POPULARITY
Aldrei hefur íslenskur þjálfari verið í eins stóru starfi og Milos Milojevic er í núna. Milos, sem er með íslenskan ríkisborgararétt, kom fyrst til Íslands árið 2006 til að spila með Hamri. Hann spilaði svo með Ægi og Víkingi Reykjavík. Síðar meir varð hann aðstoðarþjálfari Ólafs Þórðarsonar hjá Víkingi og svo aðalþjálfari. Hann stýrði Breiðabliki áður en hann fluttist búferlum til Svíþjóðar. Hann hefur unnið sig hratt upp stigann og stýrði Malmö, sigursælasta félagi Svíþjóðar, áður en hann tók við Rauðu stjörnunni í fyrra. Að stýra Rauðu stjörnunni er erfitt starf og því fylgir mikil pressa, en allt bendir til þess að Milos verði serbneskur meistari á næstu vikum. Liðið er enn taplaust eftir 27 leiki í serbnesku úrvalsdeildinni.
Spegillinn 5. desember 2023 Ummsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Formaður Starfsgreinasambandsins segir að verkefni hans sé að koma launahækkunum til félagsmanna fljótt og það hafi tekist. Það sé fráleitt að segja að kjarasamningurinn sem undirritaður var um helgina veiki samningsstöðu annarra félaga. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, vinnumarkaðsráðherra, segist fagna því að samningar hafi tekist hjá Starfgreinasambandinu og Samtökum atvinnulífsins. Rússar gerður eldflaugaárasir á Úkraínu í dag. Almenningur þurfti að leita sér skjóls. Í það minnsta tveir almennir borgarar létu lífið. Maður sem vistaður var á vöggustofu í æsku segir að sanngirnisbætur verði skötulíki miðað við það sem nú er nái frumvarp um sanngirnisbætur fram að ganga. Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, María Heimisdóttir, hefur sagt upp störfum . Hún segist ekki geta borið ábyrgð á því að tryggja rekstrargrunn stofnunarinnar. Pétur Krogh Ólafsson aðstoðarmaður borgarstjóra hefur verið ráðinn í nýtt starf viðskipta- og þróunarstjóra Veitna. Starfið var ekki auglýst. Og Króatar eru komnir í 8 liða úrslit HM karla í fótbolta. Þeir sigruðu Japani í 16 liða úrslitum í dag. Lengri umfjöllun: Á laugardaginn var skrifað undir samning milli 17 félaga innan Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins. Samið er til ríflega árs og hækkanir eru frá um þrjátíu til fimmtíu þúsund króna á mánuði. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segist stoltur af því að hafa náð að gera samning sem tekur beint við af samningnum sem rann út um mánaðamótin október-nóvember. Það sé einsdæmi og tryggi að félagar verði ekki af hækkunum svo mánuðum skiptir. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Vilhjálm. Samþætting er lykilorð í drögum að nýrri fjögurra ára aðgerðaáætlun í þjónustu við eldra fólk sem stjórnvöld kynntu í dag - samþætting heilbrigðis og félagsþjónustu. Verkefnastjórn sem skipuð var af ráuneytum heilbrigðis- og félagsmála síðastliðið sumar sér um að koma áætluninni í framkvæmd á næstu árum. Verkefnisstjóri er Berglind Magnúsdóttir sérfræðingur hjá félagsmálaráðuneytinu. Kristján Sigurjónsson talar við Berglindi. Barnsfæðingum fækkar stöðugt í Suður-Kóreu. Samkvæmt nýjustu samantekt um fæðingatíðni í heiminum, frá því í síðasta mánuði, hefur þjóðin enn einu sinni slegið sitt eigið met. Hver suðurkóresk kona eignast að meðaltali 0,79 börn um ævina. Ásgeir Tómasson segir frá.

