Poppsálin

Follow Poppsálin
Share on
Copy link to clipboard

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan sálfræðinnar.

Poppsálin


    • Aug 9, 2023 LATEST EPISODE
    • every other week NEW EPISODES
    • 38m AVG DURATION
    • 112 EPISODES


    Search for episodes from Poppsálin with a specific topic:

    Latest episodes from Poppsálin

    Heilabilun Bruce Willis og Robin Williams

    Play Episode Listen Later Aug 9, 2023 25:13


    Hvað er að gerast hjá Bruce Willis? Á hann mögulega lítið eftir?Hvað kom fyrir Robin Williams?Bruce Willis og heilabilunin,  Frontotemporal dementiaRobin Williams og þunglyndi og Lewy body dementia

    OCD - Kynferðislegar þráhyggjuhugsanir og fjögurra daga meðferðin

    Play Episode Listen Later Jul 31, 2023 50:01


    Í þessum þætti verður fjallað almennt um þráhyggju og áráttu eða OCD.  Sérstök undirtegund  þráhyggju verður skoðuð eða kynferðislegar þráhyggjuhugsanir eins og gagnvart fjölskyldumeðlimum eða öðrum. Rætt verður við Ásmund Gunnarsson frá Kvíðameðferðarstöð um fjögurra daga meðferð við OCD og árangur þeirrar meðferðar. 

    Andrew Tate, Loverboy aðferðin og narsisismi

    Play Episode Listen Later Jul 21, 2023 41:20


    TWRætt er um mansal, narsisisma, kynferðislegt ofbeldi og Andrew TateStuttlega farið í mál Andrew Tate, Loverboy mansals aðferðina og við fáum að heyra hljóðbrot af umræðu um narsisisma. 

    Sjálfsskaði - Orsakir, birtingarmynd, reynslusögur og bjargráð

    Play Episode Listen Later Jul 13, 2023 51:25


    TWSjálfsskaði - Orsakir, birtingarmynd, reynslusögur og bjargráðÍ þessum þætti er fjallað um sjálfsskaða. Fjallað er um hvernig sjálfskaði birtist, mögulegar orsakir, tengsl við aðrar raskanir eins og ADHD og jaðarpersónuleikaröskun. Í þættinum fáum við að heyra reynslusögur og hjálplegar leiðir til að takast á við sjálfsskaða. Þessi þáttur getur verið erfiður fyrir einstaklinga sem eru að glíma við sjálfsskaða og hvet ég alla til að hafa samband við t.d. Hjálarsíma Rauða Krossins 1770, Píeta samtökin 552 2218 eða einhvern sem þú treystir. 

    Sértrúarsöfnuðurinn Peoples Temple og fjöldamorðið í Jonestown

    Play Episode Listen Later Jul 5, 2023 48:43


    TW - sjálfsvíg, fjöldamorð og ofbeldiÍ þessum þætti er fjallað um sértrúarsöfnuðinn Peoples Temple og hræðilega atburðinn sem átti sér stað í Jonestown. Málið verður skoðað frá sálfræðilegu sjónarhorni 

    Geta börn fæðst vond? Saga Beth Thomas og fleiri "vondra" barna

    Play Episode Listen Later Jun 29, 2023 28:16


    Geta börn fæðst "vond"?Er illskan meðfædd eða getum við alið upp "vond" börn?Vanræksla, heilastarfsemi, munaðarlaus börn og "vonda" stelpan Beth Thomas

    Fyrra líf, endurholdgun og Déjá vu

    Play Episode Listen Later Jun 21, 2023 37:27


    Í þessum þætti er fjallað um fyrirbærið Déjá vu sem við mörg upplifum og tengsl þess við sögur barna af fyrra lífi eða endurholdgun. 

    Djöflafárið í leikskólum Bandaríkjanna

    Play Episode Listen Later Jun 14, 2023 44:32


    Í þessum þætti er talað um mjög viðkvæmt efni, kynferðislegt ofbeldi, bældar minningar og falskar minningar. Fjallað er um djöfladýrkenda faraldurinn eða satanic panic í Bandaríkjunum í kringum 1980 og 1990. Sagt er frá kynferðisafbrotamálum á leikskólum sem urðu að djöflatrúamálum. 

    sagt satanic panic bandar michelle remembers
    Falskar játningar - Guðmundar- og Geirfinnsmálið

    Play Episode Listen Later Feb 7, 2023 52:58


    Í þessum þætti verður farið stuttlega fyrir eitt af þekktustu sakamálum Íslands, Guðmundar og Geirfinnsmálið. Fjallað verður um falskar játningar og sálfræðina bak við slíkar játningar. 

    gu fjalla mundar geirfinnsm
    Stanford fangelsis tilraunin - Siðlaus en athyglisverð sálfræðitilraun

    Play Episode Listen Later Dec 29, 2022 34:07


    Sumarið 1971 var ein af siðlausustu sálfræðitilraunum  allra tíma framkvæmd í kjallara Sálfræðideildar Stanford háskólans. Sálfræðiprófessorinn Philip Zimbardo vildi rannsaka hegðun fólks í fangelsi og breytti því kjallara skólans í sýndarfangelsi og skipti saklausum nemendum skólans í tvo hópa, fanga og fangaverði. Markmiðið var að kanna áhrif aðstæðna á hegðun fólks. 

    Persónaleikaraskanir og undirflokkar

    Play Episode Listen Later Oct 26, 2022 19:31


    Jaðarpersónuleikaröskun, narsisimi, siðblinda og fleira.Hér er smá aukaþáttur í tengslum við Poppsálarþáttinn um súpermömmuna sem hvarf sem gefinn var út 2. maí. 

    Bólusetningar og einhverfa - Stærsta fölsun í sögu vísindanna?

    Play Episode Listen Later Oct 26, 2022 28:17


    Árið 1998 birti hið virta tímariti The Lancet vísindagrein eftir lækninn Andrew Jeremy Wakefield þar sem hann hélt því fram að tengsl væru á milli bólusetninga og einhverfu. Margir vilja meina að þetta sé stærsta fölsun í sögu vísindanna.  Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir vísindamanna til að endurtaka tilraunina og sýna fram á tengsl bólusetninga og einhverfu var aldrei hægt að sanna þessa tilgátu en mýtan um bólusetningu og einhverfu hefur enn ekki náð að deyja út. Þetta er gamall áskriftarþáttur en birtist hér í fullri lengd. 

    Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum

    Play Episode Listen Later Oct 26, 2022 31:17


    Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum!Í þættinum er fjallað um fræga einstaklinga sem hafa verið meðlimir í sértrúarsöfnuðum t.d NXIVM, Children of God og fleiri. Þessi þáttur var áður eingöngu fyrir Poppsálar áskrifendur

    Incels morðin

    Play Episode Listen Later Oct 17, 2022 33:57


    Í þessum þætti verður áfram fjallað um Incels og sérstaklega hræðilega atburðarás sem átti sér stað í maí árið 2013 þegar Elliot Rogder ákvað að hefna sín á sætum stelpum. Þessi þáttur var áður eingöngu fyrir Poppsálar áskrifendur og tengist eldri þætti um Incels sem nefnist: "Góði gaurinn" og Incels: "Konur skulda okkur kynlíf"

    Hver er þín týpa? Hrifning og aðlöðun

    Play Episode Listen Later Oct 17, 2022 20:38


    Sólrún Ósk sálfræðingur ræðir við Poppsálina um aðlöðun og hrifningu. Erum við með ákveðna týpu? Hvað segja vísindin? Hvað segir Þróunarkenningin? Hvað segir félagssálfræðin um aðlöðun og hrifningu?Þetta er gamall þáttur og var áður eingöngu í boði fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Þátturinn tengist öðrum þætti sem nefnist: Af hverju er ástarsorgin svona sár? Óendurgoldin ást og ástarfráhvörf

    Sálskurðlækningar: Siðlausar tilraunir á andlega veiku fólki eða gagnleg úrræði?

    Play Episode Listen Later Oct 17, 2022 42:54


    Í þessum þætti er fjallað um sögu sálskurðlækninga, sérstaklega hvítuskurðs eða Lobotomy. Fjallað er um upphaf úrræðisins, markmið þess og afleiðingar. Farið er í það af hverju þessi skurðaðgerð varð svona vinsæl og hvort gagnsemi hennar hafi verið ofmetin. Skoðað verður hve algeng aðgerðin var á Norðurlöndum og sérstaklega af hverju hún varð algeng í Danmörku. Þátturinn er á köflum frekar lýsandi og gæti verið erfiður fyrir suma. (Þetta er gamall þáttur sem áður var eingöngu í boði fyrir áskrifendur)

    Paris Hilton og ofbeldi á unglingaheimilinu

    Play Episode Listen Later Sep 8, 2022 29:49


    Smá bónus fyrir Poppsálarhlustendur. Hér fáiði þátt um heimili fyrir "vandræða" unglinga sem ofurstjarnan Paris Hilton var vistuð nauðug á. Undanfarin ár hefur Paris vakið athygli á ofbeldinu sem þrífst á þessum heimilum.  Rætt verður um reynslu Paris af svona unglingaheimilum og sagt frá hræðilegu ofbeldi og vanrækslu sem á sér stað á þessum heimilum, sem flest öll eru í Utah í Bandaríkjunum. 

    sm paris hilton undanfarin
    Y2K: Endurkoma 90s tískunnar og heróínlúkksins

    Play Episode Listen Later Aug 9, 2022 28:29


    Lokaþáttur Poppsálarinnar (í bili allavega). TW: ÁtraskanirÍ þessum þætti verður fjallað um endurkomu 90s tískunnar eða aldamótatískunnar. Rætt verður um fegurðarviðmið þess tíma og tengslin við gríðarlega aukningu á átröskunartilfellum á tímum Covid-19.Takk kærlega fyrir að hlusta elsku Poppsálar hlustendur. Ef þið hafið áhuga á fleiri þáttum þá má finna um 15 aukaþætti inni á Patreon.com

    Réttarsálfræðileg greining á Yorkshire Ripper

    Play Episode Listen Later Aug 9, 2022 18:04


    Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á Peter Sutcliffe, oft þekktur sem Yorkshire Ripper. 

    yorkshire ripper peter sutcliffe menntask hamrahl nemendur
    Paris Hilton og ofbeldi á unglingaheimilum í Utah (Áskriftarþáttur)

    Play Episode Listen Later Aug 9, 2022 5:14


    Hér fáiði þátt um heimili fyrir "vandræða" unglinga sem ofurstjarnan Paris Hilton var vistuð nauðug á. Undanfarin ár hefur Paris vakið athygli á ofbeldinu sem þrífst á þessum heimilum.  Rætt verður um reynslu Paris af svona unglingaheimilum og sagt frá hræðilegu ofbeldi og vanrækslu sem á sér stað á þessum heimilum, sem flest öll eru í Utah í Bandaríkjunum. Þetta er aukaþáttur fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Hægt er að gerast áskrifandi og nálgast fleiri aukaþætti hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

    Fyrsta ástin: Ýktar tilfinningar, hormónar og ástarsorg.

    Play Episode Listen Later Aug 7, 2022 33:56


    Í þessum þætti er fjallað um fyrstu ástina. Nýju og ýktu tilfinningarnar, fyrstu skrefin í heimi fullorðinna, hormónar, heilastarfsemi og ástarsorg. TW:Rætt er um tengsl ástarsorgar og sjálfsvíga. 

    Morðið á John Lennon - Réttarsálfræðileg greining (Allur þátturinn)

    Play Episode Listen Later Aug 4, 2022 27:59


    Hér er aukaþáttur sem áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon fengu í júlí. Þið fáið þáttinn í fullri lengd núna  því Poppsálin er enn í smá sumarfríi ;)Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á morðinga John Lennon, Mark Chapman. 

    john lennon mark chapman menntask allur hamrahl nemendur
    Greiningar geðlækna á Anders Breivik (Áskriftarþáttur)

    Play Episode Listen Later Jul 24, 2022 6:01


    Þessi þáttur tengist þættinum um hryðjuverkin í Útey.Hér er farið yfir skýrslur geðlækna og sálfræðinga um Anders Breivik, hryðjuverkamanninn sem drap 77 einstaklinga, mest unglinga. Er Breivik geðveikur? Er hann ósakhæfur? Er hann bara vondur?Þetta er aukaþáttur fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Hægt er að gerast áskrifandi og nálgast fleiri aukaþætti hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

    Hryðjuverk í Útey - Ótrúleg frásögn Adrian Pracon

    Play Episode Listen Later Jul 23, 2022 32:06


    11 ár eru frá hryðjuverkunum í Noregi þar sem Anders Breivík drap 77 einstaklinga, mest unglinga. Í þessum þætti verður sögð  ótrúleg saga eins eftirlifanda, Adrian Pracon. Hægt er að nálgast aukaþátt um hryðjuverkamanninn Anders Breivík á Patreon. https://www.patreon.com/Poppsalin

    Ariana Grande: Eltihrellar, hryðjuverkaárás og menningarnám

    Play Episode Listen Later Jul 17, 2022 35:21


    Í þessum þætti er farið yfir atburði og áföll í lífi söngkonunnar Ariana Grande. Stalkerar, hryðjuverkaárásin í Manchester, neikvæða umfjöllunin og menningarnám. Einnig er talað um sálfræðihugtökin parasocial relationship og PTSD eða áfallastreituröskun og CPTSD.

    Morðið á John Lennon - Réttarsálfræðileg greining (Áskriftarþáttur)

    Play Episode Listen Later Jul 13, 2022 8:27


    Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á morðinga John Lennon, Mark Chapman. Þetta er aukaþáttur fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Hægt er að gerast áskrifandi og nálgast fleiri aukaþætti hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

    john lennon mark chapman menntask hamrahl nemendur
    BDSM og sálfræðilegar pælingar

    Play Episode Listen Later Jul 10, 2022 52:10


    Í þessum þætti segir Magnús Hákonarson, fyrrum formaður BDSM á Íslandi okkur allt sem við viljum vita um BDSM. Sálfræðilegar pælingar bak við BDSM verða viðraðar, spjallað er um muninn á kínki/blæti og BDSM og sú hugmynd að BDSM sé kynhneigð. Hægt er að nálgast fleiri Poppsálarþætti hér:https://www.patreon.com/Poppsalin

    Réttarsálfræðileg greining á Manson fjölskyldunni (Áskriftarþáttur)

    Play Episode Listen Later Jul 4, 2022 4:45


    Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræði greiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á Charles Manson og Manson fjölskyldunni. Þetta er aukaþáttur fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Hægt er að gerast áskrifandi og nálgast fleiri aukaþætti hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

    lsd charles manson manson menntask hamrahl nemendur
    Réttarsálfræðileg greining á Ted Bundy og The Night Stalker

    Play Episode Listen Later Jul 2, 2022 36:55


    ATH: Hljóðgæðin ekki 100% í þessum þætti (sumarfrí :) )Í þessum þætti verður sagt frá gríðarlega áhugaverðum sálfræði greiningum nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á fjöldamorðingjunum Ted Bundy og The Night StalkerHægt er að nálgast aukaþátt um efnið á Patreon.com

    ted bundy night stalker menntask hamrahl nemendur
    Loðbolta (Furry) samfélagið (Áskriftarþáttur)

    Play Episode Listen Later Jun 27, 2022 4:42


    Í þessum þætti er fjallað um samfélag loðbolta. Þessi þáttur tengist þættinum um Kisumanninn Dennis Avner. Fjallað er um loðbolta samfélagið á Íslandi og  ástæður og tilgang Furry samfélags . Einnig verður fjallað um rannsókn sem gerð hefur verið á tengingu Furries við kynhneigð eða kynlíf. Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér:https://www.patreon.com/Poppsalin

    Kisumaðurinn - Ranghugmyndir um sjálfið eða Delusional Misidentification

    Play Episode Listen Later Jun 27, 2022 41:20


    ATH: Hljóðgæðin eru ekki 100% í þessum þættiÍ þessum þætti verður fjallað um nokkrar áhugaverðar raskanir sem tengjast ranghugmyndum  um sjálfan sig, annað fólk, staði og hluti. Sagt verður frá sögu Kisumannsins, Dennis Avner sem taldi sig vera tígrisdýr. Hann setti heimsmet í lýtaðgerðum og gjörbreytti líkama sínum til að líkjast tígrisdýri. Hægt er að styrkja Poppsálina og nálgast fleiri þætti hér:https://www.patreon.com/Poppsalin

    Sálskurðlækningar: Siðlausar tilraunir á andlega veiku fólki eða gagnleg úrræði? (Áskriftarþáttur)

    Play Episode Play 30 sec Highlight Listen Later Jun 21, 2022 11:12


    Í þessum þætti er fjallað um sögu sálskurðlækninga, sérstaklega hvítuskurðs eða Lobotomy. Fjallað er um upphaf úrræðisins, markmið þess og afleiðingar. Farið er í það af hverju þessi skurðaðgerð varð svona vinsæl og hvort gagnsemi hennar hafi verið ofmetin. Skoðað verður hve algeng aðgerðin var á norðurlöndum og sérstaklega af hverju hún varð algeng í Danmörku. Þátturinn er á köflum frekar lýsandi og gæti verið erfiður fyrir suma. Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér:https://www.patreon.com/PoppsalinÁskriftarhópurinn hefur verið að stækka undanfarið og langar mig að gefa aðeins í og bjóða upp á fleiri þætti fyrir áskrifendur. Þannig að hér kemur einn djúsí ;)

    Manson fjölskyldan - LSD tilraunir og fjöldamorð

    Play Episode Listen Later Jun 17, 2022 44:29


    Í þessum þætti er fjallað um glæpamanninn Charles Manson og hina þekktu Manson fjölskyldu eða költ . Fjallað er um líf Manson, frægu vinina, hópinn eða söfnuðinn sem safnaðist í kringum hann og morðin sem þau frömdu. Farið verður í sálfræðilegar pælingar í tengslum við hegðun og líf Charles Manson. Hægt er að styrkja Poppsálina og nálgast fleiri þætti hér:https://www.patreon.com/Poppsalin

    Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum (Áskriftarþáttur)

    Play Episode Listen Later Jun 14, 2022 5:31


    Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér:https://www.patreon.com/PoppsalinÁskriftarhópurinn hefur verið að stækka undanfarið og langar mig að gefa aðeins í og bjóða upp á fleiri þætti fyrir áskrifendur. Þannig að hér kemur einn djúsí ;)Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum!Í þættinum er fjallað um fræga einstaklinga sem hafa verið meðlimir í sértrúarsöfnuðum t.d NXIVM, Children of God og fleiri. 

    Hver er þín týpa? Hrifning og aðlöðun (Patreon þáttur)

    Play Episode Listen Later Jun 11, 2022 6:30


    Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hér kemur smá aukaþáttur í tengslum við þáttinn um ástina og ástarsorg.  Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér:https://www.patreon.com/PoppsalinSólrún Ósk sálfræðingur ræðir við Poppsálina um aðlöðun og hrifningu. Erum við með ákveðna týpu? Hvað segja vísindin? Hvað segir Þróunarkenningin? Hvað segir félagssálfræðin um aðlöðun og hrifningu?

    Af hverju er ástarsorgin svona sár? Óendurgoldin ást og ástarfráhvörf

    Play Episode Listen Later Jun 11, 2022 46:33


    Poppsálin fékk sálfræði snillinginn Sólrúnu Ósk í heimsókn til að ræða um ástina, ástarsorg, óendurgoldna ást og þann sársauka sem ástarsorg getur valdið. Af hverju er ástarsorgin svona sár?Hvað einkennir óendurgoldna ást?Er óendurgoldin ást ást eða eitthvað annað?Hvað gerist þegar við upplifum ástarsorg?Aukaþáttur um vísindalegar skýringar á því af hverju við löðumst að ákveðnu fólki má finna á Patreon: https://www.patreon.com/PoppsalinTHEY'RE NOT SHADOWSSpooky stories of the paranormal, the supernatural and the unexplained with no...Listen on: Apple Podcasts Spotify Leadership SchoolConversations from around the world inspiring you to be an extraordinary leader.Listen on: Apple Podcasts Spotify

    Gummi lögga: Týndu börnin og vandinn við afglæpavæðingu vímuefna

    Play Episode Listen Later Jun 6, 2022 57:51


    Í þessum þætti er spjallað við lögreglumanninn Guðmund Fylkisson eða Gumma löggu sem er hvað þekktastur fyrir að finna týnd börn og ungmenni. Við ræðum um starf hans og áhyggjur hans af þeirri hugmynd að afglæpavæða vímuefni. Hægt er að styrkja Poppsálina fyrir 5 evrur á mánuði og fá aukaþætti í kaupbæti :)https://www.patreon.com/PoppsalinTHEY'RE NOT SHADOWSSpooky stories of the paranormal, the supernatural and the unexplained with no...Listen on: Apple Podcasts Spotify Leadership SchoolConversations from around the world inspiring you to be an extraordinary leader.Listen on: Apple Podcasts Spotify

    Hvernig verða fordómar til?

    Play Episode Listen Later May 29, 2022 52:20


    Í þessum þætti er fjallað um áhugaverðar sálfræðilegar kenningar sem skýra myndun fordóma. Farið verður í nokkrar áhugaverða og sérkennilega rannsóknir á fordómum. 

    Bólusetningar og einhverfa - Stærsta fölsun í sögu vísindanna? (Patreon þáttur)

    Play Episode Listen Later May 27, 2022 5:10


    Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hér kemur smá aukaþáttur í tengslum við þáttinn um einhverfu.  Árið 1998 birti hið virta tímariti The Lancet vísindagrein eftir lækninn Andrew Jeremy Wakefield þar sem hann hélt því fram að tengsl væru á milli bólusetninga og einhverfu. Margir vilja meina að þetta sé stærsta fölsun í sögu vísindanna. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir vísindamanna til að endurtaka tilraunina og sýna fram á tengsl bólusetninga og einhverfu var aldrei hægt að sanna þessa tilgátu en mýtan um bólusetningu og einhverfu hefur enn ekki náð að deyja út. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér:https://www.patreon.com/Poppsalin

    Einhverfa: Rófið, kakan og Elon Musk

    Play Episode Listen Later May 23, 2022 64:15


    Í þessum þætti verður farið ítarlega í einhverfu. Einnig fær saga Elon Musk að blandast inn í umfjöllunina. Fjallað verður um skynúrvinnslu, að stimma, að maska, ósýnilegu einkennin og fleira sem tengist einhverfu. Rætt verður um muninn á viðteknu hugmyndinni um einhverfurófið og nýlegri hugmyndum um einhverfu eins og einhverfuhringinn eða kökuna. Hægt er að styrkja Poppsálina og nálgast fleiri þætti inni á https://www.patreon.com/Poppsalin

    Vímuefni: skaðaminnkun og reynslusaga Kristjáns Ernis

    Play Episode Listen Later May 12, 2022 42:34


    Poppsálin spjallar við Kristján Erni sem hefur persónulega reynslu af þeirri refsistefnu/bannstefnu sem er við lýði í dag í tengslum við vímuefni. Rætt er um hans reynslu af vímuefnum, áföll, skaðaminnkunarsjónarhornið og neysluskammta. Kristján Ernir situr í starfshópi  Heilbrigðismálaráðuneytis um afglæpavæðingu  neysluskammta. 

    kristj heilbrig reynslusaga
    Skaðaminnkun og afglæpavæðing vímuefna (Halldóra Mogensen Pírati)

    Play Episode Listen Later May 8, 2022 46:55


    Í þessum þætti er rætt við Halldóru Mogensen úr Pírötum. Rætt er um skaðaminnkun, afglæpavæðingu vímuefna og mögulegar afleiðingar þess. Halldóra útskýrir muninn á aflæpavæðingu og lögleiðingu. Við ræðum um fíknivanda, áföll og tengsl. Hvet ykkur til að hlusta! Mjög fróðlegt! 

    Súpermamman sem hvarf

    Play Episode Listen Later May 2, 2022 36:42


    Þessi þáttur fjallar um mjög sérstakt mannhvarfsmál þar sem  Sherri Papini súpermamma hverfur frá heimili sínu í Kaliforníu. Þetta mál er mjög spes og kemur á óvart!Einnig er fjallað um ýmsar sálfræðilegar hugmyndir í tengslum við hvarfið. Sálfræðilegu pælingarnar eru dýpkaðar í aukaþætti sem áskrifendur geta nálgast á www.patreon.com/poppsalinHægt er að styrkja Poppsálina á Patreon og fá áhugaverða aukaþætti. 

    Embla Wigum: Förðunarlistakona og TikTok stjarna

    Play Episode Listen Later May 2, 2022 31:01


    Smá aukaþáttur :) Stutt og skemmtilega höktandi viðtal við snillinginn Emblu Wigum. Embla er orðin algjör stjarna á TikTok og ekki af ástæðulausu. Hvet ykkur til að hlusta. Hvet ykkur líka til að fylgjast með Emblu á t.d TikTok eða Youtube og Instagram. https://www.tiktok.com/@emblawigum

    Guðsríki er aðeins fyrir granna – Lystarstol í söfnuði megrunardrottningarinnar

    Play Episode Listen Later Apr 25, 2022 37:22


    Í þessum þætti verður fjallað um ótrúlega sérkennilega og hættulega konu, Gwen Shamblin Lara sem hannaði megrunarprógram fyrir kristilega söfnuði. Megrunarprógrammið sló í gegn og hún stofnaði að lokum einhvers konar megrunar sértrúarsöfnuð. Fyrirsögn þessa þáttar er "stolin" frá dv.is 

    Orthorexia eða réttfæðisárátta (Patreon þáttur)

    Play Episode Listen Later Apr 19, 2022 5:21


    Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hér kemur smá aukaþáttur í tengslum við þáttinn um Diönu Ross. Vona þið hafið gagn af. Rétt er um frekar nýlega átröskum sem nefnist réttfæðisárátta eða orthorexia. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér:https://www.patreon.com/Poppsalin

    Diana Ross: Sérkennilegt "ástar"samband við Michael Jacksons og lystarstol meðal tónlistarfólks

    Play Episode Listen Later Apr 19, 2022 41:59


    Í þessum þætti verður farið stuttlega yfir áhugaverða sögu Diönu Ross. Þetta er svolítill "bland í poka" þáttur. Sérkennilegt "ástar"samband hennar og Michael Jackson verður útlistað. Útlitsþrýstingurinn sem fylgir því að vera í skemmtanabransanum verður kannaður og farið verður í rannsóknir á átröskunum meðal tónlistarfólks. Hægt er að nálgast aukaþátt tengt nýrri tegund af átröskun sem nefnist Orthorexia með því að gerast áskrifandi af Poppsálinni hér:https://www.patreon.com/Poppsalin

    Incels morðin (Patreon þáttur)

    Play Episode Listen Later Apr 11, 2022 4:35


    Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Í þessum þætti verður fjallað áfram um Incels og sérstaklega hræðilega atburðarás sem átti sér stað í maí árið 2013 þegar Elliot Rogder ákvað að hefna sín á sætum stelpum. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér:https://www.patreon.com/Poppsalin

    "Motorway Twins" - Óhugnanleg saga sænsku tvíburanna á M6 hraðbrautinni

    Play Episode Listen Later Apr 11, 2022 42:09


    Í maí árið 2008 fór af stað ótrúlega sérstök og óhugnanleg atburðarás. Tvíburasysturnar Sabina og Ursula frá Svíþjóð virtust missa vitið á sama tíma þar sem þær reyndu ítrekað að verða fyrir bílum á M6 hraðbrautinni í Bretlandi. 

    "Góði gaurinn" og Incels: "Konur skulda okkur kynlíf"

    Play Episode Listen Later Apr 4, 2022 62:05


    Þetta er svakalegur þáttur!!! Hvað eru Incels?Hverjir eru þessir menn?Hvað einkennir þessa karlmenn?Eru þeir hættulegir?Þversögnin um "góða gaurinn"Rætt verður við Arnór Stein blaðamann sem greindu orðræðu Incels á netinu. TW:Þátturinn fer í viðkæmt efni:Kvenhatur, ofbeldi, sjálfsvígHægt er að styrkja Poppsálina með því að gerast áskrifandi á Patreonhttps://www.patreon.com/Poppsalin

    Albert litli - Siðlaus tilraun til að rannsaka fælni (phobia)

    Play Episode Listen Later Apr 1, 2022 38:15


    Í þessum þætti verður fjallað um eina frægustu (og siðlausu) rannsókn sem gerð hefur verið innan sálfræðinnar. Albert litli var 11 mánaða gamall þegar atferlisfræðingurinn John B. Watson ákvað að gera tilraun á því hvort hægt væri að styðjast við kenningu rússans Ivan Palvov um klassíska skilyrðingu til að framkalla hræðsluviðbrögð eða fælni hjá barni. Hver var hugmyndin bak við tilraunina? Hvað var Watson að spá? Hvað varð um Albert litla?Hægt er að styrkja Poppsálina með því að gerast áskrifandi á Patreon fyrir 5 evrur á mánuði https://www.patreon.com/PoppsalinTakk fyrir að hlusta elskurnar!

    phobias hva laus john b watson litli

    Claim Poppsálin

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel