Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga og föstudaga.
Fyrirtækjaeigandinn Bjarni Thor og grafíski hönnuðurinn Hörður Ásbjörnsson eru miklir 90's menn og þeir kíktu til Hafsteins í sérstakan 1994 vs. 1999 þátt. Hafsteinn stillti upp 12 kvikmyndum frá 1994 og setti þær á móti 12 kvikmyndum frá 1999. Strákarnir velja síðan í sameiningu einn sigurvegara í hverri lotu og komast að því í lokin hvort árið sé betra kvikmyndaár. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort Forrest Gump sé betri en The Green Mile, hvort Ace Ventura sé betri en Office Space og margt, margt fleira.00:00 - Intro00:12 - 1994 vs. 199907:46 - Pulp Fiction vs. Magnolia15:22 - The Shawshank Redemption vs. American Beauty21:54 - The Lion King vs. The Iron Giant28:04 - Ace Ventura vs. Office Space40:32 - Dumb and Dumber vs. Being John Malkovich53:39 - Leon vs. The Matrix1:08:01 - True Lies vs. Fight Club1:15:36 - Forrest Gump vs. The Green Mile1:25:30 - Once Were Warriors vs. The Insider1:35:01 - The Crow vs. The Sixth Sense1:39:16 - The Legends of the Fall vs. Eyes Wide Shut1:46:51 - Ed Wood vs. Sleepy Hollow1:56:18 - Almennt bíóspjall
Kvikmyndafræðingurinn Birgir Smári Ársælsson er mikill Star Wars áhugamaður og hann kíkti til Hafsteins til að ræða fjórðu Disney+ Star Wars seríuna, Andor. Birgir og Hafsteinn ræða meðal annars hversu vönduð serían er, hversu sterk persónusköpun er í þáttunum og hvernig serían nær að sýna andspyrnuna í nýju ljósi. Strákarnir fara einnig aðeins út fyrir Andor og ræða Star Wars heiminn í heild sinni, hversu spennandi persóna Thrawn er, hvernig The Clone Wars styrkti prequel þríleikinn, hvort Star Wars eigi frekar heima í kvikmyndahúsum og margt, margt fleira.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen er rosalegur The Last of Us aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða hina vinsælu HBO seríu sem hefur vakið mikla lukku meðal áhorfenda og gagnrýnenda. Strákarnir ræða einnig tölvuleikinn, The Last of Us Part II, hversu góð Pedro og Bella eru í sínum hlutverkum, hvort það hefði ekki mátt vera aðeins meiri hasar í seríunni, hvort peningurinn hafi klárast í síðasta þættinum, hversu góð aðlögun serían er og margt, margt fleira.00:00 - Intro00:15 - Egill er grjótharður The Last of Us maður01:38 - The Last of Us tölvuleikurinn 201304:54 - The Last of Us Part II 202006:20 - The Last of Us - HBO serían1:46:41 - The Last of Us Part II - SPOILERSPJALL
Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða eina stærstu kvikmyndapersónu allra tíma, Indiana Jones. Strákarnir fara yfir fyrstu fjórar Indiana Jones myndirnar og ræða meðal annars hversu magnaður Harrison Ford er fyrir framan myndavélina, hvort The Last Crusade sé betri en Raiders of the Lost Ark, hvort gamall Ford eigi eftir að virka í fimmtu myndinni, hvort Temple of Doom sé vanmetin og margt, margt fleira.00:00 - Intro00:15 - Af hverju gerðu þeir Indiana Jones?05:37 - Raiders of the Lost Ark53:23 - The Temple of Doom1:09:26 - Sögur um mýs1:16:02 - The Temple of Doom1:29:37 - The Last Crusade2:20:28 - The Kingdom of the Crystal Skull2:47:26 - Warner Bros og Ezra Miller2:49:41 - Indy og Tinni2:54:36 - Indiana Jones 5
Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon mættu til Hafsteins í Óskarsverðlaunaþátt en Hafsteinn kom þeim fyrst á óvart með stuttri spurningakeppni. Hafsteinn er að vinna í kvikmyndaspurningaspili sem hann ætlar að gefa út fyrir næstu jól og honum datt í hug að prófa nokkrar spurningar á strákunum. Úr varð skemmtileg keppni sem enginn má missa af!
Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon eru allir miklir Óskarsverðlaunaáhugamenn og þeir kíktu til Hafsteins til að ræða þessar tíu kvikmyndir sem eru tilnefndar sem besta kvikmynd ársins. Í þættinum ræða þeir myndirnar The Brutalist, Wicked, Emilia Peréz, Dune: Part Two, The Substance, Nickel Boys, A Complete Unknown, Anora, Conclave og I'm Still Here.00:00 - Intro00:15 - Lélegar myndir í ár?05:10 - The Brutalist34:55 - Wicked48:34 - Emilia Peréz1:10:06 - Dune: Part Two1:27:28 - The Substance1:52:29 - Nickel Boys2:03:55 - A Complete Unknown2:21:58 - Anora2:47:03 - Conclave3:03:18 - I'm Still Here3:23:02 - Lokaorð
Kvikmyndaáhugamennirnir Helgi Edwald Einarsson og Haukur Bjarnason kíktu aftur til Hafsteins og í þetta skiptið vildu strákarnir ræða lélegar myndir og góðar myndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar Battlefield Earth, Batman and Robin, La La Land, The Room, X-Men: First Class og Bullet Train.00:00 - Intro00:12 - Helgi og Haukur hafa komið áður03:52 - Ant-Man: Quantumania10:36 - The Mandalorian: Season 317:45 - The Room34:03 - Battlefield Earth52:18 - Batman and Robin1:11:34 - Mortal Kombat: Annihilation1:23:25 - X-Men: First Class1:36:22 - American Psycho1:50:30 - Bullet Train2:05:13 - La La Land
Leikkonan og samfélagsmiðlastjarnan Donna Cruz kíkti til Hafsteins með sinn topp 10 lista. Í þættinum ræða þau meðal annars Tucker and Dale vs. Evil, Flipped, Grand Budapest Hotel, Spirited Away, sjónvarpsseríuna From, hversu æðislegur Tom Hiddleston er, hvort það sé í lagi að horfa á döbbaðar myndir, hvort það sé í lagi fyrir kvikmyndanörda að fara ekkert í bíó í þrjá mánuði, hversu skemmtileg She's the Man er og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Donna er fastagestur 04:11 - Bíó og golf 06:39 - Sjónvarpsseríur (From og Silo) 14:25 - She's the Man 21:41 - Mean Girls 27:32 - Spider-Man: Into the Spider-Verse 38:39 - Rogue One 46:10 - Flipped 51:42 - Hereditary 58:38 - Treasure Planet 1:01:52 - Spirited Away 1:09:28 - The Shawshank Redemption 1:14:19 - Tucker and Dale vs. Evil 1:21:51 - Indiana Jones and the Last Crusade 1:27:36 - Coraline og Grand Budapest Hotel
Sylvester Stallone og Arnold Schwarzenegger eru tvær af stærstu hasarstjörnum kvikmyndasögunnar. Þeir hafa báðir leikið í mörgum hasarmyndum sem eru af flestum taldar klassískar myndir í hasargeiranum. Á tímabili var mikil keppni á milli þeirra og Hafsteini fannst því tilvalin hugmynd að láta nokkrar af þeirra myndum keppa sín á milli. Hafsteinn fékk til sín Ísrael og Brynjólf til að hjálpa sér að finna út hvort Stallone eða Schwarzenegger sé með betri myndir. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars Cliffhanger, Eraser, True Lies, Rambo II, Kindergarten Cop, Demolition Man, Tango & Cash og margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Stallone vs. Schwarzenegger 07:24 - Cliffhanger vs. Eraser 23:41 - Tango & Cash vs. Twins 36:40 - Rocky vs. Predator 55:19 - Stop! or my Mom will Shoot vs. Kindergarten Cop 1:12:14 - Cobra vs. Commando 1:25:21 - Lock Up vs. Conan the Barbarian 1:37:50 - Rambo II vs. T2 1:54:33 - Demolition Man vs. True Lies 2:12:34 - Lokaorð
Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíkti til Hafsteins til að ræða einn merkilegasta kvikmyndagerðarmann allra tíma, Stanley Kubrick. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar 2001: A Space Odyssey, A Clockwork Orange, Barry Lyndon, The Shining, Full Metal Jacket og Eyes Wide Shut. Strákarnir ræða einnig sínar uppáhalds Kubrick myndir, samsæriskenningar, hinn sérstaka Leon Vitali og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:40 - Topp 5 Kubrick myndirnar 04:32 - 2001: A Space Odyssey 1968 43:57 - A Clockwork Orange 1971 1:12:34 - Barry Lyndon 1975 og Leon Vitali 1:43:17 - The Shining 1980 og samsæriskenningar 2:09:08 - Full Metal Jacket 1987 2:24:00 - Eyes Wide Shut 1999 og Tom Cruise
Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíkti til Hafsteins til að ræða einn merkilegasta kvikmyndagerðarmann allra tíma, Stanley Kubrick. Í þessum fyrri hluta fara strákarnir yfir fyrstu myndir Kubrick og ræða meðal annars Fear and Desire, Killer's Kiss, The Killing, Paths of Glory, Spartacus, Lolita, Dr. Strangelove og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Loksins er komið að Kubrick! 01:37 - Stanley Kubrick var snillingur 06:36 - Hvernig ranka strákarnir Kubrick myndirnar? 08:22 - Hver var Stanley Kubrick? 22:20 - Fear and Desire 1953 40:35 - Killer's Kiss 1955 44:09 - The Killing 1956 53:12 - Paths of Glory 1957 1:10:32 - Spartacus 1960 1:28:17 - Lolita 1962 1:48:02 - Dr. Strangelove 1964
Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2024. Strákarnir fara vel yfir árið en ræða helst vinsælustu kvikmyndirnar og sjónvarpsseríurnar á árinu. Í þættinum ræða þeir meðal annars stjörnuleikinn sem Naomi Scott sýnir í Smile 2, hvort Paul Mescal nái sömu hæðum í Gladiator II eins og Russell Crowe gerði í Gladiator, hversu miklum tíma þau eyða í sandinum í Dune II, hvort Furiosa hafi verið vel heppnuð, Venom og hversu lélegur þessi Sony/Marvel heimur er, hvort Deadpool & Wolverine sé lélegasta Deadpool myndin, hvort það sé erfiðara að búa til kvikmyndastjörnur í dag, hver staðan er á kvikmyndaiðnaðinum í dag og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:12 - Loksins kemur Ásgeir Kolbeins aftur! 03:04 - Var 2024 gott bíóár? 09:15 - Furiosa 25:19 - Dune: Part II 40:23 - Gladiator II og kvikmyndastjörnur 1:02:41 - Horizon: An American Saga 1:05:31 - Joker: Folie á Deux 1:19:33 - Moana 2 og Mufasa 1:25:22 - Deadpool & Wolverine 1:33:34 - Alien: Romulus og Beetlejuice Beetlejuice 1:42:01 - The Substance 1:46:52 - Smile 2 2:04:00 - Longlegs og Trap 2:11:16 - Twisters og Abigail 2:14:09 - Venom 3 og Madame Web 2:18:40 - Kingdom of the Planet of the Apes 2:22:50 - Road House 2:26:44 - Sjónvarpsseríur á árinu 2:53:03 - Staðan á kvikmyndaiðnaðinum 3:01:14 - 2025 kvikmyndir
Leikarinn Hallvarður Jes Gíslason lærði leiklist í Englandi og býr þessa dagana í London. Hann hefur einnig gert sína fyrstu stuttmynd, The Roots of You, sem hefur fengið frábærar viðtökur. Hallvarður er grjótharður Harry Potter aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða þessa merkilegu seríu. Í þessum seinna hluta ræða strákarnir fimmtu, sjöttu, sjöundu og áttundu Harry Potter myndina. 00:00 - Intro 00:14 - Round 2! 00:56 - Harry Potter and the Order of the Phoenix 49:24 - Harry Potter and the Half-Blood Prince 1:09:50 - Harry Potter and the Deathly Hallows 1:45:43 - Fantastic Beasts
Leikarinn Hallvarður Jes Gíslason lærði leiklist í Englandi og býr þessa dagana í London. Hann hefur einnig gert sína fyrstu stuttmynd, The Roots of You, sem hefur fengið frábærar viðtökur. Hallvarður er grjótharður Harry Potter aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða þessa merkilegu seríu. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir fyrstu fjórar Harry Potter myndirnar. 00:00 - Intro 00:15 - Lengi í bígerð 03:57 - Hversu stórt er Harry Potter í London? 10:31 - Harry Potter töfrasprotar 20:48 - Harry Potter serían er góð 30:27 - Harry Potter and the Philosopher's Stone 1:20:26 - Harry Potter and the Chamber of Secrets 1:56:29 - Harry Potter and the Prisoner of Azkaban 2:22:36 - Harry Potter and the Goblet of Fire
Kvikmyndagerðarmaðurinn Arnar Freyr Tómasson stakk upp á skemmtilegri hugmynd og Hafsteinn var svo sannarlega til í hana. Í þættinum varpa strákarnir fram sínum eigin umdeildum fullyrðingum varðandi eitthvað sem tengist kvikmyndum eða sjónvarpsseríum. Þeir ræða meðal annars hvort Prisoners sé betri en Seven, hvort Stranger Things séu ofmetnustu þættir allra tíma, hvort þessi Nicolas Cage hype lest sé fáránleg, hvort Star Wars sökki og margt, margt fleira.
Það er komið að þætti númer 300! Hafsteinn byrjaði með Bíóblaður fyrir fjórum árum síðan og hefur á þeim tíma fengið til sín fjölbreyttan og skemmtilegan hóp af gestum. Sumir af þessum gestum hafa orðið að fastagestum og Hafsteinn ákvað að bjóða 14 slíkum í þennan tímamótaþátt. Gestunum var skipt upp í 5 þriggja manna hópa og fengu allir hóparnir sitt eigið umfjöllunarefni. Í þessum seinni hluta eru hóparnir ILLSKA (Kidda Svarfdal, Lovísa Lára og Jökull) og HASAR (Óli Bjarki, Máni og Ísrael)
Það er komið að þætti númer 300! Hafsteinn byrjaði með Bíóblaður fyrir fjórum árum síðan og hefur á þeim tíma fengið til sín fjölbreyttan og skemmtilegan hóp af gestum. Sumir af þessum gestum hafa orðið að fastagestum og Hafsteinn ákvað að bjóða 14 slíkum í þennan tímamótaþátt. Gestunum var skipt upp í 5 þriggja manna hópa og fengu allir hóparnir sitt eigið umfjöllunarefni. Í þessum fyrri hluta eru hóparnir DISNEY (Arnar Freyr og Egill Andri), SCI-FI (Kilo, Teitur Magnússon og Snorri) og BLOCKBUSTERS (Bjöggi, Höddi og Blaffi).
Hryllingsmyndaaðdáendurnir Pétur Ragnhildarson og Jökull Jónsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina stærstu slasher seríu allra tíma, Halloween. Í þættinum ræða þeir meðal annars allar þrettán Halloween myndirnar, af hverju fyrsta myndin er talin svona góð, hversu mikið gríman hans Myers virðist breytast með hverri mynd, hverjar eru bestu myndirnar, hversu góð Jamie Lee Curtis hefur verið sem Laurie Strode, hvort Rob Zombie hafi tekið rétta ákvörðun þegar hann ákvað að sýna baksöguna hans Michael Myers og margt, margt fleira.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíkti til Hafsteins til að ræða eina umtöluðustu mynd seinni ára, Joker: Folie á Deux. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvernig þeim fannst myndin, hvort Todd Philips hafi skuldað áhorfendum eitthvað, hvernig það heppnaðist að hafa söngatriði í myndinni, hvernig Lady Gaga stóð sig og margt, margt fleira.
Kvikmyndasérfræðingurinn Óli Bjarki kíkti til Hafsteins til að ræða ákveðnar kvikmyndir sem eru byggðar á bókum. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hversu góð The Social Network er, hversu mikið allir elska Tom Hanks, Liam Neeson og hversu góður dramaleikari hann er í kvikmyndinni The Grey, hversu mikið Óli Bjarki tengir persónulega við Big Fish, hvort V for Vendetta sé vanmetin og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
Kvikmyndasérfræðingurinn Óli Bjarki kíkti til Hafsteins til að ræða ákveðnar kvikmyndir sem eru byggðar á bókum. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvað flokkast sem góð skáldsaga, hvað góð aðlögun þarf að uppfylla, Coraline og hversu mikil áhrif hún hafði á Óla, hversu frábær Gone Baby Gone er eftir Ben Affleck, hvernig strákunum fannst Dune 2 og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon eru allir grjótharðir James Bond aðdáendur og þeir kíktu til Hafsteins í annan James Bond þátt en að þessu sinni var fjallað um Pierce Brosnan og hans fjórar Bond myndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Martin Campbell sé besti Bond leikstjórinn, hversu æðisleg Famke Janssen er í Goldeneye, hversu kjánalegur kvennabósi Bond getur verið, hvort Denise Richards sé trúverðug sem kjarnorkuvísindamaður í The World is not Enough, hversu fáránleg Die Another Day er og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
Leikarinn Hansel Eagle kíkti til Hafsteins með topp 10 listann sinn. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Armageddon sé góð eða ekki, hversu vanmetin 90´s myndin Sleepers er, Ex Machina og gervigreind, hvernig The Matrix breytti leiknum, hvort Snatch sé betri en Lock Stock, hversu góður kvikmyndagerðarmaður Quentin Tarantino er og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
Í tilefni þess að A Nightmare on Elm Street fagnar 40 ára afmæli í ár þá kíktu kvikmyndaáhugamennirnir Jökull Jónsson og Pétur Ragnhildarson til Hafsteins til að ræða þessa stórmerkilegu slasher seríu. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars allar Nightmare myndirnar, hversu frábær Freddy Krueger er sem karakter, hvort Dream Warriors sé besta Nightmare myndin, hvernig Wes Craven fékk hugmyndina að fyrstu myndinni, hversu öðruvísi New Nightmare var þegar hún kom út árið 1994, hvernig New Line Cinema tók séns árið 1984, hversu ömurleg endurgerðin frá 2010 var og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 13. október 2023. Kvikmyndaáhugamennirnir Jökull Jónsson, Pétur Ragnhildarson og Hörður Ásbjörnsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina merkilegustu slasher seríu allra tíma, Friday the 13th. Friday the 13th serían er auðvitað þekktust fyrir að hafa kynnt heiminum fyrir fjöldamorðingjanum Jason Voorhees og strákarnir kafa djúpt í þessa seríu og ræða allar tólf myndirnar. Í þessum seinni hluta ræða þeir meðal annars hvernig Jason berst í rauninni við Carrie í Part VII, hversu leiðinleg Jason Takes Manhattan er, af hverju Jason Goes to Hell er lélegasta myndin, hversu gaman það var að sjá Freddy Krueger berjast við Jason, hversu vel heppnuð 2009 endurgerðin er, hvort það sé ekki algjört möst að framleiða þrettándu myndina í seríunni og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
Í tilefni þess að fyrsta Beverly Hills Cop myndin fagnar 40 ára afmæli í ár og þar sem fjórða myndin er á leiðinni á Netflix, þá komu leikarinn Hansel Eagle, rapparinn Kilo og matgæðingurinn Snorri Guðmundsson til Hafsteins til að ræða þessa skemmtilegu seríu. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu ungur Eddie Murphy var í fyrstu myndinni, hversu gamall Taggart var í rauninni, hvort Beverly Hills Cop II sé best af þeim, hversu leiður Murphy var þegar hann gerði þriðju myndina, hvort Kilo myndi gera hvað sem er fyrir launin sem Eddie fékk fyrir þriðju myndina, hvort Eddie Murphy sé með betri feril en Adam Sandler og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash
Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon eru allir grjótharðir James Bond aðdáendur og þeir kíktu til Hafsteins í fyrsta James Bond þátt Bíóblaðurs. Í þetta skiptið er fókusinn á myndirnar sem Daniel Craig lék í. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu vel Craig hafi passað sem Bond, hvort það hafi verið sniðug hugmynd að hafa eina tengda sögu yfir allar fimm myndirnar hans, hversu frábærlega Martin Campbell byrjaði þetta með Casino Royale, hversu hræðileg Quantum of Solace er, hversu vel þeim tókst til með að nútímavæða Bond og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 20. janúar 2023. Sjómaðurinn og kvikmyndaáhugamaðurinn Anthony Evans Berry er mikill Bíóblaður aðdáandi og Hafsteinn var spenntur að fá hann til sín og spjalla við hann um kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars dönsku myndina Speak No Evil og hversu mikil áhrif hún hafði á þá, hversu léleg Black Adam var, 90's myndir og hversu geggjaðar þær eru, Menace II Society og Boys N' the Hood, Steven Seagal og Out for Justice, hversu skemmtilegar 90's hasarhetjurnar voru og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
Star Wars sérfræðingarnir Gummi Sósa, Adam Sebastian og Aron Andri kíktu til Hafsteins til að ræða ýmislegt tengt Star Wars heiminum en þó með sérstakri áherslu á öllu sem Dave Filoni hefur komið nálægt. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars allar leiknu Star Wars seríurnar sem hafa komið út, hversu stórkostleg Andor er, hvernig The Book of Boba Fett gat klikkað svona, hvort Filoni hafi tekist vel til með Ahsoka seríuna og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
Star Wars sérfræðingarnir Gummi Sósa, Adam Sebastian og Aron Andri kíktu til Hafsteins til að ræða ýmislegt tengt Star Wars heiminum en þó með sérstakri áherslu á öllu sem Dave Filoni hefur komið nálægt. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars hver Dave Filoni er, hversu góðir The Clone Wars þættirnir voru, hvernig Filoni skapaði magnaðan karakter í Ahsoka Tano, hvort Star Wars Rebels séu bestu Star Wars teiknimyndaþættirnir, hversu skemmtileg hugmynd er á bakvið The Bad Batch, hversu geggjuð fyrsta serían var af The Mandalorian og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
