Podcasts about stofna

  • 14PODCASTS
  • 28EPISODES
  • 1h 12mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Oct 9, 2024LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about stofna

Latest podcast episodes about stofna

Bjórspjallið

Magnús, eða Mási eins og hann er oftast kallaður, hefur komið mjög víða við í bransanum. Stofnað bari, unnið á brugghúsum, og stofnaði einu sinni sjálfur brugghús! Nú er hann hjá Malbygg, gegnir þar sölustörfum og markaðssetningu. Flest sjáum við hann á barnum þar sem honum líður afskaplega vel.

Þjóðmál
#192 – Verðbólgan kólnar og gul viðvörun á vinnumarkaði – Er ástæða til að stofna þjóðarsjóð?

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Jan 31, 2024 78:59

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um hjaðnandi verðbólgu og útlitið framundan, hvort að von sá á vaxtalækkun, kjaraviðræður sem nú eru í frosti, ummæli Vilhjálms Birgissonar í nýlegu viðtali í Spursmálum, hvort að rétt sé að stofna þjóðarsjóð eða ekki, andstöðu Landverndar við framförum, um stöðu Alvotech og Marel og margt fleira.

stef vilhj marel landverndar stofna alvotech
Skoðanabræður
#288 Þetta þarftu til að stofna fjöldahreyfingu

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Nov 17, 2023 20:10

Hvað þarf leiðtogi fjöldahreyfingar eins og þeirra sem spruttu upp á 20. öld að hafa til að ná langt? Hvað þarf fjöldahreyfing til að virka? Hér er rætt um fjöldahreyfingar, Kanye, einkavæðingu sundlauganna í Reykjavík og ágæti einkaframtaksins, stórar hugmyndir eftir að Guð dó og í gegnum allt þetta: Farið með lifandi hætti yfir bókina True Believer eftir Eric Hoffer - sem fjallar um fjöldahreyfingar og þar með auðvitað sértrúarhópa hvers konar. Þátturinn í heild sinni á Patreon.

Spegillinn
Kosningar í Póllandi og vangaveltur um ríkisstjórn

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 12, 2023 9:23

12. október 2023 Utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom til Ísraels í dag og ítrekaði skilyrðislausan stuðning Bandaríkjastjórnar við ísraelsku þjóðina. Hlýrra loftslag og hopun jökla hefur aukið framleiðslugetu Landsvirkjunar umtalsvert á undanförnum tíu árum. Nýjum samráðsvettvangi lögreglu, sveitarfélaga, heilbrigðistofnana, skóla og fleiri er ætlað að vaka yfir samfélaginu og skipuleggja átaksverkefni gegn ofbeldi og áhættuhegðun. Stofnað verður til slíks samráðs í öllum landshlutum og er það þegar hafið á Austurlandi. Fólk sem þiggur máltíðir á kaffistofu Samhjálpar þarf nú að skrá sig sérstaklega þannig að unnt sé að meta hvort það þurfi á aðstoðinni að halda. Viðbrögð við neyðarástandi, segir framkvæmdastjóri Samhjálpar. Ekki er vitað hvaða breytingar verða gerðar á ríkisstjórninni en allt mun það skýrast á laugardaginn þegar ríkisráð kemur saman til fundar á Bessastöðum. Mögulega skipta flokkar á ráðuneytum en það gæti líka orðið að ráðherrum Sjálfstæðisflokks verði einfaldlega hrókerað. Kosningar í Póllandi á sunnudaginn snúast ekki síst um hvort stjórnarflokkurinn Lög og réttlæti heldur völdum þriðja kjörtímabilið í röð. Kosningabaráttan hefur verið hörð og spurningar sem bornar eru upp í þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða kjöri þingmanna hafa ýtt undir skautun í pólsku samfélagi. Málsmetandi rithöfundur þarf að greiða þúsund evrur í sekt fyrir að hafa farið niðrandi orðum um forsætisráðherra Ítalíu í sjónvarpsþætti. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Spegillinn
Kosningar í Póllandi og vangaveltur um ríkisstjórn

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 12, 2023

Pyngjan
Föstudagskaffið: Ekki stofna fyrirtæki af gamni þínu

Pyngjan

Play Episode Listen Later May 19, 2023 48:41

Föstudagskaffinu hefur verið sullað á borðið í þriðja skipti maí mánaðar og það er sjóðheitt þennan föstudaginn. Yngsti milljarðarmæringur vikunnar lítur dagsins ljós, launþegi vikunnar, verðbólgutips vikunnar, fréttir vikunnar og yfirferð á stofnun fyrirtækis. Við leggjum ekki meira á ykkur kæru hlustendur. Gangið hratt um gleðinnar dyr.

Ein Pæling
#100 Hefði sjálfstæðismaður stofnað Stígamót? (Viðtal við Brynjar Níelsson)

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Nov 21, 2021 86:01

Þórarinn og Brynjar Níelsson ræða áhrif tæknibreytinga á stjórnmál, #MeToo hreyfinguna, frelsi einstaklingsins, hvort að Sjálfstæðismaður myndi stofna samtök á borð við Stígamót, heilbrigðiskerfið og dagskrárvald.

Spegillinn
Býst við skæðum inflúensum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 13, 2021 9:58

Yfirlæknir Barnaspítala Hringsins býst við skæðum inflúensum og RS veiru veikindum í vetur. Hann er ánægður með að ekki hafi fleiri börn en raun ber vitni lagst inn á spítala af völdum covid. Bensínverð hefur hækkað um 40 krónur frá áramótum. Formaður FÍB hvetur stjórnvöld til að bregðast við með tímabundinni lækkun olíuverðs. Íslenskum skipum verður heimilt að veiða rúmlega 660 þúsund tonn af loðnu. Áætlað aflaverð er um fimmtíu milljarðar króna. Sameinuðu þjóðirnar segja hættu á að viðkvæm börn og eldri borgarar svelti til bana vegna matarskorts í Norður-Kóreu. Hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands sjást ekki greinileg merki um að áhætta af veðurfarstengdum atburðum hafi aukist. En aurskriður vekja upp spurningar um veðurfarsbreytingar sem þarf að taka mjög alvarlega, segir sviðsstjóri vátryggingasviðs. Ragnhildur Thorlacius talar við Jón Örvar Bjarnason. Í viðræðum ríkisstjórnarflokkanna þriggja gæti reynst erfitt að komast að sameiginlegri niðurstöðu um stofnun hálendisþjóðgarðs. Málið strandaði í þinginu og var sent aftur í umhverfisráðuneytið. Í stjórnarsáttmálanum er kveðið á um Miðhálendisþjóðgarð. Þar segir: Stofnaður verður þjóðgarður á miðhálendinu í samráði þverpólitískrar þingmannanefndar, umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, sveitarfélaga, náttúruverndar- og útivistarsamtaka og annarra hagsmunaaðila. Skoðaðir verða möguleikar á þjóðgörðum á öðrum svæðum. Arnar Páll Segir frá. Heyrist í Guðna A. Jóhannessyni, Herði Arnarsyni, Hildigunni Thorteinsson og Páli Erland. Það virðist ekki vera neitt lát á bókaútgáfu þrátt fyrir öfluga samkeppni frá öðrum miðlum, streymisveitum og samfélagsmiðlum. Bókaútgefendur þurftu að skila inn skráningu í Bókatíðindi í þessari viku og jólabókaflóðið verður á sínum stað þrátt fyrir að bókaútgáfan hafi dreifst meira yfir árið á síðustu árum. Kristján Sigurjónsson ræddi við Pétur Má Ólafsson útgefanda og stjórnarmann í Félagi íslenskra bókaútgefenda og spurði fyrst hvers kyns bækur væru gefnar út á þessu ári. Umsjón Arnar Páll Hauksson Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon

Spegillinn
Býst við skæðum inflúensum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 13, 2021

Karlmennskan
#28 „Þetta mun ekki breytast af sjálfu sér“ - Ása Steinarsdóttir

Karlmennskan

Play Episode Listen Later Apr 23, 2021

„Þetta mun ekki breytast af sjálfu sér“, segir Ása Steinarsdóttir sem er komin með nóg af kynjamisrétti og úreltum birtingamyndum kvenna í auglýsingaefni. Hún hefur ákveðið að taka slaginn enda með 700 þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlum og skapað sér nafn innan ævintýra- og ljósmyndageirans. Ása er ein sú stærsta af örfáum konum í Evrópu sem starfa við efnissköpun á samfélagsmiðlum og hraðast vaxandi kvenkyns ljósmyndarinn. Stofnaði Ása fyrirtækið Bell Collective, sem er samfélag fyrir kvenkyns ljósmyndara og efnisskapara en með því vill Ása brjóta upp staðalmyndina um að konur þurfi að ná árangri út á útlitið. Í 28. hlaðvarpsþætti Karlmennskunnar gefur Ása Steinarsdóttir innsýn í karllægni auglýsingabransans, hvað þurfi að breytast og hvernig hún vill vera fyrirmynd fyrir konur sem hafa áhuga á ljósmyndun.

ekki evr stofna steinarsd

Stundin
Karlmennskan - hlaðvarp#28: „Þetta mun ekki breytast af sjálfu sér“ - Ása Steinarsdóttir

Menntamálaráðherra höfðar mál

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 24, 2020 30:00

Menntamálaráðherra hefur ákveðið að höfða mál fyrir dómstólum til að fá ógiltan úrskurð Kærunefndar jafnréttismála, sem taldi ráðherrann hafa brotið lög við ráðningu ráðuneytisstjóra. Seðlabankinn hefur samið við bankana um stuðningslán til lítilla og meðalstórra fyrirtækja vegna Covid-faraldursins. Það vekur áhyggjur að fjármálaráðherra lýsi yfir að loforð sem stjórnvöld hafi gefið í tengslum við lífskjarasamninginn séu í raun marklaus, segir forseti Alþýðusambandsins. Sambandið vill fund með stjórnvöldum um samninginn. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gerir ráð fyrir að staðfest kórónuveirusmit í heiminum nái tíu milljónum í næstu viku. Stofna á ferðaábyrgðasjóð til endurgreiða pakkaferðir sem féllu niður vegna COVID 19. Þetta kemur fram í nýju frumvarpi sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Horfur eru á að Ísland losni af gráum lista alþjóðlegra samtaka sem berjast gegn peningaþvætti í október. Rætt var við framkvæmdastjóri Landverndar og prófessor sem stýrði mati á áhrifum loftslagsaðgerða stjórnvalda um forsendur nýrrar aðgerðaáætlunar . Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við Auði Önnu Mangúsdóttur og Brynhildi Davíðsdóttur. Í skrifstofum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Brussel hefur COVID-19 veiran skyggt á Brexit. Fátt áþreifanlegt hefur hafst upp úr samningaviðræðum Breta við Evrópusambandið, sem staðið hafa síðan í byrjun mars, um framtíðarviðskiptasamband. Í síðustu viðræðulotu virðist þó hafa náðst sameiginlegur skilningur sem hægt verður að byggja á. En nýr samningur ætti að taka gildi um áramótinn og tíminn til að klára viðræðurnar er naumur. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.

Spegillinn
Menntamálaráðherra höfðar mál

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 24, 2020

Fotbolti.net
Miðjan - Augnabliks fíflalæti og fyndnar sögur

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 13, 2020

Í lok ársins 1981 var knattspyrnufélagið Augnablik stofnað en lið þeirra vakti mikla athygli næstu árin fyrir almenn fíflalæti og uppákomur. Fræg er til dæmis sagan af því þegar reynt var að stofna félagið hjá ÍSÍ. Jón Orri Guðmundsson og Andrés Pétursson rifja upp gamla tíma í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Stofnað í lok ársins 1981 - Ekki allir sáttir við stofnun félagsins - Gerðu í því að vera með fíflalæti - Vildi láta liðið heita Kakó fyrst - Fyndið símtal til ÍSÍ - Sendu vallarstjóranum póstkort í öllum ferðum - Leigðu flugvél í fyrsta leik á Hellissandi - Óvæntar bókagjafir til andstæðinganna - Dreifðu karamellum til áhorfenda fyrir leik - Mættu með lífverði á limósíum beint í leik gegn FH - Kölluðu gamla þjálfarann heim frá Danmörku til að tapa - Lögreglan handtók fyrirliðann á vellinum rétt fyrir leik - Gáfu andstæðingunum fisk fyrir leik - Dómarinn rak annan línuvörðinn af velli í miðjum leik - Spiluðu í sundbolum gegn Hildibröndum sem enduðu á pungbindum - Friðrik Þór hnýtti í þá í bók Einars Kárasonar - Komu ríðandi á völlinn og á Traböntum - Markahrókurinn skipti á treyju við tvíburabróður sinn - Gerðu menn brjálaða með því að sprengja upp ílu á árshátíð - Duttu í það milli leikja á vestfjörðum og skyrtan sem týndist - Uppljóstrað hver skrifaði 'Fíflalæti á knattspyrnuvelli' í velvakanda - Stöðvuðu tillögu um fjölgun liða með gríntillögu um Monrad kerfið - Fóru til Austurríkis og spiluðu upp á bjórkút - Þriðja liðið átti að heita Blix en var hafnað

FM957
Brennslan - Greta Salóme stofnaði facebookhópinn Sykurlaust sumar : Langaði að bakka út en get það ekki núna

FM957

Play Episode Listen Later May 13, 2020 6:31

8 vikna sykurleysi.

Fotbolti.net
Miðjan - Bjarnólfur var til í að koma nakinn fram fyrir frægðina

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 6, 2020

Bjarnólfur Lárusson var tilbúinn að gera allt fyrir frægðina, meðal annars að koma nakinn fram. Hann var atvinnumaður í Englandi og Skotlandi en sneri svo heim og þótti óheiðarlegur leikmaður sem fékk ótal spjalda. Hann var líka lengi Íslandsmethafi í kúluvarpi. Bjarnólfur er gestur vikunnar í podcastþættinum Miðjan hér á Fótbolta.net. Meðal efnis: - Stofnaði ráðgjafafyritæki í haust - Hluthafi í Passion bakaríi - Átti Íslandsmet í kúluvarpi í áratug - Mjög efnilegur í handbolta - Samkeppni Týs og Þórs - Pabbi hans rifti fyrsta atvinnumannasamningnum brjálaður - Auðvelt að æsa hann upp - Stálu treyjum andstæðinga - Rekinn heim frá Rangers eftir þjófnað í klefanum - Slegist á æfingum fyrstu árin hjá ÍBV - Fögnin og Slor og skítur skapaði stemmningu - Skoruðu alltaf jafnmikið og undirbúnu fögnin - Atli Eðvalds henti varamönnunum því þeir pöntuðu pizzu á bekkinn - Ók áfram fullur með lögguna hangandi á bílnum - Draumamarkið gegn Stuttgart - ÍBV bannaði honum að æfa því hann fór frítt til Hibernian - Allt tryllt þegar Walsall komst upp úr 2. deildinni - Bretum fannst hann illa klæddur - Sneri heim til ÍBV til að einbeita sér að námi - Nakinn á forsíðu Mannlífs - Dónaleg samskipti við Tómas Inga innan vallar en nánast í sleik eftir æfingu - Æskuvinur hans drullaði yfir hann í fyrsta leik KR í eyjum - Spjaldavesenið og atvikið með Reyni Leós - Aldrei séð 30 barða karlmenn eins og þegar hann tók við Víkingi - Aðstoðaði Þrótt í lokaleiknum í fyrra með Tómas Inga í eyranu

Fotbolti.net
Miðjan - Lárus Guðmunds um bikartitla, mútugreiðslur og fleira

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Mar 18, 2020

Lárus Guðmundsson var á sínum tíma eldfljótur og brögðóttur markahrókur sem fékk mikið lof hjá mönnum eins og Sir Alex Ferguson. Hann var sigursæll, bæði Íslandsmeistari og svo bikarmeistari í Belgíu og Þýskalandi en var líka sakaður um mútur og átti í útistöðum við landsliðsþjálfara Íslands. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunnar á Fótbolta.net í dag. Þátturinn í dag er í boði Boðleiðar. Með lausnum frá Boðleið er vinnustaðurinn þar sem þú ert, fullkomnar lausnir í fjarvinnu. Nánar er hægt að kynna sér málið á www.bodleid.is Meðal efnis: - Spilaði með landsliðinu gegn Man City og Englandi á Laugardalsvelli - Deilurnar við Tony Knapp sem henti honum úr landsliðinu - Hann og Arnór 16 ára í framlínu Víkings - Íslandsmeistaratitilinn 1981 - Tæklingaæfing í klukkutíma með Middlesbrough - Pfaff fiskaði hann útaf og kallaði hann íslenska aumingjann - Skoraði tvö og tryggði bikartitil í Belgíu - Hræddur og flúði stuðningsmenn á hlaupum í bikarfögnuði - Sir Alex Ferguson kallaði Lárus stórsnjallan sóknarleikmann - Lenti í mútumáli en var sýknaður - Þjóðhetja í Þýskalandi eftir sigur á Bayern í bikarúrslitum - Ótrúleg endurkoma í Evrópuleik - 6 mörk í seinni hálfleik - Fyrir ofan Maradona á lista markahæstu manna - Stærstu mistök ferilsins að fara til Kaiserslautern - Erfitt að sætta sig við að vera búinn á því - Dómgreindarskortur að taka við þjálfun Víkings - Stofnaði KFG fyrir 12 árum en hætti í vetur - Gat ekki verið sáttasemjari milli dómara og Sali Heimis Porca - Dómarar á landsbyggðinni fagna því að hann sé hættur

Spegillinn
Færeysku þingkosningarnar og Pólverjar á Íslandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 26, 2019 30:00

Spegillinn mánudaginn 26. ágúst 2019 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í sex ára fangelsi fyrir mjög grófa líkamsárás á konu í Vestmannaeyjum fyrir þremur árum. Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims styðja sjálfstjórn Hong Kong sem Bretar og Kínverjar sömdu um fyrir 35 árum. Hörð mótmæli hafa verið í borginni síðustu vikur. Stefnt er að því að kjósa um þriðja orkupakkinn á Alþingi á mánudag eftir viku. Landsréttur hefur hafnað kröfu ákæruvaldsins um framlengt gæsluvarðhald yfir manni sem dæmdur var í fimm ára fangelsi fyrir árás á dyravörð á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur. Strandveiðum lýkur um næstu mánaðamót. Útlit er fyrir að tæp 2000 tonn verði óveidd af veiðiheimildum. Stofnaður hefur verið viðbragðshópur Matvælastofnunar, björgunarsveita og fleiri til að bjarga hvölum í neyð. Grindhvalur sem rak á land við Seltjarnarnes í dag var aflífaður nú skömmu fyrir fréttir. Lengi umfjallanir: Þingkosningar verða í Færeyjum á laugardag 31. ágúst. 33 þingmenn eru á færeyska lögþinginu. Rikisstjórn Þjóðveldisflokksins og Jafnaðarflokksins undir forystu Aksels V. Johannessen lögmanns úr síðarnefnda flokknum hefur nauman meirihluta og benda skoðanakannanir til að hún missi meirihluta sinn. Stærstu stjórnarandstöðuflokkarniir eru Sambandsflokkurinn og Fólkaflokkurinn, en það er þó óvíst að þeir nái saman í stjórnarmyndun verði kosningarnar þeim í hag. Færeysk stjórnmál eru um margt flókin og snúast ekki aðeins um hægri og vinstri, heldur einnig um afstöðuna til sambandsins við Dani og íhaldssememi eða frjálsyndi í afstöðu til jafnréttis- og trúmála. Norræna félagið á Íslandi hélt opinn fund í Norræna húsinu í Reykjavík í dag þar sem fjallað var um væntanlegar kosningar. Petur Petersen sendiherra Færeyinga á Íslandi sagði frá helstu málum sem þar ber á góma og nokkrir Íslendingar sem vel þekkja til í Færeyjum tóku þátt í pallborðsumræðum. Þar á meðal voru Sif Gunnarsdóttir skrifstofustjóri menningarmála hjá Reykjavíkurborg og fyrrverandi forstjóri Norræna hússins í Færeyjum og Gísli Gíslason varaformaður færeysk- íslenska viðskiptaráðsins og hafnarstjóri Faxaflóahafna. Kristján Sigurjónsson talar við þau í beinni útsendingu. Pólverjar á Íslandi eru orðnir fleiri en tuttugu þúsund. Fæstir þeirra hafa áhuga á að setjast að hér á landi, heldur koma hingað í tímabundin uppgrip. Ný doktorsrannsókn Önnu Mariu Vojtynska leiðir í ljós að íslenskur vinnumarkaður verður sífellt stéttskiptari eftir þjóðerni, og tilhneigingin s

Flakk
27042019 - Flakk - Flakk um Bjag Leiguíbúðafélag

Flakk

Play Episode Listen Later Apr 27, 2019

Fyrstu verkamannabústaðir hér á landi risu við Hringbraut í Reykjavík uppúr 1930. Og nú níutíu árum síðar minnir sagan á sig því fyrsta skóflustungan að hundrað fimmtíu og fimm leiguíbúðum við Móaveg í Grafarvogi var tekin í febrúar í fyrra. Bjarg Íbúðarfélag, sem VR, Alþýðusambandið og BSRB stofnuðu, byggir íbúðirnar. Íbúðirnar eru ætlaðar fólki í lægri launaþrepum til langtímaleigu og verða leigðar til langs tíma. Stofnað hefur verið Leiguíbúðafélagið Bjarg, sem er óhagnaðardrifið leigufélag, ASÍ, VR og BSRB eru stofnfélagar. Innan Bjargs eru einungis leiguíbúðir og nú er að sjá hvort leigan verði þannig að þeir verst settu eigi möguleika á að leigja hjá Bjargi. Það hefur gengið vel að byggja í Grafarvoginum og þar eru menn á undan áætlun og búast við að afhenda fyrstu íbúðirnar í júní. Jafnframt er verið að byggja víðar. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR situr í stjórn félagsins og Björn Traustason er framkvæmdastjóri, rætt er við þá um hugmyndafræðina og fjármögnun. Einnig er farið í skoðunarferð í fylgd Sólveigar Berg Emilsdóttur akitekts hjá Yrki í Grafarvoginn, á Móaveg sem liggur við Spöngina, sem er stærsti verslunarkjarninn í Grafarvogi, en þar er verið að setja lokahönd á 155 íbúðir.

vr bj ing ragnar einnig fyrstu traustason jafnframt bsrb grafarvogi stofna

Morgunútvarpið
Haftyrðlar, kuldi, Carmen og Guðrún, HM í handbolta

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 14, 2019 130:00

Nýverið sást til haftyrðla á höfuðborgarsvæðinu en þessi smávaxni fugl er sjaldséð sjón hér um slóðir. Við slógum á þráðinn til Freydísar Vigfúsdóttur líffræðings og fræddumst aðeins um þessa litlu gesti. Landsmenn hafa séð síðustu daga að veðurspár gera ráð fyrir miklu frosti um miðja vikuna, ekki síst hér á höfuðborgarsvæðinu, en spárnar hafa sýnt allt að 14 gráðu frost. Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur, var á línunni hjá okkur. Stofnaður hefur verið sérstakur metoo hópur á Facebook þar sem lesa má frásagnir tíu kvenna sem saka Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, um kynferðislega áreitni og ofbeldi í sinn garð. Stundin fjallaði fyrst um hópinn og ásakanir kvennana fyrir helgi. Ein þeirra sem sakar Jón Baldvin um áreitni er Carmen Jóhannsdóttir, en hún fullyrðir að Jón hafi káfað á sér síðasta sumar í vitna viðurvist þegar hún var í heimsókn á heimili hans og Bryndísar Schram á Spáni. Við heyrðum í Carmen. Guðrún Harðardóttir kom til okkar en hún er systurdóttir Bryndísar Schram, eiginkonu Jóns Baldvins. Hún steig fram árið 2012 viðtali við Nýtt líf og sagði frá áreitni Jóns Baldvins og klúrum bréfum sem hann sendi henni um nokkura ára skeið þegar hún var á aldrinum 12 til 17 ára. Hún er ein þeirra sem er að baki metoo hópsins sem stofnaður hefur verið á FB. Hún kom til okkar og ræddi m.a. við okkur um hvað gerðist eftir að hún steig fram á sínum tíma. Við slógum líka á þráðinn til Munchen þar sem karlalandsliðið í handbolta er nú nærri hálfnað með keppni í B-riðli Heimsmeistaramótsins. Kjartan Vídó Ólafsson, Eyjamaður og markaðsstjóri HSÍ, er þar ásamt hópi Íslendinga sem mættir eru gagngert til að styðja við bakið á liðinu. Gunnar Birgisson íþróttafréttamaður fór svo nánar yfir HM með okkur. Tónlist: KK - Frelsið. Foo Fighters - Walking after you. St. Etienne - Only love can break your heart. Gotye - Somebody that I used to know. Björk - Army of me. John Mayer - New light. Daft Punk og Julian Casablancas - Instant crush. Hjálmar - Fyrir þig.

army fb bj gu daft punk hs hm hj fyrir schram munchen brynd vigf baldvin freyd heimsmeistaram stundin gotye somebody stofna gunnar birgisson
Fram og til baka
Fram og til baka 26. ágúst 2018

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Aug 26, 2018 115:00

Fram og til baka 26.08.2018 Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins var Fast Car með Tracy Chapman frá árinu 1987. Fimman - Laufey Helga Guðmundsdóttir lögfræðingur Laufey Helga er Hafnfirðingu og lögfræðingur hjá Umhverfis og auðlindaráðuneyti. Fimman hennar voru staðir sem hafa mótað hana eða haft mikil áhrif Hafnarfjörður sem verður alltaf “heima“, sjálfbært samfélag með bókasafninu, fótbolta og handbolta í Haukum og tónlistarskólanum. Helsinki en þar var Laufey skiptinemi í lögfræði 2006-2007. Hún sagði frá frábæru menntakerfi Finna en einnig baráttunni um fyrstu Eurovision miðana og Eurovision í Helsinki vorið 2007. Vín en þar var Eurovision haldið 2015. Laufey sagði frá gleðinni þegar Eiríkur Hafdal og Flosi Jón Ófeigsson unnu söngvakeppni Eurovision klúbbanna með This is my life. Baldvin Þór Bergsson birtir frétt á rúv.is með fyrirsögninni “Ísland vann Eurovision“. Kænugarður og Eurovision 2017. Laufey fór í nokkur sjónvarpsviðtöl meðal annars í vinsælasta morgunþætti Úkraínu og uppskar að vera beðin um sjálfur með borgarbúum. Hún sagði líka af hrifaríkri skoðunarferð í Chernobyl. Nuuk en þangað fór Laufey í vinnuferð síðasta haust. Hún upplifði flugferðina frá Köben eins og að vera fleygt 20 ár aftur í tímann. Á Grænlandi var það svo náttúran, berskjaldað umhverfið og vinalegt fólk sem hafði mikil áhrif á hana. Viðtal - Sigurður Guðmundsson tónlistarmaður sem sagði frá stórtónleikum í Hörpu þar sem fram koma reyndustu og hæfileikaríkustu hljómborðsleikarar landsins ásamt öðru úrvals tónlistarfólki. Tónleikarnir eru til að safna fyrir Hammond orgeli til heiðurs Bjarka Friðrikssonar sem lést 19 ára gamall, ungur og upprennandi Hammondleikari. Stofnað hefur verið félag utan um Hammondið sem mun halda utan um rekstur þess í samstarfi við Hörpu tónlistarhús sem mun sjá um að hýsa hljóðfærið. Fréttagetraun - sigurvegari Ósk Davíðsdóttir í Garðabæ

Fram og til baka
Fram og til baka 26. ágúst 2018

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Aug 26, 2018

Pönnukökubakstur, Lýðháskóli á Flateyri, árásir á Sýrland og fl.

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Apr 16, 2018 130:00

Fátt er eins vinsælt og pönnukökur í íslenskum kaffiboðum. En kann unga fólkið í dag að baka pönnukökur? Við slógum á þráðinn austur á Selfoss þar sem Rakel Þórðardóttir sagði okkur frá námskeiði í pönnukökubakstri sem haldið var á dögunum. Stofnaður hefur verið Lýðháskóli á Flateyri sem hefja mun göngu sína næsta haust. Helena Jónsdóttir skólastjóri kom til okkar í spjall. Leitarvélar geta verið gagnlegt tól til þess að meta áhuga á tilteknum viðfangsefnum því skoða má hversu margir eru að leita sér upplýsinga um hin og þessi efni. Eitt af því sem skoða má er áhugi á því að ferðast til Íslands en það hefur Þór Matthíasson hjá The Engine gert í því skyni að reyna að geta sér til um hvort vænta megi áframhaldandi fjölgunar ferðamanna. Hann kom til okkar og ræddi þessi mál. Við heyrðum í Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanni utanríkismálanefndar alþingis, en nefndin fundaði í gærkvöldi um aðkomu íslands að loftárásum á Sýrland um helgina og í framhaldinu ræddum við við Eirík Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, um ástandið í heimsmálunum eftir atburði helgarinnar í Sýrlandi og hver áhrifin af þeim geta orðið á stjórnmálin hér heima. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður hjá RÚV, fór yfir íþróttaviðburði helgarinnar og að lokum heyrðum við í Önnu Sigríði Þráinsdóttur málfarsráðunaut og ræddum íslenskt mál, að þessu sinni breytingar Stúdentaráðs í því markmiði að afkynja titla í ráðinu. Tónlist: Sigríður Thorlacius & Sigurður Guðmundsson - Hjarta mitt. Gísli - Paper bag. Liam Gallagher - Paper crown. The Beatles - Things we said today. Hall & Oates - Kiss on my list. Rod Stewart - Maggie May. Todmobile - Stúlkan. Hjálmar - Aðeins eitt kyn. Tears for fears - Everybody wants to rule the world.

Sunnudagssögur
Þóra Jónsdóttir söngkona og lögfræðingur og Sigurður K. Kolbeinsson

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Mar 25, 2018 142:00

Þóra Jónsdóttir sagði frá uppvextinum í Reykjavík, Laugalækjaskóla og Iðunni Steinsdóttur kennara sem hafði mikil áhrif á hana. Hætti í Versló og fór í fjölbraut í Breiðholti og kláraði stúdentspróf þaðan. Stofnaði heimili og var að vinna á ýmsum stöðum, söng með nokkrum hljómsveitum en ákvað að drífa sig í háskólanám árið 2007 og fór í lögfræði í HÍ. Starfar nú hjá Barnaheill og sem söngkona en hún ákvað loksins árið 2014 að koma út úr skápnum sem tónlistarmaður og fara að sinna þeirri list betur. Hefur hljóðritað tvö lög með Pálma Sigurhjartarsyni píanóleikara og er að undirbúa tónleikar sem verða á skírdag í Fríkirkjunni í Reykjavík. Sigurður K. Kolbeinsson sagði frá uppvextinum í Reykjavík og skólagöngu sem gekk vel alveg þar til hann kom í MS en þá voru það önnur verkefni sem tóku hug hans allan svo sem eins og félagslífið og veitingastaðurinn Hollywood. Sigurður starfar nú bæði á Íslandi og í Danmörku, bæði við ferðatengda þjónustu og á sjónvarpsstöðinni Hringbraut en ný þáttaröð hans og Friðþjólfs Helgasonar fer í sýningu eftir páska og er tileiknuð 65+ hópnum. Hann ræddi líka viðhorfin til lífsins, áhrifavalda og margt fleira.

hollywood ms hann reykjav brei sigur danm hefur versl kolbeinsson helgasonar steinsd stofna hringbraut laugal
Sunnudagssögur
Þóra Jónsdóttir söngkona og lögfræðingur og Sigurður K. Kolbeinsson

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Mar 25, 2018