Podcasts about vefs

  • 11PODCASTS
  • 20EPISODES
  • 46mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Oct 14, 2024LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about vefs

Latest podcast episodes about vefs

Lestin
Vafasamar vefsíður hýstar á Íslandi, stjórnmálaflokkarnir á TikTok, ógleymanleg stef

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 14, 2024 54:49

Netþrjótar frá Norður Makedóníu svíkja peninga frá stuðningsfólki Donald Trump. Nýnasistar svíkja fé út úr transfólki með því að þykjast selja þeim hormónalyf. Rússneskar gervifréttasíður básúna lygum til að reyna að hafa áhrif á kosningar í Bandaríkjunum. Vefsíður allra þessara hópa eru hýstar á sama stað, á skrifstofu fyrirtækisins Withheld for Privacy, á Hafnartorgi í miðborg Reykjavíkur. Við ræðum við Skúla Geirdal, sviðsstjóra netöryggismiðstöðvar Íslands, um hýsingu á vafasömum vefsíðum á Íslandi. Reynir Ólafsson, 17 ára nemi í FB, fer í gegnum alla aðganga stjórnmálaflokkana á TikTok og metur stöðuna. Hver er með flesta fylgjendur? Hver nýtir miðilinn best? Við tökum stöðuna áður en kosningabaráttan fer á fullt. Hjati Freyr Ragnarsson var að keyra Sæbrautina þegar hann fór að pæla í stefi sem hann heyrði á Rás 1. Við fáum að skyggnast með Hjalta á bakvið uppruna nokkra þekktra stefa.

Sundur og Saman
#1 Hvernig set ég mig í fyrsta sæti?

Sundur og Saman

Play Episode Listen Later May 1, 2024 27:38

Loksins er hlaðvarp Sundur & Saman komið út! Hér svara ég spurningunni "Hvernig set ég sjálfa mig í fyrsta sæti?" Ef þú ert með spurningu eftir þáttinn, vilt vita meira um námskeiðin eða markþjálfunina sendu á mig línu. Þú finnur mig á instagram: https://www.instagram.com/sundurogsaman/ Vefsíðan mín er: https://sundurogsaman.is

Mannlegi þátturinn
Jóhanna Birna, Lifðu núna og börn við fátækt

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 9, 2023 50:00

Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir vakti mikla athygli á dögunum þegar hún hélt erindi á ráðstefnu BUGL um skólaforðun, áskoranir og úrræði. Hennar skólaganga gekk aldeilis ekki þrautalaust, hún átti mjög erfitt með lestur því hún er lesblind, auk þess að vera með ADHD, á einhverfurófi, auk þess að glíma við mikil heilsufarslegar áskoranir, en á tímabili var hún bundin við hjólastól og rúmliggjandi vegna veikinda. Á magnaðan hátt fann hún sína leið og í dag stundar hún nám í menntavísindum og heilsueflingu í virtum háskóla í Bandaríkjunum og ætlar sé að nýta sér sína reynslu og menntun til að aðstoða börn í svipaðri stöðu og hún var í. Jóhanna Birna deildi sögu sinni í þættinum í dag. Vefsíðan Lifðu núna var stofnuð árið 2014 og markmiðið var að gera líf og störf þeirra sem eru komnir um og yfir miðjan aldur sýnilegri og auka umræðu um þau málefni sem tengjast þessu æviskeiði. Fjölmennustu árgangar Íslandssögunnar eru að eldast og á næstu áratugum mun fjölga verulega í þeim hópi sem verður 55 ára og eldri og það er reiknað með að árið 2050 verði um fjórðungur þjóðarinnar kominn á eftirlaun. Á þessum aldri hefst nýtt æviskeið, sem stundum er kallað þriðja æviskeiðið, með nýjum viðfangsefnum og áskorunum. Erna Indriðadóttir, stofnandi síðunnar, kom í þáttinn í dag. Barnaheill hefur ýtt úr vör undirskriftarsöfnun til að þrýsta á stjórnvöld til að grípa til aðgerða og marka sér stefnu til að uppræta fátækt á Íslandi. Samkvæmt nýrri skýrslu Evrópuhóps Barnaheilla búa um 10.000 börn við fátækt á Íslandi og hefur sú tala hækkað á milli ára. Linda Hrönn Þórisdóttir, leiðtogi innlendra verkefna hjá Barnaheill, kom í þáttinn og sagði betur frá þessu. Tónlist í þættinum í dag: Sól mín sól / Anna Pálína Árnadóttir (Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Piensa en mí / Linda Ronstadt (Augustin Lara) Time and Tears / Dolly Parton (Dolly Parton) Illi milli / Ragnhildur Gísladóttir (Ragnhildur Gísladóttir) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Jóhanna Birna, Lifðu núna og börn við fátækt

