Podcast appearances and mentions of anna krist

  • 22PODCASTS
  • 1,041EPISODES
  • 31mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • Mar 26, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about anna krist

Latest podcast episodes about anna krist

Spegillinn
Sjómenn og veiðigjöld, mótmæli í Tyrklandi, aðstæður úkraínskra barna

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 26, 2025 20:00


Fiskverð skiptir sjómenn öllu, segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins. Ef verð á uppsjávarfiski hefur verið vanmetið árum saman eiga sjómenn inni hjá útgerðinni og hljóta að sækja það aftur í tímann - þó ekki sé enn ljóst hvernig. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Valmund. Mótmæli brutust út í Istanbúl og fleiri borgum Tyrklands í liðinni viku, þegar út spurðist að borgarstjórinn Ekrem Imamoglu hefði verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald, sakaður um spillingu og hryðjuverkastarfsemi. Áður hafði Istanbúl-háskóli ógilt háskólagráðu hans, en háskólapróf er forsenda þess að menn geti farið í forsetaframboð í Tyrklandi - en Imamoglu þykir manna líklegsastur til að geta fellt Recep Tayyip Erdogan í forsetakosningum eftir þrjú ár. Sema Erla Serdaroglu stjórnmálafræðingur og aðjúnkt segir það ekki nýtt, að ráðist sé að pólitískum andstæðingum Erdogans með þessum hætti. Ævar Örn Jósepsson ræðir við hana. Evrópuráðið ákvað nýlega að skipa Þórdísi Kolbrúnu Gylfadóttur fyrrverandi utanríkisráðherra sem sérstakan sendifulltrúa ráðsins í málefnum barna í Úkraínu. Þórdís var í síðustu viku í Kyiv til að kynna sér aðstæður. Björn Malmquist fréttamaður var þá staddur í borginni og ræddi við Þórdísi. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson

Spegillinn
Barnamálaráðherra í vanda, landgrunn Íslands

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 20, 2025 20:00


Ásthildur Lóa Þórsdóttir barnamálaráðherra eignaðist barn rúmlega tvítug, með fimmtán ára pilti. Hún var þá leiðtogi trúarlegs unglingastarfs, sem hann tók þátt í. Fyrir viku fékk forsætisráðuneytið erindi á sitt borð, þar sem forsætisráðherra er upplýstur um málavexti. Sendandi þess fékk á sama tíma upplýsingar um að öll erindi væru trúnaðarmál. Ásthildur Lóa fékk hins vegar upplýsingar um inntak þess og hver það var sem sendi það. Hún bæði hringdi í viðkomandi og mætti síðan á heimili hans. Ævar Örn Jósepsson ræðir við stjórnmálafræðingana Evu Heiðu Önnudóttur og Eirík Bergmann Einarsson. Landgrunn Íslands á Reykjaneshrygg nær 576 sjómílur frá grunnlínu langt út fyrir þær tvö hundruð sjómílur sem efnahagslögsagan nær. Strandríki eiga öll landgrunn allt að 200 sjómílum frá grunnlínum en að uppfylltum ákveðnum skilyrðum geta þau átt landgrunn þar fyrir utan. Í síðustu viku staðfesti landsgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna íslenskt landgrunn á Reykjaneshrygg eftir nærri aldarfjórðungs aðdraganda. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Birgi Hrafn Búason, deildarstjóra á laga og stjórnsýsluskrifstofu utanríkisráðuneytisins, sem leiddi sendinefnd Íslands í lokahnykk þessarar vinnu sem staðið hefur frá aldamótum. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Rammaáætlun, sparnaðarhugmyndir ráðuneyta, kosningar í Þýskalandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 19, 2025 20:00


Í síðustu viku var sérstök umræða á þingi um alvarlega stöðu í orkumálum, flestir tóku undir að staðan væri það sannarlega og viku líka að rammaáætlun og viðruðu um hana efasemdir. Mikilvægt væri að sameinast um næstu skref en þau yrðu ekki tekin á grundvelli rammaáætlunar sagði málshefjandinn. Orkumálaráðherra sagði að núverandi stjórn ætlaði að rjúfa kyrrstöðu sem ríkt hefði. Rammaáætlun hefur oft verið þrætuepli og átök um virkjanir hverfast gjarnan um hana - en í raun er ekki hægt að búast við að rammaáætlun geri meira en að leggja grunn fyrir upplýsta umræðu og ákvörðun Alþings um virkjanakosti að dómi Jóns Geirs Péturssonar formanns verkefnisstjórnarinnar. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hann. Aukin notkun á gervigreind, styrkir til að kaupa reiðhjól en fyrst og fremst sameining stofnana og einfaldara stjórnkerfi eru meðal þeirra hugmynda sem ráðuneytin leggja til um hagræðingu í ríkisrekstri. Starfshópur forsætisráðherra er kominn með drög og ætlar að skila fullgerðum tillögum á tilsettum tíma. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman og ræddi við Björn Inga Victorsson, forstjóra Steypustöðvarinnar, löggiltan endurskoðanda og formann starfsfhóps forsætisráðherra. Þjóðverjar ganga til kosninga sunnudaginn 23. febrúar, hálfu ári fyrr en ætlað var, þar sem stjórn Jafnaðarmanna, Frjálslyndra demókrata og Græningja liðaðist í sundur. Ævar Örn Jósepsson fer yfir stöðu flokkanna eins og hún er í skoðanakönnunum nokkrum dögum fyrir kosningar og líkleg stjórnarmynstur. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

bj gunnarsson umsj mikilv frj anna krist freyr g starfsh jafna
Spegillinn
Meirhlutaviðræður í Reykjavík, óvissa um vopnahlé á Gaza, sérstök umræða á Alþingi um orkumál

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 12, 2025 20:00


Fimm flokkar hafa ákveðið að hefja viðræður um nýjan meirihluta í Reykjavík. Þetta er líklega eini meirihlutinn sem kemur til greina en það er ekkert í sveitastjórnarlögunum sem kveður á um það þurfi að vera meiri- og minnihluti. Og tíminn er naumur fyrir nýjan meirihluta, því kjósa þarf til borgarstjórnar innan fimmtán mánaða. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir þessa stöðu við Evu Marín Hlynsdóttur, prófessor í stjórnmálafræði. Vopnahlé Ísraels og Hamas hangir á bláþræði og almenningur á Gaza óttast að allt fari þar í bál og brand að nýju á næstu dögum. Leiðtogar Hamas saka Ísraela um margvísleg brot á vopnahléssamkomulaginu og segjast ekki munu sleppa þremur gíslum úr haldi á laugardag, eins og samið var um, fyrr en Ísraelar standa við sitt. Stjórnvöld í Ísrael hóta því að hefja árásir á Gaza af fullum þunga, verði gíslarnir þrír ekki látnir lausir á laugardag. Ævar Örn Jósepsson fer yfir stöðu mála. Þingfundur hófst í dag á umræðu um störf þess þar sem nýbakaðir þingmenn voru í miklum meirihluta, nær allir sem skráðu sig á mælendaskrá voru kosnir á þing í nóvember. Ýmislegt brann á þingmönnum við upphaf þingfundar, þar má nefna líðan ungmenna í skólum, meðferð við fíknisjúkdómi, sjúkraflug og flugvöllurinn, þess hvernig komandi kjörtímabil þróast og umpólun flokka sem fara í stjórn miðað við afstöðu þeirra í stjórnarandstöðu. Þegar því var lokið tók við sérstök umræða um alvarlega stöðu í orkumálum. Málshefjandi var Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokki og Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Samfylkingu var til andsvara. Anna Kristín Jónsdóttir fer yfir þingstörf dagsins. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason

Rauða borðið
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 6

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 7, 2025 78:40


Föstudagur 7. febrúar Vikuskammtur: Vika 6 Við förum um víðan völl enda umfangsmikil fréttavika. Trump og Gaza og Trump og transfólk. Svo kom þing saman, óveður, Halla forseti og Auschwitz, fjöldamorð í Svíþjóð, 75% hælisleitenda frá Úkraínu, Kennarar og flugvöllurinn svo fátt eitt sé nefnt. Gestir eru þau Björg Eva Erlendsdóttir, Sigurður Kári Kristjánsson, Katla Ásgeirsdóttir og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir

Spegillinn
Borað eftir olíu, mataræði Íslendinga, Snerting mögulega tilnefnd til Óskarsverðlauna

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 22, 2025 20:04


Donald Trump Bandaríkjaforseti kallar eftir stóraukinni framleiðslu og útflutningi á bandarísku jarðefnaeldsneyti. Með þessu ætlar hann að lækka verð á eldsneyti, draga úr verðbólgu og gera Bandaríkin að auðugri þjóð að nýju. Umdeilt er hversu líklegt er að þessi stefna skili tilætluðum árangri. Ævar Örn Jósepsson rýnir í þetta. Alls kyns kúrar og kenningar um æskilega næringu skjóta reglulega upp kollinum hér á landi sem annars staðar. Jóhanna Eyrún Torfadóttir, verkefnisstjóri næringar hjá Landlækni, varar við þeirri tísku að borða mjög mikið af einhverjum einum fæðuflokki á kostnað annarra - heillavænlegast sé að borða sem fjölbreyttasta fæðu. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Jóhönnu. Það skýrist í fyrramálið hvort Snerting, kvikmynd Baltasars Kormáks eftir bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar, hljóti tilnefningu til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Ólaf um myndina, kapphlaupið um Óskarinn og „kosningabaráttu“ kvikmyndaframleiðenda í skugga eldanna miklu í Los Angeles. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

los angeles bora matar alls bandar gunnarsson eftir umsj landl eyr anna krist torfad freyr g donald trump bandar
Spegillinn
ESB-umsókn, árásir Ísraelshers á „örugg svæði“ á Gaza, meðferð utankjörfundaratkvæða

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 15, 2025 20:00


Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir jákvætt að Evrópusambandið líti þannig á að aðildarumsókn Íslands frá 2009 sé enn virk. Talsmaður framkvæmdastjórnar ESB staðfesti þetta í dag - en Þorgerður átti síðdegis fund með Maros Sefcovic, einum af framkvæmdastjórum ESB, sem fer með viðskiptamál og samskiptin við EES ríkin, Ísland, Noreg og Lichtenstein. Þorgerður hitti einnig Kaju Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Björn Malmquist fréttamaður hitti Þorgerði síðdegis. Frá því í maí í fyrra hefur Ísraelsher gert minnst níutíu og sjö árásir á svæði á Gaza, sem herinn hafði áður skilgreint sem svokölluð mannúðarsvæði og hvatt palestínskan almenning til að leita þar skjóls til að tryggja öryggi sitt og sinna. Þetta er niðurstaða rannsóknarteymis breska ríkisútvarpsins BBC, BBC Verify, sem hefur unnið að því undanfarna mánuði að sannreyna fregnir af slíkum árásum. Ævar Örn Jósepsson rýnir í skýrslu teymisins. Í þremur tilfellum sem fjallað hefur verið um síðustu daga komust utankjörfundaratkvæði í alþingiskosningunum ekki til skila. Í Kópavogi urðu 25 utankjörfundaratkvæði innlyksa á bæjarskrifstofum og var ekki komið til talningar, í Norðausturkjördæmi fékk yfirkjörstjórn kassa með atkvæðum 11 dögum eftir að kosið var og ekki er vitað hve mörg þau voru, og tvö utankjörfundaratkvæði skiluðu sér ekki frá Seltjarnarnesi á talningarstað. Í kosningum er alltaf eitthvað um að utankjörfundaratkvæði berist ekki í tæka tíð - En er hægt að horfa til einhverra sérstakra kringumstæðna og telja atkvæði sem koma of seint? Anna Kristín Jónsdóttir ræddi þetta við Bergþóru Sigmundsdóttur lögfræðing og stjórnmálafræðing, sem sá lengi um utankjörfundaratkvæðagreiðslu hjá sýslumanni. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Spegillinn
Trump og Grænland, rafeldsneyti og fjármál fangelsismálastofnunar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 8, 2025 20:00


Í gær átti Donald Trump yngri stutt stopp í Nuuk á Grænlandi. Þessi litla heimsókn hefur aðallega vakið athygli vegna yfirlýsinga föðurins, Donalds Trumps verðandi Bandaríkjaforseta fyrir nokkrum vikum um að það væri alveg nauðsynlegt fyrir öryggi Bandaríkjanna og frið í heiminum að Grænland tilheyrði Bandaríkjunum. Slíkar hugmyndir hafði Trump viðrað áður 2019 og ekki voru undirtektir jákvæðar í Danmörku þá frekar en nú. Hinn verðandi forseti sagðist í gær tilbúinn að beita afli gegn Dönum ef þeir mögluðu, og útilokaði reyndar ekki þegar blaðamaður spurði hvort til greina kæmi að beita hervaldi. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um þetta og ræðir við Silju Báru Ómarsdóttur prófessor í alþjóðastjórnmálum, sem segir að þótt ekki beri að taka orð Trumps bókstaflega, þá sé fyllsta ástæða til að taka þau alvarlega. Í raforkuspá fyrir næstu 25 ár gerir Landsnet ráð fyrir stóraukinni þörf á orku til framleiðslu rafeldsneytis. Tvö stór verkefni eru í undirbúningi ár sem ætlunin er að nota vindorku til að framleiða vetni og ammoníak. Gnýr Guðmundsson, forstjóri kerfisþróunar hjá Landsneti, segir þróun rafeldsneytis ganga hægt, eftirspurnina vera óvissa og mörgum spurningum enn ósvarað. Gréta Sigríður Einarsdóttir tók saman. Það vakti nokkra athygli í haust þegar starfandi fangelsismálastjóri boðaði nokkuð umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir hjá stofnuninni. Ástæðan var 8 milljóna króna gat í fjármögnun á rekstri stofnunarinnar. Í greinargerð sem sviðsstjóri reksturs og fjármála hjá Fangelsismálastofnun sendi dómsmálaráðuneytinu kemur fram að rekstraráætlunin sem skilað var hafi sýnt ágæta niðurstöðu innan fjárveitingaramma - en að . þegar fjárlagafrumvarpið hafði verið samþykkt hafi komið í ljós, „talsverður misskilningur“. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Réttarhöld í kynferðismálum, stríðsglæpir Ísraela og jólaleg jólalög

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 19, 2024 20:00


Meginregla er að réttarhöld eru opin en venjan hér í kynferðisbrotamálum er að þau séu lokuð til að verja persónulega hagsmuni. Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari segir sterk rök fyrir því að opna slík réttarhöld, vilji brotaþoli senda þau skilaboð að hann hafi ekkert til að skammast sín fyrir, líkt og hin franska Giselle Pélicot gerði. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Kolbrúnu. Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Human rights watch, eða Mannréttindavaktin, sem eru með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum, bættust í dag í stækkandi hóp þeirra sem saka Ísraelsmenn um stórfelld mannréttindabrot, brot á alþjóðalögum og sáttmálum og alvarlega glæpi sem stappa nærri þjóðarmorði. Mannúðar- og mannréttindasamtökin Læknar án Landamæra komast að svipaðri niðurstöðu í sinni skýrslu, sem líka kom út í dag. Ísraelar svara samtökunum eins og öllum öðrum sem saka þá um stríðsglæpi og þjóðarmorð, með ásökunum um lygar og gyðingahatur. Hvað gerir jólalag að jólalagi? Er það textinn sem er sunginn eða er til ákveðinn jólahljómur? Freyr Gígja Gunnarsson leitar svara við þeirri áleitnu spurningu hjá tónlistarmanninum Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Spegillinn
Katrín Jakobsdóttir og Bashar al-Assad

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 12, 2024 20:00


Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og fyrrverandi formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs mætti í viðtal í dag, reyndar bæði á RÚV og stöð2. Fyrstu viðtölin að segja má frá því í forsetakosningunum í vor. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hana fyrr í dag. Það hefur ekki heyrst mikið í Katrínu síðustu mánuði en það er ekki vegna þess að ekki hafi verið eftir því falast. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Bashar al-Assad Sýrlandsforseti flúði land á sunnudaginn, þegar við blasti að sveitir uppreisnarmanna væru að taka öll völd í landinu eftir aðeins nokkurra daga, óvænta leiftursókn. Assad flúði til Rússlands, þar sem honum hefur verið veitt hæli af mannúðarástæðum, eins og nafnlaus heimildarmaður úr rússneska stjórnkerfinu orðaði það við rússnesku fréttatofuna Interfax. Með þessu lauk rúmlega hálfrar aldar valdatíð al-Assad fjölskyldunnar. Ævar Örn Jósepsson stiklar á stóru í valdatíð Bashar al-Assads. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Ofbeldi gegn konum, veldi Assad-feðga, gervistéttarfélög

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 11, 2024 20:00


Síðustu daga og vikur hafa birst óhugnanlega fréttir um ofbeldi karla gegn konum. Kynbundið ofbeldi gegn konum er ekkert nýtt en stundum verða frásagnirnar yfirþyrmandi, eins og þessar fréttir bera vitni um. Samkvæmt embætti ríkislögreglustjóra var í fyrra óskað eftir 97 nálgunarbönnum, í langflestum tilvikum eru þetta konur að verja sig gegn körlum sem hóta þeim líkamlegu og andlegu ofbeldi. Það þarf ekki annað en að fletta upp á vef Landsréttar og slá upp orðinu nálgunarbann til að sjá hversu langt karlar eru reiðubúnir að ganga gagnvart konum, - því kynbundið ofbeldi gegn konum er jú fyrst og fremst vandamál karla, segir María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur hjá ríkislögreglustjóra. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við hana. Bashar al-Assad, sem á dögunum var hrakinn frá völdum í Sýrlandi á örfáum dögum eftir nær aldarfjórðung á forsetastóli, er kominn til Rússlands, þar sem stjórnvöld veittu honum og fjölskyldu hans hæli af mannúðarástæðum, eins og það var orðað af ónafngreindum heimildarmanni Interfax-fréttastofunnar rússnesku. Bashar al-Assad, sem er augnlæknir að mennt, tók við forsetaembættinu af föður sínum, Hafez al-Assad, sem lést árið 2000, eftir nær þrjátíu ár á valdastóli. Samtals fóru þeir feðgar því með alræðisvald í Sýrlandi – og beittu því af hörku - í hartnær 55 ár, eða frá árinu 1971, þegar Hafez tókst að hrifsa til sín öll völd eftir röð valdarána áratuginn á undan. Ævar Örn Jósepsson stiklar á stóru í valdatíð al-Assads eldri. Seint í október skrifuðu fulltrúar samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, SVEIT og Virðingar stéttarfélags undir kjarasamning sem felur í sér lakari kjör og minni rétt en samningur milli Samtaka atvinnulífsins og Eflingar/Starfsgreinasambandsins. Efling hefur reiknað út að þar muni um rúmlega fimmtíu þúsund krónum í meðalmánuði. Virðing varð til eftir að Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu í fyrra að Eflingarsamningurinn skyldi gilda. Finnbjörn A. Hermannsson forseti Alþýðusambands Íslands segir að Virðingu megi kalla gervistéttarfélag vegna þess hvernig sambandi atvinnurekendanna og þeirra sem gera samninginn er háttað. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Finnbjörn. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Kosningamálin á Íslandi, umdeilt vindorkuver á Austurlandi og tölfræðin á bak við sigur Trumps

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 27, 2024 20:00


Flestir settu heilbrigðismál í efsta sæti þegar Félagsvísindastofnun kannaði í síðustu viku hvað skipti fólk mestu fyrir kosningarnar á laugardaginn - og er það svo í öllum sex kjördæmum. Áherslur fólks í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi, það er höfuðborgarsvæðinu eru nánast alveg eins, en samgöngur eru kjósendum í Norðvesturkjördæmi hugstæðar. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Rúnar Vilhjálmsson prófessor. Alcoa Fjarðaál setur spurningarmerki við stórt vindorkuorkuver sem Fjarðarorka ehf vill reisa í Fljótsdalshreppi og segist ekki geta samþykkt áformin eins og þau séu kynnt í matsáætlun félagsins. Frestur til að skila umsögn um matsáætlunina rann út í síðustu viku. Freyr Gígja Gunnarsson kynnti sér málið. Hinn 20. janúar sver Repúblikaninn Donald John Trump embættiseið vestur í Washington, sem fertugasti og sjöundi forseti Bandaríkjanna. Hann bar, sem kunnugt er, sigurorð af Kamölu Harris, frambjóðanda Demókrata, í forsetakosningunum sem haldnar voru 5. nóvember. Demókratar, sem eyddu meira fé í kosningabaráttuna en nokkru sinni fyrr, klóra sér í hausnum og spyrja, hvað klikkaði? Þeirri spurningu er enn ósvarað, en tölurnar liggja fyrir og spænska blaðið El País rýndi í þær til að reyna að átta sig á sveiflum í kosningahegðun nokkurra mikilvægra kjósendahópa. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Kosningaveður, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, fordómar gegn grænlenskum foreldrum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 25, 2024 20:00


Fimm dagar eru þar til kjörstaðir verða opnaðir um allt land. Þótt einhverjir kjósi utan kjörfundar eru langflestir sem fara í sína kjördeild til að greiða atkvæði - þær loka klukkan tíu um kvöldið og þá fyrst má byrja að telja. Allt bendir til að kosninganóttin verði spennandi en fólk ætti líka að vera undir það búið að hún dragist langt fram á sunnudagsmorgun - sérstaklega ef verstu spár um veður ganga eftir. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um þetta. Framkvæmd loftslagsaðgerða er afar veik hér á landi og viðsnúningur stjórnvalda í hvatakerfum hreinorkubíla á síðasta ári voru mjög alvarleg mistök - sem senda kolröng skilaboð, segir formaður Loftslagsráðs. Hann segir tilbúnar og fjármagnaðar loftslagsaðgerðir skila innan við helmingi þess samdráttar á losun sem að er stefnt og gildandi aðgerðaáætlun í loftslagsmálum ekki til þess fallna að bæta úr því. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Halldór Þorgeirsson. Nýlega safnaðist fólk saman í Kaupmannahöfn og Nuuk til að mótmæla því að börn væru tekin af foreldrum sínum og sett í fóstur, meðal annars á grundvelli prófa þar sem mat er lagt á hæfni foreldranna til að sinna börnunum. Þessi próf eru notuð í fjölmörgum sveitarfélögum í Danmörku en hafa lengi verið umdeild og um árabil hefur verið rætt um að breyta þeim. Þau byggist á viðmiðum og venjum vestrænna samfélaga og ali á fordómum í garð grænlenskra foreldra. Fimm sinnum algengara er í Danmörku að börn séu tekin af grænlenskum foreldrum en dönskum. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason

Spegillinn
Uppgjör við blogg, verkföll og lýðræðið í Þýskalandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 15, 2024 20:00


Gömul bloggskrif Þórðar Snæs Júlíussonar, frambjóðanda Samfylkingarinnar, sem birtust undir dulnefni á bloggsíðu fyrir rúmlega tuttugu árum hafa vakið upp umræðu um hvort nauðsynlegt sé að gera upp það tímabil þegar nafnlaus skrif viðgengust í athugasemdakerfum fjölmiðla og bloggheimum. Skrif sem oft beindust að nafntoguðum konum og þeir sem þannig skrifuðu þurftu fæstir að bera á þeim ábyrgð. Þar til kannski nú. Full þörf er á að samræma vinnulöggjöf á almennum og opinberum markaði segir prófessor við Háskóla Íslands, ákvæði um verkföll séu til dæmis ekki þau sömu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Gylfa Dalmann Aðalsteinsson. Þótt níu af hverjum tíu Þjóðverjum séu sannfærðir um að lýðræði sé æskilegasta stjórnarfarið eru aðeins um fjórir af tíu ánægðir með hvernig það virkar í Þýskalandi um þessar mundir. Og nær tveir af hverjum tíu eru að einhverju leyti sammála þeirri fullyrðingu, að einræði geti verið betri valkostur „í ákveðnum aðstæðum.“

Spegillinn
Norðurlandaráðsþing, Úkraína og Rússland

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 28, 2024 20:00


Þátturinn er helgaður Norðurlöndunum og Úkraínu, því þing Norðurlandaráðs verður formlega sett í Reykjavík á þriðjudag og Úkraínuforseti er þar heiðursgestur. Zelensky fundaði með Bjarna Benediktssyni, starfandi forsætisráðherra, og forsætisráðherrum hinna Norðurlandanna á Þingvöllum og við heyrum í Birtu Björnsdóttur sem er á vettvangi. Yfirskrift þings Norðurlandaráðs í ár er Friður og öryggi á norðurslóðum, en eftir innrás Rússa í Úkraínu hafa öryggis og varnarmál orðið æ fyrirferðarmeiri í Norðurlandasamstarfinu þótt þau hafi varla verið til umræðu þar á árum áður. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Oddnýju Harðardóttur, varaforseta raðsins, um breytt hlutverk ráðsins í breyttum heimi. Og Jón Ólafsson, háskólaprófessor og sérfræðingur í málefnum Rússlands segir í viðtali við frey Gígju Gunnarsson, að það sé magnað að sjá Úkraínuforseta á Íslandi í því dramatíska andrúmslofti sem ríkir þessa dagana. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Spegillinn
Félagsskiptin í stjórnmálunum og er eftirsóknarvert að vera þingmaður?

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 21, 2024 20:00


Ennþá hafa framboðslistar ekki tekið á sig lokamyndina en áberandi tal um nýtt fólk á listum og að þó nokkrum sitjandi þingmönnum hafnað í uppstillingu segir prófessor í stjórnmálafræði. Það geti verið glænýjum stjórnmálamönnum áskorun að fóta sig bæði á þingi og í innra starfi flokkanna. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Evu H. Önnudóttur. Síðustu dagar hafa sýnt að það er enginn hörgull á fólki sem telur sig eiga erindi á Alþingi. En hvernig er þetta starf; að sitja á Alþingi Íslendinga. Er þetta vel borguð og þægileg innivinna? Eða bölvað bras og eilífar erjur? Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Birgi Ármannsson og Rögnu Árnadóttur.

er enn gunnarsson anna krist birgi freyr g
Spegillinn
Kosningabaráttan hafin, mikil þingmannavelta fyrr og nú, örbirgð og átök í heiminum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 17, 2024 20:00


Þingmenn mættu til starfa á Alþingi í morgun í fyrsta skipti frá því að ríkisstjórnin sprakk. Eitt mál var á dagskrá - umræða um þingrofstillögu forsætisráðherra. Eftir ræðuhöldin fóru kjörnir fulltrúar hver til síns heima, flestir til að undirbúa sig fyrir komandi átök og koma sér á framfæri við flokksapparötin í þeirri von að fá ásættanlegt sæti á framboðslista. Ræður þeirra sem tóku til máls báru þess glöggt merki að kosningabaráttan er hafin. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Í síðustu kosningum var þingmannaveltan hafi verið töluverð. Þegar kosið var 2021 settust 25 nýir þingmenn á Alþingi og 2017 voru nýju þingmennirnir 19 og 31 árið á undan. Talið er að tíu flokkar bjóði fram í kosningunum 30. nóvember, þeir átta sem eiga sæti á þingi og tveir til viðbótar - Sósíalistaflokkur Íslands og Lýðræðisflokkurinn. Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands segir breytingar á þingheimi hafa verið töluverðar og verði það líklega líka næst - Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana. 1,1 milljarður Jarðarbúa býr við sára fátækt, örbirgð svo mikla að viðkomandi er ómögulegt að draga fram lífið án utanaðkomandi aðstoðar. Tæplega hálfur milljarður þessa örbjarga fólks býr á átakasvæðum, þar sem ýmist ríkir hreint stríðsástand eða mannskæðar árásir og vopnuð átök eru daglegt brauð. Og nær sex hundruð milljónir eru á barnsaldri, yngri en átján ára. Verst er ástandið í Afríku sunnan Sahara og í Suður-Asíu. Þetta eru meginniðurstöður árlegrar úttektar Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna og Fátæktar- og þróunarrannsóknastofu Oxfordháskóla á fátækt í heiminum. Ævar Örn Jósespsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Rauða borðið
Rauða borðið: Dagskrárvald, Gaza, tónlistaruppeldi, andófs-usli

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 17, 2024 257:02


Rauða borðið: Dagskrárvald, Gaza, tónlistaruppeldi, andófs-usli. Rauða borðið heldur áfram að taka stöðuna og setja málefni á dagskrá kosninganna. Er allt mögulegt? Oddný Eir stýrir samræðu kvöldsins í beinni útsendingu sem hefst klukkan átta og er í tveimur liðum: Fyrst mæta til leiks þau Jón Ólafsson, heimspekingur og prófessor, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Auðunn Arnórsson, og Sigurjón Magnús Egilsson. Síðan mæta þau Kristín Ómarsdóttir, Árni Finnsson, Ásgeir Brynjar Torfason og Atli Ingólfsson. Björn Þorláksson ræðir svo við þau Herdísi Önnu Jónsdóttur og Þóri Jóhannsson um tónlistarlegt uppeldi í hinu bjarta norðri. María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp segir okkur nýjustu hörmungarfréttir í Radíó Gaza og Oddný Eir ræðir svo við Gunnar Þorra Pétursson um andófs-uslann í Meistaranum og Margarítu eftir Bulgakov.

Spegillinn
Öryggi ferðafólks, handhafar forsetavalds og samskipti Breta og ESB

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 3, 2024 20:05


Í síðustu viku fórust tveir útlendingar sem voru hér á ferðalagi, annar í bílslysi á Skaga, hinn féll í Hlauptungufoss á Suðurlandi og í sumar dó maður í íshellaferð á Breiðamerkurjökli. Þetta eru þrjú nærtæk dæmi um banaslys erlendra ferðamanna. Hingað koma í ár um tvær milljónir ferðamanna. Er nóg að gert til að tryggja öryggi þeirra gesta sem hingað koma? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra. 23 fengu greitt fyrir að vera handhafi forsetavalds þau tvö kjörtímabil sem Guðni Th. Jóhannesson var forseti Íslands og námu greiðslurnar samtals 66 milljónum króna. Flestir virðast sammála um að gera þurfi breytingar á forsetakafla stjórnarskrárinnar, en það hefur gengið erfiðlega, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman. Leiðtogar Bretlands og Evrópusambandsins ætla sér að bæta samskiptin í kjölfar útgöngu Breta fyrir fjórum árum. Til stendur að halda leiðtogafundi með reglulegu millibili og auka samstarfið, til dæmis á sviði öryggismála. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands var í Brussel í gær, á fundi með helstu forkólfum Evrópusambandsins - Björn Malmquist fylgdist með. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Stýrivextir, Líbanon og ný Ölfusárbrú

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 2, 2024 20:00


Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tók í dag varfærin skref í átt að lækkun stýrivaxta þegar þeir voru lækkaðir úr níu komma tuttugu og fimm prósentum í níu. Greiningardeildir bankanna höfðu flestar spáð því að stýrivextir yrðu óbreyttir. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, segir ákvörðun peningastefnunefndar hafa komið á óvart og það hafi mátt sjá þess merki þegar ákvörðunin var kynnt að fólk liti þróun mála ekki alveg sömu augum. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Unu. Um 350.000 manns, þar af rúmlega 120.000 börn, hafa þegar flúið heimili sín í sunnaverðu Líbanon vegna harðra og viðvarandi loft- og flugskeytaárása Ísraela undanfarna daga og innrásar landhersins í kjölfarið. Staðfest er að hátt í hundrað börn hafi fallið í árásum undanfarinna daga og mörg hundruð særst. Ljóst sé að frekari stigmögnun átaka muni gera hörmulega stöðu barna í Líbanon enn verri. Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir þetta einungis staðfesta það sem lengi hefur verið vitað: Að stríðsátök bitni iðulega verst á þeim sem síst skyldi og minnsta bera ábyrgðina - börnum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Birnu. Smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá hefur lengi verið í undirbúningi, farið var í mat á umhverfisáhrifum og frumhönnun á árunum 2007 og 8, verkið loks boðið út í fyrra og því ferli ekki lokið segir Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunar hjá Vegagerðinni. Beðið er lokaheimilda frá fjármálaráðuneytinu til að ljúka samningum við þá einu sem gerðu tilboð. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

gu sm unicef sta lj gunnarsson umsj birna unu banon landsbankans anna krist freyr g vegager
Spegillinn
J.D. Vance, vatnsfrek starfsemi og stjórn vatna

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 17, 2024 10:21


Donald Trump kynnti í gær varaforsetaefni sitt og, ef nýjustu skoðanakannanir ganga eftir, að öllum líkindum næsta varaforseta Bandaríkjanna. Sá heitir James David Vance, iðulega kallaður J.D., og er öldungadeildarþingmaður Repúblikana fyrir Ohio. Hann hefur ekki alltaf verið aðdáandi Trumps, eins og Ævar Örn Jósepsson rekur. Ísland er ríkt af vatni en sókn eftir því til ýmissar starfsemi, ekki síst fiskeldis, fer stöðugt vaxandi og það verður að umgangast auðlindina af virðingu segir Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar og ekki sé vanþörf á að skerpa lagarammann um eldið. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana.

donald trump ohio hann bandar sigr anna krist umhverfisstofnunar
Spegillinn
Farsóttir og bólusetningar, kosningar í Bretlandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 4, 2024 10:00


Dræm þátttaka eldra fólks í covid- og flensubólusetningum er áhyggjuefni. Hún jókst í faraldrinum en hefur fallið aftur og er komin undir 50%. Barnabólusetningar, til dæmis við mislingum, eru líka nokkuð undir viðmiðum sóttvarnalæknis. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Kamillu Sigríði Jósefsdóttur, yfirlækni á sóttvarnasviði landlæknis. Sinn er siður í landi hverju, segir máltækið, og það á líka við um kosningar, þar á meðal um það, á hvaða vikudegi þær eru haldnar. Bretar kjósa jafnan á fimmtudögum - Ævar Örn Jósepsson rýnir í mögulegar ástæður þeirrar hefðar.

sinn barnab fars bretlandi anna krist bretar
Spegillinn
Kynsjúkdómar og flóðhestar á fljúgandi ferð

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 3, 2024 10:11


Sýklalyf höfðu nánast útrýmt kynsjúkdómum eins og lekanda og sárasótt hérlendis en á síðustu árum hafa þeir færst mjög í aukana. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Kamillu Sigríði Jósefsdóttur, yfirlækni hjá Landlæknisembættinu. Fljúgandi skeið eða harðastökk er ekki það fyrsta sem manni dettur í hug þegar maður sér myndir af flóðhestum, enda flóðhestar með þyngstu og þunglamalegstu skepnum sem ganga þessa Jörð - nema maður sé prófessor í þróunar-lífaflfræði við Konunglega dýralækningaháskólann í Lundúnum auðvitað, eins og hann John Hutchinson er. Hann og teymi hans komust að því að flóðhestar eru á lofti allt að 15% þess tíma sem þeir eru á harðasta sprettinum. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Spegillinn
Kosningar á Bretlandi, hvalveiðar og losun frá dönskum landbúnaði

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 26, 2024 19:55


Eftir rúma viku rennur upp kjördagur á Bretlandi og í kvöld mætast Keir Starmer leiðtogi Verkamannaflokksins og Rishi Sunak forsætisráðherra Íhaldsflokksins í sjónvarpskappræðum í Nottingham. Kosningaspár gera ráð fyrir stórsigri Verkamannaflokksins. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Höllu Gunnarsdóttur alþjóðastjórnmálafræðing, sem stödd var í Lundúnum. Forstjóri Hvals kvartaði undan stjórnsýslueftirliti með félaginu og sagði samskipti á köflum vera í of djúpum skotgröfum og einkennast af tortryggni. Úr þessu mætti gjarnan bæta þar sem fjölmörg dæmi væru um uppbyggileg og skilvirk samskipti. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Talið er að rekja megi allt að þriðjungi losunar gróðurhúsalofttegunda til landbúnaðargeirans, þar af kemur helmingurinn frá búpeningi en hinn helminginn má rekja til landnotkunar, orkunotkunar og annarra þátta. Danska ríkisstjórnin hefur nú gert það sem öðrum hefur ekki tekist: Að semja við alla hagsmunaaðila um gjaldtöku vegna losunar frá landbúnaði. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Spegillinn
Vantraust á matvælaráðherra, deilur í ESB og friðlýsingar og ágangur á ferðamannastöðum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 20, 2024 19:45


Tillaga um vantraust á matvælaráðherra var felld í morgun. Aðeins eru nokkrar vikur síðan ríkisstjórnin í heild stóð af sér síka tillögu. Ráðherra segir tíma þingsins betur varið í annað en stjórnarliði sem sat hjá efast um erindi VG á þingi og segir eðlilegt að ráðherra sem misbeitir valdi sínu víki. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttakonu um málið og við heyrum brot úr málflutningi Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur og Jóns Gunnarssonar. Flokkadrættir og átök á Evrópuþinginu eftir kosningarnar um síðustu mánaðarmót draga dilk á eftir sér - ekki síst í hinum hefðbundna stólaleik um mikilvægustu embættin hjá Evrópusambandinu. Björn Malmquist talar frá Brussel. Áfangastaðir ferðamanna, sérstaklega inni á hálendinu, eru viðkvæmir fyrir ágangi í byrjun sumars og svo getur veðrið sett babb í bátinn. Í síðustu viku þurfti að loka að Dettifossi vegna þess hve mikil bleyta og krapi var á göngustígum. Þeir gátu verið varasamir en það var líka hætt við að svæðið træðist niður. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir viðIngu Dóru Hrólfsdóttur, sviðsstjóra hjá Umhverfisstofnun, um friðlýsingar, ástand og heildarstefnu um friðlýsta ferðamannastaði. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

bj magn brussel vg evr herra umsj vigd matv malmquist anna krist hjaltad umhverfisstofnun
Spegillinn
Þjóðerniskennd á lýðveldisafmælinu, öryggisgæslan á EM og sendiherrabústaður fær grænt ljós

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 14, 2024 19:54


Fyrir áttatíu árum þegar lýðveldið var stofnað og valinn forseta í staðinn fyrir kóng var ekki bara verið að setja lokapunktinn á sambandið við Dani en þá voru líka mikilvæg tímamót í lýðræðislegri þróun landsins. Þjóðerniskennd getur verið jákvæð en víða er höfðað til hennar til að ala á sundrungu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Ragnheiði Kristjánsdóttur sagnfræðing. Þýskaland og Skotlands mætast í opnunarleik Evrópumótsins í knattspyrnu. Mótið er haldið í Þýskalandi og öryggisgæslan er gríðarleg. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umhverfis-og skipulagsráð Reykjavíkurborgar féllst í vikunni á umdeildar breytingar sem sendiráð Bandaríkjanna vill gera á Sólvallagötu 14. Sjötíu og níu umsagnir bárust um breytingarnar, flestar frá íbúum sem lýstu furðu sinni á að sendiherra stórveldis ætlaði að flytja í gróið hverfi með tilheyrandi umstangi. Skipulagsfulltrúi segir alla sitja við sama borð.

Spegillinn
Strákar í skóla, ketamín og verkföllin í Færeyjum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 7, 2024 19:56


Fyrir tveimur árum hófst vinna í barna- og menntamálaráðuneytinu til að finna leiðir til að styrkja stöðu drengja í skólakerfinu. Stöðu sem er um margt alvarleg og getur enn versnað, eins og fram kom í máli Tryggva Hjaltasonar höfundar úttektar og skýrslu sem kynnt var í gær og fjallað um í Speglinum. Þar voru lagðar til fjölmargar aðgerðir og lausnir til að sporna við því að námsárangri drengja hraki og brottfalli þeirra úr námi. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við formanna Kennarasambands Íslands. Notkun ketamíns hefur aukist í Evrópu og efnið fannst við rannsókn á skólpi í fyrsta skipti í fyrra. Svipuð þróun virðist í gangi hér á landi, lagt hefur verið hald á mun meira af ketamíni síðustu tvö ár en árin þar á undan. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um ketamín. Verkföll í Færeyjum hafa nú staðið í rúmlega þrjár vikur og Halla Nolsøe Poulsen, fyrrverandi sendiherra Færeyja á Íslandi, segir færeyskan almenning vera farinn að finna vel fyrir afleiðingum þess. Ævar Örn Jósepsson segir frá.

Spegillinn
Forsetaframboð, vopnahlésviðræður og óbreyttir stýrivextir

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 8, 2024 20:00


8. maí 2024 Arnar Þór Jónsson er einn tólf frambjóðenda til embættis forseta Íslands, en forsetakosningar fara fram í júní. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Arnar um hvað það er sem knúði hann til framboðs, sýn hans á forsetaembættið og fleira. Síðustu daga hafa sendinefndir Hamas og Ísraelsstjórnar fundað í Kaíró, til að ræða vopnahléssamkomulag sem Egyptar og Katarar lögðu fram á dögunum og Bandaríkin og Sameinuðu þjóðirnar eiga aðild að. Margar breytingar hafa verið gerðar á samkomulaginu frá því að það var fyrst lagt fram og nú er svo komið að fulltrúar Hamas segjast reiðubúnir að undirrita það eins og það er. Ísraelsstjórn segir enn vanta nokkuð upp á að það uppfylli þeirra kröfur, en segist þó viljug til að halda viðræðunum áfram. Forsvarsmenn verkalýðsfélaga og Samtaka atvinnulífsins eru vonsviknir vegna þess að Seðlabankinn heldur stýrivöxtum enn óbreyttum í 9,25%, eins og þeir hafa verið frá því í fyrrasumar. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að nauðsynlegt sé að lækka verðbólgu og að stýrivextir séu verkfærið til þess. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Ásgeir.

Spegillinn
Lög um fiskeldi, mótmæli í Bandaríkjunum og nýr formaður Samtaka ferðaþjónustunnar

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 2, 2024 20:13


2. maí 2024 Frumvarp að nýjum lögum um lagareldi styrkir sjókvíaeldi í sessi en herðir kröfur til fyrirtækja í geiranum. Eftirlitsaðilar segja nýju lögin bragarbót en náttúruverndarsinnar mótmæla frumvarpinu. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í lögin og ræðir við Hafstein Dan Kristjánsson lektor við lagadeild HR, Hrönn Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra Matvælastofnunar og Jón Kaldal, talsmann Íslenska náttúruverndarsjóðsins. Á annað þúsund manns hafa verið handtekin í mikilli mótmælaöldu sem riðið hefur yfir bandaríska háskóla síðustu tvær vikur. Öll tengjast mótmælin stríðsrekstri Ísraelsmanna á Gaza og koma í framhaldi af svipuðum aðgerðum sem staðið hafa með hléum allt frá upphafi stríðsins 7. október. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Magnús Þorkel Bernharðsson, prófessor við Williams-háskóla í Massachusetts og sérfræðing í málefnum Miðausturlanda. Nýlegar tölur sýna að gistinætur voru fleiri í mars en á sama tíma í fyrra og ferðamönnum fjölgaði fyrstu mánuði ársins en útlit er fyrir að þeim fækki í sumar. Pétur Óskarsson, nýkjörinn formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að jafnvel þó að fjöldinn verði svipaður þá staldri ferðamenn skemur við en áður. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Pétur um ástand og horfur í greininni. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Varnarmál, útendingalög og umdeildar styttur á Taívan

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 24, 2024 20:09


24. apríl 2024 Ísland er herlaust en ekki hlutlaust segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra. Hún vill leggja aukna áherslu á öryggis- og varnarmál landsins. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana. Dómsmálaráðuneytið svaraði fyrir helgi umsögnum sem hafa borist í tengslum við nýtt og umdeilt frumvarp til útlendingalaga. Þar segir ráðuneytið meðal annars að kærunefnd útlendingamála sé að drukkna í málum og að nauðsynlegt sé að afnema málsmeðferðarreglu sem það segir sér-íslenska. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um málið. Ríkisstjórn Framfaraflokksins á Taívan samþykkti árið 2021 að fjarlægja skyldi allar styttur af hershöfðingjanum og einræðisherranum Chiang Kai-shek, sem stjórnaði eyríkinu með harðri hendi um áratugaskeið. Þetta var og er umdeild ákvörðun og minnst þrjú óárennileg ljón í veginum fyrir framkvæmd hennar, enda skipta stytturnar þúsundum. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Spegillinn
Hæstaréttardómur vegna ríkislögreglustjóra, Forsetakosningar, það sem ekki má á Ítalíu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 27, 2024 20:00


Hæstiréttur komst í dag að þeirri niðurstöðu að ríkið yrði að standa við samkomulag sem fyrrverandi ríkislögreglustjóri gerði við undirmenn sína. Þó er alveg skýrt að mati Hæstaréttar að ríkislögreglustjóinn fyrrverandi mátti ekki gera samkomulagið. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Sjöundi forseti Íslands verður kosinn 1. júní. Forsetakosningar eru sannarlega persónukjör og embættið hefur í gegnum tíðina mótast af þeim sem gegnir því hverju sinni. Því vsr horft um öxl og gripið niður í innsetningarræður forseta. Anna Kristín Jónsdóttir sagði frá. Ferðafólk sem leggur leið sína til Ítalíu þarf að huga að ýmsu sem ber að varast til að móðga ekki heimamenn eða jafnvel brjóta lögin. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Spegillinn
Réttarhöld v. skotárásar, Grindavík, kosningar í Rússlandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 18, 2024 20:14


18. mars 2024 Réttarhöld vegna skotárásar í Úlfarsárdal í nóvember á síðasta ári hófust í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Árásin vakti bæði athygli og óhug en hana virðist mega rekja til hefndar fyrir rán. Sá eini sem særðist í árásinni gaf þó lítið upp um mögulegar ástæður þess að hann var skotinn og sagðist hvorki vita neitt né muna. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir þegar enn fór að gjósa í Sundhnúksgígum og hefur um sex ferkílómetra hraun komið upp. Hrauntunga fór yfir Grindavíkurveg aðfaranótt sunnudags og önnur nálgast Suðurstrandarveg. Hættuleg gasmengun mældist við orkuverið í Svartsengi og það var rýmt fyrr í dag. Þá voru þar fimm að störfum en þeir gátu snúið fljótlega aftur. Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Grindavík segir að óvissan sem Grindvíkingar hafa búið við lengi sé farin að taka sinn toll, og hún upplifir ekki gos sem áhrifamikið sjónarspil. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana. Það fór eins og margan grunaði að Vladimír Pútín sigraði með yfirburðum í forsetakosningunum í Rússlandi í gær. Pólitískir andstæðingar hans voru hvort sem er ýmist í fangelsi, flúnir úr landi eða gengnir á vit feðra sinna. Kjörstjórn tilkynnti í dag að hann hefði fengið 87,28 prósenta fylgi. Mótframbjóðendur hans sem enginn man hvað heita fengu 4,31, 3,85 og 3,2 prósent. Ásgeir Tómasson segir frá.

Spegillinn
72 flóttamenn til Íslands, Ítalskar konur krefjast mannréttinda, grænlenskar konur og lykkjan

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 8, 2024 20:00


Yfir 70 palestínskir flóttamenn frá Gaza lentu á Keflavíkurflugvelli upp úr hádegi í dag. Reykjavíkurborg tekur á móti stórum hluta þeirra. Fólkinu býðst að koma í skóla- og fjölskyldumiðstöð sem koma á - á laggirnar í Reykjavík á næstu vikum. Þannig á að gefa fólki færi á að kynnast í lífinu í landinu. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Sögu Stephensen og Dagbjörtu Ásbjörnsdóttur, verkefnisstjóra fjölmenningar í leik- og grunnskólum Reykjavíkurborgar. Konur komu saman í dag, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, og kröfðust jafnréttis og aukinna mannréttinda. Á Ítalíu var lýst yfir kvennaverkfalli. Ásgeir Tómasson sagði frá. Á um tíu ára tímabili var sett upp getnaðarvarnarlykkja hjá um 4.500 grænlenskum konum, mörgum á barnsaldri. Þetta var gert til að stemma stigu við fólksfjölgun í landinu, Anna Kristín Jónsdóttir sagði frá og talaði við Kristjönu Guðmundsdóttur Motzfeldt, sem bjó um árabil á Grænlandi.

Spegillinn
Noregskonungur veikur í Malasíu, málefni kvótaflóttamanna, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 1, 2024 20:00


Norðmenn óttast að Haraldur konungur sé alvarlega veikur þar sem hann liggur á sjúkrahúsi í Malasíu. Hann er þar í fríi frá störfum. Búið er að senda sjúkraþotu á vegum hersins og lið lækna á staðinn en alls er óvíst hvenær konungur verður fluttur heim. Gísli Kristjánsson sagði frá. Gerður Gestsdóttir, ormaður flóttamannanefndar, vonar að hægt verði að að taka við kvótaflóttamönnum í ár en það hefur ekki verið gert frá 2020. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana. Kristín Snorradóttir, teymisstjóri í Bjarmahlíð, þolendamiðstöð á Akureyri, segist finna fyrir því að þolendur af öllum kynjum verði fyrir alvarlegri brotum en áður. Aðeins einn starfsmaður starfar í miðstöðinni sem stendur þrátt fyrir að hún þjónusti þolendur um allt land. Selma Margrét Sverrisdóttir tók saman.

Spegillinn
Málefni útlendinga, neðansjávargos við Reykjanes, herbátar til Úkraínu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 21, 2024 20:00


21. febrúar 2024 Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands fagnar mörgu í heildarsýn í málefnum útlendinga og hælisleitenda en setur spurningarmerki til dæmis við breytingar á viðmiðum um fjölskyldusameiningu, styttingu dvalarleyfa og áform um lokuð búsetuúrræði. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana. Mikil eldsumbrot hafa verið á Reykjanesskaga síðustu misseri og ár. Eldgos, neðansjávargos, eru líka vel þekkt á hafsbotninum á Reykjaneshrygg, út af skaganum og Reykjanesi sjálfu, og Eldey, ein stærsta súlubyggð heims, varð til í einu slíku. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur, sem hefur lengi rannsakað Reykjaneshrygginn, fræðir Ragnhildi Thorlacius og hlustendur um hann. Möguleikar Úkraínumanna til að herja á rússneska innrásarliðið frá sjó aukast talsvert þegar þeir fá í hendur tíu orrustubáta og fleiri hergögn, sem Svíar færðu þeim að gjöf. Andvirði þeirra er 7,1 milljarður sænskra króna, hátt í 95 milljarðar íslenskir. Pål Jonsson varnarmálaráðherra greindi frá gjöfinni á fundi með fréttamönnum í Stokkhólmi. Hann sagði að sænski herinn hefði séð um að velja hergögnin sem send yrðu til Úkraínu. Ásgeir Tómasson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Grindavík, smitsjúkdómar og bólusetningar, Ursula von der Leyen

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 19, 2024 20:00


19. febrúar 2024 Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tilkynnti í dag að Grindvíkingar mættu frá og með morgundeginum dvelja og starfa í bænum allan sólarhringinn. En þó að aðgangur hafi verið rýmkaður er varla hægt að segja að lögreglustjórinn telji fýsilegt að dvelja í bænum; segir reyndar í tilkynningu að aðstæður sé ekki boðlegar fyrir búsetu í húsum, hann býst ekki við að margir kjósi að dvelja þar næturlangt þó að það sé heimilt. Íbúar og starfsmenn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Ásrúnu Helgu Kristinsdóttur, forseta bæjarstjórnar Grindavíkur. Tveir nemendur og tveir starfsmenn Hraunavallaskóla í Hafnarfirði greindust með hettusótt á dögunum. Nemendurnir voru bólusettir en starfsmennirnir ekki.* Grunur er um fleiri smit, sem öll tengjast þessum skóla og þeim einstaklingi sem fyrst greindist. Um 200 nemendur og flestir starfsmenn skólans hafa nú verið bólusett og verið er að bólusetja starfsfólk og nemendur í öðrum skólum Hafnarfjarðar. Ævar Örn Jósepsson ræðir farsóttir og bólusetningar við Kamillu Sigríði Jósefsdóttur, yfirlækni bólusetninga við Landlæknisembættið. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins síðastliðin fimm ár, tilkynnti að hún hefði að vandlega athuguðu máli ákveðið að sækjast eftir að fá að gegna embættinu fimm ár til viðbótar. Hún hefur þegar tryggt sér stuðning flokks síns, Kristilegra demókrata og vonast til að Evrópski þjóðarflokkurinn, EPP, bandalag evrópskra mið- og hægriflokka, fallist einnig á að tefla henni fram. Ásgeir Tómasson segir frá. *Í upprunalegri færslu stóð að öll fjögur sem smituðust hafi verið óbólusett. Hið rétta er að aðeins starfsmennirnir voru óbólusettir, en börnin voru bólusett.

Spegillinn
Uppkaup fasteigna í Grindavík, Brjósta- og leghálsskimun, Alexei Navalní

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 16, 2024 20:22


Töluvert hefur dregið úr þátttöku kvenna í brjósta- og leghálsskimun síðustu ár. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Ölmu Möller landlækni og Ágúst Inga Ágústsson, yfirlækni hjá Samhæfingarmiðstöð krabbameinsskimana. Á fjórða hundrað umsagnir bárust um drög að stjórnarfrumvarpi um uppkaup ríkisins á íbúðarhúsnæði í Grindavík, vegna hamfaranna sem dunið hafa yfir bæinn og enn standa yfir í næsta nágrenni hans. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Sigurð Orra Hafþórsson, lögmann Húseigendafélagsins. Rússneski andófsmaðurinn Alexei Navalní lést í dag í fangelsi í Síberíu. Leiðtogar víða um hinn vestræna heims hafa minnst hans í dag. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Spegillinn
Heitavatnslögnin frá Svartsengi, heitt vatn er ekki endalaus auðlind, samræði við barn undir 15 ára.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 9, 2024 19:42


Unnið hefur verið að því hörðum höndum að koma á heitu vatni frá Svartsengi til notenda í byggðakjörnum á Suðurnesjum. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Guðlaug H. Sigurjónsson, sviðsstjóra umhverfissviðs í Reykjanesbæ. Ástandið á Reykjanesskaga er fólki áminning um að vissast er að fara sparlega með heita vatnið, ekki síst þegar frost er á bilinu 10-20 stig. Eyþór Björnsson, forstjóri Norðurorku, segir í viðtali við Ágúst Ólafsson að rétt sé að fólk geri sér grein fyrir að heitt vatn sé ekki endalaus auðlind. Samræði fullorðins við barn undir fimmtán ára aldri þarf að skilgreina sem nauðgun í lögum að dómi Salvarar Nordal, umboðsmanns barna. Það eigi ekki að vera mat dómara hvort samþykki hafi legið fyrir. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana.

Spegillinn
Palestína, stuðningur ESB við Úkraínu og yfirmaður Úkraínuhers

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 1, 2024 20:46


1. febrúar 2024 Sögulegar og pólitískar ástæður fyrir því að palestínska flóttamannahjálpin er að mestu fjármögnuð af nokkrum öflugum Vesturlöndum. Það gildir líka um ástæður þess að hin vellauðugu olíuríki við Persaflóann skuli ekki einfaldlega taka við keflinu undir þeim aðstæðum sem nú eru uppi, og líka því, að Egyptar vilja ekki opna landamærin að Gaza og taka á móti þeim milljónum Palestínumanna sem þar búa við sárustu neyð. Magnús Þorkell Bernharðsson heldur áfram að skýra nokkrar helstu flækjurnar í þeirri skelfilegu stöðu sem uppi er fyrir botni Miðjarðarhafs. Ungverjar létu í dag af andstöðu sinni við áframhaldandi stuðning Evrópusambandsins við stríðsrekstur Úkraínumanna gegn Rússum. Á þessu er fyrst og fremst ein skýring að mati stjórnmálaskýrenda: Viktor Orban, forseti Ungverjalands, taldi sig ekki komast lengra í andófi sínu gegn stefnu ESB í þessu máli og lúffaði, til að tryggja landi sínu þá 50 milljarða Evra, sem Ungverjar hafa ekki fengið úthlutað úr þróunarsjóði sambandsins. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Björn Malmquist, fréttaritara RÚV í Brussel. Fjölmiðlar í Úkraínu hafa síðustu daga fullyrt og vitnað í ónafngreinda heimildarmenn innan stjórnkerfisins að Volodymyr Zelensky forseti vilji losna við Valerii Zaluzhny hershöfðingja sem æðsta yfirmann hersins. Nokkrir þingmenn á úkraínska þinginu hafa einnig gefið í skyn að yfirmannaskipti liggi í loftinu og Zaluzhny hafi verið boðið að taka við stjórn Þjóðaröryggis- og varnarmálaráðs landsins. Ásgeir Tómasson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Spegillinn
Löggjöf um sjávarútveg, aldinn utanríkisáðherra allur og slúður

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 30, 2023 20:00


30. nóvember 2023 Drög að sjávarútvegsstefnu og frumvarpi að lögum um sjávarútveg hafa verið birt og hægt að senda inn umsagnir til 22. desember. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir stefnt að jafnvægi og samfélagssátt um greinina - ekki endilega sátt við alla í henni. Jón Björn Hákonarson formaður Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga telur að kominn sé tími á breytingar á almennum byggðakvóta, slíkt er lagt til í drögunum. Þjóðarleiðtogar um allan heim hafa minnst Henrys Kissingers, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann lést í gær, hundrað ára að aldri. Fólk sem verður fyrir barðinu á slúðri í litlum bæjarfélögum er tvöfalt líklegra en aðrir til að flytja á brott. Doktorsnemi við Háskólann á Akureyri segir einhleypar konur oft skotmark. Sumar þeirra láti lítið fyrir sér fara af ótta við drusluskömmun. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Löggjöf um sjávarútveg, aldinn utanríkisáðherra allur og slúður

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 30, 2023


30. nóvember 2023 Drög að sjávarútvegsstefnu og frumvarpi að lögum um sjávarútveg hafa verið birt og hægt að senda inn umsagnir til 22. desember. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir stefnt að jafnvægi og samfélagssátt um greinina - ekki endilega sátt við alla í henni. Jón Björn Hákonarson formaður Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga telur að kominn sé tími á breytingar á almennum byggðakvóta, slíkt er lagt til í drögunum. Þjóðarleiðtogar um allan heim hafa minnst Henrys Kissingers, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann lést í gær, hundrað ára að aldri. Fólk sem verður fyrir barðinu á slúðri í litlum bæjarfélögum er tvöfalt líklegra en aðrir til að flytja á brott. Doktorsnemi við Háskólann á Akureyri segir einhleypar konur oft skotmark. Sumar þeirra láti lítið fyrir sér fara af ótta við drusluskömmun. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Stuðningur vegna launagreiðslna í Grindavík, Gaza og COP28

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 29, 2023


29. nóvember 2023 Í vikunni samþykkti Alþingi einróma frumvarp stuðning vegna launa fólks sem starfar í Grindavík. Stuðningurinn getur numið allt að 633 þúsund krónum á mánuði auk framlags í lífeyrissjóð og gildir út febrúar. Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur segir töluvert um að fólk hringi á skrifstofuna í leit að svörum. Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar segir að í næstu viku geti einstaklingar sótt um stuðning og fyrirtæki um miðjan desember. Samningamenn frá Katar, Egyptalandi og Bandaríkjunum hafa í dag keppst við að ná samkomulagi um að lengja vopnahlé milli stríðandi fylkinga fyrir botni Miðjarðarhafs. Fjölmiðlar höfðu síðdegis eftir utanríkisráðherra Katars að jákvæð niðurstaða væri á næsta leiti. Íslensk stjórnvöld skoða með nágrannaþjóðum hvort og hvernig þau taka þátt i fjármögnun loftslagshamfarasjóðs, sem fjallað verður um á COP 28 sem hefst á morgun. Þetta kom fram í skýrslu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar loftslagsráðherra til Alþingis. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred.

cops gaza gu katar fj bandar umsj grindav vegna anna krist vinnum verkal egyptalandi
Spegillinn
Stuðningur vegna launagreiðslna í Grindavík, Gaza og COP28

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 29, 2023 20:00


29. nóvember 2023 Í vikunni samþykkti Alþingi einróma frumvarp stuðning vegna launa fólks sem starfar í Grindavík. Stuðningurinn getur numið allt að 633 þúsund krónum á mánuði auk framlags í lífeyrissjóð og gildir út febrúar. Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur segir töluvert um að fólk hringi á skrifstofuna í leit að svörum. Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar segir að í næstu viku geti einstaklingar sótt um stuðning og fyrirtæki um miðjan desember. Samningamenn frá Katar, Egyptalandi og Bandaríkjunum hafa í dag keppst við að ná samkomulagi um að lengja vopnahlé milli stríðandi fylkinga fyrir botni Miðjarðarhafs. Fjölmiðlar höfðu síðdegis eftir utanríkisráðherra Katars að jákvæð niðurstaða væri á næsta leiti. Íslensk stjórnvöld skoða með nágrannaþjóðum hvort og hvernig þau taka þátt i fjármögnun loftslagshamfarasjóðs, sem fjallað verður um á COP 28 sem hefst á morgun. Þetta kom fram í skýrslu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar loftslagsráðherra til Alþingis. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred.

cops gaza gu katar fj bandar umsj grindav vegna anna krist vinnum verkal egyptalandi
Spegillinn
Þvingaðar ófrjósemisaðgerðir, landarmæri Finna og Rússa og popúlismi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 27, 2023 20:00


27. nóvember 2023 Í bandaríska blaðinu New York Times birtist um helgina grein um ófrjósemisaðgerðir á fötluðum konum - þar fullyrt að enn væru gerðar slíkar aðgerðir í undantekingartilvikum, meðal annars á Íslandi, þrátt fyrir bann. Réttargæslumönnum fatlaðra berast árlega að jafnaði þrjár til fjórar frásagnir af þvinguðum ófrjósemisaðgerðum fatlaðra kvenna segir Eiríkur Smith réttargæslumaður. Finnar eru reiðubúnir að loka síðustu landamærastöðinni á landamærum Finnlands og Rússlands ef straumur hælisleitenda frá Rússlandi verður ekki stöðvaður. Þetta er meðal þess sem kom fram á fundi forsætisráðherra Svíþjóðar og Finnlands í Helsinki í dag. Um nær allan heim hefur gengi hægri öfgaflokka í kosningum vaxið. Þetta gerist víða í Evrópu og Bandaríkjunum og áhrifa þeirra gætir líka mjög hjá flokkum sem fyrir voru og hafa gert málflutning þeirra og málefni að sínum eigin. Það reynist mörgum erfitt að gangast við því að þessir flokkar séu orðnir hluti af hinu pólitíska landslagi segir Maximilian Conrad, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Jafnvel Geert Wilders formanni Frelsisflokksins kom kosningasigur flokksins í Hollandi í síðustu viku á óvart. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon.

Spegillinn
Þvingaðar ófrjósemisaðgerðir, landarmæri Finna og Rússa og popúlismi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 27, 2023


27. nóvember 2023 Í bandaríska blaðinu New York Times birtist um helgina grein um ófrjósemisaðgerðir á fötluðum konum - þar fullyrt að enn væru gerðar slíkar aðgerðir í undantekingartilvikum, meðal annars á Íslandi, þrátt fyrir bann. Réttargæslumönnum fatlaðra berast árlega að jafnaði þrjár til fjórar frásagnir af þvinguðum ófrjósemisaðgerðum fatlaðra kvenna segir Eiríkur Smith réttargæslumaður. Finnar eru reiðubúnir að loka síðustu landamærastöðinni á landamærum Finnlands og Rússlands ef straumur hælisleitenda frá Rússlandi verður ekki stöðvaður. Þetta er meðal þess sem kom fram á fundi forsætisráðherra Svíþjóðar og Finnlands í Helsinki í dag. Um nær allan heim hefur gengi hægri öfgaflokka í kosningum vaxið. Þetta gerist víða í Evrópu og Bandaríkjunum og áhrifa þeirra gætir líka mjög hjá flokkum sem fyrir voru og hafa gert málflutning þeirra og málefni að sínum eigin. Það reynist mörgum erfitt að gangast við því að þessir flokkar séu orðnir hluti af hinu pólitíska landslagi segir Maximilian Conrad, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Jafnvel Geert Wilders formanni Frelsisflokksins kom kosningasigur flokksins í Hollandi í síðustu viku á óvart. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon.

Spegillinn
Vopnahlé á Gaza og óbreyttir stýrivextir

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 22, 2023 20:00


22. nóvember 2023 Samkomulag náðist í nótt milli ísraelskra stjórnvalda og Hamas samtakanna um fjögurra sólarhringa vopnahlé . Það á að ganga í gildi klukkan tíu í fyrramálið að staðartíma. Þrjátíu til þrjátíu og fimm börn, helmingurinn um og undir tíu ára aldri, verða látin laus þegar Hamas samtökin á Gaza sleppa fimmtíu gíslum á morgun og næstu daga. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að mögulega hefði átt að hækka vexti en afleiðingar jarðhræringanna geti aukið þenslu - en líka dregið úr neyslu almennings og haft vond áhrif á ferðaþjónustu. Óvissan sé mikil og því hafi verið ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Læknar á landsbyggðinni lýsa margir miklu álagi og víða reynist erfitt að manna stöður. Formaður Læknafélagsins segir tímabært að stjórnvöld geri alvöru úr stefnu sinni að bæta heilbrigðisþjónustu utan borgarinnar. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson Viðmælendur: Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins. Frank Gardner,fyrrverandi yfirmaður í breska hernum og nú fréttamaður hjá BBC. Peter Lerner, talsmaður Ísraelshers. Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands.

Spegillinn
Vopnahlé á Gaza og óbreyttir stýrivextir

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 22, 2023


22. nóvember 2023 Samkomulag náðist í nótt milli ísraelskra stjórnvalda og Hamas samtakanna um fjögurra sólarhringa vopnahlé . Það á að ganga í gildi klukkan tíu í fyrramálið að staðartíma. Þrjátíu til þrjátíu og fimm börn, helmingurinn um og undir tíu ára aldri, verða látin laus þegar Hamas samtökin á Gaza sleppa fimmtíu gíslum á morgun og næstu daga. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að mögulega hefði átt að hækka vexti en afleiðingar jarðhræringanna geti aukið þenslu - en líka dregið úr neyslu almennings og haft vond áhrif á ferðaþjónustu. Óvissan sé mikil og því hafi verið ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Læknar á landsbyggðinni lýsa margir miklu álagi og víða reynist erfitt að manna stöður. Formaður Læknafélagsins segir tímabært að stjórnvöld geri alvöru úr stefnu sinni að bæta heilbrigðisþjónustu utan borgarinnar. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson Viðmælendur: Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins. Frank Gardner,fyrrverandi yfirmaður í breska hernum og nú fréttamaður hjá BBC. Peter Lerner, talsmaður Ísraelshers. Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands.

Spegillinn
Flókin atburðarás við Svartsengi og samið um gísla Hamas

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 20, 2023


20. nóvember 2023 Atburðurinn í og við Svartsengi er mjög flókinn að sögn Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings. Tjónið sé vegna sprungna, ekki jarðskjálfta. Taka þurfi mið af sprungum við mannvirkjagerð og hefði átt að gera af meiri alvöru fyrir löngu. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Pál. Bandaríkjaforseti er vongóður um að senn semjist um að gíslar Hamas samtakanna á Gaza verði látnir lausir. Ásgeir Tómasson sagði frá. Herða verður á í baráttunni við loftslagsvána og á COP 28 ráðstefnunni síðar í þessum mánuði er síðasta tækifærið til að ná samstöðu um það, segir Halldór Þorgeirsson formaður Loftslagsráðs. Allar þjóðir geri sér grein fyrir alvöru málsins. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hann. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred.

Spegillinn
Flókin atburðarás við Svartsengi og samið um gísla Hamas

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 20, 2023 20:00


20. nóvember 2023 Atburðurinn í og við Svartsengi er mjög flókinn að sögn Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings. Tjónið sé vegna sprungna, ekki jarðskjálfta. Taka þurfi mið af sprungum við mannvirkjagerð og hefði átt að gera af meiri alvöru fyrir löngu. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Pál. Bandaríkjaforseti er vongóður um að senn semjist um að gíslar Hamas samtakanna á Gaza verði látnir lausir. Ásgeir Tómasson sagði frá. Herða verður á í baráttunni við loftslagsvána og á COP 28 ráðstefnunni síðar í þessum mánuði er síðasta tækifærið til að ná samstöðu um það, segir Halldór Þorgeirsson formaður Loftslagsráðs. Allar þjóðir geri sér grein fyrir alvöru málsins. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hann. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred.

Vikulokin
Arndís Anna, Orri Páll, Jakob Frímann

Vikulokin

Play Episode Listen Later Sep 16, 2023


Gestir Vikulokanna voru Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vg, og Jakob Frímann Magnússon, þingmaður Flokks fólksins. Rætt var um þingsetningu í vikunni, bakslag í viðhorfum gagnvart hinsegin fólki og hatramma umræðu um kynfræðslu í grunnskólum, mörk hatursorðræðu og tjáningarfrelsis, tímabundna stöðvun hvalveiða vegna brota á skilyrðum fyrir áframhaldandi veiðum, og fjárlög. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson Tæknimaður: Davíð Berndsen