Podcast appearances and mentions of anna hildur hildibrandsd

  • 11PODCASTS
  • 24EPISODES
  • 2hAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • May 25, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about anna hildur hildibrandsd

Latest podcast episodes about anna hildur hildibrandsd

Bylgjan
Sprengisandur 25.05.2025 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 25, 2025 97:17

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Gylfi Gíslason framkvæmdastjóri Jáverks um húsnæðismál. Gylfi hefur byggt íbúðir á Íslandi í meira en 30 ár hann ræðir húsnæðismarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu og sína sýn á framtíð markaðar þar sem eftirspurn er langt umfram framboð, verð hækkar stöðugt og lítil merki um breytingar á þessari stöðu.  Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra um dómsmál. Þorbjörg ræðir sín verkefni, málefni saksóknara í kjölfar gagnalekamálsins, lögreglustjórans fyrrverandi á Suðurnesjum, lögreglumál, landamæramál, útlendingamála og fleira.  Sigríður Á. Andersen, Halla Hrund Logadóttir og Pawel Bartoszek alþingismenn um utanríksimál. Sigríður, Halla Hrund, og Pawel ræða utanríkismál, stöðu Íslands á óvissutímum, afstöðuna til Ísraels og aðgerðir Íslands vegna ástandsins á Gaza m.a.  Anna Hildur Hildibrandsdóttir fagstjóri um skapandi greinar. Anna Hildur sem er fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst og formaður Rannsóknaseturs skapandi greina ræðir nýjar rannsóknir á efnahagslegu mikilvægi skapandi greina fyrir Ísland og landsbyggðina sérstaklega. 

Rauða borðið
Kennarastofan á Bifröst, Atli Örvars, strandeldi og vinstrið

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 2, 2024 250:04

Fimmtudagurinn 2. maí Kennarastofan á Bifröst, Atli Örvars, strandeldi og vinstrið Við byrjum á því að heyra hvernig kennarastofan á Bifröst ræðir um landsins gagn og nauðsynjar. Dr Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, prófessor og forseti félagsvísindadeildar; dr. Njörður Sigurjónsson, prófessor og fagstjóri i menningarstjórnun; dr. Magnús Árni Skjöld, dósent og fagstjóri stjórnvísinda; og Anna Hildur Hildibrandsdóttir, lektor og fagstjóri skapandi greina komaað Rauða borðinu. Við sláum á þráðinn til Atla Örvars sem nýverið vann til Bafta-verðlauna og ræðum við Jóhannes Sturlaugsson líffræðing um strandeldi. Í lokin ræðum við um pólitík og vinstrið sérstaklega við Rósu Björk Brynjólfsdóttur sem bæði hefur setið á þingi fyrir Vg og Samfylkingu.

Samfélagið
Kuldabrýr, rannsóknarsetur skapandi greina og umhverfispistill

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 25, 2023 55:00

Veistu hvað kuldabrú er? Hún er að öllum líkindum í fasteigninni þinni. Og það er ágætt að vita hvar hún er og sérstaklega hversu stór og yfirgripsmikil - því kuldabrýr geta, ef ekki er passað upp á þær, skapað skilyrði sem eyðileggja hús og veggi og valda myglu. Við ræðum við Ágúst Pálsson, B.Sc. í vélaverkfræði og lagnahönnuð hjá Verkís sem hefur rosalegan áhuga á kuldabrúm og hann ætlar að reyna að skýra þetta allt fyrir okkur - en hann var einmitt að flytja fyrirlestur um þessi mál í morgun á fundi um nýsköpun í mannvirkjaiðnaði. Við forvitnumst um nýtt rannsóknasetur skapandi greina sem hefur verið komið á fót. Þetta er samstarfsverkefni fimm háskóla og markmiðið er að ?stuðla að samráði á milli háskóla, stofnana, stjórnvalda, Hagstofu Íslands og atvinnulífs menningar og skapandi greina, efla samstarf sem styrkt getur innviði og vöxt atvinnugreinanna og bæta gagnaöflun og greiningu sem nýtist svo aftur rannsóknum og þekkingarmiðlun innan þessa ört vaxandi geira,? eins og segir í umfjöllun á vef háskólans á Bifröst. Anna Hildur Hildibrandsdóttir er stjórnarformaður þessa nýja rannsóknaseturs. Umhverfispistill dagsins í höndum Stefáns Gíslasonar.

verk stef ranns bifr veistu anna hildur hildibrandsd
Samfélagið
Kuldabrýr, rannsóknarsetur skapandi greina og umhverfispistill

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 25, 2023

Sprengisandur 02.10.2022 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Oct 2, 2022 91:54

Kristján Kristjánsson stýrir skeleggri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Helgi Gunnlaugsson prófessor við Hí og Margrét Valdimarsdóttir dósent við HA um lögreglumál og afbrotavarnir. Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI um grænan iðnað á Íslandi. Vilhjálmur Egilsson fyrrverandi alþingismaður og Orri Páll Jóhannsson alþingismaður um vindorku og loftslagsmál. Anna Hildur Hildibrandsdóttir fagstjóri skapandi greina á Bifröst um skapandi greinar.  

Morgunvaktin
Fótbolti og peningar, nýr gígur og hagrænt gildi lista

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 17, 2021 130:00

Í spjalli um efnahag og samfélag ræddi Þórður Snær Júlíusson meðal annars um ástæður vistaskipta Lionels Messi en reglur spænsku knattspyrnudeildarinnar gerðu að verkum að vegna skuldastöðu gat Barcelona ekki haft hann lengur í þjónustu sinni. Þórður sagði líka frá nýjum vef: opinberumsvif.is þar sem sjá má hvaðan tekjur hins opinbera koma í hvað gjöldin renna. Gosið í Geldingadölum hefur nú staðið í fimm mánuði. Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði, rabbaði vítt og breitt um gosið sem hættir ekki að koma vísindamönnum á óvart. Nýr gígur myndaðist á gosstöðvunum fyrir fáeinum dögum. Meta á hagrænt gildi menningar og lista með heildstæðari hætti en nú er gert. Ríkisstjórnin upplýsti um það nýverið. Anna Hildur Hildibrandsdóttir, fagstjóri skapandi greina í Háskólanum á Bifröst, sagði frá því greiningarstarfi sem nú á að hefja. Tónlist: Allt um kring - Ragnheiður Gröndal, Draumalandið - Svavar Knútur. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðni Tómasson.

Morgunvaktin
Fótbolti og peningar, nýr gígur og hagrænt gildi lista

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 17, 2021

Í spjalli um efnahag og samfélag ræddi Þórður Snær Júlíusson meðal annars um ástæður vistaskipta Lionels Messi en reglur spænsku knattspyrnudeildarinnar gerðu að verkum að vegna skuldastöðu gat Barcelona ekki haft hann lengur í þjónustu sinni. Þórður sagði líka frá nýjum vef: opinberumsvif.is þar sem sjá má hvaðan tekjur hins opinbera koma í hvað gjöldin renna. Gosið í Geldingadölum hefur nú staðið í fimm mánuði. Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði, rabbaði vítt og breitt um gosið sem hættir ekki að koma vísindamönnum á óvart. Nýr gígur myndaðist á gosstöðvunum fyrir fáeinum dögum. Meta á hagrænt gildi menningar og lista með heildstæðari hætti en nú er gert. Ríkisstjórnin upplýsti um það nýverið. Anna Hildur Hildibrandsdóttir, fagstjóri skapandi greina í Háskólanum á Bifröst, sagði frá því greiningarstarfi sem nú á að hefja. Tónlist: Allt um kring - Ragnheiður Gröndal, Draumalandið - Svavar Knútur. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðni Tómasson.

Snæbjörn talar við fólk
#0055 Anna Hildur Hildibrandsdóttir

Snæbjörn talar við fólk

Play Episode Listen Later Jun 3, 2021 190:13

S01E55  – Anna Hildur Hildibrandsdóttir er ekki þjóðþekkt andlit en áhrif vinnu hennar á íslenskt menningarlíf eru gífurleg. Hún tók þátt í að koma ÚTÓN, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, á legg sem opnaði fyrir gífurlega verðmætasköpun í íslenskum tónlistariðnaði, hún var lengi fréttaritari í London og nú nýlega var frumsýnd hennar fyrsta heimildarmynd „A Song Called Hate“ sem fjallar um ferð hljómsveitarinnar Hatara í Eurovision í Ísrael árið 2019. Nú í vetur flutti hún heim til Íslands eftir langa búveru í Bretlandi og hóf kennslu við Háskólann á Bifröst, stofnaði listþróunarfyrirtækið Glimrandi ásamt eiginmanni sínum og er í stjórn sumarnámskeiðsins Tungumálatöfra, en þar fá fjöltyngd börn og unglingar tækifæri til að rækta íslenskuna sína í gegnum listsköpun á Ísafirði. Anna Hildur er hvergi nærri hætt og nýtur þess að takast á við nýjar áskoranir, en nú þegar hún nálgast sextugsaldurinn er hún loksins búin að læra að segja nei. Gott spjall.      – Síminn Pay býður upp á STVF. Sumartilboðið er komið í Síminn Pay appið! Galaxy Tab A7 4G á 35.994,- kr. staðgreitt, lækkað verð frá 59.990,- kr.! Eftir hverju ertu að bíða? https://www.siminn.is/siminn-pay    – Hljóðkirkjan býður upp á 6 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum, Nei hættu nú alveg - Spurningaleikur Villa naglbíts líka á föstudögum og Listamenn á laugardögum.

tn gott sn nei besta eftir hlj bretlandi bifr anna hildur hildibrandsd listamenn
Morgunútvarpið
25. feb. - Erlent verkafólk, jarðhræringar, Bokashi, VR og Hatari

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 25, 2021 130:00

Þessa vikuna standa Efling, ASÍ og Starfsgreinasambandið fyrir ráðstefnu eða fyrirlestraröð um aðstæður erlends verkafólks á Íslandi undir yfirskriftinni Mannamunur á vinnumarkaði. Farið er ofan í mismunandi greinar og í dag er ferðaþjónustan á dagskrá. Við fengum til okkar þau Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóra Eflingar og Arndísi Ósk Magnúsdóttur sem gerði rannsókn á upplifun erlends starfsfólks í ferðaþjónustu á COVID 19 tímum, til að ræða þessi mál og fengum einnig viðbrögð Viðars við dómi í máli fjögurra félagsmanna Eflingar gegn fyrirtækjunum Eldum rétt og Menn í vinnu. Halldór Geirsson, jarðeðlisfræðingur, kom til okkar og ræddi við okkur um jarðskjálftahrinuna sem hófst í gær og hvers sé að vænta með framhaldið. Við fræddumst líka um Bokashi jarðgerð, en sl. sumar hóf Jarðgerðarfélagið í samstarfi með Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. og Landgræðsluna tilraunaverkefni á Strönd til að meta nýtni bokashi-jarðgerðar til meðhöndlunar á lífrænum heimilisúrgangi í Rangárvallasýslu. Björk Brynjarsdóttir verkefnisstjóri var á línunni og sagði okkur hvað Bokashi jarðgerð er og hvernig hún nýtist. Helga Guðrún Jónasdóttir og Ragnar Þór Ingólfsson eru bæði í framboði til formanns VR en kosið verður í þessu stærsta stéttarfélagi landsins dagana 8. -12. mars. Þau komu til okkar og ræddu sín framboðsmál. Heimildamyndin A song called hate þar sem fylgst er með för Hatara í Eurovison var frumsýnd á RIFF sl. haust og hefur síðan farið á nokkrar kvikmyndahátíðir. Nú er hún á leið í bíó hér heima á Íslandi og kvikmyndagerðarkonan Anna Hildur Hildibrandsdóttir sem er konan að baki myndinni kíkti til okkar í spjall af því tilefni. Tónlist: Snorri Helgason - Einsemd. Baggalútur - Hlægifíflin. Emilíana Torrini - Big jumps. Bubbi Morthens - Agnes og Friðrik. Hatari - Hatrið mun sigra. Margrét Rán - A song called hate. Hjálmar - Tjörnin. Birnir og Páll Óskar - Spurningar.

Morgunútvarpið
25. feb. - Erlent verkafólk, jarðhræringar, Bokashi, VR og Hatari

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 25, 2021

Segðu mér
Anna Hildur Hildibrandsdóttir kvikmyndagerðakona

Segðu mér

Play Episode Listen Later Feb 23, 2021 38:00

Anna Hildur Hildibrandsdóttir fylgdi Hatara-hópnum til Ísraels þegar hljómsveitin tók eftirminnilega þátt í Eurovision árið 2019 og gerði heimildarmynd um ferðalagið. Hópnum tókst að valda nokkrum pólitískum titringi á svæðinu og þegar stigin voru kynnt á úrslitakvöldinu supu margir hveljur þegar liðsmenn sveitarinnar drógu upp palenstínska fánann og veifuðu honum fyrir framan myndavélarnar. Anna Hildur Hildibrandsdóttir kvikmyndagerðar- og fjölmiðakona er nýflutt heim frá London þar sem hún var búsett í þrjá áratugi. Í Segðu mér á Rás 1 sagði hún frá borgarlífinu í London, fjölmiðlabransanum og Eurovision-myndinni A song called hate sem hefur ferðast um heiminn og fer loksins að rata á skjáinn. Hefur kjark til að gera það sem öðrum finnst erfitt Anna Hildur tekur undir að hún sé kjörkuð og segist hafa hugrekkið frá foreldrum sínum. ?Pabbi heitinn og mamma, sem er enn á lífi, eru bæði ótrúlega dugleg og klár og þau hafa gert margt skemmtilegt í lífinu. Mér finnst gaman að ögra og takast á við áskoranir,? segir hún. ?Ég hef oft kjark til að gera það sem öðrum finnst erfitt að gera.?

eurovision hefur pabbi hatara kvikmyndager anna hildur hildibrandsd
Morgunútvarpið
27. nóv. - Fæðingarorlof, tónlist, líkamsrækt, Helgi Björns og hégómi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Nov 27, 2020 130:00

Ásmundur Einar Daðason, félags og barnamálaráðherra, var á línunni hjá okkur, en nú er tekist á um það á Alþingi hvernig skipta skuli 12 mánaða fæðingarorlofi á milli foreldra. Anna Hildur Hildibrandsdóttir formaður Útflutningssjóðs íslenskrar tónlistar og Sigtryggur Baldursson framkvæmdastjóri ÚTÓN rituðu á dögunum grein þar sem þau skora á stjórnvöld að tvöfalda framlag til sjóðsins, það muni skila sér margfalt til baka. Tónlistariðnaðurinn, bæði hér á landi og erlendis, hefur orðið fyrir gríðarlegu höggi og ekki er útséð með hvernig tónlistarlífið muni taka við sér að faraldri loknum. Því sé ástæða til að blása til sóknar. Anna Hildur settist hjá okkur og fór yfir þessi mál. Eins og fram kom í gær hjá sóttvarnaryfirvöldum eru uppi vísbendingar um að faraldurinn sé á uppleið á ný og þar með hafa líkur minnkað á að mörg fyrirtæki geti hafið rekstur sinn á ný. Við heyrðum í Birni Leifssyni, eiganda World Class, sem er ekki vongóður um að viðskiptavinir hans megi snúa í ræktina á ný á næstunni. Helgi Björnsson hefur glatt þjóðina í heimsfaraldri með söng og spili undanfarna mánuði. Nú sér fyrir endan á þáttunum Heima með Helga, en lokaþátturinn er annað kvöld og þar verður öllu tjaldað til. Við spjölluðum við Helga. Við heimsóttum svo hégómavísindahorn Freys Gígju Gunnarssonar og fengum fréttir af Grammy verðlaununum, Caddyshack og þriðju myndinni um Guðföðurinn, sem hefur nú verið endurgerð. Tónlist: Tryggvi - Allra veðra von. Hildur Vala - Komin allt of langt. Daði og gagnamagnið - Think about things. Sycamore Tree - Picking fights and pulling guns. Helgi Björns, Salka Sól og reiðmenn vindanna - Saman (höldum út). GDRN - Vorið. Duran Duran - Girls on film.

grammy tn gu world class caddyshack og h saman heima duran duran girls helgi bj einar da salka s sigtryggur baldursson anna hildur hildibrandsd
Morgunútvarpið
27. nóv. - Fæðingarorlof, tónlist, líkamsrækt, Helgi Björns og hégómi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Nov 27, 2020

21. júlí - Bogfimi, Djúpavík, rokkamman, veggjöld og göngur

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 21, 2020 130:00

Haraldur Gústafsson varð um helgina Íslandsmeistari í bogfimi með sveigboga. Hann sagði okkur frá sportinu. Hulda heimsótti Djúpavík á Ströndum á dögunum og ræddi þar við Héðin Birni Ásbjörnsson sem er einn þeirra er reka hótel Djúpavík. Hann hefur líka lagt mikla vinnu í að varðveita gömlu síldarvinnsluna á staðnum enda taugar hans til staðarins sterkar. Héðinn ver stórum hluta ársins á Djúpavík, en starfar líka sem fasteignasali í Kópavogi. Við heyrðum forvitnilegt spjall Huldu og Héðins. Unnið er að heimildarmynd um rokkömmuna svokölluðu, okkar einu sönnu Andreu Jónsdóttur útvarpskonu og skífuþeyti. Framleiðendur myndarinnar leita nú til Íslendinga eftir efni sem nýst gæti við gerð myndarinnar og kalla eftir m.a. gömlum kassettum með upptökum af Rás 2. Anna Hildur Hildibrandsdóttir framleiðandi var á línunni og sagði okkur meira af þessu. Oddný Harðardóttir ritaði grein í Dagskránna á Suðurlandi fyrir skömmu síðan þar sem hún mótmælti því að vegaframkvæmdir á Suðurlandi yrðu fjármagnaðar með veggjöldum og í einkaframkvæmd. Oddný var á línunni og ræddi þetta ásamt fleiri málum sem hafa verið í umræðunni sl. daga, s.s. málefni Icelandair og flugfreyja og atvinnuástand og fátækt á Suðurnesjum. Léttar þriðjudagsgöngur, sem eru hugsaðar sem fjölbreytt og stundum fróðleg afþreying, eru í boði í miðborg Reykjavíkur síðdegis á þriðjudögum og kostar ekkert fyrir þátttakendur. Guðmundur Ingi Þorvaldsson leiðir göngu um Reykjavík næstu tvo þriðjudaga, í kvöld er þemað arkitektúr í borginni og annan þriðjudag verður boðið upp á fimmauragöngu, hvað sem það nú er. Guðmundur Ingi var í símanum. Tónlist: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Þú átt mig ein. Baggalútur - Tíu dropar af sólskini. Sade - Still in love with you. Ezekiel Carl - Líður svo vel. Pat Benatar - We belong. Sigrún Stella - Sideways. GDRN ft. Flóni - Lætur mig. My Marianne og Will Ferrell - Húsavík. Billy Joel - Dont ask me why. Umsjón: Rúnar Róbertsson og Hulda G. Geirsdóttir

Morgunútvarpið
21. júlí - Bogfimi, Djúpavík, rokkamman, veggjöld og göngur

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 21, 2020

26. maí - Skapandi nám, Þorgerður Katrín, geitalabb, Eyjar og vísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 26, 2020 130:00

Anna Hildur Hildibrandsdóttir aðjúnkt við Háskólann á Bifröst hefur, ásamt Magnúsi Skjöld deildarforseta félagsvísindadeildar og Nirði Sigurjónsyni prófessor, hannað nýtt diplómanám í skapandi greinum við skólann. Náminu er ekki síst beint að þeim sem enn eru leitandi að loknum framhaldsskóla eða hafa flosnað upp úr námi. Skapandi greinar eru vaxandi atvinnuvegur sem kallar á nýja nálgun í skólakerfinu segir hún og bendir á að árangur íslensk hugvits- og listafólks á heimsvísu opni sífellt fleiri tækifæri fyrir þá sem vilja finna störf í fjölbreytileika skapandi greina. Við slógum á þráðinn til Lundúna og heyrðum í Önnu Hildi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fomaður Viðreisnar, kom til okkar en hún spurði stjórnvöld á þingi í gær hvernig þau hygðust opna landið. Við spurðum Þorgerði hvernig hún sér framhaldið fyrir sér og um stöðu Íslands á þessari stundu. Íslendingar ætla að ferðast innanlands í sumar og margt forvitnilegt er í boði víða um land, en það eru þó kannski ekki margir sem bjóða upp á göngutúra með geitur í bandi. Það gera þau Sigríður Ævarsdóttir og Benedikt Líndal á Gufuá í Borgarfirði hins vegar, auk ýmis konar annarrar þjónustu undir heitinu Harmony eða Samspil. Við heyrðum í Sígríði og spurðum nánar út í þetta allt saman. Páley Borgþórsdóttir, aðgerðarstjóri og lögreglustjóri Vestmannaeyja, var á línunni hjá okkur en aðgerðarstjórn vegna Covid lauk störfum í Eyjum í gær, eftir mikið starf og daglega fundi frá 15. mars. Páley sagði okkur frá því hvernig þetta hefur gengið en alls greindust 105 manns með veiruna í Eyjum. Við spurðum líka út í komandi sumar og hvernig skipulagi viðburða verður háttað. Sævar Helgi Bragason mætti með fróðleik úr heimi vísindanna og fjallaði m.a. um lífplast og geimskot á morgun. Vilhjálmur Vilhjálmsson - Tölum saman. Eagles - Take it to the limit. Skítamórall - Aldrei ein. Suzanne Vega - Left of center. Hjálmar - Taktu þessa trommu. Housemartins - Happy hour. Jón Jónsson - Dýrka mest. Elton John - Rocketman. Coney Island Babies - Swirl.

covid-19 borg lund hj magn nir katr skj sigr sigurj gunnarsd vilhj sindi eagles take aldrei bifr hildi eyjum taktu vestmannaeyja samspil helgi bragason elton john rocketman anna hildur hildibrandsd benedikt l
Morgunútvarpið
26. maí - Skapandi nám, Þorgerður Katrín, geitalabb, Eyjar og vísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 26, 2020

Mannlegi þátturinn
Foreldrahús, Tungumálatöfrar og ljóðalæðan Jósefína

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 4, 2019 50:00

Foreldrahús eru 33 ára grasrótarsamtök sem hafa sinnt sama hlutverki í þessi ár, að styðja og hlúa að foreldrum sem eiga börn í vímuefnavanda. Í gegnum árin hefur starfið þróast og samtökin hafa verið með ýmiskonar námskeið fyrir börn og unglinga og foreldra ásamt ráðgjöf og göngudeildarúrræði fyrir unglinga í vímuefnavanda. Nú vantar samtökin húsnæði undir starfið og hafin er söfnun. Við ræddum við Berglindi Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra Foreldrahúss í þættinum. Tungumálatöfrar á Ísafirði er árlegt námskeið fyrir fjöltyngd börn. Kynntar verða þær kennsluaðferðir sem beitt er á Tungumálatöfrum og skoðuð tengsl við önnur verkefni sem snúa að íslenskukennslu fyrir fjöltyngd börn og unglinga. Þá verður skoðað mikilvægi námskeiða sem þessa þegar kemur að aðlögun innflytjenda með tilliti til aukins lýðræðis- og menningarlæsis. Anna Hildur Hildibrandsdóttir sagði frá tilurð þessa verkefnis í þættinum. Jósefína Meulengracht Dietrich er læða á Akranesi og það sem meira er hún er skáldlæða og mannfræðingur. Jósefína skrifaði nýlega undir samning um útgáfu Jósefínubókar. Mun bókin innihalda úrval eitt hundrað ljóða sem Jósefína hefur ort í gegnum tíðina. Þið heyrðuð rétt, Jósefína er læða, sem sagt köttur. Við hringdum í útgefandann, Bjarna Harðarson, hjá Bókaútgáfunni Sæmundi og forvitnuðumst aðeins um þessa merkilegu læðu. UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

mun akranesi anna hildur hildibrandsd
Laugardagskvöld með Matta
Anna Hildur Hildibrandsdóttir

Laugardagskvöld með Matta

Play Episode Listen Later Oct 20, 2018

Gestur Matta er framleiðandinn Anna Hildur Hildibrandsdóttir

anna hildur hildibrandsd
Morgunútvarpið
Tungumálatöfrar, GróLind, loftslagskvíði og Sævar Helgi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 7, 2018 130:00

Tungumálatöfrar er námskeið fyrir fjöltyngd börn á Ísafirði sem stendur yfir þessa vikuna. Anna Hildur Hildibrandsdóttir er einn skipuleggjenda og hún var á línunni hjá okkur. GróLind er heiti á verkefni sem ætlað er að skila með reglubundnum hætti heildarmati á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins, og þróa sjálfbærnivísa fyrir nýtingu auðlindanna. Bryndís Marteinsdóttir er verkefnisstjóri GróLindar og hún kíkti til okkar í spjall. Til er fólk sem er illla haldið af loftslagskvíða og er með krónískt samviskubit yfir vistspori sínu segir Gró Einarsdóttir, doktor í félags og umhverfissálfræði í grein á Kjarnanum. Greinin kallast stóri ljóti loftslagsúlfurinn og í henni veltir hún því upp að kannski sé ekki heppilegast að hræða folk til aðgerða í baráttunni gegn lofslagsbreytingum heldur reyna frekar aðrar aðgerðir. Gró var hjá okkur í þættinum. Sævar Helgi Bragason snýr aftur eftir frí og spjallaði við okkur um forvitnileg fyrirbæri, t.d. silfurský. Tónlist: Paul McCartney & Wings - My love. Ásgeir Trausti - Myndir. Valdimar - Blokkin. Red Hot Chilli Peppers - Road 'trippin. Emilíana Torrini - Perlur og svín. No doubt - Don't speak. Magnús Þór - Jörðin sem ég ann. Sálin hans Jóns míns - Lestin er að fara. Amabadama - Ein í nótt. Nýdönsk - Horfðu til himins. Supergrass - Alright. Sigrid - Strangers.

paul mccartney emil magn helgi brynd lestin marteinsd helgi bragason greinin anna hildur hildibrandsd sigrid strangers
Rokkland
Á hvað hlustar Margrét drottning?

Rokkland

Play Episode Listen Later Feb 25, 2018 115:00

Rokkland hefur ekki hugmynd um það en dönsk tónlist er samt í aðalhlutverki í Rokklandi dagsins. Í seinni hluta þáttarins koma við sögu hljómsveitir og listamenn eins og Kim Larsen, Roberta Flack, Kim Carnes, Led Zeppelin, Santana og George Harrison sem hefði orið 75 ára í dag ef hann hefði lifað. En í fyrri hlutanum er það herraþjóðin okkar gamla Danmörk og Dönsk tónlist, danskt popp og rokk og eitthvað í þá veru. Trúnó eru fjórir þættir sem Anna Hildur Hildibrandsdóttir fyrrum framkvæmdastjóri Útón og Nomex (Nordic Music Export var að gera) Hún er framleiðandi og hún tekur viðtölin við tónlistarkonurnar fjórar sem þættirnir fjalla um. Þessar fjórar konur eru; Ragga Gísla, Lay Low, Sigríður Thorlacius og Emiliana Torrini. Í þessum 40 mínútna þáttum segja þær frá sér og tónlistinni - og segja frá allskonar hlutum sem þær hafa aldrei talað um áður - og /eða fara dýpra í það. Andrea Jónsdóttir vinkona okkar kemur svo við sögu í öllum þáttunum. Ég ætla að segja aðeins frá þessu betur í þættinum. Carsten Holm heitir kollegi minn hjá danska útvarpinu DR P6BEAT. Hávaxinn maður með sítt hár og sítt skegg, lítur út eins og hálfgerður risi, víkingarisi kannski. Hann er þekktur í Danmörku fyrir sitt sérstaka útlit, síða hárið og skeggið, en ekki síður fyrir útvarpsþættina sem eru orðnir ótrúlega margir. Carsten skemmtir dönum á föstudags, laugardags og sunnudags-morgnum frá 10-12. Við Carsten höfum verið að rekast hver á annan á tónlistarhátíðum í meira en 20 ár, fyrst og fremst á Hróarskeldu. Við hittumst núna í janúar á Eurosonic Festival í Hollandi og þar sem hátíðin lagðií ár áherslu á Danska tónlist bað ég Carsten um að setja sig í sérfræðings-stellingar , setjast niður með mér og segja mér frá því sem er að gerast í danskri tónlist. Það voru 22 danskar hljómsveitir á Eurosonic í ár og ég bað hann um að velja nokkrar þeirra og ákveðin lög með þeim fyrir Rokkland. Ein af þeim er D/troit -

Rokkland
Á hvað hlustar Margrét drottning?

Rokkland

Play Episode Listen Later Feb 25, 2018

Sunnudagssögur
Björn Berg Gunnarsson og Anna Hildur Hildibrandsdóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Jan 14, 2018 135:00

Björn Berg Gunnarsson fræðslustjóri Íslandsbanka sagði frá uppvextinum í vesturbænum, en hann er lang ynstur fjögurra systkina. Hann sagði frá áhuganum á fjármálum sem kviknaði snemma, árunum í Verslunarskólanum og síðar í viðskiptafræðinni í HR. Hann hóf störf í Glitni og hefur starfað nær óslitið í bankanum sem i dag heitir Íslandsbanki. Hann segir að íslendingar eigi að stefna að því að verða fjármálalæsasta land í heimi. Anna Hildur Hildibrandsóttir er sagði frá uppvextinum í Garðabænum og hvernig henni tókst að næla sér í íslenskan kærasta í Svíþjóð. Hún hefur starfað sem fréttaritari bæði á Bylgjunni og síðar ruv. Hún skrifaði ævisögu Gísla Guðjónssonar réttarsálfræðings, en hefur starfað lengst af við útflutning á íslenskri tónlist. Í dag starfar hún í fyrirtæki sem hún á ásamt tveimur bretum og heitir Tattarrattatat og flakkar á milli Bretlands og Íslands árið um kring.

bj gu sv gar hann bretlands berg gunnarsson anna hildur hildibrandsd
Sunnudagssögur
Björn Berg Gunnarsson og Anna Hildur Hildibrandsdóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Jan 14, 2018