Podcasts about pabbi

  • 35PODCASTS
  • 70EPISODES
  • 1h 2mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • May 16, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about pabbi

Latest podcast episodes about pabbi

Mannlegi þátturinn
Jóhannes Haukur föstudagsgestur, matarspjall um skrýtnar samsetningar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 16, 2025 52:34

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson. Hann hefur mikið látið að sér kveða eftir að hann útskrifaðist úr leiklistarskólanum, bæði í leikhúsi og fyrir framan myndavélina þar sem hann hefur leikið margvísleg hlutverk. En svo fyrir rúmum tíu árum fékk hann fyrsta hlutverk sitt í erlendu kvikmyndaverkefni og þá fór boltinn að rúlla. Í dag flýgur hann heimshornanna á milli og leikur í gríðarstórum kvikmyndum og sjónvarpsþáttaröðum, Game of Thrones, Succession, nýjustu ofurhetjumyndinni um Captain America og nú er hann að leika í kvikmynd um He-Man, eða Garp eins og hann kallaðist á íslensku. Við fórum með Jóhannesi aftur á æskuslóðirnar, en hann ólst að hluta til upp í Færeyjum og brunuðum svo með honum í gegnum lífið til dagsins í dag. Í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti tókum við framhaldsumræðu um af makkarónur með hangikjöti og kokteilsósa og pítusósa með pizzum og aðrar skrýtnar, eða að minnsta kosti óvenjulegar samsetningar á mat. Ef þið lumið á sögum af slíku, samsetningu á mat sem er kannski þekkt í einhverjum fjölskyldum, eða í einhverjum landshlutum, en gætu þótt sérkennilegar annars staðar, þá endilega sendið okkur á mannlegi@ruv.is. Tónlist í þættinum í dag: Pabbi vill mambó / Páll Óskar og Milljónamæringarnir (Al Hoffman, Bix Reichner, Dick Manning, textahöfundur ókunnur) Hvað er ástin? / GDRN (Friðrik Dór Jónsson og Jón Jónsson) Rólegur kúreki / Bríet (Bríet Ísis Elfar og Pálmi Ragnar Ásgeirsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Pyngjan
Föstudagskaffið: Pabbi má ég kíkja í Járnfjallið?

Pyngjan

Play Episode Listen Later Feb 14, 2025 79:05

Sendu okkur skilaboð!Kæru vinir Pyngjunnar. Þetta mun verða okkar næstsíðasta Föstudagskaffi og því er vel við hæfi að hafa það í lengri kanntinum. Þessi þáttur er gjörsamlega stappaður af viðskipti og vitleysu. Eigið yndislega helgi!

Litteraturhuset Fredrikstad
Mímir Kristjánsson - Fars drukkenskap

Litteraturhuset Fredrikstad

Play Episode Listen Later Dec 30, 2024 63:59

Mímir Kristjánssons far var alkoholiker. Hele slekta hans, helt tilbake til Egil Skallagrimsson, var alkoholikere. Selv kjenner han litt for ofte på gleden ved å drikke, på samme måte som faren gjorde. I denne episoden møter du ham i samtale med Anne Fjellro.Mímir Kristjánsson hadde en lykkelig barndom. Han vokste opp med en pappa som var verdens beste historieforteller, og kan ikke huske å ha vært redd for ham en eneste gang. Når faren til Mímir dør, spør han seg hvordan han kan elske faren sin så mye samtidig som han vet at faren var alkoholiker. Med varme, humor, men også en god dose alvor skriver Mímir om å ha alkoholismen i blodet, og om frykten for sin egen skjebne. Høsten 2024 er Mímir Kristjánsson aktuell med boken "Pabbi".Samtalen fant sted på Litteraturhuset Fredrikstad 22. oktober 2024. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Pabbi minn er forever forty í mínum huga” -#506

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Sep 19, 2024 8:56

Helgi féll fyrir Dorrit Moussaieff eins og Ólafur gerði á sínum tíma þegar hann hitti hana á röltinu. Hjálmar fékk harðan putta þegar hann var að keyra frá Keflavík. Strákarnir ræddu bíltjón sem þeir hafa lent í.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!

Sterk saman
#114 Steindór ADHD pabbi

Sterk saman

Play Episode Listen Later Sep 1, 2024 87:55

Steindór sem er þekktur sem ADHD pabbi á stóra sögu en hefur snúið lífi sínu við og aðstoðar nú fólk sem markþjálfi meðal annars.

FantasyGandalf
#113 - Þinn forseti, ert þetta þú pabbi á OnlyFans og kynlífið þitt í sumar

FantasyGandalf

Play Episode Listen Later May 30, 2024 80:26

Það var sér íslenskt rant í fyrri hálfleik og al íslenskt. Við komumst að því hver verður næsti forseti lýðveldisins án þess að vera sammála. Pabbi gamli að klæmast í dóttur sinni á OF, vond ráð sem við höfum fengið og trendið í kynlífinu þínu í sumar já og hvað kostar heybaggarúlla? Góða skemmtun!

Mannlegi þátturinn
Einmannaleiki, vinkill frá Guðjóni og Valgerður lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 18, 2024 49:05

Öll finnum við fyrir einmanaleika einhvern tíma á lífsleiðinni. Sum upplifa hann aðeins tímabundið, hjá öðrum er hann viðvarandi en hann snertir líf okkar allra með einhverjum hætti. Í Einmana – tengsl og tilgangur í heimi vaxandi einsemdar fjallar Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir um einsemdina frá fjölmörgum hliðum. Hún skoðar hver eru einmana, hvenær og af hverju en leitast líka við að varpa ljósi á það sem einmanaleikinn getur kennt okkur og hvernig bregðast megi við honum. Við ræddum við Aðalbjörgu í þættinum. Við fengum svo vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkill dagsins fjallar meðal annars um menningarferð í kvikmyndahús, hláturpokann og uppfinningamanninn Walter Thiele, um það að mynda sér skoðun á málum sem tekist er á um á samfélagsmiðlum með einar saman tilfinningar til grundvallar, um athugasemdir á samfélagsmiðlum og um gildi þess að líta í eigin barm. Og lesandi vikunnar í þetta sinn var Valgerður Garðarsdóttir forstöðumaður námsvers Menntaskólans við Hamrahlíð. Við fáum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Valgerður sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum: Vonin, akkeri fyrir sálina. Kjarnyrðabók e. sr. Þorvald Víðisson. Valskan. Skáldsaga byggð á heimildum um formóður höfundar sem uppi var á síðari hluta 18. aldar. Eftir Nönnu Rögnvaldsdóttur. Engan þarf að öfunda, daglegt líf í Norður Kóreu. Barbara Demick bandarískur blaðamaður skrifaði bókina eftir samtöl við fólk sem flúið hafði frá N-Kóreu til S-Kóreu. Elín Guðmundsdóttir þýddi. Kjörbúðarkonan e. Sayaka Murtata, Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi. Bækur sem kveiktu lestraráhuga Valgerðar í æsku. Pabbi, mamma, börn og bíll, og framhald hennar e. Anne-Cath Vestly. Tónlist í þættinum: Vor í Vaglaskógi / Friðrik Ómar og Pálmi Gunnarsson (Jónas Jónasson og Kristján frá Djúpalæk) Ég mun bíða þín / Heiða Árnadóttir og Gunnar Gunnarsson á píanó (Michel Legrand og Bragi Valdimar Skúlason) Ferry Cross the Mersey / Gerri and the Pacemakers UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Óli Björn - Alltaf til hægri
Með eina tösku ... Pabbi

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Jan 17, 2024 9:12

Pabbi var meðalmaður á hæð, með þykkt hrafntinnu svart liðað hár sem fór ekki að grána fyrr en hann stóð á fimmtugu. Hann var kvikur í hreyfingum enda hjólaði hann alla daga í og úr vinnu, jafnt sumar sem vetur. Pabbi féll frá árið 1991. Aðeins 58 ára gamall. Hann fékk heilablóðfall nokkrum árum áður og var aldrei sami maður. Hann gat sætt sig við hreyfihömlun en aldrei við lömun í tali. Fyrir áfallið var pabbi fljúgandi mælskur – leikari af guðs náð – magnaður ræðumaður – ótrúlegur sögumaður og eftirherma. Hann var maður orðsins. Hann lamaðist á hægri hlið og því varð rithöndin ónýt. Með þrautseigju og meðfæddri þrjósku fór pabbi að skrifa með vinstri hendi, þá 53 ára gamall. En það fór í taugarnar á honum að rithöndin var ekki sú sama fallega sem hann erfði frá afa Jóni og hann náði aldrei sama hraða og áður. Margt í sögu föður míns er hulið.

Fjölskyldan ehf.
,,Í skólanum mínum er síminn bara í körfunni"

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Oct 29, 2023 37:29

Margrét Pála er komin heim eftir haustfrí á Spáni og dembir sér beint í umræðu um síma, samfélagsmiðla og almenna skjánotkun ásamt Móey Pálu. Mikil umræða um símanotkun barna og ungmenna kviknaði í þjóðfélaginu í kjölfar viðtals við Þorgrím Þráinsson í Bítinu fyrr í mánuðinum.Ömmgurnar taka undir orð um hans um neikvæð áhrif ofnotkunar hjá börnum sem fullorðnum og hversu mikilvægt er að setja mörk á þessu sviði eins og á öðrum sviðum tilverunnar. Þær ræða einnig áhrif skjánotkunar út frá tilfinningagreind og hvernig skjárinn yfirtekur augu og athygli okkar allra fyrirstöðulaust. Einnig vekja þær máls á annars konar nálgun á tækni í skólum og hvernig er hægt að forðast boð og bönn.Hugvíkkandi samtal í takt við ört breytandi samtíma.Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Svarthvíta regnbogafjölskyldan

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Oct 8, 2023 53:21

Móey Pála og Júlíana Dögg, mágkona hennar, ákváðu með stuttum fyrirvara að taka upp þátt. Tilefnið var því miður ekki gleðilegt en David, maki Móeyar, lenti í leiðindaatviki í sundi á dögunum. Þar fékk hann að finna fyrir fordómum vegna húðlitar síns sem komu honum og fjölskyldunni allri úr jafnvægi.  Júlíana Dögg er fædd og uppalin á Íslandi og á ættir að rekja til Mosambik. Hún og Móey ræða fordóma vegna uppruna, fyrirmyndir og staðalmyndir, óþægilegar athugasemdir og hvað er hægt að gera til að láta ganga betur. Mágkonuspjallið er í anda fjölskyldunnar; beint frá hjartanu, með heiðarleika og hreinskiptni að vopni með hárnákvæmu dassi af húmor.Hvað er það sem við þráum öll sama hverjir foreldrar okkar eru, hverja við elskum eða hvernig við lifum lífinu? Mikilvægt samtal nú sem endranær.Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Ég held að mamma og pabbi hafi sent mig þangað til að losna við mig” -#392

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Jul 14, 2023 7:31

Strákarnir ræða það hvort allt ætti að vera leyfilegt. Helgi er töluvert meiri sveitastrákur en Hjálmar. En það var enginn Enski boltinn í sveitinni þegar Hjálmar var þar. IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a! Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is! IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Fjölskyldan ehf.
Hávaði, heyrn, heyrnarleysi og tungumál

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jul 9, 2023 35:06

Doktor Valdís Jónsdóttir spjallar við Möggu Pálu í þessum þætti og það er hávaði sem þær hefja samtalið á. Þær sjálfar eru ekki með hávaða en Valdís hefur rannsakað hávaða og hvaða áhrif hann hefur á heyrn, börn, kennara og svo framvegis.Hljóðumhverfi barna er þeim báðum hugleikið og þær ræða hvernig hljóðstyrkur dagsins fylgir heim að  leikskóla og skóla loknum. Einnig hvernig fjölskyldum er hætt við að minnka hávaða í fjölskyldurýmum með snjalltækjum og heyrnatólum. Hvaða áhrif getur sú lausn haft?Tungumálið og talmeinafræði eru einnig tekin fyrir í spjallinu og mikilvægi þess að móðurmál barna sé þeirra fyrsta mál. Það er í raun fátt sem er þeim stöllum óviðkomandi en þær ræða einnig heyrnaleysi, táknmál og sitthvað fleira.Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Björkin fæðingarheimili

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jun 25, 2023 54:29

Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rut Guðmundsdóttir eru ljósmæður í Björkinni fæðingarheimili og viðmælendur Möggu Pálu og Móeyar Pálu að þessu sinni. Hrafnhildur og Arney Þórarinsdóttir stofnuðu Björkina árið 2017 en þær hafa sterka og skýra sýn á ferli fæðinga.Ayon Rúnar drengur Móeyar og Davids fæddist í Björkinni og þær ræða fæðinguna sem bar mjög fljótt að. Að sjálfsögðu færist talið fram og aftur í tíma og um víðan völl en rauði þráðurinn er auðvitað þetta stórkostlega ferli sem fæðingin er og jafnréttisvinkillinn er aldrei langt undan.Hin 10 ára Katla kynnir þáttinn og á dásamleg lokaorð að vanda; þetta verkefni er auðvitað stórt og mikið í hugum allra, hvað þá í augum barna!Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Í fréttum er það helst

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jun 11, 2023 37:36

Nú eru tvö ár liðin frá síðustu þáttaseríu og þess vegna margt að frétta hjá Fjölskyldunni ehf., hænum og öllum. Magga Pála er iðin að vanda; uppbygging á heimili og fyrirtæki en henni finnst það nú ekki tiltökumál. Móey Pála er ekki síður iðin með sína ört stækkandi fjölskyldu en verkefnið sem á hug þeirra allan um þessar mundir er tilvonandi húsbygging. Þær ræða kosti þess að fjölskyldurnar búi nálægt hver annarri og hvernig það styrkir uppeldið og fjölskylduböndin sem verða svo sterk. Það reynir þó að sjálfsögðu á samskiptin þegar margir koma að uppeldi ungra barna og þær opna það samtal fyrir hlustendum. Þær ræða auðvitað það sem er efst á baugi hjá öðrum í fjölskyldunni en verkefnin eru ólík sem þau fást við, sum gleðileg og önnur afskaplega krefjandi.Snillingurinn Katla sér auðvitað um kynningu og lokaorð en gleymir ekki að segja frá sínum helstu fréttum. Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Ný sería fer af stað, fleiri börn, meiri ást, meiri þreyta og flutningar!

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later May 28, 2023 38:12

Fjölskyldan ehf. er mætt á ný, reynslunni og einu barni ríkari! Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um ólík og fjölbreytt verkefni fjölskyldunnar eins og t.d. flutninga og fjölskyldureit. Það er ekkert sem er fjölskyldunni óviðkomandi og fara ömmgurnar um víðan völl og ræða erfið málefni sem þarf að ræða. Þungunarrof er eitt af því sem þær kafa ofan í, aðstæður, viðmót, stuttlega rætt um söguna og hvaða merkingu það hefur haft fyrir konur. Einlægt og hjartnæmt spjall að vanda.Katla er nú orðin 10 ára og sér að sjálfsögðu um kynningu og lokaorð. Nú veltir hún fyrir sér systkinastjórnun!Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.comStyrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Beint í bílinn
Beint í Bílinn - 135. Þáttur

Beint í bílinn

Play Episode Listen Later Mar 23, 2023 70:45

Búmm! ekkert að gerast samt allt. Hádegisrúntur, maður er eltur, síminn smá opinn, Pabbi hringdi með vesen, kaffi, Pétur fór á sjó, Gunnþór, og hamborgari með pulsu með öllu!

Mannlegi þátturinn
Zen hugleiðsla, Höldum takti og veðurspjall um perlumóðuský

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 17, 2023

Ástvaldur Zenki Traustason, tónlistarmaður og Zen kennari, kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um zen iðkun og hvernig hún getur gert lífið betra. Ástvaldur sagði okkur sína sögu tengda Zen en hann dvaldi í Japan í sex mánuði þar sem hann lærði og nam Zen fræði. Parkinsonsamtökin stóð fyrir ráðstefnunni Höldum takti ? Parkinson og endurhæfing í Hörpu um helgina. Þar var lögð áhersla á mikilvægi endurhæfingar í meðferðinni við Parkinson. Þar var kynnt starfsemi Takts og þá endurhæfingu sem er í boði fyrir fólk með Parkinson og fleira. Við fengum Ágústu Kristínu Andersen forstöðumann Takts, miðstöðvar Parkinsonsamtakanna og Ernu Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra Parkinsonsamtakanna til að segja okkur meira af því sem þarna fór fram. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur var svo hjá okkur með sitt vikulega veðurspjall. Í dag fræddi hún okkur til dæmis um perlumóðuský, sem sást víst lítið af yfir hátíðirnar hér á landi. Tónlist í þættinum í dag: Sveinbjörn Egilsson / Þokkabót (Gylfi Gunnarsson og Þórarinn Eldjárn) Pabbi vill mambó / Páll Óskar og Milljónamæringarnir (Fisher og textahöfundur ókunnur) Traustur vinur / Upplyfting (Jóhann G. Jóhannsson) Út í veður og vind / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Zen hugleiðsla, Höldum takti og veðurspjall um perlumóðuský

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 17, 2023 50:00

Ástvaldur Zenki Traustason, tónlistarmaður og Zen kennari, kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um zen iðkun og hvernig hún getur gert lífið betra. Ástvaldur sagði okkur sína sögu tengda Zen en hann dvaldi í Japan í sex mánuði þar sem hann lærði og nam Zen fræði. Parkinsonsamtökin stóð fyrir ráðstefnunni Höldum takti ? Parkinson og endurhæfing í Hörpu um helgina. Þar var lögð áhersla á mikilvægi endurhæfingar í meðferðinni við Parkinson. Þar var kynnt starfsemi Takts og þá endurhæfingu sem er í boði fyrir fólk með Parkinson og fleira. Við fengum Ágústu Kristínu Andersen forstöðumann Takts, miðstöðvar Parkinsonsamtakanna og Ernu Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra Parkinsonsamtakanna til að segja okkur meira af því sem þarna fór fram. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur var svo hjá okkur með sitt vikulega veðurspjall. Í dag fræddi hún okkur til dæmis um perlumóðuský, sem sást víst lítið af yfir hátíðirnar hér á landi. Tónlist í þættinum í dag: Sveinbjörn Egilsson / Þokkabót (Gylfi Gunnarsson og Þórarinn Eldjárn) Pabbi vill mambó / Páll Óskar og Milljónamæringarnir (Fisher og textahöfundur ókunnur) Traustur vinur / Upplyfting (Jóhann G. Jóhannsson) Út í veður og vind / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR

24/7
Mamma og Pabbi

24/7

Play Episode Listen Later Dec 20, 2022 77:46

Tíu skilaboð - Að skapa öryggi úr óvissu; https://beggiolafs.com/product/tiu-skilabod/ 24/7 - Spurningaspil sem stuðlar að innihaldsríkum samræðum; https://beggiolafs.com/product/24-7-spurningaspil/ Ásgerður Hallgrímsdóttir er móðir Begga og Ólafur Björn Lárusson faðir Begga. Í þættinum ræða Ólafur og Ásgerður um uppeldi þriggja drengja, uppeldisaðferðir, hvernig þau ræktuðu ábyrgð, dugnað og þrautseigju í drengjunum sínum, erfiðleikana við að ala upp þrjá drengi, kennarastarfið, hvað einkennir góða kennara, hvernig skal nálgast börn og ungmenni í kennslu, kosti og takmarkanir skólakerfisisns, hvað sé lykillinn að því að vera saman í tæplega 40 ár, íþróttir, leiðtogahæfni og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sumac - https://sumac.is/ Sportvörur - https://sportvorur.is/ Lavazza - https://www.lavazza.is/

Poppland
Poppland 5. september

Poppland

Play Episode Listen Later Sep 5, 2022 195:00

Siggi Gunnars flakkaði um fjölbreytt Poppland með hlustendum Rásar 2 í dag. Fjölbreytt tónlist og fróðleikur. Spiluð lög: 12.40 til 14.00 Freyjólfur - Dönsum ein Dodo and The Dodos - Gi Mig Hvad Du Har Tobias Rahim og Andras Odjberg - Stor Mand Rolling Stones - Start Me Up Cuco & Adriel Favela & Kacey Musgraves - Sitting In The Corner Human League - Don?t You Want Me Heaven 17 - Temptation Flott - Flott AmbabaDama - HossaHossa Christine and The Queens - Je te vois enfin Chicago - Saturday In The Park Maus - Ungfrú orðadrepir Lizzo - 2 Be Loved (Am I Ready) Benni Hemm Hemm - Lending Calvin Harris & Justin TImberlake & Pharrel & Halesy Nothing But Thieves - Is Everybody Going Crazy Warmland - Want It Now 14.00 til 16.00 Bríet - Dýrð í dauðaþögn Hot Chip - Eleanor Fleetwood Mac - Go Your Own Way The Source ft Candi Staton - You Got The Love Jet Black Joe - Rain Peter Gabriel - Big Time Oasis - Don?t Look Back In Anger Pulp - Common People Hjálmar og GDRN - Upp á rönd Röyksopp - Unity Sváfnir Sigurðarson - Gítarinn Benni Hemm Hemm & Urður & Kött Grá Pjé - Á óvart Páll Óskar og Milljónamæringarnir - Pabbi vill mambó Þursaflokkur - Nú er heima Hanna María Karlsdóttir - Söngur Gullauga Hjaltalín - Baronesse The Kinks - Waterloo Sunset Wet Leg - Wet Dream The Zombies - The Way I Feel Inside Bubbi Mortheins - Sunnudagur (Með lagardagskvöld í fanginu) LF System - Afraid To Feel Di-Rect - Through The Looking Glass Hugrún - Big City Arlo Parks - Softly Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson

Poppland
Poppland 5. september

Poppland

Play Episode Listen Later Sep 5, 2022

Ormstungur
3. Egils saga - Brestir bernskunnar

Ormstungur

Play Episode Listen Later Jun 17, 2022 51:53

Tungurnar leita á náðir uppeldisfræðimenntaða rithöfundarins Brynhildar Þórarinsdóttur til að ná tökum á æsku Egils. Kominn af hálftröllum og alinn upp af háöldruðum var drengurinn afskiptur í æsku en ofvirki ofurvitinn sem hann var líka fékk hann það sem hann vildi. Svona næstum því. Pabbi hans drap að vísu vini hans en hvað eru vinadráp milli vin… feðga? Er hamast? Já það er hamast! Hlustið og hlýðið. Gestur: Brynhildur Þórarinsdóttir Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson

Fokk ég er með krabbamein
3.7. Hlakka til þegar krabba-pabbi er farinn

Fokk ég er með krabbamein

Play Episode Listen Later May 27, 2022 52:26

Feðgarnir Róbert og Valdimar hafa talað opinskátt um það hvernig krabbamein hefur snert þá, en Róbert greindist með ristilkrabbamein í nóvember 2021. Róbert og kona hans ákváðu strax í byrjun veikindanna að leyfa börnunum að vera þátttakendur í krabbameinsferlinu. Yngsti sonur þeirra, Valdimar, hefur meðal annars búið til hlaðvarp á KrakkaRúv sem heitir Að eiga mömmu eða pabba með krabbamein, til þess að skilja sjálfur krabbamein betur og til að hjálpa öðrum börnum að skilja það. Feðgarnir settust niður með Sigríði Þóru og ræddu á sinn einlæga og skemmtilega hátt um krabbameinið og allar tilfinningarnar og erfiðleikana sem það hefur í för með sér fyrir bæði foreldra og börn.

Fílalag
Strönd og stuð! – Good Vibrations

Fílalag

Play Episode Listen Later Apr 29, 2022 96:34

Rafbylgjur smjúga í gegnum þunna gifsveggi. Brunabíll keyrir í útkall. Í höfuðkúpu er haldin veisla. Húlahringir orbita áreynslulaust. Pabbi skammar. Stanislav nágranni er sendur í raflostameðferð. Sólin hamrar geislum sínum á stillt hafið. Segulband flækist. Ljósálfur liggur á blakbolta. Stendur svo upp og stígur dans, á ströndinni, í takt við rafbylgjur. Þessi fílun fór fram live […]

FantasyGandalf
#10 - Æ pabbi Ben, Ó nei Sigurður Ingi og typpahátíð í Japan

FantasyGandalf

Play Episode Listen Later Apr 7, 2022 75:31

Ekki láta nafn þáttarins blekkja ykkur, þátturinn er töluvert skemmtilegri en nafnið gefur til kynna. Joe Exotic ástfanginn í fangelsi. Besta lögregludagbók 70min hingað til. Hver átti hugmyndina að taka myndina örlagaríku, er möguleiki á að Pabbi Ben sé að grilla í Bjarna með því að kaupa allt sem hann er að selja. Áhugaverð typpahátíð í Japan, jebb við þurftum að ræða það. Þetta og svo mikið annað sem þú þarft ekki að vita. Takk fyrir að hlusta :)

Fantasíusvítan
Halló Clayton (já og pabbi hans)

Fantasíusvítan

Play Episode Listen Later Jan 4, 2022 50:37

Það er komið að því, back to basics at the Mansion !! Loksins mansion og ferðalög! Þessi fyrsti þáttur var eins og flestir fyrstu þættir nema með nokkrum tvistum, einum óþarflega þreytandi! En áfram gakk! 

Eigin Konur
Margrét Sif “þegar ég sagði honum að pabbi hans væri kominn í fangelsi svaraði hann: “LOL á hann”

Eigin Konur

Play Episode Listen Later Dec 6, 2021 10:06

TW. Margrét kynntist barnföður sínum mjög ung og byrjaði ofbeldið mjög snemma. Hann beitti hana líkamlegu og andlegu ofbeldi sem stóð yfir í langan tíma. Við spyrjum oft brotaþola “afhverju fórstu ekki?”. Fyrstu mánuðirnir í sambandinu voru dásamlegir og taldi hann hana trú um að hún væri einstök. Hann fór síðan að beita hana andlegu ofbeldi sem fólst í niðurlægingu og skömmun og beitti hana einnig líkamlegu ofbeldi. Fjölskyldan hans setti yfirleitt skömmina á Margréti og átti hún að hafa reitt hann til reiði með þeim afleiðingum að hann lyfti henni upp og fleygði henni í gólfið, fyrir framan barnið. Ekki spyrja þolanda heimilsofbeldis “afhverju fórstu ekki?” Það fylgir því mikill ótti að fara frá ofbeldismanninum því þetta gerist inn á þínu eigin heimili. Þar sem öryggi þitt og skjól á að vera og þegar ógnin býr innan veggja heimilisins veit maður ekkert hvert maður á að fara.

Dr. Football
Vikulok Dr. Football - Það gerist aldrei neitt um leið og það gerist. Allt gerist eftir á.

Dr. Football

Play Episode Listen Later Nov 19, 2021 63:15

Doc, Lúðvík og Albert Ingason. Á Stjarnan að skila 2014 titlinum? Daníel í FCK? Pabbi fæ ég sér stakt ákvæði. Liverpool Arsenal El Grande í lok þáttar

Orðabúrið
S02E12 - 49 - Litli-Pabbi Þór

Orðabúrið

Play Episode Listen Later Oct 23, 2021 55:37

Rithöfundur ráfar inn á ritstjórnarskrifstofu. Hvað eru mörg R í því? Það er komið að síðu 49, athugavandur-atómþungi. Hver er höfundurinn? Það er hann Hagalín sem heldur þrumuræðu um hættuna sem stafar af atómkveðskap. Orðabúrarnir ræða einnig um hárdúk í millifóður, blússuföt í skólann og ekki má gleyma Jacquard-vefnaðinum. Atlantíska bandalagið kemur einnig við sögu og fleiri þróaðir pabbabrandarar eru sagðir.  Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.

