Lífsreynslusögur með Guðrúnu Óla Guðrún Óla blaðamaður hjá Vikunni, les upp lífsreynslusögur sem sendar hafa verið inn í blaðið í gegnum tíðina, en hér er sannleikurinn lyginni líkastur! Ekkert er gefið eftir og sögurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar. www.vikan.is See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Fátæka konan:„Eitt sinn vann ég með konu sem bar sig illa í vinnunni vegna fátæktar og tókst að hafa gott af fyrirtækinu fyrir vikið. Löngu síðar lenti ég í því sjálf að vera ranglega ásökuð um svipað en öllu verra athæf.“- Skelfilegur stjúpi:„Ég var að verða fimm ára þegar móðir mín fór að búa með manni. Frá upphafi var honum illa við mig og sýndi það á allan hátt. Hann hefur ekki bara eyðilagt samband mitt við mömmu, heldur líka við föður minn.“- Allt betra en sannleikurinn?:„Hjónaband mitt var sérlega gott, hélt ég, en ef ekki hefði verið fyrir frétt sem ég sá í sjónvarpinu lifði ég kannski enn í þeirri blekkingu.“- Samþykki ömmu:„Þegar ég kynnti ungan mann fyrir ömmu beið ég spennt eftir samþykki hennar en fékk það ekki þótt ég vissi að henni líkaði ágætlega við hann. Amma var eins konar véfrétt í fjölskyldunni og mér fannst álit hennar skipta öllu máli.“- Lærdómsrík vinátta:„Eitt sinn átti ég vinkonu sem ég umgekkst talsvert mikið. Hún hafði mikla þörf fyrir að sýna yfirburði sína á flestum sviðum sem var í lagi mín vegna því ég hafði yfirleitt bara gaman að þessu. Óvænt eyðilagði þessi þörf hennar þó vináttu okkar.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Með öllum ráðum:„Foreldrar mínir bjuggu saman í nokkur ár en fóru hvort í sína áttina þegar ég var í kringum fimm ára. Sambandið við pabba eftir skilnaðinn var mjög gott og ég naut þess að hitta hann. Þegar hann fór að vera með annarri konu, minnkaði samband okkar mikið en konan leit á mig sem ógn og reyndi með öllum ráðum að halda pabba frá mér.“- Tíðahvörf ... eða kannski ólétta?:„Ég var farin að nálgast fertugt þegar ég fór til spákonu ásamt vinkonu minni. Það sem hún sagði við mig var fáránlegt og olli okkur vinkonunum hláturskasti. En svo fóru spádómarnir að rætast hjá okkur báðum.„Hún hristi höfuðið og sagðist sjá þrjú börn sem ég ætti sjálf. Hún talaði einnig um breytingar í vinnunni hjá manninum mínum og að yngri dóttirin myndi fara að læra eitthvað allt annað en hún hafði stefnt markvisst að árum saman.“ “- Froskurinn sem breyttist í prins:„Eftir skilnað við eiginmann minn til fimmtán ára kynnist ég manni sem ég var mjög hrifin af. En fyrri reynsla varð sennilega til þess að nýja sambandið stóð ekki lengi. Sá maður var vissulega ljúfur en það vantaði í hann alla drift og dugnað. Löngu seinna hittumst við og þá hafði orðið algjör viðsnúningur á lífi hans, vægast sagt.“- Sérkennilegur skólabróðir:„Ég var svo heppin að fá að fara í heimavistarskóla þótt ég byggi nánast í næsta húsi við ágætan menntaskóla í borginni. Á heimavistinni eignaðist ég marga góða vini sem ég á enn. Einn í hópnum var nokkuð sérstakur en hann hafði mikla þörf fyrir að vera öðruvísi en aðrir. Ég kalla hann Boga í þessari frásögn.“- Hið fullkomna hjónaband:„Ég hef verið gift tvisvar og skildi í bæði skiptin eftir að hafa gefist upp á eiginmönnunum. Ég er kannski ekki mesti mannþekkjari í heimi en ég taldi eitt öruggt í þessum heimi og það væri hið fullkomna hjónaband kunningjafólks míns.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Þráði að kynnast systkinum mínum:„Það hefur haft áhrif á allt mitt líf að ég var rangfeðruð. Ég var orðin fjórtán ára þegar mamma og pabbi viðurkenndu loks að ég ætti annan föður en þá hafði ég sífellt fengið að heyra frá fólki að pabbi ætti ekkert í mér. Ég hitti kynföður minn löngu seinna og enn síðar ákvað ég að hafa samband við hálfsystkini mín sem höfðu ekki haft hugmynd um tilvist mína.“- Óvænt vinslit:„Eftir að vera orðin edrú eftir margra ára óreglu eignaðist ég vinkonu sem ég taldi trausta og góða. Það tók mig mörg ár að sjá hvernig hún var í raun og veru og eftir á skildi ég ekkert í sjálfri mér fyrir að leyfa henni að koma svona fram við mig eins og hún gerði.“- Svona hefði líf mitt orðið ... :„Ég upplifði einstaka stund í brúðkaupsveislu sonar míns og fékk eins konar hugljómun um það hvernig líf mitt hefði orðið ef ég hefði ekki tekið afdrifaríka ákvörðun sem fór vægast sagt illa í fólkið í kringum mig..“- Úlfur í sauðargæru:„Ég hef búið í útlöndum frá unglingsaldri en lít þó alltaf á mig sem Íslending. Íslendingum hef ég einhvern veginn treyst betur en öðrum en fyrir mörgum árum fór ég flatt á því að treysta íslenskum manni sem var traustsins ekki verðugur.“- Stelsjúka frænkan:„Mamma mín og Ragna frænka voru fæddar með sextán mánaða millibili. Þetta gerði þær ákaflega nánar og í æsku voru þær aldar upp eins og tvíburar. Þær voru í eins fötum hvor í sínum litnum, voru settar í sömu tómstundir og eiginlega allaf gert ráð fyrir að þær hefðu sömu áhugamál. Mamma elskaði Rögnu systur sína en þegar systurdóttir hennar reyndist illa sjúk varð hún að velja og hún valdi mig.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Ást í meinum:„Sumarið sem ég varð nítján ára var ég döpur og vonsvikin. Ég hafði staðið mig illa í námi um veturinn og fannst að ég hefði klúðrað framtíðarmöguleikum mínum á að menntast. Mamma mín og pabbi voru líka að skilja og ég skammaðist mín fyrir það. Þegar mér bauðst mér að fara til Austurríkis og það fannst mér vera himnasending og tækifæri til þess að flýja ömurlegt líf mitt hér heima. Ég hafði ekki hugmynd um að innan skamms yrði ég ástfangin og depurð og iðrun vegna þeirrar ástar ætti eftir að fylgja mér nánast ævina enda.“- Gallagripur í hamingjuleit:„Þegar ég stóð í skilnaði í fyrsta skipti átti ég samúð vina og ættingja. Fólk kom gjarnan til mín og sagði mér hversu leitt það væri vegna þess að hjónabandið gekk ekki upp og var óspart á ráðleggingar. Þegar ég skildi við eiginmann númer tvö fékk ég allt öðruvísi viðbrögð og ég varð vör við gífurlega fordóma. Vinir og ættingjar veltu því fyrir sér hvað væri að mér og af hverju í ósköpunum ég gæti ekki haldist í hjónabandi. Skilaboðin sem ég fékk voru þau að ég hlyti að vera hinn mesti gallagripur.“- Óvæntir endurfundir:„Ég kynntist Sigrúnu þegar ég var 17 ára. Við vorum jafnöldrur, en ástæðan fyrir því að við kynntumst var sú að hún fór að vera með yngri bróður mínum. Sigrún varð strax góð vinkona mín og við urðum mjög nánar.“- Fiðrildið, dóttir mín:„Ég elska dóttur mína og hef alltaf haft lúmskt gaman af því hvernig hún lifir lífinu. Þrátt fyrir að hún sé alin upp á ofurvenjulegu heimili af mjög svo hversdagslegum foreldrum hefur litríkur persónuleiki hennar og val í lífinu ævinlega verið á skjön við hið hefðbundna. Helst dettur mér í hug að einhvers staðar í ættum okkar leynist ævintýrakvendi og gen hennar hafi öll safnast í þessa stúlku sem fer sínar eigin leiðir þvert á almenningsálitið.“- Kletturinn minn:„Ég og maðurinn minn rugluðum ekki saman reytum fyrr en eftir margra ára vinskap. Vinir mínir skildu ekkert í vináttu okkar tveggja í fyrstu, þeim þótti Jonni hálfskrítinn, að minnsta kosti frekar sérstakur og líkur mér, en þeir hefðu þá átt að kynnast tengdaforeldrum mínum og mági.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Vegalaus á Þorláksmessukvöld:„Eftir að pabbi dó breyttust samskipti mín við mömmu. Ég var ósátt við hvernig hún deyfði sorgina með róandi lyfjum en batt þó vonir við að allt breyttist til hins betra þegar hún kynntist manni nokkrum árum eftir lát pabba.“- Varð að hafna systur minni:„Við systurnar höfum gengið í gegnum súrt og sætt saman og oftast stóðum við hvor með annarri þegar lífið lék okkur grátt. Hún hefur hins vegar stóra skapgerðargalla sem á endanum urðu til þess að ég varð að slíta öllu sambandi við hana.“- Uppi á röngum tíma:„Ég var orðin nokkuð fullorðin þegar ég áttaði mig á því að mamma var aldrei mikið fyrir börn. Hún reyndi að rækta hlutverk sitt sem heimavinnandi húsmóðir og móðir en leið sennilega afar illa í því sem bitnaði illilega á fjölskyldunni.“- Ótrúlegur blekkingarleikur:„Ég skildi við fyrri manninn minn seint á tíunda áratug síðustu aldar og var ekkert að flýta mér í annað samband. Ég ætlaði að byggja upp gott líf fyrir mig og dætur mínar tvær. Þetta var ekki auðvelt og einstæðar mæður hafa það sjaldan gott. Þegar ég kynntist Sigurði taldi ég mig hafa fundið ábyrgan og öruggan mann. Hann hafði farið í meðferð en var ákveðinn í að halda sér edrú og sagði mér að öll óregla væri að baki.“- Hryllilega vont en þess virði:„Margir hafa heyrt alls kyns hryllingssögur af fegrunaraðgerðum sem hafa mistekist og í mörgum tilfellum eru þær sjálfsagt sannar. Hins vegar heppnast meirihluti slíkra aðgerða vel og sjúklingarnir eru ánægðir með árangurinn. Ég er ein af þeim.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Hress og harðdugleg ... : „Ég stjórna fyrirtæki sem er starfrækt yfir vetrartímann. Eitt haustið, annað árið mitt sem yfirmaður, réði ég hressa og harðduglega konu sem öllum líkaði vel við. Hún reyndist þó ekki öll þar sem hún var séð og kenndi mér dýrmæta lexíu.“- Hættuleg gestrisni:„Ég bjó í Danmörku í nokkur ár þar sem ég var í námi. Einn daginn kynntist ég ljúfri konu og okkur varð vel til vina. Líf hennar hafði ekki verið auðvelt en hún var samt alltaf glöð og einnig gestrisnasta manneskja sem ég hef nokkurn tíma kynnst.“- „Það verður mikið úr dóttur þinni“:„Nokkrum árum áður en ég stofnaði fjölskyldu fór ég til spákonu sem sagði mér sitt af hverju merkilegt. Margt af því sem hún sagði kom fram en ég var búin að steingleyma því öllu þar til nýlega þegar ég fann óvænt miða sem ég hafði hripað niður spádóminn á.“- Brúður á flótta:„Ég er þrígift og hef skilið þrisvar. Vinir mínir gera stundum góðlátlegt grín að ástamálum mínum og kalla mig „runaway bride“ eftir bíómyndinni. Ég hef svo sem ekki hlaupið frá neinum við altarið, það tók mig alltaf einhver ár að fá nóg. Frá barnæsku lét ég allt yfir mig ganga, byrgði sárindin og reiðina innra með mér þangað til ég sprakk með látum.“- Fyrstu góðu jólin:„Ég var orðin unglingur þegar ég var loks tekin út af heimili mínu og komið fyrir hjá ókunnugum. Þar kynntist ég eðlilegu lífi og átti mín fyrstu alvörujól.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Þrjú skilyrði:„Ég fylltist eldmóði þegar ég las sjálfsræktarbók og fór að reyna að laða til mín tækifæri, eins og kennt var þar. Ástin var ofarlega á blaði en ég hefði mátt forma óskir mínar aðeins betur ...“- Óþægilegur „aðdáandi“:„Ég bjó árum saman í frekar stórum kaupstað á landsbyggðinni með manninum mínum. Dætur okkar voru uppkomnar og sú yngri tiltölulega nýflutt að heiman þegar ég eignaðist „aðdáanda“, mann sem lét mig ekki í friði.“- Eini sonurinn:„Móðir mín hélt afar mikið upp á bróður minn, svo mikið að hún viðurkenndi eitt sinn þegar hún óttaðist um hann og var í mikilli geðshræringu að hún vildi frekar missa eina af okkur systrunum en einkasoninn.“- Sviphreini nágranninn:„Eitt sinn bjó ég í sama húsi og indælis fjölskylda. Mér líkaði sérstaklega vel við manninn sem var opinn, glaðlegur og virtist sérlega ljúfur en konan hans var hlédræg og feimin. Eftir að ég flutti frétti ég ekkert afþeim fyrr en ég las blaðagrein sem góði granninn skrifaði og í kjölfarið kom margt í ljós sem kom mér mjög á óvart.“- „Hún er svo heimsk, greyið“:„Um nokkurra ára skeið bjó ég í kaupstað á landsbyggðinni. Ég kynntist þar skemmtilegri ungri konu, Sólrúnu, sem átti þó ekki upp á pallborðið hjá bæjarbúum vegna þess að hún skar sig úr. Var opin og einlæg og í raun allt of lífsglöð miðað við aðstæðurnar í lífi hennar.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Tíu daga martröð:„Fyrir löngu síðan kynntist ég manni sem ég varð afskaplega hrifin af, svo hrifin að ég þáði með þökkum boð hans um að fara með honum í sumarbústað.“- Yfirgangssamir vinir:„Foreldrar mínir keyptu sér sumarbústað og þá bauðst mér og fjölskyldu minni að nota hann þegar hann var laus sem var mjög oft. Ég átti þó alls ekki von á því að vinafólk mitt myndi smám saman nánast leggja undir sig bústaðinn og okkur fjölskylduna.“- Óvænt vinslit:„Þegar tvær góðar vinkonur mínar eignuðust maka með stuttu millibili breyttist framkoma þeirra í minn garð og innan árs voru þær hættar að tala við mig.“- Bíræfinn bóndi:„Þegar ég var um tvítugt vissi ég ekki hvað mig langaði að gera við líf mitt. Mér fannst ég þurfa að breyta algjörlega til og í einhverju bríaríi svaraði ég auglýsingu um ráðskonustarf í sveit.“- Þó andvarans söngrödd sé þögnuð …:„Ég átti kærasta í tæpt ár og var mjög hrifin af honum. Hann var sérlega náinn fjölskyldu sinni sem mér fannst kostur en fyrir rest var mér farið að finnast það stór galli.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Hvern ertu að reyna að sannfæra?:„Þegar systir mín gifti sig var ég viss um að samband hennar við mann sinn yrði farsælt, svo ástfangin voru þau og tilbúin til að verja lífinu saman. Þrjátíu árum síðar virtist allt vera í lukkunnar velstandi en svo heyrði ég samtal á milli hennar og vinkonu hennar.“ - Kaldlynd vinkona:„Að missa ástvin er hluti af lífinu og huggunin er ekki síst fólgin í fólkinu í kringum mann sem styður og styrkir og hjálpar við að komast yfir sorgina. Vinkona mín til fjölda ára sýndi af sér undarlega framkomu þegar sameiginleg vinkona okkar upplifði sáran missi og síðar ég.“ - Allt of seint:„Ég er elst af fjórum systkinum og man því vel eftir því þegar faðir okkar yfirgaf okkur. Hann skildi ekki bara við mömmu, heldur einnig okkur börnin sín. Löngu seinna, þegar við vorum orðin uppkomin og nutum öll velgengni, vildi hann taka upp samband við okkur.“- Ofverndandi amma:„Lífið var oft erfitt hjá vinkonu minni en þegar hún kynntist góðum manni og eignaðist með honum barn hélt ég að nú yrði allt gott. Mér skjátlaðist.“ - Neydd í umgengni:„Fyrir fjölmörgum árum var mér og litla bróður mínum bjargað út af miklu óregluheimili og við sett í fóstur. Við höfðum þurft að þola það sem ekkert barn á að þurfa að þola en þrátt fyrir að vera komin í fóstur, vorum við ekki alveg sloppin.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Tíu daga martröð:„Fyrir löngu síðan kynntist ég manni sem ég varð afskaplega hrifin af, svo hrifin að ég þáði með þökkum boð hans um að fara með honum í sumarbústað.“ - Yfirgangssamir vinir:„Foreldrar mínir keyptu sér sumarbústað og þá bauðst mér og fjölskyldu minni að nota hann þegar hann var laus sem var mjög oft. Ég átti þó alls ekki von á því að vinafólk mitt myndi smám saman nánast leggja undir sig bústaðinn og okkur fjölskylduna.“- Óvænt vinslit:„Þegar tvær góðar vinkonur mínar eignuðust maka með stuttu millibili breyttist framkoma þeirra í minn garð og innan árs voru þær hættar að tala við mig.“- Bíræfinn bóndi:„Þegar ég var um tvítugt vissi ég ekki hvað mig langaði að gera við líf mitt. Mér fannst ég þurfa að breyta algjörlega til og í einhverju bríaríi svaraði ég auglýsingu um ráðskonustarf í sveit.“- Þó andvarans söngrödd sé þögnuð …:„Ég átti kærasta í tæpt ár og var mjög hrifin af honum. Hann var sérlega náinn fjölskyldu sinni sem mér fannst kostur en fyrir rest var mér farið að finnast það stór galli.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Undarlegt tilboð:„Fyrir nokkru lenti ég í furðulegri reynslu þegar maður sem ég hafði aldrei hitt og þekkti bara í gegnum Facebook, gerði mér tilboð sem honum fannst greinilega að ég gæti ekki hafnað. Einhverju síðar fór eldri maður að gera hosur sínar grænar fyrir mér á ansi óþægilegan hátt.“ - Á einhverfurófi:„Allt frá því ég var barn hef ég þurft að bera ábyrgð á systur minni. Hún rakst illa í hópi eins stundum er sagt, þótti sérstök og var því alltaf höfð út undan. Mamma ætlaðist til að ég sæi um hana, tæki hana með í afmæli og seinna partí sem mér var boðið í og að ég stæði stöðugt í að breiða yfir mistök hennar og bæta fyrir þegar upp úr sauð milli hennar og hinna krakkanna. Þegar hún var greind á einhverfurófi ríflega fertug skýrði það margt en gerði hana sannarlega ekki auðveldari í umgengni.“ - Fíklarnir í lífi mínu:„Frá æsku stefndi ég að því að mennta mig og gera eitthvað mikið úr lífi mínu en strax í menntaskóla breyttist það. Ég sé þó ekki eftir neinu því ég er bæði reynslunni og yndislegum börnum ríkari.“- Draumurinn varð að martröð:„Eftir að hafa búið og starfað árum saman sem kennari og síðar skólastjóri á litlum stað á landsbyggðinni flutti ég, ásamt manni mínum og dóttur, í mun stærri bæ. Mig hafði dreymt um að verða „bara kennari“ á nýjan leik og hlakkaði til rólegra lífs. Sú varð nú aldeilis ekki raunin.“ - Ég veit ekki hvað kom yfir mig!:„Vinkona mín skildi ýmsa eftir í sárum þegar hún tók vanhugsaða ákvörðun. Hún áttaði sig á mistökunum nánast strax en of seint.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Hún bara veit …„Systir mín sér lengra en nef hennar nær og til eru margar sögur af henni og hugboðum hennar. Fyrr á árinu lenti hún í atviki en skjót viðbrögð hennar björguðu henni án efa frá vandræðum.“ - Óvænt umbreyting:„Besta vinkona mín frá barnæsku barðist lengi við offitu. Hún náði stundum að léttast mikið en var ekki lengi að bæta öllum aukakílóunum á sig aftur þegar kúrnum lauk. Fyrir nokkrum árum tókst henni að komast í kjörþyngd og halda henni en í leiðinni gjörbreyttist persónuleiki hennar.“ - Mamma breyttist við skilnaðinn:„Þegar ég var ellefu ára skildu foreldrar mínir. Pabbi hafði kynnst annarri konu og kom heim einn daginn og tilkynnti að hann væri farinn. Skiljanlega var þetta mömmu gríðarlegt áfall en það var bókstaflega eins og hún klikkaðist. Enn í dag á ég erfitt með að fyrirgefa henni margt af því sem gerðist fyrst eftir það.“ - Örlagarík áreitni:„Einn veturinn fyrir mörgum árum fékk ég vinnu við kennslu úti á landi. Eftir að ég var flutt aftur í bæinn heyrði ég að kjaftasögur hefðu grasserað um ásókn mína í giftan mann á staðnum. Sannleikurinn er hins vegar gjörólíkur sögunni og áreitnin sem átti sér stað reyndist mér ansi örlagarík.“ - Á síðasta snúningi?:„Lífið var svolítið tómlegt eftir skilnað við manninn minn til fimmtán ára. Sonur okkar kaus að verða eftir hjá pabba sínum en var afar duglegur að heimsækja mig. Ég var alveg opin fyrir nýju sambandi en að finna góðan mann til að verja lífinu með reyndist ekki auðvelt.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Ógeðslegi karlinn á efri hæðinni:„Ég var erfiður unglingur. Milli okkar mömmu ríkti stríð sem lauk með því að hún rak mig að heiman. Fyrst á eftir reyndi ég að búa hjá pabba en fór fljótlega að leigja. Leigusalinn bjó á efri hæðinni og fljótlega komst ég að því að hann ætlaðist til að fá ýmislegt fleira en peninga fyrir íbúðina.“ - Þögul fyrirlitning:„Þegar við rugluðum saman reytum, ég og seinni maðurinn minn, höfðum við bæði verið í sárum í nokkur ár eftir makamissi. Börnin mín tvö tóku sambandi okkar vel en ekki er hægt að segja það sama um dóttur mannsins míns.“- Leynihólfið í skrifborðinu:„Ég hef oft sagt að konurnar í fjölskyldu minni séu ekkert sérlega heppnar í ástum, það er að ömmu undantekinni. Hún og afi hafa átt dásamlegt samband í yfir fimmtíu ár en mamma, móðursystur mínar, systur mínar og ég höfum allar lent í alls konar uppákomum með alla vega karla. Nýlega komst ég þó að því að ekki var allt sem sýndist í hjónabandi afa og ömmu.“ - Veit ekki hvort ég get fyrirgefið honum:„Þegar bróðir minn var barn að aldri var hann hvers manns hugljúfi. Eftir að hann fullorðnaðist breyttist hann til hins verra og ég hef núorðið lítinn áhuga á að vera í samskiptum við hann. Í raun engan eftir að hann fór illa með dóttur mína.“ - Ókunnugleg hljóð um miðja nótt:„Fyrir mörgum árum var ég næturvörður í fyrirtæki hér í Reykjavík. Ég var í námi á daginn og það hentaði ágætlega að taka fjórar slíkar vaktir í röð og eiga síðan frí í sex daga. Þetta var þægileg vinna og ég gat lært á nóttunni. En mér varð ekki um sel þegar ég fór að heyra undarleg hljóð í byggingunni og verða var viðýmislegt sem ekki verður fyllilega skýrt á jarðbundinn hátt.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Ég er ekki að leita að karli:„Fyrir fjórum árum skildi ég við manninn minn. Ég komst að því að hann hafði haldið fram hjá mér um tveggja mánaða skeið. Konan var fyrrverandi kærasta hans og þetta var gríðarlegt áfall. Mér fannst eins og allt okkar hjónaband hefði verið lygi, eitthvert millibilsástand meðan hann biði eftir að hún losnaði. Ég var því mjög brotin og kærði mig sannarlega ekki um sambönd við aðra karlmenn en þeir létu mig ekki í friði.“- Draugagangur í nýrri íbúð:„Við fluttum í nýju íbúðina okkar á sólríkum sumardegi. Veðrið endurspeglaði gleði okkar og tilhlökkun því þetta var fyrsta heimilið sem við hjónin áttum sjálf. Dóttir okkar var yfir sig spennt að eignast sérherbergi eftir að hafa þurft að kúldrast með bróður sínum í pínulítilli kompu. Þarna var stór draumur að rætast en hann átti eftir að breytast í martröð.“- Níska fer illa með vináttu:„Ég á vinkonu sem ég hef þekkt í bráðum aldarfjórðung. Villa er orðheppin og gaman að skemmta sér með henni. En eftir að ég spjallaði við gamla vinkonu hennar gat ég loks almennilega fest fingur á það sem orsakar að ég hef lengi verið svolítið á verði gagnvart henni.“ - Ég fyrirgaf mömmu stjórnsemina:„Mamma var alltaf stóri og sterki aðilinn í minni fjölskyldu. Það var sama hvað gekk á það datt aldrei af henni né draup. Þessi styrkur mömmu fór oft í taugarnar á mér, enda fylgdi honum stjórnsemi sem gat gengið út í öfgar. Rétt áður en mamma dó í fyrra skildi ég loks hvað henni hafði gengið til og ég fyrirgaf henni stjórnsemina.“ - Mamma hans neitar að fyrirgefa mér:„Ég og barnsfaðir minn kynntumst á síðasta ári í menntaskóla og fórum að búa saman þegar við hófum háskólanám. Við eignuðumst son í miðju námi og nutum mikillar hjálpar frá fjölskyldu hans. Fyrir fjórum árum skildum við vegna framhjáhalds míns en tókum saman aftur níu mánuðum síðar. Við höfum farið til ráðgjafa og erum mjög hamingjusöm en mamma hans getur ekki fyrirgefið mér fyrri syndir.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Undarlegir endurfundir:„Þegar ég var unglingur gætti ég um tíma barna fyrir konu sem þótti skrautleg og skar sig úr í bænum þar sem við bjuggum. Löngu síðar lágu leiðir okkar saman aftur og þá hafði margt breyst.“ - Jólin með mínum fyrrverandi:„Á jólunum fyrir þremur árum var ég óhamingjusamari en ég hafði nokkru sinni verið áður. Ég vissi að hjónabandi mínu var lokið. Sambandið var einfaldlega búið, allt dautt á milli okkar. Mér hafði liðið illa lengi en ekki haft hugrekki til að taka skrefið. Jólin voru alltaf uppáhaldsárstíð hjá mér en alein inni á klósetti eftir miðnætti á gamlárskvöld tók ég ákvörðun um að skilja. Hið undarlega er að bestu jól ævi minnar eru nýliðin og ég varði þeim einmitt með þessum sama manni.“ - Mamma spillti sambandi okkar systra:„Við vorum bara tvær systurnar. Agnes þremur árum yngri en ég. Mamma hélt því fram að ég hefði verið afbrýðisöm út í systur mína alveg frá því að hún fæddist. Ég vil hins vegar ekki kannast við að hafa nokkru sinni fundið fyrir öfund í garð hennar en viðbrögð mömmu ýttu ævinlega undir samkeppni og reiði milli okkar.“- Guðsgjöf til mannkyns … :„Þegar langþráður sonur bættist við fjölskylduna fundum við systurnar fjórar vel fyrir því. Látlaust eftirlæti foreldra og annarra ættingja hafði án efa einnig mikil áhrif á bróður minn og ekki til góðs. Hann hefur alla tíð vitað allt betur en aðrir og kunnað að ná sínu fram með samblandi af sjarma og frekju.“- Vonda stjúpan – góða stjúpan:„Ófá ævintýri fjalla um vondar stjúpur sem láta einskis ófreistað til að gera stjúpbörnum sínum lífið leitt, jafnvel koma þeim fyrir kattarnef. Hans og Gréta, Mjallhvít og Öskubuska koma strax upp í hugann. Sjálf hef ég upplifað að eiga stjúpu, alls ekki af betri gerðinni, og undanfarin ár hef ég verið stjúpmóðir tveggja drengja.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Með grátstafinn í kverkunum í tvö ár:„Ég var 23 ára og hafði nýlokið háskólaprófi með góðum árangri. Ég taldi mig færa í flestan sjó og eiga bjarta framtíð fyrir mér. Okkur hjónin langaði að eignast barn og það varð úr að við ákváðum að þessi tímamót hentuðu vel til að stofna fjölskyldu. Allan meðgöngutímann var ég fílhraust og blómstraði. Allar konurnar í minni fjölskyldu höfðu átt auðvelt með að eignast börn og ég sá ekki nokkuð því til fyrirstöðu að eins yrði um mig.“- Tók ekki mark á viðvörunum:„Saga mín er lík sögu margra annarra kvenna, ég féll fyrir manni, trúði á hið góða í honum en endaði með að flýja frá honum kalin á hjarta. Mikið gekk á og ég fékk að lokum nálgunarbann á hann. Undanfarið hefur hann látið mig í friði en ég er hrædd um að það sé vegna þess að hann sé kominn með nýtt fórnarlamb að níðast á.“- Örlagaríkt símtal:„Fyrir tæpum tuttugu árum komst ég að því að maðurinn minn héldi fram hjá mér en það voru þó ekki einu svikin sem ég uppgötvaði í kjölfar símtals þar sem viðmælandinn breytti rödd sinni og sagði ekki til nafns.“- Draumurinn sem breytti lífi mínu:„Mig dreymdi fyrsta minnisstæða drauminn á barnsaldri þótt ég hafi ekki skilið hann fyrr en ég varð fullorðin. Draumarnir urðu fleiri en í nokkrum tilvikum vildi ég ekki horfast í augu við merkingu þeirra. Einn afar skýr og erfiður draumur varð síðan til þess að ég gjörbreytti lífi mínu.“- Undir yfirborðinu:„Fyrir rétt rúmum áratug varð ég yfir mig ástfangin af dásamlegum manni. Við vorum bæði í námi þegar við tókum saman og oft mikið að gera. Þess vegna var ekki alltaf allt fullkomið en við vorum hamingjusöm. Það eina sem skyggði á var að mín gallalausa svilkona lét ekkert tækifæri ónotað til að gera lítið úr mér. Nýlega kom hins vegar í ljós að ýmislegt var í gangi undir yfirborðinu á hennar heimili.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Meiðandi orð:„Þegar dóttir mín veiktist af sjúkdómi sem síðar dró hana til dauða sagði ókunnugur maður eina setningu við mig sem hefur lifað með mér síðan. Enn skil ég ekki tilgang mannsins og mun eflaust aldrei gera það.“ - Neyð konunnar gekk mér að hjarta:„Fyrir nokkru var ég á leið heim frá sólarströnd í íslenskri flugvél. Skyndilega heyrðist rödd flugfreyjunnar í kallkerfinu og hún spurði hvort læknir væri um borð. Hjón gáfu sig fram og fljótlega var okkur öllum ljóst að í vélinni var kona haldin ofsahræðslu í alvarlegu kvíðakasti. Hún er greind með alzheimer á byrjunarstigi og var þarna ein á ferð og missti skyndilega allt veruleikaskyn og vissi ekki hvar hún var stödd.“ - Systir í samkeppni:„Ég er næstelst í systkinahópnum, á tvo bræður og eina systur, nokkrum árum yngri. Við systkinin vorum ágætlega samrýnd en á unglingsárunum fann ég að systir mín virtist vera komin í einhvers konar samkeppni við mig.“- Faðir hans eyðilagði sjálfsmynd hans:„Þegar ég skildi við manninn minn og stóð uppi ein með drengina mína kom fljótlega í ljós að sambúð mín við föður þeirra hafði skilið eftir ör á sál þess eldri. Hann varð fljótlega fyrir miklu aðkasti í skólanum, enda var vanlíðan hans öllum augljós og börn geta verið grimm. Fagfólk kom inn í málið og ég varð að taka á öllu mínu til að ég og barnið mitt yrðum ekki kaffærð í sérfræðikjaftæði sem hafði ekkert með líf okkar að gera.“- Konan á móti:„Fyrir nokkrum árum bjó ég í sama fjölbýlishúsi og kona nokkur sem hafði átt sérstakt og erfitt líf sem hafði sett mark sitt á hana. Í fyrstu var hún indæl en það breyttist þegar hún fann að ég vildi ekki jafnmikið samband hafa og hún.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Mér leiddist maðurinn minn:„Ég var átján ára þegar ég kynntist Eiríki. Hann varð strax mjög hrifinn af mér og gekk á eftir mér með grasið í skónum heilan vetur. Mér þótti ósköp vænt um hann því þetta var góður strákur en ég get ekki sagt að ég hafi kiknað í hnjánum í návist hans og hjartað barðist svo sem ekkert hraðar þótt ég heyrði rödd hans. Þrátt fyrir það vorum við saman í tvö ár áður en ég sleit sambandinu. Eiríkur var vinur minn og mér fannst hann eiga betra skilið en kærustu sem var svona hálfvolg eins og ég.“ - Vinkona mín gerir lítið úr mér:„Ég tilheyri stórum vinahópi sem hefur haldið saman lengi. Fimm okkar kynntust fyrst í barnaskóla en svo bættust við kærastar, kærustur og vinir vina þar til hópurinn þéttist og varð að þeim kjarna sem nú myndar hópinn. Mér hefur alltaf liðið vel með þessu fólki eða þar til síðastliðið ár. Þá byrjaði ein úr hópnum að gera stöðugt lítið úr mér fyrir framan hina og nú finnst mér ég ekki vita hvar ég hef neinn.“- Þetta átti aldrei að ganga svona langt:„Fyrir löngu fluttum við hjónin út á land þar sem við byggðum okkur nýja tilveru ásamt yngri syni okkar. Á minni stöðum á landsbyggðinni vita flestir flest um flesta og ég varð áþreifanlega vör við það nokkrum árum seinna.“ - Lét alkann stjórna mér allt of lengi:„Þetta byrjaði allt mjög vel og sakleysislega. Ég var að koma úr sjö ára ágætis sambandi, var einstæð með eitt lítið barn í minni eigin íbúð og ágætlega stæð. Barnsfaðir minn var óvirkur alki og hafði verið edrú í nokkur ár þegar við kynntumst. Ég saknaði þess pínulítið að fá mér rauðvín og osta á fallegum kvöldum og bjór við grillið, mig langaði því ekki að ná mér í alka aftur. En þess í stað náði ég mér í bullandi alka – ómeðvitað sem alls ekki var ætlunin.“- Maður á þínum aldri:„Fyrir mörgum árum bjó ég í sveit. Ég eignaðist góða vini og kunningja þennan áratug sem ég var þarna en einn var mér sérstaklega minnisstæður. Löngu síðar tók ég upp sambandið við þennan gamla vin og einmitt þegar hann stóð á miklum tímamótum.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Ekkert er gefið eftir og sögurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar. Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Með harðri hendi:„Ég var alltaf hrædd við móður mína, hún var nánast stöðugt í brjáluðu skapi sem hún lét bitna á allri fjölskyldunni. Ég var að verða fertug þegar ég loks komst að ástæðunni fyrir því.“- Þú átt svo frábæran mann!:„Alltaf verð ég þakklát ömmu minni sem ég var skírð í höfuðið á fyrir að hafa hvatt mig til að mennta mig því án þess hefði tilveran getað orðið svo miklu flóknari og fest mig í erfiðum aðstæðum.“- Nú er Villi búinn að taka niður hringinn:„Fyrir fimm árum réði ég mig í vinnu hjá litlu en stöndugu fyrirtæki. Ég kunni vel við mig að því undanskildu að næsti yfirmaður minn, Villi, var eiginlega óþolandi. Okkur gekk ágætlega að vinna saman en sjálfhverfur persónuleikinn og yfirgangur hans gagnvart mér og öðrum reyndi stundum á þolinmæðina. Svo komst ég að því hver konan hans var.“- Getur ekki samglaðst mér:„Vinkona mín frá barnæsku hefur alltaf verið fyrsta manneskjan á vettvang þegar eitthvað slæmt gerist hjá mér en bregst öðruvísi við þegar vel gengur.“- Af hverju er barninu ekki BJARGAÐ?:„Hvernig má það vera að móðir sem hefur fengið á sig ákærur og margar ábendingar frá félagsmálayfirvöldum síðastliðin sjö ár sé enn með forsjá yfir barni sem bæði leikskóli, skóli og barnaverndarnefnd hafa bent á að sé vanrækt? Spurningu sem þessari er vandsvarað en langlundargeð þeirra er gæta eiga að réttindum barna virðist ótrúlegt og erfitt að sjá að þar sé hagsmuna barnsins gætt í hvítvetna.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Grannkonan góða:„Fyrir tveimur árum flutti móðir mín í blokk. Hún hafði ákveðið að minnka við sig eftir að pabbi dó og þetta var falleg íbúð, fullkomin fyrir eina manneskju. Í byrjun gekk allt vel og mamma var mjög ánægð en svo flutti ný kona í húsið og þá breyttist allt.“- Hrökklaðist úr skóla vegna ofbeldis:„Sonur minn var lagður í einelti nánast alla skólagönguna. Hvað eftir annað reyndum við að fá skólayfirvöld itl að taka á málinu en ekkert að gert. Sonur minn var sendur til félagsráðgjafa og sálfræðings skólans því kennarinn hans var viss um að hann væri vandamálið, ekki drengurinn sem níddist á honum. Við komumst að því síðar að sá var sonur vinkonu kennarans ...“- Maðurinn minn reyndi að svipta sig lífi:„Ég get ekki sagt að hjónaband mitt hafi verið hamingjusamt. Frá fyrstu kynnum okkar hjóna var ég undir hælnum á honum. Hann var drykkjusjúkur og auk þess mjög stjórnsamur. Hann hikaði ekki við að beita mig andlegu og líkamlegu ofbeldi ef ég lét ekki að vilja hans. Ef ég stóð fast á mínu hótaði hann að fremja sjálfsmorð ... svo gerði hann alvöru úr hótun sinni.“- Presturinn notfærði sér vanlíðan mína:„Sumarið sem ég varð átján ára fór ég ásamt vinkonu minni að vinna á hóteli út á landi. Ævintýraþráin rak okkur þangað og tilhugsunin um að vinna á vinsælum ferðamannastað fannst okkur mjög spennandi. Fljótlega eftir að við komum á staðinn varð mér hins vegar ljóst að einn íbúanna á staðnum heillaði mig mun meira en þeir ferðamenn sem áttu leið um ...“- Spádómarnir sem rættust:„Ég fór til spákonu þegar ég var að verða 18 ára. Ekki var ég sátt við allt sem hún sagði, ég man það, en skrifaði spána samviskusamlega niður á miða. Ég gleymdi spádómnum fljótlega og týndi miðanum en áratugum seinna fann ég hann og þá brá mér heldur betur í brún. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
- Eitrað samband:„Ég hef aldrei skilið hjónaband foreldra minna, sérstaklega í ljósi þess að það varði í tuttugu og fimm ár. Þetta var eitrað samband þar sem báðir aðilar niðurlægðu hvorn annan og reyndu á allan máta að gera hinum lífið leitt. Hvað hélt þeim saman veit ég ekki en hitt veit ég að þessar aðstæður í uppvextinum höfðu vond áhrif á okkur öll systkinin.“- Manninum mínum fannst ég löt:„Í tuttugu og tvö ár var ég í hjónabandi með manni sem fannst ég lítið leggja til sameiginlegs heimilis okkar á öllum sviðum. Hann lét mig finna þetta leynt og ljóst. Mér leið því stöðugt illa og var ávallt að leita leiða til að sanna að mitt framlag væri einhvers virði. Að lokum gafst ég upp og nýlega hitti ég mann sem hefur sýnt mér hve rangt mat míns fyrrverandi var.“- Ég lét reiðina stjórna mér:„Ég skipulagði líf mitt í þaula þegar ég var átján ára. Þá var ég í sambandi með yndislegum strák sem seinna varð maðurinn minn. Við ákváðum að ljúka námi, koma okkur upp einbýlishúsi, góðum bíl og fallegu innbúi. Síðan ætluðum við að eignast börn. Frá fyrstu tíð unnum við mikið og það átti eftir að koma okkur í koll.“- Stundum er ástin ekki nóg:„Það var mér áfall þegar Gísli sló mig í fyrsta sinn. Ég stirðnaði upp og stóð bara með hönd á kinn og starði á hann. Það tók mig smástund að átta mig á hvað hefði gerst. Mér fannst líða heil eilífð en eflaust voru það ekki nema nokkrar sekúndur. Nokkru áður en höggið reið af höfðum við setið á kaffihúsi og spjallað í rólegheitum.“- Slapp með skrekkinn en samt sár:„Ég varð fyrir óskemmtilegri lífsreynslu aðeins þrettán ára gömul. Þetta var í lok sjötta áratugar síðustu aldar og umræða um kynferðislegt ofbeldi var engin nema það sem hvíslað var á milli kvenna í eldhúskrókum. Að minnsta kosti náði slíkt aldrei til mín á þessum tíma. Ég var þar að auki afskaplega saklaus um allt sem tengdist nánu sambandi kynjanna. Það má segja að ég hafi lifað í rósrauðum heimi þar sem flestir voru bara nokkuð góðir.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Mér var útskúfað:„Ég missti móður mína þegar ég var tæpra fjögurra ára gömul. Ég man lítið eftir henni en á einhverjar óljósar minningar sem ég held að séu tengdar henni. Í tvö ár eftir að hún dó bjuggum við pabbi ein en ég var mikið í pössun hjá ömmu. Pabbi kynntist stjúpmóður minni þegar ég var nýbyrjuð í skóla og hún flutti inn til okkar nokkrum mánuðum síðar. Ég átti ákaflega erfitt með að sætta mig við hana fyrst í stað og tók upp á ýmsu til að láta vanþóknun mína í ljós. Smátt og smátt jafnaði ég mig þó og friður ríkti á heimilinu.“- Nú lifi ég fyrir mig en ekki aðra:„Ég ólst upp hjá mjög ströngum foreldrum. Mamma mín var mjög kröfuhörð á okkur systkinin. Við áttum að vera kurteis og prúð, standa okkur vel í skóla og vera heimilinu til sóma. Systkinum mínum tókst þetta ágætlega en ég var svarti sauðurinn sem alltaf var að lenda í vandræðum. Ekki tók betra við þegar ég varð fullorðin því ómögulegt reyndist að gera svo eiginmanni mínum líkaði.“- Veikindin gerbreyttu fjölskyldulífinu:„Þegar ég var tíu ára greindist yngri bróðir minn með erfiðan sjúkdóm. Fram að því höfðum við verið hamingjusöm og samheldin fjölskylda. Smátt og smátt náðu veikindin hins vegar að gerbreyta öllum samskiptum okkar. Mér fannst ég fjarlægjast foreldra mína og sú gjá sem varð á milli okkar lokaðist aldrei.“- Ríka systirin:„Ég var lengi sár út í stóru systur mína sem vildi sem minnst við mig og systkini okkar tala. Við héldum að hún væri svona snobbuð þar sem hún bjó við ríkidæmi, öfugt við okkur. Löngu síðar opinberaði hún leyndarmál sitt.“- Systir mín rústaði heimili mínu:„Ég flutti að heiman tvítug og stofnaði heimili með kærasta mínum. Við eignuðumst ári síðar okkar fyrsta barn og giftum okkur. Þótt okkur gengi mjög vel fann ég fyrir fæðingarþunglyndi og átti töluvert erfitt fyrsta árið sem dóttir mín lifði. Á sama tíma var systir mín að taka saman við mann sinn og þegar þau fengu að dvelja í minni íbúð mánaðartíma gerðust hlutir sem særðu mig djúpt.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Allt í einu stóð ég ein:„Ég var tólf ára þegar ég fékk alvarlegt áfall. Stundum velti ég fyrir mér hvort um hafi verið að ræða það sem í daglegu tali er kallað taugaáfall. Fram að þessum degi var ég glaður krakki, fullur trausts á mannfólkið. Eftir þetta fylltist ég tortryggni og ótta og það tók mig mörg ár að finna sjálfa mig aftur.- Engin sorg:„Fyrr á þessu ári skildi dóttir mín við mann sinn. Fljótlega kom í ljós að hann var kominn með aðra konu og samband þeirra hafði staðið yfir í fjóra mánuði þegar hann ákvað að yfirgefa eiginkonu sína og börn. Sú ákvað að fara aftur til eiginmanns síns og nú hefur fyrrverandi tengdasonur minn búið með fjórum konum og virðist skipta þeim út jafnauðveldlega og tilfinningalaust og aðrir myndu skipta um sokka.“- Ég var látin gjalda systur minnar:„Fyrir nokkrum árum vann ég hjá litlu einkafyrirtæki. Starfið var mjög skemmtilegt og eigandinn hvatti starfsfólk sitt til að sýna frumkvæði og sköpun í vinnubrögðum. Mér leið mjög vel í þessu umhverfi og blómstraði. Svo var fyrirtækið selt og allt breyttist.“- Ég öðlaðist nýtt líf:„Sólin skein en mér fannst hún ekki skína fyrir mig. Þótt ég væri búin að vera edrú í bráðum átta mánuði fannst mér enn jafnerfitt að fara fram úr á morgnana og horfast í augu við daginn. Þessi dagur var verri en allir aðrir fram að þessu því ég var komin heim og átti í fyrsta skipti að mæta á AA fund í kirkjunni þar sem ég fermdist um kvöldið. Tilhugsunin var bókstaflega skelfileg.“- Systir mín hatar barnsföður sinn:„Gunna systir hefur alltaf verið sérstök og getur verið einstaklega þrjósk og þver og langrækin. Fyrir rúmum tuttugu árum kynntist hún Lárusi, eða Lalla, eins og hann er alltaf kallaður. Þau voru saman í nokkra mánuði og þrátt fyrir andstöðu foreldra okkar og okkar systkinanna, virtist ást hennar bara aukast, ef eitthvað var. Lalli drakk nefnilega mjög mikið sem gerði okkur hrædd um Gunnu. Annars upplifði ég Lalla sem góðmenni, mann sem gerði ekki flugu mein. Hann varð aldrei illur með víni, bara enn ljúfari en drepleiðinlegur eins og allir þeir sem fá sér of mikið neðan í því.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Fullkomin frænka ...:„Föðursystir mín, Fjóla, var mjög falleg kona. Hún tók þátt í fegurðarsamkeppni á yngri árum og þótt hún hafi ekki sigrað, taldi hún sig alla tíð hafa vissu fyrir því að svik hefðu verið í tafli því dóttir bæjarstjórans sigraði þrátt fyrir að komast ekki nálægt henni í fegurð. Ég heyrði reyndar fleiri tala um þetta svo klíkan hefur líklega sigrað, eins og svo oft áður. Frænka mín varð hins vegar smám saman heltekin af þessum bransa og eigin útliti.“- Átti aldrei séns ...:„Í gegnum tíðina hef ég fylgst með Elsu, systur hennar og móður og saga þeirra er mikil sorgarsaga. Elsa er nánast orðin róni á Akureyri og allir hafa gefist upp á henni. Systir mín sá hana sitja á bekk hjá útiveitingahúsi niðri í bæ fyrir skömmu og treysti sér ekki til að heilsa upp á hana, svo illa var hún útlítandi. Þessi ljúfa stúlka hefur aldrei fengið viðeigandi hjálp og hver veit hvað orðið hefði ef einhver hefði einhvern tíma ákveðið að skipta sér af.“- Þekkir ekki mun á lygi og sannleika:„Ég var ellefu ára þegar ég kynntist Klöru og við urðum strax góðar vinkonur. Klara var uppátektarsöm og skemmtileg og leiddi mig iðulega á vit ýmissa ævintýra sem ég hefði aldrei þorað að leita uppi af eigin rammleik. Ég skildi samt fljótlega að ekki var alltaf hægt að treysta því sem þessi vinkona mín sagði því hún var gefin fyrir ýkjur og hikaði ekki við að ljúga til að koma sér út úr vandræðum. Síðar átti þetta eftir að koma henni alvarlega í koll.“- Mamma vildi öllum hjálpa:„Mamma mín var ákaflega góð kona og mátti aldrei neitt aumt sjá, eins og sagt er. Þetta gat oft reynst okkur systkinunum erfitt, einkum þegar hún tók inn á heimilið bláókunnugt fólk bara vegna þess að það átti ekki í önnur hús að venda. Lengi var ég mjög reið við mömmu því mér fannst hún alltaf setja þarfir annarra ofar okkar en nýlega gat ég fyrirgefið henni og líður mun betur á eftir.“- „Ef þér er ætlað það“:„Dóttir mín lék sér við ósýnilega vini og sagði frá atviki um leið og það gerðist þótt hún væri víðsfjarri. Þetta rjátlaðist af henni en pabbi hennar var heltekinn af öllu dulrænu sem hafði með tímanum slæm áhrif á hjónabandið. Forlagatrú hans átti þó eftir að opna mér leið sem mögulega hefði annars verið lokuð.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Ég upplifi enn skelfinguna:„Að horfast í augu við dauðann er mjög erfitt. Ég var aðeins fjórtán ára og trúði því að aldrei myndi nokkuð illt henda mig. Ég var líka alveg viss um að ég yrði fjörgömul kona og ætti eftir að eignast mörg börn og barnabörn.“- Alein í heiminum:„Þegar ég gekk með yngsta barnið mitt fann ég fyrir mikilli vanlíðan á seinni hluta meðgöngunnar. Fyrir átti ég tvö ung börn og þurfti að sinna þeim og eftir því sem kúlan stækkaði þeim mun erfiðara var að sofa á næturnar. Ég varð ofboðslega orkulaus og þreytt og þurfti stöðugt að vera leggja mig á daginn. Ég talaði um þetta við ljósmóðurina og hún taldi, eins og ég, að aðeins væri um svefnleysi að ræða og hvatti mig til að fá meiri hjálp inn á heimilið. Það dugði þó engan veginn til.“- Svik á svik ofan:„Ég skildi eftir sextán ára hjónaband þegar ég var rétt innan við fertugt. Við hjónin höfðum vaxið hvort frá öðru og skildum í þokkalegri sátt. Engu að síður var ég miður mín mjög lengi og fannst ég ekkert hafa að gefa. Tveimur árum eftir skilnaðinn kynntist ég konu á bar niðri í bæ. Hún vék sér að mér brosandi og spurði hvort ég vildi ekki bjóða sér upp á drykk og þar með var ég fallinn.“- Systir mín stal starfi okkar:„Ég hef verið búsett utanlands um árabil. Oft hefur mér fundist heimili mitt líkast hóteli fyrir ættingja og vini því á hverju ári hafa þeir flykkst til mín. Systir mín og fjölskylda hennar hafa verið einna verst en ég hef tekið á móti henni og börnum hennar þrisvar til fjórum sinnum á ári. Þetta var hvimleitt en svo bættist við að systir mín stal móðurarfi okkar.“- Leyft að elska en elskar ekki:„Að undanförnu hefur verið mikil umræða um foreldraútilokun. Hvernig börnum reiðir af sem ekki fá að hitta annað foreldri sitt og þar af leiðandi ekki kynnast helmingnum af sjálfum sér. Talað er um að börnin fái ekki að elska feður sína eða mæður. Ég er eitt þessara barna en ég kynntist föður mínum mjög lítið. Fyrir því voru gildar ástæður og ég velti oft fyrir mér hvort það hefði verið mér til góðs að fá að umgangast hann meira. Ég hef svarað fyrir mig og mitt svar er nei.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:-Hver á að taka af skarið?:„Sonur minn var rétt tæplega tvítugur þegar hann hóf samband við barnsmóður sína. Hún virtist ósköp blíð og góð til að byrja með og við hjónin buðum hana velkomna á okkar heimili. Fljótlega urðum við þó vör við að ef allt var ekki eftir hennar höfði var hreint og hart stál undir blíðu yfirborði þessarar stúlku. Hún hljóp frá syni mínum þegar barnið þeirra var tveggja ára og þá hófst eitt það ömurlegasta stríð sem ég hef orðið vitni að.“-Konan sem sveik Sibba frænda:„Frá því ég var tólf ára var fjölskylda mín upptekin af því að passa upp á Sibba frænda. Hann bjó einn og tók drykkjutúra af og til. Mamma og systur hennar hristu höfuðið og hvísluðu hver að annarri þegar það gerðist og svo fór einhver þeirra heim í kjallaraíbúðina til Sibba, dreif hann á fætur, þreif og gaf honum að borða. Sibbi hafði nefnilega orðið fyrir alvarlegri ástarsorg og byrjað að drekka upp úr því.“- Tæld af eldri manni:„Ég hef oft heyrt sagt að erfið reynsla batni ef maður nái á einhvern hátt að hjálpa öðrum með því að segja frá. Mig hefur oft langað að stíga fram og leggja orð í belg þegar fólk hefur verið að tjá sig um ofbeldi en aldrei þorað. Enn get ég ekki hugsað mér að þeir sem ég umgengst í dag viti hvað gekk á í fortíð minni.“- Maðurinn minn hélt við mágkonu mína:„Fyrir fjórum árum varð ég fyrir því að detta á svelli og meiðast illa í baki. Mér var sagt að ég væri ekki brotin og meiðslin myndu lagast á nokkrum vikum. Það gekk hins vegar ekki eftir. Erfiðlega gekk að fá lækna til að rannsaka mig almennilega en þegar það loksins tókst var ég send í aðgerð. Meðan ég vann hörðum höndum að því að ná bata hóf maðurinn minn ástarsamband við mágkonu mína.“- Þegar pabbi sá ljósið:„Ég var þrettán ára gamall þegar pabbi sá ljósið. Hann hafði fram af því verið slarkari, duglegur að vinna, það vantaði ekki, en skemmti sér hraustlega um helgar. Þótt drykkja sé aldrei skemmtileg var æska mín hamingjurík og pabbi aldrei til vandræða þótt stundum væri hávaði í honum. Allt breyttist einn bjartan sunnudagsmorgun þegar sá gamli vaknaði og sá engil í ljóssúlu. SÁ LJÓSIГ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Ég var minn versti óvinur:„Öll eigum við mjög auðvelt með að ráðleggja öðrum og leysa þeirra vandamál en þegar kemur að okkar eigin er lausnin aldrei jafn einföld. Ég er engin undantekning frá þessu en það þurfti óvenjulega hreinskilna vinkonu til að opna augu mín fyrir því að ég var sjálf minn versti óvinur.“- Svikin af vinkonu:„Ég átti í ástarsambandi við giftan samstarfsmanninn í þrjú ár. Sambandið endaði þegar vinkona mín fór til konu hans og sagði honum hvað væri í gangi. Í kjölfarið ákvað maðurinn að reyna á hjónabandið og ég var skilin eftir með brostið hjarta. Það leið heldur ekki á löngu þar til ég hrökklaðist úr vinnunni.“- Ástin á sextugsaldri:„Ég var komin hátt á fimmtugsaldur þegar ég skildi. Í tíu ár var ég ein og fannst stöðugt ólíklegra að ástin bankaði aftur upp á í lífi mínu. Þegar ég kynntist Gunnari fannst mér lífið dásamlegt og eiginlega of gott til að vera satt. Það kom líka á daginn að hann var ekki sá sem ég hélt hann væri.“- Leikskólafasistinn:„Skömmu eftir að sonur minn varð þriggja ára gekk barnsfaðir minn út af heimili okkar með ferðatösku. Hann tilkynnti mér að líf okkar gæfi honum enga hamingju og hann yrði að fá að leita hennar annars staðar. Þetta var mér mikið áfall en mín fyrstu viðbrögð voru að leita leiða til að leggja grunn að góðri framtíð okkar mæðgina. Mér var gert erfitt fyrir í þeirri viðleitni þegar leikskólakennari sonar míns hóf að ofsækja mig.“- Trúin splundraði hjónabandinu:„Árum saman var ég gift miklum dellukarli. Hann Ásgeir minn fann sér alltaf eitthvað nýtt og fljótlega blómstraði ástríðan. Það dró hins vegar yfirleitt jafnfljótt úr henni og eitthvað annað tók við. Alla tíð sýndi ég áhugamálum hans og vafstri í kringum þau mikla þolinmæði, enda finnst mér hjón ekki þurfa að deila hugðarefnum á öllum sviðum. Við eigum tvö börn og mér nægði að hann sýndi þeim og heimilinu umhyggjusemi líka.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Ömurleg mágkona:„Biggi bróðir minn kvæntist Elsu þegar þau voru nýskriðin úr háskóla og þau voru gift í rúm tuttugu ár. Þegar þau skildu kom í ljós að Biggi hafði átt í ástarsambandi við aðra konu og þótt okkur þætti öllum vænt um Elsu vorum við tilbúin að styðja bróður okkar eða allt þar til við kynntumst nýju mágkonunni.“- Ég hitti mann vinkonu minnar á Tinder:„Við Bára kynntumst fyrst í barnaskóla. Þótt hún væri ári yngri urðum við engu að síður mjög góðar vinkonur. Í menntaskóla vorum við alltaf saman en þegar ég fór utan í nám minnkaði sambandið og við hittumst ekkert í mörg ár. Við hittumst aftur, þá báðar komnar á miðjan aldur, og tókum upp þráðinn aftur. Ég lenti hins vegar í erfiðri stöðu þegar ég hitti mann Báru á Tinder.“- Við bræðurnir skuldum vegna foreldra okkar:„Ég er elstur þriggja bræðra. Pabbi hafði mikinn áhuga á öllum vélum og smitaði okkur af dellunni. Allt frá því ég var fjögurra ára gamall hef ég gert við hjól, bíla, vélsleða og fleiri græjur. Um fermingu hét ég því að kaupa mér bíl strax og ég fengi bílpróf. Þegar að því kom fékk ég leyfi foreldra minna til þess og mamma skrifaði upp á lán fyrir mig. Það var upphafið af ógæfu minni og bræðra minna.“- Vinkona mín stal kærasta mínum:„Jói var stóra ástin í lífi mínu. Það sé ég sífellt betur eftir því sem lengri tími líður frá því að við hættum saman. Við kynntumst á djamminu, bæði í háskólanámi þegar það var og urðum yfir okkur ástfangin á örfáum vikum. Við bjuggum saman í þrjú ár en þá ákvað vinkona mín að koma upp á milli okkar og tókst það.“- Einmana í hjónabandi:„Að verða ástfangin er yndisleg tilfinning. Manni finnst maður geta allt og að lífið verði aldrei samt aftur. Fyrstu vikurnar og mánuðirnir eru frábærir. Þú og ástin þín hafið svo margt um að tala að þið haldið að þið verðið aldrei uppiskroppa með umræðuefni. Þannig leið mér lengi í hjónabandi mínu en eftir hrun fóru hlutirnir niður á við og lengi var ég einmana í hjónabandinu en nú er maðurinn minn smátt og smátt að koma til baka.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Eiturnaðran:„Eftir óþægilegt spjall við gamla skólasystur á skólamóti fór ég að spyrjast fyrir um hana. Ég komst að því að rót alls ills hjá fjölskyldunni liggur hjá móður hennar sem virðist líða best þegar börn hennar eiga í illdeilum.“- Vel sloppið:„Eftir að hafa rifið mig lausa úr hjónabandi með drykkjumanni kynntist ég manni sem ég var mjög hrifin af. Ekkert varð úr sambandi milli okkar og í dag er ég meira en lítið fegin.“- Húsvörðurinn misskildi hlutverk sitt:„Fyrir nokkrum árum flutti roskin vinkona mín, Rósa, í stóra blokk. Hún hafði misst manninn sinn og vildi minnka við sig. Í blokkinni bjó frænka hennar og hún hafði sagt henni að í þessu húsi væri húsvörður sem sæi um öll þrif, viðhald og umhirðu lóðar. Fljótlega kom hins vegar í ljós að maðurinn sá hafði eitthvað misskilið starflýsinguna og hússtjórnin neyddist að lokum til að reka hann.“- „Mamma átti ekki skilið að eiga börn“:„Móðir mín er fíkill. Hún er núna farin að heilsu og að mestu hætt allri neyslu en ég hef samt sem áður engan áhuga á að umgangast hana. Henni finnst ég grimmur að halda barnabörnunum frá henni en fyrir rúmum tuttugu árum lenti okkur saman og síðan hef ég sjaldan talað við og hitt móður mína.“- Ég kenndi mér um framhjáhald hans:„Ég kynntist Nonna tveimur árum eftir að ég skildi við fyrri mann minn. Hann var það sem í daglegu tali er kallað töffari. Myndarlegur, í góðu formi, ævinlega vel til fara og átti nóga peninga. Nonni hafði mörg áhugamál og sinnti þeim vel og var óskaplega fær í öllu. Ég viðurkenni að ég heillaðist gjörsamlega og kannski var það ástæðan fyrir því að ég var blind ansi lengi.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Undarlegir draumar: „Þegar ég var rétt innan við tvítugt dreymdi mig sérkennilegan draum sem ég leit á sem vitleysu en vakti mig samt til umhugsunar seinna meir. Millinafn eldri dóttur minnar fékk ég í gegnum draum og þegar ég fékk sterk skilaboð í gegnum þriðja drauminn og fór eftir þeim tók líf mitt mögnuðum breytingum.“- Eftirminnileg jól: „Árið hafði verið frekar erfitt hjá mér og ég var enn að jafna mig eftir sambandsslit. Þegar leið að jólum hlakkaði ég til að slaka á í faðmi ástvinanna og hafði í fyrsta skipti efni á því að kaupa veglegar gjafir. Margt fór þó öðruvísi en ætlað var.“- Óvæntir fordómar:„Fyrir nokkrum árum tók líf mitt algjöra U-beygju. Ég skildi við manninn minn, missti heilsuna um svipað leyti og í kjölfarið íbúðina mína. Ég flutti síðar í leiguíbúð í blokk þar sem ég upplifði framkomu sem ég hef hvorki fyrr né síðar mætt af hendi nágranna.“- Hefðir og ekki hefðir:„Eftir afar erfitt ár var komið að jólum sem ég ákvað að verja heima hjá systur minni og mági. Unglingsdætur mínar voru með mér en sonurinn ungi hjá föður sínum. Kvöldið var erfitt og skrítið á ýmsan hátt og í kjölfar þess ákvað ég að taka upp hefð sem ég hef alla tíð staðið við þótt líf mitt hafi tekið miklum breytingum síðan þá.“- Svikarinn:„Ég skipulagði viðburð fyrir mörgum árum og réði gamlan skólabróður minn sem gráðbað um að fá að starfa hjá mér. Þegar tárin höfðu þornað reyndist maðurinn ansi kræfur og sýndi mikið ímyndunarafl við að svíkja mig og pretta.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Falin veikindi: „Ég vissi að nágrannakona mín væri skapbráð en ekki að hún legði hendur á barn sitt sem var fjarlægt af heimilinu tímabundið. Ekki löngu síðar frétti ég að hún glímdi við vissan sjúkdóm sem gæti skýrt ofsann sem hafði víst hrjáð hana. Um svipað leyti komst ég að því að ljúfa amma mín hefði sannarlega ekki verið lamb að leika við þegar mamma og systkini hennar voru lítil.“- Örlagarík heimsókn í sveitina: „Frænka mín hafði átt frekar erfitt líf, upplifði einelti í grunnskóla og síðar á vinnustað. Hún þótti svolítið sérstök og var ekki allra, en þegar hún flutti í sveitina upp úr þrítugu byrjaði hún að blómstra fyrir alvöru.“- Þegar læknar bregðast:„Saga fjölskyldu minnar er svo ótrúleg að ég veit ekki hvar ég á að byrja. Á síðasta ári urðu atburðir sem gera það að verkum að ég get ekki treyst íslensku heilbrigðiskerfi og við sitjum uppi í sárum vegna alvarlegra læknamistaka.“- Lærdómsrík tímasóun:„Fyrir nokkrum árum átti ég í skrítnu haltu-mér-slepptu-mér sambandi við mann sem ég var hrifin af. Sambandið var reyndar platónskt því hvorugt okkar tók af skarið. Eftir á að hyggja fór mér að finnast þetta svolítið fyndið, tvær fullorðnar manneskjur sem fóru í kringum hlutina eins og köttur í kringum heitan graut þar til neistinn hvarf.“- Hefndin snert í höndunum á honum:„Hjónaband systur minnar var erfitt en henni tókst fyrir rest að rífa sig lausa úr því. Þegar fyrrverandi maðurinn hennar hélt að honum hefði tekist að hefna sín illilega á henni snerist hefndin þó í höndunum á honum ...“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Fornar ástir fyrnast ei: „Lífið kemur manni sífellt á óvart og það sannaðist sannarlega á foreldrum mínum þegar tilvera þeirra beggja snerist við en þá voru þau fyrir löngu skilin hvort við annað. “ - Óheillakrákan: „Mjög sorglegur atburður átti sér stað á unglingsárum mínum þegar ég passaði barn úti á landi eitt sumarið. Löngu seinna hitti ég konu, góða vinkonu á þessum tíma, en ég hafði þurrkað tilvist hennar algjörlega út úr minni mínu. “- Vinkona í gullbúri: „Besta vinkona mín var gift manni sem bannaði henni að tala við mig eftir að mér og honum lenti saman. Þegar við vinkonurnar hittumst loks aftur mörgum árum seinna, var það við sérstakar kringumstæður. “- Heppnust í heimi: „Þegar ég var fimmtán ára fékk ég vægast sagt erfiðar fréttir. Fólkið sem ég hafði þekkt alla ævisem mömmu og pabba sagði mér að þau hefðu ættleitt mig þegar ég var nýfædd. Ég varð bálreiðog ákvað að að finna „alvöruforeldra“ mína. “ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - lllt er að leggja ást við þá sem enga kunna á móti: „Frá því að ég var barn hefur mér fundist sjálfsagt að ég myndi gifta mig og eignast börn. Ég fann líka að allir aðrir gerðu ráð fyrir þessu. Mamma talaði stundum um ömmubörnin sem hún ætti von á í framtíðinni við okkur systurnar og það áður en við urðum kynþroska. Út af fyrir sig er þetta auðvitað eðlilegt því innst inni langar flesta að eignast góðan maka og falleg börn.“ - Hann bankaði á gluggann minn: „Þegar ég hitti Sigga var hann efnilegur íþróttamaður og á uppleið á vinnustaðnum sínum. Hann var skemmtilegur, ákveðinn og þægilegur í umgengni. Mér hefði aldrei dottið í hug að hlutirnir gætu snúist svo algerlega við á stuttum tíma og raunin varð. Á endanum fannst mér ég ekki eiga annars úrkosti en að skilja en sú ákvörðun kostaði mig bestu vinkonu mína þegar maðurinn hennar bankaði á gluggann hjá mér.“ - Ég vissi ekki að ég var beitt ofbeldi: „Ég var fimmtán að verða sextán ára þegar ég kynntist manninum mínum. Hann var tíu árum eldri en ég, vinnufélagi föður míns og mjög trúaður, eins og pabbi og mamma. Við fórum að vera saman eftir að ég lét undan þrýstingi hans og svaf hjá honum kvöld nokkurt en enginn hafði sagt mér að gæti sagt nei. Í fimmtán ár eftir það bjó ég við mikið ofbeldi án þess að gera mér grein fyrir því.“ - Barnaníðingur í hárri stöðu: „Þegar ég var sautján ára fékk ég vinnu á sveitahóteli. Þetta var í fyrsta skipti sem ég fór að heiman ein og ég var mjög spennt. Vinkona mín hafði fengið vinnu á hestabúgarði í nágrenninu og við ætluðum að skemmta okkur vel þetta sumar og það gekk sannarlega eftir, að undanskildu einu ljótu atviki.“ - Amma kom fyrir mig vitinu: „Mörgum árum eftir skilnað foreldra minna áttaði ég mig á því að mömmu hafði nánast tekist að eyðileggja samband mitt við pabba.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Kennari á flótta ...: „Tóta vinkona kynntist manninum sínum undir nokkuð sérstökum kringumstæðum. Það má segja að hann hafi hlaupið í fangið á henni, á flótta undan ágengri konu.“ - Falskur og fláráður: „Ég ólst upp í bæ á landsbyggðinni. Bekkjarbróðir minn í grunnskóla þótti stríðinn en í dag myndi hegðun hans vera kölluð einelti. Við erum báðir iðnaðarmenn og störf okkar hafa nokkrum sinnum skarast, síðast þannig að ég mun aldrei starfa með honum eða tala við hann framar.“ - Hræðileg hótelstýra: Eitt sumar fyrir mörgum árum vann ég á hóteli úti á landi. Það var ótrúleg reynsla og hef ég hvorki fyrr né síðar átt yfirmann á borð við hótelstýruna sem stjórnaði öllu með harðri hendi og var óheiðarleg að auki.“ - Sökuð um vanrækslu af læknum: „Þegar sonur minn fæddist ríkti mikil gleði í fjölskyldunni. Hann var fyrsta karlkyns barnabarn foreldra minna en við systkinin áttum fyrir stóran stelpnahóp. Það var oft gert grín að því að pabbi, sem er mikill tónlistarmaður, gæti auðveldlega stofnað kvennakór með dætrum sínum og afabörnum.“ - Lúmskur og lyginn yfirmaður: „Fyrir nokkrum árum vann ég hjá fyrirtæki þar sem var ákaflega góður mórall. Á skrifstofunni starfaði hópur kvenna og við vorum allar vinkonur. Ég hlakkaði til að koma í vinnuna allt þar til skipt var um yfirmann.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Ó, ó, óbyggðaferð: „Eitt árið lenti ég í nokkrum kröggum og þurfti aðstoð við að koma málum mínum í lag. Konan sem aðstoðaði mig í gegnum það ferli varð ágæt vinkona mín og ég er alsæll með að eiga smáþátt í því að hún fann hamingjuna.“ - Dropinn holar steininn: „Ég var gift í rúman áratug yndislegum manni. Það skyggði samt á hamingju mína hvernig tengdamóðir mín kom fram við mig. Ég var aldrei nógu fín fyrir son hennar.“ - Í hefndarhug: „Vinkona mín var um árabil gift virtum manni sem gegndi ábyrgðarmiklu embætti. Heima fyrir var hann svo stjórnsamur að það var nánast fyndið, ef það hefði ekki kostað vinkonu mína áratugi nánast í fangelsi ... í gullbúri þó.“ - Hættuleg níska: „Fyrri maðurinn minn var með eindæmum sparsamur og versnaði bara með aldrinum. Fyrst fannst mér þetta í lagi því sjálf er ég engin eyðslukló en svo fór þetta að verða þreytandi. Eitt atvik varð til þess að mér varð endanlega nóg boðið.“ - Nýja mamman: „Ég var sjö ára þegar ég missti móður mína og að verða níu ára þegar pabbi fór að vera með annarri konu. Konan var aldrei beint vond en hún gætti þess að halda góðri fjarlægð milli sín og okkar systkinanna.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Facebook, fyrst með fréttirnar: „Þegar ég var ófrísk að eldra barninu mínu vorum við hjónin búsett erlendis. Ég kom heim til Íslands til að fæða barnið og maðurinn minn ætlaði að koma síðar, eða nokkru fyrir settan fæðingardag, til að vera viðstaddur. Örlögin áttu þó eftir að grípa í taumana.“ - „Leið best þegar henni tókst að græta mig“: „Ég átti frekar erfiða æsku og enn erfiðari móður. Að þurfa að kljást við hana kenndi mér margt og kom mér oft í gegnum erfiðar áskoranir.“ - Nýfráskildir í röðum ...: „Áður en ég fór að vera með seinni manninum mínum elskulegum átti ég í nokkrum samböndum, sumum eftirminnilegri en öðrum.“ - Misheppnuð afskipti ...: „Þegar foreldrar æskuvinkonu minnar fóru að eldast og heilsan að bila gerðu þeir miklar breytingar á lífi sínu að áeggjan barna sinna. Síðar kom í ljós að betra hefði verið að skipta sér ekki af þótt hugurinn að baki hefði verið góður.“- Í álögum: „Mér leist ekki sérlega vel á manninn sem yngri systir mín féll fyrir og giftist en ákvað að gefa honum tækifæri. Með tímanum komst ég að því hvern mann hann hafði að geyma og sá var ekki fagur.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Í sambúð með fíkli án þess að vita það: „Sextán ára kynntist ég strák sem ég varð yfir mig ástfangin af. Hann var blíður og góður og ólíkt flestum strákum í kringum mig drakk hann ekki. Mér fannst það gott, enda er pabbi minn alkóhólisti og ég vildi sannarlega ekki feta í fótspor mömmu og búa með einum slíkum. Ég taldi mig hafa fundið sálufélaga minn og framtíðarmaka en annað kom á daginn.“- Ofnæmi er hættulegur sjúkdómur: „Sonur minn er með ofnæmi fyrir ýmsu og þar á meðal bráðaofnæmi fyrir hnetum og rækjum. Honum liður líka mjög illa innan um flestöll dýr. Mér finnst fólk almennt ekki skilja hversu alvarlegt þetta er. Öllum finnst til dæmis sjálfsagt að koma með dýrin sín upp að honum og sumir verða móðgaðir þegar ég segi að að þeir séu að gera syni mínum mikinn óleik. Víða vantar líka mikið á hvað varðar merkingar vöru.“- Siðblind vinkona: Við Jóna kynntumst á leikvellinum í hverfinu okkar þegar við vorum fimm ára. Við urðum samferða gegnum barnaskólann og héldum sambandi eftir að við fórum hvor í sinn framhaldsskólann. Fyrir nokkrum árum kaus ég þó að hætta öllum samskiptum við hana og þegar ég frétti nýlega að hún væri flækt í fíkniefnaviðskipti varð ég ekkert hissa.“- Andstyggileg systir: „Mikill aldursmunur er á mér og elstu systur minni. Hún var sextán ára þegar ég fæddist og svo virðist sem hún hafi alla tíð fundið fyrir mikilli andúð og reiði vegna tilkomu minnar. Ég á gott samband við öll systkini mín nema hana en hún kemur andstyggilega fram við mig.“- Erfið tengdadóttir: „Vinkona mín stríðir mér stundum á því að ég eigi „mafíufjölskyldu“ sem stendur saman í blíðu og stríðu og vissulega er eitthvað til í því. Eldri sonur minn er þó giftur konu sem virðist ekki vilja tilheyra fjölskyldu okkar.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:-Gersamlega úr jafnvægi:„Ég var í vinnunni að venju á sólríku eftirmiðdegi þegar ég fann fyrir svima og ógleði. Ég hélt að þetta myndi líða hjá en þegar það gerðist ekki gekk ég út og reyndi að jafna mig. Tilfinningin varð sífellt verri og ég ákvað því að fara heim þótt vinnudegi væri ekki alveg lokið og mér tókst með naumindum að komast inn á klósett heima áður en ég byrjaði að kasta upp.“- Við vorum þrjú í þessu hjónabandi:„Ég kynntist Steina í þriggja daga gönguferð um einn fallegasta stað á Íslandi. Hann var hrókur alls fagnaðar í ferðinni, indæll og ljúfur maður og ég kolféll fyrir honum. Þegar vinur hans sagði mér undir lok ferðar að Steini væri að jafna sig eftir erfið sambandsslit datt mér aldrei í hug að það myndi skipta neinu máli.“- Ógeðfelld makaleit:„Ég skildi við manninn minn fyrir bráðum níu árum. Ég var afskaplega ósátt þegar hann kvaddi mig að því er virtist gersamlega kalt og tilfinningalaust og fór að búa með konu sem er fjórtán árum yngri en ég. Það tók mig talsverðan tíma að jafna mig á svikunum en þegar ég var tilbúin að reyna á ný komst ég að því að makaleit er fremur ógeðfelld.“- Ástin fannst á óvæntum stað:„Við Óli urðum góðir vinir í menntaskóla. Hann studdi mig alltaf með ráðum og dáð og ég reyndi að endurgjalda það. Eins og flestir gengum við í gegnum ýmislegt í ástamálum og alltaf þegar ég varð fyrir vonbrigðum grét ég á öxlinni á Óla og hann kom ávallt til mín þegar honum leið illa yfir einhverjum stúlkum sem skildu ekki hvílíkur gullmoli hann var.“- Mér finnst ég föst í gildru:„Fyrir tveimur árum síðan komst ég að því að maðurinn minn hafði skráð sig á stefnumótasíðu á Netinu og hitti reglulega aðrar konur. Oft var hann „heppinn“ eins og hann orðaði það og fór með þeim heim og fékk þar kynlíf. Þetta var mér algjört áfall en hann var kaldur sem ís og setti mér úrslitakosti.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Erfiðir endurfundir: „Ég fór á árgangsmót fyrr á þessu ári og hitti félagana úr barnaskóla sem var óskaplega gaman. Við hlið mér sat gömul vinkona sem ég hafði hlakkað sérlega mikið til að hitta. Allt viðmót hennar kom mér þó óþægilega á óvart og ég frétti síðar þetta sama kvöld að lífið hafði ekki farið mjúkum höndum um hana.“ - Týnda frænkan: „Afi hélt fram hjá ömmu og eignaðist barn með hinni konunni. Fjölskyldan sneri baki við afa og ég hitti hann aldrei. Áratugum síðar ákvað ég að reyna að finna barnið sem mátti helst ekki tala um, eða móðursystur mína.“- Besti pabbi í heimi: „Mér fannst ég alltaf vera hálfutangarðs í eigin fjölskyldu. Ég gat þó leitað til pabba þegar mér leið illa og hann sýndi mér mun meiri væntumþykju en mamma gerði. Heimur minn hrundi þegar ég komst að því að hann var ekki líffræðilegur faðir minn.“ - Með alla ásana á hendi: „Æskuvinur minn bjó yfir ótalmörgum kostum, skaraði fram úr í námi og íþróttum, í raun bar hann af í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Hann hafði útlitið með sér að auki og naut mikillar kvenhylli.“ - Eitt furðulegasta tímabil lífs míns: „Þegar heilsan fór að bila fyrir nokkrum árum hélt ég fyrst að það stafaði af álagi og streitu. Einkennin versnuðu og ég varð sífellt hræddari. Læknirinn minn ráðlagði mér hvíld og venjulegt fólk í kringum mig breyttist í sérfræðinga sem taldi sig vita hvað amaði að mér og hvað væri til ráða.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Hlustaði ekki á viðvaranirnar: „Fyrir fjöldamörgum árum féll ég fyrir afar sjarmerandi manni og lét sem vind um eyru þjóta viðvaranir vina minna sem sögðu hann siðblindan lygara.“ - Allt er þegar þrennt er: „Fyrir rúmum þrjátíu árum lentum við Svava vinkona í afar undarlegum aðstæðum en sonur hennar, þá ungbarn, bjargaðist frá bráðum bana á óútskýranlegan hátt. Segja má að lífi hans hafi verið þyrmt tvisvar í viðbót.“ - Óvænt vinslit: „Besta vinkona mín í æsku var Dóra. Hún bjó við sömu götu og ég og var heimagangur á heimili mínu. Einn daginn var henni bannað að umgangast mig vegna nokkurs sem foreldrar mínir áttu að hafa gert.“ - Mömmuraunir: „Ég á fjögur börn en mesta „fjörið“ hefur verið í kringum það elsta, soninn Aron. Hann hefur verið mikill gleðigjafi en fyrirferðin á honum var talsvert meiri en á hinum börnunum mínum öllum til samans.“ - Draumahúsið okkar: „Fyrir mörgum árum keyptum við hjónin gamalt hús. Ég hef alltaf verið næm og fann fyrir undarlegum og ekki góðum straumum þegar við skoðuðum það en hlustaði ekki á innsæið og húsið varð okkar.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Að gefast upp á að hjálpa:„Í flestum fjölskyldum þykir sjálfsagt að fólk hjálpi og styðji hvert annað. Mín fjölskylda er engin undantekning þar frá en nýlega tókum við hjónin ákvörðun um að hætta alveg að aðstoða systur hans, enda okkur báðum orðið ljóst að það væri eins og að moka í botnlausa tunnu. “- Sjúkleg lygaþörf:„Þegar ég var barn las ég mér til ánægju sögur Munchausens baróns. Mér fannst öfgar hans og lygi bráðskemmtileg. Hið sama gilti raunar um frásagnir vinar foreldra minna sem allir vissu að var gjarn á að ýkja og bæta við. Ég komst hins vegar nýlega að raun um að lygar eru sannarlega ekki gamanmál og sjúkleg lygaþörf andstyggileg grimmd.“- Sonur minn er ekki veikur:„Þegar ég fékk litla son minn í hendurnar í fyrsta sinn fann ég fyrir alsælu. Ég hafði aldrei áður fundið jafnsterkar tilfinningar og ég sór þess eið að vernda og styrkja þetta barn alla ævi. Eftir að heim kom fékk ég samt fljótlega eitthvert hugboð um að drengurinn minn væri ekki alveg eins og önnur börn. Í ljós kom að það var rétt hjá mér en sonur minn er ekki veikur, hann fellur einfaldlega ekki fullkomlega í normalformið.“- Fangi minninganna: „Ég varð ástfangin fimmtán ára gömul af strák sem var tveimur árum eldri. Við vorum saman í þrjú ár og hluta þess tíma bjó ég heima hjá honum. Ég sleit sambandinu vegna þess að mér fannst ég þurfa að reyna eitthvað nýtt og vera of ung til að gifta mig. Þetta voru stærstu mistök lífs míns og ef ég gæti snúið klukkunni við myndi ég halda sem fastast í hann.“- Erfitt að skipta sér milli tveggja:„Við Stebbi kynntumst á þrítugsafmælinu mínu. Ég varð strax yfir mig ástfangin af honum. Hann hafði verið giftur áður og átti eitt barn en ég var barnlaus. Þegar við fórum að búa saman var ég ákveðin í að reynast honum og drengnum hans vel en það er hægt að gera of mikið.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Sjaldan launar kálfur ofeldi:„Þegar ég fór að búa með seinni manninum mínum varð ég stjúpmóðir tveggja drengja, fínustu stráka sem mér þykir mjög vænt um. Þeir eru taka sín fyrstu skref núna sem fullorðnir menn og það verður þeim eflaust ekki auðvelt eftir ofdekur og agaleysi í æsku.“- Fá ekki að hitta barnabarnið:„Fyrir fimm árum lést dóttir okkar 33 ára gömul, hún átti þá sjö ára gamlan son og eiginmann. Þetta er saga um baráttu afa og ömmu til að fá að umgangast barnabarn sitt.“- Kærastan í sveitinni:„Fyrir um aldarfjórðungi var ég hrifinn af stelpu sem bjó fyrir utan höfuðborgina. Móðir hennar var svolítið sérstök og kom fram við mig sem tengdason sinn frá fyrstu sýn.“- Erfiðir yfirmenn:„Fyrir nokkrum árum hóf ég störf hjá hinu opinbera. Í vinnu minni hjá tveimur stofnunum hafði ég eftirminnilega en ólíka yfirmenn. Ég lærði mikið um mannlegt eðli á meðan ég vann undir þeirra stjórn.“- Ókunnugur faðir á Facebook:„Blóðfaðir minn yfirgaf mig þegar ég var enn í móðurkviði. Árin liðu og það var ekki fyrr en ég steig á svið í sjónvarpsþætti að áhugi hans á mér kviknaði. Áhuginn magnaðist með árunum og með tilkomu Facebook breyttist hann í stöðugt áreiti.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
- Örlagaríkar kaffislettur:Tæplega sautján ára gömul var ég farin að búa með kærastanum mínum, áratug eldri en ég. Á meðan vinir mínir sátu á skólabekk og sumir hverjir að búa sig undir að taka bílprófið var ég önnum kafin við hreiðurgerð, ólétt að fyrsta barninu. Þótt ég sjái ekki eftir neinu myndi ég ekki vilja sjá dóttur mína feta í fótspor mín.- Martraðarkennt matarboð:Eftir skilnað við drykkfelldan eiginmann minn ákvað ég að taka U-beygju í lífinu. Nokkrum árum síðar kynntist ég heillandi manni en aðeins nokkrum dögum eftir að við fórum að vera saman gerðist óhugnanlegur atburður.- Au pair í stórborg:Fyrir mörgum árum var ég barnfóstra hjá íslenskri fjölskyldu í erlendri borg. Mér líkaði afar vel við hjónin og dáði börnin þeirra. Dvöl mín ytra fékk þó skjótan endi og mér leið illa lengi á eftir.- Flestir skjóta sendiboðann:Sigga, vinkona mín, er einstök manneskja. Kímin, skemmtileg, ákaflega trygg vinum sínum og sérlega greiðvikin. Við sem þekkjum hana erum alltaf jafnhissa á að karlmenn skuli ekki slást um hana en Sigga hefur búið ein í tvo áratugi. Nýlega kynntist hún manni og þau fóru hittast. Þegar ég heyrði frá kunningja mínum að hann væri tvöfaldur í roðinu stóð ég frammi fyrir erfiðu vali.- Stjörnuhrap:Æskuvinur minn bjó yfir ótalmörgum kostum, skaraði fram úr í námi og íþróttum, í raun bar hann af í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Hann hafði útlitið með sér að auki og naut mikillar kvenhylli alla tíð. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Ætlað að vera saman: Hannes var fyrsta ástin mín og eftir að leiðir skildi hugsaði ég alltaf fallega til hans. Við hittumst ekki aftur, ótrúlegt en satt, fyrr en tuttugu árum síðar. - Skrímslið, faðir minn: Æska mín var afar erfið, svo vægt sé til orða tekið, en þegar ég var sjö ára breyttist líf mitt fyrst í sannkallað helvíti. Það olli því að ég hætti alfarið að treysta fólki. Ég leitaði í fíkniefni frá tólf ára aldri og endaði sem útigangsmaður. Síðustu tíu árin hef ég verið edrú og ég vinn að því að verða hamingjusamur. - Erfitt val: Gamall skólabróðir minn átti í mikilli sálarkreppu. Hann naut þess að lifa venjulegu lífi með okkur vinum sínum en þurfti líka að hlíta ströngum reglum safnaðarins sem hann tilheyrði. Löngu seinna eignaðist ég stjúpföður sem hafði verið í þessum sama söfnuði en í öðru landi. - Skrautleg tengdamamma: Elskuleg vinkona mín frá barnæsku giftist ung kærastanum sínum og hefði eflaust lifað fullkomnu lífi með honum ef hann hefði ekki átt erfiða móður sem gerði þeim lífið leitt alla tíð. - Óheppið tryggðatröll: Bróðir minn hefur verið óheppinn í ástamálum í gegnum árin. Hann getur eflaust kennt sjálfum sér og drykkju sinni um eitthvað en þegar hann fann aftur æskuástina sína varð ég fullviss um að allt ætti eftir að verða gott hjá honum. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: -Sannleikurinn breytti lífi mínu: Æska mín var erfið en á unglingsárunum kynntist ég konu sem átti eftir að breyta lífi mínu og fjölskyldu minnar mjög til góðs. -Forboðnar ástir: Maðurinn minn hélt fram hjá mér og þegar ég ákvað að fyrirgefa honum og taka saman við hann aftur varð allt vitlaust í fjölskyldu minni sem vildi að ég segði endanlega skilið við hann. Ég mun aldrei sjá eftir því að gefa honum annað tækifæri þótt hann hafi ekki átt það skilið. -Óheiðarleg tengdadóttir: Elsti sonur minn varð faðir ungur að árum, eða um tvítugt. Ég hef alla tíð verið í góðu sambandi við barnsmóður hans og lengi vel skildist mér á henni að hann sýndi henni lítinn stuðning. -Ástin – taka tvö: Ég elskaði manninn minn heitt og hélt að við yrðum saman alla tíð, í gegnum súrt og sætt, sorgir og gleði. Á erfiðum tíma í lífi okkar brást hann og ég var svo sár að ég ætlaði aldrei að bindast öðrum manni ástarböndum. -Dýrt góðverk: Þegar amma var unglingur upplifði hún mikinn samhug og hjálpsemi fólksins í sveitinni þegar erfiðleikar komu upp á einum bænum. Hún sá einnig að fólk sem hún hélt að væri nánast algott var það sannarlega ekki, heldur sýndi það á sér afar ljóta hlið. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:-Í leit að lífshamingju: Þegar ég fór til Bandaríkjanna í leit að sjálfri mér og lífshamingju óraði mig ekki fyrir því hvað ég væri að fara út í. Ég varð sannarlega reynslunni ríkari á eftir. -Mikil er ábyrgð þeirra: Ég á yndislegan son sem hefur átt erfitt líf. Ræturnar að erfiðleikum hans má að öllum líkindum rekja alla leið til leikskólans sem hann sótti þegar hann var lítill. -Aðgát skal höfð í nærveru unglings: Sonur minn fermist nú í vor. Ekki hefði mig grunað að það yrði svona erfitt að finna föt á hann í réttri stærð. Það í sjálfu sér væri í lagi en ekki það dónalega viðmót starfsfólks tískuverslana sem mætti okkur. Ég var stundum gráti næst í búðunum og syni mínum leið örugglega enn verr. -Lítill heimur: Án þess að hafa ætlað mér það varð ég heilmikill áhrifavaldur í lífi fjögurra persóna. Ég þoli ekki svik og fannst ég tilneydd til að segja frá því þegar brotið var á tveimur góðum manneskjum. Ég áttaði mig líka á því hvað heimurinn getur verið ofboðslega lítill. -Aðstoð úr óvæntri átt: Börnin mín voru orðin uppkomin þegar ég fann mann sem mig langaði að verja lífinu með. Neikvæð viðbrögð þeirra komu mér á óvart. Ég fékk hjálp úr óvæntri átt við að koma vitinu fyrir þau. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: – Pabbi minn vill ekkert með mig hafa: Ég átti hamingjusama æsku þótt ég hafi aldrei kynnst blóðföður mínum. Pabbi minn kom inn í líf okkar mömmu þegar ég var smábarn og hann ættleiddi mig. Ég vissi ætíð vel að við værum ekki blóðskyldir en velti því aldrei fyrir mér fyrr en ég átti sjálfur von á barni. Þá reyndi ég að hafa samband við föður minn en fékk þannig viðbrögð að ég gerði mér ljóst að ég væri betur kominn án þess manns í lífi mínu. – Dekurrófurnar: Ég ólst upp hjá ömmu og afa en þráði það alltaf heitt að fá að vera hjá mömmu og fjölskyldu hennar. Stundum var ég þó fegin að þurfa ekki að búa með hálfsystkinum mínum því dekraðri og frekari krökkum hef ég ekki kynnst. – Hressi tengdasonurinn: Ekki löngu eftir að dóttir mín skildi kynntist hún öðrum manni sem heillaði hana upp úr skónum. Ég var ekki jafnheilluð, enda voru fyrstu kynni mín og nýja tengdasonarins ekki sérlega góð. – Sloppið með skrekkinn – þrisvar: Ég held því fram að ég hafi bjargað lífi mannsins míns sama kvöldið og við byrjuðum saman. Mörgum árum seinna áttu sér stað svipuð atvik í kringum mig þar sem ástvinir mínir sluppu með skrekkinn fyrir einhverja tilviljun. – Leyndarmálið: Móðir mín átti sér ljótt leyndarmál árum saman en tókst að fela það svo vel að engan grunaði neitt. Þegar upp um hana komst varð algjört uppnám í fjölskyldunni og systkini hennar brugðust svo hart við að þau hættu að tala við hana. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Ótrúleg heppni: Systir mín lenti í miklum fjárhagsvandræðum fyrir mörgum árum og minnstu munaði að hún missti allt sitt. Mamma kom með hugmynd sem systir mín hafði enga trú á en átti þó eftir að breyta öllu til góðs og bjarga jólunum. - Hræðileg tengdamamma: Ég er giftur góðri og yndislegri konu. Hún á einstaklega erfiða móður sem þrífst ekki nema hún geti komið illu til leiðar. - Í klóm fjársvikara: Ég er hamingjusöm sjálfstæð kona sem nýtur lífsins þótt vissulega komi stundir þegar ég óska þess að ég ætti maka. Mér fyndist það bónus ef ég kynntist einhverjum góðum manni en almennt er ég ekki að leita. Um daginn lét ég hins vegar undan þrábeiðni vinkonu minnar og skráði mig á vinsæla stefnumótasíðu. Það sem fylgdi í kjölfarið kom mér gersamlega í opna skjöldu. - Stærstu mistök lífs míns: Ég var hamingjusamlega gift honum Nonna þegar ég ákvað að ganga kór. Starfið var líflegt og skemmtilegt og kórfélagar hittust oft utan æfinga til að gera eitthvað saman. Aðalsprautan í því var Friðrik og ég verð að játa að mér fannst hann heillandi. Ég hóf ástarsamband við hann og það kostaði mig hjónabandið, virðingu barnanna minna og sjálfsvirðinguna. - Nýja fjölskyldan: Ég var átján ára gamall þegar ég komst að leyndarmáli sem snerti mig mikið og nánast sneri lífi mínu við. Ég brást illa við og ákvað að reyna að endurheimta það sem mér fannst ég hafa verið sviptur. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - „Þessi draumur er fyrir eldgosi“: Ég er alin upp á frekar litlum stað úti á landi. Pabbi var læknir þar og við bjuggum í læknisíbúð á sjúkrahúsinu. Í þessari frásögn er bæði aðstæðum og nöfnum breytt án þess að sagan sjálf breytist við það. - Mögnuð björgun: Fyrir fjölmörgum árum sagði þáverandi kærastinn minn frá undarlegu og óútskýranlegu atviki sem gerðist á því tímabili lífs hans þegar hann upplifði algjört svartnætti. - Besta ákvörðunin: Ég bjó í Reykjavík fyrstu 33 ár ævi minnar og giftist manni sem einnig er af höfuðborgarsvæðinu. Við hrunið breyttust aðstæður okkar mjög til hins verra og þegar okkur fannst allt komið í hnút tókum við ákvörðun sem við höfum ekki séð eftir. - Kolröng ákvörðun: Þegar ég hóf störf hjá litlu fyrirtæki fyrir mörgum árum leist mér vel á samstarfsfólk mitt og ekki liðu margir mánuðir þar til ég var orðin heiftarlega ástfangin. Sú ást varð mér til lítillar gæfu. - Furðuleg heimsókn: Bróðir minn er tvígiftur og missti seinni konu sína fyrir nokkrum árum. Daginn eftir jarðarförina fékk hann óvænta heimsókn frá manneskju sem gerði honum afskaplega undarlegt tilboð, svo vægt sé til orða tekið. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: -Illa svikin: Oft hef ég hrist höfuðið yfir vinkonum mínum og ástamálum þeirra og sagst ekki skilja hvernig konur geti látið fara svona illa með sig. Nýlega gekk ég hins vegar í gegnum lífsreynslu sem breytti þessu viðhorfi verulega og nú skil ég margt mun betur en áður. -Alein með ábyrgðina: Ég býst við að flestir vina minna telji að ég hafi átt góða æsku. Vissulega átti ég foreldra sem elskuðu mig og vildu mér allt hið besta. Sá hængur var hins vegar á að þau höfðu aldrei tíma fyrir okkur systkinin og frá níu ára aldri bar ég alein ábyrgðina á sjálfri mér og þeim. -Skilnaður er ekki endir alls: Fyrir tveimur árum stóð ég frammi fyrir þeirri ákvörðun að skilja við manninn minn eftir átján ára samband. Allt í einu var ég orðin einstæð tveggja barna móðir og fannst ég alein í heiminum. Ég var niðurbrotin, ringluð og vissi ekki hvert ég vildi stefna. Ég þráði heitast af öllu að hitta einhvern sem hefði eitthvað ögn skýrari markmið í lífinu en ég og gæti beint mér á rétta leið. Það varð til þess að ég tók fáránlega rangar ákvarðanir og endaði á að gera eitt það hræðilegasta sem móðir getur gert barni sínu. -Erfið heimkoma: Ég fór í ferðalag með syni mínum í sumar og þegar ég kom heim fannst mér maðurinn minn haga sér mjög einkennilega. Ég var nánast reið út í hann þangað til ég áttaði mig á því hvað var í gangi. -Margur verður af aurum api: Þegar móðurbróðir minn lést stóðum við ættingjar hans frammi fyrir skrítnu vandamáli. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:-„Aldrei skal ég gleyma þér“: Fyrir tæpum tuttugu árum kynntist ég manni sem ég kolféll fyrir. Samband okkar var afar gott til að byrja með en með tímanum fór hann að sýna á sér nýja og verri hlið. Ég átti þó aldrei von á því sem gerðist um verslunarmannahelgina, fjórum árum seinna. -Óskiljanlegt hatur: Fyrir rúmum áratug kom ung kona inn í fjölskyldu mína. Hún giftist systursyni mínum en fljótlega varð ljóst að stúlkan tortryggði okkur öll og hataði. Allt þar til hjónabandi hennar lauk með miklum látum olli hún skaða í fjölskyldu okkar og enn reynir hún að skapa vandræði hvenær sem hún getur.-Næturdrottningin: Fyrir mörgum árum átti ég kærasta sem ég kynntist að hausti til, skömmu áður en mikill annavetur fór í hönd hjá mér. Ég gisti flestar nætur heima hjá honum og vann síðan allan daginn í annarri vinnunni minni og langt fram á kvöld í hinni. Þrátt fyrir annirnar gekk sambandið vel en um vorið gerðist atburður sem breytti öllu. -Skelfileg reynsla: Fyrir nokkrum árum fór ég með vinkonum mínum í sólarlandaferð. Við vorum allar einhleypar og höfðum safnað fyrir ferðinni. Ætlunin var að dvelja í viku og skemmta sér konunglega. Þriðja kvöldið okkar úti varð ég fyrir skelfilegri reynslu sem tók mig langan tíma að jafna mig á. -Erfið vinátta: Ég og Emma kynntumst í sex ára bekk og urðum strax vinkonur. Þrjátíu árum seinna áttaði ég mig hins vegar á að vináttan var einhliða því Emma naut góðs af mér en gaf lítið eða ekkert til baka. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.