Podcasts about leikur

  • 34PODCASTS
  • 162EPISODES
  • 1h 19mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Sep 15, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026


Best podcasts about leikur

Latest podcast episodes about leikur

Mannlegi þátturinn
Matsmannafélag Íslands, nálastungur fyrir hross og gæludýr og veðurspjallið með Einari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 15, 2026 52:41


Við fræddumst um Matsmannafélag Íslands í dag, en Ragnar Ómarsson formaður þess kom í þáttinn. Fasteignakaup eru stærsta fjárfesting sem flestir Íslendingar ráðast í. Samt eru enn uppi álitaefni um upplýsingagjöf við sölu fasteigna, réttindi kaupenda og seljenda og meðferð byggingargalla. Þarna koma matsmenn til sögunnar og Ragnar sagði okkur frá starfi þeirra og ráðstefnu Matsmannafélagsins sem verður á fimmtudaginn. Núna í október mun Líney Emma Jónsdóttir dýralæknir klára nám í nálastungum fyrir hross og gæludýr. Við heyrðum í henni í þættinum í dag og hún sagði okkur frá ráðstefnu sem haldin er hér á landi og hefst á morgun þar sem dýralæknar hvaðanæva að úr heiminum hittast og bera saman bækur sínar. Þar á meðal er hópur dýralækna sem notar nálastungur í sínum meðhöndlunum. Líney Emma vonast til að það takist að vekja athygli Íslendinga á viðurkenningu og útbreiðslu nálastungu í dýralækningum í heiminum í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í veðurspjallið. Það sem kom við sögu í dag var hitarnir í Evrópu sem hafa slegið öll met, afleiðingar El Nino sem er afar öflugur og svo eru haustlitirnir farnir að sýna sig hér heima, erum við með söknuð og trega í sumarlok eða hvað? Að lokum heyrðum við ljóðið Gangnadagsmorgunn eftir Sigurð Óskar Pálsson frá Borgarfirði Eystra. Tónlist í þættinum: Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson Litlir kassar / Þokkabót (Pete Seeger, texti Þórarinn Guðnason) Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Granata & Verard, texti Jóhanna G. Erlingsson) Spánardraumur / Hljómsveit Ingimars Eydal (Caerts, Roozenstraten, texti Einar Haraldsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Tölvuleikjaspjallið
292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Sep 10, 2026 69:58


Er búið að tala nóg um GTA VI? Ekki alveg ...Arnór Steinn og Sölvi taka helstu fréttir haustsins í brakandi ferskum þætti. God of War: Laufey, Wolverine og margt fleira!

Fram og til baka
Hinsegin gleði, Leikur einn og Hvanneyrarhátíð

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Aug 8, 2026 197:00


Hinsegin dagar ná hápunkti um helgina og settu sinn svip á lagavalið í þætti dagsins hjá Felix og Nönnu. Í tilefni hátíðarinnar fengu þau til sín tónlistarmanninn Torfa sem ætlar einmitt að koma fram á Pride balli í Gamla bíó í kvöld ásamt Páli Óskari, Álfgrími og fleiri góðum gestum. Þá leit uppistandarinn og fræðarinn Sóley Kristjánsdóttir einnig við og ræddi við þau um ferilinn og spennandi verkefni á döfinni. Þá voru auðvitað fleiri hátíðir í gangi víða um land. Umsjónarmenn þáttarins hringdu vestur á Suðureyri í Elfar Loga Hannesson sem kemur að skipulagningu hátíðarinnar Act Alone sem fer fram um helgina. Þá slógu þau einnig á þráðinn hjá Ragnhildi Helgu Jónsdóttur sem sagði þeim frá Hvanneyrarhátíð sem fer fram um helgina.

Tölvuleikjaspjallið
290. Bee Space - íslenskur leikur - demo komið á Steam!

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Jul 28, 2026 39:59


Þú ert býfluga og þarft að byggja jörðina upp á nýtt. Bee Space er íslenskur leikur væntanlegur á seinni hluta ársins frá framleiðandanum Polykite.Arnór Steinn settist niður með Palla og Frey frá Polykite og fékk að vita allt sem hægt er að vita um leikinn.Tjékkið á demoinu á Steam og smellið leiknum á wishlist. Njótið viðtalsins!

Endalínan
324. Þáttur - Við erum á leiðinni í Síkið ( Leikur 3 í lokaúrslitum)

Endalínan

Play Episode Listen Later May 16, 2026 56:49


Alvöru veisla sem við erum með í lokaúrslitum, við erum á leiðinni í Síkið!Allt í boði Brons, Hótel Kef, Comfyballs, Marion Herrafataverslun, Viking Lite og Arena Gaming.

