Hjörtur Leó Guðjónsson snýr aftur og í þessum þætti hitar hann upp fyrir veturinn ásamt þjálfurunum Eyþóri og Carlos og leikmönnum meistaraflokkana, þeim Kötlu Maríu og Jóni Þórarni. Með þeim er svo auðvitað íþróttastjórinn og einn af okkar fastagestum Örn Þrastar. Næstu leikir: Fös 13. sept Selfoss - Grótta mfl kvk Mið 18. sept Valur - Selfoss mfl kvk Lau 21. sept Selfoss - Haukar 2 mfl kk
Meistaraflokkarnir eru komnir í sumarfrí, alla vega frá keppni. Hjörtur Leó fékk til sín fulltrúa beggja liða til að gera upp veturinn og létt inn í framtíðina. Í fyrri hlutanum koma þeir Þórir Ólafsson, þjálfari mfl kk og goðsögn í lifandi lífi, Jón Þórarinn Þorsteinsson og Hannes Höskuldsson leikmenn Selfoss. Í seinni hlutanum faum við svo Eyþór Lárusson þjálfara mfl kvk og með honum mættu Tinna Sigurrós Traustadóttir og Hulda Dís Þrastardóttir. Skellið þessu í tækið og hlustið, aldrei að vita nema þið lærið eitthvað nýtt.
Hún er komin, stærsta vika ársins! Bikarvikan og stelpurnar okkar verða í eldlínunni á fimmtudagskvöldið. Til að hita upp fyrir undanúrslitaleikinn fékk Hjörtur Leó góða gesti. Eyþór Lárusson, Harpa Valey Gylfadóttir og Tinna Soffía Traustadóttir kíktu í SelfossTV hljóðverið og hituðu upp fyrir veisluna sem framundan er. Næstu leikir: Fim 7. mars Selfoss-Stjarnan mfl kvk Fös 8. mars Selfoss U-Grótta U mfl 2. deild kk Lau 9. mars Vonandi bikarúrslit mfl kvk Fim 14. mars Selfoss-Berserkir mfl kvk
Ný vika, ný tækifæri. Hjörtur fékk þá fóstbræður, Arnar Daða og Krumma ásamt Árna Geir til að fara yfir allt þetta helsta sem hefur verið um að vera hjá Selfoss handbolta síðustu vikur. Þær hafa verð upp og niður eins og lífið. Krummi mætti auðvitað með skemmtidagskránna, líf og fjör í SelfossTV hljóðverinu. Næstu leikir hjá liðunum okkar eru: Fim 22. feb Fram - Selfoss mfl kk Fös 23. feb Selfoss - FH kvk Fös 1. feb Selfoss - HK kk Sun 3. mars Selfoss U - Grótta U 2. deild kk
Hjörtur Leó fer yfir síðustu vikur og hitar upp fyrir bikarinn hjá stelpunum okkar ásamt þeim Erni Þrastar, Árna Geir og Helga "eina sanna" Hlyns. Næstu leikir hjá liðunum okkar eru: Þri 6. feb 18.00 Selfoss - KA/Þór mfl kvk Mið 7. feb 17.45 Hvíti Riddarinn - Selfoss U 2. deild kk Fim 8. feb 19.30 Selfoss - FH mfl kk Fös 9. feb 18.00 Selfoss - Víkingur mfl kvk Mið 14. feb 19.30 Valur - Selfoss mfl kk
Hjörtur Leó Hélt smá jólaboð í SelfossTV hljóðverinu. Í fyrri hluta þáttarins fór hann yfir málin með Eyþóri Lárussyni þjálfara mfl. kvenna, Perlu Ruth Albertsdóttur leikmanni Selfoss og íslenska landsliðsins og Árna Geir Hilmarssyni fastagestur í Selfoss hlaðvarpinu. Í seinni hlutann mættu þeir Þórir Ólafsson þjálfari mfl karla, Einar Sverrisson leikmaður Selfoss og Árni Þór Grétarsson framleiðandi Selfoss hlaðvarpsins ásamt einhverjum fleiri höttum. Um áramót er við hæfi að líta um öxl og gera upp árið og taka svo fagnandi á mót því nýja og það er nákvæmlega það sem við í Selfoss hlaðvarpinu gerðum í þessum þætti. Selfoss hlaðvarpið sendir hlustendum sínum um veröld alla hugheilar kveðjur um gleðilegt nýtt ár og þakkar innilega fyrir samfylgdina á árinu sem var að líða. Næstu leikir hjá liðunum okkar eru: Lau 6. jan Selfoss - Fjölnir mfl kvk Mið 10. jan Selfoss U - Grótta U 2. deild kk Fös 12. jan Ísland - Serbía EM Sun 14. jan Fram U - Selfoss mfl kvk Sun 14. jan Ísland - Svartfjallaland EM Þri 16. jan Ísland - Ungverjaland EM
Það var glatt á hjalla þegar Hjörtur Leó bauð þeim Hrafni Erlings, Erni Þrastar og Hannesi Höskulds inn í hlýjuna í SelfossTV stúdíóið. Þunglyndi á Seltjarnarnesi, skemmtiferð á Akureyri og sá stóri, forsetabikarinn. Allt þetta og miklu meira til. Jú og ekki má gleyma skemmtidagskrá Krumma. Selfoss Hlaðvarpið - Eins og smjör í þín eyru!
