Ási spjallar á léttu nótunum við skemmtilegt fólk og þeirra betri helming.
Rithöfundurinn og tónlistarmaðurinn Einar Lövdahl Gunnlaugsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi umhverfis fræðingnum Heiðdísi Ingu Hilmarsdóttur.Einari er ýmislegt til lista lagt en hefur hann gefið út tvær plötur, samið texta fyrir marga helstu tónlistarmenn landsins og er hann þessa stundina á loka metrunum að skrifa sína fyrstu skáldsögu sem kemur út í mars.Heiðdís er menntuð umhverfisfræðingur og vinnur hún þessa stundina hjá krónunni á umhverfissviði.Einar og Heiðdís kynntust á jólaballi MR þar sem Einar gaf undanþágu af strangri miðasölu reglu fyrir hana þar sem hún átti afmæli, þau eyddu dágóðum tíma saman á ballinu og hlutirnir gerðust hratt í kjölfarið og hafa þau í raun verið saman allar götur síðan þá og eiga í dag saman tvær dætur.Í þættinum ræddum við meðal annars um tónlistina, textasmíðina og rithöfundamennskuna, hvar áhuginn kviknaði á umhverfisfræðinni, rómantíkina, húmorinn, fjölskyldulífið og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð meðal annars frá óheppilegri uppákomu þeirra í leiguíbúð Einars í Svíþjóð.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejar
Leikkonan Hildur Vala Baldursdóttir mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi ráðgjafanum Kjartani Ottósyni.Hildur Vala hefur verið fastráðin við Þjóðleikhúsið síðan hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2019 og hefur leikið í hinum ýmsu sýningum á vegum hússins og má þar meðal annars nefna Ronju Ræningjadóttur og mun hún fara með hlutverk Elsu í uppfærsu leikhússins á Frost sem frumsýnt verður í mars.Kjartan er menntaður lögfræðingur og flugmaður en starfar hann þessa stundina við fyrirtæjaráðgjöf hjá KPMG.Kjartan og Hildur höfðu í gegnum tíðina oft verið á sama tíma á sama stað en þó aldrei leitt hugi saman fyrr en eitt örlagaríkt kvöld í starfsmannapartýi hjá Iceland air, en þar mættust þau á dansgólfinu og hafa í raun verið saman allar götur síðan þá og eiga í dag saman tvær dætur.Í þættinum ræddum við meðal annars um leiklistina og hvernig það er að starfa í Þjóðleikhúsinu, fjölskyldulífið, rómantýkina, húmorinn, tónlistina, deitkvöld og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð meðal annars af hörðu pringles sem Hildur borðaði sem reyndist síðan vera eitthvað allt annað.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejar
Fótboltafólkið og blikarnir Katrín Ásbjörnsdóttir og Damir Muminovic mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall nú á dögunum.Katrín er búin að spila fótbolta nánast alla sína tíð og hefur leikið fyrir marga stærstu klúbba landsins en má þar nefna meðal annars KR, Þór/KA, Stjörnuna og nú Breiðablik ásamt því að hafa tekið þátt í stórmótum með landsliðinu og ár í atvinnumennskunni í Noregi. Ásamt því að sinna fótboltanum af kappi er hún einnig í vaktavinnu sem Hjúkrunarfræðingur.Damir er búinn að standa í hjarta varnarinnar hjá Breiðablik síðan 2013 en er hann uppalinn HKingur. Damir var þó ekki alla tíð viss hvort fótboltalífið hentaði honum alveg og tók hann í raun dágóðan tíma að finna ástríðuna fyrir fótboltanum þegar aðrir hlutir fóru að toga aðeins meira. Í dag er hann þó einn af lykilmönnum Breiðabliks og á stórann þátt í að blikarnir séu að gera það eins gott og raun ber.Damir og Katrín vissu lengi vel af hvert öðru en það var þó ekki fyrr en eitt örlagaríkt kvöld að þau matcha á Tinder sem hjólin byrjuðu aðeins að snúast. Þó snerust þau talsvert hraðar hjá Damir en var hann ákveðinn í sinni sök um að Katrín væri konan sem hann vildi. Katrín var þó alltaf á bremsunni og þurfti Damir að spyrja hana í alls 7 skipti hvort hún vildi vera kærastan sín sem síðan gekk að lokum og sjá þau svo sannarlega ekki eftir því í dag.Í þættinum ræddum við meðal annars um fótboltalífið, hvernig það er að spila fyrir sama klúbb og hvort þau finni fyrir einhverjum mun milli deilda, samsetningu fjölskyldunar, rómantíkina, húmorinn og margt fleira ásamt því að fá að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, meðal annars ansi skrautlegt fyrsta stefnumót þar sem foreldrar Damirs koma við sögu.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejar
Þorbjörg Þorvaldsdóttir fyrrum formaður samtakanna 78 mætti til mín í virkilega skemmtilegt og áhugavert spjall ásamt sínum betri helmingi lífeindafræðingum Silju Ýr Leifsdóttur.Þorbjörg var eins og áður sagði formaður samtakanna 78 en hefur í dag tekið að sér verkefnastjórnun innan félagsins. Hún er málfræðingur að mennt en dugleg að finna sér eitthvað auka að gera og er núna komin aðeins inn í stjórnmálin.Silja er lífeindafræðingur hjá Sameind og er verkefnastjóri yfir klínískri lífeindafræði .Það má segja að Þorbjörg og Silja hafi verið undan sinni samtíð en þær kynntust á netinu árið 2008 en lugu að öllum að þær hefði kynnst á Q-bar. Í fyrstu var Silja ekki alveg viss um að hitta einhverja stelpu á netinu en Þorbjörg var ákveðinn og sendi á hana eitt kvöld að hún væri að keyra í hverfinu hennar og bauð henni í ís, sem var að sjálfsögðu lygi og þurfti hún að keyra virkilega hratt til þess að vera trúverðug þegar Silja samþykkti rúntinn. Þær hafa verið saman allar götur síðan og eiga í dag saman tvær stelpur.Í þættinum ræddum við meðal annars um samtökinn og hvernig það er að vinna innan þeirra, baráttumálin og bakslagið sem hefur átt sér stað undanfarin ár, rómantíkina, fjölskyldulífið, ferðalög og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, meðal annars þegar þær þurftu óvænt að sofa undir berum himni í eyðimörk á Indlandi.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejarSmitten - https://smittendating.com/
Körfuboltamaðurinn Ægir Þór Steinarsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi körfuboltakonunni Heiðrúnu Kristmundsdóttur.Ægir hefur verið einn okkar allra besti körfuboltamaður til margra ára en fór hann ungur í atvinnumennsku í körfunni og var hann lengst af á Spáni en einnig í Svíþjóð og Argentínu, þessa dagana spilar Ægir með Stjörnunni ásamt því að vera fastamaður Íslenska landsliðsins.Heiðrún er einnig mikið í körfunni en fór hún á námsstyrk til bandaríkjanna þar sem hún spilaði samhliða náminu. Heiðrún hefur þjálfað mikið bæði í meistaraflokki og yngri landslið en situr hún í dag í stjórn KKÍ.Ægir og Heiðrún hafa lengi vitað af hvert öðru en var Ægir ungur orðin ástfangin af henni Heiðrúnu. Heiðrún tók þó eitthvað lengri tíma í að átta sig á hlutunum en það var eitt örlagaríkt kvöld á leið heim úr bænum sem hún áttaði sig á Ægir væri nú sennilega bara maðurinn fyrir hana. Einhverju seinna fara þau síðan á stefnumót sem gekk glimrandi vel en daginn eftir stefnumótið fékk Ægir tilboð um atvinnumennsku á Spáni, þau létu það þó ekki stoppa ástina og hófu í raun samband sitt í fjarsambandi. Í dag eru þau gift og eiga saman þrjú börn á aldrinum tveggja og hálfs til fimm ára svo það má segja að það sé nóg að gera hjá þeim.Í þættinum ræddum við meðal annars um körfuboltann, atvinnumennskuna, árin á Spáni, Argentínu ævintýrið, fjölskyldulífið, rómantíkina og margt fleira ásamt því að fá að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð meðal annars þegar mómentinu sem þau átta sig að þriðja barnið er væntanlegt.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejarSmitten - https://smittendating.com/
Útvarpslegendið og plötusnúðurinn Heiðar Austmann mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi bókaranum og naglafræðingnum Kolfinnu Guðlaugsdóttur.Heiðar ættu flestir að þekkja en hefur rödd hans hljómað í útvörpum landsmanna frá árinu 1998, hvorki meira né minna, en tók hann þá sína fyrstu vakt á FM957 en vann hann þar í heil 18 ár og var hann meðal annars um tíma dagskrárstjóri stöðvarinnar. Í dag hefur hann þó fært sig um set en starfar hann nú á útvarpsstöðinni K100.Kolfinna er naglafræðingur að mennt og vann hún sem slíkur í dágóðan tíma áður en mamma hennar náði að snara henni yfir í fjölskyldu businessinn en rekur hún einmitt bókarastofu.Heiðar og Kolfinna kynntust fyrst þegar Heiðar ákvað að senda henni skilaboð á Facebook og spurði hana hvort hann mætti bæta henni við sem vini. Hlutirnir fóru þó hægt af stað og kólnuðu samskipti þeirra um tíma þegar Heiðar ætlaði að prófa ákveðna taktík, hann gafst þó upp á henni og sendi henni aftur skilaboð og hafa þau verið saman síðan þá, eru í dag gift og eiga saman einn strák en átti Heiðar tvær stelpur og Kolfinna eina úr fyrri samböndum.Í þættinum ræddum við meðal annars langan og skemmtilegan útvarpsferil Heiðars, samsetningu fjölskyldunar, brúðkaupið, bónorðið, rómantíkina og margt fleira, ásamt því að fá að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar Kolfinna varð svöng og þreytt á brúðkaupsnóttinni.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejarSmitten - https://smittendating.com/
Fatahönnuðurinn, frumkvöðullinn og verslunareigandinn Katla Hreiðarsdóttir mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi alt muligt manninum Hauki Unnari Þorkelssyni.Katla hefur undanfarin ár verið að slá í gegn í fatahönnunnar heiminum en árið 2008 stofnaði hún vörulínuna Volcano design sem vatt upp á sig og er hún nú að sjá um rekstur á búðinni Systur og Makar, rekur sumarhúsaleigu og sér um rekstur á veislusal.Haukur hefur brallað ýmislegt í gegnum tíðina en starfar þessa stundina með Kötlu í öllum þessum rekstri ásamt því að reka verktakafyrirtæki með bróður Kötlu.Katla og Haukur hittust fyrst þegar Haukur mætti til hennar í búðina með blómvönd, kakó og hálsbrjóstsykur þar sem Katla hafði talað um að hún væri eitthvað slöpp. Katla var efins um að haukur væri mögulega aðeins of væminn fyrir sig. Það virtist þó ekki hafa áhrif og voru hlutirnir fljótir að gerast hjá þeim en eru þau í dag gift með fjögur börn en fylgdu tvö af þeim fylgdu Hauki úr fyrra sambandi.Í þættinum ræddum við meðal annars um búðina þeirra og hvernig það ævintýri hófst allt saman, hvar áhugi Kötlu kviknaði á fatahönnun, hvernig það var að sameina fjölskylduna, brúðkaupið, rómantíkina húmorinn og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar það varð ansi óheppilegt slys á ferðalagi þeirra um England nú fyrir skemmstuÞátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejarSmitten - https://smittendating.com/
Áhrifavaldurinn, markaðsstjórinn og umboðsmaðurinn Birgitta Líf Björnsdóttir mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi sjómanninum og þúsundþjalasmiðnum Enok Jónssyni.Birgitta hefur verið áberandi í íslensku samfélagi til fjölda ára en er hún einn stærsti áhrifavaldur landsins. Ásamt því starfar hún einnig sem markaðsstjóri í fjölskyldufyrirtækinu World Class á milli þess sem hún sér um umboðsstörf fyrir Pretty boy chokko en eins og það sé ekki nóg er hún líka að gefa út aðra seríu af þáttunum LXS sem sýndir verða á stöð 2 og fara þeir í loftið núna 6. september næstkomandi.Enok er sannkallaður þúsundþjalasmiður en hefur undanfarið verið að skella sér á sjóinn og kann hann mjög vel við það. Á milli þess sem hann vinnur á sjónum vinnur hann í allskyns iðnaði og er þessa stundina að hjálpa til við stækkun á World Class stöðinni á Selfossi.Birgitta man fyrst eftir að sjá Enok þegar hann var að halda upp á tvítugs afmælið sitt á skemmtistaðnum hennar Bankastræti Club en minntist þess þó að hafa áður þurft að hafa afskipti af honum fyrir alls kyns uppákomur inn á þeim stað. Það var þó ekki fyrr en töluvert síðar að Enok vissi af því að hún væri í góðra vina hópi og snýkti sig inn í þá samkomu og hafa þau ekki verið í sundur síðan og eiga í dag von á sínu fyrsta barni.Í þættinum ræddum við meðal annars um áhrifavalda mennskuna og hvernig það er að vera mikið á milli tannanna á fólki, hvernig það er að díla við neikvæð komment, sjómennskuna, óléttuna, athyglina, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum meðal annars frá raunverulegu augnarblikinu sem þau hittust fyrst.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejarSmitten - https://smittendating.com/
Vörumerkjastjórinn, bloggarinn og áhrifavaldurinn Erna Hrund Hermannsdóttir kíkti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi hlauparanum og píparanum Jóni Kristófer Sturlusyni.Erna Hrund er þessa stundina vörumerkjastjóri Snyrti og sérvara hjá Danól, dóttur fyrirtæki ölgerðarinnar, en er hún einmitt menntuð í markaðsmálum og förðunarfræði og á því þessi staða einstaklega vel við hana. Erna hefur í gegnum tíðina verið áberandi í íslensku samfélagi og er hún ófeimin við að opna sig um allskyns persónuleg málefni en var hún einmitt einn bloggara trendnet, þar sem hún talaði bæði mikið um tísku og persónulegar upplifanir af ýmsu tagi.Jón eða Jonni eins og hann er alltaf kallaður er í dag einn okkar fremsti langhlaupari en átti hann til að mynda þriðja besta tímann í Reykjavíkurmaraþoninu nú á dögunum og stefnir hann hátt í hlaupa heiminum. Ásamt því að hlaupa er hann að klára píparann en vinnur hann samhliða náminu í pípulögnum.Erna og Jonni sáust fyrst á göngum ölgerðarinnar en voru þau einmitt bæði að vinna þar um tíma. Ernu fannst hann heillandi og vildi svo til að þau mötsuðu einmitt á Tinder. Hlutirnir fóru þó hægt af stað hjá þeim og var í raun ekki fyrr en á jólahlaðborði töluvert seinna að hjólin fóru að snúast hjá þeim og hafa þau hvorug litið um öxl síðan og eiga í dag saman eina stelpu en átti Erna tvo stráka úr fyrra sambandi.Í þættinum ræddum við meðal annars um Bloggheiminn og ákvörðunina um að hætta reglulegum skrifum þar, samsetningu fjölskyldunar og hvernig það var fyrir Jonna að koma inn í stjúpföður hlutverkið, hlaupin, sambandi, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Erna klaufaðist hressilega í byrjun deit tímabilsins.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejarSmitten - https://smittendating.com/
Fótboltakonan og næringafræðingurinn Elísa Viðarsdóttir mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi fótboltamanninum og dönsku kennaranum Rasmus Christiansen.Elísa spilar þessa stundina með Val en sitja þær einmitt í efsta sæti Bestu deildarinnar og virðist fátt benda til þess að það muni eitthvað breytast. Elísa er einnig fastamaður í Íslenska landsliðinu í fótbolta og mikil fyrirmynd. Fyrir utan fótboltann er Elísa næringarfræðingur hjá Heil heilsustofnun og vinnur einnig sem slíkur hjá Feel Iceland svo það er nóg að gera.Rasmus hefur komið víða við á fótbolta ferli sínum hér á landi en hann kom ungur til landsins frá Danmörku og byrjaði að spila fyrir ÍBV. Rasmus var þó lengst af í Val en er hann í dag að vinna hörðum höndum að því að koma Aftureldingu í fyrsta skipti í efstu deild karla á Íslandi. Rasmus starfar einnig sem kennari í Hagaskóla en kennir hann að sjálfsögðu dönsku við skólann.Rasmus og Elísa kynntust fyrst þegar Rasmus var að stíga sín fyrstu skref í boltanum hérna heima, þá í ÍBV, en var Elísa einmitt líka að ryðja sér til rúms í sama liði kvenna meginn enda ættuð úr Eyjum. Þau urðu fljótt miklir vinir og héngu mikið saman, hvort sem það var í kringum boltann eða á rúntinum um bæjinn. Það tók þau þó töluvert langann tíma að festa ráð sitt en voru þau bæði mjög fókuseruð á fótboltann og vildu síður festa sig í einhverju sem gæti skemmt fyrir því. Þau gáfust þó upp þegar þau bjuggu í sitthvoru landinu stuttu seinna og áttuðu sig á því að þau ættu bara að vera par og hafa þau verið saman allar götur síðan og eiga í dag eina dóttur.Í þættinum ræddum við fótboltann, ferilinn, landsliðið, hvernig það er að sameina boltann og fjölskyldu, utanlandsferðir, rómantíkina og vináttuna, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Elísa lét mömmu sína prjóna á hann ullarpeysu furðu snemma.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejarSmitten - https://smittendating.com/
Leikkonan, nándarþjálfarinn og hlaðvarpsnýstyrnið Kristín Lea Sigríðardóttir mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi Casting directornum Vigfúsi Þormari Gunnarssyni.Kristín Lea gaf nýverið út fyrstu seríuna af hlaðvarpinu Morðsál sem hefur notið gríðarlegra vinsælda en fjallar hún þar um íslensk morðmál. Kristín er nýhætt sem flugfreyja fyrir Play en ásamt hlaðvarpinu vinnur hún mikið í kringum kvikmyndaframleiðslu ýmist sem leikkona, leikþjálfari eða nándarþjálfari.Vigfús er eigandi fyrirtækisins Dorway Casting, en stofnaði hann það fyrirtæki ásamt Kristínu 2018. Vigfús sér þar um að raða leikurum í hlutverk fyrir hin ýmsu tilefni, hvort sem það er í kvimyndir eða auglýsingar. Áður hafði hann lært leiklist og byrjaði strax eftir útskrift í kvikmyndaskólanum að vinna í kringum kvikmyndaiðnaðinn og fann sinn sess í casting og hefur ekki litið til baka síðan.Kristín og Vigfús kynntust í kvikmyndaskólanum þar sem þau voru bæði að læra leiklist en tók það Kristínu dágóðan tíma að gera Vigfúsi það ljóst að hún væri eitthvað skotin í honum. Eftir þó nokkuð mörg skilaboð áttaði hann sig loksins á því hvernig var í pottinn búið og hafa þau verið saman allar götur síðan og eru í dag gift með tvo stráka og hvolp.Í þættinum ræddum við meðal annars um hlaðvarpið og hvernig hugmyndin af því kviknaði, kvikmyndabransann, hvernig það er að vinna náið með makanum sínum, rómantíkina, húmorinn og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar Vigfús var ekki alveg með hlutina á hreinu þegar það kom að ruslaferð eftir sumarbústaðadvöl.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Leikkonan og langhlauparinn María Thelma Smáradóttir mætti til mín í stórskemmtilegt og einlægt spjall ásamt sínum betri helmingi boxaranum, Íþrótta og viðskiptafræðingnum Steinari Thors.María er leikkona að mennt og hefur unnið fjölbreytt verkefni innan þess geira en fyrsta verkefnið hennar var að stærri gerðinni þar sem hún lék eitt tveggja hlutverka í myndinni Arctic á móti leikaranum Mads Mikkelssen. Þar fyrir utan hefur hún leikið í mörgum íslenskum þáttaröðum sem og starfað við Þjóðleikhúsið en mun hún einmitt stíga þar á svið á næsta leikári.Steinar er íþróttafræðingur að mennt en var hann um langt skeið yfirþjálfari Mjölnis en var hann einmitt einn fremsti boxari landsins um á sínum tíma. Í dag vinnur hann hjá sprotafyrirtækinu Straumi ásamt því að stunda meistaranám í viðskiptafræði.Bæði vinna þau svo hörðum höndum í framkvæmdum en eru þau þessa stundina að koma íbúð sinni í stand.María og Steinar hafa ólíka sýn á þeirra fyrstu kynnum en höfðu leiðir þeirra legið saman af og til í gegnum tíðina bæði í kringum líkamsrækt en svo einnig á kvikmyndasetti en var Steinar áhættuleikari í seríu sem María var að leika í. Það var svo eitt kvöldið að María laumaðist inná Tinder og sá Steinar þar og ákvað hún þá og þegar að þessum manni ætlaði hún að giftast. Hún sendi honum skilaboð og fóru þau að deita í kjölfarið. Eftir langt deittímabil og smá hikst náðu þau svo að stilla strengi sína og hafa þau verið saman allar götur síðan, eru trúlofuð og spennandi tímar framundan.Í þættinum ræddum við meðal annars framkvæmdirnar og málamiðlanir, lífið í leiklistinni og hvernig það var að fá svona stórt verkefni í byrjun ferilsins, boxið og viðskiptalífið, snilldina við sambandsráðgjöf, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar María strauk Steinari í svefn í upphafi sambandsins.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Leikaraparið og listafólkið Aldís Amah Hamilton og Kolbeinn Arnbjörnsson tóku sér frí frá góða veðrinu og mættu til mín í stórskemmtilegt og einlægt spjall yfir rjúkandi heitum bolla.Aldís hefur verið áberandi á skjám landsmanna undanfarin misseri en leikur hún meðal annars aðalhlutverk sjónvarpsþáttanna Svörtu sanda en skrifaði hún einnig handritið á þeirri þáttaröð. Fyrir utan það hefur hún sést á í þáttum og bíómyndum og sem dæmi má nefna Netflix þættina Kötlu.Kolbeinn er einnig leikari og hefur hann mikið unnið innan sjálfstæðu leikhússenunar en hefur líkt og Aldís sést meira á skjám landsmanna undanfarið.Aldís og Kolbeinn kynntust fyrst við gerð sjónvarpsþáttanna Svörtu sanda en léku þau einmitt bæði burðarhlutverk í þeim þáttum. Hjólin fóru þó ekki að snúast fyrr en í lokapartýinu en voru þau þó ekkert að flýta sér að hlutunum. Það flækti málin örlítið að þau bjuggu ekki í sama sveitarfélagi en búa þau í dag saman í Reykjavík með einn hund en átti Kolbeinn einnig tvær dætur úr fyrra sambandi.Í þættinum ræddum við meðal annars um samskipti og áhuga þeirra beggja á sambandinu, leiklistina og hvernig áhugi þeirra kviknaði á henni, rómantíkina, húmorinn og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð meðal annars ansi fallega sögu af fyrstu kynnum Aldísar við dætur Kolbeins.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Fjöllistamaðurinn, skemmtikrafturinn og töframaðurinn Lárus Blöndal Guðjónsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi viðskiptafræðingum Heiðrúnu Örnu Friðriksdóttur.Lárus eða Lalli eins og hann er alltaf kallaður þekkja flestir undir listamannsnafninu Lalli töframaður en hann er einstaklega fjölhæfur skemmtikraftur og einmitt best þekktur fyrir töframennskuna, fyrir utan hana hefur hann meðal annars gefið út plötu, skrifað bók og komið fram við ýmis tækifæri.Heiðrún er viðskiptafræðingur að mennt og starfar í dag sem aðstoðarmaður fjármálastjóra hjá fyrirtækinu Controlant en hefur hún einnig fengist við viðburðarstýringu og verkefnastjóri hjá Siðmennt.Lalli og Heiðrún kynntust á nútímalegann hátt í gegnum Tinder, en fóru hlutirnir rólega af stað en má segja að hjólin hafi farið að snúast fyrir einhverri alvöru þegar Heiðrún plataði hann með sem fararstjóra í verkefni sem hún var að viðburðastýra. Lalli átti þó í einhverjum smá vandræðum með að festa ráð sitt og þurfti að kæla hlutina aðeins til þess að átta sig, en hafa þau verið saman allar götur síðan og eiga í dag saman tvo stráka en átti Heiðrún tvö börn fyrir.Í þættinum ræddum við meðal annars um töframennskuna og hvar áhuginn fyrir henni kviknaði, skemmtanabransann, bæði brúðkaupin þeirra, rómantíkina, húmorinn og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar þau urðu vitni af ansi klaufalegum atburði á nektarströnd í Sitges.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Listamennirnir, leikararnir og leikstjórarnir Hannes Óli Ágústsson og hans betri helmingur Aðalbjörg Árnadóttir mættu til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall yfir rjúkandi heitu kaffi.Hannes Óli hefur slegið rækilega í gegn bæði sem frábær eftirherma Sigmundar Davíðs í áramótaskaupinu og svo í hollywood sem jaja ding dong gaurinn. Hann hefur komið víða við á fjölum leikhúsanna og er hann þessa stundina að kenna við Listaháskóla Íslands.Aðalbjörg hefur einnig gert það gott sem leikkona í gegnum tíðina en hefur hún líka mikið fengist við leikstjórn. Hún vinnur mikið innan sjálfstæðu senunar en hefur einnig leikstýrt leiksýningum í öllum helstu leikhúsum Íslands.Hannes og Aðalbjörg sáust fyrst í framhaldsskóla þar sem þau voru mikið í kringum sama fólkið og mættu mikið í sömu partýin. Árin liðu og voru þau bæði mætt í Listaháskólann og Aðalbjörg mjög fókuseruð að finna konu handa Hannesi, það var ekki fyrr en vinkona hennar spurði hana hreint út “hvað með þig?” að aðalbjörg hafði samband við Hannes og þau detta í skemmtistaðasleik og var þá ekki aftur snúið, síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar en hafa þau verið saman allar götur síðan og eiga í dag saman eitt barn.Í þættinum ræddum við meðal annars um lífið í listinni, Jaja ding dong ævintýrið og hvernig það hlutverk óx í höndunum á Hannesi, rómantýkina, tengingu þeirra við lansbyggðina, fjölskyldulífið og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Leikkonan Svandís Dóra Einarsdóttir mætti til mín í einlægt og stórskemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi Sigtryggi Magnasyni.Svandís hefur vakið mikla athygli undanfarinn misseri fyrir stórkostlegan leik sinn í þáttunum Aftureldingu, þar sem gamall handbolta bakgrunnur hennar kom sér heldur betur að góðum notum. Svandís hefur einnig unnið mikið hjá þjóðleikhúsinu en er einmitt hægt að sjá hana á sviði í sýningunni til hamingju með að vera mannleg.Sigtryggur hefur brallað ýmislegt í gegnum tíðina en hefur hann meðal annars skrifað leikrit, unnið í blaðamennsku, hjá auglýsingaskrifstofum og mæti lengi telja. Þessa stundina vinnur hann sem aðstoðarmaður hjá innviðaráðuneytinu en hefur hann unnið í kringum pólitík af og til síðan 2009.Svandís og Sigtryggur kynntust fyrst í gegnum listina en var Sigtryggur fenginn til þess að skrifa leikrit fyrir útskriftarárgang Svandísar í listaháskólanum. Þau fundu snemma að þau ættu vel saman en var það ekki fyrr en á tónlistarhátíðinni Lunganu sem rómantíkinn kviknaði og hafa þau verið saman allar götur síðan, eru gift og eiga saman einn strák en átti Sigtryggur þrjú börn úr fyrra sambandi.Í þættinum ræddum við meðal annars um leikhúsið og leiklistina, hestamennskuna, rómantíkina, húmorinn, hvernig það var að verða stjúpmamma og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar Sigtryggur þurfti að endurtaka bónorð sitt oftar en flestir.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Fótbolta og tónlistarmaðurinn Guðmundur Þórarinsson eða Gummi Tóta eins og hann er betur þekktur mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum Betri helmingi verkfræðingnum Guðbjörgu Ósk Einarsdóttur.Gummi hefur verið atvinnumaður í fótbolta undanfarin tíu ár og hefur spilað víða á sínum ferli og meðal annars unnið titla með liði sínu New York City en spilar hann í dag í Grikklandi. Ásamt því að vera fótboltamaður er Gummi einnig áberandi í popp menningu Íslands en hefur hann samið hvern slagarann á fætur öðrum og fáir íslendingar sem ekki geta tekið undir lagið hans Sumargleðin.Guðbjörg er Njarðvíkingur í húð og hár og eins og margir sem koma þaðan er körfubolti stór hluti af hennar uppvaxtarárum, hún sagði þó skilið við körfuna og er hún í dag í fjarnámi í Verkefnastjórnun eftir að hafa klárað viðskiptaverkfræði.Gummi og Guðbjörg kynntust eins og margir í nútíma samfélagi í gegnum samfélagsmiðla en það náði þó aldrei neitt langt fyrsta árið. Ári síðar hittust þau á tómum Keflarvíkurflugvelli í Covid hámarki sem hlaut bara að vera einhver að segja þeim að þau ættu að gera eitthvað meira úr þessu og hafa þau verið saman allar götur síðan og eiga í dag saman eina litla stelpu.Í þættinum ræddum við meðal annars um lífið í fótboltanum, hvernig það er að búa í Grikklandi, hvernig það er fyrir Guðbjörgu að koma sér inn í lífið á Krít, rómantíkina, húmorinn og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar Guðbjörg var illa á sig komin á Brooklyn bridge.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Leikarinn, leikstjórinn og tónlistarmaðurinn Guðmundur Ingi Þorvaldsson mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi landslagsarkitektúrnum Heiðu Aðalsteinsdóttlur.Guðmundur eða Gummi eins og hann er oftast kallaður hefur komið víða við á sviði leiklistarinnar en var hann um langt skeið leikhússtjóri Tjarnabíós. Hann hefur undanfarið verið áberandi bæði hérlendis sem og erlendis í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum en er hann þessa dagana að leika í sínum öðrum tölvuleik en fór hann með stórt hlutverk í tölvuleiknum Assassin's creed.Heiða er landslagsarkitekt að mennt en er hún þessa dagana að sinna stefnumótandi stjórnun og umsjón með skipulagi og umhverfismati á starfssvæðum Carbfix, en eru þau að gera virkilega áhugaverða hluti sem hún fór aðeins í í þættinum.Gummi og Heiða kynntust fyrst þegar Gummi var að kenna á leiklistarnámskeiði í sveitinni þar sem hann er uppalin, en hafði Heiða skráð sig á námskeiðið í ákveðnu hugsunarleysi. Þegar hún mætti í fyrsta tíman sá hún svo Gumma og heillaðist alveg um leið. Gummi hafði nýverið hætt í erfiðu sambandi og var því ekki að leita að ástinni en var eitthvað við Heiðu sem dró hann inn og hafa þau verið saman allt frá þeirra fyrsta stefnumóti og eru í dag gift með tvo stráka.Í þættinum ræddum við meðal annars um leiklistina og hvernig það er að leika í tölvuleik, áhugann á íslenskri náttúru, ADHD sem þau glíma bæði við, erfiða leið þeirra við að eignast sitt annað barn, rómantíkina, tilfinningar, húmorinn og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð meðal annars þegar Heiða fór mannavillt á ansi skrautlegann hátt.Þátturinn er í boði:RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Hlaðvarps stjörnurnar og drauga sérfræðingarnir Stefán John Stefánsson og Katrín Bjarkadóttir mættu til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall nú á dögunum.Katrín og Stefán byrjuðu árið 2020 með podcast þáttinn Draugasögur og hefur verið vægast sagt brjálað að gera hjá þeim í hlaðvarpsframleiðslu en gefa þau út samtals þrjá podcastþætti, Draugasögur, Sannar íslenskar draugasögur og Mystík. En hafa þau bæði brennandi áhuga á yfirnáttúrulegum málefnum.Stefán og Katrín kynntust fyrst þegar Stefán sendi Katrínu fyrirspurn um að koma í nokkurs konar samstarf við sig fyrir fatalínu sem hann var að framleiða og selja. Þau eyddu miklum tíma tvö saman í fundi og annað slíkt og fundu fljótt að þau væru bara nokkuð skotin í hvort öðru og gerðust hlutirnir hratt hjá þeim í kjölfarið, enda bæði á þeim stað að nenna ekki einhverjum leikjum.Í dag eru þau gift og eiga samtals fjögur börn sem öll fylgdu þeim úr fyrri samböndum.Í þættinum ræddum við meðal annars um hlaðvarpið og hvernig það ævintýri hófst allt saman, næmni Katrínar sem hún erfði frá móður sinni, draugaransóknarleiðangra sem þau stunda, fjölskyldulífið, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambands tíð þar á meðal ansi óhefðbundum brúðkaupsdegi.Þátturinn er í boði:RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Fjölmiðlakonan Þórdís Valsdóttir mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi alhliða markaðs manninum Hermanni Sigurðssyni.Þórdís er búin að fylgja þjóðinni heim úr vinnunni undanfarin fjögur ár en er hún einn þáttastjórnanda Reykjavík síðdegis á bylgjunni ásamt því er hún einnig að gera innslög fyrir Ísland í dag auk allskonar sjónvarps og útvarps tengdum verkefnum.Hermann sér um markaðsmálin hjá Artasan en hefur hann einmitt komið víða við í markaðsmálum og er aldeilis ekki við eina fjölina felldur þegar það kemur að þeim.Þórdís og Hermann kynntust fyrst þegar Hermann addaði henni á instagram og og fundu þau strax að þau ættu heilmarkt sameiginlegt. Þau áttuðu sig fljótt að þau væru nú alveg eitthvað smá skotin. Hermann reið svo á vaðið og bauð Þórdísi í fjallgöngu en var þó alveg harður á því að hann væri ekki að fara á stefnumót, þó Þórdís hafi vissulega verið á öðru máli.Síðan þá hafa þau verið saman en eiga þau samtals fimm börn úr öðrum samböndum.Í þættinum ræddum við meðal annars um stóra samsetta fjölskyldu og hvernig það gekk hjá þeim að sameina krakkaskarann, vikurnar þeirra saman og í sundur, hvar áhugi Þórdísar kviknaði á fjölmiðlamennsku, rómantíkina, fjallamennskuna, ferðalög og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar plan Þórdísar um að koma Hermanni á óvart með Parísarferð fór aðeins á annan hátt en planað var.Þátturinn er í boði:RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Leikarinn Hjörtur Jóhann Jónsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt og einlægt spjall ásamt sínum Betri helmingi listakonunni og leikmynda hönnuðinum Brynju Björnsdóttur.Hjörtur hefur nú verið fastráðinn leikari við borgarleikhúsið síðan 2016 og hefur leikið fjöldan allan af hlutverkum og vann til að mynda grímuna árið 2019 fyrir leik sinn í Ríkharði III. Ásamt því að standa vaktina á sviðinu er hann líka búinn að vera áberandi í kvikmyndaheiminum nú síðast í Napoleon skjölunum og hrollvekjunni Óráð.Brynja er listmálari í grunninn en ákvað hún að sameina ástríðu sína á myndlist og leikhúsi og skellti sér í meistaranám til London og lærði þar leikmyndahönnun árið 2013 og hefur hún síðan þá hannað og unnið að gerð leikmynda fyrir öll helstu leikhús landsins.Hjörtur og Brynja kynntust fyrst í stúdentaleikhúsinu þar sem þau voru að leika hjón og voru þeirra fyrstu kynni myndataka þar sem þau þurftu að taka brúðkaupsmynd af sér fyrir sviðsmun. Það var þó ekki fyrr en ári síðar að þau fóru að stinga saman nefjum og hafa þau verið saman allar götur síðan eða í rúm 13 ár og giftu sig síðasta sumar, en eiga þau saman tvö börn.Í þættinum ræddum við meðal annars um leikhúslífið og hvar áhugi þeirra kviknaði á því, fjölskylduna og hvernig það er að samtvinna vinnu og heimili, brúðkaupið, trúlofunina, rómantíkina og margt fleira, ásamt því að heyra margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar Hjörtur gubbaði bókstaflega af hlátri.Þátturinn er í boði:RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Tónlistar og söngkonan Elín Eyþórsdóttir mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi leikkonunni Írisi Tanju Flygenring.Elín hefur verið lengi áberandi í tónlistinni en þó kannski sjaldan jafn áberandi og á síðasta ári en tók hún einmitt þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd ásamt systrum sínum og bróður. Síðan þá hefur verið mikið að gera í músíkinni og gáfu þær systur til að mynda nýverið út lagið Furðuverur sem fór beint inná alla helstu vinsældarlista.Það hefur ekki verið minna að gera hjá Írisi í listinni en fór hún einmitt með burðarhlutverk í Netflix þáttaröðinni Kötlu. Þessa dagana er hún síðan í fullum undirbúningi fyrir söngleik í Borgarleikhúsinu ásamt því að sinna fræðslu fyrir samtökin 78.Elín og Íris kynntust í gegnum instagram, en hafði Íris verið skotin í Elínu um nokkurt skeið og var Elín farin að taka eftir því að það væri töluverð umferð vinkvenna Írisar að njósna um hana á instagram, Elín lagði saman tvo og tvo og addaði Írisi á afmælisdeginum hennar og hafa þær hvorugar litið um öxl síðan.Í dag eru þær trúlofaðar með þrjú börn.Í þættinum ræddum við meðal annars um sameiningu fjölskyldunar, lífið í listinni, rómantíkina, trúlofunina og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar karma beit Elínu rækilega í rassin eftir pirringskast við samsetningu ikea rúms.Þátturinn er í boði:RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson eða Stebbi Jak eins og margir þekkja hann mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi útvarpskonunni og þjálfaranum Kristínu Sif Björgvinsdóttur.Stefán er einna þekktastur fyrir það að vera söngvari þungarokkshljómsveitarinnar Dimmu en hafa þeir einmitt verið virkilega vinsælir hér á landi um þónokkurt skeið og tóku til að mynda þátt í söngvakeppninni árið 2020 sem er kanski ekki dæmigert fyrir þungarokksband.Kristín hefur starfað í morgunútvarpi K100 í átta ár núna en ásamt því hefur hún verið að þjálfa líkamsrækt af ýmsu tagi en byrjaði það allt á boxinu og hefur hún meðal annars tvisvarsinnum hreppt annað sætið á norðurlandamóti í boxi. Þessa dagana er hún ásamt útvarpsmennskunni næringaþjálfari hjá ITS.Stefán og Kristín kynntust einmitt í gegnum störf sín, Stefán sem söngvari og Kristín sem útvarpskona og urðu þau strax mjög góðir vinir en lýstu þau því að það væri eins og þau hefðu einhverveginn alltaf þekkst. Hlutirnir breyttu svo um stefnu þegar Kristín viðurkenndi fyrir Stefáni að hún væri skotin í honum og hafa þau hvorug litið um öxl síðan og eru í dag trúlofuð með samtals fimm börn.Í þættinum töluðum við meðal annars um tónlistina og hvar áhuginn á henni kviknaði, útvarpið og hvernig það er að vakna alltaf svona snemma á morgnana, fjölskyldulífið, ferðalög, rómantýkina og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð meðal annars þegar Stefán fékk heldur betur óvænta afmælisgjöf.Þátturinn er í boði:RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Ljósmyndarinn, athafnamaðurinn, hlaðvarpsstjarnan og áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi athafnamanninum Pétri Björgvin Sveinssyni.Helgi hefur verið áberandi undanfarin ár á samfélagsmiðlunum en hefur hann meðal annars lengi verið bloggari á einni vinsælustu bloggsíðu landsins Trendnet ásamt því að stjórna podcast þættinum Helgarspjallið en er hann einnig vinsæll tísku ljósmyndari og fyrirsæta.Pétur hefur unnið lengi í kringum tískugeirann en þó aðalega séð um viðskiptafræðilegu hliðina. Þessa dagana eru þeir síðan að fara saman af stað í verkefni sem ætti að fá að líta dagsins ljós allra næstu daga en tala þeir einmitt um það í þættinum.Helgi og Pétur kynntust fyrst fyrir fimmtán árum síðan og voru þeir lengi vel miklir vinir áður en þeir fóru að stinga saman nefjum. Helgi var þó alltaf mjög skotinn í Pétri en Pétur tók lengri tíma í að átta sig á þessu svo Helgi seldi sjálfum sér þá hugmynd að hann hlyti bara að vera heimskur sem var þó meira til að setla sjálfan sig ein eitthvað annað. Það var síðan eitt örlagaríkt kvöld í partýi á Söngvakeppninni sem hlutirnir fóru að gerast og hafa þeir verið saman allar götur síðan og eru í dag trúlofaðir og eiga saman hundinn Nóel.Í þættinum ræddum við meðal annars um áhuga þeirra á stjörnuspeki, langan aðdraganda sambandsins, reksturinn sem þeir eru að fara saman útí, virðinguna, vináttuna, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar Helga tókst að finna tvífara Péturs á ljósbláu síðunum.Þátturinn er í boði:RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Áhrifavaldurinn og ævintýrakonan Ása Steinarsdóttir mætti til mín í áhugavert og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi ævintýramanninum Leo Alsved.Ása hefur verið að gera rosalega hluti á samfélagsmiðlum síðum þar sem hennar aðal fókus hefur verið ferðamennska og þá sérstaklega á Íslandi. Ása sá tækifæri í að sameina tvö af sínum stærstu áhugamálum, ljósmyndun og ferðamennsku fyrir þónokkru síðan en byrjaði þetta allt á bloggi en er hún í dag einn stærsti áhrifavaldur landsins með rúmlega 600 þúsund fylgjendur á tiktok og hátt í 800 þúsund á Instagram.Leo vinnur í dag í kringum miðlana hjá henni Ásu enda nóg um að vera í allskonar alþjóðlegum samstörfum. Áður fyrr rak Leo þó vinsælt viðburðarfyrirtæki sem sérhæfði sig í siglingar og skíða festivölum.Ása og Leo kynntust einmitt á slíku festivali en fór Ása þá með vinkonu sinni í siglingar festival í Króatíu og var það svo gaman að þær bókuðu strax ferð í skíðafestivalið hjá fyrirtækinu hans Leo. Það var einmitt þar sem hlutirnir fóru að gerast en bauð Ása honum að koma í heimsókn sem hún bjóst þó ekki við að yrði strax nokkrum vikum síðar. Hlutirnir þróuðust hægt hjá þeim enda búsett í sitthvoru landinu. Það var því heilum sex mánuðum eftir þeirra fyrsta stefnumót að þau ákváðu að reyna á að vera par og eru þau í dag gift með eitt barn.Í þættinum ræddum við meðal annars um líf þeirra í áhrifavaldaheiminum, ævintýrin, ferðalög og hver er þeirra uppáhaldsstaður í heiminum, ljósmyndunina, rómantíkina og margt fleira. Svo fengum við að sjálfsögðu að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Ása stalst í að nota tannburstann hans Leo í heila viku.Þátturinn er í boði:RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Athafnamaðurinn og fyrrum fjölmiðlamaðurinn Ásgeir Kolbeinsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi heilsu markþjálfanum Heru Gísladóttur.Ásgeir hóf sinn starfsferil ungur á FM957 og hefur hann í gegnum tíðina séð um hina ýmsu útvarps og sjónvarpsþætti áður en hann vatt sér útí viðskiptalífið en rak hann um langt skeið skemmtistaðinn Austur en í dag á hann og rekur veitingastaðinn vinsæla Punk.Hera er nýbúin að ljúka nám í heilsumarkþjálfun og er spennandi tímar framundan hjá henni sem fá að líta dagsins ljós í lok árs.Ásgeir sá Heru fyrst þar sem hún var að þjóna á Austur og leist strax vel á stelpuna, hann hikaði ekki lengi heldur gekk til hennar þar sem hún hélt á bakka fullum af glösum þegar Ásgeir stoppar hana og spyr hana hver hún sé, hann bað hana um númerið sem hún bunaði út úr sér en Ásgeir náði að leggja á minnið og sendi henni skilaboð seinna um kvöldið og var þá ekki aftur snúið. Í dag eru þau búin að vera saman í tíu ár og eiga þau saman einn strák.Í þættinum ræddum við meðal annars um heilsuna í víðu samhengi, en er það mikil ástríða hjá þeim báðum, stjörnuspeki, Austur ævintýrið, rómantíkina og fjölskyldulífið ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar Hera var ekki alveg tilbúin að sleppa tökum á naglalakkinu um borð í flugvél.Þátturinn er í boði:RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Ég átti eitt áhugaverðasta og semmtilegasta spjall sem ég hef átt lengi við pararáðgjafann Theodór Francis Birgisson og hans Betri helming félagsráðgjafann Katrínu Katrínardóttur.Theodór eða Teddi eins og hann er oftast kallaður er einn eiganda fjölskyldu og áfallamiðstöðvarinnar Lausnarinnar og er hann einn allra vinsælasti pararáðgjafi landsins en hefur hann hjálpað fjöldanum öllum af pörum í gegnum tíðina og eru langir biðlistar eftir því að komast að hjá honum.Katrín er einnig einn eiganda Lausnarinnar og sér hún aðallega um einstaklingsráðgjöf á milli þess sem hún málar glæsileg málverk.Teddi og Kata sáust fyrst ung á samkomu í hvítasunnukirkjunni en spilar trúin stórann þátt í lífi þeirra. Teddi lýsti því að hann hefði gjörsamlega fallið fyrir henni þegar hún gekk inn og leið ekki á löngu þar til þau fóru að stinga saman nefjum. Katrín var þó ekki viss um að hún væri tilbúin að giftast honum og entist samband þeirra ekki lengur en í þrjá mánuði. Það var síðan tveimur árum síðar að Teddi sannfærðist endanlega um að Katrín væri konan sem hann ætlaði að eyða ævinni með svo hann gerði sér lítið fyrir og bauð henni í bíltúr og bað hennar á fyrsta eiginlega stefnumóti þeirra.Síðan þá hafa þau verið saman, eru gift og eiga í dag fjögur börn og fjölda barna barna.Í Þættinum ræddum við meðal annars um lífið á Ísafirði og prestamennskuna, fjárhagsvandamál sem ýtti þeim útí að elta drauminn um félagsráðgjöf, mikilvægi samskipta milli maka, kynlíf, ferðalög og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar þegar Teddi var ekki alveg með á nótunum um nætursvefn barna þeirra.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Naglbíturinn, leikarinn, rithöfundurinn og dagskrárgerðarmaðurinn Vilhelm Anton Jónsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum Betri helmingi ljósmyndaranum, leikstjóranum og listakonunni Sögu Sigurðardóttur.Vilhelm eða Villi Naglbítur eins og margir þekkja hann, hefur komið víða við á sínum ferli en er hann alveg einstaklega fjölhæfur maður. Þetta hófst allt hjá honum með hljómsveit sinni 200 þúsund Naglbítum en hefur hann síðan þá meðal annars stýrt sjónvarpsþáttum, skrifað fjölda barnabóka, leikið í barnaefni, komið á svið leikriti og gæti ég haldið lengi áfram.Saga er einn okkar allra vinsælasti ljósmyndari en hefur hún í gegnum tíðina unnið fyrir margar risastórar alþjóðlegar keðjur og má sem dæmi nefna Apple, Nike, Victoria secret og Topshop. Ásamt ljósmynduninni hefur hún undanfarin ár leikstýrt fjölda auglýsinga á milli þess sem hún málar frábær listaverk.Villi og Saga kynntust fyrst í gegnum instagram en sendi Villi henni emoji gátu að hún hélt og út frá því myndaðist samtal. Þau ákváðu í kjölfarið að hittast en mætti Saga á spilakvöld til vina Villa og var þá ekki aftur snúið. Hlutirnir mölluðu hjá þeim í rólegheitunum í einhvern tíma en eru þau í dag nýbakaðir foreldrar, en fyrir átti Villi tvo drengi. Ég vil nýta tækifærið og óska þeim innilega til hamingju með nýja barnið en var Saga einmitt á seinustu metrum óléttunar þegar þau mættu til mín í spjall.Í þættinum ræddum við meðal annars tónlistina, sjónvarpið, ljósmyndunina og árin í London rómantíkina í Borgartúninu og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Villi lenti í útistöðum við Rússnesku mafíuna.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Fjölmiðlamaðurinn Aðalsteinn Kjartansson mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi Elísabetu Erlendsdóttur, yfir rjúkandi heitri eðlu, eða skarfi eins og þau kalla þetta.Aðalsteinn byrjaði ungur í fjölmiðlabransanum eða aðeins 20 ára gamall hjá DV og hefur hann eins og hann sagði sjálfur ekki unnið aðra vinnu síðan. Hann hefur þó komið víða við í fjölmiðlamennskunni en hefur hann unnið hjá flestum stærstu miðlum landsins ásamt því að hafa verið einn stjórnenda Kveiks.Elísabet er ólétt af þeirra öðru barni saman og starfar hún sem vöruflokkastjóri hjá Ekrunni og sér þar bæði um markaðstengd mál og svo fær hún líka útrás fyrir Excel þörf sinni.Aðalsteinn og Elísabet kynntust fyrst í gegnum sameiginlegan vin en hafði hún dregið Aðalstein með sér í afmælispartý í þeirri von um að hann myndi kynnast Elísabetu. Það fór heldur betur eins og vinkonan sá fyrir og hafa þau verið saman allar götur síðan og eiga nú von á fjórða barninu í fjölskylduna.Í þættinum ræddum við meðal annars, fjölmiðlabransann, samherjamálið og hvernig það fór í fjölskyldulífið, stjúpforeldrahlutverkið, uppvaxtarárin á Egilsstöðum, rómantíkina og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal hversu bókstafleg Elísabet á það til að vera.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Þingkflokksformaður Pírata og stjórnmálakonan Þórhildur Sunna Ævarsdóttir mætti til mín í áhugavert og virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi Rafal Orpel.Þórhildur gekk í lið með Pírötum árið 2016 en var þó hikandi hvort pólitík væri raunverulega fyrir hana og tók sinn tíma í að hugsa sig um, hún ákvað þó að láta til leiðast og hefur hún setið inná þingi allar götur síðan eða í um sjö ár og er nú tekin við þingflokksformensku.Rafal er menntaður arkitekt en starfar þessa dagana hjá Controlant þar sem hann vinnur við að gæta lyfja. Rafal kemur frá Póllandi en fluttist til Íslands fyrir rúmum fimm árum síðan og má segja að hann sé vægast sagt ánægður með þá ákvörðun.Þórhildur og Rafal kynntust á dansgólfinu á Paloma en var Þórhildur þá að flýja samræður um Noreg og var hún ein á dansgólfinu þegar augu þeirra mættust og hafa þau verið saman allar götur síðan og eru í dag gift með einn tveggja ára dreng.Í þættinum ræddum við meðal annars um hvernig það er að vinna á alþingi, hvernig það er að díla við neikvæða gagnrýni sem oft á tíðum er allt annað en málefnaleg, menningarmun, ákvörðunina um að flytjast til Íslands, fjölskyldulífið, rómantíkina og margt fleira ásamt því að fá að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Rafal svaf næstum frá sér surprise afmælisveislu.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Hlaðvarpsstjarnan, kynjafræðingurinn og aktívistinn Þorsteinn V. Einarsson, eða Steini í Karlmennskunni eins og margir þekkja hann, mætti til mín ásamt sínum Betri helmingi sálfræðingnum og aktívistanum Huldu Jónsdóttur Tölgyes.Steini er menntaður kynjafræðingur en heldur hann úti fræðslu instagram-reikningnum vinsæla “Karlmennskan” ásamt því að stjórna hlaðvarpi undir sama nafni með það að markmiði að breiða út femenískum boðskap með ábendingum um hluti sem betur mættu fara er snertir jafnrétti í samfélaginu. Hulda er klínískur sálfræðingur og starfar sem slíkur ásamt því að halda úti fjölda námskeiða en hefur einnig farið mikið fyrir í jafnréttisbaráttunni en standa þau einmitt saman að námskeiðinu “Þriðja vaktin”Steini og Hulda kynntust í gegnum sameiginlegan vin en höfðu þau bæði sama daginn haft orð á því við hann að hann þyrfti að kynna þau fyrir einhverjum álitlegu maka-efni. Vinurinn var fljótur að leggja tvo og tvo saman fór með þeim á kaffihús og skildi þau svo eftir og hafa þau verið saman allargötur síðan og eru í dag gift með þrjú börn og hund.Í þættinum ræddum við meðal annars um Karlmennskuna og hvar áhuginn kviknaði á jafnréttisbaráttunni, veganlífstílinn, fjölskyldulífið, rómantíkina, alvarleikann og margt fleira ásamt því að heyra skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar þau villtust inná fínann veitingastað sem þau voru alls ekki undirbúinn undir.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir eða Heidi Ola eins og margir kannast við hana og hennar betri helmingur garðyrkju og ævintýramaðurinn Erlendur Kristjánsson mættu til mín í einlægt og skemmtilegt spjall nú á dögunum.Heiða var á sínum tíma margfaldur model fitness meistari, hélt úti matarbloggi og þjálfaði í WorldClass en er hún þessa daganna í fæðingarorlofi á milli þess sem hún býr til húsgögn af ýmsu tagi úr drumbum, en þess fyrir utan sér hún um Hlöðuna sem er gæluverkefni hennar og er stefnan tekin á að þar muni innan tíðar rísa glæsilegur veislusalur sem mun henta í hin ýmsu tilefni, en héldu þau síðustu jól úti glæsilegum jólamarkaði og má vænta þess að af og til muni Hlaðan standa fyrir spennandi viðburðum af því tagi.Elli rekur fyrirtækið Allt fyrir garðin og er Hlaðan einmitt höfuðstöðvarnar og er nóg að gera hjá honum þessa stundina í að halda götum okkar íslendinga hreinum af snjó. Hann er mikill ævintýramaður og hefur hann náð Heiðu með sér í ótrúlegustu ferðalög.Heiða og Elli kyntust fyrst á ónefndu stefnumótaforriti en var Heiða ansi skeptísk á það í fyrstu. Hún lét þó til leiðast og hittust þau á stefnumóti en hafði Elli séð hana nokkru fyrr í Hagkaup og var hann þá alveg viss að þarna væri konan hans mætt. Hlutirnir gerðust hratt hjá þeim í kjölfarið og eiga þau í dag saman tvö börn og er aldrei dauð stund hjá þeim í Hlöðunni.Í þættinum ræddum við meðal annars um ævintýramennskuna og ferðalög þeirra með bátinn sinn útum allt land, fjölskyldulífið, Fitness tímabilið, matarbloggið, svínin þeirra tvö og margt fleira, ásamt því að heira fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal frumraun Ella við að tæma ferðaklósettið þeirra á Akureyri.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Vellíðunar, heilsu og kuldaþálfarinn Vilhjálmur Andri Einarsson eða Andri Iceland eins og hann er gjarnan kallaður mætti til mín ásamt sínum betri helmingi Tanit Karolys í virkilega áhugavert og skemmtilegt spjall.Andri umbreytti lífi sínu þegar hann kynntist aðferðarfræðinni Wim hof eftir langa baráttu við streitu og vanlíðan en hann lenti ungur í slysi sem hafði mikil áhrif á líf hans. Í dag rekur Andri fyrirtækið Andri Iceland, ásamt Tanit, þar sem hann miðlar til annara þekkingu sinni á heilsu og vellíðan og kennir það í gegnum kælimeðferð, öndunartækni og kraft hugans.Tanit ólst upp á spáni en kom ung til landsins í nám og varð strax eftirsóttur starfskraftur á vinnumarkaði og drekkti sér í vinnu, eftir að upplifa kulnun í starfi fór hún að rækta sjálfa sig og andlegu hliðina og kynntist þá einmitt Wim hof aðferðafræðinni og var þá ekki aftur snúið.Andri og Tanit hittust einmitt fyrst á ylströndinni í Nauthólsvík þar sem Tanit varð strax fyrir miklum innblæstri af Andra og þróaðist samband þeirra hægt og rólega úr því að vera miklir vinir út í rómantískt samband og reka þau nú saman heilsustöðina Andri Iceland, eru gift og eiga eina stelpu en átti Andri tvær stelpur úr fyrra sambandi.Í þættinum ræddum við meðal annars um streitu og þeirra hugmyndafræði við að losa um hana, hvernig Tanit benti Andra á tækifærið sem hann var með í höndunum, heilsuna, rómantíkina, ávana og margt fleira ásamt því að heyra skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal einstaka hæfileika Andra þegar það kemur að viðrekstri.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Þjálfarinn og heilsusérfræðingurinn Rafn Franklín Hrafnsson mætti til mín ásamt sínum betri helmingi, þjálfaranum og markaðsdrottningunni Kareni Ósk Gylfadóttur í mjög áhugavert og skemmtilegt spjall.Rafn var nánast alinn upp í innan veggja líkamsræktarinnar og hefur áhugi hans á hreyfingu og heilsu verið ríkjandi allt frá barnæsku en í dag er hann starfandi þjálfari, næringarráðgjafi og fyrirlesari ásamt því að halda úti hlaðvarpinu 360°heilsa og hefur hann einnig gefið út bókina Borðum betur.Karen er einnig þjálfari en kennir hún hóptíma í Hreyfingu ásamt því að stýra markaðsteymi Lyfju en var hún áður markaðsstjóri Nova.Saman halda þau úti námskeiðinu Heilsubyltingin í Hreyfingu sem fór af stað í byrjun janúar og komust færri að en vildu.Það kemur því kannski fæstum á óvart að þau hittust einmitt fyrst í Hreyfingu en var Rafn alltaf niðursokkin í bækur svo Karen spáði ekkert mikið í honum þá. Það var ekki fyrr en nokkru seinna á staffa djammi í Danmörku að hjólin fóru að snúast en sneru þau ansi hægt þar sem aldursmunurinn var eitthvað að trufla Kareni. Þegar hún hætti að láta það trufla sig gerðust hlutirnir þó hratt og örugglega og hafa verið saman síðan og eiga þau í dag tvö börn saman.Í þættinum ræddum við meðal annars um heilsuna og hvernig er best að viðhalda heilsusamlegum lífsstíl, íþrótta bakgrunninn, hreyfingu, rómantíkina, fjölskyldulífið og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar hrotur Rafns héldu vöku fyrir Kareni.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Þáttur vikunnar er stórskemmtilegur þó ég segi sjálfur frá en fékk ég til mín listahjónin Friðrik Friðriksson og Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur sem bæði hafa getið sér gott orð sem leikarar & leikstjórar.Friðrik hefur komið víða við innan leiklistargeirans en var hann lengi fastráðinn við Þjóðleikhúsið, þar sem hann lék bæði og leikstýrði. Árið 2016 tók hann svo stöðu framkvæmdastjóra Trjarnarbíós en er hann nú nýfarinn að sinna framkvæmdastjórn fyrir Sviðslistarmiðstöð Íslands.Álfrún kemur úr mikilli leikhúsfjölskyldu og var hún aðeins níu ára þegar hún steig fyrst á svið í þjóðleikhúsinu, lék í bíómyndum og talsetti hún til að mynda Nölu í Lion King á sínum tíma. Í dag er hún sjálfstætt starfandi leikkona og leikstýrði hún sinni fyrstu bíómynd fyrir skemmstu og eru spennandi tímar framundan hjá henni.Það kemur kannski fæstum á óvart að Friðrik og Álfrún kynntust einmitt í leikhúsinu en urðu þau strax góðir vinir. Samband þeirra þróaðist síðan hægt og rólega í ástarsamband og eru þau í dag gift og eiga tvær stelpur.Í þættinum ræddum við meðal annars um leikhúslífið og hvernig það var að sameina vinnu og fjölskyldu, hvar og hvenær áhuginn á leiklistinni kviknaði, fjölskyldulífið, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Álfrún brá sér í gervi Elvis í fertugsafmæli Friðriks.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Atvinnukylfingurinn & golfledgendið Ólafía Þórunn Kristinsdóttir mætti til mín í stórskemmtilegt spjall um lífið og tilveruna ásamt sínum betri helmingi Thomas Bojanowski.Ólafía er einn okkar allra besti kylfingur og hefur afrekað ótrúlega hluti inná golfvellinum en meðal annars hefur hún spilað á mörgum stærstu golfmótum heims og komst til að mynda tvisvar inná LPGA mótaröðina. Í dag hefur hún sagt skilið við atvinnumenskuna og er að koma sér upp eigin rekstri sem mun líta dagsins ljós á næstu mánuðum.Thomas kemur frá Þýskalandi og er hann í dag í eigin rekstri þar sem hann hjálpar íþróttafólki að finna réttu háskólana í Ameríku þar sem þau geta bæði stundað námið af kappi og sinnt íþróttinni sinni.Ólafía og Thomas kynntust fyrst í gegnum sameiginlega vini í Ameríku þar sem þau voru bæði að stunda háskólanám. Þau urðu strax góðir vinir og þróuðust hlutirnir hratt og náttúrulega í samband og eru þau í dag gift með einn strák.Í þættinum ræddum við meðal annars um háskólaárin úti, atvinnumennskuna í golfi, ákvörðunina örlagaríku um að leggja kylfuna á hilluna, menningarmun íslands og þýskalands, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar nærbuxurnar hennar Ólafíu björguðu Thomasi í tollinum í Ameríku.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Fótboltamaðurinn, íslandsmeistarinn og frumkvöðullinn Viktor Karl Einarsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi, lögfræðingnum og frumkvöðlunum Jónínu Þórdísi Karlsdóttur.Viktor fór ungur út í atvinnumennsku í fótbolta og spilaði með með Jong AZ í hollandi og IFK Värnamo í Svíþjóð áður en hann kom svo aftur heim í Kópavoginn og er í dag einn af lykilmönnum íslandsmeistara Breiðabliks.Jónína er körfuboltakona og lögfræðinemi en spilar hún með Ármanni og var meðal annars valin mikilvægasti leikmaður þeirra í fyrra. Hún hefur einnig látið ljós sitt skína sem leikkona en til að mynda fór hún með hlutverk í myndinni Hjartasteini. Saman reka þau svo fatamerkið BÖKK ásamt sem fer sífellt stækkandi.Viktor og Jónína kynntust í gegnum sameiginlega vini en fékk Viktor vini sína til að kynna sig fyrir einhverri stelpu þar sem hann var einn úti í Hollandi og erfitt fyrir hann að kynnast einhverjum þar. Jónína var kynnt til leiks og fór af stað skemmtilegur og ruglandi samfélagsmiðla leikur sem endaði þó með því að þau eru saman í dag og hafa verið í rúm fimm ár.Í þættinum ræddum við meðal annars um fatalínuna þeirra og tíman í þýskalandi, fótboltann og íslandsmeistaratitilinn, körfuboltann og hvar áhuginn kviknaði, rómantíkina, ferðalög og margt fleira ásamt því að heyra skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Viktori mistókst að koma Jónínu á óvart.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Fótbolta og landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason mætti til mín í skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi fyrirsætunni og bloggaranum Andreu Röfn Jónasdóttur.Arnór Ingvi hefur verið atvinnumaður í fótbolta síðan 2012 og spilað hjá liðum víðsvegar um heiminn meðal annars í Boston, Noregi, Grikklandi, Austurríki og Svíþjóð þar sem hann spilar nú með félaginu Norrköpping. Ásamt þessu spilar hann með íslenska landsliðinu og skoraði meðal annars markið sem tryggði Íslandi leikinn á móti Englandi í 16 liða úrslitum EM 2016.Andrea hefur verið áberandi hér á landi í mörg ár fyrir störf sín sem fyrirsæta og er hún einnig partur af vinsælu bloggsíðunni Trendnet þar sem hún skrifar mikið um tísku. Þá hefur hún einnig hannað og gefið út sína eigin skólínu, JoDis by Andrea með danska skóframleiðandanum JoDis, sem vægast sagt hafa slegið í gegn og hefur hún alls hannað sjö línur.Arnór og Andrea kynntust í gegnum sameiginlegann vin í desember 2016 á Fredreksen og kom Arnór heim eftir þennan hitting og sagði við mömmu sína að hann væri búinn að finna réttu stelpuna en var hún mætt í mat hjá tengdó 1. janúar svo hlutirnir gerðust ansi hratt og eru þau í dag gift með tvö börn.Í þættinum ræddum við meðal annars lífið í atvinnumennskunni og hvernig það er að flytja fjölskiduna reglulega milli landa, hönnunina á skónum og hvernig það kom til, landsliðið, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Andrea var næstum búinn að senda Arnór í keppnisferð þegar hún var að eiga.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Gleðilega hátíð kæru hlustendur. Mig langar að byrja á því að benda á að þáttur dagsins er á ensku en í þetta skiptið átti ég eitt áhugaverðasta spjall frá upphafi við Guðmund Felix Grétarsson og hans betri helming Sylwiu Nowakowska.Guðmundur hefur vakið mikla athygli undanfarin ár vegna aðgerðar sem hann gekkst undir og ekki síður fyrir sitt einstaklega jákvæða hugarfar, en sem ungur maður lenti hann í slysi sem varð til þess að hann missti báðar hendur við axlir. Árið 2021 fór hann í víðfræga aðgerð þar sem græddar voru á hann hendur og er í dag í endurhæfingu og er árangurinn hreint út sagt magnaður.Sylwia er pólsk en fluttist ung til Frakklands en 18 ára gömul flutti hún þangað sem au-pair en starfar í dag sem Yoga kennari og er hennar viðhorf til lífsins ekki síður áhugavert.Guðmundur og Sylwia kynntust í Frakklandi þar sem þau voru bæði mætt á samkomu sem haldin var fyrir enskumælandi fólk í Frakklandi og heilluðust þau strax að hvert öðru en voru hlutirnir fljótir að vinda uppá sig í kjölfarið og eru þau í dag gift með þrjá hunda en á Guðmundur tvær uppkomnar dætur úr fyrra sambandi.Í þættinum ræddum við lífið í Lyon í Frakklandi þar sem þau búa, hvernig það var að læra að sætta sig við þann veruleika að hafa misst báðar hendurnar, hvar hugmyndin um aðgerðina kviknaði og ótrúlega ákveðni Guðmundar í að láta hana verða að veruleika, lífið þeirra saman fyrir og eftir aðgerð, Yoga og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar Guðmundi klæjaði heiftarlega í nefið og skemmtileg viðbrögð fólks við því hvernig hann klóraði sér.Þátturinn er í boði:Gott gisk - https://www.gottgisk.is/Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Íþróttafrétta og Dagskrárgerðarkonan Helga Margrét Höskuldsdóttir mætti til mín ásamt sínum betri helmingi tónlistarmanninum og trommaranum Bergi Einari Dagbjartssyni í stórskemmtilegt spjall.Helga Margrét hefur komið víða við í fjölmiðlum en allt hófst þetta á RÚV-Núll fyrir fimm árum síðan en hefur hún síðan þá tekið að sér fjölbreytt verkefni innan RÚV bæði í útvarpi og sjónvarpi. Undanfarið hefur Helga starfað innan íþróttadeildarinar og var einmitt einn umsjónarmanna umjöllunarþátta í kringum heimsmeistaramótið í fótbolta, HM stofunar.Bergur er einn af eftirsóttustu trommörum landsins en er hann meðal annars trommari hljómsveitarinnar VÖK ásamt því að tromma á tónleikum með mörgum vinsælustu flytjendum landsins.Bergur sá Helgu fyrst þegar hún var að stjórna þriggja sólarhringa útsendingu fyrir Ég á bara eitt líf og heillaðist strax af húmornum hennar og ákvað að senda henni skilaboð. Fljótlega eftir það fóru þau á sitt fyrsta stefnumót og fundu þau strax að þau ættu ansi vel saman og voru hlutirnir fljótir að gerast í kjölfarið. Í dag eiga þau saman íbúð og eru spennandi tímar framundan hjá þeim.Í þættinum ræddum við meðal annars um landsbyggðina og hvernig það var að alast upp í sveit, íþróttirnar og keppnisskapið, fjölmiðlabransann, tónlistarbransann og margt fleira ásamt því að heyra skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar þau fóru í ansi skrautlegt paranudd saman í Búdapest.Þátturinn er í boði:Gott gisk - https://www.gottgisk.is/Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Tónlistarmaðurinn og rapparinn Birnir Sigurðarson mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi Vöku Njálsdóttur.Birnir hefur verið virkilega áberandi undanfarin ár en skaust hann hratt uppá stjörnuhimininn árið 2016 og hefur síðan þá verið einn atkvæðamesti tónlistarmaðurinn innan síns sviðs með lögum á borð við Já ég veit og Spurningar svo dæmi séu tekin.Vaka hefur heldur betur í nógu að snúast þessa dagana en starfar hún í viðskiptaþróun hjá Nova ásamt því að sjá um fríðindaklúbbinn og Nova appið. Það eru einnig spennandi tímar framundan hjá henni en hefur hún verið að vinna að sjónvarpsþáttum sem sýndir verða snemma á næsta ári.Birnir og Vaka kynntust í gegnum sameiginlega vini en var Vaka að vinna podcastið sitt “Þegar ég verð stór” í samvinnu við 101 studios og rákust þau reglulega á hvert annað þar. Þeim kom virkilega vel saman en það var í raun ekki fyrr en Vaka bauð Birni í afmælið sitt að hjólin fóru að snúast. Í dag eru þau nýflutt í sína fyrstu íbúð saman, en tóku þau hana gjörsamlega í gegn.Í þættinum ræddum við meðal annars tónlistarbransann og hvernig það var að fá ungur mikla athygli, fjarbúðina í upphafi sambandsins, framkvæmdirnar, heimilislífið og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar lögreglan hafði afskipti af Vöku á Akureyri.Þátturinn er í boði:Gott gisk - https://www.gottgisk.is/Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Góðan dag kæru hlustendur og gleðilegan 2.í aðventu! Þáttur vikunnar verður með aðeins öðruvísi sniði en vegna fjölda áskorana náði ég loksins að plata minn betri helming, einkaþjálfarann og flugfreyjuna Söru Davíðsdóttur í stórskemmtilegt spjall. Við Sara höfum yfirleitt nóg um að spjalla og fórum við um víðan völl þessa kvöldstund en ræddum við meðal annars fyrirtækið hennar ZONE, hvernig það varð til og mikilvægi þess að vera samkvæmur sjálfum sér, hennar aðkomu að upphafi þessa podcasts, ástríður, stjúpmóðurhlutverkið, trúlofunina í París og margt fleira ásamt því að fara yfir margar skemmtilegar sögur úr okkar sambandstíð, meðal annars þegar ég hræddist um líf mitt í Chicago síðastliðið sumar.Þátturinn er í boði:Gott gisk - https://www.gottgisk.is/Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Burlesque drottningin og fyrrum fjölmiðlakonan Margrét Erla Maack mætti í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum Betri Helmingi útvarpsmanninum Tómasi Steindórssyni.Margrét er sannkölluð fjöllistakona en er hún einna þekktust fyrir Burlesque sýningar sínar og kemur hún fram við hin ýmsu tilefni, veislustýrir, kennir á námskeiðum og er meðlimur í Sirkus Íslands en áður fyrr starfaði hún í fjölmiðlum bæði á RÚV og Stöð 2.Tómas stendur útvarpsvaktina á X-inu á hverjum degi ásamt því að sjá af og til um umjöllunarþætti um körfubolta en var lengi vel efnilegur körfuboltamaður sjálfur.Margrét og Tómas kynntust í gegnum samfélagsmiðla og var opnunarlína Tómasar það sem gerði útslagið en sagðist hann vera hennar helsti aðdáandi í Útsvarinu. Í kjölfarið skipulögðu þau hitting en var Tómas búinn að gleyma að hann átti að vinna í félagsmiðstöðinni það kvöld, Margrét var þó staðráðin í að hitta hann og bauðst hún til að mæta og vera með magadansnámskeið og hafa þau verið saman allar götur síðan og eiga í dag saman eina stelpu.Í þættinum ræddum við meðal annars um hvar áhugi Margrétar kviknaði á Burlesque, magadansinn, fjölmiðlabransann, fjölskyldulífið, rómantýkina og margt flera og fengum að heyra fullt af sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar Tómas ákvað að prufa að taka þátt í Burlesque sýningu.Þátturinn er í boði:Gott gisk - https://www.gottgisk.is/Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Söngkonan Guðrún Árný Karlsdóttir mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helming, Sveinbirni Enokssyni.Það eru komin ansi mörg ár síðan Guðrún Árný söng sig inní hug og hjörtu íslendinga en var hún til að mynda partur af Frostrósum sem voru ómissandi í kringum hátíðarnar á sínum tíma, en gaf hún einmitt nýverið út splunkunýtt jólalag sem heitir “Desember”.Sveinbjörn er bílamálari og bifreiðasmíðameistari en tók sér pásu frá því og er í dag rótarinn hennar Guðrúnar.Sveinbjörn sá Guðrúnu fyrst í fermingarveislu hjá frænku sinni þar sem hún var að sjálfsögðu mætt til þess að syngja og var hann ekki lengi að snúa sér að vini sínum og kalla “dips”. Þau rákust af og til á hvert annað enda bæði úr hafnarfirði og þekktu mikið af sama fólki en lét Sveinbjörn hana þó alveg vera enda Guðrún þá í öðri sambandi. Það var því ekki fyrr en tveimur árum síðar að þau fara að slá sér upp og voru hlutirnir fljótir að gerast í kjölfarið.Í dag eru þau gift og eiga saman þrjú börn.Í þættinum ræddum við meðal annars tónlistina og hæðir og lægðir sem þeim bransa fylgir, hvernig það er að vinna með makanum sínum, fjölskyldulífið, skemmtilega öðruvísi brúðkaup, rómantíkina og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar hlutverkaleikur þeirra fór aðeins lengra en þau ætluðu sér.Þátturinn er í boði:Gott gisk - https://www.gottgisk.is/Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Hlaðvarpsstjarnan, áhrifavaldurinn, íþróttakonan og nú síðast rithöfundurinn Edda Falak og hennar betri helmingur, bardagakappinn Kristján Helgi Hafliðason eru gestir vikunnar í Betri helmingnum.Edda hefur verið áberandi undanfarin misseri fyrir hlaðvarpið sitt Eigin konur þar sem hún vekur athygli & opnar umræðuna á erfiðum málefnum, en þar fær hún til sín viðmælendur sem deila með henni reynslusögum sínum sem oft á tíðum geta verið ansi átakanlegar. Ásamt podcastinu er Edda nýbúin að gefa út bókina “Það sem ég hefði viljað vita” þar sem hún skrifar útfrá reynslu sinni um það sem gott hefði verið að búa sig undir fyrir lífið sem fullorðin einstaklingur.Kristján er einn okkar allra besti glímukappi en hefur hann unnið til fjölda verðlauna á þeim vetfangi og nýlega tekin við stöðu yfirþjálfara hjá Mjölni.Edda og Kristján hittust fyrst þegar Eddu bráðvantaði einhvern til að keppa með sér á Crossfit móti og var henni bent á að heyra í Kristjáni, Kristján var ekki lengi að slá til enda Edda margrómuð Crossfit stjarna. Kristján átti þó í einhverju basli og þurfti að bregða sér frá á miðju móti til að kasta aðeins upp og endaði Edda á því að klára mótið ein. Það var þó nokkru síðar að þau fóru að stinga saman nefjum og hafa þau nú verið par í tvö ár.Við fórum um víðann völl í þættinum en ræddum við meðal annars bókina og hvernig hún kom til, réttlætiskenndina og kveikjunni af podcastinu, glímuferilinn, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Edda bað um ansi sérstakt óskalag í tíma hjá Kristjáni.Þátturinn er í boði:Gott gisk - https://www.gottgisk.is/Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Fjölmiðla og dagskrárgerðarkonan Snærós Sindradóttir og hennar betri helmingur blaðamaðurinn Freyr Rögnvaldsson eru gestir þáttarins þessa vikuna.Snærós vaknar með þjóðinni eldsnemma alla virka morgna á Rúv en hefur hún einmitt stjórnað þar morgunþætti rásar tvö undanfarið árið en gegndi hún áður hinum ýmsu störfum innan Rúv, þar á meðal sem verkefnastjýra Ungrúv.Freyr hefur verið í blaðamennskunni síðan 2006 og hefur undanfarin fjögur ár starfað sem blaðamaður hjá fréttamiðlinum Stundinni ásamt því að taka hlutverki sínu á þriðju vaktinni með börnin mjög alvarlega.Freyr sá Snærósu fyrst í gegnum glugga á rútu og hugsaði strax með sér að þarna væri fallegasta kona sem hann hefði á ævi sinni séð, Snærós vippaði sér svo í rútuna og þegar hún kom auga á Frey var hún viss um að þennan mann yrði hún að fá. Það voru þó nokkrar hindranir á leið þeirra og tók þau nokkurn tíma að verða par en var það ekki fyrr en þremur árum síðar að þau byrja opinberlega saman.Í dag eru þau gift og eiga saman tvær stelpur en Freyr átti tvö börn úr fyrra sambandi.Í þættinum ræddum við meðal annars um lífið í fjölmiðlunum og hvernig það er að vinna að erfiðum fréttum, fjölskyldulífið og stjúmóðurhlutverkið, ferðalög, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal ansi skrautlega kvöldstund sem þau deildu með kunningja hjónum á Ítalíu.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Tónlistarmaðurinn Einar Stefánsson og dansarinn og leiklistarneminn Sólbjört Sigurðardóttir eru viðmælendur Betri helmingsins þessa vikuna. Einar hefur gert garðinn frægann sem gimpið í hljómsveitinni Höturum sem kepptu eftirminnilega í Eurovision árið 2019 og vöktu þeir gríðarlega athygli og ekki síst Einar í sínu hlutverki innan hljómsveitarinnar. Einar er einnig einn þriggja meðlima í hljómsveitinni Vök en á daginn sér hann um markaðsmál fyrir Íslenska Dansflokkinn.Sólbjört er menntaður dansari og hefur hún dansað í ófáum sýningum en var hún einmitt einn dansara í atriði Hatara og hefur hún ferðast víða um Evrópu með þeim. Þessa stundina er hún að dansa í sýningunni Níu líf í borgarleikhúsinu á sama tíma og hún stundar nám í leiklist við Listaháskóla Íslands.Einar og Sólbjört vissu fyrst af hvert öðru í gegnum frænku Einars en var hún með Sólbjörtu í dansnámi í Listaháskólanum, þau voru þó bæði á föstu á þeim tíma og var það því ekki fyrr en nokkru síðar að þau fóru að slá sér upp, en þá hittust þau á skemmtistaðnum Húrra og náði Einar að plata hana með sér heim, eins og hann orðaði það sjálfur, og hafa þau verið saman allar götur síðan og eru í dag trúlofuð og eiga saman eina dóttur.Í þættinum ræddum við meðal annars um tónlistina, dansinn og leiklistina, bónorðssöguna, fjölskyldulífið í lista bransanum, Eurovision ævintýri Hatara og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Einar kynnti Sólbjörtu fyrir foreldrum sínum á ansi frumlegann hátt.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/ Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Séra Davíð Þór Jónsson og hans Betri helmingur Þórunn Gréta Sigurðardóttir eru viðmælendur vikunar í Betri helmingnum.Davíð Þór hefur komið víða við á sínum starfsferli en var hann meðal annars annar Radíusbræðra sem nutu gríðarlegra vinsælda á tíunda áratugnum, gegndi ritstjórn, þýddi bæði leikrit og sjónvarpsþætti, stjórnaði Gettu betur en hefur hann verið sóknarprestur Laugarnseskirkju síðan 2016.Þórunn Gréta er menntuð með BA í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands og er hún formaður Tónskáldafélags Íslands. Þórunn Gréta hefur samið fjölbreytt tónverk en vann hún einmitt Íslensku tónlistarverðlaunin nú fyrr á þessu ári fyrir óperu sína KOK. Davíð Þór og Þórunn Gréta kynntust í raun þrisvar sinnum en þeirra fyrstu kynni voru þegar Þórunn var einkabílstjóri Davíðs þar sem hann var að skemmta fyrir framhaldsskólann á Egilsstöðum, það var þó langt frá því að kvikna eitthvað á milli þeirra í það skiptið enda töluvert aldursbil á milli þeirra. Þeirra önnur kynni voru svo þegar Þórunn flutti fyrir tilviljun í íbúð á sama stigagangi og Davíð og rákust þau reglulega á hvert annað, það var þó ekki fyrr en í þriðja skiptið sem leiðir þeirra lágu saman að hjólin fóru að snúast en var það þegar Davíð réði hana til vinnu við þýðingu á barnaefni. Þau voru bæði á viðkvæmum stað í þá daga og fundu stuðning frá hvert öðru sem þróaðist síðan í ástarsamband og hafa þau verið saman allar götur síðan, eru gift með tvö börn en átti Davíð börn úr fyrra sambandi.í þættinum ræddum við meðal annars um prestastarfið og hvar áhuginn fyrir því kviknaði, árin í skemmtibransanum, tónlistina, fjölskyldulífið og rómantíkina ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Þórunn Gréta kveikti næstum í heimili þeirra.Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Brynjuís - https://brynjuis.is/Augað - https://www.augad.is/
Gylfi Einarsson fyrrum atvinnumaður í fótbolta og spark-spekingur með meiru kom til mín í stórskemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi, ofurþjálfaranum vinsæla Karitas Maríu Lárusdóttur.Gylfi er eins og fyrr segir fyrrum atvinnumaður í fótbolta en spilaði hann á sínum ferli fyrir klúbba á borð við Lilleström, Brann og Leeds. Í dag rekur Gylfi fyrirtækið Iceland Tax free og bregður reglulega fyrir á skjám landsmanna um helgar yfir enska boltanum.Karitas er þjálfari hjá World Class til fjölda ára og hefur kennt þar við góðan orðstír ásamt því að vera með fjarþjálfun sem fer sístækkandi.Gylfi og Karitas kynntust í byrjun árs 2016 í gegnum sameiginlega vinkonu en var Gylfi ekki lengi að stökkva til og bjóða henni á deit. Karitas segist þó hafa fallið algjörlega fyrir honum þegar hann bauð henni heim í súkkulaðirúsínur og smoothie og voru hlutirnir fljótir að gerast í kjölfarið og hafa þau ekki verið í sundur síðan. Í dag eiga þau saman tvö börn en átti Gylfi tvö börn fyrir úr fyrra sambandi.Í þættinum ræddum við meðal annars um fjölskyldulífið og hvernig það var að fóta sig í stjúpforeldra hlutverkinu, fótboltann, heilsu, ferðalög og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Gylfi fór einn út í mjaðmaskipti.Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Brynjuís - https://brynjuis.is/Augað - https://www.augad.is/
Leikarinn Jóhann G Jóhannsson mætti til mín ásamt sínum betri helmingi framkvæmdastjóranum Guðrúnu Kaldal í einlægt og skemmtilegt spjall nú á dögunum.Jóhann eða Jói eins og hann er alltaf kallaður hefur á sínum ferli sem leikari komið víða við en hófst leiklistarferill hans í sjónvarpsþáttunum vinsælu um Nonna og Manna eftir samnefndum bókum, þá aðeins 14 ára gamall. Hann hefur bæði unnið mikið á sviði og í kvikmyndum en er fókus hans þessa stundina nær eingöngu í kvikmyndaheiminum og hefur hann getið sér gott orð víða erlendis og er nóg að gera hjá honum.Guðrún er framkvæmdastjóri frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar en hefur hún verið í frístundabransanum um langt skeið ásamt því að hafa verið atvinnudansari til þrítugs.Jói og Guðrún kynntust árið 1995 á Dansverkstæðinu þar sem Guðrún var að kenna aerobic og Jói var með leiklistarnámskeið. Það var þó ekki fyrr en um hálfu ári seinna að þú fóru að deita en var það einmitt þá sem Jói bauð Guðrúnu heim í afar rómantískan kvöldmat þar sem hann eldaði handa henni 1944 og hafa þau ekki verið í sundur síðan þá. Þau eru í dag búin að vera gift í 22 ár og eiga saman tvo uppkomna stráka.Í þættinum ræddum við meðal annars um leiklistina og hvernig það er að leika í stórum erlendum verkefnum, eurovision dansævintýri Guðrúnar með Páli Óskari, samheldni fjölskyldunnar, rómantíkina og fengum við að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Jói var ekki alveg með “touchið” á skíðatískunni.Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Brynjuís - https://brynjuis.is/Augað - https://www.augad.is/
Körfuboltaparið Helena Sverrisdóttir og Finnur Atli Magnússon kíktu við hjá mér í virkilega áhugavert og skemmtilegt spjall fyrir skemmstu.Helena er ein okkar allra fremsta körfuboltakona fyrr og síðar en hefur hún spilað mikilvæga rullu hjá sínum félagsliðum sem og með landsliðinu. Hún er ein fárra íslenskra kvenna sem farið hefur út í atvinnumennsku í körfubolta og spilaði hún meðal annars í Slóvakíu, Ungverjalandi og Póllandi. Hún hefur unnið til fjölda verðlauna á ferlinum og margsinnis verið kosin leikmaður ársins hér heima fyrir. Í dag spilar Helena með uppeldisklúbbnum Haukum ásamt því að kenna samfélagsfræði í Áslandsskóla í Hafnarfirði.Finnur á ekki síður glæstan körfubolta feril að baki en lagði hann skóna á hilluna eftir síðasta tímabil, þá búinn að spila körfu í meistaraflokki í 20 ár og á sínum ferli verið reglulegur leikmaður landsliðsins. Í dag vinnur Finnur sem sjúkraþjálfari á öldrunarheimilinu Sóltúni.Finnur og Helena höfðu vitað að hvort öðru um þó nokkurt skeið áður en þau fóru að slá sér saman enda körfubolta heimurinn lítill og þau bæði nokkuð áberandi í boltanum. Það var þó ekki fyrr en systir Helenu auglýsti að Helenu bráðvantaði followers á snapchat að Finnur ákvað að stökkva á tækifærið og síðan var ekki aftur snúið.Í þættinum ræddum við meðal annars um körfuboltalífið og hvar áhuginn kviknaði, atvinnumennskuna úti og menningarmun, rómantíkina, brúðkaupið ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar allt liðið tók á móti þeim þegar þau komu heim af fyrsta deitinu sínu.Reykjavíkurblóm - https://flowers.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Brynjuís - https://brynjuis.is/Augað - https://www.augad.is/