Podcasts about bjarki bentsson

  • 10PODCASTS
  • 28EPISODES
  • 1h 38mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Aug 23, 2024LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about bjarki bentsson

Latest podcast episodes about bjarki bentsson

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - fimmtudagur 22. ágúst 2024

Bylgjan

Play Episode Listen Later Aug 23, 2024 72:04

Öll viðtölin úr þætti dagsins. Helga Þórisdóttir forstjóri persónuverndar Sara Jasonardóttir verkefnastjóri hjá Umboðsmanni skuldara Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka spáir í spilin Tinna Andrésdóttir lögfræðingur hjá Húseigendafélaginu um helstu kvörtunarefni nágranna Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur haustsláttinn Inga Sæland formaður Flokks fólksins Frosti Logason fjölmiðlamaður og ritstjóri um netsvindl og falsfréttir sem hafa verið birtar af honum á samfélagsmiðlum Auðunn Blöndal um nýja seríu af tónlistarmennirnir okkar sem fer í loftið á sunnudag á Stöð 2  

gu reykjav umbo helgad bjarki bentsson fimmtudagur
Ein Pæling
#315 Jón Bjarki Bentsson - Hvað geta stjórnvöld gert í húsnæðisvandanum?

Ein Pæling

Play Episode Listen Later May 22, 2024 20:02

Þórarinn ræðir við Jón Bjarka en hann er aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Lögð er sérstök áhersla á efnahagsmál og hvaða áhrif húsnæðismarkaðurinn hefur á efnahagshorfurnar næstu árin. Fjallað er um:- Inngrip hins opinbera.- Er peningaprentun hins opinbera stjórnlaus?- Hvaða áhrif hefur ákvörðun Seðlabankans á húsnæðismarkaðinn?- Er möguleiki að lækka stýrivexti án þess að húsnæðisverð fari enn hærra?Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

er hva hla geta bjarka bjarki bentsson
Samfélagið
Verðbólga, vinnsla kynferðisafbrotamála og pistillinn Páls

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 28, 2023 55:00

Verðbólga mælist nú 10,2 prósent og hefur ekki verið svo mikil síðan haustið 2009. Þetta er umfram það sem greiningaraðilar, sem svo eru kallaðir, höfðu spáð og það virðist ætla að verða þrautin þyngri að hemja verðbólguna, sem er auðvitað mikill skaðvaldur. Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka og því einn þessara greiningaraðila - hann sest hér eftir augnablik. VIð ræðum við verkefnastjóra gegn ofbeldi hjá ríkislögreglustjóra, Eygló Harðardóttur hér á eftir - en meðferð þessara mála, ekki hvað síst þeirra sem tengjast kynbundnu ofbeldi og kynferðisofbeldi, hefur tekið töluverðum breytingum síðustu misserin. Á hvaða hátt og með hvaða árangri? Að hverju er stefnt? Eygló fer yfir þetta með okkur. Svo er Páll Líndal umhverfissálfræðingur með sinn pistil í lok þáttar.

svo bjarki bentsson
Samfélagið
Verðbólga, vinnsla kynferðisafbrotamála og pistillinn Páls

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 28, 2023

Verðbólga mælist nú 10,2 prósent og hefur ekki verið svo mikil síðan haustið 2009. Þetta er umfram það sem greiningaraðilar, sem svo eru kallaðir, höfðu spáð og það virðist ætla að verða þrautin þyngri að hemja verðbólguna, sem er auðvitað mikill skaðvaldur. Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka og því einn þessara greiningaraðila - hann sest hér eftir augnablik. VIð ræðum við verkefnastjóra gegn ofbeldi hjá ríkislögreglustjóra, Eygló Harðardóttur hér á eftir - en meðferð þessara mála, ekki hvað síst þeirra sem tengjast kynbundnu ofbeldi og kynferðisofbeldi, hefur tekið töluverðum breytingum síðustu misserin. Á hvaða hátt og með hvaða árangri? Að hverju er stefnt? Eygló fer yfir þetta með okkur. Svo er Páll Líndal umhverfissálfræðingur með sinn pistil í lok þáttar.

svo bjarki bentsson
Spegillinn
Fjölga þarf þyrluflugmönnum, verðbólguhorfur og rannsókn á iktsýki

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 6, 2022

Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra vill fjölga þyrluflugmönnum hjá Landhelgisgæslunni. Það sé óboðlegt að ekki sé hægt að manna áhöfn vegna veikinda starfsmanns. Alma Ómarsdóttir ræddi við hann. Herinn á Sri Lanka hefur fengið fyrirmæli um að skjóta alla sem staðnir eru að verki við lögbrot. Skálmöld er í landinu og útgöngubann, sem stjórnarandstæðingar virða að vettugi. Ásgeir Tómasson tók saman. Kristinn Þorsteinsson, formaður Skólameistarafélags Íslands telur að skólayfirvöld í Flensborgarskóla hafi brugðist eðlilega við líkamsárás á árshátíð skólans í mars. Möguleikar til að reka nemendur séu takmarkaðir. Urður Örlygsdóttir talaði við hann. Maður sem hafði benslað fjöldann allan af rafhlaupahjólum í Reykjavík gaf sig fram við fyrirtækið Hopp í dag og kvaðst hafa gert þetta í mótmælaskyni. Sunna Karen Sigurþórsdóttir talaði við Sæunni Ósk Unnsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Hopps. Á Íslandi hafa um þrjú hundruð manns greinst með lupus. Alþjóðlegum degi sjúkdómsins er ætlað að vekja á honum athygli og vonir standa til að það geti flýtt fyrir greiningum og auðvelda líf þeirra sem af honum þjást. Rebekka Líf Ingadóttir talaði við Hrönn Stefánsdóttur, formann Lupus-hóps Gigtarfélags Íslands. Systur freista þess að komast áfram í Júróvisjón í kvöld. Urður Örlygsdóttir tók saman og talaði við Ellen Kristjánsdóttur og Eyþór Gunnarsson foreldra Systra. ---- Hlutabréf féllu í kauphöllum víða um heim og líka á Íslandi í gær. Stýrivextir voru hækkaðir í síðustu viku um eitt prósentustig og litlar horfur á að þeir lækki í bráð. Seðlabankinn spáir því að verðbólgan sem var 7,2% í síðasta mánuði gæti farið í 8% í haust og líkur á að enn þurfi að herða tökin til að hemja verðbólgu. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, játar því bæði og neitar að við stöndum á tímamótum í efnahagsmálum. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa fundið tengsl áður óþekktra erfðabreytileika við iktsýki í stærstu erfðarannsókn sem gerð hefur verið á sjúkdómnum. Hafdís Helga Helgadóttir settist niður með Sædísi Sævarsdóttur og Ingileif Jónsdóttur. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Gísli Kjaran Kristjánsdóttir.

Play Episode Listen Later May 6, 2022 12:36

Morgunvaktin
Efnahagsmál, heimsglugginn og Rússland

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 28, 2021 130:00

Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir að stór hluti skýringar á hækkun vísitölu neysluverðs milli september og október skýrist af húsnæðisliðnum. Fasteignaverð hefur hækkað um 15% það sem af er ári og útlit fyrir að það hækki áfram. Eitt af stjórntækjum Seðlabanka Íslands í baráttunni við verðbólgu er að hækka vexti og spá greiningardeildir því að bankinn haldi áfram að hækka stýrivexti næstu misseri. Að stýrivextir verði 3,5% árið 2023 sem þýðir að afborganir á lánum sem eru á breytilegum vöxtum hækka til muna. Eitt af því sem fólk getur gert er að festa vaxtaprósentuna með því að nýta sér hversu auðvelt það er að breyta lánum í dag. Að lánamarkaðurinn er neytendavænni en hann var áður. Jón Bjarki telur að verðbólgan haldi áfram að aukast til skemmri tíma litið en síðan hjaðni verðbólga á komandi ári. Ólíklegt sé að 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans verði náð fyrr en á fjórða ársfjórðungi 2022 en verðbólga mæld á 12 mánaða tímabili er nú 4,5%. Bogi Ágústsson fréttamaður settist við Heimsgluggann og fjallaði um bága stöðu SAS flugfélagsins. Það glímir við alvarlegan fjárhagsvanda, ekki síst vegna þess hve hefur dregið úr viðskiptaferðalögum fólks. SAS skilaði hagnaði áður en kórónuveirufaraldurinn braust út en félagið hefur neyðst til þess að segja upp starfsfólki vegna fækkunnar farþega undanfarið eitt og hálft ár. Launaliðurinn vegur þungt en aldur starfsfólks SAS fer hækkandi. Bogi ræddi einnig um valdarán í Súdan og skort á lýðræði í Austur-Evrópu. Valur Gunnarsson rithöfundur er nýkominn heim frá Moskvu en þar var hann að kynna íslenska menningu á vegum ODRÍ, vinafélagi Rússlands, Færeyja og Íslands. Talsvert er þýtt af íslenskum bókmenntum yfir á rússnesku en lítið hefur verið fjallað um rússneska menningu á Íslandi. Það er samtímabókmenntir og aðrar listgreinar. Erfitt er að ferðast til Rússlands og ekki hægt nema þú getir sýnt fram á boð til landsins. Tónlist: Apache með The Shadows, Oft spurði ég mömmu með Ingibjörg Smith og KK sextett. Russian sailors dance, Golden ring. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Morgunvaktin
Efnahagsmál, heimsglugginn og Rússland

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 28, 2021

Þjóðmál
#4 - Efnahagsmál – Ásdís Kristjánsdóttir og Jón Bjarki Bentsson fara yfir stöðuna

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Apr 7, 2021 55:05

Það eru rúmlega 20 þúsund manns á atvinnuleysisskrá, tekjur ríkisins eru um 60% af útgjöldum og skuldir ríkisins hækka verulega og við vitum ekki hvenær hagkerfið tekur við sér. Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, ræða stöðuna í efnahagsmálum og útlitið framundan, það hvort að aðgerðir hins opinbera hafi gert gagn og hvort þær nýtist til lengri tíma, hvort að það sé rétt að 90% hagkerfisins sé í lagi eftir heimsfaraldur og fleira.

kristj yfir samtaka bjarki bentsson
Vikulokin
Elín Björk, Jón Bjarki og Jón Gunnar

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jun 27, 2020 55:00

Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur, Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka og Jón Gunnar Ólafsson ræða meðal annars um mannskæðan eldsvoða í Vesturbæ Reykjavíkur, forsetakosningar á kjördegi, þjóðhagsspár og versnandi efnahagshorfur, veðurspár og sumarið, áhrif kórónaveirufaraldursins á hegðun og okkar og ferðir. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson

bj umsj bjarki anna krist bjarki bentsson
Vikulokin
Elín Björk, Jón Bjarki og Jón Gunnar

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jun 27, 2020

Morgunútvarpið
14. maí - Varasjóður, þjóðhagsspá, útfararþjónusta, auglýsingar og mál

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 14, 2020 130:00

Margir þekkja átakið Á allra vörum sem styrkt hefur ýmis góð málefni undanfarin ár. Nú hefur verið stofnaður svokallaður VARA-sjóður átaksins sem ætlað er að styrkja þá er mest mæðir á í baráttunni við Covid-19. Þeir Elísabet Sveinsdóttir og Gróa Ásgeirsdóttir mættu til okkar og sögðu okkur meira. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, kom til okkar en bankinn birtir í dag nýja þjóðhagsspá og úr henni má lesa að þótt samfélagið verði fyrir hörðum skelli á þessu ári, verður viðsnúningur strax á næsta ári. Útfararþjónusta hefur ekki verið í boði á NV landi fyrr en nýlega en þau hjónin Jón Ólafur Sigurjónsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir stofnuðu á dögunum útfararstofuna Hugsjón og er ætlunin að þjóna allt Norðurland Vestra. Við slógum á þráðinn norður og heyrðum aðeins í Jóni. Valgeir Magnússon, stjórnarformaður auglýsingastofunnar Pipar, kom til okkar en hann er afar ósáttur við að Íslandsstofa hafi fengið breska auglýsingastofu til að sjá um markaðsátakið Ísland - saman í sókn en um 300 milljónir fara í verkefnið. Hann fullyrðir að samkeppnisstaðan sé skökk í útboðinu og að einkunnagjöfin í útboðinu hafi ekki verið sú sem íslandsstofa greindi frá. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kom til okkar fjallaði um íslenskt mál, m.a. það að vera rekinn. Tónlist: Már og Iva - Barn. Grafík - Húsið og ég. Daði - Think about things. Elton John - Rocket Man. Tómas Welding - Lifeline (ft. Elva). Helena Eyjólfsdóttir - Reykur. The La s - There she goes. Baggalútur - Upp í bústað. Simply Red - Moneys too tight to mention.

covid-19 nv vara graf hann upp sigurj margir sveinsd augl anna sigr vestra baggal bjarki bentsson
Morgunútvarpið
14. maí - Varasjóður, þjóðhagsspá, útfararþjónusta, auglýsingar og mál

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 14, 2020

Margir þekkja átakið Á allra vörum sem styrkt hefur ýmis góð málefni undanfarin ár. Nú hefur verið stofnaður svokallaður VARA-sjóður átaksins sem ætlað er að styrkja þá er mest mæðir á í baráttunni við Covid-19. Þeir Elísabet Sveinsdóttir og Gróa Ásgeirsdóttir mættu til okkar og sögðu okkur meira. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, kom til okkar en bankinn birtir í dag nýja þjóðhagsspá og úr henni má lesa að þótt samfélagið verði fyrir hörðum skelli á þessu ári, verður viðsnúningur strax á næsta ári. Útfararþjónusta hefur ekki verið í boði á NV landi fyrr en nýlega en þau hjónin Jón Ólafur Sigurjónsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir stofnuðu á dögunum útfararstofuna Hugsjón og er ætlunin að þjóna allt Norðurland Vestra. Við slógum á þráðinn norður og heyrðum aðeins í Jóni. Valgeir Magnússon, stjórnarformaður auglýsingastofunnar Pipar, kom til okkar en hann er afar ósáttur við að Íslandsstofa hafi fengið breska auglýsingastofu til að sjá um markaðsátakið Ísland - saman í sókn en um 300 milljónir fara í verkefnið. Hann fullyrðir að samkeppnisstaðan sé skökk í útboðinu og að einkunnagjöfin í útboðinu hafi ekki verið sú sem íslandsstofa greindi frá. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kom til okkar fjallaði um íslenskt mál, m.a. það að vera rekinn. Tónlist: Már og Iva - Barn. Grafík - Húsið og ég. Daði - Think about things. Elton John - Rocket Man. Tómas Welding - Lifeline (ft. Elva). Helena Eyjólfsdóttir - Reykur. The La s - There she goes. Baggalútur - Upp í bústað. Simply Red - Moneys too tight to mention.

nv vara graf hann upp sigurj margir sveinsd augl anna sigr vestra baggal bjarki bentsson
Uppáhalds rokkplatan
Jón Bjarki Bentsson

Uppáhalds rokkplatan

Play Episode Listen Later Mar 17, 2020

Gestur þáttarins er Jón Bjarki Bentsson sem velur uppáhalds rokk plötu sína.

gestur bjarki bentsson
Füzz
Jón Bjarki Bentsson - Tool og Radiohead

Füzz

Play Episode Listen Later Mar 13, 2020 143:26

Gestur þáttarins að þessu sinni er Jón Bjarki Bentsson aðal hagfræðingur Íslandsbanka. Hann mætir með uppáhalds ROKKplötuna kl. 21.00 Við fáum lag frá vini þáttarins kl. 19.45 og plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er önnur plata Radiohead, The Bends, sem kom út fyrir nákvæmlega 25 árum. Þessi tímamótaplata kom semssagt út 13. Mars árið 1995 á vegum Parlaphone í Bretlandi og Capitol Records í Ameríku. Upptökustjóri var John Leckie og upptökumaður var Nigel Goodrich sem hefur unnið sem upptökustjóri með Radiohead að öllum þeirra plötum síðan. Og umslagið hannaði maður sem heitir Stanley Donwood sem hefur gert öll umslög Radiohead síðan ásamt söngvaranum Thom Yorke. Það er annar stíll og stefna á The Bends en á fyrstu Radiohead plötunni, Pablo Honey sem kom út 1993. Það er minna Grugg í gangi og annað sánd. Meiri hljómborð og skrýtnari og sérkennilegri gítarar. Það er fullt af lögum á The Bends sem heyrast enn reglulega í útvarpi um allan heim, og fimm laga plötunnar voru gefin út á smáskífum sem náðu inn á vinsældalista, lögin My Iron Lung, High and Dry, Fake Plastic Trees, Just, og Street Spirit (Fade Out) sem er fyrsta lag Radiohead sem náði inn á topp 5 á breska vinsældalistanum. Platan fór hæst í fjórða sæti breska plötulistans en náði ekki þá að fylgja eftir vinsældum lagsins Creep sem er á P Pablo Honey og er enn sungið á söngkeppnum ungs fólks um allan heim. Platan fór t.d. aldrei hærra en í sæti 88 á Bandaríska vinsældalistanum, en hefur síðan selst jafnt og þétt um allan heim og er gríðarlega hátt skrifuð plata almennt. Platan er frábær, fékk frábæra dóma á sínum tíma og Rolling Stone setti hana í 110 sæti yfir bestu plötur allra tíma í lista sem var settur saman árið 2003.

Füzz
Jón Bjarki Bentsson - Tool og Radiohead

Füzz

Play Episode Listen Later Mar 13, 2020

31. jan. - Neyðarlína, þjóðhagsspá, tónleikastaðir, fréttir og hégómi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 31, 2020 130:00

Ekki verður tími fyrir hangs fái íbúar Grindavíkur og nágrennis smáskilaboð í síma sína um að rýma svæðið vegna jarðhræringa. Við ræddum við Tómas Gíslason, aðstoðarframkvæmdastjóra Neyðarlínunnar, um framkvæmdina og áreiðanleika kerfisins þegar kemur að þessu mikilvæga atriði í áætlunum yfirvalda. Krepp­an er ekki hér... sem bet­ur fer, seg­ir í nýrri þjóðhags­spá Íslands­banka fyrir árin 2020-2022. Lífs­kjör séu á flesta mæli­kv­arða orðin jafn­góð eða betri en þau hafi verið fyr­ir banka­hrunið 2008. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur bankans, var gestur Morgunútvarpsins og fór yfir þetta. María Rut Reynisdóttir verkefnastjóri tónlistarborgarinnar Reykjavíkur var á línunni en tónleikastaðir víða um borgina ætla að opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi á morgun. Hún sagði okkur af þessu. Við fórum yfir fréttir vikunnar með Sveinbirni Pálssyni, grafískum hönnuði og blaðamanni hjá Grapevine, og Karen Kjartansdóttur, fyrrum fréttamanni og nú framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar. Freyr Gígja Gunnarsson kom svo í sitt huggulega hégómavísindahorn þar sem verðlaunahátíðir, kóngafólk og James Corden komu við sögu. Tónlist: Mugison - Stingum af. Imelda May - Black tears (ft. Jeff Beck). Simply Red - Something got me started. Jónas Sig. - Dansiði. Vök - Spend the love. Prins Póló - París norðursins. The Black Crowes - Hard to handle. Elvis Costello - Veronica.

Morgunútvarpið
31. jan. - Neyðarlína, þjóðhagsspá, tónleikastaðir, fréttir og hégómi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 31, 2020

19. nóv. - Mæðrastyrksnefnd, efnhagsmál, námslán, gervigreind og vísin

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Nov 19, 2019 130:00

Mótttaka umsókna fyrir jólaúthlutun hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur er hafin og nú þegar hafa margir sótt um. Anna H. Pétursdóttir formaður nefndarinnar kíkti til okkar og sagði okkur frá fyrirkomulagi jólaúthlutana og starfi nefndarinnar sem á sér langa sögu. Íslenskir neytendur hafa meira svigrúm en áður til að halda sínu striki þótt tímabundið blási á móti í efnahagslífinu og á vinnumarkaði. Þetta segir Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, í grein sem birtist á Vísi. Hann var gestur Morgunútvarpsins. Nú liggur fyrir frumvarp til laga um Menntasjóð námsmanna sem ætlað er að koma í stað Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Markmiðið með lögum um Menntasjóð er að tryggja tækifæri til náms án tillits til efnahags og stöðu, með því að veita námsmönnum fjárhagslega aðstoð í formi námslána og styrkja. Stúdentar segja margt jákvætt við breytingarnar, en annað gangi ekki, t.d. breytingar á vaxtakjörum. Þau Jóna Þórey Pétursdóttir, forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands og Marinó Örn Ólafsson, lánasjóðsfulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands fóru yfir þetta með okkur. Gervigreind getur fest hefðir og menningu í sessi. Hún getur gert upp á milli kynja, kynþátta og menningar. Þegar hafa komið upp mörg dæmi eins og í ráðningaferli Amazon og við ný greiðslukort Apple. Við ræddum málin við Sesselju Vilhjálmsdóttur, yfirráðgjafa hjá tæknifjárfestingarbankanum Bryan, Garnier og Co. Sævar Helgi Bragason mætti í vísindahornið og talaði m.a. um áhrif loftslagsbreytinga á börn. Tónlist: Hjálmar - Leiðin okkar allra. Snorri Helgason - Einsemd. Van Morrison - Dark night of the soul. Coldplay - Orphans. Sváfnir Sig. - Fer sem fer. Sycamore Tree - Fire. Tryggvi - Allra veðra von. R.E.M. - Half a world away. Pink - A million dreams.

Morgunútvarpið
19. nóv. - Mæðrastyrksnefnd, efnhagsmál, námslán, gervigreind og vísin

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Nov 19, 2019

Listería, MBA nám, kosningar í DK, þjóðhagsspá og málfar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 6, 2019 130:00

Fyrir skömmu síðan kom upp tilfelli listeríu í laxi hér á landi. En hvað er listería og í hverju getur hún greinst? Við fengum þær Laufeyju Karlsdóttur og Guðrúnu Adolfsdóttur matvælafræðinga hjá Sýni til að segja okkur meira af þessu. MBA nám hefur notið mikilla vinsælda á Íslandi og fólk úr hinum ýmsu ólíku greinum atvinnulífsins hefur sótt slíkt nám hér á landi. Mikil áhersla er lögð á að virkja frumkvæði og forystuhæfileika í náminu sem og tengsl við viðskiptalífið. Svala Guðmundsdóttir, dósent, er stjórnarformaður MBA námsins í HÍ og hún kíkti til okkar í morgunkaffi og sagði okkur aðeins meira frá þessu. Eiríkur Bergmann var á línunni hjá okkur og fór yfir stöðuna í Danmörku eftir kosningarnar þar í landi. Í nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka er spáð samdrætti í ár en 1,5 prósent hagvexti á næsta ári og enn meiri vexti árið 2021. Verðbólga lækkar á spátímanum og vextir seðlabanka verða komnir undir 4 prósent í lok árs. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, var hjá okkur. Anna Sigríður Þráinsdóttir kom til okkar í sitt vikulega málfarsspjall og talaði um safnheiti. Tónlist: Angurværð - Ferðalangar. Mugison - Sólin er komin. Keane - Everybodys changing. Christie - Yellow river. Jónas Sig - Að lokum. Simply Red - Moneys too tight to mention. Friðrik Dór - Hún er alveg með þetta. Lizzo - Juice.

mba gu fer lister bergmann eir fyrir danm mikil lizzo juice anna sigr bjarki bentsson angurv
Morgunútvarpið
Alþingiskór, efnhagsmál, Sinfó, öryggi ferðamanna og íþróttir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Apr 1, 2019 130:00

Við heyrðum í Ingu Sæland, formanni flokks fólksins, en hún er að stofna kór á Alþingi til að létta stemminguna á vinnustaðnum. Lagleysi mun ekki vera nein fyrirstaða og er fyrrverandi þingmönnum og starfsmönnum þingsins einnig boðið að vera með. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, kom til okkar og rýndi í þann efnahagslega veruleika sem blasir við okkur eftir gjaldþrot WOW air og þær uppsagnir sem framundan eru. Í vikunni mun Sinfóníuhljómsveit Íslands spila undir Stjörnustríðsmyndina A New Hope, í Eldborgarsal Hörpu. Hljómsveitin hefur síðustu ár tekið sér eina og eina pásu frá klassíkinni og efnt til öðruvísi tónleika, þar sem hún hefur m.a. leikið tónlist úr ýmsum þekktum kvikmyndum og efnt til samstarfs við ýmsar aðrar hljómsveitir. Árni Heimir Ingólfsson, listrænn stjórnandi Sinfóníunnar, kíkti til okkar í spjall. Magnað myndband náðist þegar stór flóðbylgja myndaðist við Breiðamerkurjökul þegar jökulinn kelfdi og ferðamenn áttu þar fótum fjör að launa. Vissulega mikið sjónvarspil en vekur upp spurningar um öryggi ferðamanna. Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður og jarðfræðingur, ræddi þetta við okkur, en hann vill huga betur að öryggismálum ferðamála. Við fórum yfir íþróttaviðburði helgarinnar með Hauki Harðarsyndi íþróttafréttamanni. Tónlist: Jóhann Helgason - Take your time. Helgi Björnsson - Vængir. Robbie Williams - Jesus in a camper van. Adele - Rumour has it. Skálmöld og Sinfó - Kvaðning. KALEO - Way down we go. Vök - Erase you. Curtis Mayfield - Move on up. Pearl Jam - Daughter. Védís - Blow my mind.

blow new hope erase stj magna brei sinf hlj helgi bj curtis mayfield move bjarki bentsson
Morgunvaktin
Óvissa einkennir horfur í efnhagsmálum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 27, 2019 130:00

Þátturinn hófst á spjalli við Frey Eyjólfsson sem að þessu sinni var staddur í Panama. Hann sagði frá forsetakosningum sem fram fara í landinu í maí en síðustu tveir forsetar hafa blandað eigin viðskiptum og vafstri saman við opinberan rekstur. Mikil spilling hefur einkennt þjóðlífið í Panama en stjórnvöld leggja allt kapp á að kosningarnar fari vel fram. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur greiningar Íslandsbanka, fór yfir stöðu og horfur í efnahagsmálum. Hann segir mikla óvissu ríkja, einkum vegna yfirstandandi kjaraviðræðna. Að mati Jóns Bjarka hefur of mikið verið gert úr líklegum áhrifum hugsanlegs þrots Wow air á efnahagskerfið, þegar hafi verið tekið tillit til nokkurs samdráttar í umsvifum félagsins í hagspám. Vera Illugadóttir sagði frá Zusönu Caputovu sem allt bendir til að verði kjörin forseti Slóvakíu í síðari umferð forsetakosninganna í landinu á laugardag. Hún hefur ekki reynslu af pólitík en hefur barist gegn spillingu með ýmsum hætti og nýtur hylli meðal samlandanna. Ferðamenn sem koma til Íslands með skemmtiferðaskipum eyða að jafnaði um 18 þúsund krónum í hverri höfn. Ný skýrsla um efnahagsleg áhrif skemmtiferðaskipa sýnir þetta. Á síðasta ári voru bein áhrif 9 milljarðar króna og óbeinn ávinningur um 16 milljarðar. Ágúst Ólafsson, fréttamaður á Akureyri ræddi þessi mál við Pétur Ólafsson, hafnarstjóra á Akureyri og formann Cruise Iceland, sem eru samtök hafna og sveitarfélaga sem taka á móti skemmtiferðaskipum. Tónlist: Alltid inom mig - Josefin Nilsson og Totta Naslund Basin street blues - Duke Ellington og Johnny Hodges

Morgunútvarpið
Morgunútvarpið 27. September 2018

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 27, 2018 130:00

Paralympic dagurinn er næsta laugardag, þá getur fólk kynnt sér starfsemi aðildarfélaga Íþróttasambands fatlaðra og prófað hinar ýmsu íþróttir. Þórður Árni formaður Íþróttasambands fatlaðra segir okkur betur af honum hér rétt á eftir. Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri tækni og eignasviðs Keflavíkurflugvallar, verður á línunni. Á dögunum birtist útekt hjá ferðaþjónustuvefnum airhelp þar sem fullyrt var að keflavíkurflugvöllur væri versti flugvöllur í heimi. Pétur J Eiríkisson, sem starfaði hjá Icelandair í áratugi, tók undir þetta í viðtali hjá okkur á þriðjudag og sagði að mistök við stækkun vallarins hefðu grafið undan leiðarkerfi íslensku flugfélaganna og þar með afkomu þeirra. Svo hringjum við alla leið til Úganda þar sem Elíza Gígja Ómarsdóttir, 15 ára reykvísk stúlka er nú stödd við heimildamyndargerð um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Dyggir hlustendur vita auðvitað vel af þessari ferð hennar og það verður spennandi að sjá hvernig henni líst á hinar nýju slóðir. Er harkaleg niðursvefla eða kreppa í kortunum? Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, kemur til okkar en bankinn birti nýja þjóðhagsspá í gær. Ólafia Hrönn Jónsdóttir og Anna Svava Knútsdóttir koma til okkar en þær leika í sýningunni Fly me to the moon sem frumsynd verður á morgun í þjóðleikhúsinu.

Morgunútvarpið
Venesúela, grimmir hundar, týndu börnin og tæknispjall

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 22, 2018 130:00

Venesúelar hafa tekið fimm núll aftan af gjaldmiðli sínum, bólivarnum, vegna óðaverbólgu sem ríkt hefur í landinu um langt skeið. Þá hafa stjórnvöld tilkynnt að laun verði hækkuð um 3.400 prósent. Jón Bjarki Bentsson aðaðlhagfræðingur Íslandsbanka kom til okkar og ræddi þetta við okkur. Alaskan Malamut hundur beit eiganda sinn nýverið í andlit og hendur svo töluverðir áverkar hlutust af og í vor bárust fréttir af því að hundur sömu tegundar hafi bitið dreng í andlitið svo sauma þurfti 80 spor. Við fengum Ástu Dóru Ingadóttur hundaþjálfara til okkar. Guðmundur Fylkisson lögreglumaður sem hefur haft umsjón með að hafa upp á týndum börnum og ungmennum undanfarin ár, segir að ástand þeira sé verra en áður og fleiri þurfi neyðarvistun á Stuðlun nú en síðustu ár. Hann segir að úrræði vanti fyrir þau sem verst séu sett. Guðmundur var á línunni. Guðmundur Jóhannsson kom svo í sitt vikulega tæknifréttaspjall. Að þessu sinni sagði hann okkur frétt frá Kína þar sem Apple og Google komu við sögu. Tónlist: Crosby, Stills and Nash - In my dreams. Rumer - Aretha. Bubbi - Skyttan. Klassart - Örlagablús. Leon Bridges - Beyond. Chicago - Saturday in the park. Svala - For the night. Michael Jackson - Rock with you. Vök - Autopilot. Elvis Costello - Oliver's Army. Hafdís Huld - Last rays of the sun. Arcade Fire - Modern Man.

google apple army gu autopilot stills hann hundar hafd chicago saturday michael jackson rock ingad bjarki bentsson