POPULARITY
Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Aron Már Ólafsson er einn allra efnilegasti leikari þjóðarinnar. Hér ræða hann og Sölvi um systurmissinn, fíknir, leiklistina og fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/
Aron Mímir og Bjarki Viðarsson stjórna vinsæla hlaðvarpinu Götustrákar sem hægt er að finna á brotkast.is Í þessu viðtali við þá var spjallað um meðal annars eiturlyf, klám og trú. Takk fyrir að hlusta! --- Send in a voice message: https://podcasters.spotify.com/pod/show/tveirfellar/message
Aron Mímir er annar helmingur Götustráka, einlægur og á stóra sögu sem hann hefur unnið vel í undanfarin tvö ár. Hann lenti í einelti sem barn, fór ungur að nota stera og var alkahólisti frá fyrsta sopa, eins og hann segir sjálfur. Snemma á fullorðinsárum lenti hann í stóru áfalli sem hefur mótað hann mikið.
¡Bienvenidos a un viaje fascinante a través de la historia con el videopodcast "Cero Izquierdo Retron News"! En este episodio especial, exploramos desde los problemas iniciales del primer iPhone hasta la revolución de Apple, la transición del Euro en España, y reflexiones sobre el pasado y futuro monetario. Además, abordamos el uso de inteligencia artificial en programas de televisión y el compromiso extraordinario de Fran de la Jungla con la protección de los animales. 📅 Secciones Destacadas: 📱 Noticias de 2007: Problemas iniciales del primer iPhone 🤖 Evolución del Robot Humanoide y la Importancia de Vender 🍏 Steve Jobs y la Revolución de Apple 💶 Transición del Euro en España: Impacto económico y comunicación clave 🔄 Cambio de Moneda y su Impacto Económico 🔐 Privacidad y Seguridad en Dispositivos Electrónicos 🤖 Inteligencia Artificial en los Programas de Iker Jiménez 🗣️ Opiniones sobre Iker Jiménez y Comparaciones con Otros Comunicadores 🐾 El Compromiso de Fran de la Jungla con la Protección de Animales 🎙️ Invitado Especial: David Ordinas, Director de Cortos ¡No te pierdas la presencia especial de David Ordinas, quien comparte sus perspectivas únicas sobre los temas discutidos! 🤔 Reflexiones y Recomendaciones: Desde la estrategia innovadora de Steve Jobs hasta las reflexiones sobre el futuro monetario y la recomendación de escuchar el audio viral con Iker Jiménez, este episodio está lleno de insights imperdibles. ¡Acompáñanos en este recorrido a través del tiempo y la tecnología! 🚀✨ 👍 ¡Si disfrutaste el contenido, no olvides darle like, suscribirte y activar la campanita para más episodios emocionantes! Hashtags Recomendados: #RetronNews #HistoriaTecnológica #InvitadoEspecial #iPhone #AppleRevolution #EuroTransition #IAenTV #AnimalesyNegocios #ReflexionesMonetarias #DavidOrdinas #PodcastTecnológico #SteveJobsLegacy
Bjarki Viðarsson og Aron Mímir Gylfason eru götustrákar. Þeir hafa báðir komið til baka inn í lífið eftir áralanga neyslu og vilja nú láta gott af sér leiða. Í þættinum ræða Sölvi og götustrákar um lífshlaup strákanna, skilaboð samfélagsins, tilganginn og margt fleira. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Í þætti dagsins fékk Addi til liðs við sig leikarann, áhrifavaldinn, hlaðvarparann og lífskúnsterinn Aron Má Ólafsson, betur þekktur sem Aronmola á samfélagsmiðlum. Saman ræddu þeir heima og geima en þó aðallega um peninga í leiklistinni. Þið viljið alls ekki missa af þessum þætti gott fólk.
Leikarinn, samfélagsmiðla meistarinn og hlaðvarps stjórnandinn Aron Már Ólafsson eða betur þekktur sem Aron Mola kom til okkar í stór skemmtilegt spjall. Við tölum um ferðalög hans um heiminn, hræðslur og margt margt annað skemmtilegt. Takk fyrir að horfa! Þáttastjórnendur: Óli Þorbjörn Guðbjartsson og Einar Ingi Ingvarsson
Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Bjarki Viðarsson og Aron Mímir Gylfason eru götustrákar. Þeir hafa báðir komið til baka inn í lífið eftir áralanga neyslu og vilja nú láta gott af sér leiða. Í þættinum ræða Sölvi og götustrákar um lífshlaup strákanna, skilaboð samfélagsins, tilganginn og margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/
Í þessum geggjaða þætti fékk ég til mín vinina Aron Má Ólafsson, gjarnan þekktur sem Aron Mola, og Arnar Þór Ólafsson í virkilega skemmtilegt spjall. Aron og Arnar hafa verið vinir frá því í Versló en kynntust þeir í gegnum félagslífið þar en voru þeir til að mynda saman í sketsaþáttunum vinsælu, 12:00, en það var einmitt þar sem Aron fór að færa sig fyrir framan myndavélina frekar en fyrir aftan hana og áttaði sig fljótt á því að þar væri hann heldur betur á heimavelli.Eftir menntaskóla fóru strákarnir algjörlega í sitthvora áttin; Aron lærði leiklist í LHÍ á meðan Arnar fetaði menntaveginn og lærði fjármálaverkfræði en héldu þeir þó alltaf góðu sambandi og talaði Aron um að það væri alltaf gott að bera hugmyndir sínar undir Arnar þar sem hann væri óhræddur að segja skoðanir sínar en eru þeir afar ólíkir og deila ólíkuðum skoðunum um flest málefni. Í dag heldur Arnar úti fjármálahlaðvarpinu “Pyngjan” sem slegið hefur í gegn að undanförnum ásamt því að þeir halda saman úti podcast þættinum “Ólafssynir í Undralandi” og mæli ég eindregið með því að þið kíkið á þættina þeirra. Í þættinum, sem var svo sannarlega á hressu nótunum, ræddum við um allt milli himins og jarðar þar á meðal hversu ólíkir þeir eru, menntaskólaárin, leiklistina, hlaðvörpin og ný og spennandi verkefni sem framundan eru hjá þeim ásamt því að heyra skemmtilegar sögur úr þeirra vináttu, þar á meðal þegar stressið yfirtók þá þegar þeir tóku saman þátt í Vælinu hér um árið.Þátturinn er í boði Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/
Frú Barnaby fékk til sín góðan gest frá fyrirheitna landinu, en það er hann Aron Már Ingham Grímsson. Aron leiðir okkur í sannleika um menningarheim Midsomer, en við spjöllum saman um blásíldina og gamla breta. Nú Aron segir okkur einnig frá lystisemdum breskrar matargerðar sem hefur oft á tíðum verið vanmetin í gegnum tíðina. Lóa og Móa hlusta á átekta og bíða spenntar eftir heimsfrægðinni sem mun fylgja því að frúin gerist alþjóðleg, en þátturinn er á ensku að þessu sinni!
Leandro Dinnocenzo – Diseñaron método con luz ultravioleta para eliminar el coronavirus
Aron Már Ólafsson er einn allra efnilegasti leikari þjóðarinnar. Hér ræða hann og Sölvi um systurmissinn, fíknir, leiklistina og fleira.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars hugað að leikritinu Níu líf sem frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu á föstudag en það er helgað ævi og höfundarverki Bubba Morthens. Rætt verður við leikstjórann, Ólaf Egil Egilsson, og einn af leikurum sýningarinnar, Aron Má Ólafsson. Sinfóníuhljómsveit Íslands verður send kveðja en hljómsveitiin varð sjötug í gær, 9. mars. Og Björn Þór Vilhjálmsson fjallar í dag um bækurnar She Said eftir Jodi Kantor og Megan Twohey, og Catch and Kill eftir Ronan Farrow, blaðamennina sem fyrstir flettu ofan af Harvey Weinstein, og hrintu þannig #metoo hreyfingunni af stað. Í bókunum er rannsóknarstarfinu við vinnslu fréttarinnar um Weinstein lýst, og því hversu gríðarflókið og vandasamt það reyndist að afhjúpa áratugalangan kynferðisbrotaferil kvikmyndaframleiðandans. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson
Lífið gengur sinn vanagang, sem er náttúrulega mjög deprímerandi í sjálfu sér, en Skoðanabræður halda sínu striki og biðjast aldrei afsökunar, hvorki innilega né innilegrar. Hér ræða þeir við frægan kóng sem brá út af vananum og hætti á samfélagsmiðlum eftir áramót; þeir höfðu fyllt hausinn hans af nægu eitri, tekið af honum nægar klukkustundirnar af tilgangslausu hangsi og misþyrmt geðheilsunni hans nóg. Hann tók málin í sínar eigin hendur, eins og reyndar er líka sagt sagt þegar samfélagið hrósar sigri yfir því þegar óbreyttur borgari beitir glæpamann ofbeldi. Aronmola hætti á Instagram og varð Aron Már. Það er sem sé strákur vikunnar þessa vikuna, lítill karlmaður, en langt frá því að vera krumpaður eins og klisjan kveður á um. Ásamt því að taka hann tali símleiðis ganga Skoðanabræður að vanda óragir til verks og stinga á helstu kýlum samfélagsumræðunnar; fjölmiðlakrítík, þó að idjótar biðji um annað, tóbaksvandinn, þó að lúserfíklar biðji um annað, rappið, þó að boomerinn biðji um annað. Sem sé ekkert gert til að geðjast, allt saman andóf í einhverri mynd gegn hinu ríkjandi, talað upp ekki niður, sem þýðir líka að „viðskiptarefir“ eru ekki aufúsugestir í hljóðver til Skoðanabræðra, sem hafa bent á betra orð yfir þá – arðræningja. Það er þó svo sem tekið til baka líka, enda augljóslega í grunninn borgaralegt hlaðvarp hér á ferð. Rétt eins og Álfgrímur í Brekkukoti var allur í því að finna hinn hreina tón, eru Skoðanabræður enn að leggja lokahönd á umbreytingaferli það sem hefur í för með sér hljóðbyltingu. Áfram heldur frásögn um margboðað morð á slæmum gæðum. Það er svo sem ekki eins háleitur draumur og það sem bjó í eistunum á Álfgrími forðum, þessi um hreina tóninn, við viljum bara bjóða hlustendum okkar upp á góð gæði, fyrst þeir láta sig hafa þetta yfirleitt. Annað sem við bjóðum hlustendum okkar eru síðan sérkjör hjá fyrirtækjum ýmsum, sem aðeins ósvinnur maður léti framhjá sér fara: Farðu á sambandid.is, gakktu í félagið og fáðu 60 GB af neti í símann þinn frí. Farðu á forlagid.is og kauptu þér bók mánaðarins (nýja lasna skáldsögu eftir Eirík Örn Norðdahl) á 2.990 (grínverð), hvort sem það er á kilju eða í rafbók. Og farðu í símann þinn og AUR-aðu vin þinn 40 þúsund kallinn sem þú skuldar honum.
Markaðurinn og viðskiptageirinn hefur alltaf verið álitinn mjög karllægur og það virðist vera nokkuð raunsæ sýn á þann bransa. Þó eru hlutirnir hægt og rólega að þróast í rétta átt. Mjög hægt og rólega. Kannski of hægt? Tja... 11% forstjóra eru konur og engin kona er skráð yfir fyrirtæki í Kauphöllinni. Skoðum þetta betur. Við tölum um glerþakið. Hvað er það? Nú eða þá glerlyftan eða glerrúllustiginn? Viðmælendur: Lilja Gylfadóttir Þórður Kristinsson Þórey Vilhjálmsdóttir Fríða Björk Ingvarsdóttir Una Torfadóttir Tryggvi Kolviður Sigtryggsson Ella María Georgsdóttir Aron Már Ólafsson
Þegar sjónvarpið hóf útsendingar árið 1966 var algjör „Anchorman“ stemmning á RÚV. En í gegn um tíðina hafa fjölmiðlar verið að fikra sig að því að jafna út kynjahlutfallið sitt. Konur eru samt bara 10% af íþróttafréttamönnum og í almennum fréttum er töluvert oftar talað við karla. Hvers vegna eru konur fengnar í viðtöl fyrir mýkri málefni og karlar látnir tala um pólitík? Og hvar koma samfélagsmiðlar og smellibrelluauglýsingar inn í þetta? Í þætti dagsins er talað um fjölmiðla, samfélagsmiðla, íþróttafréttir og Anchorman. Viðmælendur: Þórður Kristinsson Una Torfadóttir Tryggvi Kolviður Sigtryggsson Ella María Georgsdóttir Kristjana Arnarsdóttir Aron Már Ólafsson
Aron Már Ólafsson eða AronMola þarf vart að kynna fyrir íslenskri þjóð, allavega ekki yngri kynslóðinni þar sem hann hefur birst á símaskjánum okkar um nokkurt skeið. Aron er samfélagsmiðlastjarna á næsta leveli. Hann sigraði Snapchat sem kom honum á kortið með sprenghlægilegum sketsum. Hann étur Instagram í morgunmat. Hann andar að sér internetinu. Aron er leiklistarnemi í Listaháskóla Íslands og hefur leikið í kvikmyndum eins og Fullir vasar, á sviði og nýlega vann hann hug og hjörtu allra í sjónvarpsþáttunum Ófærð. Hann er einn stofnenda félagasamtakanna ‘Allir Gráta’ sem vinna að því markmiði að efla geðheilsu barna og ungmenna á Íslandi. Allir gráta hafa gefið út bókina Tilfinningablær sem er tileinkuð systur Arons sem dó aðeins fimm ára gömul í bílslysi. Aron opnar sig hér um sorgina og hvernig hann setti upp grímu og bældi tilfinningarnar niður. Nú hvetur hann aðra til að tjá sig um tilfinningar sínar Það krefst hugrekkis að berskjalda sig á þennan hátt. Það er styrkleiki að vera viðkvæmur. Instagram @aronmola www.allirgrata.is Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. Rhodiola er vara mánaðarins á Hverslun.is Afsláttarkóðar: Veganbúðin: ragganagli Under Armour: ragganagli Hverslun.is ragganagli20 www.goodgoodbrand.net: ragganagli20 24iceland: ragganagli20
Þáttastjórnendur voru í urrandi Söngvakeppnisgír enda er nú nákvæmlega ein vika þar til fyrri undanúrslitin fara fram í Háskólabíói þann 9. febrúar næstkomandi. Öll fimm lögin á fyrra kvöldinu voru spiluð ásamt öðrum vel völdum smellum úr nútíð og þátíð í bland við fasta liði. Gestir þáttarins voru þau Þuríður Blær Jóhannsdóttir leikkona og rappari sem og Aron Már Ólafsson leikaranemi og samfélagsmiðlastjarna en einnig sá sem fer með hlutverk Víkings í Ófærð 2. Þau ræddu um heima og geima og voru skemmtileg eins og þeim einum er lagið.
Þáttastjórnendur voru í urrandi Söngvakeppnisgír enda er nú nákvæmlega ein vika þar til fyrri undanúrslitin fara fram í Háskólabíói þann 9. febrúar næstkomandi. Öll fimm lögin á fyrra kvöldinu voru spiluð ásamt öðrum vel völdum smellum úr nútíð og þátíð í bland við fasta liði. Gestir þáttarins voru þau Þuríður Blær Jóhannsdóttir leikkona og rappari sem og Aron Már Ólafsson leikaranemi og samfélagsmiðlastjarna en einnig sá sem fer með hlutverk Víkings í Ófærð 2. Þau ræddu um heima og geima og voru skemmtileg eins og þeim einum er lagið.
Veistu hvað er pirrandi að gera sér ferð að kaffikönnu sem er svo tóm!? Gummi og Vigdís velta fyrir sér beinni útsendingu og spennunni, en jafnframt áhættunni, sem fylgir því að sýna líf sitt í beinni. Aron Már Ólafsson, oft þekktur sem Aronmola, deilir reynslu sinni af ólíkum miðlum og ráðum til þáttastjórnenda um hvað þurfi til að halda áhorfendum áhugasömum. Umsjónarmenn: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir Stef: Bjarmi Hreinsson
Veistu hvað er pirrandi að gera sér ferð að kaffikönnu sem er svo tóm!? Gummi og Vigdís velta fyrir sér beinni útsendingu og spennunni, en jafnframt áhættunni, sem fylgir því að sýna líf sitt í beinni. Aron Már Ólafsson, oft þekktur sem Aronmola, deilir reynslu sinni af ólíkum miðlum og ráðum til þáttastjórnenda um hvað þurfi til að halda áhorfendum áhugasömum. Umsjónarmenn: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir Stef: Bjarmi Hreinsson