POPULARITY
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis um stjórnsýslu. Guðríður Eldey Arnardóttir framkvæmdastjóri Samáls um stóriðju- og orkumál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaform. Sjálfstæðisflokksins um stjórnmál. Svana Helen Björnsdóttir formaður Verkfræðingafélags Íslands og Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands um menntamál.
Svenska Filminstitutets nya vd om den svenska filmens kris och framtid och om att hålla kulturen och politiken på armlängds avstånd. Lyssna på alla avsnitt i Sveriges Radio Play. Bakom sig har Anna Croneman en gedigen karriär inom film och TV, som filmproducent och senast som chef för SVT Drama. När hon nu tillträder som vd för Svenska Filminstitutet är det skakiga tider för svensk film.Bryta dödläget i filmbranschenDen svenska publiken har svikit biograferna och vänt sig till streamingtjänsternas tv-serier, något som bidragit till krisen för svensk film. Men Anna Croneman tycker sig se att både publik och upphovsmän nu längtar tillbaka till filmen. ”Den yngre publiken, alltså de under 30, ser lika mycket film idag som innan pandemin”, säger hon. Däremot ligger inte de svenska filmerna i topp hos biobesökarna och det är något som Anna Croneman vill ändra på. Hon efterlyser filmer med hög konstnärlig integritet som dessutom når en stor publik - även om just den kombinationen är svårt att få till.Skatt på streamingtjänster enda alternativetRegeringen har tillsatt en filmutredning som ska föreslå en uppdaterad filmpolitik. Det Anna Croneman hoppas mest på är att den ska resultera i ett större anslag till Svenska Filminstitutets budget. Sverige ligger långt ner på listan över länder när det gäller statlig finansiering av filmproduktion. ”Det är klart att det är jättesvårt att satsa sig ur ett dödläge utan att ha resurser. Så den där finansieringsfrågan är kolossalt viktig”, säger Anna Croneman.För att säkra finansieringen av filmproduktion har flera länder, däribland Frankrike och Danmark, infört en kulturavgift för streamingbolagen - den så kallade Netflix-skatten. Anna Croneman tycker att Sverige borde överväga att gå samma väg. ”Hittills är det det enda alternativet som existerar. Och jag tycker att det är rimligt att de som visar svensk film också ska vara med och bidra till den allmänna infrastrukturen, det vill säga talangutveckling och utbildning för filmarbetare”, säger hon.Inget prat om jämställdhet i enskilda verkFrån och med 2017 har staten hela ansvaret för den nationella filmpolitiken. I riktlinjerna finns sju övergripande mål för Svenska Filminstitutet.Anna Croneman anser att den statliga filmpolitiken ger Filminstitutet förbättrade möjlighet att planera självständigt, men hon ser också risken att de politiska målen blir sakfrågor för branschen. Ett exempel på detta var Filminstitutets tidigare vd Anna Serners satsning på jämställdhet. Något som Anna Croneman tycker fick för stort fokus. Man hamnar lätt i problem när man pratar om jämställdhet i enskilda verk. Jämställdhet i branschen är viktig, men fokus ska ligga på filmen och innehållet, säger Anna Croneman.
Þriðjudagurinn 13. febrúar Kjaraviðræður, laskaðir innviðir, biskupskjör og Vaðlaheiðargöng Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins skýrir stöðuna í kjarasamningum. Á hverju strandar og hvers vegna? Verða verkföll eða ekki? Björn Þorláksson tekur á móti þingkonunni Hönnu Katrínu Friðriksson frá Viðreisn og ræðir við hana um hrörnandi innviði, einkum í heilbrigðiskerfinu. Ninna Sif Svavarsdóttir, prestur í Hveragerði, vill verða í biskup. Hún segir okkur hvers vegna. Leikhópurinn Verkfræðingarnir hafa sett saman sýningu um Vaðalheiðargöngin, verk sem fjallar um göngin og reyndar miklu meira til. Leikararnir Kolbeinn Arnbjörnsson og Hilmir Jensson segja okkur hvers vegna þessi göngu eru svona merkileg og saga þeirra fjarstæðukennd.