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 9, 2023

Samfélagið
Þjóðkirkjan og hinsegin fólk, grænmetisbændur og hænusagnfræði

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jun 24, 2022

Bjarndís Helga Tómasdóttir, varaformaður Samtakanna '78 og Hildur Björk Hörpudóttur sóknarprestur í Reykholti: Verkefnið Ein saga, eitt skref er samvinnuverkefni Þjóðkirkjunnar og Samtakanna '78 sem miðar að því að skoða sögur af misrétti gagnvart hinsegin fólki í kirkjunni. Vefsíða verkefnisins verður formlega opnuð á viðburði í Skálholti 25. júní. Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar Bændasamtakanna: Um miðjan júní var kynnt skýrsla Spretthópsins svokallaða, en þar er alvarleg staða matvælaframleiðslu í landinu skoðuð. Hver er afstaða grænmetisbænda? Tvær nýjar rannsóknir gjörbylta skilningi okkar á sögu hænunnar. Svo segja altjént vísindamennirnir sem að þeim stóðu, en þessar rannsóknir birtust í mætum vísindaritum í byrjun mánaðar. En hver er skilningur okkar á sögu hænunnar, hversu lengi hefur þessi góði fugl fylgt mannkyninu?

Samfélagið
Þjóðkirkjan og hinsegin fólk, grænmetisbændur og hænusagnfræði

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jun 24, 2022 55:00

Paretodesken
VEF:s senaste investeringar / God morgon från Paretodesken 23 mars

Paretodesken

Play Episode Listen Later Mar 23, 2021 4:35

Idag går Pavas Mehra och Herman Wartoft igenom VEFs senaste investeringar. ”Informationen i denna video ska inte ses som investeringsråd. Tänk på att placeringar i värdepapper alltid medför en risk. Historisk avkastning är ingen garanti för framtida avkastning. De pengar som placeras i värdepapper kan både öka och minska i värde och det är inte säkert att du får tillbaka hela det insatta kapitalet. Det är viktigt att fortlöpande bevaka sitt innehav och vid behov ta initiativ till åtgärder för att minska risken för förlust.” http://www.paretosec.com/download/compliance/disclaimer.pdf

Morðskúrinn
Óupplýst morð: Tammy Jo Alexander

Morðskúrinn

Play Episode Listen Later Mar 17, 2021 33:28

Óvenjulegur þáttur í dag að því leitinu til að lítið er um ógeð í honum  En við segjum hinsvegar frá röð tilviljana sem varð að því að hægt var að bera kennsl á Calidonia-Jane Doe. Hvernig samfélagsmiðlar og internetið getur stundum verið stór hjálp í lausn glæpamála. Vefsíðan sem við minnumst á í þættinum er engin önnur en  www.websleauts.com sem við mælum innilega til að gleyma sér í að skoða www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn 

Basketstudija 2+1
Gatis Jahovičs: “Ceru, ka Vefs spēs noturēt šo līmeni”

Basketstudija 2+1

Play Episode Listen Later Jan 29, 2021 64:12

Basketbola kluba “VEF Rīga” prezidents Gatis Jahovičs, viesojoties “Basketstudijā 2+1”, atceras, ko darīja Kristera Zorika izšķirošā metiena brīdī, kā arī paver priekškaru uz kluba virtuvi. Runājām par kluba piedāvājumu jaunajiem basketbolistiem un leģionāru izvēles kritērijiem, iespējamo sastāva papildinājumu un iekšējām rezervēm, atbalstītāju atsaucību un nestandarta sezonas budžeta akcentiem, izlozes faktoru un gaidāmo karsto martu.64 minūtes par Latvijas čempionvienības “VEF Rīga” veiksmīgo startu Čempionu līgā, kluba ikdienu un stratēģiju.00:00 - Zorika uzvaras metiens kā apdraudējums Jahoviča uzvalkam;03:30 - Emocijas pēc Strasbūrā piedzīvotā zaudējuma;07:50 - Attiecības ar Čempionu līgas vadību;13:10 - Minūšu sadalījums VEF komandā;19:05 - Jauniešu cīņa par iekļūšanu pirmajā komandā;26:00 - VEF sistēmas plāni, sadarbošanās ar aģentiem;31:20 - Sastāvs sezonas turpinājumam;37:30 - Finanšu plānošana savdabīgajai sezonai;46:20 - Nenoskaņošanās vietējai līgai, leģionāru priekšzīmīgums;55:10 - Smagais kalendārs martā.

Orð af orði
Ný vefsíða Íslenskrar stafsetningarorðabókar

Orð af orði

Play Episode Listen Later Nov 15, 2020

Þáttur um íslensku og önnur mál. Fjallað er um nýja vefsíðu Íslenskrar stafsetningarorðabókar og rætt við Jóhannes B. Sigtryggsson, ritstjóra hennar, um tengsl orðabókarinnar og íslenskra ritreglna, og fleira. Umsjón: Bjarni Benedikt Björnsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.

Handboltinn okkar
Handboltinn okkar - Ívar Benediktsson kíkti í heimsókn og fór yfir Meistarakeppni HSÍ með okkur og kynnti nýja vefsíðu sína handbolti.is

Handboltinn okkar

Play Episode Listen Later Sep 7, 2020 47:39

Sérstakur aukaþáttur inná hlaðvarpsveiturnar þar sem gestur þáttarins er Ívar Benediktsson ritstjóri handbolti.is en hann fer yfir Meistarakeppni HSÍ með okkur sem og kynnir fyrir okkur vefsíðuna handbolti.is sem hann setti í loftið á dögunum

Mannlegi þátturinn
Skuggasól, Dr. Eyrún María og Heillastjarna.is

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 28, 2019 50:00

Björg Guðrún Gísladóttir sendi nýlega frá sér minningarbókina Skuggasól, en hún er framhald af fyrri bók hennar Hljóðin í nóttinni, þar sem hún rifjaði upp erfiða reynslu úr æsku. Í Skuggasól talar hún um hvernig það var að fóta sig á fullorðinsárunum með svona erfiða reynslu á bakinu. Þar vill hún gefa fólki von sem elst upp við erfiðar aðstæður. Björg kom í þáttinn í dag. Eyrún María Rúnarsdóttir varði doktorsritgerð sína í síðustu viku þar sem hún fjallar um félagsleg tengsl og stuðning við unglinga af ólíku þjóðerni. Sjónum er beint að því hvernig þeir upplifa stuðning úr nánasta tengslaneti nærumhverfi sínu. Þótt rannsóknir hafi í nokkrum mæli beinst að líðan og velferð innflytjendabarna skortir þekkingu á því hvernig félagsleg staða tengist líðan þeirra og lífsánægju og hvernig félagslegur stuðningur gagnast þessum hópi til að fyrirbyggja vanlíðan og vansæld. Eyrún María sagði frekar frá í þættinum í dag. Í síðustu viku fór í loftið ný vefsíða með hugleiðsluefni fyrir börn og unglinga, Heillastjarna.is. Vefsíðan er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi (og þó víðar væri leitað) og er markmið hennar að styðja heimili og skóla í að gera hugleiðslu að daglegri iðkun. Rannsóknir hafa sýnt að kvíði og streita fara vaxandi á meðal barna og unglinga og er efni vefsíðunnar ætlað að koma með mótvægi við þann mikla hraða og áreiti sem einkenna oft nútíma lifnaðarhætti. Í tengslum við stofnun vefsíðunnar verður boðið upp á ókeypis hugleiðslujóladagatal í aðdraganda jólanna. Við töluðum við stofnanda Heillastjörnu Stefaníu Ólafsdóttur. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Skuggasól, Dr. Eyrún María og Heillastjarna.is

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 28, 2019

Jóns
68. Bergur og Andri Virkja

Jóns

Play Episode Listen Later Oct 23, 2019 24:19

Bergur og Andri hjá Virkja er gestir mínir í þessum þætti. Þeir segja okkur frá þeirra fyrirtæki, þeirra hugsjónum ásamt því hvað þeir hafa verið að gera undanfarin ár. Um Virkja segir á virkja.is "Sprottið af ástríðuVirkja var stofnað af Laufeyju Haraldsdóttur í byrjun árs 2018. Laufey lærði markþjálfun hjá Evolvia og þekkir það af eigin reynslu hvað markþjálfun getur gert fyrir fólk sem vill ná lengra á sinn eigin mælikvarða. Laufey er frumkvöðull og hefur komið víða við í atvinnulífinu. Ástríða hennar fyrir markþjálfun hefur spilað stóran þátt í lífi hennar og í dag er hún starfandi ACC markþjálfi. Hún vinnur með einstaklingum, hópum og fyrirtækjum ásamt því að halda uppbyggjandi námskeið og fyrirlestra. Hún er einnig í frábæru kennara teymi Profectus og kennir þar gunnnám markþjálfunar." Námskeið sem eru komin á dagskrá hjá Virkja er meðal annars byrjenda námskeið í Wordpress "WordPress námskeið fyrir byrjendurVefsíða frá grunniÞetta námskeið er fyrir þá sem vilja komast hratt af stað í vefsíðugerð. Þátttakendur læra að setja upp eigin vefsíðu frá grunni í WordPress vefumsjónarkerfinu og enda á því að setja vefinn upp á eigin hýsingu. Vefsíðugerð er orðið mjög vítt hugtak í dag. Mikil þróun hefur átt sér stað síðasta áratuginn á því sviði og teygir vefsíðugerð anga sína margar áttir þ.á.m hönnun, forritun, umsjón, markaðssetningu o.fl. WordPress hefur staðist þolraunir þessarar þróunar með mikilli prýði og keyrir drjúgan hluta af vefsíðum internetsins í dag, og ekki af ástæðulausu. WordPress er mjög sveigjanlegt á þann hátt að hægt er að nota það sem umsjónarkefi fyrir vefsíður, vefverslanir, blogg, samfélagssíður og margt fleira. En það er einnig einfalt í notkun og gerir fólki kleyft að smíða alvöru vefsíður án þess að þurfa að kunna forritun eða vefkóðun. Mörg fyrirtæki leitast eftir því að ráða starfsfólk með almenna þekkingu á WordPress. Á þessu námskeiði grisjum við leiðina að því að læra uppsetningu og viðhald vefsíðna á mjög hnitmiðaðan hátt og án ónauðsynlegra útúrdúra."

Samfélagið
Hafið og freðhvolfið. BÍN. Tvítala. Dregið úr plastnotkun.

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 25, 2019 55:00

Halldór Björnsson hópstjóri loftslagsrannsókna á Veðurstofu Íslands og Ólafur S. Ástþórsson sjávarlíffræðingur á Hafrannsóknarstofnun: Ný skýrsla SÞ um áhrif loftslagsbreytinga á hafið og freðhvolfið. Kristín Bjarnadóttir ritstjóri á Árnastofnun: Vefsíðan Beygingarlýsing íslensks nútímamáls - bin.arnastofnun.is var endurnýjuð og uppfærð í dag. Guðrún Línberg Guðjónsdóttir: Málfarsmínútan: Eintala, fleirtala og leyfarnar af tvítölunni. Hrund Sigurhansdóttir og Hrund Sævar Hilmarsson: Hjónin segja frá hvernig þeim gengur að draga úr notkun sinni á einnota plasti á heimilinu.

Heilsuvarpid
#11 - OfurGísli: Vaxtarrækt og fitness

Heilsuvarpid

Play Episode Listen Later Apr 1, 2019 76:52

Gísli Örn Reynisson Schramm er vafalaust massaðasti lögfræðingur landsins. Enda kallar hann sjálfan sig OfurGísla og heldur úti heimasíðu undir því nafni. Það eru greinilega einhver bætiefni í humrinum þarna fyrir austan því hann er enn eitt hreystimennið frá Hornafirði til að koma í þáttinn. Gísli er alltaf kátur, glaður og hlæjandi. Að hitta hann í ræktinni nærir bæði líkama og sál því fáir taka eins vel á því. Hann er eins og traktor, löðrandi sveittur í hettupeysu að beygla fætur eða rífa í réttstöðu og gefur manni alltaf sveitt knús. OfurGísli er hokinn af reynslu að keppa í vaxtarrækt bæði innanlands og utan landsteinana og hefur tvisvar sinnum tvöfaldan Íslandsmeistaratitil undir beltinu. Hann hefur einng tekið þátt í WOW cyclothon 2017. Á morgnana hamrar hann beygjurnar í níðþröngum spandex í neonlitaðri spandexbrók. Á daginn er hann jakkafataklæddur á kontór í Sjóvá og stundum í hempu í réttarsal. Á kvöldin er hann svuntuklæddur að töfra fram kræsingar fyrir sína tilvonandi eiginkonu í eldhúsinu. Þess á milli þjálfar Gísli tilvonandi vaxtarræktarkappa í gegnum fjarþjálfun og ráðgjöf. Við nörduðumst í fitness og vaxtarrækt og perruðumst í mataræði. Allt frá frægðarför í breikdansi og frumkvöðlastarfsemi á æskuárunum á Hornafirði til ofþjálfunar og hvaða lærdóm hann dró af mistökum í undirbúningi fyrir mót. Vefsíða: www.ofurgisli.is Instagram: @gislireynis Facebook: Gísli Örn Reynisson Schramm Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur Afsláttarkóðar: Veganbúðin: ragganagli = 15% Under Armour: ragganagli = 20% Hverslun.is ragganagli20 = 20% www.goodgoodbrand.net: ragganagli20 24iceland: ragganagli20

Heilsuvarpid
#10 Ásdís Grasalæknir - Bætiefni. Heilsa kvenna. Skjaldkirtillinn. Jurtalyf

Heilsuvarpid

Play Episode Listen Later Mar 20, 2019 62:55

Ásdís útskrifaðist með BSc í grasalækningum árið 2005 og hefur rekið eigin stofu um árabil, í Reykjanesbæ og höfuðborginni, þar sem fjöldi einstaklinga hefur leitað til hennar í ráðgjöf. Er með viðtalsstofu á Hringbraut 99 Keflavík og í Hreyfingu 2.hæð Álfheimum Rvk. Grasalækningar snúast um virkni lækningajurta og hæfni þeirra til að bæta heilsu fólks. Ásdís Ragna Einarsdóttir er alfróð þegar kemur að heilsunni. Sérstaklega heilsu kvenna. Hún sinnir störfum sem grasalæknir og blandar ógeðisdrykki fyrir skjólstæðinga sína til að bæta heilsu og lífsgætði Hún er vinsæll fyrirlesari og heldur fjölmörg námskeið um mataræði, lækningajurtir og ekki síst súkkulaði en hún gaf út uppskriftahefti fyrir súkkulaðiperra sem fæst í Nettó verslununum, Mantra Ásdísar er að heilsusamlegt mataræði sé besta forvörnin gegn sjúkdómum. Í þessum þætti ræðum við um allskonar heilsutengt. Til dæmis hvaða bætiefni nýtast okkur, . Hvaða bætiefni nýtast okkur gegn svefnleysi streitu, sykurlöngun. Heilsu kvenna. Hvaða mataræði er best. Hvað virkar og hvað ekki og heilbrigða nálgun til að ná langvarandi valhoppi á heilsubrautinni. Vefsíða: www.grasalaeknir.is Instagram @asdisgrasa Facebook: Ásdís Grasalæknir Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur Astaxanthin er vara mánaðarins á Hverslun.is. Undirbýr húðina fyrir sólböð. Eykur úthald. Afsláttarkóðar: Veganbúðin: ragganagli Under Armour: ragganagli Hverslun.is ragganagli20 www.goodgoodbrand.net: ragganagli20 24iceland: ragganagli20

Mannlegi þátturinn
Athyglisbrestur, Sterkari út í lífið og hjónin í Bjarnarfirði

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 19, 2019 55:00

Í síðustu viku kom leikarinn Hallgrímur Ólafsson í þáttinn og sagði frá því þegar hann greindist í fyrra, 41 árs, með athyglisbrest og fór á lyf sem hann sagði að hefðu breytt lífinu til hins betra. Þetta hafi verið pússlið sem vantaði, þar sem athyglisbresturinn hafði sett stórt strik í flest allt sem hann gerði áður en hann greindist. En hvað er athyglisbrestur? Hversu stór hluti þjóðarinnar er með athyglisbrest og er mikill fjöldi landsmanna kannski með athyglisbrest en hefur ekki hugmynd um það? Eru lyf of mikið notuð á Íslandi og erum við að greina of marga, í rauninni að ofgreina fólk með athyglisbrest? Dagur Bjarnason geðlæknir kom í þáttinn og fræddi okkur um ADHD og athyglisbrest. Síðastliðin ár hefur fagfólk og hópur rannsakenda tekið eftir auknum neikvæðum áhrifum fjölmiðla á sjálfsmynd og líkamsímynd barna og unglinga. Á þetta sérstaklega við um notkun samfélagsmiðla og þessir miðlar eru í stöðugri þróun og beinast sífellt meira að yngri börnum en þar eykst notkunin jafnt og þétt. Samhliða þessari auknu notkun hefur tíðni kvíða og streitu aukist verulega, einkum meðal stúlkna. Vefsíða undir heitinu Sterkari út í lífið, sem beinist einna helst að foreldrum og þeim sem vinna með börnum og unglingum í daglegu starfi verður opnuð í dag. Steinunn Anna Sigurjónsdóttir sálfræðingur á Litlu Kvíðameðferðarstofunni, kom í þáttinn og sagði frá. Vigdís Esradóttir og hennar maður Einar Unnsteinsson fluttu norður í Bjarnarfjörð og byggðu sér þar hús sem vekur athygli margra. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, hitti Vigdísi og bað hana að segja sér og hlustendum söguna af því hvernig það kom til að þau fluttu norður og hvernig lifið gengur fyrir sig í Bjarnarfirðinum. UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Jóns
28. þáttur Hlaðvarpið á jons.is Þorsteinn Mar Gunnlaugsson

Jóns

Play Episode Listen Later May 17, 2017 30:34

Þorsteinn sá um vefmálin hjá Ölgerðini um árið 2006, einnig hefur hanns starfað hjá Móberg að sjá um vefi einsog Bland og fleiri. Í dag er hann vefstjóri Iceland travel. Þorsteinn fer yfir að á þessum tíma sem vefstjóri þá eru sömu vandamál sem þarf að leysa núna og fyrir tíu árum. Það er að segja leitarvélabestun, fyrirtæki vilja en sem fyrr finnast á leitarvélum. Þorsteinn fer yfir það hvað leitarvélabestun er, hvernig hún virkar og hvað hefur breyst. Bæði tæknilega á vefnum og eins efnið sem sett er á vefinn sé gott. Þorsteinn fer líka inn á það hversu mikilvægt er að hlúa að vefsíðum, setja inn gott efni og setja það inn á réttum tíma. Vefsíða er tilbúinn hún er sífellt í þróunn og þarf alltaf að hlúa að henni. Varðandi spurningu mína um leitarorð/keywords taldi Þorsteinn mikilvægt að á vefsíðum væri leitast við að ekki eingöngu svara fyrstu spurningu sem slegið er inn í leitarvél, heldur líka næstu þarf á eftir. Hann vitnaði þar í fyrirlestur Nick Wilsdon hjá Vodafone Uk á RIMC ráðstefnu nú í vetur, þar sem hann talaði um að þarf væri farið að leggja en frekar á herslu á að svara fleiri spurningum í kjölfar fyrstu, og þá meðal annars vegna mikillar aukningar í Voice search. Ég spurði Þorstein að því hvaða lesefni hann mælti með fyrir þá sem vilja elfla sig í þessum vefmálum og markaðssetningu á netinu. Fyrst má nefna Bókina um vefinn sem Sigurjón Ólafsson hjá Funksjon ræddi um í þætti 15 hér í Viskavarpinu. Einnig mælti hann með bókinni Markaðssetning á netinu eftir Kristján Má Hauksson og Guðmund Arnar Guðmundsson Að auki mætli Þorsteinn með Growth Hacker Marketing eftir Ryan Holiday SEO for growth eftir John Jantsch & Phil Singleton