Podcasts about frakka

  • 19PODCASTS
  • 102EPISODES
  • 58mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Jul 16, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026

Best podcasts about frakka

Latest podcast episodes about frakka

Fotbolti.net
HM hringborðið - Sá taktíski féll á prófinu

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jul 16, 2026

HM hringborðið á fimmtudegi. Ásgeir Frank Ásgeirsson var gestur í setti og fór yfir undanúrslitin ásamt Kára Snorrasyni. Thomas Tuchel fékk falleinkunn og Spánverjar sigldu þægilega í gegnum stjörnum prýtt lið Frakka. Sömuleiðis var hitað upp fyrir úrslitaleik Argentínu og Spánar sem og bronsleik Frakka og Englendinga.

Dr. Football
Góðan Daginn Epic Ameríka - Stríð í Gerorgíu kvöld eftir að Frakka urðu bensínlausir í Texas

Dr. Football

Play Episode Listen Later Jul 15, 2026 58:05

Doc, Albert Inga og Tómas Guðmundsson eftir hetjulega frammistöðu Víkinga í Ungverjalandi.

Steve Dagskrá
Frakkland 0-2 Spánn á sjálfan Bastilludaginn. Adam Ægir og Cucurella.

Steve Dagskrá

Play Episode Listen Later Jul 14, 2026 83:46

Fórum yfir nýafstaðinn leik Frakka og Spánverja, Gils mættastur og hvað gera Englendingar?

gils frakka
Dr. Football
Góðan Daginn Epic Ameríka - Eru Spánverjar þeir einu sem geta unnið Frakka í fótbolta í dag?

Dr. Football

Play Episode Listen Later Jul 10, 2026 79:47

Doc, Hjálmar Örn og Gunni Birgis

Spegillinn
Pollrólegur sjúkrahússforstjóri í Ryadh og kjarnorkuvopn Frakka

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 3, 2026 20:00

Sérfræðingar óttast að ófriðarbál í Miðausturlöndum breiðist út. Forstjóri King Faisal-sjúkrahússins í Ryadh, höfuðborg Sádi-Arabíu, er pollrólegur þótt dróna hafi verið skotið á sendiráð Bandaríkjanna í borginni. Næsta hálfa öldin verður tímabil kjarnorkuvopna, sagði Emmanuel Macron Frakklandsforseti í ræðu sem hann flutti á aðalkafbátastöð franska flotans, heimahöfn þeirra kafbáta sem búnir eru stýriflaugum sem borið geta kjarnaodda. „Ef við ætlum að vera frjáls," sagði forsetinn, „þá þurfum við að vera ógnvekjandi." Og vænlegasta leiðin til þess, samkvæmt honum, er að uppfæra og stækka kjarnorkuvopnabúr landsins. Samband Bandaríkjanna og Bretlands hefur löngum verið talið sérstakt og þannig til þess vísað af ráðamönnum beggja þjóða. Það samband virðist nokkuð að súrna. Bresk stjórnvöld leyfðu ekki not af breskum herstöðvum þegar Bandaríkin réðust á Íran um helgina og Keir Starmer forsætisráðherra Breta sagðist ekki trúaður á stjórnarskipti af himnnum ofan.

arab ef keir starmer bandar breta krah bretlands king faisal forstj frakka
Dr. Football
Doc án landamæra: Frábær frammistaða gegn Frökkum

Dr. Football

Play Episode Listen Later Oct 13, 2025 55:06

Jói, Keli og Albert beint eftir landsleik Íslands og Frakka

keli frakka
Bylgjan
Reykjavík síðdegis - þriðjudagur 9. september 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Sep 9, 2025 84:36

Öll viðtölin úr þætti dagsins: Rúnar Freyr Gíslason framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Andri Snær Magnason og vindmylluver Kristinn Már  Gunnarsson framkvæmdastjóri og stofnandi Baridi í Tansaníu um vinnslu á kopar grafit og liþíum Gummi Ben um leik Frakka og Íslendinga Anna Margrét Bjarnadóttir verkefnastjóri Guls september hjá embætti Landlæknis

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði
101 - Á söguslóðum: Orrustan um Narvik 1940

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Play Episode Listen Later Dec 20, 2024 76:14

Í framhaldi af hundrað þátta hittingi Söguskoðunarmanna í Norður-Noregi lögðu hlaðvarpsmenn land undir fót og héldu í vettvangsferð á söguslóður í Narvik. Þann 9. apríl 1940 gerðu Þjóðverjar innrás í Danmörku og Noreg. Danmörk féll strax, en upphófst þá þriggja mánaða barátta um Noreg. Baráttan um Noreg hófst og lauk í Narvik, litlum hafnarbæ í Norður-Noregi þar sem sænskt járn hefur ætíð verið flutt úr landi. Ástæður innrásarinnar til að byrja með snérust að miklu leiti um aðgang að þessari höfn, og Þjóðverjar lentu með herlið í Narvik strax 9. apríl. Alþjóðlegt lið Norðmanna, Breta, Frakka og Pólverja mætti þar svo talsvert minna liði Þjóðverja í orrustunni um Narvik. Baráttunni um Noreg lauk í Narvik þegar herir bandamanna yfirgáfu bæinn 10. juní 1940 og var landið hernumið í fjögur ár.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði
91 - Nýlendur og nýlendustríð í Norður-Ameríku

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Play Episode Play 60 sec Highlight Listen Later Aug 23, 2024 131:56

Þátturinn byrjar á 53. mínútu.Söguskoðunarmenn snúa aftur eftir sumarið til að taka gott spjall um nýlendur Englendinga og Frakka í Norður-Ameríku á síðari hluta 18. aldar. Englendingar komu á fót nýlendum sínum þrettán meðfram austurströnd Norður-Ameríku á 17. öld. Frakkar settu á stofn gríðarstóra nýlendu meðfram Mississippifljóti frá Louisiana í suðri, og í norðri á því svæði sem í dag er Quebec.Árin 1754-1763 var háð mikið nýlendustríð á milli Frakka og Englendinga, sem varð til þess að Frakkar misstu nær allt sitt land í Norður-Ameríku. Bretar réðu nú yfir nær hálfu meginlandi Norður-Ameríku, öllu austan við Missisippi frá Flórída til Kanada. Rúmum áratug síðar risu nýlendurnar þrettán upp gegn Bretum og urðu að Bandaríkjum Norður-Ameríku.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

louisiana quebec kanada amer hla bandar frakkar bretar frakka bretum
Spegillinn
Grindavík, Evrópuþingkosningar, Úkraína og Rússland

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 5, 2024 20:00

5. júní 2024 Það eru um sjö mánuðir síðan Grindavík var rýmd, jarðhræringarnar halda áfram og verkefnin sem við blasa eru mörg og krefjandi. Atvinnu- og húsnæðismálin kannski mest aðkallandi segir Árni Þór Sigurðsson, formaður nýrrar framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur, í viðtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Um þrjú hundruð og sjötíu milljónir eru á kjörskrá fyrir kosningar til Evrópuþingsins sem hefjast á morgun og standa fram á sunnudag. Þingið var í upphafi valda- og áhrifalítið en hefur í seinni tíð fengið aukið vægi innan Evrópusambandsins. Búist er við að harðlínu-hægriflokkar auki fylgi sitt í kosningunum, þótt líklegt sé talið að hófsamir miðjuflokkar haldi meirihluta. Björn Malmquist, fréttamaður RÚV í Brussel, segir frá. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, gefur lítið fyrir leiðtoga- og friðarráðstefnu vegna stríðsins í Úkraínu, sem sem haldin verður í Sviss um miðjan mánuð, og varar Frakka við því, að sendi þeir franska hernaðarsérfræðinga til Úkraínu til að þjálfa þarlenda hermenn í notkun franskra og vestrænna vopna, þá teljist þeir lögmæt skotmörk rússneska hersins. Ævar Örn Jósepsson fjallar um ráðstefnuna og afstöðu Rússa. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Spegillinn
Umskurður, Úkraína og Gérard Depardieu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 4, 2024

