Podcasts about steind

  • 53PODCASTS
  • 754EPISODES
  • 1h 25mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • May 12, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about steind

Show all podcasts related to steind

Latest podcast episodes about steind

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - mánudagur 12. maí 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 12, 2025 86:43

Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Runólfur Ágústsson, verkefnastjóri (áður stjórnarmaður í fluglestinni þróunarfélagi um lestarsamgöngur) Sigurjón Þórðarson, þingmaður flokks Fólksins og formaður atvinnuveganefndar Símatími Andrés Jónsson almannatengill og hlaðvarpsstjórnandi Bakherbergisins  Stefán Þór Steindórsson, formaður félags byggingafræðinga Brynjólfur Sveinn Ívarsson lögfræðingur og Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna um leigubílasvindlara Bjarki Sigurðsson, fréttamaður - okkar maður í Basel í Sviss - er með puttann á púlsinum?

Poppland
Mikið mánudagsfjör

Poppland

Play Episode Listen Later Mar 31, 2025 195:00

Margrét og Lovísa stóðu vaktina í Popplandi þennan síðasta dag marsmánaðar. Fjölbreytt og skemmtileg tónlist að vanda, póstkort frá Brynju Rán og Steindóri Snorrasyni og plata vikunnar kynnt til leiks: Everyone Left með hljomsveitinni Oyama. Ragnhildur Gísladóttir - Draumaprinsinn. MGMT - Kids. Salka Sól Eyfeld - Tímaglas. Halli og Laddi - Gibba gibb. Oyama hljómsveit - Cigarettes. Stuðmenn, Grýlurnar - Reykingar. HOT CHIP - Dancing In The Dark. SAM SMITH FT. KIM PETRAS - Unholy. AMII STEWART - Knock On Wood. HRAUN - Thunderball. RAZORLIGHT - Golden Touch. Ásdís, Purple Disco Machine - Beat Of Your Heart. Francis, Neal, Say She She - Broken Glass. Balu Brigada - The Question. Tempest, Kae - Statue in the Square. Sting, Shaggy - Til A Mawnin. Daniil, Birnir - Hjörtu. KYLIE MINOGUE - Can't Get You Out Of My Head. CeaseTone - Only Getting Started. Una Torfadóttir - Fyrrverandi. Bubbi Morthens, Friðrik Dór Jónsson - Til hvers þá að segja satt?. EDWARD SHARPE & THE MAGNETIC ZEROS - Home. Elín Hall, RAVEN - fyllt í eyðurnar (lifandi flutningur í Hljóðriti). Hozier - Too Sweet. GARY NUMAN - Cars. Fender, Sam - Arm's Length. Warren, Alex - Ordinary. GEORGE EZRA - Blame It On Me. Crockett, Charley - Lonesome Drifter. MAMMÚT - Blóðberg. David, Damiano - Born With A Broken Heart. Steindór Snorrason - Siglingar um haf. Steindór Snorrason - Hamast eins og hetja. NOAH AND THE WHALE - L.I.F.E.G.O.E.S.O.N.. Doechii - Anxiety. Carpenter, Sabrina - Busy Woman. BLOSSI - Milli stjarnanna. GDRN - Vorið. Chappell Roan - The Giver. Moses Hightower - Lífsgleði. Utangarðsmenn - Hiroshima. Kaleo - Back Door. Pink Floyd - Money [short Version]. Frank Ocean - Pink + White. Brynja Rán - Bastard. TLC - No scrubs. Billie Eilish - Birds of a Feather. TEDDY SWIMS - Guilty. OYAMA - Silhouettes. JÓN JÓNSSON & UNA TORFA - Vertu hjá mér. HAIM - Relationships.

FM957
Brennslan - 18. mars 2025

FM957

Play Episode Listen Later Mar 18, 2025 64:11

Rikki G sem rektor Háskóla Íslands? Silja Bára í spjalli og Tómas Steindórsson útskýrir fjarveru sína úr stórafmæli Rikka G. Þetta og meira til í Brennslu dagsins.

mars steind silja b
Mannlegi þátturinn
Tölum um endó, ljóð í þágu friðar og Skáldasuð í Reykjanesbæ

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 6, 2025 53:53

Endósamtökin hafa farið af stað með vitundarvakningarátak undir yfirskriftinni - Þetta er allt í hausnum á þér - þar sem vakin er athygli á þeim hindrunum sem konur og fólk með endó, eða endómetríósu, lendir í heilbrigðiskerfinu og krefjast úrbóta. Næstkomandi þriðjudag verður heimildarmynd samtakanna, Tölum um ENDÓ - ekki bara slæmir túrverkir, sýnd á RÚV. Ásdís Elín Jónsdóttir, einn af viðmælendum í myndinni, kom í þáttinn og deildi sinni reynslusögu. 8. mars næstkomandi er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Af því tilefni munu konur í félagsskapnum Leikhúslistakonur 50+ standa fyrir viðburði í Fríkirkjunni í þágu friðar. Maraþonlestur á ljóðum um stríð og frið. Og þær segja sjálfar „Við erum mæður og ömmur sem höfum áhyggjur af stöðu heimsmálanna og framtíð afkomenda okkar og viljum vekja athygli á því sem skáldin hafa sagt um þetta efni.“ Skipulagið verður í líkingu við lestur Passíusálmanna á föstudeginum langa, ljóðalestur sem fléttaður er saman með fallegri tónlist. Leikkonurnar Ragnheiður Steindórsdóttir og Rósa Guðný Þórsdóttir sögðu okkur frá viðburðinum í þættinum í dag og lásu hvor um sig eitt ljóð í beinni útsendingu. Og talandi um ljóð, Skáldasuð er ný ljóða– og listahátíð sem haldin er nú í annað sinn, en hún fór fyrst fram í fyrra suður með sjó. Þessi litla listahátíð er hugarfóstur Gunnhildar Þórðardóttur myndlistarkonu, ljóðskálds og kennara. Ljóðin eru í aðalhlutverki á hátíðinni og verða til dæmis til flutt í Sundlaug Keflavíkur, það verða ljósaljóð í strætóskýlum bæjarins og hægt verður að fara í ljóðalabb, þ.e.a.s. hefur ljóðum verið komið fyrir á ýmsum gönguleiðum um bæinn. Við heyrðum í Gunnhildi í þættinum Tónlist í þættinum í dag: Eingetið ljóð / Bjartmar Guðlaugsson (Bjartmar Guðlaugsson) Lítið ljóð / Rebekka Blöndal (Ásgeir Ásgeirsson og Rebekka Blöndal, texti Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson) Ljóð um ástina / Sigrún Hjálmtýsdóttir og Spilverk Þjóðanna (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla) Svefnljóð / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Kjartansson, texti Kristján frá Djúpalæk) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Rauða borðið
Rauða borðið 6. mars - Fjármálastríð, Gaza, bakarí, friðarvaka, rektor, bókaspjall, sögur

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 6, 2025 337:23

Fimmtudagur 6. mars Fjármálastríð, Gaza, bakarí, friðarvaka, rektor, bókaspjall, sögur Guðrún Johnsen, hagfræðingur og deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst, ræðir við Oddnýju Eir um efnahagslegt ástand heimsins, afleiðingar Trömpismans og fjármálastríð heimsins. Sema Erla Serdarouglu, stjórnarformaður Solaris og Magnea Marinósdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur setjast til borðs með Maríu Lilju og ræða ástandið á Gaza nú þegar vopnahlé er í uppnámi. Þá ræða Maria Lilja og Sema sérstaklega og í fyrsta sinn, frægt kærumál sem hefur verið i gangi gegn þeim persónulega og Solaris. Sigurður Már Guðjónsson, bakara- og kökugerðarmeistari í Bernhöftsbakarí, segir Gunnari Smára frá vanda þeirra sem eru í smárekstri, skilningsleysi stjórnvalda og stjórnmálafólks. Ragnheiður Steindórsdóttir, Sólveig Hauksdóttir og Júlía Hannam tilheyra hópi Leikhúslistakvenna 50+ þær senda út ákall um frið með ljóðalestri og tónlist í fríkirkjunni á laugardaginn eftir Kvennagönguna og öllum er boðið. Gunnar Smári heldur áfram að ræða þau sem vilja verða rektor Háskóla Íslands. Röðin er komin að Birni Þorsteinssyni prófessor í heimspeki sem leggur áherslu á samfélagslegt hlutverk Háskólans. Kristín Helga Gunnarsdóttir kemur í bókaspjall með Vigdísi Grímsdóttur og fer yfir feril sinn, en hún er einn helsti og vinsælasti fjölskyldubókahöfundur Íslands. Sögur kvenna af erlendum uppruna á Íslandi er nýtt íslenskt ritverk sem kemur formlega út um helgina, á laugardag – á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Elinóra Guðmundsdóttir, ein af ritstjórum bókarinnar, ræðir verkið í samtali við Björn Þorláks.

Víðsjá
Bækur og brjáluð fræði, tónlistarpistill Jelenu Ciric og Stífluhringurinn

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 27, 2025 55:18

Þegar vísindasagnfræðingurinn og rithöfundurinn Steindór J Erlingsson hlustaði á nýja hljómplötu Inga Bjarna Skúlasonar fylltist hann skyndilega fítonskrafti og lagði í að lesa óhreyft ljóðahandrit sem hann hafði skrifað á myrkum tíma í lífi sínu. Steindór er meðal fjögurra fyrirlesara á málþingi undir yfirskriftinni Bækur og brjáluð fræði, sem fer fram í Norræna húsinu á laugardag. Gunnhildur Una Jónsdóttir, meistaranemi í fötlunarfræði er ein þeirra sem halda utan um málþingið, en hún vinnur að rannsóknum á sviði svokallaðra brjálaðra fræða, fræðasviðs sem er í mótun og fjallar um sögu, menningu, pólitík og baráttumál þeirra sem glíma við andlegar áskoranir. Við tökum á móti þeim Gunnhildi og Steindóri hér rétt á eftir og heyrum nánar af þessu nýja fræðasviði, málþinginu og skrifunum. Í lok þáttar fáum við líka innsýn inn í líf tveggja tónlistarkvenna sem áttu það sömuleiðis sameiginlegt að glíma við ytri og innri mótstöðu. Tilfinninganæmið gerði tónlistarkonurnar Mary Margaret O'Hara og Lauryn Hill berskjaldaðar fyrir hörku tónlistarbransans, sem mögulega varð til þess að tónlistarferill þeirra varð ekki langur. Í síðasta pistli sínum af fjórum fjallar Jelena Ciric um þær Hill og O´Hara, sem eiga það sameiginlegt að hafa aðeins gefið út eina plötu. Og um miðbik þáttar rifjum við upp umfjöllun um allt annars konar hljómplötu. Sú er glæný og tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna í ár. Halla Harðardóttir hitti tónskáldið Guðmund Stein Gunnarsson síðasta haust og ræddi við hann um geislaplötuna Stífluhringurinn, og við rifjum upp þá umfjöllun í þætti dagsins. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir og Halla Harðardóttir

90 mínútur
Handbolti, karfa og fótbolti með Tomma Steindórs

90 mínútur

Play Episode Listen Later Feb 25, 2025 47:13

Tómas Steindórsson er gestur Helga og Kela í þættinum.

Bylgjan
Sprengisandur 29.12.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Dec 29, 2024 96:30

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við HA um alþjóðamál. Jón Steindór Valdimarsson formaður Evrópuhreyfingarinnar og Hjörtur J. Guðmundsson stjórnmálafræðingur um stjórnmál og Evrópumál. Sigríður Andersen alþingismaður, Bryndís Haraldsdóttir alþingismaður, Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrrverandi alþingismaður og Helga Vala Helgadóttir lögmaður um stjórnmál og þjóðmál.

Steve Dagskrá
x Tommi Steindórs/part 5

Steve Dagskrá

Play Episode Listen Later Oct 1, 2024 68:53

x Tommi Steindórs/part 5 by Steve Dagskrá

90 mínútur
Íþróttavikan - Smass bræður

90 mínútur

Play Episode Listen Later Sep 26, 2024 64:45

Gunnar Birgisson og Tómas Steindórsson fara yfir víðan völl með Helga Fannari og Kela.

kela steind gunnar birgisson
Sterk saman
#114 Steindór ADHD pabbi

Sterk saman

Play Episode Listen Later Sep 1, 2024 87:55

Steindór sem er þekktur sem ADHD pabbi á stóra sögu en hefur snúið lífi sínu við og aðstoðar nú fólk sem markþjálfi meðal annars.

Bíó Tvíó
#253 Reykjavíkurævintýri Bakkabræðra

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later Jul 28, 2024

Í síðasta þætti Bíó Tvíó í bili ræða Andrea og Steindór mynd Ævars Kvaran frá 1951, Reykjavíkurævintýri Bakkabræðra.

Bíó Tvíó
#252 Blóðhefnd

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later Jun 26, 2024

Andrea og Steindór ræða mynd Ingós Ingólfssonar frá 2012, Blóðhefnd.

Bíó Tvíó
#251 Nýtt hlutverk

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later May 26, 2024

Andrea og Steindór ræða mynd Ævars Kvaran frá 1954, Nýtt hlutverk.

steind kvaran
Bíó Tvíó
#250 Days of Gray

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later Apr 28, 2024

Andrea og Steindór fjalla um mynd Ani Simon-Kennedy frá 2013, Days of Gray.

Valur - Hljóðvarp
SE06 - EP01 - Björgvin Páll og Tommi Steindórs

Valur - Hljóðvarp

Play Episode Listen Later Apr 10, 2024 49:47

Þá rúllum af stað með nýtt season af Vængjum þöndum enda ærinn ástæða til, þegar allt er að fara á fullt í félaginu okkar. Við tókum upp í hádeginu í spánýju Kók-stúdíói og hlökkum til að færa ykkur þáttinn reglulega næstu misseri og allskyns skemmtilegt framundan. Það stendur til að stækka teymið á bak við Vængjum þöndum sem mun skila sér í enn betri gæðum og fleiri þáttum. Við fórum að sjálfsögðu yfir Tvíhöfða kvöldsins í körfunni og handboltanum, hituðum upp fyrir úrslitakeppnirrnar og ræddum vel og lengi um upphafið á fótboltasumrinu sem hófst um síðustu helgi. Fínn pakki fyrir spennandi kvöld framundan. Á línunni var hinn eini sanni Björgvin Páll og Tómas Steindórsson, körfuboltasérfræðingur.

Bíó Tvíó
#249 Uglur

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later Mar 24, 2024

Andrea og Steindór fjalla um mynd Teits Magnússonar frá 2021, Uglur.

Vikulokin
Inga Sæland, Þórarinn Ingi Pétursson, Jón Steindór Valdimarsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Mar 23, 2024 57:47

Gestir Vikulokanna eru Inga Sæland formaður Flokks fólksins, Þórarinn Ingi Pétursson þingmaður Framsóknarflokks og Jón Steindór Valdimarsson varaþingmaður Viðreisnar. Þau ræddu breytingar á Búvörulögum, kaup Landsbankans á TM-tryggingum, stýrivexti og forsetaframboð. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason Tæknimaður á Akureyri: Ágúst Ólafsson

Víðsjá
Lífið er staður þar sem bannað er að lifa og Fjöruverðlaunin

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 7, 2024 52:44

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum það eru Flokkur fagurbókmennta, flokkur barna og unglinabókmennta og flokkur fræðibóka og rita almenns eðlis. Verðlaunahafar að þessu sinni voru: Í flokki barna- og unglingabókmennta: Íslensk myndlist og fólkið sem ruddi brautina eftir Margréti Tryggvadóttur. Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis: Með verkum handanna. Íslenskur refilsaumur fyrri alda eftir Elsu E. Guðjónsson og Lilja Árnadóttir bjó til prentunar. Í flokki fagurbókmennta: Móðurást: Oddný eftir Kristínu Ómarsdóttur. Við ræðum við Kristínu Ómarsdóttur um Móðurást: Oddný í þætti dagsins. Einnig náum við tali af Steindóri J. Erlingsyni um bókina Lífið er staður þar sem bannað er að lifa. Lífið er staður þar sem bannað er að lifa er bók um geðröskun og von eftir Steindór J. Erlingsson þar sem hann rekur þrjátiu ára leit að bata við þunglyndi og kvíða. Bata sem hann fann með sálfræðimeðferð í stað lyfja, en einnig með aðstoð bókmennta og annara lista. Steindór verður gestur okkar í þætti dagsins.

Bíó Tvíó

Andrea og Steindór fjalla um mynd Lárusar Ýmis Óskarssonar frá 1990, Ryð.

Dr. Football
Vikulok Dr. Football - Úrslitin ráðast í London og í Reykjavík

Dr. Football

Play Episode Listen Later Feb 22, 2024 70:57

Gunnar Birgisson og Tómas Steindórsson; Smassbræður mættu í Vikulok Dr. Football.

football reykjav steind london og gunnar birgisson
Víðsjá
Svipmynd af rithöfundi / Eva Björg Ægisdóttir og Lífið er staður þar sem bannað er að lifa.

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 14, 2024 52:17

Eva Björg Ægisdóttir hlaut á dögunum Blóðdropann, hin íslensku glæpasagnaverðlaun, fyrir bókina Heim fyrir myrkur Bókin er hennar sjötta glæpasaga á jafnmörgum árum, en Eva Björg kom fyrst fram á sjónarsviðið 2018 þegar hún sigraði í samkeppninni Svartfuglinn þar sem nýir höfundar geta sent inn handrit að glæpasögu. Sú bók, Marrið í stiganum, hlaut bresk glæpasagnaverðlaun og hefur verið þýdd á nokkur tungumál. Eva Björg er fædd og uppalin á Akranesi og kemur heimabærinn mikið við sögu í hennar skáldskap. Hún hefur fengist við skriftir frá ungaaldri en bjóst þó ekki við að verða rithöfundur. Hún lærði félagsfræði og afbrotafræði í Háskóla Íslands áður en hún gaf út sína fyrstu bók, enda alla tíð haft brennandi áhuga á fólki, aðstæðum þeirra og forsögu, sem oftar en ekki er kveikjan að hugmynd að glæp. Í þættinium rýnir Soffía Auður Birgisdóttir í bókina Lífið er staður þar sem bannað er að lifa, eftir Steindór Jóhann Erlingsson. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir

Bíó Tvíó
#247 Svar við bréfi Helgu

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later Jan 28, 2024

Andrea og Steindór fjalla um mynd Ásu Helgu Hjörleifsdóttur frá 2022, Svar við bréfi Helgu.

Samfélagið
Gervigreind í heilbrigðiskerfinu, hvalir í Hafnafjarðarhöfn, málfar og vísindaspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jan 24, 2024 59:07

Fjórða iðnbyltingin er hafin og gervigreindin er farin að létta undir með ýmsum starfsstéttum, taka að sér að greina gögn, flokka þau og jafnvel spá fyrir um framtíðina. Nýlega hafa fræðimenn rannsakað hvernig gervigreindin getur nýst til að styrkja starfsemi heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Niðurstöðurnar benda til þess að gervigreindin geti stórminnkað álag á heilbrigðisstarfsfólk, jafnvel dregið úr kulnun - en hvað um sjúklingana? Við ræðum þetta allt við Steindór Ellertsson, sérnámslækni og doktorsnema við HÍ, sem komið hefur að þessum rannsóknum ásamt fleirum. Hnúfubakur hefur gert sig heimakominn í Hafnarfjarðarhöfn undanfarið, mörgum til gleði og skemmtunar. Það hafa til dæmis birst ófá myndskeið og ljósmyndir á samfélagsmiðlum af hvalnum að busla í höfninni. Það sama gerðist í febrúar á síðasta ári og vakti mikla athygli. Við ætlum að rifja upp viðtal sem við tókum þá við Eddu Elísabetu Magnúsdóttur hvalasérfræðing á hafnarbakkanum. Málfarsmínúta. Edda Olgudóttir ræðir um mRNA. Tónlist: LAUFEY - Falling Behind. Una Torfadóttir - En.

Bíó Tvíó
#246 Abbababb!

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later Dec 24, 2023

Andrea og Steindór fjalla um mynd Nönnu Kristínar Magnúsdóttur frá 2022, Abbababb! Fleiri þættir eru í boði á Patreon síðu Bónus Tvíó: www.patreon.com/biotvio

Bíó Tvíó
#245 Á ferð með mömmu

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later Nov 26, 2023

Andrea og Steindór fjalla um mynd Hilmars Oddssonar frá 2022, Á ferð með mömmu. Fleiri þættir eru í boði á Patreon síðu Bónus Tvíó: www.patreon.com/biotvio

Bíó Tvíó
#244 Stormviðri

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later Nov 12, 2023

Andrea og Steindór fjalla um mynd Sólveigar Anspach frá 2003, Stormviðri. Fleiri þættir eru í boði á Patreon síðu Bónus Tvíó: www.patreon.com/biotvio

90 mínútur
Tommi Steindórs

90 mínútur

Play Episode Listen Later Oct 13, 2023 58:12

Gestur þáttarins er Tómas Steindórsson, útvarpsmaður og sportspekúlant. Umsjón hafa Helgi og Keli.

Bíó Tvíó
#243 And Björk of Course

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later Oct 1, 2023

Andrea og Steindór fjalla um mynd Lárusar Ýmis Óskarssonar og Benedikts Erlingssonar frá 2004, And Björk of Course. Fleiri þættir eru í boði á Patreon síðu Bónus Tvíó: www.patreon.com/biotvio

Lestin
Bíómyndin sem þú mátt ekki sjá, íslenskir tónlistarmenn í Berlín

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 26, 2023 55:00

Steindór Grétar Jónsson, útsendari Lestarinnar í Berlín, settist út kvöldblíðuna á svölunum hjá tónlistarmönnunum Haraldi Þrastarsyni og Gunnar Erni Tynes, sem er oft kenndur við múm. Þeir hafa unnið saman að tónlistarvinnslu og hljóðhönnun fyrir kvikmyndir og sjónvarp. Nú síðast þýsku glæpaþættina Tatort, sem eru gríðarlega vinsælir þar í landi. Hálf þjóðin sest fyrir framan sjónvarpið á sunnudagskvöldum og ræðir þá svo á kaffistofunni á mánudögum. Margrét Adamsdóttir, fréttakona RÚV, segir frá grænu landamærunum, landamærum Póllands og Belarús. Á dögunum var kvikmyndin Zielona Granica, Grænu landamærin, frumsýnd í Póllandi. Leikstjóri myndarinnar er Agniezka Holland, sem er þekkt fyrir pólitískar kvikmyndir. Stjórnvöld í Póllandi hafa harðlega gagnrýnt myndina og líkja henni við áróður nasista, og ganga svo langt að hvetja fólk til að sniðganga hana. Það styttist í þingkosningar í Póllandi, og landamærin eru eitt stóru málanna. Við höldum áfram að rifja upp Hrunið, nú þegar fimmtán ár eru komin frá því að Glitnir var þjóðnýttur, neyðarlög voru sett á og Geir H. Haarde bað Guð að blessa Ísland. Guðni Tómasson og Þorgerður E. Sigurðardóttir settu saman þáttinn Nokkrir dagar í frjálsu falli árið 2018 og í þættinum í dag ræða þau við íslenska námsmenn sem staddir voru erlendis þegar Hrunið varð. Þau Ynda Gestsson og Sigríði Gísladóttur.

Lestin
Bíómyndin sem þú mátt ekki sjá, íslenskir tónlistarmenn í Berlín

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 26, 2023

Kalt Stálbarn, Volruptus og Skeng, Ást Fedru

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 18, 2023

Þeir Bjargmundur Ingi Kjartansson, Volruptus, og Árni E. Guðmundsson, Skeng, eru í hópi íslenskra listamanna sem búsettir eru í Berlín. Báðir hafa þeir gert það gott á sviði raftónlistar. Steindór Grétar Jónsson kíkir í heimsókn í það sem kalla mætti félagsheimili íslenskra raftónlistarmanna í Berlín, eða íbúð Árna. Myndlistar- og tónlistarmaðurinn Karl Ställborn, sem einnig er söngvari rokksveitarinnar Skrattar, opnaði sýningu sína Kalt Stálbarn í Gallerí 1300° á Bergstaðastræti síðasta föstudag. Myndir Karls eru unnar með trélit á svartan pappír og þar mætast harka og mildi, rafmagn og fígúrur. Lestin leit við hjá honum þar sem hann var í óðaönn við að hengja upp verkin nokkrum tímum fyrir opnun. Við heyrum það hér á eftir. Katrín Guðbjartsdóttir skrifaði lokaritgerðina sína um ofbeldið í Ást Fedru, leikriti Söruh Kane frá árinu 1996. Verkið er í sýningu í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í leikstjórn Kolfinnu Nikulásdóttur. Við ræðum ofbeldið og sýninguna við Katrínu.

Lestin
Kalt Stálbarn, Volruptus og Skeng, Ást Fedru

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 18, 2023 55:00

Terminal X, McDonald's á Íslandi, Ásdís María

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 11, 2023 54:56

Við heimsækjum lítið sýningarrými sem stendur við Strandgötu í Hafnarfirði, Litla Gallerý. Þar taka á móti okkur Olivia Kwok, Borghildur Indriðadóttir og Freyja Eilíf en þær eru aðstandendur sýningarinnar Terminal X Tangibility and Waves - áþreifanleiki og bylgjur sem opnaði þann 7. september síðastliðinn. Anna Marsibil Clausen gerði fjögurra þátta seríu um sögu McDonalds, skyndibitakeðjunnar, hér á landi, árið 2019, þegar 10 ár voru liðin frá því að síðasti BicMacinn var framreiddur. Nú eru liðin 30 ár frá því að Davíð Oddson beit í fyrsta BicMacinn, við opnun staðarins í Skeifunni, og að því tilefni flytjum við seríuna Mc'Blessi Ísland á ný. Steindór Grétar Jónsson ræðir við tónlistarkonuna Ásdísi Maríu Viðarsdóttur sem hefur gert það gott í Þýskalandi og víðar upp á síðkastið. Þau ræða meðal annars starf lagahöfundarins en Ásdís María hefur samið fyrir nokkrar af þekktustu poppstjörnum í heimi.

Lestin
Terminal X, McDonald's á Íslandi, Ásdís María

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 11, 2023

Systur í bræðralaginu, Wayne Shorter og Blóðuga líf

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 5, 2023 55:00

Á dögunum leit bókin Sisters of the brotherhood: Alienation and Inclusion in Learning Philosophy, dagsins ljós hjá Springer forlaginu. Bókin fjallar um feminískar nálganir í heimspekikennslu en höfundur hennar, hin finnska Erika Ruonakoski, vann bókina meðal annars upp úr sumarskólum sem haldnir voru af samstarfsverkefninu Kyn og heimspeki. Elsa Haraldsdóttir, heimspekingur og verkefnastjóri verkefnisins segir frá bókinni og hugmyndunum sem þar koma fram. Heimildarmynd í þremur hlutum um bandaríska saxófónleikarann Wayne Shorter kom út á Amazon Prime á dögunum. Shorter lék meðal annars með seinni kvintett Miles Davis 63-68 og á tímamótaplötunni Bitches Brew frá 1970. En hann átti einnig farsælan sólóferil sem gerð eru skil í heimildaþáttunum Wayne Shorter: Zero Gravity. Shorter lék á Listahátíð í Reykjavík árið 2008 og í tilefni af því ræddi Guðni Tómasson við þá Óskar Guðjónsson og Jóel Pálsson í Víðsjá. Við rifjum upp spjall þeirra félaga. Við heyrum svo af sýningu the Gjörningaklúbbsins í Gallery Guðmundsdóttir í Berlín. Það er Steindór Grétar Jónsson sem mun gera íslensku listafólki í Berlín skil næstu vikurnar, svo fylgist með.

Lestin
Systur í bræðralaginu, Wayne Shorter og Blóðuga líf

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 5, 2023

x Tommi Steindórs // West Ham í meistaradeildarsæti og Gunni Birgis á línunni.

Steve Dagskrá

Play Episode Listen Later Aug 29, 2023 87:23

Bíó Tvíó
#242 Gilitrutt

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later Aug 27, 2023

Andrea og Steindór fjalla um mynd Ásgeirs Long og Jónasar Jónassonar frá 1957, Gilitrutt. Fleiri þættir eru í boði á Patreon síðu Bónus Tvíó: www.patreon.com/biotvio

Bíó Tvíó
#241 Milli fjalls og fjöru

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later Jul 30, 2023

Andrea og Steindór fjalla um mynd Lofts Guðmundssonar frá 1949, Milli fjalls og fjöru. Fleiri þættir eru í boði á Patreon síðu Bónus Tvíó: www.patreon.com/biotvio

Dr. Football
Helgaruppgjör Dr. Football - Í fótbolta eru engir vináttuleikir

Dr. Football

Play Episode Listen Later Jul 24, 2023 56:01

Tómas Steindórsson var gestur Dr. Football ásamt Kelanum okkar.

Bíó Tvíó
#240 Baráttan um börnin

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later Jun 25, 2023

Andrea og Steindór fjalla um mynd Canan Gerede frá 1999, Baráttan um börnin. Fleiri þættir eru í boði á Patreon síðu Bónus Tvíó: www.patreon.com/biotvio

Fotbolti.net
Enski boltinn - Úrslitastund með litla og stóra

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 9, 2023

Það var líf og fjör á skrifstofu Fótbolta.net í dag þar sem litla flugvélin Ingimar Helgi Finnsson og fagmaðurinn Tómas Steindórsson mættu í heimsókn til að fara yfir stöðuna. Þeir mynda teymið 'litli og stóri' en þeir eru með útvarpsþátt saman á X-inu 977 á föstudögum milli 9 og 12. Tómas er stuðningsmaður West Ham sem var að tryggja sér sigur í Sambandsdeildinni og Ingimar er stuðningsmaður Tottenham sem var að ráða nýjan stjóra, Ange Postecoglou. Í þættinum var farið yfir úrslitaleikjatörnina sem er í gangi núna; sigur West Ham, úrslitaleik FA-bikarsins og úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem er á morgun. Einnig var rætt um stjóraleit Tottenham og sitthvað fleira.

Bíó Tvíó
#239 Volaða land

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later May 28, 2023

Í síðasta þætti Bíó Tvíó í bili ræða Andrea og Steindór kvikmynd Hlyns Pálmasonar frá 2022, Volaða land. Fleiri þættir eru í boði á Patreon síðu Bónus Tvíó: www.patreon.com/biotvio

Bíó Tvíó
#238 Berdreymi

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later May 21, 2023

Andrea og Steindór ræða mynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar frá 2022, Berdreymi.

Bíó Tvíó
#237 Konunglegt bros

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later May 14, 2023

Andrea og Steindór ræða mynd Gunnars B. Guðmundssonar frá 2004, Konunglegt bros.

Bíó Tvíó
#236 Dómsdagur

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later May 7, 2023

Andrea og Steindór ræða mynd Egils Eðvarðssonar frá 1998, Dómsdagur.

Bíó Tvíó
#235 Gæsapartí

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later Apr 30, 2023

Andrea og Steindór ræða kvikmynd Böðvars Bjarka Péturssonar frá 2001, Gæsapartí

FM957
Brodies x Tommi Steindórs

FM957

Play Episode Listen Later Apr 26, 2023 93:43

Bíó Tvíó
#234 Svart og sykurlaust

Bíó Tvíó

Play Episode Listen Later Apr 23, 2023

Andrea og Steindór ræða mynd Lutz Konermann frá 1985, Svart og Sykurlaust.