POPULARITY
Þriðjudagur 11. mars Breytt staða, húsnæðismarkaður, rektor, símabann, Auður Haralds, samræðan og karlar Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðingur, prófessor við Háskólann á Bifröst, ræðir við Björn Þorláks um gjörbreytta stöðu sem blasir við íslensku ríkisstjórninni vegna utanríkismála. Allar líkur eru á því að aðstæður hafi áhrif á ESB-áhuga Íslendinga. Sigurður Stefánsson framkvæmdastjóri Aflvaka greinir hvernig húsnæðismarkaðurinn ýtir undir misskiptingu auðs í samtali við Gunnar Smára. Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands, er síðasti frambjóðandinn til rektors sem mætir í spjall til Gunnars Smára um háskólann og stöðu hans í samfélaginu. Barnamálaráðherra hefur boðað símabann í öllum grunnskólum landsins frá og með næsta hausti. En er það raunhæft? Björn Gunnlaugsson skólastjóri Laugalækjarskóla og Skúli Bragi Geirdal hjá Fjölmiðlanefnd eru ekki á einu máli - Björn Þorláks ræðir við þá. Auður Jónsdóttir rithöfundur og blaðakona, Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og pistlahöfundur og Katrín Axelsdóttir málfræðingur segja Gunnari Smára frá Auði Haralds, sem var frumkvöðull í bókmenntum og textasmíð og óheyrilega fyndin. Vilhjálmur Árnason, heimspekiprófessor emeritus við Háskóla Íslands, ræðir um mátt samræðu og friðarviðræðna á myrkum tímum ofbeldis og stríð og segir frá sinni reynslu af því að gagnrýna og koma á fót samræðu um samfélagið. María Lilja ræðir við karlmenn á krossgötum, tónlistarmennirnir og metal-hausarnir Birkir Fjalar Viðarsson í Adapt og Karl Thorsten Ställborn Skratti ræða karlmennsku sína og samfélagsins.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóðanna, ræddi við okkur um hlutverk lífeyrissjóðanna þegar kemur að fjárfestingum í innviðum. Andrés Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri Dýraverndarsambands Íslands og Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður sambandsins, ræddu við okkur um blóðmerarhald. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokks ræddu um hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar. Marta Jóns Hjördísardóttir, talskona sjúklinga á Landspítala, ræddi við okkur um áhyggjur og kvartanir sjúklinga. Njáll Gunnlaugsson situr í stjórn Sniglanna og er afar ósáttur með kílómetragjaldið. Erla Gísladóttir, eigandi Urðar, ræddi við okkur um pungsápur til styrktar góðu málefni. Gummi Ben og Bjöggi ræddu við okkur um Spurningasprett.
Mánudagurinn 25. nóvember Kosningar, umhverfi, ungir kjósendur, sósíalismi, strandeldi og sirkus Esther Bíbí Ásgeirsdóttir bassaleikari, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri, Kristjana Guðbrandsdóttir fjölmiðlakona og Borgar Magnússon tónskáld fara yfir stöðuna í pólitíkinni, nú þegar kosningabaráttan er komin á yfirsnúning. Fjórir nemendur úr MR sem eru að fara að kjósa í fyrsta sinn, þau Uni Níls Gunnlaugsson, Freyja Rúnarsdóttir, Björn Diljan Hálfdánarson og Herdís Sigurðardóttir Busson, ræða um misheppnaðar tilraunir stjórnmálaflokkanna til að ná til unga fólksins. Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar og Árni Finnsson formaður stjórnar Náttúruverndarsamtaka Íslands segja okkur fréttir frá nýjustu alþjóðaráðstefnum á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Þorsteinn Bergsson oddviti Sósíalista í Norðaustri segir frá sér og sósíalismanum. Ísadóra Ísfeld Finnsdóttir og Ida Karólína Harris eru ungir umhverfissinnar sem hyggjast beita verkfallsaðgerðum og ganga úr tíma á föstudaginn til að mótmæla laxeldi í sjó. Birta Benónýsdóttir sirkuskona segir okkur frá sirkuslífinu.
Þórarinn ræðir við formann Miðflokksins um áherslur flokksins í kosningunum. Fjallað er um Evrópusambandið, réttindi og skyldur, Íslan, rétttrúnaðinn, Þórð Snæs málið, innihald, umbúðir og slagorð.