4. janúar 2024 Umskurður á drengjum af trúarlegum ástæðum er umdeilt mál hér á landi. Sigurður Kristinsson, prófessor í heimspeki segir mikilvægt að mismunandi lífsskoðanir séu virtar og telur það geta haft skaðaminnkandi áhrif, ef umskurður standi til boða á heilbrigðisstofnunum. Umskurður drengja hafi djúpstæða, táknræna og trúarlega merkingu fyrir lítinn hóp fólks hér á landi, og beri þvi frekar vitni um umhyggju foreldra en vanhæfni. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við SIgurð. Stríðið í Úkraínu hefur staðið í tæp tvö ár. Svo virðist sem heldur hafi dregið úr stuðningi Vesturlanda við Úkraínu í stríði þeirra við innrásarher Rússa. Þar er þó ekki allt sem sýnist, segir Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur. Bæði Evrópusambandið og Bandaríkin geti gert ýmislegt til að styðja við bakið á Úkraínumönnum, þrátt fyrir andstöðu ákveðinna afla á báðum stöðum. Hann telur Úkraínumenn geta bætt vígstöðu sína með áframhaldandi stuðningi Vesturlanda, en sér þó ekki fyrir endann á stríðinu í bráð. Ævar Örn Jósepsson talaði við Erling. Frakkar kalla hann Þurs og vísa þar til hvorutveggja útlits hans og hegðunar. Kunnasti og umdeildasti kvikmyndaleikari Frakka, Gérard Depardieu, er enn og aftur í sviðsljósinu en ekki fyrir kvikmyndaleik frekar en fyrri daginn. Að þessu sinni þótti mörgum hann fara yfir strikið með hneykslanlegum ummælum sem birtust fyrir jól, þótt jafnvel sjálfur Frakklandsforseti reyni að koma þessari þjóðargersemi til varnar. Jón Björgvinsson segir frá. Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason

Spegillinn
Umskurður, Úkraína og Gérard Depardieu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 4, 2024 20:00

Morgunvaktin
Hagsæld, Afríka og vistvæn mannvirkjagerð

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 7, 2023

Hagvöxtur og ámóta mælikvarðar eru gjarnan notaðir til að mæla ástand þjóðar og bera þjóðir saman. Mikilvægt er að mæla líka aðra þætti samfélagsins, svokölluð óáþreifanleg verðmæti sem eru t.d. líðan, heilbrigði og félagsauður. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, hefur rannsakað mælingar á hagsæld í víðum skilningi og telur rétt að slíkar mælingar verði teknar upp með formlegum hætti og setta fram með svipuðu móti og hagvöxturinn. Valdarán hafa verið framin í sjö Afríkuríkjum á síðustu þremur árum, nú síðast í Gabon og Níger. Geir Konráð Theodórsson býr í Eþíópíu en bjó áður í Níger. Hann sagði frá þessum valdaránum og ástandi mála í nokkrum ríkjanna. Flest eiga þau sameiginlegt að hafa verið nýlendur Frakka en þrátt fyrir sjálfstæði fyrir um 60 árum hafa Frakkar ekki alveg sleppt hendinni af stjórn landanna og meðferð auðlinda þeirra. Á húsnæðisþingi í síðustu viku var Arnhildur Pálmadóttir arkitekt heiðruð fyrir störf sín á sviði vistvænnar mannvirkjagerðar og -hönnunar. Hún ræddi vítt og breitt um efnið en brýnt er að hennar mati að huga að vistlegum þáttum á öllum stigum byggingaframkvæmda og endurnýta byggingarefni. Tónlist: The last farwell - Roger Whittaker, Kvennaskólapía - Ríó tríó, Umboðsmenn drottins - Jakob Frímann Magnússon. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson

bj magn gabon hann afr hags flest sigbj umsj umbo roger whittaker mikilv jakob fr frakkar frakka
Morgunvaktin
Hagsæld, Afríka og vistvæn mannvirkjagerð

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 7, 2023 130:00

Frakkland, fótbolti og bókmenntir

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 14, 2023 97:34

Í tilefni af þjóðhátíðardegi Frakka spjallaði Torfi Tulinius, prófessor við HÍ, um ýmislegt er varðar land og þjóð. Einkum var rætt um stöðu Frakklands í alþjóðasamfélaginu og sambúð ólíkra þjóðfélagshópa í Frakklandi. HM kvenna í fótbolta hefst í næstu viku. Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, talaði um mótið, íslenska kvennalandsliðsins og konur og fótbolta. Guttormur Þorsteinsson, bókavörður á Kringlusafni Borgarbókasafnsins, gaf hlustendum hugmyndir að lesefni yfir sumarmánuðina. Tónlist: Guð gaf mér eyra - Engel Lund, La vie en rose - Zaz, Leggjabrjótur - Spaðar, Obb bobb bobb - Spaðar. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

spa bj gu ks hm zaz sigbj umsj obb frakklandi frakklands frakka guttormur
Morgunvaktin
Frakkland, fótbolti og bókmenntir

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 14, 2023

Veikari króna, skriðdrekadeilur í Þýskalandi og bókmenntaverðlaun

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 24, 2023 130:00

Við fjölluðum um gjaldmiðilinn okkar; krónuna, í dag. Hún hefur veikst blessuð; fyrir þúsund íslenskar krónur fást í dag sjö bandarískir dalir en síðastliðið sumar fengust næstum átta dalir fyrir þúsund kallinn. Og fyrir tæpum fjórum árum fengust næstum níu Bandaríkjadalir fyrir þúsund íslenskar krónur. Krónan sveiflast upp og niður og hún hefur svo sem oft verið enn veikari en í dag. Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar ræddi þetta og fleira. Arthúr Björgvin Bollason var svo á sínum stað og sagði okkur frá því sem er efst á baugi í Þýskalandi. Hann fjallaði um samband nágrannanna Frakka og Þjóðverja, og um skriðdreka sem Þjóðverjar hafa ekki tekið ákvörðun um hvort þeir vilji senda til Úkraínu eða ekki. Góð bók er þyngdar sinnar virði í gulli. Íslensku bókmenntaverðlaunin verða veitt í kvöld við hátíðlega athöfn að Bessastöðum. Af því tilefni kom formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, Heiðar Ingi Svansson, til okkar og rabbaði um bækur vítt og breitt. Tónlist: Við arineld - Erla Stefánsdóttir None of us are free - Solomon Burke D?Allemagne - Patricia Kaas

bj kr af hei sn hann bandar arth skri frakka bessast bollason
Morgunvaktin
Veikari króna, skriðdrekadeilur í Þýskalandi og bókmenntaverðlaun

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 24, 2023

Við fjölluðum um gjaldmiðilinn okkar; krónuna, í dag. Hún hefur veikst blessuð; fyrir þúsund íslenskar krónur fást í dag sjö bandarískir dalir en síðastliðið sumar fengust næstum átta dalir fyrir þúsund kallinn. Og fyrir tæpum fjórum árum fengust næstum níu Bandaríkjadalir fyrir þúsund íslenskar krónur. Krónan sveiflast upp og niður og hún hefur svo sem oft verið enn veikari en í dag. Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar ræddi þetta og fleira. Arthúr Björgvin Bollason var svo á sínum stað og sagði okkur frá því sem er efst á baugi í Þýskalandi. Hann fjallaði um samband nágrannanna Frakka og Þjóðverja, og um skriðdreka sem Þjóðverjar hafa ekki tekið ákvörðun um hvort þeir vilji senda til Úkraínu eða ekki. Góð bók er þyngdar sinnar virði í gulli. Íslensku bókmenntaverðlaunin verða veitt í kvöld við hátíðlega athöfn að Bessastöðum. Af því tilefni kom formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, Heiðar Ingi Svansson, til okkar og rabbaði um bækur vítt og breitt. Tónlist: Við arineld - Erla Stefánsdóttir None of us are free - Solomon Burke D?Allemagne - Patricia Kaas

bj kr af hei sn hann bandar arth skri frakka bessast bollason
Mannlegi þátturinn
Illugi um Messi, jólaveðrir með Elinu og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 21, 2022 50:00

Það ætti nú ekki að hafa farið framhjá mörgum að argentínska karlalandsliðið varð heimsmeistari í knattspyrnu á sunnudaginn eftir að hafa sigrað Frakka í úrslitaleik HM. Þar var auðvitað fremstur í flokki Lionel Messi og má segja að með heimsmeistaratitlinum sé hann búinn að vinna nánast öll stærstu verðlaun sem í boði eru í knattspyrnuheiminum og sum þeirra hefur hann meira að segja unnið oftar en nokkur annar. Þetta vita flestir, en það eru samt kannski ekki margir sem vita mikið meira um þennan frábæra 35 ára knattspyrnumann, því hann gefur nánast aldrei færi á sér í viðtöl og fyrir utan knattspyrnuvöllinn vill hann helst ekki láta mikið á sér bera. Illugi Jökulsson hefur skrifað tvær bækur um Messi og hefur kynnt sér sögu hans betur en flestir. Því fengum við Illuga til að koma í þáttinn í dag til þess að segja okkur aðeins frá manninum á bak við alla þessa titla og met. Elín Björk Jónasdóttir kom svo til okkar í dag með sitt vikulega veðurspjall og það er ekki hægt að segja annað en að veðrið hafi mætt og minnt á sig undanfarna daga. Jólaveðrið, færðin og ferðaveðrið voru til umræðu með Elínu í veðurspjallinu. Svo fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Í síðasta póstkorti sínu fyrir jól segir Magnús frá sumarjólum sem hann átti á Nýja Sjálandi fyrir áratugum en þar eru sumarsólstöður og alls ekki jólalegt um að litast eins og við eigum að venjast. Hann segir líka frá hve miklar tilfinningar voru tengdar leik Marokkóa og Frakka á heimsmeistaramótinu fyrir viku. Frakkar voru nýlenduherrar í Marokkó og beittu ótrúlegri harðneskju sem ekki er gleymd. Tónlist í þættinum í dag: Yfir fannhvíta jörð / KK og Ellen Kristjánsdóttir (R. Miller og Ólafur Gaukur Þórhallsson) I ll be Home For Christmas / Dean Martin & Scarlett Johansson (Kim Gannon, Buck Ram og Ken Walter) Myrra / Baggalútur og GDRN (Bragi Valdimar Skúlason) Someday at Christmas / Stevie Wonder (Ron Miller & Bryan Wells) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Illugi um Messi, jólaveðrir með Elinu og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 21, 2022

HM hringborðið - Hey Jude og töframáttur Messi og Mbappe

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Dec 4, 2022

Fjögur lið eru komin í 8-liða úrslitin. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn gera upp fyrstu fjóra leiki 16-liða úrslitanna. Vængbakverðir Hollands fóru illa með Bandaríkin, Messi leiddi Argentínu áfram en Ástralía getur borið höfuðið hátt, Mbappe var magnaður fyrir Frakka og Jude Bellingham heillaði í sigri Englands gegn Senegal.

Draugar fortíðar
#117 Byltingin á Haítí

Draugar fortíðar

Play Episode Listen Later Oct 5, 2022 176:42

Líklega þekkja flestir til byltinganna í Ameríku 1776 og Frakklandi 1789. Þessir atburðir eru oft nefndir sem mikilvægt skref í átt að frelsi og lýðræði í veröldinni. Vissulega eru þetta merkisatburðir og höfðu gífurleg áhrif. Þó vill oft gleymast að þessar þjóðir veittu ekki öllum í ríkinu frelsi og réttindi. Í ríkjunum voru enn margar milljónir fólks sem höfðu verið svipt frelsi sínu og það breyttist ekki. Bæði Bandaríkin og Frakkland héldu áfram þrælahaldi með tilheyrandi ofbeldi og dauða. Lang arðbærasta nýlenda Frakka var Saint - Domingue, á eyjunni Hispaniola. Þar stritaði mikil fjöldi þræla við hryllilegan aðbúnað. Þeir sem ekki létust vegna harðræðis þrælahaldara máttu þola ásókn moskítóflugna sem báru með sér banvæna sjúkdóma eins og malaríu og gulusótt. Harðneskjan var svo grimmileg að jafnvel konungur Frakklands reyndi að stemma stigu við ofbeldinu. En allt kom fyrir ekki. Að lokum sauð upp úr og þrælarnir gerðu uppreisn gegn kvölurum sínum. Byltingin á Haítí er eina þrælabylting sögunnar sem ekki tókst að berja niður. Hún er ein áhrifamesta og merkilegasta uppreisn sögunnar og á skilið meiri umfjöllun. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

lang amer bandar hispaniola saint domingue frakklandi frakklands frakka
Spegillinn
Snjóflóðahætta, skipulagsmál og vistheimilismál

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 8, 2022

Spegillinn 8. febrúar 2022 Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður: Markús Hjaltason. Átta íbúðarhús voru rýmd á Patreksfirði í dag vegna snjóflóðahættu. Varðskipið Freyja er á leiðinni vestur og verður til taks. Forseti Frakklands vonast til að málamiðlun finnist með Rússum um lausn á Úkraínudeilunni. Stefnt er að því að leiðtogar Rússa, Frakka og Þjóðverja fundi á næstunni um stöðuna. Menningarmálaráðherra boðar að Ríkisútvarpið verði tekið af auglýsingamarkaði. Forsætisráðherra segir þá aðgerð ekki mega skerða stöðu RÚV. Formaður Flokks fólksins skorar á atvinnuveganefnd Alþingis að taka frumvarp hennar um bann við blóðmerahaldi til umfjöllunar. Fjöldi umsagna hefur borist um frumvarpið. Um 1.200 manns hafa fengið sanngirnisbætur vegna illrar meðferðar á vistheimilum á seinustu öld. Hátt í fjórir milljarðar hafa verið greiddir í bætur. Peningar græða þó ekki þau sár sem fólk hlaut að mati umsjónarmanns sanngirnisbóta. Lengri umfjöllun Í Speglinum í gær var rætt við Ólaf K. Nielsen formann Fuglaverndar, en hann hefur ásamt fjömörgum öðrum gagnrýnt áform Reykjavíkurborgar um landfyllingu í Grófavík í Skerjafirði. Landfyllingin er fylgifiskur fyrirhugaðrar 1300 íbúða byggðar vestan við suðurenda Reykjavíkurflugvallar. Landfyllingu verður á ríflega 700 metra löngum kafla, sem næði 100 metra út í sjó. Í frummatsskýrslu sem verkfræðistofan Efla gerði fyrir Reykjavíkurborg kemur fram að framkvæmdin hefði talsverð neikvæð áhrif á fuglalíf og verndarsvæði og verulega neikvæð áhrif á gróður, strand- og sjávarlífríki. Pawel Bartoszek er formaður Skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar. Kristján Sigurjónsson ræddi við hann. Frá því að Breiðavíkurmálið kom upp fyrir 15 árum hafa hátt í fjórir milljarðar verið greiddir í sanngirnisbætur til þeirra sem bjuggu við slæman kost og meðferð á vistheimilum á vegum ríkisins og sveitarfélaga. Um 1.200 manns hafa fengið bætur. Peningar duga þó ekki til að græða sár þeirra sem máttu þola illa meðferð í æsku. Í gær var rætt við Bárð R. Jónsson, sem er einn Breiðavíkurdrengjanna sem stigu fram og sögðu sögu sína fyrir 15 árum. Frá þeim tíma hafa fjöldamörg mál komið fram þar sem upp komst um slæma meðferð á börnum og fullorðnum á seinustu öld. Yfirleitt dvaldi fólk á þessum heimilum af illri nauðsyn og var komið þar fyrir vegna vandamála sinna, stórra og smárra. Bjarni Rúnarsson ræddi við Halldór Þormar Halldórsson, umsjónarmann sanngirnisbóta. Hann annaðist bótagreiðslur í Breiðavíkurmálinu og einnig í fleiri sambærilegum málum.

Spegillinn
Snjóflóðahætta, skipulagsmál og vistheimilismál

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 8, 2022 9:24

07.02.2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 7, 2022

Spegillinn 7.febrúar 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Vetrarfærð er um land allt eftir óveður næturinnar og morgunsins. Spáð er leiðindaveðri næsta sólarhringinn. Rafmagnsleysi var víða á Suðurlandi í dag, Fjármálaráðherra segir að stilla verði stjórntækin vel svo vaxandi verðbólga verði skammtímavandamál en fylgi þjóðinni ekki inní lengri framtíð. Icelandair sagði í dag upp lánalínu hjá Íslandsbanka og Landsbanka sem gaf fyrirtækinu færi á að taka allt að 120 milljón dollara lán þar sem ríkið ábyrgðist 90%. Undirbúningur við að ná upp líkum mannanna fjögurra sem fórust í flugslysinu í Þingvallavatni er langt kominn. Forseti Rússlands fagnar viðleitni Frakka til að leysa Úkraínudeiluna með friðsömum hætti. Þjóðarleiðtogar hafa hist víða um heim í dag til að ræða stöðuna í landinu. Lengri umfjöllun: Áform borgaryfirvalda um landfyllingu í Grófavík í Skerjafirði, í öðrum áfanga nýrrar byggðar þar, hafa fallið í grýttan jarðveg hjá mörgum sem sent hafa inn umsagnir í skipulagsferli málsins. Til stendur að byggja í svokallaðri Gróf, svæði á milli suðurenda Reykjavíkurflugvallar og eystri enda núverandi byggðar í Skerjafirði, allt að 1300 íbúðir. Í frummatsskýrslu sem verkfræðistofan Efla gerði fyrir Reykjavíkurborg kemur fram að framkvæmdin hefði talsverð neikvæð áhrif á fuglalíf og verndarsvæði og verulega neikvæð áhrif á gróður, strand- og sjávarlífríki. Til mótvægis þessu er ætlunin að móta strandlengju landfyllingarinnar þannig að hún líki eftir náttúrlegri strönd til að auka líkur á að þar myndist leirur á ný. Ólafur K. Níelssen, formaður Fuglaverndar og Jóhann Óli Hilmarsson, fyrrverandi formaður félagsins gagnrýna þessar hugmyndir harðlega í grein sem þeir skrifuðu í Kjarnann um helgina. Kristján Sigurjónsson ræðir nánar við Ólaf um gagnrýni þeirra félaga. Nú eru 15 ár liðin frá að upp komst um illa meðferð á drengjum í Breiðavík á síðari hluta seinustu aldar. Drengirnir urðu fyrir andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi, bæði frá eldri drengjum sem dvöldu þar og starfsmönnum heimilisins. Í Breiðavík voru um 130 drengir sendir í vist fyrir slæma hegðun og árið 2007 stigu nokkrir þeirra fram og sögðu frá meðferðinni sem þeir máttu sæta mörgum árum fyrr. Þeirra á meðal var Bárður R. Jónsson sem sagði sögu sögu sína í viðtali við Margréti Marteinsdóttur í Kastljósi árið 2007. Bjarni Rúnarsson ræðir að nýju við Bárð um hvernig tekið hefur verið á þessum málum síðan.

magn fj reykjav brei kristj margr icelandair sigurj hilmarsson undirb frakka marteinsd drengirnir lengri
Spegillinn
Spegillinn 26.janúar 2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 26, 2022

Spegillinn 26. janúar 2022 Umsjón: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn útsendingar frétta: Valgerður Þorsteinsdóttir. Sóttvarnalæknir segir hægt að sleppa veirunni lausri því afleiðingar smita séu miklu minni en áður. Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir áhættu tekna, en ávinningurinn verði þess virði. Hingað og ekki lengra, meirihluti og minnihluti verða að taka höndum saman og tryggja 350 þúsund króna laun skatta- og skerðingarlaus. Þetta sagði Tómas A. Tómasson á Alþingi síðdegis í umræðu um tillögu Flokks fólksins . Handboltalandsliðið vann stórsigur á Svartfellingum í dag og liggur nú á bæn um að Danir vinni Frakka í kvöld svo liðið komist í undanúrslit. Þingmenn á ítalska þinginu hafa enn ekki komið sér saman um hver verði næsti forseti landsins. Þriðja atkvæðagreiðslan fór fram í dag. Fjórir af hverjum tíu skiluðu auðu. Lengri umfjöllun: Á miðnætti tóku gildi nýjar reglur um sóttkví. Nú þurfa eingöngu þeir sem eru útsettir á heimili sínu að fara í sóttkví. Sem fyrr varir sóttkví í fimm daga og PCR-próf þarf til að losna. Þríbólusettir fara hins vegar eingöngu í smitgát sem lýkur með PCR-prófi á fimmta degi. Hins vegar þurfa þeir sem eru útsettir fyrir smiti utan heimilis ekki að fara sóttkví heldur að viðhafa smitgát. Ekki er þörf á sýnatöku lengur til að losna úr smitgát og börn á leik- og grunnskólaaldri eru undanþegin smitgát nema smit sé inni á heimili. Bjarni Rúnarsson ræddi við Magnús Gottfreðsson, lækni og prófessor í smitsjúkdómum. Um fjórðungur þeirra sem hefja nám í íslenskum framhaldsskólum hefur ekki lokið því fjórum árum síðar. Brotthvarf hér er nokkuð mikið í alþjóðlegu samhengi segir Helgi Eiríkur Eyjólfsson, annar höfunda nýrrar skýrslu þar sem efnahagslegur og félagslegur bakgrunnur þeirra sem hverfa frá námi er kannaður og brotthvarfið talið sýna ójöfn tækifæri fólks. Nú er það svo að nærri allir skrá sig í framhaldsskóla eftir grunnskólann. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Helga og Kolbein Stefánsson Mjög er umdeilt hvort Norðmenn hafi gert rétt í að bjóða fulltrúum Talibana frá Afganistan viðræðna í Osló. Er þetta viðurkenning á stjórn ofbeldismanna? Er þessum mönnum treystandi? Núna eru þeir farnir heim tómhentir en á kostnað norska ríkisins ? en reikna má með framhaldi á viðræðum. Gísli Kristjánsson fjallar um heimsókn Talibana.

er mj sem pcr magn fj afganistan kristj ekki osl umsj eyj valger danir hinga hins forstj anna krist frakka lengri
Spegillinn
Spegillinn 26.janúar 2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 26, 2022 10:02

er mj sem pcr magn fj afganistan kristj ekki osl eyj valger danir hinga hins forstj anna krist frakka lengri
Morgunútvarpið
24. jan. - Ljósmynd, íslenskan, orkumál, Reynir Tr., glens og EM

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 24, 2022

Þriðja elsta þekkta ljósmyndin frá Íslandi fannst á dögunum þegar opnaður var nýr vefur með hluta af ljósmyndasafni dönsku konungsfjölskyldunnar. Myndin, sem sýnir norðurenda Tjarnarinnar í Reykjavík, hefur sögulegt gildi en hún er talin tekin af Frakkanum Louis Rousseau í leiðangri Napóleons prins um Norðurlönd sumarið 1856. Við heyrðum í Ingu Láru Baldvinsdóttur, sagnfræðingi og fyrrum sviðsstjóra ljósmyndadeildar Þjóðminjasafns Íslands, um myndina. Lestrarkeppni grunnskólanna er í fullum gangi og er hluti af þeim verkefnum sem eru í gangi til að efla íslenskuna. Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra menningarmála fer með málaflokkinn og við ræddum við hana um stöðu íslenskunnar og áherslur í baráttunni við að vernda tungumálið okkar í sífellt alþjóðlegri heimi. Orkubú Vestfjarða býst við að þurfa að brenna olíu í allt að þrjá mánuði til að tryggja húsakyndingu eftir að Landsvirkjun tilkynnti að hún afhendi nú enga raforku til kaupenda að skerðanlengri orku vegna orkuskorts. Við heyrðum í Elíasi Jónatanssyni, forstjóra Orkubús Vestfjarða, um málið og framtíðarsýn þeirra í orkumálum. Reynir Traustason fréttastjóri Mannlífs hefur staðið í sannkallaðri orrahríð síðan áður en brotist var inn á skrifstofur fjölmiðilsins aðfaranótt föstudags og atlaga gerð að því að leggja miðilinn niður. Róbert Wessmann forstjóri Alvogen sendi frá sér yfirlýsingu um helgina þar sem hann segist hvergi hafa komið nærri innbrotinu en Reynir lítur þó svo á að þeir eigi í einhverskonar stríði. Reynir var gestur okkar. Drulluleiðist þér í sóttkví eða einangrun? Að þessu spyrja þær Ebba Sig uppistandari og Róberta Michelle Hall húllumhæ húllastelpan. Þær taka að sér að skemmta fólki við alls kyns aðstæður og í öllum veðrum og við fengum þær í heimsókn til að segja okkur meira. Óhætt er að segja að íslenska karlalandsliðið í handbolta hafi fyllt á hamingjuhormón þjóðarinnar sl. laugardag með alveg hreint stórkostlegum sigri á Ólympíumeisturum Frakka. Við heyrðum í okkar manni í Búdapest, sem líkt og níu leikmenn, varð fyrir barðinu á veirufjandanum, og lýsti Frakkaleiknum úr einangrun í hótelherbergi sínu. Við tókum EM stöðuna hjá Einar Erni Jónssyni. Tónlist: Jóhann G. Jóhannsson - Dont try to fool me. Amy Winehouse - Back to black. Júlí Heiðar - Ástin heldur vöku. Robert Plant og Alison Krauss - Cant let go. Erla og Gréta - Ég á heiminn með þér. Sigrún Stella - Baby blue. Ásgeir Trausti - Sunday drive. Post Malone - Only wanna be with you. Eddie Vedder - Long way. Björk - Army of me.

army bj hei nap robert plant sigr glens erla amy winehouse back reynir myndin vestfjar landsvirkjun frakka lilja alfre baldvinsd alvogen
Morgunútvarpið
24. jan. - Ljósmynd, íslenskan, orkumál, Reynir Tr., glens og EM

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 24, 2022 130:00

21. jan. - EM, kjaramál, rafmagnssala, fréttaspjall, kettir og Kanarí

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 21, 2022

Íslendingar börðust hetjulega gegn Dönum á handboltavellinum í gærkvöldi og framundan er annar erfiður leikur, við Frakka. Við heyrðum í okkar manni í Búdapest, Einar Erni Jónssyni um framhaldið, en íslenska liðið fær m.a. liðsstyrk að heiman fyrir næsta leik. Tæplega þriðjungur vinnandi fólk á erfitt með að ná endum saman samkvæmt nýrri könnun sem Varða,Rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins framkvæmdi nýverið. Þá hefur andlegri heilsu launafólks hrakað, en rúmlega þrjár af hverjum tíu konum og tæplega þrír af hverju tíu körlum mældust með slæma andlega heilsu. Við ræddum við Drífu Snædal, forseta ASÍ, um niðurstöður könnunarinnar og kjarabaráttuna framundan. Framkvæmdastjóri N1 baðst í gær afsökunar á að N1 rafmagn hefði ekki brugðist fyrr við athugasemdum um hátt verð sem fólk greiðir sé það flutt sjálfkrafa í viðskipti við fyrirtækið í gegnum þrautavaraleið. Við fórum yfir málið við Breka Karlssyni, formanni Neytendasamtakanna, en hann hefur sakað N1 um blekkingar. Við ræddum einnig við Breka um vaxtamálið svokallaða en samtökin hyggjast stefna stóru viðskiptabönkunum þremur vegna meintra ólögmætra lána. Það var af nógu að taka í fréttum vikunnar að þessu sinni en til þess að fara yfir það sem bar hæst komu til okkar þau Sunna Valgerðardóttir fréttakona á Stöð 2 og Valur Grettisson ritstjóri Grapevine. Stóra lausagöngumálið er hlustendum ábyggilega minnisstætt, en mikil umræða skapaðist um lausagöngu katta eftir að Akureyrarbær samþykkti bann við henni innan fárra ára. Í kjölfarið gerði Maskína könnun sem sýnir, eins og segir í frétt á vef fyrirtækisins, að Íslendingar séu mjákvæðir gagnvart köttum. Við rýndum í niðurstöður könnunarinnar með Hönnu Evensen rekstrarstjóra Kattholts. Í kvöld frumsýnir sketsahópurinn Kanarí glænýja grínþætti á RÚV. Þetta er ekki frumraun hópsins því fyrir nokkrum árum sendi Kanarí frá sér nokkra sketsa í gegnum RÚV núll en einnig stóð hópurinn fyrir stórskemmtilegri grínsýningu í Þjóðleikhúskjallaranum í vetur. Kanarí þættirnir sem nú eru að fara í loftið eru þó stærsta verkefni hópsins til þessa. Þau komu til okkar frá Kanarí, Eygló Hilmarsdóttir og Guðmundur Felixson, og sögðu okkur frá ferlinu. Tónlist: Lay Low - Þorralitirnir. Al Green - Here I am, come and take me. Pearl Jam - Just breathe. Eurythmics - Here comes the rain again. Ásgeir Trausti - Öldurótið. Daði og Gagnamagnið - Ten years. Björk - Big time sensuality. Righeira - Vamos a la playa.

mask bj var rv gu sn grapevine n1 lay low evensen ranns kanar framkv trausti frakka felixson neytendasamtakanna sunna valger
Morgunútvarpið
21. jan. - EM, kjaramál, rafmagnssala, fréttaspjall, kettir og Kanarí

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 21, 2022 130:00

Spegillinn 22. Nóvember

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 22, 2021 8:43

Spegillinn 22. Nóvember Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Fyrrverandi félagsmálastjóri á Akureyri kvartaði undan vistheimili barna á Hjalteyri á sínum tíma. Þeirri kvörtun var að hans mati stungið undir stól. Fólk sem þar dvaldi steig fram í gær og greindi frá ofbeldi af hálfu umsjónarmanna heimilisins. Undirbúningskjörbréfanefnd situr nú á fundi og freistar þess að komast að niðurstöðu sem lögð verður fyrir Alþingi á morgun. Þingmaður Pírata segir enn margt óljóst um niðurstöðu nefndarinnar en hann ætli ekki að styðja seinni talninguna. Andlát af völdum COVID-19 eru komin yfir eitt þúsund í Noregi. Hátt í fimmtán hundruð smit voru greind í landinu í gær. Matvælastofnun rannsakar nú myndefni frá dýraverndarsamtökum sem sýnir óviðunandi verklag við blóðtöku úr svokölluðum blóðmerum. Formaður Flokks fólksins, vill banna blóðtöku úr fylfullum hryssum um leið og þing kemur saman. Lengri umfjöllun: Bretar gengu úr Evrópusambandinu í lok janúar í fyrra en Brexit-vandinn er ekki búinn. Það er Brexit-kergja í sambandi Breta og Frakka og því gengur ekki vel að leysa úr málum flóttamanna sem koma á bátum frá Frakklandi. Og það er nokkuð ljóst að þrátt fyrir loforð, getur breska stjórnin ein ekki leyst sinn flóttamannavanda. Brexit gerir stjórninni erfiðara fyrir, það þarf samstarf í þessum efnum. En flóttamannamálið er aðeins eitt af fleiri Brexit-málum, sem breska stjórnin freistar að leysa en gengur hægt. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Alþingi verður sett á morgun. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar er sá núverandi þingmaður sem á lengstan þingferil að baki og sest því í stól þingforseta og stýrir þingsetningarfundi. Hún kemur í Spegilinn ásamt Bryndísi Haraldsdóttur, Sjálfstæðisflokki. Kristján Sigurjónsson ræðir við þær í beinni útsendingu.

Spegillinn
19. nóvember. Norsk og bresk pólitík. Lausn á tannheilsuvanda aldraðra

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 19, 2021 10:18

Ráða þarf hjúkrunarfræðinga í 200 stöðugildi til að Landspítalinn geti starfað með eðlilegum hætti. Þetta segir starfandi forstjóri spítalans. Spítalann bráðvantar líka ljósmæður á bakvarðalista. Samkeppniseftirlitið telur tilefni til að skoða kaup sjóðastýringarfyrirtækisins Ardian á Mílu, dótturfélagi Símans, á grundvelli samrunaákvæða samkeppnislaga. Ung kona sem smitast hefur tvisvar af kórónuveirunni segist myndu þiggja örvunarskammt ef hann stæði til boða. Hún vill ekki hætta á verri veikindi í þriðja skiptið. Forseti Frakklands segir Frakka ætla að halda áfram að berjast fyrir sjómenn landsins og áfram verði krafist sama fjölda veiðiheimilda við Jersey og fyrir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Lengri umfjallanir (frá 10. mínútu) Margir norskir þingmenn virðast hafa misskilið reglur um húsnæðisstyrk sér í hag. Forseti norska stórþingsins sagði af sér í dag. Gísli Kristjánsson í Noregi segir frá þessu. Forstjóri Hrafnistu segir hjúkrunarheimili nauðsynlega þurfa stuðning sérfræðinga til að sinna tannheilsu íbúa. Þarfirnar séu orðnar flóknari og einstaklingsbundnari en áður. Hjúkrunarheimili virðast meðvituð um vandann en verkefni til að bæta þjónustuna hafa tafist eða strandað vegna heimsfaraldurs, fjárskorts og meints áhugaleysis tannlækna. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Maríu Fjólu Harðardóttur, forstjóra Hrafnistu, Helgu Ágústsdóttur, sérfræðing í öldrunartannlækningum, Kristrúnu Sigurðardóttur tannfræðing og Hólmfríði Guðmundsdóttur, tannlækni hjá Embætti landlæknis. Stundum gengur svo mikið á í stjórnmálunum að einstaka dagar verða sögulegir. Þannig var miðvikudagurinn í Bretlandi. Hörð átök í breska þinginu þar sem þingforsetinn þaggaði einarðlega niður í Boris Johnson forsætisráðherra. Stóru átakaefnin eru aukastörf þingmanna, lestarframkvæmdir og jöfnun aðstöðumunar milli landshluta og umönnun utan sjúkrastofnana. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.

Spegillinn
15. nóvember 2021, Reykjavíkurborg fjallar um málefni Sælukots

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 15, 2021 9:26

Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur segir að berist alvarleg kvörtun vegna starfsmanna í skólum skuli starfsmenn fara í leyfi á meðan mál er rannsakað. Kannað verði hvort það hafi ekki verið gert þegar starfsmaður leikskólans Sælukots var kærður til lögreglu. Hátt í sjö þúsund manns mættu í þriðju sprautu í Laugardalshöll á fyrsta degi örvunarbólusetningar. Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðiisns segir að óbólusettir íþyngi heilbrigðiskerfinu. Viðbúnaður vegna yfirvofandi hryðjuverka hefur verið aukinn í Bretlandi eftir að sprengja sprakk í leigubíl í Liverpool í gær. Ásgeir Tómasson sagði frá. Óbólusettu fólki í Berlín, höfuðborg Þýskalands, er frá og með deginum í dag óheimilt að borða á veitingahúsum, fara á bari eða í kvikmyndahús svo nokkuð sé nefnt. Kórónuveirusmitum hefur fjölgað mjög í landinu að undanförnu. Ásgeir Tómasson sagði frá. Stórtónleikum tenórsins Andrea Bocelli hefur verið frestað í þriðja sinn vegna faraldursins. Ísleifur Þórhallsson, talsmaður Senu segir yfirvöld þurfa að finna lausnir svo hægt sé að halda stóra viðburði. --------- Það var ys og þys í Laugardalshöll í Reykjavík í dag þegar fyrsti boðaði hópurinn kom í örvunarbólusetningu - fékk þriðja skammtinn af bóluefni gegn Covid. Alls voru 9.700 boðuð í bólusetningu. 6.615 mættu eða um 68 prósent. Í fyrsta hópnum í dag voru sextugir og eldri og fólk með undirliggjandi sjúkdóma. Kristján Sigurjónsson ræddi við Sigríði Dóru Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Á næstu árum hverfa mjög fjölmennar kynslóðir af vinnumarkaði á Íslandi, fólk sem er um sjötugt eða nærri því, og við það gerist ýmislegt, meðal annars lækkar hlutfall þeirra sem eru starfandi á móti þeim sem komnir eru á eftirlaun segir Ólöf Garðarsdóttir, prófessor í sagnfræði og forseti hugvísindadeildar Háskóla Íslands. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Ólöfu. Í kvöld funda innanríkisráðherrar Frakka og Breta í París um flóttamannamál eftir að hnútur hafa flogið á milli þeirra. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Spegillinn
29. október 2021 Lánsfjárskortur ekki lóðaskortur segir borgarstjóri

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 29, 2021 10:01

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri þvertekur fyrir að lóðaskortur í borginni hafi valdið samdrætti í uppbyggingu. Samdrátturinn stafi frekar af því að bankarnir hafi hætt að lána til byggingaframkvæmda í hitteðfyrra. Landssamband eldri borgara segri það brjóta gegn stjórnarskrá að ríkið skerði ellilífeyri, fái fólk greiðslur úr lífeyrissjóði, Ásrún Brynja Ingvarsdóttir tók saman. Haukur Holm ræddi við Helga Pétursson formann LEB og Flóka Ásgeirsson lögmann þess. Meðaldilkurinn var talsvert þyngri í sláturhúsinu á Hvammstanga í ár en í fyrra og það þakkar sláturhússtjórinn sífellt betri árangri bænda við ræktun. Ágúst Ólafsson tók saman og ræddi við Davíð Gestsson, sláturhússtjóra. Víkingaskipið sem rak mannlaust upp í fjöru á Álftanesi í morgun var dregið út á háflóði og til hafnar í Kópavogi. Ólöf Rún Erlendsdóttir sagði frá. Síðan Miðgarðskirkja brann í Grímsey upp úr miðjum september hefur verið safnað fé til að byggja nýja kirkju. Aðstoð hefur borist úr ýmsum áttum; sóknarnefnd Hallgrímskirkju ætlar að leggja fé í kirkjubyggingu í eynni. Anna Þorbjörg Jónasdóttir talaði við Alfreð Garðarsson formann sóknarnefndar Miðgarðssóknar og Sigurð Árna Þóraðrson Hallgrímskirkjuprest. Hefja á gjaldtöku fyrir bílastæði í miðbæ Akureyrar um áramót, í 15 ár hafa menn bara notað þar bílastæðaklukkur. Óðin Svan Óðinsson sagði frá og talaði við Andra Teitsson formann umhverfis- og skipulagsnefndar Akureyrarbæjar. ------- Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefst á sunnudag í Glasgow á Skotlandi. Ragnhildur Thorlacius fer yfir verkefni fundarmanna. Afstaða fólks til þess hvort varsla á neysluskömmtum fíkniefna skuli gerð refsilaus hefur breyst. Meirihluti aðspurðra var því fylgjandi í könnun sem gerð var í ár og var það í fyrsta sinn. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Helga Gunnlaugsson prófessor við Háskóla Íslands. Það eru enn óafgreidd Brexit-mál milli Breta og Evrópusambandsins og fiskveiðideilur Frakka og Breta eru angi þeirra deilna. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar fréttahluta: Björg Guðlaugsdóttir

brexit bj gu magn stj dav sigur leb ekki sigr evr breta hallgr umsj svan eggertsson segir akureyrar sameinu borgarstj dagur b anna krist frakka hvammstanga loftslagsr
Lestin
Ófærð, beðmál í borginni og samtímamenning Frakka

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 18, 2021 55:00

Við höldum áfram að spjalla um samtímamenningu ólíkra þjóða. Að þessu sinni höldum við til Evrópu. Anna Gyða Sigurgísladóttir segir okkur hvað ungir hinsegin parísarbúar eru að hlusta á og horfa á - jahh.. Eða ekki horfa á. Þriðja þáttaröð Ófærðar eftir Baltasar Kormák hófst í gær. Heitfengi lögreglubangsinn Andri er mættur aftur norður á land til að rannsaka morð. Að þessu sinni þarf hann að sökkva sér ofan í skuggalegan heim mótorhjólagengja og ásatrúar-kakókölts. Sérstakt Ófærðarhlaðvarp er nú framleitt af RÚV en eftir því sem við best vitum er þetta í fyrsta skipti sem opinbert hlaðvarp fylgir leikinni sjónvarpsþáttaröð hér á landi. Við heyrum brot úr hlaðvarpinu Með Ófærð á heilanum í þætti dagsins. Kristlín Dís Ingilínardóttir tekur sér far með Lestinni í dag. Í haust hefur hún flutt okkur pistla sem gætu gengið undir yfirskriftinni Beðmál í borginni.

rv samt andri evr baltasar korm frakka
Heimsglugginn
Der er noget galt i Danmark

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 3, 2021 22:12

,,Der er noget galt i Danmark," söng John Mogensen fyrir margt löngu og segja má með sanni að margt hafi gengið úrskeiðis hjá Dönum undanfarið, njósnaskandall þar sem Bandaríkjamenn nutu aðstoðar Dana við að hlera nána bandamenn eins og Norðmenn, Svía, Frakka og Þjóðverja. Þá var rætt um minka sem var lógað vegna ótta við kórónuveiruna, voru grafnir, grafnir upp og verða brenndir, bólusetningaráætlanir sem ekki standast, bóluefni sem ekki má nota en má svo kannski nota. Mette Frederiksen telur allt í lukkunnar velstandi þrátt fyrir reiði og pirring náinna bandamanna, neitar að svara spurningum um hleranir leyniþjónustu hersins, hið sama gerir Trine Bramsen varnarmálaráðherra. Hún fullvissaði þó Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra í símtali í gær um að ekkert hefði verið njósnað um Íslendinga. Í lokin, allt of stutt, minntumst við Björn Þór Sigbjörnsson Pouls Schlüters, fyrrverandi forsætisráðherra, sem lést í síðustu viku. Schlüter hafði ríkulega kímnigáfu og það sem Danir nefna ,,glimt i øjet."

Heimsglugginn
Der er noget galt i Danmark

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 3, 2021

Vaktavinnufólk á LSH, hjúkrunarheimilin og rísandi ferðaþjónusta

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 27, 2021 30:00

Spegillinn 27. maí 2021 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Hæstiréttur sýknaði Íbúðalánasjóð í dag í máli vegna uppgreiðslugjalda lána og ómerkti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í öðru svipuðu máli. Rætt við Jónas Fr. Jónsson lögmann hjónanna sem þurfa að fara aftur með sitt mál til héraðsdóms. Víðir Reynisson segir nýja rakningarappið auðvelda rakningu og fækka þeim sem þurfa að fara í sóttkví. Hann hvetur ungt fólk sem ætlar að djammið um helgina að hlaða appinu niður. Frakklandsforseti viðurkenndi í dag þátt Frakka í þjóðarmorðinu í Rúanda fyrir 27 árum og baðst fyrirgefningar fyrir hönd þjóðarinnar. Utanríkisráðherrar sjö helstu iðnríkja heims krefjast þess að yfirvöld í Hvíta-Rússlandi láti blaðamanninn og stjórnarandstæðinginn Roman Protasevich lausan án tafar og nokkurra skilyrða. Mannabein sem rak á land í Vopnafirði og fundust fyrsta apríl síðastliðinn eru af skipverja sem féll fyrir borð á fiskiskipinu Erling KE-140 í maí í fyrra. Mikill meirihluti vaktavinnufólks á Landspítalanum ætlar að auka við starfshlutfall sitt vegna styttingar vaktavinnu. Deildarstjóri segir að vegna styttingarinnar gæti orðið erfiðara að manna stöður í sumar. Arnar Páll Hauksson, ræddi við Helgu Sigurðardóttur, deildarstjóra mönnunar- og starfsumhverfisdeildar Landspítalans Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra telur að ekki liggi fyrir fullnægjandi greining á hvert fjárframlag ríkisins ætti að vera í rekstri hjúkrunarheimilanna. Þetta sagði hún á málþingi um greiningu á rekstrarkostnaði þeirra sem haldið var í dag. Einnig heyrist í Gylfa Magnússyni, prófessor við HÍ sem fór fyrir verkefnisstjórn um rekstur heimilanna og rætt við Aldísi Hafsteinsdóttur, formann Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hún segir að sveitarfélögin vilji að brugðist sé við skýrslu verkefnastjórnarinnar með fjármagni því að öðrum kosti verði ófremdarástand í þessum geira Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að teikn séu á loft um að landið sé að rísa í ferðaþjónustunni. Batamerki séu greinileg. Mestu máli skipti hverskonar ferða menn komi hingað. Þeir ferðamenn sem þegar eru búnir að bóka ferðir hingað ætli að dvelja hér lengur en í meðalári.

hann reykjav hv ald einnig roman protasevich mestu hauksson landsp baldursd svavarsd mikill samtaka hafsteinsd reynisson arnar p sambands frakka berglj
Segðu mér
Reynir Tómas Geirsson fyrrverandi prófessor og yfirlæknir

Segðu mér

Play Episode Listen Later May 17, 2021 40:00

Reynir segir frá eiginkonu sinni Steinunni Jónu Sveinsdóttur sem hann missti 2018 eftir baráttu við krabbamein, þau voru heppin með hvort annað og voru mjög samrýmd. Hann var í erilsömu starfi sem yfirmaður á Landspítalanum og háskólaprófessor. Steinunn þýddi skáldssöguna Dvergurinn frá Normandí eftir Lars-Henrik-Olsen en hún fjallar um hvernig hinn frægi Bayeux refill var saumaður í léreft að öllum líkindum í Kent á Englandi um 1076. Refillinn er samfelld myndaröð og lýsir einni mestu orrustu sem orðið hefur á Bretlandseyjum, orustunni við Hastings árið 1066 þegar innrásarlið frá Normandí réðst inn í England og hafði sigur. Refillinn sem er 70,34 metra langur er eitt mesta þjóðargersemi Frakka enn í dag. Steinunn lést áður en henni tókst að ljúka útgáfu bókarinnar og Reynir lofaði henni að hann myndi ljúka verkinu, og nú er bókin komin út. Reynir Tómas er mættur á söguloftið á Landnámssetrinu og segir ekki frá tilurð refilsins, saumaaðferðinni, ? refilsaum sem er frá tímum víkinga og hvernig refillinn hefur varðveist í gegnum aldirnar. Einnig rekur hann söguna sem myndirnar á reflinum túlka.

england hastings normand hann bayeux einnig landn steinunn reynir landsp sveinsd geirsson fyrrverandi yfirl frakka
Heimsglugginn
Skotar kjósa til þings, 200 ára ártíð Napóleons

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later May 6, 2021 19:33

Spennandi kosningar eru á Bretlandi í dag þar sem kosið er til þings í Skotlandi og Wales og til fjölmargra bæjar- og sveitarstjórna. Þá eru aukakosningar um þingsæti í Hartlepool í norðausturhluta Englands. Því er spáð að Íhaldsflokkurinn vinni það sæti, en Verkamannaflokkurinn hefur átt þingmann kjördæmisins frá 1964. Spennan er mest í Skotlandi þar sem Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, gæti unnið hreinan meirihluta á skoska þinginu. Undir lok Heimsgluggans ræddu Þórhildur Þorkelsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir við Boga Ágústsson um 200 ára ártíð Napóleons Frakkakeisara. Hann lést í útlegð á smáeyjunni Sankti Helenu sem er útnári í miðju Suður-Atlantshafi. Arfleifð hans er afar umdeild í Frakklandi. Napóleon gerbreytti stjórnskipan Frakklands, vann mikla hernaðarsigra en var að lokum borinn ofurliði í orrustunni við Waterloo í Belgíu 1815. Frakkland nútímans ber enn svip af þeim breytingum sem Napóleon gerði. En hann skerti einnig réttindi kvenna og kom þrælahaldi á að nýju í nýlendum Frakka og þess vegna finnst mörgum ótilhlýðilegt að halda upp á ártíð hans. Emmanuel Macron Frakklandsforseti reyndi að skauta fram hjá deilunum í ræðu í gær en sagði að ekki væri hægt að þurrka út fortíðina vegna þess að hún passaði ekki við hugmyndir samtímans. Nei, Napóleon Bonaparte er hluti af okkur, sagði Macron.

Heimsglugginn
Skotar kjósa til þings, 200 ára ártíð Napóleons

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later May 6, 2021

Rafmagn upp að gosi, verðlækkun, Bayeux-refilinn

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 15, 2021 30:00

Spegillinn 15.4 2021 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Stjórnvöld í Noregi ætla að bíða með að taka ákvörðun um notkun á bóluefni Astrazeneca. Norska lýðheilsustofnunin vill að bóluefnið verði tekið úr umferð. Embætti ríkissaksóknara hefur ákveðið að hækka ekki sektir fyrir brot á sóttkví. Ríkissaksóknari telur að sú heimild sóttvarnalæknis að skikka fólk sem rýfur sóttkví til að ljúka henni í sóttvarnarhúsi hafi mun meiri fælingarmátt en hækkun sekta. Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við Heilsuvernd um yfirtöku á rekstri Öldrunarheimila Akureyrar. Bæjarstjórinn fagnar samningnum en reksturinn kostaði Akureyrarbæ 400 miljónir króna á síðasta ári. Rætt við Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra á Akureyri Fjármálaeftirlitið hefur óskað eftir gögnum frá fyrirtækinu sem sendi innheimtukröfur á fólk vegna smálána. Neytendastofa hefur málið einnig til skoðunar. Fyrirtækið ætlar að breyta kröfunum þannig að þær endurspegli einungis höfuðstól lánanna. Skoða þarf hvort vistun kvenna og karla saman í opnum fangelsum taki nægjanlegt mið af öryggi og þörfum kvenna. Þetta kemur fram í skýrslu setts umboðsmanns Alþingis. Lengra efni: Stefnt að því að leggja rafmagn upp að gosinu í Geldingadölum og í dag var byrjað að bera möl í stíginn að gosstöðvunum. Þá verða ráðnir landverðir eða starfsmenn til að taka við af björgunarsveitarmönnum. Arnar Páll Hauksson ræddi við Fannar Jónasson, bæjarstjora í Grindavík og Ólaf Jónsson, sviðssstjóra hjá Umhverfisstofnun Aukin eftirspurn eftir vörum og þjónustu og hagstætt vaxtaumhverfi ætti að auka svigrúm fyrirtækja til að lækka verð segir, Auður Alfa Ólafsdóttir, verkefnisstjóri verðlagseftirlits ASÍ. Róbert Farestveit, sviðstjóri og hagfræðingur ASÍ telur að vaxtahækkanir séu ekki heppilegar til að halda aftur af verðbólgu. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Auði og Róbert um verðhækkanir og verðbólgu. Í janúar 2018 heimsótti Emmanuel Macron Frakklandsforseti Theresu May þáverandi forsætisráðherra til að ræða erfitt mál, flóttamannamálin. En Macron kom einnig færandi hendi: boð um að árið 2022 myndu Frakkar lána Bretum Bayeux-refilinn, eina mestu þjóðargersemi Frakka. Nú er tvísýnt hvort úr því verði og aðstæður reyndar aðrar en þegar boðið kom. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá

sj astrazeneca alfa stj dav sko norska emb bayeux sigr gosi noregi grindav hauksson akureyrar fyrirt baldursd sturlud arnar p frakkar frakka berglj stefnt
Spegillinn
Spegillinn 28. október 2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 28, 2020 30:00

Spegillinn 28.október 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Marteinn Marteinsson Ástandið vegna kórónuveirufaraldursins fer versnandi segir sóttvarnalæknir. Hann skilar nýjum sóttvarnartillögum til heilbrigðisráðherra fyrir helgi. Ekki verður slakað á. Frönsk stjórnvöld biðja Evrópusambandið að beita sér gegn forseta Tyrklands vegna ögrana hans í garð Frakka að undanförnu. Einelti og kynbundin og kynferðisleg áreitni eru rótgróinn vandi innan sviðslista á Íslandi. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Háskóla íslands. Jólin verða mörgum erfið og þungbær, segja þeir sem þiggja aðstoð hjá Fjölskylduhjálp Íslands. Mun fleiri hafa leitað til Hjálparstarfs kirkjunnar í ár en í fyrra. Hótel Sögu í Reykjavík verður lokað um mánaðamótin. Bændahöllin og Hótel Saga hafa verið í greiðsluskjóli gagnvart kröfuhöfum sínum síðan í júlí. Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að nemendur í Verkmenntaskóla Austurlands og Menntaskólanum á Egilsstöðum fái að mæta í skólann að nýju. Markmiðið er að umbylta svefnheiminum, segir lektor sem leiðir tveggja og hálfs milljarðs króna rannsókn á svefni og svefntengdum öndunartruflunum. Lengri umfjöllun: Aðeins tæp vika er nú í að kjördagur renni upp í forsetakosningunum í Bandaríkjunum - þriðjudagurinn 3. nóvember. Um 250 milljón manns hafa rétt á að kjósa í Bandaríkjunum. Yfir 70 milljón manns hafa þegar kosið utan kjörfundar eða í póstkosningum og er það mun hærri tala en í kosningunum 2016. Um 137 milljón manns kusu í forsetakosningunum 2016 sem er um 56 prósent kjörsókn. Flest bendir til þess að kjörsókn verði meiri nú. Eins og kunnugt er þá er kosningakerfið í Bandaríkjunum all frábrugðið kerfinu hér heima. Íbúar í hverju ríki kjósa kjörmenn, sem síðan kjósa forsetann. Kosnir eru 538 kjörmenn, mismargir í hverju ríki eftir íbúafjölda. Fjölmenn ríki eins og Kalifornía og Texas fá miklu fleiri kjörmenn en fámenn ríki eins og Wyoming og Vermont. Sá frambjóðandi sem sigrar í tilteknu ríki fær alla kjörmenn þess. Frambjóðendur keppa því að því að fá samtals 270 kjörmenn eða fleiri kosna. Þá er kominn meirihluti kjörmanna og björninn þar með unninn. Kosningabaráttan fer einkum fram í þeim ríkjum þar sem mjótt er á munum á milli frambjóðenda, svokölluðum sveifluríkjum. Þau eru fjórtán, þar á meðal fjölmenn ríki eins og Texas, Pennsylvanía og Flórída þar sem margir kjörmenn eru undir. Frambjóðendur láta ríki eins og Connecticut og Oklahóma nánast eiga sig í kosningabaráttunni. Biden er öruggur með sigur í Connecticut og Trump í Oklahóma og því til lítils að eyða miklu púðri þa

texas joe biden connecticut saga vermont wyoming hj fj hann reykjav mun bandar kristj ekki evr flest yfir markmi heilbrig menntask kaliforn egilsst tyrklands frakka austurlands lengri
Í ljósi sögunnar
Voulet-Chanoine-leiðangurinn

Í ljósi sögunnar

Play Episode Listen Later Oct 9, 2020

Í þættinum er fjallað um leiðangur ungra franskra herforingja frá Senegal að Tsjad-vatni í vestanverðri Afríku, með mörg hundruð manna lið, í lok 19. aldar. Ferð þeirra einkenndist af grimmd og ofbeldi í garð innfæddra sem urðu á vegi þeirra, sem og annarra Frakka.

Heimskviður
18 | Stórsigur Íhaldsflokksins, Aung San Suu Kyi og verkföll Frakka

Heimskviður

Play Episode Listen Later Dec 13, 2019 47:04

Í átjánda þætti Heimskviðna er fjallað um stórsigur Íhaldsflokksins í bresku þingkosningunum á fimmtudag. Boris Johnson tókst ætlunarverk sitt, en hvort hann komi Brexit í gegnum breska þingið, er áfram óleyst ráðgáta. Hann hefur allavega sterkara vopnabúr en áður. Hallgrímur Indriðason um þau mótmæli og verkföll sem hafa staðið yfir í Frakklandi undanfarna viku, og þau áhrif sem þau hafa haft á franskt atvinnu- og þjóðlíf. Frakkar eru mun duglegri að mótmæla en flestar aðrar Evrópuþjóðir og það má rekja til ýmiss konar sérstöðu í franska kerfinu. Við skoðum hana nánar, og rýnum jafnframt í áhrif núverandi mótmæla og ástæðuna fyrir þeim, sem og fyrirhugaðar breytingar á eftirlaunakerfi Frakka. Þá er einnig fjallað um frelsishetjuna og friðarverðlaunahafann Aung San Suu Kyi, valdamestu konu Mjanmar. Hún mætti fyrir Alþjóðadómstóllinn í Haag í vikunni. Stjórnvöld þar í landi eru ásökuð um þjóðarmorð og þjóðernishreinsari á Róhingjum í Rakhine héraði í vesturhluta Mjanmar. Fjallað er um Suu Kyi, baráttu hennar fyrir mannréttindum í Mjanmar, hvernig hún komst til valda, og hvernig hún virðist nú bera ábyrgð á dauða þúsunda saklausra borgara. Guðmundur Björn ræðir við Ingólf Bjarna Sigfússon, fréttamann, sem fór til Rakhine héraðs á síðasta ári. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Heimskviður
18 | Stórsigur Íhaldsflokksins, Aung San Suu Kyi og verkföll Frakka

Heimskviður

Play Episode Listen Later Dec 13, 2019