasta mánuði fannst makríll við suður-, vestur- og austurströnd landsins. Ágúst Ólafsson sagði frá. --------------------------------------------------------------------------------- Gervihnattarmyndir sýna umtalsverðar skemmdir á rússneskum herflugvelli á Krímskaga eftir miklar sprengingar urðu þar á þriðjudag. Rússar neita því að árás hafi verið gerð á völlinn og Úkraínumenn hafa ekki gengist við því að hafa verið að verki. Að auki hafa borist af því óstaðfestar fréttir að sprengingar hafi heyrst frá herflugvelli í Hvíta-Rússlandi í gærkvöld. Stjórnvöld vísa því á bug að hann hafi orðið fyrir árás. Ásgeir Tómasson tók saman. Foreldrar barna sem ekki hafa fengið dagvistun fyrir börn sín í haust komu saman í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun og létu í ljós óánægju sína með úrræðaleysi borgarinnar. Í vor hljómuðu loforð um að öll börn 12 mánaða og eldri fengju leikskólapláss í haust. Haustið er á næsta leiti og foreldrar um og yfir tveggja ára barna bíða enn eftir leikskólaplássi fyrir börnin sín. Albína Hulda Pálsdóttir er stjórnarkona Samtaka foreldra leikskólabarna í Reykjavík. Hafdís Helga Helgadóttir tók saman. Skráð atvinnuleysi var minna í júlí en verið hefur um árabil eða frá því vorið 2019. Atvinnulausum hafði fækkað um hátt í fjögur hundruð frá því í júní. Um þrjú þúsund og fimm hundruð karlar voru án atvinnu og um þrjú þúsund og eitt hundrað konur. Atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum eins og verið h

Spegillinn
Skýrslutökur, sprengingar á flugvöllum, leikskólamál og atvinnuleysi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 11, 2022 29:59

Afsögn forseta ASÍ og svefn og svefnvandi barna

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 10, 2022

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra segir eftirsjá að Drífu Snædal úr forsetastóli ASÍ, hún hafi verið góður talsmaður verkalýðshreyfingarinnar og samstarfið við hana hafi verið gott. Haukur Holm sagði frá. Nýja hraunið í Meradölum hefur hækkað um hátt í átta metra síðustu daga og styttist í að það flæði yfir haft þar að austanverðu. Það er nánast daglegt brauð að skipt sé um lyfjaheiti á sama virka efninu í sérlyfjum, að sögn Ragnars Gríms Bjarnasonar barnalæknis. Þetta auki hættu á að gefnir séu rangir skammtar. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar hefur óskað eftir fundi í velferðarnefnd Alþingis til að ræða skort á lífsnauðsynlegum lyfjum fyrir börn, sem hefur ítrekað komið upp undanfarin ár. Þórgnýr Einar Albertsson talaði við hana. Yfirvöld í Rússlandi staðhæfa að sprengingar sem skóku mikilvægan herflugvöll á Krímskaga í gær hafi verið óhapp en ekki árás Úkraínumanna. Markús Þórhallsson tók saman. Ole Stobbe, kærasti blaðakonunnar Kim Wall sem myrt var fyrir fimm árum í Danmörku segir að fjölmiðlar hafi ítrekað farið yfir mörkin í umfjöllun um málið. Ólöf Rún Erlendsdóttir sagði frá. ---------- Afsögn forseta Alþýðusambands Íslands eru stórtíðindi, segir Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum en óvíst er hver áhrifin verða á komandi kjarasamninga. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Brot úr viðtali við Drífu Snædal. Foreldrar skiptist á ófáanlegum lyfseðilsskyldum svefnlyfjum fyrir börn sín í foreldrahópum á Facebook. Erla Björnsdóttir, sérfræðingur í svefnvanda segir of auðvelt að fá svefnlyf og lítið um aðrar lausnir hér. Hafdís Helga Helgadótti ræddi við hana. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Spegillinn
Afsögn forseta ASÍ og svefn og svefnvandi barna

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 10, 2022 10:31

Langlíft eldgos, húsleit hjá Trump og lyf á facebook

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 9, 2022

Velkomin að speglinum. Umsjón hefur Hafdís Helga Helgadóttir. Vísindamenn segja að búast megi við því að eldgosið á Reykjanesskaga verði langlíft. Gervihnattamyndir sýna landbreytingar á skaganum en vísindaráð almannavarna telur það ekki vera vegna kviku. Alríkislögregla Bandaríkjanna gerði í gær fyrirvaralausa húsleit í húsakynnum Trump, fyrrverandi forseta. Leitað var klukkustundum saman að leyniskjölum sem óvitað er hvort hafi fundist. Foreldrar verða sér út um ófáanleg lyf á samfélagsmiðlum. Yfirlæknir barnaspítalans segir mikla ábyrgð liggja á herðum þess sem útvegi barni lyf ólöglega, komi til alvarlegs atviks. Sérfræðingur ASÍ segir mikilvægt að styðja vel við barnafjölskyldur á tímum verðhækkana. Yfir hundrað prósent munur er milli sveitarfélaga þegar kemur að gjöldum fyrir skóladagvistun og mat. Rússlandsstjórn bregst illa við ákalli forseta Úkraínu um að Vesturlönd banni komur rússneskra ferðamanna. Talsmaður Rússlandsstjórnar segir kröfuna út í hött. Veðrið hefur leikið við íbúa á Austurlandi í dag. Von er á hlýrra lofti suðvestanlands, en því fylgja djúpar lægðir að sögn veðurfræðings.

