Podcasts about heilsa

  • 34PODCASTS
  • 150EPISODES
  • 1h 13mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Feb 13, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about heilsa

Latest podcast episodes about heilsa

Mannlegi þátturinn
Þorvaldur og eldgosin, heilsa hinsegin fólks og dansslagur í Borgarleikhúsinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 13, 2025 50:00


Hættumat Veðurstofu Íslands vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga helst óbreytt. Töluverðar líkur eru á eldgosi og kvika í kvikuhólfinu undir Svartsengi á Reykjanesskaga er komin að neðri þolmörkum og því gæti gosið á Sundhnúksgígaröðinni í þessari eða næstu viku. Kvikan sem hefur safnast fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi síðan síðasta eldgosi lauk er örlítið meiri en kvikan sem fór út þá. Þorvaldur Þórðarson prófessor í eldfjalla- og bergfræði kom í þáttinn og spáði í stöðuna og nýjustu tölur. Hinsegin fólk býr almennt við verri heilsu og líðan en þau sem eru ekki hinsegin og það þarf að bregðast við því. Þetta sýna niðurstöður rannsóknarinnar Heilsa og líðan hinsegin fólks sem er hluti af aðgerðaráætlun lýðheilsustefnu Reykjavíkur. Sérstaklega var skoðuð reynsla af ofbeldi, áfengis- og vímuefnaneyslu og geðheilsu. Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir, sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks og Harpa Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri lýðheilsumála á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, komu í þáttinn og sögðu okkur frá niðurstöðum rannsóknarinnar og hvernig þær verða nýttar. Svo í lok þáttar fræddumst við um street dans, eða götudans, og Dance Battle, eða dansslag, sem er eins konar hólmganga í dansi þar sem dansarar sýna færni sína til að skáka andstæðingi sínum. Það mátti til dæmis sjá slíka keppni á síðustu Ólympíuleikum þar sem keppt var í breikdansi. Í gær mættust dansarar úr Íslenska dansflokknum og Ice Crew í Borgarleikhúsinu og var áhorfendum meðal annars boðið að taka þátt. Erna Gunnarsdóttir, dansari hjá dansflokknum, og Mikael Christopher Grétarsson, úr danshópnum Ice Crew, komu í þáttinn og sögðu okkur hvernig fór í gær og frá nýrri sýningu dansflokksins þar sem dansarar úr flokknum mæta street dönsurum í verki eftir íranska danshöfundinn Hooman Sharifi. Tónlist í þættinum í dag: Clementine / Hraun (Svavar Knútur Kristinsson) Until I Met You / Manhattan Transfer (Freddie Green & Don Wolf) Everything is beautiful / Ray Stevens (Ray Stevens) Í góðu skapi / Sniglabandið (Pálmi J. Sigurhjartarson, Þorsteinn Marel Júlíusson og Björgvin Ploder) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Heimskviður
205 - Trump áhrifin og andleg heilsa íþróttamanna

Heimskviður

Play Episode Listen Later Jan 25, 2025 41:08


Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, undirritaði í vikunni vel á annað hundrað forsetatilskipanir. Það gæti átt eftir að reyna á einhverjar þeirra fyrir dómstólum. Og líka hvaða heimildir Trump hefur í embætti sem er alltaf að verða valdameira og valdameira. Í þættinum í dag ætlum við að bera saman síðasta kjörtímabil Trumps og það sem er fram undan núna með Ólafi Jóhanni Ólafssyni rithöfundi og Hilmari Þór Hilmarsyni, prófessor við háskólann á Akureyri, sem ræðir Úkraínustríðið og möguleikann á friðarviðræðum. Hilmar óttast að Úkraínumenn þurfi að gefa eftir land til Rússa, þeir hafi yfirhöndina á vígvellinum og ef það verði samið, þá verði það mikið til á forsendum Rússa. Svo fjallar Hallgrímur Indriðason um andlega heilsu íþróttafólks. Það er aukin vitund um álagið sem fylgir því að vera afreksíþróttamaður og hvaða áhrif það getur haft á íþróttafólk. Hallgrímur talar við Hafrúnu Kristjánsdóttir, sálfræðing og deildarforseta íþróttafræðideildar Háskólans í Reykjavík.

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Við ætlum að heilsa hvort öðru með góðri heilsu” -#536

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Jan 6, 2025 54:39


Helgi ræddi hamingjusamar þarmaflórur. Hjálmar náði að losa síðasta hóstan þetta árið í þættinum og hann ætlar að hefja nýtt megrunarátak og mun verða kominn í gott form í júní. Hjálmar er alltaf með hvíta tusku í bílnum ef hann skyldi þurfa að lenda í neyðarakstri.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði
93 - Hugmyndasaga, PTSD og andleg heilsa

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Play Episode Listen Later Sep 27, 2024 109:48


Hlaðvarpsmenn komu saman í dag til að ræða áfallastreituröskun (PTSD) og hugmyndasögulegan bakgrunn þess fyrirbæris í tengslum við hernað, og önnur tengd málefni.Í heimildum koma fyrir frásagnir af hegðun í tenglsum við hernað sem fræðimenn vilja stundum tengja við áfallastreituröskun og aðra nútímakvilla. Einnig má nefna heimþrá, nostalgíu, dansveiki, tunglsýki og suð-austur-asískar púkaofsóknir sem dæmi um einkenni sem kunna að hafa verið andlegir sjúkdómar samkvæmt okkar daga skilgreiningu.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

Teboðið
#202 - Back on track!

Teboðið

Play Episode Listen Later Aug 30, 2023 66:44


Nú er haustið að mæta og eflaust flestir á sama stað og við í lífinu, tilbúinn að koma sér aftur í rútínu! Ræðum hvernig við komum hreyfingu og heilsunni í rútínu og hvernig við HÖXUM þetta haust! Let's do this together besties! Þátturinn er í boði:  Real Techniques  Laugar Spa - https://www.worldclass.is/organic-ski... Beautyklúbburinn

Kvíðakastið
55. Heiðdís Snorradóttir - Næring og andleg heilsa

Kvíðakastið

Play Episode Listen Later Jul 9, 2023 67:27


Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Heiðdís er stofnandi og meðeigandi Endurnæringar og næringarfræðingur með áherslu á lýðheilsu. Hún sérhæfir sig í að hjálpa einstaklingum að byggja upp heilbrigt sambandi við mat. Í þessum þætti fræðir Heiðdís okkur m.a. um svengdarvitund, emotional eating, matarkvíða hjá börnum og hvernig greiningar eins og ADHD og einhverfa geta haft áhrif á matarinntöku.

Hjjj
40. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Lyfju

Hjjj

Play Episode Listen Later Apr 26, 2023 72:37


Viðmælandi þáttarins er Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Lyfju. Sigríður Margrét eða Sigga Magga eins og hún er oft kölluð er fædd árið 1976 og er alin upp víða á landinu. Hún gekk í Höfðaskóla á Skagaströnd, Grunnskóla Njarðvíkur, Verslunarskóla Íslands og lauk BS prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri en undanfarin ár hefur hún tekið stjórnendanámskeið hjá IESE og Harvard Business School. Sigga Magga hefur starfað sem ráðgjafi, viðskiptastjóri og svæðistjóri hjá IMG (sem nú er Gallup). Hún starfaði einnig sem framkvæmdastjóri, upplýsingatæknifyrirtækisins, Já, frá stofnun og einnig framkvæmdastjóri Skjá miðla frá árinu 2007. Skjár miðlar tilheyrðu Skipta samstæðunni (Símanum) og undir hana heyrðu fyrirtæki sem sinntu upplýsinga- og fjölmiðlun innan samstæðunnar, Já og Skjárinn sem hélt utan um sjónvarpsstöðina Skjá Einn og tengda sjónvarpsþjónustu. Sigga Magga varð einn eigenda Já árið 2010 og starfaði sem forstjóri fyrirtækisins til ársins 2019.  Já keypti leitartæknifyrirtækið Spurl, upplýsingafyrirtækið Gallup og smáforritið Leggja sem var svo selt til Sýnar nú í ár, 2023. Sigga Magga tók við sem forstjóri Lyfju árið 2019 en Lyfja er leiðandi í rekstri lyfjaverslana á Íslandi og starfrækir alls 45 apótek og útibú um allt land. Innan samstæðu Lyfju eru jafnframt Heilsuhúsið og Heilsa sem er innflutnings-, framleiðslu- og heildsölufyrirtæki og starfa um 380 manns hjá samstæðunni. Sigga Magga hefur setið í ýmsum stjórnum, meðal annars stjórn Samtaka Atvinnulífisins, Samtaka Verslunar- og Þjónustu, Viðskiptaráðs Íslands, stjórn Já, skólanefnd Verzlunarskóla Íslands, stjórn Bláa lónsins og dótturfyrirtækja þess.  Þessi þáttur er í boði Icelandair og Krónunnar.

Kvíðakastið
50. Viktor Örn Margeirsson - Geðheilsa íþróttafólks

Kvíðakastið

Play Episode Listen Later Apr 15, 2023 82:46


Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Viktor er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni og Heil heilsumiðstöð. Í þættinum ræðum við um mótlæti sem íþróttafólk verður oft fyrir, að takast á við gagnrýni og mistök, kulnun íþróttafólks og förum yfir verkfæri til að stuðla að góðri geðheilsu. Hægt er að hafa samband við Viktor í gegnum netfangið viktor@viktormargeirs.com

Helgaspjallið
Þáttur 134 - Eva Dögg & Helgi ræða samskipti og samskipti í samböndum

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Mar 31, 2023 52:50


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum Mín besta kona og uppáhald meðal hlustenda, Eva Dögg Rúnars settist með mér að ræða samskipti og samskipti í samböndum. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
Þáttur 133 - Nína Hundaþjálfari um hvað hvernig við lærum á okkur í gegnum hunda -

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Mar 30, 2023 90:25


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum Ég var að versla fyrir Noel í versluninni Móra á Nýbýlavegi þegar það labbar inn kona, hún er nett klædd, með tattoo á hökunni, smitandi bros og ekkert eðlilega kröftuga nærveru. Það er Nína hundaþjálfari og er gestur minn að þessu sinni, en ég spurði hana þá og þarna hvort hún hefði áhuga á að koma í hlaðvarpið. Hún að engu leyti valdi vonbrigðum því dældi útúr sér visku og innblæstri bæði í lífinu og í tengslum við hundana, sem við erum sammála um að eru mögnuðustu verur sem við eigum á þessari jörð. Við förum mikið yfir hvað við getum hreinlega lært af hundunum og hversu mikil gjöf þeir eru. Að því leyti hvernig við upplifum þá þegar við eigum þá en einnig bara hvað þeir standa fyrir sem verur. Við förum yfir það og svo margt meira. Njótið vel. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
Þáttur 132 - Haukur Skúlason annar stofnandi og framkvæmdastjóri Indó - "Ekkert kjaftæði"

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Mar 15, 2023 82:56


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum Haukur Skúlason ef framkvæmdastjóri og annar stofnandi sparisjóðsins Indó sem hefur vakið mikla athygli hér á landi en Indó er fyrsti sparisjóðurinn sem hefur verið stofnaður hér á landi frá grunni síðan 1991. Sem er gríðarlega gott ár ef útí það væri farið. En ég var áhugasamur um manninn á bakvið þessa nýjung og ég varð allt annað en fyrir vonbrigðum. Haukur er skýr, heiðarlegur og eins og hann orðar sjálfur, ekki með neitt kjaftæði. Ég spyr hann einnig útí hans hætti og nálgun á lífið sem einnig kom ótrúlega skemmtilega á óvart. Hann talar um Indó og hvað það snýst um á mannamáli og það sem ég kunni held ég mest að meta: Hann vill alveg hrista upp í hlutunum. Það og fullt af öðrum stórum spurningum í þessum þætti. Njótið vel! Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Kvíðakastið
46. Freyja Ágústsdóttir - Samfélagsmiðlar og geðheilsa

Kvíðakastið

Play Episode Listen Later Mar 12, 2023 70:26


Þátturinn er boði World Class og Eimskip! Freyja er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni. Í þættinum ræðum við um áhrif samfélagsmiðla á geðheilsu þ.á.m FOMO, samanburð og einmannaleika. Við ræðum líka um aukna umræðu um geðraskanir og geðgreiningar á samfélagsmiðlum.

Helgaspjallið
Þáttur 131 - Bylgja Borgþórs um Eurovision, Morðcastið og ættleiðingu -

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Mar 4, 2023 73:25


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum Snilldarkona lífs míns Bylgja Borgþórs snýr aftur í Helgaspjallinu. Það er fátt skemmtilegra en að tala við hana, enda skýrasta, fyndnasta og no-bullshit manneskja sem ég þekki. Við erum báðar háklassa Eurovision hommsur og þátturinn er tekinn upp á úrslitakvöldsdegi Söngvakeppnarinnar svo við erum eðlilega sjúklega peppuð, köstum á milli skoðanna okkar, spáum, spegúlerum og skoðum. Við förum örlítið yfir lögin sem komin eru áfram og við hverju við getum búist við í maí. Eurovision er ekki okkar eina viðfangsefni, en við förum útum víðan völl, Morðcastið, ættleiðingin og almennt gröfum ofan í Bylgju og hvernig hún er eins og hún er. Svo ég lofa gleði og góðu kósí partý með þessum þætti. Njótið vel - Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
Þáttur 130 - Alexsandra Bernharð um trauma sem mótaði hana og lærdóm síðasta árið

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Feb 28, 2023 82:41


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum Við Alexsandra Bernharð setjumst niður í fyrsta skipti eftir að stormurinn í fjölmiðlum stóð yfir fyrir tæplega ári. Við förum yfir allt milli himins og jarðar, meðal annars að við kynntumst henni á dýpra leveli, förum yfir andlegt ferðalag hennar og hún deilir með okkur traumanu sem mótaði hana hvað mest sem manneskju. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið hana til mín í Helgaspjallið og um er að ræða einstaklega hógværa og góða manneskju sem hefur verið mikil ánægja að kynnast síðustu mánuði, og hér erum við loksins, að hittast í fyrsta skipti að fara yfir málin með ykkur hlustendum. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
Þáttur 129 - Saga Sig um ferillinn og hvernig andleg heilsa og stór frami helst í hendur

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Feb 23, 2023 74:45


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum Saga Sig er ljósmyndari, listakona og leikstjóri og er með nokkra af stærstu kúnnum heimsins í töskunni á borð við Apple, Nike, Vogue og Topshop. Þrátt fyrir stóran feril, þá er Saga með fæturna læsta í jörðina og er hógværðin og góðmennskan uppmáluð. Hún er einnig einstaklega mysteríus og þess vegna þótti mér einstaklega skemmtilegt að fá hana til mín í, það sem ég var farinn að upplifa sem yfirheyrsla. En forvitnin var þokkalega til staðar og svörin voru allt nema vonbrigði. Saga er eins stórkostleg og listin hennar, og er ég svo glaður og þakklátur að hafa fengið hana til mín fyrir aðra að kynnast henni aðeins undir glamúrus og smá dularfullu skelinni. www.instagram.com/sagasig Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
Þáttur 128 - Kristín Sam um ofbeldi í vináttu, eftirköstin og nýr raunveruleiki eftir skilnað

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Feb 17, 2023 66:10


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum Kristín Sam er húðperri, meyja, markaðsdrottning og heilsu & ræktarfanatíkus. Hún gaf út bókina Húðin í fyrra og hefur verið áberandi á samfélagsmiðlum. Nýlega opnaði hún sig á Instagram reikning sínum um ofbeldi sem hún upplifði í skóla af hálfu vinkonu, sem tók hana fyrir og endaði hún í ofbeldishringiðunni. Ofbeldið gekk á frá grunnskóla og uppí menntaskóla, þar sem eins og hún segir frá, hún heyrði innsæið og hlustaði. Hún þurfti að koma sér út, í kjölfarið sagði hún skilið við vinahópinn sinn. Hún deilir með okkur ferlinu, afhverju hún kom fram með sannleikan sinn og hvað því fylgdi. Kristín talar einnig um hversu mikilvægt það er að opna á þessa tegund af ofbeldi, fyrir kynslóðirnar okkar og mikilvægi þess að skila skömminni og sérstaklega núverandi og komandi kynslóðir. Kristín hefur einnig horft á nýjan raunveruleika í augun, eftir skilnað og með tvö börn. Kristín er eins skýr og þær gerast og öll ánægja í heimi að fá að hafa hana hjá mér í stólnum og tala um það sem skiptir máli. www.instagram.com/kristin_sam Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
Þáttur 127 - Kristín Sesselja um ástarsorg, Söngvakeppnina og sjálfshvatningu

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Feb 12, 2023 79:34


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum Söngkonan Kristín Sesselja er stórkostleg í sínu fagi og í þessum þætti fáum við að kynnast henni betur og gröfum meðal annars í hvernig textinn af laginu 'Óbyggðir' varð til, en hún mun flytja það í Söngvakeppninni í ár. Hún talar opið og heiðarlega um ástarsorgina sem var innblástur af laginu, hvernig hún vann sig úr þeim og hvar hún stendur í dag. Við ræðum einnig sjálfshvatningu sem er orðinn stór partur af lífinu hennar eftir að ummæli útfrá keppninni hafa risið á yfirborðið og hvernig henni tekst að halda hausnum frjálsum og skýrum. Kristín er að öllu leyti stórkostleg persóna, og magnað að hlusta á hana. Hún er aðeins 22 ára, en hljómar eins og sjóuð gömul sál í ungum líkama. Mæli með - Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
Þáttur 126 - Ragga Nagli og Helgi fara í flæði -

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Jan 31, 2023 81:31


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Það er fátt betra en að setjast niður á móti heimsins bestu og klárustu Röggu Nagla, ýta á rec og fljóta með straumnum, það er mesta gæfa að hlusta á hana, tala við hana og í þessum þætti gerum við nákvæmlega það. Við ræðum mikið útfrá sálfræðilegum sjónarmiðum en eins og margir vita er hún sálfræðingur að mennt. Njótið vel - þjóðargersemin, Ragga Nagli. Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar -

360° Heilsa
Asíu ævintýri, yoga, heilsa, lífsstíl, innsæi og fleira með Apríl Hörpu

360° Heilsa

Play Episode Listen Later Jan 30, 2023 47:58


Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Gestur þáttarins er Apríl Harpa Smáradóttir. Apríl er yoga kennari, meðeigandi fyrirtækisins cocobutts.is og framkvæmdastjóri Sólir yogastöðvar á Granda. Í þættinum ræðum við um 9 ára ferðalag Aprílar um Asíu, barneignir og uppeldi á Balí, fræðin og heimspekina á bakvið yoga, mikilvægi þess að hlusta á eigið innsæi og margt fleira.

Helgaspjallið
Þáttur 125 - Dagbjört Jóns, konan á bakvið bókina Fundið Fé um auðveldari fjármál og markmið

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Jan 26, 2023 87:09


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Fylgjendur og unnendur bókarinnar Fundið Fé hafa kannski tekið eftir að höfundur hennar heldur sér nokkuð mikið útúr sviðsljósinu. En í dag mætti hún á móti mér í stólnum og var mesta ánægja að spjalla við hana um fjármál á algjöru mannamáli og markmið þegar kemur að peningum. Dagbjört kann að meta "fokkjú money" og er langt frá því að vera excel týpan og í kjölfarið hannaði hún og gerði bók sem hún þurfti sjálf. Við tölum um allt í kringum hvernig við getum lært um fjármál og hvernig við erum að eyða peningunum okkar, hvernig við getum auðveldað markmið okkar og að framkvæma draumana okkar, sem krefjast peninga. Tölum um sparnaðarráð í lífi og til dæmis ferðalögum ásamt svo mörgu öðru. Það var svo ótrúlega gaman að kynnast henni á meðan við tókum upp og hvernig þessi þáttur okkar á milli varð til. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
Þáttur 124 - Sigga Dögg kynfræðingur um samskipti í lífi & samböndum

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Jan 19, 2023 61:45


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Sigga Dögg er augnablikið. Ég er get ekki sagt ykkur hvað það mikil ÁNÆGJA að tala og hlusta á Siggu tala. Ég er svo glaður að gefa þennan þátt út. Sigga talar um samskipti í lífinu og samböndum. Við ræðum einnig hvernig við beitum okkur í hugsnum á okkur í lífi og leik. En almennt kemur Sigga með hverja sleggju á eftir annarri. Njótið vel! Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar

Normið
193. Heilsulagerinn

Normið

Play Episode Listen Later Jan 16, 2023 82:11


Við sönkuðum að okkur allskonar heilsuráðum og pælingum - sumt er klárlega furðulegra en annað.. Setjum heilsuna í forgang, höfum gaman af, rífum upp glósubækurnar og temjum okkur góða heilsuvana!   

Flugvarpið
#52 – Andleg heilsa, peer support og áhrif covid – Jóhann Pétur Wium Magnússon

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Jan 10, 2023 55:17


Rætt er við Jóhann Pétur Wium Magnússon flugsálfræðing um andlega heilsu þeirra sem starfa við flugið og kröfur þar um. Aukin umræða og vitund um nauðsyn andlegrar hreysti hefur breytt miklu á allra síðustu árum og samhliða hefur reglum verið breytt til að skapa þeim sem glíma við andlega vanlíðan úrræði til að leita sér hjálpar. Fjallað er um m.a. „peer support programs“ og áhrif Covid faraldursins á andlega líðan. Jóhann Pétur hefur hlotið margvíslega viðurkenningar í sínu fagi og starfar í dag fyrir ICAO – Alþjóða flugmálastofnunina. Rætt er um þær reglur sem gilda í dag, hverjar breytingarnar hafa verið á allra síðustu árum og hvað er í farvatninu.

Helgaspjallið
Þáttur 123 - Ásta Guðrún markþjálfi - Hvernig við öðlumst meiri sjálfsþekkingu á nýju ári

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Jan 6, 2023 89:21


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Masters markþjálfarinn og dásemdarkona Ásta Guðrún kom til mín til að ræða hvaða tól og tæki við getum nýtt okkur til að læra að þekkja okkur örlítið betur á nýju ári. Ásta er með nærveru sem manni langar helst að baða sig í og hvernig hún nálgast orðin sín og visku til annarra er útaf fyrir sig dásamlegt að hlusta á. Ásta stóð á tímamótum árið 2014 þar sem markþjálfaranámið fann hana og hefur hún síðan tileinkað sér að aðstoða aðra til betri sjálfsþekkingar og ég spyr hana spjörunum úr í þessum þætti. Tala sjálfur að vissu kannski of mikið, svo biðst afsökunar á því! Ásta er viskubrunnur og er vissum að þið hlustendur munu geta tekið eitthvað með ykkur inní nýja árið frá þessari mögnuðu konu. www.instagram.com/astamcccoach www.hverereg.is Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar -

Helgaspjallið
Þáttur 122 - Spjall, jóla & áramóta kveðja frá mér til ykkar

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Dec 31, 2022 25:01


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Mín orð til ykkar inní nýja árið. Takk fyrir samfylgdina, takk fyrir hlustanirnar og skilaboðin. Hlakka til að gera fleiri og fræðandi þætti fyrir ykkur á nýju ári. Endalaust ást og þakklæti - Ykkar Helgi

Helgaspjallið
Þáttur 121 - Erna Hrund - Við förum yfir árið sem er að líða & royal, Meghan og Harry drama

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Dec 30, 2022 110:17


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Vörumerkjastjórinn, Instagram stjarnan og fyrst og fremst, vinkona mín settist niður með mér til að skoða árið sem er að líða, hvað við lærðum og hvað við tökum mest frá árinu. Erna er alltaf ekkert nema einlægnin og heiðarleiki og við fáum innsýn hennar hennar líf. Ásamt því það sem hefur verið heitt á könnunni hjá okkur, Royal dramað og þá sérstaklega Harry og Meghan. Við erum bæði skoðunargjörn og förum eins varlega í þá sálma og við getum og köstum á milli hinna ýmsu póla varðandi þau umtöluðu Meghan og Harry og þeirra nýju nálgun á þeirra hugmynd um prívasí. Við Erna erum bæði þekkt fyrir að vera málglöð svo gerið ykkur ready. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.

Helgaspjallið
Þáttur 120 - Fjármál 101 með Anítu Rut og Kristínu Hildi hjá Fortuna Invest

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Dec 27, 2022 93:38


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Ég get byrjað á að segja, ég ELSKA Fortuna Invest instagramið. Ég er alveg legit fan og ég og stelpurnar höfum lengi reynt að láta það passa að allar þrjár gætu komist á sama tíma, og eins og alheimurinn vinnur þá var tíminn núna. Rósa komst því miður ekki, en Aníta Rut og Kristín Hildur mættu byssur blasíng og við fórum yfir fjármál á mannamáli. Ásetningurinn var að gera þátt þar sem hver sem er getur hlustað og skilið hvað um er verið að ræða, og auðvitað hvetja sem flesta til að dýfa tánum í fjárfestingarleikinn og hvernig við gerum hann skemmtilegan. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
Þáttur 119 - Elenóra Rós bakari um nýtt líf eftir burnout og frelsið útúr skápnum

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Dec 18, 2022 87:59


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Elenóra Rós skaust uppá stjörnuhimininn hér á landi þegar hún aðeins 19 ára gömul gaf út sína fyrstu uppskriftarbók sem seldist upp á mettíma. Í ár gaf hún svo út glænýja bók, Bakað meira sem hefur verið að tæmast hratt úr búðum nú fyrir jólin. Hún fangaði athygli fjölmiðla og fylgjenda sinna með geislandi karísma og óaðfinnanlegum hæfileika í sínu fagi. Við Elenóra blómstruðum einstakalega vel í hversu mikið við getum talað, og hversu mikið af mismunandi viðfangsefnum við getum komið inní einn þátt af Helgaspjallinu. Við ræðum burnout og hvernig hún reis uppúr því og hvað hún öðlaðist andlega í kjölfarið. Sjálfsvinnuna og sjálfsástina. Ásamt hvernig hún komst á þann stað sem hún er í dag, í ferlinum sínum og andlega. Elenóra er að öllu leyti eins og sól í mannsmynd, hún nálgast allt með svo miklum kærleika og kemur hlutum svo vel frá sér að ég get eiginlega ekki útskýrt aðdáun mína á henni. Njótið vel -

Helgaspjallið
Þáttur 118 - Jón Jónsson um mikilvægi og ávinninga góðmennskunnar

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Dec 15, 2022 75:44


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Söngvarinn og þjóðargersemin Jón Jónsson settist niður með mér korter í jól og ég fékk aðeins að forvitnast um manninn sem við þekkjum öll sem ljósbera í íslensku samfélagi. Það sem mér fannst magnaðast hvernig hann deilir því hvernig ásetningur hans að vera góður við náungann hefur í raun og veru gefið honum aukin lífsgæði ásamt því að hann gleðji fólkið sem hann mætir og skemmtir. Ég forvitnast inní hver lykillinn er að 20 ára sambandi og hjónabandi ásamt því hvernig þau hjón takast á við að eiga fjögur börn með tilheyrandi vinnum og verkefnum. Jón er eins stórkostlegur einstaklingur og við sjáum á skjánum og hlustendur fá eflaust að kynnast honum á örlítið dýpri hátt í þessum þætti. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
Þáttur 117 - Margrét Jónasar heilsuþjálfari og Tiktok stjarna um að lifa samkvæmt sjálfum sér

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Dec 8, 2022 82:45


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Margrét Jónasar þykir mér svo fassinerandi kona, ég fylgi henni grimmt á Tiktok og var svo innilega spenntur að setjast niður með henni og vá hvað ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Ég dáist sérstaklega að henni því hún þorir og tekur afskarið og prófar og miðlar til annarra. Margrét er hokin af reynslu í bransanum og í persónulegri vinnu og þróun og það var svo ótrúlega skemmtilegt að hlusta á hana. Margrét kemur einnig inná atriði sem vert er að skoða sem við kannski höfum ekki heyrt áður, og ef ég tala við sjálfan mig, þá finnst mér ekkert eðlilega skemmtilegt að hlusta á. Þátturinn var tekinn í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
Þáttur 115 - Alda Sigmunds um að alast upp með narsissistískri móður

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Dec 1, 2022 103:23


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Þegar ég var í Tælandi las ég bókina endurminningabókina Daughter eftir Öldu Sigmundsdóttur og ég gat ekki látið hana frá mér. Bókin er skrifuð af svo einskærri snilld, berskjöldun og krafti og það lýsir einnig persónunni sem Alda hefur að geyma þegar hún settist niður í stólinn á móti mér. Ég var dáleiddur að hlusta á hana tala um reynslu sína og visku um hvað það er að alast upp með narsissistískri móður og andlegu ofbeldi sem með því fylgdi. Alda hjálpar okkur að skilja þennan flókna og eyðinleggjandi persónuleika og við berum saman reynslu okkar í gegnum þáttinn. Þátturinn er í lengri kantinum, en ég hefði getað haldið áfram að tala við hana langt fram á kvöld. Ég er þakklátur og auðmjúkur að hafa fengið hana til mín og vona að þið njótið þáttarins. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Sírís Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar Alda Sigmundsdóttir skrifaði endurminningabókina Daughter sem fjallar um baráttu hennar við að losna úr viðjum narsissísks ofbeldis sem hún bjó við í æsku.

Helgaspjallið
Þáttur 115 - Björgvin Páll um tilfinningar og uppskeru frá sársauka

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Nov 27, 2022 83:36


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Handboltamaðurinn og rithöfundurinn Björgvin Páll kom í settið og var mikill heiður að fá að hlusta á hann. Við skrif bókarinnar ' Án filters ' þurfti Björgvin að skoða gömul trauma frá æsku og hvernig þau höfðu áhrif á hann á fullorðnisárum sem hann deilir með okkur ásamt því hvernig sá andlegi sársauki bæði manifestaðist ásamt hvernig uppskeran var og hvernig hægt er að nýtt hann sér til krafts og góðs. Björgvin hefur einnig gefið úr bókina 'Barn verður forseti' sem hann skrifaði á mettíma, en hugmyndin af bókinni var einfaldlega, bókin sem hann hefði þurft þegar hann var yngri. Við ræðum svo margt annað og ástríða Björgvins er ekkert eðlilega aðdáunarverð, og vona ég að þessi þáttur geti verið öðrum til góðs. Njótið vel - Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
114 - Jensína Edda skólastýra - "Lífið streymir til okkar og við þurfum að læra að bregðast við"

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Nov 25, 2022 85:26


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Þeir sem þekkja þessa drottningu, þeir vita afhverju hún er sest í sætið hér á Helgaspjallinu. Jensína Edda Hermannsdóttir er ein magnaðasta manneskja sem ég þekki og það var mér mín mesta ánægja og heiður að fá að sitja á móti henni og hlusta á hana. Hún er skólastýra á Laufásborg og hefur unnið með Hjallastefnunni síðan hún hóf starf sitt. Það er varla hægt að telja niður allar sleggjurnar sem Jensína talar um en ég skal reyna. Við ræðum um hvernig við nálgumst börn í uppeldi, okkar eigin berskjöldun og styrkurinn í henni, taka eignarhald á sjálfum sér, bera ábyrgð á sjálfum sér, að lána ekki það sem við eigum ekki og ég gæti haldið endalaust áfram. Fyrir foreldra og ekki foreldra, njótið vel. Jensína er gjörsamlega stórkostleg. Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.

360° Heilsa
Þarmaflóran, functional medicine, heildræn heilsa og fleira með Dr. Jens Guðmunds

360° Heilsa

Play Episode Listen Later Nov 24, 2022 53:51


Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Jens K. Guðmundsson er læknir með sérmenntun í háls, nef og eyrnalækningum. Hann hefur yfir 15 ára reynslu í læknageiranum og vann um tíma í (HNE) skurðlækningum og á bráðadeild.  Jens hefur á síðastliðnum árum fært sig meira yfir í functional medicine og sótti nám í þeim fræðum hjá Kresser Institute í bandaríkjunum. Hann lærði einnig heildræn heilsufræði hjá CHEK institute í bretlandi og hefur nýtt það samhliða functional medicine nálgun á sína skjólstæðinga. Í dag starfar hann hjá Nordic Clinic - nordicclinic.is

Helgaspjallið
Þáttur 113 - Beggi Ólafs um sambandsslitin og fjölmiðlafárið

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Nov 20, 2022 99:38


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Beggi Ólafs er kominn í þriðja sinn í Helgaspjallið. Beggi gaf á dögunum út bókina Tíu skilaboð - Að skapa öryggi úr óvissu og kom heim til Íslands frá Los Angeles þar sem hann stundar doktorsnám, til að kynna bókina og ég náði honum í stúdíó-ið. Við ræðum að sjálfssögðu hvernig bókin varð til en förum einnig í eitt stærsta verkefni sem Beggi hefur tekið að sér, sem voru krefjandi sambandsslit. Við rýnum aðeins í ferlið og Beggi opnar sig mjög einlægt og fallega. Við ræðum einnig fjölmiðlafárið sem Beggi fann sig í og hvernig það fékk á hann og svaraði einnig spurningum í kringum það. Við förum um víðan völl og alltaf jafn mikil ánægja að tala við þennan einstaka mann. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
Þáttur 112 - Sylvia Briem um hormóna og að lifa samkvæmt okkar þörfum okkar

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Oct 30, 2022 61:15


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Sylvía Briem mætti í comeback þátt og ég gæti haft hana í þætti í hverjum mánuði, enda er hún eitt magnað afl af kærleika, þrautseigju og metnaði. Hún setti nýlega á markað merkið El Taco Truck sem hefur verið á margra manna vörum og seldist nánast upp á einu augabragði. Við förum aðeins yfir frumkvöðlavinnu hennar og bakrunn. Við förum einnig yfir hvernig við lærum að lifa samkvæmt okkar eigin þörfum, sjálfsmildi og hormóna ásamt svo mörgu öðru. Njótið vel! Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

360° Heilsa
#18. Lífsstíll, heilsa og meðferðir við offitu og ofþyngd með Erlu Gerði Sveins

360° Heilsa

Play Episode Listen Later Oct 25, 2022 42:44


Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Gestur þessa þáttar er Erla Gerður sveinsdóttir heimilislæknir og lýðheilsufræðingur. Erla sérhæfir sig í offitumeðferð og hefur eytt síðastliðnum áratug í að aðstoða fólk í offitu og fræða fólk um þennan sjúkdóm sem fer vaxandi hér á landi og víðar í heiminum. Erla leggur áherslu á heildræna nálgun í meðferð sinni og segir ótalmarga þætti spila hlutverk þegar kemur að offitu, hlutir eins og erfðir, hormón, svefn, líkamsklukkan, þarmaflóran, uppeldisáhrif, venjur og fleira.

Helgaspjallið
Þáttur 111 - Eva Dögg Rúnars um frestun, sambönd og skrefin að núvitund

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Oct 23, 2022 56:23


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Jógadrottningin, grasaguddan og olíujukkan Eva Dögg Rúnars snýr aftur, einu barni ríkari og reynslunni einnig. Við förum yfir frestunaráttuna sem við glímum svo mörg við og persónuleg svik okkar í eigin garð. Við förum einnig yfir fjögur skref Rvk Ritual í átt að núvitund og sjálfsrækt og nálgun á náin samskipti í samböndum. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Siríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
Þáttur 110 - Jara Giantara um öld vatnsberans og taka stjórn á hugsunum okkar

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Oct 16, 2022 63:51


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Stjörnuspekingurinn og jógakennarinn Jara Giantara er einn vinsælasti viðmælandinn að mati hlustenda svo við splæstum í glænýjan þátt, sem þykir einnig viðeigandi miðað við ástandið í heiminum í dag. Jara fer í gegnum stjörnukortin og gefur okkur smá útskýringar á öllu því sem gengur á í heiminum okkar í dag, eins og ástandið í Úkraínu og Íran. Við ræðum einnig um system og skoðum það smá og skorum á allskonar hugmyndir, ásamt því hugsanirnar okkar og hvernig við erum ekki hugsanirnar okkar, heldur aðeins sálin sem skoðar þær og veljum og höfnum. Njótið vel. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Normið
181. Lukka Páls - Heilsa er ekki bara heppni

Normið

Play Episode Listen Later Oct 14, 2022 77:39


Lukka Páls er þekkt hér á landi fyrir að vera með þeim fremstu í heilsupælingum. Hún er eigandi og stofnandi Greenfit, þar sem fólk getur farið í allsherjar heilsufarslega ástandsskoðun. Við fórum í gegnum virkilega áhugaverðar umræður og sátum eftir ótrúlega innblásnar. Það er mikið dýrmætt hægt að læra af Lukku varðandi líkamlega og andlega heilsu! Hlustaðu á þennan þátt með eyrun veeel opin. Þessi þáttur er í samstarfi við:  - Vichy húðvörur / ig: @skincareklubburinn - Skúbb / ig: @skubbrvk - Finn Crisp  - Bohéme Húsið / boheme.is - Collab / ig: @collabiceland - Innocent / ig: @innocentisland - TÖST / ig: @tostisland  - Zendium / ig@zendiumisland - Krónan / www.kronan.is - Pepsi Max

Helgaspjallið
Þáttur 109 - Camilla Rut um skilnaðinn, taugaáfallið og uppgjörið

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Oct 9, 2022 78:24


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Eftir mikla eftirvæntingu mætti perluspengjan, áhrifavaldurinn og söngkkonan Camilla Rut. Ef eitthvað einkennir þessa gleðibombu þá er það einlægni og það vantar ekkert uppá einlægnina í þessu viðtali. Við förum yfir baksögu skilnaðarins sem hún er að ganga í gegnum núna, hvernig hún hefur beitt sér andlega í kjölfarið, ásamt því að við gröfum aðeins inní fortíðina og framtíðina ásamt því að kynnast Camillu enn dýpra en við fáum að gera á samfélagsmiðlum. Camilla kemur með svo stórkostlega punkta og setur allt í svo skemmtilegt og fallegt myndrænt form sem var ekkert eðlilega mikið ánægja að fá að hlusta á og efa ekki að þið, kæru hlustendur geti tekið ýmislegt fallegt í sálina útfrá þessu spjalli. Njótið vel x Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
Þáttur 108 - María Thelma leikkona - "Við hlaupum með hausnum"

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Sep 30, 2022 68:33


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Gestur minn í þessum þætti er María Thelma, leikkona og hlaupari. María er fyrsta leikkonan hér á landi sem útskrifast úr Leiklistarskóla Íslands með tælenskan bakrunn sem við ræðum um í þessum þætti, ásamt því að taka stjórn á huganum og þjálfa hann, hvernig hún fann sig í hlaupinu og hvernig við skoðum tengingu líkama og hugsans þegar kemur að hlaupi ásamt svo mörgu öðru. María er með hausinn svo fallega og vel skrúfaðan á, og var það mér brjáluð ánægja að sitja á móti henni og eiga nærandi og spennandi spjall. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Helgaspjallið
Þáttur 107 - Heiðrún María um innsæið og samhljóm

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Sep 27, 2022 90:30


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Eftir að hafa farið í mest töfrandi kakóserimóníu lífs míns með Heiðrúnu Maríu þá vissi ég að hún væri fullkomin í gestalæti Helgaspjallsins. Við fáum að kynnast Heiðrúnu betur og ferðalaginu hennar ásamt því að læra inná innsæið okkar sem er að hennar mati okkar mikilvægasta tól. Hugtakið samhljómur fær einnig brjálaðslega fallega meiningu, en Heiðrún talar um að við erum hérna á þessari jörð til að finna samhljóm með tilverunni og umhverfi. Ég lofa að þetta var eins og næring að hlusta á hana tala um þetta. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

360° Heilsa
Skömm, sjálfsmat, andleg heilsa o.fl. með Guðbrandi Á. Ísberg

360° Heilsa

Play Episode Listen Later Sep 21, 2022 43:29


Guðbrandur er sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði. Guðbrandur lauk embættisprófi í sálarfræði frá Árósarháskóla árið 1999 og seinna framhaldsnámi í hugrænni atferlismeðferð og ársnámi í taugavísindum mannlegra tengsla, auk fjölda námskeiða hér heima og erlendis meðal annars í handleiðslufræðum. Í Danmörku starfaði Guðbrandur á meðferðarstofnun fyrir traumatíserað flóttafólk og seinna á fjölskyldumeðferðarstofnun. Síðustu ár hefur Guðbrandur lagt aðaláherslu á vinnu með sálræn áföll, sorgarúrvinnslu, afleiðingar skilnaðar og ýmsan tilvistarlegan vanda. Vorið 2019 kom út önnur bók Guðbrandar "Skömmin - úr vanmætti í sjálfsöryggi" um skammartilfinningar, birtingarmyndir þeirra og meðferðarúrræði. Sjá nánar HÉR Fyrsta bók Guðbrandar “Í nándinni – innlifun og umhyggja” kom út árið 2013. Sjá nánar HÉR Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa

360° Heilsa
Öndunaræfingar fyrir betri svefn, orku, árangur og heilsu með Björgvini Pál

360° Heilsa

Play Episode Listen Later Aug 12, 2022 41:06


Gestur þáttarins er handboltakappinn Björgvin Páll Gústavsson. Björgvin hefur síðastliðin ár notað ákveðnar öndunaræfingar til að vinna á sínum kvíða, ná betri árangri í handboltanum og upplifa betri vellíðan og heilsu. Í þættinum ræðum við hans vegferð og förum yfir allskyns öndunaræfingar sem fólk getur gert til að bæta þol og afköst í æfingum, vinna á kvíða, auka orku og vellíðan, bæta svefn og margt fleira.   Framhald af áskriftarþætti #9. Mouthtaping 101 ---- Skráðu þig í áskrift á 360 Heilsa hlaðvarpinu til að hlusta á alla þætti í heild: www.patreon.com/360heilsa

360° Heilsa
Jafnvægi og heilsa með Arnóri Svein Aðalsteins

360° Heilsa

Play Episode Listen Later Aug 2, 2022 59:25


Gestur þáttarins er fótboltamaðurinn, kennarinn og heimspekingurinn Arnór Sveinn Aðalsteinsson. Arnór er einn af mínum uppáhalds mönnum til að ræða við. Hann hefur gaman af því að pæla í hlutunum og því langaði mig að fá hann í þáttinn til að ræða um "jafnvægi" og hvað það þýðir í tengslum við heilsu. Jafnvægi er bæði víðtækt og afstætt hugtak sem er oft notað í heilsugeiranum. En hvað þýðir það raunverulega og hvernig getum við öðlast meira jafnvægi til að öðlast betri heilsu?

24/7
Guðmundur Ebenezer - Geðheilsa

24/7

Play Episode Listen Later Jul 5, 2022 60:07


Guðmundur Ebenezer er sálfræðingur og frostjóri Lifekeys. Í þættinum ræðir Guðmundur geðheilsu, nýjar lausnir við geðrænum áskorunum, geðheilbrigði og vinnuumhverfið, algengar áskoranir í lífi fólks, hvort að geðheilsa sé að hraka, færni til að eiga við lífið, mikilvægi þess að leita ráða hjá öðrum og vega og meta þegar maður gefur ráð og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Your Super - https://tropic.is/voruflokkur/ofurfaedur/your-super/ Sumac - https://sumac.is/ Sportvörur - https://sportvorur.is/ Lavazza - https://www.lavazza.is/  

360° Heilsa
Áföll, EMDR meðferð, kvíði, andleg heilsa og fleira með Rósu Richter

360° Heilsa

Play Episode Listen Later Jun 21, 2022 35:50


Gestur þáttarins hjá mér í dag er Rósa Richter. Rósa starfar sem sálfræðingur og EMDR meðferðaraðili hjá EMDR stofunni og aðstoðar þar bæði börn og fullorðna við að vinna á hlutum eins og: Áföllum og áfallastreituröskun Tenglsavanda Þunglyndi Kvíða Fíknivanda Meðvirkni Í þættinum ræðum við um margt sem viðkemur andlegri heilsu og áföllum. Hlutir eins og hvað er EMDR meðferð og hvernig virkar hún til að vinna í áföllum. Hvað eru áföll, hvernig getum við hugað betur að andlegri heilsu, unnið á kvíða og margt fleira.

360° Heilsa
#50. Áhrif hreyfingar og lífsstíls á kvíða og andlega heilsu með Þórdísi Vals

360° Heilsa

Play Episode Listen Later May 18, 2022 124:36


Í þessum þætti ræði ég við fjölmiðladrottninguna og lögfræðinginn Þórdísi Valsdóttur. Ég kynntist Þórdísi fyrst þegar hún kom til mín í einkaþjálfun og fékk þar innsýn í hennar áhugaverðu sögu. Í þættinum spjöllum við um hvernig fortíð hennar og æskuáföll hafa mótað hana, hvernig hún hefur lært að nota hreyfingu til að umturna andlegri heilsu sinni og vegferðin hennar með kvíða- og þunglyndislyf og fleira. Komdu í áskrift á 360 Heilsa hlaðvarpinu með því að smella hér: www.360heilsa.is/hladvarp Samstarfsaðilar þáttarins: NUUN Electrolytes - fáanlegt í helstu matvöruverslunum, útibúum Lyfju og Heilsuhúsinu Pure Natura (kóði "360heilsa" f. 15% afslátt) - Fáanlegt á purenatura.is, Hagkaup, útibúum Lyfju og Heilsuhúsinu

The Snorri Björns Podcast Show
#109 Matthew Walker - Svefn í skammdeginu, orkudrykkir, koffínneysla og andleg heilsa

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Nov 10, 2021 65:38


Dr. Matthew Walker er prófessor við Berkeley háskóla og sérfræðingur í svefni, sálfræði og taugalífeðlisfræði. Fókus þáttarins eru aðstæðurnar sem Íslendingar lifa við, áhrif þessara aðstæðna á svefninn okkar og hvað við getum gert til að jafna leikinn. Gefðu þér klukkutíma til að hlusta á þáttinn áður en þú grípur næsta kaffibolla í svartasta skammdeginu. Umræðuefni eru meðal annars: Mikilvægi svefns á mismunandi æviskeiðum Koffíndrykkja (kaffi vs. orkudrykkir og hvernig skal hámarka ávinning/lágmarka skaða koffíns) Sólarljós og líkamsklukkan Testesterón og vaxtarhormónar Svefn sem varnarhlið andlegra kvilla (sérstaklega fyrir ungmenni) Af hverju það er álitið leti að vilja sofa lengur