Skoðanabræður

Follow Skoðanabræður
Share on
Copy link to clipboard

Bergþór og Snorri Mássynir eru Skoðanabræður, með stóru S-i. Þeir eru líka eiginlegir blóðbræður. Í hverri viku fá þeir til sín karlmann vikunnar og spyrja hann eins og einni eða tveimur spjörum úr. Þeir eru þó ekki að velta fyrir sér viðmælandanum sem slíkum, heldur öllu heldur hvað honum finnst. H…

Bergþór og Snorri Mássynir


    • May 30, 2025 LATEST EPISODE
    • weekdays NEW EPISODES
    • 1h AVG DURATION
    • 382 EPISODES


    Search for episodes from Skoðanabræður with a specific topic:

    Latest episodes from Skoðanabræður

    #374 Skoðanir Kristjáns Inga Mikaelssonar

    Play Episode Listen Later May 30, 2025 118:11


    www.patreon.com/skodanabraedurStyrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, World Class, Silkisvefn, Gæði og Takk takk (SB15 fyrir 15% afslátt á takktakk.is).Kristján Ingi Mikaelsson er frumkvöðull, forritari, fríþenkjari og Bitcoin-maður. Hann er búinn að kynna sér hvernig heimurinn virkar og er mættur í Skoðanabræður til þess að miðla sinni sýn. Þessi sýn er frumleg, frjáls og ögrandi. Í þættinum förum við yfir það sem er gangi í heiminum, hvernig kerfin virka, Bitcoin, Bandaríkin og tækifærin fyrir Ísland í þessum nýja heimi sem er að verða til.Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

    #373 Skoðanir Arnars Þórs Ólafssonar

    Play Episode Listen Later May 23, 2025 100:49


    www.patreon.com/skodanabraedurStyrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur á takktakk.is með kóðanum SB15).Arnar Þór Ólafsson er hlaðvarpsstjórnandi og fræðir fólk um peninga (Auratal og Viltu Finna Milljón). Í þessum þætti ræðum við peningaleikinn, fall heimsvelda, fyrirtækjarekstur og fleira pepp. Njótið vel kæra bræðalag. Guð blessi ykkur.

    #372 Að bjóða hinn vangann

    Play Episode Listen Later May 16, 2025 62:04


    Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, World Class, Silkisvefn, Takk takk (15% afsláttur með kóðanum SB15).Snorri mætir í Sigurðarstofu Sævars og við förum yfir málin: Endurkoma sannleikans og stóru Guðanna, að bjóða hinn vangann gegn matrix árásum, Halldór og Jónas, föðurlandsást og afstæðishyggja.Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

    #371 Skoðanir Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar

    Play Episode Listen Later May 9, 2025 112:51


    Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur á takktakk.is með kóðanum SB15).Hannes Hólmsteinn Gissurarson er kominn á eftirlaun. Það þýðir frjáls hugsun og frjáls tjáning. Ekki það að hann sé nýbyrjaður á slíku. Í gegnum árin hefur Hannes verið bæði utangarðsmaður í háskólanum og svo innanbúðarmaður hjá æðsta valdinu. Mikil sérstaða hér.Í þessum þætti segir Hannes okkur frá muninum á hægri og vinstri mönnum, hvers vegna hægri menn lesa ekki bækur, Jón Ásgeir vs. Davíð Oddsson, útlendingastefna Íslands og margt annað.

    #370 Skoðanir Núma Snæs Katrínarsonar

    Play Episode Listen Later May 2, 2025 104:39


    Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur með kóðanum SB15 á takktakk.is)www.patreon.com/skodanabraedurNúmi Snær Katrínarson er maður sem getur frelsað á þér líkamann. Ég tala af reynslu - hann gerði það við mig, eða kenndi mér að gera það við sjálfan mig. Þetta er allt heildrænt segir Númi og ef maður ætlar að ná heilsu verður maður að líta í allar áttir og taka þetta allt saman. Sól, jarðtenging, næring, öndun, líkamsrækt. Það er farið yfir þetta allt saman í þessum hérna þætti. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

    #369 Skoðanir Björns Jóns Bragasonar

    Play Episode Listen Later Apr 25, 2025 114:50


    Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur á takktakk.is með kóðanum SB15).Björn Jón Bragason er menntaður sagfræðingur og lögfræðingur. Þessi þáttur er ferðalag frá Forn-Grikklandi til landnáms, kristnitöku og svo nútímans. Einnig ræðum við mikilvægi menntunar, aga, hugmyndir, lestur og jákvæða samkeppni. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

