Podcasts about nemendur

  • 13PODCASTS
  • 43EPISODES
  • 1h 1mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Apr 8, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about nemendur

Latest podcast episodes about nemendur

Mannlegi þátturinn
Íslenskunámið Speak Viking, Barnamenningarhátíð og Gáttatif á heilsuvaktinni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 8, 2025 52:42

Við spjölluðum í dag við Óskar Braga Stefánsson sem kennir fólki íslensku á netinu undir því sem hann kallar Speak Viking. Nemendur hans, sem eru orðnir gríðarlega margir, koma hvaðanæva að úr heiminum og fer kennslan fram í gegnum netið. Óskar Bragi er ekki lærður kennari, en viðlíka námskeið eru til í flestum tungumálum á netinu, til dæmis á youtube og gefa þau áhugasömum tækifæri að læra framandi tungumál. Óskar sagði okkur frá því hvernig þetta kom til og hvernig hefur gengið í þættinum, en hægt er að finna Speak Viking til dæmis á Instagram og Youtube. Barnamenningarhátíð í Reykjavík hófst í dag og fer fram um alla borg þar sem boðið verður upp á stórar og smáar sýningar og viðburði sem unnir eru fyrir börn eða með börnum. Börn sýna verkin sín á virtum menningarstofnunum og taka að miklu leyti yfir menningarlíf borgarinnar þessa sex daga sem hátíðin stendur yfir. Við heyrðum í Björgu Jónsdóttur, verkefnastjóra Barnamenningarhátíðar, þar sem hún var stödd í Hörpu ásamt mörg hundruð krökkum á opnun hátíðarinnar. Svo var það heilsuvaktin í dag, en svokallað gáttatif, sem er hraður óreglulegur hjartsláttur og getur valdið óþægindum og töluverðum ótta hjá fólki, hefur færst í aukana meðal annars með hækkandi aldri fólks en líka í kjölfar aukinnar ofþyngdar og í tengslum við kæfisvefn. Gáttatif er ekki hættulegt eitt og sér en mikilvægt er að greina það snemma og veita meðferð við því. Helga Margrét Skúladóttir hjartalæknir hefur nýlokið við doktorsgráðu sína þar sem hún rannsakaði lífeðlisfræðileg og sálfræðileg áhrif gáttatifs. Hún segir mikilvægt að þeir sem greinist með gáttatif hætti ekki að gera það sem þeir eru vanir að gera, haldi áfram að hreyfa sig og lifa lífinu til fulls. Hún mælir þó alls ekki með að fólk fari á fyllerí, eins og hún orðar það, eða stundi fjallamaraþon. Raunar mælir hún bara alls ekki með að fólk, hvort sem það er með gáttatif eða ekki, stundi hvers kyns ofurhlaup eða bakgarðshlaup sem krefjast svefnlausra nótta og samfelldrar áreynslu í marga klukkutíma. Helga Arnardóttir ræddi við Helgu Margréti á heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Eitt lag enn / GÓSS (Hörður G. Ólafsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Silver Lining / Laufey (Laufey Lín Jónsdóttir og Spencer Stewart) Hlaupasting / Inspector Spacetime (Inspector Spacetime (Egill Gauti Sigurjónsson, Elías Geir Óskarsson og Vaka Agnarsdóttir) og texti byggður á svörum 4.bekkinga í skólum Reykjavíkurborgar) UMSJÓN GUNNAR HANSSON

Lestin
Sorgin kyndir hús, geimtónlist Gabríels Ólafs, Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 11, 2025 54:22

Tónskáldið Gabríel Ólafsson sendi frá sér geimþemaplötuna Polar nú á dögunum en hljóðheimur plötunnar er ekki síður innblásinn af stærstu spendýrum jarðarinnar, hvölunum. Katrín Helga Ólafsdóttir ræðir við Gabríel um plötuna og sameiginlegt áhugamál þeirra, hvali. Hermann Stefánsson rifjar upp ljóðrænan misskilning gervigreindarinnar varðandi sorg. Hann pælir í tíma sorgarinnar, sjúkdómsvæðingu hennar, og sorg sem kyndir hús. Og við rennum við í Fjölbrautaskólanum við Ármúla þar sem nú stendur yfir undirbúningur fyrir Kvikmyndahátíð Framhaldsskólanna. Nemendur við skólann sjá um skipulagningu hátíðarinnar sem fer fram í ellefta sinn um helgina - 23 kvikmyndir eftir framhaldsskólanema verða sýndar í Bíó Paradís.

polar fj hann katr gabr lafs nemendur kvikmyndah
Spegillinn
Eiríkur Ingi Jóhannsson, Pétur Jökull ákærður fyrir 100 kg kókaínsmygl, sýndarveruleiki í dómsal

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 21, 2024 20:00

Rætt er við Eirík Ingi Jóhannsson, forsetaframbjóðanda. Pétur Jökull Jónasson, 45 ára gamall Íslendingur, hefur verið ákærður fyrir aðild að innflutningi á nærri hundrað kílóum af kókaíni til landsins, í timbursendingu fyrir tveimur árum. Fjórir hlutu þunga dóma vegna málsins. Það getur valdið þolendum miklum kvíða að mæta gerendum sínum fyrir dómi. Nemendur í tölvunarfræði hafa hannað dómsal í sýndarveruleika sem líkir eftir einum af sölum hérðasdóms. Þannig getur fólk búið sig undir að mæta gerendum augliti til auglitis.

Samfélagið
Skemmtiferðaskipin koma, háskólamál - fleiri með gráðu en færri af þeim sem byrja útskrifast, nemendur GRÓ-skólanna hittast í Kampala í Úganda

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 21, 2024 59:11

Fyrsta skemmtiferðaskip þessa árs lagðist að bryggju við Skarfabakka í Reykjavík í morgun. Og það eru um 90 önnur á leiðinni í hátt í 260 ferðum. Þeim fylgja hundruð þúsunda farþega. Sigurður Jökull Ólafsson markaðsstjóri Faxaflóahafna ætlar að ræða við okkur á eftir um komur skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur og segja okkur frá nýrri farþegamiðstöð sem brátt mun rísa á Skarfabakka. Hagstofa Íslands birti á dögunum tölur sem sýna að brautskráningar meistaranema náðu nýjum hæðum á árunum 2021 - 2022. Fleiri geta veifað háskólagráðu en á sama tíma fjölgar í hópi þeirra sem hefja háskólanám en hafa - að tíu árum liðnum ekki útskrifast - eru lengi á leiðinni að markinu eða ná því aldrei. Við ætlum að ræða brautskráningar, lokaritgerðir, reiknilíkön og fleira við Jón Atla Benediktsson, rektor Háskóla Íslands. Við förum svo til Úganda en í áratugi hefur sérfræðingum frá þróunarlöndum verið boðið að koma til Íslands til að læra og nema innan GRÓ skólanna svokölluðu. Það eru Jarðhitaskólinn, Sjávarútvegsskólinn, Landgræðsluskólinn og Jafnréttisskólinn. Nýverið komu nemendur skólanna í Úganda saman í Kampala til að tengjast betur svo sérfræðiþekking þeirra nýtist enn betur til framþróunar og uppbyggingar innanlands. Fulltrúi Samfélagsins, Þórhildur Ólafsdóttir, leit við á fundinum og ræddi við Þór Heiðar Ásgeirsson, forstöðumann Sjávarútvegsskólans.

Poppsálin
Réttarsálfræðileg greining á Yorkshire Ripper

Poppsálin

Play Episode Listen Later Aug 9, 2022 18:04

Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á Peter Sutcliffe, oft þekktur sem Yorkshire Ripper. 

Poppsálin
Morðið á John Lennon - Réttarsálfræðileg greining (Allur þátturinn)

Poppsálin

Play Episode Listen Later Aug 4, 2022 27:59

Hér er aukaþáttur sem áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon fengu í júlí. Þið fáið þáttinn í fullri lengd núna  því Poppsálin er enn í smá sumarfríi ;)Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á morðinga John Lennon, Mark Chapman. 

Poppsálin
Morðið á John Lennon - Réttarsálfræðileg greining (Áskriftarþáttur)

Poppsálin

Play Episode Listen Later Jul 13, 2022 8:27

Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á morðinga John Lennon, Mark Chapman. Þetta er aukaþáttur fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Hægt er að gerast áskrifandi og nálgast fleiri aukaþætti hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

Poppsálin
Réttarsálfræðileg greining á Manson fjölskyldunni (Áskriftarþáttur)

Poppsálin

Play Episode Listen Later Jul 4, 2022 4:45

Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræði greiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á Charles Manson og Manson fjölskyldunni. Þetta er aukaþáttur fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Hægt er að gerast áskrifandi og nálgast fleiri aukaþætti hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

Poppsálin
Réttarsálfræðileg greining á Ted Bundy og The Night Stalker

Poppsálin

Play Episode Listen Later Jul 2, 2022 36:55

ATH: Hljóðgæðin ekki 100% í þessum þætti (sumarfrí :) )Í þessum þætti verður sagt frá gríðarlega áhugaverðum sálfræði greiningum nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á fjöldamorðingjunum Ted Bundy og The Night StalkerHægt er að nálgast aukaþátt um efnið á Patreon.com

Morgunútvarpið
24. júní - Skólabyrjun, áfengi, starfshópar, langborð og EM

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 24, 2022

Nemendur á unglingastigi í Vogaskóla munu í haust mæta seinna í skólann á morgnana í von um bættan svefn, og hefst kennsla í áttunda til tíunda bekk ekki fyrr en klukkan tíu mínútur yfir níu. Við ræddum verkefnið við Snædísi Valsdóttur, skólastjóra Vogaskóla. Breytingar á áfengislöggjöfinni urðu á lokametrum þingsins þegar Alþingi gerði heimilt fyrir framleiðendur áfengis, þ.e. bjórframleiðendur, að selja vörur sínar í smásölu frá framleiðslustað. Þetta þykir þeim sem vilja aukið frjálsræði á áfengismarkaði aðeins áfangi á leið í átt að lokamarkinu. Einn þeirra er Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, sem vill sjá örari breytingar á löggjöfinni og opna markaðinn frekar. Hann var gestur okkar upp úr hálf átta. Guðmundur Gunnarsson, ritstjóri Markaðar Fréttablaðsins, skrifaði leiðara á þriðjudaginn þar sem hann benti á að vinnuhóparnir, fagráðin, þingmannanefndirnar, aðgerðahóparnir, viðbragsteymin, verkefnastjórnirnar og valnefndirnar sem sinna tímabundnum verkefnum fyrir ríkisstjórnina séu nú um tvö hundruð og níu talsins. Við ræddum fjölda starfshópa hér á landi við ÓIaf Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði. Að loknum átta fréttum á föstudögum förum við yfir fréttir vikunnar með góðum gestum, í þetta skiptið fréttakonunum Kristínu Ólafsdóttur á Vísi og Stöð 2 og Magdalenu A. Torfadóttur, á Markaðinum og Fréttablaðinu. Á morgun laugardag skella veitingamenn á Laugaveg upp langborði á miðri götunni. Charlotta Rós Sigmundsdóttir partystýra á Vínstúkunni tíu sopum kom til okkar og sagði okkur frá viðburðinum. Það styttist verulega í EM kvenna í knattspyrnu en þjóðin er að sjálfsögðu búin að skrúfa væntingarnar reglulega vel upp. Þorsteinn Halldórsson þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu kom til okkar í lok þáttar til að renna yfir leikskipulagið og hvaða dýrðir við megum vænta á Evrópumótinu. Tónlist: Nýdönsk - Horfðu til himins First Aid Kit - Emmylou The Beatles - Something Una Torfadóttir - En Hjálmar og GDRN - Upp á rönd Harry Styles - Watermelon sugar Tame Impala - No Choice NERD - She wants to move Scarlet Pleasure - What a life

Morgunútvarpið
24. júní - Skólabyrjun, áfengi, starfshópar, langborð og EM

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 24, 2022 130:00

Miðstöðin, Reykvíkingar ársins og póstkort frá Vestmannaeyjum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 22, 2022 50:00

Miðstöðin er sameiginleg rytmadeild nokkurra tónlistarskóla í Reykjavík þar sem krakkar á aldrinum 12 ára til tvítugs með bakgrunn í klassísku tónlistarnámi fá tækifæri til að skipta yfir á rafmagnsgítara, trommur og hljómborð, syngja dægurlög og stofna popphljómsveitir. Nemendur hafa tekið þátt í ýmsum keppnum svo sem Músiktilraunum og Nótunni og nefna má að hljómsveitir á vegum deildarinnar hafa þrisvar sinnum borið sigur úr býtum í Jólalagakeppni Rásar 2. Ólafur Elíasson deildarstjóri Miðstöðvarinnar kom í þáttinn og sagði okkur frá í þættinum í dag. Við heyrðum í Marco Pizzolato í þættinum, en hann var útnefndur, ásamt Kamilu Walijewska, Reykvíkingur ársins 2022. Reykvíkingur ársins var útnefndur í fyrsta sinn árið 2011. Tilgangurinn var að leita að einstaklingi sem hafði, með háttsemi sinni eða atferli, verið til fyrirmyndar á einhvern hátt og þakka fyrir þeirra framlag. Þau Marco og Kamila standa fyrir svokölluðum frísskáp í miðbæ Reykjavíkur, þar sem markmiðið er að draga úr matarsóun og byggja upp sterkara samfélag í kringum það að deila umframmat í gegnum þessa frísskápa. Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í póstkorti dagsins velti Magnús fyrir sér veðrinu í Vestmannaeyjum, en það hefur tekið miklum stakkaskiptum frá því í vetur þegar stormur og bylur geysaði í hverri einustu viku. Nú sér til sólar vikulega og það er minni fart á vindinum. Sjómennskan er líka til umfjöllunar og sú mikla fórn sem við Íslendingar höfum fært við lífsbaráttuna út á sjó. Í lokin segir hann frá vatnsskortinum í Eyjum sem er meira áhyggjuefni en sjóræningjar og eldgos. Tónlist í þættinum í dag: Draumaprinsinn / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríksson) Spegilmynd frosin í hel /Dóra og döðlurnar (Bára Katrín Jóhannsdóttir) Harvest Moon / Krummi Björgvins, KK, Ragnheiður Gröndal, Einar Scheving (Neil Young) Undir stórasteini / Katrín Halldóra og Páll Óskar (Jón Múli Árnason og Jónas Árnason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Miðstöðin, Reykvíkingar ársins og póstkort frá Vestmannaeyjum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 22, 2022

Skólamál, krabbameinsáætlun, fleirtala, kassakvittanir og bakteríur

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 18, 2022

Nemendur eru þessa dagana að klára önnina og þreyta próf, þó þau séu reyndar á undanhaldi í grunnskólum. Rætt við tvo kennara: Björn Kristjánsson og Huldu Dögg Proppé. Við heimsækjum Krabbameinsfélagið og tölum um krabbameinsáætlun sem er í gildi til ársins 2030. Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri. Eiríkur Örn Þorsteinsson hjá Sorpu fjallar um hvernig maður á að losa sig við kassakvittanir. Þær eiga ekki að fara í pappírstunnuna. Í málfarsmínútu dagsins fjallar Guðrún Línberg Guðjónsdóttir um fleirtöluorð. Edda Olgudóttir fjallar um bakteríur og sýklalyfjaónæmi.

bj gu eir halla kristj propp nemendur sorpu krabbameinsf

Play Episode Listen Later May 18, 2022 55:00

Hlaðvarp Kjarnans
Samtal við samfélagið – Hinsegin nemendur í íslenska menntakerfinu

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Mar 21, 2022 54:57

Gestur vikunnar er Jón Ingvar Kjaran, prófessor við deild menntunnar- og margbreytileika á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Rannsóknir Jón Ingvars eru á sviðum kynjafræði, hinsegin fræða og réttindum samkynhneigðra, en hann beitir þverfaglegu sjónarhorni í sínum rannsóknum en leitar oft í smiðju félagsfræðinnar. Þau Sigrún ræða rannsóknir hans sem að tengjast meðal annars upplifun hinsegin nemenda í íslenska skólakerfinu og ofbeldi, bæði út frá reynslu þolenda og gerenda. Að auki ræða þau rannsóknir hans þar sem alþjóðlegur veruleiki kemur við sögu og hefur hann þar til að mynda borið saman íslenskan veruleika við Suður-Afríku og skoðað kyn og kynhneigð í Íran.

Mannlegi þátturinn
Snorraverkefnin, Háskóladagurinn og Heiðar Ingi lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 14, 2022

Við fræddumst um Snorraverkefnin í þættinum í dag en verkefnin fjalla um að mynda brú á milli menningarsvæði með því að bjóða fólki af íslenskum ættum frá Norður-Ameríku hingað til lands. Markmiðið er að efla tengsl afkomenda vesturfaranna við Ísland og Íslendinga með því kynna fyrir þeim tungumál og menningu með dvöl hjá ættingjum vítt og breitt um landið. Auk þess er íslenskum ungmennum boðið að fara í fjögurra vikna sumarævintýri á slóðir Vestur-Íslendinga í Norður-Ameríku. Pála Hallgrímsdóttir, verkefnastjóri Snorraverkefnanna sagði okkur meira frá þessu í þættinum og við heyrðum líka í Dagrúnu Malmquist Jónsdóttur sem fór einmitt í slíka ferð á vegum Snorraverkefnanna árið 2018 sem hún sagði okkur frá. Annað árið í röð er Háskóladagurinn haldinn stafrænn 26.feb.frá kl.12-15. Dagurinn er sameiginlegur kynningardagur allra háskóla á Íslandi. Þar verður hægt að kynna sér allar námsleiðir sem eru í boði í íslenskum háskólum. Nemendur, kennarar, náms- og starfsráðgjafar og starfsfólk allra háskóla landsins verða tilbúnir til að spjalla við gesti dagsins í netspjalli á deginum. Þarna verður tækifæri að spyrja um hvaðeina sem lýtur að drauma náminu og eiga samtal um námsleiðirnar og háskólalífið. Rósa Björk Jónsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi Landbúnaðarháskóla Íslands, sagði okkur frá því sem er í boði þar og frá Háskóladeginum í heild. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Heiðar Ingi Svansson formaður félags íslenskra bókaútgefanda og framkvæmdastjóri hjá IÐNÚ. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Snorraverkefnin, Háskóladagurinn og Heiðar Ingi lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 14, 2022 50:00

Brekkubæjarskóli: Frímínútur
5. BS Í Útvarpi Akraness 2020

Brekkubæjarskóli: Frímínútur

Play Episode Listen Later Nov 29, 2020 72:55

Nemendur 5. BS í jólastuði með hressan og skemmtilegan útvarpsþátt. Fyrsti hluti 1. Kynning: Eydís, Ágústa, Sara 2. Píanólag: Lýdía 3. Gáta og trommuleikur: Tómas 4. Esjan - söngur: Særós, Hrafnkatla, Rósa, Sara, Harpa, Lýdía 5. Ferðasaga: Tristan og Brynjar Logi 6. Gravity Falls – píanó: Alvar 7. Brandari: Alexander og Brynjar Snær 8. Sagan um kórónuveiruna: Ingibergur, Aron og Gabríel 9. Hann Tumi fer á fætur – fiðla: Hafdís 10. Jólin í Danmörku: Eydís 11. Brekkó í Covid 19: Styrmir og Einar 12. Kynning á Draumar geta ræst: Ágústa, Eydís og Sara 13. Draumar geta ræst: Tómas og Ísold (ásamt fleirum úr Brekkó) Annar hluti 1. Kynning: Haukur og Arnór 2. Kynning á skólastarfi: Ágústa, Eydís og Sara 3. Jólakötturinn – söngur: Ísold 4. Halloweenkötturinn: Jasmín og Kolbrún 5. Ég sá mömmu kyssa – söngur: Alexandra, Arna Rún, Erika, Heiðdís, Victoria, Maja 6. Brandarar: Óli og Bjarki 7. Bjart er yfir – þverflauta: Arna Lind 8. Gáta: Tómas 9. Lag á saxófón: Arnór 10. Roblox: Elín og Vigný 11. Spænskukennsla: Antonis og Freyr 12. Ég hlakka svo til – söngur: Særós, Hrafnkatla, Rósa, Sara, Harpa, Lýdía, Ísold, Ágústa, Stefán Þriðji hluti 1. Kynning: Haukur og Arnór 2. Bjart er yfir Betlehem – kynning: Arnór 3. Bjart er yfir Betlehem – söngur: Særós, Hrafnkatla, Rósa, Sara, Harpa, Lýdía, Ísold, Ágústa, Stefán 4. Ljóta drottningin: Viktor, Bjartur og Ísak 5. Subnautica – píanó: Alvar 6. Krakkarnir og Grýla: Heiðdís, Hrafnkatla og Rósa 7. Nú er Gunna – píanó: Sara 8. Brandarar: Artem og Kajus 9. Snjókorn falla – söngur: Alexandra, Arna Rún, Erika, Hafdís, Heiðdís, Victoria 10. Sokkarnir tveir – leikrit: Arnór, Alvar, Matthías, Tómas, Siggi, Adam, Hafþór 11. Jólakötturinn – fiðla: Ísold 12. Heimsreisa: Matthías 13. Lokakynning: Arnór og Haukur

Morgunútvarpið
2. júní - Viðey, íbúðaskipti, atvinnulausir nemendur og Bandaríkin

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 2, 2020 130:00

Sumardagskráin í Viðey hefst með fuglaskoðun í kvöld undir leiðsögn Snorra Sigurðssonar fuglafræðings. Snorri kíkti til okkar í morgunkaffi og sagði okkur meira af fjölbreyttu fuglalífi Viðeyjar og með honum kom Ágústa Rós Árnadóttir viðburðarstjóri Borgarsögusafns en það er ýmislegt fleira áhugavert framundan sem hún getur fræddi okkur um. Íbúðarskipti hafa færst í vöxt á undanförnum árum en þannig getur fólk sparað sér háar fjárhæðir sem annars færu í hótelgistingu eða Airbnb gistingu í sumarfríinu erlendis. Heimsfaraldurinn hefur að sjálfsögðu breytt þessu tímabundið, en íbúðarskiptum innanlands fjölgar þess í stað. Snæfríður Ingadóttir spjallaði við okkur um þetta og gaf góð ráð en hún hefur m.a. skrifað bók um þennan möguleika fólks á að skiptast á húsnæði í fríium. Nemendafélag háskólans á Bifröst hefur vakið athygli á því að launþegar sem hafa stundað háskólanám samhliða vinnu og hafa verið í 73,3 prósent námi, eða meira, og missa sína 100 prósent vinnu, eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Samkvæmt Vinnumálastofnun flokkast þeir sem námsmenn og eiga að sækja í LÍN. Leifur Finnbogason formaður félagsins segir fólki í raun refsað fyrir dugnað og þetta flókna mál sé ósanngjarnt og þurfi að leysa. Hann kom til okkar og fór yfir málið. Silja Bára Ómarsdóttir, dósent við stjórnmálafræðideild HÍ, kom til okkar og ræddi ástandið í Bandaríkjunum en í gærkvöldi hótaði Donald Trump að beita hervaldi gegn mótmælendum í landinu. Þegar hafa a.m.k. tveir ríkisstjórar sagt að ekki komi til greina að beita hernum en hörð mótmæli hafa staðið yfir víða um landið síðustu daga. Silja Bára fór yfir þetta og hvaða stöðu mótmælin og heimsfaraldurinn geta haft á forsetakosningarnar í haust. Sævar Helgi Bragason var á sínum stað í Vísindahorni vikunnar og fjallaði þar um geimskot og ilminn af útiþurrkuðum þvotti og nýslegnu grasi. Tónlist: Hildur Vala - Tími. Bill Withers - Lovely day. Anouk - Birds. Eric Clapton - Lay down Sally. Jón Jónsson - Dýrka mest. Brimkló - Í óbyggðum. Hera - Process. Sváfnir Sig - Líttu aftur. George Michael - Fast love. Daði - Family man.

family donald trump airbnb sv sn hann ln bandar snorri bifr samkv vinnum silja b ingad helgi bragason nemendur bill withers lovely brimkl george michael fast
Morgunútvarpið
2. júní - Viðey, íbúðaskipti, atvinnulausir nemendur og Bandaríkin

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 2, 2020

Sumardagskráin í Viðey hefst með fuglaskoðun í kvöld undir leiðsögn Snorra Sigurðssonar fuglafræðings. Snorri kíkti til okkar í morgunkaffi og sagði okkur meira af fjölbreyttu fuglalífi Viðeyjar og með honum kom Ágústa Rós Árnadóttir viðburðarstjóri Borgarsögusafns en það er ýmislegt fleira áhugavert framundan sem hún getur fræddi okkur um. Íbúðarskipti hafa færst í vöxt á undanförnum árum en þannig getur fólk sparað sér háar fjárhæðir sem annars færu í hótelgistingu eða Airbnb gistingu í sumarfríinu erlendis. Heimsfaraldurinn hefur að sjálfsögðu breytt þessu tímabundið, en íbúðarskiptum innanlands fjölgar þess í stað. Snæfríður Ingadóttir spjallaði við okkur um þetta og gaf góð ráð en hún hefur m.a. skrifað bók um þennan möguleika fólks á að skiptast á húsnæði í fríium. Nemendafélag háskólans á Bifröst hefur vakið athygli á því að launþegar sem hafa stundað háskólanám samhliða vinnu og hafa verið í 73,3 prósent námi, eða meira, og missa sína 100 prósent vinnu, eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Samkvæmt Vinnumálastofnun flokkast þeir sem námsmenn og eiga að sækja í LÍN. Leifur Finnbogason formaður félagsins segir fólki í raun refsað fyrir dugnað og þetta flókna mál sé ósanngjarnt og þurfi að leysa. Hann kom til okkar og fór yfir málið. Silja Bára Ómarsdóttir, dósent við stjórnmálafræðideild HÍ, kom til okkar og ræddi ástandið í Bandaríkjunum en í gærkvöldi hótaði Donald Trump að beita hervaldi gegn mótmælendum í landinu. Þegar hafa a.m.k. tveir ríkisstjórar sagt að ekki komi til greina að beita hernum en hörð mótmæli hafa staðið yfir víða um landið síðustu daga. Silja Bára fór yfir þetta og hvaða stöðu mótmælin og heimsfaraldurinn geta haft á forsetakosningarnar í haust. Sævar Helgi Bragason var á sínum stað í Vísindahorni vikunnar og fjallaði þar um geimskot og ilminn af útiþurrkuðum þvotti og nýslegnu grasi. Tónlist: Hildur Vala - Tími. Bill Withers - Lovely day. Anouk - Birds. Eric Clapton - Lay down Sally. Jón Jónsson - Dýrka mest. Brimkló - Í óbyggðum. Hera - Process. Sváfnir Sig - Líttu aftur. George Michael - Fast love. Daði - Family man.

family donald trump airbnb sv sn hann ln bandar snorri bifr samkv vinnum silja b ingad helgi bragason nemendur bill withers lovely george michael fast
Dótakassinn
Samkomubann í tvær vikur - nemendur og kennarar

Dótakassinn

Play Episode Listen Later Mar 30, 2020 60:28

Í 17. þætti tók ég upp símann og hringdi í nemendur og kennara í MH og heyrði í þeim hljóðið eftir tvær vikur í samkomubanni. Hvernig gengur? Hvernig upplifun er þessi nýji raunveruleiki? Þetta eru skemmtileg samtöl og það er áhugavert að heyra ólíkar upplifanir fólks í nýju umhverfi. Heilræðir á tímum kórónuveirunnar: https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item40631/Heilraedi_allt_islenska_final.pdfFramhahaldsskólanemar - hvað getið þið gert?https://www.visir.is/g/202024888d/fyrir-fram-halds-skola-nem-endur-hvad-getid-thid-gert-?fbclid=IwAR2AfgmkZL0JLhyhl4ZwJwVt1we8fc5OzhRyAKzf6EP-9vmQTpyplGejGGoÁhrif óvissunnar á andlega líðan og hjálpleg viðbrögð: https://www.mh.is/is/frettir/ahrif-ovissu-a-andlega-lidan-og-hjalpleg-vidbrogd

mh hvernig nemendur
Dótakassinn
Jæja, hvernig gengur? - símaviðtöl við nemendur í MH.

Dótakassinn

Play Episode Listen Later Mar 20, 2020 59:46

Í 14. þætti hringdi ég í nokkra nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hvernig gengur á tímum samkomubanns? Hvernig gengur félagslega og hvernig gengur námið? Ef þú vilt koma í viðtal í Dótakassann, sendu þá endilega tölvupóst á netfangið: dotakassinnhladvarp@gmail.com Vilt þú senda inn spurningu eða ábendingar að efni fyrir Dótakassann:https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSf-moEin3iS7yxNcf9t_7xqgHHcIzkPWG3Lkw4iCm4WCdzltg/viewform

Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs
Íslandssaga fyrir erlenda nemendur og tvær byltingar

Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs

Play Episode Listen Later Mar 6, 2020 64:54

Hugvarp ræddi við Markús Þórhallsson sem kennir hópi erlendra nemenda Íslandssöguna, þar á meðal sögu tveggja byltinga í Reykjavík.

Mannlegi þátturinn
Tré lífsins, Aromatherapyskóli og jólin á Spáni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 11, 2019 55:00

Tré lífsins er nýr og umhverfisvænn valmöguleiki við lífslok þar sem fólki gefst kostur á að skrá sínar hinstu óskir og söguna sína fyrir andlát. Það verður opnuð ný bálstofa þar sem aðstandendur geta verið viðstaddir bálför kjósi þau það, en að bálför lokinni er aska gróðursett ásamt tré í Minningagarði. Við fengum þær Sigríði Bylgju Sigurjónsdóttur og Oktavíu Hrund Jónsdóttur, sem standa að Tré lífsins, til að segja okkur frekar frá þessu verkefni, en þær komust með það inn í samfélagshraðalinn Snjallræði og fengu frumkvöðlastyrk frá Íslandsbanka á dögunum. Í janúar 2020 mun nýr skóli taka til starfa hér á landi. Um er að ræða Aromatherapyskólann sem stofnaður er af Kristínu Sjöfn Valgeirsdóttur sem er með alþjóðalega viðurkenningar sem aromatherapisti. Í skólanum verður boðuð upp á framúrskarandi tveggja ára nám sem byggir á klassískri þekkingu á ilmkjarnaolíum og nýjustu uppgötvunum og rannsóknum á sviði aromatherapy. Nemendur læra á 50 ilmkjarnaolíur, hvernig þær eru unnar úr jurtum, virkni þeirra og efnafræði og örugga, ábyrga og hagnýta notkun ilmkjarnaolía til forvarna heilsu og vellíðunar. Við ræddum við Kristínu í þættinum. Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni á Spáni í dag. Það er öðruvísi stemning fyrir jólunum á Spáni en á Íslandi. Hann segir að jólin séu ekki eins hátíðleg þar og á Íslandi. Á Spáni heita þau Navidad sem þýðir fæðingarhátíð. Það er ekki mikið um skreytingar nema í verslunum og einstaka veitingastað. Jólatré, jólasveinar og hreindýr virka hreinlega skrítin þar. Aðalfjörið á Spáni snýst um risapott í Spænska ríkishappdrættinu. Póstkort dagsins snýst um jól, skort á jólum og hvernig það er fyrir íslending að upplifa spænska aðventu. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

navidad sj magn krist hann sigr oktav nemendur hrund j
Mannlegi þátturinn
Tré lífsins, Aromatherapyskóli og jólin á Spáni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 11, 2019

2. des. - Brunar, heimilisofbeldi, friðarganga, ættleiðingar og sport

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 2, 2019 130:00

Nokkuð hefur verið um bruna undanfarið og mikið eignatjón þar sem sumir tapa jafnvel öllu sínu. Sigrún A. Þorsteinsdóttir forvarnarfulltrúi kíkti til okkar og fræddi okkur um forvarnir þegar kemur að bruna og fara yfir valkosti í tryggingum með okkur. Ný rannsókn, byggð á gögnum Landsspítalans, leiðir í ljós að annan hvern dag kemur kona á spítalann eftir að hafa fengið áverka vegna heimilisofbeldis. Beinn kostnaður spítalans vegna þessa nemur um hundrað milljónum á 10 ára tímabili, en ef allt er talið er kostnaðurinn hærri. Drífa Jónasdóttir, doktorsnemi við læknadeild HÍ, kom til okkar og sagði okkur frá rannsókninni . Nemendur í Árskóla á Sauðárkróki fagna upphafi aðventu á hátíðlegan hátt með friðargöngu. Við slógum á þráðinn norður til Óskars G. Björnssonar skólastjóra og spurðum út í þessa hefð sem flestum á svæðinu finnst ómissandi. Fimm börn hafa verið ættleidd erlendis frá í ár. Kristinn Ingvarsson, framkvæmdastjóri íslenskrar ættleiðingar, segir að hægt sé einfalda ættleiðingakerfið hér á landi mikið með því að stofna sérstakt sérfræðiteymi þvert á landið. Það myndi jafna möguleika fjölskyldna á ættleiðingu en barnaverndarnefndir séu 27 á landinu og vinnubrögð þeirra ólík. Kristinn kom til okkar. Við fórum yfir það allra helsta af íþróttum helgarinnar með Kristjönu Arnarsdóttur íþróttafréttamanni. Tónlist: Stefán Hilmarsson - Glæddu jólagleði í þínu hjarta. Imelda May - Black tears (ft. Jeff Beck). Svanhildur Jakobsdóttir - Hvít jól. Erla og Gréta - Ég er að bíða eftir þér. The Charlatans - Cant get out of bed. Dolly Parton - Here you come again. Biggi Hilmars, Sóley og Pétur Ben - Fögur jól. The Cardigans - Lovefool. Vök - In the dark.

Morgunútvarpið
2. des. - Brunar, heimilisofbeldi, friðarganga, ættleiðingar og sport

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 2, 2019

Sameining á Austurlandi. Þjónusta við nemendur. Vendingar í flugheimin

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 8, 2019 55:00

Björn Ingimarsson bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði: Nú standa yfir íbúafundir á Austurlandi til að kynna sameiningaráform fyrir íbúum. Íbúakosning um sameiningu Djúpavogshrepps, Borgarfjarðarhrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar fer fram 26. október. Sigríður Guðmundsdóttir iðjuþjálfi við Þelamerkurskóla: Sagði frá verkefninu Gerum gott betra - sem hefur þann tilgang að bæta þjónustu við nemendur sem þurfa mikla námsaðlögun. Friðrik Páll Jónsson: Fjallar um vendingar í flugheiminum.

Mannlegi þátturinn
Margrét Maack föstudagsgestur og matarspjallið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 13, 2019 55:00

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Margrét Erla Maack. Hún hefur brallað ýmislegt í gegnum tíðina, verið í sjónvarpi og útvarpi, í uppistandi, unnið í sirkus, verið burlesque dansari, danskennari o.fl. Hún er þessa dagana að standa fyrir söfnun á Karolinafund fyrir fæðingarorlofi, en hún er sjálfstætt starfandi, með breytilegar tekjur og hefur því takmarkaðan rétt á fæðingarorlofi. Við spjölluðum við hana um æskuna og uppvöxtinn, ferðalagið í gegnum lífið til dagsins í dag og um söfnunina. Nemendur við Hótel og veitingaskólann bjóða af og til uppá nokkurs konar hátíðaræfingakvöldverð og bjóða til sín góðum gestum. Bergþór Pálsson og Albert Eiríksson voru gestir nemendanna í gær og fengu að bjóða Sigurlaugu Margréti með sér. Hún sagði okkur frá þessu kvöldi, matnum, þjónustunni og samkvæmisleikjum í matarspjalli dagsins. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

berg margr maack nemendur sigurlaugu margr
Hlaðvarp Kjarnans
Pottersen 20. þáttur: Sadískur kennari

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Aug 29, 2019 62:27

Stóra stundin er runnin upp, Harry og félagar eru á leið í Hogwarts, en það er ekki þar með sagt að skólavistin verði dans á rósum. Í köflum 10-13 í Fönixreglunni gengur töluvert á. Nemendur pískra um Harry og af sumum er hann talinn brjálaður vegna þess að hann segir Voldemort hafa snúið aftur. Galdraunglingurinn skeytir auðveldlega skapi og á í erfiðleikum með að halda sér í andlegu jafnvægi, sem leiðir til þess að hann rífst við félaga sína í Gryffindor, öskrar á nýja kennarann, prófessor Umbridge, og það endar með því að hann þarf að sitja eftir hjá henni. Refsiaðferðirnar eru vægast sagt grófar og upp vakna spurningar um hvort hún sé á bandi myrkrahöfðingjans. Lúna Lovegood kemur til sögunnar, Hermione sinnir hlutverki sínu sem umsjónarmaður, Ron á sér leyndarmál, Draco Malfoy er samur við sig og margt fleira. En hvar er Hagrid?

Mannlegi þátturinn
Skólastjóri Lýðháskólans, Samúel í Selárdal og nautaat

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 26, 2019 55:00

Lýðháskólinn á Flateyri er miklu meira en en bara skóli, þar eru ekki allar áherslur á einingar og próf. Nemendur fá að tengjast atvinnulífinu, samfélaginu og menningu. Ingibjörg Guðmundsdóttir kennslustjóri í HR er að pakka niður og flytja til Flateyrar og taka við sem skólastjóri Lýðháskólands. Hún sagði frá skólanum í þættinum og sagðist hlakka til að takast á við þetta spennandi starf. Við fræðumst um merkilegan Íslending og alþýðulistamann Samúel Jónsson í Selárdal sem fæddist árið 1884 og lést 1969. Hann meðal annars endurgerði í Selárdal frægan ljónagosbrunn sem er í Alhambra á Spáni, reisti mikla ævintýraveröld í dalnum og byggði kirkju, einfaldlega af því hann vantaði eina slíka fyrir altaristöflu sem hann gerði. Við heyrðum í Elfari Loga Hannessyni, sem hefur samið leiksýningu um Samúel sem heitir Listamaðurinn með barnshjartað. Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni frá Spáni í þættinum. Í póstkorti dagsins segir af nautaati, Jónsmessuhátíðinni, óttanum við hitabylgjuna sem er að skella á Spán. Einnig frá döpru sjálfsmati spænsku þjóðarinnar og kvikmynd sem Adam Sandler var að gera og móðgar Spánverja með því að sýna þá sem fólk sem er tilbaka í tilverunni og á eftir samtímanum. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG SIGURLAUG MARGRÉT JÓNASDÓTTIR

Pírataspjallið
Loftlagsverkföll ungmenna - Elísabet Brynjarsdóttir

Pírataspjallið

Play Episode Listen Later Mar 21, 2019 27:29

Björn Leví þingmaður Pírata ræðir loftlagsverkföll ungmenna við Elísabetu Brynjarsdóttur formann Stúdentaráðs Háskóla Íslands og talsmann LÍS Landsamtaka íslenskra stúdenta. Pírataspjallið er vikulegur þáttur um líðandi málefni þar sem umsjónarfólk þáttarins fær til sín gesti og ræða helstu mál vikunar. Umsjón þáttana skipta þau Oktavíu Hrund og Björn Leví á milli sín.Oktavía Hrund Jónsdóttir hefur starfað við öryggisráðgjöf og samskiptatækni en er ötul baráttumanneskja fyrir stafrænum réttindum og fjölmiðlafrelsi.Björn Leví Gunnarsson er stjórnmálamaður og tölvunarfræðingur. Björn var kjörinn á Alþingi fyrir Pírata árið 2016.Facebook: @podcastpirataNetfang: podcast@piratar.is

bj lev sabet umsj hrund brynjarsd oktav verkfall lev gunnarsson nemendur hrund j
Samfélagið
Útinám, erlendir nemendur í framhaldsskólum, málfar og súrnun sjávar.

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 22, 2018 55:00

Jakob Frímann Þorsteinsson, varaformaður samtaka áhugafólks um útinám: Útinám í skólum Sara Þöll Finnbogadóttir og Hildur Björgvinsdóttir, SÍF: Hvernig má bæta stöðu og tryggja áframhaldandi nám í framhaldsskóla fyrir erlenda nemendur og flóttafólk.. Málfarsmínútan Edda Olgudóttir: Vísindaspjall um súrnum sjávar.

finnbogad jakob fr hildur bj nemendur erlendir
Mannlegi þátturinn
Skáldleg Skrif, internetið og útvarpsleikrit nemenda Borgarholtsskóla

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 3, 2018 57:00

Hvernig ber maður sig að ef mann langar að skrifa skáldsögu? Kristján Hreinsson skáld kennir fólki þessa dagna skáldleg skrif á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands. Kristján kom í þáttinn og sagði upp og ofan af því hvernig hann hjálpar fólki að taka fyrstu skrefin á ritvellinum. Internetið hefur breytt öllum mannlegum samskiptum á jörðinni. Helmingur mannkyns er tengdur og hinn helmingurinn vill tengjast. En hefur netið staðið undir væntinum sem lýðræðislegt tæki til að auka jöfnuð og skilning manna á meðal? Nei, segir Andrew Keene, höfundur bókar, sem heitir “The Internet Is Not The Answer“. Magnús R. Einarsson kíkti í bókina og sagði frá helstu niðurstöðum höfundarins í pistli í dag. Nemendur í leiklist í Borgarholtsskóla kynnast flestum hliðum leiklistar og þessa dagana eru þau að vinna útvarpsleikrit sem þau skrifuðu sjálf og leika öll hlutverkin í. Verkefnið er unnið í samvinnu við Krakka RÚV og verður flutt í útvarpinu, því hafa þau verið þessa vikuna við upptökur í hljóðveri númer 12 hér í Efstaleitinu, sem er einmitt heimili Útvarpsleikhússins hér á bæ. Við tókum tvo nemendur, Tinnu Björk og Kristófer Pál og kennara þeirra Guðnýju Maríu Jónsdóttur, tali. Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

gu magn nei krist kristj hvernig einarsson gunnarsd umsj verkefni skrif interneti hreinsson andrew keene nemendur gunnar hansson helmingur
Spegillinn
Spegillinn 14.03.2018

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 14, 2018 30:00

Nemendum í 9. bekk gefst kostur á að taka aftur samræmd próf í ensku og íslensku. Nemendur ráða því sjálfir hvort þeir taka þau, samkvæmt ákvörðun Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra. Skipulagsstofnun telur að áhrif Hvammsvirkjunar í Þjórsá á landslag verði verulega neikvæð. Þetta kemur fram í áliti stofnunarinnar á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar virkjunar. Tuttugu og þremur rússneskum sendiráðsstarfsmönnum var í dag vísað frá Bretlandi. Bretar saka Rússa um að hafa staðið að taugaeitursárás á fyrrverandi gagnnjósnara og dóttur hans. Rússar vísa ásökununum á bug. Dæmi eru um að aldraðir hér á landi lifi undir sultarmörkum. Þetta sýnir meistararannsókn í næringarfræði. Einn frægasti og áhrifamesti vísindamaður samtímans er allur. Stephen Hawking varð táknmynd fyrir vald hugans og þúsundir vísindamanna glíma enn við kenningar hans og spurningar um svarthol. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman og talaði við Gunnlaug Björnsson. Þegar kom í ljós 2007 að tveir Rússar höfðu myrt njósnarann Alexander Litvinenkó árið áður var fjórum rússneskum sendiráðsmönnum vísað úr landi. Nú, tíu dögum eftir morðtilræði við Sergei Skripal og dóttur hans hyggst breska stjórnin vísa 23 rússneskum sendiráðsmönnum úr landi auk þess að beita öðrum aðgerðum og þvingunum. Sigrún Davíðsdóttir tók saman. Bakgrunnur Sergeis Skripal. Anna Kristín Jónsdóttir. Spegillinn 14. mars 2018 Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson

stephen hawking dav sigr einn sergei skripal bretlandi anna krist bretar nemendur lilju alfre
Mannlegi þátturinn
Keppa í fjármálalæsi, upprisa kvenlægrar vitundar og Eitrunarmiðstöð

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 14, 2018 55:00

Þessa vikuna stendur yfir alþjóðleg fjámálalæsisvika og sem hluti af henni fer fram spurningakeppni milli einstakra grunnskóla í um 30 löndum Evrópu. Nemendur í 10.bekk hér á landi fá tækifæri til að taka þátt í keppninni. Tveir nemendur í þeim skóla sem vinnur undankeppnina í hverju landi fara og keppa í lokakeppninni í Brussel í Belgíu um hvaða skóli hlýtur Evróputitilinn í fjármálalæsi. Kristín Lúðvíksdóttir, verkefnastjóri Fjármálavits kom í þáttinn í dag ásamt Gunnari Jónssyni og Össu Arnardóttur, nemendum úr 10. Bekk Hlíðaskóla. Upprisa kvenlægrar vitundar verður viðfangsefni Sagnakaffis með Valgerði H. Bjarnadóttur í Gerðubergi í dag. Valgerður segir sögur og tengir við sjálfa sig og allar þær konur sem í dag eru að rísa upp og hafa hátt. Þetta eru spennandi sögur frá örófi alda, um Undirheimaferðir og Upprisur goðanna. Kallast þessar sögur sterkt á við sögu kvenna í dag og þá upprisu sem nú er að eiga sér stað. Við heyrðum í Valgerði í dag. Fjórtánhundruð hringdu á síðasta ári í eitrunarsímann sem Eitrunarmiðstöð Landspítalans rekur. Algengast er að spurt sé um eitranir vegna geðlyfja, parasetamol og vítamína. Meira en 20 prósent hringdu vegna barna yngri en tveggja ára. Bergljót Baldursdóttir fréttamaður fer í heimsókn á Eitrunarmiðstöð Landspítalans og spjallaði við Helenu Baldvinsdóttur lyfjafræðing og sérfræðing í klínískri eiturefnafræði á Heilsuvaktinn í dag. Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

Dagvaktin
Rokksöngleikur og fleira spennandi

Dagvaktin

Play Episode Listen Later Mar 12, 2018

Plata vikunnar með FM Belfast, hitað upp fyrir Íslensku tónlistarverðlaunin, Nemendur úr söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Dementz sögðu frá rokksöngleiknum Heathers og tóku lag. MánudagsMayerinn og tónlistarfréttir héðan og þaðan úr heiminum. Lagalisti: 12:45-14:00: Hildur Vala - Sem og allt annað. George Michael - Amazing. Justin Timberlake & Chris Stapleton - Say something. Macy Gray - Still. Lapsley - Love is blind. JAK - Flóttamaður. Mammút - Breathe into me. Aron Can - Aldrei heim. Steinar - Simple life. Father John Misty - Mr. Tillman. EYRÚN, FANNÝ LÍSA OG KARL SÖGÐU FRÁ ROKKSÖNGLEIKNUM HEATHERS OG EYRÚN TÓK LAGIÐ BJÖRGUNARGBÁTUR Rolling Stones - Anybody seen my baby. FM Belfast - Follow me (af plötu vikunnar). Sykur & GDNR - Cars and girls. Bríet - In too deep. 14:03-15:00: Ingileif - At last. Liam Gallagher - Paper Crown. Greta Salóme - Running out of time. Dream Wife - Hey heartbreaker. Queen - Keep yourself alive. Sufjan Stevens - Mystery of love. Nýdönsk - Stundum. Live - Run to the water. Harry Styles - Sign of the times. Retro Stefson - Minning. Kodaline - The one. 15:03-16:00: Valdimar - Of seint. Talking heads - Once in a lifetime. U2 - One tree hill. JóiPé & Króli - B.O.B.A. Amabadama - Gróðurhúsið. FM Belfast - You're so pretty (af plötu vikunnar). Sinéad O'Connor - Nothing compares to u. MÁNUDAGSMAYERINN - John Mayer - Half of my heart. Sade - Flower of the universe. Tove Lo - Disco tits. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir

running sin breathe kr justin timberlake plata tillman sigur umsj mamm stundum fm belfast geirsd harry styles sign sufjan stevens mystery sykur nemendur queen keep lagalisti
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið 28.febrúar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 28, 2018 190:00

Í dag kl 16 rennur út frestur ASÍ til þess að segja upp kjarasamningum en samtökin hafa lýst því að forsendur kjarasamninga séu brostnar. Formenn aðildarsamtaka ASÍ munu funda frá kl. 11 og taka um það ákvörðun. Síðdegis í gær tilkynnti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra að ríkisstjórnin muni frá og með 1. maí hækka atvinnuleysisbætur um 50 þúsund og grípa til aðgerða sem miðist við að komið verði betur til móts við þá tekjulægstu í samfélaginu svo sem með breytingum á skattleysismörkum, barnabótum vaxtabótum og húsnæðisbótum. Þrátt fyrir þessar aðgerðir tilkynntu þrjú félög ASÍ seint í gærkvöldi að þau vilji uppsögn kjarasamninga. Við fáum til okkar Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ, og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, ræða þetta. Nemendur í bókaráði Hagaskóla standa í dag fyrir málþingi um lestur. Þau segja skort á lesefni á íslensku fyrir ungmenni. Þrír nemendur í ráðinu taka til máls en auk þeirra verða erindi frá menntamálaráðherra, bókasafnsfræðingi, bókaútgefanda og rithöfundi. Við ræðum við Eir Ólafsdóttur, nemanda í 10. bekk Hagaskóla um hvernig auka megi áhuga ungmenna á lestri. Við höfum fjallað um þingsályktunartillögu um dánarsaðstoð, sem áður var nefnt líkardráp, en hún liggur fyrir þinginu. Landlæknir hefur lýst því að misráðið sé að færa umræðuna um dánaraðstoð inn á Alþingi. Í gær lýstu tveir aðstandendur reynslu sinni af því að faðir annarrar og eiginmaður hinnar hefðu fengið aðstoð til að deyja, annar í Hollandi og hinn í Sviss. Þær lýstu ólíkum viðbrögðum heilbrigðisstarfsfól hér á landi þegar þeim var sagt frá fyrirætlununum. Sumir vildu fræðast meira en aðrir vildu ekki heyra á þetta minnst. Við ræðum við Henry Alexander Henrysson siðfræðing um siðfræðileg álitaefni við dánaraðstoð. Guðmundur Jóhannsson kemur í sína vikulegu heimsókn og ræðir tæknimál.

Morgunvaktin
Fara 14% Íslands á heimsminjaskrá?

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 1, 2018 130:00

Eftir spjall um veður og færð var hringt í Gunnhildi Eddu Kristjánsdóttur og rætt um Njálu-refilinn sem konur á Hvolsvelli eru að sauma. Á morgun verða fimm ár liðin frá því hafist var handa við þetta mikla verk. Sagt frá umræðum í bæjarstjórn Akureyrar um siðareglur og boðsferðir sem tveir bæjarfulltrúar þáðu. Síðan var farið út í heim með Boga Ágústssyni að venju á fimmtudegi. Rætt var um vandræði Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra, vegna tengsla hans við kvótakóng. Þá var rætt um Evrópuáherslur í stjórnarmyndunarviðræðum í Þýskalandi. Breytingar sem varða aðgang að innri markaðnum gætu haft áhrif á Íslendinga. Umsókn Íslands um að Vatnajökulsþjóðgarður og hluti gosbeltisins verði sett á heimsminjaskrá UNESCO hefur verið afhent í París. Í tilnefningunni er áhersla lögð á rekbeltið, heita reitinn undir landinu og eldstöðvakerfi í gosbeltunum, ásamt samspili elds og íss, sem talið er einstakt. Á heimsminjaskrá UNESCO eru staðir sem teljast hafa gildi fyrir allt mannkyn. Snorri Baldursson, líffræðingur, er verkefnisstjóri UNESCO-umsóknarinnar og ritstjóri skýrslunnar sem fylgir umsókninni. Hann fræddi hlustendur um málið. Áfram var dvalið í grennd við Vatnajökul. Í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu sem staðsettur er á Höfn í Hornafirði markast nám og skólastarf nokkuð af nágrenni við Jökulinn mikla. Nemendur læra um og á náttúruna og stunda meira að segja rannsóknir. Rætt var við Eyjólf Guðmundsson skólameistara. Þættinum luku The Beatles með laginu Long, long, long.