Endalínan
323. Þáttur - Stórt skref fyrir Grindavík! (Leikur 2 í lokaúrslitum) Feat. Arnór Ingi

Endalínan

Play Episode Listen Later May 12, 2026 62:14


Risastórt skref fyrir Grindavík, þeir geta klárað titilinn heima í leik 3!Öll umræða í boði Viking Lite (Léttöl), Marion Herrafataverslun, Brons, Hótel Kef og Comfyballs!Og svo er áhorfspartý á Arena Gaming á Föstudaginn á leik 5, endilega verið með!

Endalínan
322. Þáttur - "Þú hittir hér helvítið þitt" (Leikur 1 í lokaúrslitum) Feat. Óli Helgi

Endalínan

Play Episode Listen Later May 10, 2026 86:55


Það var skortur á mannskap en enginn skortur á gæðum eða fjöri á Endalínunni í kvöld!Halldór fékk sinn gamla liðsfélaga Ólaf Helga Jónsson sem stendur í ströngu með lið sitt kvenna megin til að fara yfir leik eitt í viðreign Grindavíkur og Tindastóls í lokaúrslitum.Allt í boði Marion, Comfyballs, Hótel Kef, Brons og Viking Lite (Léttöl)

Endalínan
320. Þáttur - Nú verður veisla! (Leikur 4 í 4 liða úrslitum)

Endalínan

Play Episode Listen Later May 4, 2026 58:40


Nú verður heldur betur veisla!Tveir oddaleikir í undanúrslitum, getur það orðið betra?Endalínan fékk Arnór Inga aftur með sér til að skoða leikdag 4 í undanúrslitum.Allt í boði Marion Herrafataverslun, Brons, Hótel Kef, Comfyballs og Viking Lite (Léttöl)

Endalínan
317. Þáttur - Gamla bandið (Final 4 Leikur 1) Feat. Rúnar Ingi

Endalínan

Play Episode Listen Later Apr 22, 2026 61:15


Gamla bandið mætti á Endalínuna til að kryfja fyrsta leikdag undanúrslitanna þetta árið.Allt í boði Brons, Marion Herrafataverslun, Comfyballs, Hótel Kef og Viking Lite (Léttöl)

Mannlegi þátturinn
Sánusafarí til Eistrasalts, húsmæðraferð frá 1950 og Örn Úlfar lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 23, 2026 52:22


Það virðist vera sem gufu- eða gusuæði sé runnið á Íslendinga. Framundan er ferðalag sem farið verður í maí og þemað í þessari ferð eru sánur og það verður farið til Eistlands, Lettlands og Finlands og þar verða allskonar mismunandi sánumeðferðir, t.d. með nuddi og dekri inni í sánunum. Leifur Wilberg Orrason og Jura Aku hafa verið að gusa saman í Sækoti, þar sem þau hafa haldið sánagusur. Við ræddum um sánur, gusur, fargufur og alla þessa sánumenningu sem er að myndast á Íslandi. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV emur til okkar annan hvern mánudag með gullmola af safni RÚV. Í tilefni þess að í gær var konudagurinn haldinn hátíðlegur dró Helga Lára fram úr safninu stuttan fréttaauka sem var fluttur þann 30.júní árið 1950, eða fyrir 76 árum, þar sem ræddust við tvær merkilegar konur; fréttakonan Margrét Indriðadóttir og Margrét Tryggvadóttir húsmóðir. Þar segir frá orlofsferð húsmæðra úr Vestur Húnavatnssýslu um Suðurland. Svo var Örn Úlfar Sævarsson texta- og hugmyndasmiður og spurningahöfundur, lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Örn Úlfar talaði um eftirfarandi bækur og/eða höfunda: Jötunsteinn e. Andra Snæ Magnason Vegur allrar veraldar e. Sigríði Hagalín Passíusálmarnir e. Hallgrím Pétursson Tónlist í þættinum í dag Leikur að vonum / Ólafur Þórarinsson (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik) Regndropar falla við hvert fet/ Engilbert Jensen (Burt Bacharah, texti Þorsteinn Eggertsson) 1970 Dúddi rádd'okkur heilt / Stuðmenn og Eggert Þorleifsson (Egill Ólafsson, Sigurður Bjóla Garðarsson og Valgeir Guðjónsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

pass finland bj rv gar hann sigur eggert svo sigr margr indri hallgr egill rafer hagal eggertsson framundan lettlands tryggvad leikur valgeir gu
Tölvuleikjaspjallið
275. Control

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Feb 18, 2026 79:20


Jæja, nú ert þú stjórinn, hvað ætlar þú að gera?Jessie Faden finnur loksins Stjórnunarmálaráðuneytið og fer þangað inn. Það sem tekur við er einn andskoti áhugaverður leikur.Arnór Steinn og Gunnar fjalla um CONTROL í þætti vikunnar. Leikur frá 2019, smíðaður af Remedy (Max Payne, Alan Wake) af alúð. Undursamlega steikt upplifun sem við mælum HIKLAUST með!Hefur þú spilað Control? Hvað fannst þér?