Spegillinn
Langlíft eldgos, húsleit hjá Trump og lyf á facebook

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 9, 2022 30:00

THE GLAM GIRL SLAYER

illverk

Play Episode Listen Later Aug 6, 2022 47:29

Jæja, eftir mánaðar frí frá laugardags þáttunum, held ég að sé best að koma sér aftur til starfa og bomba af stað í 3. seríu af illverk podcast! Við byrjum seríuna með trompi og kynnum okkur sögu Harvey Glatman, einnig þekktur sem The Glam Girl Slayer. Frá blautu barnsbeini var Harvey ekki eins og önnur börn. Foreldrar hans fundu á sér að það amaði eitthvað að honum, en gátu ekki sagt til um nákvæmlega hvað. Hann óx úr grasi sem þessi fárveiki einstaklingur sem að lifði á kvölum annara. Ótti nærði hann og fullnægði honum kynferðislega. Saga hans er það átakanleg og skelfileg að aðrir raðmorðingjar tóku hann til fyrirmyndar. Harvey var aðal átrúnaðargoð raðmorðingjans Dennis Rader. AKA BTK.    ** Þátturinn inniheldur frásagnir sem mörgum gæti þótt erfitt að hlusta á. Kynferðisofbeldi, kynferðislega brengluð börn og morð *** Í BOÐI: SIXT LANGTÍMALEIGU 

FantasyGandalf
#22 - Brjálaðir foreldrar og 10 litlir negrastrákar....er það í lagi?

FantasyGandalf

Play Episode Listen Later Jul 7, 2022 78:43

N1 mótið á Akureyri fékk pláss, matarvenjur í Covid gerðu það að verkum að núna eru 3-4 nammi dagar í viku. Fordómar gagnvart rauðhærðum (Simmi ekki sáttur) á Írskum dögum. Við veljum vini okkar eftir lykt og lögregludagbókin var á sínum stað. Við vorum auðvitað léttir, ljúfir og kátir þessa vikuna. Góða skemmtun !

Morgunútvarpið
8. jún - Lúpína, íþróttalið, atvinnuleysi, neysluskammtar og hjól

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 8, 2022

Lúpínan er í miklum blóma um land allt um þessar mundir en sitt sýnist hverjum um ágæti hennar. Það gæti þó lokkað fleiri yfir í hóp jákvæðra gagnvart lúpinunni að vita að jurtin er ekki bara dugleg við að fjölga sér, heldur líka til margs nytsamleg en Háskóli Íslands hefur m.a. rannsakað hennar fjölmörgu eiginleika. Við ræddum nytjajurtina lúpínu við Björn Viðar Aðalbjörnsson lektor í Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands Foreldrar barna sem stunda hinar ýmsu íþróttagreinar í þéttbýliskjörnum vítt og breitt um landið eru orðin langþreytt á skrópsýki íþróttaliða af höfuðborgarsvæðinu þegar boðið er til leiks. KSÍ hefur þessa skrópsýki til skoðunar en við ræddum þessi mál við Birki Sveinsson sviðsstjóra innanlandssviðs KSÍ. Enn saxast á atvinnuleysið hér á landi en árstíðarleiðrétt mældist það 2,5% í apríl. Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar var gestur okkar fyrir klukkan átta. Lögreglan hafði afskipti af 781 einstaklingi í fyrra vegna neysluskammta og hefur ekki haft afskipti af færri einstaklingum vegna vörslu ávana- og fíkniefna til eigin nota á síðustu tíu árum. Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, kom til okkar og ræðir þessa þróun. Við höldum áfram að velta fyrir okkur öllum þeim vendingum í utanríkismálunum sem leitt hafa af innrás Rússa í Úkraínu. Tyrkir hyggjast standa gegn inngöngu Svía í NATO nema landið gangi að skilmálum þeirra um að framselja til þeirra fólk sem flúið hefur landið vegna pólitískra ofsókna Erdogan Tyrklandsforseta. Við ræddum þessa stöðu við Rósu Björk Brynjólfsdóttur, fyrrverandi varaforseta Evrópuráðsþingsins. Eins og fram hefur komið í fréttum rannsakar lögreglan nú hvort ekið var á hjólreiðamann af ásetningi á laugardagskvöld. Við ræddum við Árna Davíðsson, formann Landssamtaka hjólreiðamanna, um viðhorf akandi einstaklinga til hjólandi. Tónlist: Jóhann G. Jóhannsson - Dont try to fool me Kate Bush - Running up that hill Sam Fender - Getting started Lón - Reindeer Ellen Kristjánsdóttir - Velstu stjörnu Fleetwood Mac - Everywhere Purple Disco Machine - In the Dark Nýdönsk - Horfðu til himins

Eigin Konur
Elísabet Ormslev

Eigin Konur

Play Episode Listen Later Feb 28, 2022 88:22

Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur Söngkonan Elísabet Ormslev opnaði sig um samband sitt við tónlistarmanninn Pétur Örn, betur þekktur sem Pétur Jesús. Samband þeirra byrjaði þegar hann var 38 ára og hún 15-16 ára, áður en hún útskrifaðist úr grunnskóla. Hann sagði snemma við hana að það mætti enginn komast að þessu vegna aldurs hennar því fólk myndi dæma hann og hann myndi missa vinnuna. Foreldrar hennar reyndu að senda á Pétur og hafði pabbi hennar samband við móðir Péturs sem tók ekki vel í skilaboðin og sagði Pétur vera fullorðinn einstakling sem mætti gera það sem hann vildi. Í þessu einlæga viðtali talar Elísabet um hvaða afleiðingar þetta hefur haft á hana og líf hennar. Hún segir hann hafa haldið henni í heljargreipum og stýrt henni eins og strengjabrúðu. Elísabet var farin að fá martraðir og þegar henni var farið að dreyma hann vera að meiða barnið hennar hafi hún ákvað að skila skömminni þangað sem hún á heima: hjá Pétri. Þátturinn er í boði: The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is

Kiss Army Iceland Podcast
048 - Tímabær þáttur

Kiss Army Iceland Podcast

Play Episode Listen Later Jan 25, 2022 118:50

Stanley Bert Eisen (síðar þekktur sem Paul Stanley) er fæddur í borginni New York í Bandaríkjunum þann 20.janúar árið 1952 og er hann því nýorðin sjötugur þegar þessi þáttur kemur út enda fóru upptökur fram á sjálfan afmælisdaginn. Foreldrar hans kynntust í New York þar sem þau voru bæði hluti af gyðingasamfélaginu þar í borg en þau flúðu sveitir Nasista sem börn ásamt fjölskyldum sínum í síðari heimsstyrjöldinni, og það alla leið til Bandaríkjanna frá Póllandi annars vegar og Þýskalandi hins vegar. Paul uppgötvaði tónlistina frekar ungur og á unglingsárunum var hann meðlimur í nokkrum hljómsveitum. Má þar nefna bönd eins og „Uncle Joe“ „Furthermore“ og „Post War Baby Boom“. En til að gera nokkuð langa sögu stuttu þá var það svo sannarlega hans gæfa þegar hann var svo kynntur fyrir Gene Simmons einn daginn því síðan hafa þeir verið hinir mestu mátar. Saman stofnuðu þeir ásamt fleirum hljómsveitina Rainbow árið 1970 en breyttu nafni bandsins í Wicked Lester ári síðar. Það var svo í janúar 1973 að hljómsveitin KISS varð til og the rest is Kissstory. Við kíkjum aðeins á Paul í þessum þætti og notum til þess nokkuð áhugaverðan vinkil. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.

Eigin Konur
Að eiga narsisíska móðir

Eigin Konur

Play Episode Listen Later Jan 11, 2022 12:59

Hún opnar sig um ástandið heima hjá sér og hvernig það er að eiga mömmu sem er Narcissistic. Þeir sem þjást af narsisískri persónuleikaröskun eru yfirleitt ekki færir um að hafa samúð með tilfinningum annara. Hún talar um hvernig allt snérist um ímyndina heima fyrir og byrjaði þetta þegar hún var mjög ung. Áður en hún var lögráða að þá var mamma hennar farin að segja við hana að það væri betra fyrir alla ef hún myndi bara deyja, að hún væri alltof feit, að hún gæti ekki niður og eyddi mestum tíma í að brjóta hana niður. Einu hrósin sem hún fékk var þegar hún missti kíló. Hún vill vekja athygli á þessu djúpstæða ofbeldi og hvernig áhrif þetta getur haft, og talar hún um að hafa verið komin svo langt niður að henni langaði ekki til þess að lifa lengur. Foreldrar geta verið óþolandi strangir, stjórnandi, ofverndandi eða ósanngjörn. Það þarf hinsvegar að lesa á milli línanna og gera grein fyrir að sumar gjörðir fara langt yfir strikið og falla inn á svið tilfinningalegrar, munnlegrar og líkamlegrar misnotkunar. Það er ekki ekki hægt að réttlæta það sem “ást” eða líta svo á að þða komi frá ást og umhyggju, þetta er ofbeldi og misnotkun.

Spegillinn
Spegillinn 10. desember 2021

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 10, 2021 10:11

Komiði sæl og velkomin að Speglinum. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir er umsjónarmaður. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Starfsfólk heilsugæslustöðvarinnar Höfða hefur sinnt neyðarkalli stjórnvalda frá því kórónuveirufaraldurinn hófst án þess að nokkrar greiðslur hafi komið fyrir, en kostnaðurinn er líklega á annan tug milljóna króna. Framkvæmdastjóri Höfða segir að kallinu verði áfram sinnt þrátt fyrir það. Helmingi fleiri leita nú til Ljóssins, stuðningsmiðstöðvar fyrir fólk með krabbamein, en fyrir tveimur árum og húsnæðið er sprungið. Þörfin fyrir slík úrræði eykst mikið á næstu árum því krabbameinstilvikum fjölgar og fleiri lifa meinið af. Hátt í þrettán hundruð tilfelli omíkron-afbrigðis kórónuveirunnar hafa verið greind í Danmörku. Flest eru þau á Kaupmannahafnarsvæðinu. Foreldrar þurfa að kynna sér hvernig Instagram-skilaboð virka, jafnvel opna eigin TikTok-aðgang til að skilja betur umhverfi barna sinna á netinu. Þetta segir deildarstjóri í Frístundamiðstöðinni Tjörninni í Reykjavík. Lengri umfjöllun: Foreldrar þurfa að kynna sér hvernig Instagram-skilaboð virka, jafnvel opna eigin TikTok-aðgang til að skilja betur umhverfi barna sinna á netinu. Þetta segir Andrea Marel, deildarstjóri unglingastarfs hjá Frístundamiðstöðinni Tjörninni í Vesturbæ Reykjavíkur. Hún hefur um árabil farið í skóla og félagsmiðstöðvar og frætt börn og unglinga um samskipti og mörk á samfélagsmiðlum. Sigríður Hagalín Björnsdóttir ræddi við Andreu í dag, meðal annars í tengslum við alvarlegt kynferðisbrotamál gegn 14 ára stúlku sem greint var frá í gær. SHB Einn af hverjum þremur Íslendingum getur búist við því að fá einhvern tímann krabbamein. Um miðbik síðustu aldar var það oftast dauðadómur, 70 prósent þeirra sem greindust létust innan fimm ára. Nú hefur staðan snúist við. Um tveir af hverjum þremur sem greinast lifa af. Það fjölgar sífelltí þessum hópi sem Krabbameinsfélagið kallar lifendur og svo verður vonandi áfram á næstu árum. Það kallar á að kerfið bregðist við, því þessi hópur þarf margs konar þjónustu. ARH

Morgunútvarpið
10. nóv. - Bitcoin, HOPP Færeyjar, rannsókn, menntamál, Akranes

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Nov 10, 2021 130:00

Gengi rafmyntarinnar Bitcoin hefur aldrei verið hærra og stóð gengið í rúmlega 68.500 dollurum í gær. Virði myntarinnar hefur aukist um 342 prósent á árinu. Við ræddum við Kristján Inga Mikaelsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Rafmyntaráðs Íslands og einn eigenda GreenBlocks, sem tekur þátt í því að grafa fyrir myntinni hér á landi. Færeyska lögreglan lagði í sumar hald á fimmtíu rafskútur frá íslenska fyrirtækinu Hopp þar sem færeysk stjórnvöld hafa skilgreint rafskúturnar sem breytt vélhjól sem eru ekki leyfð í Færeyjum. Framkvæmdastjóri rafskútuleigunnar batt vonir við að hjólin yrði komin aftur á göturnar í Þórshöfn fyrir lok ágústmánaðar en svo fór ekki. Þau dúsa enn í kjallara lögreglustöðvarinnar í Þórshöfn. Við ræðum við Ebenezer Þórarinn Ásgeirsson, framkvæmdastjóra Hopp í Færeyjum, um stöðuna á þessum málum og kórónuveirufaraldurinn þar í landi. Á forsíðu Fréttablaðsins í gær var greint frá því að lögreglumenn væru ósáttir við ummæli Þorbjargar Ingu Jónsdóttur lögmanns þess efnis að lögreglan færi í manngreinarálit við rannsókn kynferðisbrota. Í því skyni heyrðum við í Hildi Fjólu Antonsdóttur, doktor í réttarfélagsfræðum, sem sagði frá rannsókn sem hún gerði sem varpar einmitt ljósi á það hvort slík rörsýn geti einkennt rannsókn kynferðisbrota hjá lögreglunni. Foreldrar barna sem hafa verið beitt hvers konar þvingun í skólanum sínum hafa stigið fram í fjölmiðlum undanfarna daga. Börnin eiga það oftar en ekki sameiginlegt að hafa sérþarfir en þeir foreldrar sem stigið hafa fram vilja meina að starfsmenn skólanna hafi gengið of langt í valdbeitingum gagnvart börnunum. Við ætlum að skoða þessi mál í stóra samhenginu og ræddum við Sigrúnu Daníelsdóttur verkefnastjóra geðræktar hjá Embættis Landlæknis en embættið lagðist árið 2019 í heilmikla rannsóknarvinnu og gaf í kjölfarið út aðgerðaráætlun um innleiðingu geðræktarstarfs, forvarna og stuðnings við börn og ungmenni í skólastarfi. Upp eru komin ansi mörg Covid-19 smit hjá Skagamönnum en ríflega 130 þeirra má rekja til karíókíkvölds sem haldið var um helgina. Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akranesbæjar, var á línunni hjá okkur. Magnús Þór Jónsson, skólastjóri í Seljaskóla, hafði sigur í formannskjöri í Kennarasambandi Íslands í gær en formannsskipti verða á þingi sambandsins í apríl á næsta ári. Við ræddum við Magnús um málefni kennara og þær breytingar sem hann vill gera á Kennarasambandinu. Tónlist: Komdu til baka - Elín Hall Shivers - Ed Sheeran Lætur mig - GDRN, Flóni og Sinfó Disillusion - Badly Drawn Boy Barcelona - Hákon

Spegillinn
2. nóvember 2021 Bjartsýni í Glasgow

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 2, 2021 9:38

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Markús Hjaltason Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra er bjartsýn á að á loftslagsráðstefnunni í Glasgow sjáist breyting frá ráðstefnunni í París. Í Glasgow sé rætt um beinar aðgerðir en ekki aðeins markmið. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hana. Yfir áttatíu þjóðir heita því að draga úr losun metangass úr andrúmsloftinu um þrjátíu af hundraði á næstu níu árum. Aðgerðirnar eru sagðar kosta lítið sem ekkert. Ásgeir Tómasson sagði frá. Gert er ráð fyrir áframhaldandi hallarekstri hjá Reykjavíkurborg á næsta ári. Auknar fjárfestingar eru fyrirhugaðar en skuldir aukast sömuleiðis. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman. Knapi sem vikið var úr landsliði hestamanna um helgina segir stjórnarmenn Landssambands hestamannafélaga og forsvarsmenn landsliðsins hafa lengi vitað um dóm sem hann hlaut fyrir kynferðisbrot árið 1994. Landsliðseinvaldur segist hafa vitað óljóst af málinu. Bjarni Rúnarsson sagði frá. Mjólkursamsalan stendur árlega fyrir teiknisamkeppni fyrir fjórðubekkinga í grunnskólum landsins í tilefni alþjóðlega skólamjólkurdagsins. Foreldrar hafa nokkrir gagnrýnt að stórfyrirtæki fái slíkan aðgang að börnum og einnig fullyrðingar um hollustu mjólkur sem þykja úreltar. Anna Þorbjörg Jónasdóttir ræddi við Eyrúnu Gísladóttur, móður og grænkera. ---------- Það virðast örlög afgönsku þjóðarinnar að vera á stöðugum flótta. Margir þeirra sem sneru heim úr útlegð fyrir 20 árum, við fall Talíbanastjórnarinnar, flýja nú landið enn á ný, segir fréttaritari okkar í Kabúl. Jón Björgvinsson í Kabúl sagði frá. Þing Norðurlandaráðs hófst í Kaupmannahöfn í gær í Kristjánsborgarhöll. Þar er rætt um hvaða lærdóm megi draga af kórónuveirukreppunni og hvernig efla megi samstarfið. Viðbrögð Norðurlandanna hvers um sig þegar brast á með faraldri þótti sýna fram á nokkra bresti, til dæmis þegar bætt var í takmarkanir á landamærum þeirra á milli og ríkin fóru hvert í sína áttina með ráðstafanir, segir Kristján Sveinsson sagnfræðingur.Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann. Bretar og Frakkar hafa gert hlé á fiskirimmu sinni en deilan er ekki á enda. SIgrún Davíðsdóttir hefur fylgst með þeirri rimmu.

Morgunútvarpið
20. okt. - Míuverðlaun, efni, aldurstakmörk, nektarmyndir og Naglinn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 20, 2021 130:00

Míuverðlaunin eru verðlaun sem heiðra þau sem koma að þjónustu langveikra barna á einn eða annan hátt. Hægt er að tilnefna heilbrigðisstarfsmann í hvaða starfstétt sem er, hvar á landinu sem er. Þær Þórunn Eva G. Pálsdóttir og Fríða Björk Arnardóttir komu til okkar í morgunkaffi til að segja okkur meira, en þær vita allt um málið. Talið er að um 10 milljónir efna bætist við á hverju ári í hóp efna sem skaðleg eru fólki og rannsóknir taka sinn tíma, svo niðurstöður liggja ekki alltaf strax fyrir. Það leiðir til þess að stjórnvöld ná ekki að setja reglur til að takmarka eða banna framleiðslu og notkun þeirra nógu tímalega. Í hádeginu í dag er opinn fyrirlestur um skaðleg efni á heimilinu á vegum Umhverfisstofnunar og við fengum Bergdísi Björk Bæringsdóttur, sérfræðing á sviði efna, eftirlits og veiðistjórnunar til að segja okkur aðeins af þessu. Við veltum fyrir okkur aldurstakmörkunum á kvikmyndum, en athygli vekur að íslenska kvikmyndin Leynilögga sem frumsýnd er í þessari viku, er í boði annars vegar fyrir 12 ára og eldri og hins vegar 16 ára og eldri. Í hverju liggur munurinn og hverjar eru reglurnar? Er regluverkið hér það sama og erlendis eða annað? Hallgrímur Kristinsson formaður Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði kom til okkar og fræddi okkur um þetta. Í sjónvarpþættinum Kveik í gærkvöldi á RÚV kom fram að nærri 60 prósent stelpna í 10. bekk hafa verið beðnar um að senda af sér nektarmynd eða ögrandi mynd og rúm 30 prósent hafa þegar gert það. Í þættinum var talað við tvær grunnskólastúlkur sem seldu af sér kynferðislegar myndir og notaðar nærbuxur í fyrrasumar, þá 13 ára. Mörgum er brugðið eftir umfjöllunina og foreldar vilja vita hvernig bregðast á við og fræða börn sín, af öllum kynjum. Foreldrar hafa verndarskyldu gagnvart börnum, en vankunnátta og skortur á þekkingu kemur oft í veg fyrir að hún skili sér. Til að ræða þessi mál kom til okkar Margrét K. Magnúsdóttir forstöðumaður Barnahúss. Ragnhildur Þórðardóttir, sálfræðingur og einkaþjálfari, einnig þekkt sem Ragga Nagli, er einn þekktasti heilsu ráðgjafi landsins. Hún er þó ekki búsett á Íslandi, heldur í Danmörku, en er stödd á landinu um þessar mundir og við gripum því tækifærið og fengum hana í heimsókn í smá heilsuspjall að hausti. Tónlist: Geiri Sæm og Hunangstunglið - Er ást í tunglinu? GDRN - Næsta líf. Lorde - Mood ring. Adele - Easy on me. Gugusar - Röddin í klettunum. U2 - Pride in the name of love. Dua Lipa - Love again. Herbert Guðmundsson - Með stjörnunum. Lenny Kravitz - Let love rule. Lón - Earthquake.

Eigin Konur
29. Lenya Rún - Yngsti þingmaður sögunnar

Eigin Konur

Play Episode Listen Later Oct 6, 2021 58:02

Lenya Rún Taha Karim er 21 árs, þingmaður Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, er yngsti þingmaður sögunnar til að ná kjöri. Það varði reyndar bara í 9 klukkutíma þar sem einhver skandall átti sér stað við talningu konsninga. Lenya er fædd og uppalin á Ísland og er núna í lögfræði. hún verður fyrir rasisma vegna þess að hún er brún á hörund. Foreldrar hennar eru frá Kúrdistan en Lenya fæddist hér eftir að þau fluttust til Íslands. Hún hefur fengið ótal misgáfuleg nafnlaus skilaboð á samfélagsmiðlum þar sem hún er minnt að hún sé brúnni en margir. Við ræddum aðeins um þau málefni sem hún brennur fyrir og má segja að Lenya sé algjörlega ómissandi inn á þing.   Þátturinn er í boði:   https://omnom.is/

Spegillinn
Hraðpróf, aukin glæpastarfsemi, fáir andaungar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 23, 2021 30:00

Spegillinn 23. ágúst 2021 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Heilbrigðisráðherra hefur heimilað sölu á ákveðnum tegundum hrað- og sjálfsprófa. Þeir sem fá jákvæða niðurstöðu úr prófunum þurfa að staðfesta niðurstöðuna með hefðbundnu covid-prófi. Enginn sjúklingur á Landakotsspítala hefur greinst með kórónuveiruna eftir að starfsmaður greindist smitaður á föstudag. Verkefnastjóri farsóttanefndar Landspítala segir mikið hafa verið gert til að forðast aðra hópsýkingu á spítalanum. Rætt við Hildi Helgadóttur, verkefnisstjóra farsóttanefndar Landspítala Bólusetning 12-15 ára barna hófst í Laugardalshöll í dag. Foreldrar og börn sem fréttastofa tók tali segja að kostir og gallar við bólusetningu hafi verið ræddir heima fyrir áður en ákvörðun var tekin. Rætt við Árna Jónsson, föður barns sem var bólusett og Maríu Skúladóttur og Matthildi Freyju Árnadóttur, sem voru bólusettar í dag Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í Mið-Austurlandafræðum segir að yfirtaka Talíbana í Afganistan sé algjör vendipunktur í sögu Mið-Asíu. Gæsaveiðitímabilið hófst um helgina. Ómar Örn jónsson, formaður Skotfélags Akureyrar hvetur veiðimenn til að herja á heiðargæs en gæta hófs í veiðum á grágæs. Glæpahópar færðu starfsemi sína að miklu leyti yfir á netið í kórónuveirufaraldrinum, segir varahéraðssaksóknari og yfirlögregluþjónn segir merki um að brotum gegn börnum hafi fjölgað í faraldrinum. Fjallað verður um verkefni lögreglunnar síðar í Speglinum. Alma Ómarsdóttir, ræðir við Grím Grímsson, yfirlögregluþjón á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Kolbrúnu Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara Varp við Tjörnina í Reykjavík var lélegt í ár eins og undanfarin ár, segir fuglafræðingur sem fylgst hefur með fuglalífinu þar í áratugi. Einungis um þrjátíu ungar komust á legg. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Ólaf K Nielsen, fuglafræðing hjá Náttúrufræðistofnun Íslands

Spegillinn
Hálfs árs börn bólusett?

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 12, 2021 30:00

Viðbúið er að farið verði að bjóða upp á bólusetningu barna allt niður í hálfs árs aldur eftir áramót, segir barnalæknir. Skynsamlegt sé að forða börnum frá veikindum og langtímaáhrifum covid. Mikil eftirspurn er eftir að komast í hraðpróf sem greina covid-sýkingu á innan við korteri. Nokkur einkafyrirtæki bjóða upp á þau. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst á morgun hjá embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. 23. ágúst verða opnaðir kjörstaðir í Smáralind og Kringlunni. Prófessor í stjórnmálafræði telur það nýnæmi að ríkisstjórn birti gröf og yfirlit yfir árangur sinn í lok kjörtímabils. Taka þurfi yfirlýsingum hennar með fyrirvara enda ákveðinn freistnivandi til staðar þegar pólitíkusar dæma eigið ágæti. Foreldrar og börn verða að ræða hvort þau ætli að þiggja bólusetningu við COVID-19, segir umboðsmaður barna. Hún segir að langflest tólf ára börn ættu að vera nógu þroskuð til að ræða málið af skynsemi og taka verði tillit til skoðana þeirra. Séu foreldrar og börn ósammála megi hugsanlega hinkra með bólusetningu og séu foreldrar innbyrðis ósammála sé hægt að leita ráðgjafar heilbrigðisstarfsfólks. Ragnhildur Thorlacius talar við Salvöru Nordal umboðsmann barna. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur skilað heilbrigðisráðherra tillögum um langtímaaðgerðir í baráttunni gegn COVID-19. Hann segir ljóst að grípa þurfi til hertra aðgerða ef Landspítalinn ræður ekki við ástandið. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir spurði Þórólf í dag um hvað felist í tillögunum um langtímasóttvarnaaðgerðir. Hiti á jörðinni hækkar og þar með hækkar verð á losunarkvótum fyrir mengandi orku. Vegna þessa hafa Norðmenn náð selja 10 prósent af sinni raforku beint úr landi það sem af er ári og reikna með tvöföldun á næsta ári. Mengunin í Evrópu eykur áhugann á raforku um sæstrengi frá norðlægum löndum. Gísli Kristjánsson segir frá.

Morgunútvarpið
29. jún - Ísafjarðarhöfn, meðvitaðir foreldrar, FÍB og vísindahornið

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 29, 2021 130:00

Við hringdum í Guðmund M. Kristjánsson, Mugga, sem er hafnarstjóri á Ísafirði og spyrjum um komur skemmtiferðaskipa vestur í sumar og hversu mikilvæg þau eru fyrir fjórðunginn. Og svo ætlum við líka að forvitnast um lífið á kæjanum. ?Einvera barns - ómannúðleg framkoma við barn" er titill á aðsendri grein sem birtist nýlega í Kjarnanum. Efni greinarinnar hefur vakið talsverða umræðu en í henni er gagnrýnd sú uppeldisaðferð sem kallast á ensku ?time-out", sem mætti þýða á íslensku sem leikhlé eða einfaldlega að senda einhvern í skammarkrókinn. Þær komu til okkar höfundar greinarinnar, þær Guðrún Inga Torfadóttir og Perla Hafþórsdóttir frá félagskapnum Meðvitaðir foreldrar - virðing í uppeldi, og sögðu okkur betur frá efni greinarinnar. Okkur sýnist sem að eldsneytisverð sé enn og aftur á uppleið. Hvað veldur? Við fengum Runólf Ólafsson, framkvæmdarstjóra FÍB, til okkar til að fara yfir stöðuna. Og í lok þáttar kom Sævar Helgi Bragason til okkar í Vísindahornið. Það síðasta fyrir sumarfrí. Tónlist: Bubbi Morthens - Fallegur dagur KK - Besti vinur Mugison - Sólin er komin Stjórnin - Hleypum gleðinni inn Taylor Swift - Willow Emilíana Torrini - Lay down Á móti sól - Stjörnublik U2 - Stay (faraway so close) Valgeir Guðjónsson - Þjóðvegur númer eitt

Segðu mér
Rakel Þórhallsdóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later Mar 29, 2021 40:00

Rakel er kennari og segir frá því þegar hún starfði í Laos og kenndi þar í einkaskóla. Rakel var að gefa út barnabók , og segir brosandi að þetta sé hryllingsbók sem gerið í Hafnarfirði. Foreldrar hennar báðir eru prestar og afi hennar einnig en hún hafði ekki áhuga á því starfi.

Morgunútvarpið
17. feb. - Seinfærir foreldrar, viskí, köttur, þjálfun og Spánn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 17, 2021 130:00

Landssamtökin Þroskahjálp hafa gefið út rit til þess að styðja við og leiðbeina þeim sem vinna með seinfærum foreldrum. Við slógum á þráðinn til Sigríðar Elínar Leifsdóttur þroskaþjálfa og annars höfundar ritsins og ræddum við hana um stöðu seinfærra foreldra í samfélaginu. Stefnt er að framleiðslu á alíslensku viskíi í Hrísey á næstu árum. Hugmyndin er rétt á byrjunarreit en þó er komin mynd á hana. Verkefnið fékk eins milljóna krónar styrk á dögunum frá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra. Björn Grétar Baldursson er maðurinn á bakvið verkefnið og hann var í símanum. Kötturinn Bella sem býr á Skeiðvöllum í Holta- og Landsveit fór í óvenjulegt ferðalag á dögunum. Við heyrðum í Katrínu Sigurðardóttur á Skeiðvöllum og fengum að heyra söguna af því hvernig Bella nýtti eitt af sínum níu lífum í ævintýraför um Suðurland. Tals­verð umræða hefur skap­ast eftir sýn­ingu heimildarmyndarinnar Hækkum Rána, þar sem fjallað er um þjálf­un­ar­að­ferðir ungra körfuknatt­leiks­stúlkna, og eru skoðanir skiptar. Einn þeirra sem hefur tjáð sig um málið er Viðar Halldórsson pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands, en hann ritaði grein í Kjarnann um það sem sjá má í myndinni. Viðar kom til okkar og fór yfir sín sjónarmið. Við heyrðum í Jóhanni Hlíðar Harðarsyni á Spáni sem sagði okkur af kosningum og fornleifauppgreftri m.a. Tónlist: Magnús Þór og Jónas Sig - Ef ég gæti hugsana minna. Bríet - Sólblóm. E.L.O. - Sweet talkin woman. Unnsteinn - Er þetta ást? KALEO - I want more. Robbie Williams - Let me entertain you. Bubbi Morthens - Á horni hamingjunnar. Seal - Crazy.

Spegillinn
Aðeins 10 manna jólaveislur

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 9, 2020 30:00

Hægt er að rekja 36 smit beint til líkamsræktarstöðva, sjö sinnum fleiri en til sundlauga. Eigendur líkamsræktarstöðva gagnrýna nýjar sóttvarnaráðstafanir og telja að stjórnvöld hafi gerst sek um mismunun. Þýskalandskanslari vill herða sóttvarnareglur þar sem baráttan gegn COVID-19 farsóttinni skilar ekki tilætluðum árangri. Hátt í sex hundruð létust í landinu síðastliðinn sólarhring. Bóksala gengur mun betur fyrir þessi jól en á sama tíma í fyrra. Þetta segir formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. Foreldrar sem eru vön að bjóða börnum og afkomendum sínum í jólaboð gætu þurft að gera upp á milli barna sinna vegna þess að miðað er við ekki séu fleiri en 10 fullorðnir í boðinu. Par sem heldur boð getur t.d. ekki fengið nema 8 gesti. Börn sem eru fædd 2005 og eftir það teljast ekki með. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Rögnvald Ólafsson. Rætt við fólk á Laugaveginum um sóttvarnir og jólahalda. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Sigrúnu Skaftadóttur, Söru Dögg Magnúsdóttur, Gróu Sigríði Einarsdóttur, Elmer Elmers, Ernu Hauksdóttur, Júlíus Hafstein, Guðmund Jónsson og Kristínu Árnadóttur. Óbyggðirnar kalla syngja þeir Magnús Eiríksson og KK og það er óhætt að segja að hálendið hafi kallað á þingmenn í gær þegar fyrsta umræða um Hálendisþjóðgarðsfrumvarpið fór fram á Alþingi. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra mælti fyrir frumvarpinu, sem er stjórnarfrumvarp. Umræðan stóð í tæpa níu klukkutíma og lauk um miðnætti. Óhætt er að segja að skoðanir séu skiptar um málið og tæplega hægt að halda því fram að eining sé um frumvarpið innan stjórnarliðsins. Kristján Sigurjónsson segir frá og það heyrist í Guðmundi Inga Guðbrandssyni og Jóni Gunnarssyni.

Spegillinn
Landsbankinn stærsti hluthafi Icelandair

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 30, 2020 30:00

Tap Isavía á fyrri hluta ársins nemur hátt í átta milljörðum. Tekjur fyrirtækisins drógust saman um 97% á öðrum ársfjórðungi. Tilkynningar um hópuppsagnir tæplega 300 manns hafa borist Vinnumálastofnun nú fyrir lok mánaðar. Talið er mögulegt að fimm skipverjar togara sem er á leið til Seyðisfjarðar séu smitaðir af kórónuveirunni. Verkefnastjóri á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi segir að litlar heimtur séu úr bakvarðasveit velferðarþjónustunnar. Fimm starfsmenn eru í sóttkví. Landsbankinn er stærsti hluthafinn í Icelandair eftir hlutafjárútboð fyrr í mánuðinum, með sjö og hálfs prósents hlut, og Íslandsbanki er þriðji stærsti hluthafinn, með sex og hálft prósent. Gildi lífeyrissjóður kemst upp á milli þeirra með 6,6 prósenta hlut. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Icelandair birti í Kauphöllinni. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins er fjórði stærsti hluthafinn með rúmra sex prósenta hlut og Brú, lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga, sá fimmti með tæpra fimm prósenta hlut. Foreldrar eiga rétt á að fá greidd laun á meðan þeir annast börn í sóttkví. Smitist börnin fellur þessi réttur úr gildi. Flugvirkjar sem starfa hjá Landhelgisgæslunni hafa boðað verkfall í lok næsta mánaðar. Nýr meirihluti í Múlaþingi vill að Björn Ingimarsson bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði verði bæjarstjóri nýja sveitarfélagsins. Flestir eru sammála um að fyrstu kappræður frambjóðendanna í bandarísku forsetakosningunum í nótt hafi verið ómálefnalegar, rætnar og háværar, og hvorugur þátttakandinn hafi grætt á þeim. Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur telur að þær geti helst orðið til þess að fæla óákveðna kjósendur frá kjörstað. Það sé Joe Biden og Demókrötum í óhag. Sigríður Hagalín Björnsdóttir talar við Silju Báru Ómarsdóttur. Svo getur farið að allsherjarverkföll hefjist í tveimur álverum í byrjun desember. Í álverinu í Straumsvík og álveri Norðuráls á Grundartanga. Atkvæðagreiðsla hefst á föstudaginn meðal starfsmanna Ísals í Straumsvík um að skæruverkföll hefjist 16. október og allsherjarverkfall 1. desember. Arnar Páll Hauksson talar við Kolbein Gunnarsson og Vilhjálm Birgisson. Eftir fjármálakreppuna 2008, þegar ríkisstjórnir víða um heim tóku á sig skuldir til að bjarga fjármálakerfum landa sinna, var víða tekið á auknum ríkisskuldum með miklum niðurskurði. En það er röng nálgun að líta á opinberar skuldir líkt og skuldir fyrirtækja eða heimila, segja hagfræðingar eins og Stephanie Kelton. Ef ríki skuldar hefur einhver fengið fé og þá skiptir öllu að féð sé vel nýtt, ekki hvort skuldirnar vaxi. Sigrún Davíðsdótti

Heimsglugginn
Margrét Danadrottning áttræð

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Apr 16, 2020 18:57

Bogi Ágústsson og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu um Margréti Þórhildi Danadrottningu sem er áttræð í dag 16. apríl. Hún fæddist nokkrum dögum eftir að Þjóðverjar hernámu Danmörku í síðari heimsstyrjöldinni. Foreldrar hennar, Friðrik krónprins og Ingiríður krónprinsessa, höfðu skömmu fyrir heimsstyrjöldina heimsótt Ísland, sem þá var enn í konungssambandi við Danmörku. Margrét var því líka íslensk prinsessa og var skírð íslenska nafninu Þórhildur. Í spjalli Björns Þórs og Boga er leikinn hluti úr viðtali við Margréti sem tekið var 1986 þar sem hún ræðir um þetta íslenska nafn sitt. Hátíðahöldin vegna afmælis drottningar verða með öðrum hætti en fyrirhugað var þar sem samkomubann er í Danmörku vegna kórónuveirufaraldursins. Engu að síður er hátíð í Danaveldi en drottningin og konungsfjölskyldan njóta mikillar hylli og stuðnings yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar.

Heimsglugginn
Margrét Danadrottning áttræð

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Apr 16, 2020

Barnsfæðing í Færeyjum, banaslys á Englandi og Brexit

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Oct 17, 2019

Í Færeyjum þurftu Rósa Heinesen og Niels Rødgaard, færeyskt par, búsett í Danmörku, að greiða hundruð þúsunda fyrir að fæða barn sitt í Færeyjum, þar sem þau teljast ekki vera með færeyska sjúkratryggingu. Þau vildu fæða barnið í Þórshöfn svo móðir Niels gæti séð fyrsta barnabarn sitt en hún er helsjúk af krabbameini. Í Bretlandi hefur banaslys í ágúst verið mikið í umræðu. Bandarísk kona, gift er diplómata varð 18 ára pilti að bana í bílslysi og flýði til Bandaríkjanna skömmu síðar. Ekki er hægt að krefjast framsals hennar þar eð hún nýtur diplómatískrar friðhelgi. Foreldrar piltsins eru nú í Bandaríkjunum að leita réttlætis og Trump Bandaríkjaforseti hitti þá í Hvíta húsinu. Brexit eina ferðina enn. Þegar þátturinn var sendur út var ekki vitað að samningar hefðu tekist milli ríkisstjórnar Bretlands og Evrópusambandsins um útgöngu Breta úr ESB. En það leikur vafi á því hvort Neðri-málstofa breska þingið samþykkti hann í atkvæðagreiðslu á laugardag. Sambandssinnar í DUP flokknum á Norður-Írlandi ætla ekki að styðja hann óbreyttan og stjórnarandstaðan leggst gegn honum.

Heimsglugginn
Barnsfæðing í Færeyjum, banaslys á Englandi og Brexit

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Oct 17, 2019 21:47