Hjörtur Leó er orðinn spenntur fyrir HM og er himinlifandi yfir góðum sigri strákanna á Haukum um daginn. Linda Björk Hilmarsdóttir, Guðrún Herborg Hergeirsdóttir og fyrirliðinn Richard Sæþór Sigurðsson mættu í SelfossTV hljóðverið til Hjartar og fóru yfir málin. Auk þessa alls tók Hjörtur upp símann og náði sambandi beint til Noregs og spjallaði við nýjasta landsliðsmann okkar Selfyssinga, Kötu Maríu Magnúsdóttur. Veislan er að hefjast! Dagskráin framundan: HM Fim 30. nóv kl 17 Ísland - Slóvenía Lau 2. des kl 17 Ísland - Frakkland Mán 4. des kl 17 Ísland - Angóla Mfl kk Fim 30. nóv kl 19.30 Grótta - Selfoss Lau 9. des kl 15.00 KA - Selfoss fim 14. des kl 19.30 Selfoss - Afturelding
Hjörtur Leó fékk til sín lauflétta gesti, Hrafn Erlingsson, Arnar Daði Brynjarsson og góðkunningja þáttarins Örn Þrastar. Það er óhætt að segja að létt hafi verið yfir mönnum er þeir fóru yfir málefni líðandi stundar. Fljúgandi gengi hjá mfl. kvenna og batamerkin hjá mfl. karla. Undir lokin lærum við svo nýja hluti um Örn, en Hrafn og Arnar tóku að sér létta gestastjórnun og fræddust um Örn. Næstu leikir hjá liðunum okkar eru: Fös 3. nóv Víkingur - Selfoss mfl kvk Sun 5. nóv Víðir - Selfoss U 2. deild kk Fös 10. nóv Selfoss - Valur U mfl kvk Lau 11. nóv ÍBV - Selfoss mfl kk
Hjörtur Leó fékk þá Atla Ævar Ingólfsson, Árna Geir Hilmarsson og Helga Hlynsson til að fara yfir brekkuna sem mfl karla er í eftir fyrstu leiki tímabilsins. Þeir félagar eru lausnamiðaðir að öllu jöfnu og leysa að sjálfsögðu heimsins vanda. Næstu leikir Selfoss eru: Mfl kvenna Fim 19. okt 19.30 Selfoss - Haukar U Þri 24. okt 19.30 Selfoss - Fram Lau 28. okt 113.30 HK - Selfoss Mfl karla Lau 21. okt 16.00 HK - Selfoss Fös 27. okt 19.30 Selfoss - Stjarnan
Meistaraflokkur kvenna hóf leik um síðustu helgi og óhætt að segja að þær hafi fengið fljúgandi start. Hjörtur Leó tók þjálfara liðsins, Eyþór Lárusson tali og fékk að því loknu góða gesti, stórskyttuna Kötlu Maríu, reynsluboltann Guðrúnu Herborgu og Árna Geir, fyrrum aðstoðaþjálfara liðsins. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Stjörnur, Labbi
Þá er það loks að byrja, nýtt tímabil með nýjum vonum og nýjum væntingum. Hjörtur Leó fékk Þóri Ólafs í smá spjall áður en hann opnaði allar hurðar og fékk Richard Sæþór, Örn Þrastar og Hrafn Erlings til að leggja línurnar fyrir veturinn. Strákarnir droppuðu óvæntum tíðindum af leikmannamálum og Richard er á góðri vegferð að spara heimilium landsins aurinn. Tímabilið hefst á fimmtudag og Selfoss hefur leik í Olísdeildinni á laugardaginn 9. sept þegar strákarnir taka á móti KA kl 16.00.
Þá er síðustu handboltaleikjum tímabilsins lokið hjá Selfyssingum og Hjörtur Leó fær góða gesti til að gera upp tímabilið. Fyrst mæta Eyþór Lárusson þjálfari og Tinna Soffía Traustadóttir fyrirliði mfl. kvenna. Í sinni hlutuanum mæta svo Þórir Ólafsson þjálfari og Einar Sverrisson stórskytta. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Cha Cha Cha, Käärijä
Vorið er tíminn og úrslitakeppnin og umspilið komið á fullt og bæði stelpur og strákar að spila til skiptis en samt einhvernvegin alltaf við FH. Hjörtur Leó fékk þá Árna Geir, aðstoðarþjálfara mfl. kvenna og Richard Sæþór leikmann mfl. karla til sín í höfuðstöðvar SelfossTV og fóru þeir yfir síðustu daga og skoðuðu hvað bíður okkar. Næstu leikir eru: Mfl karla: Þri 18. apríl kl 19.40 | Selfoss - FH | Set höllin Fös 21. apríl kl ??.?? | FH - Selfoss | Kaplakriki* Mfl kvenna: Mið 19. apríl kl 19.30 | FH - Selfoss | Kaplakriki Lau 22. apríl kl 19.90 | Selfoss - FH | Set höllin* *Oddaleikur ef þörf er á. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Fljúgum áfram, Skítamórall
Hjörtur smellti á rec og fór yfir málin með Eyþóri Lárussyni, þjálfara mfl kvenna í handbolta og tveim leikmönnum liðsins, þeim Kötlu Maríu Magnúsdóttur og Örnu Kristínu Einarsdóttur. Þau straujuðu létt yfir tímabilið og þá sérstaklega eftir áramót. Auðvitað mikill fókus á leikinn stóra á miðvikudag, en þá mæta stelpurnar ÍBV í undanúrslitum í bikar. Við hvetjum ykkur öll til að fjölmenna í Laugardalshöllina á miðvikudagskvöldið á Powerade bikarinn. Áfram Selfoss! Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Gull af mönnum, Steindinn okkar, Matti Matt & ReddLights
HM er að baki, alla vega hjá okkur Íslendingum og fékk Arnar Helgi þá Þóri Ólafsson og Gísla Felix Bjarnason til að gera upp okkar hlut í mótinu. Þeir slá einnig á þráðinn í Hafnarfjörð og spjölluðu við Ásgeir Örn Hallgrímsson, þjálfara Hauka og eins af sérfræðingum Rúv í HM stofunni. Hann er einmitt að mæta með Haukana sína um aðra helgi í Set höllina. Þetta er að fara af stað! Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Stick Together, Alicja
HM í handbolta byrjar í næstu viku og þjóin er nú þegar við það að fara á límingunum. Við tökum virkan þátt og hitum í þessum þætti upp fyrir HM ásamt því að minna fólk á það sem framundan er á Selfossi. Hjörtur Leó Guðjónsson tók á móti Árna Geir Hilmarssyni aðstoðarþjálfara mfl kvenna, Erni Þrastarsyni íþróttastjóra og Hörpu Brynjarsdóttur betri helmingur Ómars Inga og fyrrverandi leikmaður mfl. kvenna. Já það eru vissulega spennandi tímar framundan!