Tölvuleikjaspjallið
270. Clair Obscur - besti leikur ársins? með Hilmari Finsen

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Dec 23, 2025 59:20


DJÓK fáið einn þátt á þessu ári áður en við förum í jólafrí

Karfan
Aukasendingin: Leikur gegn Serbíu, leikmenn erlendis og 5 bestu gamlingjar Bónus deildarinnar

Karfan

Play Episode Listen Later Nov 10, 2025 66:22


Aukasendingin fékk góðkunningja þáttarins Árna Jó í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, leiki Íslands í undankeppni EuroBasket 2027, Bónus deild karla, fimm bestu íþróttaskjöl skjalasafna landsins og 5 bestu gamlingja Bónus deildar karla.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

Fotbolti.net
Innkastið - Besti leikur tímabilsins og allt í járnum á toppnum

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Aug 31, 2025


Innkast vikunnar og Valur Gunnarsson stýrir þættinum í fjarveru Elvars Geir. Haraldur Örn og sérstakur gestur Gunnlaugur Jónsson fóru yfir umferðina.Víkingur og Breiðablik gerðu jafntefli í frábærum leik, Stjarnan kom til baka gegn KA, ÍA féll á sínum síðasta séns, Afturelding líklegastir að falla með þeim, Valsmenn rændir og KR vinna enn ekki.

Karfan
Aukasendingin: Yfirferð yfir alla andstæðinga Íslands á EuroBasket með Högginu

Karfan

Play Episode Listen Later Aug 27, 2025 56:17


Aukasendingin fékk góðvin þáttarins Heisa Högg í heimsókn til þess að fara yfir EuroBasket 2025. Alla andstæðinga Íslands, borgina Katowice, væntingar og margt, margt, fleira.Ísland hefur leik á mótinu á morgun með leik gegn Ísrael. Síðan er leikið ansi þétt. Leikur á laugardag gegn Belgíu, gegn heimamönnum í Póllandi á sunnudag, Slóveníu á þriðjudag og riðlakeppnin endar svo með leik gegn Frakklandi á fimmtudag í næstu viku. Umsjón: Davíð EldurGestur: Heiðar Snær MagnússonAukasendingin er í boði Bónus deildanna, Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

sl sn eurobasket katowice belg tactica umsj frakklandi leikur yfirfer kristalls
Tölvuleikjaspjallið
253. Sería 2 af Fallout, styttist í Ghost of Yotei og Lego Batman leikur - fréttir í ágúst

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Aug 20, 2025 55:09


Það er NÓG að gerast þó árið sé meira en hálfnað. Gamescom er í gangi og fullt af kynningum þar. Helst má nefna stiklu fyrir seríu 2 af Fallout þáttunum, meira gameplay úr Ghost of Yotei, DLC fyrir Kingdom Come Deliverance 2 og innlit í Resident Evil Requiem!Fáið fréttaskot Tölvuleikjaspjallsins beint í æð í þætti vikunnar!Þátturinn er í boði Elko Gaming.

Fotbolti.net
Uppbótartíminn - Landsliðsspekúleringar, markaflóð og stærsti leikur ársins

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Aug 14, 2025


Það var nóg að fara yfir í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann að venju. Það verður breytt þjálfarateymi hjá A-landsliði kvenna og voru spekúleringar um það, markaflóð í síðustu leikjum í Bestu deild kvenna, FHL er komið á blað í deildinni og stærsti leikur ársins, bikarúrslitaleikurinn, er framundan. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur Harðarson settust niður í Pepsi Max stúdíóinu með Mist Rúnarsdóttur og fóru yfir stöðu mála.

Tölvuleikjaspjallið
252. Echoes of the End - stærsti leikur Íslands?

