Podcasts about ingibjargar

  • 14PODCASTS
  • 34EPISODES
  • 1h 9mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Jan 21, 2024LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about ingibjargar

Latest podcast episodes about ingibjargar

Frjálsar hendur
Ingibjörg Lárusdóttir - Unaður við Blöndu og Ameríkuferð

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Jan 21, 2024 50:00

Ingibjörg Lárusdóttir fæddist í Húnavatnssýslu 1861 og bjó þar alla sína tíð. Á efri árum fór hún að skrifa m.a. æskuminningar og er þar um að ræða fallegar og áhrifamiklar frásagnir af innihaldsríku mannlífi þó fátækt sé mikil. Í þessum þætti er lýst ferð til grasa, þar sem náttúran leikur við hvern sinn fingur, en einnig undirbúningi að för bróður Ingibjargar til Ameríku, för sem er lituð miklum vonum um betri tíð en jafnframt sorg yfir aðskilnaði við ástvini. Umsjón: Illugi Jökulsson.

amer umsj ingibj ingibjargar
Frjálsar hendur
Ingibjörg Lárusdóttir - Unaður við Blöndu og Ameríkuferð

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Jan 15, 2024 50:07

Ingibjörg Lárusdóttir fæddist í Húnavatnssýslu 1861 og bjó þar alla sína tíð. Á efri árum fór hún að skrifa m.a. æskuminningar og er þar um að ræða fallegar og áhrifamiklar frásagnir af innihaldsríku mannlífi þó fátækt sé mikil. Í þessum þætti er lýst ferð til grasa, þar sem náttúran leikur við hvern sinn fingur, en einnig undirbúningi að för bróður Ingibjargar til Ameríku, för sem er lituð miklum vonum um betri tíð en jafnframt sorg yfir aðskilnaði við ástvini. Umsjón: Illugi Jökulsson.

amer umsj ingibj ingibjargar
Mannlegi þátturinn
Ingibjörg Jónsdóttir, Don Kíkóti og Ævar Örn lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 13, 2023 50:00

Í tilefni af níræðisafmæli Ingibjargar Jónsdóttur verður efnt til samkomu í Gunnarshúsi 14. nóvember n.k. þar sem fjallað verður um hana sem rithöfund og þýðanda. Ingibjörg dó árið 1986, en eftir hana liggur talsvert höfundarverk sem reynt verður að gera skil í stuttri dagskrá. Meðfram heimilisstörfum og uppeldi sex barna vann Ingibjörg sem blaðamaður en einnig við þýðingar og önnur ritstörf. Hún skrifaði barnabækur, ungmennabækur, bækur fyrir fullorðna, smásögur og leikrit, þýddi tugi bóka af ýmsum gerðum og var þýðandi hjá Sjónvarpinu árum saman. Tvö af börnum Ingibjargar, Árni Mattíasson og Hólmfríður Matthíasdóttir komu í þáttinn í dag og sögðu okkur frekar frá móður sinni og samkomunni. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn lagði Guðjón vinkilinn við Don Kíkóta og þá sígildu spurningu hvort rétt sé að farga bókum sem taka upp mikið pláss í hugum og híbýlum fólks. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Ævar Örn Jósepsson fréttamaður og rithöfundur. Hann hefur unnið við dagskrárgerð og fréttir í útvarpi, var blaðamaður auk þess að vinna að þýðingum, skrifa bækur og handrit. En hann kom auðvitað til okkar til að segja okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Ævar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ást og glæpur e. Davíð Draumland (líklega Steindór Sigurðsson) A Heart full of Headstones e. Ian Rankin Sjöwahl og Wahlöö Arnald Indriðason, Yrsu Sigurðardóttur og fleiri Tónlist í þættinum í dag: Gvendur á eyrinni / Rúnar Gunnarsson(Dátar) (Rúnar Gunnarsson og Þorsteinn Eggertsson) Been to Canaan / Carole King (Carole King) Whistling away the dark / Julie Andrews (Henry Mancini & Johnny Mercer) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Ingibjörg Jónsdóttir, Don Kíkóti og Ævar Örn lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 13, 2023

Víðsjá
Stropha, Tatiana Bilbao og Þorleifur Gaukur

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 2, 2023 55:00

Ingibjörg Elsa Turchi mætir til okkar og segir frá plötunni Stropha. Hljóðheimur plötunnar sver sig í ætt við fyrri plötu Ingibjargar, Meliae, og er skapaður af sömu hljóðfæraleikurum auk nýrra blásara. Hildigunnur Sverrisdóttir fjallar um verðlauna-arkitektinn Tatiönu Bilbao en verk hennar leggja áherslu á félagslegar þarfir manneskjunar og hafa það að markmiði að skapa arkitektúr sem er virðisaukandi fyrir nærumhverfið. Þorleifur Gaukur Davíðsson, munnhörpuleikari með meiru, segir frá komandi plötu og lýsir tónlistarsenunni í Nashville.

Víðsjá
Stropha, Tatiana Bilbao og Þorleifur Gaukur

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 2, 2023

Ingibjörg Elsa Turchi mætir til okkar og segir frá plötunni Stropha. Hljóðheimur plötunnar sver sig í ætt við fyrri plötu Ingibjargar, Meliae, og er skapaður af sömu hljóðfæraleikurum auk nýrra blásara. Hildigunnur Sverrisdóttir fjallar um verðlauna-arkitektinn Tatiönu Bilbao en verk hennar leggja áherslu á félagslegar þarfir manneskjunar og hafa það að markmiði að skapa arkitektúr sem er virðisaukandi fyrir nærumhverfið. Þorleifur Gaukur Davíðsson, munnhörpuleikari með meiru, segir frá komandi plötu og lýsir tónlistarsenunni í Nashville.

Víðsjá
Athugasemdir, Tunglóður, Jerúsalem

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 8, 2023

Ljóðverkið Tunglóður er óðs manns óður segir í kynningartexta um nýja ljóðabók, fyrstu ljóðabók Karls Ólafs Hallbjörnssonar. Karl Ólafur er heimspekimenntaður og innblásinn af skáldskap fornaldar, íslenskri náttúru og reynir gjarnan að hafa brag á ljóðunum án þess að hafa hátt eins og hann kemst sjálfur að orði. Þetta er óður til hverfulla tunglhvarfa tilfinninganna og óður til hversdagslegu fegurðarinnar sem dvelur í náttúrunni og tungumálinu. Við ræðum allt þetta betur við Karl Ólaf Hallbjörnsson í þættinum. Við erum öll með tengingu, segir listakonan Hildigunnur Birgisdóttir um fjórmenningana sem hafa undanfarin ár rekið gallerí Open við Grandagarð og listakonuna sem þar sýnir um þessar mundir; Ingibjörgu Sigurjónsdóttur. Sýning Ingibjargar, Athugasemdir, mun vera sú allra síðasta sem þetta smáa en knáa rými gefur af sér en það hefur verið starfrækt í fimm gjöful ár. Við lítum inn í Open í þætti dagsins og ræðum við þær Hildigunni og Ingibjörgu, um augnablik sem gerast, geymslurými listamanna, auðmeltanlega eilífð, listafimleika og hina örfinu línu milli listaverks og rusls. Og við fáum bókarýni í þætti dagsins. Nýverið gaf Una útgáfuhús út skáldsöguna Jerusalém eftir Gonçalo M. Tavares í þýðingu Pedro Gunnlaugs García. Gauti Kristmannsson rýnir í Jerúsalem hér um miðbik þáttar.

open salem jer jerusal tavares gon lj karls sigurj ingibj hallbj ingibjargar gauti kristmannsson
Víðsjá
Athugasemdir, Tunglóður, Jerúsalem

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 8, 2023 55:00

Sunnudagssögur
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Apr 16, 2023 75:00

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir var viðmælandi dagsins í Sunnudagssögum. Jana er bæjarfulltrúi Vinstri grænna á Akureyri og hún var líka nýlega kjörin sem ritari Vinstri grænna á landsfundi flokksins sem fram fór um miðjan mars. Hún segir frá uppvextinum og hvernig leið hennar lá svo í efnafræði í Háskólanum, þar sem hún tók einnig virkan þátt í stúdentapólitíkinni. Jana ræðir líka hvernig lífið er í bæjarpólitíkinni á Akureyri og almennt hvað einkennir lífið og tilveruna. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

akureyri umsj vinstri ingibjargar
Sunnudagssögur
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Apr 16, 2023

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir var viðmælandi dagsins í Sunnudagssögum. Jana er bæjarfulltrúi Vinstri grænna á Akureyri og hún var líka nýlega kjörin sem ritari Vinstri grænna á landsfundi flokksins sem fram fór um miðjan mars. Hún segir frá uppvextinum og hvernig leið hennar lá svo í efnafræði í Háskólanum, þar sem hún tók einnig virkan þátt í stúdentapólitíkinni. Jana ræðir líka hvernig lífið er í bæjarpólitíkinni á Akureyri og almennt hvað einkennir lífið og tilveruna. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

akureyri umsj vinstri ingibjargar
Heimildavarp RÚV
Dansfrumkvöðlar - Ingibjörg Björnsdóttir

Heimildavarp RÚV

Play Episode Listen Later Jan 25, 2023

Þetta var bara svo gaman. Ingibjörg Björnsdóttir danslistakona var heiðursverðlaunahafi Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna 2020, en verðlaunin hlýtur hún fyrir ómetanlegt framlag til danslistarinnar á Íslandi. Af því tilefni fór Ólöf Ingólfsdóttir í heimsókn til Ingibjargar með nokkrar spurningar í farteskinu. Saman líta þær yfir farinn veg.

Spegillinn
Viðbúnaður lögreglu og kröfugerð Eflingar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 22, 2022 30:00

Spegillinn 22. nóvember 2022 Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Lögreglan verður með aukinn viðbúnað í miðbæ Reykjavíkur um helgina eins og verið hefur frá hnífaárásinni í síðustu viku. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir að Ísland sé komið á sama stað og nágrannaþjóðir í þróun á glæpum. Anna Lilja Þórisdóttir talaði við Sigríði Björk. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman. Starfsfólki Héraðsdóms Reykjavíkur er ekki rótt þegar það fæst við alvarleg ofbeldismál vegna þess að öryggismál í dómstólnum eru ekki í lagi, að mati Ingibjargar Þorsteinsdóttur dómstjóra, Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hana. Ekkert miðaði í samningsátt á fundi Eflingar og Samtaka atvinnulífsins í dag að mati Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar. Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, þakkaði íslenskum stjórnvöldum í dag fyrir greinilegan stuðning við umsókn Finna og Svía að Atlantshafsbandalaginu. Hjón á sjötugsaldri voru handtekin í Svíþjóð í morgun, grunuð um stórfelldar njósnir. Róbert Jóhannsson sagði frá. ------------- 176 þúsund króna hækkun jöfn fyrir alla félagsmenn er kjarninn í kröfugerð Eflingar segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður félagsins og ekkert standi í vegi þess að samið verði fljótt af vel af félagsins hálfu. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana. Ásakanir hafa haldið áfram á báða bóga í dag um hver hafi gert sprengjuárásir á Zaporizhzhia kjarnorkuverið í Úkraínu um síðustu helgi. Tólf árásir voru gerðar og ollu nokkrum skemmdum. Markmið Rússa er ekki að koma úkraínsku ríkisstjórninni frá völdum, er haft eftir talsmanni stjórnvalda í Kreml. Ásgeir Tómasson tók saman. Matvælastefna er eiginlega stefna Íslands og okkar allra hér á Íslandi um það hvernig við viljum sjá matvælaframleiðslu á Íslandi þróast og það hvernig við sem samfélag umgöngumst mat segir Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra. Bjarni Rúnarsson ræddi við hana á Matvælaþingi.

Spegillinn
Viðbúnaður lögreglu og kröfugerð Eflingar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 22, 2022

Ingibjörg H.Bjarnason, Ingibjargir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Dagslátta

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 24, 2022 55:00

Í dag eru liðin 100 ár frá því Ingibjörg H. Bjarnason var kjörin fyrst kvenna á Alþingi í landskjörskosningum árið 1922 af sérstökum kvennalista. Af því tilefni stendur Sagnfræðingafélag Íslands fyrir málþingi í Neskirkju í kvöld, undir yfirskriftinni Ingibjörg, stjórnmálin og kvennahreyfingin. Þar flytja fjórir fróðir frummælendur tölur og við fáum tvær þeirra til okkar hér rétt á eftir. Það eru þær Erla Hulda Halldórsdóttir, sem fjallar um Framagjarnar konur og heiðvirðar húsmæður í þverþjóðlegu samhengi og Íris Ellenberger, sem rýnt hefur í bréfaskriftir milli Ingibjargar og annarra kvenna og fjallar um kvennaástir í samhengi við kvennaskóla og kvennahreyfinguna. Ingibjörg Haraldsdóttir, skáld og þýðandi, hefði orðið áttræð síðastliðinn föstudag. Af því tilefni leituðum við í safn Ríkisútvarpsins þar sem er úr vöndu að velja. Við völdum tvö 20 ára gömul hljóðbrot og rödd Ingibjargar mun því hljóma í þætti dagsins. Hvað það nákvæmlega verður ætlum við að láta koma á óvart hlustendur góðir, þar til um miðbik þáttar. Við hlýðum líka á tónlist við ljóð Ingibjargar, þar á meðal glænýtt lag með tveggja kvenna hljómsveitinni Ingibjargir. Hana skipa þær Ingibjörg Fríða Helgadóttir, söngkona, og Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, tónskáld, sem hafa síðustu ár unnið að sönglagabálk við ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur. Undantekningin frá Ingibjargarreglu dagsins er bókarýni frá Grétu Sigríði Einarsdóttur, sem að þessu sinni fjallar um ljóðabókina Dagsláttu, eftir Ara Jóhannesson. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

af hva sigr umsj bjarnason ingibj einarsd ellenberger helgad haraldsd skarph ingibjargar melkorka erla hulda halld
Víðsjá
Ingibjörg H.Bjarnason, Ingibjargir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Dagslátta

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 24, 2022

Endalok ástar, fuglalistamaður, ævintýri um missi, samtímatónlist

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 26, 2022

Í síðustu viku opnaði sýning Tilraun-æðarrækt, í Svavarssafni á Höfn í Hornafirði. Þetta er stór og þverfagleg sýning um sjálfbært sambýli æðarfugla og manna. Sýningin var 3 ár í smíðum og var upphaflega var sett upp í Norræna húsinu í vor. Sýningin sem nú hefur flogið á Höfn, er með öðru sniði þar í bæ, dreifir sér um allan bæinn og þar að auki hefur hún fengið áhugaverða viðbót, sem eru verk eftir einn helst fuglalistamann landsins, Höskuld Björnsson. Við ræðum við einn aðstandenda sýningarinnar, Hönnu Dís Whitehead, í þætti dagsins. Næstkomandi miðvikudagskvöld verða upphafstónleikar vetrartónleikaraðar kammerhópsins Nordic Affect í Mengi við Óðinsgötu. Yfirskrift tónleikanna er Ísfrétt og þar munu endalok ástarsambands koma við sögu, með frumflutningi á nýju tónverki Ingibjargar Ýrar Skarphéðinsdóttur við ljóð úr fyrstu ljóðabókar Gerðar Kristnýjar, Ísfrétt. Tónskáldið Ingibjörg Ýr verður gestur Víðsjár hér á eftir og segir okkur frá tilurð tónverksins, sem hún vann upp úr 11 ljóðum úr bókinni. Og í dag flytur tónskáldið Þráinn Hjálmarsson sinn fyrsta pistil um samtímatónlist. Þar tekur hann fyrir afbygginguna á snillingnum og þróunina sem orðið hefur í samtímatónlistarsenunni undanfarin ár í átt að samfélagslegri þátttökulist. - Samtíminn og nýja snilligáfan í pistli Þráins Hjálmarssonar í seinni hluta þáttar hér á eftir. En við byrjum í leikhúsinu. Hið stórfenglega ævintýri um missi, eftir Grímu Kristjánsdóttur, var frumsýnt á fjölum Tjarnarbíós síðastliðinn föstudag. Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í verkið.

bj gu hj whitehead samt vint kristj norr missi ingibj skarph kristn hornafir tjarnarb ingibjargar

Play Episode Listen Later Sep 26, 2022 55:00

Morgunvaktin
Ástin, samúðarsátt, dönsk málefni og SÁÁ

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 16, 2022

Brynhildur Björnsdóttir, fjölmiðlakona og söngkona, fjallaði um ástina og ólíkar hliðar hennar. Í hádeginu í dag ætlar Brynhildur að flytja fyrirlestur um ástina og ýmislegt henni tengt í Bókasafni Kópavogs. Um jólin var hún með þáttaröð, Ef þú giftist, um hjónabandið og ástina en þættina er hægt að nálgast í spilara RÚV. Ingibjörg Isaksen þingkona Framsóknarflokksins og Sandra B. Frank formaður Sjúkraliðafélags Íslands, ræddu um samúðarþreytu meðal fólks sem vinnur við að hjálpa öðrum. Hvernig hægt er að komast að sátt um hvernig hægt er að bæta líðan fólks og koma í veg fyrir kulnun í starfi. Tilefnið er þingsályktunartillaga Ingibjargar um stofnun starfshóps á vegum heilbrigðisráðuneytisins sem verði falið að koma með hugmyndir að slíkri þjónustu fyrir þessar starfsstéttir. Borgþór Arngrímsson sagði frá skelfilegu morði á ungri konu í Danmörku nýverið. Hann sagði einnig frá sögulegum viðræðum danskra stjórnvalda og bandarískra um að bandarískur her nemi land í Danmörku. Inger Støjberg og Borgen bar einnig á góma. Anna Hildur Guðmundsdóttir var fyrr í vikunni kjörin formaður stjórnar SÁÁ og situr fram að aðalfundi í vor. Óðinn Svan Óðinsson, fréttamaður á Akureyri, ræddi við Önnu Hildi um starfsemi samtakanna og hvað sé framundan. SÁÁ er meðal annars að taka upp fjarþjónustu í gegnum Kara Connect. Tónlist: Leyndarmál - Dátar Hold heart - Emilíana Torrini Ástin - Björgvin Halldórsson Bláu augun þín - Hljómar Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

bj rv gu sj emil borg ef hann borgen halld hvernig danm akureyri inger st isaksen stin umsj sigbj ingibj hlj svan frams torrini hildi arngr leyndarm brynhildur tilefni ingibjargar brynhildur bj
Morgunvaktin
Ástin, samúðarsátt, dönsk málefni og SÁÁ

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 16, 2022 130:00

Dostójevskí, Hugarflug, PóliS, tískudansar

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 8, 2021

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Gunnar Þorra Pétursson bókmenntafræðing um skáldsöguna Karamazov bræðurna eftir rússneska rithöfundinn Fjodor Dostójevskí en á dögunum var endurútgefin þýðing Ingibjargar Haraldsdóttur á þessu mikla verki, þýðing Ingibjargar kom fyrst út á árunum 1990 og 1991 og hefur verið ófáanleg um langt árabil. Í tónlistarhorninu Heyrandi nær leiðir Arnljótur Sigurðsson hugann að tónlist sem samofin er nokkrum tískudönsum sem náðu fótfestu víða um veröld. Snæbjörn Brynjarsson, leiklistargagnrýnandi Víðsjár, fjallar í dag um "Úff, hvað þetta er slæm hugmynd" sem leikhópurinn PóliS sýnir í Tjarnarbíói. Einnig verður hugað í Víðsjá í dag að Hugarflugi, rafrænni ráðstefnu sem Listaháskóli Íslands heldur næstu daga og hefst í dag.

sn dost sigur einnig karamazov listah brynjarsson tjarnarb ingibjargar
Víðsjá
Dostójevskí, Hugarflug, PóliS, tískudansar

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 8, 2021 55:00

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Gunnar Þorra Pétursson bókmenntafræðing um skáldsöguna Karamazov bræðurna eftir rússneska rithöfundinn Fjodor Dostójevskí en á dögunum var endurútgefin þýðing Ingibjargar Haraldsdóttur á þessu mikla verki, þýðing Ingibjargar kom fyrst út á árunum 1990 og 1991 og hefur verið ófáanleg um langt árabil. Í tónlistarhorninu Heyrandi nær leiðir Arnljótur Sigurðsson hugann að tónlist sem samofin er nokkrum tískudönsum sem náðu fótfestu víða um veröld. Snæbjörn Brynjarsson, leiklistargagnrýnandi Víðsjár, fjallar í dag um "Úff, hvað þetta er slæm hugmynd" sem leikhópurinn PóliS sýnir í Tjarnarbíói. Einnig verður hugað í Víðsjá í dag að Hugarflugi, rafrænni ráðstefnu sem Listaháskóli Íslands heldur næstu daga og hefst í dag.

sn dost sigur einnig karamazov listah brynjarsson tjarnarb ingibjargar
Orð um bækur
Orð um sigurljóð, sanna skáldsögu og fyrstu ljóðabók

Orð um bækur

Play Episode Listen Later Jan 25, 2021 55:08

Í þættinum Orð um bækur er að þessu sinni rætt við nýja vörslumanneskju ljóðstafs Jóns úr Vör en 21. janúar var tilkynnt að Þórdís Helgadóttir hefði hlotið ljóðastaf Jóns úr Vör árið 2021 fyrir ljóð sitt Fasaskipti. Í þættinum heyrist Þórdís flytja ljóðið við hátíðlega athöfn í salnum 21/1 síðastliðinn, einnig er rætt við Þórdísi um ljóðið og líf skáldsins. Einnig heyrist frumflutningur lags Ingibjargar Ýrar Skarphéðinsdóttur við ljóðið Desember eftir Jón úr Vör. Þá er rætt við Ásdísi Höllu Bragadóttur um nýja bók hennar, skáldsöguna Ein og Ásdís Halla les bláupphaf sögunnar. Að lokum er á dagskrá þáttarins viðtal við Stefaníu Dóttur Páls um ljóðabók hennar Blýhjarta. Stefaníu les nokkur ljóða bókarinnar Þu-in og Þú-in tvö og Ullarböndin euk þess sem leikin er upptaka Stefaníu á hennar eigi flutningi á ljóðinu Úthöf á himni. Umsjónarmaður: jórunn Sigurðardóttir

Orð um bækur
Orð um sigurljóð, sanna skáldsögu og fyrstu ljóðabók

Orð um bækur

Play Episode Listen Later Jan 25, 2021

Vitinn
Ingibjörg Einarsdóttir - Stóra upplestrarkeppnin

Vitinn

Play Episode Listen Later May 25, 2020 46:08

Allt þetta hófst nú í Hafnarfirði!Ingibjörg Einarsdóttir er ein af upphafsmanneskjum Stóru upplestrarkeppninnar og hefur fylgt þessu merka framtaki allt frá upphafi en saga keppninnar spannar alls 24 ár. Í þessu viðtali heyrum við um bakgrunn Ingibjargar sem hefur alla tíð búið í Reykjavík en tengst Hafnarfirði sterkum böndum í starfi. Frá sjö ára aldri var hún staðráðin í því að verða kennari en alls kenndi hún í 25 ár. Síðar varð Hafnarfjarðarbær starfsvettvangur Ingibjargar þar sem hún starfaði á skólaskrifstofu í 20 ár eða frá 1996.  Stóra upplestrarkeppnin á upphaf sitt í Hafnarfirði veturinn 1996-1997 sem tilraunaverkefni um upplestur en hefur síðan breiðst út um allt land. Keppnin snýst ekki um að komast fyrstur í mark heldur um þjálfun og vanda sig í upplestri. Vandvirkni, virðing og ánægja eru einkunnarorð keppninnar.  Ingibjörg deilir með hlustendum kraftaverkasögum um börn sem voru seinlæs en stóðu svo uppi sem sigurvegarar. Börnum af erlendum uppruna hefur einnig vegnað vel í keppninni.  Þessi merkilega keppni hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu 16. nóvember og lýkur í mars með því að valdir eru þrír bestu upplesarar í hverju byggðarlagi, eða í umdæmi hverrar skólaskrifstofu.  Lokahátíðin í Hafnarfirði er ávallt haldin í Hafnarborg og í ár fer hún fram 26. maí en vegna Covd-19 þurfti að færa hátíðina aftur um tvo mánuði.Í þættinum viðrar Ingibjörg nýjar hugmyndir um framtíð keppninnar sem hefur haldist nánast óbreytt í nær aldarfjórðung.

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
"Ég var farin til Hollywood og ætlaði að meika það" - Ingibjörg Stefánsdóttir #29

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Nov 21, 2019 96:01

Ingibjörg Stefánsdóttir mætti til okkar í spjall. Hún segir frá sjálfri sér sem ungri stúlku sem vildi bjarga heiminum - varð að stjörnu sem söng í Eurovision - lék í bíómyndum eins og Veggfóður - fór til Hollywood og ætlaði að meika það - og endaði svo á að feta jógabrautina og rekur í dag stúdíóið Yoga Shala. Og peysa Ingibjargar í þættinum dregur þetta allt saman í einni línu: Namaste Bitches!

Poppland

Umsjón: Matthías Már Magnússon og Lovísa Rut Kristjánsdóttir Poppland með hefðbundnu sniði, farið um víðan völl í tónlistinni að vanda, Ingibjargar Þorbergsdóttur minnst, heyrum lög af plötu vikunnar Nótt eftir Nótt með Kælunni miklu og ýmislegt fleira. 12.42 - 14.00 MMM Amabadama - Hossa Hossa Stereophonics - Have A Nice Day U2 - Beautiful Day KK & Rúnar Júlíusson - Ég er vinur þinn John Lundvik - Too Late For Love Glowie - Cruel Pulp - Common People Ingibjörg Þorbergs & Flís - Bréfið Ingibjörg Þorbergs fær heiðurverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunana 2003 Ingibjörg Þorbergs - Blómin mín Bubbi - Háflóð Birgir Steinn - Alive Kælan Mikla - Hvernig kemst ég upp? Carpenters - (They Long To Be) Close To You Eliot - Wake Up Hot Chip - Hungry Heart Buddy Holly - Every Day 14.03 - 15.00 LRK Scope - Was It All It Was Heiða Ólafs - Ekki Nema Von Kylie Minouge - Slow Lizzo - Juice Cake - Never There The Pretenders - Back On The Chain Gang Morrissey -Wedding Bell Blues Red Bull & Hennessey - Jenny Lewis Vampire Weekend - This Life XXX Rottweiler Hundar - Bent Nálgast Dagur Sigurðarsson - Ástarljóð Kælan Mikla - Draumadís Lemon Tree - Fools Garden Emmsjé Gauti - Án Djóks The Kinks - Lola Bubbi Morthens - Velkominn Chris Rea - The Road To Hell 200.000 Naglbítar - Lítill Fugl Gots To Give The Girl - Unperfect Bjarni Arason - Það Stendur Ekki Á Mér Beck - Saw Lighting Friðrik Dór - Dönsum Eins Og Hálfvitar Billy Idol - Dancing With Myself Taylor Swift - ME! The Specials - Vote For Me Sykurmolarnir - Ammæli Montell Jordan - This Is How We Do It Billie Eilish - Bad Guy

magn matth lov umsj ingibj ingibjargar dagur sigur naglb rut kristj
Lestin
Ingibjörg, leyfðu því að gerast, dýratónlist

Lestin

Play Episode Listen Later May 7, 2019 55:00

Ingibjörg Þorbergs, tónskáld, söngkona og fyrrverandi dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins andaðist í gær, hún var 91s árs að aldri, fædd í Reykjavík 25. október árið 1927. Ingibjörg var brautryðjandi í laga- og textasmíðum og var til dæmis fyrst allra íslenskra kvenna til að syngja eigið lag inn á hljómplötu. Ferill hennar var langur og glæsilegur og framlag hennar til íslensks tónlistarlífs verður seint ofmetið. Lestin minnist Ingibjargar í dag, gestir þáttarins verður tónlistarfólkið Sigríður Thorlacius og Bubbi Morthens. Samkvæmt dýratónvísindum eru það ekki aðeins manneskjur sem framleiða tónlist. Hvalir, fílar, apar, fuglar og skordýr eru líka fær um að senda frá sér margslungin tónverk. Í pistli sínum í dag veltir Tómas Ævar Ólafsson fyrir sér tónlist dýra og hinum hugmyndafræðilega múr sem sagður er liggja á milli manns og náttúru. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur að venju pistil í Lestinni á þriðjudegi, og verður á persónulegu nótunum, yfirskrift Halldórs í dag: Leyfðu því að gerast!

armand reykjav halld sigr ingibj lestin bubbi morthens thorlacius samkv ingibjargar
Hátalarinn
Göngutúr með Arnljóti

Hátalarinn

Play Episode Listen Later Jan 28, 2019

Hlustendum Hátalarans er boðið í óvenjulega gönguferð með Arnljóti Sigurðssyn, sem velur tónlistina í hverju skrefi. Önnur skref sem stigin eru í þættinum eru í boði John Coltrane, Victor Feldman og Ingibjargar Þorbergs.

Veistu hvað?

Veistu hvað ASMR stendur fyrir? Það vita Gummi og Vigdís allavega... núna. Rætt er um svokallað „heilakitl“, tilkomu hugtaksins, samfélag ASMRara og fleira áhugavert. Gummi og Vigdís reyna að lýsa tilfinningu sem þau finna ekki sjálf en fá íslenska ASMR-listamanninn Ingibjörgu Aldísi Hilmisdóttur til að hjálpa sér. Hún er einnig þekkt sem Nordic Whisper í ASMR-heiminum. Linkur á YouTube-rás Ingibjargar: https://www.youtube.com/channel/UCgwJntW3LwxouttnTcaZ3Zw Uppáhalds ASMR-myndband Vigdísar: https://www.youtube.com/watch?v=orD6yIilR0A&t=384s Umsjónarmenn og klipping: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir Stef: Bjarmi Hreinsson

asmr gu ald gummi umsj ingibj vigd hafli felixson ingibjargar veistu hilmisd