Já elskan
67. Fyrsta blikið - ”Sorrý pabbi”

Já elskan

Play Episode Listen Later Sep 15, 2021 43:24

Sandra Sif Agnarsdóttir er Bárðardalsmær sem að tók þátt í stefnumótaþættinum Fyrsta Blikið. Hún fer með okkur á bakvið tjöldin og gefur okkur the gory but great details. Voru þau i samskiptum eftir þáttinn? Var koss? Fóru þau ein heim? …Tune in for some hot gossip

Lífsreynslusögur Vikunnar
Lífsreynslusögur Vikunnar

Lífsreynslusögur Vikunnar

Play Episode Listen Later Aug 15, 2021 38:50

Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Hún bara veit …„Systir mín sér lengra en nef hennar nær og til eru margar sögur af henni og hugboðum hennar. Fyrr á árinu lenti hún í atviki en skjót viðbrögð hennar björguðu henni án efa frá vandræðum.“ - Óvænt umbreyting:„Besta vinkona mín frá barnæsku barðist lengi við offitu. Hún náði stundum að léttast mikið en var ekki lengi að bæta öllum aukakílóunum á sig aftur þegar kúrnum lauk. Fyrir nokkrum árum tókst henni að komast í kjörþyngd og halda henni en í leiðinni gjörbreyttist persónuleiki hennar.“ - Mamma breyttist við skilnaðinn:„Þegar ég var ellefu ára skildu foreldrar mínir. Pabbi hafði kynnst annarri konu og kom heim einn daginn og tilkynnti að hann væri farinn. Skiljanlega var þetta mömmu gríðarlegt áfall en það var bókstaflega eins og hún klikkaðist. Enn í dag á ég erfitt með að fyrirgefa henni margt af því sem gerðist fyrst eftir það.“ - Örlagarík áreitni:„Einn veturinn fyrir mörgum árum fékk ég vinnu við kennslu úti á landi. Eftir að ég var flutt aftur í bæinn heyrði ég að kjaftasögur hefðu grasserað um ásókn mína í giftan mann á staðnum. Sannleikurinn er hins vegar gjörólíkur sögunni og áreitnin sem átti sér stað reyndist mér ansi örlagarík.“ - Á síðasta snúningi?:„Lífið var svolítið tómlegt eftir skilnað við manninn minn til fimmtán ára. Sonur okkar kaus að verða eftir hjá pabba sínum en var afar duglegur að heimsækja mig. Ég var alveg opin fyrir nýju sambandi en að finna góðan mann til að verja lífinu með reyndist ekki auðvelt.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.

Dr. Football
Helgaruppgjör Dr. Football - Gamla bandið jarðað í Jerevan - Pabbi er ég inná?

Dr. Football

Play Episode Listen Later Mar 28, 2021 65:28

Doc, Hörður Snævar og Höfðinginn sjálfur eftir þessa blessuðu helgi.

Lífsreynslusögur Vikunnar
Lífsreynslusaga Vikunnar

Lífsreynslusögur Vikunnar

Play Episode Listen Later Mar 28, 2021 38:10

Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Mér var útskúfað:„Ég missti móður mína þegar ég var tæpra fjögurra ára gömul. Ég man lítið eftir henni en á einhverjar óljósar minningar sem ég held að séu tengdar henni. Í tvö ár eftir að hún dó bjuggum við pabbi ein en ég var mikið í pössun hjá ömmu. Pabbi kynntist stjúpmóður minni þegar ég var nýbyrjuð í skóla og hún flutti inn til okkar nokkrum mánuðum síðar. Ég átti ákaflega erfitt með að sætta mig við hana fyrst í stað og tók upp á ýmsu til að láta vanþóknun mína í ljós. Smátt og smátt jafnaði ég mig þó og friður ríkti á heimilinu.“- Nú lifi ég fyrir mig en ekki aðra:„Ég ólst upp hjá mjög ströngum foreldrum. Mamma mín var mjög kröfuhörð á okkur systkinin. Við áttum að vera kurteis og prúð, standa okkur vel í skóla og vera heimilinu til sóma. Systkinum mínum tókst þetta ágætlega en ég var svarti sauðurinn sem alltaf var að lenda í vandræðum. Ekki tók betra við þegar ég varð fullorðin því ómögulegt reyndist að gera svo eiginmanni mínum líkaði.“- Veikindin gerbreyttu fjölskyldulífinu:„Þegar ég var tíu ára greindist yngri bróðir minn með erfiðan sjúkdóm. Fram að því höfðum við verið hamingjusöm og samheldin fjölskylda. Smátt og smátt náðu veikindin hins vegar að gerbreyta öllum samskiptum okkar. Mér fannst ég fjarlægjast foreldra mína og sú gjá sem varð á milli okkar lokaðist aldrei.“- Ríka systirin:„Ég var lengi sár út í stóru systur mína sem vildi sem minnst við mig og systkini okkar tala. Við héldum að hún væri svona snobbuð þar sem hún bjó við ríkidæmi, öfugt við okkur. Löngu síðar opinberaði hún leyndarmál sitt.“- Systir mín rústaði heimili mínu:„Ég flutti að heiman tvítug og stofnaði heimili með kærasta mínum. Við eignuðumst ári síðar okkar fyrsta barn og giftum okkur. Þótt okkur gengi mjög vel fann ég fyrir fæðingarþunglyndi og átti töluvert erfitt fyrsta árið sem dóttir mín lifði. Á sama tíma var systir mín að taka saman við mann sinn og þegar þau fengu að dvelja í minni íbúð mánaðartíma gerðust hlutir sem særðu mig djúpt.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.

Segðu mér
Anna Hildur Hildibrandsdóttir kvikmyndagerðakona

Segðu mér

Play Episode Listen Later Feb 23, 2021 38:00

Anna Hildur Hildibrandsdóttir fylgdi Hatara-hópnum til Ísraels þegar hljómsveitin tók eftirminnilega þátt í Eurovision árið 2019 og gerði heimildarmynd um ferðalagið. Hópnum tókst að valda nokkrum pólitískum titringi á svæðinu og þegar stigin voru kynnt á úrslitakvöldinu supu margir hveljur þegar liðsmenn sveitarinnar drógu upp palenstínska fánann og veifuðu honum fyrir framan myndavélarnar. Anna Hildur Hildibrandsdóttir kvikmyndagerðar- og fjölmiðakona er nýflutt heim frá London þar sem hún var búsett í þrjá áratugi. Í Segðu mér á Rás 1 sagði hún frá borgarlífinu í London, fjölmiðlabransanum og Eurovision-myndinni A song called hate sem hefur ferðast um heiminn og fer loksins að rata á skjáinn. Hefur kjark til að gera það sem öðrum finnst erfitt Anna Hildur tekur undir að hún sé kjörkuð og segist hafa hugrekkið frá foreldrum sínum. ?Pabbi heitinn og mamma, sem er enn á lífi, eru bæði ótrúlega dugleg og klár og þau hafa gert margt skemmtilegt í lífinu. Mér finnst gaman að ögra og takast á við áskoranir,? segir hún. ?Ég hef oft kjark til að gera það sem öðrum finnst erfitt að gera.?

eurovision hefur pabbi hatara kvikmyndager anna hildur hildibrandsd
Lífsreynslusögur Vikunnar
Lífsreynslusögur Vikunnar

Lífsreynslusögur Vikunnar

Play Episode Listen Later Feb 7, 2021 34:31

Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Ömurleg mágkona:„Biggi bróðir minn kvæntist Elsu þegar þau voru nýskriðin úr háskóla og þau voru gift í rúm tuttugu ár. Þegar þau skildu kom í ljós að Biggi hafði átt í ástarsambandi við aðra konu og þótt okkur þætti öllum vænt um Elsu vorum við tilbúin að styðja bróður okkar eða allt þar til við kynntumst nýju mágkonunni.“- Ég hitti mann vinkonu minnar á Tinder:„Við Bára kynntumst fyrst í barnaskóla. Þótt hún væri ári yngri urðum við engu að síður mjög góðar vinkonur. Í menntaskóla vorum við alltaf saman en þegar ég fór utan í nám minnkaði sambandið og við hittumst ekkert í mörg ár. Við hittumst aftur, þá báðar komnar á miðjan aldur, og tókum upp þráðinn aftur. Ég lenti hins vegar í erfiðri stöðu þegar ég hitti mann Báru á Tinder.“- Við bræðurnir skuldum vegna foreldra okkar:„Ég er elstur þriggja bræðra. Pabbi hafði mikinn áhuga á öllum vélum og smitaði okkur af dellunni. Allt frá því ég var fjögurra ára gamall hef ég gert við hjól, bíla, vélsleða og fleiri græjur. Um fermingu hét ég því að kaupa mér bíl strax og ég fengi bílpróf. Þegar að því kom fékk ég leyfi foreldra minna til þess og mamma skrifaði upp á lán fyrir mig. Það var upphafið af ógæfu minni og bræðra minna.“- Vinkona mín stal kærasta mínum:„Jói var stóra ástin í lífi mínu. Það sé ég sífellt betur eftir því sem lengri tími líður frá því að við hættum saman. Við kynntumst á djamminu, bæði í háskólanámi þegar það var og urðum yfir okkur ástfangin á örfáum vikum. Við bjuggum saman í þrjú ár en þá ákvað vinkona mín að koma upp á milli okkar og tókst það.“- Einmana í hjónabandi:„Að verða ástfangin er yndisleg tilfinning. Manni finnst maður geta allt og að lífið verði aldrei samt aftur. Fyrstu vikurnar og mánuðirnir eru frábærir. Þú og ástin þín hafið svo margt um að tala að þið haldið að þið verðið aldrei uppiskroppa með umræðuefni. Þannig leið mér lengi í hjónabandi mínu en eftir hrun fóru hlutirnir niður á við og lengi var ég einmana í hjónabandinu en nú er maðurinn minn smátt og smátt að koma til baka.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.

Já OK
Mamma og pabbi

Já OK

Play Episode Listen Later Dec 2, 2020

Í þessum þætti af Já OK! leita Fjölnir Gísla og Villi Neto í heimahaga og fá tvo gesti til sín sem geta svo sannalega alið þá upp. Þetta fólk hefur fylgt þeim í gegnum lífið og eru einnig harðir hlustendur þáttana. Strákarnir gera allt sem þau segja þeim að gera enda hafa þau lært sjálf mikið í gegnum lífið, hvort sem það er sem skiptinemi í Portúgal eða hafa alist upp við hliðina á hernum. Við kynnum mömmu og pabba.

Morgunvaktin
Tafir á valdaskiptum geta haft mikil áhrif

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 23, 2020 130:00

Þrátt fyrir að tugum dómsmála sem Donald Trump höfðaði vegna kosningaúrslita hafi ýmist verið hafnað eða honum dæmt í óhag hefur Trump ekki viðurkennt ósigur í kosningunum fyrir þremur vikum síðan. Hann neitar að hjálpa til við valdaskipti, sem getur valdið vandræðum - ekki síst þar sem Joe Biden fær ekki aðgang að áformum stjórnvalda um ýmislegt sem viðkemur kórónuveirunni. Er Trump viljandi að reyna að skemma fyrir eftirmanni sínum? Og ef svo er - hvaða afleiðingar getur það haft? Silja Bára Ómarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði ræddi það á Morgunvaktinni. Enn eitt vandræðamálið plagar nú Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands. Innanríkisráðherra hans, Priti Patel, braut siðareglur ráðherra og lagði starfsfólk í einelti. Þetta er niðurstaða óháðrar rannsóknar, en í fyrsta skipti leiðir slík niðurstaða ekki til afsagnar ráðherra heldur þess sem gerði rannsóknina. Sigrún Davíðsdóttir sagði okkur frá þessu máli og mörgum öðrum í Lundúnaspjalli dagsins. Þegar Joe Biden verður settur í embætti Bandaríkjaforseta í janúar á næsta ári verður hann elsti maður sem tekur við því embætti í sögu Bandaríkjanna - 78 ára. Hann kemst þó ekki á lista yfir tíu elstu þjóðarleiðtoga sem nú eru við völd. Efst á þeim lista trónir Elísabet Bretadrottning, sem verður 95 ára næsta vor. Við fórum yfir aldurhnigna leiðtoga fyrr og síðar með Veru Illugadóttur. Tónlist: It's oh so quiet - Björk Lukta-Gvendur - Björk og tríó Guðmundar Ingólfssonar Pabbi minn - Björk og tríó Guðmundar Ingólfssonar

Morgunvaktin
Tafir á valdaskiptum geta haft mikil áhrif

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 23, 2020

Spegillinn
Metingur um bóluefni

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 12, 2020 30:00

Sóttvarnalæknir býst við metingi milli starfsstétta um hver fær forgang að bóluefni. Ekki er víst að valkvæðar aðgerðir geti hafist strax á Landspítala þó að hann hafi verið færður af neyðarstigi á hættustig. Formaður Framsóknarflokksins styður frumvörp forsætisráðherra um breytingar á stjórnarskránni. Leiðtogi Demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings sakar Repúblikana um að dreifa samsæriskenningum, neita að horfast í augu við raunveruleikann og eitra uppsprettu lýðræðisins. Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Ungverjum í kvöld. Pabbi fyrirliðans spáir Íslandi tvö eitt sigri en það sé þó hrein og klár óskhyggja. Prófessor í líftölfræði segir að nýtt spálíkan um þróun faraldursins bendi til þess að við séum á réttri leið. Mikið flökt sé þó á smittölum og ekki þurfi nema nokkur smit yfir landamærin til að breyta stöðunni. Arnrar Páll Hauksson talar við Thor Aspelund. Skoskir sjálfstæðissinnar töpuðu þjóðaratkvæðagreiðslu 2014 um sjálfstætt Skotland og það átti að útkljá allt sjálfstæðistal um ókomin ár. En nú blómstra sjálfstæðisvonirnar meir en nokkru sinni í krafti vinsælda Nicolu Sturgeon fyrsta ráðherra Skota og að Boris Johnson forsætisráðherra Breta er óvinsæll í Skotland. Brexit og svo glíman við Covid-19 efla sjálfstæðishugmyndirnar enn frekar. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Óvissa um námslok er ein af ástæðum þess að iðnnám freistar ekki eins og bóknám segir Hildur Ingvarsdóttir skólastjóri Tækniskólans. Erfitt getur reynst að komast á samning hjá meistara og kynning á iðnnámi í lok grunnskóla mætti vera betri. OECD hefur ráðlagt íslenskum stjórnvöldum að einfalda regluverk í kringum iðnnám og tekur Hildur undir að endurskoða mætti margt, en gæta þess jafnframt að ekki verði slegið af kröfum. Kristján Sigurjónsson talaði við Hildi Ingvarsdóttur.

Spegillinn
Metingur um bóluefni

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 12, 2020

18. þáttur - 1823 - þorratungl-þorskur - Pabbi þarf að kaupa dagaspjöld

Orðabúrið

Play Episode Listen Later Nov 5, 2020 45:08

Í þætti vikunnar fá páska- og tímatalsreikningar aftur töluvert pláss, enda mikið áhugamál þáttarstjórnenda. Að öðru leyti er mikið rætt um þorsk, þorskígildi og þorskastríðið og gamlar mælieiningar skjóta enn eina ferðina upp kollinum ásamt undarlegri beitu. Ekki gleyma að hafa þurr nærföt til skiptanna þegar þið farið á hákarlaveiðar!

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
"Þú verður alltaf eins og pabbi þinn" - #122

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Oct 26, 2020 52:52

Í þætti dagsins hraunaði Hjálmar yfir Helga - svo snerist umræðan yfir mikilvægustu málefni dagsins sem eru kvíði og Tinder. Og svo kom FO konan í lokin og lamdi Sölva og Helga.Bókið rafrænt pub-quiz og Bingó á: https://hihi.is/pages/bokanirIG: hjalmarorn110 & helgijean

Fjölskyldan ehf.
Yngst og best á bænum

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Sep 6, 2020 32:12

Ömmgurnar þrjár, Magga Pála, Móey Pála og sú nýfædda, komu í hljóðver ásamt föðurnum nýbakaða honum David. Foreldrarnir segja hlustendum fæðingarsöguna og hvaða tilfinningar bærðust innra með þeim. Einnig ræða þau hvernig lífið er núna með nýjum fjölskyldumeðlim og hvernig það er að vera með nýfætt barn á tímum Covid. Hvernig er svo lífið með barninu? Hvernig gengur að drekka? En að sofa? Skiptast mamma og pabbi á? Sú sem er yngst og best á bænum, fær hún að stjórna?Athugið kæru vinkonur og vinir að þátturinn er á ensku.//The great grandmother Magga Pála, the parents Móey Pála and David came to the studio with the newborn baby girl. The parents share the birth story and talk about all the emotions that are entwined with this miracle. They also talk about how life has changed after the birth and what it is like to have a new born baby during the times of Covid. Listeners also get a glimpse of the breastfeeding, sleeping routine and who it is that actually controls life these days.

Fjölskyldan ehf.

Barnið er fætt! Það þýðir að Magga Pála er orðin langamma og Móey Pála er orðin mamma. Magga Pála segir frá fæðingu dóttur sinnar, þá elstu dóttur hennar og loks nýfædda barninu. Hvað er líkt með öllum þessum fæðingum? Hvað er ólíkt?Einnig ræðir Magga Pála handtök og siði sem erfast á milli kynslóða og þá vinnu sem fer í að halda því sem er af hinu góða og því sem raunverulega þarf að sleppa.

Snæbjörn talar við fólk
#0014 Hannes Óli

Snæbjörn talar við fólk

Play Episode Listen Later Aug 20, 2020 128:33

S01E14 – Hannes Óli er leikari af guðs náð. Hann tekur lífinu eins og það kemur og hefur leikið Sigmund Davíð í hverju einasta áramótaskaupi nema einu síðan 2009. Hann les bækur, horfir á kvikmyndir, breytir veikleikum í styrkleika og er þakklátur fyrir allt sem hann hefur. Pabbi hans er kona og  hann hefur spunnið senu í kvikmynd með Will Ferrell. Ég segi þetta og skrifa hér í þetta eina skipti: Jaja Ding Dong!Gott spjall. – Hljóðkirkjan býður upp á 4 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum og Besta platan á föstudögum.

Lífsreynslusögur Vikunnar
Lífsreynslusögur Vikunnar

Lífsreynslusögur Vikunnar

Play Episode Listen Later Aug 9, 2020 42:19

Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: – Pabbi minn vill ekkert með mig hafa: Ég átti hamingjusama æsku þótt ég hafi aldrei kynnst blóðföður mínum. Pabbi minn kom inn í líf okkar mömmu þegar ég var smábarn og hann ættleiddi mig. Ég vissi ætíð vel að við værum ekki blóðskyldir en velti því aldrei fyrir mér fyrr en ég átti sjálfur von á barni. Þá reyndi ég að hafa samband við föður minn en fékk þannig viðbrögð að ég gerði mér ljóst að ég væri betur kominn án þess manns í lífi mínu. – Dekurrófurnar: Ég ólst upp hjá ömmu og afa en þráði það alltaf heitt að fá að vera hjá mömmu og fjölskyldu hennar. Stundum var ég þó fegin að þurfa ekki að búa með hálfsystkinum mínum því dekraðri og frekari krökkum hef ég ekki kynnst. – Hressi tengdasonurinn: Ekki löngu eftir að dóttir mín skildi kynntist hún öðrum manni sem heillaði hana upp úr skónum. Ég var ekki jafnheilluð, enda voru fyrstu kynni mín og nýja tengdasonarins ekki sérlega góð. – Sloppið með skrekkinn – þrisvar: Ég held því fram að ég hafi bjargað lífi mannsins míns sama kvöldið og við byrjuðum saman. Mörgum árum seinna áttu sér stað svipuð atvik í kringum mig þar sem ástvinir mínir sluppu með skrekkinn fyrir einhverja tilviljun. – Leyndarmálið: Móðir mín átti sér ljótt leyndarmál árum saman en tókst að fela það svo vel að engan grunaði neitt. Þegar upp um hana komst varð algjört uppnám í fjölskyldunni og systkini hennar brugðust svo hart við að þau hættu að tala við hana. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.

Lífsreynslusögur Vikunnar
Lífsreynslusögur Vikunnar

Lífsreynslusögur Vikunnar

Play Episode Listen Later Jul 14, 2020 43:42

Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - „Þessi draumur er fyrir eldgosi“: Ég er alin upp á frekar litlum stað úti á landi. Pabbi var læknir þar og við bjuggum í læknisíbúð á sjúkrahúsinu. Í þessari frásögn er bæði aðstæðum og nöfnum breytt án þess að sagan sjálf breytist við það. - Mögnuð björgun: Fyrir fjölmörgum árum sagði þáverandi kærastinn minn frá undarlegu og óútskýranlegu atviki sem gerðist á því tímabili lífs hans þegar hann upplifði algjört svartnætti. - Besta ákvörðunin: Ég bjó í Reykjavík fyrstu 33 ár ævi minnar og giftist manni sem einnig er af höfuðborgarsvæðinu. Við hrunið breyttust aðstæður okkar mjög til hins verra og þegar okkur fannst allt komið í hnút tókum við ákvörðun sem við höfum ekki séð eftir. - Kolröng ákvörðun: Þegar ég hóf störf hjá litlu fyrirtæki fyrir mörgum árum leist mér vel á samstarfsfólk mitt og ekki liðu margir mánuðir þar til ég var orðin heiftarlega ástfangin. Sú ást varð mér til lítillar gæfu. - Furðuleg heimsókn: Bróðir minn er tvígiftur og missti seinni konu sína fyrir nokkrum árum. Daginn eftir jarðarförina fékk hann óvænta heimsókn frá manneskju sem gerði honum afskaplega undarlegt tilboð, svo vægt sé til orða tekið. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.

Lífsreynslusögur Vikunnar
Lífsreynslusögur Vikunnar

Lífsreynslusögur Vikunnar

Play Episode Listen Later Jun 21, 2020 44:19

Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Ég átti tvær mömmur: Mamma var aðeins fimmtán ára þegar hún varð ófrísk að mér. Pabbi var eldri hvað ár varðaði en mun yngri í anda, eins og amma sagði alltaf. Hann datt því fljótlega út úr lífi mínu en eftir sátu tvær frábærar konur sem báðar reyndust mér bestu mæður. -Erfiðar minningar: Ég veit fátt skemmtilegra og notalegra en að dvelja í sumarbústað, hvort sem er yfir vetur eða sumar. Maðurinn minn deilir ekki þeirri hrifningu með mér og þegar mér tókst að draga hann með var hann eirðarlaus og vildi helst fara sem fyrst heim aftur. -Bankamaðurinn: Þegar nýr þjónustufulltrúi hóf störf í bankanum þar sem ég var viðskiptavinur varð ég strax mjög hrifin af honum. Við áttum í sambandi um tíma en ég mun eflaust alltaf sjá eftir því að hafa ekki kannað bakgrunn hans áður en sambandið hófst. -Sundruð fjölskylda: Ég var kornung þegar ég áttaði mig fyrst á því að heimilislíf mitt var ekki eðlilegt. Svo mikil illgirni og grimmd var í gangi að afleiðingar þess hafa elt mig í áratugi og svipt mig því að eiga stórfjölskyldu. -Ótrúlegt atvinnuviðtal: Ég er menntaður grafískur hönnuður og þegar haft var samband við mig vegna mögulegs verkefnis á því sviði fór ég spennt í atvinnuviðtal sem snerist síðan upp í eitthvað sem ég átti alls ekki von á. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.

Morgunútvarpið
11. júní - Skipulag, veðurstöðvar, grín, enski boltinn og málfar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 11, 2020 130:00

Virpi Jokinen er fyrsti vottaði skipuleggjandinn á Íslandi. Hvað skyldi það þýða? Jú hún hjálpar fólki og fyrirtækjum að skipuleggja sig og ráðast í skipulagsverkefni af ýmsum toga, hvort sem það er tiltekt í geymslunni eða óskilamunir skóla og íþróttafélaga. Virpi hlaut nýverið styrk frá Atvinnumálum kvenna fyrir óskilamunaverkefnið Hvar er húfan mín / Tökum ó-ið úr óskilamunum og hún kíkti til okkar og sagði okkur meira. Annað slagið dúkkar upp umræða um staðsetningar veðurstöðva og vilja íbúar sumra sveitarfélaga meina að ekki sé sanngjarnt að lesa upp veður á veðurstöðvum sem gefi ekki rétta mynd af veðrinu í viðkomandi bæ eða þorpi. Þessi umræða kom upp í tengslum við Hólmavík um daginn og við fáum stundum ábendingar um að það sé allt annað veður inni í bæ á Egilsstöðum en á flugvellinum og sumir vilja meina að veðrið á Stórhöfða sé nú aldeilis ekki það sama og niðri í bæ í Eyjum. Okkur lék því forvitni á að vita hvað ræður staðsetningu veðurstöðva og sitthvað fleira um þetta fyrirbæri sem við Íslendingar treystum svo mjög á. Óðinn Þórarinsson frá Veðurstofu Íslands sagði okkur allt um það. Á föstudögum í sumar sýnir RÚV gamlar vel valdar grínþáttaraðir sem þjóðinni þykir vænt um undir merkjum Íslensks grínsumars. Sjónvarpið ríður á vaðið með hinni sígildu Fastir liðir eins og venjulega og af því tilefni heyrðum við aðeins í Eddu Björgvinsdóttur, leikkonu þáttanna. Það vakti athygli fyrr í vikunni þegar Vodafone tilkynnti að fyrirtækið hyggðist bjóða viðskiptavinum sínum áskrift að enska boltanum, sem Sjónvarp Símans á sýningarréttinn að, á þúsund krónur. Heiðar Guðjónsson forstjóri Vodafone var hjá okkur í gær og skaut föstum skotum á samkeppnisaðilann. Í dag kom Orri Hauksson, forstjóri Símans, til okkar og ræddi málið enn frekar. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur spjallaði um íslenskt mál, m.a. beygingar erlendra nafna. Tónlist: Klassart - Listin að elska. Richard Hawley - Midnight train. Páll Óskar og Milljónamæringarnir - Pabbi vill mambó. Hreimur - Miðnætursól. E.L.O. - Dont bring me down. Bubbi og Hjálmar - Þöggun. Hafdís Huld - Kónguló.

Morgunútvarpið
11. júní - Skipulag, veðurstöðvar, grín, enski boltinn og málfar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 11, 2020

Fotbolti.net
Miðjan - Bjarnólfur var til í að koma nakinn fram fyrir frægðina

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 6, 2020

Bjarnólfur Lárusson var tilbúinn að gera allt fyrir frægðina, meðal annars að koma nakinn fram. Hann var atvinnumaður í Englandi og Skotlandi en sneri svo heim og þótti óheiðarlegur leikmaður sem fékk ótal spjalda. Hann var líka lengi Íslandsmethafi í kúluvarpi. Bjarnólfur er gestur vikunnar í podcastþættinum Miðjan hér á Fótbolta.net. Meðal efnis: - Stofnaði ráðgjafafyritæki í haust - Hluthafi í Passion bakaríi - Átti Íslandsmet í kúluvarpi í áratug - Mjög efnilegur í handbolta - Samkeppni Týs og Þórs - Pabbi hans rifti fyrsta atvinnumannasamningnum brjálaður - Auðvelt að æsa hann upp - Stálu treyjum andstæðinga - Rekinn heim frá Rangers eftir þjófnað í klefanum - Slegist á æfingum fyrstu árin hjá ÍBV - Fögnin og Slor og skítur skapaði stemmningu - Skoruðu alltaf jafnmikið og undirbúnu fögnin - Atli Eðvalds henti varamönnunum því þeir pöntuðu pizzu á bekkinn - Ók áfram fullur með lögguna hangandi á bílnum - Draumamarkið gegn Stuttgart - ÍBV bannaði honum að æfa því hann fór frítt til Hibernian - Allt tryllt þegar Walsall komst upp úr 2. deildinni - Bretum fannst hann illa klæddur - Sneri heim til ÍBV til að einbeita sér að námi - Nakinn á forsíðu Mannlífs - Dónaleg samskipti við Tómas Inga innan vallar en nánast í sleik eftir æfingu - Æskuvinur hans drullaði yfir hann í fyrsta leik KR í eyjum - Spjaldavesenið og atvikið með Reyni Leós - Aldrei séð 30 barða karlmenn eins og þegar hann tók við Víkingi - Aðstoðaði Þrótt í lokaleiknum í fyrra með Tómas Inga í eyranu

Fotbolti.net
Miðjan - Damir upplifði mikið heimilisofbeldi

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 21, 2020

Damir Muminovic lenti ungur í því að faðir hans yfirgaf fjölskylduna og hefur ekki átt neitt samband við hann síðan. Hann upplifði mikið heimilisofbeldi á sínum yngri árum og leitaði mikið í djamm. Í gegnum fótboltann náði hann svo góðri reglu á lífinu. Damir segir sögu sína í podcastþættinum Miðjan hér á Fótbolta.net í dag. Ekkert barn á að þurfa að þola ofbeldi eða verða vitni að ofbeldi. Allt ofbeldi á heimili þar sem börn dvelja, er jafnframt ofbeldi gagnvart börnum. Ef þú býrð við slíkar aðstæður eða þekkir eitthvert barn sem býr við slíkar aðstæður þá áttu að hafa samband við 112. Þar getur þú rætt málin við lögreglu í fullum trúnaði. Samband er haft við barnaverndarnefnd ef ástæða er til. Mikilvægt er að hafa samband þótt þú sért í vafa. Einnig er hægt að hafa samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða netspjallið 1717.is. 1717 er opið allan sólarhringinn og þar er hægt að ræða við sérþjálfaða ráðgjafa í nafnleynd og fullum trúnaði. Sjá meira á vef lögreglunnar Meðal efnis: - Æfa 2-3 saman úti á götu í dag - Berfættur í fótbolta í Serbíu - Pabbi hans lét sig hverfa í skjóli nætur og kom aldrei aftur - Flutti 10 ára til Íslands - Grenjaði á hverjum degi og vildi fara heim - Mikið heimilisofbeldi kærasta móður hans - Þorði ekki að hringja í lögreglu eða segja frá - Slóst við ofbeldismanninn tvítugur - Byrjaði ungur að drekka og oft settur í agabönn - Laug því að hann væri að vinna því hann nennti ekki á æfingu - Varð tengdasonur Óla Kristjáns og náði sér á strik - Fór til Breiðabliks tímabilið sem Óli hætti - Settur í agabann fyrir að fara edrú á Októberfest 2016 - Missti móður sína úr krabbameini 2017 - Eignaðist foreldra úr Blikafjölskyldunni - Vildi ekki gervigras en er mikill stuðningsmaður þess í dag - Pirrandi að Blikar misstu marga menn í fyrra - Miklar breytingar með komu Óskars Hrafns Þorvaldssonar - Nýja leikkerfið hjá Breiðabliki - Líður vel í Serbíu en vill ekki flytja þangað með börnin - Íhugaði að breyta nafninu í Damir Smári Muminovic

Lífsreynslusögur Vikunnar
Lífsreynslusögur Vikunnar

Lífsreynslusögur Vikunnar

Play Episode Listen Later Apr 19, 2020 48:54

Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Ég þekki ekki móðurástina:„Ég var aðeins þriggja ára gömul þegar mamma fór að láta höggin tala. Ég veit að ég mun aldrei gleyma því. Mamma stundaði vaxtarrækt af kappi og var þess vegna mjög líkamlega sterk. Uppeldið setti mark sitt á líf mitt en í dag stend ég uppi sem sterk og sjálfstæð kona.“ - Ástin kviknaði við fyrsta auglit:„Ég var yfir mig ástfangin og allt lék í lyndi frá mínum bæjardyrum séð. Einn daginn fékk ég óvænt að heyra nokkuð sem hafði djúpstæð áhrif á mig. Lífið breyttist á nokkrum mínútum og þetta umturnaði öllu.“ - Dulræna tengdamamman:„Ég bjó um tíma með manni sem hafði afar gaman af andlegum málefnum. Í sambúðinni við hann upplifði ég mína fyrstu „dulrænu reynslu“ en ég hefði eflaust átt að koma mér betur við mömmu hans sem bjó yfir dulrænum hæfileikum og stjórnaði syni sínum í gegnum þá.“ - Besta vinkona í heimi:„Ég kynntist frábærri konu á vinnustað mínum og við urðum samstundis góðar vinkonur. Eftir að ég hætti þar og fór í skóla héldum við áfram miklu og góðu sambandi. Svo fór allt að breytast.“- Leyndarmál mömmu:„Æska mín var á köflum mjög erfið. Pabbi hélt heimilinu í heljargreipum með skapsmunum sínum en eftir að þau mamma skildu gjörbreyttist hann til hins betra. Nokkrum árum seinna komst ég að leyndarmáli sem móðir mín hafði geymt lengi með sér.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.

Ekkert að frétta
16 - Mér líður óþægilega pabbi.

Ekkert að frétta

Play Episode Listen Later Feb 29, 2020 96:55

Fara á ströndina og liggja í sandinum á sundfötunum. Fara aftur í fötin þín seinna og sandurinn er inná þér út um allt. Það er óþægileg tilfinning. Þú hefur óþægilega nærveru.

Morgunútvarpið
3. feb. - Búseta, Sveppi og pabbi, kynfræðsla, flóttafólk og sport

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 3, 2020 130:00

Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Félagsstofnunnar stúdenta, kom til okkar og sagði okkur frá búsetuúrræði sem ætlað er að sporna gegn einsemd en þar er um að ræða 8-9 herbergja íbúðir þar sem hver og einn hefur sitt svefnherbergi og salerni en hópurinn deilir stofu og eldhúsi. Sjónvarpsmaðurinn Sveppi lagði upp í heilmikla reisu um heiminn og hafði pabba sinn Sverri Friðþjófsson með í för. Afraksturinn má sjá í nýjum sjónvarpsþáttum sem fara í loftið í vikunni og þeir feðgar litu til okkar í morgunkaffi og sögðu okkur frá ævintýrum sínum. Oft gleymist að ræða hinseginleika, fötlun og almennt um heilbrigð sambönd í kynfræðslu skólanna. Þetta segir Valgerður Hirst Baldurs, formaður Q, sem ætlar að varpa ljósi á það sem hefur gleymst í kynfræðslu í skólum í fyrirlestri sínum á Jafnréttisdögum Háskóla Íslands 2020 þar sem yfirskriftin er Kynfræðslan sem þú fékkst aldrei. Valgerður og Sigurður Ýmir Sigurjónsson hjúkrunarfræðinemi komu til okkar og ræddu þetta mál. Ákveðið var í gær af íslenskum stjórnvöldum að vísa ekki pakistanska drengnum Muhammed og fjölskyldu hans af landi brott í dag, en mikil reiði hafði brotist út á samfélagsmiðlum þegar fréttist af fyrirhugaðri brottvísun þeirra úr landi. Rúmlega 17 þúsund undirskriftum var safnað til stuðnings fjölskyldunni og þau Valur Grettisson og Ólöf Helga Jakobsdóttir komu og ræddu þetta en þau voru meðal þeirra sem börðust fyrir því að hætt yrði við brottvísunina. Við fórum yfir tíðindi af íþróttum helgarinnar þegar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson kom til okkar og þar kom Ofurskálin við sögu ásamt Liverpool o.fl. Tónlist: Ásgeir Trausti - Upp úr moldinni. KK - Frelsið. Jóna Alla Axelsdóttir - Svo birti aftur til. Kacey Musgraves - Space Cowboy. A-Ha - Cry Wolf. Harry Styles - Adore you. Nýdönsk - Lærðu að ljúga. Retro Stefson - Glow. Black Pumas - Colors.

Morgunútvarpið
3. feb. - Búseta, Sveppi og pabbi, kynfræðsla, flóttafólk og sport

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 3, 2020

Legvarpið
Pabbi Í Orlofi

Legvarpið

Play Episode Listen Later Jan 15, 2020 73:01

Ljósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þessum þætti fjalla þær um fæðingarorlof feðra og þátttöku þeirra í umönnun barna sinna fyrsta árið og árin. Umræðan teygist yfir í hinar ýmsu pælingar um staðalímyndir kynjanna, jafnrétti og menningu þegar kemur að barnauppeldi. Gestur þáttarins að þessu sinni er Keflvíkingurinn snjalli, Björn Geir Másson. Hann er búsettur í Bandaríkjunum ásamt eiginkonu sinni og 16 mánaða dóttur. Hann leiðir okkur í allan sannleikann um hlutverk sitt og daglegt líf sem heimavinnandi húsfaðir fjarri stuðningsneti vina og fjölskyldu. Björn Geir lumar á ýmsum góðum sögum og pælingum sem hann færir hlustendum með sínum einstaklega skemmtilega hætti. Upphafsstef: Stefanía Helga Sigurðardóttir

Fram og til baka
Fram og til baka 15 desember 2019

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Dec 15, 2019 114:00

Fram og til baka 15 desember 2019 Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins - Pabbi komdu heim um jólin, Kristín Lillendahl Viðtal - Sigga Eyrún og Karl Olgeirsson Ný plata sem heitir Jólaklukkur kalla og tónleikar í næstu viku Hlustendur tóku þátt í valinu á manneskju ársins á Rás 2 Viðtal - Már Gunnarsson frumflutti jólalagið Christmas comes with you Mikil vika hjá meistaranum Má Gunnarssyni. Hann var valinn íþróttamaður ársins hjá fötluðum og vann svo jólalagakeppni Rásar 2 ásamt Ísold systur sinni. Hann frumflutti nýtt jólalag í Fram og til baka. Það heitir Christmas comes with you Opna símann - fréttagetraun sigurvegari Franklín Grétarsson

Fram og til baka
Fram og til baka 15 desember 2019

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Dec 15, 2019

Vikulok Dr. Football - MLV kvödd, Emery rekinn og er pabbi tími mættur til Ronaldo?

Dr. Football

Play Episode Listen Later Nov 29, 2019 77:51

Doc, Mike og Höfðinginn tóku stöðuna.

Mjólkurbræður
29. "Mamma, Pabbi. Ég er Progg."

Mjólkurbræður

Play Episode Listen Later Aug 20, 2019 52:16

Næst seinasti þáttur Mjólkurbræðra og þeir ætla svo sannarlega að enda á toppinum. Það er að segja ef toppurinn er neðsti partur fjallsins! Hahaha! Allavega, þeir tala um koma út sem progg, réttar mælingar fyrir typpi og lenda í rifrildi um kollvikin sín. Mælingar þáttarins: Arnór: +0,5 cm Salómon: +2,3 cm Ástþór: +16.9 cm

Karfan
Off-season: Siggi Hjörleifs "Við eigum ekki að vera brjóta reglur"

Karfan

Play Episode Listen Later Jul 18, 2019 77:23

Nú fyrst að körfuboltatímabilið er í pásu ætlum við hjá Körfunni að taka fyrir nokkra stólpa innan körfuboltahreyfingarinnar. Þessir aðilar munu koma úr öllum áttum; þetta verða leikmenn, þjálfarar, stuðningsmenn, sjálfboðaliðar og fleiri sem munu ræða hvernig þeir koma að og þrífast í þessari móður allra íþrótta.Viðmælandi dagsins er Sigurðu Hjörleifsson, yfirleitt kallaður Siggi Hjörleifs. Siggi hefur verið í kringum körfuna á Íslandi í fjöldamörg ár og hefur marga fjöruna sopið. Hann ræðir synina sína, Matthías Orra og Jakob, hans eigin leikmanna- og þjálfaraferil og minnist líka á Íslandsmet sem að hann á utan körfuboltans. Siggi hefur á seinni hluta ferilsins síns einbeitt sér að því að vera umboðsmaður fyrir erlenda körfuboltaleikmenn. Hann hefur komið með helling af stórum nöfnum til landsins og þar má nefna menn eins og Brenton Birmingham, Darrell Lewis og Justin Shouse. Hann þjálfaði '82 landsliðið fræga, gerði kvennalið Breiðabliks að Íslandsmeisturum fyrir aldamótin og hefur byggt upp körfubolta á fjölmörgum stöðum á Íslandi. Undir lokin förum við um víðan völl og tölum m.a. um hvernig körfuboltinn hér á landi er einmitt núna og hvert hann stefnir. Njótið vel!Umsjón: Helgi Hrafn ÓlafssonGestur: Siggi Hjörleifsson00:00:15 - Bankað upp á hjá Sigga00:01:40 - KR-ÍR sérían og meiðsli Matta00:03:45 - Synir Sigga sameinast í KR00:07:15 - Upphaf körfuboltans hjá Sigga00:10:20 - Íslandsmet Sigga utan körfubolta00:12:20 - Leikmannaferillinn00:15:10 - Þjálfaraferillinn00:18:10 - '82 landsliðið00:23:00 - Breiðablik rís með Sigga00:29:05 - Pabbi að þjálfa strákana sína (og Martin Hermanns)00:35:25 - Umboðsmaðurinn Siggi00:47:40 - "Þetta er dirty business."00:56:50 - Bosman-reglan og ungir íslenskir leikmenn01:04:15 - Hvar stendur íslenska karfan?01:10:30 - Hvað kemur þér áfram í atvinnumennskunni?01:15:40 - Gildi Sigga

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
Pilot: Topp 5 að vera pabbi - Sápuópera í Hraunbæ - og Megrunarkúrar: Með og á móti -#1

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Jun 10, 2019 57:37

Fyrsti þáttur í Hæ hæ! podkasti Helga og Hjálmars.Í þættinum er farið í gegnum:Pub-Quiz: Hver er mest seldi bjór í heimi?Leikþáttur: Sápuópera í HraunbæTopp 5 að vera pabbiMeð og á móti megrunarkúrum

Rokkland
Kacey Musgraves og Júníus Meyvant

Rokkland

Play Episode Listen Later Feb 17, 2019 115:00

Kacey Musgraves sem nældi sér í fern Grammy verðlaun á Grammy hátíðinni fyrir viku er til umfjöllunar í Rokklandi vikunnar og Júníus Meyvant kemur í heimsókn. Kacey Musgraves er fædd og alin upp í bænum Golden í Texas. Pabbi hennar rekur lítið prentfyrirtæki og mamma hennar er myndlistarmaður. Kacey er fyrirburi, fæddist 6 vikum fyrir tímann og var bara 5 merkur þegar hún kom í heiminn, en hefur heldur betur spjarað sig þrátt fyrir það. Hún var ekki nema 8 ára þegar hún byrjaði að setja saman lög og til að byrja með samdi hún á Mandolín sem var hennar fyrsta hljóðfæri, en 12 ára byrjaði hún að læra á og spila á gítar. 18 ára stieg hún fyrstu skrefin inn í kántríheiminn og byrjaði að taka upp demó til að koma sér á framfæri. Og á sama tíma keyrði mamma hennar henni milli bæjarhátíða í Texas þar sem hún fék að troða upp. Og þessi hæfileikaríka kántrístelpa, Kacey Musgraves, nældi sér í fern Grammy verðlaun á hátíðinni um síðustu helgi og þar á meðal voru ein aðal verðlaunin; Plata ársins. Við kynnumst Kacey Musgraves í Rokklandi í dag. Í seinni hlutanum kemur Júníus Meyvant frá Vestmannaeyjum í heimsókn og við tölum um lífið og tilveruna og nýju plötuna hans, Across the Borders, sem er alveg stórfín. Júníus sem heitir Unnar Gísli talar um lífið í eyjum, rifjar upp minningar frá því hann var lítill strákur í skóla í Vestmannaeyjum og segir frá lögunum sínum.

Rokkland
Kacey Musgraves og Júníus Meyvant

Rokkland

Play Episode Listen Later Feb 17, 2019

Málið er
„Getur verið að þú sért pabbi minn?“

Málið er

Play Episode Listen Later Feb 1, 2019

Í þættinum í dag heyrum við sögur tveggja einstaklinga sem á óvæntan hátt fundu blóðfeður sína á fullorðinsárum. Sögurnar eru ólíkar en samt er margt líkt með þeim. Hrafnhildur S. Mooney vissi alltaf að hún ætti pabba í Ameríku en pældi ekkert sérstaklega í því - og hitti hann ekki fyrr en fyrir tæpum tíu árum síðan og um leið stækkaði fjölskylda hennar töluvert. Aron Leví Beck var átján ára þegar maðurinn sem hann taldi vera föður sinn fór fram á faðernispróf, sem leiddi hann í sannleikann um að sá sem hann taldi hafa verið föður sinn frá fæðingu var það ekki. Hann fann föður sinn og sex tónelsk systkini. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir Viðmælendur: Aron Leví Beck, Hrafnhildur S. Mooney og Rúnar Þór.

Dagvaktin
Bíddu pabbi í Þekjunni - vímuefni og gjaldþrot í hljóðsneiðinni

Dagvaktin

Play Episode Listen Later Feb 20, 2018

Dagvaktin 20 feb. 2018 Björgvin Halldórs - Himinn og jörð Choir of young belivers - Hollow talk Justin Timberlake - Say something ft. Chris Stapleton Taylor Swift - Style Tears for fears - Head over heels P.J. Harvey & Harry Escott - An acre if land Between Mountains - Into the dark Britney Spears - Till the world ends Saga - Careful where you step Elbpow - Golden Slumbers Hljóðsneið dagsins - Rick James - Superfreak/MC Hammer - U Cant touch this Heimilistónar - Kúst og fæjó - Söngvakeppnin 2018 Gus Gus - No Manual - Kynning (plata vikunnar 2018 8. vika) Gala - Freed from desire Simon and Garfunkel - Homeward bound 14:00 Raghildur Gísladóttir - Hvað um mig og þig Nirvana - Come as u are Veronica Maggio - 20 Questions The Weend & Kendrick Lamar - Pray for me Chvrches - Get Ou Áttan - Hér með þér Lenny Kravitz - Fly away Þriðudagsþekjan - Daniel Boone - Daddy Dont You Walk So Fast/Vilhjálmur Vilhjálms - Bíddu Pabbi Bríet - In to deep Gus Gus - Fireworks - Kynning (plata vikunnar 2018 8. vika) Beatles - Eleanor Rigby 15:00 Bjartmar Guðlaugs - Sumarliði er flúinn Rihanna - Dont stop the music Asia - Heat of the moment Kylie Minogue - Dancing Future Islands - Seasons Calexio - Under the wheels Bobby Fuller four - i fought the law Valdimar og Thorlacius - Ást fyrir tvo Aron Hannes - Golddigger - Söngvakeppnin 2018 Hatchie - Sure Páll Óskar - Er þetta ást MGMT - Me and Michael Crickets - They call her La Bamba

Fílalag
(You Make Me Feel Like A) Natural Woman – Að finna til legsins

Fílalag

Play Episode Listen Later Oct 30, 2015 53:49

Aretha Franklin eignaðist sitt fyrsta barn þegar hún var rúmlega fjórtán ára. Þegar hún var 21 árs var hún þriggja barna móðir. Pabbi hennar var predikari. Hún fæddist í suðrinu en ólst upp í Detroit. Rödd hennar spannar Ameríku; Gleðina, þjáninguna, eplapæið á gluggakistunni, tækifærin, þöggunina. (You Make Me Feel Like a) Natural Woman verður […]