Karlmennskuhugmyndir og viðfangsefni sem hafa snertiflöt við karla, jafnrétti eða karlmennsku eru til umfjöllunar í þessu hlaðvarpi.
Tveir kallar tala um getnaðarvarnir, biðja þjóðþekktan femínista afsökunar í gufubaði og setja upp Barnaloppubás. Allur þátturinn er ókeypis og aðgengilegur á hlaðvarpsrás Tveggja kalla, sjá hlekki: Spotify: https://open.spotify.com/episode/4NmuA61hH72q76RF9LOS7m?si=355ddd127cd446c0 Podcasts: https://podcasts.apple.com/us/podcast/2-afs%C3%B6kunarbei%C3%B0ni/id1810721580?i=1000708129132 Svo geturðu horft á http://www.tveirkallar.is/
Tveir kallar með podcast (þetta hefur aldrei verið gert áður). Í fyrsta þætti ræðum við vinasambönd karla, förum í bátsferð og gefum út yfirlýsingu. Umsjón: Haukur Bragason og Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Pétur Jónsson Instagram: @tveirkallar Heimasíða: tveirkallar.is [í vinnslu]
Núna tel ég réttast að kveðja formlega hlaðvarpið Karlmennskan. Reyndar munu bakhjarlar sjá til þess að það verði áfram opið og aðgengilegt en ég mun ekki taka upp fleiri þætti. Það hefur verið afskaplega gaman að hitta og spjalla við svo margt frótt fólk með áhugaverða reynslu eða sjónarhorn á samfélagið. Markmiðið var alltaf að varpa ljósi á virkni feðraveldis í gegnum mismunandi birtingamyndir, sem höfðu einhvern snertiflöt við karla eða karlmennsku. Veit að það tókst oft vel upp. Og það gleður mig að vita að ennþá eru nokkur hundruð einstaklingar að hlusta á gamla þætti. Takk öll sem hlustuðuð. Takk öll sem gáfu tíma ykkar, reynslu og þekkingu í hlaðvarpinu. P.S. Þau ykkar sem þráið meira af svipuðu efni getið gerst áskrifendur að vikulega hlaðvarpinu Sópað undan teppinu með Þorsteini V. og Huldu Tölgyes. Hlaðvarpið er að finna á þriðja.is
Klám er oft fyrsta vísbending barna um kynlíf og jafnvel aðgengilegasta kynfræðslan sem þau fá. En klám er ekki kynfræðsla þótt það hafi áhrif á kynhegðun og hugmyndir barna og fullorðinna um kynlíf – með miður góðum afleiðingum. Kynferðisofbeldi, klámvæðingu hversdagsleikans, hlutgervingu kvenna og óraunhæfum útlitskröfum. Í þessum þætti skoðum við áhrif kláms á einstaklinga í gegnum reynslu tveggja stráka á þrítugsaldri sem hættu að horfa á klám, Eddu Lovísu sem hætti að framleiða klám og Kolbrúnu Hrund kynjafræðing sem hatar klám. Kolbrún Hrund hefur rannsakað áhrif kláms á ungt fólk og fylgst með rannsóknum alþjóðlegra sérfræðinga í langan tíma og hefur því sitthvað fyrir afstöðu sinni. Í þættinum er greint frá því hvernig reynsla strákanna tveggja og Eddu Lovísu er í takt við rannsóknir sem Kolbrún Hrund fjallar um. Undirliggjandi spurning þáttarins er hvort að kláminu fylgi kynfrelsi eða hvort það sé enn eitt kúgunartæki feðraveldis og kapítalismans? Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla – Naruto (án söngs) Viðmælendur: Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, Edda Lovísa Björgvinsdóttir, Sigurjón og „Gestur“. Fjármagnað af thridja.is/styrkja
Þriðja vaktin – Jafnréttishandbók heimilisins kom út í lok nóvember í fyrra. Bókina skrifaði ég ásamt Huldu Tölgyes sálfræðingi og í nánu og góðu samstarfi við ritstjórann okkar, Hauk Bragason. Haukur hélt að hann þyrfti mest að passa að tóna okkur niður, passa að við værum ekki of róttæk, reið og stuðandi, en var í raun farinn að þurfa að tóna okkur upp. Í þessum þætti gefum við innsýn í ferlið á skrifunum, segjum frá því hvernig bókin þróaðist, segjum frá upplifun okkar af ofsafenginni en innihaldslausri gagnrýni og hvernig taugakerfi Huldu hrundi eftir að skrifunum lauk. Þátturinn er aðgengilegur öllum og án auglýsinga vegna bakhjarla Karlmennskunnar sem styrkja mánaðarlega í gegnum thridja.is/styrkja. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson / Þriðja.is Viðmælendur: Hulda Tölgyes og Haukur Bragason Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)
Sara Cervantes er hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum sem flutti til Íslands fyrir nokkrum árum. Sara gefur innsýn í reynsluheim einstaklings sem reynir að aðlagast íslensku samfélagi en mætir ýmsum kerfisbundnum hversdagslegum og formlegum hindrunum. Við Sara hittumst fyrst á fræðslufundi á Landspítalanum þar sem umræðuefnið var forréttindi og jaðarsetning. Innlegg Söru var svo áhrifamikið að ég varð að leyfa ykkur að heyra. Við spjöllum um forréttindi, jaðarsetningu, inngildingu, útilokun, hver ber ábyrgð á inngildingu á vinnustöðum og almennt í samfélaginu og „two minute investment“-leiðina sem Sara telur mun gagnlegri en að spyrja „talaru íslensku?“. Viðtalið fer fram á ensku. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Yipin, vinsælasta tófú Svíþjóðar, býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson er prófessor við deild menntunar og margbreytileika við Háskóla Íslands og hefur stundað rannsóknir á kennslukonum og kennslukörlum, rýnt í stöðu drengja í skólum og ásamt mörgu öðru skrifað bókina Karlmennska og jafnréttisuppeldi sem er brautryðjendaverk um karlmennsku og karlafræði. Við stöldrum að mestu við nýlegar rannsóknir Ingólfs og félaga á nýbrautskráðum kennslukörlum og hvernig þeim tekst að komast inn í kennarastarfið, ræðum um umhyggju sem Ingólfur horfir á sem faglegt gildi sem sé algjörlega óháð kyni. Við færum okkur í seinni hluta viðtals í umræður um karlmennsku, jákvæða og skaðlega, hvort karlmennskuhugtakið sjálft festi í sessi misréttið í gegnum tvíhyggjuna og þá hvort jákvæð karlmennska geri nokkurt gagn til að berja á feðraveldinu og kapítalismanum – sem Ingólfur segir að sé nátengt. Þema þáttarins er því að mestu kennslukarlar, skólakerfið, staða drengja, umhyggja sem faglegt gildi og karlmennska. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla – Naruto OUMPH! býður upp á þáttinn ásamt Maríuklæðum og bakhjörlum Karlmennskunnar. Þú getur gerst bakhjarl Karlmennskunnar og tryggt að þetta hlaðvarp sé alltaf opið og aðgengilegt öllum: karlmennskan.is/styrkja
Halldór Laxness Halldórsson, Dóri DNA, uppistandari og höfundur hefur komið víða við. Við höldum okkur þó á léttu nótunum eins og hægt er með áherslu á karlmennskuna, karllægni, gerendur og hliðverði dægurmenningar ungs fólks. Enda hafa mörg verka Halldórs skýra tengingu við karlmennsku eins og skáldverkið Kokkáll og sjónvarpsþættirnir Afturelding. Kryfjum aðeins baksvið sköpunarverkanna, persónulega sjálfsefann og veiku sjálfsmyndina sem dylst undir sjálfsörugga grínaranum. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) & Tom Deis - Green River OUMPH! býður upp á þáttinn ásamt Maríuklæði og bakhjörlum Karlmennskunnar. Þú getur gerst bakhjarl á karlmennskan.is Samstarf og auglýsingar: thorsteinnv@karlmennskan.is
„Hægt og rólega verður mylsna á borði til misskiptingar, sem [hann] tekur jafnvel ekki eftir“, er lýsandi setning úr ritgerð Ragnheiðar Davíðsdóttur sem rannsakaði hugræna vinnu meðal íslenskra para í meistararaverkefni sínu í kynjafræði við Háskóla Íslands. Líklega er þetta fyrsta íslenska rannsóknin sem mælir hugræna vinnu og niðurstöður eru í samræmi við reynslu sem ansi margar konur hafa lýst og erlendar rannsóknir hafa dregið ítrekað fram. Verkaskipting hugrænnar vinnu er bæði misskipt og kynjuð. Mæður í gagnkynhneigðum samböndum báru meiri hugræna byrði en feður. Mat viðmælenda á verkaskiptingu virtist bjagað, hefðbundin kvennastörf voru vanmetin en karlastörf ofmetin og pörin leituðust við að réttlæta misskiptinguna með ýmsum hætti og leituðust þannig við að falla að félagslega viðurkenndum jafnréttis- og réttlætishugsjónum. Ragnheiður segir frá rannsóknarferlinu og fjallar nokkuð ítarlega um helstu niðurstöður sem vægast sagt eru afar áhugaverðar. Þá finnst mér við hæfi að draga fram að einkunn Ragnheiðar fyrir ritgerðina var 9,5 sem endurspeglar hversu vel þessi ritgerð var unnin, fræðilega vel undirbyggð og rannsóknarniðurstöður settar í fræðilegt samhengi. (Hægt er að ná á Ragnheiði í gegnum ragnheidurd96@gmail.com) Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Bakhjarlar karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn og þú getur gerst bakhjarl á karlmennskan.is/styrkja
Þriðja vaktin brennur ennþá á konum, einkum þegar þær eru í samböndum með körlum. Enda sýna rannsóknir að það sé meiri vinna fyrir konu að eiga börn og heimili með karlkyns maka en vera einstæð móðir. Hulda Tölgyes sálfræðingur og Þorsteinn tóku þennan þátt upp í beinni útsendingu á Instagram hjá Huldu @hulda.tolgyes. Förum við yfir spurningar sem okkur bárust, í aðdraganda þáttarins og útskýrum ýmsa þætti sem snúa að þriðju vaktina, ábyrgðinni, lausnir og fleira. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Þátturinn er í boði ykkar: karlmennskan.is/styrkja
Dilja Pétursdóttir, fulltrúi okkar í Eurovision í ár, hefur ætlað sér að verða söngkona frá því hún tók þátt í Ísland got talent 12 ára gömul. Við spjöllum um Eurovision, strögglið við skuggana kvíða og þráhyggju, nýtilkomna frægð og fjölmiðlaumfjöllun um persónulegt líf hennar, tónlistarbransann og stóru plönin. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Hljóðbútar af youtube frá Ísland got talent og undanúrslitakvöldi Eurovision. karlmennskan.is/styrkja
121. „Hlustaðu, horfðu og neyttu“ — Guðmundur Jóhannsson Guðmundur Jóhannsson hefur verið tíður gestur í Morgunútvarpi Rásar 2 með innslög um tækni og stafræna heima og starfar sem samskiptafulltrúi hjá Símanum. Orðfæri og orðanotkun Guðmundar vakti athygli mína en iðulega notast hann við kynhlutlaust mál sem mér þykir áhugavert komandi úr jafn karllægum geira. Mig langaði að forvitnast nánar um þetta. Við kryfjum stafræna heima með kynjagleraugunum í þessum þætti og snertum á heimskum lykilorðum, stóra gagnalekanum, blindu trausti okkar á tæknirisum sem þó eru eftirbátar í jafnréttismálum, algrímið sem þekkir okkur oft betur en við sjálf, gervigreind og Guðmundur útskýrir hvers vegna aldursviðmið samfélagsmiðla er 13 ár. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla – Naruto (án söngs) Bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt, þú getur gerst bakhjarl inni á karlmennskan.is/styrkja og greitt frá 990 kr á mánuði.
„Mamma, hann er í kjól“ - Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson Hann er næstum því sextugur, gagnkynhneigður, giftur í tæpa þrjá áratugi, með tvær háskólagráður, starfar í leikskóla og byrjaði að notast við varalit, naglalakk og kjóla fyrir nokkrum árum. Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson segist beita sínum karllægu forréttindum á þennan hátt til að hafa jákvæð áhrif á börnin sem hann starfar með en fyrst og fremst vegna þess að honum líður vel þannig. Honum er nákvæmlega sama hvað fólki finnst um hann og segist almennt fá stuðning fyrir að rjúfa hefðbundinn ramma karlmennskunnar. Enda telur hann það vera karlmennsku að geta staðið utan við hina hefðbundnu ímynd. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, BM Vallá og ÖRLÖ ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt. . . . Þú getur stutt við frekari hlaðvarpsþáttagerð og fræðslumiðlun á samfélagsmiðlum með því að gerast bakhjarl á karlmennskan.is/styrkja
Nanna Hlín Halldórsdóttir er doktor í femínískri heimspeki og kennari við Háskóla Íslands. Hún hefur kennt um eðlishyggju gegn mótunarhyggju, rannsakað á doktorsstigi hvort berskjöldun geti verið andsvar femínískrar heimspeki við nýfrjálshyggju og skrifað um iðrun, ábyrgð, tilfinningar, slaufun og fleira. Við förum í örlítinn nördaskap um eðli (karl)mannsins og skilin á milli líkama og félagslegrar mótunar en snertum á ýmsu sem hefur verið í deiglunni eins og áherslum femínismans, áhrifum hans á samfélagið, iðrandi leikþátt manna sem nenna ekki að vinna neina tilfinningavinnu, förum inn í tilgang og svigrúm berskjöldunar, kryfjum eðlið með aðstoð Butler og fleira. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Viðmælandi: Nanna Hlín Halldórsdóttir doktor í femínískri heimspeki Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) VEGANBÚÐIN, ÖRLÖ og BM VALLÁ ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn.
Birgir Þórarinsson eða Biggi Veira tónlistarmaður, sem mörg tengja líklega við GusGus, hefur ekki látið þröngan stakk karlmennskuhugmynda skilgreina sig, sérstaklega ekki fataval sitt og kyntjáningu. Enda er hann reglulega í sokkabuxum, blússum eða kjólum sem teljast almennt til kvenfatnaðar og vel farðaður, þótt hann sé stundum beðinn um að vera ekki of mikið málaður t.d.fyrir foreldraviðtöl. Biggi lýsir því hvernig hann áttaði sig mjög snemma að hann hneygðist að hefðbundnum kvenfatnaði, þótt erfitt sé að lýsa því eða réttlæta enda byggt á djúpstæðum tilfinningum. Það var samt ekki fyrr en í kringum aldamótin sem hann kemur „út úr skápnum“, ekki sem kona eða hommi, heldur hann sjálfur. Miðaldra gagnkynhneigður sís karlmaður, ráðsettur faðir í sambúð með konu sem klæðir sig og farðar eins og kona en er hrútskýrari og hálfgert alpha male. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Viðmælandi: Birgir Þórarinsson (Biggi Veira) Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) ÖRLÖ, Veganbúðin, BM Vallá og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.
THEM er verk um karla að díla við eitraða karlmennsku og konur að díla við karla - og öll að reyna bara að fá að vera… bara vera! Fjórar konur frá Íslandi og Finnlandi kafa ofan í heim karla og segja sögur af ást, stolti, föðurhlutverkinu og óttanum við að vera öðrum byrði. Með því að heimsækja líf annarra leitast leikkonurnar við það að skilja sína eigin stöðu í heimi sem ekki er hannaður fyrir þær. Leikverkið THEM er sýnt aðeins einu sinni í viðbót þann 14. mars í Tjarnarbíói (miðar á TIX) og er afrakstur af viðtalsrannsókn við fjölda karla á Íslandi og Finnlandi. Leitast leikarnir við að varpa ljósi á karlmennsku af mýkt og næmni, án þess að dæma en þó þannig að áhorfandinn geti speglað sig og sín eigin viðhorf. Við spjöllum um leikverkið, tilurð þess, áhrif metoo byltingarinnar sem kemur inn í mitt sköpunarferlið og það hvort og hvers vegna konum leyfist að gera leiksýningu um karlmennsku. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Viðmælendur: Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir leikkonur. Veganbúðin, ÖRLÖ, BM Vallá og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn. Þú getur gerst bakhjarl á karlmennskan.is/styrkja
Þórarinn Hjartarson stjórnmálafræðingur og nemi í MPA í opinberri stjornsýslu, hnefaleikaþjálfari og starfsmaður á sambýli heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling og sendir reglulega frá sér skoðanapistla sem hafa verið birtir á Vísi. Það má líklega segja að skoðanir, fullyrðingar og afstaða Þórarins í þessum pistlum séu í andstöðu við femíníska hugmyndafræði enda er hann oft að hæðast að málefnum jaðarsettra eða því sem hann kallar „woke-isma”. Ég tel að sjónarmið Þórarins endurspegli viðhorf ansi margra sem eru orðnir þreyttir á byltingum og baráttum sl ára, sem telja sig geta valið hlutleysi gagnvart samfélagsmálum í skjóli eigin forréttindafirringar og langar því að fá að forvitnast nánar um sjónarhorn og afstöðu manns sem er að mörgu leiti á skjön við mitt eigið. Tilgangurinn með þættinum er að varpa ljósi á viðhorf einstaklings sem er gagnrýninn á femíníska baráttu og bjóða upp á samtal tveggja einstaklinga sem eru ósammála í flestum málum, þrátt fyrir líka félagslega stöðu. Ætli megi ekki segja að hér séu tveir bergmálshellar að mætast og eiga samtal um völd, fjármögnun hins opinbera, Woke-isma, jafnrétti, femínisma, tjáningarfrelsi, forréttindi og skoðanir. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, ÖRLÖ og BM Vallá ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn.
Bylting framhaldsskólanema gegn kynferðisofbeldi og gagnrýni á viðbragðsleysi skólastjórnenda ýtti undir kröfu um aukna kyn- og kynjafræðikennslu í skólum auk almennilegra viðbragða þegar kynferðisbrot koma upp. Skólameistarar ruku sumir hverjir upp og bundu vonir við að fram kæmu leiðbeiningar til að tækla slík mál. Sérfræðingar í jafnréttis- og ofbeldisforvarnarmálum sögðu þó hægan hægan. Engin skyndilausn væri við jafn flóknum og útbreiddum vanda sem kynferðisofbeldi er, auk þess sem skólar geti ekki tekið að sér hlutverk réttarkerfisins. Finna þurfi aðra og betri nálgun. Í raun algjöra kerfisbreytingu. María Hjálmtysdottir, Kristín Blöndal Ragnarsdóttir og Eygló Árnadóttir hafa starfað við jafnréttismál, kynjafræðikennslu, sitja í stjórn félags kynjafræðikennara og mynda fagteymi utan um fræðslu og forvarnir framhaldsskóla vegna kynferðisofbeldis. Þær fara yfir ástæður þess að skyndilausnar-viðbragð við kynferðisofbeldis virkar ekki í skólakerfinu, útskýra hversu mikilvægt er að samþætta kyn- og kynjafræðikennslu og stórefla hana, ræða alvarleika kláms og áhrifamikilla karlrembna í samskiptum ungs fólks og gefa okkur innsýn í menningu ungmenna í dag. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, ÖRLÖ, BM Vallá ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar (karlmennskan.is/styrkja) bjóða upp á þennan þátt.
ÖRLÖ er samstarfsaðili Karlmennskunar sem býður upp á hlaðvarpið og fræðslumiðlun á samfélagsmiðlum. Í þessum aukaþætti Karlmennskunnar ætlum við að fræðast um hvað ÖRLÖ er, hvað er svona merkilegt við þeirra vörur og framleiðslu og hvers vegna VAXA technologies (sem framleiða ÖRLÖ) vilja tengjast Karlmennskunni. Hörður Águstsson sölu- og markaðsstjóri og Kristinn Hafliðason framkvæmdastjóri VAXA Thecnologies útskýra þetta nánar. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Þessi aukaþáttur er kostaður af ÖRLÖ. Þú færð 20% afslátt með kóðanum „karlmennskan“ inni á ÖRLÖ.IS
Recognising Sexual Violence: Developing Pathways to Survivor-Centred Justice hét ráðstefna sem haldin var í lok október sl. af RIKK (rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands) í samstarfi við háskólana í Lundi og Osló. Rannsóknir á reynslu og hugmyndum þolenda kynferðisbrota sýna að réttlæti er mun flóknara en svo að eingöngu sé hægt að styðjast við réttarkerfið; hegningarlög og refsirétt. Auk þess má réttilega segja að réttarkerfið nái afar illa utan um kynferðisbrot eins og reynsla þolenda hefur sýnt fram á. Markmið ráðstefnunnar var að draga fram hvernig þolendamiðað réttlæti getur litið út, sem krefst þess að við endurhugsum ólík réttlætiskerfi og þróum pólitískar, félagslegar og lagalegar leiðir að réttlæti. Til þess að ræða þetta nánar spjallaði ég við Elínu Björk Jóhannsdóttur verkefnisstjóra hjá RIKK, skipuleggjanda ráðstefnunnar og Steinunni Gyðu og Guðjónsdóttur talskonu Stígamóta sem sat ráðstefnuna og hefur starfað með þolendum í rúman áratug. Á meðal spurninga sem við leitum svara við eru: Hvers vegna gengur ekki að vera með viðbragðsáætlun í skólum sem grípa má til þegar upp koma kynferðisbrot? Hvað er félagslegt réttlæti, uppbyggileg réttvísi og umbreytandi réttlæti? Hvernig geta skólar og vinnustaðir brugðist við þegar upp koma kynferðisbrot? Hvers vegna ættu gerendur að taka þátt í ábyrgðarferli og gangast við brotum sínum? Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, ÖRLÖ, BM Vallá ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar (karlmennskan.is/styrkja) bjóða upp á þennan þátt.
„Ég vonast til þess að karlar, ungir sem aldnir, byrji að tala saman meira um tilfinningar sínar og hvernig þeim líður.“ segir Ari Ísfeld Óskarsson leikari sem samdi og lék í How to make love to a man í tilraunaverkefninu Umbúðalaust í Borgarleikhúsinu sl. vor. Leikritið fjallaði á kómískan en raunsæan hátt um karlmennsku og karla, hvernig þeir eiga samskipti sín á milli og takast á við lífið. Ari var einmitt að gefa út lag sem samið var fyrir sýninguna sem er spilað í þættinum. Við spjöllum um ástæður þess að fjórir vinir ákveða að gera leikrit um karlmennsku, hvernig það er að vera karlmaður í dag og sérstaklega hvernig er að vera mjúkur maður. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) ÖRLÖ, Veganbúðin og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt. ->Núna geturðu einnig horft á viðtalið á karlmennskan.is og þar geturðu einnig gerst bakhjarl
Áramótaskaupið hefur sennilega aldrei fengið jafn almennt sterk jákvæð viðbrögð frá flestum, nema kannski „nokkrum fótboltagrúbbum” eins og Saga Garðars orðaði í viðtali á dögunum og svo er spurning hvernig sumum meintum og vinum þeirra fannst skaupið. Dóra Jóhannsdóttir leikkona og leikstjóri Áramótaskaupsins kryfur nokkra sketsana og gefur okkur innsýn í ferlið við skaupið. Hvernig kemur hún auga á fyndnina í gráum hversdagsleikanum og sárum kynferðisofbeldis og útlendingaandúðar? Förum inn í afstöðu grínsins og þerapjútíkina sem grínið getur gefið, veltum upp hvort gera megi grín að hverju sem er og hvernig sem er og hvað fær fólk til að hlæja. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Nartuo (án söngs) Veganbúðin, ÖRLÖ og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða uppá þennan þátt.
Við lítum yfir árið, bæði persónulega og pólitískt. Leitum að hápunktum og lágpunktum og setjumst í Völvusætið fyrir árið 2023. Veltum fyrir okkur áhrifum baráttu á árinu og mögulegum afleiðingum ýmissa atvika sem áttu sér stað á árinu. Hefur baráttan fyrir jafnrétti og mannréttindum skilað einhverju eða erum við bara á leiðinni aftur á bak með þungu bakslagi? Miriam Petra sérfræðingur hjá Rannís og inngildingarfulltrúi landsskrifstofu Erasmus plus og fyrirlesari um rasisma og menningarfordóma og Sóley Tómasdóttir jafnréttis- og fjölbreytileikafræðingur horfa í baksýnisspegilinn og setjast í femínískt Völvusæti fyrir árið 2023. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, ÖRLÖ fyrsta Omega-3 bætiefnið í heiminum með jákvætt kolefnisfótspor og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.
Gísli Marteinn Baldursson fyrrverandi borgarfulltrúi og þáttastjórnandi vinsælasta skemmtiþáttar landsins, Vikan með Gísla Marteini, var kallaður til viðtals til að létta aðeins á efnistökum hlaðvarpsins í aðdraganda jólanna. Reyndar slysaðist ég aðeins til að kveikja á borgar- og skipulagsmála Marteini en þaðan leiðumst við í umræðu um veganisma, femínisma, byltingar, meint hlutleysi í þögninni, vináttu og hvernig forréttindafullur kallavinahópur á sextugsaldri vinnur úr kröfum samtímans. Kannski ekkert brjálæðislegt léttmeti, en Gísli Marteinn var allavega í jólaskapi. Það er eitthvað. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.
Helga Braga Jónsdóttir er leikona og grínisti, leiðsögumaður, flugfreyja, magadansfrumkvöðull og kvenuppistandsfrumkvöðull. Helga Braga hefur skapað ódauðlega karaktera og skrifað og leikið í ódauðlegum senum t.d. með Fóstbræðrum. Auk þess hefur Helga auðvitað leikið í fjölmorgum þáttum, bíómyndum, áramótaskaupum og fleiru. Við spjöllum um grínið, hvernig og hvort það hefur breyst, kryfjum nokkrar senur úr Fóstbræðrum og förum inn á persónulegri svið þegar talið berst að byltingum undanfarinna ára og mánaða. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Anamma og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.
Hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna 78 og frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar er fyrir öll ungmenni á aldrinum 10-17 ára sem eru hinsegin eða tengja við hinsegin málefni á einn eða annan hátt. Markmið starfseminnar er að vinna markvisst að því að bæta lýðheilsu hinsegin barna, unglinga og ungmenna og vinna gegn fordómum, mismunun og einelti sem beinist gegn hinsegin börnum í skóla og frístundastarfi. Hrefna Þórarinsdóttir forstöðukona félagsmiðstöðvarinnar og Andreas Tinni og Nóam Óli sem eru 17 ára og hafa tekið virkan þátt í starfinu frá 13 ára aldri segja okkur frá reynslu sinni og upplifun, veita innsýn í reynsluheim hinsegin barna og ungmenna og hvaða þýðingu hinsegin félagsmiðstöðin hefur fyrir þá. Hrefna lýsir sínum innri átökum við að taka að sér starf forstöðukonu félagsmiðstöðvarinnar og hvernig mætingin fór úr 10-15 börnum í 120 á hverja opnun. Þrátt fyrir blómlegt starf þá telja Tinni og Nóam að unglingar í dag séu jafnvel fordómafyllri en ungmenni og rekja það til áhrifa samfélagsmiðla og bakslags í baráttu hinsegin fólks. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Anamma og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.
Sjö leikmenn íslenska karlalandsliðsins í fótbolta voru sagðir hafa beitt eða kærðir fyrir heimilisofbeldi eða kynferðisofbeldi haustið 2021. Öll sem stigu fram voru konur og sögðust gera það innblásnar af metoo byltingunum. Mál sem hreyfði við íslensku samfélagi og leiddi m.a. til þess að formaður KSÍ og öll stjórn sagði af sér. Valur Páll Eiríksson, íþróttafrettamaður, skrifaði meistararitgerð í íþróttasiðfræði frá háskólanum í Lueven í Belgíu, um málefni KSÍ í ritgerð sem heitir „The Viking-clap silenced - An ethical evaluation of the Icelandic football scandal” þar sem markmiðið var, í gegnum heimilda- og gagnarannsókn, að greina málið siðferðislega. Rekur hann þar áhættuþætti í umhverfi atvinnufótboltamanna, hvernig árangur innan vallar getur trompað almennt siðferði, karllægni og kvenfjandsamleg viðhorf innan fótboltans, skort á viðbragðsáætlunum innan KSÍ og slakra stjórnunarhátta sem mikilvægt sé að draga lærdóm af. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Anamma og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

Sema Erla Serdaroglu er stjórnmálafræðingur, tómstunda- og félagsmálfræðingur og evrópufræðingur, aðjúnkt á menntavísindasviði við Háskóla Íslands og aktívisti gegn útlendingaandúð og þjóðernis- og öfgahyggju. Sema hefur rannsakað öfgahyggju meðal ungs fólks en meistararannsókn hennar ber heitið „Ofbeldisfull öfgahyggja og ungt fólk : staða þekkingar og mikilvægi forvarna”. Sema setur meinta hryðjuverkaógn í samhengi við hatursorðræðu og aukna andúð gegn sumum hópum samfélagsins, bendir á hvernig öfgahyggja er kynjaður vandi, lýsir ferlinu sem getur átt sér stað til þess að einstaklingar geti verið tilbúnir til að beita hryðjuverkum eða fremja hatursglæp og hvað þarf að eiga sér stað til að vinna gegn slíkri þróun. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (áns söngs) Veganbúðin, Anamma og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.
Sema Erla Serdaroglu er stjórnmálafræðingur, tómstunda- og félagsmálafræðingur og evrópufræðingur, aðjúnkt á menntavísindasviði við Háskóla Íslands og aktívisti gegn útlendingaandúð og þjóðernis- og öfgahyggju. Sema hefur rannsakað öfgahyggju meðal ungs fólks en meistararannsókn hennar ber heitið „Ofbeldisfull öfgahyggja og ungt fólk : staða þekkingar og mikilvægi forvarna”. Sema setur meinta hryðjuverkaógn í samhengi við hatursorðræðu og aukna andúð gegn sumum hópum samfélagsins, bendir á hvernig öfgahyggja er kynjaður vandi, lýsir ferlinu sem getur átt sér stað til þess að einstaklingar geti verið tilbúnir til að beita hryðjuverkum eða fremja hatursglæp og hvað þarf að eiga sér stað til að vinna gegn slíkri þróun. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Anamma og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.
Dagur Hjartarson er kennari og rithöfundur sem hefur meðal annars fengið hin virtu bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og Ljóðstaf Jóns úr Vör. Þá hefur Dagur einnig verið tilnefndur til bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins og er einn af þeim útvöldu sem hafa fengið listamannalaun til að sinna ritstörfunum. Við Dagur ræddum um fyrirmyndir ungra drengja, hvað þurfi til svo skáld og rithöfundar taki við af fótbolta- og poppstjörnum sem fyrirmyndir, fjarveru drengja og karla í umræðu um samfélagslega knýjandi málefni, karlmennsku, karlrembu, prumpulykt og listina. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Þáttur tekinn upp 6. september 2022. Þátturinn er í boði: Veganbúðin Anamma Bakhjarlar Karlmennskunnar

Kaupendur vændis eru duldir og í raun fjarverandi í umræðu um vændi og kynlífsvinnu. Átökin í orðræðu hafa að mestu hverfst um hugtök og nálganir er snýr að löggjöf í kringum vændi eða kynlífsvinnu og þá borin uppi af fólki sem almennt er sammála um að samfélagsgerð lituð af feðraveldi, karllægni, misskiptingu og fátækt geti ekki talist gott samfélag. Í þessum þætti leitast ég hinsvegar við að varpa ljósi á viðhorf kaupenda vændis eða kynlífsþjónustu og þá sérstaklega hvernig virðing kaupenda fyrir þeim sem þeir kaupa „þjónustuna“ af birtist í orðræðu þeirra. Leitast ég við að teikna upp á viðtal við einn kaupanda vændis og set hans frásögn í stærra samhengi, ýmist við aðra kaupendur vændis og samfélagsgerðina. Niðurstaðan í stuttu máli er sú að löggjöfin er ekki fráhrindandi fyrir kaupendur vændis heldur gera kaupin jafnvel meira spennandi. Kaupendur telja aðstæður, vilja og tilfinningar kvenna, jafnvel þótt þær virðast þolendur mansals, ekki koma sér við og í orðræðu þeirra má finna stæka kvenfyrirlitningu og hlutgervingu. Þeir telja vændi vera þjónustu sem þeir gera tilkall til, algjörlega óháð aðstæðum eða afleiðingum á seljendur. Umsjón: Þorsteinn V. Einarson Veganbúðin, Anamma og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

Bjarki Þór Grönfeldt er doktorsnemi í stjórnmálasálfræði við Háskólann í Kent á Englandi en hann mun í haust skila doktorsritgerð sinni um sjálfhverfu, eða narsissisma, í hópum. Bjarki hlaut á dögunum Roberta Sigel verðlaun Alþjóðasamtaka stjórnmálasálfræðinga fyrir bestu vísindagreinina skrifaða af ungum fræðimanni. Greinin bar nafnið „A Small Price to Pay: National Narcissism Predicts Readiness to Sacrifice In-Group Members to Defend the In-Group's Image”. Þar kom meðal annars í ljós að þeir Bandaríkjamenn sem eru narsissískir um sína þjóðarímynd voru tilbúnir til þess að fórna samborgurum sínum í COVID faraldrinum til þess að láta þjóðina líta betur út í samanburði við aðra, til dæmis með því að hætta að skima fyrir COVID. Við Bjarki ræddum doktorsrannsóknina hans um félagslegan narsisisma og incel, Jordan Peterson, sexisma, dulinn sexisma, þjóðernishyggju og föðurlandsást, svo fátt eitt sé nefnt. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Anamma og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

Sæunn Ingibjörg Marínósdóttir er framkvæmdastjóri, meðeigandi og meðstofnandi Veganmatar sem rekur Veganbúðina og Jömm. Hún er brautryðjandi í veganisma á Íslandi og reyndar á heimsvísu því Veganbúðin í Skeifunni er stærsta veganbúð í heiminum. En Sæunn hefur auk þess komið að stofnun Samtaka grænmetisæta á Íslandi, verið vegan í 10 ár og er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og löggiltur verðbréfamiðlari. Sæunn hefur þó lýst því að hún stundi andkapítalískan og femíniskan rekstur og með það markmið að gera heiminn betri (og meira vegan) og kallar sig bissnessaktívista. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, ANAMMA vegan valkostur fyrir þau sem vilja minnka kjötneyslu og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða þér upp á þennan þátt.

Brautryðjandinn, poppgoðið, homminn og hin ögrandi þjóðargersemi Páll Óskar Hjálmtýsson er heiðursgestur 100. hlaðvarpsþáttar Karlmennskunnar. Við kryfjum karlmennskuna og kvenleikann, leikritið sem kynhlutverkin og karlmennskan er, skápasöguna og kolröngu viðbrögð foreldra Palla, karlrembur, andspyrnuna og bakslag í baráttu hinsegin fólks. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Dominos og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóðar upp á þennan þátt.

Lárus Logi Elentínusson hefur verið að glíma við þunglyndi og sjálfsvígshugsanir frá því hann var unglingur. Lárus sem er 19 ára gamall, og þekktur sem Eldgosi á TikTok, deildi því með fylgjendum sínum að hann hefði gert sjálfsvígstilraun fyrir tæpum tveimur árum. Í einhverja mánuði voru viðbrögð fólks á TikTok, commentin og rauðu búbblurnar það sem hélt í honum lífinu. Lárus er ekki laus við vanlíðanina en með hjálp sálfræðings, þunglyndislyfja og því að tala opinskátt um líðan sína segist hann geta tekist betur á við erfiðar tilfinningar og hugsanir. Lárus lýsir reynslu sinni að hafa glímt við þunglyndi, án þess að vita það, frá því í 6. bekk og hvernig það er að burðast með tilgangsleysi og vonleysi og upplifa sig sem „ónýta vöru sem mætti farga“. Hann segist hafa lært að hann þurfi ekki og það sé alls ekki sniðugt að burðast einn með vanlíðan, það sé alltaf einhver tilbúinn til að hjálpa. Í þessum þætti er talað um þunglyndi, sjálfsskaða og sjálfvígshugsanir. Ef þú þekkir slíkt af eigin raun bendi ég á símanumerið 1717 og 1717.is sem er opið allan sólarhringinn, Píeta samtökin, Bergið (fyrir ungt fólk til 25 ára) og sálfræðinga víða um land. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Dominos og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

Venjulegar konur, vændi á Íslandi heitir nýlega útkomin bók eftir Brynhildi Björnsdóttur þar sem sex íslenskar konur lýsa sárri reynslu sinni af því að hafa verið í vændi. Í bókinni er auk þess fjallað um hugmyndafræðileg átök í tengslum við lagasetningar en kastljósinu er ekki síður beint að kaupendum, þeim sem bera uppi eftirspurnina sem er í langmestum meirihluta karlmenn. Frumkvæðið að bókinni á Eva Dís Þórðardóttir sem hefur áður stigið fram og lýst reynslu sinni sem þolandi vændis. Eva og Brynhildur vilja vekja athygli á stöðu þolenda vændis með þá von að leiðarljósi að styðja þau sem vilja komast út úr vændi. Þá vilja þau einnig höfða til prufaranna, en þær segja að karlar sem prufa í 1-3 skipti beri uppi megin eftirspurnina eftir vændi. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Dominos og Veganbúðin ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.
Rauða Regnhlífin er hagsmunasamtök sem berst fyrir öryggi og réttindum fólks í kynlífsvinnu á Íslandi. Þau styðja skaðaminnkun og vilja binda enda á fordóma gegn fólki sem selur kynlífsþjónustu. Logn starfaði við kynlífsþjónustu í 3 til 4 ár en Renata bryjaði að strippa meðfram skólagöngu sinni í Berlín áður en hún fór svo að notast við Onlyfans, sem hún starfar við í dag. Logn og Renata vilja afglæpavæða kynlífsþjónustu og telja að kynlífsverkafólk búi við samfélagslega smánun og séu berskjaldaðar fyrir ofbeldi undir núverandi löggjöf. Telja þau ekki gerðan greinarmun á kynlífsþjónustu og síðan kynferðisofbeldi, og telja stjórnvöld hafa meiri áhuga á að stöðva kúnna heldur en þá sem beita kynlífsverkafólk ofbeldi. Renata og Logn útskýra sjónarmið Rauðu reghlífarinnar, hver munurinn er á núverandi löggjöf, afglæpavæðingu og lögleiðingu kynlífsþjónustu, hvers vegna þau nota hugtökin kynlífsþjónusta en ekki vændi og hvaða máli það skiptir kynlífsverkafólk að öðlast aðgengi að stéttarfélögum og almennum vinnuréttindum. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Dominos og Veganbúðin ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.

„Það er erfitt fyrir mig að kjarna gagnrýni á Jordan Peterson því hún er marglaga en ef ég ætti að gera það þá er það vanhæfni hans til að setja sig í spor jaðarsettra hópa eða kvenna.“ segir Unnur Gísladóttir mannfræðingur og framhaldsskólakennari. Unnur hefur lesið allar bækur Jordan Peterson og líklega innbyrt meira magn af efni eftir hann heldur en margur aðdáandinn. Unnur er hins vegar lítill aðdáandi og færir okkur gagnrýni sína þar sem hún varpar femínísku ljósi á málflutning Jordan Peterson. Fyrir þau sem ekki kannast við manninn þá er hann afar umdeildur prófessor í sálfræði sem virðist ná sérstaklega vel til karlmanna og er vinsæll fyrirlesari um heim allan og kom m.a. fram í Háskólabíó um liðna helgi. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Þátturinn er í boði bakhjarla Karlmennskunnar, Dominos, Veganbúðarinnar og The Body Shop.

Sigrún Sif Jóelsdottir er með meistarargráðu í sálfræði og starfar við rannsóknir í Háskóla Íslands og Gabríela Bryndís Ernudóttir sjálfstætt starfandi sálfræðingur eru forsvarskonur Lífs án ofbeldis. Líf án ofbeldis er „baráttusamtök mæðra og uppkominna barna sem krefjast þess að börn séu vernduð gegn ofbeldi í umgengnis- og forsjármálum.” Gabríela og Sigrún Sif eru þolendur ofbeldis og þekkja þessi mál af eigin reynslu. Gabríela sem barn í kjölfar skilnaðar sem var þvinguð í umgengni og Sigrún Sif er þolandi heimilisofbeldis sem barn og fullorðin. Báðar upplifðu að yfirvöld hafi brugðist þeim og telja þær að kerfið sé gallað og verndi ekki börn fyrir ofbeldi. Við ræðum ítarlega sjónarmið Lífs án ofbeldis út frá uppákomu á Barnaspítala Hringsins þar sem aðför var gerð að barni í lyfjagjöf, það fjarlægt úr höndum móður með aðkomu lögfræðingi föður, sýslumanni, lögreglu og barnavernd, gegn vilja barnsins. Markmiðið, að sögn Sigrúnar og Gabríelu, til að uppfylla umgengnisrétt föður, þrátt fyrir sögu um ofbeldi, en ekki vegna slælegs aðbúnaðar barns hjá móður. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Þátturinn er í boði Veganbúðarinnar, Dominos, The Body Shop og bakhjarla Karlmennskunnar.

„Ástandsárin“ hefur tíminn verið kallaður í sögubókunum okkar þegar Bretar hernámu Ísland í seinni heimsstyrjöldinni. Færri kannast þó kannski við að íslensk stjórvöld ofsóttu ungar konur, sviptu þær sjálfræði með því að hækka sjálfræðisaldur úr 16 ár í 20 ár til þess að geta dæmt þær í fangelsi fyrir að eiga í samskiptum við hermenn. Landlæknir, forsætisráðherra, Alþingi, lögreglan, fjölmiðlar og almenningur tóku þátt í einum mestu persónunjósnum sem fram hafa farið á Íslandi til þess að ná tökum á þeim „saurlifnaði“ að íslenskar konur sýndu breskum hermönnum áhuga. Tímabil sem aldrei hefur verið gert upp af íslenskum stjórnvöldum. Alma Ómarsdóttir gerði heimildamyndina Stúlkurnar að Kleppjárnsreykjum um þennan tíma, sem vægast sagt er smánarblettur í sögu Íslands. Alma fer yfir hverskonar aðfarir áttu sér stað, hvernig njósnað var um íslenskar stúlkur, þær sendar í fangelsi eða upptökuheimili, smánaðar, útskúfaðar og lokaðar í gluggalausum rýmum svo dögum skipti. Allt með samþykki yfirvalda og stutt af almenningi og fjölmiðlum. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, The Body Shop, Dominos og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.