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Aug 13, 2025 39:24


Myrkur Games voru svo sannarlega cookin' með þennan ...EOTE er loksins kominn út og fyrsti þátturinn okkar eftir gott sumarfrí er um einn eftirvæntasta leik ársins!Echoes of the End með Aldísi Amah Hamilton og Karli Ágústi Úlfarssyni í aðalhlutverkum kom út í GÆR.Tjékkið á þessum spoiler-lausa þætti og gáið hvers vegna Tölvuleikjaspjallið mælir hiklaust með þessum leik.Þátturinn er í boði Elko Gaming.

echoes karli ald leikur eote amah hamilton
Fotbolti.net
EMvarpið - Fylgdarmaður, fallegur bær og fyrsti leikur

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jul 1, 2025


Íslenska kvennalandsliðið hefur á morgun leik á Evrópumótinu er þær spila við Finnland í fyrsta leik. Guðmundur Aðalsteinn er staddur í Thun í Sviss þar sem hann er að fjalla um liðið. Hann settist niður í kvöld með þeim Bjarna Helgasyni og Ágústi Beinteini, betur þekktum sem Gústa B, af Morgunblaðinu. Ræddu þeir um fyrstu dagana í Thun, leikinn á morgun og möguleika Íslands.

Fotbolti.net
Tveggja barna móðirin sem leikur á sínu fjórða stórmóti fyrir Ísland

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 27, 2025


Dagný Brynjarsdóttir er ein besta fótboltakona sem Ísland hefur átt. Á því liggur enginn vafi. Hún er núna á leiðinni á sitt fjórða stórmót eftir að hafa eignast sitt annað barn. Dagný er elsti leikmaður íslenska liðsins og mesti reynsluboltinn en hún hefur spilað 118 landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim 38 mörk. Dagný settist niður með fréttamanni Fótbolta.net í Serbíu og ræddi um ferilinn, móðurhlutverkið, Evrópumótið sem er framundan og sitthvað fleira.

Tölvuleikjaspjallið
248. EA drepur annað fyrirtæki, 007 leikur og fleira - fréttir í júní!

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Jun 4, 2025 42:50


Enn annar fréttaþáttur beinustu leið í eyrun ykkar!Arnór Steinn og Gunnar taka fréttir síðasta mánaðar. Helst í fréttum er að EA hefur myrt annað fyrirtæki undir sér og þar með hætt framleiðslu á Black Panther leiknum.Trailer fyrir nýjan 007 leik frá IO Interactive kemur í vikunni!Nightreign og Doom: Dark Ages eru að fá góða dóma!Þetta og meira í stúffullum fréttaþætti!Þátturinn er í boði Elko Gaming.

Endalínan
283. Þáttur - Loksins oddaleikur! (Finals Leikur 4)

Endalínan

Play Episode Listen Later May 19, 2025 54:10


Þarna!Oddaleikur á döfinni!Við fórum yfir leik 4 í lokaúrslitum og gerðum honum skil í samstarfi við Brons, Soho, Kef Spa, Viking Lite, Comfyballs og Lasersmiðjunni!Sjáumst á Miðvikudaginn!

Tölvuleikjaspjallið
245. Clair Obscur - fyrstu hughrif

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later May 15, 2025 51:53


Fyrir þau sem koma næst ...Leikur vikunnar er CLAIR OBSCUR - EXPEDITION 33, eða eins og Gunnar kallaði hann: Ég ætla að mála allan heiminn, elsku mammaTökum combat, tónlist og almennt spjall en pössum að hafa enga spoilera. Þið getið öll hlustað á þáttinn, líka þau sem hafa ekki spilað COE33.Hvað fannst þér um leikinn?Þátturinn er í boði Elko Gaming.

Endalínan
282. Þáttur - Það er þetta með þennan mikilvæga þriðja leik... (Finals leikur 3)

Endalínan

Play Episode Listen Later May 14, 2025 68:16


Jæææja!Eftir geggjaða oddaleikja viku fórum við yfir leik 3 í lokaúrslitum karlameginn og vorum ekki svikin!Auk þess heyrðum við í Kristni Albertsyni, formanni KKÍ um nýlegar útlendingareglur sem mikið hefur verið rætt um.Allt þetta í boði Brons, Soho, KEF Spa, Viking Lite, Comfyballs og Lasersmiðjunnar!

Endalínan
281. Þáttur - Svar úr Ásgarði (Finals Leikur 2)

Endalínan

Play Episode Listen Later May 12, 2025 66:09


Heilir og sælir hlustendur góðir! Endalínan mætti með dyggri aðstoð Magga Gun og Rúnars Inga og fór yfir leik 2 í lokaúrslitum og alla vitleysuna sem átti sér stað í Ásgarði í leik 2.Allt var þetta í samtarfi við Brons, Soho, Kef Spa, Viking Lite og Comfyballs, þangað til næst!

Endalínan
280. Þáttur - Velkomnir í Síkið (Finals leikur 1)

Endalínan

Play Episode Listen Later May 9, 2025 55:33


Sælir kæru hlustendur!Halldór mætti ásamt skiptiborðsbræðrum og fór yfir fyrsta leik í finals seríu Tindastóls og Stjörnunar í samstarfi við Brons, Soho, KEF Spa, Viking Lite og Comfyballs!

Fotbolti.net
Frábær þrenna, tvö stig og einn rosalega skrítinn leikur

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 9, 2025


Íslenska kvennalandsliðið tók tvö stig í leikjum sínum gegn Noregi og Sviss í Þjóðadeildinni. Stelpurnar fara í eiginlegan úrslitaleik við Noreg um annað sætið í riðlinum í næsta mánuði. Það var margt jákvætt í þessum tveimur leikjum en líka heilmargt sem hefði mátt fara betur. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Sverrir Örn fóru yfir það helsta þegar Ísland á núna þrjá leiki fram að Evrópumóti.

Mannlegi þátturinn
Mottumars, músíkmeðferð og Sex í sveit í Árnesi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 13, 2025 54:52


Við erum að nálgast miðjan Mottumars, slagorð þessa árlega átaks Krabbameinsfélagsins, gegn krabbameinum hjá körlum, þetta árið er: Ertu að grínast með þinn lífsstíl? Þar er vakin athygli á óheilbrigðum og heilbrigðum lífsvenjum sem við getum haft. Guðni Gíslason, ritstjóri Fjarðarfrétta, kom til okkar í dag og deildi sögu sinni, en hann greindist með blöðruhálskrabbamein nánast fyrir tilviljun fyrir rúmu ári. Með Guðna kom Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Í Hafnarfirði hefur börnum og ungmennum með margvíslegan vanda staðið til boða að fara í músíkmeðferð hjá Ingu Björk Ingadóttur músíkmeðferðarfræðingi. En hvað er músíkmeðferð? Inga segir að hver og einn hafi sinn eigin grunntón, takt, flæði og hraða og þegar unnið sé markvisst með tónlistina sé hún ótrúlega öflug. Meðferðin hentar vel þeim sem eigi erfitt með hefðbundna tjáningu og henti einmitt þar sem samtalsmeðferð geri það ekki. Við ræddum við Ingu Björk í þættinum og sungum með henni lag, sem hún hafði sérstaklega samið texta fyrir okkur og þáttinn. Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja sýnir um þessar mundir í Árnesi gleðileikinn Sex í sveit í leikstjórn Bjarkar Jakobsdóttur. Fyrstu sýningum hefur verið mjög vel tekið enda fjörmikil sýning og hlutverkin eru auðvitað í höndum fólks úr sveitinni, fólk sem leggur á sig að æfa hvert einasta kvöld í margar vikur eftir fullan vinnudag. Oddrún Ýr Sigurðardóttir er ein þeirra sem leikur í sýningunni, hún er líka garðyrkjubóndi í Garðyrkjustöðinni í Hrunamannahreppi, þroskaþjálfi og reiðkennari. Við heyrðum í Oddrúnu í dag. Tónlist í þættinum í dag: Við viljum lifa / Ríó Tríó (L. Alberto, texti Helgi Pétursson) Lífið er lotterí / Þrjú á palli (höf lags ókunnur, texti Jónas Árnason) Í ró / Inga Björk Ingadóttir (Inga Björk Ingadóttir) Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik Guðnason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

sex gu gar gn sigur halla ertu fyrstu hafnarfir leikur fjar ingad oddr krabbameinsf mottumars
Karfan
Aukasendingin: Endalok Keflavíkur, Stólarnir sterkastir og frábær leikur Íslands í Izmit

Karfan

Play Episode Listen Later Feb 7, 2025 62:57


Aukasendingin fékk góðkunningja þáttarins Sigurð Orra “Véfrétt” Kristjánsson í heimsókn til að fara yfir sviðið. Ræddar eru fréttir vikunnar, síðasta umferð Bónus deildar karla, leikir kvennalandsliðs Íslands gegn Tyrklandi í gær og Slóvakíu komandi sunnudag, sigurvegarar og taparar vikunnar, topp fimm listi og margt, margt, margt fleira.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

sl kristj tactica keflav leikur tyrklandi kristalls
Tölvuleikjaspjallið
226. Balatro - minnsti stærsti leikur ársins

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Dec 4, 2024 47:27


Í síðasta þætti ársins áður en við förum í ÞREFALDAN ÁRAMÓTAÞÁTT ætlum við að spjalla um 62 megabæta leik sem heitir BALATRO. Roguelike deckbuilder poker leikur sem er brjálæðislega ávanabindandi. Arnór Steinn og Gunnar eru sammála um að hér er um að ræða einn andskoti góðan leik! Er Balatro í safninu þínu? Þátturinn er í boði Elko Gaming

arn roguelike steinn leikur
Mannlegi þátturinn
Sjálfskaðahegðun unglinga, hvernig líður okkur á safni og listin að vera leiðinlegt foreldri

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 30, 2024 53:15


Unglingar sem stunda sjálfsskaðahegðun nota yfirleitt hegðunina til það ráða við og/eða þola sterkar og erfiðar tilfinningar, segir Kristín Inga Grímsdóttir, sérfræðingur í barna og unglingageðhjúkrun. Algengi sjálfsskaðahegðunar er á bilinu 13-40%, eftir því hvaða aldurshópur er skoðaður. En hverjar eru ástæður sjálfsskaðahegðunar unglinga og hvernig geta foreldrar brugðist við ef þau komast að því að unglingurinn er að skaða sig? Kristín Inga fræddi okkur frekar um þetta í þættinum. Hvernig líður okkur á safni? Hvað er það á safni sem lætur okkur líða vel og hvaða safn er okkur minnistætt hér á landi eða erlendis, þar sem okkur hefur liðið vel. Halldóra Arnardóttir er listfræðingur og stjórnandi verkefnisins Listir og menning sem meðferð við alzheimer. Hún kom til okkar í dag og við töluðum við hana um menningu, miðlun og sýnleika geðrænnar heilsu. Flestir foreldrar kannast við þá klemmu að þurfa að vera „leiðinlega foreldrið“, sem bannar það sem „allir“ aðrir leyfa, sem setur mörk og gerir kröfur. Okkur getur fundist að óþægilega margar setningar okkar sem foreldra byrji á „Nei“ eða „Ekki“. En þessi orð kunna kannski að vera þau mikilvægustu sem foreldrar segja við börn sín. Ársæll Már Arnarsson prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, kom í þáttinn og fræddi okkur um „Listina að vera leiðinlegt foreldri“ og fór með okkur yfir það að setja mörk og hvers vegna. Tónlist í þættinum Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik) Haunted / Laufey (Laufey og Spencer Stewart) Á Akureyri / Óðinn Valdimarsson (Óðinn Valdimarsson) Í berjamó / Reggae on Ice (Stefán Örn Gunnlaugsson, Matthías Matthíasson og Hrólfur Sæmundsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

reggae hva nei krist matth halld ekki hvernig okkur listin gunnlaugsson arnarsson flestir arnard leikur valdimarsson menntav
Dr. Football
Helgaruppgjör Dr. Football - Víkingar vakna en mögulega enginn leikur

Dr. Football

Play Episode Listen Later Oct 14, 2024 60:25


Dr. Football með Arnari Sveini og Jóa Má á mánudegio.

Fotbolti.net
Hugarburðarbolti GW5 - Skrímslið sem breyttist í 5 ára krakka!

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Sep 24, 2024


Þvílíka skemmtunin hjá Man City og Arsenal á Etihad. Leikur sem bauð upp á allt. Luis Diaz á eldi með Liverpool. Tottenham í góðum gír um helgina. Newcastle tapaði gegn Fulham í London og það var leikur markvarðanna þegar Crystal Palace og Man Utd skildu jöfn 0-0 á Selhurst Park.

Fotbolti.net
Enski boltinn - Leikur sem spannaði allt sviðið

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Sep 23, 2024


Það var sannkallaður stórleikur í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar Manchester City spilaði við Arsenal. Jón Kaldal, stuðningsmaður Arsenal, og Magnús Haukur Harðarson, stuðningsmaður Liverpool, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir stórleikinn, og aðra leiki helgarinnar. Enski boltinn er í boði Nova.

Tölvuleikjaspjallið
216. Astro Bot - leikur ársins?

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Sep 18, 2024 43:36


Viltu rifja upp sögu PlayStation í formi eins skemmtilegasta platform leiks ársins? Astro Bot SPRINGUR fram á sjónarsviðið með ótrúlega skemmtilegri spilum, fjölbreyttum eiginleikum og frábærri grafík (vökva physics eru FRÁBÆR) Arnór Steinn og Gunnar eru vægast sagt hrifnir. Við erum klárlega að tala um topp 3 stykki á árinu. Astro Bot og hin vinsæla Astro Bot PS5 fjarstýring eru að sjálfsögðu til í Elko Gaming. Talandi um það ... Þátturinn er í boði Elko Gaming.

Fotbolti.net
Leiðin á Laugardalsvöll - Einn leikur í viðbót og töfrar á Króknum

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Aug 7, 2024


Í gær voru átta-liða úrslitin í Fótbolti.net bikarnum, þeirri yngstu og sprækustu, spiluð í heild sinni og er núna ljóst hvaða lið spila í undanúrslitum. Nú þarf bara að vinna einn leik í viðbót til að komast á Laugardalsvöll. Liðin sem eru komin í undanúrslit: Selfoss (2. deild) KFA (2. deild) Árbær (3. deild) Tindastóll (4. deild) Það verður dregið í undanúrslitin á morgun en Baldvin Már Borgarsson, þjálfari Árbæjar, og Sölvi Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, mættu í stúdíó í dag og fóru aðeins yfir málin. Arnar Ólafsson, hetja Tindastóls, er einnig á línunni og fer yfir ævintýrið á Sauðárkróki.

Endalínan
241. Þáttur - Oddur eftir odd, eftir odd... (Úrslit leikur 4)

Endalínan

Play Episode Listen Later May 27, 2024 62:39


Jæja..... Þriðja árið í röð erum við á leiðinni á Hlíðarenda til að útkljá úrslita einvígi, hversu dekruð erum við? Mistök sem urðu að risa körfum í kvöld í Smáranum, þvílíkt fjör! Nú er bara einn leikur eftir af tímabilinu, það verður barist til enda. Oddur í hverri umferð, alltaf allt undir. Þvílík forréttindi! Þetta er það sem við óskuðum okkur öll, einn leikur sem útkljáir allt. Veriði með!

Endalínan
240. Þáttur - Bakið upp við vegg ( Úrslit leikur 3)

Endalínan

Play Episode Listen Later May 24, 2024 67:34


Bakvið upp við vegg! Við erum komin hingað, eftir langt og strangt tímabil gæti þetta allt klárast á sunnudag í smáranum! Mættu!

baki leikur
Endalínan
239. Þáttur - Kári, velkominn! (Úrslit leikur 1)

Endalínan

Play Episode Listen Later May 18, 2024 69:47


Jæja! The show is on! Geggjuð stemming á Hlíðarenda og Valur að vera Valur! Kári Jónsson mætti aftur og sýndi sín augljósu gæði á meðan Kane náði ekki að draga Grindavík yfir Endalínuna! Hvað gerist næst? Við getum ekki beðið!

Handkastið
Átta stiga leikur í Djúsmýrinni & breytinga er þörf

Handkastið

Play Episode Listen Later Mar 25, 2024 72:14


Farið var yfir stóru málin í Handkastinu að þessu sinni. Hitað var upp fyrir 20.umferðina í Olís-deild karla og úrslitin skoðuð í Olís-deild kvenna sem lauk um helgina. Grill66-deildin lýkur á fimmtudaginn og þá kemur það í ljós hvaða lið endar í 2.sæti og fer beint upp í Olís-deildina. Seinni helmingurinn er síðan fyrir lengra komna þar sem djúp umræða myndaðist um Venslafélögin og U-liðin. Einnig var rætt um það hvort tími væri kominn á að fækka leikmönnum aftur á skýrslu í 14 leikmenn úr 16 leikmönnum.

Fotbolti.net
Enski boltinn - Einhver veikasti leikur síðari ára

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Nov 13, 2023


Leikur Chelsea og Manchester City er einhver skemmtilegasti leikur sem hefur verið spilaður í ensku úrvalsdeildinni á síðustu árum. Það var hrein unun að fylgjast með leiknum. Kári Snorrason, stuðningsmaður Chelsea, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag en hann ræddi mikið við Gumma og Steinke um stórleikinn í gær. Hann ræddi einnig um stöðuna hjá Chelsea og svo var farið yfir aðra leiki helgarinnar.

Dr. Football
Helgaruppgjör Dr. Football - Hver er besti leikur sem þú hefur séð í ensku úrvalsdeildinni?

Dr. Football

Play Episode Listen Later Nov 12, 2023 68:45


Doc fékk þá Viktor Unnar og Jóa Kíró til sín á sunnudagskvöldi.

Þjóðmál
#166 – Biðleikur Seðlabankans – Ráðherragrín eða ráðherrapirringur – Hrikalegir atburðir í Ísrael

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Oct 9, 2023 67:58


Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um það hvort að ákvörðun Seðlabankans um að hækka ekki vexti í síðustu viku hafi átt að koma á óvart eða hvort um biðleik sé að ræða, um skrýtin viðbrögð við ráðherragríni og enn eitt höggið í innri samskipti ríkisstjórnarinnar, um sviptingar á fjármálamarkaði, um þá hræðilegu atburði sem áttu sér stað í Ísrael um helgina og furðuleg viðbrögð þeirra sem styðja aðgerðir Hamas-samtakanna. Þá er einnig farið yfir spurningar úr sal og margt fleira.

Endalínan
191. Þáttur - MÁ ÉG HEYRA ! Ft. Pétur Rúnar og Nonni Mar

Endalínan

Play Episode Listen Later May 19, 2023 49:59


Kæru hlustendur. Þvlílíkur leikur !!! Leikur 5 , ODDALEIKUR um ÍSLANDSMEISTARATITILINN og þetta endar bara á síðustu sóknunum og alvöru dramatík. Við fáum Pétur Rúnar og Nonna Mar i settið af hliðarlínunni í Origo og gerum upp þennan magnaða oddaleik og rýnum aðeins í stóru mómentin. Endalínan úr Origo í boði Viking Lite , Cintamani , Soho og Brons Keflavík.

soho nonni origo leikur cintamani
Endalínan
189. Þáttur - Lítið skref í Körfubolta , Risa skref fyrir Krókinn.

Endalínan

Play Episode Listen Later May 13, 2023 59:51


Kæru hlustendur , það var heldur betur veislan í Origo Höllinni þegar Leikur 3 í Lokaúrslitum fór fram fyrir pakk fullu húsi á Hlíðarenda. Sauðkræklingar eru nú í þeirri stöðu í fyrsta skipti í sögu félagsins að vera á leiðinni aftur í Síkið og eiga möguleika á því að vinna þann stóra. Við förum yfir leik 3 og allar helstu sögurlínurnar , hvað er að gerast, hvað er að breytast og við hverjum megum við búast í leik 4 á mánudaginn. Ykkar heimavöllur fyrir alvöru körfuboltaumræður að sjálfsögðu á Endalínunni í boði Viking Lite , Cintamani , Soho Pizza og Brons Keflavík.

sau hl loka fyrir leikur cintamani
Endalínan
188. Þáttur - Heart of a Champion ft. Kristófer Acox

Endalínan

Play Episode Listen Later May 9, 2023 61:47


Velkomin í Síkið ! Kæru hlustendur , það var roadtrip á Endalínuna þennan þriðjudaginn og alvöru veisla í Skagafirðinum. Leikur 2 í lokaúrslitum og Valsmenn mættu allavega inná vellinum og sýndu afhverju þeir eru handhafar allra titla á landinu í dag. Hversu mikilvæg er byrjunin í Síkinu ? Snöggar sóknir vs. skipulagður sóknarleikur , andlega hliðin og hvað gerist í leik 3 ?... Við fáum Kristófer Acox í settið og ræðum um leikinn og allt þar á milli. Endalínan í boði Viking Lite , Cintamani , Soho , Brons Keflavík og North West.

Endalínan
187. Þáttur - Big Decisions ( Finals Leikur 1 )

Endalínan

Play Episode Listen Later May 6, 2023 69:32


LOKAÚRSLIT LEIKUR 1 - Prettiboitjokko , Stjörnur , ÚlfurÚlfur , Kiana Johnson, Kúrekahattar og glory hunters. Við gerum upp fyrsta leikinn og allar sögulínurnar. Finals hrollurinn , 3ja stiga nýtingin, Drungilas, Comebackið, Siggi Þorsteins vatnsberi og allt hitt úr þessu svakalega einvígi. Allt þetta og meira til á Endalínunni í boði Viking Lite , Cintamani , Soho og Brons Keflavík.

Steve Dagskrá
Færeyskir dagar í Bestu deildinni, Frosti Brynjólfs þaggaði niður í Kórnum og frábær leikur á OT.

Steve Dagskrá

Play Episode Listen Later May 2, 2023 66:23


Dominos

Endalínan
173. Þáttur - Tímamót !!!

Endalínan

Play Episode Listen Later Mar 11, 2023 88:29


Já kæru hlustendur það eru heldur betur stórir hlutir sem gerast núna í hverri einustu umferð. KR er fallið úr efstu deild , jahá. (Staðfest) Leikur ársins til þessa hjá leikmönnum allavega fór fram í Ljónagryfjunni , Síkið er að verða Síkið aftur og Gæðamiklir Valsarar sýndu mátt sinn og megin gegn vanmáttugum Keflvíkingum. Miðjumoðsbaráttan Mikla , hverjir vinna í SkæriBlaðSteinn , Stinger og Sjómann ? eru til betri tie-breaker aðferðir ? Þetta og svo MIKLU meira að sjálfsögðu á Endalínunni í boði Cintamani , Viking Lite og Brons Keflavík

kr sj sta lj stinger miklu leikur cintamani keflv
Dr. Football
Góðan Daginn Katar - Síðasti leikur Járntúlipanans?

Dr. Football

Play Episode Listen Later Dec 9, 2022 44:44


Doc, AI og Keli á þessum geggjaða föstudegi.