Fyrir tveimur vikum var Þórhildur Magnúsdóttir í viðtali hjá okkur og þar talaði hún um það að hún væri í fjölkæru sambandi. Sem sagt ákváðu hún og maðurinn hennar fyrir fjórum árum að opna sambandið, að þau geti átt í samband við fleiri en hvort annað. Þetta viðtal vakti mikla athygli og sterk viðbrögð í báðar áttir. Sum lýstu yfir mikilli furðu á þessu fyrirkomulagi á meðan önnur hrósuðu Þórhildi fyrir koma fram og segja frá og tala svona opinskátt um það hvernig þau vildu haga sínu sambandi. Á milli þeirra sem voru með þessi ólíku viðbrögð við viðtalinu sló í brýnu með hörðum orðaskiptum. Þessi sterku viðbrögð vöktu margar spurningar, auk þess sem spurningum var varpað fram í umræðunni, því ákváðum við að fá Aldísi Þorbjörgu Ólafsdóttur, sálfræðing og kynlífsráðgjafa til þess að ræða við okkur, en í sinni pararáðgjöf hefur hún meðal annars unnið með pörum sem eru í fjölkæru sambandi og Þórhildur Magnúsdóttir kom einnig aftur í þáttinn og þær ræddu saman við okkur um viðbrögðin við viðtalinu og þeim spurningum sem hafa komið í kjölfarið. Hrafnhildur Skúladóttir tók nýlega við sameinuðu starfi Íþrótta- og tómstundafulltrúa Strandabyggðar. Starfið er yfirgripsmikið og í mörg horn að líta en Hrafnhildur tekst á við verkefnin með jákvæðni og bjartsýni að vopni. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, hitti Hrafnhildi í íþróttahúsinu og fékk hana til að segja frá í hverju starfið felst. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

TW: Kolbrún Benediktsdóttir er varahéraðssaksóknari hefur vakið athygli fyrir að takast á við erfið og viðkvæm mál í réttarkerfinu og er hún í miklu návígi við skuggalegustu hliðar tilverunnar. Starfið hennar felur meðal annars í sér að horfa á barnaníðsefni til að ákvarða refsingu á vörslu þess. Kolbrún talar um að eftirspurn sé eftir slíku efni og aldur barna sé allt niður í ungabörn með bleyju og hafi hún þurft að horfa á mann hafa endaþarmsmök við 5 ára barn. Það getur setið lengi í manni að horfa á slíkt ofbeldi og segir hún tveir tímar af tetris vera ágætis hreinsun fyrir hugann. Þátturinn er í boði: https://omnom.is/
Þormóður Þormóðsson segir hér frá störfum sínum í einni af stærstu deildum ICAO Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, en hann annast þar eftirlit með að aðildarríkin sinni því sem þau eiga að sinna í öryggis- og gæðamálum. Þormóður lærði Aircraft maintenance management við Embry-Riddle Aeronautical Háskólanum, hann er lærður atvinnuflugmaður og að auki með meistaragráðu í hagfræði. Hann hefur lent í ýmsu í sínu starfi, verið hótað og boðnar mútugreiðslur gegn því að hagræða niðurstöðum. Í þættinum fá hlustendur að fræðast um hans feril og heyra ótrúlegar sögur af starfinu sem Þormóður hefur sinnt í úttektum í fluginu um allan heim.
Í þessum þætti hlaðvarps Bara byrja spjalla ég við í Ingva Hrannari Ómarssyni kennara, kennsluráðgjaf og frumkvöðli með meiru segja frá því af hverju hann varð kennari, framhaldsnáminu í Stanford, mögulegum áhrifum Covid19 á skólastarf, verkefnum sumarsins, nýja starfinu hans … Halda áfram að lesa →
¡Its June y'all
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Allt í einu stóð ég ein:„Ég var tólf ára þegar ég fékk alvarlegt áfall. Stundum velti ég fyrir mér hvort um hafi verið að ræða það sem í daglegu tali er kallað taugaáfall. Fram að þessum degi var ég glaður krakki, fullur trausts á mannfólkið. Eftir þetta fylltist ég tortryggni og ótta og það tók mig mörg ár að finna sjálfa mig aftur.- Engin sorg:„Fyrr á þessu ári skildi dóttir mín við mann sinn. Fljótlega kom í ljós að hann var kominn með aðra konu og samband þeirra hafði staðið yfir í fjóra mánuði þegar hann ákvað að yfirgefa eiginkonu sína og börn. Sú ákvað að fara aftur til eiginmanns síns og nú hefur fyrrverandi tengdasonur minn búið með fjórum konum og virðist skipta þeim út jafnauðveldlega og tilfinningalaust og aðrir myndu skipta um sokka.“- Ég var látin gjalda systur minnar:„Fyrir nokkrum árum vann ég hjá litlu einkafyrirtæki. Starfið var mjög skemmtilegt og eigandinn hvatti starfsfólk sitt til að sýna frumkvæði og sköpun í vinnubrögðum. Mér leið mjög vel í þessu umhverfi og blómstraði. Svo var fyrirtækið selt og allt breyttist.“- Ég öðlaðist nýtt líf:„Sólin skein en mér fannst hún ekki skína fyrir mig. Þótt ég væri búin að vera edrú í bráðum átta mánuði fannst mér enn jafnerfitt að fara fram úr á morgnana og horfast í augu við daginn. Þessi dagur var verri en allir aðrir fram að þessu því ég var komin heim og átti í fyrsta skipti að mæta á AA fund í kirkjunni þar sem ég fermdist um kvöldið. Tilhugsunin var bókstaflega skelfileg.“- Systir mín hatar barnsföður sinn:„Gunna systir hefur alltaf verið sérstök og getur verið einstaklega þrjósk og þver og langrækin. Fyrir rúmum tuttugu árum kynntist hún Lárusi, eða Lalla, eins og hann er alltaf kallaður. Þau voru saman í nokkra mánuði og þrátt fyrir andstöðu foreldra okkar og okkar systkinanna, virtist ást hennar bara aukast, ef eitthvað var. Lalli drakk nefnilega mjög mikið sem gerði okkur hrædd um Gunnu. Annars upplifði ég Lalla sem góðmenni, mann sem gerði ekki flugu mein. Hann varð aldrei illur með víni, bara enn ljúfari en drepleiðinlegur eins og allir þeir sem fá sér of mikið neðan í því.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Jóhanna Rósa Arnardóttir félagsvísindamaður: ungmenni sem eru hvorki í skóla né starfi. Jóhanna hefur rannsakað, meðal annars í doktorsverkefni sínu, fólk í þessari stöðu og rætt var við hana um ástæður og aðgerðir. Hugrún Lilja Ragnarsdóttir og Snædís Inga Rúnarsdóttir, læknanemar: Ástráður kynfræðsluverkefni læknanema fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir. Rætt um breytingar á starfinu í gegnum tíðina og áskoranir á tímum covid. Hafdís Hanna Ægisdóttir, umhverfispistill um hvernig konur geta tekið þátt í að vinna gegn loftlagsvandanum.

Sigurlaug Halldórsdóttir flugfreyja eða Dillý eins og hún er kölluð, hefur starfað sem flugfreyja í nær 40 ár. Hér segir hún frá starfinu, ferlinum, ferðalögum og ævintýrum. Sjálf segist alla tíð hafa ætlað í flugið, en móðir hennar var flugfreyja um borð í Hrímfaxa, Viscount flugvél Flugfélags Íslands, sem fórst við Osló 1963 þegar Dillý var aðeins 3 ára. Stórmerkileg frásögn einstaklega drífandi konu sem hefur gert flugið að sínu ævistarfi.
Við Skólavörðustíg númer níu í Reykjavík stendur hið sögufræga Hegningarhús sem í gegnum árin var m.a. kallað tukthúsið, Nían, Grjótið og Steinninn. Húsið var reist 1872 og þjónaði sem fangelsi í 144 ár, miklu miklu lengur en boðlegt var. Í ár hófust endurbætur á húsinu og nú veltir fólk fyrir sér hvaða starfsemi geti farið þar fram. Hjörleifur Stefánsson arkitekt þekkir vel sögu hússins og sagði frá á Morgunvaktinni. Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Berlín og segja læknar þar líklegt að eitrað hafi verið fyrir honum. Navalní hefur, undanfarinn áratug, verið einn helsti leiðtogi rússnesku stjórnarandstöðunnar og margoft komist í kast við lögin vegna baráttu sinnar gegn spillingu í Rússlandi og Vladimír Pútín forseta. Við fórum yfir ævi og feril Navalnís með Veru Illugadóttur. Nú eru sveitarstjórnir óðum að hefja störf eftir sumarleyfi og mörg krefjandi verkefni bíða sveitarfélaganna. Starfið næstu mánuði litast mjög af Covid-19 faraldrinum. Fjárhagsáætlanir bera þess merki en faraldurinn hefur haft mikil áhrif á fjárhag margra sveitarfélaga. Ágúst Ólafsson fréttamaður á Akureyri ræddi við Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra þar. Tónlist: I like the sunrise - Sigurður Flosason

Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Ótrúleg heppni: Systir mín lenti í miklum fjárhagsvandræðum fyrir mörgum árum og minnstu munaði að hún missti allt sitt. Mamma kom með hugmynd sem systir mín hafði enga trú á en átti þó eftir að breyta öllu til góðs og bjarga jólunum. - Hræðileg tengdamamma: Ég er giftur góðri og yndislegri konu. Hún á einstaklega erfiða móður sem þrífst ekki nema hún geti komið illu til leiðar. - Í klóm fjársvikara: Ég er hamingjusöm sjálfstæð kona sem nýtur lífsins þótt vissulega komi stundir þegar ég óska þess að ég ætti maka. Mér fyndist það bónus ef ég kynntist einhverjum góðum manni en almennt er ég ekki að leita. Um daginn lét ég hins vegar undan þrábeiðni vinkonu minnar og skráði mig á vinsæla stefnumótasíðu. Það sem fylgdi í kjölfarið kom mér gersamlega í opna skjöldu. - Stærstu mistök lífs míns: Ég var hamingjusamlega gift honum Nonna þegar ég ákvað að ganga kór. Starfið var líflegt og skemmtilegt og kórfélagar hittust oft utan æfinga til að gera eitthvað saman. Aðalsprautan í því var Friðrik og ég verð að játa að mér fannst hann heillandi. Ég hóf ástarsamband við hann og það kostaði mig hjónabandið, virðingu barnanna minna og sjálfsvirðinguna. - Nýja fjölskyldan: Ég var átján ára gamall þegar ég komst að leyndarmáli sem snerti mig mikið og nánast sneri lífi mínu við. Ég brást illa við og ákvað að reyna að endurheimta það sem mér fannst ég hafa verið sviptur. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Neyðarfundur með Kettinum og Kristjáni Óla.
Gestur minn að þessu sinni heitir Ásta Bjarnadóttir og er framkvæmdastjóri mannauðsmála á Landsspítalanum. Svona til þess að gefa ykkur góða mynd af því mannauðsstarfi sem fer fram á spítalanum þá starfa um 60 manns við ráðningar, stjórnendaráðgjöf, laun og önnur mál. Ásta hefur starfað nánast óslitið við mannauðsmál sem mannauðsstjóri, háskólakennari eða ráðgjafi á því sviði frá því að hún lauk doktorsprófi í vinnu- og skipulagsfræði frá Minnesotaháskóla í Bandaríkjunum haustið 97. Starfið á spítalanum er viðamikið og ræðum við meðal annars hvernig miðlæg mannauðsþjónusta virkar, jafnlaunavottun sem tók 1 og hálft ár og svo hvernig verkefnamiðað vinnurými hefur reynst vel undanfarið. Auk þessa kemur miklu meira skemmtilegt fram í spjallinu okkar. Þátturinn er í boði 50skills og Origo.
Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans ræddi um tap bankanna á fyrsta ársfjórðungi og horfurnar framundan. Hann talaði líka um hlutabótaleiðina og þá umræðu sem hefur verið um stöndug fyrirtæki sem hafa nýtt sér hana. Mörg þeirra hafa greint frá því að þau hyggist greiða til baka þær upphæðir sem Vinnumálastofnun greiddi starfsmönnum þeirra. Þá fór Þórður Snær yfir málefni Icelandair, en líklegt þykir að einu fjárfestarnir sem hafa bolmagn til að koma félaginu til bjargar séu stórir lífeyrissjóðir. Á föstudaginn, 8. maí, voru 75 ár frá uppgjöf Þjóðverja í síðari heimsstyrjöldinni. Þjóðverjar voru þá frelsaðir úr klóm nasismans, sagði forseti Þýskalands við það tilefni. Öfgahópar hafa blandað sér í umræður og mótmæli vegna ástandsins undanfarið. Þá hafa viðmið um útbreiðslu kórónuveirufaraldursins verið svolítið á reiki. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá þessu í Berlínarspjalli dagsins. Hjálpræðisherinn hefur verið starfræktur í 125 ár á Íslandi. Hjördís Kristinsdóttir og Ingvi Kristinn Skjaldarson, flokksleiðtogar hjá Hjálpræðishernum í Reykjavík, komu í þáttinn af þessu tilefni. Þau fóru yfir söguna, starfsemina og næstu skref, en herinn flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði í haust. Tónlist: Móða - Agnar Már Magnússon, Hot house - Charlie Parker

Sigríður Hulda er eigandi og framkvæmdastjóri SHJ ráðgjafar sem sérhæfir sig í fræðslu og ráðgjöf fyrir vinnustaði með áherslu á starfsmannamál og stjórnun, s.s. starfsánægju og starfsárangur, stjórnendaþjálfun, stefnumótun, vinnustaðamenningu, samskipti og samskiptasáttmála, álag og krefjandi aðstæður. Sigríður Hulda sérhæfir sig í færniþáttum atvinnulífs á 21. öldinni í tengslum við þróun vinnumarkaðar og starfshæfni einstaklinga. Hún vinnur með hópa frá Virk og Vinnumálastofnun með áherslu á starfshæfni, persónlega stefnumörkun, áhrifaþætti á sjálfstraust, áhugasvið, þjálfun í atvinnuviðtali, gerð ferilskrár, styrkleikagreiningar, úrvinnslu kulnunar og áfalla með áherslu á valdeflingu, seiglu, bjargráð, lífsviðhorf og trú á eigin getu.
Í þessu þætti spjallar Óli Jóns við Ragnhildi Ágústsdóttir sem er með þann skemmtilega titil Sölustjóri samstarfsaðila og SMB fyrirtækja hjá Microsoft á Íslandi. Ragnhildur hefur hjá Microsoft í að verða 4 ár og hefur líkað mjög vel. Hún vinnur mest með samstarfsaðilum Microsoft á Íslandi, sem eru rétt ríflega 100 talsins ef allt er talið með. Starfið gengur í raun út á að ráðleggja samstarfsaðilunum í sölu á Microsoft lausnum, hvaða virði felst í lausnunum fyrir viðskiptavini og reyni eftir fremsta megni að aðstoða samstarfsaðilarnir í því að koma þessu virði á framfæri til viðskiptavina með skýrum og kraftmiklum hætti. Ragnhildur er stofnandi að Icelandic Lava Show ásamt manninum sínum. Hann er framkvæmdastjóri og sér um allan daglegan rekstur og hún er stjórnarformaður og er einnig að “vasast í ýmsum málum þessu tengdu á kvöldin og um helgar þegar tími gefst”. Ragnhildur segir okkur frá tilkomu þess að hún stofnaði á sínum tíma (2013) BLÁAN APRIL - styrktarfélag barna með einhverfu og var formaður þess í 6 ár. Það gerði hún að stórum hluta vegna þess að hún tók eftir því - verandi móðir tveggja drengja á einhverfu rófinu - að það skorti verulega á almennan skilning á einhverfu og það voru ofsalega miklir fordómar við lýði þegar fjölskyldan flutti heim frá Danmörku þar sem strákarnir hennar voru greindir.
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Mikið hvassviðri er skollið á og á Veðurstofan von á því að bæti í vind í kvöld. Veginum milli Hvolsvallar og Víkur hefur verið lokað og verður hann lokaður til morguns. Einnig verður lokað á Skeiðarársandi og í Öræfasveit. Björn Sævar Einarsson er veðurfræðingur á vakt hjá Veðurstofu Íslands lýsti veðurhorfum. Nítján flugfélög hafa kyrrsett farþegaþotur sömu gerðar og þá sem fórst í Eþíópíu í gær. Ekkert þeirra er evrópskt. Töluvert er um að farþegar Icelandair hafi samband við félagið, áhyggjufullir vegna þess að félagið notast við eins þotur og fórst í Addis Ababa í gær. Jóhann Bjarni Kolbeinsson ræddi við Jens Þórðarson , framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair Forsætisráðherra Bretlands gerir í kvöld lokatilraunina til að fá forsvarsmenn Evrópusambandsins til að breyta samningnum um Brexit, útgöngu Breta úr ESB. Þingmenn greiða atkvæði um samninginn á morgun. Ásgeir Tómasson sagði frá. Nemendum í fyrsta til fjórða bekk í grunnskólanum á Ísafirði hefur verið fundið annað húsnæði eftir að mygla fannst í skólanum í síðustu viku. Forsvarsmenn skólans bíða nú niðurstaðna um umfang myglunnar. Halla Ólafsdóttir ræddi við Guðmund Gunnarsson, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar 46 skiluðu í gær inn umsögn um greinargerð forsætisráðuneytisins um Staðartíma á Íslandi - stöðumat og tillögur í samráðsgátt sem var i var lokað á miðnætti. Anna Kristín Jónsdóttir sagði frá ------------ Umfjöllun um NPA: Það er frekar óljóst hvað nákvæmlega felst í starfi aðstoðarmanns í NPA, þrátt fyrir að um hálft ár sé liðið frá því lög um NPA tóku gildi og fyrstu NPA samningarnir hafi verið gerðir fyrir nokkrum árum. Starfið er óvenjulegt og vaktirnar geta verið allt að tveggja sólarhringa langar. Oftast gengur vel, en ekki alltaf. Sviðsstjóri kjaramála hjá Eflingu segir að dæmi séu um að þangað leiti niðurbrotnir aðstoðarmenn. Það eru líka dæmi um að aðstoðarmenn brjóti á notendum, NPA miðstöðin hefur kært slíkt mál til lögreglu. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Hjört Eysteinsson, framkvæmdastjóra NPA-miðstöðvarinnar, Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, formaður NPA miðstöðvarinnar, Sigurður Egill Ólafsson, aðstorðarmann Rúnars, Ragnar Ólason, sviðsstjóri kjaramála hjá Eflingu Brexit: Allt frá því Jeremy Corbyn var kjörinn leiðtogi Verkamannaflokksins 2016 hefur afstaða hans til Ísraels og gyðinga verið stöðugt deiluefni. Þegar níu þingmenn sögðu sig úr flokknum nýlega heyrðist and-gyðinglegra afstaða leiðtogans nefnd. Flokkurinn er nú enn á ný heltekinn af þessari umræðu sem stuðningsmenn
Baráttan gegn loftslagsbreytingum er stærsta mál samtímans og því tengd er nýting náttúruauðæva og umgengni við lífríkið. Sífellt fleiri benda á að hagvöxtur einn og sér dugar ekki sem mælikvarði á velgengni hagkerfis, eða samfélags. Valdaelíta heimsins kom saman í Davos í Sviss í síðustu viku og þar var umræða umumhverfismálin hávær. Já, kannski hefur tekist að vekja þotuliðið til umhugsunar. En hvað segja forsvarsmenn íslensks atvinnulífs - hvernig ætla íslensk fyrirtæki að axla sína ábyrgð? Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, var gestur Morgunvaktarinnar. Hann lýsti viðhorfum íslensks iðnaðar til loftslags- og umhverfismála - og hvernig þau verða æ stærri þáttur í starfi fyrirtækjanna. - Gríðarlegur þrýstingur er á Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, að finna lausn í Brexit-málum og sneiða hjá samningslausri útgöngu - eftir að hafa fyrst reynt að ná málamiðlun við Verkamannaflokkinn og Jeremy Corbyn virðist hún hafa horfið frá því, heldur reyna við harða Brexit-sinna í eigin flokki og svo við norður-írska Úlsterflokkinn. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá þessu eftir 8-fréttir. Hún fjallaði líka um stjórnmálin á Ítalíu, dró t.d. upp mynd af popúlistanum Matteo Salvini, innanríkisráðherra, sem er iðinn á samfélagsmiðlum líkt og Donald Trump. - Alþjóðlegur hópur vísindamanna sem stundað hefur rannsóknir á einum afskekktasta hluta Suðurskautssvæðisins undanfarnar vikur, segist nú vongóður um að finna loks sögulegt skipsflak sem þar á að leynast í undirdjúpunum: seglskipið Endurance, sem breski könnuðurinn Ernest Shackleton neyddist til að yfirgefa 1915 eftir að það festist í hafís. Vera Illugadóttir sagði frá. - Tónlist: Nina Simone - I want a little sugar in my bowl; Danska fótbiltalandsliðið og Dodo & the Dodos - Re-sepp-ten; The Zombies - A rose for Emily.
Við lifum í samfélagi þar sem sífellt fleiri virðast heltast úr lestinni vegna tímabundinna eða langvarandi veikinda. Svo virðist sem hluti af þessum veikindum sé til kominn vegna langvarandi álags bæði í starfi og einkalífi. VIRK, starfsendurhæfingarsjóður, fór nýverið af stað með forvarnarverkefni sem hefur það að markmiði að sporna við brotthvarfi af vinnumarkaði vegna álagstengdra vandamála. Ingibjörg Loftsdóttir, sviðsstjóri rýnisviðs VIRK kom í þáttinn og fór yfir þessi mál og sagði frá starfsemi VIRK. Á bænum Húsavík í Strandabyggð búa hjónin Hafdís Sturlaugsdóttir og Matthías Lýðsson - þar hafa þau í nokkur ár rekið kjötvinnslu þar sem þau vinna hluta sláturafurða búsins með góðum árangri. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, heimsótti Matthías í kjötvinnsluna og fræddist um ýmislegt sem vinnslunni og búskapnum viðkemur. Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Hræringar eru í þýskum stjórnmálum: Stóru flokkarnir tapa fylgi en öfgaflokkar og flokkar sem hafa ekki notið mikils fylgis dafna. Einn forystumanna Kristilegra demókrata segist vel getað hugsað sér samstarf við Vinstriflokkinn og Græningjar sækja mjög í sig veðrið. Arthúr Björgvin Bollason í Berlín sagði frá óeirðum og ofbeldisverkum nýnasista í Chemnitz og ræddi stjórnmálaástandið í Þýskalandi. Hann sagði líka frá merkilegri listsýningu tilenkaðri gönguferðum í náttúrunni og velgengni Víkings Heiðars Ólafssonar, píanóleikara. - Það virtist koma einhverjum á óvart í síðustu viku þegar sagt var frá niðurstöðum rannsókna sem sögðu að áfengi stytti líf fólks, jafnvel þó það væri drukkið í hófi. Niðurstöðurnar voru birtar í vísindatímaritinu Lancet og fengu hugsanlega einhverja til að hugsa sinn gang. Ræða má um líkindareikning hvort fólk telji áfengisneysluna áhættunnar virði, o.s.frv. Löngu er vitað að fólki tekst misjafnlega vel að umgangast áfengi og víst er að sumir ættu að láta það vera að drekka. Við ræddum áfengisneyslu, ekki síst meðal eldra fólks, við Pál Bjarnason, dagskrárstjóra hjá SÁÁ. - Starfið í sveitarstjórnum um allt land er að komast á fullt eftir kosningarnar í vor. Það er snúið að sitja í sveitarstjórn enda verkefnin umfangsmikil og oft flókin. Til að búa fólk sem best undir störf sín efna samtök sveitarfélaga til námskeiðs. Svanfríður Jónasdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri á Dalvík, fer nú um landið ásamt fleirum og kennir nýkjörnum stjórnmálamönnum að sinna störfum sínum sem best. Hún sagði frá. - UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna sendi í síðustu viku út alþjóðlegt neyðarkall vegna barna Róhingja sem flúðu til Bangladess á síðasta ári. Erna Kristín Blöndal, stjórnarformaður UNICEF á Íslandi, sagði frá þessari hröktu þjóð, dökkum framtíðarhorfum yngstu kynslóðar þeirra og viðleitni alþjóðasamfélagsins til hjálpar. - Tónlist: The Beatles - Ticket to ride.
Í þætti vikunnar kíktu þau Jóna Kristín Hauksdóttir, Bjarki Aðalsteinsson og Brynjar Benediktsson í heimsókn í Sparkvarpið og spjölluðu um starfsemi Soccer and Education USA. Öll hafa þau spilað í Háskólaboltanum í Bandaríkjunum, Jóna Kristín og Brynjar í Clemson University og Bjarki í James Madison University. Eftir veru þeirra í Clemson ákváðu þau Jóna og Brynjar að stofna Soccer and Education í þeim tilgangi að aðstoða unga leikmenn hérlendis við að fóta sig úti í Háskólaboltanum. Starfið hefur vaxið hratt á stuttum tíma og er í dag í sambandi við fjöldann allan af Háskólum í Bandaríkjunum. Auk þess að ræða starfsemi þeirra ræddu þau um sína upplifun af Háskólaboltanum og fótboltaumhverfið í Bandaríkjunum. Hægt er að fræðast frekar um Soccer and Education USA á vef þeirra http://www.soccerandeducationusa.com. Kjarninn í samstarfi við Storytel bíður þér að hlusta frítt á þúsundir hljóðbóka í símanum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.storytel.is/kjarninn og byrja að njóta. Storytel.is, þúsundir hljóðbóka í símanum þínum.
Blaðamaður Karfan.is var fyrir vestan í körfuboltabúðum Vestra og tók nokkur stutt og laggóð viðtöl við þjálfara og leikmenn sem voru þar. Yngvi Páll Gunnlaugsson, yfirþjálfari Vestra og einn af skipuleggjendum körfuboltabúðanna, kom í viðtal daginn eftir að búðunum lauk til að ræða þær. Við ræddum hvernig hann sæi næsta tímabil fyrir sér og hvernig gengi að fá leikmenn vestur á Ísafjörð. Starfið hjá Vestra varð umræðuefni og væntanleg afreksbraut fyrir íþróttamenn í Menntaskóla Ísafjarðar. Yngvi talar um hvernig þjálfarar bæti sig í starfinu og hvað skipulag og traust skipti miklu máli. Að lokum minnir hann á að þetta eigi að vera það skemmtilegasta sem við gerum og að körfuboltinn geti gefið okkur svo ótrúlega mikið. Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson 00:30 – Yngvi Páll gerir upp körfuboltabúðir Vestra 2018. 03:30 – Staðsetning körfuboltabúðanna, kostur eða galli? 04:50 – Hvernig gengur að fá leikmenn vestur á Ísafjörð? 07:00 – Starfið hjá Vestra næstu árin. 10:15 – Þjálfarateymið í körfuboltabúðum Vestra í ár. 12:00 – Aðlögunarhæfni þjálfara og metnaður þeirra fyrir starfinu. 14:15 – Hvernig þjálfarar geta lært af hver öðrum. 16:15 – Þjálfarar sem höfðu áhrif á Yngva. 18:00 – Hvað leitar Yngvi eftir í leikmönnum sínum? 21:05 – Fyrirmyndir Yngva í körfuboltanum á árum áður. 23:30 – Að vita hvað þú sért að fá út úr drillum og að vinna skipulega. 25:20 – Lokaskilaboðin: "Það er ótrúlegt hvað körfuboltinn hefur gefið manni mikið."
Árið 2008 var Kristín R. Vilhjálmsdóttir ráðin sem verkefnastjóri fjölmenningar á Borgarbókasafninu til að skapa samtal í fjölbreyttu landslagi tungumála og menningar. Síðan þá hefur Borgarbókasafnið, sem stærsta menningarstofnun Reykjavíkurborgar, verið í fararbroddi á sviði fjölmenningar og sameinað íbúa í Reykjavík í gegnum listir, tungumál og menningu. Starfið hefur vakið áhuga víða um Ísland, á hinum Norðurlöndunum, í Kanada, Tékklandi og Belgíu svo dæmi séu nefnd. Kristín kom í þáttinn í dag. Árið 1992 stofnuðu hjúkrunarfræðingarnir Hrund Helgadóttir og Þóra Björg Þórhallsdóttir heimaaðstoð í samvinnu við krabbameinslækningadeild Landsspítalans. Markmiðið var að mynda brú milli sjúkrahúss og heimilis. Tveimur árum síðar hætti sú starfsemi formlega og hjúkrunarþjónustan Karitas hóf starfsemi sem sjálfstætt starfandi þjónusta fyrir fólk með langvinna og ólæknandi sjúkdóma. Karítas hefur verið nokkuð í fréttum undanfarið og Lísa Páls fór og kynnti sér málið. Evrópukeppnin í fjármálalæsi fór fram í Brussel á dögunum. Íslenska liðið, skipað tveimur nemendum úr Austurbæjarskóla, eftir að hafa sigrað í undankeppninni hér á landi. Alls tóku yfir 40 þúsund nemendur í 25 Evrópulöndum þátt í undankeppnum fyrir úrslitin. Þau Ari Kaprasíus Kristjánsson, Telma Jeanne Bonthonneau og kennarinn þeirra Sigrún Lilja Jónasdóttir komu í þáttinn og sögðu frá þessari reynslu. Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Norðlingaskóli fékk Minningarverðlaun Arthurs Morthens á öskudaginn í síðustu viku og í rökstuðningi dómnefndar segir m.a. Norðlingaskóli býður alla nemendur velkomna og fagnar fjölbreytileikanum. Starfið einkennist af samvinnu, vellíðan, gleði, öguðu frjálsræði, lýðræði o.s.frv. Sif Vígþórsdóttir skólastjóri Norðlingaskóla var gestur Mannlega þáttarins í dag. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, hitti Jón Jónsson þjóðfræðing og heyrði af rannsóknum hans á sögum af förumönnum - hér og þar á landinu á fyrri öldum. Út að borða fyrir börnin, fjáröflunarátak Barnaheilla og veitingastaða hófst í síðustu viku. Alls styðja 35 veitingastaðir átakið á 100 stöðum víða um land með því að láta hluta af verði valinna rétta renna til verkefna sem snúa að vernd barna gegn ofbeldi. Átakið fer nú fram í áttunda sinn og stendur yfir í einn mánuð, eða frá 15. febrúar til 15. mars. Við fengum þau Ernu Reynisdóttur, framkvæmdastjóra Barnaheilla - Save the Children og Jóhannes Ásbjörnsson veitingamann til okkar í þáttinn. Umsjón í dag Hrafnhildur Halldórsdóttir og Gunnar Hanss
Inga Dagný Eydal, hjúkrunarfræðingur, ræðir við Hildi Eir um kulnun í starfi
Inga Dagný Eydal, hjúkrunarfræðingur, ræðir við Hildi Eir um kulnun í starfi
Top 5 Movies That Deserve a Sequel or a Remake Closing Song: One Vision by Queen from the Iron Eagle O.S.T