POPULARITY
Martin Hermannsson er besti körfuboltamaður landsins og þarf varla að kynna. Hann sleit krossband í leik með félagsliði sínu, Valencia, í maí 2022 en er kominn á gott skrið með liðinu á nýjan leik. Meiðslin tóku á andlegu hliðina en á sama tíma gafst tími fyrir fjölskyldu og vini. Martin fer yfir lífið í Valencia, grátlegan endi á undankeppni HM og lífið utan vallar í íþróttavarpi dagsins. Umsjón: Kristjana Arnarsdóttir

Í dag gamlársdag er á dagskrá sérstakur viðhafnar áramótahristingur. Allar spurningar dagsins munu tengjast árinu sem er að líða og í dag munu sitja þrír keppendur í hvoru liði sem bæði mynda fjölmiðlafólk af ýmsum miðlum. Fólk sem var áberandi á árinu, það skemmtilega sem gerðist, það skrýtna, það fréttnæma, Swedengate, boðorðin níu, sveitarstjórnarkosningarnar 2022 og fleira kemur við sögu í keppni dagsins. Gestaspyrill með Jóhanni Alfreð er Kristjana Arnarsdóttir. Oddur Þórðarson, fréttamaður situr sem stigavörður og er meðhöfundur spurninga ásamt Helga Hrafni Guðmundssyni. Liðin tvö sem mætast eru Atlið sem í eru Hólmfríður Ragnhildardóttir frá Morgunblaðinu, Sunna Valgerðardóttir frá Rás 1 og Atli Ísleifsson frá Stöð 2 og Vísi. Þau mæta liði Festivalsins sem mynda Berglind Pétursdóttir úr ritstjórn Vikunnar með Gísla Marteini, Freyr Rögnvaldsson frá Stundinni/Kjarnanum og Oddur Ævar Gunnarsson, Fréttablaðinu.
Minnst 35 létust í loftárásum Rússa í vestanverðri Úkraínu í gær en talsmaður úkraínskra yfirvalda býst við niðurstöðum í friðarviðræðum við Rússa á næstu dögum. Við ræddum við Óskar Hallgrímsson, ljósmyndara sem er búsettur í Kænugarði, um stöðuna þar og hann sagði Úkraínumenn hvergi hvika. Stríð eins og það sem nú geisar í Evrópu hefur vitaskuld hörmuleg og víðtæk áhrif á heilsu þeirra sem fyrir verða. Fyrir utan beinar afleiðingar árása versnar aðgengi að spítölum, lyfjum og öðrum birgðum, og þá er hætta á að ekki sé hægt að veita aðra þjónustu, líkt og barna- og mæðravernd, sem og meðferð við öðrum sjúkdómum. Hætta er á að smitsjúkdómar breiðist út og þá eru ótalin mikil áhrif á andlega líðan og heilsu fólks sem streita og kvíði vegna átaka og flótta hefur á fólk beint í kjölfarið á heimsfaraldri til tveggja ára. Við ræddum áhrif stríðs á heilsu fólks við Ölmu Möller. Matvöruverð hefur hækkað verulega í Evrópu undanfarnar vikur og mánuði og ætla má að innrás Rússa í Úkraínu hafi þar veruleg áhrif. Við töluðum við Auði Ölfu Ólafsdóttur, verkefnastjóra verðlagseftirlits ASÍ, um áhrifin hér heima og hvort verslanir flytji aðfangahækkanir beint út í verðið. Gríðarlegur vöxtur er í íslenskum tölvuleikjaleikjaiðnaði en starfsfólki hefur fjölgað hjá leikjafyrirtækjum um 35 prósent á tveimur árum. Íslensk tölvuleikjafyrirtæki eru í kringum 16 talsins en 13 þeirra eru í Samtökum leikjaframleiðanda. Við fengum formann samtakanna, Þorgeir Frímann Óðinsson, til okkar til að ræða þessa miklu siglingu á bransanum Utanríkisráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, var gestur okkar og við ræddum við hana um hlutverk Íslands þegar kemur að innrás Rússa í Úkraníu, verkefni öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli og hvernig smáríki líkt og okkar getur lagt sitt til, en ráðherra hefur sagt að við getum ekki staðið aðgerðarlaus hjá þegar alþjóðalög er brotin á jafn blygðunarlausan hátt og stórveldið Rússland hefur gert. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður kíkti við hjá okkur og fór yfir helstu tíðindi af íþróttum helgarinnar. Tónlist: Sigga, Beta og Elín - Með hækkandi sól. Van Morrison - Moondance. David Bowie - Heroes. Karl orgeltríó og Salka Sól - Bréfbátar. Júníus Meyvant og KK - Skýjaglópur. Todmobile - Ég heyri raddir. The Beatles - Do you want to know a secret. John Mayer - Carry me away.

Aukaþáttur: Kristjana Arnarsdóttir kom í Íþróttavarpið í dag og fór yfir tíðindi síðasta sólarhrings og þau skakkaföll sem orðið hafa á íslenska landsliðinu í handbolta á EM. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Gunnar Birgisson.

Íþróttavarp RÚV er helgað EM karla í handbolta í janúar. Í þáttunum fá Gunnar Birgisson og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson til sín góða gesti til að fara yfir mótið og öllu því helsta sem því við kemur. Einar Örn Jónsson og Kristjana Arnarsdóttir komu í þennan þátt til að spá í spilin. Kristjana upplýsti meðal annars um að Ólafur Stefánsson verði með henni og Loga Geirssyni í EM stofunni í ár.

Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow lýkur á morgun en í gær voru birt drög að samkomulagi ríkja sem sækja ráðstefnuna. Við ræddumvið Berglindi Rán Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar, sem er í Glasgow um fyrirhugaðar aðgerðir fyrirtækja. 11. nóvember hefur í nokkur ár verið kallaður singles day af verslunarfólki sem bjóða mikla afslætti og tilboð þennan dag ár hvert. Við ræddum um umhverfisvernd í þessu samhengi við Brynju Dan Gunnarsdóttir, upphafskonu Dags einhleypra á Íslandi, og Karen Björk Eyþórsdóttur, verkefnastjóra sjálfbærnimælikvarða hjá Reykjavíkurborg. Atvinnuleysi minnkaði lítillega í október frá fyrri mánuði. Vinnumálastofnun spáir þó auknu atvinnuleysi í nóvember vegna árstíðasveiflu. Við ræddum við Unni Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar. Allt stefnir í að íbúðverð hækki um 14 prósent á þessu ári. Við ræddum við Ingólf Bender, aðalhagfræðing Samtaka iðnaðarins, og Pawel Bartoszek, formann skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, um stöðuna á húsnæðismarkaði. Davíð Kjartan Gestsson menningarblaðamaður mætti til okkar með það nýjasta úr heimi tölvuleikjanna. Meðal annars var rætt um nýjan hljóðheim tölvuleiksins Battlefield sem Hildur Guðnadóttir samdi tónlistina fyrir. Kvennalandslið Íslands í körfubolta og karlalandslið Íslands í fótbolta mæta Rúmeníu í dag. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttakona ræddi við okkur um leikina.

Í þættinum er fylgst með því þegar Auður Aðalsteinsdóttir fagnaði útkomu bókar sinnar Þvílíkar ófreskjur, vald og virkni ridóma á íslensku bókmenntasviði.Þar heyrist í Jóni Ólafssyni heimspekingi og prófessor við HI. Einnig les Auður féin brot úr bókinni og rætt er við hana. Þá er í þessum fyrsta þætti haustisins byrjað að kynna bókmenntaverkin sem tilnefnd eru til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og til Barna- og ungilingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og að þessu sinni hugað að tilnefningum Svía til fyrnefndu verðlaunanna. Sagt er frá nóvellunni Strega eftir Johanne Lykke Holm og frá smásagnasafninu Renhet eftir Andzej Tychí. Lesarar í þættinum eru Þórhildur Ólafsdóttir, Davíð Kjartan Gestsson og Kristjana Arnarsdóttir

Leiðsögumenn eru meðal þeirra stétta sem fóru illa út úr faraldrinum. En nú streyma flugvélarnar aftur til landsins fullar af fróðleiksþyrstum ferðalöngum og má segja að ferðamennskan sé að ná sér á flug að nýju. Við forvitnuðumst um hljóðið í leiðsögumönnum hjá Friðriki Rafnssyni, nýkjörnum formanni Leiðsagnar, félags leiðsögumanna. Það var mikið áfall fyrir þá sem á horfðu að sjá Christian Eriksen leikmann danska landsliðsins í knattspyrnu hníga niður í leik Dana og Finna á EM um helgina. Sem betur fer báru endurlífgunartilraunir árangur og leikurinn fór fram í fyrrakvöld eftir að fregnir bárust um að Eriksen væri á batavegi. Margir hafa hins vegar gagnrýnt þá ákvörðun og segja leikmenn ekki hafa verið í nokkru ástandi til að takast á við verkefnið eftir þessa upplifun. Reynir Björnsson læknir þekkir til umgjarða landsleikja hvað þetta varðar, en hann hefur starfað fyrir KSÍ við landsleiki. Við fengum hann til að fara yfir þessi mál með okkur og hvernig læknisskoðunum og eftirliti með afreksfólki er háttað. Nýverið fundust mannabein við Ketilsstaði á Tjörnesi, m.a. hauskúpa sem talin er vera af konu. Beinin eru talin vera mjög gömul og hafa verið send til Reykjavíkur til frekari aldursgreiningar, eins og fram kemur á norðlenska svæðismiðlinum vikubladid.is. En hversu algengt er að mannabein finnist og hvaða ferlar fara af stað þegar það gerist? Til að fræða okkur um þetta fengum við til okkar Hildi Gestsdóttur frá Fornleifastofnun, en hún hefur mikla reynslu af mannabeinarannsóknum. Um liðna helgi hófst menningarhátíð á Café Dunhaga í Tálknafirði sem standa mun áfram um helgar í sumar. Dunhagi er gamalt samkomuhús, reist 1933, en þar er í dag rekinn veitingastaður á neðri hæðinni, en efri hæðin hýsir samkomusal þar sem hátíðin fer fram. Hlín Agnarsdóttir, heldur um stjórnartauma hátíðarinnar og við slógum á þráðinn vestur til hennar þar sem hún er í menningarverbúð og heyrðum meira. Við fórum svo yfir tíðindi af íþróttum helgarinnar en þar var af nógu að taka. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður kom til okkar. Tónlist: Jónas Sig - Milda hjartað. Vök - Lost in weekend. Moses Hightower - Lífsgleði. Kiriyama Family - Bubbi Morthens - Ennþá er tími. Blondie - Maria. Bjarni Ara - Þegar sólin sýnir lit. Bono, The Edge, Martin Garrix - We are the people.

Mikil aukning hefur orðið í gæludýraeign landsmanna undanfarin misseri, ekki síst í faraldrinum, og nú er svo komið að langir biðlistar eru eftir kettlingum og hvolpum t.d. En að ýmsu þarf að huga þegar fjórfættur fjölskyldumeðlimur bætist í hópinn og Hulda fór í heimsókn, ásamt kettlingnum Núma, í Dýraspítalann í Víðidal og hitti þar fyrir dýralækninn Halldóru Hrund Guðmundsdóttur sem fræddi hana um ýmislegt sem fylgir gæludýrahaldinu. ADHD samtökin hafa lýst þungum áhyggjum af skorti á geðlæknaþjónustu við fullorðna einstaklinga með ADHD. Grafalvarlegt ástand hefur skapast hjá þessum hópi sem þarf að leita sér þjónustu geðlækna til greiningar- og lyfjameðferðar, en biðlistinn hjá LSH í dag er rúmlega þrjú ár. Vilhjálmur Hjálmarsson formaður ADHD samtakanna kom til okkar og ræddi þetta mál. Um þessar mundir er að koma út 30 ára afmælisútgáfa af hlutverkaleikjatímaritinu Fáfni sem er gefið út af samnefndu spilafélagi. Á þessum 30 árum hafa mót verið haldin reglulega og það fjölmennasta með 330 þátttakendum. Meðal annars varð verslunin Nexus til upp úr þessari senu. Þorsteinn Kristjáns Jóhannsson er maðurinn sem veit allt um þetta og hann mætti til okkar ásamt konu sinni, Önnu Guðrúnu Guðjónsdóttur, sem skrifaði BA ritgerð í sagnfræði um sögu spunaspila eða hlutverkaspila á Íslandi. Anna segir hlutverkaspil ná til krakka sem ekki stunda íþróttir og eru jafnvel félagslega einangraðir. Spilin hreinlega auki félagsfærni. Þau hjónin komu til okkar í létt spjall. Ennþá gýs við Fagradalsfjall og þangað streymir fólk á hverjum degi. Breytingar hafa þó orðið á gosinu, kvikustrókar hafa komið og farið og komið aftur og gígar gosið og ekki gosið osfrv. Við tókum stöðuna á gosinu hjá Kristínu Jónsdóttur hópstjóra Náttúruvárvaktar Veðurstofu Íslands og forvitnuðumst aðeins um mögulegt framhald. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður kíkti svo til okkar upp úr hálfníu og fór yfir helstu tíðindi af íþróttum helgarinnar. Tónlist: Jón Ólafsson - Frétt númer þrjú. Friðrik Dór - Í síðasta skipti. Bruce Springsteen - Ill see you in my dreams. GCD - Mýrdalssandur. Bjartmar og Bergrisarnir - Á ekki eitt einasta orð. Miley Cyrus - Midnight Sky. Simply Red - Something got me started. Japanese breakfast - Be sweet. Bjarni Arason - Þegar sólin sýnir lit.

Félagsmálaráðuneytið gerir nú tekjulágum fjölskyldum kleift að sækja styrki upp á 45.000 krónur vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna fædd á árunum 2005-2014. Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Alls verður um 900 milljónum króna varið í verkefnið árin 2020 og 2021. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, segir aðgerðir stjórnvalda mikilvægt innlegg gegn neikvæðum áhrifum COVID-faraldursins og hjálpi til við að gera öllum kleift að vera með og taka þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Auður var á línunni. Í gær var haldinn íbúafundur á Flateyri þar sem fulltrúar viðbragðsaðila fóru yfir aðgerðir sem gripið hefur verið til í kjölfar snjóflóðanna 14. janúar sl. og viðbrögð við uppfærðu hættumati og rýmingaráætlun. Helena Jónsdóttir verkefnastjóri á Flateyri var á línunni og sagði okkur frá stöðu mála. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður hefur dvalið á Spáni og víðar í Evrópu undanfarna mánuði og líkar vel. Hún birti færslu um daginn þar sem hún hvatti fólk til að pakka niður og drífa sig suður á bóginn. Við hringdum til hennar á Spáni og heyrðum af lífinu þar. Skýrsla OECD, Efnahags og framfarastofnunar Evrópu, sem kynnt var á dögunum hefur fallið í grýttan jarðveg hjá iðngreinunum. Lagt er til að löggilding fyrir t.d. ljósmyndara og bakara verði lögð niður. Bakarar segja að OECD virðist hvorki hafa kynnt sér aðstöðu bakaraiðnarinnar né aðgengi að námi og nemasamningum þegar stofnunin lagði til að löggildingin yrði lögð af. Sigurður Már Guðjónsson í Bernhöftsbakaríi segir tillögurnar grófa aðför að gæðum og fagmennsku í landinu og að verið sé að lögleiða fúsk. Við heyrðum í Sigurði. Við kíktum í tæknihornið í dag þegar Guðmundur Jóhannsson heimsótti okkur með tíðindi af tækni og ræddi þar samfélagsmiðla. Tónlist: Ásgeir Trausti - Bernskan. Thin Jim and the Castaways - Leaves still green. Duffy - Warwick Avenue. Queen - Somebody to love. Herbert Guðmundsson - Lífið. Dikta - Thank you. Christine and the Queens - People, Ive been sad. Coldplay - Viva la vida.

Fótboltamótið REY Cup stendur nú sem hæst í Laugardalnum og hefur aldrei verið stærra. Hulda leit við í blíðunni í gær og hitti á framkvæmdastjóra mótsins Guðmund Breiðfjörð sem var kampakátur með góða stemmingu og viðtökur. Ólafía Hrönn Jónsdóttir söng- og leikkona var á línunni frá Hveravík en þar er hún á ferð með dularfullum tónlistarflokki sem kallar sig Gertrude and the flowers. Við fengum að vita meira og heyrðum lag. Eyþór Máni Steinarsson, rekstrarstjóri Hopp kom til okkar. Rafskúturnar eru um alla borg en hvernig gengur? Er mikið um skemmdir eða slys og hvernig gengur að tækla þær áskoranir sem upp hafa komið. Eyþór fór yfir þetta með okkur. Ólympíuleikunum í ár var frestað líkt og svo mörgum öðrum stórviðburðum, en það þýðir þó ekki að sjónvarpsáhorfendur fái ekki sinn skammt af olympíu stemmingunni þetta sumarið. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður leit við hjá okkur og sagði okkur frá nýjum sjónvarpsþáttum á RÚV þar sem einstakar Ólympíuminningar eru rifjaðar upp, en fyrsti þáttur er einmitt á dagskrá í kvöld. Tónlist: Bubbi og Hjálmar - Þöggun. Proclaimers - Im on my way. The Weeknd - In your eyes. Harry Nilsson - Everybodys talkin. Beggi Smári - Brostu. Gertrude and the flowers - Umbreyting. Ingó veðurguð - Í kvöld er gigg. Blondie - Call me. Sálin hans Jóns míns - Lestin er að fara. Spandau Ballet - Only when you leave. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Rúnar Róbertsson.

Sönghæfileikar, leyniskyttur, nasistar og konunglegt salerni og margt fleira kemur fyrir í þættinum.
Þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar sem á að auka fjárhagslegt öryggi afreksíþróttafólks og möguleika þess á að helga sig íþróttaiðkun sinni. Hvetja þeir ráðherra til að leggja frumvarp þess efnis fram eigi síðar en á næsta löggjafarþingi. Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, kom til okkar og rakti markmið og möguleika verði hvatningu þeirra tekið. Tryggingastofnun er völundarhús og þau sem þurfa á þjónustu hennar eu heppin að rata. Þetta segir Berglind Berghreinsdóttir, stofnandi samtakanna Verndum veika og aldraðra. Stofnfundurinn var í gær en um 1.600 manns eru í Facebook hópi samtakanna. Berglind var gestur Morgunútvarpsins en hún er drifin áfram af vondri reynslu sinni af þjónustu kerfisins. Áætlað er að erlendir ferðamenn hafi ekið bílaleigubílum 600 milljónir kílómetra á árinu 2018 sem er tæpleg sjöfalt meira en var árið 2009. Það samsvarar akstri ríflega 50 þúsund heimilisbíla hér á landi og má áætla að aksturinn hafi aukið veltu af eldsneytissölu um tíu milljarða króna. Þetta má sjá í úttekt Rögnvaldar Guðmundssonar, hjá Rannsóknum og ráðgjöf ferðaþjónustunnar, en hann heldur erindi um málið á ráðstefnu Vegagerðarinnar í vikunni. Íbúar á Flateyri, Suðureyri, Ísafirði og í Súðavík sem finna fyrir einkennum áfallastreitu og glíma við slæma líðan í kjölfar snjóflóðanna býðst nú að fá viðtal við sálfræðing. Samráðshópur áfallahjálpar á Vestfjörðum auglýsti hjálpina á Facebook síðu lögreglunnar þar nú fyrir helgi. Margrét Geirsdóttir, sviðstjóri velferðasviðs Ísafjarðarbæjar, fór yfir málið með okkur í Morgunútvarpinu. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður kom til okkar og ræddi körfuboltahetjuna Kobe Bryant sem lést í hörmulegu slysi í gær ásamt átta öðrum. Tónlist: Sprengjuhöllin - Verum í sambandi. Otis Reading - (Sittin on) the dock of a bay. Kaleo - I want more. GDRN - Hvað er ástin. Auður - Ósofinn (ft. GKR). The Beatles - Eleeanor Rigby. Friðrik Dór - Í síðasta skipti. U2 og Pavarotti - Miss Sarajevo. Khruangbin - Texas sun (ft. Leon Bridges). Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius - Annað haust.

Þegar sjónvarpið hóf útsendingar árið 1966 var algjör „Anchorman“ stemmning á RÚV. En í gegn um tíðina hafa fjölmiðlar verið að fikra sig að því að jafna út kynjahlutfallið sitt. Konur eru samt bara 10% af íþróttafréttamönnum og í almennum fréttum er töluvert oftar talað við karla. Hvers vegna eru konur fengnar í viðtöl fyrir mýkri málefni og karlar látnir tala um pólitík? Og hvar koma samfélagsmiðlar og smellibrelluauglýsingar inn í þetta? Í þætti dagsins er talað um fjölmiðla, samfélagsmiðla, íþróttafréttir og Anchorman. Viðmælendur: Þórður Kristinsson Una Torfadóttir Tryggvi Kolviður Sigtryggsson Ella María Georgsdóttir Kristjana Arnarsdóttir Aron Már Ólafsson
Á miðvikudaginn hefst innritun í Háskóla unga fólksins og það er um að gera að vera í startholunum því venjulega fyllast vinsælustu námskeiðin eins og hendi sé veifað. Við heyrðum í Kristínu Ásu Einarsdóttur, verkefnisstjóra hjá HÍ. Hlynur Jónasson er fyrsti IPS atvinnuráðgjafinn á Íslandi og hann kíkti til okkar í morgunkaffi og sagði okkur frá IPS hugmyndafræðinni og mikilvægi þess að horfa á styrkleika einstaklingsins í stað veikleika og byggja atvinnuleitina á því áhugasviði. Hlynur telur líka að breyta þurfi orðræðunni þegar að þessum málaflokki kemur. Brauðtertufélagið Erla og Erla leit dagsins ljós á Facebook á dögunum en meðlimir hópsins eru þegar orðnir nærri 2 þúsund talsins. Á síðu félagsins deila áhugamenn um brauðtertur myndum, uppskriftum og góðum ráðum. Erla Hlynsdóttir og Erla Gísladóttir kíktu til okkar í kaffi. Magnús Geir Þórðarsson, útvarpsstjóri, kom til okkar og fór yfir þá stöðu sem upp er kominn eftir þátttöku Hatara í Eurovision, en samtök evrópskra sjónvarpsstöðva fara nú yfir málið og einn möguleikinn er að Ísland fái ekki að taka þátt í keppninni að ári. Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands, var kjörinn formaður FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu, á aðalfundi félagsins í síðustu viku. Kjör hennar hefur verið sagt marka stefnubreytingu en í hverju felst hún? Hulda settist hjá okkur og ræddi FKA. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður fór yfir helstu íþróttatíðindi helgarinnar. Tónlist: Logar - Minning um mann. Norah Jones - Dont know why. Eric Clapton - Its in the way that you use it. Heiða Ólafs - Ekki nema von. Duncan Laurence - Arcade. Weezer - Cant knock the hustle. George Michael - Fast love. Júníus Meyvant - Aint gonna let you drown. Noel Gallaghers High Flying Birds - Black star dancing.
Í þætti dagsins er fjallað um íþróttir. Það er staðreynd að karlaíþróttir eru töluvert vinsælli en kvennaíþróttir, en er rökrétt ástæða fyrir þessum vinsældarmun? Hvernig getum við breytt okkar viðhorfi gagnvart kvennaíþróttum og hvaða ábyrgð bera fjölmiðlar og styrktaraðilar? Kannski er bara eðlilegt að sumar íþróttir þyki kvenlægar og aðrar karllægar. Nýjar íþróttagreinar eins og Crossfit benda þó til þess að allir geti orðið stórstjörnur í íþróttum, óháð kyni. Viðmælendur: Kristjana Arnarsdóttir Margrét Lilja Guðmundsdóttir Bjarni Már Magnússon Þórður Kristinsson Tryggvi Kolviður Sigtryggsson Una Torfadóttir Ella María Georgsdóttir Sigurður Andrean Sigurgeirsson
Ljótu kartöflurnar er nafn á fyrirtæki sem framleiðir íslenskar kartöfluflögur úr kartöflum sem annars myndu ekki nýtast, m.a. vegna þess að þær eru of ljótar. Þeir Viðar Reynisson og Gunnar Jóhann Gunnarsson komu til okkar og sögðu okkur meira af hinum ýmsu áskorunum í kartöfluflögu bransanum. Borgþór Arngrímsson kom og sagði okkur frá Dana á níræðisaldri sem hefur í nærri tvo áratugi barist fyrir því að fá borgaðann út lottóvinning sem hann telur sig eiga heimtingu á. Hann hefur eytt nærri sex milljónum íslenskra króna í að þvæla málinu um dómstóla án árangurs hingað til, en segist hvergi nærri hættur. Til stendur að leggja á veggjöld um allt land og innheimta vegtolla á öllum stofnbrautum frá Reykjavík í nýrri samgönguáætlun sem verður afgreidd á næsta ári. Hugmyndir eru uppi um að innheimta vegtolla á öllum stofnbrautum frá Reykjavík og í öllum jarðgöngum landsins. Þetta kom fram í máli Jóns Gunnarssonar formanns umhverfis- og samgöngunefndar þingsins, í Silfrinu í gær. Sitt sýnist hverjum um þessi áform og Bubbi Morthens er einn þeirra sem hefur látið í sér heyra vegna málsins og hann spyr einfaldlega hvort verið sé að grínast - þau hjónin keyri daglega í bæinn frá Kjós, margar ferðir á dag. Bubbi var á línunni. Bára Halldórsdóttir, konan sem hljóðritaði samræður sex þingmanna á Klaustri Bar 20. nóvember sl., hefur verið boðuð í skýrslutöku og gagnaöflun fyrir héraðsdómi síðar í dag, vegna mögulegs dómsmáls gegn henni sem fjórir þingmenn Miðflokksins eru að undirbúa. Bára kom til okkar. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður fór yfir íþróttaviðburði helgarinnar. Tónlist: Borgardætur - Jólasveinninn minn. Vök - Spend the love. Lenny Kravitz - Low. Willie Nelson - Little town of Bethlehem. Jónas Sig - Dansiði. John Grant - It's easier. Ellý og Vilhjálmur - Jólaklukkur. Hjálmar - Fyrir þig. Stefán Hilmars og Jón Jónsson - Jólin (þau eru á hverju ári).
Það eru ekki bara jólasveinarnir sem koma til byggða fyrir þessi jól. Annars konar jólaverur, sem eru á öðru mataræði, koma líka til byggða. Lambafrelsir og Hænuhvísla eru nú þegar komin og Benjamín Sigurgeirsson, formaður Samtaka grænkera, sagði okkur frá þessum verum. Í sjónvarpsþáttunum Trúnó fáum við að kynnast nýrri hlið á þjóðþekktum tónlistarmönnum. Gerð hefur verið ein þáttaröð þar sem rætt var tónlistarkonur, en nú er komið að strákunum í nýrri þáttaröð sem fer í loftið í næstu viku. Margrét Seema Takyar er leikstjóri þáttanna og hún heimsótti okkur og á línunni var svo einn viðmælenda, sjálfur Mugison. Við opinberuðum hver tekur við af Birni Braga sem nýr spyrill Gettu betur, en nýi spyrillinn, Kristjana Arnarsdóttir, leit við hjá okkur. Það hefur ríkt öngþveiti í breskum stjórnmálum vegna Brexit og í gær lýstu fjölmargir samflokksmenn og fleiri, vantrausti á Theresu May, forsætisráðherra. Hún stóð það af sér en staðan er engu að síður mjög flókinn og erfið. Bogi Ágústsson ræddi þetta snúna mál við okkur. Sigurður H. Guðjónsson framkvæmdastjóri húseigendafélagsins var á línunni og ræddi öfgar í jólaskreytingum sem trufla nágranna og hafa jafnvel áhrif á frammistöðu manna í svefnherberginu. Anna Sigríður Þráinsdóttir mætti í sitt vikulega spjall um íslenskt mál og hún var á jólalegum nótum í þetta skiptið. Tónlist: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Hátíð í bæ. Júníus Meyvant - Let it pass. David Bowie og Bing Crosby - Peace on earth/Little drummer boy. Ásgeir Trausti - Dýrð í dauðaþögn. Mugison - Haglél. Sigurður Guðmundsson Og Sigríður Thorlacius - Vindar að hausti. The 4 Seasons - I saw mommy kissing Santa Claus. Rolling Stones - Start me up. Stefán Hilmars og Birgir Steinn - Um vetrarnótt.
Íþróttafréttamennirnir og fyrrverandi fótboltastjörnurnar Gummi Ben og Kristjana Arnarsdóttir settust í morgunkaffi með Björgu og Gíslamarteini á þessum góða laugardegi. Hallgrímur Helgason, rithöfundur er nýkominn úr ferð kringum hnöttinn, og sagði frá ferðalögunum og nýju skáldsögu sinni 60 kíló af sólskini.

Konur hafa alla jafna verið fremstar að í flokki þegar kemur að prjónaskap hér á landi, en nú stendur til að kynna þessa skemmtilegu handavinnu fyrir körlum, með sérstöku prjónakvöldi hjá Ömmu mús handavinnuhúsi í kvöld. Pétur Oddbergur Heimisson veit meira um þetta mál og hann kíkti til okkar í morgunkaffi og ræddi karla og prjónaskap. Hákon Helgi Leifsson kom til okkar en hann skrifaði grein á dögunum yndir yfirskriftinni ADHD er snilld. Þar rekur hann reynslu sína og vill meina að samfélagið muni læra að meta reynslu fólks með ADHD og að auki sagði hann nokkrar skondnar reynslusögur úr eigin lífi. Þess var minnst víða um heim í gær að 100 eru liðin frá lokum fyrri heimstyrjaldarinnar, stríðsins mikla sem lagði milljónir. Stefán Pálsson sagnfræðingur kom til okkar og við rifjuðum aðeins upp söguna af þessu tilefni. Bergljót Davíðsdóttir, blaðamaður til áratuga, birti grein á Facebook síðu sinni þar sem hún segir lögreglu hafa beitt 17 ára dótturson sinn harðræði og vistað í fangaklefa eftir að hann sprautaði sig með insúlíni á skólaballi, en þar töldu mennn hann vera að sprauta sig með fíkniefnum. Bergljót hyggst jafnvel fara í mál við ríkið vegna þessa. Við heyrðum í Bergljótu. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamður kom við hjá okkur og renndi yfir helstu íþróttatíðindi helgarinnar. Tónlist: Skítamórall - Þú veist hvað ég meina mær. Hope Sandoval og Kurt Vile - Let me get there. Moses Hightower - Ellismellur. Lay Low - Little by little. Helgi Björns - Miði aðra leið. The Cranberries - Just my imagination. Elísabet Ormslev - Let me go (do you love me). Elton John - Crocodile rock. Jónas Sig. - Dansiði.
Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður á RÚV er gestur Hismisins í vikunni. Rætt er um þráhyggju sem hún og Árni deila og gengur út á að þurfa að sparka snjó undan dekkjahlífum á bílum og halda að með því sé verið að forða viðkomandi frá umferðarslysum. Rætt er um hvernig best sé að eiga smalltalk samskipti við rútu- og strætóbílstjóra og iðnaðarmenn, matarmenninguna sem er að fæðast í kringum Superbowl og hvers vegna Bandaríkjamenn séu alltaf svona hressir.