Uppistandarinn og rithöfundurinn Hugleikur Dagsson og framleiðandinn Sandra Barilli byrjuðu með kvikmyndahlaðvarpið Vídjó árið 2021. Í hlaðvarpinu horfa þau saman á eina kvikmynd og spjalla síðan um hana í þætti hjá sér. Hugleikur og Sandra kíktu til Hafsteins og sögðu honum aðeins frá Vídjó og einnig kom Hafsteinn þeim á óvart með skemmtilegum leik. Í þættinum ræða þau meðal annars hvort Rocky sé ofmetin, hversu mikill asni Viddi er í Toy Story seríunni, hvernig Hugleikur og Sandra kynntust, hvort það væri sniðugt að sýna sex ára gömlu barni A Nightmare on Elm Street, hvort Titanic sé hin fullkomna deitmynd og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 2. desember 2022. Auðunn Torfi, Raggi Ólafs og Aron Andri eru allir rosalega miklir Lord of the Rings aðdáendur og vita alveg heilmikið um Tolkien og allt Middle-Earth lore-ið. Strákarnir kíktu til Hafsteins til að ræða risa seríuna, The Rings of Power, en strákarnir voru alls ekki sammála um gæði þáttanna og úr varð skemmtilegur og hitamikill þáttur. Þetta er algjört skylduáhorf fyrir alla Lord of the Rings aðdáendur! Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
Ritstjóri hun.is og einn af stjórnendum hlaðvarpsins Fullorðins, Kidda Svarfdal, kíkti til Hafsteins og tók þátt í skemmtilegum leik sem Hafsteinn bjó til. Hafsteinn fann 15 kynæsandi kvikmyndaplaköt sem hann varpaði á sjónvarpið í stúdíóinu og Kidda og Hafsteinn skiptust á að segja hvort þau væru virkilega heit eða ekki. Í þættinum ræða þau meðal annars hvort Jessica Alba sé með góð gen, hvort það sé kynæsandi að sjá Gerard Butler öskra framan á 300 plakatinu, hversu flottur Hugh Jackman er sem Wolverine, hvort Eva Green sé sexy í Sin City 2 og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
Róberta Michelle Hall er skemmtikraftur, burlesque dansari og veislustjóri. Róberta sagði Hafsteini aðeins frá því sem hún er að gera þessa dagana og kom líka með topp 10 listann sinn. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu góð lög eru í Django Unchained, hvort Leonardo DiCaprio hafi staðnað í þroska, hversu áhrifamikil The Green Mile er, hversu vanmetin A.I. er eftir Steven Spielberg, hversu mikilvægt er að hafa góðar fyrirmyndir í kvikmyndum, hversu mikinn áhuga Róberta hefur á misskildum persónum í leiknu efni og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
Anna Margrét Pálsdóttir er hjúkrunarfræðingur og mikill kvikmyndaaðdáandi. Anna kíkti til Hafsteins með topp 10 lístann sinn. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu skemmtileg Legally Blonde er, hversu fáránleg Face/Off er, hversu ógeðslegur Robert De Niro er í Cape Fear, hvort Quentin Tarantino sé myndarlegri en Richard Madden, Tom Hanks og hans leik í Captain Phillips og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
Ásgeir Sigurðsson er ungur kvikmyndagerðarmaður en hann gerði ásamt Antoni Karli kvikmyndina Harmur sem kom út árið 2021. Ásgeir gaf út fyrir stuttu sjónvarpsseríuna Gestir en serían er á streymisveitu Símans. Ásgeir skrifaði þættina, leikstýrði, framleiddi og leikur aðalhlutverkið ásamt Diljá Pétursdóttur. Ásgeir kíkti til Hafsteins og ræddi þættina og kom einnig með sinn topp 10 lista yfir sínar uppáhalds kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu sterk asísk kvikmyndagerð er, hversu magnaður leikari Ryan Gosling er, hvaða mynd hefur haft mestu áhrifin á Ásgeir, hversu sturlaður Denis Villeneuve er sem leikstjóri og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Ísrael Daníel Hanssen hefur komið áður til Hafsteins og rætt Óskarsverðlaunin en Ísrael er algjör sérfræðingur þegar kemur að Óskarnum. Hafsteinn var spenntur að fá hann til sín til að ræða eitthvað annað en Óskarinn og því mætti Ísrael með topp 10 listann sinn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hversu fullkomin ævintýramynd Jurassic Park er, hversu góður Marlon Brando er í The Godfather, hvort Steve Martin sé bestur í Three Amigos, hversu sturluð 90's tónlistin er í The Rock og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kvikmyndaneminn Egill Andri, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að ræða þessar tíu kvikmyndir sem eru tilnefndar sem besta mynd ársins. Í þessum seinni hluta ræða þeir myndirnar Oppenheimer, Anatomy of a Fall, American Fiction, The Holdovers og Killers of the Flower Moon. Strákarnir ræða einnig hversu góður leikur er í Anatomy of a Fall, hvort Oppenheimer sé besta Nolan myndin, hversu fyndin og hárbeitt American Fiction er, hvort DiCaprio hefði átt að fá tilnefningu og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kvikmyndaneminn Egill Andri, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að ræða þessar tíu kvikmyndir sem eru tilnefndar sem besta mynd ársins. Í þessum fyrri hluta ræða þeir myndirnar Barbie, Maestro, Past Lives, Poor Things og The Zone of Interest. Strákarnir ræða einnig hversu vinsæl Barbie var, hvort Greta og Margot hefðu átt að vera tilnefndar fyrir leikstjórn og leik, hvort það sé skilyrði fyrir Akademíuna að lesa handritin sem eru tilnefnd og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 11. nóvember 2022. Í þessum þætti ræða strákarnir Blade seríuna en þeir eru báðir miklir Blade aðdáendur. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu vel fyrsta myndin eldist, hvort Del Toro hafi staðið sig vel með mynd númer tvö, hvort Ryan Reynolds leiki alltaf sama karakterinn, hvort það hafi verið rétt ákvörðun að hafa Drakúla sem vonda kallinn í þriðju myndinni, hversu erfiður Wesley Snipes var við tökur á þriðju myndinni og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Ivy Björg er áhættuleikari, Parkour iðkandi og loftfimleikalistamaður. Ivy hefur líka gríðarlegan áhuga á kvikmyndum og kvikmyndagerð og Hafsteinn var því spenntur að fá hana til sín í fjölbreytt bíómyndaspjall. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu mikið Ivy elskar James Cameron, hvort hún væri til í að láta kveikja í sér sem áhættuleikari, hversu stórt Blu Ray safn hún á, hversu erfið Dahmer serían var, Cobra-Kai og karate bakgrunnurinn hennar Ivy og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 25. júlí 2023. Sjómaðurinn Anthony Evans Berry, leikarinn Hansel Eagle og matgæðingurinn Snorri Guðmundsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina þekktustu kvikmyndaseríu allra tíma, Lethal Weapon. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hver er besta Lethal Weapon myndin, hversu miklar bíómyndalöggur Riggs og Murtaugh eru, hversu gott chemistry er á milli Gibson og Glover, Rene Russo og hennar innkomu í Lethal Weapon 3, hvort einhver annar en Joe Pesci hefði getað leikið Leo Getz, hversu svalur Jet Li er sem vondi kallinn í Lethal Weapon 4 og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Brynjólfur Guðmundsson lærði húsgagnasmíði og verkfræði áður en hann flutti út með fjölskylduna til Los Angeles til að láta drauminn rætast. Brynjólfur hefur alltaf haft gríðarlegan áhuga á kvikmyndum og í fyrra ákvað hann að sækja um nám við kvikmyndaskólann New York Film Academy. Brynjólfur lærir ýmislegt í skólanum en sérstök áhersla er lögð á handritagerð. Brynjólfur kíkti til Hafsteins og ræddi allt milli himins og jarðar. Í þættinum ræða þeir meðal annars námið hans Binna í L.A., mikilvægi þess að elta draumana, hversu stíf dagskráin er hjá honum yfir árið, Rocky og hversu mikill Stallone aðdáandi Binni er, hvort leikstjórar eigi að taka fleiri áhættur, hversu geggjuð Jackie Brown er, ferilinn hans Christopher Nolan og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 17. apríl 2023. Ritstjóri hun.is og einn af stjórnendum hlaðvarpsins Fullorðins, Kidda Svarfdal, kíkti til Hafsteins til að ræða erótíska þrillera. Í þættinum ræða þau myndirnar Basic Instinct, Sliver, Jade og Color of Night en þessar myndir voru þó nokkuð vinsælar á tíunda áratugnum. Þau ræða einnig hversu mikill aldursmunur var á Michael Douglas og Sharon Stone í Basic Instinct, hversu hræðilegur söguþráðurinn er í Color of Night, hversu ágengur Tom Berenger var í Sliver, hversu algengar reykingar voru á þessum tíma, kynlífsatriðin, hvort svona myndir séu í rauninni eitthvað kynþokkafullar og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kvikmyndasérfræðingarnir og Bíóblaðurs fastagestirnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 kvikmyndir. Hafsteinn kom einnig með sinn topp 10 lista og úr varð því rúmlega fimm klukkutíma spjall sem skiptist í Part I og Part II. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars hvaða áhrif Spider-Man 2 hefur á Óla, hversu góð Mána finnst The Silence of the Lambs vera, hversu mikið Hafsteinn elskar Pulp Fiction, hvernig The Fountain er ekki mynd fyrir alla og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kvikmyndasérfræðingarnir og Bíóblaðurs fastagestirnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 kvikmyndir. Hafsteinn kom einnig með sinn topp 10 lista og úr varð því rúmlega fimm klukkutíma spjall sem skiptist í Part I og Part II. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars hversu erfitt er að gera svona topp 10 lista, hvort The Rocketeer sé hin fullkomna ævintýramynd, hversu mikið Óli elskar For a Few Dollars More, af hverju Hafsteinn setur Barry Lyndon á listann sinn þrátt fyrir einungis eitt áhorf, Drakúla og hversu góður Bela Lugosi er í hlutverki greifans og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kvikmyndasérfræðingurinn Hugleikur Dagsson keppir við kvikmyndasérfræðingana Óla Bjarka og Mána Frey í pökkuðum spurningaþætti! Óli og Máni hafa unnið tvær keppnir og virðast vera óstöðvandi og Hafsteinn ákvað því að fá mjög verðugan andstæðing til að keppa við þá. Hugleikur Dagsson er gríðarlega öflugur keppandi og hefur sjálfur unnið nokkrar kvikmyndaspurningakeppnir. Strákarnir skiptast á að svara alls konar kvikmyndaspurningum en þar á meðal eru spurningar um 70's glæpamyndir og 80's grínmyndir, leikstjóraspurningar og plakatspurningar. Þessi þáttur er algjört skylduáhorf fyrir alla kvikmyndaaðdáendur. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2023. Strákarnir fara vel yfir árið og ræða meðal annars hversu þreytt þetta ofurhetjudæmi er orðið, hvort DiCaprio hafi náð að leika aumingja í Killers of the Flower Moon, hvort Barbie hafi hitt í mark hjá Ásgeiri, hversu vel heppnuð Oppenheimer var, hvort Tom Cruise ætti ekki að snúa sér að öðruvísi myndum eftir að nýja Mission Impossible floppaði, hvaða sjónvarpsseríur Ásgeir horfði á á árinu, hversu mikið strákarnir elskuðu John Wick 4 og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Árið er senn á enda og Hafsteinn ákvað að enda það með stæl með því að fá núverandi spurningameistarann, Snorra Guðmundsson, til að koma og verja titilinn sinn í 2023 spurningakeppni. Hafsteinn bauð einum Bíóblaðurs fastagesti, Gumma Sósu, til að keppa við Snorra en Gummi Sósa hefur komið sterkur inn sem þrælskemmtilegur gestur og verðugur andstæðingur. Strákunum var hinsvegar komið á óvart með öðrum keppanda, Oddi Klöts, en Oddur mætti óvænt í miðjum upptökum. Úr varð frábær keppni þar sem strákarnir skiptast á að svara 2023 kvikmynda og sjónvarpsþátta spurningum. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Rapparinn Kilo og leikarinn Villi Neto eru miklir kvikmyndaáhugamenn og grínistar. Strákarnir kíktu til Hafsteins til að keppa í skemmtilegri spurningakeppni. Hafsteinn samdi 60 spurningar sem allar snúast um grínmyndir að einhverju leyti. Í þættinum þurfa strákarnir meðal annars að svara almennum spurningum, flokkaspurningum og plakatspurningum. Hvað ár kom Mean Girls út? Hver var fyrsta myndin sem framleiðslufyrirtækið Happy Madison gaf út? Horfið á þáttinn til að komast að því. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Rappararnir Blaffi og Jói Dagur kíktu til Hafsteins til að fara í skemmtilegan leik. Hafsteinn samdi tíu fullyrðingar sem hann varpaði á sjónvarpið í stúdíóinu. Strákarnir skiptust síðan á því að segja hvort fullyrðingin væri rétt eða röng. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig Blaffi myndi lemja Ghostface en myndi líklegast vera stútað af Michael Myers, hversu mikið Jói Dagur elskar The Big Lebowski, hvort Omni-Man gæti drepið Superman, hvort Samuel L. Jackson sé svalari en Denzel Washington og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.