Heimsendir

Follow Heimsendir
Share on
Copy link to clipboard

Heimsendir eru umræðuþættir þar sem þung málefni mæta skapandi hugsun og heimspekilegum vangaveltum um framtíð Íslands og jafnvel alls mannkyns. Málefnin eiga það sameiginlegt að geta á einn eða annan hátt leitt til endaloka þessa heims. Í þáttunum fær

Útvarp 101


    • Apr 8, 2025 LATEST EPISODE
    • every other week NEW EPISODES
    • 51m AVG DURATION
    • 147 EPISODES


    Search for episodes from Heimsendir with a specific topic:

    Latest episodes from Heimsendir

    #150 Lífið á Íslandi - Japanskir raunveruleikaþættir

    Play Episode Listen Later Apr 8, 2025 54:56


    Margt að ræða - Trump og tollamúrar, nýtt upphaf Evrópu, leikskólamál í Reykjavík, og auðvitað japanskir raunveruleikaþættir sem allir ættu að horfa á enda feel-good af bestu gerð.Þátturinn er í boði Bíó Paradís.

    #149 Þórarinn Hjartarson

    Play Episode Listen Later Apr 1, 2025 59:16


    Þórarinn Hjartarson er þáttastjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling og stjórnmálafræðingur. Í þættinum förum við um víðan völl og snertum meðal annars á upprisu Indlands, lýðfræðivandamálum Kína, persónulegum hindrunum, ágæti kapítalisma og framtíð Íslands.

    #148 Frímann Gunnarsson

    Play Episode Listen Later Mar 19, 2025 55:30


    Frímann er sjónvarpsmaður og stjórnmálafræðingur með próf frá London School of Politics. Hann hefur lengi prýtt skjái landsmanna en þættirnir hans hafa verið sýndir á Skjá Einum, Rúv og Stöð 2. Næstu helgi verður Frímann síðan á hvíta tjaldinu í Bíó Paradís. Í þessum þætti ræðum við námsárin, ljóðlistina, listaelítuna og hvort gott sé að blanda áfengi og svefntöflum.Þátturinn er í boði Bíó Paradís. Ef Egils Kristall er að hlusta má endilega bjóða mér spons enda drekk ég það eins og vatn.

    #147 Lífið á Íslandi - Er að koma stríð?

    Play Episode Listen Later Feb 25, 2025 50:53


    Kominn aftur miklu meiri kraftur! Í þessum þætti fjöllum við um síðustu vikur lífs míns á Íslandi ásamt umræðum um vinina Trump og Pútín, framtíð Evrópu og Úkraínu, AI auglýsingar, útivist og áfengislausan lífstíl.Þátturinn er í boði Bíó Paradís.

    #146 Logi Pedro

    Play Episode Listen Later Jan 28, 2025 69:47


    Logi Pedro er hönnuður og tónlistarmaður. Við ræðum hnignun stórvelda, jákvæða þjóðerniskennd, mikilvægi vinnu, hreinskilna stjórnmálamenn og margt fleira.Þátturinn er í boði Bíó Paradís.

    #145 Fjármálaráðgjöf 2025 - Get Rich Quick! (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Jan 21, 2025 56:33


    Þetta er vissulega ekki fjármálaráðgjöf, en, þið vitið. Vangaveltur um Bitcoin, fasteignir, hlutabréf og fleira. Hvernig á að haga fjármálum og fjárfestingum árið 2025? Hvernig mun gervigreind hafa áhrif á vinnu? Hvað er fjárhagslegt frelsi. Þetta og fleira í þætti dagsins.Þátturinn er í boði Bíó Paradís.

    #143 Árið 2024 gert upp! (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Dec 30, 2024 44:24


    Stærsta ár lífs míns? Kannski ekki, en svakalegt ár engu að síður. Fór á nyrsta odda Japans, dó næstum í jarðskjálfta í Taiwan, flutti með kött og barn til Íslands, hitti Jeff Daniels, landaði fiski og lúbarði hyski. Þetta var gott ár en 2025 verður betra.Hentu í follow á hlaðvarpsveitur og Insta fyrir allt það helsta úr smiðju Heimsendis!

    #142 Erna Mist (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Dec 11, 2024 63:21


    Erna Mist er listmálari, pistlahöfundur og leikhúsvera. Við ræðum lífið og vinnuna, Ísland og London, morgunrútínur og málverkakaup til Kína. Auk þess tölum við um listina sem tekjulind og tækifæri til að framþróa samfélag.Þátturinn er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.

    #140 Eiður Westmann - Frambjóðandi til Alþingis (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Nov 26, 2024 56:05


    Útlendingamálin. Orkumálin. Vindmillur og plastagnir. Efnahagskrísa vestanhafs og ólga í Evrópu. Uppstokkun í sviðslistasjóði. Eiður Westmann, frambjóðandi úr Flokki Fólksins, mætir í Heimsendi til að ræða allt þetta og meira til í aðdraganda Alþingiskosninga 2024.Kæri hlustandi, þátturinn er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Ef þú vilt fullan aðgang að öllu efni Heimsendis geturðu kíkt á patreon.com/heimsendir og upplifað dýrðina.

    #139 Lífið á Íslandi - Trump inn, Bitcoin upp, Evrópa út?

    Play Episode Listen Later Nov 19, 2024 11:10


    Hlustið í heild á patreon.com/heimsendirÉg hef verið með hluti á heilanum uppá síðkastið - Kosningar í BNA, hnignandi staða Evrópu, fullris Bitcoin. Auk þess er gaman að ræða lífstíl og fallin vígi. Loks eru Heimsfréttirnar á sínum stað.

    #138 Tumi Gonzo (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Nov 8, 2024 60:08


    Trump forseti. Geópólitík. Deepfakes og gervigreindarmyndbönd. Gestur þáttarins er Tumi Gonzo, listamaður og leikstjóri. Önnur umfjöllunarefni eru kosningar á Íslandi, orkumálin og framtíð landsins.Þátturinn er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar. Ef þig langar að fá fullan aðgang að öllu efni Heimsendis bendum við á patreon.com/heimsendir

    #137 Lífið á Íslandi - Raunhagkerfið

    Play Episode Listen Later Nov 2, 2024 13:38


    Hlustið í heild á www.patreon.com/heimsendirLöndun í Grindavík. Heimavinnandi húsfaðir í Hlíðunum. Milljón á mánuði. Og Kamala Harris í vandræðum. Allt þetta og meira í þessum flæðiþætti (sumir kalla það gas). Njótið vel!

    #136 Bolli Már Bjarnason (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Oct 24, 2024 66:53


    Bolli Már Bjarnason er uppistandari og útvarpsmaður, veiðimaður líka, og margt fleira. Í þættinum ræðum við jólin og rjúpurnar, áhugamál og fjölskyldulíf, vinnu og peninga. Lífið á Íslandi er líka til umræðu sem og samanburður við Japan.Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.

    #135 Framtíð Íslands

    Play Episode Listen Later Oct 17, 2024 13:51


    Hlustið í heild á patreon.com/heimsendirBjört framtíð? Mögulega. Í þessum þætti fjöllum við um framtíð íslenskrar náttúru og efnahags, fólksþróun, menningu og tungumál, listir og alþjóðamál. Er íslenskan á útleið? Verður stofnaður her á Íslandi? Munu jöklarnir bráðna? Þessar og fleiri verða í brennidepli.

    #134 Er gervisykur að drepa þig? (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Oct 4, 2024 60:07


    Sykur vs. Sykurlaust? Aspartam eða aspas? Í þessum þætti skoðum við möguleg neikvæð áhrif gervisykurs og spurjum okkur hvort það sé ekki bara betra að borða venjulegan sykur í staðinn.Þessi þáttur er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Takk fyrir að hlusta!

    #132 Veiðisumarið gert upp (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Sep 3, 2024 59:01


    Veiðiveiran leggst í dvala. Sumarið 2024 var risastórt í stangveiði. Í þættinum fer ég yfir vatnaveiði í Þingvallavatni, Baulárvallarvatni, Meðalfellsvatni og fleiri góðum tjörnum ásamt laxveiði fyrir norðan og sjóbirtingsveiði síðsumars.Vakin skal athygli á að myndbandsútgáfa þáttarins er til á YouTube, X og auðvitað á Patreon.

    #131 Vinna peningar fyrir þig?

    Play Episode Listen Later Aug 27, 2024 15:10


    ÞESSI GÆTI BREYTT LÍFI ÞÍNU. Þátturinn fjallar um bókina Ríkur faðir, fátækur faðir eftir Robert Kiyosaki. Við förum yfir eignir og skuldir, vinnu og viðskipti, eyðslu og sparnað.Hlustið í fullri lengd inni á patreon.com/heimsendir

    #130 Spurjum lækni - Hvað er hundaæði (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Aug 13, 2024 64:04


    Rabies, please. Já, í þættinum ræðum við Jóhannes Gauti Óttarsson, Cand. med., veirusýkinguna hundaæði sem er enn ábyrg fyrir um 60.000 dauðsföllum árlega. Við ræðum einkenni, meðferðir, zombie-myndir og fleira.Þátturinn er í boði Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Þú getur prófað frítt í 7 daga á patreon.com/heimsendir

    #129 Lífið á Íslandi - Kulnun á Þjóðhátíð (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Aug 8, 2024 52:54


    Menn lentu í kulnun. Tvöfaldri. Í þessum þætti fjalla ég um síðustu vikur á Íslandinu, góða veðrið, stangveiði, Verslunarmannahelgina, pestó á pasta og fleira gott. Einnig eru Heimsfréttir vikunnar og Íslenskuhornið til staðar.Þátturinn er í boði Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.

    #128 Umhverfis Ísland á stórkostlegu skipi

    Play Episode Listen Later Jul 23, 2024 8:56


    Full lengd: patreon.com/heimsendirLangar þig að vita hvernig það er að sigla umhverfis Ísland á skemmtiferðaskipi með 150 manns sem kalla þig Steven? Langar þig að fræðast um Flatey og Látrabjarg? Þá er þessi fyrir þig. Komdu með um borð og hlustaðu á ferðasöguna sem og punkta um allt það góða og slæma við núverandi starf mitt á skipinu góða.

    #127 Vöðvar eru lykill að langlífi (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Jul 16, 2024 53:14


    Þátturinn er í boði Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.You don't use it, you lose it. Svo hljóða Hávamál. Í þessum þætti fjalla ég um nokkra vel valda punkta úr viðtali Andrew Huberman við Dr Gabrielle Lyon þar sem tengsl vöðva við langlífi eru í brennidepli. Við skoðum ofþyngd, innkirtla, prótein og kolvetni, svo eitthvað sé nefnt. Auk þess eru nokkrir punktar úr daglegu lífi hér á Íslandi. Njótið vel!

    #126 Lífið á Íslandi - Er dýrt að búa á Íslandi?

    Play Episode Listen Later Jun 25, 2024 7:10


    Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á patreon.com/heimsendirÍ þessum þætti fjalla ég meira um vinnumál og fjármál, rigningu og tuðmenningu, útilegu með 7 mánaða dreng og loks spurninguna: Er dýrt að búa á Íslandi. Svo bregðum við okkur víðsvegar um heiminn í Heimsfréttum vikunnar.

    #125 Spurjum lækni - Hvað eru berklar? (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Jun 18, 2024 62:32


    Fyrsti þáttur í seríunni Spurjum lækni þar sem við fjöllum um mismunandi sjúkdóma, sögu þeirra og meðferðir. Í þessum þætti tæklum við Jóhannes Gauti Óttarsson, læknir og tónlistarmaður, sjúkdóminn berkla sem herjar enn á stóran hluta jarðarbúa þrátt fyrir að vera lítið í umræðunni hérlendis.Þátturinn er í opinni dagskrá í boði þeirra sem styðja Heimsendi á Patreon. Takk fyrir stuðninginn og takk fyrir að hlusta!

    #124 Lífið á Íslandi - Barneignir, vinna og peningar

    Play Episode Listen Later Jun 11, 2024 7:45


    Þáttinn má nálgast í fullri lengd inná https://www.patreon.com/heimsendirÉg er faðir án fæðingarorlofs. Það er brekka en hún er líka full af lærdómi. Í þessum þætti fjalla ég um vinnu, gigghagkerfið, uppeldi barna, fjármálin og fleira. Í lok þáttar er síðan Heimsendir vikunnar sem snýr að vendingum í Úkraínu.

    #123 Lífið á Íslandi - Menningarsjokk (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later May 28, 2024 61:18


    Ég er kominn heim, eins og segir í laginu góða. Í þessum þætti fjalla ég um sjokkið við að kveðja austrið og mæta vestur til Íslands. Brenglað hæðarskyn, hátt matvöruverð, sviðasulta í leikhús og orlofshús í Rússlandi. Auk þess eru Heimsfréttirnar og Íslenskuhornið á sínum stað.Þessi þáttur er opinn í boði Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Vertu með!

    #122 Fucked í Finnlandi (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later May 14, 2024 43:20


    Afsakið frönskuna. Ég er staddur í Finnlandi með kettinum Tító og okkur líður vel þrátt fyrir langt ferðalag að baki. Helsinki er flott borg og hér á hótelinu er sána og rækt. Í þættinum fjalla ég um ferðasöguna frá Japan og heimspekina á bakvið einveru erlendis.Kæri hlustandi, ef þú vilt fullan aðgang að öllu efni Heimsendis, þá vitið þér hvar skal leita. Takk fyrir að hlusta!

    #121 Sayonara Japan!

    Play Episode Listen Later May 7, 2024 6:25


    Hlustið á þáttinn í heild sinni á patreon.com/heimsendirGott fólk, það er komið að því. Heimsendir flytur til Íslands og segir skilið við Japan, í bili. Í þættinum lítum við um öxl og gerum upp árin 2 í Japan - hvað lærðist, hvað afrekaðist, hvers mun sakna og hvers ekki.

    #120 Allt sem þú þarft fyrir ferðalag til Japans

    Play Episode Listen Later Apr 23, 2024 5:13


    Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á patreon.com/heimsendirStórborgir eða smábæir? Sumar eða vetur? Reiðufé eða kort? Tattú eða bað? Í þessum þætti svara ég ykkar spurningum varðandi ferðalög til Japans. Ég minni á að það má senda mér spurningar beint ef fólk vill kafa dýpra. Njótið vel!

    #119 Lífið í Sapporo - Svona verðurðu 120 ára (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Apr 16, 2024 67:49


    Ég ætla að verða 120 ára og ég hef fundið formúluna! Í þessum þætti fjalla ég um hreyfingu, mataræði, föstur, stress, tilgang og fleira tengt langlífi, sem og punkta um lífið í Japan og nýtilkomna japönskukennslu.Kæri hlustandi, þessi þáttur er opinn en ég minni á Patreon fyrir heldra fólk.

    #118 Lífið í Sapporo - Er nútíminn bestur eða verstur? (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Apr 2, 2024 57:45


    Hvernig kemst maður í gegnum ósigra? Hvernig lifum við með samfélagsmiðlum? Af hverju í ósköpunum þurfum við að vinna 40 tíma vinnuviku? Í þessum þætti fjöllum við um kosti og galla nútímans ásamt stuttri japönskukennslu og punktum um lífið í Sapporo.Kæri hlustandi, þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Ef þú ert enn að lesa þá segi ég vel gert, og hvet þig síðan til að prófa Patreon frítt í 7 daga og sjá hvað setur. Takk fyrir að hlusta!

    #117 Rússneskir landnemar í Síberíu

    Play Episode Listen Later Mar 26, 2024 10:02


    Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á:patreon.com/heimsendirSturluð staðreynd: Það eru aðeins 6km á milli Japans og Rússlands. Í þessum þætti fjöllum við um rússneska landnema í Síberíu og þenslu rússaveldis í austur, alla leið að Kyrrahafi. Á vegi þeirra urðu frumbyggjaþjóðir Norður Asíu, nýjar dýra- og plöntutegundir og stórbrotin náttúra.

    #116 Að sigra veikindi (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Mar 19, 2024 64:23


    Ég var við dauðans dyr en nú rís ég eins og fönix upp úr ösku hreinsunareldsins. Í þessum þætti fjalla ég um baráttu við skæða sótt, ástæður fyrir veikindum og mögulegan lærdóm. Síðan má finna nokkra punkta um lífið í Japan og auglýsingar vikunnar.Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís og þeirra sem styðja Heimsendi á Patreon. Takk fyrir að hlusta!

    #115 Lífið í Sapporo - Við ætlum ekki að verða þyrluforeldrar

    Play Episode Listen Later Mar 12, 2024 8:16


    Hlustaðu á þáttinn í heild sinni áhttps://www.patreon.com/heimsendirÍ þessum þætti skoðum við sálfræðimeðferðir barna og þyrluforeldra. Af hverju eru börnin óhamingjusamari en áður? Af hverju skrifa Bandaríkin upp á 41 milljón skammt af amfetamíni ár hvert? Auk þess eru punktar um lífið í Sapporo og smá umræða um geópólitík.Kæri hlustandi, ef þú ert enn að lesa þá minni ég á að þú getur prófað Patreon ókeypis í 7 daga, svo geturðu ákveðið hvort efnið sé fyrir þig eða ekki. Takk fyrir að hlusta!

    #114 Milljón á mánuði?

    Play Episode Listen Later Feb 27, 2024 5:41


    Hlustið á þáttinn í heild sinni á: https://www.patreon.com/heimsendirNýr sjálfshjálparþáttur frá Heimsendi. Þessi fjallar um aðferðafræði þess að verða ríkur, milljón á mánuði eða mánuð á milljón, jafnvægi milli vinnu og persónulegs lífs og margt fleira.

    #113 Lífið í Sapporo - Viðtöl við japani (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Feb 20, 2024 75:54


    Navalný og Pútín, Trump og Biden, vangaveltur um réttstöðulyftu, kaldar sturtur og svefnvenjur ungabarna. Í þessum þætti fjalla ég um síðustu vikur hér í Sapporo ásamt því að birta viðtöl við 4 unga japani.Allt efni Heimsendis er aðgengilegt á https://www.patreon.com/heimsendir

    #112 Japanska mannætan í París

    Play Episode Listen Later Feb 13, 2024 5:26


    Þátturinn er aðgengilegur í fullri lengd á patreon.com/heimsendirÁrið 1981 gerðist ungur japani sekur um mannát í París. Nokkrum árum síðar var hann kominn heim til Japan, þá frjáls maður. Í þessum þætti fjöllum við um þetta voðaverk, aðdragandan og eftirmál.

    #111 Japanskar bardagalistir (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Feb 6, 2024 78:25


    Súmóglíma, Jiujutsu, Aikido, Kendo, Karate og Júdó keppa hér um titilinn: Besta japanska bardagalistin! Vissulega er þetta huglægt mat en Heimsendir stendur við það. Sömuleiðis hvetjum við alla til að stunda eða allavega prófa japanskar bardagalistir.Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon fyrir fólk sem vill kaupa sér gott karma í lífinu.

    #110 Lífið í Sapporo - Kvöldstund með gyðingum

    Play Episode Listen Later Jan 30, 2024 6:32


    Hlustið á þáttinn í heild sinni áhttps://www.patreon.com/heimsendirShabbat kvöldverður, mannanafnanefnd, 1000 kall á tímann, týpískur dagur í mínu lífi, makríll og loðna, vinna og borða. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar!

    #109 Lífið í Sapporo - Yakuza í sánunni (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Jan 23, 2024 78:07


    Nýjir vinir mínir í Yakuza-glæpasamtökunum, þráðormar í fiski, plastbarkamálið ógurlega og heimsfréttir vikunnar. Í þessum þætti fjalla ég um lífið í Sapporo og það sem ég hef á heilanum þessa dagana.Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á áskrift á Patreon fyrir fullan aðgang að öllu efni Heimsendis:https://www.patreon.com/heimsendir

    #108 Norður Kórea

    Play Episode Listen Later Jan 16, 2024 6:23


    Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendirHvaða þjóðarleiðtogi er háður svissneskum osti? Hvaða land refsar þremur kynslóðum fyrir einn glæp? Hvaða hljómsveit heldur tónleika með orrustuþotu á sviðinu? Í þessum þætti fjöllum við um Norður Kóreu - fortíð landsins og framtíð. 

    #107 United States of Europe? (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Jan 9, 2024 57:12


    Mun Evrópa einhvern tímann sameinast í ríkjabandalagið USE? Sameinuð Evrópa eða Nýja Evrópa, með 450 milljónir íbúa, annað stærsta hagkerfi heims, herafla upp á 1,3 milljónir hermanna. Gæti þetta gerst? Í þessum þætti skoðum við Evrópu og ástæður þess að möguleg sameining gæti átt sér stað. Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon ef þú, kæri hlustandi, vilt styðja fjárhagslega við litla fjölskyldu í Japan.

    #106 Af hverju eru bestu myndavélarnar frá Japan? (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Dec 27, 2023 45:38


    Canon, Nikon, Fujifilm, Olympus, Sony, Panasonic, Ricoh, svona mætti lengi telja. Japan er geitin í myndavélaframleiðslu og verður líklega um ókomin ár. En af hverju? Í þessum þætti munum við skoða sögu japanskra myndavélaframleiðanda og leið þeirra á toppinn. Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís en ég minni heldra fólk á Patreon þar sem það getur stutt beint við barnafjölskyldu í Japan. Góðar stundir!

    #105 Lífið í Sapporo - Hnattræn hlýnun í Japan

    Play Episode Listen Later Dec 19, 2023 7:27


    Síðasti þáttur fyrir jól fjallar um nýbakaða foreldra, lækkandi hitastig og snjó, brjóstamjólk, drykkjuhátíð þar sem innganga krefst ölvunar og auðvitað loftslagsmál í Japan. ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Í FULLRI LENGD INNÁ PATREON. SJÁUMST ÞAR!

    #104 Yukio Mishima II (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Dec 12, 2023 42:36


    Annar þáttur um japanska rithöfundinn og byltingarsinnann Yukio Mishima. Í þessum þætti fjöllum við um seinni hluta lífs hans, þar sem hann varð pólitískari og jafnvel herskárri. Við fjöllum um stærsta ritverk hans, Sjó frjóseminnar, og endalok lífsins á annarri hæð í herstöð í Tokyo.Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon fyrir heldra fólk. Þar er allt efni Heimsendis á verði kaffibolla!

    #103 Lífið í Sapporo - 2 vikna sonur og 2 eldri konur

    Play Episode Listen Later Dec 5, 2023 9:46


    Allt sem þú þarft að vita um líf mitt í Norður Japan. Í þættinum fjalla ég um son minn so far, japönsk nöfn á jólatertum, núðluauglýsingar, muninn á Íslandi og Írlandi, einmanaleika og samfélagið í Sapporo.ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Í HEILD SINNI Á PATREON! SJÁUMST ÞAR!

    #102 Yukio Mishima I (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Nov 28, 2023 33:01


    Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon fyrir fullan aðgang að öllu efni Heimsendis.Fyrsti þáttur um rithöfundinn og byltingarsinnann Yukio Mishima. Í þessum þætti fjöllum við um uppvöxt Mishima og innreið í japanskt menningarlíf. Við tökum fyrir fyrstu skáldsögurnar, fyrirsætustörf og leiklist ásamt hugmyndafræðinni sem mótaði einn þekktasta rithöfund Japans.

    #101 Næsta stórveldi Asíu

    Play Episode Listen Later Nov 21, 2023 7:49


    ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON. SJÁUMST ÞAR!Þessi er RISASTÓR. Keppendur eru Japan, Kína, Indónesía og Indland. Keppnisgreinar eru efnahagur, hernaður og sjálfbærni. Í þessum þætti leitum við svars við spurningunni: Hvert er næsta stórveldi Asíu. Heimurinn er að breytast og næsta stórveldi Asíu mun hafa áhrif um allan heim - bein áhrif í gegnum stjórnmál, viðskipti og hernað, óbein áhrif í gegnum menningu og samskipti. Leikarnir hefjast!

    #100 Sonur (OPINN ÞÁTTUR)

    Play Episode Listen Later Nov 14, 2023 41:31


    Þátturinn er í opinni dagskrá í boði Bíó Paradís. Ég minni þó á Patreon fyrir fólk sem vill styðja við framleiðsluna.Ég er faðir - Faðir Stefán. Á feðradaginn 2023 fæddist mér sonur. Í þessum þætti fjalla ég um meðgönguna og fæðinguna þó ég eigi sjálfur aðeins um 5% heiðursins, Sherine er hetjan. En ég var á hliðarlínunni og fjalla hér um þá upplifun. Halló heimur!

    #99 Hrekkjavakan sem kostaði 159 ungmenni lífið (ÓKEYPIS)

    Play Episode Listen Later Oct 31, 2023 28:07


    Árið 2022 átti sér stað stórslys í Itaewon hverfinu í höfuðborg Suður Kóreu. Hvernig getur svonalagað gerst í einu þróaðasta landi heims og hvar liggur ábyrgðin? Nú þegar ár er liðið frá hörmungunum er tækifæri til að líta til baka og skoða troðninginn á hrekkjavökunni í Itaewon. Þátturinn er í boði Bíó Paradís en þér er einnig velkomið að koma í hlýtt faðmlag Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. 

    #98 Sjálfshjálparþáttur Heimsendis

    Play Episode Listen Later Oct 24, 2023 6:30


    ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON! SJÁUMST ÞAR!Stefán Þór, Heimsendir CEO, tells it all. Hér förum við á dýptina og ræðum alla nauðsynlega sjálfshjálp á heimsendatímum - samfélagsmiðlar, mataræði, áfengi og partý, föstur, Wim Hof, hlaupin, svefn og fleira. Podcastlegasti þáttur Heimsendis til þessa, mögulega.

    #97 Laxeldi á Íslandi (ÓKEYPIS)

    Play Episode Listen Later Oct 17, 2023 56:00


    ÞÁTTURINN ER Í OPINNI DAGSKRÁ Í BOÐI ÞEIRRA SEM HAFA SKRÁÐ SIG Á PATREON. SJÁUMST ÞAR!Á síðasta áratug hefur laxeldi stóraukist á Íslandi, sérstaklega sjókvíaeldi. Eldisfyrirtækin tala fyrir öruggri og umhverfisvænni framleiðslu en þegar þúsundir kynþroska eldislaxa hefja göngur í helstu laxveiðiár landsins er eðlilegt að efasemdir vakni. Í þessum þætti fjalla ég um sögu og stöðu laxeldis á Íslandi, vandamálin og mögulegar lausnir.

    Claim Heimsendir

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel