POPULARITY
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Þorvaldur Flemming var í beinni frá Danmörku. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, viðskiptafræðingur, flugmaður og áhugamaður um bætt mannlíf um land allt, ræddi við okkur um heilbrigðisþjónustu. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks í Reykjavíkurborg, ræddu leikskólamálin í borginni. Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni, ræddi við okkur um hvað pör þurfa að ræða áður en þau ganga í hjónaband. Þuríður Blær Jóhannsdóttir leikur aðalhlutverkið í Röskun og Bragi Þór Hinriksson, leikstjóri myndarinnar, settust niður með okkur. Græjuhornið.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Eyþór Víðisson öryggis og löggæslufræðingur um öryggisvitund Ólöf Ásta Farestveit forstjóri barna- og fjölskyldustofu Símatími Birgir Finnsson settur slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu Guðný Atladóttir rekstrarstjóri Eysland Samúel Karl Ólason fréttamaður á Vísi um viðbúnað Bandaríkjahers við Íran Helgi Gunnlaugsson prófessor í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands um Bakkakotsmálið og hvort fórnarlömb séu líkleg að beita sömu meðölum og þau ólust upp við. Kristján Gíslason hringfari er staddur í þorpinu Konso í Eþíópíu ásamt konu sinni Ásdísi Rósu Baldursdóttur.
Fimmtudagur 19. febrúar Mengun, reynsluboltar, verðbólga og eldhestur Við hefjum leik á mengaðri borg. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Diljá Ámundadóttir, móðir langveiks barns og Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks ræða svifryk og fleira, stöðuna og úrbætur. Oddný Harðardóttir, fyrrum þingmaður og ráðherra, Ágúst Borgþór Sverrisson fréttastjóri DV og Björg Eva Erlendsdóttir fjölmiðlakona, nú hjá Landvernd, ræða fréttir líðandi stundar. Barnaníð, Andrew, þingið, klaufaskap og aðvífandi innrás í Írak ber á góma. Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur segir Gunnari Smára frá ári eldhestsins sem var að byrja, en því mun fylgja hraði og róttækar breytingar samkvæmt kínverskri stjörnuspeki. Már Mixa fjármálafræðingur og dósent við HÍ, styður ekki áform ríkisstjórnarinnar um afnám verðtryggingar. Hann segir verðtryggð lán bestu leiðina til að komast inn á íbúðamarkað í samtali við Björn Þorláks.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Sigvaldi "Svali" Kaldalóns á Tenerife Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala um 5 milljarða niðurskurðakröfu Landspítala og stöðuna á bráðamóttöku Símatími Róbert Bragason og Arnar Arinbjarnarson sem eru stjórnarmenn í Samtökum skattgreiðenda Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir varaþingkona Samfylkingarinnar um erlent eignarhald innviðafyrirtækja Einar Bárðarson framkvæmdastjóri SVEIT Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði um veitingageirann sem er kominn að þolmörkum Kristján Leó Guðmundsson tölvunarfræðingur með Slapp appið
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Öll viðtölin úr þætti dagsins.
Fimmtudagur 12. febrúar Framsókn, reynsluboltar, Salka, strandminjar og íslenskan Nýs formanns Framsóknarflokksins, sem kosinn verður um helgina, bíður það erfiða verkefni að reisa flokkinn við til fylgis við nýja tíma. Flokkurinn er í kreppu og mælist með lágt fylgi. Af er sem áður var í þeim efnum. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur fer yfir samtímann og sögu flokksins í spjalli við Björn Þorláks. Erna Bjarnadóttir, Guðmundur Þ. Ragnarsson og Þorsteinn Sæmundsson voru gestir Sigurjóns Magnúsar í þættinum að þessu sinni. Stjórnmálin, lífeyrir, kynslóðir og margt fleira bar á góma. Lífsreynsla þeirra leynir sér ekki. Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og Björn Thors leikstjóri ræða um Sölku – ástina og dauðann, um einleiki og frásagnarleikhús við Gunnar Smára. Mikil söguleg verðmæti glatast þar sem strandminjar verða eyðileggingunni að bráð á hverju ári. Eyþór Eðvarðsson, sem er einlægur áhugamaður um varðveislustrtrandminja settist niður með Sigurjóni Magnúsi. Tilefnið var hvernig hafið hefur leikið Reynisfjöru. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur ræðir stöðu íslenskunnar í samtali við Björn Þorláks. Deilur sveitarstjórnarfulltrúa á Vopnafirði ber á góma í því samhengi, læsi barna og fleira.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Baldur Tumi Baldursson húðsjúkdómasérfræðingur um skalla Alma Möller til að bregðast við orðum Steinunn Þórðardóttur formanns Læknafélagsins um neyðarástand á Landspítala Símatími Pétur Már Sigurðsson forritari sérfræðingur í gervigreind hjá Javelin og kennari hjá Endurmenntun með hlaðvarpið Gervigreind Elín Margrét Böðvarsdóttir fréttamaður Sýnar um óveður í Danmörku Andrés Jónsson ráðgjafi og stofnandi Góðra samskipta Sigurjón Ólafsson ráðgjafi hjá Fúnksjón um eldri borgara og stafræna tækni Björn Bragi Arnarsson um Púðursykur
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur hjá HMS og Jónína Þóra Einarsdóttir, leiðtogi í sjálfbærni, öryggi og gæðum hjá Steypustöðinni, ræddu ráðstefnu á morgun. Eygló Harðardóttir, verkefnastjóri afbrotavarna hjá ríkislögreglustjóra, ræddi við okkur um ofbeldi meðal barna og framið af börnum. Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir fóru yfir efnahagsmálin og pólitíkina. Birta Ísólfsdóttir, forstöðumaður markaðssviðs hjá Origo og Sævar Helgi Bragason, almyrkvaunnandi og vísindamiðlari ræddu UT messuna. Diljá Mist Einarsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokks, settist niður með okkur. Guðmundur Birgir Halldórsson, verkefnastjóri viðburða hjá Reykjavíkurborg, ræddi við okkur. Græjuhornið.
Fimmtudagur 5. febrúar Rifist í þinginu, lagareldi, reynsluboltar og borgin þvert á flokka Alþingismennirnir Bryndís Haraldsdóttir og Dagur B. Eggertsson tókust á um Evrópusambandið og Nató og öryggismál fyrir Ísland. Dagur telur að öryggi Íslands myndi aukast við aðild að Evrópusambandinu meðan Bryndís telur það fjarri lagi. Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur og Þorgerður María Þorbjarnardóttir hjá Landvernd ræða frumvarpsdrög Hönnu Katrínar um lagareldi. Þau eru gagnrýnin á stöðu mála út frá umhverfisvernd og fleiri þáttum. Björn Þorláks ræðir við þau. Lárus Guðmundsson Miðflokksmaður og atvinnurekandi, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Viðreisn og Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor emerita ræða fréttir líðandi stundar og þjóðmál með Birni Þorláks. Barnavernd, háskólakrísu, heimsöryggi, efnahags- og umhverfismál ber á góma. Sigfús Aðalsteinsson fasteignasali og Baldur Borgþórsson ráðgjafi eru í tveimur efstu sætum á lista Borgarinnar okkar, flokks sem enn hefur ekki mælst með fylgi. Þeir ætla samt að bjóða sig fram og segja Gunnari Smára hvers vegna.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Guðjón Guðmundsson, Gaupi, var á línunni og fór yfir handboltaveisluna. Erla Gerður Sveinsdóttir, heimilislæknir og lýðheilsufræðingur og Dögg Guðmundsdóttir, klínískur næringarfræðingur, ræddu um meðferð offitu hjá fullorðnum. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fór yfir víðan völl. Þorvaldur Flemming ræddi við okkur beint frá Danmörku. Elín Ebba Ásmundsdóttir, varaformaður Geðhjálpar, settist niður hjá okkur og dreifði G-vítamíni. Tinna Hrafnsdóttir, leikstjóri ræddi við okkur um nýja, íslenska þáttaröð - Hildi. Valur Hólm frá Elko og Brynjar Örn Sigurðsson, vörustjóri hjá Ofar, ræddu nýjan síma frá OPPO.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Jón Halldórsson formaður HSÍ um skort á miðum fyrir íslenska stuðningsmenn undanúrslitaleiknum á morgun gegn Dönum Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins um verðbólguna Símatími Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík um Borgarlínuna Jens Garðar Helgason varaformaður Sjálfstæðisflokksins um útlendingamál Hafsteinn Einarsson dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands um framtíðina í lækningum Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðingur Ragga Nagli um einmannaleika
Fimmtudagur 29. janúar Reynsluboltar, heimsmálin, handbolti og Pétur Gunn Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Valgerður Rúnarsdóttir læknir og Hallur Magnússon atvinnurekandi ræða fréttir og þjóðmál líðandi stundar. Verk ríkisstjórnar, verðbólgu, handbolta og stöðu íslenskunnar ber á góma. Björn Þorláks hefur umsjón með umræðunni. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir heimsmálin, friðarviðræður um Úkraínu, varnarstefnu Bandaríkjanna og fleira í samtali við Gunnar Smára. Gestir Sigurjóns í íþróttaþættinum Bekknum voru þeir Víðir Sigurðsson, margreyndur íþróttafréttamaður, og Hákon Gunnarsson sem var meðal annars framkvæmdastjóri heimsmeistarakeppninnar sem haldin var á Íslandi árið 1995. Gauti Kristmannsson, prófessor við Háskóla Íslands, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvers vegna skólinn mun útnefna þjóðskáldið Pétur Gunnarsson sem heiðursdoktor á morgun. Afrek Péturs eru mörg og víðfeðm.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Jó Fel um myndlistarsýningu í Sundlauginni á Selfossi Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins um gjalskrárhækkanir ríkisins og afleiðingar af því á verðbólgu og kjarasamninga Símatími Matthildur Sveinsdóttir yfirlögfræðingur hjá Neytendsastofu um hilluverð og kassaverð Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknasetri um norðurslóðir Ragnheiður Bjarnadóttir formaður samninganefndar sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga um að á sama tíma og biðlistar lengjast íhuga 40% sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga að hætta störfum
Bítið á Bylgjunni með Lilju, Sigmari og Ómari. Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara, settist niður með okkur. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, ræddi við okkur um gjaldskrárhækkanir hjá Veitum. Heiða Björg Hilmisdóttir og Pétur Hafliði Marteinsson berjast um oddvitasætið í Samfylkingunni. Anna Birta Lionaraki, miðill settist niður með okkur og las Sigmar Vilhjálmsson. Valur Hólm var sprækur í græjuhorni Elko.
Fimmtudagur 22. janúar Breiðavík, skólamál, reynsluboltar, Miðflokkurinn, ástarkraftur og Stuðlar Ari Alexander Ergis Magnússon, Bárður Jónsson og Bergsteinn Björgúlfsson mættu í viðtal til Sigurjóns Magnúsar til að ræða um Breiðuvík, þar sem Bárður var geymdur sem barn. Sögur úr Breiðuvík voru rifjaðar upp. Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir Sjálfstæðisflokki og Skúli Helgason Samfylkingunni ræða skólamál í Reykjavík við Gunnar Smára, mál sem mögulega verða meðal kosningamála í borgarstjórnarkosningum. Björk Vilhelmsdóttir félagsráðgjafi, Stefán Pálsson sagnfræðingur og Ólafur Arnarson blaðamaður ræða fréttir vikunnar, Trump, borgarmálin, prófkjör fram undan og sviptingar í pólitíkinni. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Helgi Áss Grétarsson varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins skipti yfir í Miðflokkinn í vikunni. Hann segir Gunnari Smára frá hvers vegna. Berglind Rós Magnúsdóttir prófessor í uppeldis- og menntunarfræði og Anna Guðrún Jónasdóttir er prófessor emerita kynjafræði við Örebro-háskóla ræða ástarkraft við Gunnar Smára en Berglind Rós er annar ritstjóra ritgerðasafnsins Ástarkraftur og Anna Guðrún einn af frumkvöðlum ástarrannsókna í heiminum. Jón K. Jacobsen, faðir drengsins sem lést í bruna á Stuðlum, ræðir lögreglurannsóknina og óhefðbundnar aðferðir hans sjálfs til að leita upplýsinga og vekja athygli á vanda barna sem falla milli skips og bryggju í kerfinu. Björn Þorláks ræðir við hann.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Henry Birgir Gunnarsson fréttastjóri íþrótta hjá Sýn um EM í handbolta Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um stöðuna á Grænlandi Símatími Pétur Marteinsson frambjóðandi í oddvitasæti Samfylkingar í Reykjavík Hafsteinn Dan Kristjánsson sérfræðingur í stjórnsýslurétti og prófessor við lagadeild HR um hvort hægt sé að neita að greiða sektir sem ekki koma frá ríkinu Halla Hrund Logadóttir þingkona Framsóknarflokksins um þróunina á norðurslóðum Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins um starfslokasamninga Bjartur Guðmundsson frammistöðuþjálfi um hvort makinn sé oft neikvæður
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingar og fyrrverandi formaður skóla- og frístundaráðs, ræddi menntamálin. Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling, ræddi við okkur um meinta ritskoðun á YouTube. Unnur Anna Valdimarsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og Ólafur Ögmundarson, forseti matvæla- og næringarfræðideildar háskólans, ræddu alvarlegan mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu. Finnur Oddsson, forstjóri Haga, ræddi við okkur um nýtt vildarkerfi. Dórótea Hoeg Sigurðardóttir, lektor í byggingarverkfræði við Háskóla Íslands og Sylgja Dögg frá VERKVIST verkfræðistofu, fóru yfir spennandi alþjóðlegt verkefni.
Fimmtudagur 15. janúar Jákvæðni, Grænland, handbolti, harmleiki, brennivín Hjálmar Gíslason frumkvöðull bregst við gagnrýni á áherslur hans sem hann hefur lýst opinberlega um að heimurinn sé betri en við fáum veður af í gegnum fjölmiðla. Björn Þorláks ræðir við Hjálmar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um sjáfstæði Grænlands og Úkraínu, nábúa stórvelda, fallandi Nató og hvert sé plan Donald Trump, ef það er þá til. Bekkurinn er nýr íþróttaþáttur á dagskrá Samstöðvarinnar. Sigurjón Magnús hefur umsjón með þættinum. Gestir fyrsta þáttarins eru Guðjón Guðmundsson, Gaupi, og Arnar Björnsson. Báðir margreyndir íþróttafréttamenn. Ísland leikur fyrsta leik sinn í Evrópumótinu í handbolta á morgun. Gaupi er faðir Snorra Steins landsliðsþjálfara. Leikurinn er aðalefni þáttarins. Leikararnir Atli Rafn Sigurðarson, Ásthildur Úa Sigurðardóttir og Ebba Katrín Finnsdóttir segja Gunnari Smára frá dótturmorði, makamorði, móðurmorði og öðrum átök í leikritunum Óreisteia og hvers vegna þetta á svona mikið erindi við okkur í dag. Þeir Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi sem vill hefta aðgengi að áfengi og Ólafur Stephensen, Félagi atvinnurekenda, sem er á öndverðum meiði, takast á um netsölu og lögmæti eða ólögmæti hennar í spjalli við Björn Þorláks. Mikill skaði fylgir áfengisneyslu.
Bítið á Bylgunni með Heimi, Lilju og Ómari. Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, ræddi hina hliðina á raforkumarkaðinum. Gísli Tryggvason, lögmaður fór yfir ýmis erfðamál, svo sem flýtingu og seinkun arfs. Yngvi Ómar Sigrúnarson, varaformaður Leigjendasamtakanna, ræddi svarta skýrslu um húsnæðismarkaðinn. Guðrún Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri STEFs, ræddi nýjan Tónheilsusjóð STEFs. Gunna Húnfjörð, eigandi Dharma heilsunuddstofu, ræddi við okkur um átakið Égnúar. Græjuhornið.
Fimmtudagur 8. janúar Reynsluboltar, vonda ESB, Tourette og sönglög Oddný Harðardóttir fyrrum þingmaður og ráðherra, Halldór Guðmundsson menningarfrömuður og Steingerður Steinarsdóttir blaðamaður taka púlsinn á fréttum líðandi stundar og tíðaranda. Alþjóðamálin, ESB, staða íslenskunnar, bókajólin að baki og prófkjör verða til umræðu. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Ögmundur Jónasson fyrrverandi þingmaður, ráðherra og formaður BRSB segir Gunnar Smára hvers vegna hann vill ekki að Ísland gangi í Evrópusambandið. Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir, uppistandari, segir Ragnheiði Davíðsdóttur frá lífinu með Tourette og hvernig hún sér og túlkar heiminn í gegnum húmor. Þorvaldur Gylfason tónskáld og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari ræða tónlistina og tónleika fram undan í Hörpu, sem verða kvikmyndaðir í bak og fyrir. Vængjasláttur fugla kemur við sögu. Björn Þorláks ræðir við þau.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands um þagnarskyldu lækna Símatími Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds Bílaleigu Akureyrar Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar um bréfið sem aldrei var skrifað Kristinn Andersen prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði við HÍ um neðansjávar dróna og þróun vélmenna Henry Birgir Gunnarsson fréttastjóri íþrótta hjá Sýn
Fimmtudagur 18. desember ESB eða ekki, Reynsluboltar, list, trú, Sjálfstæðisflokkurinn og íslenskan Magnús Skjöld fyrir hönd Evrópuhreyfingarinnar sem vill inngöngu Íslands í ESB og Haraldur Ólafsson Heimssýn sem berst gegn inngöngu í ESB ræða kosti og galla aðildar Íslendinga að ESB. Björn Þorláks stýrir rökræðunni.Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður eru reynsluboltar vikunnar og ræða fréttir vikunnar, þjóðmál, menningu, árið 2025 og jólin. Píratar verða ekki til eftir nokkur ár, segir Björn Leví. Björn Þorláks ræðir við þau. Byltingunni hefur verið frestað vegna skorts á ríkisfjármagni. Listamaðurinn Almar Steinn Atlason opnar sýningu í Gluggagallaríinu Stétt. Gunnar Smári ræðir við hann.Mikil umræða hefur verið á árinu 2025 um hvort stjórnmálahreyfingar hafa gengið til góðs. Vilhjálmur Bjarnason, fyrrum þingmaður, ste ig fram fyrir nokkrum mánuðum og ræddi pólitísk hrossakaup og menningarlausan Sjálfstæðisflokk nú orðið í samtali við Björn Þorláks. Við endurflytjun það. Muhammed Emin Kizilkaya, doktorsnemi í félagsfræði við Háskóla Íslands og meðlimur í Félagi Horizon, sr. Matthildur Bjarnadóttir, prestur í Vídalínskirkju og MA í trúarbragðafræði og sr. Sigurvin Lárus Jónsson prestur í Vídalínskirkju og doktor í nýjatestamentisfræðum ræða við Gunnar Smára um kristni og Islam á Íslandi, fordóma milli trúarbragða og hvernig skapa megi frið og sátt í samfélaginu. Viðtalið er endurflutt. Á árinu sem er að líða höfum við sinnt íslenskri tungu í nokkrum mæli. Þórarinn Eldjárn þjóðskáld gefur nokkur hollráð um það hvernig við komum í veg fyrir að missa íslenskuna úr huga og hjarta. Björn Þorláks ræddi við hann, við endurflytjum viðtalið.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Gunnar Úlfarsson hjá Viðskiptaráði Íslands fór yfir nýja úttekt um opnunartíma ríkisstofnanna. Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra settist niður með okkur og ræddi breytingar hjá Skattinum, vörugjöldin og efnahagshorfur. Eyþór Eðvarsson sem fer fyrir baráttuhópnum París 1,5 og Frosti Sigurjónsson, hagfræðingur, fyrrverandi alþingismaður og höfundur Hitamáls, ræddu um loftslagsmál. Daníel Rafn Guðmundsson, eigandi bifreiðaverkstæðisins Hemils og Herbert Guðmundsson, tónlistarmaður settust niður með okkur og ræddu trúna, edrúmennsku og tónlistina. HM í pílu.
Öll viðtöl þáttarins ásamt símatíma: Björn Bragi Arnarson um úrslitaþáttinn í Kviss um helgina Stjórnmálin heilt yfir í dag - Eiríkur Bergmann - er skjálfti á stjórnarheimilinu? Nokkur mál sem eru að valda ríkisstjórn veseni Símatími Sigurður Þ. Ragnarsson - Siggi Stormur ræddi við okkur um langtímaspána Bragi Valdimar Skúlason Baggalútur og formaður félags tónskálda og textahöfunda, Bragi Valdimar Skúlason hugkvæmdastjóri hjá Brandenburg Hálfdán Helgi Helgason líffræðingur um talningar á hreindýrum Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson sáttamiðlari hjá Sáttamiðlun um nágrannaerjur
Fimmtudagur 11. desember Börn í vanda, reynsluboltar, lögfræði, Evrópa og áfengi um jól Grímur Atlason hjá Geðvernd bregst við máli drengsins Hjartar og móður hans, Hörpu Henrýsdóttur, sem Samstöðin fjallaði um í gær. Grímur segir í samtali við Björn Þorláks mikið vanta upp á að börn sem lendi í geðheilbrigðisvanda séu varin. Oddný Harðardóttir, fyrrum fjármálaráðherra og þingmaður, Lárus Guðmundsson varaþingmaður og Guðmundur Andri Thorsson ræða fréttir og tíðarandi líðandi stundar. Pólitíkin, skólameistaramálið, samgöngur, Júróvisjón, staða íslenskunnar og jólin koma við sögu. Björn Þorláks ræðir við þau. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lagaleg álitamál sem eru ofarlega á baugi. Dómurinn gegn knattspyrnumanninum Albert Guðmundssyni, vaxtamál, 5 ára reglan og fleira verður til umræðu. Þátturinn er í umsjá Björns Þorlákssonar. Thomas Möller stjórnarmaður í Evrópuhreyfingunni ræðir við Gunnar Smára um afstöðu Trump-stjórnarinnar til Evrópu: Yfirvofandi siðmenningarlegri útrýmingu álfunnar, veika leiðtoga, ranga stefnu gagnvart Rússlandi, veikan hernaðarmátt og hnignandi efnahag. Mörg dæmi erum að helgi jólanna sé spillt vegna áfengisneyslu eða annarra vímugjafa. Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi ræðir vandann og reynir að útskýra hvort ráðuneytið eða Morgunblaðið hafi rétt fyrir sér í harðri rimmu um hvort unglingadrykkja sé að aukast eða ekki. Björn Þorláks ræðir við hann.
Fimmtudagur 11. desember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, Sigurjón Magnús og Laufey Líndal segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Margrét Víkingsdóttir um hundinn Úffa Úlfar Lúðvíksson fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum um löggæslumál og mögulega umsókn um starf ríkislögreglustjóra Símatími Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur um mál Ársæls Guðmundssonar skólameistara Borgarholtsskóla Birna G Ásbjörnsdóttir Doktor í Heilbrigðsvísindum og stofnandi Jörth.is um þarmaflóruna og hvað áferð og form hægðanna getur sagt okkur Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir sálfræðingur og kynlífsráðgjafi um þróun gervigreindar og kynlífs Halldóra Jóna Lárusdóttir innkaupastjóri hjá Samkaup
Fimmtudagur 4. desember Pawel, engin göng, Rreynsluboltar, heilaskaði, fæðingarorlof og íslenskan Pawel Bartoszek formaður utanríkismálanefndar ræðir við Gunnar Smára um öryggismál Íslands og Evrópu, framtíð Nató og aukin útgjöld Íslands vegna stríðsins í Úkraínu. Eyþór Stefánsson er í hópi íbúa fyrir austan sem furða sig á forgangsröðun stjórnvalda er kemur að jarðgangagerð. Hann ræðir í tilfinningaríku samtali við Björn Þorláks hug Seyðfirðinga. Blaðamennirnir Helga Arnardóttir, Ágúst Borgþór Sverrisson og Steingerður Steinarsdóttir ræða mál skólastjóra Borgarholtsskóla, samgönguáætlun, Úkraínu, offitu og fleiri fréttamál. Þátturinn er í umsjá Björns Þorláks. Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheillar og Valgerður Sverrisdóttir, fyrrum ráðherra, ræða við Ragnheiði Davíðsdóttur um reynslu sína af heilaskaða, fyrstu einkenni og forvarnir. Hver er saga fæðingarorlofs á Íslandi og hvernig hefur það þróast í samhengi við önnur lönd? Laufey Líndal fær tvo fræðimenn úr Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, þær Guðnýju Björk Eydal, prófessor, og Ásdísi Arnalds, lektor, til að fara yfir sögu fæðingarorlofsins og þær þjóðfélagsbreytingar sem það hefur haft í för með sér. Listaskáldið góða, Þórarinn Eldjárn, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvort við töpum okkur sjálfum ef við missum íslenskuna út úr huga og höndum.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins, fór yfir skattahækkanir sveitarfélaganna síðustu ár. Heiða Njóla Guðbrandsdóttir, forstöðumaður og verkfræðingur hjá Icelandair, fór yfir skatta og gjöld í þágu umhverfismála þegar kemur að flugrekstri. Torfi Jóhannesson, ráðgjafi og stofnandi Nordic Insights, ræddi við okkur um fæðuöryggi. Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi um hlutverk fjölmiðlanefndar og hvort hlaðvörp séu fjölmiðill. Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur um jafnréttismál. Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum, ræddi stækkun í Smáralind. Arinbjörn Hauksson frá Elko mætti í Græjuhornið.
Fimmtudagur 27. nóvember Nató, heimilisleysi, reynsluboltar, fallnir múrar og íslenskan Soffía Sigurðardóttir hernaðarandstæðingur ræðir við Maríu Lilju um hernaðarbandalagið m.t.t. frétta dagsins. Einar Ingi Kristinsson og Guðbjörg Inga Guðjónsdóttir tala um reynslu sína af götunni. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við þau. Fjölmiðlakonan Sirrý Arnardóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson blaðamaður og Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastýra Kvenréttindafgélags Íslands fara yfir helstu mál. Fúin kerfi, pólitíkin, hernaður og fleira verður til umræðu. Björn Þorláks ræðir við þau. Þegar múrar falla, er heiti nýrrar bókar eftir Hörð Torfason. Þar rekur hann hvað varð að gera til að múrar féllu. Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, fer yfir helstu tíðindi jólabókaflóðsins og setur útgáfu hér innanlands í samhengi við varnarbaráttu íslenskrar tungu. Björn Þorláks ræðir við hann.
Fimmtudagur 27. nóvember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, María Lilja og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Benedikt S Benediktsson framkvæmdastjóri SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir um skýrslu starfshóps varðandi reglur um dvalarleyfi á Íslandi Símatími Ólafur Magnússon tæknistjóri Nova um 2g og 3g senda Páll Höskuldsson í Noregi um verndartolla í Noregi Sigurður Ingi Jóhannsson um verndartolla ESB Óli tölva og gervigreindin sem beitir hótunum til að lifa af Þorvaldur Flemming Jensen um sveitastjórnarkosningar í Danmörku
Fimmtudagur 20. nóvember Reynsuboltar, friðarplan, krabbamein, gervigreind og skáldið Sigurjón Magnús tekur á móti reynsluboltum og ræðir um fréttir vikunnar og vettvang dagsins: Viðar Eggertsson leikari, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi skemmta hvort öðru og okkur með spjalli um daginn og veginn. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir friðarplan Trump við Gunnar Smára og hvort honum takist að troða því ofan í kokið á Úkraínu og Evrópu. Hannes Rúnar Hannesson varaformaður Krafts og Melkorka Matthíasson sem starfar hjá Ljósinu ræða við Ragnheiði Davíðsdóttur um sára reynslu sína af krabbameini. Stefán Atli Rúnarsson er viðskiptafræðingur, fjölmiðlatækni og eigandi ChatGPT námskeið.is þar sem hann kennir fólki að umgangast gervigreindina. Hann sagði Gunnari Smára frá sinni reynslu og sýn á þetta furðufyrirbrigði sem gervigreindin er. Kristín Ómarsdóttir skáld ræðir við Gunnar Smára um bækur sínar um langömmu sína, um skáldskapinn, tímann, tímamótin og fleira sem skemmtilegt er að spjalla um.
Fimmtudagur 20. nóvember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, Sigurjón Magnús og Laufey Líndal segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra um réttindi fatlaðra og gæludýr í fjölbýlishúsum Símatími Diljá Mist Einarsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins sem situr í utanríkismálanefnd um verndartolla ESB á járnblendi Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins og formaður velferðarnefndar Már Wolfgang Mixa lektor í fjármálum við Háskóla Íslands Elísabet Reynisdóttir og er næringarfræðingur og rithöfundur
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Sigurður Örn Ragnarsson járnkarl og einn eigenda Greenfit Gylfi Magnússon prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fyrrum viðskiptaráðherra um kælingu hagkerfisins Símatími Ingibjörg Ísaksen formaður þingflokks Framsóknarflokksins um úrræðaleysi stjórnvalda í efnahagslífinu Páll Pálsson fasteignasali Eva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði um pólitíkina í borginni Atli Stefán Yngvason framtíðarstjóri Mílu og einn stjórnenda Tæknivarpsins um háhraðanet og gervihnattanet
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í borginni, settist niður með okkur og ræddi hagræðingu, eða skort á henni, í Reykjavíkurborg. Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins, ræddi þingsályktunartillögu um öryggis- og varnarmál. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar ræddu við okkur um óveðursský í íslensku samfélagi. Páll Höskuldsson flutti til Noregs fyrir 16 árum síðan og bar saman lífsgæði þar og á Íslandi. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, stjórnarformaður DRM-LND og Sesselja Katrín Hauksdóttir, eigandi DRM-LND settust niður með okkur. Sævar Kristinsson og Karl G. Friðriksson voru að gefa út bókina Síungir karlmenn.
Bítið með Lilju, Simma og Ómari. Stefán Ás Ingvarsson, stofnandi og forstjóri Njarðar, sem vill byggja magnesíumverksmiðju á Grundartanga í Hvalfirði, var á línunni. María Ericsdóttir, móðir barns sem er í meðferð í Suður-Afríku, settist niður með okkur og fór yfir úrræðið og úrræðaleysi á Íslandi. Ingvar Örn Ingvarsson, stjórnarmaður Íslandsspila sf. fyrir hönd Rauða krossins á Íslandi, ræddi við okkur um veðmálastarfsemi á Íslandi og erlendis. Davíð Þór Arnarsson, stofnandi Leiðarljóss, nýrrar þjónustu sem hjálpar fólki á Íslandi að finna réttu meðferðarúrræði erlendis, var á línunni. Við opnuðum símann. Rakel Adolphsdóttir, sagnfræðingur og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, ræddu Kvennaár og Kvennaverkfall. Græjuhornið
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Svala og Ómari. Öll viðtölin úr þætti dagsins.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Björgmundur Örn Guðmundsson ráðgjafi í nýsköpun um vélmenni og gervigreind Alma Möller heilbrigðisráðherra Símatími Helga Jóna Jónasdóttir verkefnastjóri Sundarbrautar hjá Vegagerðinni Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins um lík Andri Freyr Björnsson þáttastjórnandi á FM um trendin sem koma og fara Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir ræddi við okkur um nýja þáttaröð af Ískápastríð
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Hlynur Atli Magnússon ráðgjafi og meðeigandi Hagvangs Þogerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um frið á Gasa og fund með Varsen Aghabekian utanríkisráðherra Palestínu Símatími Þórunn Anna Árnadóttir forstjóri Neytendastofu um bílastæðafyrirtæki og sektir Albert Jónsson fyrrum sendiherra Íslands í Rússlandi og Bandaríkjunum og sérfræðingur í alþjóðamálum Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins Halldór Vilbergsson þjónustustjóri hjá Tengi um hátækniklósett
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Ingibjörg Magnúsdóttir viðskiptastjóri hjá Lotu ráðgjöf um slæma og góða innivist Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Símatími Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands um Vítisengla Svala Jóhannesdóttir formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun og Lilja Sif Þorsteinsdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði hjá Heilshugar Þorsteinn Hermannsson aðstoðarframkvæmdastjóri Betri samgangna um Fossvogsbrú Auðunn Blöndal um nýja seríu af Bannað að hlæja
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í boltanum. Gaupi fór yfir brottrekstur Gumma Gumm í Danmörku og Janus Daði Smárason varð fyrir skelfilegum meiðslum í gær. Haukar og Fram gerðu jafntefli um helgina en Haukar verða án Rutar í vetur þar sem hún er ólétt. Valskonur unnu fyrri viðureign sína í Evrópukeppninni í Hollandi meðan Selfoss tapaði með 6 mörkum í Aþenu. HK hafa ekki unnið leik í deildinni síðan 21.febrúar og frábær varnarleikur Stjörnunnar í síðari hálfleik skóp sigurinn gegn FH. Heimkomu Kára Kristjáns til Vestmannaeyja lauk með 6 marka sigri ÍBV og við heyrðum í Tedda Ponzu í lok þáttar og spáðum í rosalega umferð sem fram fer á fimmtudaginn. Þetta og miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi Stormur um fyrstu haustlægðina Halla Hrund Logadóttir þingkona Framsóknarflokksins og fyrrverandi orkumálastjóri um olíubirgðir Símatími Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar um ættarnöfn Grétar Þór Eyþórsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri um borgarpólitíkina Helga Eyjólfsdóttir öldrunarlæknir um evrópska öldrunarlæknaþingið í Hörpu Gunnhildur Sif Oddsdóttir formaður HD samtakanna um nýja meðferð við Huntington sjúkdómnum sem vekur vonir Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikaráðgjafi
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Beta Reynisdóttir næringafræðingur um haustflensur og bætiefni Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra um atvinnuleysisbætur Símatími Bergur Jónsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra Leó Árnason Hjá Landsbyggð stjórnarformaður Sigtúns þróunarfélags og aðalsprauta uppbyggingar miðbæjarins á Selfossi Bergur Ebbi framtíðarfræðingur um gervigreindina Svali á Tenerife
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Ástríður Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar Stefán Einar Stefánsson, umsjónarmaður Spursmála á mbl.is um Charlie Kirk og afmennskun orðræðunnar Símatími Halla Hrund Logadóttir, þingkona Framsóknarflokksins um íslenskukennslu og vindmyllur Alma Tryggvadóttir ráðgjafi hjá Deloite sem leiðir netöryggis og persónuverndarteymi um símasvik, ástarsvik, forritið Plex hakkað og ráð um lykilorð. Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðar um fækkun farþegaskipa Sóli Hólm einn höfunda Brjáns
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Alma Björk Hafsteinsdóttir, formaður samtaka áhugafólks um spilafíkn um ákvörðun eigenda Ölvers Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar Símatími Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins um svar frá fjármálaráðherra um kostnað ríkisins vegna áfalla og hamfara Finnur Freyr Stefánsson þjálfari Vals í körfubolta og fyrrum aðstoðarþjálfari íslanska landsliðsins Sveinbjörn Finnson aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar um nýja atvinnustefnu Gunnar Hilmarsson fatahönnuður um Giorgio Armani Ernst Backman í Sögusafninu
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Ögmundur um Guðmundar og Geirfinns málið Guðmundur Arnar Sigmundsson forstöðumaður netöryggissveitar cert-is er Ísland skjól fyrir netglæpamenn og vafasama netstarfsemi Símatími Eyjólfur Ármannsson samgönguráðherra um nýtt leigubílafrumvarp og innviðaskuld í vegakerfinu Jóhannes Rúnarsson - framkvæmdarstjóri Strætó Ólafur Arnar Jónsson forstöðumaður nærsamfélags og náttúru hjá Landsvirkjun Páll Þorsteinsson fyrsti dagskrárstjóri Bylgjunnar á 39 ára afmælisdeginum
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Herdís Stargaard hjá Miðstöð slysavarna barna Frú Halla Tómasdóttir um gervigreindina Símatími Benjamín Julian verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri samtaka iðnaðarins um fasteignamarkaðinn Björg Jónsdóttir verkefnastjóri Menningarnætur í Reykjavík Bjarki Gunnlaugsson um stöðu Alexanders Ísak leikmanns Newcastle
Öll viðtölin úr þættinum ásamt símatíma: Oddur Ævar Gunnarsson fréttamaður Sýnar um stöðuna í Grindavík Páll Pálsson fasteignasali um ódýrustu og dýrustu hverfin á höfuðborgarsvæðinu Símatími Örn Pálsson framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Logi Bergmann annar umsjónarmanna golf hlaðvarpsins Seinni níu um Opna breska meistaramótið í golfi Bjarni Óskarsson bóndi og berjaræktandi á Völlum í Svarfaðardal Róbert Aron Magnússon framkvæmdastjóri Götubitahátíðar Íslands sem hefst á morgun