POPULARITY
Mánudagurinn 21. október Kosningar, frambjóðendur, blaðamennska, Grindavík og Gaza Við höldum áfram þjóðfundi um komandi kosningar: Þórður Gunnarsson hagfræðingur, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Jón Magnús Kristjánsson læknir og Brynhildur Björnsdóttir fjölmiðlakona ræða pólitíkina og síðan koma: Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur, Hrafn Jónsson kvikmyndagerðarmaður og Lóa Hjálmtýsdóttir myndlistarkona og greina stöðuna. Kristinn Hrafnsson blaðamaður greinir þunga stöðu blaðamennsku á Íslandi sem og í umheiminum og Magnús Gunnarsson trillukarl ræðir tímamótin sem urðu í dag þegar Grindavík var opnuð. Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Hildur Þórðardóttir ræða við Maríu Lilju Ingveldar-Þrastardóttur Kemp um þjóðarmorðin á Gaza.
Á dögunum gaf Netflix streymisveitan áhorfstölur út í fyrsta sinn. Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður, rýnir í Netflix-tölfræði eða skort á henni. Og við veltum því fyrir okkur hvers vegna það er svona erfitt að nálgast áhorfstölur eftir tilkomu streymisins. Kolbeinn Rastrick rýnir í nýja mynd frá framleiðslufyrirtækinu A24, myndina Dream Scenario í leikstjórn hins norska Kristoffer Borgli.

Föstudagurinn 27. október Vikuskammtur: Vika 43 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur, Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir sviðslistakona og handritshöfundur, Hrafn Jónsson pistlahöfundur og Jovana Pavlović mannfræðingur og ræða fréttir vikunnar sem spanna sigur og samstöðu, átök og hörmungar, uppljóstranir og umdeild mál.Vikuskammtur: Vika 43Vikuskammtur: Vika 43
Föstudagurinn 15. september Vikuskammtur: Vika 37 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Hjördís Rut Sigurjónsdóttir upplýsingafulltrúi, Hrafn Jónsson pistlahöfundur, María Pétursdóttir formaður húsnæðishóps ÖBÍ og Þorvarður Bergmann Kjartansson stjórnarmaður í VR og ræða fréttir vikunnar sem markaðist af þingbyrjun, eldhúsdegi og fjárlagafrumvarpi en ekki síður kynfræðslu í skólum, löxum og hvölum.
Meðal annarra flytjenda: Arnold Schwarzenegger, Árstíðir, Miðnes, Fleetwood Mac og Árni Tryggvason.

Stóra alþjóðlega fréttamál ársins er stríðið í Úkraínu. Um það eru flestir sammála. Við litum um öxl með Alberti Jónssyni sendiherra og sérfræðingi í alþjóðamálum og Boga Ágústssyni fréttamanni, fórum yfir stöðuna núna og horfðum til ársins 2023. Svo settist Bogi við Heimsgluggann og fór yfir ýmislegt annað sem gerst hefur á árinu sem er að líða. Og við rifjuðum upp viðtal frá því í nóvember við Stefán Hrafn Jónsson prófessor og forseta félagsvísindasviðs Háskóla Íslands um þá staðreynd að árið 2023 urðu jarðarbúar átta milljarðar talsins. Tónlist: Sleepless - Anna Gréta Sigurðardóttir

Er hugsanlegt að inntaka á sýklalyfjum snemma í barnæsku geti haft áhrif á heilsu barna síðar meir, eins og til dæmis svörun við bólusetningum? Birta Bæringsdóttir starfar sem sérnámslæknir á Barnaspítalanum og er að gera rannsókn sem snýst um þetta. Sýklalyf geta haft áhrif á þarmaflóruna í meltingarveginum sem er mikilvæg fyrir þroska ónæmiskerfisins og hugsanlegt er að sýklalyfjanotkun geti valdið því að einstaklingar séu útsettari fyrir sýkingum. Við tölum við Birtu hér á eftir. Við fáum nýjan vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag eins og undanfarna mánudaga. Í þetta sinn ber hann vinkilinn að lestarteinum. Meira um það hér á eftir. Og lesandi vikunnar í dag er Árni Árnason, rithöfundur. Hann var að senda frá sér bókina Vængjalaus. En í dag ætlar hann að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Árni talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Mars eftir Sunnevu Kristínu Sigurðardóttur Ólöf eskimói efir Inga Dóra Björnsdóttir Þar sem vegurinn endar eftir Hrafn Jökulsson Eyjan hans Múmínpabba eftir Tove Janson Takk fyrir komuna eftir nemendur í ritlist Mánasteinn eftir Sjón Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson Vigdís Grímsdóttir, Frederik Backman, Jonas Jonasson og Paul Auster. Tónlist í þættinum í dag: Hámenningin / Halli Reynis (Halli Reynis) Ást er æði / Björgvin Halldórsson og Ragnheiður Gröndal (Sam & Ruby og Kristinn G. Bjarnason) Bruce Springsteen / Used cars (Bruce Springsteen) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Um helgina voru liðin 55 ár frá því að Flatey á Skjálfanda fór í eyði. 12. nóvember 1967 fluttust síðustu íbúarnir upp á land. Af því tilefni voru leikin tvö brot úr erindi um Flatey sem Sverrir Bergmann flutti í útvarpi 1962 en hann sleit barnskónum í eynni. Jarðarbúar verða 8 milljarðar á morgun, gangi spár eftir. Stefán Hrafn Jónsson, mannfjöldafræðingur og forseti Félagsvísindasviðs Háskóla íslands, fór yfir þróun mannfjöldans og spár en útlit er fyrir að fólki fjölgi enn næstu hundrað árin eða svo en taki svo að fækka. Ekki hefur verið staðið við fögur fyrirheit um framlög banka, fjárfestingasjóða og lífeyrissjóða til grænna fjárfestinga í heiminum. Slík fyrirheit voru gefin í tengslum við Loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow í fyrra en aðeins brot af lofuðum fjárhæðum hefur skilað sér. Orkukrísunni í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu er fyrst og fremst kennt um. Ásgeir Brynjar Torfason, sérfræðingur í fjármálum, sagði frá. Í dag eru birtar fyrstu niðurstöður í manntalinu sem gert var á Íslandi í fyrra. Af því tilefni kom Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri í þáttinn og sagði frá manntalinu og Hagstofunni og svolítið frá sjálfri sér. Tónlist: Streets of London - Roger Whittaker, Þjóðvísa - Guitar Islancio, Braggablús - Guitar Islancio. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Nope, nýjasta mynd bandaríska leikstjórans Jordan Peele kom út í sumar. Geimverumynd sem gerist á hestabúgarði í Kaliforníu. Hingað í Lestina kemur Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður og spekúlant til að ræða Nope og þemu myndarinnar, sem varð til í miðjum heimsfaraldri. Hljóðbókaveitan Storytel er í auknum mæli að snúa sér að framleiðslu hlaðvarpa og útvarpsleikrita - það sem þau kalla reyndar hljóðseríur. Fyrsta íslenska hljóðserían frá Storytel fór í loftið í sumar: Skerið, sem fjallar um íslenskan sjomla sem vaknar upp í óþekktu hótelberbergi eftir djamm á Tenerife. Hann kemst ekki af eyjunni, símasamband er stopult og dularfullir atburðir byrja að eiga sér stað. Við ræðum við höfunda Skersins, parið Áslaugu Torfadóttur og Ragnar Egilsson. Og við ætlum að heyra nýja lagið frá Björk Guðmundsdóttur, Atopos, fyrsta lagið af væntanlegri plötu hennar Fossora, og ræða myndbandið sem inniheldur sveppi og sex bassaklarinett.

Það er komið að seinni undanúrslitaviðureigninni í sjónvarps- og kvikmyndahristingi. Hvert verður síðara liðið sem tryggir sér sæti í úrslitum á annan dag jóla? Í keppni dagsins mæta Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas og Hrafn Jónsson liði Hafsteins Sæmundssonar og Donnu Cruz í æsispennandi viðureign.

Þéttur kraftklukkutími í Mike Show. Langur fösssari handan við hornið. Fát á KSÍ með tilkynningu á landsliðshópnum, Liverpool klára 3.sætið, Lengjudeildin, 2.deild og Tindastóll að sýna fanta innkomu í kvennaboltanum. Enski boltinn, Evrópa, Dominos deildin og MasterMike í lok þáttar. Mike að sprauta rjóma í eyrun á þér.
Hrafn Jökulsson lá í sjúkrarúmi á bráðamóttökunni vegna meins í hjarta, sem var afleiðing áfengisdrykkju, þegar hann heyrði fyrst fregnir af heimsfaraldri. Hann ákvað að hætta að drekka og byrja að taka til í lífinu og í náttúrunni. Síðasta ár hefur hann tekið til hendinni í Kolgrafarvík og nú er verið að endurútgefa bók hans Þar sem vegurinn endar sem fjallar um hans uppáhalds slóðir. Hrafn Jökulsson rithöfundur hefur heitið því að skera ekki hár sitt fyrr en Kolgrafarvík á Ströndum í Árneshreppi hefur verið frelsuð og því er hann kominn með nokkuð mikinn lubba. Ásamt félögum sínum í Veraldarvinum gekk hann á síðasta ári í það viðamikla verkefni að hreinsa Kolgrafarvík og bindur hann vonir við að fá tækifæri til að fara í klippingu þegar verkinu lýkur.

Hrafn Jökulsson: Hrafn hefur í sumar staðið fyrir hreinsun á fjörum við Kolgrafarvík í Árneshreppi og víðar. Hann hefur skuldbundið sig til fjögurra ára í verkið. Heiðrún Ólafsdóttir skálavörður í Þórsmörk: Heiðrún segir frá lífi og starfi í Þórsmörkinni. Edda Olgudóttir : Í vísindaspjalli þessa mánudags fjallar Edda um erfðabreyttar moskítóflugur.

Í þætti dagsins mætir lið leikara, þau Arnmundur Ernst Backman og Ebba Katrín Finsdóttir, liði radda almennings sem í eru Hrafn Jónsson og Kamilla Einarsdóttir.

Viðta: Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður fjallar um heimildarmyndina The Dawn Wall. Pálmi Freyr Hauksson: Einhleyp, einmana og eirðarlaus. Rebecca Scott Lord flytur fregnir af LungA.
Hvernig skipuleggur þjóð samgöngur þegar fé er takmarkað? Mannfjöldinn er mestur á höfuðborgarsvæðinu en kílómetrarnir eru flestir utan þess. Hvaða sjónarmið eru til grundvallar þegar ákvarðanir eru teknar um útdeilingu fés til samgöngumála? Þóroddur Bjarnason prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri er gestur hlaðvarpsins að þessu sinni og ræðir við Stefán Hrafn Jónsson um samgöngur og byggðastefnu. Samtal Stefáns og Þóroddar var tekið í framhaldi af erindi Þóroddar, Lítil þjóð í stóru landi hefur ekki efni á...“ Þjóðernishyggja, nýfrjálshyggja og byggðastefna á Íslandi, sem hann hélt við Háskóla Íslands þann 12. mars 2019. Erindið má finna hér.
Í umræðum um kjör fólks í yfirstandandi kjarabaráttu bera húsnæðismál oft á góma. Í því samhengi hefur m.a. verið minnst á erfiða stöðu fólks á leigumarkaði, kjarabætur sem tapast í hærri húsaleigu og óboðlegar aðstæður erlendra verkamanna sem og innlends láglaunafólks. Jón Rúnar Sveinsson félagsfræðingur er gestur vikunnar í hlaðvarpi og spjallar við Stefán Hrafn Jónsson prófessor í félagsfræði um húsnæðismál, m.a. um breytingar á íslenska húsnæðismarkaðnum þar sem stór hluti fólks þarf nú að leigja íbúðarhúsnæði þrátt fyrir að séreignastefna hafi verið ríkjandi um langt árabil. Eftir doktorsnám starfaði Jón Rúnar Sveinsson m.a. hjá Húsnæðisstofnun ríkisins og hjá Íbúðalánasjóði. Hann var sérfræðingur hjá Borgarfræðasetur Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar og síðar hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst auk þess að starfa sem sjálfstætt starfandi fræðimaður í Reykjavíkurakademíunni. Með störfum sínum hefur Jón Rúnar áunnið sér sess sem einn helsti sérfræðingur landsins um húsnæðismál. Hann hefur í störfum sínum m.a. fjallað um þróun húsnæðismála og um borgarfræði.
Í Lestarklefanum í dag ræða þau Erla Björg Gunnarsdóttir fréttastjóri Stöðvar 2, Hrafn Jónsson kvikmyndagerðarmaður og Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur um sjónvarpsþættina Ófærð, yfirlitssýningu á verkum Eyborgar Guðmundsdóttur á Kjarvalsstöðum og leiksýninguna Club Romantica í Borgarleikhúsinu. Umsjónarmaður er Bergsteinn Sigurðsson.

Frjósemi á Íslandi hefur lækkað á undanförnum árum, og er nú komin niður í 1,7 börn á ævi hverrar konu. En hvaða félagslegu, efnahagslegu og pólitísku afleiðingar hefur lækkandi fæðingartíðni fyrir Ísland? Hvernig getur hagkerfi sem byggir á fjölgun ráðið við lága fæðingartíðni? Gestur Kjartans í þætti vikunnar er Stefán Hrafn Jónsson, prófessor í félagsfræði og lýðfræðingur, sem ræðir um þær áskoranir sem lækkandi fæðingartíðni hefur í för með sér. Kjarninn í samstarfi við Storytel bíður þér að hlusta frítt á þúsundir hljóðbóka í símanum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.storytel.is/kjarninn og byrja að njóta. Storytel.is, þúsundir hljóðbóka í símanum þínum.
Gísli Marteinn Baldursson ræðir við Hrafn Jónsson um Tinnabókina Krabbinn með gylltu klærnar.
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um enska tónlistarmanninn David Sylvian en hann varð sextugur í síðustu viku. Sylvian á að baki langan og glæsilegan feril sem hófst á áttunda áratugnum með hljómsveitinni Japan, sem naut mikillar virðingar á sínum tíma. Í kjölfarið fylgdi sólóferill sem einkennst hefur af stöðugri leit, stöðugri þróun. Valgeir Sigurðsson tónlistarmaður þekkir vel til verka Sylvians og hann verður gestur Lestarinnar í dag. Hljómsveitin Gusgus er olían og gangverkið í íslenskri danstónlist, og þeirra síðasta skífa er slípuð og straumlínulöguð eining sem svíkur engan. Davíð Roach Gunnarsson setur sveigjanlegar lygar í hátalarakerfi Lestarinnar í dag og fjallar um nýútkomna breiðskífu Gusgus, The Lies are More Flexible. Á N1 Ártúnshöfða er starfsmaður sem þykir hafa afar góð áhrif á viðskiptavini sína. Lestin kom við í bílalúgunni í Ártúnshöfða og ákvað að kynnast manninum betur. Og Tinnabók dagsins er Krabbinn með gylltu klærnar, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar í dag verður Hrafn Jónsson. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður og pistlahöfundur á Kjarnanum, er gestur Hismisins þessa viku. Hann var að gefa út bók.