Við höldum áfram að ræða aldurstakmarkanir í lögum - kíktum í heimsókn á Alþingi til Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur, þingmanns Framsóknar, en hún hefur mikið velt þessu fyrir sér og lagði nýlega fram frumvarp ásamt nokkrum samflokksmönnum þar sem lagt er til að hætt verði að gera þá kröfu að forseti Íslands þurfi að vera orðinn 35 ára á kjördag, Verkfræðistofan Verkís mun leiða umfangsmikið, fjölþjóðlegt orkuskiptaverkefni sem er styrkt af Evrópusambandinu og snýst um að aðlaga stórt flutningaskip þannig að það geti notað rafeldsneyti í stað olíu. Ammóníak, metanól og vetni koma þarna við sögu og kostnaður við verkefnið er um 2,5 milljarðar króna. Kjartan Due Nielsen, nýsköpunarstjóri Verkís, ætlar að segja okkur frá þessu verkefni. Málfarsmínúta - framhjáhald. Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur - lyfleysur og lyfleysuáhrif. Tónlist: Björgvin Halldórsson - Himinn og jörð. Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
Einkenni kulnunar og einnig hin súrrealíska veröld belgíska listmálarans Magritte voru mikill innblástur við gerð leikverksins Vaðlaheiðagöng sem frumsýnt verður á næstunni í Borgarleikhúsinu. Leikhópurinn Verkfræðingarnir standa að uppfærslunni. Við ræðum við tvo meðlimi hópsins þau Karl Ágúst Þorbergsson og Júlíönnu Láru Steingrímsdóttur í þætti dagsins. Við hugum einnig að berskjöldun og náum tali af Nönnu Hlín Halldórsdóttur, heimspekingi, um grein sem hún skrifaði um hugtakið og birti í tímaritinu Hug nú á dögunum og svo fáum við að heyra hvað Soffíu Auði Birgisdóttur fannst um bókina Dúnstúlkan í Þokunni eftir Bjarna Bjarnasson. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir
Vaðlaheiðagöng er heiti á nýju verki sem sviðslistahópurinn Verkfræðingar munu frumsýna á Nýja sviði Borgarleikhússins 2.febrúar. Það má segja að verkið fjalli um brothætt samband manns og náttúru. Karl Ágúst Þorbergsson, listrænn stjórnandi verksins er ný hættur sem lektor við sviðslistadeild LHÍ og farinn í húsamíðanám. Við ræddum við Karl í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni úr flóanum í dag. Í þetta sinn var vinklinum brugðið á lítinn leikþátt sem fjallar um mismunandi mælieiningar með áherslu á mun metrakerfisins og þeirri aðferða sem algengast er að beita í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Svo var það lesandi vikunnar, en að þessu sinni var það Þröstur Helgason doktor í bókmenntafræði og stofnandi KIND útgáfu, en útgáfan stendur fyrir námskeiði um Eggert Pétursson listmálara í tilefni af útkomu nýrrar bókar um listamanninn. En við fengum auðvitað að vita hvaða bækur Þröstur hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Þröstur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ýmsar bækur sem fjalla á einn eða annan hátt um bláa litinn, Ljóðasafn Jónasar Hallgrímssonar All That is Solid Melts Into Air e. Marshall Berman David Scott Kastan: On Color Paradísamissir e. John Milton í nýrri þýðingu Jóns Erlendssonar Svo nefndi Þröstur fræðifólkið Michel Foucault, Roland Barthes, Matthías Viðar Sæmundsson, Ástráður Eysteinsson, Jón Karl Helgason, Dagný Kristjánsdóttir og Helga Kress, sem öll hafa á einn eða annan hátt haft áhrif á hans störf og skrif. Tónlist í þættinum í dag: Sólarsamban / Rebekka Blöndal (Ásgeir Ásgeirsson, Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson) Heim / Magni Ásgeirsson (Magni Ásgeirsson og Ásgrímur Ingi Ásgrímsson) Winning Streak / Glen Hansard (Glen Hansard) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Gestur Felix í Fimmunni er Haukur Ingi Jónasson lektor við Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík en hann talaði um fimm áhrifavalda í lífi sínu Peter Gabriel var tónlistarmaður dagsins
Gestur Felix í Fimmunni er Haukur Ingi Jónasson lektor við Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík en hann talaði um fimm áhrifavalda í lífi sínu Peter Gabriel var tónlistarmaður dagsins
Fjöldamorðið við Texas Háskóla - Sálfræðileg greiningSumarkvöld eitt árið 1966 fór Charles Whitman upp í turn á skólalóð Texas háskóla. Í 90 mínútur stóð hann í turninum og skaut handahófskennt á saklausa vegfarendur. Whitman drap 16 manns og særði 30 aðra. Sálfræðin hefur lengi reynt að skilja svona morðæðishegðun og fara Elva og Vilborg sálfræðikennarar yfir fimm ólíkar sálfræðikenningar sem gefa innsýn í það morðæði sem rann á Charles þennan afdrifaríka dag. Farið er í gegnum sjónarmiðin fimm í nútímasálfræði, sálgreiningu, mannúðarsjónarmiðið, líffræðilega sjónarmiðið, atferlissjónarmiðið og hugræna sjónarmiðið. Hægt er að styrkja Poppsálin með því að gerast áskrifandi á https://www.patreon.com/PoppsalinSem þakklætisvott fá áskrifendur einn auka þátt í mánuði.
Tinna Hallgrímsdóttir formaður Ungra umhverfissinna: Ný ríkisstjórn tók við völdum á sunnudaginn sem hyggst leggja áherslu á loftslagsmál. Ungir umhverfissinnar hafa gagnrýnt stjórnvöld fyrir aðgerðarleysi og Sjálfstæðisflokkurinn, flokkur nýja umhverfisráðherrans fékk ekki háa einkunn hjá þeim fyrir kosningar. Rætt og rýnt í nýjan stjórnarsáttmála. Íris Hrönn Guðjónsdóttir, innviðastjóri Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands: Afhverju eiga konur, sem hafa klifið metorðastigann, og eru um miðjan aldur komnar í æðstu stjórnendastöður það til að hætta alfarið í vinnunni, og fara að gera eitthvað allt annað? Við ætlum að rýna í einkar forvitnilega rannsókn sem birtist nýlega og skoðar þetta - rannsóknin dregur ekki bara fram mismunandi stöðu og upplifun kynjanna af atvinnulífinu, heldur beinir sjónum að því hve nauðsynlegt það er að atvinnulífið þrói með sér gildi sem dregur að og heldur í þroskaðan og fjölbreittan starfshóp. Páll Líndal umhverfissálfræðingur með pistil Steingrímur Birkir Björnsson rjúpnaveiðimaður: Síðasti dagur rjúpnaveiði er í dag, rætt við veiðimann sem um hvernig veiðarnar í haust hafa gengið.

Formenn stjórnarflokkanna ræddu myndun nýrrar ríkisstjórnar og skiptingu ráðuneyta á fundi sínum í dag. Vinna við gerð stjórnarsáttmála er langt komin. Varsla hefur verið hert til muna á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands. Fjöldi hælisleitenda er á leið þangað eða kominn að mörkunum. Loðnuvertíð sem gæti orðið sú stærsta í 20 ár er að hefjast og Bjarni Ólafsson AK heldur til veiða á morgun. Stýrimaðurinn er bjartsýnn. Fulltrúar þriggja íslenskra stéttarfélaga lögðust gegn því að íslenska flugstéttafélagið fengi inngöngu í Norræna flutningamannasambandið. Forsætisráðherra Danmerkur, hefur boðað til blaðamannafundar vegna mikillar aukningar kórónuveirusmita í landinu. Hálf öld er í dag frá því að eitt frægasta rokklag heims kom út. Lengri umfjallanir (frá mínútu 10): Utanríkisráðherra segir Ísland standa vel þegar kemur að framlögum til loftslagsaðgerða í þróunarríkjum. Gagnrýni tveggja sjálfstæðra rannsóknastofnana sé hvatning til að gera betur. Grænþvottur þróunaraðstoðar sé ekki vandamál hér. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson Verkfræðingur hjá Eflu segir mikilvægt að hefja strax undirbúning að framleiðslu rafeldsneytis, ella gæti Ísland þurft að flytja inn dýrt rafeldsneyti. Arnar Páll Hauksson ræðir við Hafstein Helgason. Á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn var ákveðið að verja auknu fé til menningarsamstarfs en niðurskurður hafði verið fyrirhugaður. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir þennan áfangasigur við Hrannar Björn Arnarsson, formann Norræna félagsins. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir. Tæknimaður: Mark Eldred
Í kvöld verður söngleikurinn Fyrsti kossinn frumsýndur í Frumleikhúsinu í Keflavík. Um er að ræða verk, eins og nafnið bendir til, þar sem tónlist Rúnars Júlíussonar heitins er í forgrunni, en höfundar verksins eru parið Brynja Ýr Júlíusdóttir, barnabarn Rúnars, og Guðlaugur Ómar Guðmundsson. Hulda heimsótti þau, ásamt Guðnýju Kristjánsdóttur móður Brynju og leikkonu, í hið sögufræga hljóðver Geimstein í Keflavík og fékk að vita meira um verkið og starfsemi Leikfélags Keflavíkur sem fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir. Í dag er dagur verkfræðinnar og af því tilefni blása verkfræðingar til samkomu þar sem boðið verður upp á ýmis konar fróðleik og verðlaunaafhendingar. Hörn Hrafnsdóttir vatnsauðlindaverkfræðingur hjá Verkís er á meðal fyrirlesara en hún ræðir innviði á Reykjanesskaga og verkfræðileg úrlausnarefni vegna eldgosa. Hörn kom til okkar. Drengurinn sem dó úr leiðindum er titillinn á nýrri barnabók eftir Guðríði Baldvinsdóttur, en Guðríður er ekki bara rithöfundur heldur er hún líka sauðfjárbóndi, frumkvöðull og skógfræðingur. Við slógum á þráðinn til Guðríðar sem býr á bænum Lóni II í Kelduhverfi. Fréttir vikunnar voru á sínum stað og gestir okkar að þessu sinni voru þau Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Stundinni og Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og leikstjóri. Kvikmyndin Leynilögga var frumsýnd í vikunni hér á landi og óhætt að segja að viðbrögðin hafi verið góð. Fólk hefur streymt í bíó síðustu daga til að sjá myndina, ýmist í útgáfu fyrir 12 ára og eldri eða 16 ára og eldri, og stefnir í metaðsókn þessa fyrstu viku. Að auki hefur myndin vakið lukku á kvikmyndahátíðum erlendis og eru fleiri slíkar á dagskrá. Við fengum Auðunn Blöndal sem leikur aðalhlutverkið til okkar í spjall. Tónlist: Sigurður Guðmundsson - Kartöflur. Rúnar Júlíusson - Það þarf fólk eins og þig. Adele - Easy on me. Baggalútur - Ég á það skilið. Faith no more - Easy. Nýdönsk - Hjálpaðu mér upp. Ed Sheeran - Shivers.

Í er fimmtudagur og þá kom sérfræðingur í þáttinn. Í þetta sinn var það Sigmundur Grétar Hermannsson, eða Simmi smiður. Í starfi sínu sem smiður sinnir hann viðhaldi húsa, forvörnum á húsum og hann þekkir vel til rakaskemmda og myglu í húsnæði. Í fyrri hluta þáttar fengum við Sigmund til að segja okkur frá sínu starfi og helstu verkefnum og svo í síðari hlutanum svaraði hann spurningum sem hlustendur hafa sent inn í þáttinn á netfangið okkar, mannlegi@ruv.is. Svo er dagur verkfræðinnar á morgun, við heyrðum í Svönu Helenu Björnsdóttur, formanni VFÍ, Verkfræðingafélags Íslands, en það er heljarinnar dagskrá á Hótel Hilton Reykjavík Nordica í tilefni dagsins. Þar mun til dæmis Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tala og Teningurinn verður afhendur í fyrsta sinn. Við heyrðum meira af þessu hjá Svönu í þættinum. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Þotur brenna miklu eldsneyti og af flugi þeirra hlýst talsverð mengun. Verkfræðingar hafa skoðað hvort - og hvaða - aðrir orkugjafar geti komið í stað olíunnar og nú hefur Airbus flugvélaframleiðandinn evrópski ákveðið að veðja á vetni. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, sagði frá þessu og fleiru í ferðaspjalli dagsins. Róma-fólk er hálfgert huldufólk víða í heiminum í dag, þrátt fyrir að þessa þjóð sé að finna víða í Evrópu og annars staðar í heiminum. Á Íslandi eru um 400 manns af Róma-uppruna. Eftir nokkrar vikur kemur út bók á íslensku um uppruna, tungumál og bókmenntir Rómafólks og morgundagurinn - Evrópski tungumáladagurinn - verður notaður til að vekja athygli á sögu og menningu Rómafólks. Hólmfríður Garðarsdóttir formaður STÍL, samtaka tungumálakennara, og prófessor í spænsku sagði okkur frá Evrópska tungumáladeginum og bókinni. Í síðustu viku minntumst við þess að hálf öld var liðin frá andláti Jimi Hendrix. Hann var stórkostlegur gítarleikari og að margra mati besti gítarleikari allra tíma. Í vali Rolling Stone tímaritsins yfir bestu gítarleikara sögunnar var hann einmitt í fyrsta sæti. En í hverju lá snilli Hendrix? Hvað var það í hans gítarleik sem var svona einstakt og merkilegt? Tryggvi Hubner, gítarleikari og gítarkennari, hefur stúderað snillinginn örvhenta og sagði okkur frá Hendrix. Tónlist: Here you come again - Dolly Parton, Hey Joe - Jimi Hendrix, Villanova junction - Jimi Hendrix, Laches mange - Bardukha

Svalbarðsstrandarhreppur hefur með undirritun samnings við UNICEF og félagsmálaráðuneytið bæst í hóp þeirra sveitarfélaga sem vinna að innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Við heyrðum í Björgu Erlingsdóttur sveitarstjóra um þetta verkefni og spurðum frétta úr hennar sveit. Við höfum áður rætt við skólastjórnendur í skólum þar sem snjallsímar hafa verið bannaðir eða notkun þeirra takmörkuð og hefur reynslan af því verið góð að mati viðmælenda okkar. Björn Gunnlaugsson aðstoðarskólastjóri í Laugarnesskóla er hins vegar á annarri skoðun og telur snjalltæki bjóða upp á ýmis tækifæri í skólastarfinu. Hann kom til okkar í morgunkaffi og spjall. Verkfræðistofan Verkís stendur fyrir fundi í hádeginu í dag þar sem farið verður yfir nýlegar breytingar lögum um fjöleignarhús sem auðvelda rafbílaeigendum sem eiga íbúð í fjöleignarhúsi að setja upp hleðsluaðstöðu. Þar mun Tinna Andrésdóttir lögfræðingur Húseigendafélagsins fara yfir þær breytingar sem urðu við gildistöku nýju laganna og hún kom til okkar og fór yfir helstu atriðin með okkur. Talsvert er um að ofskynjunarefnið Ayahusca sé notað hér á landi og þá sem einhverskonar undraefni sem geti hjálpað fólki á ýmsan hátt, til að mynda til að vinna úr áföllum. Enda hefur það lengi verið notað í trúarlegum athöfnum í Suður- Ameríku. En þetta er umdeilt efni og hafa margir varað við neyslu þess og sagt að lítill munur sé á því og öðrum ofskynjunarlyfjum. Því geti til að mynda verið óráðlegt fyrir áfengis og vímuefnaneytendur í bata að neyta þess. Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir, sem hefur starfað sem áfengisráðgjafi og stundar framhaldsnám í fíknifræðum, skrifaði pistil um efnið á dögunum þar sem hún heldur því fram að ástæðan fyrir því að fólk telji sig upplifa undraverða hluti við neyslu þess sé einfaldlega sú að það sé í vímu. Við heyrðum í Hugrúnu. Almannarómur og Háskólinn í Reykjavík standa nú fyrir átaki þar sem safnað er raddsýnum frá einstaklingum sem hafa íslensku sem annað mál, í gegnum vefinn samromur.is. Tilgangurinn er að þróa máltækni sem kennir tölvum og tækjum að skilja íslensku og þá auðvitað einnig þeirra sem hafa íslensku sem annað mál. Þær Eliza Reid, forsetafrú, og Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, frá Almannarómi, komu til okkar. Tónlist: Magnús Eiríksson og KK - Kóngur einn dag. Nýdönsk - Örlagagarn. Aerosmith - I dont want to miss a thing. Tómas Welding - Go the distance. Moses Hightower - Stundum. Roisin Murphy - Something more. Macy Gray - Still. Warmland - Family. Ljúfur Ljúfur - A A A. Beyonce - Love on top.

Hvernig verða bankar framtíðar? Verða kannski engir bankar? Undanfarin ár hafa orðið hraðar breytingar í bankageiranum og það eru frekari breytingar framundan. Breytingar sem áttu þátt í því að hundrað starfsmönnum var sagt upp í Arion banka í gær. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Gunnlaug Jónsson. Ólafur Árnason hjá Verkfræðistofunni Eflu hefur verkstýrði hópi fólks sem rýndi í gögn um ástand ferðaþjónustunnar í dag og hvernig best væri að standa að atvinnugreininni í framtíðinni. Kristján Sigurjónsson ræddi við Ólaf í dag. Tyrkneskir sjónvarpsþættir fara sigurför um heiminn og eru orðnir ein helsta útflutningsvara landsins. Vinsældir draumasmiðjunnar í Tyrklandi á heimsvísu nálgast nú ört Hollywood sem í áratugi hefur verið allsráðandi á markaðnum. Pálmi Jónasson segir frá.
Hreinn Loftsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra. Hreinn var lögmaður í máli gegn Haraldi Jóhannessen ríkislögreglustjóra. Forseti Bandaríkjanna neitar því staðfastlega að hafa brotið af sér í símtali við forseta Úkraínu. Demókratar segja að málið liggi ljóst fyrir enda sé vitað hvað forsetunum fór á milli. Stefnt er að því að Ísland verði leiðandi á heimsvísu í sjálfbærni ferðaþjónustu. Ferðaþjónustan er víða farin að nálgast þolmörk. Aukin samkeppni frá litlum fjármálafyrirtækjum, fjártæknifyrirtækjum og lífeyrissjóðum vó þungt í þeirri ákvörðun stjórnenda Arion banka að segja upp hundrað starfsmönnum. Fulltrúar ungmenna sem efnt hafa til loftslagsverkfalla á Austurvelli á föstudögum urðu fyrir vonbrigðum á fundi með ráðherrum í dag þar sem þau afhentu þeim kröfugerðir. Lýðræðissinnar í Hong Kong eru mættir til mótmæla sem eiga að standa fram á þriðjudag, þegar Kínverjar fagna sjötíu ára afmæli alþýðulýðveldisins. Fjölmiðlanefnd er ekki starfhæf. Skipun nýrrar nefndar hefur frestast þar sem Blaðamannafélag Íslands hefur ekki ákveðið hvort það ætlar að tilnefna sinn fulltrúa. Hvernig verða bankar framtíðar? Verða kannski engir bankar? Undanfarin ár hafa orðið hraðar breytingar í bankageiranum og það eru frekari breytingar framundan. Breytingar sem áttu þátt í því að hundrað starfsmönnum var sagt upp í Arion banka í gær. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Gunnlaug Jónsson. Ólafur Árnason hjá Verkfræðistofunni Eflu hefur verkstýrði hópi fólks sem rýndi í gögn um ástand ferðaþjónustunnar í dag og hvernig best væri að standa að atvinnugreininni í framtíðinni. Kristján Sigurjónsson ræddi við Ólaf í dag. Tyrkneskir sjónvarpsþættir fara sigurför um heiminn og eru orðnir ein helsta útflutningsvara landsins. Vinsældir draumasmiðjunnar í Tyrklandi á heimsvísu nálgast nú ört Hollywood sem í áratugi hefur verið allsráðandi á markaðnum. Pálmi Jónasson segir frá.
Innflutningur á gosi og bragðbættu vatni hefur rúmlega fjórfaldast á innan við tveimur árum. Þetta má lesa úr innflutningsskrá Hagstofunnar. Mest munar um stóraukinn gosdósainnflutning frá Svíþjóð. Verkfræðingur hjá Eflu segir kolefnisspor innfluttra drykkja hærra en þeirra sem framleiddir á Íslandi. Arnhildur Hálfdánardóttir sagði frá. Donald Trump er sakaður um að kúga forseta Úkraínu til að rannsaka Joe Biden sem hefur mælst efstur í forvali Demókrata fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Fyrir síðustu forsetakosningar var Trump sakaður um að vinna með Rússum til að koma höggi á þáverandi andstæðing sinn Hillary Clinton. Pálmi Jónasson segir frá. Ellefu einróma hæstaréttardómarar telja þá ráðstöfun Boris Johnson forsætisráðherra Breta að senda þingið heim ólöglega. Þingstörf eigi því halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Dómur Hæstaréttar Breta varðar grundallarþætti breskrar stjórnskipunar og mun bergmála lengi. Þá líka í komandi kosningum og þá í samhengi við útgöngu Breta úr Evrópusambandinu þó dómurinn snúist ekki um það mál. Sigrún Davíðsdóttir fjallar um málið.
Umsjón: Pálmi Jónasson Dómsmálaráðherra vill gera gagngerar breytingar á skipulagi lögreglu. Ríkislögreglustjóri ætlar ekki að tjá sig um víðtækt vantraust í hans garð. Ríkislögmaður bauð afkomendum Sævars Ciesielskis um 240 milljónir króna í bætur í vor. Guðjóni Skarphéðinssyni voru boðnar um 140 milljónir en hann krefst þrettán hundruð milljóna króna. Dómur Hæstaréttar gegn Boris Johnson er tímamótadómur og styrkir þingið til muna að mati stjórnmálafræðings. Innflutningur á gosi og bragðbættu vatni hefur rúmlega fjórfaldast á innan við tveimur árum. Mest munar um stóraukinn innflutning frá Svíþjóð. Slitnað hefur upp úr kjaraviðræðum BSRB við ríkið. Eftir árangurslausan samningafund í dag ákvað samninganefnd BSRB að slíta viðræðunum, sem hafa strandað á styttingu vinnuvikunnar í 35 stundir. Fyrrverandi útibússtjóri Danske Bank í Tallinn í Eistlandi er horfinn sporlaust. Lögregla telur að hann sé í lífshættu. Lengri umfjöllun: Innflutningur á gosi og bragðbættu vatni hefur rúmlega fjórfaldast á innan við tveimur árum. Þetta má lesa úr innflutningsskrá Hagstofunnar. Mest munar um stóraukinn gosdósainnflutning frá Svíþjóð. Verkfræðingur hjá Eflu segir kolefnisspor innfluttra drykkja hærra en þeirra sem framleiddir á Íslandi. Arnhildur Hálfdánardóttir sagði frá. Donald Trump er sakaður um að kúga forseta Úkraínu til að rannsaka Joe Biden sem hefur mælst efstur í forvali Demókrata fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Fyrir síðustu forsetakosningar var Trump sakaður um að vinna með Rússum til að koma höggi á þáverandi andstæðing sinn Hillary Clinton. Pálmi Jónasson segir frá. Ellefu einróma hæstaréttardómarar telja þá ráðstöfun Boris Johnson forsætisráðherra Breta að senda þingið heim ólöglega. Þingstörf eigi því halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Dómur Hæstaréttar Breta varðar grundallarþætti breskrar stjórnskipunar og mun bergmála lengi. Þá líka í komandi kosningum og þá í samhengi við útgöngu Breta úr Evrópusambandinu þó dómurinn snúist ekki um það mál. Sigrún Davíðsdóttir fjallar um málið.
Innflutningur á gosi og bragðbættu vatni hefur rúmlega fjórfaldast á innan við tveimur árum. Þetta má lesa úr innflutningsskrá Hagstofunnar. Mest munar um stóraukinn gosdósainnflutning frá Svíþjóð. Verkfræðingur hjá Eflu segir kolefnisspor innfluttra drykkja hærra en þeirra sem framleiddir á Íslandi. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og talar við Alexöndru Kjeld. Donald Trump er sakaður um að kúga forseta Úkraínu til að rannsaka Joe Biden sem hefur mælst efstur í forvali Demókrata fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Fyrir síðustu forsetakosningar var Trump sakaður um að vinna með Rússum til að koma höggi á þáverandi andstæðing sinn Hillary Clinton. Pálmi Jónasson segir frá. Ellefu einróma hæstaréttardómarar telja þá ráðstöfun Boris Johnson forsætisráðherra Breta að senda þingið heim ólöglega. Þingstörf eigi því halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Dómur Hæstaréttar Breta varðar grundallarþætti breskrar stjórnskipunar og mun bergmála lengi. Þá líka í komandi kosningum og þá í samhengi við útgöngu Breta úr Evrópusambandinu þó dómurinn snúist ekki um það mál. Sigrún Davíðsdóttir.
Forseti ASÍ fagnar ákvörðun Seðlabankans um lækkun stýrivaxta. Íslandsbanki tilkynnti um vaxtalækkanir í dag. Saksóknari telur að hæfileg refsing geti verið allt að 18 ára fangelsi yfir manni sem varð tveimur að bana í fyrra þegar hann kveikti í húsi á Selfossi. Fleiri en þrjú af hverjum fjórum fyrirtækjum sem eiga að skila jafnlaunavottun í árslok eru ekki búin að fá vottun. Hægt er að beita dagsektum ef þau skila ekki. Eftir að lög um kynrænt sjálfræði taka gildi tekur nafnabreyting hjá Þjóðskrá einungis þrjá til fimm daga. Þá getur hver sem er, óháð kyni, tekið sér hvaða nafn, sem er á skrá. Verkfræðistofan Efla vinnur að því að kanna hvort og hvernig mögulegt er að vetnisvæða smábátaflotann á Vestfjörðun og fiskflutningabíla. Arnar Páll Hauksson talar við Hafstein Helgason. Ef þessi mynd fær okkur ekki til að endurmeta stöðuna, ef hún hreyfir ekki við þeim sem taka ákvarðanirnar þá er samfélag okkar illa statt. Þetta segir Julia le Duc, blaðamaður á dagblaðinu La Jornada sem gefið er út í mexíkósku landamæraborginni Matamoros. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá. Alþingi ætlar að fela Ríkisendurskoðun að kanna aðkomu yfirvalda að starfsemi Wow. En Alþingi hefur einnig samþykkt lög sem draga enn frekar athyglina að eftirlitsyfirvöldum - það er ný lög um sameiningu Seðlabanka og Fjármálaeftirlitsins. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Spegillinn 12.04.2019 Umsjón: Bergljót Baldursdóttir Hvassviðrið sem gengur yfir landið hefur valdið því að erfiðlega hefur gengið að koma flugfarþegum frá borði á Keflavíkurflugvelli. Einhverjar flugferðir hafa verið felldar niður. Rætt við Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia Landeigendur við Finnafjörð telja að alþjóðleg stórskipahöfn þar verði óásættanlegt inngrip í náttúruna. Rætt við Elías Pétursson og Reimar Sigurjónsson Framkvæmdastjóri Einhverfusamtakanna gagnrýnir að þjónusta við einhverf börn falli undir þrjú ráðuneyti og að það vanti upp á að kerfin vinni saman. Hún veit um þrjú einhverf börn sem ekki sæki skóla. Þörf sé á þjónustu- og þekkingarmiðstöð sem veiti einstaklingum og skólum ráðgjöf. Rætt við Sigrúnu Birgisdóttur framkvæmdastjóra Einhverfusamtakanna og Hrönn Sveinsdóttur, móður ellefu ára einhverfrar stúlku Yfir 750 eru látnir í ebólufaraldri sem geisar í Austur-Kongó. Á annað þúsund hafa veikst. Illa gengur að hefta útbreiðslu faraldursins. Sjúkrahótelið við Landspítalann hefur fengið hæstu einkunn í vistvottun sem hús hefur fengið á Íslandi. Verkfræðingur hjá Eflu segir að vaxandi áhugi sé á umhverfisvænum byggingum hér á landi. Rætt við Helgu Jóhönnu Bjarnadóttur, verkfræðing og sviðsstjóra umhverfismála hjá verkfræðistofunni Eflu Ljóst er að ríkið mun hafa lífskjarasamninginn sem samið var um á almenna markaðnum að leiðarljósi í viðræðum við opinbera starfsmenn. Um síðustu mánaðamót losnuðu um 150 samningar. Mínútufjöldinn er ekki aðalatriðið þegar foreldrar ákveða skjátíma barna sinna, segir sálfræðingur hjá embætti landlæknis, meira máli skipti hvað sé verið að skoða. Rætt við Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur, sviðstjóra áhrifaþátta heilbrigðis hjá embætti landlæknis Í lok Spegilsins heyrum við af auknum áhuga á rokksögusýningum á listasöfnum.
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hélt stefnuræðu sína í gærkvöld. Það var fyrirfram búist við því að hann ætlaði að leggja aukna áherslu á samvinnu og málamiðlanir - og svona yfirhöfuð var sáttatónn í ræðu hans. En hann var líka árásargjarn, eins og við var að búast. Trump hélt langa tölu um innflytjendamál, ástandið við suðurlandamæri Bandaríkjanna og svo ræddi hann viðkvæm mál eins og fóstureyðingar með afar harkalegum hætti. Freyr Eyjólfsson í New York fylgdist með og sagði frá. Flutt voru brot úr ræðu Trumps. - Innan skamms verða stofnuð fyrirtæki utan um uppbyggingu og framtíðaráform í Finnafirði inn af Bakkaflóa. Verkfræðistofan Efla hefur unnið að Finnafjarðarverkefninu ásamt þýska hafnarfyrirtækinu Bremenports og sveitarfélögunum fyrir norðan, Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppi. Þessi áform eru mjög umfangsmikil og eiga eftir að breyta stöðu norðausturhornsins og siglingum um nærliggjandi hafsvæði. Hafsteinn Helgason, verkfræðingur, sviðsstjóri hjá Eflu, hefur unnið að þessu verki og sagði frá. - Glæpasagan Konan í glugganum eftir Bandaríkjamanninn A.J. Finn sló í gegn í fyrra víða um heim. Nú hefur tímaritið New Yorker afhjúpað höfund bókarinnar, sem heitir réttu nafni Dan Mallory, sem stórtækan lygalaup og svindlara. Hann hafi meðal annars logið til um doktorsgráður og krabbameinsmeðferð, sem og dauða foreldra sinna. Vera Illugadóttir sagði frá þessu. - Framsýn, stéttarfélag í Þingeyjarsýslum, er eitt þeirra stéttarfélaga sem segja má að hafi siglt á móti straumnum þegar kjaraviðræður eru annarsvegar og félagið hefur oft tekið undir með þeim stéttarfélögum sem gagnrýnt hafa forystu ASÍ. Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar, hefur undanfarið setið fjölmarga samningafundi í yfirstandandi kjaraviðræðum, en líka tekist nokkuð á við forsvarsmenn PCC á Bakka við Húasavík um kjaramál starfsmanna í verksmiðjunni þar. Ágúst Ólafsson ræddi við Aðalstein Árna. - Tónlist: Peggy Lee - It's a good day; Slim Gaillard - Make it do.
Framkvæmdir við borgarlínu hefjast á þar næsta ári, samkvæmt viljayfirlýsingu ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem kynnt var í dag. Samgönguáætlun var einnig kynnt. Samkvæmt henni verður 160 milljörðum varið til framkvæmda og viðhalds á næstu fimm árum. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi skora á fólk, fyrirtæki og sveitarfélög á svæðinu að endurskoða viðskipti sín við VÍS. Tryggingafélagið ætlar að loka báðum starfsstöðvum sínum á Vesturlandi. Nánast algilt er að opinberar framkvæmdir fari fram úr kostnaðaráætlun. Lektor við HR segir að verkefnin séu að meðaltali 60 prósent dýrari en lagt sé upp með. Stór innviðaverkefni séu fram undan og mikilvægt að betur takist til með þau. Minjastofnun gerði ekki annað en að veita álit á endurgerð braggans í Nauthólsvík, segir forstöðumaður hennar. Ábyrgð á 250 milljóna framúrkeyrslu, liggi hjá borginni. Það væri heppilegast að banna almenna notkun flugelda að mati tveggja prófessora við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Þau myndu vilja að það yrði gert, fyrir næstu áramót. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Hrund Andradóttur og Þröst Þorsteinsson. Það sem stjórnendur í íslenskum orkufyrirtækjum hafa helst áhyggjur af og eru í óvissu um, eru netárásir, endurnýjanlegir orkugjafar, óstöðugur gjaldmiðill, válynd veður, gervigreind og blockchain-tækni svokallaðar bitakeðjur. Þetta er niðurstaða úr könnun Alþjóðaorkuráðsins. Örri tækniþróun fylgja krefjandi verkefni, og breytt notkun almennings á orku. Ragnhildur Thorlacius talar við Einar Kisel. Max Otto von Stierlitz var svar KGB við James Bond og er sagður eiga stóran þátt í uppgangi og vinsældum Vladimirs Pútins. Þegar njósnarinn var á skjánum tæmdust göturnar í Sovétríkjunum, áttatíu milljónir sátu límdar við skjáinn og aðalritari kommúnistaflokksins Brezhnev lét færa miðstjórnarfundi til að æðstu ráðamenn þjóðarinnar misstu ekki af neinu. Pálmi Jónasson.
Dagur verkfræðinnar er haldinn í dag og efna verkfræðingar til fyrirlestra og kynninga. Verkfræði er og hefur verið karlastétt, miklu fleiri karlar eru verkfræðingar en konur en því vill félag þeirra breyta. Innan þess starfar kvennanefnd sem vinnur leynt og ljóst að því að fjölga konum í faginu. Formaður hennar, Heiða Njóla Guðbrandsdóttir, ræddi stöðu kvenna innan verkfræðinnar. Ríkisstjórnin hefur kynnt fjármálaáætlun sína. Forystumenn ríkisstjórnarinnar segja að þar sé lýst sterkri stöðu og nýta eigi stöðuna til uppbyggingar á næstu árum. Forsætisráðherra segir fjármálaáætlunina ganga lengra en loforð flokkanna fyrir síðustu þingkosningar en stjórnarandstæðingar lýsa vonbrigðum sínum - of skammt sé gengið í styrkingu innviða, hálaunafólki og fjármagnseigendum sé hyglað á kostnað millitekjufólks og lágtekjufólks. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, þingfréttamaður, ræddi fjármálaáætlunina og þingstörfin framundan. Samkvæmt fjármálaáætluninni verður lagt sérstakt gjald á ferðamenn frá og með árinu 2020 sem skila á um tveimur og hálfum milljarði króna á ári. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri túrista.is, ræddi tekjur af ferðaþjónustu og almennt um ferðamálin. Myndin Mannasiðir sem sýnd var í Sjónvarpinu um páskana vakti mikla athygli og umræðu. Umfjöllunarefnið enda viðkvæmt og mikilvægt og þess utan var myndin vel gerð í alla staði. María Reyndal leikstjóri og handritshöfundur var gestur Morgunvaktarinnar. Þættinum lauk á því að Emojionals fluttu Hringi aldrei aftu, sem er úr myndinni.