Hjörtur Leó Guðjónsson fékk gestina góðu í stúdíóið. Þeir Örn Þrastarson, Richard Sæþór Sigurðsson og Gísli Guðjónsson fóru yfir fyrri hluta tímabils og snertu lítið eitt á veislunni sem framundan er í janúar. Það er ljóst að þjóðin verður stillt inn á HM í handbolta sem aldrei fyrr. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: cashmere draumur, Herra Hnetusmjör & Birgitta Haukdal
Það var þokkalega létt yfir mönnum þegar þeir settust í Smiðjuhljóðverið fljótlega eftir baráttuna um Bergrisann. Arnar Helgi fékk þakmennin Örn Þrastarson og Árna Geir Hilmarsson ásamt þúsund marka manninum Einari Sverrissyni til að gera upp kvöldið og fara yfir það sem liðið er af vetri. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Vetrarfrí, Prins Póló & Memfismafían ft K.óla
Selfoss hlaðvarpið snýr aftur með sérstakan þátt þar sem nýjir þjálfarar meistaraflokka karla og kvenna í handboltanum eru kynntir til leiks. Það eru þeir Eyþór Lárusson sem hefur verið í kringum handboltan á Selfossi frá unga aldri og hins vegar Þórir Ólafsson goðsögn í lifandi lífi, en þó fyrst og fremst reglulegur spekingur í Selfoss hlaðvarpinu. Þeir eru báðir að takast á við sín stærstu verkefni í þjálfun til þessa og báðir eru þeir heimamenn. Selfoss hlaðvarpið óskar Eyþóri og Þóri hjartanlega til hamingju með ráðninguna og óskar þeim frábærs gengis. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Í larí lei, Stuðlabandið
Selfoss hlaðvarpið unir sér ekki hvíldar þegar handboltinn er kominn á business enda tímabilsins. Frídagur verkalýðsins, 1. maí var Arnari Helga engin fyrirstaða til að setjast niður með góðum gestum til að fara yfir stöðu mála í úrslitakeppninni í Olísdeild karla. Í smiðju stúdíóinu í dag voru mættir tveir leikmenn, Fyrirliðinn Hergeir Grímsson og gleðigjafinn Richard Sæþór Sigurðsson. Með þeim fengum við svo í fyrsta sinn Gísla Guðjónsson, bæjarmála frambjóðanda, hestamann, en í dag fyrst og síðast stuðningsmaður Selfoss. Strákarnir fóru vel yfir þetta svakalega einvígi sem Selfossliðið fór í gegnum á móti FH, eitt besta 8-liða úrslitaeinvígi í talsverðan tíma. Einvígið sem framundan er á móti Val og svo aðeins um handboltann almennt. Úrslitaeinvígi Selfoss og Vals: 1. leikur - Origo höllin | mán, 2. maí kl 19.30 2. leikur - Set höllin | fim, 5. maí kl 19.30 3. leikur - Origo höllin | sun, 8. maí kl 19.30 4. leikur - Set höllin | mið, 11. maí kl 19.30 5. leikur - Origo höllin | fös, 13. maí kl 19.30 Miðasala á alla leikina á Stubbi! Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Enn þá, Skítamórall
Úrslitakeppnin baby! Já vorið er alvöru uppskerutími og nú er úrslitakeppnin að byrja hjá strákunum. Fyrir viku kláruðu stelpurnar okkar sitt verkefni og gerðu það vel. Til að fara yfir þetta allt og miklu fleira mætti forfalla fjölmiðlamógúllinn Hjörtur Leó Guðjónsson, en Arnar Helgi fór yfir tjörnina í leit að sól. Hjörtur fékk vægast sagt góða gesti, handboltaheilarnir og þjálfararnir Örn Þrastarson og Árni Geir Hilmarsson mættur en með þeim var Tinna Soffía Traustadóttir, stjörnulínumaður meistaraflokks kvenna og í varnarskiptingu fyrir hana mætti svo Guðmundur Hólmar Helgason, einn besti leikmaður Olísdeildarinnar. Strákarnir gerðu tímabilið hjá stelpunum upp með Tinnu Soffíu. Þau fóru létt yfir allt það sem hefur gengið vel og ljónin á veginum. Þá var tekinn snúningur á umræðunni sem hefur verið í gangi um muninn á Olís og Grill deildunum. Eftir innaskiptingu Guðmundar Hólmars var svo tekinn léttur snúningur á lokakafla strákanna í deildinni og henni lokað í bili alla vega. En það sem á hug okkar og hjörtu þessa dagana er úrslitakeppnin sem er að detta í gang. Úrslitaeinvígi Selfoss og FH: 1. leikur - Kaplakriki | fös, 22. apríl kl 19.30 2. leikur - Set höllin | mán, 25. apríl kl 19.30 3. leikur - Kaplakriki | mið, 27. apríl kl 19.30 Miðasala á alla leikina á Stubbi! Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: The Wicker Man, Iron Maiden
Það er vor í lofti og farið að styttast í öllum deildum handboltans. Arnar Helgi fékk tvo góða gesti í Smiðjustúdíóið, handboltagoðsögnina Þóri Ólafsson og samverkamann hans í þjálfuninni, Árna Geir Hilmarsson. Í lok hlaðvarpsins sló Arnar svo á þráðinn til Svavars Vignissonar, þjálfara meistaraflokks kvenna. Mál málanna er auðvitað þessi stóri leikur hjá Selfoss stelpunum okkar sem kallaður hefur verið úrslitaleikur Grill 66 deildarinnar. Það er kannski orðum aukið, eða hvað? En líka létt yfirferð yfir bikarvikuna góðu og þessa leiki sem búnir eru af lokatörninni sem er enn í fullum gangi. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: I wanna Go - Femme Fatale (Deluxe Version), Britney Spears
Smiðjuhljóðverið var stútfullt af gæðum þegar Arnar Helgi hitaði upp fyrir bikarvikuna. Foringi strákanna, Halldór Jóhann Sigfússon mætti ásamt Einari Sverrisssyni. Hjörtur Leó Guðjónsson var þeim svo til halds og traust. Í lok þáttar fékk Arnar svo Gísla Felix Bjarnason til að rifja upp eina skiptið sem Selfyssingar léku til úrslita í bikarnum, en 1993 mættu Selfyssingar Val í troðfullri Laugardalshöll. Það er auðvitað óþarfi að rifja upp hvernig það endaði, en strákarnir gera það nú samt. Hér er sá hluti dagskrár bikarviku sem snertir okkur Selfyssinga beint: Miðvikudagur - Undanúrslit 20:15 Selfoss - KA Föstudagur - Bikarúrslit 3. flokks karla 18:00 Selfoss - Fram Laugardagur - Bikarúrslit 16:00 Selfoss/KA - Valur/FH Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Sílikon, Skítamórall
Smiðjustúdíóið var stútfullt af gæðum þegar Arnar Helgi ýtti á rec, íþróttastjórinn Örn Þrastarson var vitanlega mættur og með honum tveir vinstri hornamenn og yngri flokka þjálfarar, þeir Richard Sæþór Sigurðsson og Hannes Höskuldsson. Þeir fóru yfir helstu atriði sem á daga Selfoss handbolta hefur drifið síðustu vikur. Fóru yfir ótímabærar sögur um dauða handboltans á Selfossi og svo átakanleg saga af svaðilför meistaraflokks karla yfir Hellisheiði sunnudagskvöldið síðasta. Við minnum að sjálfsögðu á undanúrslitaleik Selfoss og KA sem fram fer á Ásvöllum miðvikudaginn 9. mars kl. 20.15. Við þurfum að mæta öll sem eitt. Við munum gefa eitthvað gott út í næstu viku til að hita betur upp fyrir final4 í bikarviku. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Pyro, Kings of Leon
EM lokið, stelpurnar á flugi og Olís að taka á flug á ný. Þetta og fleira fer Arnar Helgi yfir með þeim Þóri Ólafs og Erni Þrastar. Einnig var hrært í símtal til Þýskalands. Þar náði Arnar í Janus Daða Smárason, leikmann þýska úrvalsdeildarliðs Göppingen og leikmann íslenska landsliðsins. Allt þetta og meira til í boði Smiðjunnar sem eru ekki bara að bjóða upp á nokkra af bestu íslensku handverksbjórunum, því borgararnir á smiðjunni eru upplifun í brauði. Við minnum á næstu leiki Selfyssinga: Sun 6. feb | Afturelding - Selfoss | Olís kk Mið 9. feb | ÍR - Selfoss | Grill kvk Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Aldrei ein, Skítamórall
Smiðju-hljóðverið var í jólabúning, jólakúlur og notalegheit. Arnar Helgi fékk Örn Þrastar íþróttastjóra og fastagest, örvhenta undrið Ísak Gústafsson og galdramanninn í rammanum, Jón Þórarinn Þorsteinsson. Farið var yfir síðustu vikur, spáð lauslega í spilin fyrir EM. Það eru búnar að vera grænar tölur á hlutabréfum í öllum Selfossliðum síðastliðinn mánuð. Auðvitað er farið sérstaklega í U-liða verkefni Selfoss handbolta, enda allir gestir nátengdir því. Að lokum leggja Örn og Arnar Helgi stórmóta tengt verkefni fyrir strákana. Selfoss hlaðvarpið óskar hlustendum nær og fjær gleðilegra jóla. Við snúum aftur öðru hvoru megin við nýárið. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Komdu um jólin, Gunni Óla
Enn kallar Evrópa og nú fékk Arnar Helgi til sín Örn Þrastarson íþróttastjóra Selfoss handbolta sem og aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla. Með þeim mætti Alexander Már Egan leikmaður meistaraflokks karla til margra ára þrátt fyrir ungan aldur. Já Smiðju-hljóðverið var vel mannað enda fullt til að tala um. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Ko so lipe cvetele, Orlek
Loksins aftur! Selfosshlaðvarpið snýr aftur með stútfullann handboltaklukkutíma. Arnar Helgi Magnússon, Þórir Ólafsson og Hjörtur Leó Guðjónsson mættu í hljóðverið og hituðu upp fyrir veturinn með léttri yfirferð yfir það sem af hausti. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Innan í mér, Skítamórall
Fótboltasumarið er að hefjast og til að fagna því fékk Már Ingólfur góða gesti með sér að hljóðnemunum. Þá Ingimar Helga Finnsson, betur þekktur sem Litla Flugvél og Einar Karl Þórhallsson sem hefur verið í kringum fótboltan á Selfossi frá barnsaldri. Í Kaffi Krúsar stúdíóinu hituðu menn upp fyrir fótboltasumarið bæði hjá stelpunum og strákunum. Hverjir eru farnir, hverjir eru komnir og hverjir eru líklegir til að stíga upp? Hvaða sögulínum eigum við að vera að fylgjast sérstaklega með? Verður JÁ-Verk völlurinn fallegur? Þetta síðasta segir sig auðvitað sjálft, en hlustið samt til að fá staðfestingu á því sem þið vitið nú þegar. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Gírinn, Doctor Victor, Ingó Veðurguð og Gummi Tóta
Það er búin að vera mikil keyrsla en við náðum að pinna niður góða gesti til að renna yfir það sem á hefur gengið síðustu vikur. Arnar Helgi fékk þá Guðmund Hólmar, Hólmar Höskulds og Þóri Ólafs til að tækla þetta með sér. Þeir gátu ekki annað en tekið samtalið um meiðslaölduna sem gegnið hefur yfir Selfyssinga. Einnig reyndu þeir að lesa í hvað hefur ekki gengið vel og finna lausnir á því. Einnig það sem betur hefur gengið, því lífið er sem betur fer ekki tómt vesen. Alla vega ekki þegar þú getur skellt þér á Kaffi Krús þegar þér hentar. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Syndir feðranna, Bubbi Morthens
Í miðri febrúartörninni náði Arnar Helgi að lokka Halldór Jóhann í Kaffi Krúsarstúdíóið í stutt spjall. Megintilgangurinn var vitanlega að hita upp fyrir stórleikinn sem verður leikinn undir föstudagsljósunum, Haukar Selfoss. Við heyrum hvernig menn eru að vinna úr þessu gríðarlega leikjaálagi sem febrúar er að færa okkur og hvað klikkaði hjá okkar mönnum gegn Fram. Selfoss hlaðvarpið hvetur handboltaáhugafólk eindregið til að stilla inn á leik Hauka og Selfoss á Stöð 2 sport á föstudag kl. 19.30. Við munum í það minnsta gera það! Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Ef ástin er hrein, Jón Jónsson, feat. GDRN
HM er búið og the boys are back in town. Arnar Helgi fékk Þóri Ólafs og Helga Hlyns með sér í Kaffi Krúsarstúdíóið eftir leik Selfoss og Vals í endurkoma strákanna okkar í Olísdeildina eftir 125 daga hlé. Arnar lét ekki þar við sitja og henti í símaviðtöl við atvinn- og landsliðsmennina Elvar Örn Jónsson og Bjarka Má Elísson sem og landsliðsþjálfara Íslands, Guðmund Guðmundsson. Þeir fóru eðlilega yfir leikinn nýafstaðna ásamt því sem gerst hefur hjá stelpunum og U-liðinu. Einnig hvað framundan er. Landsliðsmennirnir og Guðmundur sögðu okkur frá því sem er í gangi hjá þeim á sínum heimavígstöðvum og komu með sína sýn á HM úr baksýnisspeglinum og handboltann á Selfossi þessa dagana. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Feel the Love, Daði Freyr X ÁSDÍS
Nú er HM alveg að skella á og Selfoss hlaðvarpið ákvað í tilefni af því að slá á þráðinn til Bahrain og fá stutt viðtal við landsliðsþjálfara þeirra, en það er enginn annar en Halldór Jóhann Sigfússon. Hann er jafnframt þjálfari handbolta strákanna okkar á Selfossi. Þeir Halldór og Arnar Helgi spjölluðu um lífið í Bahrain, handboltann og undirbúninginn í Bahrain fyrir HM og auðvitað komu þeir aðeins inn á Selfoss og Olísdeildina. Spennandi tímar framundan! Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Þjóðsöngur Bahrain, Barnakór
Eftir mjög langt ár er 2021 farið af stað og jólin halda áfram út janúar hjá handboltaáhugafólki. Nú er HM í handbolta að hefjast og fékk Arnar Helgi alvöru fallbyssur í Kaffi Krúsar hljóðverið til að hræara í þátt. Landsliðsmanninn fyrrverandi og góðvin hlaðvarpsins Þóri Ólafsson, núverandi ladsliðsmanninn Hauk Þrastarson ásamt bróður hans og þjálfari í öllum fullorðinsflokkum á Selfossi, Örn Þrastarson. Góðar fréttir af Krúsinni, en þar er nú aftur opið í sal alla daga vikunnar frá 10-21. Auðvitað var Haukur spurður út í fyrstu mánuðina í Póllandi og hverng verkefnið sem hann er í núna gengur. Strákarnir töluðu um fyrsta Portúgalsleikinn og hituðu upp fyrir HM í Egyptalandi. Og við erum ekki að skella upptöku í gang öðruvísi en að fara aðeins yfir málin á Selfossi, Raggi kominn heim, handboltinn vonandi að fara að rúlla, #íslmeis21 að fara að trenda? Selfoss Hlaðvarpið óskar hlustendum nær og gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir samfylgdina á því síðasta! Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Álfareiðin, Björgvin Halldórsson
Fótboltasumarið er löngu liðið og undirbúningur fyrir það næsta hafinn. Í tilefni af því fékk Már Ingólfur góða gesti. Arnar Helgi brá sér í gestahlutverkið, en hann er liðsstjóri hjá meistaraflokki karla. Einnig mættu fyrirliðar meistaraflokksliðanna tveggja, Þorsteinn Daníel og Anna María. Þau fóru yfir sumarið, sem varði óvenjulega lengi þetta árið eins og fólk þekkir. Hæðir og lægðir ræddar og erfiðu spurningarnar tæklaðar. Ekki hefur það þó mikið upp á sig að vera fastur í fortíðinni alveg öllum stundum og því var horft til næsta sumars. Munu stelpurnar ná að fylla lið, er Gary Martin að mæta til strákanna. Selfoss Hlaðvarpið óskar hlustendum nær og fjær gleðilegra jóla! Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Takk fyrir jólin Jesú
Handboltinn er í pásu, en það eru þó blikur á lofti um að hann gæti farið af stað um miðjan nóvember. Arnar Helgi fékk til sín hornamanninn knáa Þóri Ólafsson, Hólmar "H2" Höskuldsson og Guðmund Hólmar Helgason leikmann meistaraflokks karla og nýjasta stjarnan á Selfossi. Nýja Kaffi krúsarstúdíóið er að taka á sig mynd og þar er ekkert verið að slaka á. Á Krúsinni minnum við svo á California Club og góði osturinn er kominn aftur á turnborgarann! Þeir fóru yfir síðustu vikur fyrir þetta Covid-hlé og spáðu í spilin. Hvernig gengur Halldóri Jóhanni að setja sitt handbragð á liðið? Haukur Þrastar þarf ekkert númer þegar hann fer á Vor og góðar bransasögur fyrir allan peninginn. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: The Wicker Man, Iron Maiden
Fótboltasumarið er í besta falli á lokametrunum og ekki útilokað að því sé lokið. Már Ingólfur Máson hélt um stjórnartaumana þegar tveir af stærstu leikmönnum Selfoss mættu í Kaffi Krúsar stúdíóið. Sævar Þór Gíslason þarf varla að kynna fyrir knattspyrnuáhugafólki á Íslandi, en hann var grimmur fyrir framan mörk andstæðinganna. Í dag er hann öflugri utanvallar og er meðal annars í stjórn knattspyrnudeildarinnar. Guðmundur Karl Sigurdórsson á ekki eins glæstan feril innanvallar, en þeim mun öflugri á hliðarlínunni. Prímusmótor í gegnum árin bæði hjá Selfoss og Árborg, fjölmiðlajöfur og bara drengur góður. Strákarnir fóru yfir stöðu mála hjá fótboltaliðunum okkar. En það verður varla gert án þess að fara yfir stöðu mála í þjóðfélaginu. Auðvitað spáir Már í fortíðinni og strákarnir spá í framtíðinni. Annars kemur allskonar við sögu: Notaðir jepplingar, sælkerabræður, þjálfarinn á lakkskónum og millumerkið #gummaheim. Selfoss hlaðvarpið tekur undir það, við viljum Gummu heim! Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Veiðistöng, OFL
Það er komið að því, handboltaveturinn er að fara í gang og í tilefni af því fékk Arnar Helgi til sín góða gesti. Þórir Ólafsson handboltagoðsögn á Selfossi, Örn Þrastarson þjálfari nánast allra iðkenda og Halldór Jóhann Sigfússon þjálfara meistaraflokks karla. Halldór Jóhann er kannski nýr á Selfossi, en hann er nú þegar búinn að kynnast Kaffi Krús og sundlauginni. Ekki skrýtið að hann kunni vel við sig í draumalandinu. Þeir fóru yfir undirbúningstímabilið hjá stelpunum og strákunum sem og framhaldið. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Wind Of Change, Scorpions
Fótboltinn er aftur farinn af stað...aftur! Már Ingólfur setti græjurnar í Kaffi Krúsar-stúdíóinu í gang og fékk góða gesti, tveir fyrrverandi leikmenn Selfoss. Annars vegar Svava Svavarsdóttir sem meðal annars er í stjórn knattspyrnudeildarinnar og leikur fótbolta með Hamri. Hins vegar Ingimar Helga Finnsson leikmann Árborgar og annar þáttastjórnenda í einu vinsælasta fótboltahlaðvarpi Íslands, Fantasy Gandalf. Þau tækluðu heimsmálin á Selfossi og fóru létt yfir síðustu vikur og hvernig þau sjái fyrir sér að framtíðin liggi. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Einn dag í einu, Krassasig
Fótboltasumarið er komið vel af stað og ekki seinna vænna en að fara yfir veturinn og upphaf tímabilsins hjá strákunum. Már Ingólfur Másson tók til sín stjórnartaumana í þætti dagsins og fékk tvo þrælgóða gesti, en þeir Ingi Rafn Ingibergsson nýorðinn fyrrverandi leikmann Selfossliðsins og Einar Ottó Antonsson aðstoðarþjálfari strákanna. Við rétt eins og gestir okkar höldum áfram að gleðjast yfir því að Krúsin sé kominn á fullan snúning eftir endurbætur á eldhúsinu og minnum við á að hægt er að bæta kjúkling eða nautahakki út á Krúsar Nachosið, hax sem vill gleymast. Strákarnir fóru yfir undirbúningstímabilið og breytingar á hópnum og stöðuna á leikmönnum sem lítið sem ekkert hafa komið við sögu í upphafi tímabils. Hverjir eru líklegir til að verða nýjar hetjur og hvernig horfir liðið á sumarið. Einnig fóru menn létt yfir þessa leiki sem eru búnir og næstu viðureignir skoðaðar. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Love me like you elskar mig, Hölt Hóra
Nú er fótboltinn að fara á fulla ferð og tími til kominn að hita upp fyrir spennandi fótboltasumar. Gestir Arnars Helga í Kaffi Krúsarstúdíóinu voru rándýrir að vanda, en þær Anna Björk Kristjánsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir leikmenn meistaraflokks kvenna mættu ásamt þjálfara sínum, Alfreð Elíasi Jóhannssyni. Hálfur matseðillinn á Kaffi Krús fékk shoutout frá stelpunum og óhætt að segja að gleði rýkji með það að búið sé að opna staðinn eftir framkvæmdir síðustu vikna. Farið var yfir Valsleikinn um nýliðna helgi, þegar stelpurnar lönduðu fyrsta titli ársins, undirbúininginn í vetur og síðustu vikur, nýju leikmennina og hvernig þjálfarinn og liðið sjái sumarið fyrir sér. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Kannski Hann, Celebs
Þá er komið að seinni þætti spurningakeppni Selfoss hlaðvarpsins þar sem mætast fulltrúar meistaraflokka Selfoss í fót- og handbolta. Í þessum seinni þætti mætast fulltrúar meistaraflokka kvenna. Arnar Helgi er að vanda við stjórnvölinn og til leiks mættu fótboltakonan Þóra Jónsdóttir og handboltakonan Agnes Sigurðardóttir. Kaffi krúsar stúdíóið var ögn rykfallið, enda miklar framkvæmdir á Krúsinni og lokað næstu eina og hálfa vikuna. Það skyldi þó engann örvænta þar sem Vor hefur aftur tekið upp sinn hefðbundna opnunartíma, en sigurvegarar spurningakeppninnar fengu ljúfenga sushi veislu að launum. Nú fer svo að styttast í að fótboltinn fari að rúlla og Selfoss hlaðvarpið er byrjað að undirbúa upphitun fyrir fótboltasumarið. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Farinn, Skítamórall
Selfoss hlaðvarpið ákvað að hræra í létta spurningakeppni á milli meistaraflokka Selfoss í fót- og handbolta. Í þessum fyrri þætti af tveim mætast fulltrúar meistaraflokka karla. Arnar Helgi er að vanda við stjórnvölinn og til leiks mættu fótboltamaðurinn Þorkell Ingi Sigurðsson og handboltamaðurinn Alexander Már Egan. Líf og fjör í Kaffi krúsar stúdíóinu eins og fyrri daginn, en þetta snýst auðvitað fyrst og síðast um að hafa gaman. Það kom upp smávæg skekkja í stigatöflunni snemma, en það hafði á endanum ekki úrslitaáhrif og réttur sigurvegari krýndur í lokin. Í næsta þætti mætast svo fulltrúar meistaraflokka kvenna. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Valentine Lost - Eiríkur Hauksson
Ritstjórn Selfoss hlaðvarpsins kallaði til krísufundar eftir að tilkynnt var að handboltatímabilinu hefði verið slaufað og ljóst hvernig leyst yrði úr öllum deildum. Tveggja metra reglan var tekin skrefi lengra og dró Arnar Helgi fram rauða símann í Kaffi Krúsarstúdíóinu og hringdi um borg og bí. Fyrsti viðmælandinn var Þórir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Selfoss, annar var Örn Þrastarson þjálfari meistaraflokks kvenna, þriðji var Nökkvi Dan Elliðason leikmaður meistaraflokks Selfoss og að lokum heyrum við í Grími Hergeirssyni, þjálfara meistaraflokks karla. Þeir fóru yfir þessa niðurstöðu og hvernig úrlausn deidarkeppninnar fer með liðin okkar. Formaðurinn fór nokkrum orðum um tekjumissinn af þessum lokakafla deildar og úrslitakeppni, en engan bilbug var þó á honum að finna. Nökkvi segir okkur frá lífinu með Covid-19, en það virðist innihalda töluvert háskólanám á svefnlofti í sumarbústað. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: School‘s out, Alice Cooper
Það voru engar smá fallbyssur sem Arnar helgi fékk í Kaffi Krúsar stúdíóið. Tveir lykilmenn í toppliðum dönsku úrvalsdeildarinnar sem og íslenska landsliðsins, Selfyssingarnir Janus Daði Smárason sem leikur með Álaborg og Elvar Örn Jónsson sem leikur með Skern. Strákarnir dásömuðu pizzurnar á Krúsinni og það er óhætt að taka undir það. Þessa dagana er verið að bjóða upp á heimsendingu frá kl. 17-20 og mun Selfoss hlaðvarpið nýta sér það! Staðan í heiminum var rætt beint og óbeint, enda hefðu gestirnir báðir verið á fullu í dönsku deildinni í eðlilegu árferði. Strákarnir fóru yfir hvað gæti gerst í handboltaheiminum næstu vikur, spjölluðu aðeins um Selfoss, fóru yfir tímabilin sín í vetur og svo auðvitað landsliðið. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Í kvöld er gigg, Ingó Tóta
Kveikt var á kertum og ný sending af gestum tekin upp í Kaffikrúsarstúdíóinu strax eftir stórleik Selfoss og Hauka sem endaði ekkert allt of vel fyrir okkar menn. Arnar Helgi tók á móti Gísla Rúnari Guðmundssyni, markmannsþjálfara Selfoss, Einari Sverrissyni stórskyttu og Gísla Felix Bjarnasyni, goðsögn í lifandi lífi. Þeir töluðu vitanlega um leikinn sem þá var nýlokið, fóru yfir sýn markmannsþjálfarans á starfinu, skoðuðu stöðu liðanna þriggja, mfl. karla, kvenna og u-liðiðsins. Óhjákvæmilega veltu þeir vöngum yfir heimsmálunum og þeim faraldri sem gengur nú yfir. Við vitum meira í dag en þeir vissu í gær, en búið er að fresta öllum leikjum á vegum HSÍ þar til samkomubann almannavarna lýkur. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Sólin er komin, Mugison
Strákunum var hleypt út úr Kaffi Krúsar stúdíóinu og yfir Hellisheiðina. Þar sem Halldór Jóhann Sigfússon verðandi þjálfari Íslandsmeistara Selfoss var tekinn húsi. Arnar Helgi spjallaði við hann um nýja starfið, Selfoss og handboltann. Selfoss hlaðvarpið óskar Halldóri til hamingju! Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Stopp nr. 7, 200.000 naglbítar
Nýtt ár, nýtt upphaf. Selfoss hlaðvarpið er loks risið úr dvala eftir jól og EM. Arnar Helgi fékk þrjá fróða tappa með sér í Kaffi Krúsar-stúdíóið. Þar má fyrstan nefna Atli Ævar Ingólfsson, sem sumir segja besta línumann landsins. Með honum komu fastagestirnir Þórir Ólafsson, betur þekktur sem hornamaðurinn knái og Gísli Felix Bjarnason, grunnskólakennari, goðsögn og gangandi alfræðiorðabók um handbolta. Selfoss hlaðvarpið er ákveðið í að mæta á Kaffi Krús á sunnudaginn og taka leikdags-kjúklingapasta fyrir leikinn hjá stelpunum um kvöldið. Atli Ævar er aðdáandi pizzunar á Krúsinni og talaði um að hann væri að rúlla í gegnum matseðilinn. Strákarnir töluðu um framistöðu Selfyssinganna okkar á EM, þjálfaramálin sem eru aftur eru komin í brennidepilinn, meistaraflokkana okkar þrjá og Atli Ævar svaraði nokkrum spurningum dyggra aðdáenda.
Nú þegar liða fer að Jólum fannst okkur tilvalið að fara yfir málin með góðum gestum, en það er nákvæmlega það sem Arnar Helgi gerði. Í Kaffi Krúsar-stúdíóið mættu þeir Nökkvi Dan Elliðason, Örn Þrastarson og Gísli Felix Bjarnason. Eðal drengir sem ekki þarf að draga orðin upp úr þegar kemur að því að tala um handbolta. Selfoss hlaðvarpið mælir eindregið með því að fólk njóti aðventunnar og skelli sér á Kaffi Krús, en þar eru tveir Jólaréttir í boði þessa dagana. Annars vegar Jóladiskur, sem er nánast jólahlaðborð á einum disk. Hins vegar Hreindýraborgari, sem er einn sá girnilegasti sem sést hefur á Instagram. Farið var yfir síðustu leiki strákanna og stelpnanna okkar. Stigasöfnunin skoðuð og auðvitað var spáð í framtíðina. Nökkvi kom með stærðfræðilega nálgun. Landsliðshópurinn skoðaður og Gumma Gumm gefin góð ráð. Annað sem Selfoss hlaðvarpið mælir með er Sofballmót Selfoss. Það verður haldið í Hleðsluhöllinni 18. janúar og er öllum opið, 16 ára og eldri. Skráning er hjá handbolti@umfs.is sem og hjá Atla Kristins. Hvetjum alla til að taka þátt, konur og karla, vinahópa, vinnustaði, árganga ofl. Þrátt fyrir það sem fram kemur í þættinum er áherslan á gleðina og er þetta eitthvað sem allir eiga að ráða við. Það er jú gaman í handbolta! Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Fyrir jó, Björgvin Halldórsson og Svala Björgvins
Það er allt of langt um liðið frá síðasta alvöru handboltaþætti og því höfðu gestir Arnars Helga um margt að tala. Gestir hans í dag voru Magnús Öder Einarsson leikmaður meistaraflokks karla, Árni Geir Hilmarsson þjálfari U-liðsins og aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna og síðastur en ekki sístur Þórir Ólafsson fyrrverandi aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og núverandi spekingur Selfoss hlaðvarpsins. Búið var að keyra jólaljósin í gang í Kaffi Krúsarstúdíóinu, enda jólaljósin kveikt á Selfossi í dag. Jólabjórinn er dottinn á krana á Krúsinni og fer ljómandi vel með bæði pizzu og borgara. Farið var yfir síðustu mánuði heildstætt hjá öllum liðum, velt vöngum yfir því hvernig hægt sé að bregðast við nýuppkomnum meiðslum Árna Steins. Létt umræða um ungu strákana sem eru að fá fyrstu alvöru tækifærin sín. Eru einhverjar lausnir á því að Haukur sé óvænt tekinn úr umferð? Eru stelpurnar okkar á leiðinni upp um deild? Af hverju er Maggi ekki á leiðinni á EM? Leikir liða Selfoss fram að áramótum verða: Mfl. karla: Sun 24. nóv 18:00 Fjölnir - Selfoss Mán 2. des 19:30 Selfoss - FH Lau 7. des 16:00 ÍR - Selfoss Mán 16. des 19:30 Selfoss - Valur Mfl. kvenna Sun 1. des 19:30 Selfoss - Stjarnan U Lau 7. des 16:30 Fram U - Selfoss U-liðið Lau 23. nóv 16:00 Selfoss U - Þór U Mán 25. nóv 20:15 Fram U - Selfoss U Fös 13. des 19:30 Selfoss U - Kría Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Ostatnia nocka, Yugopolis & Maciej Maleńczuk