    #368 Skoðanir Daníels Perez

    Play Episode Listen Later Apr 18, 2025 91:16


    Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur með kóðanum SB15).Daníel Perez er menntaður maður, vitsmunalega og andlega. Hann hefur stundað innhverfa íhugun í 20 ár og stúderað þau fræði vel og vandlega.Í þessum þætti ræðum við um innhverfa íhugun, Maharishi Mahesh Yogi, indverska gúrúa, indverska stéttaskiptingu, uppljómun og önnur andans mál. Njótið vel kæra bræðralag.

    #367 Snorri vs. kynjafræðingar landsins

    Play Episode Listen Later Apr 11, 2025 67:38


    Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur með kóðanum SB15).www.patreon.com/skodanabraedurSnorri vs. kynjafræðingar landsins og fylgifiskar þeirra. Fjölmiðlafár síðustu viku rætt hér í þessum sérstaka þætti. Ekki reynt að skilgreina hugtakið woke. Allskonar annað líka: löngun í frægð og frama, aðstæður fólks og framtíðin.

    #366 Skoðanir Þorleifs Arnar Arnarssonar

    Play Episode Listen Later Apr 4, 2025 128:47


    Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur með kóðanum SB15).www.patreon.com/skodanabraedurÞorleifur Örn Arnarsson er fremsti leikhús-leikstjóri Íslands. Hann hefur sett upp stóru bókmenntaverkin, allt frá Hómer í Njálu í Shakespeare, í bestu leikhúsum Evrópu. Árið 2018 vann hann hæstu verðlaun sem leikhús-leikstjóri getur unnið í Þýskalandi. Hérna fer hann yfir sínar pælingar um heiminn: Kraftur listarinnar, tilgangur leikhússins, Þýskaland, bókmenntir, menntun, metnað, að enduruppgötva sig, kerfi heimsins og allskonar annað.

    #365 Bók mánaðarins: Caesar, Life of a Colossus

    Play Episode Listen Later Apr 1, 2025 24:22


    Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur á takktakk.is með kóðanum SB15).Það er engin önnur en ævisaga hershöfðingjans mikla Júlís Sesar sem að tekur á móti okkur í apríl. Góð leið til þess að koma sér inn í Rómaveldi og tjúna sig inn í hreinan og beinan sigurvegara. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

    #364 Tíu leiðir djöfulsins

    Play Episode Listen Later Mar 28, 2025 79:03


    Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, World Class, Silkisvefn, Takk takk (SB15 fyrir 15% afslátt á takktakk.is)Gervigreindin var spurð: Ef þú værir djöfullinn hvernig myndirðu rústa samfélögum? Hún svaraði skýrt. 1) prómotera unnar matvörur 2) hvetja til kyrrsetu 3) spillt vísindi 4) gera fólkið að fíklum 5) skemma fjölskyldur og samfélög 6) veikja og rugla í karlmennsku og því sem er kvenlegt - leggið við hlustir!

    #363 Skoðanir Ella Egilssonar Fox

    Play Episode Listen Later Mar 21, 2025 115:42


    Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, Worldclass, Stjörnugrís, Silkisvefn, Takk takk (SB15 fyrir 15% afslátt)www.patreon.com/skodanabraedurElli Egilsson Fox er myndlistarmaður búsettur í Las Vegas. Sannur king í húð og hár. Hér tölum við um aga, fegurð, að finna sína leið, menningu, Bandaríkin, að lifa í sínum sannleika og ýmislegt annað.

    Klassík: Skoðanir Bergs Ebba

    Play Episode Listen Later Mar 19, 2025 127:18


    Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, Silkisvefn, World Class, Takk takk (15% afsláttur á takktakk.is með kóðanum SB15)Klassískur þáttur með Bergi Ebba tekinn upp vorið 2021. Njótið vel kæra bræðralag.

    #362 Kulnun er ekki til (með Snorra Mássyni)

    Play Episode Listen Later Mar 14, 2025 69:54


    www.patreon.com/skodanabraedurStyrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, World Class, Silkisvefn & Takk takk (SB15 fyrir 15% afslátt).Snorri snýr aftur frá þingstörfum og fer yfir málin með okkur. Kulnun, þunglyndi eða kvíði er ekki til. Vísindalegt fact eða hvað?Þetta og ýmislegt annað í þessum sérstaka þætti. Guð blessi ykkur kæra bræðralag. Njótið vel!

    #361 Skoðanir Heiðars Guðjónssonar

    Play Episode Listen Later Mar 7, 2025 102:10


    www.patreon.com/skodanabraedurStyrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur á takktakk.is með kóðanum SB15).Heiðar Guðjónsson fjárfestir og hagfræðingur snýr aftur í þáttinn til þess að greina stöðu heimsins í mars 2025. Fyrsta mál á dagskrá var að búa til rými til þess að leyfa hlustendanum að finna sinn innri hægri-mann og hleypa sjálfum sér út úr skápnum. Síðan förum við af stað í unaðslegt hljóðferðalag um heima og geima: USA, Kína, Indland, gervigreind, Bitcoin, bóklestur, austurrísk hagfræði, kapítalismi & kommúnismi, mikilvægi skýrleika og fyrirtækjarekstur.Bækurnar sem Heiðar mælir með eru: Bræðurnir Karamazov, Biblían, The Hard Thing About Hard Things, Fooled by Randomness.

    #360 Bók mánaðarins: Insanely Simple: The Obsession That Drives Apple's Success (Fyrri hluti)

    Play Episode Listen Later Mar 1, 2025 15:27


    Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedurStyrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís, Saltverk, World Class, Silkisvefn, Takk takk (SB15 kóði fyrir 15% afslátt á takktakk.is)Bók mánaðarins er um þráina eftir einfaldleika sem að keyrði Steve Jobs áfram. Þetta er mögnuð bók sem kennir manni hvernig maður heldur hlutunum einföldum bæði í viðskiptunum sínum og persónulega lífi.

    #359 Skoðanir Guðna Gunnarssonar (Fyrri hluti)

    Play Episode Listen Later Feb 28, 2025 32:01


    Hlustaðu í fullri lengd (100mín) inni á www.patreon.com/skodanabraedurStyrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (kóðinn SB15 fyrir 15% afslátt á takktakk.is)Guðni Gunnarsson lífsþjálfi snýr aftur í þáttinn.Guðni er mín stærsta fyrirmynd og hefur kennt mér magnaða hluti. Mikil blessun að fá hann til þess að deila visku sinni hérna með okkur. Guð blessi ykkur kæra bræðralag. Njótið þáttarins!

    Klassík: Skoðanir Nökkva Fjalars Orrasonar

    Play Episode Listen Later Feb 26, 2025 114:53


    www.patreon.com/skodanabraedurStyrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís, Saltverk, World Class, Silkisvefn, Takk takk (SB15 fyrir 15% afslátt inni á takktakk.is)Klassískur þáttur með Nökkva Fjalari tekinn upp um jólin 2021. Það var ýmislegt í gangi þá. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

    #358 Skoðanir Brynjars Karls

    Play Episode Listen Later Feb 21, 2025 173:04


    www.patreon.com/skodanabraedur - prófaðu að koma í áskrift, ókeypis.Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, World Class og Silkisvefn. Brynjar Karl er körfuboltaþjálfari og íslenskur stríðsmaður. Hérna segir hann frá sínu ferðalagi, slagsmálum við swampið, hugsjónum og tilgangi. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

    #357 Skoðanir Ásgeirs Kolbeinssonar (Fyrri hluti)

    Play Episode Listen Later Feb 14, 2025 44:58


    Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur (1klst og 40mín)Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, World Class og Silkisvefn.Hinn eini sanni Ásgeir Kolbeins er genginn í bræðralagið. Mikill heiður. Hérna er kafað ofan í hans pælingar. Mikið talað um stjörnuspeki - enda er Ásgeir djúpur í henni þessa dagana. Njótið vel kæra bræðralag.Fyrirtækið hans Ásgeirs: wwww.orkugreining.is

    Klassík: Skoðanir Hjörvars Hafliðasonar

    Play Episode Listen Later Feb 11, 2025 137:04


    www.patreon.com/skodanabraedurStyrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, World Class og Silkisvefn.Skoðanabræður klassík. Óttalausi leiðtoginn og spekingurinn Hjörvar Hafliðason mætti í þáttinn október 2021. Tímalaus epík. Njótið vel kæra bræðralag.

    #356 Lífsreglurnar fjórar (ásamt Aroni Kristni)

    Play Episode Listen Later Feb 7, 2025 86:49


    www.patreon.com/skodanabraedur Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís, Saltverk & World Class. Lífsreglurnar fjórar er bókin sem gæti frelsað þig kæri hlustandi. Við Aron Kristinn Jónasson söngvari með meiru höfum báðir lesið hana milljón sinnum og getum með mikilli staðfestu sagt: Þetta er bókin. Í þessum þætti förum við í gegnum bókina og reglurnar fjórar sem hún leggur til þess að þú lifir eftir. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

    #355 Bók mánaðarins: Play It As It Lays - Joan Didion (Fyrri hluti)

    Play Episode Listen Later Feb 1, 2025 20:01


    Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís og Saltverk. Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Joan Didion skrifaði skýrt og fallega. Hún kjarnaði 60s í Kaliforníu og tjúnaði sig inn í hjarta Ameríku á sínum 70 ára rithöfundaferli. Hérna er farið yfir hennar vision, pælingar og áhrif. Hún byrjaði mikið af þessu sem við þekkjum vel í dag og hefur m.a inflúensað Lana Del Rey sérstaklega. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

    #354 Skoðanir Magnús Jóhanns Ragnarssonar (Fyrri hluti)

    Play Episode Listen Later Jan 31, 2025 30:00


    Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís & Saltverk. Hlustaðu í fullri lengd (2klst) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Magnús Jóhann er tónlistarmaður sem hefur byggt upp sérstakt vörumerki úr sjálfum sér. Hann nördast í sinni eigin experimental instrumental tónlist á sama tíma og hann aðstoðar poppara landsins við smellagerð. Með því að blanda þessu saman hefur hann unnið sér inn frelsi til þess að skapa, sigra og vera hann sjálfur. Þessi þáttur fjallar um hans vision. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

    #353 Skoðanir Lukku Pálsdóttur

    Play Episode Listen Later Jan 24, 2025 85:00


    www.patreon.com/skodanabraedur Lukka Pálsdóttir er frumkvöðull og heilsufrömuður. Hún er búin að vera að pæla í þessu í áratugi. Hérna förum við í gegnum hennar vitsmunalegu þróun, hvernig hugmyndir hafa komið, næringafræði, vísindi, grænmeti og kjöt. Ef þig langar til þess að fræða þig um hvernig maður eigi að borða og halda heilsu þá er þessi þáttur fyrir þig.

    #352 Skoðanir Haralds Erlendssonar (Fyrri hluti)

    Play Episode Listen Later Jan 17, 2025 30:29


    Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Haraldur Erlendsson geðlæknir og visionary snillingur mætir í þáttinn. Við tölum um hvað það er að vera geðveikur, afhverju fólk er hrætt við Guð, Carl Jung & Sigmund Freud, sameiginlega þætti norrænar, grískrar og indverskrar goðafræði, ADHD & elvanse, geðrof, hugvíkkandi efni og framtíð þeirra. Guð er snillingur!

    #351 Skoðanir Eiríks Magnússonar (Ishmael)

    Play Episode Listen Later Jan 10, 2025 103:50


    www.patreon.com/skodanabraedur Þessi þáttur er með skýran ásetning: Að fá þig, kæri hlustandi, til þess að gleypa appelsínugulu pilluna og uppgötva undursemdina sem Bitcoin er. Þetta er fyrir the tourist and the purist. Þú þarft ekki að vita neitt um peninga eða Bitcoin til þess að njóta. Gakktu inn með opinn huga og þú munt sannarlega fá að vita fullt um peninga og Bitcoin. Eiríkur Magnússon, einnig þekktur sem Ishmael á X, er einn helsti talsmaður austurrískrar hagfræði og Bitcoin á Íslandi. Hann starfar sem forritari í Kaupmannahöfn. Þátturinn er strúktúreraður þannig að fyrst tölum við um hvað peningar eru, síðan er það Bitcoin, og síðan er það austurríska hagfræðin. Bækur sem eru nefndar: The Bitcoin Standard - Saifedean Ammous. Principles of Economics - Saifedean Ammous. Man, Economy, and State with Power and Market - Murray Rothbard. Jack Mallers í podcastinu hans Rick Rubin (Tetragrammaton). Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

    #350 Skoðanir Gunnars Jörgen Viggóssonar

    Play Episode Listen Later Jan 3, 2025 103:17


    Í byrjun árs 2024 hafði Gunnar Jörgen samband við mig og spurði hvort ég hefði áhuga á því að umturna lífi mínu. Ég svaraði játandi - og þá hófst svakaleg svaðilför. Til að byrja með hlustuðum við á bókina Change Your Paradigm, Change Your Life eftir Bob Proctor 30 mín á dag 60 daga í röð og töluðum saman í símann á hverju kvöldi um bókina. Síðan tókum við 110 daga hugleiðsluprógrammið Awakening The Heart Vol. 1. Ein hugleiðsla á dag og alltaf símtal á kvöldin. Eftir það lásum við 30mín í bókinni The Incredible Reality of You 90 daga í röð og héldum áfram að tala í símann á hverjum degi. Síðan tók Awakening The Heart Vol. 2 við. Við kláruðum það núna í desember. Öll þessi prógröm hafa sannarlega breytt lífum okkar beggja og í þessum þætti greinum við frá þessum breytingum. Finnið Gunnar Jörgen á TikTok: @gunnar.heartfeltservices

    #349 Bók mánaðarins: Ilíonskviða *BROT*

    Play Episode Listen Later Jan 1, 2025 12:17


    Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Bók desembermánaðar er hin eina sanna Ilíonskviða. Hómer skrifaði þessa epík fyrir 2800 árum. Gjörsamlega undursamlegt! Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir okkur í dag? Vendum kvæði okkar í kross í janúar, bók mánaðarins er:  Play It As It Lays eftir Joan Didion

    #348 Þín eigin persónulega frelsisbarátta *BROT*

    Play Episode Listen Later Dec 27, 2024 12:58


    Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Þingmaðurinn Snorri mætir aftur inn ferskur á kanti. Þema þáttarins er vitsmunalegt og andlegt frelsi - hvernig öðlast maður slíkt? Þar að auki er hið stóra ár 2024 gert upp. Menn ársins tilkynntir. Guð blessi ykkur kæra bræðralag. Eina sem við vitum er að við vitum ekki neitt. Gleðilegt nýtt ár. Megi 2025 færa ykkur miklar blessanir.

    #347 Leið listamannsins

    Play Episode Listen Later Dec 20, 2024 20:46


    The Artist's Way er bók og 12 vikna prógram sem kennir þér að skapa það sem þig langar innst inni að skapa. Við Aron Kristinn Jónasson tókum þetta prógram núna í sumar/haust og það breytti lífum okkar beggja. Í þessum þætti förum við yfir þetta allt saman.

    #346 Takk takk

    Play Episode Listen Later Dec 18, 2024 90:41


    www.patreon.com/skodanabraedur Síðastliðið ár höfum við Bergþór Másson, Benedikt Andrason, Aron Kristinn Jónasson, Logi Pedro Stefánsson og Völundur Hafstað unnið hörðum höndum að stofnun vörumerkisins Takk takk. Þessi þáttur segir söguna af því. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

    #345 Skoðanir Vilhjálms Árnasonar *BROT*

    Play Episode Listen Later Dec 13, 2024 20:39


    Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Vilhjálmur Árnason prófessor emeritus í heimspeki er djúpur í fræðunum eins og titill hans gefur til kynna. Á fjörutíu ára ferli sínum hefur hann mikið fjallað um siðfræði: Hvað er rétt og rangt, gott og illt? Hvaðan fáum við þessar hugmyndir? Hvernig hafa þær þróast í gegnum tímann? Í þessum þætti ræðum við þetta allt saman sérstaklega í samhengi við Forn-Grikkland, Nietzsche, Íslendingasögurnar og annað sem Skoðanabræðralagið kann að meta. PS. Glöggir hlustendur þekkja Vilhjálm fyrir að hafa skrifað Við rætur mannlegs siðferðis: Siðagagnrýni og heilræði Friedrich Nietzsche (1991), greinina sem var notuð í hinn víðfræga Nietzsche þátt í fyrra.

    #344 Skoðanir Ólafs Stefánssonar *BROT*

    Play Episode Listen Later Dec 6, 2024 17:10


    Hlustaðu í fullri lengd (90mín) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Óli Stef handboltahetja segir frá vitsmuna- og andlegu ferðalagi sínu í gegnum lífið. Hvernig á maður að lifa og hvað á maður að gera við sig? Það er farið í þetta. Önnur stikkorð: skólakerfið, Þorvaldur Þorsteinsson, Nietzsche, Jung, Jordan Peterson, ayahuasca, stríðsmaðurinn.

    #343 Bók mánaðarins: White - Bret Easton Ellis *BROT*

    Play Episode Listen Later Dec 1, 2024 11:53


    Hlustaðu í fullri lengd (50mín) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Bret Easton Ellis er bandarískur rithöfundur og podcastari fæddur árið 1964. Hann er þekktastur fyrir að hafa skrifað American Psycho. White (2019) eftir hann er bók mánaðarins núna í Nóvember. Bókin er menningargagnrýni skrifuð í esseyju/memoir formi og má túlka sem nokkurskonar ákall um að fegurðin eigi að þrífast og sjálfsritskoðun þurfi að stöðva. Bók mánaðarins í Desember er Ilíonskviða eftir Hómer. Spennið beltin!

    #342 Skoðanir Hallgríms Helgasonar *BROT*

    Play Episode Listen Later Nov 29, 2024 18:28


    Hlustaðu í fullri lengd (1 klst og 40 mín) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Hallgrímur Helgason var að klára 1600 blaðsíðna þríleik sem í stuttu máli fjallar um það hvernig nútíminn kom til Íslands. Hérna vorum við í 1000 ár án drauma og hugmynda - síðan breyttist allt. Í þessum þætti ræðum við listina, bókmenntirnar, söguna og náttúruna. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

    #341 Skoðanir Söru Maríu Forynju

    Play Episode Listen Later Nov 22, 2024 90:38


    www.patreon.com/skodanabraedur Sara María er helsti sérfræðingur Íslands í hugvíkkandi efnum og lauk nýlega námi í Transpersonal Psychotherapy við Ubiquity University. Hún rekur Eden Yoga og skipuleggur ráðstefnuna Psychedelics as Medicine sem verður haldin í Hörpu 27. febrúar 2025. Við förum um víðan völl. Sara segir frá náminu sínu, hvernig maður leiðbeinir fólki í áttina að sínum sannleika, hvað hugvíkkandi efni geta gert fyrir mann - og margt fleira. Fylgisti með Söru á Instagram: @forynja Ráðstefnan: https://tix.is/is/harpa/event/17873/psychedelics-as-medicine/

    #340 Að drepa meistarann sinn *BROT*

    Play Episode Listen Later Nov 15, 2024 18:00


    Hlustaðu í fullri lengd (90mín+) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Sérstakur þáttur um það hvernig maður hugsar frjálst, lærir af meisturum sínum og heldur áfram í sínu persónulega þróunarferli. Í þessu samhengi eru tveir menn teknir fyrir: heimspekingurinn Friedrich Nietzsche og tónskáldið Richard Wagner. Það er sagt frá þessum mönnum (bæði fyrir the tourist & the purist) og samband þeirra greint í þaula út frá þessum pælingum um að drepa meistarann sinn og frelsa sig. Þættinum er skipt upp í sex hluta: 1) Inngangur 2) Samband N og W 3) Upplifun í La Scala óperunni í Mílanó (live hljóðupptökur) 4) Sambandsslit N og W 5) Vettvangsferð til Turin (live hljóðupptökur) 6) Lokaorð og samantekt Guð blessi ykkur kæra bræðralag. Það var sérlega gaman að búa þennan þátt til. Við erum uppi, og við ætlum að halda því áfram :).

    #339 Skoðanir Friðriks Rafnssonar *STIKLA*

    Play Episode Listen Later Nov 8, 2024 11:37


    Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Friðrik Rafnsson er þýðandi tveggja minna uppáhalds rithöfunda Milan Kundera og Michel Houellebecq. Í þessum þætti förum við yfir ítarlega yfir þessa tvo menn og Friðrik segir okkur frá hugmyndum þeirra, bókum og persónuleikum. Hann hitti Kundera oft og hefur þýtt hverja einustu bók hans. Houellebecq hitti hann líka þegar hann kom til Íslands árið 2012. Fyrri hluti þáttarins fjallar um Kundera og síðan skiptum við yfir í Houellebecq um miðbik. Þetta var dásamlegt að taka upp. Takk fyrir mig og Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

    #338 Skoðanir Halldórs Armand *OPINN ÞÁTTUR*

    Play Episode Listen Later Nov 1, 2024 144:01


    www.patreon.com/skodanabraedur Halldór Armand rithöfundur hefur aldrei verið ferskari. Hann var að gefa út nýja bók, Merkilegt Rusl. Lífsgleðin skín af honum eftir að hafa gengið í gegnum djúpa erfiðleika. Dásamleg saga. Það er farið yfir þetta allt saman og fleira: klassíska heiminn, andleg málefni, ritstörf, sjálfstæði og frelsi nútímamannsins og hlutverk rithöfundarins í samfélagi.

    #337 Snorri á þing

    Play Episode Listen Later Oct 25, 2024 10:32


    Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Snorri tyllir sér á bak MIðflokksfáknum og ríður út í sólsetrið. Guð er góður og við lifum á dásamlegum tímum. Þannig er það. Í þessum þætti tölum við um framboðið, stjórnmálaástandið og hvernig við viljum hafa Ísland alþjóðlega miðstöð frelsis, fegurðar og friðar. Það eru bjartir tímar framundan hjá Skoðanabræðralaginu. Mikið verður gott fyrir okkur að hafa mann inni á þingi. Þátturinn mun þróast samhliða því, þær nýju vendingar eru kynntar lauslega í kringum lok þáttar. Í stuttu máli: Bergþór mun taka allskonar viðtöl og Snorri hoppar inn þegar það er viðeigandi. Við erum lengst uppi og rétt að byrja. Njótið þáttarins kæra bræðralag.

    #336 Hamingjusamur, heilbrigður, auðugur?

    Play Episode Listen Later Oct 18, 2024 17:28


    Skoðanabræður snúa aftur eftir veikindi og víla ekki fyrir sér að koma sér beint að efninu um framtíð þjóðarinnar. Hvert stefnum við, nú þegar stjórnmálasviðið er galopið og örlagastund knýr dyra? Hér er þessu ekki beint svarað en þetta er rætt, tekið upp á miðvikudagsmorgni. Stóra sýnin fyrir Ísland, stóra allsnægtabyltingin – happy, healthy og wealthy þjóð. Komið inn á Naval Ravikant, rafmyntir, þjóðargjaldmiðla og stóru málin á næsta kjörtímabili. Að auki: Pælið í því að Píratar hafi eitt sinn virst eðlilegt stjórnmálaafl. Og: Vinur Begga svaf yfir stærðfræðipróf í Verzló og því hefur Bergþór aldrei gleymt. Snorra dreymir enn martraðir um að jólapróf í latínu vofi yfir en að hann sé ekki byrjaður að læra. Skólakerfið okkar. Einnig: Nýtt startup í sjávarútvegi á vegum Sigga Bjartmars, Greenfish.

    #335 Lögmálin sjö um velgengni *OPINN ÞÁTTUR*

    Play Episode Listen Later Oct 11, 2024 104:51


    www.patreon.com/skodanabraedur Þetta er þáttur fyrir alla þá sem vilja sigra. Deepak Chopra er höfundur bókarinnar The 7 Spiritual Laws of Success. Guð gaf Snorra gubbupest til þess að þessi þáttur myndi verða til. Aron Kristinn Jónasson stígur inn í hans stað. Máttugur er mættur maður. Við förum yfir þessi sjö lögmál bókarinnar. Guð blessi ykkur kæra bræðalag.

    #334 Menntun og psychedelics

    Play Episode Listen Later Oct 4, 2024 15:33


    Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Hvernig menntum við okkur? Hvað er í gangi í háskólunum? Hugmyndir fræðikonunnar Camille Paglia ræddar hér í þessum þætti. Hún er róttæk og skemmtileg. Er munur á körlum og konum? Það fer eftir því hvern þú spyrð. Um lok þáttar er snert á hugvíkkandi efnum, hverjir eiga að nota þau og hverjir alls ekki. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

    #333 Opinn þáttur | Vonandi hefur þessi maður ekki rétt fyrir sér!

    Play Episode Listen Later Sep 27, 2024 66:35


    Balaji Srinivasan fjárfestir og frumkvöðull hefur spáð ýmsu brjáluðu og ekki allt hefur ræst. Ein af lykilkenningum hans er að hægt og rólega taki netríki við af þjóðríkjum, þar sem hópar munu koma sér saman um samfélög á netinu, sem ekki verða skilgreind af veraldlegum landamærum. Hér ræðum við framtíð Íslands á þessum nótum og veltum öllum steinum. Annað sem kemur við sögu: Hefur regluverk staðið í vegi fyrir framþróun á síðustu áratugum? Fjármagnið skiptist í þrennt: Woke Capital, Tech Capital og Communist Capital. Sagan af landnáminu í Bandaríkjunum eins og Balaji sér hana.

    #332 Þunglyndi er ekki til

    Play Episode Listen Later Sep 20, 2024 20:17


    Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Tilvistarspurning þunglyndis, landbúnaður, Lenín, bókmenntir Rússlands 19. aldarinnar, Pharrell Williams, Bernard Arnault og pólitík þeirra sem eiga heiminn. Þetta er til umræðu í þessu fremsta hlaðvarpi landsins.

    #331 Ekkert hefur breyst frá 2005 (e. Stuck Culture) *OPINN ÞÁTTUR*

    Play Episode Listen Later Sep 13, 2024 62:42


    Ert þú alltaf að hlusta á gamla tónlist? Eru kvikmyndirnar sem þú ert að horfa á bara sömu kvikmyndir aftur og aftur? Hér er sagan rakin frá afdrifaríkum hryðjuverkaárásum árið 2001 og fjallað um hvernig menning okkar mótaðist í kringum 2005 og hefur síðan lítið breyst. Algrímin valda því, að mati sérfræðinga, að allt sem við sjáum og heyrum er endurtekning eða endurvinnsla þess sem áður hefur virkað.  Annað: Trump vs. Harris kappræður Munurinn á kapítalisma og kommúnisma 9/11 og áhrifin á alheimssamfélagið Nýr iPhone og regluverksfargan Evrópusambandsins Skaðleg sálfræðiþjónusta fyrir ungt fólk með þunglyndi og kvíða Kostir áfengis

    #330 Draumurinn um einokun

    Play Episode Listen Later Sep 6, 2024 20:50


    Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Sérstakur þáttur í tilefni 10 ára afmælis Zero to One eftir Peter Thiel. Bókin sem segir þér hvernig þú átt að hugsa þegar þig langar að stofna fyrirtæki. Fyrst: talað um nýjar saunuþróanir sem bitna á konum. Síðan eru hugmyndir bókarinnar kynntar: Að öðlast einokun, að hugsa stórt, að forðast samkeppni. Í lokin er virðing sett á free market menningarmiðstöðina Húrra Reykjavík fyrir þeirra starf síðastliðin tíu ár.

    #329 Svona erum við heilaþvegin *OPINN ÞÁTTUR*

    Play Episode Listen Later Aug 30, 2024 65:19


    Meistaraverkið The True Believer eftir Eric Hoffer tekið fyrir og sett í nútímasamhengi. Hún fjallar um fjöldahreyfingar. Hvernig verða þær til? Hvernig fólk gengur í þær? Hvernig fólk stjórnar þeim? Út á hvað ganga þær? Kommúnismi og nasismi eru skýr dæmi - en hvað er í gangi í dag? www.patreon.com/skodanabraedur

    #328 Allt um einn mikilvægasta höfund samtímans (II. þáttur um Nassim Nicholas Taleb)

    Play Episode Listen Later Aug 23, 2024 19:58


    Nassim Nicholas Taleb er sérfræðingur í líkindum, fjárfestingum og almennum kóngalífstíl. Tvímælalaust einn af mikilvægari höfundum samtímans, eins og stöðugar vinsældir bóka hans sýna. Á meðal þeirra: Fooled by Randomness, Black Swan, Antifragile og Skin in the Game. Í þessum þætti förum við efnislega yfir einstaka, nýstárlega og nærandi hugmyndafræði Taleb, sem getur líklega gert þig að betri manni. Viltu til dæmis hætta að vera viðkvæmur og verða beinlínis andviðkvæmur? Engrar þekkingar á neinu krafist til þess að ýta bara á play!

    #327 Allt um einn mikilvægasta höfund samtímans (I. þáttur um Nassim Nicholas Taleb)

    Play Episode Listen Later Aug 16, 2024 20:07


    Nassim Nicholas Taleb er sérfræðingur í líkindum, fjárfestingum og almennum kóngalífstíl. Tvímælalaust einn af mikilvægari höfundum samtímans, eins og stöðugar vinsældir bóka hans sýna. Á meðal þeirra: Fooled by Randomness, Black Swan, Antifragile og Skin in the Game. Í þessum þætti förum við efnislega yfir einstaka, nýstárlega og nærandi hugmyndafræði Taleb, sem getur líklega gert þig að betri manni. Viltu til dæmis hætta að vera viðkvæmur og verða beinlínis andviðkvæmur? Engrar þekkingar á neinu krafist til þess að ýta bara á play!

    Claim Skoðanabræður

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel