Normið

Follow Normið
Share on
Copy link to clipboard

Hrátt plebbaspjall um mannlegheit!

Eva & Sylvía


    • Feb 16, 2024 LATEST EPISODE
    • weekly NEW EPISODES
    • 1h 14m AVG DURATION
    • 246 EPISODES


    Search for episodes from Normið with a specific topic:

    Latest episodes from Normið

    Upprif... ekki niðurrif. - Áskriftarþáttur

    Play Episode Listen Later Feb 16, 2024 5:41


    FEBRÚAR WORKSHOP - Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni á normid.is ❤️ Skoðaðu styrkleikana þína, hættu þessu djöfulsins niðurrifi og ÁFRAM GAKK ÞÚ MIKLI SNILLINGUR. Án alls gríns samt þá mættum við öll vera duglegri að skoða hvað er gott við okkur. Ekki flóknara en það. Gerum það núna.

    Rúnturinn - Áskriftarþáttur

    Play Episode Listen Later Feb 12, 2024 6:30


    Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni á normid.is ❤️ Sumir segja að eitt það mikilvægasta í lífinu sé fólkið okkar.. og tengingin sem við höfum við fólkið okkar. Rúnturinn er þitt tækifæri til að taka ísrúnt eða göngutúr eða bara sófachill með þinni manneskju og styrkja sambandið ALLSVAKALEGA. Vinkonur, vinir, mæðgur, mæðgin, feðgar, feðgin, frænkur, frændur, makar... name it. Þessi þáttur er til þess að gera samböndin þín betri og sterkari. Have fuuun

    Framkvæmdu WORKSHOP - Áskriftarþáttur

    Play Episode Listen Later Jan 31, 2024 6:42


    JANÚAR WORKSHOP - Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni okkar á normid.is ❤️Splúnkunútt workshop sem hjálpar okkur að framkvæma. Semsagt hætta að dvelja og ofhugsa og fresta osfrv. Þetta er fyrir öll sem langar að komast skrefinu lengra í lífinu á þessu ári. Jafnvel þessum ársfjórðungi.. er ekki alltaf betra að búta þetta niður?

    Hamingjumettun WORKSHOP - Áskriftarþáttur

    Play Episode Listen Later Jan 31, 2024 7:20


    JANÚAR WORKSHOP - Þú finnur workshopið í fullri lengd í áskriftinni okkar á normid.is ❤️ Flest förum við í gegnum tímabil þar sem allt er í blóma og gleði.. þá hugsum við "vá ég ætla alltaaaf að vera svona".. svo gerist lífið. Áður en maður veit af er maður kominn í vesenið eina ferðina enn. Það er náttúrulega bara óraunhæft að vera alltaf í toppstandi, en það er ágætt að grípa í leiðir til þess að ná sér til baka í hamingjuna og gleðina. Hér höfum við akkúrat svoleiðis workshop. 

    Normið ÁSKRIFT - Upplýsingar

    Play Episode Listen Later Dec 27, 2023 3:32


    Hvað verður inni í áskriftinni? Ja, gott að þú spurðir. Hér færðu svarið. See you on the flip side!

    hva uppl skrift normi
    239. Kveðjustund

    Play Episode Listen Later Dec 15, 2023 117:31


    Elsku hjartans bestu hlustendur. Hér líður Normið að lokum. ❤️ Við fórum yfir farinn veg, spiluðum ógeððððslega fyndna klippu, ræddum framhaldið og svo var þarna dassss af tilfinningarússíbana. Við eigum erfitt með að skrifa lýsingu hér fyrir þennan þátt, enda hægara sagt en gert að súmma upp 5 ár af snilld með ykkur. Við gátum ekki alveg sleppt af ykkur takinu samt og verðum með klikkað efni í áskrift strax eftir áramót. Skottastu á normid.is og skráðu þig í áskrift með okkur elsku litli plebbaskítur. SEE YA BAYBAY

    normi
    238. Halldóra Geirharðs - "Aldrei hætta að vera forvitin"

    Play Episode Listen Later Dec 12, 2023 79:42


    *Prentmiðlar og fjölmiðlar hafa ekki leyfi til þess að skrifa upp úr þessu viðtali nema sérstakt leyfi sé gefið af Halldóru sjálfri* Halldóra Geirharðs hefur verið á bucketlistanum okkar yfir viðmælendur í langan tíma og því er einstaklega vel við hæfi að hún sé okkar síðasti viðmælandi. Margt fólk sem hefur komið til okkar í Normið hefur haft orð á því hversu mikil fagkona og viskubrunnur hún er. Við erum hjartanlega sammála því. Okkur þótti óendanlega vænt um að fá að kroppa í huga Halldóru - njótið vel kæru hlustendur. Þessi fer á dýptina. 

    237. Sniglumst beinustu leið út úr hjarðhegðuninni!

    Play Episode Listen Later Dec 6, 2023 94:55


    Næææstum því síðasti þátturinn sem við gefum út kæru uppáhalds hlustendur. Við ákváðum að taka létt spin á "snail girl era" pælinguna, hjarðhegðunarvesenið sem myndast óhjákvæmilega í samfélaginu og svo kom dass af umræðu um "delayed gratification" eða seinkun á verðlaunum. Hvernig getum við í ósköpunum þjálfað með okkur smá sjálfsaga og losnað við þessa quick fix stemningu? 

    236. "Það er hægt að sigrast á fíkn" - Magdalena Sigurðar

    Play Episode Listen Later Dec 1, 2023 94:39


    2012 þurfti Magdalena Sigurðardóttir að horfast í augu við sinn alkóhólisma. Í dag hefur hún verið edrú í 11 ár og er alþjóðavottaður fíkni og fjölskylduráðgjafi ásamt því að starfa hjá Samhjálp. Þetta viðtal hitti okkur beint í hjartað og er okkur virkilega dýrmætur. Hlustum, lærum og förum í gegnum desember með frið í hjarta. ❤️  Þau sem vilja styrkja mikilvægt starf Samhjálpar geta gert það hér. 

    235. "Þetta er ekki svona alvarlegt" - Katla Margrét

    Play Episode Listen Later Nov 29, 2023 90:00


    Yndislega og hæfileikaríka leikkonan hún Katla Margrét kom í spjall til okkar og vá hvað er gott að spjalla við þetta eðaleintak. Hún hefur auðvitað komið að óteljandi verkefnum, starfar sem leikkona í Borgarleikhúsinu og leikur næst hlutverk í mjöög spennandi seríu sem kemur út eftir áramót og kallast Kennarastofan. Við ræddum leiklistina, skólakerfið, áramótaskaupið, sturlað fyndna sketsa úr Stelpunum og allskonar þar á milli! Njótið elsku hlustendur ❤️

    234. Eyþór Ingi - "Einlægni afvopnar alla gagnrýni"

    Play Episode Listen Later Nov 17, 2023 107:02


    Deeejókaðu hvað þessi þáttur er mikið eyrnakonfekt. Við elskum hrá spjöll um mannlegheit sem enda samt einhvernvegin í plebbatöktum og hláturskasti.  Eyþór Ingi er auðvitað eitt mesta hæfileikabúnt landsins og var ungur þegar hann byrjaði að leyfa þjóðinni að njóta viðveru sinnar. Kæri hlustandi, við stórgræddum á því hlusta á Eyþór og það munt þú gera líka. NJÓTUM ❤️

    233. Heilsukvíði - Ási sálfræðingur frá Kvíðameðferðarstöðinni

    Play Episode Listen Later Nov 14, 2023 80:21


    Mörg finnum við fyrir allskonar kvíða á lífsleiðinni og okkur þótti mikilvægt að ræða aðeins heilsukvíða í samhengi við síðasta þáttinn okkar, viðtal við stofnendur Intuens. Í fyrsta skipti hefur einstaklingurinn öðruvísi vald yfir upplýsingum um eigin heilsu og þess vegna er eðlilegt að velta fyrir sér hvernig áhrif þetta hefur allt saman á manneskjuna.  Við ræddum líka félagsfælni og kvíða almennt og hvernig sé hægt að vinna í að losa sig úr vítahringnum sem myndast þegar hausinn fær að hlaupa taumlaust úr á kvíðatúnið.  Ási, eða Ásmundur Gunnarsson, starfar sem sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni og hans áhugasvið liggur meðal annars í þráhyggju og áráttuhegðun. Hann er ekki bara fáránlega fróður um málefnið heldur líka bara mjög skemmtileg manneskja. Úr varð þessi negluþáttur sem flestir verða að hlusta á! 

    232. Intuens - Framtíð heilsu þinnar

    Play Episode Listen Later Nov 10, 2023 84:16


    Þau Torfi og Steinunn eru meðstofnendur Intuens. Þetta spennandi fyrirtæki býður upp á byltingarkenndar breytingar hvað varðar heilsu og heilbrigðiskerfi þjóðarinnar. Hjá Intuens getur þú bókað þig í heilskanna og fengið að sjá stöðuna á þínum eigin líkama, án þess að þurfa að bíða eftir samþykki annars staðar frá.  Þegar kemur að heilsunni, þá er þekking máttur. Intuens er fyrirtæki sem nýtir sér nýjustu segulómtækni, gervigreind og tölvugreiningar frá Philips til að varpa ljósi á ýmsa kvilla og sjúkdóma.  Kynntu þér málið á intuens.is eða á intuenshealth

    231. "Alexa, Turn off my brain"

    Play Episode Listen Later Oct 31, 2023 83:10


    Í þessum þætti ræðum við hvernig við getum tekist á við hátt Cortisol stig, en cortisol er auðvitað aðal streituhormónið í líkamanum. Hvernig hefur það áhrif á líf okkar í daglegu lífi?  Hvernig lítur lífið út þegar það er ekki óregla í taugakerfinu? Hér er á ferð mikilvægur þáttur fyrir þau sem að langar að taka streituna föstum tökum og mögulega finna þetta blessað jafnvægi!

    230. Benni Vals og Fannar Sveins - "Það sem er fyndið, er fyndið."

    Play Episode Listen Later Oct 24, 2023 83:57


    Tveir öðlingar mættu með okkur í stúdíóið og úr varð þessi stórkostlegi þáttur. Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson eru þekktir fyrir að framleiða snilld og flest þekkjum við Hraðfréttir sem hristu skemmtilega upp í Kastljósinu fyrir nokkrum árum síðan.  Þessa dagana eru þeir meðal annars að vinna að því að framleiða Áramótaskaupið okkar allra - sem undirstrikar hvað þeir eru fáránlega hæfileikaríkir í sínu fagi.  Kæru landsmenn, góða skemmtun.  

    229. Allir eru smá delulu

    Play Episode Listen Later Oct 14, 2023 97:05


    Skoðum hversu veruleikafirrt, eða dululu, fólk getur almennt verið. Við ræddum svokallað "girl math" og "boy math" sem er út um allt á tiktok og öðrum miðlum þessa dagana. En er mögulega sálfræðilegur ávinningur við það að vera delulu? Perhaps maybe.

    228. GDRN - "Þessa dagana er ég bara að gera mitt besta"

    Play Episode Listen Later Oct 6, 2023 92:11


    *Prentmiðlar og fjölmiðlar hafa ekki leyfi til þess að skrifa upp úr þessu viðtali nema sérstakt leyfi sé gefið af Guðrúnu sjálfri Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem tónlistar-töffara-sleggjan GDRN, kom til okkar í hrátt og skemmtilegt viðtal og mikið var gott að sitja með henni og spjalla um lífið. Njóttu vel kæri hlustandi, þessi er extra ljúfur. 

    227. Pressudetox

    Play Episode Listen Later Sep 29, 2023 96:03


    Innri pressan, samfélagið, ramminn, reiðin, fáránleikinn... gaaaman. Af hverju förum við ekki bara í gegnum lífið í kyrrðinni og rólegheitunum?  Pressan sem við setjum á okkur er stundum svolítið fyndin og mjög oft þreytandi. Skoðum þetta. 

    226. Danni Sæberg um missi - “Sterkt hugarfar kemur þér í gegnum hvað sem er”

    Play Episode Listen Later Sep 22, 2023 76:00


    Daníel Sæberg hefur gengið í gegnum það sem að við óttumst mörg mest. Hann talar einlægt um barnsmissi og hvernig hann tekst á við sorgina. Þessi þáttur er þess vegna algjör viskubrunnur af fallegum einlægum ráðum og það voru mikil forréttindi að fá að læra af hans sýn á lífið í gegnum þessa erfiðu upplifun. Hugarfarið hans Danna er aðdáunarvert, hlustum og lærum. ❤️ Þú getur fylgst með Danna hér: @dannisaeberg 

    225. Hvers vegna ertu að ströggla í lífinu? - Wound Mapping

    Play Episode Listen Later Sep 15, 2023 124:09


    Við tókum fyrir svokallað Wound Mapping í þessum þætti. Virkilega áhugaverðar pælingar um hvaða sár stjórna hegðuninni okkar í daglegu lífi. Þú vilt kafa veeeeel í þennan.

    224. Halla Tómasdóttir - "Auðmýkt er grunnurinn að góðum leiðtoga"

    Play Episode Listen Later Sep 8, 2023 99:26


    Gott fólk! Halla Tómas kom til okkar í vægast sagt stórkostlegt spjall. Eins og flestum er kunnugt er Halla forstjóri B Team og ein af stofnendum Auður Capital. Hún gaf á dögunum út bókina "Hugrekki til að hafa áhrif" sem við mælum með að allir kynni sér! Þessi áhrifaríki þáttur má einfaldlega ekki framhjá þér fara. Búðu þig undir ALVÖRU INNBLÁSTUR. 

    223. Einar Carl frá Primal - Tökum einföld skref í átt að heilbrigði

    Play Episode Listen Later Aug 31, 2023 77:14


    Vá hvað þetta var eye opening þáttur. Hollt og gott spjall en samt smá blaut tuska. Góð blanda.  Einar Carl er flestum kunnugur sem stofnandi Primal. Hann lenti í snjóbrettaslysi fyrir þónokkrum árum og kennir nú fólki að taka fulla ábyrgð á eigin ástandi til þess að öðlast frelsi í eigin líkama.  Í Primal er hægt að nálgast einkatíma í verkjaútrýmingum, stoðkerfisvandmálum, æfingamarkmiðum tengdum líkamsþyngdarstyrk, liðleika og streitustjórnun. Auk þess kennir Einar Movement tíma, Sigrum streituna grunnnámskeið og framhald.

    222. Óútskýranlegar tilfinningar. Tengiru?

    Play Episode Listen Later Aug 25, 2023 86:06


    Hvað er Monachopsis? Jouska?  eða Vellichor? Tja.. þegar stórt er spurt!  Lífið er fullt af allskonar upplifunum og tilfinningum sem allir finna.. en enginn kann að útskýra. Ræðum. 

    221. Ási - "Það er svo auðvelt að sleppa því að vera leiðinlegur"

    Play Episode Listen Later Aug 18, 2023 81:51


    Ásgrímur Geir Logason, eða Ási eins og við þekkjum hann flest, er frægur fyrir frábæru podcöstin sín og snillatakta á tiktok, auk þess er hann frábær leikari og yndisleg manneskja í gegn.  Þú kannast eflaust við podcöstin Betri Helmingurinn og Heitt á Könnunni en Ási er stjórnandi þeirra beggja. Við fórum um víðan völl með Ása og ræddum meðal annars æskuna, leiklistina, góðmennskutakta og podcast-rekstur. Hann er líka ekkert að grínast með hlaðvarpsferilinn því hann var að gefa út nýtt og spennandi podcast með kærustunni sinni nýlega!   Nú skulum við öll kynnast manninum sem tekur viðtal við alla aðra. Heldur betur kominn tími til. Þú getur fylgst með Ása og öllu brillinu sem hann framkvæmir hér. 

    220. No F*cks Left To Give

    Play Episode Listen Later Aug 7, 2023 75:25


    Þetta er allt í titli þáttarins gott fólk. Hentum í einn veeel léttan þátt og tókum lífinu extra óalvarlega. Eru ekki allir annars bara að jafna sig eftir Verzlunarmannahelgina...

    219. Aron Mola vol 2

    Play Episode Listen Later Jul 28, 2023 111:03


    Einn extra hrár og dass brútal með meistara Aron Mola! Þið kæru hlustendur senduð okkur margar beiðnir um að fá Aron aftur í spjall og að sjálfsögðu skelltum við í þessa veislu. N'joy! 

    218. Edda Björgvins - "Húmor og gleði í lífinu er dauðans alvara"

    Play Episode Listen Later Jul 21, 2023 98:07


    *Prentmiðlar og fjölmiðlar hafa ekki leyfi til þess að skrifa upp úr þessu viðtali nema sérstakt leyfi sé gefið af Eddu sjálfri* *Umræðuefnið gæti valdið óþægindum hjá einhverjum, gefum hér með trigger warning* Gersemin okkar allra hún Edda Björgvins kom í fallegasta viðtal sem við höfum tekið frá upphafi. Við spjölluðum um gleði, húmor, geðheilbrigðismál, fíkn, sálgæslunámið hennar Eddu og margt þar á milli. Við ræddum líka mikilvægi þess að grípa fólk sem fer í gegnum alvarleg áföll og sérstaklega þau sem missa nákominn aðila úr sjálfsvígi.  Það er mikið hægt að læra af Eddu og hennar sjónarhorni á lífið. Hlustum og lærum. ❤️

    umr eddu edda bj alvara
    217. Uppeldi - Agi eða mýkt?

    Play Episode Listen Later Jul 14, 2023 72:00


    Jæja.. foreldraþrots þáttur síðustu viku fór eins og eldur um sinu og foreldrar um allt land tengdu mikið! Nú tökum við round 2 af þessari umræðu og skoðum leiðir til að sjá önnur sjónarhorn og líða betur með þetta allt saman. Sumarfríið er að fara misvel með fólk, við sendum ykkur sterka strauma! WE GOT THIS. 

    foreldrar
    216. Foreldraþrotið góða!

    Play Episode Listen Later Jul 7, 2023 98:23


    Gleðilegt sumarfrí með elsku börnunum! Þessi þáttur er sérstaklega gerður fyrir foreldra landsins. Mömmur, pabba, stjúpforeldra, skáforeldra, forráðamenn, verðandi foreldra, aukaforeldra, ömmur, afa, jafnvel frænkur og frændur.. Hlustum, hlægjum, lærum og slökum. 

    roti gle foreldrar
    215. Þórey Vilhjálms frá Empower! - Frumkvöðlaserían

    Play Episode Listen Later Jun 30, 2023 89:00


    Haldið ykkur fast krakkar, þessi er negla. Síðasti þáttur Frumkvöðlaseríunnar!  Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé er ein af stofnendum Empower, hugbúnaðarfyrirtæki sem snýr að alls herjar vitundavakningu í jafnréttismálum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Við ræddum jafnréttismál, vinnustaðarmenningu, mikilvægi góðs andrúmslofts innan fyrirtækja, kvennakraft og allskonar djúsí þar á milli. 

    214. "Það er erfitt að breyta peningum í hamingju." Georg Lúðvíksson - Frumkvöðlaserían

    Play Episode Listen Later Jun 23, 2023 81:32


    Georg Lúðvíksson, meðstofnandi Meniga, kom í virkilega skemmtilegt og fróðlegt viðtal í Frumkvöðlaseríuna! Hann hefur marga frumkvöðlafjöruna sopið og hefur mikla reynslu sem við fáum öll að læra af í þessum þætti. Við ræddum meðal annars heimilisbókhaldið, peningauppeldi, fjármálahegðun og margt fleira fáránlega nytsamlegt. Ef þú ert í veseni með sambandið þitt við peninga, eða vilt bara efla góða fjármálastöðu, þá veeerður þú einfaldlega að taka þér tíma í að hlusta.  

    laser ef georg hann meniga erfitt
    213. Margrét Anna - Með áhrifamestu frumkvöðlum á heimsvísu. - Frumkvöðlaserían

    Play Episode Listen Later Jun 20, 2023 64:48


    Viðmælandi þáttarins er Mar­grét Anna Ein­ars­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri og stofn­andi hug­búnaðarfyr­ir­tæk­is­ins Justikal. Margrét er ásamt Katrínu Jak­obs­dótt­ur for­sæt­is­ráðherra á lista  NBC yfir 23 áhrifa­mestu kven­frum­kvöðla í stjórn­mál­um og viðskipt­um á heimsvísu.  Virkilega áhrifaríkt, skemmtilegt og lærdómsríkt spjall við konu sem allir geta lært af. Ekki láta 4. þátt Frumkvöðlaseríunnar framhjá þér fara!   

    212. SMITTEN - Davíð Örn og Ásgeir Vísir. "Það er enginn góður í neinu í fyrsta skipti" - Frumkvöðlaserían

    Play Episode Listen Later Jun 9, 2023 83:04


    Þessi þáttur er með þeim skemmtilegri sem við höfum tekið upp! Það er endalaust hægt að læra af þessu öfluga frumkvöðlateymi. Ásgeir Vísir og Davíð Örn eru stofnendur Smitten stefnumótaappsins og búa báðir yfir eiginleikum sem gera þá vægast sagt óstöðvandi. Hlustum, lærum, hlægjum, njótum! 

    211. Ertu með góða hugmynd? - Frumkvöðlaserían

    Play Episode Listen Later May 30, 2023 96:23


    Ef þú ert með hugmynd í maganum, þarft þú að heyra þennan þátt.  Hér höfum við þátt 2 í Frumkvöðlaseríunni! Þátturinn er tvískiptur. Fyrst tókum við gott spjall við Unu Steinsdóttur, Framkvæmdastjóra viðskiptabanka Íslandsbanka. Við ræddum meðal annars liðsheild og hvað skiptir máli þegar sótt er um styrk í Frumkvöðlasjóð ÍSB.  Seinni hálfleikur þessa þáttar er spjall við þau Ástu Sóllilju Guðmunds, framkvæmdastjóra KLAK, og Frey Friðfinns, verkefnastjóra hjá KLAK. Fyrir þau sem ekki vita, er KLAK nýtt heiti Icelandic Startups. Þau Ásta og Freyr vita meira en margir þegar kemur að frumkvöðlastarfi og það er ómetanlegt að fá að heyra þeirra innsýn.   

    210. Hvernig á að forðast dýrkeypt mistök? - Frumkvöðlaserían

    Play Episode Listen Later May 23, 2023 101:51


    Fyrsti þáttur af Frumkvöðlaseríunni gott fólk! Þessi sería mun innihalda viðtöl við fólk sem hjálpar frumkvöðlum að ná árangi, fjárfesta og fólk sem hefur náð árangri í frumkvöðlalífinu. Við fáum að vita hvernig ferlið er, hvað þetta flotta fólk gerði til þess að ná langt með hugmyndina sína, hvað getur farið úrskeiðis og aaallt þar á milli.  Í þessum byrjunarþætti förum við Eva og Sylvía í gegnum okkar reynslu ásamt því að skoða 5 merki sem gefa það til kynna að þú sért tilbúin/n/ð í frumkvöðlastarf, hvað er mikilvægt að hafa í huga þegar kemur að Branding, hversu fast þarf að skrúfa hausinn á herðarnar...:) og margt annað mikilvægt. LETSGO

    209. Ragga Gísla - Gyðjur og Gaman!

    Play Episode Listen Later May 12, 2023 85:53


    Lifandi goðsögnin, Ragnhildur Gísladóttir, gyðjan okkar allra, Ragga Gísla!!! kom í viðtal til okkar. Við staðfestum hér með að Ragga er algjör bucket list viðmælandi og við springum úr þakklæti fyrir góða spjallið sem við áttum. Hér er stórkostlegur þáttur á ferð - og þú, kæri hlustandi, verður að hlusta á þennan frá A-Ö. 

    ragga gaman ragnhildur g ragga g
    208. Fýlustjórnun er lúmskt helvíti

    Play Episode Listen Later May 5, 2023 97:07


    Gamla góða silent treatment. Oj. Við gerum þetta öll á einhverjum tímapunkti og við lendum líka öll í þessu einhverntíman. Það er klárlega þess virði að skoða hvernig áhrif þetta hefur og hvernig við getum losað okkur við afleiðingar af þessu lúmska helvíti. :) 

    207. Glugginn inn í gleðina

    Play Episode Listen Later Apr 28, 2023 79:45


    Mikið þykir okkur vænt um þennan þátt kæru hlustendur. Við óvart deildum svolítið miklu persónulegu.. Umræðuefnið var semí tilfinningaleg flatneskja og við skoðuðum AUÐVITAÐ leiðir til að finna fyrir betri og bjartari og ríkari tilfinningum. Skemmtilegur og hrár þáttur - coming right up! 

    206. Anna Þóra - Haven Rescue Home

    Play Episode Listen Later Apr 25, 2023 93:57


    Anna Þóra rekur Haven Rescue Home sem er heimili í Kenýa fyrir ungar mæður á aldrinum 12-18 ára og börnin þeirra. Við tökum fram að þessi þáttur er átakanlegur á köflum og mögulega trigger fyrir einhverja.  Það er ótrúlega margt hægt að læra af þessu viðtali og við hvetjum sem flest til að hlusta.  Anna Þóra rekur þetta fallega starf með styrkjum og þess vegna mikilvægt að hver sá sem sér sér fært um að styrkja láti verða að því.  Styrktarreikningur fyrir Haven Rescue Home er 0537-14-407270, kt. 450315-1760. 

    205. Svona losar þú stress úr líkamanum - Somatic vol. 2

    Play Episode Listen Later Apr 17, 2023 83:34


    Það er svo innilega mikil synd að lifa lífinu með trauma og drasl í líkamanum og taugakerfinu. Drasl sem heldur aftur af manni og skemmir lífsgleðina. Hristum þetta út með allskonar æfingum og lets LIVE A GOOD LIFE BABY

    somatic svona losar stress r
    204. DILJÁ - "Þú ert bara skugginn sem enginn sér"

    Play Episode Listen Later Apr 7, 2023 77:10


    Diljá stórstjarna og Eurovision-negla Íslands kom í viðtal í Normið og þetta er ekkert annað en stórkostlegur þáttur gott fólk. Njótum páskanna, hlustum á viðtalið, tökum Diljá okkur til fyrirmyndar og eigum næs líf. Ekki flókið. Hún er án gríns ein mesta þruma sem við höfum hitt og við getum ekki beðið eftir að fylgjast með henni rokka Eurovision og lífið! 

    203. Hreimur - "Ég er með ofnæmi fyrir neikvæðni"

    Play Episode Listen Later Mar 31, 2023 77:59


    Haldið ykkur fast gott fólk! Þjóðargersemin Hreimur Örn Heimisson kom í stúdíóið til okkar og við fengum að skyggnast inn í hans sjónarhorn á lífið. Þetta verður þú að heyra. 

    fyrir haldi heimisson
    202. It's Glow Up time baby!

    Play Episode Listen Later Mar 24, 2023 71:56


    Hér er einn léttur og ljúfur Glow Up þáttur um allskonar sem okkur finnst þess virði að skoða til þess að uppfæra lífið. Sökkvum okkur ofaní þennan júmmelaði þátt og finnum glow-ið. 

    201. Lokaþáttur - ADHD serían

    Play Episode Listen Later Mar 21, 2023 110:26


    Að sjálfsögðu er viðeigandi að loka þessari ADHD seríu með dúndur lokaþætti með allskonar spurningum og pælingum frá YKKUR kæru hlustendur. Takk fyrir viðbrögðin við þessari seríu, þetta er greinilega eitthvað sem við þurftum flest að skoða. :) Án ykkar væri ekkert Norm.  Í þessum þætti skoðuðum við meðal annars RSD eða Rejection Sensitive Disorder, spjölluðum aðeins um ADHD barna og ræddum allskonar skipulagstækni pælingar.   

    200! SPRENGJUM UPP NORMIÐ

    Play Episode Listen Later Mar 4, 2023 95:02


    ÞÁTTUR NÚMER 200 gott fólk!!! Við Eva og Sylvía tókum einn extra hráan þátt í tilefni þess og ræddum hvernig okkur finnst að það megi sprengja upp þetta blessaða norm sem mótar okkur flest. Okkur varð smá heitt í hamsi.. en hvað er það á milli vina.. :)  (Þessi þáttur er örstutt hlé á ADHD seríunni) 

    199. Dóra Jóhanns - "Ég ber ábyrgð á mínu jafnvægi"

    Play Episode Listen Later Feb 24, 2023 92:34


    Við fengum Dóru Jóhanns leikkonu, handritshöfund og stofnanda Improv skólans í ótrúlega gott spjall. Fórum að sjálfsögðu yfir ADHD pælingar vegna þess að Dóra er greind með ADHD, en við skoðuðum líka allskonar eins og sjálfsvinnu burnout, spuna, alkóhólisma og aaallt þar á milli. Njótið vel! Þetta er laufléttur partur af ADHD seríunni, höldum áfram - fulla ferð! 

    198. Sambönd og samskipti - ADHD serían

    Play Episode Listen Later Feb 17, 2023 88:10


    Framhald á ADHD seríunni sem tröllríður öllu þessa dagana!! Sko... samskipti eru krefjandi yfir höfuð, hvað þá ef einstaklingar eru að eiga við athyglisbrest. Skoðum hvernig samskipti og sambönd geta verið með ADHD inni í jöfnunni og hvað er gott að hafa í huga! :)  Þetta var ágætlega hrátt og berskjaldað spjall hjá okkur Evu og Sylvíu. Við kunnum svo að meta ykkur elsku hlustendur. Takk fyrir að vera með okkur í þessu.. að tengja, hlægja, gráta og garga saman. 

    197. Anna Tara doktorsnemi - ADHD serían

    Play Episode Listen Later Feb 15, 2023 106:02


    Við höldum áfram með ADHD seríuna! Anna Tara Andrésdóttir doktorsnemi við Háskólann í Barcelona kom í virkilega gott símaviðtal. Í hennar námi leggur hún sérstaka áherslu á konur með ADHD en í viðtalinu fórum við um víðan völl og töluðum meðal annars um margar mýtur sem fylgja ADHD umræðunni.  

    Bohéme húsið - Upplýsingaþáttur

    Play Episode Listen Later Feb 12, 2023 71:23


    Eins og margir vita erum við Eva og Sylvía eigendur vefverslunarinnar boheme.is. Við fáum daglega fyrirspurnir varðandi hráefnin og blöndurnar sem við seljum í Bohéme Húsinu og ákváðum þess vegna að skella í einn aukaþátt til upplýsinga. Hér fyrir neðan getur þú séð mismunandi flokka og tímasetningar og hlustað á partinn sem höfðar til þín.  Einbeiting, Fókus og orka 01.37 Mind Over Matter 01.45 Blue Me Away 12.24 Slay All Day 16:00  Lions Mane 07.00 Jafnvægi og streita 21.05 Do not Disturb 21.12 Chill The F Out og Ashwagandha 27:15 Stop Your Wine-ing 32.35 Gott fyrir líkamann/þarmaflóru 57:50 Follow Your Gut 57:50  Chlorella 1.00.45 Hormónakerfið 39:40 Seal The Deal 39.40 Shatavari  45:00 Cordyceps  47.00 Meðganga og brjóstagjöf 49:09 Meet My Wombmate 49.09 Milky Way 51:30 I Beg Your Postpartum 55:15 Umræða um meðgöngu og aðlögunarefni 56.05 Betri Húð  01.02.50 Glow getter 01.02.50 You Dew You 01.06.00 Umræða um nýju Ancient Brave línuna í lokin Collagen og MCT Olía  

    196. Haraldur Erlendsson geðlæknir - ADHD serían

    Play Episode Listen Later Feb 10, 2023 94:27


    Það er komið að því kæru hlustendur! Fyrsti þáttur hinnar margumbeðnu ADHD seríu er kominn í loftið. Þessi umræða brennur á mörgum og við byrjuðum á því að eiga gott spjall við Harald geðlækni, en ADHD er eitt af hans helstu áhugasviðum. Hér er stútfullur þáttur af upplýsingum sem gætu breytt miklu fyrir marga. Letsgo. 

    195. "Kuldinn er spegill" - Andri Iceland

    Play Episode Listen Later Jan 27, 2023 78:04


    Heyrðu vá hvað við þurfum mörg á því að halda að heyra þennan þátt, taka upplýsingarnar til okkar og Í ALVÖRU nýta þetta allt saman í eigin lífi. Andri stendur líka fyrir virkilega flottri Heilsuráðstefnu sem verður 18. febrúar í Hörpu, þú getur lesið meira hér: https://tix.is/en/event/14492/breath-cold-stress-resilience-conference/

    Claim Normið

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel