Draugar fortíðar

Follow Draugar fortíðar
Share on
Copy link to clipboard

Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.

Hljóðkirkjan


    • Jun 4, 2025 LATEST EPISODE
    • monthly NEW EPISODES
    • 1h 45m AVG DURATION
    • 145 EPISODES

    5 from 71 ratings Listeners of Draugar fortíðar that love the show mention: etta, tti, fyrir, sem, er, en, hlusta, flosi og baldur, svo, draugar fort ar, ekki.


    Ivy Insights

    The Draugar fort??ar podcast is a truly unique and enjoyable listening experience. The concept of Flosa's idea to bring us into the world of Nj?la is impressive, and I hope that the ghosts take it seriously in the future. Because of Bl??ruhlauparinn, I found it fitting to call the cold one ?hlaupab?li. Hats off to the creators for their creativity and entertainment.

    Becoming immersed in the world of Draugar fort??ar is like entering a dysfunctional but incredibly well-crafted family. Flosi and Baldur are like mixing sweetness and saltiness; no one can resist but to indulge in their chemistry, and it tastes delicious.

    Have you ever wondered if you would pay better attention to the story if the guitarist at HAM was teaching it to you? No? Well, Baldur Ragnarsson still suggested pulling Flosi ?orgeirsson deep into the abyss of Angurv?r weather, presenting him with listeners' questions and making them do just that.

    Draugar fort??ar is an excellent podcast for curious individuals who enjoy folklore but may not always have time to read those texts or listen to academic lectures about them.

    In conclusion, The Draugar fort??ar podcast stands out as a remarkable piece of audio entertainment. Its unique concept, engaging hosts, and informative yet accessible approach make it a must-listen for anyone interested in Icelandic folklore. While some aspects may not suit everyone's taste, overall, this podcast offers an immersive experience that will leave listeners wanting more.



    Search for episodes from Draugar fortíðar with a specific topic:

    Latest episodes from Draugar fortíðar

    #247 Josephine Baker: Fyrsta svarta konan sem sigraði heiminn - Fyrri hluti

    Play Episode Listen Later Jun 4, 2025 124:53


    Josephine Baker er einn áhrifamesti skemmtikraftur sögunnar. Auk þess að bæði hneyksla og hrífa Evrópubúa með sínum söng og dansi tók hún virkan þátt í baráttu gegn alræði og kynþáttaníði. Baker var fædd í Bandaríkjunum en eins og margir svartir íbúar þaðan, vildi hún flýja botnlausan rasismann þar. Hún hafði heyrt um ríki þar sem svartir voru þó álitnar mannverur. Fyrir þetta fólk lágu öll vötn til Parísar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #244 Maðurinn í rotþrónni

    Play Episode Listen Later May 14, 2025 103:45


    Í febrúar árið 1989 var japanska barnaskólakennaranum Yumi Tanaka brátt í brók og þurfti nauðsynlega að komast á klósettið. Á stúdentagörðum þar sem hún bjó voru klósett frekar gamaldags. Í raun aðeins hola í gólfinu sem leiddi út í rotþró fyrir utan húsið. Sér til furðu tekur Tanaka eftir einhverju í salernisholunni. Það er skór af manni. Hún fór út til að athuga hvort hún sæi eitthvað betur. Fyrir utan var lítið op sem leiddi niður í rotþróna. Þar gerði Tanaka hryllilega uppgötvun og hringt var samstundis á lögregluna. Þetta er vægast sagt dularfullt mál og internet löggur samtímans eru sífellt að velta fyrir sér hvað í ósköpunum gæti hafa gerst. Atriði í þættinum geta valdið klígju. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #238 Hermaðurinn ódrepandi: Saga Adrian Carton de Wiart

    Play Episode Listen Later Apr 2, 2025 149:08


    Adrian Carton de Wiart var belgísk-breskur herforingi sem varð algjör goðsögn innan breska hersins. Hann var svo ósérhlífinn að það jaðraði við sturlun. Hann særðist mörgum sinnum og oft alvarlega. Hann tók þátt í fyrri heimsstyrjöldinni, þar sem hann varð fyrir alvarlegum meiðslum, meðal annars misst hann hægri hönd og auga, en hann hélt áfram að berjast þrátt fyrir þessa miklu skerðingar. Þrátt fyrir að vera orðinn sextugur tók hann einnig þátt í síðari heimsstyrjöldinni. Var stríðsfangi Ítala um skeið. Hann starfaði síðar sem fulltrúi breska hersins í Miðausturlöndum og Kína. Winston Churchill hafði mikið álit á honum. Saga hans er áhugaverð. Hann er vissulega barn síns tíma en erfitt er að líta fram hjá því hugrekki og staðfestu sem hann sýndi. Við veltum því fyrir okkur hvort saga hans eigi erindi við nútímafólk? Sama hvað gekk á þá mætti hann öllum áföllum og andstreymi með stóískri kímni og látleysi. Það má væntanlega læra eitthvað af því? Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #234 Biblíusögur

    Play Episode Listen Later Mar 5, 2025 171:57


    Fyrsti þáttur hvers mánaðar er í opinni dagskrá. Það er því vel við hæfi að sem flest ykkar nái að heyra fagnaðarerindið. Í þessum þætti velur Flosi nokkrar sögur úr einni af hans uppáhaldsbókum: Biblíunni. Gamla textamentið er í sérstöku uppáhaldi. Enda er nóg af alls konar furðulegum og fyndnum sögum sem þar má finna. Vert er samt að benda á að atriði í þættinum geta valdið óhug. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #230 Brjálaði baróninn: Sagan af Roman von Ungern-Sternberg

    Play Episode Listen Later Feb 5, 2025 108:31


    Komið hefur fyrir að sérvitrir herforingjar hafi klofið sig frá aðalhernum í styrjöldum og umbreyst í stríðsherra með sitt eigið lið og farið sínu fram. Roman von Ungern-Sternberg er einn þessara manna og líklega einn sá einkennilegasti og alræmdasti. Hann fór að sjá sig sem einhverskonar holdgerving mongólska herforingjans Djengis Khan. Hann sauð saman stórundarlega blöndu af rússneskri réttrúnaðarkristni og austurlenskum búddisma og taldi sig fylgja guðlegri forsjón. Saga hans er full brjálsemi, ofbeldis og blóðsúthellinga. Þátturinn er ekki við hæfi barna og í honum eru lýsingar á ofbeldi sem gætu farið fyrir brjóstið á fólki. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #LD2 Víkingar

    Play Episode Listen Later Jan 3, 2025 159:26


    Í tilefni af yfirvofandi ferðalagi Drauganna um landið síðar í mánuðinum er hér upptaka frá því að Draugarnir komu fram fyrir fullu húsi í Iðnó í október 2022. Góða skemmtun! „Hverjir voru þeir og hversvegna breyttist skoðun almennings á þeim svo rosalega? Frá víkingaöld var varla minnst á þá á annan hátt en sem algjörlega skelfilegt lið sem rændi, ruplaði, nam á brott og myrti fólk. Á 19. öld verða þeir skyndilega að hetjum og fyrirmyndir frelsiselskandi fólks. Hvað er svo satt og logið um víkinga? Voru þeir með horn á hjálmum sínum? Ef ekki, hvaðan kemur þá sú ímynd? Voru þeir allir hávaxnir og blóðþyrstir? Voru konur víkingar? Voru Íslendingar víkingar? Baldur og Flosi fylltu Iðnó af fólki og reyndu að svara þessum spurningum og mörgum fleiri.“ Miðar hér á ferðalag okkar um landið í janúar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #225 Fimm verstu herforingjar sögunnar

    Play Episode Listen Later Jan 1, 2025 157:46


    Margt er aðdáunarvert í sögu mannkynsins. Stórkostlegar uppgötvanir í vísindum, glæst listaverk og félagslegar umbætur. Því miður hafa átök og blóðsúthellingar einnig spilað stórt hlutverk. „Stríð er helsta hreyfiafl sögunnar“ - sagði rússneski byltingarleiðtoginn Leon Trotsky eitt sinn. Margir frægustu einstaklingar sögunnar voru herforingjar. Má nefna t.d. Napóleon og Alexander mikla. Að hafa stjórn á herjum og samræma aðgerðir á vígvelli er þó ekki hæfileiki sem öllum er gefinn. Í þessum þætti hefur Flosi tekið saman fimm einstaklinga sem hann telur langverstu herforingja sögunnar. Slakir leiðtogahæfileikar þeirra höfðu oft afdrifaríkar afleiðingar. Má telja fullvíst að þúsundir, jafnvel milljónir hafi glatað lífinu vegna vanhæfni þeirra. Miðar hér á ferðalag okkar um landið í janúar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #221 Amnesty International

    Play Episode Listen Later Dec 4, 2024 154:04


    Þessi þáttur er í óformlegu samstarfi við Amnesty International á Íslandi. Flosi hefur lengi verið stuðningsmaður samtakanna og 16 ára gamall skrifaði hann bréf til Nicolai Ceausescu, þáverandi alvalds í Rúmeníu og krafðist þess að samviskufangar yrðu látnir lausir. Íslandsdeildin fagnaði 50 ára afmæli þ. 15 september síðastliðinn. Vakin er athygli á herferð samtakanna sem ber yfirskriftina „Þitt nafn skiptir máli“. Í þættinum er saga samtakanna jafnframt rakin og sagt frá málum sem eru aðkallandi. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #217 Selárdalur - 2. Þáttur: Gísli á Uppsölum

    Play Episode Listen Later Nov 6, 2024 214:03


    Sjaldan gerist það að maður verði frægur á einni nóttu. Svo var þó bókstaflega um Gísla Oktavíanus Gíslason frá Uppsölum í Selárdal. Hann var nánast algjörlega óþekktur áður en Ómar Ragnarsson, landskunnur sjónvarpsmaður, bankaði upp á hjá honum árið 1981. Þátturinn Stiklur var sýndur á jóladag árið 1981. Þá var íslenskt samfélag að nútímavæðast hratt. Allir vildu eiga nýjustu tækin, hvort sem um var að ræða litasjónvarp, myndbandstæki, fótanuddtæki eða Soda-Stream. Því sat þjóðin gapandi af undrun og horfði á viðtal við mann sem virtist eins og hann væri nýkominn frá 1881. Á Uppsölum var ekkert sjónvarp eða Soda-Stream. Þar var einfaldlega ekkert rafmagn né rennandi vatn. Gísli notaðist enn þá við orf og ljá. Hann heillaði fólk þó með einlægni sinni og glettni. Einnig er ekki annað hægt en að dást að seiglunni og ósérhlífninni sem einkenndi einbúann í Selárdal. En saga hans er þó einnig harmsaga manns sem átti vonir og drauma sem ekki rættust. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #212 Fimmmenningarnir frá Yuba

    Play Episode Listen Later Oct 2, 2024 144:51


    Þann 24. febrúar árið 1978 fóru fimm menn frá Yuba-sýslu í Kaliforníu á körfuboltaleik í Chico, nálægum bæ. Uppáhaldsliðið þeirra var að keppa og vildu þeir styðja það. Sjálfir áttu þeir að leika mikilvægan leik daginn eftir. Þeir glímdu allir við minniháttar þroskahamlanir. Þeir stóðu sig þó almennt ágætlega í að takast á við áskoranir lífsins. Þeir voru allir í sama körfuboltaliðinu og daginn eftir var mikilvægur leikur. Sigurvegararnir áttu að fá í verðlaun vikuferð til Los Angeles. Allir voru þeir mjög spenntir fyrir því og ákveðnir í að sigra leikinn. Þetta var í síðasta skipti sem þeir sáust á lífi. Eftir nokkurra daga leit fannst bíll þeirra um 180 km norður af Chico en heimabær mannanna var í þveröfuga átt, um 80 km suður af Chico. Þeir höfðu keyrt upp í fjalllendið í Plumas-þjóðgarðinum. Allar götur síðan hefur þetta hvarf valdið miklum heilabrotum fólks. Sumir voru fljótir að afskrifa þetta vegna þroskaskerðingar mannanna. Ættingjum þeirra hefur alltaf sárnað sú umræða. Enda er nokkuð ljóst að mennirnir voru að miklu leyti færir um að sjá um sig sjálfir. Ýmsar kenningar hafa komið fram um hvað gæti hafa valdið þessu dularfulla hvarfi. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #208 Súdan: Mesta mannúðarkrísa veraldar

    Play Episode Listen Later Sep 4, 2024 103:58


    Afríkuríkið Súdan hefur vissulega kynnst átökum áður en eftir borgarastyrjöld sem hófst 2023, ríkir þar nú slík óöld að annað eins hefur varla sést á heimsvísu í lengri tíma. Um 50 milljónir búa í þessu stóra landi. Um 13 milljónir eru nú á vergangi og án heimilis. Í nágrannalöndunum og víðar eru nú um 3-4 milljónir flóttamanna. Þeir aðilar sem berjast um völdin hafa beitt skefjalausu ofbeldi og svífast einskis. Ítrekað hefur verið ráðist á spítala og bílalestir með matvæli og lyf. Nauðgunum hefur verið beitt ítrekað sem vopni til að kúga íbúa. Erfitt er að meta mannfall því allir innviðir eru í rúst. Talið er að mannfall sé á bili 25.000 til 250.000. Herforingjastjórnin sem framdi valdarán lofaði lýðræðislegum kosningum hefur ekki staðið við það loforð. Auk þessa hefur staðið yfir þjóðarmorð á ýmsum hópum í landinu. Aðgengi að matvælum, rafmagni og hreinu drykkjarvatni er af skornum skammti. UN Women á Íslandi hefur beitt sér til að reyna að bæta kjör súdanskra kvenna sem eru sérstaklega útsettar fyrir kynferðislegu ofbeldi vegna stríðandi fylkinga. Við nutum aðstoðar þeirra við gerð þessa þáttar. Kynnið ykkur starf UN Women á Íslandi hér: https://unwomen.is/ Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #204 Fidel Castro

    Play Episode Listen Later Aug 7, 2024 200:46


    Þrátt fyrir að vera leiðtogi smáríkis þá kom hann Kúbu ansi langt inn á leikborð alþjóðastjórnmála. Raunar var Kúba miðpunkturinn í deilu Sovétríkjanna og Bandaríkjanna árið 1962 en þá saup öll veröldin hveljur. Aldrei nokkurn tíma var eins mikil hætta á kjarnorkustríði milli stórveldanna. Fidel Castro er ugglaust einn umdeildasti leiðtogi sögunnar. Hann reif þjóð sína upp úr fátækt og stórbætti heilbrigðis - og menntakerfi. Andóf gegn stjórnvöldum var þó miskunnarlaust barið niður og fjölmiðlun var langt frá því að vera frjáls. Castro hafði mikla útgeislun og vakti athygli hvar sem hann kom. Í raun varð hann fyrirmynd byltingarmanna um allan heim. Hann sýndi öðrum leiðtogum rómönsku Ameríku að hægt var að standa upp í hárinu á Bandaríkjunum og losa landið við arðrán fyrirtækja þeirra og spillingu mafíunnar. Fólki er bent á að þættirnir um Ameríku-skólann (nr. 181) og Fulgencio Batista (nr. 198) tengjast þessu efni mjög. Mælum með að hlusta á þá. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #199 Andrew Carlssin og aðrir tímaferðalangar

    Play Episode Listen Later Jul 3, 2024 93:14


    Í marsmánuði árið 2003 handtók FBI, alríkislögregla Bandaríkjanna, mann að nafni Andrew Carlssin. Það vakti miklar grunsemdir hve vel honum hafði gengið í verðbréfaviðskiptum. Á aðeins tveimur vikum hafði hann hækkað 800 dollara í 350 milljónir. Þetta gat ekki verið tilviljun. Hart var sótt að Carlssin í yfirheyrslum. Fólk vildi vita um hans bandamenn í fjármálageiranum sem höfðu mögulega lekið upplýsingum. Illa gekk að fá nokkuð út úr honum. Þegar honum var hótað langri fangelsisvist virtist hann loks tilbúinn til samninga. Lögreglumennirnir urðu þó dolfallnir er Carlssin bauð upp á lækningu gegn AIDS og upplýsingar um felustað Osama bin Laden, gegn því að fá skemmri vist eða sleppa alfarið við refsingu. Er hann var spurður hvernig hann gæti gefið þessar upplýsingar kom undarlegt svar. Carlssin sagðist vera tímaferðalangur frá árinu 2253. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #195 Berlínarmúrinn

    Play Episode Listen Later Jun 5, 2024 139:02


    Þáttur dagsins fjallar um eitt alræmdasta tákn kalda stríðsins og "Járntjaldið" illræmda sem aðskildi Evrópu í marga áratugi. Vestur-Berlín hafði algjörlega sérstöðu. Borgin tilheyrði Vestur-Evrópu en var stödd mitt í kommúnistaríkinu sem var Alþýðulýðveldið Þýskaland, einatt kallað Austur-Þýskaland. Árið 1961 hófu yfirvöld í Austur-Berlín að byggja múr sem aðskildi borgarhlutana í tæpa þrjá áratugi. En af hverju var þessi múr reistur og hvaða afleiðingar hafði það? Við reynum að svara þeim spurningum í þessum þætti. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #190 „Brjálaði Svíinn“: Stutt en viðburðarík ævi Göran Kropp

    Play Episode Listen Later May 1, 2024 114:43


    Sumir lifa lengi en ævi þeirra er róleg og viðburðalítil. Svo var ekki hvað Göran Kropp varðaði. Hans drifkraftur var ást á fjallaklifri. Hann varð brátt vel þekktur í þeim heimi vegna mikillar útgeislunar en einnig sérvisku. Kropp var ekki hrifinn af því að fara auðveldustu leiðina. Hann leitaðist sífellt eftir nýjum og krefjandi áskorunum. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #186 Carlos Kaiser: Fótboltamaðurinn sem forðaðist fótbolta

    Play Episode Listen Later Apr 3, 2024 92:22


    Svikahrappar og svindlarar hafa ætíð vakið sérstaka athygli og jafnvel aðdáun meðal almennings. Stundum er ekki annað hægt en að dáðst að hugkvæmni þeirra sem nýta sér persónutöfra og samskiptahæfni til að koma sér áfram í lífinu. Vissulega eru til svindlarar sem engin ástæða er til að dást að. Fólk sem markvisst nýtir sér jafnvel neyð annarra og hagnast á því. Carlos Henrique Raposo fellur ekki í þann flokk hreinræktaðra illmenna en svikahrappur var hann vissulega og er í dag fyrstur til að viðurkenna það. Carlos fékk viðurnefnið Kaiser því hann þótti líkjast Frans Beckenbauer sem var einatt kallaður "Keisarinn". Eins og margir ungir drengir í Brasilíu dreymdi Carlos um að verða frægur fótboltamaður. Hann hafði útlitið og stæltan líkama. Þó var eitt mikilvægt sem Carlos vantaði: Hann var vita hæfileikalaus í fótbolta. Carlos var þó ákveðinn í að láta það ekki stoppa sig. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #182 Norður-Kórea 1. þáttur: Járnhæll Japans, Kóreustríðið og Kim Il Sung

    Play Episode Listen Later Mar 2, 2024 118:58


    Styrktaraðilar á Patreon fá í hverjum mánuði að velja á milli þriggja málefna. Að þessu sinni var stuðst við lýðræðisvísitölu breska tímaritsins The Economist. Valið stóð á milli þriggja ríkja sem reglulega verma botnsætið á þeim lista, teljast ein þau ólýðræðislegustu í heimi. Það voru Túrkmenistan, Sýrland og Norður-Kórea. Síðastnefnda ríkið varð hlutskarpast. Við beinum því nú sjónum að einu lokaðasta og ólýðræðislegasta ríki veraldar. Efnið er yfirgripsmikið og ótrúlegt svo það var ákveðið að taka þetta í tveimur þáttum. Þessi þáttur tekur fyrir stofnun Alþýðulýðveldisins Norður-Kóreu, Kóreustríðið og stjórnartíð Kim Il Sung. Söfnun Solaris: solaris.help/palestina Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #178 Hægri umferð

    Play Episode Listen Later Feb 7, 2024 98:34


    Sú var tíðin að sagnfræði fjallaði aðallega um hin „stóru efni“. Viðfangsefnin voru konungar, keisarar og heimsveldi. Eins og aðrar fræðigreinar hefur hún þróast og í dag má heyra talað um allskonar sögurannsóknir. Það er nefnilega oft áhugaverð saga á bakvið ýmislegt sem í fyrstu virðist ekki sérlega merkilegt. Hægri umferð var tekin upp á Íslandi þann. 26. maí 1968 á hinum svokallaða H-degi. Landsmenn voru spenntur fyrir þessu og undirbúningur var til mikillar fyrirmyndar. Ísland var eitt af seinustu löndum Evrópu til að gera þessa skiptingu. Í þættinum segjum við aðeins frá hvernig þetta fór fram hér á landi. Við skoðum einnig hvað olli því að vinstri umferð var eitt sinn algengari og hvernig það á rætur að rekja til stríðsreksturs og heimsvaldastefnu. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #173 Óvinkonur Guðs - Sérstakur gestur: Dr. Yngvi Leifsson

    Play Episode Listen Later Jan 3, 2024 78:56


    Við höfum áður minnst á ólíkar nálgunaraðferðir sagnfræðinnar. Ein þeirra er einsagan. Þar skoða sagnfræðingar samfélagið og söguna frá einstaklingum. Oft er ekki um að ræða þjóðarleiðtoga eða ráðamenn. Frekar er það almenningur eða jafnvel fólk sem taldist vera neðarlega í goggunarröð samfélagsins. Í þessum þætti fáum við góðan gest í heimsókn en það er sagnfræðingurinn Yngvi Leifsson. Hann hefur lengi dvalist í borginni Salamanca á Spáni og stundað sínar rannsóknir þar. Salamanca var á sínum tíma talin einhverskonar "höfuðborg vændis" í Evrópu. Yngvi hefur rannsakað sögur þeirra kvenna og sérstaklega eitt ákveðið hús sem kallað var "Galeiðan". Það var hugsað sem einskonar betrunarheimili fyrir þær konur sem þóttu hafa glatað trausti drottins með sínu "ósiðlega" líferni. Þetta er afar áhugaverð saga sem varpar sérstöku ljósi á aðstæður almennings á Spáni á síðari hluta átjándu aldar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #167 Ísrael - Palestína 3. þáttur - Intifada, PLO, Hamas og Hezbollah

    Play Episode Listen Later Dec 11, 2023 136:47


    Árið 1987 sauð upp úr á Vesturbakkanum og Gaza. Ísraelar höfðu stóraukið umsvif á landnemabyggðum og hert mjög allt eftirlit. Palestínumenn hófu að kasta grjóti og var svarað með kúlnahríð. Í kjölfar þessarra átaka minnkaði mjög stuðningur við PLO en öfgafull samtök múslíma sem kölluðu sig Hamas fengu mikinn meðbyr. Í Líbanon fór að bera meira á herskárri hreyfingu sem kallast Hezbollah. Í þessum þætti ljúkum við yfirferð okkar um þessa hatrömmu deilu fyrir botni Miðjarðarhafs. Við skoðum helstu samtök sem mest hefur borið á í baráttunni gegn Ísrael. Við veltum því einnig fyrir okkur hvernig framtíðin gæti orðið á þessu svæði. Aðeins er rúmur mánuður frá því að Ísrael upplifði sinn blóðugasta dag í þessarri deilu síðan 1948. Því miður virðist sem raddir hinna hófsömu séu orðnar veikar, jafnt hjá Ísraelum og Palestínuaröbum. Þessi þáttur er í boði Draugahjarðarinnar á Patreon! ❤️ Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #166 Ísrael - Palestína 2. þáttur - Stríð á stríð ofan

    Play Episode Listen Later Dec 11, 2023 109:36


    Ísraelsríki var stofnað í maí 1948 og hóf tilveru sína strax með því að berjast hatrammlega fyrir henni. Aðeins fáum klukkustundum eftir að sjálfstæðisyfirlýsingin var tilkynnt, réðust herir frá Egyptalandi, Sýrlandi, Líbanon og Írak inn í landið. Ísrael var þá að mestu án öflugra vina en nú sárvantaði þá vopn og verjur. Aðeins voru til vopn fyrir einn hermann af þremur. Í snarhasti tókst að kaupa vígtól frá Frakklandi og Tékkóslóvakíu. Ísrael var fljótt að snúa vörn í sókn og hrinti árás Arabaríkjanna. Í þessum þætti munum við einnig skoða mikilvæg átök sem fylgdu í kjölfarið og spannar þátturinn að mestu árin 1948 - 1982. Hér verða einnig útskýrð heiti sem nánast allir  á fullorðinsaldri hafa einhverntíma heyrt í fréttum: Gaza, Golan-hæðir og Vesturbakkinn. Þessi þáttur er í boði Draugahjarðarinnar á Patreon! ❤️ Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #165 Ísrael - Palestína 1. þáttur - Síonismi og leiðin aftur til landsins helga

    Play Episode Listen Later Dec 11, 2023 111:22


    Um þessar mundir standa yfir blóðug átök á Gaza-svæðinu. Allt frá stofnun Ísraels-ríkis árið 1948 hefur verið mikil ólga í kringum það. Við vildum skyggnast aðeins inn í þessa sögu. Hvers vegna er barist og hví var Ísraels-ríki stofnað nákvæmlega á þessum stað, við mikil mótmæli þeirra sem þar bjuggu fyrir? Til að fá heildarmynd verðum við að byrja ferð okkar mun fyrr. Þessi þáttur skoðar sköpun þeirrar hugmyndafræði sem kallast Síonismi og snerist um það markmið að koma á fót og viðhalda gyðingalandi í hinu sögulega svæði Ísrael, sem þá var hluti af Ottómanaveldi. Hugtakið "síonismi" er dregið af "Síon", sem er tilvísun í biblíulegt hugtak um Jerúsalem og Ísraelsland. Síonismi var svar við langri sögu gyðingaofsókna og gyðingahaturs í Evrópu sem hafði jafnvel versnað til muna er þjóðerniskennd og þjóðríki komu til sögunnar. Síonismi reyndi að koma til móts við þörf gyðinga fyrir öruggt og viðurkennt heimaland. Hreyfingin komst á skrið snemma á 20. öld, sérstaklega eftir Balfour-yfirlýsinguna frá 1917, þar sem bresk stjórnvöld lýstu yfir stuðningi við stofnun „þjóðarheimilis gyðinga“ í Palestínu. Þessi þáttur er í boði Draugahjarðarinnar á Patreon! ❤️ Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #169 Pólitík og fótbolti: Lutz Eigendorf, Matthias Sindelar o.fl.

    Play Episode Listen Later Dec 6, 2023 143:15


    Við heyrum oft fólk segja að pólitík eigi ekki heima í listum og íþróttum. En er það rétt? Hafa listamenn í gegnum tíðina ekki bara verið mjög pólitískir heldur hreinlega haft áhrif á því sviði? Hafa Bob Dylan og Bubbi Morthens ekki verið pólitískir. Í þessum þætti ætlum við að skoða hvernig fótbolti og stjórnmál hafa rekist á hvort annað. Við tökum fyrir þá Lutz Eigendorf og Matthias Sindelar. Frábæra fótboltamenn sem margir telja að hafi verið ráðinn bani af tveimur illræmdustu leyniþjónustum sögunnar: Stasi og Gestapo. Einnig kíkjum við á aðra fótboltamenn sem hafa mikið skipt sér af stjórnmálum. Einn þeirra er meira að segja forseti síns heimalands í dag. Við skoðum einnig aðra sem aldrei hafa farið dult með sínar stjórnmálaskoðanir. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #164 Saga Tíbet

    Play Episode Listen Later Nov 1, 2023 106:25


    Tíbet á sér ríka og flókna sögu sem nær aftur til forsögulegra tíma. Ríkið Zhangzhung, sem var til á milli 500 f.Kr. og 625 e.Kr. er talið undanfari síðari tíma tíbetska konungsríkja. Tíbetska veldið var stofnað á 7. öld og stóð fram á 9. öld. Eftir tímabil sundrungar á 9.-10. öld og endurvakningu búddismans á 10.-12. öld, urðu til þrír af fjórum helstu skólum hins tíbetska búddisma. Tíbet varð í raun sjálfstætt á 14. öld og var stjórnað af ýmsum aðalsættum næstu 300 árin. Snemma á 18. öld varð Tíbet áhrifasvæði Qing-ættarinnar og var það þar til ættarveldið féll. Árið 1959, í kjölfar stríðsátaka við Kína, flúði Tenzin Gyatso, hinn 14. Dalai Lama, í til Indlands og myndaði þar útlagastjórn. Sjálfstjórnarsvæðið Tíbet var stofnað í kjölfar innlimunar Kína í Tíbet. Sjálfstæðisbarátta og harðar ásakanir á hendur Kínverjum vegna mannréttindabrota hafa einkennt umræðuna um þetta merkilega svæði undanfarna áratugi. Kínverjar og stuðningsmenn þeirra hafa aftur á móti haldið því fram að Tíbet hafi verið langt frá því að teljast eitthvað sæluríki undir stjórn Dalai Lama. Þar hafi ríkt gamaldags lénsskipulag og fámenn aðalsætt hafi hagnast á undirokun og kúgun alþýðunnar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #160 Strand togarans Friedrich Ebert árið 1903

    Play Episode Listen Later Oct 4, 2023 93:00


    Mörg skip hafa farist við Íslandsstrendur. Það er kaldranaleg tilhugsun að svartur sandur og hvítir jöklar hafa stundum verið það síðasta sem margir erlendir sjómenn sáu áður en hafið og kuldinn tóku líf þeirra. Stundum gerast atvik sem maður getur þó ekki annað en gapað yfir. Þátturinn í dag fjallar um slíkan viðburð sem átti sér stað fyrir 120 árum. Þá strandaði þýskur togari á einum allra versta stað sem hægt var að stranda á við þetta harðbýla land með sínum vægðarlausu vindum. Togarinn strandaði á Skeiðarársandi. Þessir menn neituðu þó að gefast upp og er saga þeirra hreint ótrúleg og vitnisburður um hvað er fólki fært ef lífsviljinn slokknar ekki. Barátta tók þó sinn toll og kom þá til kasta landa okkar sem fundu þá nær dauða en lífi. Þar hefst önnur hetjusaga þar sem íslenskir læknar og aðstoðarfólk þeirra vinna afrek. Þetta er harmsaga en inniheldur einnig hugrekki og von. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #156 Þorskastríðin. 1. þáttur: Aðdragandi

    Play Episode Listen Later Sep 6, 2023 106:24


    Á 20. öld átti Ísland í hatrammri deilu um fiskveiðilögsögu við margar þjóðir. Hörðust var deilan við Bretland sem sendi sjálfan flotann í þrígang á Íslandsmið til að skakka leikinn. Bretar göntuðust með að ekki væri nóg að það væri "Cold War", heldur væri nú komið "Cod War", eða þorskastríð. Nafnið hefur fest sig í sessi þrátt fyrir að þetta hafi á engan hátt verið stríð, í fullri merkingu þess orðs. Þessi deila er merkileg að mörgu leyti. Nú gátu stórveldi ekki lengur vaðið yfir þau smáu í krafti herstyrks. Ísland og Bretland voru saman í hernaðarbandalagi og vera Íslands þar var afar mikilvæg hvað öryggi Bretlands varðaði. Breytingar og umbætur á hafréttarlögum spiluðu einnig stórt hlutverk og nýttu Íslendingar sér það óspart, með góðum árangri. Deilan varð þó svo hörð að ýmsir óttuðust að Ísland myndi jafnvel senda bandaríska herinn úr landi. Ekkert varnarmálaráðuneyti á Vesturlöndum vildi sjá það gerast. Deilan er því ansi áhugaverð hvað alþjóðasamskipti og sögu kalda stríðsins varðar. Allir fjórir þættir septembermánaðar verða um þorskastríðin. Við mælum með því að rifja upp kynni við þátt númer 79 sem heitir "Togaraskelfirinn" og fjallar um landhelgisgæslu Dana við Ísland í upphafi 20. aldar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #151 Landbúnaður í Albaníu

    Play Episode Listen Later Aug 2, 2023 116:21


    Flosi hefur oft sagt að hægt sé að gera nær allt áhugavert, nema mögulega landbúnaðarsögu Albaníu. Þetta er svona göngugrína (e. running gag) sem hlustendur þekkja ágætlega. Í hverjum þætti fá styrktaraðilar á Patreon að velja um þrjú umfjöllunarefni. Hið hlutskarpasta verður svo tekið fyrir í einum þætti. Það er Flosi sem sér um að koma með tillögur að þætti. Hins vegar er frestunarárátta hans stundum svo alvarleg að Baldur þarf rækilega að minna hann á. Síðast er þetta átti sér stað setti Baldur honum þá afarkosti að vera tilbúinn á tíma með efnið, ellegar myndi Baldur velja þrjú efni og yrði Flosi að hlíta niðurstöðunni. Flosi brást og því gátu hlustendur valið um eftirtalin þrjú atriði: 1. Saga vatnshelds klæðnaðar. 2. Gláka. 3. Landbúnaðarsaga Albaníu. Er skemmst frá því að segja að númer þrjú vann með yfirburðum. Hægt er að saka Flosa um margt, enda breyskur maður með afbrigðum en hugleysi býr hann þó ekki yfir. Því brást hann vel við þessari áskorun og þátturinn fjallar um sögu Albaníu með fókus á landbúnað. Tókst Flosa að gera efnið áhugavert? Dæmið sjálf. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #147 Barnið í loftbelgnum

    Play Episode Listen Later Jun 7, 2023 80:26


    Þann 15. október 2009 fékk neyðarlína Bandaríkjanna óhugnanlegt símtal. Hinum megin á línunni var skelfingu lostinn faðir. Með grátinn í kverkunum sagði hann sex ára son sinn hafa farið inn í heimasmíðaðan loftbelg sem hefði losnað og væri nú kominn í mörg hundruð metra hæð. Viðbragðsaðilar víðs vegar voru kallaðir út og m.a. sendi Þjóðvarðliðið eina Black Hawk herþyrlu í leitina. Betur fór en á horfðist en fljótlega fór fólk að gruna að ekki væri allt með felldu. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #142 Konurnar í lífi Hitlers

    Play Episode Listen Later May 3, 2023 165:04


    Þegar þeirri spurningu er kastað fram hver sé mögulega versta manneskja sem verið hefur uppi, kemur nafn Adolf Hitlers fljótt upp. Hann leiddi þjóð sína og raunar veröldina alla út í verstu og mannskæðustu styrjöld sögunnar. Ofstækisfullar skoðanir hans voru fullar af hatri og illsku. Það er erfitt að ímynda sér að þannig maður hafi getað elskað. Þó er það svo að Adolf Hitler átti í ástarsamböndum eða a.m.k. mjög nánu sambandi við nokkrar konur. Sögur þeirra eru sorglegar enda var greinilega ekki tekið út með sældinni að vera kærasta Hitlers. Í þessum þætti skoðum við þær þrjár sem virtust eiga í nánu sambandi við einræðisherrann alræmda. Það eru þær Geli Raubal, Unity Mitford og Eva Braun. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #138 Laxdæla saga

    Play Episode Listen Later Apr 5, 2023 136:46


    Styrktaraðilar á Patreon fengu að velja um þrjár Íslendingasögur: Gunnlaugs saga Ormstungu hlaut aðeins 18% atkvæða. Gísla saga Súrssonar fékk 37%. Það var því ljóst að flest vildu heyra okkur taka fyrir Laxdæla sögu sem fékk 45%. Hún er ein af þessum stóru. Við höfum áður fjallað um Njáls sögu, Grettis sögu og Egils sögu. Því má segja að við séum nú búnir að fullkomna þessa yfirferð. Laxdæla er alveg einstök hvað þessar miðaldabókmenntir varðar. Hún er lang dramatískasta sagan og hefur oft vakið athygli fyrir sterka og fyrirferðarmikla kvenkaraktera. Sumir telja að hún hljóti að hafa verið skrifuð af konu. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #133 Terry Jo Duperrault

    Play Episode Listen Later Mar 1, 2023 95:24


    Duperrault hjónin bjuggu í Wisconsin ásamt þremur börnum sínum. Þar er veturinn afar kaldur og þau hafði lengi dreymt um að fara í ferðalag á hlýjar slóðir á þeim tíma. Sumarið 1961 höfðu þau safnað fyrir draumaferðinni: Siglingu frá Florida til Bahamaeyja. Þau leigðu bát og fengu Julian Harvey til að stjórna fleyinu. Eiginkona Harvey kom einnig með og ætlaði að sjá um matreiðslu. Þetta átti að verða mikil skemmtiferð og var það framan af. Hins vegar breyttist hún í hreinræktaða martröð og hrylling. Hin 11 ára gamla Terry Jo Duperrault upplifði það að verða skyndilega munaðarleysingi og við tóku hræðilegir sólarhringar þar sem hún flaut alein langt úti á hafi, án vatns né matar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #129 Grettir Ásmundarson

    Play Episode Listen Later Feb 1, 2023 121:38


    Í þessum þætti skoðum við aðalsöguhetju Grettis sögu sem er ein sú þekktasta af Íslendingasögunum. Raunar verður að spyrja sig hvort rétt er að nota orðið „hetja“ yfir Gretti því hann var glæpamaður og útlagi. Vissulega drýgði hann hetjudáðir og tókst á við ill öfl sem enginn annar réði við. Þó er það harmurinn sem ræður ríkjum í Grettis sögu. Hún er saga manns sem hafði margt til brunns að bera, fáheyrðan líkamlegan styrk en einnig mikið hugrekki og óttaleysi. Í fari hans voru þó alvarlegir skapgerðarbrestir sem urðu honum að lokum að falli. Grettis saga vekur því upp margar spurningar um hvað sé hin svokallaða „karlmennska“ og mögulega eru engar Íslendingasögur sem eiga jafn vel við umræðu samtímans. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #125 Nikola Tesla

    Play Episode Listen Later Jan 4, 2023 125:00


    Lengi vel var serbneski uppfinningamaðurinn Nikola Tesla þekktur sem maður sem hafði hugsað stórt en ekki komið megninu af hugmyndum sínum í verk. Samt var og er óumdeilt að hann hafi lagt sitt af mörkum á þeim tíma er vísinda og uppfinningamenn voru að leggja drög að þeirri vinnu sem átti eftir að skila okkur nútímafólkinu hreint stórkostlegum uppfinningum sem ekkert okkar gæti hugsað sér að vera án. Á seinni árum og sérstaklega með tilkomu Internetsins hefur umræðan um Tesla þó tekið á sig nokkurn sérstakan blæ. Hann hefur verið kallaður mikilvægasti uppfinningamaður allra tíma, verið ljósárum á undan öllum öðrum en afbrýðisöm illmenni á borð við Thomas Edison hafi haldið aftur af honum. Honum hafa verið eignaðar svo margar uppfinningar að ekki er nokkur vafi á Tesla sé ein ótrúlegasta mannvera sögunnar ef þetta er satt. En þar liggur efinn: Hvað er satt og hvað ekki? Þeir eru til sem trúa því án efa að Tesla hafi fundið upp m.a. fyrsta eiginlega riðstraumskerfið, radarinn, örbylgjusendinn, spennubreytinn, hátalarann og jafnvel flúrlampann. Ýmislegt fleira er eignað honum. Hví er þá Nikola Tesla ekki alls staðar viðurkenndur sem mesti uppfinningamaður og tæknifrumkvöðull allra tíma? Ef allt er satt sem um hann er sagt, ættu í raun að vera styttur af honum í öllum höfuðborgum veraldar. Í þessum þætti reynum við að skoða sögu þessa manns betur og fá úr því skorið hvort Nikola Tesla er hrein mýta, glæpsamlega vanmetinn eða sambland af hvoru tveggja. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #LD3 Hernámið á Austfjörðum

    Play Episode Listen Later Dec 7, 2022 135:13


    Baldur og Flosi fóru til Reyðarfjarðar í boði Fjarðabyggðar og Menningarstofu Fjarðabyggðar og fylltu þar gamlan hermannabragga af fólki. Síðan var farið að ræða hernámið í seinni heimsstyrjöld og sérstaklega var sjónum beint að Austfjörðum. Hvaða hlutverki gegndu Reyðarfjörður og Seyðisfjörður? Hvernig voru samskipti heimamanna og þessara ungu drengja sem voru langt frá heimkynnum sínum í harðbýlu og hrjóstrugu landi? Höfðu Þjóðverjar einhvern áhuga á Íslandi? Hvað olli því að Lenín minntist sérstaklega á Ísland í ræðu árið 1920, mörgum árum áður en styrjöldin braust út? Hví sagði þýski hershöfðinginn Karl Haushofer að sá sem réði Íslandi héldi á byssu sem væri miðað beint á Evrópu? Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #121 Íslandsvinurinn Pike Ward

    Play Episode Listen Later Nov 2, 2022 53:20


    Seint á 19. öld kom hingað Englendingur sem vildi kaupa fisk af Íslendingum. Englendingar voru á þessum tíma uppfullir af heimsveldishroka og vinsældir þeirra litlar víðast hvar. Ísland var þar engin undantekning. Enskir togaramenn vanvirtu ítrekað landhelgina og ollu skaða á veiðarfærum heimamanna og hikuðu ekki við að beita ofbeldi. Hvað var það þá í fari Pike Ward sem olli því að Íslendingar tóku ástfóstri við þennan mann? Sjálfur heillaðist hann af landinu, lærði tungumálið og eignaðist marga vini. Sumir telja að hann hafi haft ómetanleg áhrif á sjálfstæðisbaráttu og þjóðerniskennd íslendinga. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #117 Byltingin á Haítí

    Play Episode Listen Later Oct 5, 2022 176:42


    Líklega þekkja flestir til byltinganna í Ameríku 1776 og Frakklandi 1789. Þessir atburðir eru oft nefndir sem mikilvægt skref í átt að frelsi og lýðræði í veröldinni. Vissulega eru þetta merkisatburðir og höfðu gífurleg áhrif. Þó vill oft gleymast að þessar þjóðir veittu ekki öllum í ríkinu frelsi og réttindi. Í ríkjunum voru enn margar milljónir fólks sem höfðu verið svipt frelsi sínu og það breyttist ekki. Bæði Bandaríkin og Frakkland héldu áfram þrælahaldi með tilheyrandi ofbeldi og dauða. Lang arðbærasta nýlenda Frakka var Saint - Domingue, á eyjunni Hispaniola. Þar stritaði mikil fjöldi þræla við hryllilegan aðbúnað. Þeir sem ekki létust vegna harðræðis þrælahaldara máttu þola ásókn moskítóflugna sem báru með sér banvæna sjúkdóma eins og malaríu og gulusótt. Harðneskjan var svo grimmileg að jafnvel konungur Frakklands reyndi að stemma stigu við ofbeldinu. En allt kom fyrir ekki. Að lokum sauð upp úr og þrælarnir gerðu uppreisn gegn kvölurum sínum. Byltingin á Haítí er eina þrælabylting sögunnar sem ekki tókst að berja niður. Hún er ein áhrifamesta og merkilegasta uppreisn sögunnar og á skilið meiri umfjöllun. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #113 Hin djöfullega skelfing

    Play Episode Listen Later Sep 7, 2022 110:53


    Á fyrrihluta níunda áratugar reið einkennilegt fár yfir Bandaríkin. Foreldrar, forráðamenn og kennarar unglinga þóttu greina þess augljós merki að myrkrahöfðinginn sjálfur væri að ná tökum á þeim. Það þóttist sjá greinileg merki um fórnarathafnir og aðrar myrka starfshætti sem tengjast illþýði helvítis. Frétta - og spjallþættir voru uppfullir af umræðu um "satanic panic" og svo rammt kvað að þessu að bandaríska alríkislögreglan sá sig knúna til að setja saman teymi til að rannsaka hvort eitthvað væri hæft í þessu. Ýmis fyrirtæki urðu fyrir barðinu á þessu, þóttu ganga erinda Satans þótt þau framleiddu snyrtivörur eða annað saklaust. Hlutverkaspilið Dungeons & Dragons var fordæmt af þeim sem sáu Satan alls staðar. Þetta virkar hlálegt en á þessu er grafalvarleg hlið því þetta kostaði bandarískt samfélag margar milljónir dollara og saklaust fólk var svipt frelsi sínu og ærunni. Þetta var nánast eins og galdraofsóknir 17. aldar. En hefur "satanic panic" horfið með öllu eða aðeins breytt um svip? Í stað Satans er nú kominn hinn óþekkti Q og QAnon. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #108 Flóabardagi

    Play Episode Listen Later Aug 3, 2022 88:48


    Sturlungaöld er mesta ófriðartímabil í sögu Íslands. Þá hafði valdajafnvægi riðlast og sterkustu ættir landsins gerðust aðsópsmeiri í að eignast jarðir og öðlast völd. Sumir hafa lýst þessu tímabili sem hreinræktaðri borgarastyrjöld þó frekar hafi þetta verið valdabarátta í samfélagi sem enn byggðist upp á einhverskonar ættbálkaskipan. Mannskæðustu orrustur Íslandssögunnar voru háðar á þessum tíma. Þetta voru alvöru orrustur þar sem margar þúsundir börðust hatrammlega. Þann 25. júní 1244 átti sér stað eina sjóorrusta sem háð hefur verið við Íslandsstrendur, milli Íslendinga. Þar mættust þeir Þórður kakali Sighvatsson, af ætt Sturlunga og Kolbeinn "ungi" Arnórsson af ætt Ásbirninga. Talið er að á milli 8-900 manns hafi barist þar. Orrustan var háð á Húnaflóa. Þessi þáttur er í boði Draugahjarðarinnar. Ef þið viljið ganga í hóp framliðinna finnið þið Draugana á Patreon hér. Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #104 Harmsaga æfi minnar

    Play Episode Listen Later Jul 6, 2022 182:48


    Árið 1945 kom út ævisaga Jóhannesar Birkiland. Hún bar titil sem vart á sinn líka í Íslandssögunni. Bókin heitir "Harmsaga æfi minnar - Hvers vegna ég varð auðnuleysingi". Líklega hefur aldrei komið út bók á verri tíma. Hún átti ekkert erindi við almenning á þessum tíma. Fólk var uppnumið og spennt í hinu nýja lýðveldi, fullt af eldmóði tilbúið að takast á margvísleg og erfið verkefni hinnar ný-sjálfstæðu þjóðar. Bölmóður Birkilands var ekki það sem þurfti þá. Hann var hafður að háði og spotti en vegna atorku hans sjálfs, seldist bókin reyndar ágætlega. Hún hefur smátt og smátt mjakað sér fram í sólarljósið á ný enda er hún afar skemmtileg og stíllinn einstakur, rétt eins og Birkiland sjálfur. Þessi þáttur er í boði Draugahjarðarinnar. Ef þið viljið ganga í hóp framliðinna finnið þið Draugana á Patreon hér. Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #99 Paolo og plastbarkinn

    Play Episode Listen Later Jun 1, 2022 113:42


    Í þessum þætti skoðum við ítalska skurðlækninn Paolo Macchiarini. Hann þótti á sínum tíma einn fremsti læknir veraldar og var talið að aðgerðir hans myndu lyfta grettistaki og valda byltingu í líffæraígræðslum. Svo reyndist ekki vera og Macchiarini er nú miðpunktur í einu mesta hneykslismáli í gjörvallri sögu læknisfræðinnar. Það mál teygir jafnvel anga sína til Íslands því einn af þeim sem var svo óheppinn að lenda undir hnífnum hjá Macchiarini var Andemariam Beyene sem var þá námsmaður á Íslandi. Þetta mál er ógeðfellt og sorglegt. Því vörum við því að sumt sem fjallað er um getur valdið hlustendum óþægindum. Þessi þáttur er í boði Draugahjarðarinnar. Ef þið viljið ganga í hóp framliðinna finnið þið Draugana á Patreon hér. Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #95 Ólöf gerist eskimói

    Play Episode Listen Later May 4, 2022 123:37


    Flestum er okkur kennt að það sé ljótt að ljúga. Hins vegar eru margir sammála um að lífið getur verið torfæra og sjálfsagt að fólk bjargi sér eins vel og það getur, svo lengi sem það bókstaflega skaði ekki annað fólk. Ólöf Sölvadóttir beitti lyginni óspart sér í hag. Henni til varnar má þó benda á að hún hafði ekki fengið góða vöggugjöf. Ólöf var dvergur og fædd á 19. öld, þegar eitt mesta harðæri sem Ísland hafði kynnst, síðan í Móðuharðindunum, dundi yfir þjóðina og hrakti marga úr landi að freista gæfunnar annars staðar. Saga Ólafar er mögnuð. Auðvitað má segja að það sem hún gerði hafi, stranglega tekið, verið rangt. Þó er ekki hægt annað en dást að þeirri staðfestu og sjálfsbjargarviðleitni sem einkenndi þessa einstöku konu. Hér finnið þið Draugana á Patreon. Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    #94 Flotinn ósigrandi

    Play Episode Listen Later Apr 27, 2022 137:33


    Þann 28. maí árið 1588 lögðu um 150 skip af stað frá Lissabon. Markmið þeirra var að fara til Hollands og sækja þar innrásarlið sem átti að ráðast á England. Þessi leiðangur er kyrfilega greyptur í enska þjóðarsál sem stórfenglegur sigur Englands á einu mesta herveldi þessa tíma, að þetta hafi verið Davíð gegn Golíat. En er það raunin? Var England eitthvað aflminni en Spánn? Af hverju voru Spánverjar yfirhöfuð að standa í þessu risastóra verkefni? Við skoðum þetta og segjum einnig frá spænskum sjóliða sem upplifði hreint ótrúlegar hrakningar. Hér finnið þið Draugana á Patreon. Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

    Tilkynning um pásu

    Play Episode Listen Later Mar 3, 2022 2:43


    Við ætlum í smá pásu. Við munum samt halda Patreon-inu gangandi. Ef þið hafið áhuga á að skoða það betur finnið þið það hér: https://www.patreon.com/draugarfortidar Heyrumst síðar!

    #93 Refsivöndur Guðs

    Play Episode Listen Later Feb 23, 2022 100:22


    Rómverska heimsveldið stóð í um 1000 ár og náði að eignast fjölmarga óvini á þeim tíma. Sumir voru hættulegri en aðrir en sá sem þessi þáttur er um olli þeim miklum vandræðum og skelfingu. Nafn hans var Attila og hann var konungur Húna. Rómverjar gáfu honum meira að segja nafn þáttarins sem á frummálinu var "Flagellum Dei." Í þessum þætti skoðum við Atla og Húna hans ögn og reynum að komast að því hví nafn þessa manns er enn svo alræmt. Það eru Borg Brugghús/Bríó, Flyover Iceland og Bónus sem bjóða upp á Drauga fortíðar.

    #92 Konan með lampann

    Play Episode Listen Later Feb 16, 2022 88:47


    Flest höfum við líklega heyrt minnst á Florence Nightingale. Hún er almennt talin mikill frumkvöðull í hjúkrun og átti einna stærstan þátt í að breyta viðhorfi almennings á Vesturlöndum og víðar til greinarinnar. Hún lagði grunninn að nútíma hjúkrunarfræði sem víðast hvar er nú kennd á háskólastigi.   Það eru Borg Brugghús/Bríó, Flyover Iceland og Sjóvá sem bjóða upp á Drauga fortíðar.

    #91 Týr kemst í hann krappan

    Play Episode Listen Later Feb 9, 2022 106:49


    Þann 6. maí 1976 gerðist atvik á hafi úti sem hefði hæglega getað breytt Íslandssögunni. Þetta er eitt alvarlegasta atvikið í þorskastríðunum svokölluðu og mátti hársbreidd muna að flaggskip Landhelgisgæslunnar skyldi ekki sökkva og mannfall verða. Það eru Borg Brugghús/Bríó, Flyover Iceland og Rokksafn Íslands sem bjóða upp á Drauga fortíðar.

    hann landhelgisg
    #90 Bjartari en þúsund sólir

    Play Episode Listen Later Feb 2, 2022 83:50


    Anatoli Bugorski var að athuga bilun í stærsta eindahraðli Sovétríkjanna árið 1978. Þá var hann skotinn í hnakkann. Ekki með byssukúlu heldur brást öryggiskerfið all illilega og Bugorski fékk banvænan geisla á ljóshraða í gegnum höfuð sitt. Þetta skot innihélt margfalt meira magn af geislun en nokkur maður á að þola. Talið er að geislamagnið hafi verið hátt í 300.000 röntgen en 500 röntgen er nóg til að ganga af manneskju dauðri. Það eru Borg Brugghús/Bríó og Flyover Iceland sem bjóða upp á Drauga fortíðar.

    #89 Guð er dauður!

    Play Episode Listen Later Jan 26, 2022 145:20


    Af fjölmörgum heimsspekingum sem hafa reynt að leiðbeina okkur í gegnum táradalinn og tilvistarkreppuna, er Friedrich Nietzsche líklega einn sá þekktasti og áhrifamesti. Flest okkar þekkjum fræga frasa hans eins og til dæmis nafn þáttarins. En hvað átti Nietzsche við er hann sagði Guð dauðan? Hvað meinar hann er hann segir að við eigum að reyna að verða ofurmenni? Var Nietzsche nasisti og gyðingahatari? Hví er Nietzsche ennþá svona vinsæll? Í þessum þætti reynum við að kynnast þessum sérstaka náunga með hið magnaða yfirskegg ögn nánar. Það eru Borg Brugghús/Bríó, Bónus og Sjóvá sem bjóða upp á Drauga fortíðar.

    #88 Nostradamus: Sjáandi eða svikahrappur?

    Play Episode Listen Later Jan 19, 2022 121:43


    Véfréttir, sýnir, bölbænir, berdreymni eða spádómar. Í gegnum mannkynssöguna hefur ekki verið skortur á fólki sem hefur talið sig sjá lengra en nefið nær. Þó er nokkuð athyglisvert að af öllum þeim frægu spámönnum sem hafa birst í gegnum tíðina, þá gnæfir einn yfir öllum hinum: Nostradamus. Þó að hann hafi nú legið í gröf sinni í fjórar og hálfa öld hefur orðspor hans lítið dvínað. Hvað veldur því? Er yfirhöfuð eitthvað að marka manninn sem sagt er að hafi séð fyrir ris og fall Adolf Hitlers, morðið á John F. Kennedy og fall tvíburaturnanna? Það eru Borg Brugghús/Bríó, Bónus og Rokksafn Íslands sem bjóða upp á Drauga fortíðar.

    #87 Uppgjöf er ekki í boði

    Play Episode Listen Later Jan 12, 2022 136:58


    Á Vesturlöndum erum við vön því að heyra sögur af hermönnum sem gáfust upp og voru þá meðhöndlaðir samkvæmt alþjóðalögum um meðferð stríðsfanga, svokallaðri Genfar-samþykkt. Ekki hafa þó allar þjóðir samþykkt þessi lög. Einnig má finna ýmislegt hrollvekjandi í menningu ýmissa landa, hvað varðar stríð og uppgjöf. Sums staðar er það, að gefast upp fyrir óvininum, álitið svo mikil smán að viðkomandi á nánast ekki heimangengt og er fyrirlitinn af öllum. Þessi þáttur fjallar um hermenn sem héldu áfram baráttu, jafnvel þó stríðinu væri löngu lokið. Það eru Borg Brugghús/Bríó, Flyover Iceland og Bónus sem bjóða upp á Drauga fortíðar.

    #86 Joseph Beyrle

    Play Episode Listen Later Jan 5, 2022 87:39


    Sögusviðið er seinni heimsstyrjöld 1944 -1945. 19 ára gamall drengur frá Michican-fylki í Bandaríkjunum kastar sér niður í fallhlíf yfir Frakklandi. Hann er fljótt tekinn til fanga og færður í þýskar fangabúðir. Þaðan reynir hann ítrekað að sleppa og tekst það nokkrum sinnum en alltaf handsamaður aftur. Í eitt skiptið nær hin illræmda Gestapó honum og hann er heppinn að lifa af þau kynni. Að lokum sleppur hann og finnur sovéska skriðdrekasveit sem stjórnað er af Alessöndru Samusenku, eini skriðdrekaforinginn í síðari heimsstyrjöld sem var kona. Með þeim tekst vinátta, Josehp berst með sovéska hernum og tekst meira að segja að frelsa fangabúðirnar þar sem hann sjálfur var í haldi. Sumar sögur eru þannig að maður hugsar: "Af hverju er ekki búið að gera kvikmynd um þetta!?" Þetta er ein af þeim sögum. Joseph Beyrle er bandarísk hetja en hann er jafnvel enn meiri hetja í Rússlandi, einnig í nútímanum. Vandamálið er bara að Rússland og Vesturlönd hafa nær aldrei verið neitt sérstakir vinir. Þess vegna er þessi kvikmynd ekki til. Nú er þó til íslenskur hlaðvarðsþáttur um hina ótrúlegu sögu Joseph Beyrle. Það eru Borg Brugghús/Bríó og Bónus sem bjóða upp á Drauga fortíðar.

    Claim Draugar fortíðar

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel