POPULARITY
Stærsti litli leikur ársins er kominn út. Þú þarft að rata í gegnum hús sem breytist daglega. What the fuck.Arnór Steinn og Gunnar taka BLUE PRINCE fyrir í þætti vikunnar. Hann er skemmtilegur, þreytandi, áhugaverður, pirrandi og allt þar á milli.Arnór Steinn er með fína þýðingu og Gunnar er með GEÐVEIKA þýðingu.Spilaðir þú Blue Prince?Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Gestir Vikulokanna eru þau Eva H. Önnudóttir, Jón Ólafsson og Eva Marín Hlynsdóttir. Þau starfa öll sem prófessorar við Háskóla Íslands. Rætt er við þau um komandi Alþingiskosningar, kosningabaráttuna hingað til, um hvaða mál er kosið, rýnt í þýðingu skoðanakannana og spáð í spilin um mögulegar stjórnarmyndanir eftir kosningar. Einnig var rætt um íbúakosningu um mölunarverksmiðju þýska fyrirtækisins Heidelberg í Ölfusi. Kosningin hefst mánudaginn 25. nóvember og stendur til 9. desember. Þriðja umræðuefnið er eldgosið sem hófst á Reykjanesi í vikunni og hin fordæmalausa staða Grindavíkur sem bæjarfélags síðastliðið ár. Spilað er viðtal við Grindvíkinginn og körfuboltakappann fyrrverandi, Pál Axel Vilbergsson, þar sem hann ræðir um líf sitt og fjölskyldu hans frá því eldsumbrotin hófust í nóvember í fyrra og þau þurftu að yfirgefa heimili sitt. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Í dag fjöllum við um blaðamennsku, fjölmiðla, samfélagsmiðla og fleira í þeim dúr. Við ræðum eftirmála rannsóknar lögreglu á blaðamönnum og viðhorf almennings og stjórnarmanna gagnvart faginu. Við ræðum við Valgerði Jóhannsdóttur, prófessor í blaðamennsku við Háskóla Íslands og Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formann Blaðamannafélags Íslands. Við fjöllum um barnagælur og vögguvísur, einkum það að róa sjóinn á og á selabát og á rambinn. Það er nefnilega ekki bara róið með börn til að róa þau á Íslandi, það er gert víða um heim. Birna G. Hjaltadóttir skrifaði BA ritgerð í þjóðfræði um vögguvísur og barnagælur. Síðan heyrum pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. Í dag fjallar hann um græna orku og orkuskort. Tónlist: Prins Póló, Moses Hightower - Eyja. Del Rey, Lana - Take Me Home, Country Roads. Pálmi Gunnarsson, Pálmi Gunnarsson - Bíum bíum bambaló. Hafdís Huld - Könguló (Spilaði á Airwaves 2010).
Pablo Punyed er einn mesti sigurvegari sem hefur spilað í íslenskum fótbolta. Hann lenti hér á landi aðeins 21 árs gamall og hefur fest hér rætur. Hann lítur núna á sig sem Íslending. Pablo spilar í dag með Íslands- og bikarmeisturum Víkings en hann er staðráðinn í að snúa aftur á fótboltavöllinn eftir að hafa slitið krossband á dögunum. Í þessum hlaðvarpsþætti ræðir hann um meiðslin, ferilinn til þessa og lífið á Íslandi.
Dr. Football gerir upp sögu Evrópukeppninnar ásamt Stefáni Pálssyni sagnfræðingi og Kanslaranum. Í þessum fyrsta þætti eru keppnirnar 1960, 1964, 1968, 1972 og 1976 teknar fyrir.
Á Jazzklúbbnum Múlanum verða haldnir tvöfaldir heiðurstónleikar á morgun. Spilað verður til heiðurs Henry Mancini og Söru Vaughan sem bæði hefðu átt 100 ára afmæli á þessu ári. Á tónleikunum koma fram söngkonan Rebekka Blöndal og píanóleikarinn Karl Olgeirsson ásamt hljómsveit og kafa þau meðal annars ofan í plötuna “Sara Vaughan sings the Mancini Songbook.” Við ræðum við Rebekku og Karl í þætti dagsins. Freyja Þórsdóttir veltir tveimur stórum hugtökum fyrir sér: afneitun og raunveruleikaflótta. En í því samhengi lítur hún m.a. til örsögu eftir Edgar Allan Poe og kvikmyndarinnar The Zone of Interest. Að gefnu tilefni rifjum við upp innslag um huldulistamanninn G. Weller frá því í haust. G. Weller á að hafa verið stúdíóspilari og meðspilari í mörgum hljómsveitum í Los Angeles á 8. Áratugnum en látið sig hverfa algjörlega úr bransanum og aðeins skilið eftir nokkrar dularfullar kassettuupptökur.
Þær hamfarir sem nú ganga yfir í Grindavík og nágrenni eru af þvílíkri stærðargráðu að það er eiginlega ómögulegt að setja sig í spor íbúana en eins og einn íbúi sagði um helgina, það er helst að þau sem upplifðu gosið í Vestmanneyjum gætu það. Við fáum þrjá íbúa Grindavíkur til að koma til okkar í hljóðstofu hér í upphafi þáttar en það eru þau Páll Þorbjörnsson fasteignasali, Bryndís Gunnlaugsdóttir lögfræðingur og fyrrum bæjarfulltrúi í Grindavík og Haukur Guðberg Einarsson formaður knattspyrnudeildar UMFG. Þau fóru með okkur yfir stöðuna í dag, bæði hjá þeim persónulega og hjá samfélaginu öllu í Grindavík. Við kynntum okkur svo verkefni sem heitir Tala og spila, sem eru viðburðir sem fara fram í Kópavogi og eru hugsaðir sem notaleg samverustund til að fólk úr ólíkum áttum og úr viðkvæmum samfélagshópum geti kynnst og valdeflst. Vigdís Másdóttir, kynningar og markaðsstjóri MEKÓ, Auður Loftsdóttir, leiðbeinandi sem heldur utan um verkefnið, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir stofnandi Getu hjálparsamtaka og Maria Gabríella Flores, sem er sjálfboðaliði á viðburðunum, komu í þáttinn. Tónlist í þættinum í dag: Vinátta okkar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg) Ariette / Dag Arnesen trio (Edward Grieg) Undir rós / Egill Ólafsson og Kristjana Stefánsdóttir (Egill Ólafsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Kristján og Lóa fara yfir mest spiluðu þætti Lestarinnar á árinu 2023.
Kristján og Lóa fara yfir mest spiluðu þætti Lestarinnar á árinu 2023.
Dominos
Sigurður Heiðar Höskuldsson var í gær tilkynntur sem nýr þjálfari Þórs og samdi hann til þriggja ára. Þór var í þjálfaraleit eftir að ljóst varð að Þorlákur Árnason yrði ekki áfram þjálfari liðsins. Siggi var síðasta árið aðstoðarþjálfari Vals en þar áður var hann þjálfari Leiknis og gerði góða hluti þar. Hann er staddur í Belgíu og var því í símaviðtali. Hann ræðir áhuga Þórs á sér, tengingu fjölskyldunnar norður árið hjá Val, samanburður milli Þórs og Leiknis, aðkomu landsliðsfyrirliðans og ýmislegt annað.
Aukasendingin fékk leikmann íslenska landsliðsins Hilmar Smára Henningsson í spjall um yngri landsliðin, verkefnin með a landsliðinu, Haukana, hvernig það var að fara ungur út til stórliðs Valencia, afhverju hann hafi ákveðið að ganga til liðs við Eisbaren Bremerhaven í Þýskalandi fyrir komandi tímabil og hvað hann haldi að gerist á næsta tímabili í Subway deildinni.Undir lok upptökunnar velur Hilmar Smári í tvö úrvalsbyrjunarlið. Það fyrra eru bestu leikmenn sem hann hefur spilað við á ferlinum og í hitt velur hann byrjunarlið bestu íslensku leikmanna Subway deildarinnar.Tekið er fram að upptakan fór fram þriðjudag 15. ágúst fyrir leik Íslands gegn Búlgaríu í forkeppni Ólympíuleikanna.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway.
Vissir þú að á upphafsárum sínum var einn ástsælasti tölvuleikjaframleiðandi heims bendlaður við japönsku mafíuna? Í þætti vikunnar kafa Arnór Steinn og Gunnar í sögu Nintendo. Fyrirtækið var stofnað í Japan árið 1889 og hefur heldur betur tekið breytingum síðan þá. Þessi fyrsti þáttur okkar um japanska risann fjallar um fyrstu sirka hundrað árin, frá stofnun alveg þangað til áhrifamesta leikjatölva sögunnar kom út - Nintendo Entertainment System - árið 1985. Það eru MARGIR skemmtilegir punktar að fara yfir, þá helst áhugaverð tengsl fyrirtækisins við japönsku mafíuna og skringileg þráhyggja þeirra fyrir því að gefa út leikfangabyssur. Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano. --- Hjálpaðu okkur að ráða inn almennilegt markaðsteymi sem gleymir ekki að setja á instagram! Farðu á https://www.buymeacoffee.com/tleikjaspjall og hjálpaðu til við að stækka tölvuleikjahlaðvarp Íslands! --- Ef þú fílar umfjallanir okkar um tölvuleikjaframleiðendur þá erum við heldur betur með uppástungur fyrir þig. Við gerðum svipaða seríu um Electronic Arts, sú er í þrem hlutum og algjörlega þrælskemmtileg! 106. Electronic Arts hluti I - skrýmsli fæðist: https://open.spotify.com/episode/4r4OlTc71823UxPXP07pB3?si=90fdd3ab44494dfc Fylgdu Tölvuleikjaspjallinu á Facebook og Instagram!
Hægja þarf á áformum um byggingu þjóðarhallar í Laugardal vegna ástandsins í efnahagsmálum. Þetta kom fram í máli Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra á Alþingi. Höskuldur Kári Schram tók saman. Samfylkingin mælist stærsti flokkur landsins í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup þriðja mánuðinn í röð, með 28 prósenta fylgi. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir sagði frá. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs segir eignarhald borgarinnar í Ljósleiðaranum vekja spurningar í ljósi stærðar félagsins. Alexander Kristjánsson sagði frá. Engar sérstakar reglur gilda um uppflettingar í lyfjaávísanagátt þrátt fyrir að gögn þar teljist viðkvæmar persónuupplýsingar. Landlæknir íhugar breytingar. Benedikt Sigurðsson tók saman. Auka á stuðning við ungt fólk sem á erfitt með að vera á vinnumarkaði. Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK segir dæmin sanna að með réttum stuðningi geti fólk sinnt vinnu á ný. Alma Ómarsdóttir talaði við hana og Pál Ásgeir Guðmundsson forstöðumann hjá SA. ------------- Deilt var um það í borgarstjórn hvort skýra mætti fjárhagsvanda borgarinnar með kostnaði vegna þjónustu við fatlað fólk þegar fyrsta umræða um ársreikning Reykjavíkurborgar fyrir 2022 fór fram. . Halli A- hlutans í fyrra var 15,6 milljarðar króna. Spilað var úr ræðum Dags B. Eggertssonar, Hildar Björnsdóttur og Einars Þorsteinssonar. Ragnhildur Thorlacius tók saman. KJjaraviðræður BSRB og sveitarfélaga annarra en Reykjavíkur eru í hnút. Helsti ásteytingarsteinninn er krafa BSRB um hækkanir sem gildi frá áramótum líkt og samið var um við SGS. Sveitarfélög segjast hafa staðið við samninga að fullu. Horfur eru á verkföllum BSRB félaga. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Sonju Ýr Þorbergsdóttur formann BSRB. Evrópusambandið ætlar að krefja stærstu netfyrirtæki og samfélagsmiðla heims, um strangari reglur um persónuvernd og eftirlit með ólöglegu efni á miðlunum, þær verða að líkindum einnig teknar upp hér á landi. Björn Malmquist sagði frá. Spegillinn 5. maí Umsjónarmaður: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir og Annalísa Hermannsdóttir.

Doc, Ponzan og Keli á fallegum fimmtudegi. Smá handbolti en fótboltinn númer 1,2 og 3.
A.I. Jói Kíró sátu með Dr. Football.
Plata Þáttarins er plata The Stranglers, Raven, frá 1979, en trommuleikari sveitarinnar, Jet Black er látinn. Vinur þáttarins er ennþá í sumarfríi en óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123. The Raven er fjórða hljóðversplata The Stranglers, kom út 15. September 1979. Hún náði hæst í 4. Sæti breska vinsældalistans og var á listanum í 8 vikur. Jet Black trommari The Stranglers er látinn, 84 ára að aldri. Hann var elstur í hljómsveitinni. Spilaði síðast með Stranglers 2015 en hætti endanlega að spila 2018. Hann hét Brian John Duffy en tók síðar upp nafnið Jet Black og hann var einn af stofnmeðlimum Stranglers. Það eru tvö ár frá því að hljómborðsleikari sveitarinnar, Dave Greenfield lést, 71 árs að aldri. Hljómsveitin var stofnuð árið 1974 í Guildford á Englandi og hét upphaflega Guildford Stranglers. Fyrsta plata sveitarinnar kom út árið 1977 og heitir Rattus Norvegicus. Á henni er meðal annars lagið Peaches sem sló í gegn. Árið 1978 kom sveitin fyrst til Íslands. Þá höfðu þeir þegar gefið út tvær breiðskífur og sú þriðja væntanleg. Það voru mikil tíðindi fyrir íslenska pönkaðdáendur að fá svo vinsæla erlenda pönksveit til landsins. Margir forsprakkar íslensku pönksenunnar hafa nefnt tónleika The Stranglers á Íslandi sem fyrstu tónleikana sem þeir fóru á. Næstu tónleikar The Stranglers á Íslandi voru í Íþróttahúsinu í Kópavogi árið 2004 og Fræbblarnir hituðu upp. The Stranglers komu svo til Íslands í þriðja sinn árið 2007 og héldu þá tónleika á skemmtistaðnum NASA. Sólstafir - Dagmál Alice Cooper - Im eighteen Metallica - Lux Æterna AC/DC - Mistress for christmas The Doors - Light my fire Guns?n Roses - Mr. Brownstone SÍMATÍMI Tappi Tíkarrass - Spak Dimma - Ljósbrá (óskalag) Skid Row - 18 and life (óskalag) Ramones - My back pages Bad Religion - Hark the herald Blondie - Hanging on the telephone (óskalag) Patti Smith - Because the night (Nasa 2005) (óskalag) The Doors - Riders on the storm (óskalag) JAKOB SMÁRI UM STRANGLERS The Stranglers - Nuclear device (The wizard of Aus) Jet Black Joe - Fuzz SÍMATÍMI II The Kinks - Father christmas Pat Benatar - Promises in the dark (óskalag) Spiritbox - Yellow jacket (óskalag) Rage Against the Machine - Guerilla radio Pantera - Cowboys from hell (óskalag) Judas Priest - Living after midnight The Stranglers - Nice?n sleazy The Stranglers - Dutchess Queen - Thank God it?s christmas Sigur Rós - Ný batterí

Siggi Gunnars flakkaði um Poppland í dag. Spilaði allskonar tónlist, fór yfir plötu vikunnar, fjallaði um verðbólgu í tónlist og skoðaði fullt af nýju íslensku efni. Spiluð lög: Mánar - Leikur að vonum First Aid Kit - Angel Totally Enormous Extinct Dinasours - Crosswalk GDRN - Af og til Sam Fender - Getting Started Quarashi - Mr. Jinx Silk Sonic - Smokin' Out The Window Billy Paul - Your Song Tove Lo - No One Dies From Love Destiny's Child - Survivor Paolo Nutini - Through The Echoes Demo - Segðu mér satt Laufey Lín - Street By Street Paul Simon - Graceland Jói P x Pally - Face Starsailor - Four TO The Floor Beyonce - Break My Soul The Kinks - Sunny Afternoon Sváfnir Sigurðsson - Allt of gamall Måneskin - If I Can Dream Rose Royce - Car Wash Védís Hervör - Pretty Little Girls Bubbi Mortheins - Sunnudagur (með laugardagskvöld í fanginu) ODDUR - Hvað þú fílar Spin Doctors - Two Princes Björk - Venus As A Boy Brek - Litla flugan Baggalútur - Hér er ég kominn Hrekkjusvín - Krómkallar Billy Paul - Let the dollar circulate Spilverk þjóðanna - Sirkus Geira Smart George Ezra - Green Green Grass The Black Keys - Dead and gone Á móti sól - Höldum áfram Diana Ross ft. Tame Impala - Turn Up The Sunshine Arcade Fire - Unconditional (Lookout Kid) Einar Örn Magnússon - Við bjóðum góða nótt Grafík - Presley Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson

A.I og Keli fóru yfir boltann með Dr. Football.
Valdi og Össi hafa spilað á rosalega mörgum tónleikum. Góðum og slæmum. Hvaða tónleikar ætli standi upp úr hjá þeim?
Eiríksína Eyja Ásgrímsdóttir og Edda Guðmundsdóttir eru báðar kennarar að mennt. Þær sögðu frá líðan og tilfinningum kennara. Hvernig kennarastarfið hefur breyst og tilætlunarsemi foreldra í samskiptum við þá hefur aukist. Mörg verkefni sem áður voru í hendi foreldra eru nú á forræði kennara. Ný rannsókn sýnir að ástríða kennara fyrir starfinu er sú tilfinning sem flestir kennarar eiga sameiginlega. En kennarar eru á sama tíma störfum hlaðnir og komast fæstir yfir öll verkefnin innan vinnudagsins. Þegar kennarar telja sig ekki geta komið til móts við ólíkar námsþarfir nemenda innan ramma alls skólastarfsins þá hvílir tilfinning vonleysis þungt á þeim. Sigrún Davíðsdóttir fjallaði um tölvupóst sem forseti breska þingsins, Lindsay Hoyle, sendi öllum þingmönnum fyrir tæpum tveimur vikum þar sem hann sagði þeim frá viðvörun bresku leyniþjónustunnar, MI5, vegna kínverskrar konu, Christinu Lee, sem hefur verið lengi búsett á Bretlandseyjum. Viðvörunin lítur að íhlutun í bresk málefni og fjárframlög hennar til þingmanna og stjórnmálaflokka. Sigrún fjallaði einnig um veisluhöld í embættisbústað forsætisráðherra og væntanlega skýrslu um þau. Mjólk og ostar komu einnig við í Lundúnaspjalli dagsins. Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir líffræðingur og forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Vestfjörðum, fékk nýverið ásamt fleirum styrk úr Rannsóknasjóði Rannís, til að rannsaka þorskinn. Verkefnið nefnist: Innri og ytri áhrifaþættir við upphaf fars Atlantshafsþorsks. Guðbjörg fór á Morgunvaktinni yfir hegðun þorsksins og hvers vegna hann hegðar hann sér eins og hann gerir. Rannsóknin felst meðal í því að græða örsmá merki í kvið þorskseiða. Hlustunardufl í sjónum nema síðan merki frá seiðunum og þannig er hægt að fylgjast með ferðum þeirra. Tónlist: Song sung blue - Neil Diamond Gettu hver hún er - Helena Eyjólfsdóttir Kramið hjarta - Valgeir Guðjónsson Spilaðu lag fyrir mig - Stuðmenn. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Frumstætt samfélag lifir í eilífri ógn við fornar maskínur sem enginn skilur. Allt í einu fær útskúfuð stelpa tól til að skilja ekki bara tilgang vélanna, heldur forsögu alls mannkyns. Bæði fyrri tortímingu og annarri yfirvofandi. Plottið á Horizon Zero Dawn er drulluflókið þannig að við eyðum frekar tíma í að ræða það í þættinum. Já, í þætti vikunnar tökum við Zero Dawn í nefið! Stutt er í Forbidden West þannig að það lá við að við myndum taka hann fyrir. Arnór Steinn og Gunnar ræða spilun, persónur, bardagakerfi, óvini og margt, MARGT fleira. Það er nóg að ræða, enda stór leikur! Þættinum fylgir höskuldarviðvörun - við ræðum öll smáatriði tengd sögunni og fleira gott. Spilaðir þú Horizon? Segðu okkur frá! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Dominykas Milka ræðir við fyrrum leikmann Keflavíkur Khalil Ahmad um ferðalag hans frá Kaliforníu til atvinnumennsku á Íslandi og í Danmörku. Þá ræðir hann einnig hvernig það er að æfa með NBA leikmönnum á sumrin, en hann hefur síðustu ár leikið í Drew sumardeildinni þar sem margar af skærustu stjörnum boltans láta sjá sig.Khalil kom upphaflega til Íslands árið 2019, en á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku með Keflavík skilaði hann 19 stigum, 6 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í leik. Í dag spilar hann með einu af betri liðum Danmerkur Horsens IC. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugavert fólk bæði um hin ýmsu málefni sem snerta körfuknattleik, sem og málefni líðandi stundar.Social Chameleon er í boði Kristalls, Lykils og Subway.Með Dominykas er sem áður ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur.Hlustendum er bent á Instagram síðu þáttarins fyrir tillögur að skemmtilegu efni, sem og til þess að senda inn spurningar, en hún er aðgengileg hér.
Dominykas Milka ræðir við leikmann Keflavíkur Jaka Brodnik um hvernig það hafi verið að alast upp í slóvenskum körfubolta, erfiðleika á fyrstu árum atvinnumennsku, ferðalag vestur um haf í sumardeild NBA deildarinnar, hvernig hann hafi endað á Íslandi og margt fleira.Jaka kom upphaflega til Íslands til Þórs í nóvember 2018. Þaðan fór hann til Tindastóls og var með þeim frá 2019 til 2021 áður en hann kom til Keflavíkur fyrir þetta tímabil. Fyrir landslið sitt í Slóveníu lék Jaka á sínum tíma með öllum yngri landsliðum og seinna a landsliðinu, en Slóvenía er ein sterkasta körfuboltaþjóð í heiminum um þessar mundir, samkvæmt heimslista í 4. sæti og innan Evrópu aðeins fyrir aftan Spán.Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugavert fólk bæði um hin ýmsu málefni sem snerta körfuknattleik, sem og málefni líðandi stundar.Social Chameleon er í boði Kristalls, Lykils og Subway.Með Dominykas er sem áður ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur.Hlustendum er bent á Instagram síðu þáttarins fyrir tillögur að skemmtilegu efni, sem og til þess að senda inn spurningar, en hún er aðgengileg hér.
Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er platan Dog man Star, önnur breiðskífa ensku hljómsveitarinnar Suede sem kom út 10. október 1994. Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123. Þessi plata þótti mikil tímamótaplata þegar hún kom út og vakti athygli um allan heim. Tónlistarunnendur úti um allt tóku þessari hljómsveit og þessari plötu opnum örmum. Platan var tekin upp í Master Rock Studios í London snemma árs 1994 og er síðasta plata Suede sem gítarséníið Bernard Butler spilar á. En Brett Anderson söngvari og Bernard Butler voru einskonar Jagger og Richards í Suede. En það var spenna á milli þeirra meira og minna allan tíman sem þeir störfuðu saman og það endaði þannig að Butler yfirgaf sveitina skömmu áður en upptökur Dog Man Star kláruðust. Það þýddi að það þurfti að kalla til session hljóðfæraleikara til að klára plötuna. Fyrsta plata Suede sem kom út árið áður, 1993, ber sterk áhrif frá David Bowie og The Smiths. Suede heitir eftir lagi Morrissey; Suedehead. En á Dog Man Star eru áhrifin fjölbreyttari. Dog Man Star seldist ekki alveg jafn vel og fyrsta platan en hún náði samt 3. sæti breska vinsældalistans og í nóvember ?94 hafði hún selst í gull. Þetta er ein af þessum plötum sem fékk "misjafna dóma". Rolling Stone í Ameríku sagði t.d. um Dog man Star að hún væri ein tilgerðarlegasta plata sögunnar. Það breytir því ekki að Suede var og er einstök hljómsveit og Dog Man Star er ein elskaðasta plata níu-tugarins í Bretlandi og ein stærsta plata Brit Poppsins, þó hún hafi komið út áðeins áður en það skall á með fullum þunga. Og Suede vildi reyndar alls ekki láta bendla sig við Brit pop frekar en Oasis og Blur t.d. En það er önnur saga. Mér fannst þessi plata frábær um leið og ég heyrði hana á sínum tíma og vegur hennar hefur vaxið í seinni tíð ef eitthvað er. Og árið 2013 þegar NME setti saman lista yfir 500 bestu plötur sögunnar lenti Dog Man Star í 31. sæti. Suede kom og spilaði á annari Airwaves -hátíðinni, í Laugardalshöll haustið 2000. Spilaði sama kvöld og Flaming Lips og svo átti Suede að koma aftur og spila í Laugardalshöll 2016, en það var hætt við þá tónleika.

Íslendingur trónir á toppnum í Íslendingadeildinni Serie B með fullt hús stiga. Bandarískum eigendum fjölgar enn á Ítalíu. Hjátrú skilaði nýliðum sínum fyrstu stigum í efstu deild og Juventus er hægt og rólega að ná vopnum sínum á nýjan leik.
Kynntum til leiks nýjan leikmann á tímabundnum félagsskiptum. Fórum yfir hvernig landsliðshópurinn gæti litið út, efsta deild ekki verið svona spennandi í mörg ár. Sagan segir að ÍBV hafi spilað með 2 leikmenn smitaða og vitað af því. 2.deildin svíkur engan ennþá og við enduðum á Enska boltanum þar sem Mike fór mikinn. Þetta og fullt fleira í The Mike Show....enginn gerir betur !
Aldrei áður hafa eins margir Íslendingar spilað fótbolta á Ítalíu og þeim fjölgar með hverri vikunni. Í þessum upphitunarþætti verður farið yfir stöðu Íslensku strákanna og hitað upp fyrir Serie A sem hefst um helgina. Tekst Internazionale að verja titilinn? Verður endurkoma Allegris eins og endurkoma Marcellos Lippis? Hvernig mun Jose Mourinho ganga í borginni eilífu? Ítalski boltinn - Þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila.
Doc, Keli og Hörður Snævar eftir 15.umferðina í Pepsi Max deildinni.
Véfréttin fékk Keflvíkinginn og skyttuna Guðmund Auðun í heimsókn. Strákarnir fóru yfir nokkra hluti:Það er best að vanda sig. Vaki allir góðar vættir yfir Vesturbænum. Kóngarnir í Keflavík. Hvaða leikmenn Breiðabliks spila í Dominos á næsta ári? …og margt fleiraBoltinn Lýgur Ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram. Þá er Lykill fjármögnun einnig aðalstyrktaraðili.
Þrusu pakki eftir helgina. Wolves búnir að bjóða 7 milljón punda í Ísak. U2 spilar á Írskum dögum þegar sá díll fer í gegn. Góð yfirferð á Enska boltanum með Gauja og Mike og menn að máta sig í Íslenska boltanum. Pep með taktísk mistök sem kostuðu hann titill. Bruce fékk Thule og Sevilla að læðast bakdyramegin í La Liga.
A landslið Íslands náði í fyrsta sigurinn í undankeppni HM í kvöld. Ísland vann Liechtenstein örugglega 4-1 á útivelli. Framundan eru fimm heimaleikir í röð í undankeppninni í haust og þar kemur betur í ljós hvort Ísland geti blandað sér í baráttuna um að komast á HM í Katar. U21 landslið Íslands tapaði 2-0 gegn Frökkum í dag og endaði án stiga á EM í Ungverajalandi. Tómas Þór Þórðarson, Gunnar Birgisson og Magnús Már Einarsson fóru yfir þessa leiki og stöðuna.
Guðjón Þórðarson mætti með látum í The Mike Show. Davíð Snorri fékk á beinið og sagan segir að Gylfi hafi neitað að spila í þessum landsleikjaglugga vegna ágreinings við starfslið KSÍ. Farið var yfir andleisið í Armeníu og smá ljós við enda gangana í U21 þátt fyrir tap. Dýfðum stóru tá aðeins í efstu deild og Mike ætlar að borða ekkert nema þristapáskaegg um páskana.
Maggi, Daníel og Þorsteinn settust niður og fóru mjög ítarlega yfir leikina gegn Southampton og PSG. Einnig var rætt um mögulegt bann á Cavani og lista frá Mirror yfir leikmenn sem United gæti reynt að kaupa í janúar. Djöflavarpið er í boði Adidas á Íslandi. Hægt er að nálgast vörur adidas á eftirtöldum stöðum: Jói […]
Aukasendingin fékk Ísak Mána Wíum til þess að fara yfir fréttir dagsins, síðasta landsliðsglugga og þá er einnig rætt hvað sé að gerast hjá íslensku körfuboltafólki úti í hinum stóra heimi.Aukasendingin er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram. Þá er Lykill fjármögnun einnig aðalstyrktaraðili Boltinn Lýgur Ekki.
Doc, Mike og Höfðinginn á föstudegi
Í þessum þætti er flakkað um bæinn Blönduós í Austur-Húnavatnssýslu. Þar mun Ágúst Þór Bergsson segja frá gömlu Blöndubrúnni sem búið er að gera upp og verður brátt notuð sem göngubrú yfir í Hrútey, eyju sem stendur mitt í jökulánni Blöndu. Einnig verður farið í heimsókn á eþíópíska veitingastaðinn Teni en þar eldar Liya Behaga eþíópíska rétti í bland við íslenskan heimilismat. Flakkið leiðir okkur einnig inn í stærstu ullarþvottastöð landsins þar sem verksmiðjustjórinn Guðmundur Svavarsson segir frá starfsemi Ullarþvottastöðvar Ístex á Blönduósi. Í framhaldinu rifjum við upp sigur Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps í keppninni Kórar Íslands sem fram fór árið 2017. Spilað er hljóðbrot úr kynningarefni Stöðvar 2 úr þáttunum. Að lokum er ferðinni heitið í Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga þar sem skólastjórinn Hugrún Sif Hallgrímsdóttir segir frá sjálfri sér og starfsemi skólans. Hugrún rifjar meðal annars upp sögu Jónasar Tryggvasonar sem gaf húsið sem hýsir Tónlistarskólann. Í safni RÚV er varðveitt viðtal við Jónas sem Guðrún Guðlaugsdóttir tók á heimili Jónasar og flutt í útvarpinu þann 9. maí 1984. Spilað er stutt brot úr þessu viðtali, auk þess sem lag Jónasar, Ég skal vaka í nótt, er spilað í flutningi Samkórsins Bjarkar þar sem einsöngvari er Þórhallur Barðason. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Vefréttin fékk þá Hörð Unnsteinsson, NBA grúskara og Andra Frey Arnarsson, Hjartaknúsara til sín í stúdíóið í hljómskálanum. Strákarnir fóru yfir nýjustu vendingar í Last Dance og nýjustu NBA fregnir vikunnar. Svo smíðuðu þeir lista yfir 10 bestu hringjalausu leikmenn sögunnar. Tóku svo fyrir tímabilin 1994-1995 og 2006-2007. Hetjur, skúrkar, nýliðar og meistarar.Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.
Rúrik Gíslason er að njóta lífsins á Íslandi.
Doc, Kötturinn og Höfðinginn á mánudegi.
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þórarinn Jónas Ásgeirsson, aðstoðarþjálfari Hauka, er gestur í Ástríðunni að þessu sinni. Þáttastjórnandi er Óskar Smári Haraldsson og álitsgjafi með honum er Sverrir Mar Smárason, leikmaður Kára á Akranesi. Þeir þrír fóru yfir síðustu tvær umferðir í 2. og 3. deild karla.
Doc, Kötturinn og Höddi fóru yfir stöðuna.
Janus Guðlaugsson var á sama ári landsliðsmaður í handbolta og fótbolta, endaði í þriðja sæti í langstökki í bikarkeppni FRÍ og þjálfaði vonarstjörnur þjóðarinnar til Íslandsmeistaratitils í 2. flokki í handbolta. Seinni varð hann atvinnumaður í Þýskalandi í nokkur ár og fékk eftir ferilinn það verkefni að bjarga KR frá falli. Janus segir sögu sína í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Rekur eigið fyrirtæki í heilsueflingu í dag - Braut rúður í næsta húsi í fótbolta - Fór útaf í hálfleik til að spila handboltaleik - Hljóp hálfmaraþon, spilaði leik og hljóp sömu leið til baka - Bikarúrslitaleikurinn gegn ÍBV um miðjan nóvember - Keyrði traktor og tyrfði Kaplakrika í fyrsta sinn - Dúxaði á Laugavatni og tók útskriftina fram yfir leik - Þaggaði niður í tyrknesku áhorfendunum með draumamarki - Settu upp apagrímur þegar Ísland mætti - Sóttur á Laugavatn í alla handboltaleiki en æfði ekki með liðinu - Spilaði HM í handbolta 1978 - Gerði Kristján Arason og félaga að Íslandsmeisturum í 2. flokki - Þriðji í langstökki í bikarkeppni FRÍ - Hafnaði þremur tilboðum um atvinnumennsku útaf skólanum - Fékk símtöl frá fyrrverandi liðsfélögum í bankahruninu með boð um peningagjöf - Fetaði í fótspor liðsfélaganna með yfirvaraskeggi - Lærði að mála og portraitmynd af Tony Schumacher kom í Bild - Málaði 20 myndir fyrir opnun á tennishöll í Köln - Fór nýjar leiðir til að losna frá ofþjálfun - Spilaði sem sweeper en skoraði 15 hraðaupphlaupsmörk í fótbolta - Spilaði með George Best gegn Manchester United í tvígang - Fékk sig ekki lausan frá Fortuna Köln svo hann fór og þjálfaði FH - Bitinn af lögregluhundi í upphitun og missti af leiknum - Var kallaður bjargið í Sviss - Hundfúll eftir ómanneskjulega tæklingu Þorvalds Örlygssonar - Tók við þjálfun KR í fallbaráttu og lét þá fara í stórfiskaleik - Fékk Fálkaorðuna hjá Guðna forseta 17. júní í fyrra
Ein af okkar allra bestu íþróttamönnum, Martin Hermannsson kíkti á Egil Ploder í Keyrsluna og spjallaði um körfubolta tímabilið í Þýskalandi og hvað væri á döfinni.
Vefréttin fékk þá Hörð Unnsteinsson, NBA grúskara og Andra Frey Arnarsson, Hjartaknúsara til sín í stúdíóið í hljómskálanum. Strákarnir fóru yfir nýjustu vendingar í Last Dance og nýjustu NBA fregnir vikunnar. Svo smíðuðu þeir lista yfir 10 bestu hringjalausu leikmenn sögunnar. Tóku svo fyrir tímabilin 1994-1995 og 2006-2007. Hetjur, skúrkar, nýliðar og meistarar.Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.
Guðmundur Torfason var í hljómsveitum með Mezzoforte strákunum og hefði getað orðið næsti Björgvin Halldórsson en valdi farsælan fótboltaferil framyfir það. Hann heillaði meðal annars Sir Alex Ferguson þegar hann skoraði þrjú, eða fjögur, mörk í sama leiknum á Old Trafford. Gummi Torfa fór yfir ferilinn í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Uppvaxtarárin í Vestmannaeyjum - Vildi ekki fara í frjálsar eins og pabbi hans - Valdi Fram þó pabbi hans hafi viljað KR - Söngvari í hljómsveit Mezzoforte strákanna - Hefði verið næsti Björgvin Halldórsson - Tekur kannski upp plötu í ellinni - Drukku Finlandia á heimleið úr unglingalandsliðsferð - Skilinn eftir á flugvellinum og sagt að hann yrði aldrei aftur í landslið - Valdi fótboltann fram yfir tónlistina - Spilaði á balli í stað þess að spila fyrsta bikarúrslitaleikinn - Sigur Fram gegn Rapid Vín við vondar aðstæður - Sagði við Ásgeir Elíasson að hann ætlaði að skora 20 og jafnaði metið - Hvort viltu markamet eða Íslandsmeistaratitil? - Í sýningatúr með Willie Reinke um alla Evrópu - Tæklaður illa á fyrstu æfingu í Belgíu en náði fram hefndum - Í einkaflugvél með ítalska landsliðinu - Kýldur af Terry Butcher í fyrsta leik með St. Mirren - Brjálaðir stuðningsmenn Celtic mættu á leik St. Mirren gegn Rangers - Í lögreglufylgd út á flugvöll heim í jólafríið - Sagður hafa skorað úr 9 af hverjum 10 aukaspyrnum - Skoraði þrjú eða fjögur í sigri á Man Utd á Old Trafford - Alex Ferguson vildi kaupa hann til Man Utd - Sleit krossband og eins og fílamaðurinn eftir nokkur andlitsbrot - Ósætti St. Mirren þegar hann gaf kost á sér í landsleik gegn Frökkum - Mældur skotfastasti leikmaður Skotlands - Hafnaði góðum samningi í Hong Kong og valdi Fylki í staðinn - Miðvörður síðustu árin á Íslandi - Þjálfaraárin - Stjórnarstörfin og salan á Herði til Juventus - Framboðið til stjórnar KSÍ - 19 marka klúbburinn
Egill Ploder tók Hörð Björgvin í skemmtilegan lið sem ber nafnið "Pass". Hörður fær 10 spurningar sem hann má einfaldlega passa,Hvað er hann með í laun? Hver er leiðinlegastur í landsliðinu? Þetta og meira til!
Lárus Guðmundsson var á sínum tíma eldfljótur og brögðóttur markahrókur sem fékk mikið lof hjá mönnum eins og Sir Alex Ferguson. Hann var sigursæll, bæði Íslandsmeistari og svo bikarmeistari í Belgíu og Þýskalandi en var líka sakaður um mútur og átti í útistöðum við landsliðsþjálfara Íslands. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunnar á Fótbolta.net í dag. Þátturinn í dag er í boði Boðleiðar. Með lausnum frá Boðleið er vinnustaðurinn þar sem þú ert, fullkomnar lausnir í fjarvinnu. Nánar er hægt að kynna sér málið á www.bodleid.is Meðal efnis: - Spilaði með landsliðinu gegn Man City og Englandi á Laugardalsvelli - Deilurnar við Tony Knapp sem henti honum úr landsliðinu - Hann og Arnór 16 ára í framlínu Víkings - Íslandsmeistaratitilinn 1981 - Tæklingaæfing í klukkutíma með Middlesbrough - Pfaff fiskaði hann útaf og kallaði hann íslenska aumingjann - Skoraði tvö og tryggði bikartitil í Belgíu - Hræddur og flúði stuðningsmenn á hlaupum í bikarfögnuði - Sir Alex Ferguson kallaði Lárus stórsnjallan sóknarleikmann - Lenti í mútumáli en var sýknaður - Þjóðhetja í Þýskalandi eftir sigur á Bayern í bikarúrslitum - Ótrúleg endurkoma í Evrópuleik - 6 mörk í seinni hálfleik - Fyrir ofan Maradona á lista markahæstu manna - Stærstu mistök ferilsins að fara til Kaiserslautern - Erfitt að sætta sig við að vera búinn á því - Dómgreindarskortur að taka við þjálfun Víkings - Stofnaði KFG fyrir 12 árum en hætti í vetur - Gat ekki verið sáttasemjari milli dómara og Sali Heimis Porca - Dómarar á landsbyggðinni fagna því að hann sé hættur
Tómas Ingi Tómasson fór víða á fótboltaferlinum, var eini atvinnumaður Íslands í Austur Þýskalandi og náði flottum árangri hér á landi sem ytra. Eftir ferilinn breytti hann leiknum í fótboltaumfjöllun í sjónvarpi og fór svo í þjálfarastörf. Undanfarin ár hefur hann átt í erfiðri baráttu við heilsuna. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunnar á Fótbolta.net í dag. Þátturinn í dag er í boði Boðleiðar. Með lausnum frá Boðleið er vinnustaðurinn þar sem þú ert, fullkomnar lausnir í fjarvinnu. Nánar er hægt að kynna sér málið á www.bodleid.is Meðal efnis: - Spilaði með pabba sínum í framlínu ÍBV - Skipti um númeraplötur á lögreglubílnum - Drukku þrjú 2 lítra stígvél af bjór á dag í æfingaferðinni - Atvinnumaður í Austur Þýskalandi þegar múrinn var að falla - Maður skotinn fyrir utan húsið hans - Í stríði við kallana á hólnum í eyjum - Ekki hrifinn af klefaöskri Gauja Þórðar - Stórundarleg æfing hjá Sogndal - Luka Kostic bannaði honum að taka skæri - Einn af 10 mestu fávitum ævinnar í Raufoss - Dúxaði í nuddnámi í Noregi - Heil vetrarvertíð á línubát til að geta strítt Heimi Hallgríms - Keypti sér veðhlaupahest í Noregi - Datt í það þegar díllinn við Scunthorpe klúðraðist - Hafnað af ÍBV en fór í Þrótt og átti þátt í 21 af 27 mörkum - Svikinn um 3 milljónir af Þrótti - Ranglega tekið af honum mark í úrslitaleik deildarinnar 2001 - Átti skilið betri framkomu frá ÍBV fyrir riftun samningsins - Blöskraði drasl þættir um fótbolta og bauð sig fram í Pepsi mörkin - Sendi Eyjólfi Sverrissyni bréf og bað um að vera aðstoðarmaður hans - Rekinn frá HK tveimur dögum eftir lokaleik á EM - Ósætti milli U21 og A-landsliðsins - Tók Jón Jónsson af lífi og fékk hann svo til að syngja fyrir sig - Misheppnuð mjaðmaaðgerð og 8 mánuðir á sjúkrahúsi - Taldi sig af náð heilsu en endaði í tveimur aðgerðum í nóvember
Doc, Keli og Höfðinginn voru án landamæra.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool spilar um gullið í Heimsmeistarakeppni Félagsliða en er úr leik í Framrúðubikarnum á Englandi, jöfnum okkur alveg á því. Börnin gerðu eins vel og hægt var að búast við af þeim, jafnvel betur en aðalliðið gerði í Katar. Minamino var í læknisskoðun í dag, koma fleiri leikmenn? Ancelotti og Arteta staðfestir hjá Everton og Arsenal, hvor er betri? Þetta og meira í síðasta þætti fyrir jól.
Binni Löve mætti í spjall og svona var þátturinn:Kynning: Hver er Binni Löve?Játning: Binni opnar sig á einlægu nótunum.Lexían: Binni segir frá hvað það er mikilvægt að geta sett sig í spor annarra.Klemman: Binni segir frá þegar hann hrækti óvart tyggjói á viðskiptavin.Spuni: Hip-Hop söngleikur um loftlagsmál sem heitir: "Heyrðu hljóðið".
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson settist niður með Friðrik Inga Rúnarssyni þjálfara Þórs og ræddi við hann um komandi tímabil í Dominos deild karla.Er upptakan í röð þar sem að sest er niður með þjálfurum og spáð í spilin fyrir komandi tímabilÞátturinn er hluti af Sibbaspjalli, en það er bæði aðgengilegt sem podcast inni á iTunes og öðrum veitum, sem og á myndbandi hér fyrir neðan.
Mugison kom til Rúnars í létt spjall og var með gítarinn meðferðis. Hann skellti í frumflutning á nýju lagi, óbeinu framhaldi Gúanó stelpunnar, Gúanó karlinn.
con Age e Scarpelli, Maurizio Ponzi e Piero Spila
Rúnar talaði við John Taylor fyrir nokkru. Hann segist muna eftir miklum krafti á síðustu tónleikum Duran Duran á Íslandi. Þá spjölluðu þeir um The Power station tímabilið.
Tónar flæða víða. ,,Án tónlistar væri þessi jarðvist lítils virði" segir einn viðmælandi í þessum þætti af Sögum af landi þar sem þemað er ,,Tónar". Við fáum tóna víða að í þættinum, þeir flæða frá Jakútíu til Andalúsíu og ýmislegt ber á góma þar á milli. Spilað er á kaktus jafnt sem spænskan gítar. Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Jón Þór Kristjánsson og Rúnar Snær Reynisson.
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir hefur verið áberandi í íslenskum fótbolta í rúman áratug. Hún ólst upp hjá Breiðablik en skipti yfir í Stjörnuna fyrir tímabilið 2005. Þar tók hún þátt í ótrúlegum uppgangi félagsins. Spilaði 271 meistaraflokksleiki, flesta með fyrirliðabandið, og vann fjóra Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla. Á þeim tíma spilaði Adda einnig 10 A-landsleiki og fór á láni til Kristianstad í Svíþjóð. Í haust bárust svo óvænt tíðindi úr Garðabænum þegar tilkynnt var um að fyrirliðinn myndi róa á önnur mið. Stuttu síðar var penninn á lofti á Hlíðarenda og Adda er í dag leikmaður Vals.
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór heyrðu hljóðið í Gísla Eyjólfssyni sem er genginn í raðir Mjällby. Hitað var upp fyrir Tommadaginn sem er á morgun og haldinn til styrktar Tómasi Inga Tómassyni. Spilað var viðtal sem Gaupi tók við Tómas Inga en hann hefur verið að ganga í gegnum erfiða tíma. Þá var Kristinn Jakobsson á línunni og spjallaði meðal annars um VAR myndbandsdómgæsluna.
Dodo and the Dodos, Aphrodite's Child, Emilíana Torrini o.fl. fluttu lög fyrir hlustendur þáttarins. Það lá vel á umsjónarmanni þáttarins sem lagði sig allan fram.
Dodo and the Dodos, Aphrodite's Child, Emilíana Torrini o.fl. fluttu lög fyrir hlustendur þáttarins. Það lá vel á umsjónarmanni þáttarins sem lagði sig allan fram.
Nú eru aðeins nokkrar vikur í að NBA deildin rúlli af stað. Eftirvæntingin því orðin ansi mikil hjá aðdáendum deildarinnar eftir nokkuð tíðindamikið sumar. Í þessari síðustu útgáfu af NBA Podcasti Körfunnar er farið yfir nokkur málefni. Byrjað er á nokkrum fréttum vikunnar áður en farið er í þau efni sem veðmálahúsin græða hvað mesta fjármuni á. Hver verður valinn verðmætasti leikmaðurinn? Hver verður nýliði ársins? Hvaða þjálfari missir starfið fyrst. NBA Podcast Körfunnar er í boði Dominos og minnt er á að hlustendur fá 30% afslátt af sóttum pítsum með kóðanum “karfan.is” panti þeir í gegnum Dominos.is eða með Dominos appinu. Umsjón: Davíð Eldur & Sigurður Orri Dagskrá 00:00 - Létt hjal 03:50 - Jimmy Butler er farinn frá LA Clippers 11:00 - Elton Brand tekur við Philadelphia 76ers 13:30 - Dallas Mavericks sektaðir um 10 miljónir dollara 15:40 - Hvaða þjálfari verður rekinn fyrst? 23:40 - Hvaða lið er líklegast til að vinna titilinn? 30:30 - Hver verður valinn nýliði ársins? 35:20 - Hver verður valinn MVP? 45:50 - Hverjir eru líklegastir til að vinna sinn riðil?
Sveinbjörn Claessen leikmaður ÍR ákvað að leggja skóna á hilluna síðasta vor eftir 13 ára farsælan feril. Það var búið að vera á dagskránni hjá Körfunni í allt sumar að ná í kappann og gera þessi ár aðeins upp. Úr því varð svo nú síðustu helgi. Afraksturinn tæpir þrír klukkutímar af spjalli, en með því sló Sveinbjörn met sem Hrafn Kristjánsson setti árið 2016 um einhverjar 35 mínútur. Því ekki úr vegi að skipta samtalinu niður í tvo hluta. Í þessum fyrri hluta fer Sveinbjörn yfir ferilinn, ÍR, síðustu tímabil og margt fleira. Gestur: Sveinbjörn Claessen Umsjón: Davíð Eldur & Ólafur Þór Dagskrá: 01:20 - Hvar byrjar körfuboltaáhuginn? 06:10 - Er Breiðholtið Ghetto? 09:20 - ÍR sofnar á verðinum 13:00 - Landsmótið með KR 18:30 - Snýst um meira en að vinna 26:30 - Frumskógalögmál leikmannamarkaðarins 36:50 - Spilaði frítt fyrir ÍR 40:30 - Bikarmeistarar 2007 41:00 - Fjaraði undan eftir 2008 45:00 - Meðalmennskan sem Borce (Kallinn) snéri við 52:30 - Síðasta tímabil 54:30 - Ryan Taylor var tekinn af lífi 1:05:10 - Erum að komast á skrið 1:06:00 - Matthías Orri búinn að sannfæra liðið um hvað þeir eru stórir 1:12:00 - Búinn að yfirfæra faglegan metnað yfir í lögfræðina
Borgfirðingurinn Arnar Guðjónsson settist niður með Podcasti karfan.is á dögunum og ræddi um heima og geima. Arnar sem hefur komið víða við á sínum ferli, allt frá Höfn í Hornafirði til Aarhus í Danmörku hefur frá ýmsu að segja. Arnar er nýráðinn þjálfari Stjörnunnar í Garðabæ og er fyrrum aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla. Hann er gestur þáttarins að þessu sinni. Umsjón: Ólafur Þór og Davíð Eldur Efnisyfirlit: 1:00 - Körfuboltinn byrjar á Kleppjárnsreykjum 6:10 - Spilaði eitt ár í efstu deild sem leikmaður 7:40 - Flutningar til Danmerkur 12:50 - Arnar tekur við Svendborg 21:00 - Viðskilnaðurinn við A-landsliðið 24:15 - Eurobasket ævintýrin 29:00 - Eurobasket 2017, vonbrigði? 31:50 - Undankeppni HM hingað til og leikirnir framundan 44:00 - Arnar tekur við Stjörnunni 49:30 - Skoðun Arnars á fjölgun erlendra leikmanna 51:30 - Hverju má búast við af Stjörnunni í vetur?
Miðað við veturinn kemur þetta ekkert sérstaklega á óvart en það kemur á óvart að eitt af stóru liðunum er fyrir neðan okkur," segir Hrannar Björn Steingrímsson bakvörður KA um að Fótbolti.net spái liðinu 4. sæti í Pepsi-deildinni í sumar.
Í þættinum í dag rifjum við upp sögu mæðginanna Hans Mann Jakobsson og Helene Mann sem flúðu frá Þýskalandi til Íslands árið 1936 vegna ofsókna nasista. Spilað viðtal við Hans Mann Jakobsson úr þættinum Á sunnudögum með Bryndísi Schram frá árinu 1993. Spilað viðtal við Hans Mann Jakobsson úr heimildamyndinni Gyðingar á Íslandi eftir Einar Heimisson frá árinu 1989. Viðmælendur: Kristrún Heimisdóttir, Hans Mann Jakobsson. Umsjónarmaður: Viktoría Hermannsdóttir

Í þættinum í dag rifjum við upp sögu Rottberger fjölskyldunnar sem kom til Íslands árið 1935 en voru rekin úr landi árið 1938. Ungu hjónin Hans og Olga Rottberger flúðu hingað eftir að hafa orðið fyrir ofsóknum gyðinga í heimalandinu. Í þættinum í dag rifjum við upp sögu þeirra. Viðmælendur: Gísli Gunnarsson, Kristrún Heimisdóttir, Þór Whitehead. Spilað úr viðtali Einars Heimissonar, sem birtist í heimildarmyndinni Gyðingar á Íslandi, við Olgu Rottberger. Lestur Olgu: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir

Struab Huillet con piero Spila e Mary Astor con Claudio Masenza
Í sjötta þætti Markmannshanskanna hans Alberts Camus er fjallað um það hvers vegna hommar spila ekki fótbolta. Vissulega spila jú einhverjir hommar fótbolta - en þeir eru ekkert sérstaklega góðir í fótbolta, eða ná neitt sérstaklega langt ef litið er á hreina og beina tölfræði. Sem er áhugavert, því í hinum vestræna heimi eiga samkynhneigðir karlmenn, yfirleitt, völ á því að lifa að öllu leyti sambærilegu lífi og gagnkynhneigðir; njótu sömu réttinda og fá sömu tækifæri. En innan heims atvinnuknattspyrnunnar finnast þeir varla. Rætt er við Eddu Garðarsdóttur, fyrrum landsliðskonu í fótbolta og Sigríði Ásgeirsdóttur menningarfræðing. Umsjónarmaður er Guðmundur Björn Þorbjörnsson. Tæknimenn þáttarins eru Kolbeinn Soffíuson og Hrafnkell Sigurðsson, lesari er Guðni Tómasson.

Í Þættinum koma framÓlöf Sverrisdóttir og Ragnar Bragason.Lauslega er fjallað um eitthvað af leikritum Þjóðleikhússins leikárið 2017 – 18en ýtarlegri umfjöllun fær leikritið Risaeðlurnar og viðtal tekið við Ragnar Bragason, höfund og leikstjóra verksins.Spilað er örlítið brot úr Risaeðlunum.Hljóðmaður: Ingi Þórisson
John Landis, Mario Brega e il cinema seminale con P. Spil
Haukur Harðarson, íþróttafréttamaður á RÚV, var gestur í EM-Innkastinu að þessu sinni. EM-Innkastið er hljóðvarpsþáttur sem Fótbolti.net sendir út frá Frakklandi á meðan EM er í gangi. Þátturinn er daglega á meðan Ísland er með á mótinu.
Reynsluboltinn Gunnleifur Gunnleifsson er í íslenska landsliðshópnum sem mættur er til Danmerkur að undirbúa sig undir vináttuleiki gegn Dönum og Grikkjum. Fjórir markverðir eru í hópnum og er Gunnleifur í baráttu við Ögmund Kristinsson og Ingvar Jónsson um að fara út ásamt Hannesi Þór Halldórssyni
Living and working in Subiaco, a small town near Rome, Italy, Maria Grazia Spila has taught English to Italian teenagers for more than 20 years and “loves everything British.” Her favorite hobby is blogging in English, which has changed her life in recent years, opening doors around the world. Using social media, especially Facebook, she formed new friendships and opportunities for collaboration. This led to more travel, while also exposing her students to a wider view of the world. Her passions include classic literature, books, costume movies, period drama series, art and traveling.