POPULARITY
Heil og sæl. Í dag er mikil umfjöllun um stórleikinn Liverpool-Man.Utd. Aðrir leikir eru að sjálfsögðu einnig til umfjöllunnar og verður Villa á toppnum um jólin? Íslenska landsliðið í handbolta fyrir EM var valið í dag og við tökum á því sem og körfuboltanum hér heima. Við höldum áfram að tala um formannskjör KSÍ. Krummasögurnar eru nokkrar í dag og mjög góðar. Víkingur var að fá þrjá leikmenn í fótboltanum. Dagatalið góða, HM í pílu og margt fleira. Njótið og takk fyrir Slysalögmenn.is, BK-kjúklingur og Marpól. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Það er ekki hægt að segja að hlutirnir hafi verið að falla með Liverpool í þessari viku, hvorki innan né utan vallar. Tímabilið byrjaði á Stamford Bridge og endaði með enn einu jafnteflinu gegn Chelsea. Þeir keyptu bara bæði Caicedo og Lavia, búnir að eyða meira en La Liga á Spáni samanlagt frá því í fyrrasumar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Kop.is Hópferð með Verdi Travel á Anfield 10. – 13. nóvember á Liverpool – Brentford Nánar um ferðina á heimasíðu Verdi Travel hér Flogið beint til Liverpool með Play á föstudeginum klukkan 07:00 og heim á mánudeginum klukkan 10:50. Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf MP3: Þáttur 435
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson Darkness On The Edge Of Town, fjórða breiðskífa Bruce Springsteens átti 45 ára útgáfuafmæli 2.júní síðastlíðinn og því var fagnað vel og innilega, ásamt því að væntanlegu 25 ára útgáfuafmæli samnefndrar fyrstu plötu Queens Of The Stone Age var einnig fagnað vel í þætti kvöldsins í bland við ansi margt annað. Ó, Reykjavík - Vonbrigði Badlands - Bruce Springsteen (Plata þáttarins) Main Offender - The Hives Regular John - Queens Of The Stone Age (Plata þáttarins) Crossroads - Cream Jailbreak - Thin Lizzy Candy's Room - Bruce Springsteen (Plata þáttarins) 1977 - The Clash If Only - Queens Of The Stone Age (Plata þáttarins) Is She Weird - Pixies Gagn-rýn-endur - Fræbbblarnir Guerilla Radio - Rage Against The Machine Ghosts Of Princes In Towers - Rich Kids My Name Is Jonas - Weezer Cigarettes And Alcohol - Oasis The Promised Land - Bruce Springsteen (Plata þáttarins) Trash City - Joe Strummer & The Latino Rockabilly Wars How To Handle A Rope - Queens Of The Stone Age (Plata þáttarins) Rúdólf - Þeyr Sitting Still - R.E.M. Tops - The Rolling Stones Elephant Stone - The Stone Roses Sally Go Round The Sun - Elephant Stone Muzzle - The Smashing Pumpkins Hiroshima - Utangarðsmenn Ripples - Ian Brown Jailbird - Primal Scream Streets Of Fire - Bruce Springsteen (Plata þáttarins) The Hardest Button To Button - The White Stripes Give The Mule What He Wants - Queens Of The Stone Age (Plata þáttarins) The One - Foo Fighters White Man In Hammersmith Palais - The Clash Weapon Of Choice - Black Rebel Motorcycle Club L'via L'viaquez - The Mars Volta Móðir - Egó Detroit Rock City - Kiss She Sells Sanctuary - The Cult Disposable Heroes - Metallica
Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í Innkastinu eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Lengjudeildin er einnig skoðuð en þar er dómgæslan áberandi í umræðunni. Víkingar áfram með fullt hús, menn ráða ekki við Gísla Eyjólfs, Valsmönnum tókst ekki að skora gegn Keflavík, yfirlýsingagleðin mikla í Hafnarfirðinum, laskað lið FH vann mikilvægan sigur og fleira.
Flosi Þorgeirsson valdi 8 lög eftir AC/DC í tilefni af AC/DC rokkmessu á Húrra á morgun. Vonbrigði - Skítseyði The Human Beinz - Nobody but me The Sparkles - No friend of mine Extreme - Rise AC/DC - Shoot to thrill (Flosi 1) Smashing Pumpkins - Beguiled UFO - Doctor doctor Dr. Feelgood - Milk and alcohol SÍMATÍMI Bachman Tuner Overdrive - Taking care of business AC/DC - Highway to hell (Flosi 2) Slade - Cum on feel the noize (óskalag - Kiddi vídeó) Quiet Riot - Cum on feel the noise AC/DC - Live wire (Flosi 3) Iron Maiden - Aces high (óskalag - Björn Akureyri) The Raven Age - Fluer de lis AC/DC - Back in black (Flosi 4) Protomartyr - (Don?t you) Call out my name (óskalag - málarinn í miðbænum) Ted Nugent & The Amboy Dukes - Baby please don?t go Thor?s Hammer - I don?t care Oasis - Roll with it AC/DC - Touch too much (Flosi 5) Neil Young & Crazy Horse - Love and only love AC/DC - If you want blood (Flosi 6) Black sabbath - The shining (óskalag - Jón Ingi) Ian Hunter - Angel AC/DC - For those bout to rock (Flosi 7) AC/DC - Riff raff (Flosi 8)
Flosi Þorgeirsson valdi 8 lög eftir AC/DC í tilefni af AC/DC rokkmessu á Húrra á morgun. Vonbrigði - Skítseyði The Human Beinz - Nobody but me The Sparkles - No friend of mine Extreme - Rise AC/DC - Shoot to thrill (Flosi 1) Smashing Pumpkins - Beguiled UFO - Doctor doctor Dr. Feelgood - Milk and alcohol SÍMATÍMI Bachman Tuner Overdrive - Taking care of business AC/DC - Highway to hell (Flosi 2) Slade - Cum on feel the noize (óskalag - Kiddi vídeó) Quiet Riot - Cum on feel the noise AC/DC - Live wire (Flosi 3) Iron Maiden - Aces high (óskalag - Björn Akureyri) The Raven Age - Fluer de lis AC/DC - Back in black (Flosi 4) Protomartyr - (Don?t you) Call out my name (óskalag - málarinn í miðbænum) Ted Nugent & The Amboy Dukes - Baby please don?t go Thor?s Hammer - I don?t care Oasis - Roll with it AC/DC - Touch too much (Flosi 5) Neil Young & Crazy Horse - Love and only love AC/DC - If you want blood (Flosi 6) Black sabbath - The shining (óskalag - Jón Ingi) Ian Hunter - Angel AC/DC - For those bout to rock (Flosi 7) AC/DC - Riff raff (Flosi 8)
Staða Liverpool er þannig í deildinni að jafntefli dugar ekki til og skiptir engu hvort spilað sé gegn Chelsea eða toppliði Arsenal. Frammistaðan var vissulega mun betri síðasta klukkutímann í þessum leikjum en afhroðið sem okkur var boðið fyrstu tvo tímana sem er kannski tímabilið í hnotskurn. Já og auðvitað var vonin sem fylgdi fréttum af tilboði Liverpool í Jude Bellingham drepin strax með fréttum innan herbúða Liverpool að hann væri ekki lengur skotmark í sumar, of dýr. Sjáum til með það og ræðum betur í þætti vikunnar. Níu leikir eftir og ekkert svigrúm eftir til mistaka og satt að segja dugar það samt ekki til. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Miðbar / Jói Útherji / Ögurverk ehf
Besta deildin byrjar að rúlla næsta mánudag og upphitun okkar er í fullum gangi. KR er spáð fimmta sæti deildarinnar í spá Fótbolta.net fyrir mótið. Atli Jónasson, fyrrum markvörður KR, var gestur á skrifstofu .net í dag og fór yfir stöðuna hjá félaginu. Árangurinn var ekki góður hjá karlaliði KR í körfuboltanum í vetur og því eru miklar vonir bundnar við fótboltann í sumar. Þá var Aron Þórður Albertsson, leikmaður KR, á línunni eftir æfingaleik liðsins við Fram í kvöld. Það var síðasti undirbúningsleikur KR fyrir mót.
Spegillinn 10. mars 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Öll félög innan Sjómannasambands Íslands að skipstjórnarmönnum undanskildum felldu nýgerðan kjarasamning. Kjörsókn var fjörutíu og átta prósent. Af þeim kusu tæp þrjátíu og tvö prósent með nýjum kjarasamningi en sextíu og sjö prósent á móti. Um eitt prósent tók ekki afstöðu. Vonbrigði, segir, Valmundur Valmundsson, formaður sambandsins, í viðtali við Gunnhildi Kjerúlf Birgisdóttur. Landsréttur klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort vísa ætti ákæru í hryðjuverkamálinu svokallaða frá dómi. Meirihlutinn staðfesti frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur en einn dómari taldi ákæruna nógu skýra til að hún mætti standa. Brynjólfur Þór Guðmundsson sagði frá. Rússnesk stjórnvöld saka erlend ríki um að ýta undir mótmæli í Georgíu og líkja þeim við tilraun til valdaráns. Tugir þúsunda Georgíumanna hafa dögum saman mótmælt umdeildu frumvarpi um hert eftlirlit með fjölmiðlum og félagasamtökum, sem gæti sett aðildarumsókn Georgíu að Evrópusambandinu í hættu. Pétur Magnússon sagði frá. Ljósmæðrafélag Íslands óskar eftir ýmsum nauðsynjum fyrir nýfædd börn kvenna á flótta. Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður félagsins, segir að þörfin sé mikil. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir ræddi við hana. Ólga er innan Nýja borgaraflokksins í Danmörku. Þegar Lars Boje Mathiesen fór í háttinn í gær var hann formaður flokksins, en þegar hann vaknaði við símann í morgun var búið að steypa honum af stóli og reka hann úr flokknum. Mathiesen sat aðeins rúman mánuð í formannssætinu. Róbert Jóhannsson tók saman. Viggó Kristjánsson landsliðsmaður í handbolta segir leikmenn Íslands staðráðna í að sýna hvað í þeim býr gegn Tékkum í Laugardalshöll á sunnudag, í undankeppni EM, eftir fimm marka tap fyrir þeim ytra í fyrrakvöld, 22-17. Liðið var harðlega gagnrýnt eftir þann leik. Þjóðverjum, og sér í lagi íbúum Hamborgar, er brugðið eftir fjöldamorð í samkomuhúsi Votta Jehóva í borginni í gærkvöld. Ódæðismaður varð sjö að bana, þar á meðal ófæddu barni, og svipti sig lífi þegar lögregla braut sér leið inn í húsið. Ásgeir Tómasson tók saman. Það hefur löngum verið sagt um Þjóðverja að þeir elski bílana sína - og það kom berlega í ljós í síðustu viku, þegar þýsk stjórnvöld stöðvuðu nýja lagasetningu Evrópusambandsins sem gengur út á að banna sölu bíla sem ganga fyrir bensíni og dísil. Það bann á að taka gildi árið 2035 og er hluti af langtímaáætlun um að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda á næstu árum og áratugu
Spegillinn 10. mars 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Öll félög innan Sjómannasambands Íslands að skipstjórnarmönnum undanskildum felldu nýgerðan kjarasamning. Kjörsókn var fjörutíu og átta prósent. Af þeim kusu tæp þrjátíu og tvö prósent með nýjum kjarasamningi en sextíu og sjö prósent á móti. Um eitt prósent tók ekki afstöðu. Vonbrigði, segir, Valmundur Valmundsson, formaður sambandsins, í viðtali við Gunnhildi Kjerúlf Birgisdóttur. Landsréttur klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort vísa ætti ákæru í hryðjuverkamálinu svokallaða frá dómi. Meirihlutinn staðfesti frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur en einn dómari taldi ákæruna nógu skýra til að hún mætti standa. Brynjólfur Þór Guðmundsson sagði frá. Rússnesk stjórnvöld saka erlend ríki um að ýta undir mótmæli í Georgíu og líkja þeim við tilraun til valdaráns. Tugir þúsunda Georgíumanna hafa dögum saman mótmælt umdeildu frumvarpi um hert eftlirlit með fjölmiðlum og félagasamtökum, sem gæti sett aðildarumsókn Georgíu að Evrópusambandinu í hættu. Pétur Magnússon sagði frá. Ljósmæðrafélag Íslands óskar eftir ýmsum nauðsynjum fyrir nýfædd börn kvenna á flótta. Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður félagsins, segir að þörfin sé mikil. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir ræddi við hana. Ólga er innan Nýja borgaraflokksins í Danmörku. Þegar Lars Boje Mathiesen fór í háttinn í gær var hann formaður flokksins, en þegar hann vaknaði við símann í morgun var búið að steypa honum af stóli og reka hann úr flokknum. Mathiesen sat aðeins rúman mánuð í formannssætinu. Róbert Jóhannsson tók saman. Viggó Kristjánsson landsliðsmaður í handbolta segir leikmenn Íslands staðráðna í að sýna hvað í þeim býr gegn Tékkum í Laugardalshöll á sunnudag, í undankeppni EM, eftir fimm marka tap fyrir þeim ytra í fyrrakvöld, 22-17. Liðið var harðlega gagnrýnt eftir þann leik. Þjóðverjum, og sér í lagi íbúum Hamborgar, er brugðið eftir fjöldamorð í samkomuhúsi Votta Jehóva í borginni í gærkvöld. Ódæðismaður varð sjö að bana, þar á meðal ófæddu barni, og svipti sig lífi þegar lögregla braut sér leið inn í húsið. Ásgeir Tómasson tók saman. Það hefur löngum verið sagt um Þjóðverja að þeir elski bílana sína - og það kom berlega í ljós í síðustu viku, þegar þýsk stjórnvöld stöðvuðu nýja lagasetningu Evrópusambandsins sem gengur út á að banna sölu bíla sem ganga fyrir bensíni og dísil. Það bann á að taka gildi árið 2035 og er hluti af langtímaáætlun um að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda á næstu árum og áratugu
Spegillinn, 14. desember 2022. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Jón Gunnarson, dómsmálaráðherra segir það vonbrigði að Alþingi hafi ákveðið að taka útlendingafrumvarpið af dagskrá fyrir jól. Hann sakar stjórnarandstöðuna um að beita málþófi og koma þannig í veg fyrir vilja meirihluta þingsins. Það er brunagaddur í spánni en líklega sleppur suðvesturhornið við hríð sem spáð var á sunnudag. Spáin hefur batnað en áfram verður kalt segir Daníel Þorláksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Sala á rafmagnsofnum hefur rokið upp í kuldakastinu undanfarna daga og hafa þeir víða selst upp. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við Kristján Birgisson, svæðisstjóri ljós- og rafmagns hjá BYKO. Ferðamenn virðast ekki allir taka mark á þeim hættum sem leynast í Reynisfjöru þrátt fyrir nýtt viðvörunarkerfi. Rebekka Líf Ingadóttir talaði við Björn Inga Jónsson verkefnisstjóra Almannavarna hjá Lögreglunni á Suðurlandi. Magapestir, öndunarfærasýkingar og covidsmit herja á fólk norðan heiða. Hjúkrunarheimili á Norðurlandi eystra reyna eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að þurfa að herða sóttvarnareglur fyrir jól og biðja fólk að huga að persónulegum sóttvörnum. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við Jón Helga Björnsson forstjóra Heilbrigðisstofnunar Norðurlands. Bandarískum vísindamönnum hefur í fyrsta sinn tekist að nýta kjarnasamruna til að framleiða orku. Jennifer Granholm, orkumálráðherra Bandaríkjana tilkynnti. Alexander Kristjánsson sagði frá. --------- Hitaveitukerfi í landinu eru mörg hver komin til ára sinna. Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri segir að fólk þurfi að umgangast heita vatnið, gullnámu landsins, af virðingu. Bjarni Rúnarsson talaði við hana. Það hallar verulega á konur við samningaborðið jafnvel hjá stéttarfélögum þar sem kynjaskipting innan félags er nokkuð jöfn. En hver er reynsla kvenna sem hafa tekið þátt í kjaraviðræðum? Meistararitgerð Karitasar Marýar Bjarnadóttur í mannauðsstjórnun í haust fjallar um upplifun kvenna sem sitja í samninganefndum kvennastéttarfélaga af kjaraviðræðum. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana. Rússar hafa vikum saman gert árásir á viðkvæma innviði í Úkraínu; milljónir landsmanna eru án rafmagns, vatns og húshitunar. Heilbrigðisráðherra Úkraínu, hefur áhyggjur af hrakandi lýðheilsu í landinu eftir því sem vetur herðir. Ásgeir Tómasson tók saman. Heyrist í Dímítri Peskóf talsmanni Kremlar og Frans páfa.
Spegillinn, 14. desember 2022. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Jón Gunnarson, dómsmálaráðherra segir það vonbrigði að Alþingi hafi ákveðið að taka útlendingafrumvarpið af dagskrá fyrir jól. Hann sakar stjórnarandstöðuna um að beita málþófi og koma þannig í veg fyrir vilja meirihluta þingsins. Það er brunagaddur í spánni en líklega sleppur suðvesturhornið við hríð sem spáð var á sunnudag. Spáin hefur batnað en áfram verður kalt segir Daníel Þorláksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Sala á rafmagnsofnum hefur rokið upp í kuldakastinu undanfarna daga og hafa þeir víða selst upp. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við Kristján Birgisson, svæðisstjóri ljós- og rafmagns hjá BYKO. Ferðamenn virðast ekki allir taka mark á þeim hættum sem leynast í Reynisfjöru þrátt fyrir nýtt viðvörunarkerfi. Rebekka Líf Ingadóttir talaði við Björn Inga Jónsson verkefnisstjóra Almannavarna hjá Lögreglunni á Suðurlandi. Magapestir, öndunarfærasýkingar og covidsmit herja á fólk norðan heiða. Hjúkrunarheimili á Norðurlandi eystra reyna eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að þurfa að herða sóttvarnareglur fyrir jól og biðja fólk að huga að persónulegum sóttvörnum. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við Jón Helga Björnsson forstjóra Heilbrigðisstofnunar Norðurlands. Bandarískum vísindamönnum hefur í fyrsta sinn tekist að nýta kjarnasamruna til að framleiða orku. Jennifer Granholm, orkumálráðherra Bandaríkjana tilkynnti. Alexander Kristjánsson sagði frá. --------- Hitaveitukerfi í landinu eru mörg hver komin til ára sinna. Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri segir að fólk þurfi að umgangast heita vatnið, gullnámu landsins, af virðingu. Bjarni Rúnarsson talaði við hana. Það hallar verulega á konur við samningaborðið jafnvel hjá stéttarfélögum þar sem kynjaskipting innan félags er nokkuð jöfn. En hver er reynsla kvenna sem hafa tekið þátt í kjaraviðræðum? Meistararitgerð Karitasar Marýar Bjarnadóttur í mannauðsstjórnun í haust fjallar um upplifun kvenna sem sitja í samninganefndum kvennastéttarfélaga af kjaraviðræðum. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana. Rússar hafa vikum saman gert árásir á viðkvæma innviði í Úkraínu; milljónir landsmanna eru án rafmagns, vatns og húshitunar. Heilbrigðisráðherra Úkraínu, hefur áhyggjur af hrakandi lýðheilsu í landinu eftir því sem vetur herðir. Ásgeir Tómasson tók saman. Heyrist í Dímítri Peskóf talsmanni Kremlar og Frans páfa.
Tveimur riðlum á HM er lokið, hvað varðar leikjafjölda er mótið rúmlega hálfnað og það er margt í spilunum. Nýjar stjörnur verða til, glæstar vonir og súr vonbrigði. Elvar Geir og Guðmundur Aðalsteinn eru við HM hringborðið og sérstakur gestasérfræðingur er Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar og fyrrum ritstjóri Fotbolti.net. Farið er yfir leiki síðustu tveggja daga og skoðað hvað er framundan. Englendingar mæta Senegal og Holland leikur við Bandaríkin í 16-liða úrslitum. Rætt er um Ronaldo, Luis Enrique, umfjöllunina á RÚV og horft til baka á HM 2018.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í óvenjulegri útgáfu þessa vikuna. Hann er sendur út frá Mývatni. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir gang mála á HM í Katar og þá eru fótboltafréttir vikunnar á sínum stað. Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu að þessu sinni.
Í þættinum er meðal annars rætt um glóðvolga niðurstöðu Samsung Galaxy Unpacked, seinkun á komu HBO Max, breytt plön hjá hinu íslenska Netflix, fyrstu viðbrögð við beta-prófunum Indó bankaþjónustunnar og rafbíla. Sem fyrr fer umræðan um víðan völl og stundum út fyrir efnið. Tæknivarpið er í boði Macland. Stjórnendur þáttarins eru Andri Valur, Elmar, Gunnlaugur Reynir og Marinó Fannar
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í dag og tóku upp sinn þrítugasta og níunda þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson Í þætti dagsins fóru þeir yfir 8-liða úrslitin í Olísdeild karla þar sem þeir voru heldur betur ekki ánægðir með frammistöðu Stjörnumanna og fannst þeim hún endurspegla leik liðsins í vetur þar sem þeir hafa hreinlega ekki verið að standa undir væntingum að þeirra mati. Þá völdu þeir BK leikmenn einvíganna og munu svo setja af stað kosningu á samfélagsmiðlum sínum um það hvaða leikmaður er BK leikmaður 8-liða úrslitanna. Þeir leikmenn sem koma til greina eru Ólafur Gústafsson KA, Arnór Viðarsson ÍBV, Magnús Óli Magnússon Val og Hergeir Grímsson Selfossi. Þeir félagar spáðu svo í spilin fyrir undanúrslitin þar sem að spá því að Valur og ÍBV sigra einvígin og leika til úrslita.
Kæru hlustendur , Leikdagur 3 í 8 liða úrslitum SubwayDeildar Karla gerður upp beint úr WhiteFox stofunni þar sem öll svörin við ykkar spurningum fást. Tvær seríur fara áfram í Leik 4 en sópurinn var á lofti í hinum tveim. Tin 2 , Kef 1 JB stígur upp og er aðal kallinn Stóra lineup-ið borgaði sig á ögurstundu Afhverju er Milka inná þegar þú þarft eitt stopp ? Þór 2 , Gri 1 Boltaflæðið is back. Tölfræðin talar sínu máli Getur ÉG TRÚI fáninn búið til það ótrúlega í Grindy Eiga Grindavík inni fokk it mode til að skjóta Þórsara í kaf ? Val 3 , Stja 0 Playoff Valur að sýna mátt sinn Varnarlið sem er farið að skjóta 40+ % fyrir utan línuna Kári að detta í gamla gírinn og allir fylgja með Stjörnuleikstíll sem er ekki hægt að treysta á í playoffs Nja 3 , KR 0 Betra liðið sýndi yfirburði Alltaf eitthvað nýtt framlag einkenni góðra liða Vonbrigði eða ekki í Vesturbænum ? Hvað er best fyrir Njarðvík í framhaldinu Endalínan í boði WhiteFox , Viking Lite , Cintamani og KefRestaurant & Diamond Suites.
Mér líst allt í lagi á þessa spá, þetta er kannski eðlilegt miðað við gengi okkar í fyrra en við ætlum okkur stærri hluti - það er ekkert flóknara en það. Ég held að það sé alveg klárt að við ætlum að berjast um þá titla sem eru í boði," sagði Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH, í viðtali við Fótbolta.net. Tilefnið var spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina en FH er spáð fjórða sæti í sumar.
Dominykas Milka ræðir við fyrrum liðsfélaga sinn hjá Keflavík Dean Williams um hvernig það hafi verið að alastt upp í Bretlandi, háskólaárin í Bandaríkjunum og tímann sem hann var með Keflavík á Íslandi, en Dean leikur nú með liði í Frakklandi eftir að hafa kvatt Keflavík eftir síðasta tímabil.Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugavert fólk bæði um hin ýmsu málefni sem snerta körfuknattleik, sem og málefni líðandi stundar.Social Chameleon er í boði Kristalls, Lykils og Subway.Hlustendum er bent á Instagram síðu þáttarins fyrir tillögur að skemmtilegu efni, sem og til þess að senda inn spurningar, en hún er aðgengileg hér.
Þrítugasti og þriðji þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í kvöld. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarson, Jói Lange og Arnar Gunnarsson. Í þættinum að þessu sinni fóru þeir félagar yfir leik Íslands og Svartfjallalands þar sem að íslenska liðið mætti af miklum krafti til leiks og gerðu útum leikinn fljótlega. Þeir félagar hrósuðu leikmönnum liðsins fyrir það hvernig þeir mættu til leiks en hins vegar fannst þeim að Guðmundur hefði mátt rúlla meira á liðinu sér í lagi þar sem að forystan var örugg mest allan tímann. Leikmenn eins og Teitur Einarsson og Kristján Kristjánsson hefðu mátt fá meira en fimm mínútur í þessum leik. Vonbrigði umsjónarmanna með úrslitin úr leik Dana og Frakka leyndu sér ekki en þeir voru sammála því að það er aldrei gott að þurfa treysta á aðra og draumurinn um undanúrslitin hefðu í raun horfið eftir tapið gegn Króötum. Framundan er leikur við Noreg um 5.sætið á mótinu og það er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir framhaldið í framþróun íslenska liðsins því 5.sætið gefur öruggt sæti á HM sem og möguleika á því að fá sæti í forkeppni Ólympíuleikanna.
Aukasendingin fékk til sín Þann Hundtrygga Hraunar Karl og Þann loftslagskvíðna Guðmund Auðunn til þess að ræða fréttir vikunnar, Subway deild karla og fyrstu deildina. Þá er í lokin farið yfir hvaða íslensku leikmenn hafa verið bestu viðbæturnar við sín lið í Subway deildinni og hvaða leikmenn hafa ekki skilað því sem til var ætlast.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway.
Support these bands by buying their records and going to see them live when applicable. You are an essential cog in the punk machine. The Cowboy - Virtual Traveler Liquids - Fuck Up Alien Nosejob - Leather Gunn Hologram - Humiliation Drills Nasti - Self Sucker Bad Anxiety - Peace Bullet Proof Backpack - Useless Quarantine - Tired Of You/Tire Of You II Bloodsuckers - We Don't Need It The Whiffs - Shakin All Over Barlow - Makes My Life Hotline TNT - Slider Smirk - Staring At Screens the Mark Vodka Group - Touch Of Grey Bad Noids - Stay Off Your Phone/Waiting Around Pickle Park - My Mom And Dad(Are Dead) Real Regular - Return Of The GRIDS(Again) Burnt Envelope - Stuck b/w My Band Sucks Dead Moon - Sorrow's Forecast Vonbrigði - 6ý The Hugh Beaumont Experience - Zyklon B Telefones - She's In Love With The Rolling Stones The Nervebreakers - My Girlfriend is a Rock Stains - John Wayne Was A Nazi Stains - Young Nazis Vains - School Jerks The Kids - Fascist Cops
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar gáfu frá sér nýjan þátt í kvöld en að þessu sinni settust þeir Jói Lange og Arnar Gunnarsson í Klaka stúdíóið. Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það sem gerðist í 4.umferðinni í Olísdeild karla þar sem þeir félagar voru sammála því KA men væri að valda þeim miklum vonbrigðum og þá sér í lagi sóknarleikur liðsins. Þá fóru þeir yfir það að Valsmenn eru með besta lið deildarinnar og vandséð hverjir stöðvi þá í vetur. Að venju voru Klakaleikmenn leikjanna valdir og rftirtaldir leikmenn eru gjaldgengir í þá kosningu sem fer í gang á samfélagsmiðlum þáttarins: Benedikt Gunnar Óskarsson (Val), Ólafur Brim Stefánsson (Gróttu), Lárus Helgi Ólafsson (Fram), Egill Magnússon (FH) og Hafþór Vignisson (Stjörnunni)
Flest allir landsmenn eru með hugann við talningar, það er að segja atkvæðatalningar, sem hafa verið aðalatriði frétta síðustu daga. Eitt sem við hér í samfélaginu höfum komist að er að það er kúnst að telja. Þess vegna reyna kosningastjórnir að fá til þess verks sérhæft fólk, sem kann á pappír, er með næma fingurgóma og góðan heila. Við fræðumst hér á eftir um besta talningafólkið. Þórir Haraldsson er formaður yfirkjörstjórnar í suðurkjördæmi. Við ætlum svo að tala við Tatiönu Latinovic, formann Kvenréttindafélags Íslands en það góða félag sendi frá sér ályktun í gær vegna endurtalningar á atkvæðum í Alþingiskosningunum, sem leiddi til þess að konum fækkaði um þrjár frá fyrri talningu og konur voru ekki lengur meirihluti þingmanna. Vonbrigði, segir Kvenréttindafélagið og ítrekar kröfu um að flokkarnir tryggi jöfn kynjahlutföll. Við sáum fréttir af því í gær að verð á hlutabréfum hefði hækkað verulega í Kauphöllinni eftir að hafa lækkað nokkuð dagana á undan. Kosningaskjálfti er hugtakið sem notað var til að skýra þessar sveiflur. Björn Berg Gunnarsson deildarstjóri greiningar og fræðslu Íslandsbanka ræðir þetta við okkur. Merkasti jarð- og náttúrufræðingur sem Íslendingar hafa átt lést fyrir 100 árum síðan. Þetta var Þorvaldur Thoroddsen, sem ferðaðist um land allt rannsakaði það og skrifaði um uppgötvanir sínar - í lok þáttar fáum við Snæbjörn Guðmundsson jarðfræðing á Náttúruminjasafninu til okkar.
Flest allir landsmenn eru með hugann við talningar, það er að segja atkvæðatalningar, sem hafa verið aðalatriði frétta síðustu daga. Eitt sem við hér í samfélaginu höfum komist að er að það er kúnst að telja. Þess vegna reyna kosningastjórnir að fá til þess verks sérhæft fólk, sem kann á pappír, er með næma fingurgóma og góðan heila. Við fræðumst hér á eftir um besta talningafólkið. Þórir Haraldsson er formaður yfirkjörstjórnar í suðurkjördæmi. Við ætlum svo að tala við Tatiönu Latinovic, formann Kvenréttindafélags Íslands en það góða félag sendi frá sér ályktun í gær vegna endurtalningar á atkvæðum í Alþingiskosningunum, sem leiddi til þess að konum fækkaði um þrjár frá fyrri talningu og konur voru ekki lengur meirihluti þingmanna. Vonbrigði, segir Kvenréttindafélagið og ítrekar kröfu um að flokkarnir tryggi jöfn kynjahlutföll. Við sáum fréttir af því í gær að verð á hlutabréfum hefði hækkað verulega í Kauphöllinni eftir að hafa lækkað nokkuð dagana á undan. Kosningaskjálfti er hugtakið sem notað var til að skýra þessar sveiflur. Björn Berg Gunnarsson deildarstjóri greiningar og fræðslu Íslandsbanka ræðir þetta við okkur. Merkasti jarð- og náttúrufræðingur sem Íslendingar hafa átt lést fyrir 100 árum síðan. Þetta var Þorvaldur Thoroddsen, sem ferðaðist um land allt rannsakaði það og skrifaði um uppgötvanir sínar - í lok þáttar fáum við Snæbjörn Guðmundsson jarðfræðing á Náttúruminjasafninu til okkar.
Drengirnir í Hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar skelltu sér í Klaka stúdíóið sitt í dag og gáfu út nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange ogKristinn Guðmundsson Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það markverðasta sem gerðist í 1.umferð Olísdeildar kvenna. HK liðið ölli þeim vonbrigðum og þá í sérílagi spilamennskan þeirra í seinni hálfleik gegn Haukum en þessi lið eru líkleg til að berjast um það hvort liðið fari í umspil í vor. Þá kom byrjun Aftureldingar gegn Val þeim á óvart og voru þeir í raun bara nokkuð ánægðir með spilamennsku þeirra þó að sigur Valsstúlkna hafi vissulega verið sannfærandi. Að lokum völdu þeir þá leikmenn sem koma til greina sem Klaka leikmaður umferðarninnar en það eru þær Hildigunnur Einarsdóttir (Val), Hafdís Renötudóttir (Fram), Birta Lind Jóhannsdóttir (Haukum) og Martha Hermanssdóttir (KA/Þór).
Gerum upp tímabilið 2020/21 - Besti leikmaður - Kaup tímabilsins - Mark tímabilsins - Vonbrigði - Mestu framfarir Hvað eigum við að gera við hópin? Hverjir inn og hverjir út Allskonar getgátur.
Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar gaf út sinn 52.þátt í dag. Að þessu sinni var þátturinn í umsjón Jóa Lange og Gests Guðrúnarsonar. Í upphafi þáttar ræddu þeir hlutverk eftirlitsmanna á leikjum en það hafa komið upp atvik að undanförnu sem kalla á breytt verklag. Þeir félagar voru með ýmsar pælingar hvað það varðar. Þá fóru þeir yfir leikina í 13.umferðinni í Olísdeild kvenna. Þar sem þeir lýstu yfir vonbrigðum sínum með framgöngu ÍBV í vetur en þeir áttu von á meiru frá þeim. Þeim finnst lítið skipulag á sóknarleik liðsins og hreinlega lýstu eftir Hrafnhildi Hönnu Þrastardóttur en það hefur ekki sést mikið til hennar í vetur. Aðra sögu er að segja um lið Hauka en þeir félagar hafa verið gríðarlega ánægðir með frammistöðu þeirra í vetur þar sem að liðið hefur sýnt framfarir í hverjum leik og þeir félagar gengu svo langt að útnefna Gunnar Gunnarsson þjálfara Hauka sem þjálfara ársins í Olísdeild kvenna. Að endingu fóru þeir yfir næstu umferð en þar ber náttúrulega hæst leikur Fram og KA/Þórs sem er úrslitaleikur um deildarmeistaratitilinn og strákarnir eiga von á hörkuleik þar og spá því að úrslitin ráðist á lokasekúndum leiksins. Þeir vonast til þess að Fram nái að koma sem flestum áhorfendum inní Safamýrina og vona að forráðarmenn félagsins séu byrjaði á að skipuleggja það. Að lokum völdu þeir hvaða leikmenn koma til greina sem BK leikmaður 13.umferðar. Þær sem eru tilnefndar að þessu sinni eru, Helena Rut Örvarsdóttir (Stjörnunni), Berta Rut Harðardóttir (Haukum), Jónína Hlín Hansdóttir (Fram) og Aldís Ásta Heimisdóttir (KA/Þór)
51.þáttur í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag. Að þessu sinni var þátturinn í umsjón Jóa Lange og Arnars Gunnarsson. Í upphafi þáttar fóru þeir yfir landsleiki Íslands gegn Litháen þar sem þeir voru sammála því að þetta hafi verið léleg frammistaða og hreinlega krefjast að íslenska landsliðið geri betur. Eins vilja þeir sjá liðið spila annað varnarafbrigði því þeir telja að þetta vera fullreynt með þessa vörn. Svo fóru þeir yfir leikina í 17.umferðinni í Olísdeild karla. Þar sem þeir voru ánægðir með það hvernig Valsmenn svöruðu eftir tapið gegn Þór á dögunum og leikmenn liðsins sýndu sitt rétta andlit. Þá voru þeir ekki eins ánægðir með frammistöðu Þórsara gegn Haukum þar sem leikmenn liðsins voru eins og byrjendur í íþróttinni á tímabili. Að lokum fóru þeir yfir hvað væri framundan í Olísdeild karla og völdu hvaða leikmenn koma til greina sem BK leikmaður 17.umferðar. Þeir sem eru tilnefndir að þessu sinni eru, Björgvin Hólmgeirsson (Stjörnunni), Orri Freyr Þorkelsson (Haukum), Martin Nagy (Val), Einar Sverrisson (Selfoss) og Stefán Huldar Stefánsson (Gróttu)
Hlaðvarpsþátturinn Ítalski boltinn er aftur mættur eftir smá hlé. Björn Már Ólafsson fer yfir allt það helsta sem er að gerast í ítalska boltanum og hvernig síðustu vikur hafa spilast. Skoðað er hvernig Íslendingarnir hafa verið að gera, rætt um stöðu mála í A-deildinni og allar helstu fréttir og sögusagnir skoðaðar. Zlatan, Ronaldo, Ofurdeildin og ýmislegt fleira.
Véfréttin fékk til sín þá Tómas Steindórsson og Davíð Eld til þess að fara yfir stöðuna. Covid vonbrigðin, Dominosdeild karla, kjallaraliðin, háaloftið, Breki, byrjunarliðið í Keflavík, Þórir í KR og margt fleira. Fórum svo í 1. deild karla þar sem Breiðablik og Hamar áttust við um daginn, hvers vegna Vestri er ekki í spilinu og hvort það sé öfugur stígandi hjá Álftanesi. Toppurinn á Dominosdeild kvenna er einnig ræddur og hvort Sara Rún taki Hauka yfir þróskuldinn. Þá fóru strákarnir yfir hvert stærstu nöfnin á skiptimarkaðnum myndu fara í NBA deildinni.Litríkur leikmaður þáttarins er Hr. Tindastóll, framherjinn Helgi Rafn Viggósson.Boltinn Lýgur Ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram. Þá er Lykill fjármögnun einnig aðalstyrktaraðili.
Óskar Örn flaggskip Vesturbæjar mætti til Gandalf þessa vikuna. Við fórum yfir ferilinn á met hraða, væntingar og vonbrigði. Óskar fór yfir þá pínu að eiga ekki fleiri landsleiki. Við ræddum Domions, Íslandsmet í 3000m hlaupi og óstaðfest heimsmet var sett í Gandalf í fyrsta sinn. Þetta og margt fleira ógagnlegt í þætti vikunnar. Gandalf....alltaf góður !
Tugir sentimetra af jafnföllnum snjó höfðu bæst á Steingrímsfjarðarheiði sem gerðu björgunarsveitum og lögreglu erfitt fyrir við leit. Beita þurfti sömu aðferðum og í snjóflóðaleit. Á meðan hófu sögusagnir um hvarfið að grassera á meðal fjölskyldu og vina í Reykjavík en fá svör fengust við þeim spurningum sem uppi voru um hvarfið, tildrög ferðalagsins og hvað hefði farið úrskeiðis.
Þriðji og síðasti Drake þáttur Skoðanabræðra og sá epískasti hingað til. Farið yfir hinn skeggjaða stóra kanadíska frá 2016 til nútímans. Vonbrigði í kjölfar Views, grasreykingar og áfengisdrykkja Snorra og Bergþórs á Drake tónleikum í London 2017, More Life slappleikinn, beefið við Kanye og Pusha T, góðu versin, góðu lögin, lélegu plöturnar, sigrarnir stóru 2018, Euphoria og Top Boy 2019, viðbjóðurinn af lagi sem Toosie Slide er, Dark Lane Demo Tapes, DJ Khaled, Lil Durk, Certified Lover Boy og svo er barnagirnd mannsins sem búið er að framleiða þrjá heila þætti um rædd í lokin.
Þriðji og síðasti Drake þáttur Skoðanabræðra og sá epískasti hingað til. Farið yfir hinn skeggjaða stóra kanadíska frá 2016 til nútímans. Vonbrigði í kjölfar Views, grasreykingar og áfengisdrykkja Snorra og Bergþórs á Drake tónleikum í London 2017, More Life slappleikinn, beefið við Kanye og Pusha T, góðu versin, góðu lögin, lélegu plöturnar, sigrarnir stóru 2018, Euphoria og Top Boy 2019, viðbjóðurinn af lagi sem Toosie Slide er, Dark Lane Demo Tapes, DJ Khaled, Lil Durk, Certified Lover Boy og svo er barnagirnd mannsins sem búið er að framleiða þrjá heila þætti um rædd í lokin. Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur
Kæru hlustendur - Endalínan er mætt beint úr White Fox stofunni og gerir upp frammistöðu leikmanna eftir fyrstu 10 umferðirnar. Við tökum fyrir MVP´s hjá hverju liði - það er mikilvægasti hlekkurinn í hverju liði. Við veljum síðan 5 manna All - Star lið og 5 manna vonbrigðalið sem þyrfti að fara í Cintamani og fá sér hlýja flík fyrir seinni hluta tímabilsins. Skemmtilegar umræður og skiptar skoðanir. Ekkert betra en að fá smá körfuboltaspjall með sér inní helgina í landsleikjahlé. Í lokin tökum við svo léttar umræður um aðal umræðuefnið í íslenskum körfubolta í dag , Heimildarmyndina Hækkum Rána og þjálfarann Brynjar Karl Sigurðsson. Allt þetta í boði Kalda Bruggsmiðju , WhiteFox og Cintamani auðvitað á PodcastStöðinni , Bestu Stöðinni. #Endalinan #Kaldi #WhiteFox #Cintamani
Í fyrsta sinn eftir Covid pásuna settumst við niður og fórum yfir liðin í Úrvalsdeild karla byggt á staðreyndum en ekki hvað gæti orðið. Vonbrigði, verðbólga, veggurinn og virkilega skemmtilegt að þetta sé komið af stað aftur.
Dagskráinni er lokið í MMA heiminum að mestu leiti og er því kominn tími til að rifja upp fjörugt ár! -Boom trillan -Bardagamaðir ársins -Hverjir áttu slæmt ár? -Bardagi ársins -Frammistaða ársins -Rothögg ársins -Uppgjafartak ársins -Fáviti ársins -Skita ársins -Vonbrigði ársins -Nýliði ársins -Endurkoma ársins -Atvik og fréttir ársins -Hvað gerist á næsta ári?
Elvar Geir, Ingólfur Sigurðsson og Gunnar Birgisson fjalla um Pepsi Max-deildina og Lengjudeildina. Það var hellingur af leikjum á dagskrá þennan mánudaginn og voru þeir til umfjöllunar í þættinum. Einnig var opinberað val á bestu mönnum annars þriðjungs Lengjudeildarinnar og fjórir leikmenn tilnefndir sem besti leikmaður annars þriðjungs Pepsi Max-deildarinnar.
Doc, Mike og Höfðinginn án landamæra.
Nú er fótboltinn að fara á fulla ferð og tími til kominn að hita upp fyrir spennandi fótboltasumar. Gestir Arnars Helga í Kaffi Krúsarstúdíóinu voru rándýrir að vanda, en þær Anna Björk Kristjánsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir leikmenn meistaraflokks kvenna mættu ásamt þjálfara sínum, Alfreð Elíasi Jóhannssyni. Hálfur matseðillinn á Kaffi Krús fékk shoutout frá stelpunum og óhætt að segja að gleði rýkji með það að búið sé að opna staðinn eftir framkvæmdir síðustu vikna. Farið var yfir Valsleikinn um nýliðna helgi, þegar stelpurnar lönduðu fyrsta titli ársins, undirbúininginn í vetur og síðustu vikur, nýju leikmennina og hvernig þjálfarinn og liðið sjái sumarið fyrir sér. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Kannski Hann, Celebs
Ragnar Nathanaelsson var gestur vikunnar í Podcasti Körfunnar í Maí 2018, þar sem hann gerði upp ferilinn, en hann hefur komið víða við. Það eru margar stórskemmtilegar sögur sem Raggi segir frá í þessum þætti auk þess sem 2017-18 tímabilið er gert upp.Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur11:45 - Nýjustu fréttir - Danero í Tindastól16:50 - Ágúst dregur Ragga á æfingar í Hveragerði13:30 - Veðrið kom í veg fyrir flutning til Ísafjarðar15:30 - Raggi fer til Þór Þ18:15 - Ævintýri í Svíþjóð- Fjörug sambúð með Ægi27:30 - Endurkoma til Þór Þ30:20 - Try-out hjá Dallas Mavericks34:00 - Pick-up bolti með Isaiah Thomas43:10 - Nat til Spánar - Siesta og kjötveisla57:15 - Raggi kemur heim - Atvinnumennskan á hilluna1.00:00 - Vonbrigðatímabil í Njarðvík1.08:30 - Viðskilnaðurinn við Njarðvík og samið við Val1.21:00 - Mikilvægt að hafa góðan móral1.26:10 - Landsliðsferillinn og framtíðin1.33:15 - Dominos deild karla gerð upp
Alle selezioni Mario Lapecorella •twelfth Night – Fact and Fiction•Morphine – Have a lucky day•Bluetip – Persistent•Hoss – Keep it•Gaunt – Jerkin'yourself around•Presidents of the U.S.A – Tiger Bomb•Firehose – Up Finnegan's ladder•Dinosour JR – Feel the Pain•Sloppy Seconds – Yuppy•Unwound – Understand & forget•Vonbrigði - 6y (Sexy)•B.G.K- Up to you•Crass - They Owe Us A Living•Trumans Water – Enflamed•The Faith – subject to change •Toadies – Velvet•Polvo - Fast Canoe•James – Walking the ghost
Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir taka stöðuna á boltanum ásamt Lilju Dögg Valþórsdóttur í nýjasta þætti Heimavallarins. Landsliðin eru áberandi í þætti dagsins en bæði A-landsliðið og U19 eru stödd á Spáni þar sem þau taka þátt í æfingamótum og undirbúa sig fyrir krefjandi verkefni. Þá er einnig farið yfir helstu fréttir og boðið upp á nokkra slúðurmola.
Strákarnir eru loksins komnir í studíóið og komnir með rosalegan þátt. Farið var yfir bikar og deildarleiki, Puma spurningin á sínum stað, Vonbrigðaliðið valið og bestu leikmenn í hverri stöðu ásamt nýr liður, fréttahorn Jóa. Hægt er að hlusta á þáttinn í öllum helstu podcast veitum.
10. umferðin í Olís-deild karla er gerð upp í þættinum auk þess sem Úrvalslið fyrri umferðar og Vonbrigðaliðið er valið í lokþáttar. Ræddum auk þess úrslitin í síðustu umferð í Olís-deild kvenna og Vegna tæknilegrar örðugleika datt út umræðan um Snickers-seðilinn þar sem Snickers-ið fór yfir leikina í Coca-Cola bikarnum. Seðlinum verður postað inn á samfélagsmiðla Handkastsins. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.
Biggi, Kalli, Maggi og Valur ræða tímabilið hingað til. Stúúúútfullur af efni!
Nýtt Innkast eftir 12. umferð Pepsi Max-deildarinnar sem var heldur betur dreifð! Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Gunnar Birgis eru allir á sínum stað. Þeir völdu meðal annars einn leikmann úr hverju liði sem kallað er eftir að skili meiru en þeir hafa gert í sumar. Vonbrigðaval. Meðal efnis: Nauðsynlegur sigur fyrir Óla Kristjáns, Víkingar fá hrós en eru í fallsæti, Blikar í brekku, HK-ingar með tröllasigur, dómgæsludrull, kraftmiklir KR-ingar í Eyjum, klásúla í KSÍ-samningi Jeffs, Stefán Logi þarf að svara efasemdarröddum.
Böðvar Böðvarsson ólst upp í Hafnarfirði, nánar tiltekið í Kinnunum og lék upp yngri flokkana með FH. Hann er fæddur árið 1995 og lék sinn fyrsta leik í efstu deild sumarið 2013 með uppeldisfélagi sínu FH. Í dag leikur hann með pólska úrvalsdeildarfélaginu, Jagiellonia Bialystok. Böddi löpp, eins og hann er kallaður er gestur Miðjunnar að þessu sinni. Þar fer hann yfir unglingsárin í FH, fyrstu leikina með meistaraflokki, Íslandsmeistaratitlana tvö sem hann hefur unnið, vonbrigðin á ferlinum, tímann í Danmörku þar sem hann fór á lán til Midtjylland og að sjálfsögðu fyrsta árið í Póllandi.
Nú eru aðeins nokkrir leikir eftir af deildarkeppni NBA deildarinnar og úrslitkeppnin handan við hornið.Þátturinn hefst á almennri umræðu um deildirnar tvær, áður en þáttarstjórnendur færa sig yfir í verðlaunaafhendingu fyrir 2018/19 tímabilið. Fyrir neðan er hægt að sjá dagskrá þeirrar umræðu og í sviga fyrir aftan þá sem valdir voru af samfélaginu.Þá er undir lokin farið yfir hvaða leikmenn eru með lausa samninga í sumar og reynt að geta í eyðurnar með hvert þeir eru líklegir til þess að fara.Podcast Körfunnar er í boði Dominos og minnt er á að hlustendur fá 30% afslátt af sóttum pítsum með kóðanum “karfan.is” panti þeir í gegnum Dominos.is eða með Dominos appinu.Umsjón: Davíð Eldur & Sigurður OrriGestur: Tómas “Stóri” SteindórssonDagskrá00:00 - Létt hjal01:00 - Austrið05:00 - Vestrið15:00 - MVP (Giannis Antetokounmpo)25:00 - Varnarmaður ársins (Rudy Gobert)30:00 - Sjötti leikmaður ársins (Lou Williams)34:00 - Mestu framfariri (D´Angelo Russell)39:00 - Nýliði Ársins (Luka Doncic)44:30 - Þjálfari ársins (Mike Budenholzer)49:00 - Vonbrigðalið vetrarins (Boston Celtics)57:30 - Vonbrigðaleikmaður vetrarins (Jayson Tatum)01:03:00 - Lið sem kom mest á óvart (Denver Nuggets)01:07:00 - Leikmaður sem kom mest á óvart (Nikola Jokic)01:12:00 - Hvert fara lausir leikmenn í sumar?
Gestur þáttarins að þessu sinni var Óskar Bjarni Óskarsson þrautreyndur þjálfari bæði hér heima og erlendis. Í þættinum var farið yfir síðustu umferðina í Olís-deild karla fyrir áramót en 13. umferðin fór fram um helgina. Að lokum fórum við yfir stöðuna í deildinni fyrir frí en næsta umferð í deildinni er ekki fyrr en í byrjun febrúar. Coolbet leikmaður umferðarinnar var valinn í lok þáttar.
Fólk gekk um götur Katowice í gær og krafðist þess að ráðamenn heimsins gripu til frekari og einbeittari aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Loftslagsráðstefnan í pólsku borginni hefur þegar valdið mörgum vonbrigðum. Ekki tókst að ná sátt um að lýst yrði stuðningi við niðurstöður skýrslu Vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna á þinginu. Þar er því lýst að það stefni í óefni, hitastigið hækki um þrjár gráður en ekki eina og hálfa á öldinni. Bandaríkjamenn, Sádi Arabar, Kúvætar og Rússar komu í veg fyrir að Loftslagsráðstefnan gerði vísindaskýrsluna að sinni. Afstaða þessara ríkja veldur vísindamönnum og öðrum í Katovice miklum vonbrigðum. Við veltum fyrir okkur stöðunni í loftslagsmálunum. Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, var mánudagsgestur Morgunvaktarinnar. Hún segir að við verðum að breyta lifnaðarháttum okkar, grípa verði til einbeittari aðgerða og umhverfisverndarfólk velti fyrir sér stofnun stjórnmálaafls. - Það líður að úrslitastund í Brexit-málum. Breska þingið á að greiða atkvæði um útgöngusamninginn á morgun, eða verður því frestað, eins og orðrómur hefur verið um? Sigrún Davíðsdóttir lýsti stöðu mála. Margir Bretar eru afar ósáttir við þróun mála en þeir mótmæla ekki jafn kröftuglega og Frakkar gera þessa dagana. Þá var líka rætt um minnkandi sölu í hefðbundnum verslunum. Jólaverslunin færist æ meira á netið. - Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt 10.desember 1948. Sjötíu ára afmæli þessarar merku yfirlýsingar verður minnst á hátíðarfundi í Veröld - húsi Vigdísar. Mannréttindayfirlýsingin hefur ekki lagagildi en er mikilvæg viðmiðun um réttindi einstaklinga og hefur haft mikil áhrif. Árni Snævarr, upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum, ræddi gildi Mannréttindayfirlýsingarinnar. Þá var komið inn á viðfangsefni ríkjaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Marrakech um stjórn málefna flóttafólks og innflytjenda. - Tónlist: Lucien Gallopain - La jolie sardane; Jethro Tull - First snow on Brooklyn.
Gestur þáttarins að þessu sinni í Handkastinu var Patrekur Jóhannesson núverandi þjálfari Selfoss og austurríska landsliðsins. Rætt var um athyglisverðan feril Patreks sem hófst í Garðabænum, stutt viðkoma í Hafnarfirðinum áður en hann flutti til Akureyrar þar sem ferilinn fór almennilega á flug. Patti á að baki 241 landsleik og lék í fjölda ára í atvinnumennsku bæði í Þýskalandi og á Spáni með mörgum af bestu handboltamönnum í heimi. - Skapstór og hvatvísi á uppvaxtarárunum - Árin á Íslandi fyrir atvinnumennsku - Góð sjö ár í TUSEM Essen þar sem hann faldi sig í skógi í útihlaupi - Stutt dvöl hjá Bidasoa - Meiðslahrjáð tímabil í Minden - Heimkoman í Garðabæinn - Þjálfaraferilinn hófst í Stjörnunni - Tímarnir með landsliðinu - Vonbrigðin á HM ´95 á Íslandi - Frábær mót á HM ´97 og EM ´02 - Hversu langt ná Haukur Þrastar og Elvar Örn? - Hver er besti leikmaður sem Patti hefur spilað með á ferlinum? - Hvernig markmaður var Styrmir Sigurðsson?
Gestur þáttarins í Handkastinu af þessu sinni sem var í boði Altis Bæjarhrauni var hin skelegga Þorgerður Anna Atladóttir fyrrum landsliðsgella og atvinnukona. Í þættinum fórum við yfir frestaðan leik ÍR og FH í Olís-deild karla, 7. umferð í Olís-deild kvenna auk þess sem við gerðum upp fyrstu sjö umferðirnar í kvennaboltanum. Sérfræðingurinn valdi Úrvalslið Olís-deildar kvenna og Togga valdi Vonbrigðaliðið. Auk þess völdum við leikmann októbermánaðar í Olís-deild karla og leikmann fyrstu umferðar í Olís-deild kvenna. Fengu þau að launum glaðning í boði Altis Bæjarhrauni. - Benni Bongó hélt uppi dynjandi takti í Breiðholtinu þar sem FH sigraði ÍR. - Er sæti Bjarna Fritz orðið volgt? - Vængbrotnir Framarar töpuðu fyrir norðan - Selfyssingar á botninum eftir N1 tapið - Katastrófan heldur áfram hjá Stjörnunni sem tapaði illa í Hafnarfirðinum - Stelpurnar hans Gústa Jó unnu öruggan sigur á nýliðum HK - Úrvalslið Sérfræðingsins - Vonbrigðalið Toggunar - Spáð í spilin fyrir næstu umferð í Olís-deildunum - Stuðlabergið í boði Coolbet
Gestur þáttarins að þessu sinni var góðkunningi lögreglunnar, Árni Stefán Guðjónsson. Í þættinum fóru strákarnir í Handkastinu yfir lokaleikina í 5. umferð karla og fyrsta leikinn í 6. umferð. Auk þess sem farið var yfir úrslitin í síðustu leikjum í Olís-deild kvenna. - Læðan læddi tveimur stigum í hús á Ásvöllum í sveiflukenndum leik - KlukkuToggi svæfði Valsmenn fyrir austan fjall - Er Afturelding mesta næstum því lið deildarinnar? - Dularfullur miði í Origohöllinni frá Selfossi - Framkisurnar eru óstöðvandi - KA/Þór heldur áfram að heilla - Markmenn eru ekki eins og við öll og sögurnar í þættinum ýta undir það. - Vonbrigðaliðið var valið í Olís-deild karla - Farið yfir stuðlana fyrir næstu leiki og Coolbet leikmaður 5. umferðar var valinn.
Hér má nálgast seinni hluta útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 4. ágúst. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson voru í þættinum. Hringt var til Vestmannaeyja í Daníel Geir Moritz, fyrir Þjóðhátíðarleik ÍBV og Fylkis. Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, kom í heimsókn og ræddi um mætingu á Pepsi-deildina. Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, var á línunni frá Reading en Brynjar spilaði undir stjórn Erik Hamren sem virðist vera að taka við íslenska landsliðinu.
Ragnar Nathanaelsson er gestur vikunnar í Podcasti karfan.is þar sem hann gerir upp ferilinn en hann hefur komið víða við. Það eru margar stórskemmtilegar sögur sem Raggi segir frá í þessum þætti auk þess sem nýlokið tímabil er gert upp. Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur 11:45 - Nýjustu fréttir - Danero í Tindastól 16:50 - Ágúst dregur Ragga á æfingar í Hveragerði 13:30 - Veðrið kom í veg fyrir flutning til Ísafjarðar 15:30 - Raggi fer til Þór Þ 18:15 - Ævintýri í Svíþjóð- Fjörug sambúð með Ægi 27:30 - Endurkoma til Þór Þ 30:20 - Try-out hjá Dallas Mavericks 34:00 - Pick-up bolti með Isaiah Thomas 43:10 - Nat til Spánar - Siesta og kjötveisla 57:15 - Raggi kemur heim - Atvinnumennskan á hilluna 1.00:00 - Vonbrigðatímabil í Njarðvík 1.08:30 - Viðskilnaðurinn við Njarðvík og samið við Val 1.21:00 - Mikilvægt að hafa góðan móral 1.26:10 - Landsliðsferillinn og framtíðin 1.33:15 - Dominos deild karla gerð upp
Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon eru mættir með Evrópu- Innkastið þessa vikuna. Daníel mættur úr fríi og endurnærður eftir að hafa skoðað landsbyggðina. Vonbrigði Arsenal voru auðvitað til umfjöllunar og frammistaða Liverpool sem hefur tryggt sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fram fer í Kænugarði.
Miðstjórn Alþýðusambandsins ákvað í dag að taka ekki sæti í þjóðhagsráði. Kjarasamningur grunnskólakennara var felldur í atkvæðagreiðslu sem lauk í dag. 68 prósent höfnuðu samningnum. Vonbrigði, segir formaður Félags grunnskólakennara. Héraðssaksóknari fer fram á minnst sextán ára fangelsi yfir Khaled Cairo fyrir að verða Sanitu Brauna að bana í september í fyrra. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segist fullviss um að bæjaryfirvöld hafi gert allt rétt í máli dagmóður, sem dæmd var fyrir hættulega árás gegn barni, á meðan málið var til rannsóknar. Yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum fordæmir aðstæður sem flóttafólk frá Austur-Ghouta í Sýrlandi býr við. Faðir minn hótaði að drepa mig. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Keneth flóttamann frá Úganda og Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri samtakanna 78. ASÍ ekki í Þjóðhagsráði. Haukur Holm ræðir við Gylfa Arnbjörnsson forseta ASÍ. Samband stjórnendafélaga ekki gult stéttarfélag. Arnar Páll Hauksson talar við Skúla Sigurðsson, forseta Sambands stjórnendafélaga.
Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson héldu Pepsi-partí í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Það má segja að sérstakt lokahóf deildarinnar hafi verið haldið og óhefðbundin verðlaun veitt á færibandi! Þetta var allt á léttu nótunum. Hver var vallarþulur ársins? Aðstoðarþjálfari ársins? Vonbrigði ársins? Furðulegasta atvik ársins?... og svo mætti áfram telja!
Síðasta EM Innkastið frá Hollandi er sent út frá hóteli íslensku fjölmiðlamannana, Hof van Putten. Elvar Geir Magnússon, Arnar Daði Arnarsson og Tómas Þór Þórðarson fóru yfir málin, sirka sólarhring eftir að Ísland tapaði fyrir Sviss. Ljóst er að stelpurnar okkar eru úr leik fyrir lokaumferð riðilsins.
Hjörvar Hafliðason sparkspekingur mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í gær og gerði upp Pepsi-deildina á skemmtilegan hátt.
Inkasso-deildinni lauk fyrir viku síðan en í útvarpsþættinum Fótbolti.net var deildin gerð upp á snarpan hátt. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson fóru yfir valið á liði ársins og skoðuðu þau lið sem stóðu ekki undir væntingum.
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson gerðu upp umferðir 1-11 í Pepsi-deild karla í útvarpsþættinum í dag. Hlustaðu á umræðuna í spilaranum hér að ofan.