POPULARITY
Í dag hefst Hönnunarmars með pompi og prakt og á þriðja tug sýninga af mjög fjölbreyttu tagi. Meðal þeirra er sýningin Stöngin inn, í Hegningarhúsinu, þar sem áhugasamir geta kynnt sér umbreytingar sem framundan eru á Stangarbænum í Þjórsárdal. Verkefnið markar að sögn aðstandenda ákveðin þáttaskil í opinberum byggingum hér á landi og setur Stangarbæinn í sérstöðu sem fyrsta minjastaðinn á Íslandi sem er hannaður heildrænt með áherslu á umhverfislega og félagslega sjálfbærni. Við rifjum upp merkilega sögu Stangarbæjarins í Þjórsárdal og af sýningunni hjá arkitektinum Karli Kvaran í þætti dagsins. Gréta Sigríður Einarsdóttir vinnur líka úr eftirstöðvum jólabókaflóðsins með rýni í skáldsögu Guðrúnar Evu Mínervudóttur, Í skugga trjánna, og við kynnum okkur nýja danssýningu í Tjarnarbíói sem ber yfirskriftina Illgresin hjá danshöfundinum Gígju Jónsdóttur og dansaranum og fulltrúa danshópsins Forward, Diljá Þorbjargardóttur. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Akureyrarklínikin er fyrst sinnar tegundar í heiminum sem rekin er af hinum opinbera en um er að ræða samstarfsverkefni Sjúkrahússins á Akureyri og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, sem þekkingar– og ráðgjafamiðstöð fyrir ME sjúkdóminn og eftirstöðvar Covid 19. Akureyrarklínikin samanstendur af þverfaglegu teymi lækna, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, iðjuþjálfa og hjúkrunarfræðings. Teyminu er ætlað að sinna ME sjúklingum á landsvísu, bæði í staðarviðtölum en einnig fjarviðtölum. Bati getur verið mjög hægur og í sumum tilfellum lítill sem enginn. Það þarf frekari vitundarvakningu um eðli sjúkdómsins, meðferð og batahorfur. Ingunn Eir Eyjólfsdóttir og Lilja Sif Þórisdóttir, félagsráðgjafar, sögðu okkur meira frá í þættinum í dag. Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisbókhaldi, kom til okkar í dag með það sem við köllum fjármálin á mannamáli. Í þetta sinn fræddi hann okkur efni sem er mörgum hugleikið, húsnæðislánin. Þetta eru yfirleitt stærstu lánin sem fólk tekur á ævinni og lánaumhverfi á Íslandi er talsvert flókið, því var áhugavert að fá útskýringar á mannamáli um það sem hafa ber í huga varðandi val á láni. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Jón Knútur Ásmundsson, skrifstofumaður á Reyðarfirði, starfsmaður Austurbrúar, ljóðskáld og hundaeigandi. Hann sagði okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Jón talaði um eftirfarandi bækur og höfunda Fólkið í kjallaranum e. Auði Jónsdóttur Í skugga trjánna e. Guðrúnu Evu Mínervudóttur Norwegian Wood og Novelist as a Vocation e. Haruki Murakami On Writing e. Stephen King Aðlögun e. Þórdísi Gísladóttur. Innanríkið – Alexíus e. Braga Ólafsson. Teiknimyndabækur æsku hans, Svalur og Valur, Tinni og fleiri Bloggarar, blaðamenn og pistlahöfundar um aldamótin, til dæmis Karl Th. Birgisson, Illugi Jökulsson og Egill Helgason. Tónlist í þætti dagsins: Alltígóðulagi / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson) Money / Pink Floyd (Roger Waters) Borgarfjarðarminning / Stefán Helgi Stefánsson og Davíð Ólafsson (Óli H. Þórðarson, texti Böðvar Guðmundsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Ellen Calmon var ráðin verkefnisstýra Húsnæðisteymis Grindavíkurbæjar sl.desember en verkefnið var áætlað í 6 mánuði. Í upphafi snerist vinnan um að koma fólki í bráðabirgðarskjól en nú er verið að vinna að varanlegri lausnum í húsnæðismálunum. Ellen og hennar teymi hefur það verk með höndum að halda utan um og aðstoða það fólk sem er húsnæðislaust. Ellen kom til okkar í dag og fór með okkur yfir stöðuna. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni, í þetta sinn fjallaði vinkillinn um ótímabæra framkvæmdagleði á svikavori, en líka um ábrysti og hvernig þeir eru hanteraðir. Þá er fjallað um óhefðbundnar aðferðir við að vinna ýmis verk og hvernig sumar þeirra eiga uppruna sinn á einum stað og einni stundu auk þess sem nefnd eru ýmis dæmi um slíkt; en sum hver lýsa rósrauðum bjarma fortíðar og eru ekki til eftirbreytni í nútímanum. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Sunna Kristín Hilmarsdóttir verkefnastjóri hjá samskiptasviði Háskólans í Reykjavík. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sunna talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: I am Glad My Mom Died e. Jennette McCurdy Tól e. Kristínu Eiríksdóttur Þagnarbindindi e. Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur Kláði e. Fríðu Ísberg svo talaði hún um Guðrúnu Evu Mínervudóttur Tónlist í þættinum: Daydream / Doris Day (John Sebastian) Answer me, my love / Silva Þórðardóttir og Steingrímur Karl Teague (Gerhard Winkler, Fred Rauch og Carl Sigman) Lazy Sunday / Small Faces (Lane & Marriot) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Šajmo si tentokrát pozval do Refresher obývačky netradičného hosťa a to Evu Mázikovú. Okrem jej hudobnej kariéry rozobrali aj aktuálnu slovenskú hudobnú scénu.
Skáldin og rithöfundarnir Elísabet Jökulsdóttir og Linda Vilhjálmsdóttir hafa þekkst frá því í barnaskóla og lesið yfir hvor fyrir aðra frá því að þær gáfu út sín fyrstu ljóð. Báðar hafa þær nýlega gefið út bækur, Linda ljóðabókina Humm, og Elísabet skáldsöguna Saknaðarilmur. Á milli þeirra er dýrmætur og hreinskilinn vinskapur, sem hlustendur fá innsýn í hér rétt á eftir, þegar þær setjast niður og spjalla um skáldskapinn, mjóar raddir og hummandi konur. Við heimsækjum líka Listasafn Íslands þar sem nú stendur yfir yfirlitssýning á verkum Suður-Afríska ljósmyndarans og aðgerðasinnans Zaneli Muholi. Zanele Muholi er einn virtasti ljósmyndari samtímans, var fulltrúi Suður-Afríku á Feneyjatvíæringnum árið 2019, en Muholi vill frekar nefnast sjónrænn aktívisti en listamaður. Hán ólst upp við aðskilnaðarstefnuna fram að 20 ára aldri og má segja að öll list háns mótist af þessu tvennu; kynja- og kynþáttapólitík. Síðan Muholi útskrifaðist úr námi fyrir rúmum 20 árum síðan hefur hán einbeitt sér að því að skrásetja og miðla tilveru og sögu hinsegin fólks og kynsegin fólks í heimalandinu. Sölvi Halldórsson rýnir einnig í nýja skáldsögu Guðrúnar Evu Mínervudóttur, Útsýni. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Í síðustu viku náði kylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson þeim frábæra árangri að tryggja sér fullan keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í golfi, en þúsundir kylfinga um heim allan dreymir um að geta keppt meðal þeirra bestu, annað hvort á Evrópumótaröðinni eða þeirri bandarísku. Guðmundur Ágúst er aðeins annar íslenski karlkylfingurinn sem hefur náð þessum áfanga og einungis fjórar íslenskar konur hafa spilað á Evrópumótaröðinni. Samkeppnin er gríðarleg og árangurinn því glæsilegur hjá Guðmundi Ágústi, en við ætlum að fá hann til að segja okkur aðeins frá því hvernig þetta gekk fyrir sig, hvernig líf atvinnukylfingsins er og hvað er framundan? En keppnistímabilið hefst strax í þessari viku í Suður-Afríku. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni, skúffuskáldi og þjóðfræðiáhugamanni úr Flóanum. Í dag bar hann vinkil sinn að hitaveiturörum. Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Snæbjörn Arngrímsson, bókaútgefandi og rithöfundur. Hann hefur átt ótrúlegan feril í bókaútgáfu, bæði hér á landi og í Danmörku og nú er hann búinn að skrifa og gefa út spennusöguna Eitt satt orð. En hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Snæbjörn talaði um eftirtaldar bækur: Om udregning af omfang e. Solvej Balle Gegn gangi leiksins e. Braga Ólafsson Útsýni e. Guðrúnu Evu Mínervudóttir The Lincoln Highway e.Amor Towles Splunkunýr dagur e. Pétur Gunnarsson og japanska höfundinn Kazuo Ishiguro Tónlist í þættinum í dag: Við arineld / Valgerður Guðrún Guðnadóttir (Magnús Eiríksson og Kristján frá Djúpalæk) Afmælisdiktur / Egill Ólafsson og Arnmundur Ernst B. Björnsson (Atli Heimir Sveinsson og Þórbergur Þórðarson) Enginn veit / Sigrún Harðardóttir og Orion (Paul McCartney, John Lennon og Eysteinn Jónasson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Í þættinum er að þessu sinni rætt við tvær skáldskonur sem báðar hafa nýlega sent frá sér nýjar bækur þar sem mannsheilinn og túlkun hans á raunveruleikanum er til umfjöllunar. Þetta eru annars vegar ljóðsagan Skurn eftir Arndísi Lóu Magnúsdóttur og hins vegar skáldsagan Útsýni eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Rætt er við skáldkonurnar báðar og lesið úr verkunum báðum. Umsjónarmaður: Jórunn Sigurðardóttir Lesari: Lóa Björk Björnsdóttir

Alena Pajtinková je aktuálnou držiteľkou divadelného ocenenia DOSKY za najlepší ženský herecký výkon. Získala ho za stvárnenie Máši v hre Antona Pavloviča Čechova - Tri sestry, ktorú hrajú v martinskom divadle. A v jednej z hier hrá aj Evu Mázikovú, ktorú vie dokonale napodobniť. Vypočuj si. V rozhovore sa dozvieš: - ako zistila, že sa stala víťazkou najvyššieho divadelného ocenenia, - či je ťažie herectvo alebo moderácia, - a či videla Eva Máziková predstavenie, v ktorom ju hrá.
Í þættinum í dag tekur Tómas Ævar Ólafsson saman efni um íslensku bækurnar sem tilnefndar eru til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Til Barna - og unglingabókmenntaverðlauna ráðsins eru að Íslands hálfu tilnefndar skáldsögurnar Blokkin á heimsenda eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Bjarnadóttur og Grísafjörður; Ævintýri um vináttu og fjör eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur. Til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs eru hins vegar tilnefndar skáldsögurnar Tíminn og vatnið eftir Andra Snæ Magnason og Aðferður við að lifa af eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Efnið að mestu tekið saman úr ýmsum þáttum þar sem fjallað var úm þessar bækur á sínum tíma: Víðsjá, Bók vikunnar, Orð um bækur og Krakkakiljan. Þá stjórnaði Jórunn umræðum þeirra, sem að umfjöllun um hinar tilnefndu bækur komu, en það varu þær Dagný Kristjánsdóttir (stúdíó), Marta Guðrún Jóhannesdóttir(í síma norðan að Drangsnesi) og Sunna Dís Másdóttir í bíl við Laugarnestenaga.i. Spáð var í spilin hvaða bækur þætti verðlaunalíklegastar og þótt Íslendingar og Finnar sigurstranglegastir. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs verða afhent í Skuespikhuset í Kaupmannahöfn, þriðjudaginn 2. nóveber sem og Kvikmyndaverðlaun, Tónlistarverðlaun og Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs. Umsjón: Jórunn Sigurðardóttir

Í Víðsjá í dag verður meðal annars frá ritinu Mondo Cane sem kom út hjá forlaginu Þremur höndum seint á síðasta ári. Ritið hefur að geyma íslenskar þýðingar Áslaugar Agnarsdóttur á safni örsagna eftir belgíska listamannatvíeykið Jos de Gruyter og Harald Thys sem upphaflega fylgdi samnefndri myndlistarsýningu sem sett var upp í belgíska skálanum á Feneyjartvíæringnum árið 2019. Nína Óskarsdóttir útgefandi og myndlistarkona segir frá í Víðsjá í dag. María Elísabet Bragadóttir rithöfundur kveður sér hljóðs öðru sinni í Víðsjá á fimmtudegi, undir yfirskriftinni Sannleikskorn, draugasögur koma við sögu að gefnu tilefni hjá Maríu í dag. Tilkynnt var í Gunnarshúsi, húsi Rithöfundasambands Íslands, í morgun hvaða verk eru tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs að þessu sinni. Af Íslands hálfu eru tilnefnd verkin Aðferðir til að lifa af, skáldsaga Guðrúnar Evu Mínervudóttur frá árinu 2019, og Um tímann og vatnið, eftir Andra Snæ Magnason, sömuleiðis frá árinu 2019. Hlustendur heyra í þeim Guðrúnu og Andra í þættinum í dag. Einnig verður hugað að nýjum handhafa íslensku myndlistarverðlaunanna, fjórir listamenn voru tilnefndir til verðlaunanna að þessu sinni, en afhendingin fór fram í dag, þetta var í fjórða sinn sem Myndlistarráð úthlutar þessum verðlaunum. Og Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi Víðsjár fjallar í þættinum í dag um leiksýninguna Stúlkan sem stöðvaði heiminn sem sýnd er á Litla sviði Borgarleikhússins. Sýningin er unnin í samvinnu við sviðslistahópinn 10 fingur en hann hefur um árabil lagt áherslu á að setja upp sýningar sem börn og fullorðnir geta notið saman, og hefur sérhæft sig í listsköpun á mörkum leikhúss og myndlistar. Leikstjóri sýningarinnar er Helga Arnalds.

Fjallað um bókina Aðferðir til að lifa af eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur með gestum þáttarins, sem eru bókmenntafræðingarnir Hrund Ólafsdóttir og Kristján Hrafn Guðmundsson Umsjón: Jórunn Sigurðardóttir.

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við tvo meðlimi í sviðslistahópnum Marmarabörnum, sem frumsýnir á stóra sviði Þjóðleikhússins á morgun sviðslistaverkið Eyður. Björn Þór Vilhjálmsson rýnir í sögu Friðriks Þórs Friðrikssonar kvikmyndaleikstjóra sem Einar Kárason hefur skráð, bók sem nefnist Með sigg á sálinni og kom út fyrir síðustu jól. Í henni segir Einar frá viðburðaríkri ævi Friðriks, allt frá bíódögum og sveitasögum bernskunnar til Óskarsverðlaunatilnefningar og kynna leikstjórans af stórstjörnum af ýmsu tagi. Snæbjörn Brynjarsson fjallar um sýninguna Teenage Songbook of Love and Sex eftir Ásrúnu Magnúsdóttur og Alexander Roberts sem er á fjölunum í Tjarnarbíói. Og bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni er Aðferðir til að lifa af eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur, þetta er nýjasta skáldsaga Guðrúnar Evu sem tók á dögunum við viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins. Hlustendur heyra í Guðrúnu í þættinum í dag. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Stefán Baldursson leikstjóra um höfundarverk Guðmundar Steinssonar leikskálds, en Leiklestrarfélagið stendur í samvinnu við Þjóðleikhúsið og Kristbjörgu Kjeld fyrir viðamikilli dagskrá um Guðmund og verk hans í Þjóðleikhúskjallaranum á næstu vikum. Þrjú verk Guðmundar verða leiklesin en verkefnið hefst með sérstakri dagskrá þar sem lífi og starfi hans verða gerð skil, á meðal þeirra sem fram koma þar er Sigurður Sigurjónsson leikari og hann verður gestur Víðsjár í dag. Sýningin Úngl, yfirlitssýning á verkum Ólafar Nordal, verður skoðuð í fylgd listamannsins, en sýningin var opnuð um síðustu helgi á Kjarvalsstöðum. Maríanna Clara Lúthersdóttir bókmenntagagnrýnandi fjallar um skáldsöguna Aðferðir til að lifa af eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson
Í öðrum þætti Lestrarklefans er fjallað um smásögurnar, en í stysta mánuði ársins höfum við í Lestrarklefanum einbeitt okkur að knöppum texta smásagnanna. Ragnhildur Hólmgeirsdóttir les pistil um smásögur. Katrín Lilja ræðir við tvo mjög ólíka höfunda. Ævar Þór Benediktsson er helst þekktur sem barnabókahöfundur, en í raun eru "Þín eigin"- bækurnar hans ekkert annað er samofið smásagnasafn. Einnig er rætt við Guðrúnu Evu Mínervudóttur sem sendi frá sér smásagnasafnið "Ástin Texas" fyrir jólin og hlaut fyrir það Fjöruverðlaunin. Umsjón með þættinum hefur Erna Agnes Sigurgeirsdóttir og ritsjórn var í höndum Katrínar Lilju Jónsdóttur.
Guðni Tómasson ræðir við Guðrúnu Evu Mínervudóttur um drifkraftinn, viðfangsefnin, áskoranirnar og hvað það er sem gerir leitina að inntaki listarinnar þess virði að haldið er í hana.

Fjallað um bókina Ástin Texas eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Viðmælendur eru Guðrún Nordal, prófessor í íslensku við Háskóla Íslands og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og Jóhanna María Einarsdóttir, kynningahöfundur hjá DV, sem er með BA-gráðu í bókmenntafræði og MA-gráðu í ritlist. Umsjón: Auður Aðalsteinsdóttir.
Í þætti dagsins ætlum við að forvitnast um kennileiti í borginni sem hefur alla tíð verið staður innblásturs og háleitra hugmynda, Skólavörðuholtið. Kjartan Már Ómarsson, doktorsnemi í bókmenntafræði, skrifaði grein um holtið í nýjasta hefti Andvara, og hann mun segja okkur betru frá hér í lok þáttarins. Við tökum Guðrúnu Evu Mínervudóttur einnig tali um hennar nýjustu bók, smásagnasafnið Ástin, Texas, sem er bók vikunnar á Rás1. Andri M. Kristjánsson fjallar um nýjustu bók Þórunnar Jörlu Valdimarsdóttur, SKúli Fógeti: Faðir Reykjavíkur - saga frá átjándu öld, sem er tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðibóka. Ragnhildur Hólmgeirsdóttir sagnfræðingur hefur á ný göngu sína sem pistlahöfundur okkar hér í Víðsjá, hún mun næsta misserið fjalla um allt milli himins og jarðar, en í dag er það dansinn sem á hug hennar allan. En við byrjum á leikhúsinu. María Kristjánsdóttir sá einleikinn Ég dey eftir Charlottu Böving í Borgarleikhúsinu. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
Í þættinum er rætt við ljóðskáldið Sigurbjörgu Þrastardóttur um nýja ljóðabók hennar Hryggdýr og við Guðrúnu Evu Mínervudóttur sem nýlega sendi frá sér smásagnasafnið Ástin Texas sem fjallar um ómöguleika ástarinnar sem þó blómstrar stöðugt í lífinu. Að lokum ræðir svo Brynhildur Heiðar - og Ómarsdóttir við Kristínu Svövu Tómasdóttur sem hefur skrifað sögu kláms á Íslandi.

Gauti Kristmannsson segir skoðun sína á smásagnasafninu Ástin, Texas eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur og Guðrún Baldvinsdóttir lýsir upplifun sinni af lestri nýrrar ljóðabókar Steinunnar Sigurðardóttur, Að ljóði muntu verða. Rætt við Erlend Sveinsson kvikmyndargerðarmann um heimildarmyndina Þvert á tímann sem frumsýnd var um helgina og fjallar um Matthías Johannessen skáld og ritstjóra. Auk þessa flytja meðlimir Blekfjelagsins jólaörsögur í þættinum. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
Í þættinum Út og Suður koma fram: Björn Unnar Valsson, verkefnastjóriIngibjörg Ösp Óttarsdóttir, deildarbókavörður Ólöf Sverrisdóttir, verkefnastjóriSunna Dís Másdóttir, verkefnastjóriSpjallað er um eftirfarandi bækur: Blátt blóð: Í leit að kátu sæði eftir Oddnýju Eir ÆvarsdótturSkegg Raspútíns eftir Guðrúnu Evu MínervudótturGuð hins smáa eftir Arundhati RoyVetrarhörkur eftir Hildi KnútsdótturGaldrastafir og græn augu eftir Önnu Heiðu PálsdótturOrmhildarsaga eftir Þórey Mjallhvíti H. ÓmarsdótturEineygði kötturinn kisi og hnakkarnir eftir Hugleik DagssonGóða ferð og góða hlustun!Hljóðmaður: Ingi Þórisson
Fjallað er um Skegg Raspútíns eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur, sem er bók vikunnar. Gestir eru Gunnþórunn Guðmundsdóttir bókmenntafræðingur og Þórdís Gísladóttir rithöfundur og þýðandi. Umsjónarmaður er Halla Þórlaug Óskarsdóttir.