POPULARITY
Siggi og Lovísa í góðum gín í Popplandi dagsins. Plata vikunnar á sínum stað, Verk með hljómsveitinni Ex.Girls. Ný tónlist úr öllum áttum, meðal annars frá Sögu Matthildi, Barry Can't Swim, Kvikindi, Jóni Jónssyni, Superserious, Frumburði og fleirum. Þessar helstu tónlistarfréttir og fyrsta reyklausa dagsins minnst. Flott - Með þér líður mér vel. OTIS REDDING - (Sittin' On) The Dock Of The Bay. ALANIS MORISSETTE - Ironic. QUEEN - One Vision. SCISSOR SISTERS - Take your mama. ELTON JOHN - Pinball Wizard. Katrín Helga Ólafsdóttir - Seinasti dansinn okkar. Kahan, Noah - Stick Season. Saga Matthildur - Hvaða sögu viltu fá?. Jung Kook - Standing Next to You. Óviti, Kusk og Óviti, KUSK - Loka augunum. Adele - Send My Love (To Your New Lover). Friðrik Dór Jónsson, Kvikindi - Úthverfi. Owusu, Genesis - Leaving The Light. Ex.girls - Drepa mann. THE BEATLES - Blackbird. Hljómar - Heyrðu mig góða. Ruth Reginalds - Tóm tjara. DAYSLEEPER - Kumbh Mela. MAUS - Ungfrú Orðadrepir. Mitski - My Love Mine All Mine. VÖK - Headlights. Barry Can't Swim - Dance of the Crab. SOFI TUKKER - Jacare. Inspector Spacetime - Hitta mig. Miley Cyrus - Malibu. Japanese House, The - Super Trouper. McKenna, Declan - Slipping Through My Fingers. MICHAEL KIWANUKA - Beautiful Life. Warmland - Voltage. Combs, Luke, Wilder Blue, The - Seven Bridges Road. Fleetwood Mac - Silver springs. Teitur Magnússon - Kamelgult. Superserious - Coke Cans. GDRN - Af og til. Dina Ögon - Det läcker. SUGABABES - Overload. CMAT - Stay for Something. TOTALLY ENORMOUS EXTINCT DINOSAURS - Crosswalk. EX.GIRLS - Hundrað í hættunni. UXI - Bridges. FRUMBURÐUR - Bráðna (ft. Daniil) ELÍN EY & PÉTUR BEN - Þjóðvegurinn. THE NATIONAL & PHOEBE BRIDGERS - Laugh Track. DAVID KUSHNER - Daylight. BENNI HEMM HEMM & KÓR - París Norðursins. JÓN JÓNSSON - Spilaborg.
Nýlega tilkynnti Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar um val á listamanni sem hlýtur árs vinnustofudvöl í Kunstlerhaus Bethanien í Berlín. Vinnustofudvölin veitir aðgengi að öflugu, alþjóðlegu tengslaneti, auk utanumhalds um sýningarhald, útgáfu og ýmsa viðburði fyrir listamennina sem þar dvelja. Í þetta sinn valdist myndlistarkonan Una Björg Magnúsdóttir til dvalarinnar og hún verður gestur í svipmynd dagsins hér í seinni hluta þáttar. ?Halló! Við erum þrjár konur af íröskum uppruna, búsettar á Íslandi, sem ætlum að fagna persneskri menningu saman í Open sunnudaginn 23. október! Við ætlum að smakka perneskan mat, hlusta á tónlistina sem er bönnuð og gægjast í sögu listarinnar. Með þessu viljum við sýna samstöðu með fólkinu í Íran og sýna að rödd þeirra heyrist víða." Svona hljómaði auglýsing fyrir viðburð sem fór fram í listrýminu Open um liðna helgi. Ein þeirra þriggja myndlistarkvenna af írönskum uppruna sem stóðu að viðburðinum mun flytja okkur pistil í þætti dagsins. En við hefjum þáttinn á söng og ítalskri menningu. Syngjandi í Salnum er yfirskrift tónleikaraðar sem hófst síðasta vor í Salnum í Kópavogi. Í röðina raðast portrettónleikar af íslenskum söngvurum eins og perlur á band, en meðal þeirra sem koma þar fram eru Benedikt Kristjánsson, Hallveig Rúnarsdóttir, Hanna Dóra Sturludóttir, Andri Björn Róbertsson og Oddur Arnþór Jónsson. Í kvöld stígur Gissur Páll Gissurarson á svið, ásamt píanóleikaranum Matthildi Önnu Gísladóttur, og þau bera á borð ítalskt eyrnakonfekt. Gissur Páll leit við hér í Efstaleiti og sagði okkur aðeins af tónleikunum og tengslum sínum við Ítalíu. og til þess að koma okkur í réttu stemninguna heyrum við fyrst smá tóndæmi. Gissur Páll syngur Nessun Dorma úr óperunni Turandot eftir Puccini, með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Umsjónarkona: Melkorka Ólafsdóttir

Hallgrímur Ólafsson, eða Halli Melló eins og hann er gjarnan kallaður, mætti til mín í áhugavert og skemmtilegt spjall nú á dögunum ásamt sínum betri helmingi Matthildi Magnúsdóttur.Halli er leikari og hefur verið fastráðinn við Þjóðleikhúsið undanfarin ár og getið sér þar gott orð. Hann hefur komið víða við í leiklsitinni en ættu margir að kannast við hann til dæmis sem manninn sem aldrei náði húinu í hinu víðfræga atriði í áramótaskaupinu hér um árið.Matthildur er lögfræðingur að mennt og hefur starfað hjá skattinum allar götur síðan hún útskrifaðist.Halli þakkar Matthildi fyrir að þau séu saman í dag, en allt hófst þetta á örlagaríku facebookaddi sem Halli var ekki lengi að samþykkja en hann kannaðist við Matthildi af störfum hennar sem þula og hafa þau verið saman nær allar götur síðan.Í dag eru þau gift eiga saman tvo stráka en átti Halli fyrir eina dóttur úr fyrra sambandi.Í þættinum fórum við um víðan völl en ræddum við meðal annars lífið í sjávar-bæjunum, fyrstu og síðustu fjölskyldu útileguna, leiklistina & fjölskyldulífið, athyglisbresti og margt fleira ásamt því að við heyrðum margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Halli fékk það staðfest að Matthildur væri framtíðarkonan í pulsusjoppu á Laugarvatni.Blush.is - https://blush.is/Bagel 'n' Co - https://https://www.bagelnco.is/Dominos - https://www.dominos.is/Promennt - https://www.promennt.is/is
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknmaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Þingmenn keppast nú við afgreiðslu mála en fresta á þingstörfum í kvöld eða á morgun. Greidd voru atkvæði um fjölmörg mál í dag, þeirra umdeildast er rammaáætlun sem var samþykkt í hádeginu. Bandaríkin ætla að veita Úkraínumönnum frekari aðstoð og senda vopn að andvirði um 130 milljarða króna. Joe Biden forseti greindi frá nýjum aðstoðarpakka síðdegis. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri segir að verðtryggð lán, eins og þau eru sett upp hér á landi, geti skapað forsendur fyrir áhættusækni. Anna Lilja Þórisdóttir tók saman. Bensínlítrinn fór yfir 350 krónur í gær. Bensínverð hefur hækkað umtalsvert síðustu mánuðina, ekki síst vegna innrásar Rússa í Úkraínu og hækkana á heimsmarkaði. Urður Örlygsdóttir sagði frá og talaði við Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra FÍB sem vill að stjórnvöld lækki álögur á eldsneyti. Eftir hlýtt vor og hagstæð skilyrði í hafinu við Ísland eru útgerðarmenn vongóðir um betri makrílveiði í íslenskri lögsögu en undanfarin ár. Ágúst Ólafsson talaði við Sindra Viðarson sviðsstjóra hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjujm. Það verður hvergi rjómablíða á þjóðhátíðardaginn 17. júní að sögn Birgis Arnar Höskuldssonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir tók saman. ------------- Störfum þingsins fer að ljúka þetta vorið og þingmenn keppast við segir Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir þingfréttamaður. Umdeildasta málið sem lauk í dag var fyrsta rammaáætlun í meira en níu ár. Brot úr atkvæðaskýringum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur (C), Andrésar Inga Jónssonar (P), Guðmundar Inga Guðbrandssonar (V) og Vilhjálms Árnasonar (D). Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði telur að haldlagning lögreglu á miklu magni fíkniefna hafi óveruleg áhrif á fíkniefnamarkaðinn. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Helga og Svölu Jóhannesdóttur, sérfræðing í skaðaminnkun hjá Matthildi-samtökum um skaðaminnkun. Tækniþekking og aðstaða er til að framleiða um fjögur þúsund tonn af rafeldsneyti á ári í tíu ára gamalli verksmiðju Carbon Recycling International við Svartsengi á Reykjanesskaga. Eftirspurn á innanlandsmarkaði var undir væntingum en fyriritækið hefur sótt fram í útlöndum. Kristján Sigurjónsson talaði við Ómar Frey Sigurbjörnsson, sölu- og markaðsstjóra hjá Carbon Recycling International.

Sumarið er tíminn, segja allir jurtasérfræðingar landsins! Þá er matarkistan stútfull og hægt að safna allskonar góðum fjallagrösum, berjum, sveppum til að elda með, búa til te og jafnvel lækningaseyði og smyrsl. En hvernig veit maður hvað má borða og hvað ekki? Við hittum jurtasérfræðingana og vinkonurnar Matthildi og Heklu Sif en þær hafa lært heilmargt af mömmu Heklu, henni Sillu. Jói gluggar í gamla jurtalækningabók og Ingibjörg dregur fram fróðleik um göldróttar plöntur! Þjóðsagan segir af tveimur mönnum sem lentu í ævintýrum þegar þeir voru að safna fjallagrösum. Í spurningakeppninni í lokin kemur svo í ljós hver veit mest um nesti náttúrunnar....ja, eða hlustaði best á þáttinn!

Námskeiðið Stelpur filma!, er nú haldið í þriðja sinn en að því koma margir reyndustu handritshöfundar og kvikmyndagerðarmenn landsins. Verkefnið er liður í því að rétta af kynjahallann sem ríkir í kvikmyndagerð á Íslandi, en margir samverkandi þættir gera það að verkum að stelpur eru ólíklegri til þess að prófa sig áfram í greininni og láta rödd sína heyrast. Stelpum úr 8. og 9. bekk í grunnskólum Reykjavíkur er boðið að taka þátt og við kíktum í Norræna húsið og töluðum við Erlu Stefánsdóttur, verkefnastjóra, Margréti Örnólfsdóttur, sem kennir handritsgerð á námskeiðinu og Matthildi og Þuríði úr Dalsskóla og Ronju Björk, Sóley Líf og Eyju úr Austurbæjarskóla. Matís mun halda svokallað MAKEathon á fjórum stöðum á Íslandi, frá 10. til 18. september næstkomandi, þar sem áhersla verður lögð á nýtingu hliðarafurða úr sjávarútvegi. Viðburðurinn er hluti af verkefninu MAKE-it! sem er fjármagnað af Evrópusambandinu (EIT Food). Að þessu sinni mun þátttakendur með fjölbreyttan bakgrunn koma saman til að finna lausnir við eftirfarandi áskorun: Hvernig getum við aukið verðmæti aukahráefnis úr sjávarútvegi til að gera vinnsluna sjálfbærari?Þátttakendur fá að vinna með hráefni, bein og roð af fiski, og fá tækifæri til að „leika sér“ með það og búa til úr því frumgerð að vöru. Justine Vanhalst, verkefnastjóri hjá Matís kom í þáttinn og sagði frá. Póstkortið sem við fengum frá Magnúsi R. Einarssyni á Spáni í dag innheldur frásögn af heilögum Kristófer sem er verndardýrlingur allra ferðalanga og hann passar torgið í Alicante þar sem Magnús býr. Það var auðvitað sagt frá ástandi mála vegna kórónuvírussins, en það virðist ekki vera neitt lát á smiti í nokkrum borgum og bæjum. Það var sagt frá húsnæðismálum Spánverja sem eru með nokkrum öðrum hætti en í öðrum Evrópulöndum. Og svo sagði Magnús að lokum frá áhyggjum vegna menntamála sem hafa setið á hakanum í farsóttinni. Umsjón: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Við fjölluðum um landsins gagn og nauðsynjar og töluðum líka dálítið um The Rolling Stones á fæðingardegi Brian Jones, eins stofnanda sveitarinnar og fyrsta leiðtoga. - Það er útlit fyrir loðnubrest. Loðna hefur ekki fundist á hefðbundnum slóðum fyrir norðan land og austan þrátt fyrir mikla leit. Þetta er áfall; loðnan skiptir okkur miklu máli; hún skapar störf og tekjur. Við fjölluðum um stöðuna á Morgunvaktinni í dag; til okkar kom Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri uppsjávarlífríkis Hafrannsóknastofnunar, og við heyrðum líka í Gunnþóri Ingvasyni, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. - Hornafjörður var lengi afskekktur og samgöngur við aðra landshluta og byggðarlög erfiðar. Miklar og góðar breytingar urðu með brúnni yfir Skeiðará 1974 og svo með göngum undir Almannaskarð sem tekin voru í notkun 2005. Í þá daga treystu Hornfirðingar á flugið og gera reyndar enn. En nú eru blikur á lofti, lagt er til í skýrslu að ríkisstuðningi við flugleiðina Hornafjörður-Reykjavík verði hætt og það lýst Hornfirðingum illa á. Við ræddum við Matthildi Ásmundardóttur, bæjarstjóra Hornafjarðar, um samgöngumálin. Við spjölluðum líka um óveðrið í fyrradag, uppbyggingu í sveitarfélaginu og sitthvað fleira. - Hver er framtíð byggðarinnar norður á Ströndum? Liggur framtíðarvonin í friðlýsingu Drangajökulsvíðernis, eins og friðunarsinnar leggja til, eða er sjálfsagt, rétt og skynsamlegt að nýta náttúruauðlindir svæðisins með beinni hætti eins og virkjun í Ófeigsfirði? Arinbjörn Bernharðsson er fæddur og uppalinn í Norðurfirði og hefur verið að byggja þar upp ferðaþjónustu. Hann sagði frá byggðinni fyrir norðan og framtíðarhúsmyndum. Sjálfur styður Arinbjörn virkjanaáform í Ófeigsfirði. - The Rolling Stones - Ruby Tuesday - We Love You - Paint it Black - Mother´s Little Helper.
Eva María Jónsdóttir fjölmiðlakona og starfsmaður Árnastofnunar og leikarinn Valur Freyr Einarsson drukku morgunkaffi með okkur og við spjölluðum um heima og geima. Drottning þáttarins var Björgvin Halldórsson (BÓ) sem fór yfir ferilinn, pólitíkina, morgunrútínu sína og ýmislegt annað. Við slóum á þráðinn til Hrafns Gunnlaugssonar, textahöfundar og leikstjóra og heyrðum líka hvernig fullkominn dagur á Höfn í Hornafirði er hjá bæjarstjóranum á staðnum Matthildi Ásmundardóttur.

Að þessu sinni hófst Morgunvaktin á spjalli við Matthildi Ásmundardóttur sem tekur við starfi bæjarstjóra sveitarfélagsins Hornafjarðar 1. september. Hún var ekki meðal umsækjenda um starfið en bæjarstjórn falaðist eftir kröftum hennar. Matthildur er frá Hornafirði og hefur búið þar alla tíð utan námsáranna í Háskólanum. Hún hefur síðustu ár verið framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Höfn. Margrét Eggertsdóttir rannsóknarprófessor sagði frá Alþjóðlegum sumarskóla í handritafræðum á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn. 62 nemendur sækja skólann, víðsvegar að úr heiminum. Svana Hrönn Jóhannsdóttir, formaður Glímusambands Íslands, sagði frá stöðu glímunnar. Iðkenndur íþróttarinnar eru á annað hundrað en Svana vill sjá fleiri æfa og keppa. Íslenskt glímufólk er nýkomið heim frá Skotlandi þar sem það tók þátt í keppni í keltneskum fangbrögðum. Íslenski refurinn hefur hafst við í landinu frá lokum ísaldar. Ester Rut Unnsteinsdóttir, spendýravisfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, sagði frá rannsóknum á stofninum. Talið er að stofninn telji nú um 7.000 refi en stærð hans hefur sveiflast frá því að rannsóknir hófust 1979. Tónlist: Montmartre - Django Reinhardt.
Þáttur kvöldsins er afar fjölbreyttur og skemmtilegur, og hann flækist út um víðan völl eins og venjulega. Allt er þetta að sjálfsögðu íslensk tónlist, en það gætir svo sannarlega vors í henni, þótt veðrið sé ekki alveg komið á þann stað. Við kíkjum á nýja breiðskífu með Volta og svo heyrum við ný lög með Bríeti, Írisi Guðmundsdóttur, Rímnaríki, Sögu Matthildi, Svavari Elliða, Ingileif, Árný, Magnúsi Gunnarssyni, Kríu, Stepmom, Aroni Can, Yung Mahican, Daníel Óliver Sveinssyni og Hellidembu. Lagalisti Langspils 198: 1. Aflausn - Íris Guðmundsdóttir 2. In too deep - Bríet 3. Peter Pan - Saga Matthildur 4. Afmæli - Svavar Elliði 5. We Were on a Road - Magnús Gunnarsson 6. Higher - Árný 7. No snitch boys - Stepmom 8. Humidity - Kría 9. At last - Ingileif 10. Fuglabúrið - Volta 11. River - Volta 12. Heal - Volta 13. Aldrei heim - Aron Can 14. Hólkur - Yung Mahican 15. Drunk - Daníel Óliver Sveinsson 16. Lost - Jón Jónsson 17. Andvökunætur - Rímnaríki 18. Lifetime - Gusgus 19. Loving none - Sykur 20. Kynsnillingur - Páll Óskar 21. Mamma - Hellidemba 22. Orka jarðar - Hellidemba 23. Morgunsvæf - Hellidemba Hefurðu samið ótrúlega gott lag, sem þér finnst að eigi að spila í útvarpi? Sendu inn lag í þáttinn og hver veit... Langspil er á dagskrá Rásar 2 á sunnudagskvöldum frá 19.20-21.00. Umsjón: Heiða Eiríksdóttir
Matthildur Jónsdóttir Kelley á merkilega ævi að baki. Hún fæddist í Reykjavík en rúmlega tvítug flutti hún til Chicago í Bandaríkjunum og hefur búið þar í rúm fimmtíu ár. Hún fór á botninn, var í mikilli neyslu fíkniefna lengi sem hún fjármagnaði meðal annars með vændi. Hún sneri blaðinu við og hefur undanfarna áratugi hjálpað fíklum á götum Chicago borgar. Viktoría Hermannsdóttir ræðir við Matthildi og dóttur hennar, Angelique Kelley.