16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Breiðablik og Þungavigtinni. Fyrir Breiðablik keppti Höskuldur Gunnlaugsson en fyrir Þungavigtina keppti Kristján Óli Sigurðsson.
Föstudagur 1. nóvember Vikuskammtur: Vika 44 Að Rauða borðinu í beina útsendingu í Vikuskammtinn koma til að ræða frjálslega út frá fréttum vikunnar þau Ása Lind Finnbogadóttir, framhaldsskólakennari og plötusnúður, Valur Gunnarsson, rithöfundur, Sigrún Sandra Ólafsdóttir, endurvinnsluáhugamanneskja, Arnar Páll Gunnlaugsson, bifvélavirki og frambjóðandi og Þór Martinsson, sagnfræðingur. Umsjón með umræðunni hefur Oddný Eir.
Unglingar sem stunda sjálfsskaðahegðun nota yfirleitt hegðunina til það ráða við og/eða þola sterkar og erfiðar tilfinningar, segir Kristín Inga Grímsdóttir, sérfræðingur í barna og unglingageðhjúkrun. Algengi sjálfsskaðahegðunar er á bilinu 13-40%, eftir því hvaða aldurshópur er skoðaður. En hverjar eru ástæður sjálfsskaðahegðunar unglinga og hvernig geta foreldrar brugðist við ef þau komast að því að unglingurinn er að skaða sig? Kristín Inga fræddi okkur frekar um þetta í þættinum. Hvernig líður okkur á safni? Hvað er það á safni sem lætur okkur líða vel og hvaða safn er okkur minnistætt hér á landi eða erlendis, þar sem okkur hefur liðið vel. Halldóra Arnardóttir er listfræðingur og stjórnandi verkefnisins Listir og menning sem meðferð við alzheimer. Hún kom til okkar í dag og við töluðum við hana um menningu, miðlun og sýnleika geðrænnar heilsu. Flestir foreldrar kannast við þá klemmu að þurfa að vera „leiðinlega foreldrið“, sem bannar það sem „allir“ aðrir leyfa, sem setur mörk og gerir kröfur. Okkur getur fundist að óþægilega margar setningar okkar sem foreldra byrji á „Nei“ eða „Ekki“. En þessi orð kunna kannski að vera þau mikilvægustu sem foreldrar segja við börn sín. Ársæll Már Arnarsson prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, kom í þáttinn og fræddi okkur um „Listina að vera leiðinlegt foreldri“ og fór með okkur yfir það að setja mörk og hvers vegna. Tónlist í þættinum Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik) Haunted / Laufey (Laufey og Spencer Stewart) Á Akureyri / Óðinn Valdimarsson (Óðinn Valdimarsson) Í berjamó / Reggae on Ice (Stefán Örn Gunnlaugsson, Matthías Matthíasson og Hrólfur Sæmundsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Stundin okkar er elsti sjónvarpsþáttur landsins en fyrsti þátturinn var sendur út árið 1966. 26 umsjónarmenn hafa séð um þáttinn frá upphafi og 116 þáttaraðir hafa verið sýndar. Nú er komið að nýrri þáttarröð og nýjum manneskjum í brúnni og í þetta sinn verður tekið á loft, bókstaflega, því þáttaröðin er tekin upp í nýju sýndarmyndveri RÚV Andrés P. Þorvaldsson Laskowski, sem leikur aðalhlutverkið Loft, og Erla Hrund Halldórsdóttir hugmyndasmiður, leikstjóri, handritshöfundur og framleiðandi, komu í þáttinn í dag. Nýlega var haldið málþing um fóstur- og nýburaskimanir þar sem ræddar voru meðal annars siðfræðileg álitamál við fóstur- og nýburaskimanir, álitamál um tækni, samfélag og félagslegt réttlæti, reynsla af ráðgjöf og þjónustu við foreldra hjá Fósturgreiningardeildinni og fleira. Við fengum Guðmund Ármann Pétursson, formann Félags áhugafólks um Downs heilkennið, til að koma og segja okkur frá erindi sínu á málþinginu sem kallaðist Downs heilkennið í nútíð og framtíð. Grófin geðrækt á Akureyri er gjaldfrjálst úrræði fyrir einstaklinga 18 ára og eldri á öllum stigum bataferlisins sem vilja bæta heilsuna með geðrækt og batavinnu gegnum hópastarf á jafningjagrundvelli. Grófin er eina opna geðræktin á Norðurlandi og þar er vettvangur fyrir öll þau sem vilja vinna að geðrækt á jafningjagrunni, hvort sem þau eru notendur geðheilbrigðisþjónustunnar, fagaðilar, aðstandendur eða og áhugafólk um framfarir í geðheilbrigðismálum. Verkefnið Lausa skrúfan er valdeflandi nýsköpunarverkefni sem unnið er af notendum Grófarinnar og við fræddumst um það og Grófina þegar Sigurður Gísli Gunnlaugsson, hugmyndasmiður Lausu skrúfunnar og Pálína Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Grófarinnar og iðjuþjálfi, komu í þáttinn. Tónlist í þættinum: Sigling / Magnús Þór Sigmundsson (Magnús Eiríksson) Kvöldsigling / Ólafur Þórarinsson (Gísli Helgason og Jón Sigurðsson) Sigling / Andrea Gylfadóttir (Friðrik Bjarnason og Örn Arnarson) Sigling / Ásgeir Óskarsson (Ásgeir Óskarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Þórarinn ræðir við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins í annað sinn. Að þessu sinni er rætt um stjórnmálin, fjölmenningu, hnignun Vestrænnar menningar, vanrækt saga Íslands, fordóma í garð fyrri kynslóða og margt fleira.Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/einpaeling
Við héldum áfram yfirferð okkar um hvað verður á fjölunum í leik- og sviðslistahúsum landsins. Í dag var komið að Borgarleikhúsinu og til okkar kom Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri. Hún sagði okkur allt um það sem þar mun fara fram þennan leikveturinn. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn fjallaði vinkillinn um gildi þess að hugsa frekar fallega en ekki til samferðafólksins og hvernig það getur mögulega haft áhrif til hins betra á samskipti manna í millum, jafnvel heilu samfélögin. Þá var fjallað um áhrif kurteisi í samskiptum og gildi þess að segja það sem maður meinar og að meina það sem maður segir. Svo var í lokin lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Sunneva Thomsen, en hún starfar við kvikmyndagerð auk þess að vera í listnámi. Hún ætlar að segja okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sunneva talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Dune e. Frank Herbert In the Dream House e. Carmen Maria Machado Boulder e. Eva Baltasar Ein til frásagnar e. Immaculee Ilibagiza Jane Eyre e. Charlotte Bronte Tónlist í þættinum: Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson) Óskaland / Moses Hightower (Steingrímur Karl Teague, Andri Ólafsson og magnús Tryggvason Eliassen) Vængir / Hörður Torfason (Hörður Torfason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Arnar Gunnlaugsson þjálfari karlaliðs Víkings er gestur Helga Fannars og Kela.
Gestur minn þessa vikuna er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Sigmundur er alþingismaður, formaður Miðflokksins, fyrrverandi forsætisráðherra og margt fleira. Hann er gjörsamlega frábær og magnaður. Það var gott, gaman, áhugavert og fræðandi að spjalla við Sigmund. Þú ert frábær! Ást og friður. Jákastið er í boði: - Pizza Popolare - Egils Kristall
Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga tók símtal við fréttaritara Fótbolta.net eftir markalaust jafntefli Víkinga gegn Santa Coloma í Andorra í viðureign liðanna í umspili um sæti í Sambandsdeild Evrópu. Eftir 5-0 sigur í heimaleiknum var nokkuð ljóst að leið Víkinga í deildarkeppnina væri nokkuð greið.
Þriðjudagurinn 7. maí Ráðherra, ópera, góðverk, kynslóðir og forseti Guðmundur Ingi Guðbrandsson formaður Vg og félagsmálaráðherra kemur að Rauða borðinu og ræðir um breytingar á almannatryggingum og eilítið um pólitík. Þórunn Gréta Sigurðardóttir tónskáld, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir leikstjóri og Herdís Anna Jónasdóttir sópran ræða við okkur um Óperuna hundrað þúsund og Jóhanna Engilráð Hrafnsdóttir, Salvör Árnadóttir og Vésteinn Gunnarsson nemendur í Hagaskóla um samfélagslega ábyrgð. Einar Lövdahl Gunnlaugsson skrifaði bókina Gegnumtrekkur sem Hallgrímur Helgason las. Þeir koma til okkar og ræða bókina, kynslóðir, karlmennsku og margt annað. Í lokin segir Viktor Traustason okkur frá forsetaframboði sínu.
Nýjasti gestur Chess After Dark er Garðar Gunnlaugsson fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu og Herra Ísland.Nokkur umræðuefni í þættinum:SkaginnKai HavertzCSKA Sofia - lífið í Búlgaríu.Bikar GarðarGarðar Gunnlaugs árið 2016 eða Arnar Gunnlaugs 1995?Garðar gerði ferlinum sínum afar góð skil með skemmtilegum sögum.Látið ekki þennan frábæra þátt framhjá ykkur fara.Eigið frábæra helgi.
Gestur minn þessa vikuna er Höskuldur Gunnlaugsson. Höskuldur er fyrirliði Breiðabliks í knattspyrnu, MA nemi í viðskiptafræði, fyrirtækjaeigandi og margt fleira. Hann er gjörsamlega frábær og magnaður. Það var gott, gaman, frábært, áhugavert og fræðandi að spjalla við Höskuld. Þú ert frábær! Ást og friður.
Bjorn Gunnlaugsson from Rockford Fosgate joins Capt. Mike Anderson to discuss marine audio systems, fishing, and much more. Sit back, relax, and listen to this great conversation and subscribe to the Reel Animals Podcast with Capt. Mike Anderson on Apple Podcasts, Stitcher, TuneIn Radio, Google Play, and Spotify. Follow Reel Animals on Facebook, Twitter, and Instagram. The post Bjorn Gunnlaugsson from Rockford Fosgate appeared first on Radio Influence Tampa Bay.
Mánudagurinn 18. desember Lífeyrissjóðir og fyrirtæki, búseti og endalok vaxtar Við fáum góðan gest frá Danmörku, Guðrúnu Johnsen, sem starfar við danska Seðlabankann. Hún hefur rannsakað fyrirtækjarekstur á Norðurlöndunum og ekki síst með tilliti til þess hversu stórir eftirlaunasjóðirnir eru. Hún segir okkur frá völdunum í atvinnulífinu, þar sem við störfum og lifum stóran hluta vökutímans. Páll Gunnlaugsson arkitekt hefur skrifað bók um Búseta, húsnæðissamvinnufélagið sem tókst að byggja upp fyrir fjörutíu árum. Við fáum hann til að segja okkur þá sögu. Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur sem sinnt hefur umhverfishugvísundum á liðnum árum segir okkur frá hagfræði, þekkingu, verðleikum og vistkerfi.
Rithöfundurinn og tónlistarmaðurinn Einar Lövdahl Gunnlaugsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi umhverfis fræðingnum Heiðdísi Ingu Hilmarsdóttur.Einari er ýmislegt til lista lagt en hefur hann gefið út tvær plötur, samið texta fyrir marga helstu tónlistarmenn landsins og er hann þessa stundina á loka metrunum að skrifa sína fyrstu skáldsögu sem kemur út í mars.Heiðdís er menntuð umhverfisfræðingur og vinnur hún þessa stundina hjá krónunni á umhverfissviði.Einar og Heiðdís kynntust á jólaballi MR þar sem Einar gaf undanþágu af strangri miðasölu reglu fyrir hana þar sem hún átti afmæli, þau eyddu dágóðum tíma saman á ballinu og hlutirnir gerðust hratt í kjölfarið og hafa þau í raun verið saman allar götur síðan þá og eiga í dag saman tvær dætur.Í þættinum ræddum við meðal annars um tónlistina, textasmíðina og rithöfundamennskuna, hvar áhuginn kviknaði á umhverfisfræðinni, rómantíkina, húmorinn, fjölskyldulífið og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð meðal annars frá óheppilegri uppákomu þeirra í leiguíbúð Einars í Svíþjóð.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejar
Byggingarfélagið Búseti fagnar 40 ára afmæli í ár, nákvæmlega var það í gær 26.nóvember. Slagorðið Barátta fyrir búsetu fylgdi félaginu í upphafi þegar húsnæðismál voru í upplausn. Páll Gunnlaugsson arkitekt sat í fyrstu stjórn Búseta og hefur einnig setið í formannstóli félagsins. Hann hefur nú skrifað bók um sögu félagsins en það var stofnað af áhuga og frumkvæða fjölda fólks sem lét sig varða stöðu húsnæðismála, sérstaklega ungs fólks. Við ræddum við Pál í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni eins og aðra mánudaga. Í þetta sinn lagði hann vinkilinn við þvottavélar, endurvinnslu, Guðmund rímnaskáld og Bólu-Hjálmar. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Skúli Sigurðsson rithöfundur. Bókin hans Maðurinn frá Sao Paulo er nýkomin út. Glæpasaga með sögulegu ívafi sem við fengum hann til að segja okkur aðeins betur frá. En auðvitað sagði hann okkur aðallega frá því sem hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Skúli talaði um eftirtaldar bækur og höfunda: Tónlist í þættinum í dag: Hámenningin / Halli Reynis (Halli Reynis) Our house / Crosby,Stills and Nash (Graham Nash) Good year for the roses / Elvis Costello (Jerry Chestnut) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Hljómsveitin Sucks to be you nigel kom með krafti inn í reykvísku grasrótarrokksenuna fyrir tveimur árum með plötunni sinni Tína Blóm. Þetta var hrátt og unggæðingslegt pönk, gítarriff klippt út úr íslensku 80s pönk bylgjunni, og textarnir súrir og hressir brandarar um það að skera börn í tvennt, um þrána eftir raflost og ljót blóm. Fyrir hana fengu þau Kraumsverðlaunin og hlutu einnig viðurkenningu á tónlistarverðlaunum Reykjavík Grapevine. Á morgun kemur svo önnur plata sveitarinnar, Birdnoise, fugla-hávaði. En á þessari plötu hefur hljómsveitin tekið algjörlega nýja stefnu. Kristján Guðjónsson ræðir við meðlimi hljómsveitarinnar. Á dögunum kom út ný íslensk heimildarmynd um kennaraverkföllin á Íslandi fram að aldarmótum. Það er mikill hasar, nokkuð um útskýringar á efnhagslegum hugtökum og Ólafur Ragnar Grímsson útskýrir valdatengsl í Íslensku þjóðfélagi. Leikstjóri og annar handritshöfunda myndarinnar, Einar Þór Gunnlaugsson, ræðir efnistök myndarinnar. Katrín Helga Ólafsdóttir lýkur Airwaves-yfirferð Lestarinnar í ár.

Gestur þáttarins er Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings. Umsjón hafa Helgi og Keli.
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni var fyrirliði Íslandsmeistara Breiðabliks, Höskuldur Gunnlaugsson. Við ræddum við hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
Innkastið hitar upp fyrir Bestu deildina með hlaðvarpsviðtölum við þjálfara þeirra þriggja liða sem spáð er efstu sætum Bestu deildarinnar, Í fyrsta upphitunarþættinum er Arnar Gunnlaugsson, þjálfari bikarmeistara Víkings, gestur og ræðir um komandi tímabil og undirbúning sinna manna. Í spjallinu er einnig rætt um auglýsingu Bestu deildarinnar, landsliðið, Burnley og fleira. Umsjónarmaður: Elvar Geir Magnússon.
Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni var Matthías Matthíasson söngvari eða Matti Matt eins og hann er oftast kallaður. Matti hefur komið víða við í tónlistarbransanum og var ungur þegar hann steig fyrst fram á svið. Hann var til dæmis meðlimur í eftirfarandi hljómsveitum: Reggea on Ice, Dúndurfréttum, Pöpum o.fl. Hann söng líka öll lögin fyrir íþróttaálfinn í Latabæ, bæði á íslensku og ensku og svo er það hæfileikinn sem hann uppgötvaði ekki fyrr en á fullorðins aldri, að geta farið með heilu setningarnar afturábak nánast án þess að þurfa að hugsa um það. Síðustu misserin hefur hann klárað húsasmíðanám og nú síðast opnað nýstárlega búð sem selur náttúrulegar svefnvörur. Sigurlaug Margrét var stödd í Vestmannaeyjum hvar hún kannaði matarmenninguna sem hún sagði okkur frá í matarspjalli dagsins. Þar er auðvitað að finna dásamlegt ferskt sjávarfang og miklu fleira sem Sigurlaug tæpti á í þættinum. Tónlist í þættinum í dag Út í eyjum / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Jakob Frímann Magnússon) A Better day / Matti Matt (Matthías Matthías og Helgi Reynir Jónsson) Í berjamó / Reggea on Ice (Matthías Matthíasson, Stefán Örn Gunnlaugsson og Hrólfur Sæmundsson) It must have been love / Roxette (Per Gessle) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Við byrjuðum á því að forvitnast um fjölskyldusameiningar Rauða krossins í dag. Fjölskyldusameiningar eru eitt elsta og mikilvægasta verefni Rauða krossins, en félagið hefur sinnt þeim í 150 ár. Þetta verkefni aðstoðar einstaklinga sem hafa orðið viðskila við fjölskyldu sína eða fjölskyldumeðlimi við að finnast og sameinast á ný. Net alþjóðasambands Rauða krossins getur hjálpað til við leitina í öllum löndum heims. Atli Viðar Thorstensen, sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða krossins kom í þáttinn og fræddi okkur um þetta mikilvæga verkefni. Söngvakeppnin 2023 hefst á laugardagskvöldið þar sem fyrstu fimm lögin verða flutt í beinni útsendingu. Tvö lög komast áfram og svo önnur tvö laugardaginn 25.febrúar í útslitin sem haldin verða 4.mars. Rúnar Freyr Gíslason framkvæmdastjóri keppninnar kom til okkar og sagði okkur frá keppninni í ár. Við hringdum í Ívar Örn Sverrisson, leikara, dansara og leikstjóra í þættinum. Hann fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Noregs fyrir tæpum 13 árum án þess að vita hvað hann ætlaði að taka sér fyrir hendur þar. Hann ákvað þó strax, þrátt fyrir að kunna ekki að tala norsku, að reyna fyrir sér í heimi leiklistar og sýninga. Til að gera langa sögu stutta, eftir fullt af verkefnum í Noregi, með viðkomu í Grænlandi, þá er hans nýjasta verkefni að leikstýra óperu í Portúgal. Við fengum Ívar til að segja okkur þessa sögu í dag. Tónlist í þættinum í dag Sólarsamban / Rebekka Blöndal(Ásgeir Ásgeirsson, Stefán Örn Gunnlaugsson og Rebekka Blöndal) Batnandi / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson) Með hækkandi sól / Systur (Lay Low) Sommerkjoledyr / Kari Bremnes (Kari Bremnes) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Svartur föstudagur, stafrænn mánudagur, eða Cyber Monday, og fleiri slíkir verslunardagar hafa dunið á okkur í aðdraganda jólanna í ár eins og undanfarin ár. Þetta eru verslunardagar sem eiga uppruna sinn í Bandaríkjunum og fleiri löndum og markmið þeirra er að auka verslun í búðum og á netinu. En það sem færri vita er að á eftir Cyber Monday kemur Giving Tuesday, eða gefandi þriðjudagur. En hvað er það? Andri Árnason, framkvæmdastjóri Takk kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá þessum degi sem er einmitt í dag. Jólaljós hafa verið sett upp um allan Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og aðkomuna að honum. Fjölskyldur geta rölt um garðinn og skoðað ljósadýrðina, útigrillin verða opin og settir verða upp matarvagnar. Ljósadalurinn opnar á fimmtudaginn. Við heyrðum í Inga Þór Jónssyni, verkefnastjóra viðburða í garðinum í þættinum. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom í sitt vikulega veðurspjall í dag. Hún kann einstaklega vel að fræða okkur um hin ýmsu veðurfyrirbrigði og hugtök og í dag ætlar hún að fræða okkur um sögu veðurspáa í heiminum, sem er ekki svo löng. Það er ekki svo langt síðan að farið var að spá fyrir um veðrið framundan. Tónlist í þættinum í dag: Ennþá man ég hvar / Hallbjörg Bjarnadóttir (Kai Normann Andersen, Dam Mogens og Bjarni Guðmundsson) Sólarsamban / Rebekka Blöndal (Ásgeir Jón Ásgeirsson, Stefán Örn Gunnlaugsson og Rebekka Blöndal) My Sweet Lord / George Harrison (George Harrison) Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Við skoðum pólitískar afstöður og afstöðuleysi, og siðferðislegar spurningar sem vakna þegar horft er á og fjallað um HM í fótbolta karla sem hófst í Katar þann 20. nóvember síðastliðinn. Tónlistar- og myndlistarkonan Berglind Ágústsdóttir hefur gefið út tilraunakennt diskó popp undir eigin nafni í árabil. Í september kom ný plata frá henni, Lost at war, sem hún tileinkar vinum sínum Hauki Hilmarssyni og Jóhanni Jóhannssyni. Við gerð plötunnar vann hún úr erfiðum tilfinningum, sorg og missi, og það kveður við nýjan tón. Lost at war er fyrsta plata Berglindar sem hún gefur út undir listamannsnafninu Siggi Ólafsson, sem er alter-egó listakonunnar. Viktoría Blöndal ræðir við fyrrum atvinnumann í fótbolta, sem glímdi við meiðlsi á ferli sínum, Garðar Gunnlaugsson. Hvað gera fótboltamenn þegar þeir mega ekki og geta ekki spilað. Innslagið er þriðja í röð fjögurra innslaga um fótboltaást.

Katarar eru undir smásjá margra um þessar mundir vegna heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem fer þar fram. En hvað kostar þetta mót, hvað var gert í landinu í aðdraganda mótsins og hvað ætla Katarar sér að fá út úr þessu öllu saman? Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans svaraði þessum spurningum. Launstafir tímans, nefnist nýútkomin bók. Í henni er brot af öllu því sem Heimir Steinsson prestur, útvarpsstjóri og fleira skrifaði um ævina. Heimir velti fyrir sér álitamálum í trú, og stóru og smáu er varðaði lífið og tilveruna. Systkini hans tvö, Kristín og Ingólfur Steinsbörn komu til okkar. Bókmenntir voru líka á efnisskránni í Berlínarspjalli dagsins. Arthur Björgvin Bollason var með okkur í hljóðstofu 6. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Pink Moon - Nick Drake Who Knows Where the Time Goes? - Fairport Convention Aldarfar - Agnar Már Magnússon, Andrés Þór Gunnlaugsson
Gestur þáttarins er Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings.
Eyþór Ingi Gunnlaugsson, söngvari, var greindur með athyglisbrest í öðrum bekk. Mamma hans vildi ekki að hann yrði settur á lyf en ákvað að fara með honum í skólann. Skemmtikrafturinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson hefur alla tíð notið athyglinnar og byrjaði ungur að setja upp sýningar fyrir vini og vandamenn. ?Það má kannski segja að ég hafi verið athyglissjúkur, ég veit það ekki,? segir hann við Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur í Segðu mér á Rás 1. Man ekki eftir sér öðruvísi en með greiningu Eyþór Ingi ólst upp á Dalvík þar sem hann var greindur með athyglisbrest í öðrum bekk. Þannig vildi til að kennarinn var að læra um greiningar og tók eftir því að einn nemandi hennar var oft úti á þekju. ?Oft fylgir ofvirkni ADHD en hjá mér var þetta meira eins og vanvirkni, það var frekar að ég gleymdist bara,? segir Eyþór Ingi og hlær. ?Ég er heppinn að muna eiginlega ekki eftir mér öðru vísi en að vera með einhvers konar greiningu á bakinu,? segir hann og bætir við að það sé ágætt að hafa hana vegna þess að hann sé enn að týna lyklunum, úrinu og öllu mögulegu. ?Ekki að það sé afsökun fyrir því en það er meira bara áminning á að ég þarf að pæla í svona hlutum.?

Við beinum augum okkar að Skeifunni í þætti dagsins, svæði sem algjörlega er skipulagt með einkabílinn í fyrirrúmi, þó svo að gatnakerfið þar sé bara alls ekki gott. Við lítum aðeins 7 ár til baka, hér síðar í þættinum og göngum með þeim Birni Teitssyni sem þá var nemi í menningarfræðum en starfar nú hjá Skipulagsstofnun og Jóni Davíð Ásgeirssyni arkitekt, og setjumst yfir kaffibolla með Sigrúnu Hönnu Þorgrímsdóttur þjóðfræðingi. Við ræddum möguleika í breyttri Skeifu, þetta var árið 2015. Eftir þessi sjö ár er loks byrjað að byggja íbúðarhúsnæði í Skeifunni, og það nokkuð vel í lagt með 185 íbúða. Guðmundur Gunnlaugsson arkitekt og Ellert Hreinsson arkitekt hjá Teiknistofunni Archús, hafa veg og vanda af hönnun þessara bygginga og við byrjum hjá þeim

Andrés segir frá nýjum geisladisk sem var að koma út, en rifjar einnig upp árin með hinni vinsælu hljómsveit Sixties. Þeir ferðuðust í rútu út um allt land og spiluðu á allskonar böllum.

Höskuldur Gunnlaugsson er fyrirliði Breiðabliks í knattspyrnu. Í þættinum ræðir Höskuldur virðið og lærdóminn í fótbolta, muninn á leik og vinnu, leiðtogahlutverkið, þrautseigju, að taka skoðanir og sjónarhorn barna inn í myndina, að þú skapir ástríðuna umfram að þú finnir hana, að gera allt eins og sannur meistari, réttlætiskennd, hugrekki og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Your Super - https://tropic.is/voruflokkur/ofurfaedur/your-super/ Sumac - https://sumac.is/ Sportvörur - https://sportvorur.is/ Lavazza - https://www.lavazza.is/
Módel af gamla hverfinu í Kvosinni, þar sem stafrænn viðbættur veruleiki mun glæða rýmið lífi, verður hluti af nýrri sýningu sem Borgarsögusafn opnar í næstu viku. Nýja Sýningin er framhald af Landnámssýningunni og rekur sögu byggðar í Reykjavík, allt frá landnáminu til samtímans, hún teygir sig neðan jarðar frá Aðalstræti 16 yfir í elsta hús Kvosarinnar, Aðalstræti 10. Hugmyndin er að nýja sýningin undirstriki mikilvægi Aðalstrætis sem sögumiðju Reykjavíkur enn frekar. Við litum inn í elsta hús borgarinnar í þætti dagsins og hittum starfsfólk Borgarsögusafns. Steypa og djass eru kannski ekki fyrirbæri sem oft eiga samleið en sextettinn Concrete Jazz Orchestra gerir tilraunir með það á nýrri plötu, Concrete Abstracts sem er sjálfstætt framhald af plötunni Concrete sem kom út 2011. Sveitina skipa þeir Ari Bragi Kárason, Andrés Þór Gunnlaugsson, Birgir Steinn Theodórsson, Einar Scheving, Hilmar Jensson, ásamt leiðtoganum og lagahöfundinum Magnúsi Rafnssyni. Hann er menntaður verkfræðingur og sérsvið hans er mannvirkjagerð og steinsteypa. Og sú þekking blandast á forvitnilegan hátt við tónlistina, hin harða steypa við mjúkan djass. Við fengum Magnús til okkar í heimsókn og spurðum hann út í þessa tvo heima, hvernig þeir tala saman og heyrum nokkur brot úr nýju tónlistinni. ?Endurminningar fólks um mæður sínar fela í sér úrvinnslu og framsetningu kvenna og karla á umfangsmiklum minningum um mæður sínar. Lífssaga mæðranna er mismunandi og minningarnar ótalmargar sem til samans kortleggja ævi þeirra kvenna,? segir Dalrún Kaldakvísl en hún fjallar í pistli dagsins um endurminningar fólks af mæðrum sínum. Í endurminningum af mæðrum og feðrum var meðal annars algengt að fjallað væri um stjórn mæðra og feðra á tilfinningum sínum; tilfinningastjórn sem nútímamaðurinn myndi eflaust skilgreina sem tilfinningabælingu. Meira um það í pistli Dalrúnar. Umsjón: Halla Harðardóttir og Jóhannes Ólafsson

Í þættinum er rætt við Arnar Bergmann Gunnlaugsson þjálfara Íslandsmeistara Víkings.